Sögusýningin:
Gandhi, King, Ikeda.
Friður
fyrir komandi kynslóðir
Á Glerártorgi Akureyri
29.ágúst -14. september
Í tilefni Akureyrarvöku
Sögusýningin Gandhi – King – Ikeda : Friður
fyrir komandi kynslóðir er alþjóðleg
sýning sem leggur áherslur á mannleg gildi
og hetjulega baráttu þessara þriggja einstaklinga
fyrir betri heimi.
Tilgangur sýningarinnar er að efla vitund okkar á
þessum róstursömu tímum um að til séu
friðsamlegar leiðir til að leita lausna á ósætti
og óréttlæti og einnig til að vekja okkur
til umhugsunar um að ofbeldi sé aldrei réttlætanlegt.
Sýningin felur í sér boðskap friðar
og mannúðar sem á erindi til allra manna.
Sýningin verður opnuð á Glerártorgi
á Akureyri á Akureyrarvöku þann 29.ágúst
Hún er sett upp í tilefni af Heimsgöngu í
þágu friðar og tilveru án ofbeldis.
Sýningin er fyrst og fremst ætluð nemendum og kennurum
í framhaldsskólum og eldri bekkjum grunnskóla.
Markmiðið hennar er að vekja athygli nemanda á
mikilvægi þess að hafna öllu ofbeldi í
hvaða formi sem það birtist. Með fordæmi
sínu hafa þessir þrír einstaklingar sýnt
fram á hversu miklu er hægt að áorka með
friðsömum leiðum.
Kennarar geta komið með nemendur sína í vettvangsferð
á opnunartíma Glerártorgs og fengið verkefni
til að leysa á staðnum. Dregið verður úr
réttum lausnum og veitt verðlaun fyrir.
|