| Um
sýninguna
Sjálfbær
þróun á heimsvísu
Sáttmáli
jarðar og möguleikar manneskjunnar
Tilgangur
sýningarinnar og myndbandsins er að vekja fólk
til umhugsunar um mikilvægi sjálfbærrar þróunar
og umhverfisverndar.
Hún er byggð á hugmyndum Sáttmála
jarðar sem var saminn af nefnd skipaðri af Sameinuðu
þjóðunum.
Það var venjulegt fólk frá öllum
heimshornum og öllum stigum þjóðfélagsins
sem lagði sitt að mörkum til þess að semja
sáttmála sem byggir á þeim grundvallaratriðum
sem einstaklingar, fyrirtæki og þjóðir
þurfa að tileinka sér til þess að hægt
sé að skapa heim sem byggir á sjálfbærri
þróun, umhverfisvernd og félagslegu réttlæti.
Sýningin var upprunalega sýnd á Heimsfundinum
um sjálfbæra þróun í Jóhannesarborg
árið 2002 og var hún framlag UNDP, UNEP, Earth
Council, Earth Charter Initiative og SGI til þessa áratugar
sem Sameinuðu þjóðirnar hafa nefnt ,,áratug
menntunar fyrir sjálfbæra þróun."
Markmiðið með sýningunni er annars vegar að
kenna fólki, sérstaklega ungu fólki, hvað
það getur lagt að mörkum til þess að
skapa betri og umhverfisvænni heim og hins vegar að
fræða fólk um þá gríðarlegu
möguleika sem einstaklingar búa yfir til þess
að gera heiminn betri.
Sýningin samanstendur af veggspjöldum sem innihalda
fróðleik um sjálbæra þróun
og umhverfismál.
Sýningin
var þýdd og prentuð á íslensku
af samtökunum SGI á Íslandi og
Stendur hún til boða til uppsetningar fyrir skóla,
sveitarfélög, stofnanir og aðra sem láta
sig sjálfbæra þróun varða.
Myndbandið
Þögul bylting sem fylgir sýningunni hefur verið
textað á íslensku og geta skólar nálgast
eintak af því hjá Staðardagskrá
21. í sínu sveitarfélagi.
|