|
Þankatankur Herra Muzak
|
||
|
|
Tuesday, October 30, 2001
Ánægjulegt þegar fólk er sátt við lífið Mér þykir alltaf svo gaman að sjá þegar fólk er svo öruggt með eigið líf að það er ekkert að hafa áhyggjur af því þó aðrir séu líka ánægðir með sitt. ... ... ... ... ... ...nema tannlæknar, guð minn góður, hver fer í fokkinn tannlækninn??? Saturday, October 27, 2001
Fyrsta skrefið að heimsfrægð Jæja strumparnir mínir, ég ætla að slaka pínulítið á atgangi mínum að heimskum og illgjörnum íslenskum stjórnmálamönnum og bera ykkur gleðitíðindi. Ég hef stigið fyrsta skref mitt í áttina að heimsfrægð. Ég er búinn að gefa út lag... Hann Jón Ólafsson á jon.is tók við laginu mínu og setti það á vefinn sinn. Það heitir Happy Song og ætti að vera neðst á mp3 síðunni hjá Jóni. Ég mæli eindregið með síðunni hans Jóns og einnig mæli ég með brilljant þáttum sem hann er með í ríkissjónvarpinu, loksins fær maður að sjá almennilegt stöff á RÚVinu. En endilega kíkið á Jón.is og downloadið laginu mínu. Mér þætti vænt um að sem flestir fengju að heyra þessa smíði mína. Þó lagið sé skrýtið er það ekkert grín eða neitt svoleiðis. Bestu Kveðjur, Friday, October 26, 2001
Hin Fagra Framtíðarsýn Jæja, þá er það ákveðið. Hin rammíslensku pólítísku nátttröll ætla gersamlega að fórna öllum hagsmunum þjóðar, lands og náttúru fyrir nokkur álver. Það á að virkja allt sem hægt er að virkja, hverja sprænu, hvern læk, hvern foss og hvert fljót til að við getum orðið leiðandi þjóð í frumframleiðslu. Ísland, fremst meðal jafningja, fremst meðal Gambíu, Zaire og Mozambique. Við erum búin að þróa upp meðvitað hátæknisamfélag með frekar háu menntunarstigi og þökkum náttúru landsins með því að hlunka niður stíflum, stíflugörðum, uppistöðulónum og drulluspúandi álverum. Síðan afsaka hálfvitarnir sem við kjósum yfir okkur trekk í trekk gjörðir sínar þannig að allir sem séu á móti virkjunum og álverum séu á móti öllum framförum á Íslandi. Nú á að leggja í rúst ferðaþjónustu í kringum rafting í Skagafirði með því að eyðileggja eina flottustu jökulá Íslands. Síðan segja þessir vitleysingar að Íslenski hesturinn eigi að verða miðinn inn í framtíðina í Skagfiskri ferðaþjónustu. Ég hef séð hvernig hestastóðin fara með jörðina. Það er ekki fallegt. Hestastóð geta rústað heilu landsvæðunum á nokkrum mánuðum. Frábært, þetta fólk ber enga virðingu fyrir náttúrunni nema hún sé uppi í nefinu á þeim. Ég held að hugmynd Valgerðar Sverrisdóttur um náttúruspjöll sé þegar ég tek jarðýtu og rústa garðinum hennar og kannski húsinu líka. Ríkisstjórnin er alltaf að væla um að ríkisumsvif verði að minnka og ríkið verði að hætta að skipta sér af atvinnulífinu. Síðan grípa þeir fram fyrir hendurnar á fólki sem er að gera góða hluti og rústa möguleikum þeirra á áframhaldandi uppbyggingu í sínu starfi. Ég veit ekki hvað þetta fólk er að hugsa, en ég held að þeim gangi gott eitt til, þau eru bara 40 árum á eftir. Klassískt Íslenskt keis. Friday, October 19, 2001
Af hinu ómálefnalega pjásuprumpi URG! ![]() Ég var að horfa á alþingisumræður í gær og þar fór dramadrottningin Jóhanna Sigurðardóttir (sjá mynd) hamförum upp í pontu og röflaði yfir vandræðum lögreglunnar í Reykjavík. Persónulega er mér yfirleitt illa við JS og batnaði það ekkert sérstaklega við þetta útburðarvæl. En það sem á eftir kom var bara helmingi verra... Á eftir greyinu henni Jóhönnu, sem alltaf hljómar eins og svartidauði, stórabóla og móðuharðindi og heimsendir séu öll í einu að skella á okkar kalda og annars vonlausa landi, komu nefnilega þær stöllur svo-virðulegur-að-ég-vil-ekki-skíta-í-sama-klósett-og-þú dómsmálaráðherra Sólveig Pétursdóttir (sjá mynd) og hin sjúklega sjálfstæðis-íhalds-afsakið-á-meðan-ég-fæ-mér-sítt-að-aftan-réttsýnisvæludúkka Ásta Möller (sjá mynd). Afneituðu þessir boðberar réttlætis og hamingju öllum hugmyndum sem lutu að því að lögreglan þyrfti meiri monnípening en örguðu þeim mun meira um að R-listinn stæði fyrir massívum innflutningi djammliðs og dónakalla í miðbæinn. Jújú, R-listinn setti súlustaði, sóðabúllur og sukklið fremst í forgangsröðina í skipulagi borgarinnar og gerði hreinlega aðsúg að öllum heiðvirðum bisnissmönnum í miðbænum og fleygði þeim öfugum út af salúninum, "það er nebbnilega ekki pláss fyrir svona skítaplebba í vorum bæ". Það var einfaldlega efst á verkefnalista R-listans að útrýma allri dygð úr miðbæ Reykjavíkur og innleiða þar sukkið. Ég er viss um að ef sjálfstæðismenn væru í borgarstjórn væru allir þessir dónakallar bara heima hjá sér að rúnka sér yfir barnaklámi, óhultir fyrir barningi kvenréttindanorna og heiðursriddara allra flokka. Allt liðið sem leggur leið sína í miðbæinn til að djamma á kvöldin væri heima hjá sér í partýum eða að gleðjast á hverfispöbbinum sínum uppi í einhverju iðnaðarhverfinu í Grafarvogi, Breiðholti eða Árbænum. Hin heimsfræga íslenska ómenning gleðinnar væri þá galvaniseruð í góðum fíling í Grafarvogi og Garðabænum. Ef sjálfstæðisflokkurinn væri við stjórn í borginni hefðu þeir örugglega bara leyft öllum húsunum sem tæmdust þegar mennirnir sem ráku búðir í þeim fóru á hausinn í kjölfar Hringlunnar að halda áfram að vera tóm. Það væri bara frábært að hafa miðbæinn fullan af tómum fyrrverandi verslunum og tómum fyrrverandi bönkum og tómum fyrrverandi veitingahúsum. Þannig á þetta að vera, draumur D-manna er greinilega dauður miðbær og lifandi Grafarvogur. Þá geta þeir loksins lagt miðbæinn undir bílastæðahús og rotþrær. Í stað þess að ræða málin málefnalega lögðust tíkin og karlkonan niður í svað hins hefðbundna skotgrafarhernaðs. Þær létu hin klassísku skítaskot fljúga í R-listann (sem ég er eiginlega jafn pirraður út í og sjálfstæðisflokkinn) og gerðu öllum fullkomnlega til geðs í tilhneigingu sinni til að gerilsneyða mál sitt allri frjósemi og gáfulegheitum. Þessum konum er ekki stætt á þingi. Sama má segja um hana Jóku blessaða, hún ætti að halda sig í litla Þjóðvakanum sínum þar sem hún getur nöldrað og vælt eins og hana lystir og skemmir ekki fyrir almennilegum krötum með málefnalegan málflutning (eins og Guðrúnu Ögmunds og Jóhanni Ársæls). Þrátt fyrir að hún hafi staðið fyrir mörgu góðu virðist Jóhönnu gersamlega ófært að stíga í pontu án þess að öskra og æpa og rífa af sér alla reisn. Þessar pjásuprumpukellingar hljómuðu allar eins og Jón Gnarr í góðum gír sem stóra systirin í dúettinum Plató. "Sori og viðbjóður, sukkstaðir og súlubúllur, sóðasaur og dónakallar!!!" Upphrópunarmerkjapíkuprumpsvæl. Ekki einu sinni hið virðulega sorprit Séð og heyrt getur toppað þær í upphrópunarmerkjagírnum. úff... Monday, October 15, 2001
Svínapartý Landsfundur Sjálfstæðisflokksins vekur alltaf í mér blendnar tilfinningar. Það er alltaf sama viðkvæðið þegar ég tala við sjálfstæðismenn (sem margir eru ágætisfólk, því í 40.000 manna úrtaki hlýtur að vera einhvern góðan að finna), "sjálfstæðisflokkurinn rúmar svo breiðar skoðanir", "sjálfstæðisflokkurinn er flokkurinn þar sem málin eru rædd á landsfundi... Allir geta tjáð sig þar..." Wednesday, October 03, 2001
Ég er Sjálfstæðismaður Jújú... Þið heyrðuð rétt. Ég er sjálfstæðismaður, en á mér bara engan flokk... Flokkurinn sem segist hafa mín gildi er uppfullur af jakkafatahálfvitum í bláum skyrtum með strípur í hárinu og með algerlega skaðbrennda siðferðisvitund annars vegar og durgslegum og sverum hagsmunapoturum hins vegar. Svona karlar sem ákveða landsmálin í laxi með formönnum LÍÚ, stóru bankanna og Eimskipafjelagsins. Svo er það blessað fólkið sem kýs sjálfstæðisflokkinn... Flokkur sem hefur ekkert gert annað en að þjóna hagsmunum feitukatta þjóðfélagsins og hvers ráðsmenn ljúga og svíkja eins og minkar. Heldur virkilega (Rúmur!!!) þriðjungur Íslendinga að Sjálfstæðisflokknum sé ekki sama um allt nema það að rétt fyrirtæki hafi það gott? Það versta er að aðrir stjórnmálaflokkar á Íslandi hafa ekkert spes fram að færa heldur. Ég veit ekki... Íslensk pólítík líður fyrir það að allir þeir sem hafa eitthvað gott fram að færa eru annað hvort barðir niður af flokksforystu, hafa ekki áhuga á að starfa í svo óheilbrigðu starfsumhverfi sem pólítíkin er, eða einfaldlega eru álitnir furðufuglar. Ég býst til dæmis ekki við því að ég kæmist langt... ... Mér finnst líka alltaf svo brilljant þegar Sjálfstæðismenn tala um Davíð Oddsson eins og þjóðhetju og segja að hann hafi leitt þjóðina gegnum mesta hagvaxtarskeið Íslandssögunnar á meðan sömu sjálfstæðismenn tala Illa um Bill Clinton og segja það helbera tilviljun að hann hafi leitt bandarísku þjóðina í gegnum nákvæmlega sama "mesta hagvaxtarskeið sögunnar". (það má líka benda á að síðustu tíu ár hafa næstum allir þjóðarleiðtogar heims leitt þjóðir sínar í gegnum eitt stærsta hagvaxtarskeið sögunnar... Það er nú þannig... Áfram Davíð, þetta er víst allt honum að þakka...
Monday, October 01, 2001
Október loksins kominn Jæja, Október mættur á svæðið. LÍÚ búið að berja niður síðustu sjálfstæðu mennina á Íslandi með lágmarks mótmælum. Öllum var sama... Ef það skiptir mig ekki máli, þá nenni ég ekki að hafa skoðun á því. Þetta er ástæðan fyrir því að Ríkið mun alltaf geta níðst á þeim sem ekki hafa stjórn á miklum fjármunum eða eru í fjölmennri stétt. Svo lengi sem málefnið snertir okkur ekki beint, þá erum við ekkert sérstaklega heit fyrir því að berjast fyrir því. Þess vegna geta Talebanar komist upp með að myrða saklaust fólk í Afganistan, alveg þangað til einhver þeirra gengur örlítið of langt og snertir Vesturlönd. Þess vegna er hægt að koma upp kamerum alls staðar þar sem stóra bróður þóknast og nornin hún Sólveig Pétursdóttir getur bara logið upp í opið geðið á okkur um það að ekki sé verið að skerða nein mannréttindi. "Ef þú varst ekki að fremja neinn glæp, hefurðu ekkert til að hafa áhyggjur af..." Alveg eins og hún hefur logið að okkur hingað til með allan andskotann. Sjálfstæðisflokkurinn er fullur af ágætis fólki, pínulítið ferköntuðu fólki, pínulítið hrokafullu og hræsnisfullu fólki, en það meinar vel. Sólveig Pétursdóttir þráir örugglega fátt meira en að allir þessir aumingjans lágstéttamannræflar fái að njóta öryggis, þó að þau séu að eðlisfari lélegra fólk en hún og restin af góðgæðingunum sem snæðir á holtinu og horfir út um gluggann á manninn á hjólinu sem hjólar flautandi fram hjá og segja, "Æi, greyið hann. Hann veit ekki hvað hann er fátækur og ömurlegur." Lítil saga Mig langar að segja ykkur stutta sögu, svona dæmisögu eins og Ésú sagði alltaf hér forðum. Einu sinni var Land sem hét Ekónómía... Landið var sundurtætt af borgarastyrjöld sem geisað hafði í 100 ár á milli hins réttlátu og góðu konungsættar Kapitalis Ma og fylgismanna hennar annars vegar, og ómenntaðs og villimannslegs sveitalýðsins hins vegar. Kapitalis Ma ættin átti sér fjölda stuðningsmanna, heilar fjölskyldur riddara sem slógu skjaldborg um kónginn. Á meðal þessara riddaraætta voru tvær sem kallaðir voru reX-Daníel og guMBLarnir. Þessar ættir studdu hugsjónir konungsættarinnar um frjálsa verslun og mannréttindi, einstaklingsframtak og mátt frelsisins. Af krafti var barist og hugsjónir frelsisins varðar gegn ásókn hinna hræðilegu Bolsévíka og sósíalista sem kröfðust þess að allir yrðu jafnir, jafnvel þótt það þýddi að afburðamönnum yrði gert lífið þyngra til að bæta stöðu þeirra sem hallari fæti stóðu. Riddararnir reX-Davíð og GuMBLarnir vörðu konungsfjölskylduna af hörku gegn árásum ufsagrýla Kommúnismans og forðuðu landinu fjöldaoft frá þeirri glötun sem fylgir kommúnisma og gerræði. En á bak við þá var hið ótrúlega að gerast... Þegar þeir höfðu drepið síðasta rauðliðann, eitrað fyrir síðasta andófsmanninum og stungið síðustu ufsagrýlu kommúnismans á hol og brennt á báli sneru þeir til konungshallarinnar til að fagna með konunginum. Þegar þeir komu til hallarinnar knúðu þeir að dyrum, en það sem við þeim blasti lét heim þeirra hrynja... Riddararnir höfðu öll þessi ár verið svo uppteknir við að snúa bakinu í konunginn til að verja hann árásum, að þeir áttuðu sig ekki á því fyrr en langt var um liðið að sú fagra hugsjón sem þeir börðust fyrir og hin göfuga konungsfjölskylda var löngu horfin. Konungsfjölskyldan hafði nefnilega ekki getað stundað útvensl í margar kynslóðir og þess vegna voru viss merki innræktunar farin að merkjast á andlitum og sálum konunga, prinsa, drottninga, prinsessa, greifa og hertoga. Hinir björtu ljósberar Kapítalis Ma höfðu smám saman breyst í viðbjóðslegar afskræmingar af forfeðrum sínum. Allar hugsjónir konungsættarinnar um frelsi og mannúð höfðu breyst í ógeðslegt mannhatur og drottnunarþörf. Konungurinn var kroppinbakur, bæði á sál og líkama. Hann bauð þeim til veislu og tók þeim fangandi. "Heill ykkur, mínar kempur. Þið hafið tryggt mér völd, völd, ótakmörkuð völd yfir þessu yndislega landi. Drekkum nú saman og etum og verum glaðir." Felmtri slegnir þjónar báru inn föt með grilluðum börnum með eplum í munninum. Börnum kvenna úr hinum strjálbýlli og fátækari héröðum landsins. Börnin grilluðu voru krydduð með laufum síðustu trjáa skóganna miklu. Vínið var ekki bruggað úr þrúgum, heldur blóði hinna eignalitlu og fátæku, ríkt blóð bragðast einfaldlega ekki eins vel... Og nú stöndum við frammi fyrir spurningu aldarinnar... Munu kempurnar, rexX-Daníel og guMBLarnir halda áfram að berjast fyrir konunginn, eða munu þeir enduruppgötva hinn upprunalega málstað; frelsi, mannúð og einstaklingsframtak? |
![]() Mási Snillingur
Sjálfstæðismaðurinn Muzak Náttúruverndarsinninn Muzak Hryðjuverkamaðurinn Muzak Riddarasagan ógurlega... Kommúnistaávarp Hr. Muzak Bandaríkjaelskhuginn Muzak Grunnskólastrákurinn Muzak Dvergaklámhundurinn Muzak Reiði ungi maðurinn Muzak Ævintýri endurskoðandans Reiður ungur hugsjónamaður Sjómannssonurinn Muzak Um mikilvægi þjóðrækninnar Brjáluð Kanína Bjargvætturinn Emma |