Þankatankur Herra Muzak


Mr Muzak, I presume?



Herra Muzak
er í raun
Svavar Knútur
Kristinsson,

Blaðamaður,
Heimspekingur
og Músíker...




Senda Herra Muzak Póst?

 

 

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Thursday, November 29, 2001
 
Hinn lægsti samnefnari

<Með fyrirvara um galgopahátt...>
Áður en ég byrja, vil ég leggja áherslu á það að ég er ekki að ráðast á neinn með þessari stuttu grein...

Þegar ég heyri kunningja mína í "alternative" geiranum á íslenskum tónlistarbransa býsnast yfir vinsældum FM- og Bylgjumúsíkur og nöldra yfir því að hljómsveitir eins og Buttercup og Á móti sól njóti vinsælda, vitna ég oft í hann Snorra vin minn og kenningu hans um hinn lægsta samnefnara.
Kenning Snorra snýst í grundvallaratriðum um það að ef maður semur músík, þá getur maður valið það að gera hana flókna og þunga (hár samnefnari) eða einfalda og poppaða, (lágur samnefnari), þeim mun lægri og einfaldari sem samnefnarinn er, þeim mun breiðari verður áheyrendahópurinn og skiljanlegri tónlistin. Síðan leggjast menn ofan í: "Þú ert ofan á mér, ég er inni í þér..." skotgröfina og vinna sér inn hylli hinna grunnu í massavís. Þeim mun hærri sem samnefnarinn er, því færri skilja músíkina og nenna að hlusta á hana svo lengi að þeir skilji það sem á bak við liggur.

Þessi sama kenning má segja að eigi við um skrif.
Ég ætla ekki að fara að lækka standardinn á hugsun minni til að þóknast þeim sem ekki nenna að eyða tíma eða orku til að lesa hana hvort eð er... Ef fólk getur ekki filterað út grínið og kaldhæðnina í skrifum mínum, ætla ég ekki að fara að beibísitta það í gegnum greinina.
Ég nenni ekki að rífast um gildi heimspeki, ég veit að hún á fullan rétt á sér rétt eins og aðrar fræðigreinar og hún er ekkert aumingjafag, en mér finnst Bjarni, Már, Björgvin ,Ágúst og Árdís vera búin að svara því bara ágætlega og í raun engu sérstöku við þeirra röksemdir að bæta. Ég er búinn að réttlæta nám mitt fyrir fjölskyldu og vinum og ættingjum endalaust. Þetta er gömul tugga, og þið fyrirgefið mér að ég köttogpeista ekki réttlætinguna á netið í hvert sinn sem einhver sem heldur að hann sé að vera voðalega sniðugur skýtur á heimspekina.

<mikilvægt>Það sem ég vildi gera var að biðja fólk að hætta þessu rifrildi og dissi, og einbeita sér að einhverju uppbyggilegra. Ég vildi (í stað þess að fara í einhverja réttlætingarherferð) fá fólk til að skilja fáránleika rígsins, frekar en að svara spurningunum.</mikilvægt>

Niðurstaða mín er þessi: Ef einhver skilur ekki það sem ég les, skal hann hafa samband við mig, og ég skal þýða það á mannamál. Ég ætla ekki að lækka skrif mín niður á lægsta samnefnara.
</Með fyrirvara um galgopahátt>
Góðar stundir,
Gé-Töfri


 
Smá pæling um deilur undanfarinna dægra...

Kné... :)

Bestu Kveðjur,
Kafteinn Muzak

ps. ég mun auðvitað taka myndina undir eins niður ef einhver frá United Media hringir eða sendir tölvupóst... :)


 
Er það bara ég eða...

Ég var að heyra lagið úúúúú, úúú beibí, (úh ah) Æ vonna nóóóóóó iff júllbímæ görl í úmtánda skiptið.
Er það bara ég eða er þetta lag hreinlega djúpstætt vont?
Ég hef aldrei heyrt annað eins tað! Og þetta er hið archetýpíska fm/bylgju lag, sem btw er eina stöðin sem konur á vinnumarkaði á aldrinum 20-40 ára stilla á... Ég er umkringdur!!!
Ef ég heyri það einu sinni í viðbót ætla ég að æla yfir útvarpið sem er við hliðina á konunni á móti mér...
Henni finnst þetta lag líka hræðilegt, en allir takkar á útvarpinu eru bilaðir, svo eina leiðin til að slökkva á laginu er að klifra undir borð og kippa viðtækinu úr sambandi.
Ég ákvað að sleppa þeirri fyrirhöfn og hlusta því á diskana Dusk og Mind Bomb með The the á Repeat... En það stoppar ekki helvítis lagið, það kemur aftan að mér og stingur mig í bakið engu að síður... Ég mun klikkast og þá mun heimurinn gjalda, gjalda!!! MOUHOUHAHAHAHAHA!!!!

Bestu Kveðjur,
Herra Muzak...

p.s. hvernig gengur að þýða gátuna hér að neðan???


 
Upphrópanir...

Hafið þið velt fyrir ykkur hvað þrír til fjórir stafir saman, með yfirleitt n eða l í miðjunni plús upphrópunarmerki gera flottar upphrópanir eða furðumerki?
Dæmi:
Kné!!!
Hné!!!
Knö?!?
Hnu?!?
GNÖ!!!
HGNÖ!!!
Flö?!?
Hnö???
Hgni!!!
BLÖ?!?
FLÖH!!!
PLÖH!!!

Síðan borga ég þeim 1000 kall (eða býð í mat) sem getur ráðið leynisetninguna úr upphrópununum mínum, Logi þú mátt ekki vera með... :)

Kærleikur og ást...

Herra Muzak...

p.s. Að lokum vil ég láta fylgja lítið AF-ljóð... (svona rétt til að krumpa sléttustu skyrturnar þarna úti...)

Dauði Trúðurinn Tralli
nennir engu skralli,
hann keyrði fullur af balli
og flaug út um bílrúðu á traustvaxið tré...

Dauði trúðurinn Bósi
Fannst örendur úti í fjósi...
Það var skýrara dagsins ljósi
að hann hafði leikið á bóndans fé....

Dauði Trúðurinn Bóbó,
óverdósaði á sjósjó (sjóveikstöflum... fyrir ykkur sem aldrei hafa dýft tánni í undirheima 10. bekkjar...)
Hann reyndi að vera mófó
en af pillunum örendur niður hné...

Kné...


Wednesday, November 28, 2001
 
Hvaða djöfulsins stríð? Ég sé ekki neitt djöfulsins Stríð!!!

Æi, nú tóku allir því sem ég var að skrifa svo persónulega og illa að ég verð hreinlega að biðjast afsökunar.
ég skal meira að segja taka minnimáttarkenndina út úr fyrirsögninni, enda var það bara nokkurs konar kaldhæðni. Ókei?

Kudos til Bjarna fyrir snilldarlega grein um málið. Ég er samt ekki svo barnalegur að álykta að hver sem gagnrýnir eitthvað sé með minnimáttarkennd. Það var nú bara stuðari.

Mergurinn málsins er þó þessi:
Við "artfartar"(aldrei skilið þessa skilgreiningu. Ég á engin litrík föt og eiginlega engin "vísivitandi svört föt" heldur, enga che guevara boli og er óskaplega venjulegur í útliti)...
ókei...

Kannski ég byrji þetta öðruvísi...

Ég vil helst ekki líkja mér við stórmenni, en við Már erum í svipuðum sporum. Við höfum báðir reynslu og menntun af bæði hinu hugræna og hinu "vélræna/raunræna". Við erum báðir svolitlir tölvunördar og svolitlir artífartar. Ástæðan fyrir því að ég tek upp hanskann fyrir artífartana er sú að ég tel þá(okkur) ekki eiga eins marga málsvara á netinu og tölvunar/verkfræðingar.
Ég tek upp hanskann fyrir raungreinarnar á kaffihúsum og í "vitrænum umræðum" artífartanna, því þar eiga tölvunar/verk/raunwhatchamacallits ekki marga málsvara heldur. Ég tilheyri semsagt þessum tveimur hópum til jafns og tala því beggja tungumál. (Már, vissir þú að við erum með nákvæmlega sömu pælingu um þetta?)

Það var alveg rétt hjá að ég er ekki að fara út í einhverja deilu um þetta... Ég er ekki einu sinni að reyna að skýra hug/raun ríginn, hann er í eðli sínu barnalegur og eldist í 90% tilfella af fólki. Ég er ekki að reyna að verja eitt eða neitt. Ég er bara að gera grín að þessu kjánatali og ergelsi.

Ástæðan er einföld.
Fólk sem stundar hugvísindanám er endalaust beðið um að réttlæta nám sitt, lítið er gert úr þeirra stúdíum og fólk segir einmitt þetta: "Hva? geturðu ekki bara lesið þessar bækur heima og lært eitthvað alvöru nám?" "Þetta eru ekki alvöru vísindi! hnmö hnmö hnmö!"
Þeir sem stunda hin hörðu vísindi eru aldrei beðnir um að réttlæta sitt nám, sína heimssýn eða sína köllun. Þetta er einfalt, þeirra bíður vegsemd og virðing og góður monnípeningur.

Ég vil ekki þurfa að réttlæta tilveru mína. Ég vil ekki þurfa að biðja þröngsýnt fólk afsökunar á því að vera "afæta á samfélaginu" í þeirra augum. Grein mín var einungis skrifuð til að illustrera fáránleika þessara alltaf-jafn-heimskulegu spurninga og í raun var hennar eini tilgangur að grátbiðja heiminn um að ræða eitthvað annað og merkilegra málefni.

Við "Artífartarnir" fáum nebbnilega nóg af þessu heima...

Góðar stundir
Herra Muzak

ps. Katrín og Geir, ég les oft síðurnar ykkar og hef gaman að. :) Hins vegar eruð þið full snögg að dæma bæði fólk og hugmyndir. Ég ráðlegg ykkur að anda tíu sinnum og hugsa: "Svavar er ágætis gaur, hann er líka manneskja eins og við" áður en þið skrifið um þetta "Svar" mitt, ef þið lítið á þetta sem svar. Og í guðanna bænum lesið alla greinina... Það er fátt meira óþolandi en að þurfa að skýra sama hlutinn tvisvar fyrir fólki.

p.p.s. Í guðanna bænum ekki halda að ég sé reiður eða að blása gufu í hvert skipti sem ég skrifa eitthvað án þess að það séu fokkíng broskallar út um allt!!! :) AAAARGGHH!!! Kannski er ég bara svona djöfulli orðljótur... ég meina Come on!!!

p.p.s. Gleymdi einu. Geir og Katrín, fyrst þið eruð svona gáttuð á orðinu Xenophobic, þá lærði ég það ekki í neinni bók eða neitt svoleiðis, heldur við að spila Civilization. (whoa!)


Tuesday, November 27, 2001
 
Þreytandi Röfl

Ég er farinn að halda að margir íslenskir tæknistúdentar eigi einhver óleyst vandamál í hjarta sínu.
Jújú, ég er heimspekingur, tók heimspeki í háskólanum af því að mig langaði að ydda hausinn minn, síðan tók ég annað nám til að ná mér í smá aukaþekkingu.
Undanfarið hef ég lesið fjölda pistla frá misupplýstu fólki sem hljóma flestir eitthvað á þessa leið: "En það er ekki hægt að læra gagnrýna hugsun, hmö hmö hmö hmö!!! Ég get alveg lesið þessar bækur sjálfur, hmö hmö hmö hmö!!! Hvað gerir þig að heimspekingi??? Hmö hmö hmö hmö???? Ég er sko verk/tölvunar/tækniwhatchamacallitfræðingur og ég get alveg lært heimspeki með því að lesa bækur, hmö hmö hmö hmö!!!"
Til að skoða betur fáránleika þessara fullyrðinga hef ég ákveðið að orða þær öfugt: Hvað gerir Herra G. að verkfræðingi frekar en mig ? Ég kann að vinna... Ég kann að lesa, ég gæti lesið þessar bækur sjálfur. Hvað gerir Fröken K. að tölvufræðingi frekar en mig? Ég kann á tölvur... Ég kann að lesa, ég gæti lesið þessar bækur sjálfur.
Ég held að þessar fullyrðingar stemmi pínulítið út frá minnimáttarkennd viðkomandi og tortryggni í garð þess sem er framandi (ekki ósvipað kynþáttafordómum eða xenófóbíu (Fjarfælni?) ). Við þetta fólk vil ég segja: Þetta er allt í lagi. Við erum ekki óvinir ykkar, og við getum öll lifað í sátt og samlyndi. Sko, við Kári erum vinir, hann er stærðfræðingur og ég heimspekingur og mannfræðingur.
Það eru ekki bækurnar sem gera okkur fróð, það er ekki kennslan sem gerir okkur að fræðimönnum, það er sú athöfn að tileinka tíma sinn og einbeitingu að einu efni. Skólinn er hluti af því ferli, hann er ekki ferlið sjálft, hins vegar er skólinn reynd fræði og því hægt að gefa út prófskírteini þess efnis að viðkomandi hafi gengið í gegnum ferli sem á að prófa hversu vel viðkomandi hefur tileinkað sér þekkingu og fræði.
Ennfremur vil ég lýsa frati á allar hugmyndir um einsleiti okkar hugvísindafólks. Við erum eins misjöfn og við erum mörg, og þó við kunnum ekki öll að hanna undirstöður og pissa upp í vindinn og láta tölvur pípa og reikna fyrir okkur erum við hvorki betri né verri en aðrir.
Ég vil því hvetja fólk til að hætta þessu barnalega hjali um það að þessi eða hin fræðigrein sé óæðri eða betri en aðrar og taka upp málefnalegri og fallegri umræðu. Þá verður heimurinn betri staður...

...

...

Nema Tannlæknar!!! Tannlæknar eru frá kölska komnir... Ég meina það, hver fer í fokking tannlækninn???

Bestu Kveðjur,
Ykkar vinur
Herra Muzak

ps. Að lokum vil ég minna ykkur á að afgangan 2001 verður gengin 1. des. kl. 15:00 frá Hallgrímshofi.
Allir að mæta, það verður grúví fílíng og allir í stuði.


Sunday, November 25, 2001
 
Tæp vika í Hina Almennu Kröfugöngu!

Kæru félagar,
nú fer að líða að viðburði ársins, og þá er ég ekki að tala um jólin.
Hin almenna kröfuganga félags áhugamanna um kröfugöngur nálgast óðfluga.
Gangan hefur vaxið hraðar en internetið og var í fyrra haldin í fjórum löndum.
Ef þið hafið áhuga, mætið þið með ykkar eigin skilti við styttuna af Leifi Lukkulega við Hallgrímshofið klukkan 15:00 næsta laugardag, 1. des. Fyrir ykkur sem ekki eigið eigin mótmælaspjöld verður örskiltum dreift á staðnum, hægt er að velja sér skilti við hæfi.
Hin almenna kröfuganga heitir nú afganGA2001 og er tileinkuð afgöngum heimsins.
Slóðin er: this.is/gangan
Bestu kveðjur krakkarnir mínir,
ykkar vinur,
Herra Muzak

Tuesday, November 20, 2001
 
Þreytt skítkast

Egill Heglason er ótrúlega snjall penni.
Hann náði að orða hugsun mína undanfarna daga varðandi viðbrögð sjálfstæðismanna við fundi samfylkingarinnar fullkomnlega.
Í pistli sínum á strik.is sagði hann m.a.:

"Frá upphafi hefur það verið aðferð Sjálfstæðisflokksins að tala niður til Samfylkingarinnar, líkt og Davíð Oddsson gerði í setningarræðu landsfundarins í haust. Þá fannst mörgum furðulegt hvað hann eyddi miklum tíma í Össur. Kannski er eitthvað hæft í því að það sé vel ígrunduð strategía hjá sjálfstæðismönnum - ættuð beint innan úr Valhöll - að reyna að viðhalda glundoðanum á vinstri vængnum með því hamra stöðugt á því hvað Samfylkingin sé vonlaus en láta Vinstri græna að mestu afskiptalausa og hrósa þeim jafnvel stundum fyrir baráttugleðina og staðfestuna? Þetta er kunnugleg aðferð þess sem deilir og drottnar, kannski vænleg til árangurs um einhverja hríð, en þegar líður á virkar hún lítilsvirðandi, tuggukennd og fremur til tjóns fyrir skynsamlega stjórnmálaumræðu..."

Þetta er ótrúlega rétt hjá kallinum. Ég hef hingað til velkst í vafa um samfylkinguna sem flokk, en nú er ég kominn á fremsta hlunn með að styðja hana bara til að gera uppreisn gegn kjaftæðinu í Sjöllunum. How sad is that?
Orðræða sjálfstæðismanna undanfarin misseri hefur nær algerlega snúist um niðurtal og ómálefnalegar hnýtingar og persónuárásir á Samfylkinguna. Ég held að þeir ættu að sjá sóma sinn í því að leyfa samfylkingunni að standa sjálfri í smá stund án látlausrar hrinu illkvittinna nöldurskota. Hvernig á Stjórnmálaflokkur að geta starfað heilsteypt ef hann fær aldrei frið í fjölmiðlum til að gera nokkurn skapaðan innri hlut og þá er komið strax í blöð og vefmiðla um hversu ósannfærandi þessi var eða hversu hallærisleg þessu hugmynd var o.s.frv. Þetta sífellda nag sjálfstæðisflokksins mun koma í bakið á honum. Til dæmis núna. Ég mun örugglega kjósa Samfylkinguna í næstu kosningum, einungis sem pólítískt refsistig gagnvart sjálfstæðisflokknum.
Össur er fínn kall, þó hann líti stundum skringilega út. Ég ætla bara að gefa honum séns. (og öllum rugludöllunum vinum hans).
Ef pólítík væri körfuboltaleikur væri sjálfstæðisflokkurinn tuddaliðið með yfirganginn af því að þeir eru eldri og stærri og frekari en allir hinir.

Bestu Kveðjur,
Gé-Töfri


Tuesday, November 13, 2001
 
Alda Misskilninga!!!

Við Pálína eigum ekki von á barni...
Ég var bara að djóka með póstinn hans Bjarna um að getnaðarvarnarpillu SMSvélin hans hefði klikkað.

ókei?

Ég var bara að djóka...

false alarm...

Svavar er ekki ófrískur...

Bestu kveðjur,
Svabbi


Monday, November 12, 2001
 
Ég er ófrískur

Já, krakkar, það er satt
ég er ófrískur, á von á barni...

OG ÞAÐ ER ALLT BJARNA AÐ KENNA!!!! : - )


 
og Már kominn á fætur... Thank god!!!

 
I DIDN'T DO IT!!!

Bjarni lokaði umræðunni á síðunni sinni í dag í kjölfar óæskilegrar þróunar umræðna.
Hins vegar lítur alveg hrikalega út eins og ég hafi sagt eitthvað og umræðunni lokað í kjölfar þess.
Það sem ég skrifaði lítur svona út:

"Ég furða mig stundum á því þegar menn sem hafa jafn litla trú á gáfum mannkyns (kerfisstjórar og aðrar dilbertvæddar manneskjur sem vinna í því að þjónusta fólk sem er fífl) hafa svona mikla trú á að öll þessi hrúga af treggáfuðum einstaklingum eigi bara eftir að pluma sig fínt... : - )"

Þetta var svona vísun í dilbertsheiminn og þá staðreynd að við tölvunördar höfum óskaplega litla trú á gáfum fólks. Hrúgan af treggáfuðum einstaklingum eru þannig íbúar heimsins sem dæmdir eru til að kæfa sjálfa sig í eigin skít og fáfræði.
Orðunum var alls ekki, N.B., beint að neinum í umræðunni, heldur að fólki (sem er fífl) almennt.
Nú gætu menn haldið að ég sé bara að afsaka eitthvað, en skoðið málsgreinina betur og þið komist að því að þetta getur ekki verið annað en pæling um mannlegt eðli og sjálfsmynd tölvunörda (eins og mín).
Ég held því fram að þessi orð mín hafi eingöngu verið til að setja kómískt kirsuber á annars mjög skemmtilega umræðu.

Bestu Kveðjur
Herra Muzak


 
Er Már lasinn?

Mér er hætt að verða um sel.
Már hefur ekki skrifað inn á síðuna sína í þrjá-fjóra daga...
Sjitt!!!
Már, hvar ertu!!!
Er allt í lagi?!?
Ég sakna þess að lesa pælingarnar þínar.
Þinn vinur
Svabbi

 
Æji... alltaf sami mótormunnurinn...

Ég lenti aftur í því að mala og mala inn á vefinn hans Bjarna...
Mér líður alltaf svolítið illa þegar ég blaðra svona inni á annarra manna vefsvæðum... Þannig að hér kemur blaðrið mitt umskrifað fyrir ykkur hin... :-)
Engu að síður föllum við æ ofan í æ ofan í sömu rökvillu susaranna.
Þegar ég tala um að fólki líði verr er ég ekki endilega að tala um fólk á Íslandi, heldur til dæmis á Indlandi.
Ef þið lesið t.d. greinar eftir Indverska Mannfræðinginn Vandana Shiva komist þið að því að því að innleiðing "Grænu byltingarinnar" og eignaréttarins inn í bændasamfélög Indlands leiddi hörmungar yfir almenning á þessum svæðum.
Rótgróin viðmið stéttaskiptingarinnar styrktust enn frekar í sessi þegar hinir efnamiklu fengu loksins átyllu til að svipta fólkið þeim takmörkuðu gæðum sem þau höfðu áður lifað við.
Áður en Vesturlönd fóru að styrkja stórbændur til að sölsa undir sig land voru svokallaðir almenningar eða sameignarlönd mjög víðfeðm á Indlandi og gátu íbúar þorpanna lifað mjög vel af því að nýta þessi sameignarlönd (commons). Þegar einkaeignarkonseptinu var troðið upp á fólkið var almenningum breytt í einkaeignarlönd og enginn gat keypt þau nema stórbændurnir.
Þannig versnaði nýting svæðanna mjög mikið og einnig minnkaði það svæði sem fólkið í þorpunum hafði til afnota og afkomu.
Fólkið í Indlandi hafði það afar gott þar til vestrænum auðvaldsgildum var smyglað inn í samfélag þar sem þau áttu ekki heima.
Hvar sem við komum í heiminum, utan verndaðs umhverfis vesturlandanna, getum við séð dæmi þess hvernig stefna vesturlanda hefur gert almenning landanna að þrælum og vesalingum, bændur að landlausum verkamönnum, og stórbændur að kóngum.
Það sem ég er að benda á er að gildi þessa fólks um hvað er hið góða líf eru allt öðruvísi og ekki alltaf samrýmanleg okkar eigin. Þetta fólk lifði í einföldum landbúnaðarsamfélögum þar sem fólk hafði yfirleitt nóg til hnífs og skeiðar og stöku ófriðartímar gerðu engan gífurlegan óskunda. Nú, þökk sé nútímavæddri markaðshugsun á frumstæðum svæðum getur þetta fólk hvorki ráðið lífi sínu sjálft né gengið frjálst um landið sem áður var þeirra eigin. Stríð þýða jarðsprengjur og skriðdreka og eitruð vatnsból.
Í bókinni Death without weeping segir mannfræðinginn Nancy Scheper-Hughes frá því hvernig fulltrúar vestrænnar matvælasamsteypu koma í fátækrahverfi Brasilískra borga (og fleiri borga í þriðja heiminum) í hvítum sloppum, og segja konum þar að brjóstamjólk sé óholl fyrir börnin og valdi sjúkdómum. Síðan gefa þeir mæðrunum ókeypis tveggja vikna skammt af þurrmjólk (sem er b.t.w. akkurat nóg til að brjóstin hætti að mjólka.)
Síðan snýst allt líf fólksins um að redda peningum til að kaupa meiri þurrmjólk. Oftast tekst þetta ekki og börnin deyja, ungbarnadauði í þessum hverfum er ótrúlega hár.
Allir fjármunir fólksins í hverfunum fara í að kaupa þurrmjólk af fólkinu í hvítu sloppunum á "heilsumiðstöðvunum". Engir fjármunir fara í uppbyggingu. Þarna höfum við kjarnadæmi um vestrænt fyrirtæki sem hreinlega sýgur blóðið úr fátækasta fólki heims.
Þetta er ekki þjóðsaga, lesið ykkur til innan mannfræðinnar.
Tveir góðir höfundar: Nancy Scheper-Hughes og Vandana Shiva.

NOTA BENE: Ég er ekki and-vestrænn eða öfgamaður, ég vil bara að fólk taki kapítalismanum ekki sem hinu eina svari. Einsamall er kapítalisminn alveg jafn eitraður og kommúnisminn vondi. Báðar stefnur enda, í samræmi við mannlegt eðli, í elíturæði og einokun.
NOTE MULTI BENE: Ég tel að það eigi að stækka kökuna og ég held að flestir félagshyggjumenn vilji líka stækka kökuna. En það er bara ekki sama hvernig hún er stækkuð. Til dæmis er rangt að stækka hana með því að stela deigi frá öðrum. Kakan verður að stækka með jákvæðum hætti, siðferðislögmál verða að ríkja yfir kapítalismanum.
Góðar stundir,

Herra Muzak


Sunday, November 11, 2001
 
Ég er EKKI Kommúnisti

Enn og aftur renna menn á sama bananahýði rökfræðinnar...
Ef maður gagnrýnir kapítalismann hlýtur maður að vera kommúnisti, eða að minnsta kosti ungur Sósíalisti.
Ég er ekki kommúnisti þó mig langi til að auði og tækifærum sé jafnar skipt.
Ég er ekki sósíalisti þó að ég taki eftir vandamálum í heiminum.
Frekar lít ég á sjálfan mig sem frjálslyndan sósíaldemókrata og kýs að lifa eftir því.
Ég benti í gær á þá rökvillu harðkjarnakapítalista að telja okkur trú um að allir séu að borða sömu köku, og tel mig ekki hafa klárað þá rökræðu.
Ég lít svo á að fólk verði fátækara þegar lífskjör þeirra, möguleikar til atvinnu, hamingju eða lífsgæða eru skert. Lífsgæði og Hamingja eru einstaklingsbundin fyrirbæri, þau skilgreinast af hverjum manni fyrir sig. Þegar lífskjör og hamingja fólks eru skert tel ég að sneið þeirra minnki. Þegar næringarneysla fólks er skert tel ég að þeirra sneið sé minnkuð.
Indíánar í Brasilíu höfðu fyrir 50 árum nóg til hnífs og skeiðar með aldagömlum lifnaðarháttum. Nú eru þeir neyddir til að vinna sem farandverkamenn og éta hrísgrjón í öll mál. Hitaeiningarnar hafa haldist í stað en hörgulsjúkdómar hafa einnig færst í aukana. Vitaskuld er auðveldara að mæla "hamingju" þeirra í krónum núna, en kannski vildi þetta fólk aldrei fá krónur, kannski vildi það bara borða dýrin og plönturnar í skóginum.
Fjöldi fólks í þriðja heiminum líður skort vegna innleiðingar vestrænna lífshátta í lönd þeirra, lífshátta sem einungis örfáir elítumenn geta leyft sér og þá einungis með því að kúga þetta fólk sem annars hafði það gott áður. Í stað þess að fólkið geti lifað mannsæmandi lífi í frumkommúnísku (ekki kommúnisma sem pólítískt hugtak, heldur mannfræðilegt) skipulagi er því troðið inn í hugsunarhátt vesturlandabúa og látið neyta hluta sem það þarf ekki og vinna vinnu sem það vill ekki vinna.

Áhugasömum bendi ég á bókina vistfræði fyrir byrjendur (ecology for beginners) sem, þrátt fyrir að vera barn síns tíma og rosalega sósíalísk, hefur marga góða gagnrýnispunkta á hin vestrænu viðmið.

Verið ekki svona miklar mann/vestur-rembur.
Hugsið örlítið meira glóbalt.
Ekki sparka í þá sem minna mega sín.

Með kærri ég-er-ekki-kommúnista-kveðju,
Herra Muzak


Saturday, November 10, 2001
 
Gamla góða kapítalistarökvillan

Dagbókin hans Bjarna er gjarnan vettvangur líflegra skoðanaskipta og rökræðna.
Mér þykir mikið varið í vitsmunalegt stig þeirra sem þar láta hugarfóstur sín blómstra.
Viss umræða hefur kviknað þar síðustu daga í kjölfar pælinga um umhverfismál. Ég var hálfnaður með einhverja voðalega romsu inn á umræðuna þegar ég fattaði að hún átti heima í minni eigin dagbók... tíhí..
Nebbnilega...
Ég hef aldrei þolað gamla jarmið út úr ofurfrjálshyggjugemlingunum um það að leiðin til að bæta lífskjörin sé að stækka kökuna, því þá fái allir meira.
Auðvitað er þetta rétt... Það dregur enginn í efa að kakan okkar hefur stækkað gríðarlega síðustu 100 árin.
En stærstur hluti þessarar stækkunar kökunnar okkar vesturlandabúa kemur úr annarra manna köku!!!
Málið er auðvitað að stærstur hluti bættra lífskjara okkar kemur frá arðráni á fátækari þjóðum.
Og síðan þegar aðilinn sem verið er að nauðga og kæfa á sama tíma leyfir sér að sprikla, eða sparkar í hneturnar á nauðgaranum er það kallað hryðjuverk og þjóðir heims "sameinast um að eyða þessum vonda óvini". Þá bombum við fátækt og stríðshrjáð land og nota bene eina fokkíng landið í heiminum sem hefur ekki efni á svona hryðjuverkum.
Nóg um það...
Hann Hannes Gissurarson lætur sífellt hljóma hina rispuðu plötu: "Ég get sofið þó aðrir græði...". Ég andmæli því ekki, mér gæti ekki verið meira sama þó helvítið hann Kristján Ragnarsson græddi einn milljarð í viðbót fyrir jólagjafir samflokksmanna sinna. Hins vegar get ég ekki sofið þegar við græðum á því að eyðileggja lífsmöguleika og lífshætti annarra, fólks sem á heima á öðrum stöðum heims, eða annars staðar á landinu.
Margt fólk sem ég þekki, býr á Vestfjörðum og hefur sótt sjóinn á eigin smábátum í fjölda ára. Sjálf tengdamamma mín er til dæmis útgerðarmaður, gerir út lítinn línubát við annan mann. Líka Tengdapabbi. Nú, þökk sé "stækkun kökunnar" eru smábátasjómenn á Vestfjörðum að missa lífsviðurværi sitt í kjölfar kvótasetningarlaganna. Þetta hefur um leið hræðileg áhrif á atvinnumöguleika og líf fólksins sem vill (trúið því eða ekki) búa í litlu sjávarplássunum.
Jújú, það er verið að vinna að því að stækka kökuna (eða stækka hana fyrir suma.) Það eru nefnilega nokkrar kökur í gangi, og öfl fjármagnsins eru ansi liðug við það að láta líta svo út sem stækkunin á kökunni hafi öll verið gripin úr lausu lofti. Hins vegar er sannleikurinn annar. Stækkandi kaka okkar þýðir nebbnilega að fólk er flutt nauðungarflutningum af heimilum sínum eða svipt atvinnumöguleikum annars staðar í heiminum.
Fræðilega getum við stækkað kökuna ansi mikið án þess að éta annarra köku, en fræðilega virkar líka kommúnismi og fræðilega væri hægt að lækna alla sjúkdóma sem mannkyn þjáist af, og fræðilega væri hægt að gera okkur öll eilíf.
Málið er að við verðum að gæta bakarans. Við getum ekki treyst stórfyrirtækjum og stjórnvöldum í blindni fyrir því að níðast ekki á rétti annarra um leið og þeir útvega okkur meiri lífsgæði og uppfylla tilbúna eftirspurn okkar.
Hinn hræðilegi sannleikur...
Þurfum við virkilega allan þennan hraða hagvöxt? Þurfum við virkilega að byggja Hilton Hótel beint ofan á þorpi frumbyggja í Nýju Gíneu.
Vandamálið er ekki að ég sé fátækari en Kristján Ragnars, vandamálið er að við erum öll að verða ríkari á kostnað þrælabarna á Indlandi, mæðra í Brasilíu, frumbyggja í Suð-Austur-Asíu og fátækra bænda og farandverkamanna um allan heim.
Fólkið í "þriðja heiminum" hafði það ekki slæmt á meðan það réði yfir eigin lífum, landi og lífsháttum. Lífshættir þeirra samrýmdust hins vegar ekki vestrænum hagfræðimódelum og því var fólkinu troðið inn í lífsmynstur sem það vildi aldrei til að byrja með.

Ég sef ekki illa vegna þess að einhver hefur það betra en ég. Ég hef það fínt...
Ég sef illa vegna þess að ég er að verða ríkur á kostnað annarra. Það er málið

Rökvilla Kapítalistanna felst í því að telja okkur trú um að við séum ein í heiminum.

Bestu Kommúnistakveðjur félagar,
Gé Töfri


Wednesday, November 07, 2001
 
Allt er gott sem endar...

Ahh...
Hann Bjarni er öðlingur... Skrifaði mér fallegt bréf og gladdi mitt litla hjarta ósegjanlega...
Þó útrásin í síðustu bombu herra Muzak hafi verið skringileg, var hún þó aðallega ætluð sem grín að sjálfum mér og þeim stimpli sem ég hef fengið sem nöldrari og utangarðsmaður... :-)
Við dílum öll við okkar vanlíðan á okkar sérstaka hátt. Mér leið frekar illa fyrstu árin í MH og var svolítið týndur. Síðan lagaðist það og ég varð þessi sjarmerandi, syngjandi, dansandi og trallandi gleðibangsi sem þið þekkið vonandi öll... plús nettur skammtur af skammdegisþunglyndi öðru hverju í nóvember til mars...
Æi þið vitið alveg hvernig fólki líður þegar það fílar sig útundan. (nema sumir og þeir eru hálfvitar)
Ég vona að enginn hafi fengið sjokk og haldið að ég væri fúll... Ég var nú bara að bruðla með netreikninginn.
In other News!!!
Vinir mínir Gústi og Bára eru orðin stoltir foreldrar.
Krílið heitir Ljósbrá Erlín og ku vera næstum því jafn falleg og mín eigin dóttir. (ég tek því sosum mátulega trúanlega, bæði eru nýfædd börn krumpuð og fjólublá og um þau gildir sama regla og um öskubakkana sem maður gerði í keramik í grunnskóla: Aðeins mömmu getur fundist það fallegt. Svo er dóttir mín þvílíkur ljósgeisli og himnasending að enginn kemst yfir það nema hippinn fljúgandi.)
Engu að síður held ég að dóttirin krumpaða eigi eftir að verða dásamlegt barn og enn dásamlegri unglingur þegar hún stækkar.
Til hamingju Gústi og Bára, þið eruð svo sannarlega lukkunnar pamfílar.

Annars sendir Herra Muzak bara ástar og sáttakveðjur út um allan heim og ég vildi bara láta ykkur öll sem hafið áhyggjur af því að ég sé fúll út í ykkur vita að ég fyrirgaf öllum allt fyrir sex árum og sú fyrirgefning stendur enn...

...

...

Nema Tóti ógeð!!! Megi hann brenna í helvíti, já brenna!!! brenna!!! mouhouhouhou!!!
...

Góðar stundir,
Herra Muzak


 
Minn vill líka vera boðinn í partý...

Jæja, grímuball Bjarna og Unnar nýyfirstaðið og undirrituðum ekki boðið, frekar en í flest önnur drykkjusamkvæmi í hinum víða vinahópi...
Ekki það að ég búist við því, Bjarni og Unnur eru kannski ekki voðalega náin mér, en ég heilsa þeim þó alltaf og ber í hjarta mér hlýjar tilfinningar gagnvart þeim, svo eru þau líka vinir vina minna og voðalega klár... Ég hef þó haft það á tilfinningunni ansi lengi að þau haldi að ég sé fífl, en ég hef aldrei spurt þau um það (sussubía ekki segja neinum) Kannski þetta sé rétti tíminn? Haldið þið að ég sé fífl??? Ha??? :o) Ég
En hvað sem því líður þá er maður alltaf að heyra sögur úr þessum blessuðu partýjum þeirra og manni er farið að líða svolítið eins og utangarðsmanni...
Þess vegna sting ég upp á lausn sem gæti hentað öllum.
Ókei... Hvernig væri ef þið færuð að bjóða mér í partý svo fremi sem ég lofaði að segjast ekki geta komið. Þá liði mér eins og ég sé væri einn af hópnum en þið þyrftuð ekki að horfa á smettið á mér. Bara svona pæling, ég kemst hvort eð er svo sjaldan í partý. Ég meina kommon, meira að segja Helgi hefur verið boðinn í þetta helvítis partý! Er það eitthvað steitment að dissa mig svona??? :-)
Í alvörunni fólk!!! Maður er aldrei boðinn í partý og síðan koma allt í einu tíu partý á einni helgi... Eru þetta samantekin ráð?!?
Mér líður í fullri alvöru svolítið eins og utangarðsmanni í vinahópnum... Maður er alltaf að heyra sögurnar af partíum, gleði, djammi og hangsi og síðan þegar maður hringir í vini sína eru þeir allir einhvers staðar hangandi (nema ég...)
Kannski er þetta sammannleg reynsla... Kannski eru núna fimmtíu manns að bresta í grát og segja, "Það hlaut að vera einhver annar eins og ég."
En ég meina það! Bjóðið mér í partý og ég skal lofa að mæta ekki, bara til þess að vita að ég sé til í ykkar heimi... ;-)

Bestu sjálfsvorkunnar og nöldurskveðjur frá Þunglynda hestinum Herra Muzak

p.s. fyrir ykkur sem ekki eruð innan "the great circle of trust" (og þau sem eru innan hans en ekki búin að hitta mig nýlega) þá er Herra Muzak orðinn vefstjóri hjá Nýherja... Heute Nýherji, Morgen das Welt!!! Framtíðin virðist björt. Völdin eru mín!!!


 
Ég er ekki gamall og prumpandi táfýlukall!!!

Kæru lesendur,
mér barst nýlega ábending frá afar gáfuðum og skynsömum kvenkyns lesanda um það að ég notaði frekar súr orð um virðulegar alþingiskonur okkar Íslendinga. Ég virði þessa ábendingu og kann að meta þá uppbyggilegu gagnrýni sem í ábendingunni fólst. Kudos kæra vinkona :-) Jóhanna er æðisleg kelling þó hún hljómi eins og blaðra sem maður heldur í sundur og ýlir. Hún hefur ótrúlega margt fram að færa í Íslenskri pólítík, þ.e.a.s. ef hún myndi taka sér smá pásur til að anda öðru hverju og leyfa fólkinu sem hlustar að hvíla eyrun. Svo virðist sem samfylkingarfólkið klúðri þessu æ ofan í æ með því að ráðast öll á sama málið þangað til að það er orðið úldið og allir hættir að hlusta.
En Solla Pé og Ásta Mö eru ótrúlega ómálefnalegar og lélegar stjórnmálakonur og ég vil þær út af alþingi. Ekki af því að mér sé illa við sjálfstæðisflokkinn, margir góðir vinir mínir og félagar þjást af kristni, sjálfstæðismennsku, samkynhneigð, offitu, nærsýni, hindúisma, áhuga á eðlisfræði eða öðrum fötlunum. Nei, Solla Pé og Ásta Mö eru versta sort af stjórnmálakonum, konur sem hafa ekkert betra að gera og fara út í bransann af því þær eru "vel giftar."
Ég er alls ekki gamall og prumpandi táfýlukall sem stundar sjálfsfróun yfir... jú ókei, maður tosar sosum stundum... (ekki segja neinum)
Ég ætlaði alls ekki að gefa það í skyn að raddhljómur kvennana færi í taugarnar á mér, heldur röflið og vælið og skotgrafarómálefnalegheitin sem ultu upp úr þessum pólitísku pissudúkkum.

Bestu Kveðjur frá Karlrembunni Herra Muzak


Sunday, November 04, 2001
 
Jólin byrja fyrsta nóv...

Ég er alger jólasveinn...
Ég dýrka jólin og er í jólaskapi árið um kring, kannski með svona nokkurra daga pásum inn á milli. Svo koma jólin og ég breytist í einhvers konar jólaholdgerving og þeysist um allt í jólaberserksgangi...
Ég veit að það er ekki normal og venjulega getur fólk ekki haldið slíkri stemningu mjög lengi...
Sem dæmi getum við nefnt hvernig fólk klappar til að hvetja á Íslandi, það er eins og að hlusta á amerískan ungling ríða í fyrsta skipti. Klapp ... ... Klapp ... ... Klapp ... Klapp ... Klapp Klapp Klapp klapklapklapklapklap... búið... Íslendingar virðast ekki geta haldið dampi eða eðlilegri uppbyggingu á stemningu. Það byrjar of hratt og svo er það búið of snemma...
Þess vegna vil ég álykta að jólaskap Íslendinga verði búið um 13. nóvember og komi ekki aftur fyrr en 1. nóvember á næsta ári. Íslenskar verslunarmiðstöðvar og kaupmannaóbermin hafa séð fyrir því...
Í taugaveiklun áróðursstríðsins keppast íslenskir kaupmenn við að vera fyrstir að koma upp jólaskrautinu en þó ekki allt of snemma...

HVERS VEGNA Í ANDSKOTANUM AÐ SETJA JÓLASKRAUTIÐ UPP 1. NÓVEMBER???
ÞAÐ ER FÁRÁNLEGT!!!

Af hverju festa Íslenskir kaupmenn ekki hefðina þannig að jólaskrautið er sett upp á fyrsta sunnudegi aðventu. Það myndi spara fólki ótakmarkað hjartaálag og rugl.
Ég vil ekki sjá jólaskraut 1. nóvember!!!
Það er bullshit!






Virka þessi Drösl???