|
Þankatankur Herra Muzak
|
||
|
|
Thursday, December 27, 2001
Þegar orð fara úr tísku Það er alveg merkilegt hvað menn eru fljótir að breyta um nöfn á hlutunum þegar gömlu nöfnin fara úr tísku. Til dæmis hættu nasismi, fasismi og þjóðernissósíalismi að vera fín orð, og í stað þess að stofna almennilega þjóðernissósíalíska verkamannaflokka fara menn út í mótsagnakennda þvælu eins og að kalla flokkinn sinn "Framfaraflokkinn". Síðan keppast þeir við að segja "Við erum ekki rasistar frekar en þið, við viljum bara "Aðhald" með innflytjendamálum... Við viljum ekki að hvaða ósamabinladen sem er fái að koma með sinn "ósóma" (hahahaha) inn í landið!!!" Af hverju koma þessir menn ekki fram undir sínum rétta fána (hvers fagra merki þeir eru fyrir löngu búnir að smána)? (rím) Meira um þetta seinna... Saturday, December 22, 2001
Gleðileg Jól Kæru vinir, félagar, ættingjar og aðrir lesendur síðunnar minnar. Mig langaði bara að senda ykkur hugheilar jólakveðjur í formi tveggja korta. Fyrir ættingja og vini sem eru hæfilega vemmilegir og fíla krúsídúllujólakortin þá er þessi kveðja meira við hæfi. Síðan er þessi fyrir ykkur sem taka hlutina ekki of bókstaflega. (Þeir sem hvorki kunna að meta kaldhæðni né krúsídúlluheit geta síðan skoðað þessa hér.) Annars vil ég bara óska ykkur öllum gleðilegra jóla og hafið þið það sem allra best... AAAAAAAA GLEYMDI NÆSTUM ÞVÍ!!! Bestu Kveðjur, Monday, December 17, 2001
Land hinna Frjálsu Bandaríski Talebaninn John Walker er líklega umdeildasti maður BNA þessa dagana. Árásin á frelsið hugsið um þetta, p.s. Friday, December 14, 2001
Grunnskólamórallinn Þegar ég var í grunnskóla kom ég stundum grátandi heim af því að nokkrir grunnir og sorglegir einstaklingar völdu mig sem skotmark eigin vansældar. Þeim leið illa yfir einhverju og þurftu að beina þeirri vanlíðan yfir á einhvern annan til að gera eigin tilveru bærilega. Sorglegt... Þessir drengir tóku allt sem ég sagði og sneru út úr því og öpuðu orð mín eftir mér í vælandi hæðnistóni, þeir sögðu að mamma væri hóra og versti kennari í heimi og að pabbi minn væri hommi og svo framvegis. Þeir rændu dagbókinni minni og lásu úr henni með njah njah njah málrómi. Sorglegt... Ég tók þetta vitaskuld nærri mér, enda lítið annað hægt þegar maður er átta til tólf ára strákur. Árin liðu, við fluttum eins og fólk flytur, og í nýjum skóla voru nýjir níðingar til að snúa út úr öllu sem maður sagði. Mamma og pabbi sögðu mér að ég myndi skilja þessa stráka eftir þegar ég kæmi upp í menntaskóla. Pabbi sagði að þeim liði illa af því að þeir hefðu ekki mína námshæfileika eða að þeim liði illa heima hjá sér og þeir öfunduðu mig af lífsgleði minni, orðhag og gjörvuleika... Fallega sagt pabbi... :) Þau sögðu líka að krakkar sem líður illa heima ættu það til að láta það bitna á þeim sem þau vita að á gott heimili. Ég átti æðislegt æskuheimili... (pabbi var svona hálfgerður hippa/bítnikka-hybrid í afneitun... hann var mjög trúarlega frjálslyndur, algjört náttúrubarn og uppfinningamaður og skemmti okkur bræðrunum og mömmu með ótrúlegustu uppátækjum) Kannski fór þetta í þá strákana... En árin liðu, og ég skildi þessa stráka eftir, en í menntaskóla komu bara nýir. Þá uppgötvaði ég að vel gefið fólk getur líka átt bágt, og jafnvel ótrúlega bágt. Drengur sem ég vissi að var laminn heima hjá sér ákvað að ég skyldi vera hans höggpúði. Hann sneri út úr orðum mínum í öllum tímum og gerði lítið úr mér dag eftir dag... Private vs Public. Booleönsk martröð Ég þoli ekki hann Bool gamla sem gerði hugtakið Digital að orði dagsins í Vestrænu samfélagi. Annað hvort ertu með eða á móti, allt er andstæður, þetta á auðvitað dýpri rætur en svo, en allt er svo tvívítt hjá binary hugsandi fólki. Ég bý í risi í Drápuhlíðinni. Það sem ég geri innan veggja míns heimilis er mitt prívatmál, ekki satt? Hver sem er getur hlerað símtöl mín, hakkað tölvuna mína, vídeóteipað heimili mitt og svo framvegis... Birti viðkomandi "rannsóknir sínar" á internetinu er hegðun mín vissulega orðin afar "public", en það bara vandamál hins þjáða einstaklings sem getur ekki þolað að ég eigi mér áhugaverðara líf en sitt eigið. Ég er ósammála Má með það að með því að maður sé þekktur sé maður á einhvern hátt að bjóða heiminum sig til fordæmingar. Ég býð engum neitt, menn taka. Það er einfaldlega auðveldara að hitta stórt skotmark. Maður stækkar sjálfan sig ekki, maður verður bara stór. Fólk verður að gæta einhvers konar lágmarks háttvísi. Það sem ég skrifa á heimasíðu mína er ætlað þeim sem lesa hana og hafa gaman að eða þola mig ekki, hins vegar frábið ég mér það að fólk afbaki það sem ég skrifa hér á barnalegan og andlega grunnan hátt til að bæta eigin vanlíðan með því að reyna að gera lítið úr þeim sem reit. Það er einfaldlega lélegur pappír. Með kærri kveðju, ...Og vitaskuld má enginn taka neinu sem ég skrifa persónulega, þó mér finnist vissir aðilar mættu vanda sig betur við að vera manneskjur. Dæmalaus vitleysa!!! Á frelsi.is, (þeim annars stöku sinnum ágæta vef) má lesa frekar lélega tilraun ungs sjálfstæðismanns til að gæða kapítalismann mannleika... "Mestu hugsuðir mannsins settu einmitt sína eigin velferð ofar annarra og uppskáru ríkulega. Sókrates, Newton, Edison, Wright bræður og Bill Gates eru þar á meðal." Ekki það að ég vilji taka mér ljót orð í munn, en mér finnst ótrúlegur hrossaskítur að líkja Bill Gates við Sókrates og að gefa í skyn að hann (Sókí pókí) hafi sett sína eigin velferð ofar annarra. BULL!!! Hvernig í Niflheimi setti Sókrates sína eigin velferð ofar annarra með því að svipta sig lífi til að viðhalda heilsteypu laganna? Hvernig uppskar Sókrates ríkulega fyrir slíka "eigingirni"? Ég held að Björgvin þurfi að fara aftur í skóla og hlusta í þetta sinn betur (eða jafnvel lesa bækurnar sínar til tilbreytingar) Ég held að ungir sjálfstæðismenn ættu bara að halda sig við hagfræðina og gleyma öllu um siðferðislega yfirburði frjálshyggjunnar. Það er óklífandi bjarg að reyna að sannfæra fólk um siðferðislegt ágæti frjálshyggjunnar án þess að ljúga upp í opið geðið á því. Bestu Kveðjur, Tuesday, December 11, 2001
Æðislegur Konsert Moonboots tók slaginn á þjóðleikhússkjallaranum á laugardagskveldið og moðerfokkaði húsinu. Var það mál manna að sjaldan hefði rokkið tekið sér bólfestu í eins ólíklegum miðli og hommalegu eighties cover bandi... kné kné... vondar fréttir æ... ó... sökum gleymsku gleymdist að staðfesta gigg moonboots á vídalín 21. og 22. góðar fréttir Síðan verður jóladjamm á annan í jólum YIIIHAAAA! Hó hó hó... Hið árlega jólaball Moonboots Allir verða í góðum fílíng. Sjáumst fljótlega, DJÖ!!! andsk maður, missti ég af "linkum á kpmg deginum.... sjitt... Ég veit ekki hvað ég á að gera... ég var búinn að hlakka svo mikið til að linka á kpmg. Jæja, maður verður bara að vera viss um að gleyma ekki kpmg deginum á næsta ári og linka þá eins og óður á kpmg... Góðar stundir, Herra Muzak Wednesday, December 05, 2001
Og Nú Mæta Allir Á Moonboots Ball Nú er loksins komið að því beibí!!! Ofur-80's-hljómsveitin Moonboots kveður sér hljóðs eftir þriggja mánaða þögn (æfingar). Ég vil hvetja alla dygga aðdáendur hljómsveitarinnar til að mæta á Þjóðleikhússkjallarann næsta laugardagskveld 8. des, þá mun dansinn duna og vínandi guðs sveima yfir vötnum. Moonboots mun einnig taka tvo "unplugged" tónleika á Vídalín helgina 21. og 22. desember og mun þá Snorri Hergill Bassaleikari halda upp á ammælið sitt í gleðistuði. Snorri Rúlar!!! Síðan ljúkum við þessarri tónleikalotu með jóla-80´s-balli á 2. í jólum (26. des.) á Gauknum. Gaukurinn Rúlar!!! Allir sem vilja sjá Moonboots spila eru hvattir til að kíkja. Við erum bestir. Moonboots Rúlar!!! Bestu Kveðjur (sem rúla!!!) p.s. Kröfugangan rúlaði feitt!!! Monday, December 03, 2001
Músíkin mín er víst ekkert svo slæm Kæru vinir (og líka hinir) :), mig langar enn og aftur að benda ykkur á frumburð minn í útgáfubransanum. Hann Jón ENGILL Ólafsson (góði) ákvað að leyfa mér að birta tónlist mína innan um allt hitt gæðaefnið sem hann hýsir. Ef þið viljið (og ég drep ykkur öll ef þið viljið ekki...) megið þið hlaða laginu mínu niður. Einnig er mögulegt að ná í þrumusmellinn One Time Romeo með ofursíttaðaftanhljómsveitinni MoonBoots. Við Zato vinur minn erum búnir að vera að búa til megafína kassagítar folkmúsík. Við munum setja saman smá kombó og spila mjög fljótlega. Helgi: Þú ert maðurinn!!! Við djömmum á 8. des. MOONBOOTS IN DA HAUS!!! Góðar stundir kæru vinir... |
![]() Mási Snillingur
Sjálfstæðismaðurinn Muzak Náttúruverndarsinninn Muzak Hryðjuverkamaðurinn Muzak Riddarasagan ógurlega... Kommúnistaávarp Hr. Muzak Bandaríkjaelskhuginn Muzak Grunnskólastrákurinn Muzak Dvergaklámhundurinn Muzak Reiði ungi maðurinn Muzak Ævintýri endurskoðandans Reiður ungur hugsjónamaður Sjómannssonurinn Muzak Um mikilvægi þjóðrækninnar Brjáluð Kanína Bjargvætturinn Emma |