föstudagur, ágúst 30, 2002
Kaupa Nýjan Tölvuleik!!! Júbbí Skúbbí!!!
Ég er 40% nörd...
var að kaupa nýjan tölvuleik... Arcanum...
Get ekki beðið eftir að prófa hann... Er að hugsa um að fara úr vinnunni núna... AHAHAHAAAAA!!!
Annars er ég bara í nokkuð góðum fílíng og mér líður skrambi vel...
Góða helgi...
Bestu Kveðjur,
Svabbi
Bloggað af Hr. Svavar 3:44 PM
fimmtudagur, ágúst 29, 2002
Vitiði...
Ég er að hugsa um að mæta í þriðja skiptið á Austurvöll í dag. Kallið mig ofstækismann, atvinnumótmælanda, vottever...
Ég nenni bara ekki lengur að láta Davíð flissa að minnisleysi fólksins. Ég ætla að mæta aftur í dag, og aftur á morgun vonandi þangað til fólk fer að fatta að þetta er meira en bara einhver fílapensill á þjóðarsálinni. Þetta eru söguleg mistök, bæði efnahags og umhverfislega...
Ég mun leggja alla mögulega krafta mína í það að koma stjórnvöldum í skilning um það að þau eru gersamlega búin að missa sjónar á tilgangi stjórnmálanna og hagsmunum þjóðarinnar bæði til framtíðar. Þessi fasismakennda mannhatursstefna getur varla verið runnin frá heilbrigðum einstaklingum... eða hvað?
Ríkisstjórn Íslands er nú sjúklingur sem þarf skurðaðgerð... Það þarf að fjarlægja mein.
Bestu Kveðjur,
Hr. Muzak
Bloggað af Hr. Svavar 10:14 AM
miðvikudagur, ágúst 28, 2002
Misskilningur
Ég held að grundvallarmisskilningurinn í þessu máli sé að fólk sér raforku sem kolvetni eða prótein (hráefni til brennslu), þegar mun skynsamlegra væri að hugsa sér raforkuna í litla hagkerfinu okkar sem stoðgrind, beinagrind. Þess vegna verður að nýta hana hagsýnt, en ekki eins og að drekka vatn. Fólk sér raforkuna á sama hátt og það sér fiskinn í sjónum eða súrefnið í loftinu. Einhverja endurnýjanlega einingu. Raforka er hins vegar mjög endanleg stærð og ekki endurnýtanleg nema að mjög litlu leyti.
Raforka á, í okkar hagkerfi, alls ekki að hugsast sem hráefni til vinnslu, við höfum ekki efni á því.
Raforka er það sem heldur uppi infrastrúktúr þróaðs hagkerfis. Það að nota hana sem hrátt framleiðsluafl er versta mögulega sóun á henni og sorglegur vottur um skort á framtíðarsýn. Skiljiði?
Ennfremur er ekki hægt að líkja saman álverinu í Straumsvík (nokkuð stór vinnustaður í þá 30.000 manna atvinnulífi) og álverinu á Reyðarfirði, sem verður 500 manna vinnustaður á hámarks 3000 manna atvinnusvæði. Það er algert rugl... Stór atvinnusvæði hafa mun frekar "efni á því" mannaflalega séð að halda uppi álveri. Það þarf ekki bara að finna 500 manns til að vinna í álverinu, það þarf að finna 500 manns sem eru fullkomnlega sátt við að vinna þar og það þarf líka að tryggja að ef álverið er lagt niður muni það ekki rústa gervöllu atvinnulífi svæðisins.
Bretland, Kanada, Ástralía og Bandaríkin eru stútfull af bæjum sem liggja í eyði eftir að svo stórir vinnustaðir voru lagðir niður vegna "óhagkvæmni", sem er óafneitanleg afleiðing alþjóðavæðingar. Iðnaður eins og Álbræðsla fer til þróunarlanda, þar sem orka og vinnuafl eru ódýr og þess konar iðnaðar er þörf til að byggja upp veikt hagkerfi. Þetta gæti orðið fjárhagslegt reiðarslag fyrir íslenskt atvinnulíf ef eitthvað bregður út af. Þetta gæti kostað okkur tíu til fimmtán ár af framþróun (sem við getum vel staðið undir sjálf.)
Mér er meinilla við að mér sé lögð í munn sú skoðun að hvergi megi virkja. Ég er hins vegar þeirrar skoðunar að ekki megi sólunda dýrmætri orku, og því sé Kárahnjúkavirkjun nú hið mesta glapræði, því hennar er engin þörf að svo stöddu. Ísland er að pluma sig vel án meiri stóriðju. (Nema þið hafið enga trú á einstaklingsframtakinu...)
Leggjum þá bara niður Össur, Marel, Samherja, Flugleiðir, Tölvumyndir og öll þessi skapandi fyrirtæki og reisum álver í staðinn, það er greinilegt að ekkert annað virkar...
Með kveðju,
Hr. Muzak
Bloggað af Hr. Svavar 1:46 PM
smu?
Bloggað af Hr. Svavar 11:25 AM
Vangaveltur:
Spurning: Hvaða máli skiptir hvort ég hef séð Kárahnjúkasvæðið eða ekki?
Höfum við hitt fjögurra ára börnin sem eru drepin í Palestínu og Ísrael? Hefur sú staðreynd að við kynntumst aldrei fórnarlömbum hryðjuverka eitthvað að gera með ranglæti þeirra?
Ég hef aldrei séð Mónu Lísu eftir DaVinci eða Ópið eftir Munch, en samt myndi mér finnast það hræðilegt ef einhver myndi brenna þær...
Ég hef aldrei séð San Fransisco... En mér þætti samt hræðilegt ef einhver myndi sprengja hana með kjarnorkusprengju.
Skiljið þið punktinn?
Siðferði og siðfræðileg viðfangsefni eru ekki spurningar um einstök tilfelli, heldur um prinsipmál.
Ég er á móti morðum, ránum, svikum og þarflausum skemmdarverkum á náttúrunni.
Það er dauð spurning að spyrja fólk hvort það hafi komið til Kárahnjúka. Það er frekar spurning um hvort fólk langar að sjá Kárahnjúkasvæðið, óspillta náttúru.
Bloggað af Hr. Svavar 10:43 AM
þriðjudagur, ágúst 27, 2002
Opið bréf til Sivjar Friðleifsdóttur - Umhverfisráðherra
Kæra Siv,
mig grunar að þú vitir nokkuð ljóst nú þegar hvað er efni bréfs míns, en ég bið þig engu að síður um að lesa það af athygli en ekki að leggja það til hliðar sem tuð og þvaður vitleysings.
Mér þykir afar sárt að vera kallaður "sjálfskipaður" umhverfisverndarsinni og "atvinnumótmælandi" af samstarfsfólki þínu og þykir mér slíkur málflutningur lýsa furðu mikilli fáfræði og vanvirðingu við vitsmuni mína og manngildi.
En nóg um það.
Mig langaði að velta þeirri spurningu upp hvort virkilega væri búið að kanna öll önnur ráð til þess að bæta ástand á Austfjörðum heldur en það örþrifaráð að leggjast í þungaiðnað og virkjanaframkvæmdir upp á milljarðahundruð og aragrúa af megawöttum. Getur verið að við lítum svo á að það sé ekki þess virði að leita annarra leiða til þess að bjarga landinu? Ekki einungis er álver af þessari stærðargráðu allt of stór biti fyrir svo smátt atvinnusvæði, heldur er það vafasöm orkufjárfesting í landi þar sem orka er bæði verðmæt og TAKMÖRKUÐ auðlind.
Þar kem ég að meginpunkti þeim sem ég vil setja fram:
Megawött eru takmörkuð auðlind og ekki sama í hvað þeim er veitt.
50 Megawött geta auðveldlega nýst til þess að halda uppi atvinnu fyrir 5000 manns.
Hvers vegna þurfum við þá 750 MW til þess að halda uppi atvinnu fyrir 2000 manns?
Ef við líkjum þessu við hversdagsleikann, þá getum við tekið dæmi um innkaup.
Ég get labbað út í búðina við hliðina á húsinu sem ég bý í og keypt lambahakk á 600 krónur. (prýðiskjöt...)
Er þá á einhvern hátt réttlætanlegt að stíga upp í bensínsvelgjandi fjölskylduSAABinn og keyra til Akraness til að kaupa sama magn af lambahakki á 500 krónur? Er það ekki í rauninni hið hræðilegasta Sukk? Þó peningar hafi ekki farið af matarreikningnum hefi ég eytt 2000 krónum af bensínpeningum og jafnvel 2000 krónum í viðbót í Hvalfjarðargöngin... Er ég þá ekki í raun búinn að eyða 4500 krónum OG þremur klukkutímum í hlut sem hefði getað kostað mig 600 krónur og 10 mínútur að framkvæma?
Spurningin er því ekki aðeins hvort þeir beinhörðu fjármunir sem við erum að festa í þessi mál séu þess virði, heldur einnig sú orkufjárfesting sem við leggjumst í...
Niðurstaðan er því:
Með réttri nýtingu takmarkaðs Megawattafjölda landsins (og um leið hófsemi í nýtingu vatnsfalla) getum við náð jafnari og samfélagslega jákvæðari hagvexti auk þess sem við tryggjum framtíðarskilyrði fyrir vöxt.
Lokaspurningin stendur því enn: Erum við viss um að allar leiðir til bætts ástands á Austfjörðum hafi verið kannaðar? Erum við viss um að ekki sé hægt að ná jafnari efnahagsumbótum og félagslegum umbótum án þeirrar vistfræðilegu, ímyndarlegu og náttúrulegu fórnar sem við erum að færa?
Höfum við til dæmis kannað hvort möguleiki sé á öðrum valkostum, smærri í sniðum, sem gera ekki eins gríðarlegar orkukröfur og veita meiri möguleika í einstaklingsframtaki Austfirðinga?
Eða viljum við leggjast ofan í efnahagsleg 5 ára plön a la Sovét þannig að fólkið þurfi ekki lengur að hugsa fyrir sig sjálft?
Bestu Kveðjur,
Svavar Knútur Kristinsson
Meistaranemi í Umhverfisfræðum
Bloggað af Hr. Svavar 6:55 PM
getur
einhver
skýrt út fyrir
mér
af
hverju
það
koma
aldrei línubil í
færslurnar mínar?
Bloggað af Hr. Svavar 3:28 PM
:):):):):):):):):):):):)
:):):):):):):)
:):):):):)
:D:D:D:D:D:D:D:D:D:D:D
Hr. Muzak
Bloggað af Hr. Svavar 1:14 PM
Aktívistinn Svavar lætur aftur á sér kræla...
Ég hvet ykkur "sjálfskipuðu" umhverfisverndarsinnana og "atvinnumótmælendurna" og fleiri sem hafa það að hobbýi að "vera á móti öllu sem Davíð segir" til þess að mæta niður á Austurvöll á morgun kl. 12:00 og syngja með okkur "umhverfisverndarsinnunum". Planið er að fólki fari sífjölgandi þarna niður frá. Þetta byrjaði rólega í gær, og voru svona hátt í 100 manns í dag, og við ætlum að reyna að ná fleirum á morgun.
Látiði sjá ykkur á Austurvelli á morgun!
Látum ekki þessi kríp vaða yfir landið okkar á skítugum klossunum bara vegna þess að þeir eiga pening.
Brandari dagsins:
www.alcoa.is. Það er merkilegt hvað er hægt að láta málstað sinn líta vel út ef maður setur orð eins og Sjálfbær þróun, umhverfisvænt, orka, hreint og atvinna inn í hlutina. Ég sé fyrir mér Hitler fegrandi ræðurnar sínar: "við ætlum bara að stúta nokkrum júðum í nafni sjálfbærrar þróunar... Þetta er umhverfisvæn slátrun og fullkomnlega sjálfbær. Við notum vistvæna orku og þetta er atvinnuskapandi auk þess sem allt gullið sem við hirðum af gyðingunum er hrein og klár hagvöxtur..."
úff... það er ekkert bjánalegra en að lesa svona dóna eins og Alcoa tjá sig um hvað þeir eru hreinir og fínir og allt svo fullkomið hjá þeim...
Bestu Kveðjur,
Svavar
Bloggað af Hr. Svavar 12:54 PM
byrja í meistaranáminu í dag... hlakka geeeeeeðveikt til!!! :)
Bloggað af Hr. Svavar 10:55 AM
mánudagur, ágúst 26, 2002
Frábært!!!
Yfirkonan mín tók bara mjög vel í þá ósk mína að fyrirtækið mæti mér aðeins fyrir bæklingaátakið sem ég er í... Það setur hlutina í alveg nýtt samhengi... YIHA!!!
Guð blessi heiminn :-) Þetta gæti gefið smá auka búst í peningamálin...
Þó hún sé stundum pínu "of mikið", þá er hún 89% yndæl og elskuleg manneskja... :-)
Ah... allt lítur mjög vel út núna...
Bestu Kveðjur,
Hr. Muzak
Bloggað af Hr. Svavar 5:46 PM
Sveittur staður eh?
Brrr... kalt og blautt úti... En sem betur fer á ég fornan ullarfrakka til að hlýja mér á köldum vetrarmorgnum...
Ennþá svolítið rámur eftir helgina... :-) Helvítis harka var í gangi að spila langleiðina til sjö um morguninn... Aldrei að gera þetta aftur svona lengi, you're not paying me enough!
Nema hvað...
Menn virðast eitthvað á því að Gaukurinn sé "Sveittur" staður... Ég er náttlega ekki alveg að fatta það, en ef tungumálakunnátta mín svíkur mig ekki er meiningin sú að staðurinn sé nokkuð þéttsetinn af dreifbýlisgengi (fólki úr Breiðholti, Árbæ, Grafarvogi og nágrannasveitum) og bullum...
Veit ég ei... Ég varð vitni að einum slagsmálum sem hljómsveitin stoppaði dyggilega með aðstoð dyravarðar... (aldrei messa við
moonboots...) Og svo reyndi einn gaur að berja mig í gegnum míkrafónin en ég gaf honum bara fingurinn... Sá varð extra fúll og yfirgaf staðinn... Eitthvað fífl með svarta hárkollu... HEY FÍFL! ENDILEGA HALTU ÁFRAM AÐ VERA ANAL OG AUMINGI... ÞAÐ FER MÖNNUM SVO VEL...
YIIIIHAAAAAA!!!!
Nema hvað...
Ef þið hafið tillögur að einhverjum stað sem tekur eins og 300-500 manns (eða er tilbúinn að borga feitan pening fyrir góða hljómsveit) þá er
Moonboots alltaf til í slaginn.
HEY, stórt takk til Frank, ótrúlegur performer og frábær kúrekahattur!
Nema hvað, ég datt á manninn og var næstum búinn að slasa okkur báða þegar hann togaði aðeins of fast í mækinn og ég hallaði mér aðeins of langt fram... :-)
Frank átti stórgóða takta maður!
hey... og svo sýnduEva vinkona og
Stebbi ágætis takta í Meatloaf og stórt upp til hennar Steinu, sem stóð pligtina í don't you want me baby! Steina Rúlar!
YEAH!!!
EN... eftir stendur...
okkur vantar enn tillögur að stað til að spila á sem er nógu stór til að þetta standi undir sér...
Nýtið yður kommentakerfið...
Bestu Kveðjur,
Hr. Muzak
Bloggað af Hr. Svavar 10:24 AM
sunnudagur, ágúst 25, 2002
kominn heim...
Gott Gigg,
allir í góðum fílíng!
Moonboots áttu brilljant ball, og big öpps til
Siggubeib sem var allra alda moðerfokker ástarinnar! Sigga, ég þrái þig!
Gudda var líka ekkert smá foxy!
Bestu Kveðjur,
Svabbi
Bloggað af Hr. Svavar 7:09 AM
laugardagur, ágúst 24, 2002
Satt er það!
Ég hlakka geeeeeðveikt til þess að spila í kvöld, laugardagskvöld á Gauknum.
Og nú verður tekið fram gamla gítarhljómborðið hennar Eddu Borg sem hún notaði í hljómsveitinni Módel (ég keypti það á 5.000 kr. af einhverjum gaur Kópavoginum...)
YIIIIHAAAAA!!!
Ég sé ykkur öll Þar!!!
Herra Svabbi
p.s. ef einhver þarf að ná á mér á morgun, þá verð ég væntanlega á MSN með msn nafnið : muzak@simnet.is
sjáumst krakkar mínir...
Bloggað af Hr. Svavar 3:08 AM
föstudagur, ágúst 23, 2002
úff...
Bloggað af Hr. Svavar 1:11 PM
GRAAAAAAAAAAAAHHHHH!!!!!
takk fyrir... þurfti aðeins að pústa...
AOIHGÐAQWEHGÐP AEUI4VM9ÖQ384YVN90QW8GFNKLASHUGLQ3B4Y68VQ3P8GH ASKLDJGN AEILT4HQ7APISDVIEHASOGUAVM9ÖW3NPADVHUAIOPQP394Y8TPW98EFHA!!!!!!!!!!!!
ABF08AE9ÖGRNYQ379G4N9ÖEBHU ASDIQ34Y8TIÉFJAEJIRHP Q3I9UTRH AIOÆSULAE7GYNPQ3Y8FPAEIBFHUPAEIRUG9ÐAEHGN!
hR. mUZAK...???
Bloggað af Hr. Svavar 12:20 PM
fimmtudagur, ágúst 22, 2002
Forvitnilegur lestur...
Tékkið á
þessum memo sem Newt Gingrich, Öldungardeildarþingmaður sendi á þingmenn Repúblikana fyrir nokkrum árum.
Athugið hvort eitthvað sé sameiginlegt með
þessu minnisblaði og íslenskum stjórnmálum...
Bestu Kveðjur,
Hr. Muzak
Bloggað af Hr. Svavar 4:44 PM
Karlar á barmi taugaáfalls...
Hr. Muzak er að sturlast af stressi og það getur verið að ég bloggi ekki mikið fram yfir helgi...
En mig langar til að biðja ykkur öll um að íhuga alvarlega að mæta á Gaukinn á Laugardaginn...
Þar verður ofurhljómsveitin Moonboots með ball sumarsins!!!
Kíkið líka á Fókus á morgun, það verður örugglega fínt...
Bestu Kveðjur,
Hr. Muzak
Bloggað af Hr. Svavar 12:04 PM
miðvikudagur, ágúst 21, 2002
Furðulegt...
Var að koma heim eftir 13 tíma vinnudag...
Þreyttur...
Nú er ég ekki að nefna neina sérstaka aðila...
...en hafið þið pælt í því...
...að flestum stærri íslenskum fyrirtækjum er stjórnað af kapítalistum sem yfirleitt eru yfirlýstir sjálfstæðismenn...
...og mottó og lífsslagorð þessara manna er: "það á ekki að refsa mönnum fyrir að vera duglegir og framtakssamir"...
...og þeir skammast yfir skattinum sem tekur fullt af peningum af hinum vinnandi manni og refsar þeim sem vinna sér inn há laun...
...og þeir stýra fyrirtækjunum sínum gjarnan þannig að þeir setja þak á yfirvinnu eða jafnvel útiloka yfirvinnu...
...undir því yfirskyni að þeir séu að vera fjölskylduvænir og það eigi að vera sveigjanlegur vinnutími...
...en setja starfsfólki síðan fyrir verkefni sem er ómögulegt að ráða við án þess að vinna 10-12 tíma á dag...
...án yfirvinnukaups...
...og starfsmennirnir vinna fram eftir...
...og missa af einka- og fjölskyldulífi sínu...
...til þess að standa sig í vinnunni og standa skil á öllum verkefnunum sem er búið að hlaða á þá...
...en fá ekki grænan eyri fyrir...
...Er þá ekki verið að refsa mönnum fyrir að vera samviskusamir duglegir og framtakssamir?
Er þetta ekki pínulítil mótsögn við setninguna: "Það á ekki að refsa mönnum fyrir að vera duglegir og framtakssamir"?
Eru þessir menn þá ekki hálflélegir kapítalistar?
Eru þeir þá ekki bara kapítalistar þegar það hentar þeim?
Eru þeir þá ekki alveg jafn ömurlegir og kommúnistarnir í Sovét forðum, sem aðhylltust kommúnismann á meðan það hentaði þeim?
Eru þá fjölmargir stjórnendur íslenskra fyrirtækja þá ekki í raun orðnir óttalegir Sovétkommisarar?
Synd og skömm þegar fallegar hugsjónir virka ekki vegna þess að fólk er ekki fullkomið...
Bestu Kveðjur,
Hr. Muzak
Bloggað af Hr. Svavar 11:39 PM
Blogtree er flott...
Hr. Muzak
Bloggað af Hr. Svavar 2:30 PM
Djö Flott maður...
Nauts maður!
Bragurinn sjálfur búinn að linka á mann! :D
Þetta var gleðiefni, því Bragi Bergþórs er einmitt einn af mínum uppáhaldspennum þegar hann tekur sig til...
Það er ekki seinna vænna að fara að búa til einhvers konar rss pælingu fyrir þetta góða fólk sem maður les daglega... en þá þyrfti ég aðra síðu...
Á meðan læt ég mér nægja að
hlekkja á Braga, da old fashioned way...
Hr. Muzak
Bloggað af Hr. Svavar 2:28 PM
Reykingar mjög heilla rafta...
Ragnar Torfi fær netta útrás fyrir óþol sitt gagnvart reykingum á síðunni sinni...
hummm...
skil hann alveg...
Ég er algerlega sammála að þetta er ósköp óþolandi leiðindasiður, en... það er mitt val að umgangast fólk sem vill reykja að staðaldri, og ég get lítið gert að því að vinir mínir séu tóbaksfíknir aumingjar... :)
En hitt er annað mál að ég fór á vegamót um daginn með vinkonu minni og valdi mér reyklaust borð. lúrílú... Svo pantaði ég þessa fínu klúbbsamloku og hóf handa við að borða hana (vinkona mín fékk sér hið sama...)
Nema hvað... Parið á næsta borði var ekki á alveg sama tempói og við og keðjureykti... Það hefði líklega verið í góðu lagi, hefði helvítis konan ekki rétt höndina alla leiðina yfir bilið milli borðanna og practically geymt sígarettuna sína við samlokuna mína... Þ.e.a.s. u.þ.b. 90 cm frá sínu borði og yfir okkar borði... (með einhvers konar handastöðu sem erfitt er að færa yfir á ritað mál... hmmm.... O__/~O (um það bil svona....)
Ég vildi ekki vera ókurteis, svo ég hóstaði bara lágt og ræskti mig... (og rak næstum því augað í glóðinna á sígarettunni þegar ég sneri höfðinu...)
Konan pikkaði ekki upp á því og sló úr rettunni sinni og það munaði þremur sentimetrum að hún hitti samlokuna mína...
Ég var orðinn svo reiður að ég ætlaði alveg upp úr þakinu...
Ég borgaði fyrir mig og fór út og hugsaði stórar ljótar, rasískar, óvinalegar og ómálefnalegar hugsanir í garð konunnar sem virtist gersamlega klúlaus um það að það væri manneskja á næsta borði...
Venjulega er ég alveg sáttur við að það sé reykt í kringum mig...
Það er tvennt við reykingafólk sem ég þoli ekki: Þegar það hendir stubbunum sínum út um allt (t.d. fyrir utan norðurkjallara í MH, það er viðbjóðslegt) og síðan þegar það heldur sígarettunni ofan í andlitinu á manni.
Bestu Kveðjur,
Hr. Muzak
Bloggað af Hr. Svavar 10:28 AM
Ótrúlegir meistarar...
Ég er búinn að vera að leika mér pínu á
launch.yahoo.com... Brilljant vefur þar sem hægt er að skoða tónlistarmyndbönd.
Ég trúði því varla að ég væri búinn að gleyma meisturunum í Gomez. Þeir eru ekkert nema snillingar!
Tékkið á þeim á Launch.yahoo.com, það er alveg tonn af góðum myndböndum með þeim þarna á svæðinu. Þetta er mest grúví band allra tíma held ég...
Smá bíó á þá...
Bestu Kveðjur,
Hr. Muzak
...og svona rétt að lokum...
DEYÐU LINKIN PARK! DEYÐU, FARÐU, DEYÐU DEYÐU!!! ALDREI KOMA AFTUR Í MITT HÚS!!!!
DJÖFULSINS DRASL LINKIN FOKKING PARK FOKKING LINKIN PARK DAUÐANS!!!!
aaahhh....
Bloggað af Hr. Svavar 9:50 AM
þriðjudagur, ágúst 20, 2002
Talk about stating the obvious...
This just in!!! Drinking beer may cause hallucinations!!!
Beer, because you're just too damn ugly otherwise...
Beer, when you want to look gooood....
Hr. Muzak
Bloggað af Hr. Svavar 11:10 AM
Í flónsku minni...
Hélt ég að sú athöfn að kaupa árskort í sund gerði mann að auðfúsugesti í sundlaugunum. Allir myndu taka við manni brosandi og heilsa manni jafnvel með nafni og viktum, bjóða manni í kaffi og kleinur... Fljótt hvarf sú tálsýn og kaldur raunveruleikinn blasti við... Þetta var bara svona bónusmiði í sund...
En aldrei grunaði mig að mér yrði refsað fyrir þessi kaup!´
Fór í uppáhaldslaugina mína, Vesturbæjarlaugina, þar sem Loftur vinur vinnur...
Heilsaði dömunni í glerbúrinu með viktum og hugðist borga mig í gufubaðslúxusinn...
Hugmynd Hr. Muzak:
Sund = 200 kr.
Sauna = 300 kr.
Sauna = sund+100 kr.
(er þetta vitlaust?)
Hr. Muzak á sundkort (sem borgar fyrir sund...)
Sauna = Sundkort Hr. Muzak + 100 kr.
EN NEEEEEIII....
ÍTR hefur tekið ákvörðun í þessu máli og nú kostar alltaf 300 kall í sána, hvort sem maður er með sundkort eður ei...
Finnst einhverjum þetta bjánalegt öðrum en mér?
Af hverju í andskotanum þarf ég sumsagt að borga u..þ.b. 420 kr. í sána á meðan aðrir borga 300? Bara af því að ég var svo vitlaus að halda að árskort í sund þýddi að ég væri sumsagt búinn að borga mig ofan í laugina...
HELVÍTIS SKRIFRÆÐI!!!
ARRR!!!
Bestu Kveðjur,
Hr. Muzak
Bloggað af Hr. Svavar 11:09 AM
mánudagur, ágúst 19, 2002
Vildi bara minna ykkur á...
Póstlista Moonboots, sem hægt er að skrá sig á til að tryggja það að menn (og konur) missi ekki af balli með þeirri elskuðu hljómsveit.
Kíkið á svæðið!
Og svo er það náttúrulega bara Gaukurinn næsta Laugardag!
Hr. Muzak
Bloggað af Hr. Svavar 12:46 PM
Veit ekki hvort ég á að gráta eða hlæja...
Hér má sjá þetta:
FOLLOW CNN's COVERAGE
Monday
Chemical Tests: Exclusive video obtained by CNN shows deadly chemical-weapons testing on dogs. Experts agree the tape shows a more sophisticated capability than has been documented before.
(Amm.. hérna er mynd af sætum hundi sem karlar í "taliban-type" sandölum drepa með eiturgasi... Viljið þið sýna okkur aðeins feitari propagandaskot elsku Bush og vinir... Á maður virkilega að trúa þessu?!? Þetta er með því heimskulegra sem maður hefur séð! Allavegana hefðu þeir getað fundið aðeins minna "Adorable puppy" til að drepa miskunnarlaust...)
Tuesday
Roots of Hatred: For the first time, a video of the 1998 conference where Osama bin Laden and al Qaeda declared war on the West.
(Rætur Haturs eru greinilega djúpar, liggja alla leið aftur til 1998, þegar Osama lýsti yfir hatri sínu á vesturlöndum... Þá vitum við það... Allt þetta terrorista dæmi á sér ótrúlega langa sögu, heil fjögur ár aftur í tímann... váááá... Djúpt...)
Djöfull er bandaríkjastjórn orðin desperat að viðhalda hatri okkar á þessum "villimönnum" sem ráðast alveg óumbeðnir og án minnsta tilefnis á Bandaríkin.
Æi, hvernig væri að átta sig á því hvernig mál standa og viðurkenna þetta sem knee-jerk viðbragð við heimsyfirráðastefnu feita fólksins á SUV bílunum og umboðsmanna þeirra...
Bestu Kveðjur,
Hr. Muzak
Bloggað af Hr. Svavar 11:51 AM
Nýjar myndir
Kæru vinir, vandamenn, ættingjar og félagar, aðrir Íslendingar... (takið eftir skorti á kvenorðum...)
Nýjar myndir eru nú komnar á
myndasíðu Hr. Muzak. Ég veit að ég er voða seinvirkur í viðhaldi síðunnar, en svoleiðis er það nú bara...
Bestu Kveðjur,
Svavar Knútur
Bloggað af Hr. Svavar 2:08 AM
föstudagur, ágúst 16, 2002
Dauði yfir íslenskt sumar!
Þetta er búið að vera ömurlegt sumar!
Í þau fáu skipti sem sólin er búin að sýna á sér trýnið, þá er maður inni að vinna, og hún skín og skín í gleði sinni... Klukkan fjögur er maður alveg að brjálast úr sólargreddu og klukkan sex sleppur maður út og þá er komin rigning og vindur...
Drasl Sumar!
Ég er fluttur til Danmerkur eða Svíþjóðar eða eitthvað...
Deyðu Ingólfur Arnarson! Æi, hann er nú þegar dauður...
Deyðu bara aftur!!!
Bestu Kveðjur,
Hr. Muzak
Bloggað af Hr. Svavar 9:59 AM
fimmtudagur, ágúst 15, 2002
Hmmm... Staðardagskrá 21?
Staðardagskrá 21 er liður í því að auka sjálfsákvörðunarrétt sveitarfélaga og fólks sem býr í þeim varðandi umhverfismál og þróun.
Sumsagt, tilraun til að auka beint lýðræði í heiminum með því að færa ákvarðanir um framtíð svæða nær fólkinu.
Nú hafa sveitarstjórnir Skagafjarðar og Gnúpverjahrepps báðar lýst yfir anstöðu sinni við virkjunarframkvæmdir á sínum svæðum, hvor á sínum forsendum.
Skagfirðingar segja að ferðaþjónustan sé þeim verðmætari en virkjunin (vegna þess að ferðaþjónusta í Skagafirði er í blóma og örri framþróun.)
Gnúpverjar vísa til Ramsar samþykktarinnar sem segir afar mikilvægt að vernda þjórsárverin vegna þess að þau séu í hópi merkustu vistkerfa heims, einstæð náttúrufyrirbæri. (nú gætu sumir sagt að þetta sé bara leir og mosi, en leir og mosi eru líka mikilvæg fyrirbæri þó þau séu ekki top40 túristadæmi. Svolítið eins og að segja að Belle og Sebastian eigi ekki tilverurétt vegna þess að þau seljist ekki eins mikið og Britney Spears?)
Nema hvað...
Nú vill Valgerður Sverrisdóttir, Iðnaðarráðherra, leita lagalegra ráða til að hunsa vilja sveitastjórna og íbúa svæðanna. Spennandi... Nú er bara að sjá hvort íslensk stjórnvöld kjósa að vinna í samræmi við þau markmið sem sett voru fram með Staðardagskrá 21, eða hvort við förum aftur í Sovét-tilskipana-5-ára-áætlanapakkann frá 1960...
Spurningin er hvort við viljum lýðræði með almennum aðgerðum eða alræði með sértækum aðgerðum...
Markmið Staðardagskrár 21 er að auka virkni og ábyrgð hins almenna borgara í lýðræðissamfélagi. Það er um leið helsta von nútímalýðræðis gegn hrörnun og hruni. Ætla íslensk stjórnvöld að fórna þessum hagsmunum lýðræðisins fyrir skammtímahagsmuni stóriðjumanna? Er fjárhagslegur gróði mikilvægari hamingju manna?
Valgerður sagði einnig "Við höfum viljað meina að það þurfi málefnalegar forsendur til að veita ekki framkvæmdaleyfi og þar dugi ekki tilfinningalegar eða órökstuddar pólitískar forsendur."
Hvað eru tilfinningalegar forsendur? Er ósk mín um að fjölskylda mín sé ekki barin í kássu eða arðrænd af rússnesku mafíunni tilfinningaleg? Er ósk mín um að fá að lifa á smábátaútgerð byggð á tilfinningalegum forsendum?
Hvað er málefnaleg forsenda? peningaleg forsenda? Hvað ef fólkið á svæðinu
VILL einfaldlega ekki meiri virkjanir? Er það ekki nógu góð ástæða? Eru tilfinningar og skoðanir fólks allt í einu gjaldfallnar? Er ást fólks á óspilltri náttúru og sjálfstæði sínu ómálefnaleg?
hmmm...
Hr. Muzak
Bloggað af Hr. Svavar 6:07 PM
Samviskuspurning...
Hvað er umhverfisverndarsinni?
Oft les maður ónærgætna og dónalega pistla og innskot hér og þar um að "Svokallaðir" eða "svonefndir" umhverfisverndarsinnar séu best geymdir undir vatni eða ofan í steypukari. Gjarnan er talað með hæðni um fólk sem ber virðingu fyrir náttúrunni og sér hlutina í stærra samhengi en gróðasnuði nútímamannsins.
En hvað er umhverfisverndarsinni? Hvernig sér þetta fólk umhverfisverndar/náttúruverndarsinnann?
Sér þetta fólk fyrir sér einhverja lopapeysugrasahippa eða bandaríska antitúnfiskveiðafanatíkera?
Hvað með þessi 90% umhverfisverndarsinna sem eru einfaldlega vel meðvitaðir um mikilvægi þess að lifa í góðri sátt og gefandi sambandi við umhverfi sitt og vistkerfið?
Hvað með umhverfissinna eins og Hr. Muzak, sem vilja einfaldlega að menn taki því rólega í tilhneigingu sinni til að troða steinsteypu og malbiki yfir hvern blett jarðarinnar?
Á ég svo að skilja að þeir sem formæla umhverfisverndarsinnum hefðu hreinlega ekkert á móti því að öll jörðin væri þakin steinsteypu og tré væru einungis til á söfnum? Á ég að trúa því að hinir mannhverfu séu gjörsamlega sáttir við að allt dýra- og plöntulíf jarðar þurrkist út nema fyrir örfá dýr í dýragörðum og "nytjastofna" eins og hveiti, kýr og eldislax? Ég efast um það...
Ég held að við séum flest umhverfissinnar inni við beinið, ég held bara að súrar steríótýpur af Kolbrúnu Halldórsdóttur með hippamussuna og rauða kverið á lofti skemmi fyrir okkur alvöru umhverfissinnunum...
Bestu Kveðjur,
Hr. Muzak
Bloggað af Hr. Svavar 4:26 PM
Örlítil uppfærsla...
Hefi bætt
Dr. Gunna á Linkasafnið mitt -> í þeirri veiku von að hann sjái það og ákveði að línka á mig. Hann er auðvitað eitt af mínum átrúnaðargoðum frá því ég heyrði hann fyrst á alveg rosalegri erðanúmúsík spólu á Flateyri sumarið 1991.
Þar eignaðist ég vininn
Helga...
Annars línkaði ég á Doktorinn af því að ég hreinlega hélt að ég væri búinn að linka á hann og fattaði síðan að svo er ekki... :-)
Kommon Dr. Gunni,
linkaðu á tónlistarheimspekinginn... Plís?
Bestu Kveðjur,
herra Muzak
Bloggað af Hr. Svavar 1:37 PM
Samræðutaktík...
Það er alltaf svolítið erfitt að diskútera nektarstaði við konur og aðra púritana ;-)...
Þær virðast gjarnan ganga út frá því að maður sé klámhundur ef maður vill leyfa súlustaði.
lógíkin er eftirfarandi: Svavar er á móti banni á einkadansi -> Svavar hlýtur að langa í einkadans -> Svavar er Klámhundur
Önnur lógík sem flækist fyrir þeim.
Sumir stripparar hafa talað við yfirvöld um að gerðar hafi verið tilraunir til að neyða þær til vændis. (Sem í rauninni sýnir að kerfið virkar)
->Af því leiðir að allir stripparar séu dópþrælar og hórur.
->Tökum enga sénsa, bönnum allan einkadans svo lögreglan okkar fái frið fyrir kvartandi vændiskonum...
Svolítið svipað og: Svavar er á móti banni á kannabisefnum -> Svavar hlýtur að vera djúpt sokkinn í kannabisneyslu -> Björgum Svavari áður en hann sekkur dýpra í dópfenið...
Fanatíker 1: ertu viss um að þú hafir ekki séð sprautuför á honum um daginn?
Fanatíker 2: Hann sagðist bara hafa verið að gefa blóð...
Fanatíker 1: ha... Fíklar ljúga! Hann hlýtur að vera fíkill!!!
Fanatíker 2: Við verðum að bjarga honum frá sjálfum sér áður en það er of seint!!!
Svavar (íklæddur spennitreyju): Nei, þið skiljið ekki, ég er ekki dópisti, ég var bara að gefa blóóóóóóð... Brunað burtu á sjúkrabíl...
Fanatíker 1: Þarna mátti ekki miklu muna...
Fanatíker 2: Verki okkar hér er lokið...
:)
Bestu Kveðjur
Hr. Muzak
Bloggað af Hr. Svavar 12:15 PM
Skrýtið...
Ég sá bíl í dag, skýrlega merktan: "Metanbíll - minni mengun". Hann stóð á bensínstöð og tók í gríð og erg á móti 95 oktana bensíni úr bensíndælu...
Getur einhver skýrt þetta fyrir mér?
Og svo vil ég af gefnu tilefni taka það fram að greinin hér fyrir neðan er búin að vera að gerjast í hausnum á mér í margar vikur, jafnvel mánuði. Henni er alls ekki beint að fólki sem maður diskúterar hlutina við á síðunni. Hún beinist að öllu fólkinu sem talar í Kastljósi og Silfri Egils, á alþingi, í útvarpinu, í fréttunum og í almennri umræðu.
Bestu Kveðjur,
Svavar Knútur
Bloggað af Hr. Svavar 10:42 AM
miðvikudagur, ágúst 14, 2002
Reaganismi - sóðarök...
Fylgismenn virkjana- og stóriðjustefnu grípa gjarnan til röklegra pungsparka þegar viðkvæmum hugmyndaheimi þeirra er ógnað. (það þarf nebbnilega ekki mikið til að breyta hugmyndum þeirra um heiminn ef þeir gefa manni tíma til að rökræða og eru tilbúnir að hlusta á mótrök í stað þess að koma með upphrópanir...)
Þessi röklegu pungspörk felast gjarnan í einni eða fleiri af eftirfarandi setningum sem flestir þekkja:
"Þið Umhverfisverndarsinnar/náttúruverndarsinnar/kommúnistar eruð alltaf á móti öllu!"
"Ertu á móti framförum á Íslandi/Austurlandi?"
í beinu framhaldi: "Ertu á móti Austfirðingum?"
"Þið blaðrið og blaðrið en komið aldrei með neinar góðar hugmyndir!"
"Hvað vilt þú gera? Komdu með eitthvað í staðinn!!! Núna!!!"
"Á hverju eigum við að lifa? Fjallagrösum?"
"Viltu frekar að álverið verði knúið af reykspúandi mengandi kolaveri í Kenýa?"
"Hvernig ætlar þú að auka hagvöxtinn á Íslandi?"
"Viltu ekki bara hætta öllum iðnaði og fara aftur ofan í moldarkofana?"
"Hefurðu einhvern tíma komið upp á þetta svæði??? Hvað veistu um þetta ef þú hefur aldrei komið þangað?"
"Þið
Sjálfskipuðu umhverfisverndarsinnarnir..."
"Atvinnumótmælendur..."´
"Á hverju eigum við að lifa, (í hæðnistón) Þekkingariðnaði og ferðamennsku?"
Þessir frasar eiga það allir sameiginlegt að vera rökvillur og til þess eins hannaðar að koma viðmælanda í vörn. Þeir eru kallaðir "Let them deny it..." eða "Reaganismi" eftir hinni frægu aðferð Ronalds Reagan, fyrrv. bandaríkaforseta, núv. grænmeti, að spyrja hvern þann sem vakti máls á erfiðu máli fyrir hann hvort hann væri kommúnisti: "Are you a communist?" Þessi aðferð kemur viðmælandanum alltaf í vörn og þá þarf viðkomandi ekki að díla við erfiðar spurningar og krefjandi hugsun.
Ekki misskilja mig, þetta er yfirleitt ekki illa meint hjá viðkomandi, þetta er svona "Knee-Jerk" viðbragð í rökræðu, fólk grípur til öruggs frasa til að vernda eigið viðhorf í rökræðunni, þrautreynds frasa sem erfitt er að berjast við. Þess vegna hef ég kosið að búa til örlitla handbók handa bæði umhverfissinum og virkjunarsinnum, vegna þess að það er afar leiðinlegt að standa sjálfan sig að ómerkilegum málaflutningi.
Hér á eftir kemur listinn yfir þessa frasa og hvernig er best að svara þeim.
Gerið líka tilraunir með ný svona svör og prófið að nota kommúnistapælinguna þegar fullt af fólki er í kring. Það er ótrúlegt hvað hún virkar flott...
"Þið Umhverfisverndarsinnar/náttúruverndarsinnar/kommúnistar eruð alltaf á móti öllu!"
Möguleg svör:
1: Já, það er rétt, ég er einmitt á móti ÖÖÖLLLLUUUUUUU ÖLLU... Ég er á móti framförum, kærleik, kristnum gildum, ég ét börn og er með þrjá fætur.
2: Þarna ertu með svolítið stóra alhæfingu minn kæri viðmælandi, ertu tilbúinn að rökstyðja hana frekar eða ætlarðu að leyfa henni að hanga í loftinu eins og lyktinni af dauðum hamstri?
"Ertu á móti framförum á Íslandi/Austurlandi?"
Möguleg svör:
1: Já, ég er á móti öllum framförum, á Íslandi, Austurlandi, Grænlandi, Noregi, Svíþjóð, Danmörku, Bandaríkjunum, heiminum! Ekki bara það, þá vil ég líka að við hörfum á ný ofan í moldarkofana og deyjum drottni okkar. Í raun væri best ef við gætum þróast afturábak ofan í amöbur.
2: Finnst þér þetta ekki pínulítið óréttlát og óígrunduð spurning? Trúirðu því virkilega að ég sé á móti framförum?
"Ertu á móti Austfirðingum?"
Möguleg svör:
1: Já, ég er á móti Austfirðingum, í rauninni vil ég myrða þá alla, en ekki áður en ég er búinn að láta þá þjást í 25 ár án vega og atvinnu.
2: Ertu á móti fólki?
"Þið blaðrið og blaðrið en komið aldrei með neinar góðar hugmyndir!"
Möguleg svör:
1: Þú blaðrar og blaðrar og hlustar aldrei á það sem neinn segir, þess vegna heyrir þú aldrei þegar maður kemur með góðar hugmyndir.
2: Ertu kommúnisti?
"Hvað vilt þú gera? Komdu með eitthvað í staðinn!!! Núna!!!"
Möguleg svör:
1: Já, frábært, þið eruð búnir að hafa 35 ár til að hugsa hlutina og það besta sem þið komuð upp með er Álver, svo viltu fá brilljant hugmynd upp úr mér á 8 sekúndum. Takk fyrir að hafa svona mikla trú á mér...
2: Ókei, fyrst þú endilega vilt. Eyða 2 milljörðum í að prómótera Austfirði sem ferðamannaparadís, gera Egilsstaðaflugvöll að alvöru millilandaflugvelli, styðja við uppbyggingu ferðamennsku á staðnum, bæta samgöngurnar á svæðinu án þess að gera kröfu um virkjun (sjálfsagður hlutur), Leggja niður kvótakerfið og styðja við smábátaútgerð á þessum stöðum. Styðja betur við menntamál á svæðinu í stað þess að leggja niður skólana. Koma upp stálröraverksmiðju eða einhverju álíka fyrir 30 sinnum minni pening og 50 sinnum minni raforku og fá aðeins færri störf, eyða þannig þeim þensluáhrifum sem annars myndu myndast. (Fleiri hugmyndir vel þegnar)
"Á hverju eigum við að lifa? Fjallagrösum?"
Möguleg svör:
1: eins og um fatlaðan mann væri að ræða: HMá hmerju hmeigum hmið að hmifa? Hmallagmöhum???
2: Veistu... þú hljómar eins og leiðinlegi níðingurinn í grunnskóla akkúrat núna... þessi sem vildi aldrei ræða nokkurn skapaðan hlut heldur gerði bara lítið úr manni...
"Viltu frekar að álverið verði knúið af reykspúandi mengandi kolaveri í Kenýa?"
Möguleg svör:
1: Já! ég tel að Kenýa, með það atvinnuleysi og lágþróaða hagkerfi sem þar er, þurfi þetta álver miklu meira en við, þrátt fyrir vissa mengunaraukningu. Íslendingar þurfa þetta álver um það bil jafn mikið og María Carey þarf laxerolíu. Kenýamenn þurfa það eins og Eþíópíubúi þarf mat. Ég er ekki það fanatískur umhverfisverndarsinni að ég vilji ekki að þróunarlöndin fái séns til að komast á iðnríkjastig. Ert þú á móti því að þróunarlöndin fái iðnað? Við getum þá um leið notað 750 MWöttin okkar til þess að knýja annan og meira orkusparandi iðnað og þannig lágmarkað mengun okkar út á við.
2: Já, ég vil frekar hafa álver í Kenýa, þar sem þess er þörf, en þar að auki er mikið um jarðhitavinnslu í Kenýa og þannig værum við að styðja við bakið á þróunarlöndunum. Ert þú kannski á móti þróunarlöndunum?
"Hvernig ætlar þú að auka hagvöxtinn á Íslandi?"
Möguleg svör:
1: Með því að gera það sem allir aðrir gera, vinna mína vinnu, fá góða hugmynd og stofna fyrirtæki og vinna að bættum hag þjóðarinnar eins og hagkerfið á að virka, ekki með sértækum aðgerðum. Ert þú kannski kommúnisti sem vill handstýra hagkerfinu?
2: Ríkið á ekki að auka hagvöxtinn, ég hélt að kapítalisti eins og þú vissir það. Íslenskur iðnaður hefur fulla getu til þess að halda uppi öflugum hagvexti ef hann er látinn í friði. Prófum til dæmis að leyfa krókabátum að veiða meira og lengur á ári og sjáum hvað þá gerist. Hefur þú kannski enga trú á íslenskum iðnaði.
"Viltu ekki bara hætta öllum iðnaði og fara aftur ofan í moldarkofana?"
Möguleg svör:
1: Já einmitt! Spurðirðu þessarar spurningar í fyllstu alvöru eða ertu bara að þykjast vera lélegur rökræðumaður?
2: Ertu kommúnisti?
"Hefurðu einhvern tíma komið upp á þetta svæði??? Hvað veistu um þetta ef þú hefur aldrei komið þangað?"
Möguleg svör:
1: Skiptir það einhverju máli? Hvað með það ef mig langar að fara þangað, hvað ef börnin mín langar að fara þangað, ertu á móti börnunum mínum?
2: Ert þú búinn að fara þangað, hvernig veist þú hverju er búið að fórna?
3: Af hverju skiptir það máli hvort ég hef farið þangað ef ég vil vernda það? Kannski vil ég bara hafa það eins og það er af því að ég trúi því að við eigum ekki að fórna náttúrunni að ástæðulausu hvort sem hún er ljót eða falleg. Kannski er ég á móti þessu út á prinsipp, prinsippið að við eigum ekki að fara svona geist í nýtingu íslenskra fallvatna. Kannski trúi ég því að við verðum að fara varlega þegar um er að ræða óafturkræfar aðgerðir, og þegar aðgerðirnar eru svona gerræðislegar og svona mikið af lygum í gangi, þá fyllist ég tortryggni og efasemdum gagnvart virkjuninni og álverinu. Skiptir einhverju máli hvort landslagið er fallegt eða ljótt?
4: Ertu kommúnisti?
"Þið Sjálfskipuðu umhverfisverndarsinnarnir..."
Möguleg svör:
1: Er einhver önnur tegund umhverfisverndarsinna til? Er til ríkisskipaður umhverfisverndarsinni eða umhverfisverndarsinni skipaður af Landsvirkjun eða Alcoa? Ég held ekki... Eini maðurinn sem getur gert úr mér umhverfisverndarsinna er ég sjálfur. Þannig að hvað áttu við?
2: Af hverju talarðu í svona hæðnistón um sannfæringu mína. Fyrirlíturðu umhverfissinna? Ertu að gera lítið úr trú minni og sannfæringu? Þykir þér umhverfið ekki þess virði að vernda það? Ertu kommúnisti?
"Atvinnumótmælendur..."´
Möguleg Svör:
1: Nei, ég starfa í raun hjá fyrirtæki í innflutningi. Ég er meira svona eins og áhugamannamótmælandi.
2: Já, ég er á launum hjá Sea Shepard fyrir að halda fram skoðun minni, helvíti feitur díll...
3: Atvinnukommúnisti...
4: Hvað meinarðu með þessu, viltu útskýra þetta nánar?
"Á hverju eigum við að lifa, (í hæðnistón) Þekkingariðnaði og ferðamennsku?"
Möguleg Svör:
1: Já! Auðvitað!
2: Greinilega ekki, fyrst þú vilt taka allt fólkið og setja það um borð í stóriðjuver.
3: Nei, skreiðarvinnslu og fjallagrasatínslu!
4: Ertu á móti hátækni og nútímaatvinnuvegum? Ertu kommúnisti?
Bloggað af Hr. Svavar 12:17 PM
þriðjudagur, ágúst 13, 2002
Þið verðið að gera betur...
...En að segja bara að ég sé á móti öllum framförum og framkvæmdum...
Það ætti að vera öllum ljóst að Hr. Muzak er alls ekki á móti uppbyggingu eða framförum.
Ég vil hins vegar að menn gæti að því hvort engir aðrir valkostir séu í stöðunni en sá að rústa heilu landsvæðunum.
Getum við Íslendingar með sönnu sagt að við höfum leitað af okkur höfuðin og ekki fundið neina betri og hagkvæmari leið til að nýta 750 MW heldur en að láta báxít stoppa á Reyðarfirði eða í Hvalfirði og renna út úr landi næstum samdægurs?
Getum við með sönnu sagt að sú fórn sem við færum sé þess virði til langs tíma litið?
Getum við sagt að okkur hafi ekki dottið neitt betra í hug og þetta hafi verið lífsnauðsynlegt íslensku atvinnulífi, atvinnulífi 7. ríkustu þjóðar heims?
Hr. Muzak
Bloggað af Hr. Svavar 4:44 PM
Spurning um tvíhyggju...
Tvíhyggjuspurning: Er glasið hálf fullt eða hálf tómt?
Bjartsýnismaður: Hálf fullt
Svartsýnismaður: Hálf tómt
Brjótum aðeins upp þessa tvíhyggju...
Hr. Muzak segir: Glasið er aðeins of stórt fyrir allt þetta vatn...
Bloggað af Hr. Svavar 4:09 PM
Frábær grein á deiglunni!
Kíkið á þessa, mjög góður rökstuðningur fyrir mjög góðum punkti...
Þó ég sé kannski ekki sammála endapunktinum, því ég tel mjög mikilvægt að við byggjum upp með sjálfbærri þróun en ekki með hálfbærri sóun... ;)
Bestu Kveðjur,
Hr. Muzak
Bloggað af Hr. Svavar 2:23 PM
Enn og aftur er lýðræðið múlbundið...
Helvítis Landsvirkjun er enn og einu sinni aftur búin að kúga og berja skipulagsstofnun til hlíðni.
Skipulagsstofnun virðist greinilega búin að læra að vera bara góð og þæg stimplastofa fyrir Davíð og hans vini.
"Þorsteinn segir að Skipulagsstofnun hafi ?verið mjög markviss" í að krefja Landsvirkjun um sem nákvæmastar upplýsingar og sinnt sinni rannsóknarskyldu sem stjórnvald. ?Þetta hefur skilað vandaðri skýrslu," sagði hann." (mbl.is)
Hvað ef skipulagsstofnun hefði spurt markvissra spurninga en síðan hafnað dæminu? Hefði þá skýrslan verið óvandað drasl eins og Kárahnjúkaskýrslan? Það er spurning...
Kannski eru skipulagsstofnunarmenn búnir að missa gersamlega trúna á ríkisstjórninni. Þeir vita að það er sama hvað þeir segja, þetta fer bara á næsta stimplara, Umhverfisráðherra, sem stimplar þetta eftir "langa og góða umhugsun og íhugun..."
Til hamingju Íslendingar!
Við erum öll komin á veg "framfaranna", næsta skref er auðvitað að búa til fátækrahverfi og útrýma nokkrum dýrategundum sem flækjast fyrir drottnarahlutverki okkar gagnvart náttúrunni. Hvernig væri að þróa hættulegan vírus sem dræpi bara minka, en úbbs, vírusinn stökkbreyttist og við drepumst öll, æi æi...
Það er sorglegt hvað íslendingar virðast seinir til að fatta það sem máli skiptir. Við erum nú þegar 7. ríkasta þjóð í heimi. Erum við virkilega það bágstödd að við þurfum að tortíma tveimur frábærum víðernum til að koma okkur upp eitt þrep. Hvar verðum við þá í stiganum yfir ríkustu þjóðir í heimi þegar umhverfis og hamingjuauður er tekinn inn í reikninginn. Æi, ég gleymdi því að umhverfi, hamingja, lífsgleði og frelsi eru ekki metanleg til fjár og því ómögulegt að taka það með í reikninginn, bara beinhart kass...
kass kass kass og aftur fokkíng kass...
Þessi Davíð er hlass og hugsar bara um kass og sinn feita rass...
Ég veit ekki nema að ég segi pass og flytji til Danaveldis að reykja hass...
þar sem loforðin fögru eru bara ómerkilegt krass
á skeinipappír feitamannsins, kass kass kass...
Konurnar á Strípistöðunum eru ekki hórur... Þær selja bara líkama sinn í stutta stund og fara svo heim að chilla.
Davíð og co virðast mér bæði hórur og melludólgar í einu, þeir selja sálir sínar fyrir lífstíð og hamingju okkar og barnanna okkar, fyrir 30 silfurpeninga.
Herra Muzak
Bloggað af Hr. Svavar 12:36 PM
Umræðan hitnar...
Ágúst, Unnur, Jói og ég veit ekki hverjir fleiri eru búnir að vera að diskútera trúarbragðapakkann og hvernig það strýkst við samkynhneigð.
Ég veit persónulega ekki betur en að óháði söfnuðurinn og fríkirkjan leggi blessun sína yfir samkynhneigða og sambönd þeirra.
Þá er þetta bara spurning um að segja sig úr þjóðkirkjunni og vera kristinn meðal þeirra sem hafa það sjálfsagða umburðarlyndi sem við ætlumst til af fólki.
Ef þjóðkirkjan er ekki tilbúin að leggja blessun sína yfir sambandið og kærleikann sem ríkir meðal tveggja einstaklinga af sama kyni, þá verður bara fólk að gefa skít í hana og leita annað með sínar trúarþarfir. Óháði söfnuðurinn og Fríkirkjan eru fullkomnlega eðlileg og góð kristin samfélög og ekkert ofstæki þar. Lútherska kirkjan verður bara að fá að finna það í rýrnandi meðlimatali hvernig hún kemur fram við sín sóknarbörn.
Annað mál á dagskrá.
Gunnar í Krossinum sagði um daginn: "Þú sérð ekki tvo gamla homma labbandi saman, hönd í hönd niðri á strönd." og vildi þannig meina að hommar væru ófærir um langtímasambönd.
Ég vil nú meina að gamlir hommar hefðu þurft að koma út úr skápnum um 1950-60, sem hefði verið ansi skrýtið, í raun rétt og slétt sjálfsmorð. "Gamlir hommar" í dag eru þeir hugrökku menn sem komu út úr skápnum í kringum 1980 á meðan menn voru enn barðir í spað fyrir að vera "hinsegin". Þessir gömlu hommar eru rétt yfir fertugu í dag og margir þeirra hafa enst í sambandi í mörg mörg ár.
Kannski sér Gunnar í Krossinum gamla homma labbandi eftir ströndinni eftir 30 ár, en hann sér enga núna, vegna þess að hann og hans vinir sáu um að "halda stofninum í skefjum" á sínum óöruggu æskuárum.
Bestu Kveðjur,
Herra Muzak
Bloggað af Hr. Svavar 12:14 PM
AAAaaahhh....
Fann Debetkortið mitt í óhreina tauinu...
Varpaði öndinni léttar...
Það er innistæðulaust...
urg...
svangur... þreyttur... Pissa...
Pirr, Pirr, Pirr, illt í puttanum pirr...
Pirraður... (en samt alveg ágætlega hress...)
Hr. Muzak
Bloggað af Hr. Svavar 9:30 AM
mánudagur, ágúst 12, 2002
Mér býður við því...
Þegar stjórnmálamenn nota erfiðleika annarra sem pólítískt klink.
Það er ómerkilegur leikur að reyna að nota nektarstaði sem einhvers konar þumalskrúfur á ráðandi aðila, hvort sem þeir eru vinstri eða hægri menn.
Haldiði virkilega að Sólveigu, eða samfylkingarkerlingunni þarna eða Birni Bjarnasyni og Co sé ekki drullusama um einhverjar dansipíur?
Það eina sem skiptir þetta fólk máli er að koma höggi á andstæðing sinn, hversu ómerkilegt sem það er.
Bestu Kveðjur,
Hr. Muzak
Bloggað af Hr. Svavar 12:44 PM
Af hverju indeed?
Ágúst Flygering skrifar um SUS: "Mikið starf liggur fyrir. Það þarf t.d. að rifja það upp fyrir mér hvers vegna ég á að kjósa flokk sem á aðild að ríkisstjórn sem gefur út ríkisábyrgðir og fremur mannréttindabrot..."
Hvers vegna indeed spyr ég?
Hvers vegna ekki að kljúfa sig frá honum og kjósa trúverðugri valkost? Búa til trúverðugan valkost? Yfirgefa söfnuð hvers stefna hefur svikið trúarritin svo gjörsamlega?
Af hverju að hanga í þessum flokki, af hverju að kjósa flokk sem á aðild að ríkisstjórn sem gefur út ríkisábyrgðir og fremur mannréttindabrot? Hvaða grettistaki geta Davíð og Co lyft til þess að bæta upp fyrir þetta? Lækka skatta? Væri það betra? Leyfa kannabis? Súlustaði? Myndi það vera nóg til að bæta fyrir virðingarleysi þeirra fyrir mannréttindum ykkar? Hver er prísinn á stolti Ágústs Flygering? Hvað kostar sannfæring Björgvins Guðmundssonar? Er kannski verðteygnin geigvænleg? Er kannski þolið gegn slakri þjónustu orðið svona mikið sökum skorts á samkeppni?
Hvar eru valkostirnir? Þetta er gallinn við okkar lýðræði! Það vantar fleiri valkosti en þessi fjögur grey til þess að fólk hér á landi geti í raun veitt flokkunum aðhald... Annars geta þeir bara sagt: "Viljið þið frekar hafa kommúnista við stjórn?"
Kjarni málsins er þessi: Ég er ekki á móti sjálfri sjálfstæðisstefnunni. Ég er á móti því fólki sem eignar sér hana. Davíð Oddsson, Sólveig Pétursdóttir, Sturla Böðvarsson, allt þetta pakk er valdaklíka dauðans sem notar þessa fallegu hugsjón sem blæju til að blekkja almenning til að halda völdunum "í höndum þeirra sem réttilega eiga að fara með þau, alvöru fólksins, fólksins sem á peninginn."
Bestu Kveðjur,
Hr. Muzak
Bloggað af Hr. Svavar 11:47 AM
Búið að kjósa ný óskabörn þjóðarinnar
<rant rant rant um hluti sem valda mér leiðindum... ekkert illt meint, gummijóh, magnús og guðni og geir og allir...>
Jæja, nú eru erfingjar íslenska auðsins búnir að kjósa sér nýja stjórn.
Valið stóð milli stuttbuxnaklíku A og stuttbuxnaklíku B, ljósbláu og lillabláu stuttbuxurnar...
Þegar ég var 18 fór ég eitt kveld á kosningaskrifstofu sjálfstæðisflokksins, þar sem ungir sjálfstæðismenn biðu með bæklinga og bros eftir ungum kjósendum.
Ég talaði við þetta fólk í smá stund, og áttaði mig afar fljótt á því að þetta var sama týpan af fólki sem brosti svo fallega í grunnskóla og bjó sér til svona "valdaklíku" í grunnskólanum og setti sig á háan stall. Þessi hái stallur olli því að hinir nemendurnir fóru á einhvern undarlegan hátt að líta upp til þeirra og vilja komast á þeirra sjálfskipaða "æðra" svið. Við lúserarnir vorum auðvitað aldrei boðnir í afmæli, bekkjarkvöld eða partý og mynduðum bara okkar eigin "Vinstri grænna" samfélag, þar sem við héldum bara áfram að spila fótbolta og klifra á fjöll og vera í snjókasti, 13 ára strákpeyjar, á meðan ungu sjálfstæðismennirnir voru í óða önn að búa til litla einkasamfélagið sitt sem allir vildu vera hluti af.
Ég labbaði þess vegna afar fljótt út frá þessu fallega, snyrtilega, vel til hafða og colgate brosmilda fólki og hugsaði að ef þetta væri klúbburinn, þá vildi ég ekki vera meðlimur, ekki vottur af manneskjulegheitum eða hugsjónum, bara útlærð framkoma af Dale Carnegie námskeiðum, slagorð um frelsi og mannúð, sem þau eru pottþétt á því að eiga einkarétt á. (sjáiði til, vinstrimenn éta börn og hata frelsi... Það er það sama að vilja ríkisrekið mennta og heilbrigðiskerfi og að vilja éta þá... Vilt þú éta lítil börn? ha? neeei, þá skaltu ekki hugsa neitt "vinstrisinnað", vinstri villa!!! vinstri villa!!! vinstri villa!!!).
Í rauninni vorkenni ég þessu vel (heila)þvegna fólki, að geta ekki hugsað eina hugsun til enda án þess að slagorð og fordómar flækist fyrir þeim. Pabbi minn var sjálfstæðismaður, en hann sagði mér að það eina sem skipti máli væri að ég hugsaði hlutina gagnrýnið. Hann tók vinstri hugmyndum mínum fagnandi sem vísbendingu um það að ég væri ekki slagorðabarn.
Persónulega skiptir það mig engu máli hversu mörgum stuttbuxum stuttbuxnaklíka A nær að safna í tunnu meir ein stuttbuxnaklíka B.
Það eina sem svekkir mig er að fólk tekur í síauknum mæli mark á blaðrinu í þessum höfðingjasleikjum og poppfígúrum en ekki eigin skynsemi. Það svekkir mig að hinir tveir vinstriflokkar Íslands keppa um að rífa af hvor öðrum bita af sömu 30% íslendinga sem trúa á forræðishyggju og vitleysu á meðan sífellt fleiri verða leiðir á þessu rugli og kjósa bara framsókn eða Sjálfstæðisflokk til að losna við þessi gimp.
Þetta unga, fallega, hreina, ungmennafélagslega, frelsissinnaða, heilaþvegna og síglaða fólk, virðist ekki sjá nein vandamál í samfélaginu okkar, nema það að þau gætu keypt sér fimm DVD diska í viðbót í mánuði ef að skattarnir myndu lækka. Þetta dásamlega, vingjarnlega og fordómalausa fólk á eftir að líta á okkur lúðana, umhverfisverndarsinnana og þá sem hallast eilítið til vinstri, sem negra og vitleysinga sem ekki er eyðandi orðum í og tæta bara í okkur einhver slagorð eins og franska yfirstéttin forðum. Þau telja ljótu og minna flottu fólki trú um að það geti náð eitthvert í lífinu en nota það sem slagorðajarmandi rollur, tröppur upp að sínum eigin metnaði, sem er að vera flottasti stuttbuxnastrákur ársins, flottasti grunnskólaneminn, formaður nemendaráðs, prom king and queen, besti rimmarinn hans Davíðs...
En svo eru auðvitað til undantekningar... Örfáar og undarlegar...
</rant rant rant um hluti sem valda mér leiðindum... ekkert illt meint, gummijóh, magnús og guðni og geir og allir...>
En bottomlænið er þetta: Þetta er upp til hópa, hjörð af sjálfsánægðum og egósentrískum diktafónum sem æpa út úr sér sömu slagorðin daginn út og inn og hafa enga raunverulega sannfæringu.
punktur...
Bloggað af Hr. Svavar 11:29 AM
Hamingja og gleði...
Hehehe... það er alltaf jafn hressandi þegar
Naggurinn klikkar og Herra Muzak trónir á toppnum þangað til hann skrifar innihaldslausa færslu til að reyna að hleypa öðrum að...
Sko hvað Hr. Muzak er góður...
Annars er ég í drullugóðu stuði, fer í sund á eftir og læt ljós mitt skína.
Bestu Kveðjur,
Hr. Muzak
Bloggað af Hr. Svavar 9:52 AM
Og svo...
Vil ég þakka
Dr. Gunna kærlega fyrir hugulsamt, fordómalaust og jákvætt álit sitt á námi mínu...
Alltaf gaman þegar menn gera lítið úr þriggja ára starfi manns...
Ég ætti kannski að segja eitthvað fallegt um mömmu þína, en ég ætla að sleppa því, ég er nefnilega svo þroskaður... heimspekilegur... Kúkalabbinn þinn...
Takk takk Dr. Gunni, Takk Takk... :)
Bloggað af Hr. Svavar 1:38 AM
Dásamleg Helgi...
ahh....
þreyttur og glaður...
Átti æðislega góða helgi með konu og dóttur og Möddu og
Dreng.
Við tókum þá ákvörðun á föstudaginn að eyða helginni fyrir norðan í húsi fjölskyldunnar í Skálárkoti. Þetta er líklega í fyrsta skiptið sem ég fer þangað bara til þess að hafa það gott...
Upphaflega planið var að taka þátt í Gay Pride göngunni, en þar sem
Moonboots eru búnir að vera að spila svona mikið, langaði mig að eyða einni helgi fjarri bænum og chilla. Betra væri að styðja við málstað homma og lesbía með því að veiða regnbogasilung... :)
Við lögðum af stað seint á föstudaginn og keyrðum þess vegna í myrkri mest alla leiðina... hnuss...
Þegar við loks komum að Skálárkoti, sloti fjölskyldunnar, vorum við læst úti vegna misskilnings og ég lagði leið mína á næsta bæ til að ná í lykla (kl. 03:00 um nótt...) Bændur sofa fast, þannig að eftir langa mæðu gafst ég upp á barningnum og ætlaði burt, en sá þá opinn eldhússglugga með lyklinum að húsinu í gluggakistunni. Bah... Þetta var bara bizarre... Við hentum dótinu inn, bjuggum um okkur og lögðumst til hvílu. Við vöknuðum um hádegisbilið og hófum mikla skemmtun.
Við ákváðum að klífa upp á Skálárhnjúkinn, ægifagurt fjall sem gnæfir yfir dalinn okkar. Á leiðinni sýndi ég þeim dauða hestinn okkar (Equus mortis, sem hrossabóndinn illi og eineygi er ekki enn búinn að sækja...) Dagbjört, dóttir mín, var býsna þreytt og kvartaði nokkuð yfir þrautseigju foreldranna, en við drógum hana alla leið á toppinn... Þetta var mikið grettistak og veit ég ekki til margra 4ra ára telpna sem hafa tölt upp á 5-600 m. hátt fjall á innan við tveimur tímum. Dagbjört, þú ert algjör skörungur.
Þegar niður var komið lá það ljóst að við yrðum að komast í sturtu, við lyktuðum vægast sagt eins og úlfaldar. Þess vegna kíktum við í bestu sundlaug Íslands, sundlaugina að Sólgörðum í Fljótum, hún er tærust og fallegust allra landsins lauga. Í heita pottinum hittum við skemmtilegar mæðgur og systur frá Reykjavík sem voru í heimsókn á Hofsósi að dást að vesturfarasetrinu eins og
Tyrkinn nokkrum dögum áður...
Við tileinkuðum fjallaklifursafrek okkar samtökunum sjötíu og átta og er nú Skálárhnjúkurinn hommasnortinn tindur.
Svo var etið... og etið... og etið... Og við Drengur veiddum sinn hvorn silunginn, hvorn öðrum minni og aumingjalegri, en við átum þá engu að síður. Bleikjan hans Drengs var himnesk en Urriðinn minn var nokkuð bragðminni...
Við enduðum á því að vera svo þreytt að við spiluðum laumu til eitt um nóttina og lögðumst svo í fletin, dauðþreytt...
Dásamleg helgi að öllu leyti, leiðinlegt með Gay Pride á Ingólfstorgi, það þurfa alltaf að vera einhver fífl sem fatta ekki að skyggni er til að hlífa fólk fyrir rigningu en ekki til að hanga uppi á... Fífl!
Ég tel það all ljóst að við verðum að stofna samtök eða bandalag frjálslyndra einstaklinga á Íslandi, Sjálfstæðisflokkurinn er ekki að standa sig, enda er hann aðeins hagsmunagæslubandalag fyrir stórlaxa og búrgeissa og stendur einungis sem skuggi af sjálfum sér.
Ég tel mikilvægt að leggja til hliðar viðskiptalegar áherslur í þessu samhengi. Samfélagið sér um svona hluti auk þess sem þeir hafa ekki næstum því jafn mikil áhrif á siðferði og hamingju fólks eins og spurningar um málfrelsi, tjáningarfrelsi, athafnafrelsi og frelsi til atvinnu, sem Sjálfsóknar og framstæðisflokkarnir hafa báðir vanrækt gjörsamlega undanfarin 20 ár.
Í raun mætti segja að næstum öll lög um bætt frelsi almennings í landinu, aukna skilvirkni stjórnkerfisins og aðgengi að upplýsingum stemmi frá evrópska efnahagssvæðinu og séu hluti af tökulöggjöfinni þar.
Höldum aðeins áfram að ræða þá hugmynd að sameina frjálshuga íslands í eitt bandalag, óháð efnahagslegum skoðunum, leggja þær til hliðar við dyrnar og vinna einungis út frá frelsishugsjónum einstaklinganna.
Bestu Kveðjur,
Hr. Muzak
Bloggað af Hr. Svavar 1:26 AM
föstudagur, ágúst 09, 2002
Forræðishyggjumenn allra landa sameinist
Samfylkingarpakkið er endanlega búið að varpa frá sér öllu því sem aðgreindi það frá vinstri grænum og íhaldsfrethólkunum í Sjálfstæðisflokknum. Vilja líka banna einkadansinn á Smiðjuveginum í Kópavogi. Helvítis Ráðstjórnarríkjamórall! Af hverju sameinast þetta fólk ekki í einum flokki og stofnar einn flokk forræðis- og "við viljum ráða öllu"hyggju. Ég er kominn með fínt nafn á hann: "Sjálfstæðissamkurlsframsóknarkommúnistaframfaraflokkurinn"
Nammi Namm...
Drasl... Og svo er þetta allt eitthvað fólk sem verður að ráða ráða ráða. Fólk með valdafíkn lætur svona, getur ekki leyft öðrum að lifa sínu lífi í friði.
Mann langar mest til þess að stofna flokk frjálslyndra jafnaðarmanna með frjálslyndið að leiðarljósi, en hversu margir myndu þora að rísa yfir hópheimskuna og kjósa hann...? Kannski tvö prósent?
Kommon... Er engin leið út úr þessu rugli?
HJÁÁÁÁLLLLPP!!!
Mann langar að gubba...
Og hvernig héldi maður síðan helvítis forræðishyggjupakkinu út úr flokknum?
Það yrði líklegast þrautin þyngsta... Þetta pakk virðist geta troðið sér inn í alla flokka og eyðilagt stjórnmálin fyrir okkur öllum hinum.
Fyrir mér snýst pólítík um það hvernig við getum stuðlað að því að Samfélagið okkar, félagið sem fólk stofnar til þess að vinna að sameiginlegum málum, blómstri. Það gerir það allavegana ekki með svona hugsunarhætti.
Bestu Kveðjur,
Hr. Muzak
Bloggað af Hr. Svavar 9:56 AM
fimmtudagur, ágúst 08, 2002
Kúgunartól kvenna...
Mjög fín
grein hjá Unni um forhúðarampútasjón, sem er eitt það viðbjóðslegasta fyrirbæri sem ég veit um...
Tilvitnun dauðans:
"The frenar band of soft ridges--the single most pleasure producing zone on the male body [is lost forever]. Loss of this densely innervated and reactive belt of tissue reduces the sensitivity of the remaining penis to about that of ordinary skin."
Ég segi eins og Unnur, hvernig þætti ykkur að vera með sigg á snípnum stelpur?!?
Takk Unnur...
Svabbi
Bloggað af Hr. Svavar 4:17 PM
Djöfull væri ég til í...
...að fá díl eins og Bjössi Bjarnason...
Hann fær að skrifa á miðopnuna í
Mogganum samkvæmt einhverri súrri forskrift. Hann nýtur þeirrar fornu frægðar að hafa einu sinni verið það sem kallaðist "beittur penni" og þýðir í rauninni hjá fólki gamla tímans að vera góður í því að kasta skít í fólk. Bjössi fær sumsagt pening fyrir að halda fram skoðunum sjálfsstæðisflokksins kaldhreinsuðum og óblönduðum, eins og þorskalýsi...
Dæmigerður texti eftir Bjössa sundurgreindur:
Formáli - foringinn hylltur:Heill Davíð, Heill forsætisráðherranum, keisaranum sem bjargar okkur frá glötun kommúnismans.
Inngangur, hér er efnið kynnt: Umhverfismál hafa verið mikið í umræðunni undanfarið og hafa þar komið fram mörg mismunandi sjónarmið.
Framsetning kenningar: Réttust og best þessara sjónarmiða eru sjónarmið alvöru íslendinga sem elska landið sitt og eru því tilbúnir að færa fórnir af landinu til að landið megi þrífast. Hinir eru kommúnistar, vinstrimenn, pestarberar, kynvillingar og hippar. Kommúnistarnir eru á móti framförum og vilja drepa alla Austfirðinga með eitri.
Fyrsti Rökstuðningur kenningar: Vinstrimenn eru illir, þeir eru fáfróðir og þjófóttir og borða börn. Allir sem vilja vernda hálendið eða eru á móti stóriðju eru kommúnistar og vinstri grænir og á móti Bandaríkjunum og öllum sem gengur vel bara af því að þeir eru öfundsjúkir út í að við eigum pening. Allir sem eru ekki sjálfstæðismenn eru aumingjar og feitir og vinstrimenn.
Annar Rökstuðningur kenningar: Vinstrimenn breytast í stein ef þeir fara út á daginn, því þeir eru tröll og þola ekki sólina... Þess vegna vilja þeir ekki að sólin skíni á líf okkar hinna...
Skírskotað til íslandssögunnar og íslendingasagna: Kommúnistar fengu einu sinni bréf og peninga frá Sovíetríkjunum, sem voru vond. Njáll og Gunnar hötuðu líka kommúnista.
Skírskotað til biblíunnar:Jesú elskar ekki heldur kommúnista, bara sjálfstæðismenn.
Niðurstaða Björns:Þess vegna, kæru lesendur, þykir mér ljóst að við verðum að reisa Kárahnjúkavirkjun hið snarasta og helst að drekkja öllum heimsku kommúnistunum í lóninu.
Lokaskot á R-listannAuk þess má bæta við að R-listinn sökkar og Inga Solla er bábýlonsk skækja. Öll vandamál á Íslandi eru R-listanum að kenna.
Vá hvað ég væri til í að fá borgaðan beinharðan pening fyrir að blogga svona "málefnalega."
Jú, stundum er ég svona "málefnalegur" sjálfur,
en mér dytti ekki í hug að vera svona "málefnalegur" í
Morgunblaðinu fyrir Pening...
eða hvað???
Bestu Kveðjur,
Hr. Muzak
Bloggað af Hr. Svavar 2:06 PM
Þegar ég vann á Mogganum í fyrra...
Rakst ég á
þessar tvær æðislegu
Vestfirsku fréttir.
Mér hefur alltaf þótt þær kostulegar og hlegið dátt að þeirri hárfínu kaldhæðni og svörtum húmor sem einkennir blaðamennskuna í þeim...
Bestu Kveðjur,
Hr. Muzak
viðbót:
Andrés vinur benti mér á að ein frétt var í viðbót við þessar tvær frægu fréttir...
Hér er hún...
Bloggað af Hr. Svavar 11:36 AM
Hrafnaspark...
Helgi 2000 kíkti í heimsókn í kvöld með tölvuna sína... Hún hafði, að hans sögn, verið með vör við hann...
Ég niðurlægði Helga með einföldu bragði úr dögum mínum í tölvulagfæringum og stappi og er nú tölvan hans eins og ný... (lykilorðið er "að tengja...")
Nema hvað, þegar ég hafði hlegið nægju mína að flónsku míns góða vinar og kærleikstrommara, hringdi bróðir minn í mig og bað mig um að ná í bensínslöngu fyrir SAAB 900i bifreiðina sem hann var að gefa mér og er aðeins að laga til. Ég er mjög stoltur bíleigandi, enda eru SAAB geeeðveikir bílar...
Nema hvað, eftir að við náðum í bensínleiðsluna upp í MOSFELLSBÆ ákváðum við að kíkja á Vídalín við Ingólfstorg og bera augum tríóið Hrafnaspark. Þessir strákar eru í kringum tvítugt og spila Djangódjass ástarinnar, þvílíkir gleðipiltar. Mér þótti strax vænt um þá og ætla að fylgjast með þeim í framtíðinni. Auðvitað voru viss "tæmraffineringarissjús" og svona en ekkert sem tvö til þrjú ár í músíkskóla lífsins pússa ekki til. Í hnotskurn, Geðveikt skemmtilegt og gleðilegt djangópoppdjasshamingjuspilerí og snyrtimannleg sviðsframkoma.
Krádið virtist hins vegar óvant djassi, og fyrir óinnvígða skulum við rifja upp nokkrar meginreglur djassins og þau reglubrot sem framin voru.
Djassregla 1: Staðurinn á að vera reykmettaður... Vel skal vera drukkið af hvers konar veitingum og barnum þannig umbunað fyrir að vera með svona öðruvísi gjörning.
Ekki sígaretta í öllu húsinu... loftið var hreint eins og barnsrass. Fimm til sex túborgflöskur voru dreifðar um salinn, þar af ein í höndum Helga, þökk sér undirrituðum... Sjálfur keypti ég mér sódavatn til að geta keyrt heim hreinn og beinn...
Djassregla 2: Klappa fyrir og fagna flottum og vel uppáfundnum köflum
Dauðaþögn í kjölfar ævintýralegra einleikskafla og samspilsuppáfinninga.
Djassregla 3: Ekki klappa með, ef þörfin er öllu yfirsterkari, vaggið hausnum og smellið fingrum á tveimur og fjórum. ALLS EKKI KLAPPA Á EINUM OG ÞREMUR. 20's djass er enn vandmeðfarnari, þar má alls ekki gera hljóð nema til að fagna!
Fólkið klappaði gjarnan á einum og þremur eða á hverju slagi og klappaði jafnvel ekki í takt við tónlistina svo allt í einu var klappið komið hálfu slagi á undan hljómsveitinni. Sumir klöppuðu bara eitthvað með, svona eins og lítil börn sem eru að uppgötva hendurnar á sér...
Allt í allt var þetta afar ánægjulegt kvöld og viðburðaríkt. Yiha... Nú ætla ég að fara að lifa mínu villta lífi og raða sokkunum mínum í stafrófs- og litaraðir í þrívíðu fylki.
ahem...
Hr. Muzak
Bloggað af Hr. Svavar 1:10 AM
Moonboots.is - öppdeit...
Auðvitað erum við enn að pæla í innihaldi Moonboots.is vefsins og við vonum að hann verði í sífelldri þróun, en mig langaði að benda ykkur sem viljið alls ekki missa af neinu... ;) á frábæran fídus, Moonboots Póstlistann, þar sem allir helstu viðburðir komandi daga verða kynntir (þ.e.a.s. ef þeir eru eitthvað merkilegir...)
Endilega skráið ykkur á téðan póstlista og við hlökkum til að fást við þetta stöff...
Hr. Muzak
Bloggað af Hr. Svavar 12:53 AM
miðvikudagur, ágúst 07, 2002
Jæja krakkar, ég mæli með að þið lítið við á
síðu hljómsveitarinnar Moonboots öðru hvoru, því þar verða framvegis allar fréttir af spilamennsku okkar. Mun Muzakvefurinn fara aftur að þjóna því hlutverki að styðja við bakið á frama Hr. Muzak sem söngvara og lagahöfundar...
Auðvitað mun ég blaðra eitthvað um Moonbootsmál, en ég ætla ekki að leggja vefinn svona undir Moonboots eins og ég hef gert.
Moonboots er vitaskuld besta gleðiband Íslands, en nú er sumsagt kominn vettvangur fyrir fréttir af því eðalbandi.
Moonboots.is
Sjáumst þar...
Svabbi
Bloggað af Hr. Svavar 1:54 PM
þriðjudagur, ágúst 06, 2002
Það er aðeins eitt...
...sem hægt er að segja við mannýgan
feminista (takið eftir notkun á karlkyni) þegar hún er gripin æði.
ÉG FÍLA HVERNIG TÚTTURNAR Á ÞÉR HOPPA ÞEGAR ÞÚ ERT REIÐ!!!
:-)
Annars er maður svona aðeins að koma niður eftir helgina... allt að setjast í líkamanum og vökvatapið að bætast upp...
Mig vantar svona átta lítra af vatni til að raddböndin á mér fari að virka aftur...
Þið rúluðuð öll um helgina!!!
Vitiði það... Maður gæti gert grín yfir rigningaróförum fólksins sem fór til Eyja, en mér þykir það eiginlega ekkert fyndið lengur. Aumingjans fólkið hefði virkilega getað dáið úr ofkælingu þarna. Það hreinlega myndaðist hættuástand. Gott á Árna Johnsen að vísu, að hann gat ekki farið út með stæl í rjómablíðu með bálköstinn logandi...
En aumingja fólkið sem hraktist þarna um þetta litla sker um helgina, bíðandi eftir að flöskuhálsar tæmdust... eh...
Það mætir vonandi á Gaukinn 24. Ágúst, þá verður fokkíng STUUUUÐÐÐÐ!!!! :) úje úje úje!!!
Með feitri gleðikveðju...
Hr. Muzak
Bloggað af Hr. Svavar 9:42 AM
mánudagur, ágúst 05, 2002
DJÖ... flott helgi!
Sportkaffi 2002 gekk eins og í sögu og náðum við Moonboots liðar að halda uppi ótrúlega góðu stuði með dyggri aðstoð frábærra gesta staðarins.
ROKK ROKK ROKK!!!
Maður hitti fullt af skemmtilegu fólki,
Súsönnu,
Gumma Jóh,
Siggubeib og fleiri og fleiri og fleiri. Hin alræmdu
Beta Rokk og
Stefán Halldórs tóku lagið með okkur og gerðu glimrandi lukku með ógurlegri sviðsframkomu og söngtækni. Þar að auki tók Eva vinkona lagið með okkur á sunnudagskveldið með stórkostlegum tilþrifum.
Nú fara Moonboots í tveggja vikna frí til að hlaða batteríin.
Næsta giggið okkar verður á Gauknum 24. Ágúst.
Ég ætla rétt að vona að þið komið þá.
Þreyttur, úldinn, hás... ánægður...
Bestu Kveðjur,
Herra Muzak
Bloggað af Hr. Svavar 6:47 PM
föstudagur, ágúst 02, 2002
Áríðandi skilaboð!
Stelpur: Ef þið ætlið út úr bænum, þá munið eftir því að þið berið ábyrgð á öllum konum í kringum ykkur, öllum vinkonum ykkar og líka vinum, því strákum er líka nauðgað af konum. Það gerist mun oftar en ykkur grunar.
Strákar: Þið einir getið borið ábyrgð á eigin gjörðum og eruð í stórkostlegu ábyrgðarstarfi yfir helgina. Ekki vegna ykkar sjálfra, heldur vegna þess að 99% stráka eru ábyrgir og góðir og myndu aldrei leyfa vinum sína, félögum, kunningjum eða ókunnugum að nauðga einum né neinum. Þið þurfið að fylgjast með strákum og stelpum, gæta þeirra sem virðast vera skrýtnir og í annarlegu ástandi.
Það er jafn alvarlegt að vita af nauðgun að eiga sér stað og gera ekkert í í því og að nauðga sjálfur. Þið berið ábyrgð á hverri einustu stúlku sem þið sjáið og hverjum einasta strák sem er í kringum ykkur. Einungis heilbrigðir og réttlátir einstaklingar hafa vit á því að stöðva nauðgun. Svo gerið ykkar skyldu!
Strákar: Munið það, að það er ekkert kúl eða töff eða kynferðislegt við það þegar maður er ofurölvi og einhver gella dregur mann inn í tjald og fær sínu fram. Það er það sama og nauðgun, því miður. Öll kynmök án upplýsts samþykkis flokkast undir nauðug mök eða m.ö.o. Nauðgun. Stelpur geta nauðgað, þær eru á engan hátt æðri karlmönnum á þann hátt á þeim hvíli einhver töfrahöfgi sem svipti þær hæfileikanum til ofbeldis (andlegs eða líkamlegs). Ein ástæða þess að nauðgun kvenna á körlum er svo fáheyrð er sú að karlar tilkynna það næstum aldrei. Karlmannlegt stolt sem okkur er innrætt löngu áður en við komum til vits og ára stöðvar flesta menn í að tilkynna um slíka skömm.
Stelpur: Munið það að þó strákur fái standara, þá er hann ekki endilega til í tuskið... Þetta eru eðlileg viðbrögð líkamans og hefur ekkert að gera með vilja mannsins. Það er líka nauðgun að ríða rænulausum strák.
Góð grein í Mogganum í gær eftir Stjórnmála og lögfræðinema sem talaði um þetta mál, loksins að einhver rýfur þögnina með þetta í blöðunum.
Verið meðvituð um helgina!
Herra Muzak
Bloggað af Hr. Svavar 12:38 PM
Rassaagnirnar sestar í teppið...
Jæja, þá hættir maður sér aftur inn í skrifstofuna... lyktin farin...
Aftur að efninu...
Eru ekki allir duglegir við að safna liði á
Sportkaffi 2002. Moonboots ætla allavegana ekki að láta sitt eftir liggja í því að spila bestu músíki í heimi á besta mögulega hátt. Daddi diskó verður líka í góðum fílíng og við ætlum að moðerfokkast eins og okkur einum er lagið.
Svo er það spurning um að Herra Muzak og co fari að spila frumsamda stöffið á næstu vikum.
Einnig er hljómsveitin Kaffi í startholunum eftir langa pásu. Við ætlum að kíkja á að taka einhverja miðvikudaga og sunnudaga í vetur svona rétt til að gleðja fólk með fallegri tónlist.
Hafiði samband, segiði hvað ykkur liggur á hjarta.
Hr. Muzak
Bloggað af Hr. Svavar 12:34 PM
Jæja krakkar... nú er alveg að koma helgi og allir að komast í stuðið fyrir Gleði Gleði Gleði á Sportkaffi 2002.
Ég hlakka feitt til að ...
OJ! Jökull var að prumpa inni í litla fiskabúrinu okkar og nú gýs brennisteinsfýlan upp!
BRB ég er farinn út... opna glugga og farinn!
Bloggað af Hr. Svavar 11:44 AM
KAFTEEEINN MUZAAAAK!!!
Er þetta fugl?
NEEEEIIII!!
Er þetta flugvél?
NEEEEIIII!!!!
Er þetta Leðurblaka?
NEEEIIIII!!!?!?
Er þetta fljúgandi tilvistarkreppa?
NEeeiiihuuuu?!???
ER ÞETTA KAFTEINN MUUZZAAAAK????
JAAAÁÁÁÁÁ!!!!!
Kafteinn, kafteinn Muzak
Hann kann að syngja og skemmta sér!
Kafteinn, kafteinn Muzak
Hann getur fjarlægt gyllinæðina úr bossanum á þér!
Kafteinn, Kafteinn Muzak
Hann getur séð í gegnum mjög mjög þunnan vegg!!!
Kafteinn, Kafteinn Muzak
Hann er sterkari en egg!!!
Og Kafteinn Muzak er vaknaður...
og sofnaður aftur...
Kveðja...
Herra Muzzzzzzzz
Bloggað af Hr. Svavar 9:37 AM
fimmtudagur, ágúst 01, 2002
Sól Sól... Farinn í sund... Fuck This...
Bloggað af Hr. Svavar 4:41 PM
Möndulveldi hins illa...
Kúba: sendir frá sér kommúnistalækna með kommúnistalyf um allan heim... örugglega til að dreyfa efnavopnunum sínum sem þeir eru svo duglegir að framleiða alltaf... eh...
Íran: Þeir eru afskaplega uppteknir af því að berjast við Bandaríkin og í raun öll vestræn ríki í þeim eina tilgangi að útrýma þessu bölvaða frelsi í þeim. Já... Ég sé það núna hvernig eitt fátækasta land heims sem er í stöðugri umbótabaráttu við sjálft sig hefur að því er virðist endalausan tíma til að vera að undirbúa árás á Bandaríkin. Það er líka sérstaklega gott múv að kalla Írani möndulveldi hins Illa þegar ráðamenn þar eru að berjast fyrir umbótum og vestrænni viðmiðum... Það er alveg sjúr til að hjálpa umbótum á erfiðum tímum...
Norður Kórea: Þar þurfum við nú að hafa áhyggjur... Þessir Norður Kóreumenn eru stórhættulegir... Ekki bara eiga þeir heykvíslar, þeir eru ekki hræddir við að nota þær til að hefja Heimsbyltingu Sósíalismans upp á nýtt... Af litlum neista og það allt...
Írak: Nú eru bandaríkjamenn alveg 100% sjúr að Írakar eru alveg að verða komnir með kjarnavopn... Eina leiðin til að bjarga heiminum frá þessu stórhættulega landi er að ráðast inn í það og drepa alla sem eru á móti olíustefnu bandaríkjanna og heimsvaldafílíngnum... Svo eiga Bandaríkjamenn örugglega eftir að "finna" einhver sönnunargögn sem þeir síðan standa hrikalega hressir yfir vegna þess að þeir eru svo klárir...
Þetta er allt farið að minna mig á stóra feita rauðhærða strákinn sem var með einhver kyrtlavandamál þannig að hann þurfti alltaf að éta nestið frá öllum hinum í bekknum. Síðan þegar litli ræfilslegi strákurinn sagði Nei, þá kýldi hann hann. En viti menn... Litli Ræfilslegi strákurinn sýndi smá göts og sparkaði beint í hneturnar á Rauða... Þá fór Rauði að grenja og klagaði Litla ræfilslega... Litli ræfilslegi var útskúfaður úr samfélagi skólans og látinn sitja eftir... Allir vorkenndu rauðhærða stráknum svo mikið að þau gáfu honum restina af nestinu sínu í sárabætur...
amm...
Greyið Bandaríkin að geta ekki drepið niður alla óvild í sinn garð með hervaldi... Æi Æi...
Því harðar sem vindurinn blæs, því fastar heldur maðurinn um frakkan... muniði...
Bestu Kveðjur,
Herra Muzak
OG SJÁUMST Á
SPORTKAFFI 2002
Bloggað af Hr. Svavar 10:10 AM