föstudagur, janúar 31, 2003
 
Víst var þetta ómálefnalegt minn kæri...

Guðmundur Svansson ver deiglupistil Bersa.
Vill Guðmundur meina að grein Bersa sé málefnaleg og laus við illkvittni.

Ég verð nú að segja að við lestur þessa alls get ég nú ekki annað séð en að Bersi sé að gera því skóna að friðarsinnar og þá sérstaklega íslenskir stríðs- og herstöðvaandstæðingar séu á einhvern hátt tortryggilegir og hafi ljótan tilgang:
Bersi segir: "Að lokum má velta upp þeirri spurningu hver tengsl íslenskra aðila eins og Samtaka herstöðvaandstæðinga séu við WWP, IAC og ANSWER. Eru aðstandendur þeirra sammála WWP í afstöðu þeirra gagnvart fjöldamorðunum á Torgi hins himneska friðar, stjórn N-Kóreu og stríðsglæpadómstólnum í Haag? Munu þau notfæra sér mótmælin á laugardag til að berjast fyrir einhverju sem kemur stríðinu við Írak ekkert við?"

Þetta er kunnugleg kvikindisretórík sem einkennir gjarnan tal Valgerðar Sverrisdóttur og Davíðs Oddssonar ("Hvar fékk þetta fólk peninga til að koma hingað? ha?", "eru ekki allir íslenskir umhverfisverndarsinnar alltaf á móti öllu og líka í samtökum nasista sem hata Ísland?")

Mér er skítsama um einhver samtök rugludalla úti í löndum.
En þessi grein var greinilega ætluð til þess að gera íslenska stríðsandstæðinga tortryggilega, vegna þess að það að vera stríðsandstæðingur gerir mann greinilega sjálfkrafa að vinstri manni, er það ekki? Alvöru hægri menn vilja auðvitað stríð, því stríð þýðir að það kemur peningur inn í vestræn hagkerfi. Ekki satt?

Æi, mér finnst ungir íslenskir stjórnmálamenn andskoti uppteknir við að halda sér í flokkadrættina sína og grafa sig í óþarfar skotgrafir.
Ég held að ef Stefán Pálsson, Bersi og Svanssonurinn myndu setjast saman á kaffihúsi og ræða málin af alvöru myndu þeir fatta að þeir ættu meira sameiginlegt hver með öðrum en með vitleysingunum sem ráða ríkjum í flokkunum þeirra... Þetta er nefnilega farið að snúast um ungt á móti gömlu frekar en vinstri - hægri.

Komið ykkur upp úr skotgröfunum óþekku strákar...

:-)
Bestu Kveðjur,
Hr. Svavar

Bloggað af Hr. Svavar 7:52 PM
 
Jón Kristjánsson - Sáttasemjari eða fyrirfram ákveðið plott?

Jón Kristjánsson, settur umhverfisráðherra úrskurðaði um Norðlingaölduveitu í Gær. Hann kom þjóðinni í opna skjöldu með "Byltingarkenndri" tillögu sinni um að málamiðla.
Þetta er fáheyrt í íslenskum stjórnmálum og eru menn frekar stúmm yfir þessu.
Ég hafði að vísu heyrt fyrir nokkrum mánuðum að planið væri að gera einhverja málamiðlun varðandi Þjórsárverin til að fólk sætti sig betur við Kárahnjúkavirkjun.
Mér brá því ekkert sérstaklega þegar ég sá þessa hugmynd. Það kemur mér bara á óvart að Landsvirkjun skyldi aldrei stinga upp á neinu svona. Það mætti halda að þeim dytti hreinlega ekki í hug að hægt væri að komast hjá illdeilum með því að finna öðruvísi lausnir en þær sem sökkva 6 ferkílómetrum af friðlandi. Eða hvað?
Getur verið að Landsvirkjun hafi aldrei átt að koma með góða tillögu heldur bara tvær vondar og svo hafi góði heilbrigðisráðherrann átt að bjarga málum?
Veit ekki...
Væl Friðriks Sophussonar minnti mig bara á Kristján Ragnarsson þegar LÍÚ grenjuðu yfir því að fá ekki meiri kvóta og betri úrskurði, og hvar eru þeir núna? Þeir eiga allt...

Bestu Kveðjur,
Hr. Svavar


Bloggað af Hr. Svavar 3:25 PM
fimmtudagur, janúar 30, 2003
 
Af umhverfisfræðinámi ástarinnar...

Umhverfisstofnun Háskólans er fjársvelt grey sem enginn raunverulegur vilji virðist vera um að halda á floti.
Það er mjög leiðinlegt að fylgjast með dauðateygjum hennar í koxgráu sérhagsmunaskrifræði Diplómustofnunar Íslands.
Það er gríðarlega sorglegt að enginn metnaður sé hjá íslenskum yfirvöldum að byggja upp þekkingu og samstarf í umhverfisfræðum og lausn umhverfisvandamála á Íslandi.
Það er álíka sorglegt að sjá góða menn hrekjast frá háskólanum, bæði kennara og nemendur, vegna þessa sama metnaðarleysis yfirvalda.
Við Umhverfisfræðinemar ætlum að hvetja yfirvöld Háskóla Íslands til þess að sýna raunverulegan metnað í garð umhverfisstofnunar.
Ég vona að einhver hlusti.
Hvað með ykkur, Háskólaráðsliðar beggja fylkinga? Eða eruð þið kannski of upptekin við að vera stúdentapólítíkusar og mala við fætur stóru kallanna til að gæta hagsmuna námsins?

Bestu Kveðjur,
Hr. Svavar

Bloggað af Hr. Svavar 3:56 PM
 
Tom Tomorrow er æðislegur!

Þessi útgáfa af This modern world var æðisleg! :)
Lýsir nákvæmlega hvernig maður upplifir svo margt sem ráðandi öfl í samfélaginu gera...

Bloggað af Hr. Svavar 1:16 AM
þriðjudagur, janúar 28, 2003
 
"Vinstri Græni" Listinn

Hægri mönnum innan háskólans er nú mikið í mun að kenna nýja óháða framboðið við vinstri græna.
Það er nefnilega eilífur metnaður sjálfstæðis- og framsóknarmanna að sýna fram á klofning vinstri manna til að reyna að gera sig sjálfa að kræsilegri valkosti.
Björn Bjarnason hefur til dæmis ekki skrifað málefnalega grein síðan R-listinn var stofnaður... Hann er of upptekinn við að fabrikera klofninga og ósætti innan vinstri vængsins til að setja fram eina málefnalega pælingu... Enda er ég löngu hættur að lesa grey kallinn...
Sjálfur er ég óttalegur hægri grænn eitthvað... En mér er bara eitthvað svo illa við smjörkúkana í sjálfstæðisflokknum og þeirra tilgerðarlegu og efnishyggjufullu lífsviðhorf að ég get ekki hugsað mér að hanga með þeim í liði...
Pabbi var ágætis sjálfstæðismaður, enda kaus hann Alþýðuflokkinn og Kvennalistann ef hann vildi... Þannig hegða sannir sjálfstæðismenn sér...

En þeir eru örfáir, þessir sjaldséðu sönnu sjálfstæðismenn...

Ég hef ekki séð neinar vísbendingar um að þetta blessað þriðja framboð sé eitthvað meira vinstri grænt en Vaka eða Röskva... Vissulega eru þarna menn úr VG, en þarna má líka finna menn úr öðrum hópum, einfaldlega fólk sem er komið með nóg af staðnaðri tveggja fylkinga stefnu dauðans...

Er það ekki málið?

Ég ætla allavegana að kjósa tilbreytingu, hvort sem þetta eru hægri eða vinstri menn...

Tilbreyting er góð, ferskur vindur inn í fúlt stúdentalíf...
Húrra fyrir tilbreytingu! Húrra fyrir nýjum andlitum inn í stúdentalífið!

Bestu Kveðjur,
Hr. Svavar

og að síðustu...
fimm lína þögn í minningu Ljúflingsins sem var einn af mínum uppáhalds bloggurum...





...
Megi hann rísa upp að nýju sem gullinn Fönix...

Bloggað af Hr. Svavar 7:10 PM
 
Siðferðisleg skylda...

Á sunnudaginn birtist grein í Morgunblaðinu eftir orkumálastjóra eftir Þorkel Helgason orkumálastjóra...
Ég veit ekki hvert menn fara í skóla til að læra slíka grunnhyggni, en hann kvað svo til orða:
"Við hljótum að vilja nýta þessar endurnýjanlegu auðlindir okkur til hagsbóta. Og okkur ber siðferðileg skylda til að gera það öllu mannkyninu til góða."

úff...
Það er aldeilis.
Gildishlaðnara verður það varla.

Þessi setning minnir mig óneitanlega á orðræðustíl þeirra sem réttlættu yfirreið bandaríska riddaraliðsins yfir lendur Indíánanna á 19. öldinni. Indíánarnir sátu á auðlind sem var ekki nýtt og bar bandarísku þjóðinni "siðferðileg skylda" að nýta hana betur... Að hugsa sér, að búa beint yfir kolalögum og í verðmætum skógum og taka ekki kolin úr jörðinni og höggva ekki skógana niður, þvílík villimennska að vilja lifa í sátt við náttúruna... Hnuss! Hnuss! Þvílík villimennska að vilja ekki fórna hverjum einasta nýtilegum bletti undir stóriðju"drauma".

Í öðru lagi er ekki um að ræða endurnýjanlega orku, því afl virkjunarinnar minnkar jafnóðum eftir því sem hún fyllist af aur...

Næsta stopp verður blessuð Villinganessvirkjun... Þar er Valgerður okkar í bobba, af því að þar er aktúallí blússandi ferðamennska í gangi sem halar inn hundruð milljóna á ári fyrir sveitarfélagið Skagafjörð og skaffar tugi starfa. Og allt lítur út fyrir að ferðaþjónusta í Skagafirði muni blómstra enn frekar í Framtíðinni... En Valgerður vill ekki láta það stoppa sig. Hún ætlar að láta reyna á sjálfsákvörðunarrétt sveitarfélagsins Skagafjarðar fyrir dómstólum, vegna þess að hún veit, betur en fólkið sjálft, hvað er því fyrir bestu. Hún vill nebbnilega fá olíuhreinsunarstöð á Sauðárkrók.
Sumsagt, Valgerður vill taka störfin af ferðamennskunni, störf sem fólk hefur sjálft búið til, og færa þau inn í olíuhreinsunarstöð, alvöru vinnu skilurðu...

Það verður ekki tekið af þeim...

Og svo er það blessað "Torfajökulssvæðið" eða ættum við frekar að kalla það Landmannalaugar?
Þar ætla menn nú að virkja jarðhita upp á 2GW inni á friðlandi og rústa einni helstu perlu Íslenskra gönguferðalanga...

Ég held að þeir sem fordæma "svokallaða" umhverfisverndarsinna ættu að líta sér nær og skoða hver framtíðarplön ríkisstjórnarinnar eru í Hagstjórn þessa blessaða lands. Það á hreinlega að handstýra hverjum einasta hlut.
Hvað segið þið þegar ykkar uppáhalds landsvæði verður lagt undir vatn? Hvað haldið þið að sé langt þangað til? Ætlið þið þá loksins að búa til skilti og þramma niður á Austurvöll, þangað sem þið bentuð fingrunum og flissuðuð að flíspeysuklæddu hippunum hér forðum, hippunum og listamönnunum og kaffihúsapakkinu sem vildi vernda landið sem "engum þótti vænt um"? Bara af því að því var svo illa við allar framfarir?

Hr. Svavar

ps.
Hugsið ykkur um...
Þessi ríkisstjórn er sama ríkisstjórnin og gaf skít í málfrelsi og tjáningarfrelsi og vinnur nú hörðum höndum að því að koma hér á einhverfu lögregluríki...
Flestar stofnanir sem hafa að gera með almannaheill eru að safnast undir hæl Ríkislögreglustjóra og stutt er í að engin sjálfstæð hugsun verði í stofnunum ríkisins lengur.
Þó þið hafið haft nóg að bíta og brenna er það ekkert sérstaklega þeim að þakka, það er búið að vera almennt góðæri um allan heim. Það sem skiptir máli er ástand menntakerfisins, ástand heilbrigðiskerfisins, ástand samgangnanna okkar... Ríkið á ekki að skipta sér af atvinnulífinu! Atvinnulífið á að sjá um sig sjálft!

Bloggað af Hr. Svavar 4:33 PM
sunnudagur, janúar 26, 2003
 
Stuð Stuð Stuð! Takk fyrir mig!

Takk kærlega fyrir þátttökuna í skemmtilega afmælispartýinu mínu kæru lesendur.
Tónleikarnir gengu ótrúlega vel miðað við æfingamagn... :)
Færri komust að en vildu og var það súrsæt tilfinning.

Þreyttur...

Sofa...

:)
Góða nótt kæru vinir...

Herra Svavar

Bloggað af Hr. Svavar 11:09 PM
laugardagur, janúar 25, 2003
 
Partý Partý Partý!!! Allir koma í Afmælistónleikapartí...

Kæri lesandi,
Þér og þínum er hjartanlega boðið í afmælispartý/tónleika Svavars Knúts Kristinssonar (A.K.A. Svalla Túrbó, A.K.A. Hr. Muzak) á Ara í Ögri í kvöld, laugardagskvöldið 25. jan. 2003.
Teitið hefst kl. 20:30 og tónleikar kl. 21:00

Ókeypis inn, bjórtilboð væntanlega á staðnum... Bjór og hot'n'sweet á 800 kall... veit ekki...
Ég stóla á að þið látið alla vita sem ekki lesa þetta og dragið alla á svæðið, ég er alveg hættur að nenna því :) Þið mætið bara og við tjúttum saman í gleði og góðum fílíng, ókei?

Bestu Kveðjur,
Svavar Knútur Kristinsson
Umhverfisfræðinemi/Tónlistarmaður/Afmælisbarn

p.s. Ég held að ég viti hver Móri er... (rapp gaurinn...) Ég held að hann sé í rauninni Gylfi Ægisson... Hlustið bara á rímeðli hans... :)
Ef Móri les þetta, þá vil ég endilega hitta hann í kveld og taka í höndina á honum fyrir góða múzak... Drulluflottur!

Bloggað af Hr. Svavar 2:41 AM
föstudagur, janúar 24, 2003
 
Úldnastur...

Jæja Krakkar mínir, nú var ég að vakna...
úldnastur alls sem úldið er...
Í gærkvöldi var aðalfundur Yggdrasils Félags Umhverfisfræðinema við HÍ...
Ný stjórn var kosin og ég plataður til að bjóða mig fram til formanns, og nú bloggar hér nýr formaður Yggdrasils...
Nú þarf maður að fara að temja sér málefnaleika... :( úff...
Fara að tala vel um Valgerði og Sif...

Urg...

Bestu Kveðjur,
Hr. Svavar

Bloggað af Hr. Svavar 11:53 AM
miðvikudagur, janúar 22, 2003
 
Pápi gamli...

Í gær átti ég 27 ára afmæli, en það sem meira er, þá áttu bæði Pabbi minn og föðurmóðir afmæli.
Amma Svava varð 71s árs og Pabbi heitinn hefði orðið 50 ára... sumsagt löglega orðinn miðaldra...
Ótrúlegt hvernig tíminn líður...
Manni finnst það næstum eins og í gær þegar ég átti við hann síðasta símtalið, síðasta stofuspjallið, síðasta faðmlagið...
Hvað ætli hann væri að gera núna hefði hann ekki þurft frá að hverfa?

Endalausar vangaveltur, endalausar "hvað ef?"
Ég sakna hans mjög jafnt og þétt, suma daga samt meira en aðra...
Mest sakna ég gamla mannsins þegar ég stend frammi fyrir erfiðum tímum, vondum valkostum, eða er undir miklu álagi. Þá væri gott að hafa gamla manninn sér við hlið.
En ég á góða vini...

... og þökk sé góðu tæknimönnunum sem komu í heimsókn núna áðan, miklu betri internettengingu! :) Jíha!


Bestu kveðjur,
Svavar Knútur

Bloggað af Hr. Svavar 6:49 PM
þriðjudagur, janúar 21, 2003
 
Ég á Ammæli í dag... :)

Húrra!
Ég er orðinn 27 ára og mér líður vel...

Pálína er að baka afmælisköku... nammi nammi namm...
Ég ætla sumsagt að halda grúví ammælispartý á Laugardaginn á Ara í Ögri...
Í dag ætla ég hins vegar að fá nánustu fjölskylduna og svoleiðis í heimsókn og gera heiðarlega tilraun til að vera settlegur...

Humm Humm... Um diss...

Kannski er það einhvers konar vísbending um að maður sé búinn að ná vissum samfélagssessi þegar fólk er farið að koma með ljótar yfirlýsingar um mann annars staðar en upp í opið geðið á manni...
Ég fékk mitt fyrsta ljóta diss núna um daginn, bæði ég og tónlistin mín vorum dissuð ansi harkalega. Þar sem ég tek tónlistina mína afskaplega persónulega og er ekki kominn með neinn harðan skráp til að díla við svona tók ég dissinu afar nærri mér og er nokkuð súr... :)
En Bah... maður verður nú að geta hrist svona af sér.

Hins vegar kveikti þetta í mér pælingu um réttmæti disss...

Ég dissa fullt af hlutum, ég læt ljót orð flakka um fólk og fyrirbæri... Ég tel mig þó vera í fullum rétti... Af hverju? Af hverju tek ég því þá nærri mér þegar einhver lætur ljót orð falla í minn garð?

hmm...

Tilgáta mín, sem endurspeglast í gjörðum mínum, er eftirfarandi:
Tilgáta
Diss er réttmætt þegar því er beint að stofnunum/einstaklingum sem hafa vald og beita því. Diss er réttmætt þegar því er beint að einstaklingum sem starfa greinilega af óheilindum.
Þá er dissinu ætlað að tjá "frústrasjón" og reiði gagnvart því óréttlæti og meintum neikvæðum áhrifum sem viðkomandi einstaklingur/stofnun hefur í för með sér...

Þannig, þegar ég dissa Britney Spears er ég ekki að ráðast á manneskjuna Britney, sem samfélagslega er löngu hætt að vera til, heldur á stofnunina Britney Spears, alla þá milljarða sem fara í að markaðssetja kynferðislega ímynd fyrir börn. Alla þá milljarða sem bandaríski tónlistariðnaðurinn er að setja í að búa til einhvers konar ofurstirni sem þjóna engum listrænum og/eða göfugum tilgangi en virka einungis sem peningasuga (sjá Death to Smoochy).

Þegar ég dissa Valgerði Sverrisdóttur, þá er ég að gagnrýna valdníðslu og óréttlæti þess að ríkið virðist gersamlega forhert í því að kæfa alla umræðu og smætta hana niður í með og á móti Austfjörðum, sem er alls ekki það sem þetta snýst um.

En þegar diss beinist að einstaklingi sem hefur engin völd, engin óheilindi, engar illar fyrirætlanir, þykir mér það óréttmætt, enda hef ég persónulega aldrei ráðist að fyrra bragði gegn einstaklingum eða stofnunum sem starfa af heilindum og samkvæmt eigin sannfæringu.

Tilgátu lýkur

Tónlistinni minni er ekki troðið upp á fólk í Popptíví vegna viðskiptahagsmuna Skífunnar... Hún er sett á vefsíðu þar sem fólk getur fengið sér hana ef það langar til að smakka á sköpun minni... Hún er meira að segja það óunninn að flestir möguleikar hennar eru ónýttir, hrá, einungis spiluð á þrjú hljóðfæri hið mesta og raddir... Þetta eru vinnueintök sem eru bara þarna til að leyfa fólki sem er þannig stemmt að hlusta á það sem ég er að gera þessa dagana...
Tónlistin mín er ekki dissins verð... :) Hún er of ómerkileg... Ef þú vilt ekki hlusta á hana geturðu bara sleppt því að dánlóda henni... En Til dæmis DJ Ötzi!!! Sá gæi er allan daginn á öllum stöðvum með ógeðslega skeggið sitt og hnakkalúkk dauðans!!! ARGH!!! ahem... :)

Það er sjaldnast hægt að segja að tónlist sé léleg eða góð, það er frekar hægt að segja að maður fíli hana ekki. Það að fordæma tónlistarmann fyrir að semja tónlist sem er manni ekki að skapi er ekki ólíkt því að hata útlendinga af því að menning þeirra er ólík manns eigin... Hins vegar er hægt að fordæma tónlistarmann fyrir að "selja sál sína", að smíða viljandi vinsældavæna tónlist sem hefur engan tilgang nema að selja...

Ég held að flestir sem til mála þekkja geti verið sammála um að það er ekki tilgangur Hr. Muzak (eða Svalla Túrbó...)

AHHH...

búið að venta...

Bestu Kveðjur,
Hr. Muzak

p.s.
Nýtt lag í bígerð í hausnum á mér... Heitir It's your life... :)

Bloggað af Hr. Svavar 1:04 AM
mánudagur, janúar 20, 2003
 
Geðheilsa...

Í gærkvöldi lenti ég í lífsreynslu sem mögulega getur flokkast sem ein langversta og um leið furðulegasta lífsreynsla ævi minnar.
Ég veit ekki hvort ég get sagt heiminum frá henni, en ég held að það nægi að segja að ég hef aldrei efast um mitt eigið geðheilbrigði meir en akkúrat í gær...
Í dag líður mér strax betur, þetta virðist hafa verið einhvers konar Kast...

Pálína varð pínulítið hrædd líka þegar ég reyndi að útskýra fyrir henni hvernig mér leið...
Ekki hafa áhyggjur, ég var ekki ofbeldisfullur eða með nein læti, ég í rauninni lá bara og upplifði þetta... Þetta var upplifun sem vakti bæði gríðarlega forvitni mína og áhyggjur...

úff...
Jú... ég ætla að skrifa þetta niður, í von um að einhver geti hjálpað mér að velta þessu fyrir mér...

Pælingin var mergjuð...
Þetta byrjaði snemma kvölds að ég gleymdi nokkrum hlutum sem ég átti að vita nákvæmlega um vin minn hann Andrés... Ég pældi sosum ekkert sérstaklega í því...
Þegar ég var búinn að skutla Andrési heim kom ég heim til Pálínu og þá var eins og það slökknaði á mér...
Mér leið allt í einu eins og það væri búið að taka innan úr mér hjartað... sálina... Allt í einu fann ég ekki neitt, engar tilfinningar, ekkert... Ég varð galtómur... Maður er vanur að vera gosbrunnur tilfinninga, en nú voru aðeins dropar og rakablettir þar sem áður höfðu verið fossandi tilfinningastraumar...
Þar sem sálin mín hafði verið var allt í einu komið gapandi svarthol...
Þetta var eins og að í stað lifandi tilfinninga væri nú bara endurómur gamalla tilfinninga, deyjandi út, ómandi í reverbinu...
Þetta var eins og einhver öskraði inni í stálklæddum sal og eina hljóðið sem kæmi væri í rauninni bara endurómurinn, bergmálið, ekki öskrið sjálft... Þetta var eins og að syngja inn í málmvirki og hlusta á óminn sem kemur í málmvírunum... Sá ómur var söngnum það sem upplifun mín var tilfinningunum sem ég átti að vera að upplifa...

Ég var tómur... Mér brá gríðarlega, en mest brá mér við að ég hafði engar tilfinningar gagnvart þessu heldur... mér leið ekki neitt...
Það var eins og ég sæi bara, heyrði bara, lyktaði bara... ég upplifði ekkert... Engar tilfinningar...
Það var eins og ég væri með stálhjarta... Það var eins og einhver hefði sprauta staðdeyfandi í hjartað á mér...
Ég vissi að ég elskaði Pálínu en það var eins og ég gæti ekki fundið hana, hún væri týnd innan í mér einhvers staðar. Það var eins og einhver hefði sogið allar tilfinningar út úr mér...
Það er skrítið að vita eitthvað en finna það ekki innan í sér...

Núna er ég samt allur að lagast, en það eru samt göt í mér...
Ást mín á Pálínu er aftur fundin, en þetta gerði mig geðveikt hræddan, en samt ekki, því ég fann ekkert nema bergmál af ótta...
Ég vona að þetta hafi bara verið einangrað tilfelli, því ég vil ekki vera tilfinningadofinn...
Bestu Kveðjur,
Svabbi

Bloggað af Hr. Svavar 12:58 PM
sunnudagur, janúar 19, 2003
 
Akureyri Var Æði!!!

Hey sjúgars!
Var að koma frá Höfuðstað Norðurlands í góðum fílíng.

Við fengum voða fína stúdíóíbúð fyrir fjóra... Alveg frábært, nema við vorum sjö... hehehe... Við ákváðum að prófa svefnsófann, en hann var eitthvað fokkt öpp svo þegar við lögðumst í hann féll hann saman ótrúlega rólega og fallega og reyndi að gleypa okkur eins og svona venusarflugugildra... mmmm fallegur svefnsófi... þreeeyytttuuurr.. sooofa.... mmmm.... ARRGHHH!!! Sófinn gleypir mig!!! AAAARGHHH!!!!

Eftir smá viðgerðir náðum við taumhaldi á mannýgum svefnsófanum og lögðumst og horfðum á ömurlegustu sjónvarpsdagskrá allra tíma... Við Snorri Barón ákváðum að fara í göngutúr til að hressa okkur... Svo horfðum við saman á drullufínan seinni hálfleik Barcelona og Valencia...

Svo spiluðum við í Sjallanum og það var fámennt en rosalega góðmennt, kannski svona 200 manns, en þau létu eins og 600 manns! Sándið var geðveikt og við höfum aldrei spilað betur saman... Það var mergjað!
Ég hitti ekki vinkonu mína, Hólastelpuna... Hún hefur örugglega Beilað... hahaha...

Sjallamennirnir voru samt gríðarlega ánægðir og þetta var mikið fönn...
Vona bara að UNAK fólkið fatti að fá okkur til að spila á háskólaballi...

Svo var okkur boðið í þrjú partí og ég var á endanum sjanghæaður upp í sendibíl og ferjaður í partý þar sem ég þekkti engan. Ótrúlega sexý og hávaxin ung kona settist í kjöltu mér og sagði mér frá því hvað hún fílaði Megas. Það var alveg frábært! :)
Svo staulaðist maður bara niður á stúdíóíbúðirnar og fór í bað blindfullur og lagðist svo í mannætusvefnsófann ógurlega...
Svaf í þrjá tíma áður en maður var vakinn af ólátum og hávaða í hljómsveitarmeðlimum sem voru ekki eins mikil partýljón...

urg...

:-)
Frábær helgi!

Bestu Kveðjur,
Svalli Túrbó (Nýja Rokkaranafnið mitt... berið það fram eins og það eigi að ríma það við kalli...) :-)

Bloggað af Hr. Svavar 7:32 PM
föstudagur, janúar 17, 2003
 
Djúpalaug - Akureyri - og Afmæli í uppnámi...

Ókei, förstþíngsförst...
Djúpalaugin í kvöld... Moonboots eiga að spila í 80's djúpu lauginni í kvöld...
Gaman Gaman...
Veit ekki hvort ég á lengur nokkuð til að vera í... Orðinn svo jólafeitur...

Akureyri á Morgun, JEEEE!!! Sjallinn er uppáhalds skemmtistaðurinn minn í heiminum!
Ég hlakka til að hitta Hólastelpuna :) Endilega heilsaðu upp á okkur...
Og þið Akureyringarnir skulið bara mæta á svæðið og draga vini ykkar með!
Moonboots rokka!

Að lokum verð ég að minnast aftur á 27 ára Afmælið mitt...

Staður: Ari í Ögri
Stund Laugardagskvöldið 25. Janúar kl. 20:30
Bjórtilboð í gangi
Lifandi tónlist Herra Muzak og vina frá 20:30
Vandamál: Getur verið að Zato verði á Höbbn í Hobbnafirði... í öðru og mun stærra ammæli...
En við skemmtum okkur saman engu að síður... Við verðum bara að halda aðra tónleika með Zato seinna ef þetta gengur ekki upp... :-/

well...
Þið mætið allavegana öll, ókeypis inn og öllum boðið!
Allir sem lesa þessa síðu eru guðvelkomnir og vinir þeirra líka... á meðan húsrúm leyfir...

Bestu Kveðjur,
Svavar Knútur

Bloggað af Hr. Svavar 5:42 PM
fimmtudagur, janúar 16, 2003
 
Bachelor...

Af hverju eru allir gæjarnir í Bachelor viðskiptakallar?
Af hverju er enginn kennari, pípulagningamaður, heimspekingur eða slökkviliðsmaður í þessum þáttum?
Eru viðskiptakallarnir eitthvað meira merkilegri piparsveinar?
Er eitthvað við menn sem eru á kafi í monní sem gerir þá betri menn fyrir konur?
Hvers vegna þessi dýrkun á vöðvastæltum viðskiptamönnum?
Veltum þessu fyrir okkur...
Nota Bene, Bachelor eru ógeðslegustu slísíustu þættir sem ég hef nokkurn tímann orðið þeirrar óhamingju aðnjótandi að þurfa að hlusta á útundan mér þegar ég er að blogga...
Hr. Muzak

Bloggað af Hr. Svavar 10:47 PM
 
Hugmyndir Björns Bjarnasonar um góð stjórnmál...

Atkvæðagreiðslan sem fór fram niðri í ráðhúsi var forvitnileg...
Borgarstjórnarfulltrúar R-listans kusu eftir sínum sannfæringum í málinu, bæði með og á móti. Menn skýrðu frá sannfæringu sinni og kusu út frá sínum forsendum, sjálfstætt.
"Sjálfstæðismenn" kusu með gúmmístimpli Dao formanns án nokkurrar gagnrýni og voru greinilega gersamlega gagnrýnislausir og algerlega ósjálfstæðir í kosningu sinni... Það var því fyndið að heyra Björn Bjarnason eyða 90% ræðutíma síns í málinu í að dissa R-Listann fyrir að vera léleg forysta. Maðurinn hljómaði eins og versti rugludallur og kallaði sig Albana... Mér þykir nú persónulega meira varið í það að fólk kjósi samkvæmt sinni samvisku, það er góð forysta sem hugsar um málin og tekur yfirvegaða afstöðu, hvort sem það er með eða á móti. Bara ef íslensk stjórnmál virkuðu alltaf svona, en menn væru ekki bara með atkvæði sín í áskrift. Sorglegt.

Björn Bjarnason og Guðlaugur Þór stimpluðu sig inn í huga minn sem algerir erkibjánar, því þeir töluðu samhengislaust og eins og róbótar. Guðlaugur Þór var vægast sagt hlægilegur þegar hann reyndi að vera ungur frjálshyggjumaður en um leið að rökstyðja sósíalíska afstöðu sína. Það gerði hann með því að reyna að gera lítið úr R-listanum, eins og er góðra "sjálfstæðis"manna siður þegar þeir geta ekki rökstutt atkvæði sitt.

Ég bjóst auðvitað ekki við neinu... Það var mikil heift á meðal nokkurra umhverfisverndarsinna á pöllunum, en þetta var ekkert górillubúr, flestir sátu og hristu bara hausinn. Heiftúðugu umhverfisverndarsinnarnir fóru fljótlega, enda misstu þeir þolinmæðina á eilífu ruglinu í sjálfstæðismönnum sem mynduðu eins konar álróbótakór. Þá voru pallarnir bara þægilega fullir af hófsömum umhverfissinnum sem létu sér nægja að hlægja að góðum bröndurum og klappa fyrir góðum ræðum.

En ég sá engan stóriðjuklerk á pöllunum... Af hverju ætli það hafi verið?
Ætli það sé af því að það er enginn sérstaklega stór hópur fólks sem í raun og veru vill stóriðju á Íslandi, heldur jánka þeir bara þessum málum af því að þeir vita að það þýðir ekkert að rífast þegar Davíð er búinn að ákveða sig...

Bestu Kveðjur,
Hr. Svavar

Bloggað af Hr. Svavar 10:42 PM
 
Afmælið nálgast...

Jæja krakkar, nú ert tvennt framundan...
Moonboots eru að fara að spila í Sjallanum á Akureyri 18. des.
Ef þið þekkið einhvern á Akureyri yrði ég gríðarlega þakklátur ef þið gætuð platað viðkomandi til að mæta á svæðið.

Hitt málið á dagskrá er hið árlega afmæli mitt... 21. janúar.
Ég hyggst fagna 27 ára afmæli mínu með hinum árlegu afmælistónleikum Svavars... Hef ekki sleppt því síðan ég varð tvítugur...
Ég fagna afmælinu mínu bæði til að fagna vinum mínum og ættingjum sem lifa og til að minnast þeirra sem þurfa frá að hverfa.

Tónleikarnir verða sumsagt haldnir á Laugardaginn 25. Janúar, staðsetning enn óákveðin.
og hér kemur da catch...
Mig vantar söngfólk og tónlistarfólk til að gera og græja með mér... :)

Nánar tiltekið:

Eina til tvær bjartar og tærar karlmannsraddir (Gunnar Freyr eða Snorri Pet. væru t.d. kjörnir...)
Eina til tvær ljúfar kvenraddir
Góðan gítarleikara, skemmir ekki fyrir ef hann getur sungið (Gummi frændi, ef þú ert ekki bissí...)
Nikkuleikara/hljómborðsleikara
Ásláttarhljóðfæraleikara
Fleira ef ykkur dettur eitthvað í hug...

Bassi, Trommur og Siggi Palli held ég að séu alveg inni... :) hahaha

og ef einhvern langar til að flytja sína eigin tónlist eða eitthvað er það einnig guðvelkomið. Þetta verða sumsagt opnir tónleikar og ókeypis inn. Fólk verður hins vegar að drekka á eigin reikning og ég mun reyna að finna eitthvað flott bjórtilboð...
Afmælið mitt hefst þannig á tónleikum kl. 20:30 þar sem við flytjum frumsamið sjitt og svona u.þ.b. 23:00 skiptum við í fluggírinn og förum að spila vottever... Bara Djammsessjón og partý og open season á hljóðfærin fyrir þá sem á þau kunna... YIHA!!!
Ég treysti því að þið mætið á svæðið og hundskist til að skemmta ykkur vel...
25. janúar, kl. 20:30, staðsetning ekki enn ákveðin en Ari í Ögri er inni í myndinni.
Ef einhver er með betri hugmynd að stað sem er laus, hafið samband...

Bestu Kveðjur,
Hr. Svavar

Bloggað af Hr. Svavar 2:19 AM
 
Að Rökstyðja eða að Réttlæta...

Undanfarið hefur mikið borið á því að íslenskir ráðamenn beiti þeirri taktík í samræðum (eða einræðum) um virkjanamál að andstæðingar þeirra séu með "tilfinningarök" en rök þeirra séu sterk, því þau byggist á tölum og hagstærðum.

Þegar talað er um tilfinningar og tilfinningarök í þessu samhengi er vert að ræða aðeins um rökræðu og það að rökstyðja mál sitt.
Hvað er rökstuðningur?
Góður rökstuðningur er það þegar einhver tekur forsendur og leiðir af þeim afleiðingu, óumflýjanlega. Eða útilokar vissar forsendur út frá afleiðingu. (til dæmis)
Það að gefa sér niðurstöðu og fara síðan að tína til forsendur fyrir henni telst seint til rökstuðnings eða rökvísi. Það er oftar í daglegu máli kallað að Réttlæta, eða "to rationalize" á enska tungu, þ.e.a.s. að réttlæta gjörðir sínar eftir á.
Ef ég, til dæmis geri eitthvað sem er siðferðislega umdeilanlegt og tíni síðan til ástæðurnar eftir á, og kemst að því að gjörningur minn var óumflýjanlegur er ég ekki að rökstyðja gjörning minn. Ég er mun frekar að sannfæra sjálfan mig um ágæti breytni minnar eftir á, vegna þess að ég þori ekki að viðurkenna mína eigin flónsku eða breysku.

Svo ég spyrji ykkur kæru lesendur, munið þið eftir einhverjum þjóðfélagslegum umræðum um bestu kosti í byggðamálum sem leiddu með rökvísum hætti að þeirri niðurstöðu að Risaálver og Risavirkjun með öllu meðfylgjandi væri EINI RÉTTI kosturinn í stöðunni? Ekki man ég eftir því, en ég man því miður ekki hvað ég borðaði í morgunmat, þökk sé sjónvarpinu og tölvuleikjum...

Þegar menn "rökstyðja" ákvarðanir sínar eftir á eru þeir í raun að nota gríðarlega vond tilfinningarök: "Ég er of stoltur til að viðurkenna að ég var fljótfær í ákvarðanatöku minni. Ef ég viðurkenni að það geti verið möguleiki að ég hafi haft rétt fyrir mér er ég búinn að vera."

Þegar ráðamenn grípa til eftiráútskýringa og flókinna tæknilegra verðbólguhagvaxtarútflutningsfjárfestingartalna til að réttlæta ákvörðun sína án þess að nokkrir aðrir kostir hafi verið ræddir opinberlega er augljóst að verið er að réttlæta gjörðir sínar eftir á.

Bush er til dæmis í óða önn við það að réttlæta árás á Írak, vegna þess að hann getur ekki bakkað út eftir að hafa byrjað á röflinu...

Tilfinningar

Tilfinningar eru hluti skynsemi okkar.
Skynsemi, skv. skilgreiningu er það þegar við tökum það sem við skynjum, leggjum það inn í "fall" reynslu okkar og fáum niðurstöðu.
Föllin eru mismunandi og niðurstöður sumra þeirra eru yrðanlegar í flottum töflum og gröfum og prósentum og hagvaxtarspám.
Niðurstöður annarra yrðast í ljóðum, málverkum, tónlist og tilfinningaþrungnum ræðum um gildi þess sem maður elskar.

Leyfið mér að taka mjög ógeðfelld og ýkt dæmi sem eru þó samhliða þessari hugsun:

Þegar gyðingar fóru í gegnum rammskakkt en þó fullkomnlega "réttlætt" skynsemisfall Nasista kom út úr henni afar hagfræðilegur kostur: Meira landrými fyrir okkar fólk ef við eyðum þeim, og svo getum við hirt allar gulltennur, skartgripi og aðrar eigur þeirra. Eyðum Gyðingunum og græðum pening.
Þegar við horfum á örlög gyðinga og þeir fara í gegnum okkar skynsemisvél sjáum við harmleik og ömurleika helfararinnar og skiljum ekki hvers konar viðbjóður þetta var.

Þegar Josef Mengele sá gyðingabarn sá hann, samkvæmt sinni brjáluðu "skynsemi", sem þó var einungis barn síns tíma, tilraunadýr sem hann gat potað í og misþyrmt.
Þegar við sjáum sama gyðingabarnið sjáum við viðkvæmt lítið grey sem enginn heilvita maður myndi vilja misþyrma eða gera tilraunir á.

Bandarísk stjórnvöld sjá hagkvæmnina í því að sprengja Írak í ræmur. Það tryggir þeim ódýra olíu næstu 20 árin.
Ég sé sama gjörning sem óréttlátt og hræsnisfullt grimmdarverk.

Ráðamenn Bretlands á 19. öld sáu munaðarleysingja og fátæklinga sem dragbíta á samfélagið og í raun litlu betri rottum ræsisins. Munaðarleysingjar voru í sumum tilfellum réttdræpir og þótti það betri lausn en að eyða peningum í að halda þeim uppi.
Charles Dickens sá sömu munaðarleysingja og fátæklinga sem persónur, einstaklinga, vesalinga sem áttu erfitt. Hann skrifaði Oliver Twist og Jólasögu og fleiri bækur til þess að rétta hlut þeirra.


Niðurstaða: Skynsemin er afstæð við reynsluna. Það sem einn maður kallar skynsemi kallar annar brjálsemi. Skynsemin hefur gríðarlega oft verið notuð til að réttlæta grimmdarverk og tillitslausar og ónærgætnar aðgerðir eins og geldingar fatlaðra, aðskilnað "kynþátta", lægri stöðu kvenna ("hafa konur sál?" var stóra spurningin í upphafi síðustu aldar), stríð og dauðarefsingar.
Það er engin trygging að hagfræðirök eða önnur "skynsemisrök" séu byggð á neitt hreinni hugsun en svokölluð "tilfinningarök".
Á sama hátt geta tilfinningar verið skakkar og byggst á hræðilegri æsku viðkomandi.

Tilfinningar eru, þegar allt kemur til alls, hluti af skynseminni, tilfinningar byggjast á reynslu, þær eru birtingarform nákvæmlega sama falls, en í gegnum aðra farvegi og með öðrum tjáningarhætti. Tilfinningarnar eru á vissan hátt varakerfi móðureðlis mannsins. Þegar hinn "hagræni" hluti heilans er farinn að réttlæta allt til andskotans eru tilfinningarnar samt ennþá logandi á réttum stað og reyna að vísa veginn.

Sum okkar eru bara betri en önnur í að hundsa þær og halda áfram að réttlæta gjörðir okkar eftir á.

Góðar stundir,
Hr. Muzak

Bloggað af Hr. Svavar 1:10 AM
 
feitasta barn heims?


hahaha
einhver fann síðuna mína á Google með leitarskilyrðunum: Feitasta barn heims... :)

HAHAHAHA
Súrt...

Bestu kveðjur,
Svabbi

Bloggað af Hr. Svavar 12:22 AM
miðvikudagur, janúar 15, 2003
 
Annáll dagsins...

Sjitt maður hvað þetta var víraður dagur... :)
Ógeðslega skrítið atmósfer í kringum hann...

Í morgun fór ég í sund með Nóna Bróður og við syntum samtals fjórar ferðir og gátum ekki meira af því að við stoppuðum alltaf og fórum að hella úr skálum reiði okkar gagnvart Valgerði Sverrisdóttur og hennar kumpánum... :) hahahaha... Valgerður Sverrisdóttir eyðilagði fyrir mér sundið... :D
Svo ákváðum við að fara í pottinn...
Þar voru hrókasamræður í gangi og allir á kafi, við Nóni dýfðum okkur út í þær og rifumst grimmt...
Einhver kall var að halda því fram að Falun Gong og íslenskir mótmælendur hefðu viljað banna Kínaforseta að koma til landsins... Ég sagði honum að Bæði FG og ÍM hefðu verið að mótmæla ferða- og málfrelsisskerðingum miklu frekar en sjálfum forsetanum. Hann sakaði mig um að vera kommúnista, og síðan sakaði hann mig um að halda með Tító Júgóslavíukúgara... (löng saga...)
Nóni þurfti þá að fara í skólann, enda klukkan hálf ellefu.
Ég hélt áfram að spjalla og rífast og rökræða og spekulera... Kallinn fór, annar kom, síðan kom gömul kona, hinn kallinn fór, annar kall kom, gamla konan fór, kall kom í staðinn, önnur kona kom, hinn kallinn fór... Og allan tímann var ég í hrókasamræðum við þetta fólk... :)

Það var þá sem ég rankaði við mér og upplifði feitasta Forrest Gump móment allra tíma...

Mér leið þvílíkt eins og Forrest Gump þegar hann segist ætla að fara að hitta Jenny og þá eru átta umgangar af fólki búnir að flæða gegnum strætóstöðina...

Nema hvað, upp úr sundi fer ég, eftir pínu vesen í sturtuklefanum, og beint á fund uppi í Landvernd, því nú er tvöþúsund... og þrjú...

Eftir fundinn fór ég og hitti Björn Gunnarsson, formann umhverfisstofnunar Háskóla Íslands. Hann sagði mér hvað væri á döfinni og við spjölluðum stutt...

Aðalatriði dagsins...
Nema hvað... blablabla

Eftir spjallið við Björn fór ég niður á Mokka og fór að rabba við tvo umhverfisfræðinema. Við vorum að diskútera samræðutaktík íslensku ríkisstjórnarinnar (sem felst í meginatriðum í því að ríkisstjórn Íslands er eins og páfinn, óvéfengjanleg og allir sem halda öðru fram eru villutrúarmenn).
Þá labbar inn gömul vinkona úr Heimspekinni, Anna Lilja Marshall, og segir að menntaskólanemar séu að mótmæla Kárahnjúkavirkjun með því að skvetta vatni úr tjörninni á Alþingi...
Við hlaupum niður á Austurvöll til að sjá hvað er að gerast, og viti menn, þar eru svona 100 krakkar með spjöld, gjallarhorn og læti og löggunni stráð eins og geirfuglum fyrir framan Alþingishúsið.

Krakkarnir reynast vera úr Austurbæjarskóla og eru vægast sagt Æðislegir! Þau sungu og trölluðu og öskruðu og hlógu, reitt ungt fólk. LOKSINS, UNGT FÓLK MEÐ SKOÐANIR!!!
Við eltum þau og fylgdust með skemmtilegum hringdansi þeirra um bæinn þar sem þau sungu Ísland ögrum skorið. Forsöngvarinn var flottasti lúði sem ég hef séð, síðhærður og reykti og var svona eins og ég þegar ég var lítill nema miklu meiri rebell... Ég fílaði hann, hann fer eitthvað þegar hann verður stór...

Síðan eftir smá rölt kom hópurinn aftur að Alþingi og hélt áfram söng og hrópum. Þá horfði leiðtoginn og nokkrir krakkar á okkur þrjú sem stóðum brosandi eins og þrossar og horfðum á. Leiðtoginn rétti að mér gargtólið og sagði: "seg þú eitthvað, við viljum að einhver eldri segi eitthvað..."
Ég færðist undan, en lét svo undan bænaraugum barnanna og tók í gjallarhornið.
Ég kynnti mig...
Krakkarnir Fögnuðu...
Ég sagði þeim að ég fílaði þau í tætlur og það sem þau væru að gera, því ungt fólk ætti svo sannarlega rétt á því að tala og fá að vera reitt...
Krakkarnir Fögnuðu hærra... - Fætur mínir titruðu og ég skalf allur af minni eðlislægu feimni, sem ég veit að fólk trúir lítið á, en er engu að síður til staðar...
Ég hélt áfram... ég sagði þeim að þau væru næsta kynslóð íslenskra kjósenda og þau hefðu rödd sem ætti að hlusta á.
Krakkarnir fögnuðu mjög mjög hátt...
Ég sagði þeim að þau ættu ekki að vera hrædd við að segja sína skoðun og þegar fólk spyrði þau, "hvað viltu þá í staðinn? Hvað er eitthvað annað?" ættu þau bara að segja: "Ekkert! Því patentlausnir eru ekki málið!" "hvað eru patentlausnir?" heyrðist úr hópnum... Ég sagði: "Patentlausnir er þegar fólk heldur að það sé hægt að koma með einhvern einn pakka sem leysir öll vandamál. Það er ekki hægt, en ríkið á ekki að redda okkur vinnu. Fólkið á sjálft að skapa sér vinnu, með góðri menntun, góðu heilbrigðiskerfi og góðum samgöngum. Ríkið ætti að hlúa að einstaklingnum, en ekki að standa í einstökum atvinnureddingum fyrir eitthvað fólk. Það besta sem komið gæti fyrir Austfirði væri ef Ríkið ynni sína vinnu almennilega þar og læti þau svo vera að öðru leyti."
Allt ætlaði um koll að keyra af ungmennahrópum og gleðilátum.
Ég sagði þeim að þau ættu bara að stofna sinn eigin flokk eftir að þau yrðu 18 ára, því það væri ekki hægt að treysta þessum bjánum í gömlu flokkunum, það væri sami rassinn undir þeim öllum. Þau hefðu hreinar hugsjónir. Hugsjónir dofna eftir þrítugt, svo ekki treysta neinum yfir þrítugu! :) (ég brosti...)
Krakkarnir hlógu og hrópuðu veeeiii...

Ég kvaddi þetta frábæra unga fólk með því að segja að þau væru brilljant og ég vildi sjá fleiri ungar manneskjur gera eins og þau, að segja sína skoðun og gera eitthvað, því þau eru framtíðin.

Mér leið ógeðslega vel... og ég veit að þeim leið líka vel, því þau skælbrostu út að eyrum. Fullorðin manneskja hafði sýnt þeim að þau væru einhvers virði og látið þau vita að þau væru kúl. Ég veit að ungt fólk þyrstir í viðurkenningu fullorðinna, sem allt of oft láta eins og unga fólkið sé ekki til.

Ég ber gríðarlega virðingu fyrir þessum krökkum og ég vona að ég sjái þennan unga lúða framarlega í víglínunni í framtíðinni...

En það besta var, að í þessum krökkum fann ég nýja von til að berjast fyrir þetta land... Þessir krakkar voru hreinir og reiðir og fullir af orkunni sem veldur sköpun og breytingum.
Leiðinlegt að þau eru ekki þorri íslenskra kjósenda... Þau kunna að skilja rétt frá röngu...

Og ég verð að segja að mér fannst töff að þessi ungi maður reykti þrátt fyrir allan helvítis áróðurinn frá Þorgrími bölvuðum Þráinssyni. Ég reyki ekki, en ég þoli ekki svona hræðsluáróður og ofstæki.
Áfram Unga fólk!!!

Bestu Kveðjur,
Svavar Knútur

Bloggað af Hr. Svavar 8:51 PM
þriðjudagur, janúar 14, 2003
 
Jæja krakkar mínir...

Var að semja lag...
Það heitir Fastur.

Textinn er u.þ.b. svona...

Fastur

Þú hnýttir á mig rembihnút
Sem ég get ekki leyst,
Og nú er ég fastur...
Mig langar til að komast út
Að leika við þig...
En ég er fastur, mig langar til að...

...mála tröll á flugdreka
Til þess að hræða fuglana
En ég get ekkert afrekað
Því ég er fastur... Því ég er fastur og mig langar til að...

Ég veit ekki hvað þér gekk til
Með þessum hnút...
En nú er ég fastur...
Þú veist nákvæmlega hvað ég vil
En ég fæ ekki neitt
Svo nú er ég fastur og ég verð að fá að...

Berja gat á vegginn þinn
Svo þú getir horft út í umheiminn
En ég get ekki komist inn
Því ég er fastur, og ég er orðin skrambi...

Brú:
Svekktur á því
Að þú treystir ekki á mig
Og kvekktur á því
Að þú leystir ekki hnútinn og ég bað svo fallega bað svo fallega
Ekki vera belja... Því ég verð að fá að velja hvert ég fer.
Ekki bara bundinn inni í skáp þú með þinn harða skráp og þú hrúgar mér í hornið eins og óhreinum þvotti, en ég er enginn hrotti, ég vil bara...

...mála tröll á flugdreka
Til þess að hræða fuglana
En ég get ekkert afrekað
Því ég er fastur... Því ég er fastur og ég bið þig um að...

Losa mig úr böndunum
Sem skera mig á höndunum.
En mest af öllu bið ég þig
Að binda mig aftur, því ég vil vera fastur bara fastur við þig.


Komment?

Hr. Muzak

Bloggað af Hr. Svavar 9:00 PM
 
Tími til að taka sig á...

Jæja Krakkar, nú er ég klæddur og kominn á ról. Vaknaði klukkan átta og á morgun vakna ég klukkan sjö og ég ætla að fara að temja mér heilbrigðari lifnaðarhætti í tilefni af hækkandi sól.
Urg...
Grænt te og corn flakes á borðinu og ég horfi grimmdaraugum á það...

En... Þetta er nauðsynlegt skref...

Bestu Kveðjur,
Hr. Svavar

Bloggað af Hr. Svavar 8:21 AM
mánudagur, janúar 13, 2003
 
Jú, kannski maður eigi bara...

Gat ekki sofið í nótt fyrir reiði.
Var að vakna núna, eftir að hafa setið til sex í morgun skrifandi reiðan texta sem ég mun líklega einn lesa.
Ég er ofboðslega reiður út í íslensk stjórnvöld fyrir skoðanakúgun og lágkúrulegan málaflutning.
Ég er gríðarlega pissed út í unga sjálfstæðismenn fyrir að láta eins og Squealer í Dýrabæ George Orwell. Þetta eru góðir strákar, en þeir eru allt of uppteknir við að réttlæta aðgerðir stóru kallanna. Þeir kjósa að gagnrýna ekki sinn eigin flokk út frá neinu nema meintum skorti hans á efnishyggju.
Ég er ennþá meira reiður út í íslenska umhverfisverndarsinna fyrir að velja mestu rugludallana sem málsvara sína.
Ég er hundfúll út í samfélagið að sjá ekki í gegnum Valgerði Sverrisdóttur og hennar vini.
Ég er brjálaður út í sjálfan mig fyrir að hafa ekki gert meira til að sýna fólki hlutina í réttu ljósi.

og ég get ekki öskrað... ég fæ enga útrás...
Þjóðin mín er í þann mund að selja landið sitt í hendur erlendu stórfyrirtæki fyrir engan pening...

Ég er að missa trúna...
Ég er að missa trúna á landið mitt og þjóðina mína...

Ég veit ekki hvort þið hafið upplifað þetta, en þetta er versta tilfinning sem ég hef nokkurn tíma upplifað. Verri en þegar pabbi dó...
Þetta er svo miklu stærra samhengi. Nú er búið að kasta teningunum og þjóðin stendur á bak við ruglið.

Ætti maður að flytja til Danmerkur þar sem þetta er allt hvort eð er komið í fokk?
Eða ætti maður að flytja til Kanada þar sem mönnum hefur tekist að halda þessu í skefjum?

Löngun mín til að búa hér á Íslandi er hins vegar þverrandi.
Illkvittni fólks í umræðunni og sú niðurlæging sem frjálshugar hafa fengið á sig undanfarin misseri er að buga mig.
Mig langar ofboðslega mikið að sleppa þessu öllu, hætta að berjast og fara héðan. Hætta að berjast fyrir draumum mínum fyrir hönd barna minna.

En ég mun halda áfram, að minnsta kosti í bili... En þrek mitt til að verja þetta land er næstum búið. Ég held að "framfaraöflin" séu búin að sigra.
Takið bara hnefann út úr rassinum á mér og leyfið mér að pakka saman og fara.

Bestu Kveðjur,
Hr. Muzak

Bloggað af Hr. Svavar 1:49 PM
 
Andvaka og rakst því á þetta:

Var eitthvað að ruslast og fann þetta hjá honum Sigurgeiri... sem ég held mikið upp á...

"Það kann að vera vegna þess ég hef ekki sömu skoðun og hef lítinn áhuga á að vernda íslenska sanda. Sandarnir eru að eyðileggja út frá sér og gætu þegið bindingu, eins og í uppistöðulóni virkjunar. Einnig hef ég keyrt Möðrudalsöræfin. Var eins og að keyra á tunglinu. Önnur ástæða fyrir því að ég er ekki sáttur, eru lausnirnar sjálfar. Hagkerfi sem byggir á einni auðlind, fiski, er hagkerfi sem má ekki við neinu. Greenpeace vilja vernda þorskinn og ef þeir fá það í gegn er búið að loka á tvær sjólindir fyrir okkur og ekki margar gjöfular eftir. Nei, ég hef sagt það sjálfur að álverið þarf að koma til að vega upp á móti sjávarútveginum. Ef annað klikkar, þá er hitt það sterkt að landið fer ekki 20 ár aftur í tímann, þ.e. 100% verðbólgu. Ferðaiðnaðurinn er besta hugmyndin af þeim sem ég fékk hjá Muzak og félögum. En er ferðaiðnaðurinn lausn sem kemur alveg í staðinn ?


Með það er ég ekki alveg viss, þar sem mér hefur ljáðst að upplýsa mig. Í fljótu bragði virðist ferðaiðnaðurinn vera eitthvað sem kemur með en ekki í stað. Ástæðan fyrir því er hversu hverfulir ferðamenn eru. Ríkið kastar milljörðum í að kynna landið, styrkja ferðaþjónustu og síðan hætta ferðamenn að koma því annað land varð meira spennandi. Atburðirnir 11. september eru líka enn að hafa áhrif á flug í heiminum. Að einn dagur skuli hafa slík áhrif er besta sönnunin fyrir óstöðugleika ferðamanna. Til að ljúka þessu þá er smá pæling. Getur einhver bent á land sem lifir eingöngu á ferðaþjónustu og á sama tíma getur státað sig af því að vera velferðarríki?"

Þið takið eftir því að nokkrar setningar í þessum orðum Sigurgeirs eru skáletraðar, það gerði ég. Ég ætla að gera stuttar athugasemdir við þær, því ég gleymdi því á sínum tíma :) hehehe
Ég vona að Sigurgeir afsaki þennan andvakagjörning...

Það kann að vera vegna þess ég hef ekki sömu skoðun og hef lítinn áhuga á að vernda íslenska sanda. Sandarnir eru að eyðileggja út frá sér og gætu þegið bindingu, eins og í uppistöðulóni virkjunar.
Þér að segja Sigurgeir, þá hefur uppistöðulónið þveröfug áhrif. Það hefur árstíðabundna yfirborðssveiflu upp á 70 metra, sem þýðir að nokkra mánuði á ári myndast rúmlega 120 m. langar leirstrendur sem fjúka upp á vorin og mynda gríðarlega sandbyli sem, samkvæmt heimildum frá landgræðslunni, geta tekið með sér heilu ferkílómetrana af grónu landi á nokkrum klukkustundum. Uppistöðulón í jökulá er því ekki beinlínis kjörin landgræðsluhugmynd.

Ennfremur:
Hagkerfi sem byggir á einni auðlind, fiski, er hagkerfi sem má ekki við neinu.
Sammála þessu, en að byggja hagkerfið þess í stað nær eingöngu á hverfulu verði áls, er einnig fásinna. Það eru fjölmargir aðrir kostir í stöðunni og þeir sem sjá þá ekki eru blindaðir af álglampanum. Ekki bara ferðamennska og sjávarútvegur.
ímyndið ykkur ef íslendingar þyrftu t.d. ekki að flytja inn neina Olíu... Þar væri nú helvíti mikill peningur kominn úr mínushluta viðskiptahallans.

Og:

Atburðirnir 11. september eru líka enn að hafa áhrif á flug í heiminum. Að einn dagur skuli hafa slík áhrif er besta sönnunin fyrir óstöðugleika ferðamanna.

Uppgötvun og nýting Kolefnistrefja-efna í bílaiðnaði geta líka haft geigvænleg áhrif á verð Áls. Ímyndaðu þér efni sem er léttara en ál, mengar mun minna við framleiðslu og hefur þar að auki betri eiginleika í öryggi.

og að lokum:
Getur einhver bent á land sem lifir eingöngu á ferðaþjónustu og á sama tíma getur státað sig af því að vera velferðarríki?
Hver var að tala um að Ísland ætti eingöngu að lifa á ferðaþjónustu?
Hins vegar snýst þetta um að við erum að fórna framtíðarmöguleikum í ferðaþjónustu fyrir uppbyggingu iðnaðar í landi þar sem aðstæðurnar eru í raun þveröfugar. Við höfum takmarkaðar orkulindir en gríðarlega möguleika til móttöku og þjónustu við ferðamenn. Álversbyggingin er skammsýni og með einum tíunda af þeim peningum sem Kárahnjúkavirkjun kostar væri hægt að gera langtum hagkvæmari langtímafjárfestingar.

Bestu Kveðjur,
Hr. Svavar

Bloggað af Hr. Svavar 4:50 AM
 
Maður er bara að verða heimsfrægur á Internetinu...:)


Það kítlaði pínulítið hégómann að sjá þetta... :)

Bestu Kveðjur,
Svabbi

Bloggað af Hr. Svavar 4:17 AM
 
Fjelag íslenzkra þjóðernissinna (Heiðursmannaklúbbur íslenskra múlatta...)

Ég veit ekki hvað það er, en þegar ég sé talsmenn FÍÞ hafa sig í frammi í sjónvarpinu þá langar mig mest að hlæja, því mér líður eins og ég sé að horfa á Gummo eða einhverja áþekka "reality" ræmu frá dýpstu suðurríkjum BNA. Útstæð eyru og brött nef, skringileg andlit og það vantar bara banjóið og holgóma hálfbróðurinn og þá er maður kominn inn í eitthvað Twilight Zone dæmi...
Ég er maður málfrelsis og ég vil að þessir menn fái að gala ótruflað út um allt, helst á hverri einustu bylgjulengd ljósvakans, svo allir Íslendingar geti séð hvursu andskoti fáfróðir þeir eru í raun og veru.
Ég veit að þessir gæjar eru ekki fæddir vitlausir, en þeir hafa lent í einhverjum bölvuðum heilaþvotti hjá Guðna Ágústssyni eða guð veit hverjum. Greyin... Og svo eru þeir með ofbeldishótanir til að undirstrika hversu göfugir þeir eru og hversu göfugt íslenskt kyn er...
Hey, frekar vil ég eiga brún barnabörn en að leyfa svona inbred vitleysingum að koma 100 metra frá dóttur minni þegar sá tími kemur. Þið vitið að ég mun standa á veröndinni með haglarann strákar mínir... :-)

Sjáið bara þennan "svarta" lista sem þeir gerðu yfir fyrirtæki sem "sniðganga" íslenskt vinnuafl og ráða "skítuga útlendinga" í staðinn:

Alpan
Álnabær
EJS
Ferskar kjötvörur
Fönn (Fannhvítt frá Fönn)
Holtakjúklingur
Ístak
Júmbó
Landflutningar
Myllan
Nói Síríus
ORA
Sómi
Kjötvinnsla SS á Hvolsvelli
Þvottahöllin

Heví listi maður. Svartur listi. Hættulegt samsæri í gangi hjá mínum... Útlendingarnir feitt að taka störfin af okkur þessa dagana... Kjötvinnsla SS á Hvolsvelli indeed... Voru einhverjir bleiknefjar að sækja um störf þar til að byrja með? EJS? Eru þeir að meina Indverjana sem langaði til að vinna í Íslenska tölvubransanum? Júmbó? ORA? Sómi? Be still my heart... Bíðið aðeins meðan ég spila á heimsins smæstu fiðlu...

Ég held að það sé afar mikilvægt að útskýra fyrir þessum mönnum að atvinnuleysi á Íslandi er langt undir normalinu.
Maður veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta, hvort maður á að líta á þetta sem spaugilegan menningarkima í íslensku samfélagi eða hryllilega brotalöm í menntakerfi Íslands.
Either way, þá býst ég við að þeir taki í versta falli smá fylgi af sjálfstæðisflokknum eða framsókn... hehehe... :)
Það munar um minna...
Bestu Kveðjur,
Svavar

Bloggað af Hr. Svavar 12:34 AM
sunnudagur, janúar 12, 2003
 
Níðingurinn réttir náðarsamlegast fram sáttahönd...

Jæja, nú vilja menn meina að þetta sé allt búið og nú eigi allir að vera vinir og gera það besta úr því sem nú er.
Virkjunin er ákveðin og það er búið að ákveða að slátra hálendinu fyrir "framfarirnar".
Nú segja þeir að við vælukjóarnir og grenjandi tilfinningaskjóðurnar eigum að koma í faðm foreldranna og lifa í sátt og samlyndi, það sé búið að láta þetta mál fara eftir reglum lýðræðisins og því ekkert við það að athuga.
En af hverju líður mér þá eins og manni sem kærir líkamsárás, nauðgun og meiðyrði og sá sem ég kæri er sýknaður vegna þess að pabbi hans er dómarinn? Og svo kemur sakborningurinn sýknaði og réttir fram höndina sem hann er búinn að nota til að berja mig og mína fjölskyldu og segir með munninum sem flutti meinsæri gegn mér og kallaði mig landráðamann og svikara og óvin fólksins að nú skulum við vera vinir, því hann sé búinn að vinna og þá eigi ég bara að vera vinur hans...
Af hverju líður mér svoleiðis?
Ætli það sé ekki af því að það er búið að hnefa mig og mína í rassgatið og síðan á ég að vera góður strákur og sleikja hanskann...

Ætli maður ætti bara ekki að brosa og vera sætur og vera ánægður með allar framfarirnar og hamingjuna sem allir munu greinilega fá núna. Af því að það var greinilega ENGIN leið fær til að þóknast báðum aðilum. Það var greinilega ENGIN leið fær til þess að byggja upp atvinnu fyrir austan OG vernda landið.
Greinilega ekki...

Á ég þá ekki bara að vera þægur og góður og þegja. Og kannski bara kyssa Sólveigu Pétursdóttur líka vegna þess að Kínaforseti er farinn?
Og kannski bara...

Nei, ég held ekki. Ég held að þetta mál allt saman sé búið að gera mig ofboðslega reiðan og vonsvikinn. Ég held að öll ljótu nöfnin sem er búið að kalla mig og allt yfirlætið og niðurlægingin séu búin að koma örum á sálu mína sem munu seint hverfa.

Bestu Kveðjur,
Hr. Svavar

Bloggað af Hr. Svavar 7:38 PM
 
Svansson Svarar Svavari...

Svansson tók vel í hugmyndir okkar Más um umræðu, og ég verð að segja að hann skrifaði ágætis pælingar og rökfastar. Einn af örfáum ungum sjöllum sem maður nýtur þess að lesa og rökræða við, vegna þess að texti hans er yfirleitt laus við yfirlæti og hroka.

Í raun er ég sammála flestu sem svansson segir í greinum sínum, nema... Hvers vegna telur hann svona mikinn mun á því að "hugsa með hjartanu" og "hugsa með höfðinu"?
Setjum þetta upp svona:
Rökvísi: Að fylgja rökum.
Skynsemi: Það að vera samkvæmur skynjun sinni (að hugsa og breyta samkvæmt því sem skynfærin og reynslan segja til um).
Tilfinningar: Það sem maður upplifir, það sem maður skynjar í samhengi við reynslu sína.
Skynsemi og Tilfinningar eru þannig mjög skyld hugtök. Tilfinningar eru ekki veikleiki, tilfinningar eru viðbrögð reynslu okkar við skynjun. Þær hafa ekki nákvæmlega sama strúktúr og áferð og rökvíst tal röksemismannanna, en þær samrýmast reynslunni. Því tel ég ekki hægt að setja fleyg á milli hjarta og höfuðs. Sjálfur tel ég að mín pólítík sé mjög vænn kokteill af höfði og hjarta.
Auk þess er það alrangt að umhverfisverndarsinnar telji náttúruna heilaga og ósnertanlega, en við verðum að draga línu þar sem við leyfum náttúrunni að vera í friði. Við verðum að leyfa vistkerfum að fá að lifa í friði án okkar afskipta. Það gerum við með því að takmarka umsvif okkar á okkar svæði, þ.e.a.s. þar sem við búum. Við eigum að geta þróað okkar samfélag án þess að teygja okkur lengst inn í hjarta landsins til að sækja orku sem við í rauninni þurfum ekki við.
Hvers vegna að rústa vistkerfum þegar við höfum marga aðra valkosti í stöðunni sem hafa ekki næstum því eins slæm áhrif?

Svansson segir: Ég er ekki á móti því við þróum atvinnulíf á umhverfisvænan hátt, en er ekki sérstakur talsmaður þess heldur. Mín afstaða er í anda Laissez-faire, látum einstaklingana í atvinnulífinu sjá um þróa atvinnulífið. Ef þeir biðja um aðstoð skulum við hugsa málið. En ef við í krafti pólitísks förum að þröngva okkar hugmyndum upp á þá erum við að flækjast fyrir sama atvinnulífi og er í raun að útvega okkur flest það sem við þurfum í daglegu lífi.

Þessi lokaorð eru kannski stóri punkturinn minn. Mér finnast flestir umhverfisverndarsinnar missa af honum.


Þarna erum við Svansson greinilega sammála. Og bumban líka: En er bygging álvers á Reyðarfirði ekki greinilegt dæmi um ríkisákvörðun sem hefur ekkert að gera með sjálfstæða uppbyggingu efnahagsins. Ég er frjálslyndur maður og ég vil að atvinnulífið þróist á eigin forsendum, en ekki handstýrt af ríkinu. Álver er allt of stór biti fyrir svona lítið samfélag og ekki í neinu samræmi við hugmyndir um einstaklingsframtak.
Ef við viljum sjá einstaklingana þróa atvinnulífið gætum við spurt fólkið á Austfjörðum um þess eigin hugmyndir, en ekki blásið upp í huga þeirra væntingum um stóriðju- og verksmiðjustörf í 30 ár þangað til þau sjá ekkert annað. Ég er viss um að það yrði mun farsælla ef þetta fólk fengi að þróa sitt líf sjálft með hóflegri aðstoð frá ríkinu og bættum samgöngum og menntunarmöguleikum á svæðinu. Nýsköpunarnámskeið í grunnskólum hafa meira að segja haft gríðarlegan árangur.
Ég spyr: Er ekki betra að eyða 15 árum og 30 milljörðum í að gera samfélag sjálfstætt og sjálfbært í stað þess að eyða 200 milljörðum á sjö árum í að gera samfélag háð einum stórum vinnustað og þar með kæfa allar aðrar framfarir á svæðinu. Það er nú einu sinni reynslan að þegar stóriðja kemur í svona lítið samfélag kafnar allt frumkvæði.

Bestu Kveðjur,
Svavar Knútur

Bloggað af Hr. Svavar 5:07 PM
laugardagur, janúar 11, 2003
 
Lesið bumbubloggið...

Lesið þetta...
Lykilatriði:
"Víst mun ævintýrið eystra auka hagvöxt hér, a.m.k. á byggingartímanum og í minni mæli þegar álverið er komið í gagnið. Hins vegar munu óhjákvæmilega verða vaxtahækkanir hér á byggingartímanum, og þær munu minnka aðra fjárfestingu í atvinnulífinu, fjárfestingu sem menn hefðu annars ráðist í , hefði ekki komið til þessarra framkvæmda. Sköpunar- og framkvæmdagleði manna finnur sér nefnilega alltaf farveg, sé hagkerfið ekki fjandsamlegt slíku frumkvæði. Því miður er áhersla stjórnvalda á miðstýrða stóriðjuuppbyggingu engan veginn í anda hugmynda um frjálst markaðshagkerfi sem a.m.k. annar stjórnarflokkurinn segist þó hafa að sínu helsta leiðarljósi."


Bestu Kveðjur,
Hr. Svavar

Bloggað af Hr. Svavar 10:01 PM
 
Enn heldur pælingasúpan áfram...

Fékk pælingu frá , sem mér þykir ná vissum kjarna. Nokkrir hlutar hennar vekja hjá mér bæði spurningar og vangaveltum...

Már segir: "Umhverfisverndarsinnar eru talsmenn þess að vernda núverandi ástand í
náttúrunni. Umhverfisverndin er þar með, eðli málsins samkvæmt, íhaldssöm.
Íhaldssemi fer í taugarnar á framtakssömu fólki."


Mér hefur þó sýnst umhverfisverndin einnig vilja taka mikið frumkvæði hvað varðar svæðin, þjóðgarðar og efldar rannsóknir á náttúru svæðanna og uppgræðslu þeirra teljast seint til íhaldssemi.

Már talar um verðgildi náttúrunnar og er að pæla um þá erfiðleika sem skortur á því veldur, ég veit ekki hvert sú pæling leiðir. Sumar þjóðir eru farnar að setja verðmiða á land, en ég spyr, er nauðsynlegt að setja krónutölu á öll verðmæti? Er þá hægt að setja krónutölu á dóttur mína? Er ég þá bjáni og tilfinningasamt flón ef ég vil ekki selja hana? Ég tel að menn verði að átta sig á því að það er til fleira gildismat en beinharðir peningar. Ég veit að Már veit það og mig grunar að Guðmundur viti það, en hvernig verður þessu komið inn í almenna vitund? Það virðast allir vita þetta, en þegar þeim hentar þá segja þeir: enginn verðmiði...

Tungumálið er hins vegar erfiður partur...

Már segir:
"Ég held að vandamál umhverfisverndarliðsins felist líka að vissu leyti í því
að þá liðssveit skortir talsmenn sem kunna að tala því tungumáli sem
iðnvæðingarliðið skilur og tekur mark á.

Ég held að tungumálið sé gjáin sem skilur að sjónarmið þessara tveggja hópa.

Hagfræðin er vandlega rótgróin fræði sem hefur gefið okkur fullt af góðum og
stýrt merktum hugtökum sem hjálpa okkur við að rökstyðja kosti þess að fylla
fallegt jökulsárgljúfur af steinsteypu og sökkva heilu heiðavistkerfunum undir
gruggugt vatn.

Hin köldu, fræðilegu rök talna og vísitalna eru eitthvað sem allir skilja -
meira að segja lopapeysuhipparnir sem vilja breyta íslandi í þjóðgarð.

Það sem þá hins vegar skortir eru orðaforði og tákmyndir til að benda á
gallana í rökum virkjunarsinna. Þá skortir formlega skilgreint
tungumál sem hinn hópurinn skilur."


Nú vil ég meina að tungumál Hagfræðinnar sé einmitt mjög torskilið og hin köldu fræðilegu rök talna og vísitalna sé oftar en ekki notuð til blekkingar sbr. Andra Snæ Magnason í Lovestar og Sagan af Bláa Hnettinum. Menn tala hátt um sumar afleiðingar Álversins en þegja þunnu hljóði yfir öðrum.

Már segir: "Nú er ég ekki að halda því fram að hagfræðingar séu með eitthvað gevveikt
samsæri gegn heiminum, heldur grunar mig að hundurinn liggi grafinn í því að
þeir sem beita hagfræðinni eru sjaldnast hagfræðingar - eða í það minnsta
hafa ekki hagfræðina að markmiði (stjórnmálamenn stunda framapot og
atkvæðadorg, forstjórar huga að gengi eigin fyrirtækis á markaðnum, etc.)

Þannig held ég að takmörkunum hagfræðinnar sé oftar en ekki markvisst beitt
til að ná fram ýmiskonar fjárhagslegum og pólitískum markmiðum, og vísitölu-
lopapeysuhippinn kann ekki að verjast þessu af því það er ekki til nein
stöðluð rökverkfæri til þess. (Jafnvel þótt einhver hippanna viti hvað hann
vill segja, þá er allsendis óvíst að almenningur mundi skilja það sem hann
væri að segja.)"


Þarna kemur sterkur punktur... og tekur á hlut sem vekur hjá mér sjálfum mikla vanmáttartilfinningu. Þegar menn nota hagfræðina sem vopn og banna manni síðan að nota hana sjálfum...


Már segir: "Það skortir m.ö.o. "vinsæl fræði" sem kryfja takmarkanir hagfræðinnar og
byggja upp alþekktan orðabanka fyrir umhverfisverndarfólk. Þarna ætti
heimspekin að koma sterk inn, en því miður virðist það vera yfirlýst stefna
heimspekinga að vera ekki gagnlegir í samfélaginu... ;-) Eða hvað segir þú
Svavar?!? ;-)"


Svo ég vitni í líf mitt, þegar ég reyni að ræða þessi mál við fólk úti í alvöru heiminum og jafnvel hér í netheimum, þá höggva menn undir eins eftir því að ég er heimspekingur og þar með veit ég ekki neitt, er bara droppát úr "betri greinum". Heimspekingar á Íslandi fá lítinn hljómgrunn og eru gjarnan álitnir loftkastalaspekingar og froðusnakkarar, mögulega afleiðing "bókvitið verður ekki í askana látið..." frasans... Heimspekingar hafa í huga Íslendinga afskaplega lítið gildi og því afskaplega lítinn trúverðugleika í samræðum, maður er strax stimplaður sem draumóramaður.

"...og virkjunarsinnarnir skála og borða rjómatertur, með e.t.v. örlítið
slæma samvisku eins og eftir að hafa narrað sælgæti út úr litlu barni, því
undir niðri vita þeir að þeir voru að "sigra" rökræður við fólk sem hafði
enga tungu."


Einmitt, og síðan þegar menn reyna að koma með eitthvað á þeirra tungumáli segja þeir: "Þú ert ekki hagfræðingur, þannig að það getur ekki verið að það sem þú ert að segja sé rétt." En fólkið hefur tungu, en sú tunga er bannmál og enginn má tala hana, því hún er tilfinningarök og hún er ekki prósentur og peningar heldur mannlegar hugmyndir. Þeir sem ráða velja hins vegar vígvöllinn og vígvöllurinn er alveg óvart heimavöllur lögfræðinga og hagfræðinga og þeirra sem skylmast með prósentum og tölum.

Menn sem hugsa á öðru plani eru framandi, fólk sem hefur aðra sýn á lífið er framandi. Innan um þetta fólk eru nokkrir athyglissjúklingar og sviðsljóssþjófar sem eru ennþá skrýtnari...

Höldum áfram að velta þessu fyrir okkur og láta þetta vekja hugmyndir. Mér finnst þetta afar áhugavert.

Bestu Kveðjur,
Svavar Knútur Kristinsson

Bloggað af Hr. Svavar 9:47 PM
 
2. hluti pælinga um umhverfisverndarsinna...


Við Már héldum áfram pælingum og hann var ekki fullsáttur við fyrstu pælinguna mína, enda stiklaði ég þar á stóru og fór víða. Þessi pæling verður ekki betri, ég er lengi að komast að stórri niðurstöðu og djúpri pælingu og oft þarf ég að ræða við fólk á meðan, þess vegna verður þetta langur prósess...

Síðari málsgreinunum í síðustu grein var alls ekki ætlað að sýna fram á yfirburði listamanna og lopapeysuhippa, guð veit að ég á erfitt með þetta pakk... :) Ég var hins vegar að reyna að sýna fram á að heimsmynd og lífsáherslur eru mismunandi og því er ekki óeðlilegt að "hipparnir" stuði "nútímamanninn...". Einnig vildi ég setja fram pælingu um það hvernig umhverfisverndarsinnar upplifa umræðuna.

En... Ef þú vilt fá dýpri vangaveltur um velgjuvaldandi áhrif vissra umhverfisverndarsinna sem eru í forsvarinu, þá skal ég tvímælalaust reyna... :-) Enda sagði ég bara að þetta væri fyrsta pæling og bjóst við umræðu sem myndi geta af sér dýpri pælingar...

Ég held að kjarni málsins sé sá að þeir sem hæst hafa af umhverfisverndarsinnum séu þeir sem upplifa sterkar tilfinningar í málinu og þeir eru gerðir að talsmönnum sem yrða tilfinningar þess háværa hluta á sem skýrastan hátt að þeirra mati. Við sem erum meiri rólegheitafólk, við trönum okkur ekki fram í sjónvarpi og við leyfum þeim að tjá sig. Svo horfir maður á þessa vitleysinga í kastljósinu og í fréttunum og þeir tala eins og fábjánar, en fólkið með míkrafóninn og myndavélina tekur hvort eð er aldrei viðtöl við okkur hin, heldur bara Elísabetu Jökulsdóttur með sinn ögrandi lífsstíl og læti og hávaða, öskursöng og yfirlýsingar og Kolbrúnu fjallagrasadrottningu. Ég veit ekki...

Mér sýnist það fyrirbæri sem er að fara svona í taugarnar á manni vera gríðarlega flókið og órætt. Ólafur F. Magnússon er smámæltur og manni finnst hann vera tækifærissinni. Jakob Frímann er yfirlætisfullur og margir segja hrokagikkur.
Ég veit ekki... Við eigum svo gríðarlega undarlega talsmenn að það þarf óskaplega lítið til að eyðileggja málstað okkar...

Það er nú einu sinni svo að þeir sem eru fanatískir náttúruunnendur eru yfirleitt meira áberandi og skrýtnar týpur en þeir sem eru fanatískir efnishyggjumenn... Ástæðan gæti verið sú að efnishyggja er tíðarandi dagsins í dag og þeir sem standa andspænis henni stinga í stúf.

Ég held þó að aðalatriðið í málinu sé örvænting. Umhverfisverndarsinnar eru örvæntingarfullir og hafa verið það síðan umræðan byrjaði, vegna þess að þeir vita að þeir eru að glíma við ríkisvald sem ekkert mark tekur á mótbárum. (sjáum bara Falun Gong mótmælin) Öll rök eru viðsnúin og þá forherðast menn og verða grimmir og láta illa.

Persónulega er ég að verða brjálaður á Elísabetu Jökulsdóttur og hennar látum, og ég hreinlega veit ekki hvað það er. Einhver viljandi öðruvísiheit sem láta okkur öll líta út eins og vitleysinga.

Þetta er nú bara svona, maður er í fótboltaliði með gengi sem er allt mjög furðulegt og yfirleitt ekkert gott í fótbolta... En maður velur sér ekki samherja í þessum leik...

Ég set ekki fram fullmótaða pælingu í fyrstu grein og Þið fáið hana heldur ekki í grein 2, ég er heimspekingur og þess vegna vil ég setja fram fullyrðingu og fá svar sem gagnrýnir fullyrðinguna og/eða styrkir eða skoðar nánar áður en ég held áfram með pælinguna... Ég skrifa ekki fullmótaðar pælingar... Þær verða smám saman til...:)

Bestu Kveðjur,
Svavar Knútur

Bloggað af Hr. Svavar 8:59 PM
 
Már krefst pælinga... :-)

Már Örlygsson, frændi minn og vinur sendi mér og öðrum afar gáfuðum viðræðuaðila, póst núna áðan sem innihélt afar áhugaverðar pælingar.
Ég ætla ekki að tíunda viðmælandann, það er algerlega á hans eigin pönnu... :)

En ég ætla að blogga pælingu í kringum pælingu sem Már skaut að mér og ég hef lengi velt fyrir mér sjálfur.

Már spurði: Svavar: Gætir þú á móti reynt að velta fyrir þér hvað það er í fari sumra
umhverfisverndarsinna sem espar jafnvel skynsamasta fólk upp gegn málstað
umhverfisverndar?


Viðurkenni ég fúslega að mér finnst 48% íslenskra umhverfisverndarsinna óskaplega pirrandi grænmetisætur sem allir virðast eiga gaseldavélar og franskar kaffikönnur (hef komið í nokkur hús í undirbúningi mótmæla...) Þetta er eins og að vera með Ástþóri Magnússyni í liði þegar maður berst fyrir málfrelsi á Íslandi. Sumir af þessum umhverfissinnum eru gríðarlega pirrandi og geta ekki talað um annað en ævarandi ást sína og tilfinningar gagnvart hálendinu. Þar sem ég er sjálfur frekar rómantískur í hugsun umber ég þetta endalausa ástarhjal, en ég get vel skilið að einhverjir hard-ball players geti orðið brjálaðir á þessu, sérstaklega þegar Kolbrún "Fjallagrös" Halldórsdóttir er aðalmálsvari umhverfisverndarsinna á Íslandi.
Einnig hef ég tekið eftir því að það er sjaldnast horft á fólk eins og mig á staðnum, og í besta falli renn ég saman við artí-fartí lýðinn sem safnast saman til að kyrja í kór gegn því sem það upplifir sem harðstjórn og efnishyggjukennda blindhyggju og fáfræði.

Sjálfur upplifi ég þetta fólk sem kannski eina fólkið sem aktúallí fer upp á hálendið til þess að njóta þess, fólk sem sækir sköpunarkraft sinn og orku í óspillt víðerni. Nokkuð sem margir mættu læra af. Það er auðvitað rómantískt og í snertingu við tilfinningar sínar ad nauseum og lifir ekkert voðaleg efnishyggjulegu lífi. Það á yfirleitt ekki DVD spilara og á heima í gömlum timburhúsum í gömlum hverfum af því að því líður vel innan um timbur. Ástæðan fyrir því að þetta fólk lítur öðruvísi út er sú að það er yfirleitt ekki orðið dofið af skemmtanamenningu og er frekar "líflegt" og dýnamískt. Það gæti líka styggt "nútímamanninn" að sjá eitthvað fólk sem yfirleitt notar lítið af eiturlyfjum og áfengi og horfir lítið á sjónvarp og DVD heldur les bækur og sækir orku sína í útivist.

Ég veit að þetta fólk er öðruvísi og það er voða artí, en það þarf listamenn í heiminn, listamennirnir eru samviska heimsins, það eru listamennirnir sem hafa engra fjárhagslegra hagsmuna að gæta. Þó þeir séu skrýtnir og lifi samkvæmt öðrum viðmiðum er ekki hægt að gera lítið úr skoðunum þeirra og röksemdum. Þetta er skynsamt fólk þó það sé í snertingu við tilfinningar sínar. En ég veit hvað það getur verið pirrandi að díla við það, ég vinn með þessu fólki daginn út og inn.

En mikilvægasti punkturinn er sá að það er gríðarlegur fjöldi umhverfisverndarsinna sem eru ekki listafólk eða slíkt. Fjöldi fólks úr öðrum stéttum eru umhverfisverndarsinnar, en hafa kannski ekki eins sveigjanlegan vinnutíma eða eins gríðarlega sannfæringu og því sést það ekki eins oft. Margir raunvísindamenn hafa lært að meta náttúruna.

Það er sumsagt ekki nein andstæða að nýta náttúruna og vernda hana, en það eru til margs konar nýtingar á náttúrunni og sumar auðlindir er ekki hægt að nýta og vernda náttúruna um leið. Vissulega hefur orðræða umhverfisverndarsinna farið víða, en hugsið ykkur þetta:

Umhverfisverndarsinni: Ekki sökkva þessu landi, það er fallegt og fólki þykir vænt um það, reynum frekar eitthvað annað?

Ráðamenn hrópa og skríllinn endurómar: Þetta eru bara tilfinningarök, eins og hvað annað? Fjallagrös? ha? ertu hálfviti?

Umhverfisverndarsinni: Ókei, fyrst þú þyggur ekki tilfinningarök, hvað þá með þá staðreynd að þetta mun valda miklu moldroki og rýrnun á landi? Hvað með þá einhæfingu sem verður í atvinnulífi svona lítils samfélags? Hvað með allt fólkið sem ekki vill koma til baka til að vinna í Álveri? Hvernig væri að reyna að byggja upp ferðaþjónustu og rannsóknir og bæta skólamöguleika á svæðinu og vegi og byggja þannig smám saman upp raunhæfan möguleika á raunhæfri og eðlilegri samfélagsþróun á svæðinu?

Ráðamenn hrópa og skríllinn endurómar: Huh! Þú veist ekkert um umhverfisáhrifin, við erum búnir að samþykkja þetta, þú ert bara með eitthvað bull sem enginn tekur mark á. Ferðaþjónusta eru bara láglaunastörf og það vilja allir álver þarna, þannig að til hvers ertu ennþá að röfla. Svo verður þetta gríðarleg innspýting fyrir þjóðarbúið og fullt af vinnu og erlend fjárfesting.

Umhverfisverndarsinni: Ókei, fyrst þú hlustar ekki á tilfinningarök eða skynsemisrök varðandi mannfólk og náttúrufar, þá skal ég reyna eitthvað annað, hvað með arðbærni virkjunarinnar, er hún næg til þess að réttlæta umhverfisspjöllin, okkur sýnast arðsemiskröfur ykkar vera fáránlega litlar og allar forsendur vera mjög skakkar.

Ráðamenn hrópa og skríllinn endurómar: Huh! Síðan hvenær urðuð þið hagfræðingar, þið vitið ekki neitt, þið eruð bara fáfróðir listamenn sem hafið ekkert vit á hagfræði. Hættið þið nú að röfla, það er búið að ákveða þetta og þið eruð bara eins og vælandi börn. Lýðræðið hefur sigrað.

Umhverfisverndarsinni: Eru sem sagt skoðanir mínar einskis virði, eru tilfinningar mínar og sannfæringar einskis virði, hvað er ég? Eru allar hugmyndir mínar og allt sem ég hef sett fram gersamlega fáránlegt? Hlustar enginn á rödd mína?

Það er á þessari stundu sem viss hluti umhverfisverndarsinna, reiðir ungir menn, breytast í það sem íslenskir stjórnmálamenn hafa sakað íslenska umhverfisverndarsinna um að vera, hryðjuverkamenn. Það er yfirlætisfull framkoma stjórnvalda og alger hundsun á sjónarmiðum fólks sem veldur því að menn forherðast og gerast öfgamenn. Nú fyrst eiga íslendingar upprennandi kynslóð eco-terrorista og ofbeldisfullra mótmælenda sem nenna ekki að mótmæla með orðum og rökræðu, heldur ráðast gegn vélinni sjálfri með ofbeldi. Þetta veldur mér áhyggjum.

Stór misskilningur í öllu málinu er að íslenskir umhverfisverndarsinnar séu dýraverndarsinnar eins og Paul Watson. Það gæti varla verið lengra frá sannleikanum. Íslensk menning snýst um hófsama og skynsamlega nýtingu náttúrunnar, en ekki um heilagleika eins og eins dýrs. þ.e.a.s. visthverf afstaða, ólíkt lífhverfri afstöðu Watsons. Hins vegar gætu aðgerðir yfirvalda valdið því að íslenskir umhverfisverndarsinnar forherðist og fram komi hersveitir árásargjarnra vitleysinga eins og Paul Watson.

Hér lýkur pælingunni í bili...

Og munið eitt, það að vera umhverfisverndarsinni þýðir ekki að maður sé ekki eitthvað annað, umhverfisverndarsinnar geta verið kapítalistar eða sósíalistar, þeir geta verið upplýstir eða heimskir, þeir geta verið gáfaðir eða vitlausir, þeir geta verið ruslakallar, kennarar, yfirmenn, sérfræðingar og sölumenn. Umhverfisverndarsinnar eru ekki bara einhver einlitur hópur...
Ég er ekki bara umhverfisverndarsinni, ég er heimspekingur, kerfisfræðingur, umhverfisfræðinemi, tónlistarmaður, pabbi, unnusti, sonur, frændi, verðlaunahafi, snillingur, áhugamaður um sögu, listir, tölvur, samfélag, vetraríþróttir, útivist og fleira.

Bestu kveðjur,
Svavar Knútur

Bloggað af Hr. Svavar 6:23 PM
 
Pawel var með góða áramótagrein...

Mæli með að þið lesið þetta...
Ánægður með þennan klára Slavneska hægrimann... :-)

Bestu Kveðjur,
Svavar

viðbót:
Í Gærkveldi pissaði branda ofan í fjöltengið sem veitir tölvunni djús...
Það sló út með miklum pissufýlureik og meðfylgjandi svartamyrkri...
Eftir að ég kveikti á kertaljósi og reyndi að ná áttum sá ég poll við fjöltengið og mjög hrædda bröndu sjúgandi mömmu sína...
Greyið litla...

Bloggað af Hr. Svavar 4:18 PM
 
Svansson gerir hróp...

Svanssonurinn skrifar grein í dag sem mér finnst á köflum allt í lagi, en síðan þykir mér hann gera ansi lítið úr meintri rökvísi sinni með því að setja allar umhverfisverndarstefnur undir einn hatt og allar hugmyndir okkar umhverfisverndarsinna í sama pottinn.
Svansson skrifar:

Ég skil ekki fólk sem hneykslast á austfirðingum fyrir að vilja ekki frekar pappírshugmyndir sem engin dæmi sýna að hafi skilað sambærilegum árangri. Umhverfisverndarsinnar geta ekki ætlast til þess að aðrir reyni að sýna þeim skilning ef þeir eru ekki sjálfir tilbúnir að reyna að setja sig í fótspor annarra.

og ennfremur:

Byggðastefna er ekki eitthvað sem við eigum að eltast við. En ég held hún sé þó skömminni skárri en umhverfisverndin. Byggðastefnan er í mínum augum fyrst og fremst pólitískt hagsmuna- og umboðsvandamál sem má leysa með skynsamlegum lagasetningum. Ég hef trú á því það verði gert.

Umhverfisverndarstefna byggir kröfu um pólitísk áhrif til handa fólks sem hugsar með hjartanu en ekki höfðinu og hefur ekki áhuga á því að skilja þær í víðara samhengi en því sem kemur frá þeirra eigin hjarta. Það er margt gott við umhverfisvernd, rétt eins og mannúð, félagshyggju, jöfnuð, trúarbrögð og réttlæti. En það þýðir ekki að pólitíkin sem er rekin á grundvelli þessara hugtaka sé undantekningalaust skynsamleg eða líkleg til að leiða til betra samfélags.


Að mati Svanssons snýst umhverfisvernd sumsagt um einhver hálfgerð kvenna- og aumingjagildi (í hugarheimi nýfrjálshyggjumannsins) gildi eins og félagshyggju, mannúð, jöfnuð og trúarbrögð. Ekki hörð "skynsemisgildi" alvöru karlmanna...
Ég hef aldrei getað skilið þessar hugmyndir um að stjórnmál eigi bara að snúast um tölur og peninga... Það eru náttúrulega bara hagsmunir þeirra sem hugsa bara um tölur og peninga...
Stjórnmál snúast um að reyna að gera heiminn eins og við viljum hafa hann, og ef við viljum hafa hann mannúðlegan, réttlátan og með fallegu og heilbrigðu umhverfi þá snúast stjórnmál um það.

En Svansson missir algerlega af stóra punktinum:
Andstaða margra við álsýkina sem einkennir hugarheim sumra Íslendinga sem nú eru því miður við völd og geta því notað öll tól ríkisins til þess að styrkja áróður sinn, byggist ekki bara á rómantískum og "barnalegum" hugmyndum um óspillta náttúru.
Andstaða fjölmargra "svonefndra" umhverfisverndarsinna snýst í meginatriðum um það að við skulum leita annarra leiða til þess að byggja upp atvinnulíf í landinu, leiða sem snúast ekki allar um það að borga með raforkunni okkar til þess að laga stöðu Íslands á pappírunum. Jafnvel að við skulum leita leiða til að nýta þá þekkingu og þær atvinnugreinar þar sem við erum sterk í stað þess að gerast lénsþjónar stórfyrirtækja.
Ennfremur snýst andstaða umhverfisverndarsinna um það að fjölmörg dæmi sýna að stóriðja í jaðarbyggðum og byggðarlög sem snúast eingöngu um stóriðju eru ekki góðar hugmyndir og hefur reynsla heimsins af slíku verið afar slæm. Álver í stærri byggðum sem einn af fjölmörgum vinnustöðum gegnir allt öðru hlutverki, þar er það aðeins valkostur. Álver á Reyðarfirði verður ekki lengur valkostur, það verður eina leiðin.
Að Íslendingar séu háðir því að selja orkuna sína á kostnaðarverði til að knýja orkufrekan iðnað er hreinlega nauðgun á öllu því sem við þykjumst standa fyrir.
Þess vegna setjum við fram hugmyndir á pappír.

Svansson: Allar nýjar hugmyndir eru fyrst á pappír. Fyrsta Álverið var sett á pappír, þorskslógs-ensímavinnslan var sett á pappír, farsímaframleiðsla Nokia var einu sinni sett á pappír.
Ekki fordæma hugmyndir bara af því að þær eru á pappír eða bara af því að þær koma frá umhverfisverndarsinnum. Umhverfisverndarsinnar eru bara venjulegt fólk sem vill þróa atvinnulífið um leið og náttúra og umhverfi eru vernduð, reyna að finna færa leið á milli.
Ert þú kannski á móti því að reyna að byggja upp íslenskt atvinnulíf á umhverfisvænan hátt?
Þá áttirðu bara að segja það...

Og ó... er öll ferðaþjónusta bara ríkisstyrkt tapapparat? Eigum við þá ekki bara að hætta að bjóða ferðamönnum til landsins? Það er greinilega ekki til neins...

og Svansson: Hvað er að hugsa með höfðinu og hvað er að hugsa með hjartanu? Hugsar þú með höfðinu? Hvað er það? Útskýrðu þetta fyrir mér... Er ofsatrú manna á það að allir á Austfjörðum geti unnið í blessuðu Álverinu það að hugsa með höfðinu? Er "langþráði draumurinn um Álver" að hugsa með höfðinu? Er hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar að hugsa með hjartanu? Er heilbrigt atvinnulíf og réttlátt samfélag hjartahugsun? Er samfélag þar sem þú getur orðið geeeeeðveikt ríkur og átt sundlaug og einkaþotu og fimm konur á bikiníum að tilbiðja þig það að hugsa með hausnum?
Skýrðu þetta fyrir mér...
Bestu Kveðjur,
Hr. Svavar

Bloggað af Hr. Svavar 3:38 PM
föstudagur, janúar 10, 2003
 
Hamingjuóskir á fagnaðardegi Austfirðinga!


Til hamingju Austfirðingar, með nýju stóriðjuverksmiðjuna ykkar sem þið eruð búnir að bíða eftir í þrjátíu ár á meðan enginn gerði neitt og byggðarlagið drabbaðist niður.
Húrra!!!
Til hamingju með alla vegina sem nú verða loksins lagðir eftir 30 ár, vegi sem þið áttuð fullkominn rétt á óháð öllum virkjunum en voru notaðir sem kúgunarvopn á ykkur, en hverjum er ekki sama...?
Til hamingju með að loksins eru menn búnir að taka ákvörðun um að eyða þessari bjánalegu sérstöðu ykkar og þeim tækifærum sem hefðu getað falist í henni. Seint verða góðar hugmyndir, tilfinningar og landslag í askana lögð... Hver tekur hvort eð er mark á einhverjum svokölluðum "vísindamönnum" og einhverjum "listamönnum úr 101" sem vita ekkert og hafa aldrei farið út úr miðbænum? Miklu betra er að treysta stjórnmálamönnum, því þeir hafa alltaf rétt fyrir sér og þeir hafa hag fólksins alltaf að leiðarljósi. (engum dytti í hug að stjórnmálamaður sé beyglaður...)

Flaggið fánunum ykkar af fögnuði, því nú er loksins tími til að fagna, fagna sigri yfir óvinum austurlands, fólkinu sem er á móti framförum og á móti atvinnuuppbyggingu á Austurlandi, jafnvel bara á móti Austfjörðum sjálfum.

Til hamingju með að hafa gert undirritaðan 1/4 Austfirðing óvelkominn og kalla hann fjandmann. Til hamingju með að honum finnst ekkert spennandi að koma á ættarslóðir í Jökuldalnum lengur... Næst verður vonandi sett risastór olíuhreinsunarstöð í Borgarfjörð Eystri, svona rétt til þess að ég geti sleppt því algerlega að fara austur á land, enda verður þá ekki lengur neitt að sjá fyrir mig... Jú, maður vill sosum keyra fram hjá álverinu og dást að því hvað maðurinn er duglegur að eyðileggja umhverfi sitt fyrir óvissan skammtímagróða...

Til hamingju með að dæma börn ykkar til áframhaldandi gleði og hamingju í fjölbreyttu atvinnulífi stóriðju frekar en einhæfu atvinnulífi jaðarbyggðarinnar sem reiðir sig á sjávarútveg, rannsóknir, ferðaþjónustu og þekkingariðnað í kringum sjávarútveg og ferðaþjónustu...

Til hamingju með fallega stöðuvatnið, sem mun verða æðislega skemmtilegt, bara með 70 metra árstíðabundinni yfirborðssveiflu... sem mun tryggja að þið fáið dásamlegt moldrok alla leiðina niður á Egilsstaði sem mun sandblása bílana ykkar og halda þeim álhreinum.

Til hamingju með atvinnuástandið, sem verður gulltryggt, svo framarlega sem álverð helst 20% yfir því sem það er í dag að eilífu.

Til hamingju með að eiga svona góða stjórnmálamenn sem greinilega eru ekkert að flækja málin með því að líta á fleiri en eina hlið þess.

Til hamingju með að gera náttúruverndarsinna tortryggilega og gera úr þeim óvini og illmenni sem engum vilja gott.

Til hamingju með að gera lítið úr öllum þeim sem hafa aðrar hugmyndir um uppbyggingu samfélagsins. Til hamingju með að þið hafið nú hrakið þessa vandræðaseggi úr samfélaginu og þeir eiga sko ekki afturkvæmt þessir vitleysingar.
Til hamingju með álverið kæru Austfirðingar, til hamingju með gott lýðræði sem greinilega er að verki núna.
Flaggið fánunum ykkar, flaggið fánum nýja lénsherrans sem mun drottna yfir Austfjörðum. Það getur ekki verið að Alcoa hafi neina vonda kosti, þetta er væntanlega ALGOTT fyrirtæki, algerlega gott og laust við alla pólítík og drottnunargirni, sem sannast hefur í Suður Ameríku, Ástralíu og Texas, þar sem allir eru glaðir eftir samskipti sín við það.
Þakka ykkur fyrir að ræða þessi mál með rólyndi, málefnaleik og yfirvegun og án allra upphrópana.

Til hamingju með framfarirnar, til hamingju með umhverfisvænustu álbræðslu heims. Ísland, hin nýja Álbræðsluþjóð. Ál - Refabú - Fiskeldi - Minkabú - DotCom - Túlípanar...
Til hamingju, Til hamingju, Til hamingju...

Takk fyrir að kalla mig óvin Austfjarða, takk fyrir að gera lítið úr skynsemi minni, hugmyndum og tilfinningum.
Takk fyrir að hundsa allar óraunhæfar draumórahugmyndir svokallaðra umhverfissinna um atvinnuuppbyggingu sem felst í hófsamri og hægfara uppbyggingarstefnu og rannsóknastarfi.
Til hamingju með að kjósa gamla góða valkostinn, þann auðvelda.
Eftir allt sem á hefur gengið viljið þið nú að svonefndir umhverfisverndarsinnar samgleðjist ykkur og allir verði vinir. Mér þykir það leitt, en þið hafið einhvern veginn náð að gera okkur að vonduköllum, þetta er sár sem erfitt verður að græða.
Af hverju fæ ég það á tilfinninguna að ég sé ekki draumóramaðurinn í þessu máli. "Draumurinn um álver" er að vísu skrýtinn draumur, en ég held að menn hafi kosið að loka augunum fyrir ótrúlega mörgum atriðum til þess að beygla raunveruleikann inn í form draumsins.
Bestu kveðjur,
Svavar Knútur Kristinsson

p.s. Ef ég bæði Valgerði Sverrisdóttur um að skjóta vinsamlegast ekki konu mína og dóttur af því að ég elska þær... væri ég þá bara að beita tilfinningarökum? Væri henni þá fullkomnlega réttlætanlegt að drepa hana?
Hvers vegna er rangt að drepa annað fólk? Ekki er nein "skynsamleg" ástæða fyrir því? Er hún ekki fyrst og fremst tilfinningaleg? Eru lífsvilji, sjálfsbjargarhvöt, móðurást, græðgi og metnaður ekki tilfinningar?

Bloggað af Hr. Svavar 8:51 PM
 
Must read fyrir poppara...

Jón.is vísar í þessa grein eftir Stefán Hilmarsson á salinhansjonsmins.is
03.01.03:
Tíminn og eldvatnið
Sálinni hefur borist kvörtun, þess efnis, að bandið 'hafi ekki spilað nógu lengi' á Gamlárskvöld. Af því tilefni er rétt að benda á, að aldrei stóð annað til en að tónleikunum yrði lokið kl. 04:00, enda hvorki leyfi lögreglu né rekstraraðila Hótels Íslands til lengra úthalds. Hins vegar syndguðum við uppá náðina og fórum ekki af sviði fyrr en um 04:30, en það er önnur saga.

Það er reyndar dulbúið fagnaðarefni að einhver skuli viðra þetta mál, því í seinni tíð heyrast stöku sinnum slíkar kvartanir, en þær eru satt að segja hvimleiðar. Vafalítið má tengja þetta breyttum og rýmri opnunartíma skemmtistaða. En þó að ákveðnir staðir kjósi að hafa opið fram á morgun, þá kjósa Sálverjar að haga sínum tónleikatíma á svipaðan hátt og var 'fyrir breytingu'. ?Dettur einhverjum í hug að heimta það af Clash eða Coldplay að þeir spili til dagrenningar? Nei, enda er slíkt út í hött. Tónleikarnir hefjast og þeim lýkur. Svo er bara spurning um að vera á staðnum á meðan á þeim stendur.

E.t.v. má tengja svona kvartanir þeirri leiðu lensku, er gengur út á það að hljómsveitum eru 'gefnar einkunnir' eftir því hve lengi þær tóra á sviðinu. Þessi 'íþrótt' á sennilega rætur að rekja til útihátíða. En auðvitað er engum greiði gerður með því að hljómsveitir hangi uppá sviði fram á dagmál, bara vegna þess að einhverjir tónleikagestir sjá sér ekki fært að mæta fyrr en seint um síðir. Sálverjar ljá alls ekki máls á slíku, enda væri hætt við því að meirihluti tónleikagesta yrði óhress ef hljómsveitin stílaði inná það að þóknast hinum seina minnihluta.

Almennt telja Sálverjar sig tvímæla- og kinnroðalaust til spilaglaðari sveita á landinu, og á 'dæmigerðum' tónleikum stöndum við á sviðinu í hartnær tvo-og-hálfan tíma í það heila, stundum lengur. Og fyrst ég minntist á Coldplay, þá sá ég þá um daginn. Frábært gigg. Þeir spiluðu í tæplega einn-og-hálfan tíma og ekki varð ég var við að mönnum þætti það snubbótt eða skítt. Öðru nær. Það er enda sitthvað, magn og gæði.

Eftir 'opnunarbreytingarnar' kemur fyrir ?jafnvel um fimmleytið? að maður heyri hlálega frasa einsog: "Ætlið'ekk'að spila lengur? -Ég sem var að koma!". Ekki er hægt að svara svona löguðu öðruvísi en að benda fólki á að við séum ekki í neinni keppni um það að spila sem lengst. Við skorum því frekar á fólk að mæta dulítið fyrr, til að missa nú ekki af bandinu. Seinþreyttir geta síðan okkur að harmlausu haldið áfram að skemmta sér, ef staðurinn er opinn lengur.

Góða skemmtun...
SH

Djöfull er ég sammála gæjanum...

Bloggað af Hr. Svavar 2:38 AM
þriðjudagur, janúar 07, 2003
 
Viðskiptavit og hagfræðiskilningur dóttur minnar...

Ég verð bara að segja ykkur frá smá gullkornum frá Dagbjörtu, dóttur minni.

Um daginn var hún að tala um hvað við ættum ljótan bíl og hana langaði til að við keyptum okkur bíl eins og bílinn hennar ömmu.
Pálína benti henni á að það kostaði mikla peninga og við ættum þá ekki.
Þá sagði Dagbjört að það væri ekkert mál að spara peninga og kaupa svo bílinn.
Pálína sagði henni þá að við ættum nú lítið af peningum til að spara.
Þá sagði Dagbjört: Þá eigið þið bara að kaupa meira... af því að þá fáið þið alltaf pening til baka...
Eftir að hláturinn var haminn gat Pálína útskýrt fyrir Dagbjörtu að maður eyddi meiri peningum en maður fengi til baka þegar maður verslaði...
Dagbjört varð næstum því fyrir trúarlegri upplifun...

Annar glæsilegur frasi frá Dagbjörtu:

Mamma... í gamla daga, þá var ekkert til nema risaeðlur og amma Helenu...

Bestu Kveðjur,
Svavar Knútur

Bloggað af Hr. Svavar 12:14 PM
mánudagur, janúar 06, 2003
 
Oggolítil Getraun fyrir lesendur...

Kæru lesendur,
hér kemur oggolítil getraun um kvótakerfið...
Ég ætla að segja ykkur sögu og þið segið mér hvort hún sé sönn eða uppspunnin...
Nöfnum og stöðum gæti hafa verið breytt lítillega...
ahem...

Karl Tómasson, skipstjóri var úti að veiðum og gaf ágætlega, hann veiddi nokkuð vel, en síðan kom upp í einu kasti mjög mikið af smáfiski. Í stað þess að fleygja þessum smáfiski eins og hefðin er þegar kvótakerfið er annars vegar, ákvað hann að taka fiskinn í fóstur. Hann fyllti nokkur fiskikör af sjó og bauð smáfiskinum ofan í. Smáfiskarnir þáðu boðið fegnir.
Karl lét áætla þyngd smáfisksins, þyngdin var um hálft tonn. Hann fór síðan með smáfiskinn í körunum og útbjó frumstæða sjókví og gaf fiskunum á hverjum degi að borða. Eftir nokkurn tíma voru þeir orðnir mjög feitir og fínir. Þá hífði hann þá upp og skar. Þá vógu fiskarnir 8 tonn. Ansi góð leið til að bæta nýtingu fisksins ekki satt?
Ojújú, en nú urðu embættismenn ekki hressir. Þessi fiskur var nefnilega "utan kvóta". Karl var sektaður fyrir athæfið og aflinn gerður upptækur.

Jæja, hvort var nú sagan sönn eða login.
og svarið nú...
Hr. Svavar

Bloggað af Hr. Svavar 8:55 PM
 
Íslensk alþýðulög...

Kona frá New Jersey sendi mér póst og bað mig um að hjálpa sér að finna fyrir sig einfalt íslenskt lag fyrir skátahópinn sinn...
Ég veit ekki...
Er búið að þýða sofðu unga ástin mín?

Veit einhver um íslenskt þjóðlag eða sönglag með enskum texta?

Eða bara einfalt íslenskt sönglag fyrir litlu börnin?

Bestu Kveðjur,
Svavar

Bloggað af Hr. Svavar 11:35 AM
föstudagur, janúar 03, 2003
 
Letin að drepa mann...

Nú sit ég hér í hádegisrökkrinu og er að reyna að manna mig upp í að fara út úr húsi og stússa...
Hjáááálp!
ég er ógeðslega aumingjalegur núna...

En svo var ég að pæla...
Gæti ég ekki beitt hópþrýstingi til að fá kettlingana til að byrja að reykja til að stöðva vöxtinn þeirra? Þá verða þeir alltaf ógeðslega sætir og litlir og kannski með hanakamb...
Ég gæti jafnvel fengið einn stærri kettling til þess að koma og reykja fyrir framan þá og vera töff og þeir byrja að reykja af því að þeir vilja vera eins og hann...

En í alvöru talað, ég var að heyra um að einhverjir vísindamenn úti í heimi væru að finna upp bóluefni gegn nikótíni...
Djöfull vekur það margar siðferðisspurningar... Að gera barnið sitt ónæmt fyrir vímu og þannig að koma í veg fyrir að það noti nokkurn tíma vímuefni...
Fokk... Maður spyr sig hvort þetta snerti ekki á einhverjum persónufrelsispunktum? Er maður ekki frjáls til að fokka upp sínu lífi? Á samfélagið ekki að hjálpa manni að bánsa til baka ef maður fokkar upp? Er réttlætanlegt að koma í veg fyrir að maður geri mistök? Væri þá réttlætanlegt að bólusetja mann gegn glæpageninu? og kannski bólusetja mann gegn óþekktargeninu? Eða þessu leiðinlega geni sem lætur börn spyrja "af hverju?" Það er náttúrulega draumurinn, samfélag þar sem enginn spyr neinna spurninga nema: "Góðan daginn, hvernig líður þér í dag..."

Frekar ógeðfelld hugsun og mér finnst nokkuð viðbjóðslegt að hugsa til þess að bólusetja fólk gegn öllu sem samfélagið skynjar sem neikvætt...

Bestu Kveðjur,
Hr. Svavar

Bloggað af Hr. Svavar 1:41 PM
fimmtudagur, janúar 02, 2003
 
Kominn heim...

Úff!!!
Kominn heim, kettlingarnir tóku vægast sagt vel á móti mér. Þeir eru farnir að skrensa á parketinu og hoppa á eftir öllu mögulegu og ómögulegu...

En enginn sagði mér að kettlingar prumpuðu og ropuðu svona rosalega! OJ! Kisa og kettlingarnir reka við og ropa eins og kúrekarnir í Blazing saddles, og það er svona whisk-ass lykt í loftinu, viðbjóðsleg prumpu og ropfýla úr litlum köttum...

En þeir eru yndislegir og allir farnir að mala eins og litlar skurðgröfur.

Bestu Kveðjur,
Hr. Svavar

Bloggað af Hr. Svavar 11:39 PM
 
Gleðilegt ár... 2003, nau vá...

Gleðilegt ár öll sömul,
ég er búinn að vera að njóta gestrisni Vestfjarða síðustu fimm daga, og milli þess hef ég verið að svitna yfir skýrslum.

Ég er að deyja úr þreytu og ömurleika og nú er ég að fara að sitja í sjö til átta tíma í bíl á leiðinni heim til þess eins að halda áfram að svitna yfir skýrslum...
gleðilegt fokkíng ár... Kynlífsbindindi dauðans þessa dagana... maður hreyfir sko ekki legg né lið heima hjá tengdó ;-)
ég vona að einhver hafi það betra en ég núna...

Ég var að lesa væntingar skólabarna á Suðureyri frá árinu 1980 til ársins 2000...

Karl, 7b.
Allt verður breytt árið 2000. Allir hlutir verða tölvustýrðir og þar með verða flestir menn atvinnulausir nema tölvunarfræðingar. Árið 2000 mun ekki fást bein úr sjó, lítið verður um dýr í landi og allur matur verður framleiddur í vélum. Sem sagt, framtíðarstarfið er tölvufræðingur.

Kjartan Ægir 7.b.
Ég held að það verði ekki gaman að lifa árið 2000. Þá verður enginn fiskur í sjónum, ef það þá verður nokkur sjór til. Tölvunotkunin verður orðin algeng og svo mikill fólksfjöldi að erfitt mun verða að setjast niður. Nokkrum árum eftir aldamótin má svo trúlega búast við heimsendi.

Egill 8.b.
Ég held að skipin verði öll á loftpúðum og engin áhöfn á þeim, aðeins tölvur. Við munum versla með granít og blágrýti, borða orma og flugur og sofa í gasrúmum. Ég held að öll hús verði hituð upp með sólarorku og verði sólin þá komin nær jörðinni. Ég væri búsettur á Venus og vera í stríði við íbúana þar, sem munu verða grænir og bláir með rautt hár.
(w.t.f.???)

Unnur Agnes 8. b.
Það kemur heimsstyrjöld. Allt springur í loft upp nema Suðureyri.
Tölvan verður búin að spilla öllu mannkyninu hérna í plássinu. Lítið verður fyrir fólkið að gera. Skólaskyldan verður vonandi styttri.

Kristín, 8.b.
Suðureyri verður orðin stærðar pláss. Það verður hér fleira heldur en fiskvinnsla því búið verður að koma upp prjónastofu. Allt mun verða tölvustýrt, mikið atvinnuleysi og lítill fiskur mun verða eftir í sjónum.

Svo eru krakkarnir í dag að fantasera um suðureyri árið 2030:

stelpa í 1. bekk
Ég held að það verði fljúgandi bílar og vélmenni, ég held að skólinn verði bara eitt venjulegt hús með fáum krökkum og ég held að við borðum töflur en ekki mat. Ég held að leiktækin á leikvellinum verði þannig að það sé hægt að
renna sér í hárri rennibraut.

Stelpa í öðrum bekk:
Ég held að húsin verði hringlótt með hringlóttu þaki. Blómin geta verið eins og tíglar. Það verður ekki lítið fólk hérna. Ég held að stiginn í skólanum snúi í aðra átt...

Strákur í fjórða bekk:
Ja, það verður búið að bygja ný göng, fleiri hús, þrífa ísverkshúsið, nýtt íþróttahús, betri gerðir af tölvum, rafmagnsbílar, brú yfir á Norðureyri og fullt af húsum þar, laga flugvöllinn, laga allar götur. Öðruvísi kennsluaðferðir kannski kennt í gegnum tölvur eða vélmenni sem kennarar.

Stelpa í fimmta bekk:
Það verða rafmagnsbílar í staðinn fyrir bílana núna.
Krakkarnir leika sér í tívolítækjum en ekki í tölvum.
Það mæta allir í skólann eins og núna.
Og það verða vélmenni.


And the list goes on and on...

Það er ógeðslega gaman að lesa hugmyndir barna um framtíðina...

:)

Bestu Kveðjur,
Hr. Svavar

Bloggað af Hr. Svavar 12:49 PM