Íslenska
  English

Fréttir
Músík
Textar
Myndir
Útgáfa
Bolir og stöff

Um Hraun
-Svabbi
-Loftur
-Gummi
-Jón Geir
-Hjalti

- Hraun á myspace

Gestabók Hrauns!
-Vinsamlegast skrifið...

Póstlisti Hrauns!
Skráðu þig hér:



 

Vertu sæll...

Höldum Jól :

Við gerð jólaplötunnar Höldum Jól var beitt sömu aðferðafræði og við gerð fyrri jólaplötunnar, en þó með gríðarlegri lærdómsreynslu. Platan var tekin upp að mestu á heimili Svavars að Barmahlíð 37. Upptökur og hljóðblöndun tóku nú fjóra daga í stað tveggja áður og reyndi mjög á liðsandann, en stemmningin var stórkostleg. Hljóðblöndun lauk á vetrarsólstöðum 2005, enda ekki nema viðeigandi.
Eins og áður var platan gerð af eintómri ást, einlægni og væntumþykju og keyrð út til vina og vandamanna að kvöldi þorláksmessu. Þó fengu nokkrir heppnir gestir Jólatónleika Hrauns 22. desember plötuna sem glaðning.

Stefán Halldórsson var siðameistari plötunnar sem fyrr og í stað kynningafjöldar tók hann sig á í gríðargóðum söngsprettum. Hæst náði hann sem Gáttaþefur í Sýndu okkur í Pokann.

Eftirminnileg lög eru m.a. Solstice bells, Hátíð í bæ, frumsömdu lögin Mín jól eftir Dagbjörtu Jónsdóttur og Höldum jól eftir Svavar Knút, Bubbasyrpa, River, Reindeer Cowboy og Jólakötturinn.

Lögin af plötunni:
Solstice Bells
Hátíð í bæ
Stop the cavalry
Bubbasyrpa
Mín jól
Jólakötturinn
Reindeer Cowboy
Jólasnjór
Höldum Jól
Sýndu okkur í pokann
River

Svona leit plötuumslag jólaplötunnar út:

 

 


Á Næstunni:

Róleg tíð beibís...

-Einhverjar hugmyndir?
GSM:864-2276

Vinir:
-Mugison
-jon.is
-musik.is
-rokk.is
-tonlist.is

Bókanir og annað samband:
hraun (at) hraun.tk og GSM 864-2276