Íslenska
  English

Fréttir
Músík
Textar
Myndir
Útgáfa
Bolir og stöff

Um Hraun
-Svabbi
-Loftur
-Gummi
-Jón Geir
-Hjalti

- Hraun á myspace

Gestabók Hrauns!
-Vinsamlegast skrifið...

Póstlisti Hrauns!
Skráðu þig hér:



 

Vertu sæll...

Jólamolar :

Jólaplatan Jólamolar var unnin með sömu aðferðafræði og Höldum Jól, en þó með örlítið meiri undirbúningi. Þá voru textar flestir þýddir á íslensku og samdir. Platan var tekin upp að mestu á heimili Svavars að Barmahlíð 37. Upptökur og hljóðblöndun tóku nú sjö daga í stað fjögurra áður og var stemmningin í húsinu óviðjafnanleg. Hljóðblöndun lauk á vetrarsólstöðum 2006 og var henni dreift á jólaballi Hrauns.
Eins og áður var platan gerð af eintómri ást, einlægni og væntumþykju og voru nokkur eintök til viðbótar keyrð út til vina og vandamanna að morgni aðfangadags og á síðari dögum jóla. Var viðtakendum boðið að hringja í síma 907-2002 og styrkja þannig vatnsborunarverkefni Hjálparstofnunar kirkjunnar.

Stefán Halldórsson var siðameistari plötunnar sem fyrr og söng með glæsibrag. M.a. kvað hann lagið jólafrið og bréf til jólasveinsins. Löngum hefur Hraunurum þótt hallærislegt með meiru að "snara" erlendum popplögum yfir á íslensku og gera að jólalögum, svo við ákváðum að fara bara dálítið yfir um á því núna...

Jólagestir voru fjölmargir, m.a. Ljótu Hálfvitarnir og Dagbjört Jónsdóttir, sem lögðu inn frábær lög. Þá söng Tim Hart I saw three ships með miklum stíl og glans.

Lögin af plötunni:
Upphafskynning
Jólafriður
Jólasveinn
Heill þér Jesúbarn
Reykjavík um Jólin
Ó helga nótt
Stjörnurnar vaka
Millikynning
Jötustuð
I saw three ships
Kæri Jólasveinn
Senn koma jól
Jólaball hjá kölska
Lokakynning
Páskalagið Nasaret

 

Svona leit plötuumslag jólaplötunnar út:

 

 


Á Næstunni:

Róleg tíð beibís...

-Einhverjar hugmyndir?
GSM:864-2276

Vinir:
-Mugison
-jon.is
-musik.is
-rokk.is
-tonlist.is

Bókanir og annað samband:
hraun (at) hraun.tk og GSM 864-2276