 |
Vertu sæll...
Hljómsveitin Hraun
HRAUN! var stofnuð síðsumars 2003 af Svavari Knúti Kristinssyni, Loftur Sigurði Loftssyni, Jóni Geir Jóhannssyni and Guðmundi Stefáni Þorvaldssyni. Hraun er einföld hljómsveit og spilar mest einfalda tónlist. Við höfum mjög gaman að tónlist svo við reynum að halda skemmtilegu andrúmslofti þegar við spilum, þrátt fyrir alla melankólíu.
Þá fylgir Hrauninu Gríðargott Krú sem stendur með sveitinni í gegnum þykkt og þunnt.
Meginheimspeki Hrauns! er að vera dálítið eins og Hraun, gróft, drynjandi, einfalt, heitt og á hreyfingu. Við reynum að einangra okkur ekki við eina tegund tónlistar, en reynum að halda okkur við upprunalegan tilgang tónlistar, að hreyfa fólk á einn eða annan hátt...
Það má segja að eitt helsta manífestó sveitarinnar sé að brúa bilið milli þess að vera listamenn og skemmtikraftar. Að sýna það að listamenn geta verið skemmtilegir og skemmtikraftar geta haft ýmislegt áhugavert að segja og fram að færa.
|