Þankatankurinn



Svavar Knútur
Kristinsson,

Félagsauðströll, heimspekingur, umhverfis-verndarsinni og tónlistarmaður.

Ímeilaðu
mig...

NÝTT!!!
Viltu fá
(eða hætta að fá)
tilkynningar
um tónleika
HRAUNS!,
eða Svavars Sjálfs?
Sláðu inn
netfangið hér:



This page is powered by Blogger. Isn't yours?




Hljómsveitin Hraun! veitir mér listræna útrás.

Hraun á Myspace

Sjálfurinn á Mæspeis

Nýjustu Demó:

Ease your mind (01.07.2006)

Dansa... (28.09.2005.)

Ástarsaga úr fjöllunum (Sumarið 2005)

Goodbye my lovely (19. júní 2005)

Kisa litla (Maí 2005)

Your love was death to me (Janúar 2005)

Call off your Cavalry (September 2004)

You should call a doctor (Maí 2004)

Kysstu tímaglasið (endurbætt útgáfa 2004)

Mother's day
( 2004)

Jólaplata Hrauns 2003: Þrautgóðir á Hraunarstund

Jólaplata Hrauns 2004: Kátt er um jólin

Partýplatan Partý!

Jólaplata Hrauns 2005: Höldum jól

Jólaplata Hrauns 2006: Jólamolar



Latur myndasmiður, en engu að síður er hér að finna eitthvað efni...

Molar...


 
þriðjudagur, október 30, 2001
 
Ánægjulegt þegar fólk er sátt við lífið


Mér þykir alltaf svo gaman að sjá þegar fólk er svo öruggt með eigið líf að það er ekkert að hafa áhyggjur af því þó aðrir séu líka ánægðir með sitt.
Þess vegna varð ég tvöfalt ánægður og í raun gúppí gúppi glaður að fá að vita það að ég, eins og allir aðrir sem hafa stundað nám í hinum óæðri og niðurlægjandi vísindum hef nafn og stöðu í augum hinna réttlátu. Ég er artfart. Ég hangi víst alltaf á Sirkus með hinu ljóta fólkinu, reyki hass og sem ljóð við kertaljós og er rétt í þá mund að koma út úr skápnum í sjégevarabolnum mínum. Ekki það að ég sé neitt súr yfir greininni hennar Katrínar. Ég held að Katrín hafi bara svona æðislegt skopskyn, allavegana vona ég það... annars verð ég að fara að hanga á sirkus í 7000 króna spútnikbolnum mínum og reykja hass með hinu ljóta fólkinu sem les allar bækur á upprunalega málinu vegna þess að það hatar bandaríkin svo mikið... :-)
En í rauninni vekur þessi grein hennar Katrínar mig til umhugsunar um hvers konar staðalmyndir og ranghugmyndir fá að grassera úti um allt, og hversu skaðlegar þær í raun og veru eru. Ég geri mér til dæmis fyllilega grein fyrir því að fólk sem lærir hinar "æðri" vísindagreinar er ekkert verra fólk en við hin þó að þau hafi örlítið fjarlægst heim hinna lifandi og fljóti um í fílabeinsturni vísindanna. Ég geri mér líka grein fyrir því að fullt af fólki mín megin suðurgötunnar hefur brennandi áhuga á eðlisfræði og raungreinum en hefur bara ákveðið að taka hinar mýkri greinar fram fyrir þær í bili. Þó við grínumst oft með þennan kínamúr sem Suðurgatan getur stundum verið held ég að flestir meini ekkert svakalega illt með því... Einnig hef ég óljósa hugmynd um það að tölvunarfræðinemar séu neðst í tilbúinni goggunarröð svekktra raungreinanema vegna þess að þeirra "Vísindi" séu óvísindalegust af alvöru vísindunum.
En samt ég tel því miður að fordómarnir og rígurinn geri vont. Ég tel að háskólasamfélagið gæti verið mun ríkara ef fólk slakaði örlítið á ranghugmyndum sínum og tilbúnum ríg og væri tilbúið til að starfa með fólki úr ólíkum deildum að vísindalegri umræðu og vangaveltum. Ég tel að allar fræðigreinar hafi gott af því að njóta ferskrar umræðu fólks úr mismunandi greinum.

...

...

...

...

...

...nema tannlæknar, guð minn góður, hver fer í fokkinn tannlækninn???


[ 0 ]
laugardagur, október 27, 2001
 
Fyrsta skrefið að heimsfrægð

Jæja strumparnir mínir,
ég ætla að slaka pínulítið á atgangi mínum að heimskum og illgjörnum íslenskum stjórnmálamönnum og bera ykkur gleðitíðindi.
Ég hef stigið fyrsta skref mitt í áttina að heimsfrægð. Ég er búinn að gefa út lag...
Hann Jón Ólafsson á jon.is tók við laginu mínu og setti það á vefinn sinn. Það heitir Happy Song og ætti að vera neðst á mp3 síðunni hjá Jóni. Ég mæli eindregið með síðunni hans Jóns og einnig mæli ég með brilljant þáttum sem hann er með í ríkissjónvarpinu, loksins fær maður að sjá almennilegt stöff á RÚVinu.
En endilega kíkið á Jón.is og downloadið laginu mínu. Mér þætti vænt um að sem flestir fengju að heyra þessa smíði mína. Þó lagið sé skrýtið er það ekkert grín eða neitt svoleiðis.

Bestu Kveðjur,
Herra Muzak


[ 0 ]
föstudagur, október 26, 2001
 
Hin Fagra Framtíðarsýn

Jæja,
þá er það ákveðið.
Hin rammíslensku pólítísku nátttröll ætla gersamlega að fórna öllum hagsmunum þjóðar, lands og náttúru fyrir nokkur álver.
Það á að virkja allt sem hægt er að virkja, hverja sprænu, hvern læk, hvern foss og hvert fljót til að við getum orðið leiðandi þjóð í frumframleiðslu.
Ísland, fremst meðal jafningja, fremst meðal Gambíu, Zaire og Mozambique.
Við erum búin að þróa upp meðvitað hátæknisamfélag með frekar háu menntunarstigi og þökkum náttúru landsins með því að hlunka niður stíflum, stíflugörðum, uppistöðulónum og drulluspúandi álverum. Síðan afsaka hálfvitarnir sem við kjósum yfir okkur trekk í trekk gjörðir sínar þannig að allir sem séu á móti virkjunum og álverum séu á móti öllum framförum á Íslandi. Nú á að leggja í rúst ferðaþjónustu í kringum rafting í Skagafirði með því að eyðileggja eina flottustu jökulá Íslands. Síðan segja þessir vitleysingar að Íslenski hesturinn eigi að verða miðinn inn í framtíðina í Skagfiskri ferðaþjónustu. Ég hef séð hvernig hestastóðin fara með jörðina. Það er ekki fallegt. Hestastóð geta rústað heilu landsvæðunum á nokkrum mánuðum. Frábært, þetta fólk ber enga virðingu fyrir náttúrunni nema hún sé uppi í nefinu á þeim. Ég held að hugmynd Valgerðar Sverrisdóttur um náttúruspjöll sé þegar ég tek jarðýtu og rústa garðinum hennar og kannski húsinu líka.

Ríkisstjórnin er alltaf að væla um að ríkisumsvif verði að minnka og ríkið verði að hætta að skipta sér af atvinnulífinu. Síðan grípa þeir fram fyrir hendurnar á fólki sem er að gera góða hluti og rústa möguleikum þeirra á áframhaldandi uppbyggingu í sínu starfi.

Ég veit ekki hvað þetta fólk er að hugsa, en ég held að þeim gangi gott eitt til, þau eru bara 40 árum á eftir. Klassískt Íslenskt keis.


[ 0 ]
föstudagur, október 19, 2001
 
Af hinu ómálefnalega pjásuprumpi

URG!

Ég var að horfa á alþingisumræður í gær og þar fór dramadrottningin Jóhanna Sigurðardóttir (sjá mynd) hamförum upp í pontu og röflaði yfir vandræðum lögreglunnar í Reykjavík. Persónulega er mér yfirleitt illa við JS og batnaði það ekkert sérstaklega við þetta útburðarvæl. En það sem á eftir kom var bara helmingi verra...
Á eftir greyinu henni Jóhönnu, sem alltaf hljómar eins og svartidauði, stórabóla og móðuharðindi og heimsendir séu öll í einu að skella á okkar kalda og annars vonlausa landi, komu nefnilega þær stöllur svo-virðulegur-að-ég-vil-ekki-skíta-í-sama-klósett-og-þú dómsmálaráðherra Sólveig Pétursdóttir (sjá mynd) og hin sjúklega sjálfstæðis-íhalds-afsakið-á-meðan-ég-fæ-mér-sítt-að-aftan-réttsýnisvæludúkka Ásta Möller (sjá mynd). Afneituðu þessir boðberar réttlætis og hamingju öllum hugmyndum sem lutu að því að lögreglan þyrfti meiri monnípening en örguðu þeim mun meira um að R-listinn stæði fyrir massívum innflutningi djammliðs og dónakalla í miðbæinn.
Jújú, R-listinn setti súlustaði, sóðabúllur og sukklið fremst í forgangsröðina í skipulagi borgarinnar og gerði hreinlega aðsúg að öllum heiðvirðum bisnissmönnum í miðbænum og fleygði þeim öfugum út af salúninum, "það er nebbnilega ekki pláss fyrir svona skítaplebba í vorum bæ". Það var einfaldlega efst á verkefnalista R-listans að útrýma allri dygð úr miðbæ Reykjavíkur og innleiða þar sukkið.
Ég er viss um að ef sjálfstæðismenn væru í borgarstjórn væru allir þessir dónakallar bara heima hjá sér að rúnka sér yfir barnaklámi, óhultir fyrir barningi kvenréttindanorna og heiðursriddara allra flokka. Allt liðið sem leggur leið sína í miðbæinn til að djamma á kvöldin væri heima hjá sér í partýum eða að gleðjast á hverfispöbbinum sínum uppi í einhverju iðnaðarhverfinu í Grafarvogi, Breiðholti eða Árbænum. Hin heimsfræga íslenska ómenning gleðinnar væri þá galvaniseruð í góðum fíling í Grafarvogi og Garðabænum. Ef sjálfstæðisflokkurinn væri við stjórn í borginni hefðu þeir örugglega bara leyft öllum húsunum sem tæmdust þegar mennirnir sem ráku búðir í þeim fóru á hausinn í kjölfar Hringlunnar að halda áfram að vera tóm. Það væri bara frábært að hafa miðbæinn fullan af tómum fyrrverandi verslunum og tómum fyrrverandi bönkum og tómum fyrrverandi veitingahúsum. Þannig á þetta að vera, draumur D-manna er greinilega dauður miðbær og lifandi Grafarvogur. Þá geta þeir loksins lagt miðbæinn undir bílastæðahús og rotþrær.
Í stað þess að ræða málin málefnalega lögðust tíkin og karlkonan niður í svað hins hefðbundna skotgrafarhernaðs. Þær létu hin klassísku skítaskot fljúga í R-listann (sem ég er eiginlega jafn pirraður út í og sjálfstæðisflokkinn) og gerðu öllum fullkomnlega til geðs í tilhneigingu sinni til að gerilsneyða mál sitt allri frjósemi og gáfulegheitum. Þessum konum er ekki stætt á þingi.
Sama má segja um hana Jóku blessaða, hún ætti að halda sig í litla Þjóðvakanum sínum þar sem hún getur nöldrað og vælt eins og hana lystir og skemmir ekki fyrir almennilegum krötum með málefnalegan málflutning (eins og Guðrúnu Ögmunds og Jóhanni Ársæls). Þrátt fyrir að hún hafi staðið fyrir mörgu góðu virðist Jóhönnu gersamlega ófært að stíga í pontu án þess að öskra og æpa og rífa af sér alla reisn.
Þessar pjásuprumpukellingar hljómuðu allar eins og Jón Gnarr í góðum gír sem stóra systirin í dúettinum Plató. "Sori og viðbjóður, sukkstaðir og súlubúllur, sóðasaur og dónakallar!!!" Upphrópunarmerkjapíkuprumpsvæl. Ekki einu sinni hið virðulega sorprit Séð og heyrt getur toppað þær í upphrópunarmerkjagírnum.

úff...
búinn...
Ég þoli ekki röfluvælupjásuprumpuleiðindakellingar og ég vil að þær fari inn á klósett og útkjái svona hormónavandamál þar.
Herra Muzak hefur talað.
Teningunum er kastað.


[ 0 ]
mánudagur, október 15, 2001
 
Svínapartý


Landsfundur Sjálfstæðisflokksins vekur alltaf í mér blendnar tilfinningar.
Þessi aðalfundur stærsta stjórnmálaflokks Íslands er bæði besta dæmið um vel heppnað fjölmiðlaplögg á Íslandi. Glaðir og reifir hópast fulltrúar allra stétta í Laugardalshöllina til að fagna sjálfstæðisstefnunni (sem hvetur til einkaframtaks og einstaklingshyggju) og hylla foringjann. Þarna mætast sjómenn og sægreifar, rafvirkjar og rósabændur, viðskiptafræðingar og verkafólk. Eiginlega eru þarna mættir fulltrúar allra nema þeirra sem gengið hafa í langt framhaldsnám í húmanískum greinum. Við virðumst vera vinstrimenn upp til hópa... Veit ekki hvað veldur... Ekki það að ég sé eitthvað sérstaklega vinstri, ég er bara svo mikið á móti þessum nýfrjálshyggju-skipta-sér-af-mínu-lífi-en-ekki-peningunum-hans-ríkafeitakalls-setja-kamerur-alls-staðar-allir-arabar-eru-hryðjuverkamenn-ef-þú-vilt-vernda-umhverfið-ertu-terroristi-fiskurinn-er-ekki-sameign-þjóðarinnar-heldur-sameign-nokkurra-ríkra-gaura-forræðishyggju-andfrjálsræðis-peningadýrkandi-fíflum.

Það er alltaf sama viðkvæðið þegar ég tala við sjálfstæðismenn (sem margir eru ágætisfólk, því í 40.000 manna úrtaki hlýtur að vera einhvern góðan að finna), "sjálfstæðisflokkurinn rúmar svo breiðar skoðanir", "sjálfstæðisflokkurinn er flokkurinn þar sem málin eru rædd á landsfundi... Allir geta tjáð sig þar..."
KJAFTÆÐI!!!
Ég var að horfa á Silfur Egils rétt áðan og þar sat Doktor Ólafur F. Magnússon og rabbaði um málefni fundarins. Á landsfundinum hafði hann lagt fram hugmyndir um umhverfisvernd og var næstum baulaður niður og gerð að honum hróp. Síðan sátu þarna félagar hans í flokknum í kringum hann og sögðu flissandi og jafnvel hlæjandi að Ólafur væri lýsandi dæmi um að flokkurinn rúmaði mismunandi skoðanir. BULL!!! Þau hlógu að honum. Hann er fífl í þeirra augum fyrir að vera annt um náttúruna.
Fólk verður að átta sig á því að í svo stórum flokki er einungis um að ræða einhvers konar lýðskrumsskoðanir. Sértækar og einstaklingsbundnar skoðanir geta ekki þrifist í Sjálfstæðisflokknum. Slíkar skoðanir eiga upp á pallborðið í smærri flokkum. Smáir flokkar eru lífsnauðsynlegir til að hin pólitíska flóra sé fjölbreytileg og raunverulegir valkostir séu í boði. Annars er bara um að ræða gerfival, rétt eins og á hinum frjálsu útvarpsstöðum. Skoðanir og stefnumál Sjallanna eru næstum jafn fjölbreytt og frjáls og dagskrárgerð FM957, Steríó, Bylgjunnar og Létt 96,7. Þú getur valið um 700 mismunandi tegundir af púðursykri, en ósköp fátt annað...


[ 0 ]
miðvikudagur, október 03, 2001
 
Ég er Sjálfstæðismaður


Jújú... Þið heyrðuð rétt.

Ég er sjálfstæðismaður. Mér þykir gott að standa á eigin fótum og vera minn eigin herra. Ég trúi á einkaframtak og mannréttindi, frelsi í viðskiptum og frelsi og friðhelgi einkalífsins (svo fremi sem ekki sé um að ræða ofbeldi og glæpi í skjóli fjölskyldunnar).
Ég trúi á kaupmanninn á horninu, trillukarlinn, bóndann sem lifir á landinu, vefhönnuðinn, hugmyndaríka forritarann og mátt hugvitsins. Ég trúi því að við búum í yndislegu en hrjóstrugu landi sem gerði okkur Íslendinga afar harða af okkur, þó slík harka víki nú óðum fyrir mjúku viðmóti kokteilsósuvamba landsmanna. {Nóta Bene, ég hata Kokteilsósu og hef lýst yfir stríði á hendur þeim hryðjuverkamönnum sem halda uppi merkjum Kokteilsósunnar og mæjónessins á Íslandi, E. Finnsson og Júmbó samloka,}
Ég trúi á kærleik manna í millum og lítil afskipti ríkisins af einkalífi okkar.

Ég er sjálfstæðismaður, en á mér bara engan flokk...

Flokkurinn sem segist hafa mín gildi er uppfullur af jakkafatahálfvitum í bláum skyrtum með strípur í hárinu og með algerlega skaðbrennda siðferðisvitund annars vegar og durgslegum og sverum hagsmunapoturum hins vegar. Svona karlar sem ákveða landsmálin í laxi með formönnum LÍÚ, stóru bankanna og Eimskipafjelagsins.
Kerlingarnar í Sjálfstæðisflokknum eru sosum ekkert betri, annars vegar kvenjakkafataklæddar ungkerlingar sem hafa áttað sig á því að "eina leiðin til að ná árangri í ríki karlmanna er að vera "einn af strákunum"" og hins vegar hræðilegar fínukellingar af Arnarnesi Fossvogi og Grafarvogi sem klæða sig í bestufötin og vorkenna öllu fólkinu sem á það svo slæmt. Hugmyndir þessa fólks um félagslega aðstoð og meðvitund um stöðu hinna bágstöddu er 50 kallinn sem það setur í "brauð handa hungruðum heimi" dolluna á jólunum og stöku miði í happdrætti SÍBS sem það kaupir svona í bland til að friða samviskuna og í þeirri von um að auka smáborgaralegan veraldlegan auð sinn. Svona kellingar eins og "of virðulegur dómsmálaráðherra til að skíta í sömu klósett og þið" Sólveig Pétursdóttir, sem verslar sjálf í Nóatúni til að sýna hvað hún er nú einu sinni alþýðleg...

Svo er það blessað fólkið sem kýs sjálfstæðisflokkinn...
Guð minn góður, eru virkilega 30% landsmanna svona terminally heimsk???

Flokkur sem hefur ekkert gert annað en að þjóna hagsmunum feitukatta þjóðfélagsins og hvers ráðsmenn ljúga og svíkja eins og minkar.

Heldur virkilega (Rúmur!!!) þriðjungur Íslendinga að Sjálfstæðisflokknum sé ekki sama um allt nema það að rétt fyrirtæki hafi það gott?

Það versta er að aðrir stjórnmálaflokkar á Íslandi hafa ekkert spes fram að færa heldur.
Ég á ekkert sameiginlegt með þessum hræðilega óviðkunnanlegu Heimdellingum og SUSurum. Blind trú þeirra á frjálshyggju (sem er versta oxymoron í heimi) gerir þá að skrípum. Þeir eru eins og risastór samtök bílasala.

Ég veit ekki...

Íslensk pólítík líður fyrir það að allir þeir sem hafa eitthvað gott fram að færa eru annað hvort barðir niður af flokksforystu, hafa ekki áhuga á að starfa í svo óheilbrigðu starfsumhverfi sem pólítíkin er, eða einfaldlega eru álitnir furðufuglar.

Ég býst til dæmis ekki við því að ég kæmist langt...

... Mér finnst líka alltaf svo brilljant þegar Sjálfstæðismenn tala um Davíð Oddsson eins og þjóðhetju og segja að hann hafi leitt þjóðina gegnum mesta hagvaxtarskeið Íslandssögunnar á meðan sömu sjálfstæðismenn tala Illa um Bill Clinton og segja það helbera tilviljun að hann hafi leitt bandarísku þjóðina í gegnum nákvæmlega sama "mesta hagvaxtarskeið sögunnar". (það má líka benda á að síðustu tíu ár hafa næstum allir þjóðarleiðtogar heims leitt þjóðir sínar í gegnum eitt stærsta hagvaxtarskeið sögunnar... Það er nú þannig... Áfram Davíð, þetta er víst allt honum að þakka...




[ 0 ]
mánudagur, október 01, 2001
 
Október loksins kominn

Jæja, Október mættur á svæðið.
LÍÚ búið að berja niður síðustu sjálfstæðu mennina á Íslandi með lágmarks mótmælum.
Öllum var sama...
Ef það skiptir mig ekki máli, þá nenni ég ekki að hafa skoðun á því.
Þetta er ástæðan fyrir því að Ríkið mun alltaf geta níðst á þeim sem ekki hafa stjórn á miklum fjármunum eða eru í fjölmennri stétt.
Svo lengi sem málefnið snertir okkur ekki beint, þá erum við ekkert sérstaklega heit fyrir því að berjast fyrir því. Þess vegna geta Talebanar komist upp með að myrða saklaust fólk í Afganistan, alveg þangað til einhver þeirra gengur örlítið of langt og snertir Vesturlönd.
Þess vegna er hægt að koma upp kamerum alls staðar þar sem stóra bróður þóknast og nornin hún Sólveig Pétursdóttir getur bara logið upp í opið geðið á okkur um það að ekki sé verið að skerða nein mannréttindi. "Ef þú varst ekki að fremja neinn glæp, hefurðu ekkert til að hafa áhyggjur af..." Alveg eins og hún hefur logið að okkur hingað til með allan andskotann.
Sjálfstæðisflokkurinn er fullur af ágætis fólki, pínulítið ferköntuðu fólki, pínulítið hrokafullu og hræsnisfullu fólki, en það meinar vel. Sólveig Pétursdóttir þráir örugglega fátt meira en að allir þessir aumingjans lágstéttamannræflar fái að njóta öryggis, þó að þau séu að eðlisfari lélegra fólk en hún og restin af góðgæðingunum sem snæðir á holtinu og horfir út um gluggann á manninn á hjólinu sem hjólar flautandi fram hjá og segja, "Æi, greyið hann. Hann veit ekki hvað hann er fátækur og ömurlegur."
Lítil saga
Mig langar að segja ykkur stutta sögu, svona dæmisögu eins og Ésú sagði alltaf hér forðum.
Einu sinni var Land sem hét Ekónómía...
Landið var sundurtætt af borgarastyrjöld sem geisað hafði í 100 ár á milli hins réttlátu og góðu konungsættar Kapitalis Ma og fylgismanna hennar annars vegar, og ómenntaðs og villimannslegs sveitalýðsins hins vegar. Kapitalis Ma ættin átti sér fjölda stuðningsmanna, heilar fjölskyldur riddara sem slógu skjaldborg um kónginn. Á meðal þessara riddaraætta voru tvær sem kallaðir voru reX-Daníel og guMBLarnir. Þessar ættir studdu hugsjónir konungsættarinnar um frjálsa verslun og mannréttindi, einstaklingsframtak og mátt frelsisins.
Af krafti var barist og hugsjónir frelsisins varðar gegn ásókn hinna hræðilegu Bolsévíka og sósíalista sem kröfðust þess að allir yrðu jafnir, jafnvel þótt það þýddi að afburðamönnum yrði gert lífið þyngra til að bæta stöðu þeirra sem hallari fæti stóðu. Riddararnir reX-Davíð og GuMBLarnir vörðu konungsfjölskylduna af hörku gegn árásum ufsagrýla Kommúnismans og forðuðu landinu fjöldaoft frá þeirri glötun sem fylgir kommúnisma og gerræði.
En á bak við þá var hið ótrúlega að gerast...
Þegar þeir höfðu drepið síðasta rauðliðann, eitrað fyrir síðasta andófsmanninum og stungið síðustu ufsagrýlu kommúnismans á hol og brennt á báli sneru þeir til konungshallarinnar til að fagna með konunginum. Þegar þeir komu til hallarinnar knúðu þeir að dyrum, en það sem við þeim blasti lét heim þeirra hrynja...
Riddararnir höfðu öll þessi ár verið svo uppteknir við að snúa bakinu í konunginn til að verja hann árásum, að þeir áttuðu sig ekki á því fyrr en langt var um liðið að sú fagra hugsjón sem þeir börðust fyrir og hin göfuga konungsfjölskylda var löngu horfin.
Konungsfjölskyldan hafði nefnilega ekki getað stundað útvensl í margar kynslóðir og þess vegna voru viss merki innræktunar farin að merkjast á andlitum og sálum konunga, prinsa, drottninga, prinsessa, greifa og hertoga.
Hinir björtu ljósberar Kapítalis Ma höfðu smám saman breyst í viðbjóðslegar afskræmingar af forfeðrum sínum. Allar hugsjónir konungsættarinnar um frelsi og mannúð höfðu breyst í ógeðslegt mannhatur og drottnunarþörf. Konungurinn var kroppinbakur, bæði á sál og líkama. Hann bauð þeim til veislu og tók þeim fangandi. "Heill ykkur, mínar kempur. Þið hafið tryggt mér völd, völd, ótakmörkuð völd yfir þessu yndislega landi. Drekkum nú saman og etum og verum glaðir."
Felmtri slegnir þjónar báru inn föt með grilluðum börnum með eplum í munninum. Börnum kvenna úr hinum strjálbýlli og fátækari héröðum landsins. Börnin grilluðu voru krydduð með laufum síðustu trjáa skóganna miklu. Vínið var ekki bruggað úr þrúgum, heldur blóði hinna eignalitlu og fátæku, ríkt blóð bragðast einfaldlega ekki eins vel...

Og nú stöndum við frammi fyrir spurningu aldarinnar...

Munu kempurnar, rexX-Daníel og guMBLarnir halda áfram að berjast fyrir konunginn, eða munu þeir enduruppgötva hinn upprunalega málstað; frelsi, mannúð og einstaklingsframtak?
Ég veit ekki, en við skulum vona að riddararnir góðu standi réttu megin við víglínuna þegar aftur verður blásið til borgarastyrjaldar í Ekónómíu.


[ 0 ]
Virka þessi Drösl???