Þankatankurinn



Svavar Knútur
Kristinsson,

Félagsauðströll, heimspekingur, umhverfis-verndarsinni og tónlistarmaður.

Ímeilaðu
mig...

NÝTT!!!
Viltu fá
(eða hætta að fá)
tilkynningar
um tónleika
HRAUNS!,
eða Svavars Sjálfs?
Sláðu inn
netfangið hér:



This page is powered by Blogger. Isn't yours?




Hljómsveitin Hraun! veitir mér listræna útrás.

Hraun á Myspace

Sjálfurinn á Mæspeis

Nýjustu Demó:

Ease your mind (01.07.2006)

Dansa... (28.09.2005.)

Ástarsaga úr fjöllunum (Sumarið 2005)

Goodbye my lovely (19. júní 2005)

Kisa litla (Maí 2005)

Your love was death to me (Janúar 2005)

Call off your Cavalry (September 2004)

You should call a doctor (Maí 2004)

Kysstu tímaglasið (endurbætt útgáfa 2004)

Mother's day
( 2004)

Jólaplata Hrauns 2003: Þrautgóðir á Hraunarstund

Jólaplata Hrauns 2004: Kátt er um jólin

Partýplatan Partý!

Jólaplata Hrauns 2005: Höldum jól

Jólaplata Hrauns 2006: Jólamolar



Latur myndasmiður, en engu að síður er hér að finna eitthvað efni...

Molar...


 
fimmtudagur, desember 27, 2001
 
Þegar orð fara úr tísku

Það er alveg merkilegt hvað menn eru fljótir að breyta um nöfn á hlutunum þegar gömlu nöfnin fara úr tísku.
Til dæmis hættu nasismi, fasismi og þjóðernissósíalismi að vera fín orð, og í stað þess að stofna almennilega þjóðernissósíalíska verkamannaflokka fara menn út í mótsagnakennda þvælu eins og að kalla flokkinn sinn "Framfaraflokkinn". Síðan keppast þeir við að segja "Við erum ekki rasistar frekar en þið, við viljum bara "Aðhald" með innflytjendamálum... Við viljum ekki að hvaða ósamabinladen sem er fái að koma með sinn "ósóma" (hahahaha) inn í landið!!!"
Af hverju koma þessir menn ekki fram undir sínum rétta fána (hvers fagra merki þeir eru fyrir löngu búnir að smána)? (rím)
Meira um þetta seinna...


[ 0 ]
laugardagur, desember 22, 2001
 
Gleðileg Jól

Kæru vinir, félagar, ættingjar og aðrir lesendur síðunnar minnar.
Mig langaði bara að senda ykkur hugheilar jólakveðjur í formi tveggja korta.
Fyrir ættingja og vini sem eru hæfilega vemmilegir og fíla krúsídúllujólakortin þá er þessi kveðja meira við hæfi.

Síðan er þessi fyrir ykkur sem taka hlutina ekki of bókstaflega.

(Þeir sem hvorki kunna að meta kaldhæðni né krúsídúlluheit geta síðan skoðað þessa hér.)

Annars vil ég bara óska ykkur öllum gleðilegra jóla og hafið þið það sem allra best...

AAAAAAAA GLEYMDI NÆSTUM ÞVÍ!!!
Ekki gleyma þeim sem minna mega sín. Það er ekki of seint að gera góða hluti fyrir fólk sem á erfitt.

Bestu Kveðjur,
ykkar vinur
Herra Muzak


[ 0 ]
þriðjudagur, desember 18, 2001
 
Land hinna Frjálsu


Bandaríski Talebaninn John Walker er líklega umdeildasti maður BNA þessa dagana.
Í kvöld varð mér litið á sjónvarpsskjáinn þar sem Jay Leno kepptist við að gera lítið úr þessum unga "afvegaleidda" manni.
Allir áhorfendur bauluðu á einhvers konar "effigy" eða skopskælingu af hinum unga Walker, eins og þeir ættu lífið að leysa og þetta sjóv leit á endanum ekkert mikið öðruvísi út en "high-budget-american-style" fánabrennsla að Mið-Austurlenskri fyrirmynd. Ritúalið var einhvern veginn allt til staðar. Eini munurinn er sá að Arabar eiga ekki eitthvað lýðfjölmiðlunaráróðursbatterí sem virkar eins og NBC. Þeir verða að láta sér nægja að safnast saman á götum úti og hrópa framan í myndavélar fréttaþyrstra blaðamanna sem fá akkúrat það sem eftirspurnin er fyrir, reitt og vonsvikið fólk úti á götu, steitandi hnefann í vanmætti í áttina að Golíat. (Ameríska útgáfan er svona meira eins og Golíat að múna [opinbera endaþarm sinn í niðrandi tilgangi gagnvart] Davíð...)
Bandarískur almenningur virðist ekki gera neinn greinarmun á almennum múslimum, talebönum, hryðjuverkamönnum, morðingjum, nauðgurum og geðsjúklingum. John Walker ákvað að ganga til liðs við ofsatrúaða múslima og er þar með orðinn landráðamaður af verstu sort.
Ef ég væri bandaríkjamaður og ákvæði að ganga í Hare Krishna og flytja til Indlands, síðan sprengdu einhverjir Indverjar byggingu í Bandaríkjunum og Bandaríkjamenn kæmu húrrandi með byssur og sprengjur, væri ég þá allt í einu orðinn landráðamaður? Voru það ekki Kanarnir sem ákváðu að ráðast á sjálfstætt þjóðríki út á eigið einsdæmi. Sú tilviljun að John Walker var staddur þarna fyrir trúarlega sannfæringu sína, gerir hann ekki að landráðamanni. Þetta mál er allt prýðilegt dæmi um heimsku mannanna og sýnir vel ástæður þess að John Walker ákvað til að byrja með að flytjast í "göfugri" menningarheim. <galgopalegt skaup>Í raun má segja að Talebanarnir séu ekki nærri því eins miklir hræsnarar og við vesturlandabúar, því þeir kúga þó konurnar sínar ekki undir fölskum formerkjum, þeir bara kúga þær.</galgopalegt skaup>

Árásin á frelsið
Það fer svolítið í taugarnar á mér hvernig Bandaríkjamenn klæðast orðunum "Frelsi" og "Réttlæti" eins og nærfötum. Það er engu líkara en að BNA hafi fundið upp þessi hugtök, og enginn annar hafi rétt á að nota þau. Ef einhver mótmælir BNA er hann að mótmæla FRELSINU, ef einhver gagnrýnir BNA er hann á móti FRELSINU og RÉTTLÆTINU. Bandaríkjamenn hafa misst sjónar á sannri þýðingu þessara hugtaka. Frelsið sem þeir búa við er frelsi til að kaupa, en ekki frelsi til að hugsa.
Sagan er skrifuð af sigurvegurunum.
Bandaríkjamenn eru nú í þeirri stöðu að þeir eru búnir að skrifa söguna fyrirfram. Þeir eru skilyrðislaust góðu kallarnir, og allir sem mótmæla þeim eru vondu kallarnir. Þeir eru ljósberi réttlætis, frelsis og kærleiks, og allir sem gagnrýna þá eru að gagnrýna frelsi, kærleik og réttlæti. Það er fyrirfram skilgreint á templati að Bandaríkjamennirnir eru í hinu góða liði og á meðan almenningur trúir því, geta stjórnvöld og fyrirtæki gert hvað sem er við vanmátta ríki heims í krafti siðferðislegra "yfirburða" sinna. Eins og áður eru rómverjarnir að siða Barbarana, Englendingarnir að siða svertingjana.
John Walker breyttist í holdgerving hins illa í augum samborgara sinna þegar hann fór að gagnrýna þær stofnanir sem ólu hann upp, það takmarkalausa neyslusamfélag sem hann ólst upp í, þar sem alger skortur ríkir á nokkurs konar andlegri hugsun. Bandarísk kristni er um það bil jafn "spiritual" trúarbrögð og trúin á kóka kóla og McDonalds. Auðvitað leitaði Walker að einhverjum andlegum svörum, einhverjum tilgangi handan strangkapítalísks neyslusamfélags. Hann er bara toppurinn á ísjaka ósamtaka hreyfingar sem myndast þegar ungt fólk missir trúna á gildum öfgafulls samfélags og leitar að svörum í annars konar öfgum, öfgar virðist það eina sem ungir Ameríkanar þekkja. Öfgafull fegurð, öfgafullur ljótleiki, öfgafull neysla, öfgafullt lífsgæðakapphlaup, öfgafull lífsgildi, öfgafull tortryggni og hroki gagnvart umheiminum, öfgafullt samfélag, þar sem það eina sem er öruggt eru öfgarnar, jafnvel meðalmennskan er öfgafull.

hugsið um þetta,
góðar stundir,
Herra Muzak

p.s.
Ég taka það fram (eins og venjulega) að ég er ekki ungur sósíalisti eða bandaríkjahatari... Ég skrifa það sem ég sé... Einnig tek ég fram að þetta er ekki lokahugsun mín, heldur vangaveltur um það sem er að gerast í dag, með fyrirvara um atburði morgundagsins.


[ 0 ]
föstudagur, desember 14, 2001
 
Grunnskólamórallinn

Þegar ég var í grunnskóla kom ég stundum grátandi heim af því að nokkrir grunnir og sorglegir einstaklingar völdu mig sem skotmark eigin vansældar. Þeim leið illa yfir einhverju og þurftu að beina þeirri vanlíðan yfir á einhvern annan til að gera eigin tilveru bærilega. Sorglegt...

Þessir drengir tóku allt sem ég sagði og sneru út úr því og öpuðu orð mín eftir mér í vælandi hæðnistóni, þeir sögðu að mamma væri hóra og versti kennari í heimi og að pabbi minn væri hommi og svo framvegis. Þeir rændu dagbókinni minni og lásu úr henni með njah njah njah málrómi. Sorglegt...

Ég tók þetta vitaskuld nærri mér, enda lítið annað hægt þegar maður er átta til tólf ára strákur. Árin liðu, við fluttum eins og fólk flytur, og í nýjum skóla voru nýjir níðingar til að snúa út úr öllu sem maður sagði.

Mamma og pabbi sögðu mér að ég myndi skilja þessa stráka eftir þegar ég kæmi upp í menntaskóla. Pabbi sagði að þeim liði illa af því að þeir hefðu ekki mína námshæfileika eða að þeim liði illa heima hjá sér og þeir öfunduðu mig af lífsgleði minni, orðhag og gjörvuleika... Fallega sagt pabbi... :) Þau sögðu líka að krakkar sem líður illa heima ættu það til að láta það bitna á þeim sem þau vita að á gott heimili.

Ég átti æðislegt æskuheimili... (pabbi var svona hálfgerður hippa/bítnikka-hybrid í afneitun... hann var mjög trúarlega frjálslyndur, algjört náttúrubarn og uppfinningamaður og skemmti okkur bræðrunum og mömmu með ótrúlegustu uppátækjum) Kannski fór þetta í þá strákana...

En árin liðu, og ég skildi þessa stráka eftir, en í menntaskóla komu bara nýir. Þá uppgötvaði ég að vel gefið fólk getur líka átt bágt, og jafnvel ótrúlega bágt. Drengur sem ég vissi að var laminn heima hjá sér ákvað að ég skyldi vera hans höggpúði. Hann sneri út úr orðum mínum í öllum tímum og gerði lítið úr mér dag eftir dag...
Pabbi sagði þá við mig: "Svabbi minn, ég laug að þér þegar þú varst lítill til að gefa þér von á meðan þú varst ekki nógu gamall til að skilja þetta. Svona fólk verður alltaf til, alls staðar í samfélaginu er fólk sem líður illa, auðveldasta verkjalyf þessa fólks er að gera lítið úr öðrum, og þá yfirleitt þeirra sem virðast hamingjusamastir, til að þeim líði jafn illa og því. Það er auðveldara að láta öðrum líða illa, en að láta sjálfum sér líða vel. Það er auðveldara að gera vont við aðra en gott við sjálfan sig. Þess vegna verður alltaf fólk sem mun reyna að gera lítið úr þér og þínum verkum og þínum skoðunum og þínum hugsjónum, af því að það á erfitt í sálinni sinni og sálina er erfitt að lækna. "
Ég fyrirgaf öllum þegar pabbi dó, hans skoðun varð að minni. Ég skil núna að sumir eiga bara issjú sem þeim líður illa yfir og eru því óskaplega duglegir við að beina athygli fólks að öðrum og tilbúnum göllum þeirra.

Private vs Public. Booleönsk martröð

Ég þoli ekki hann Bool gamla sem gerði hugtakið Digital að orði dagsins í Vestrænu samfélagi. Annað hvort ertu með eða á móti, allt er andstæður, þetta á auðvitað dýpri rætur en svo, en allt er svo tvívítt hjá binary hugsandi fólki.
Allt skal vera annaðhvort eða, privat eða public, enginn millivegur, annað hvort ertu að tala við sjálfan þig eða alþjóð. Annað hvort ertu með álveri eða þú hatar alla austfirðinga, annað hvort viltu hafa flugvöllinn eða þú hatar landsbyggðina, annað hvort dýrkarðu tölvur eða þú hatar allt sem tölvum tengist. Annað hvort eða, annað hvort eða!!! Annað hvort ertu með mér eða á móti!!! Annað hvort er Davíð Oddsson Hetja eða Djöfull. Annað hvort Ertu grasahippi eða harðkapítalisti... ÞAÐ ER EKKERT RÚM FYRIR NEITT INN Á MILLI...
Það eru fleiri stærðir en einn og núll gott fólk. Skalinn er analógískur, hliðrænn.

Ég bý í risi í Drápuhlíðinni. Það sem ég geri innan veggja míns heimilis er mitt prívatmál, ekki satt?
En á íbúð minni er gluggi, og ef þú stendur efst í tröppunum á húsinu á móti, geturðu séð mig kyssa konuna mína.
Var ég að kyssa konuna mína í prívat, eða var ég að kyssa hana fyrir framan alþjóð???
Alþjóð getur sosum komið sér fyrir á tröppum nágranna míns og glápt á heimilislíf mitt gráðugum og ég-hef-ekkert-betra-að-gera augum. Einhver getur jafnvel tekið myndir af atferli mínu og birt á netinu og allt í einu er ég farinn að kyssa konuna mína á internetinu!!! Djöfulsins ógeð er ég!!!

Hver sem er getur hlerað símtöl mín, hakkað tölvuna mína, vídeóteipað heimili mitt og svo framvegis... Birti viðkomandi "rannsóknir sínar" á internetinu er hegðun mín vissulega orðin afar "public", en það bara vandamál hins þjáða einstaklings sem getur ekki þolað að ég eigi mér áhugaverðara líf en sitt eigið.
Heimasíða og umræðudagbók er eins og heimili, ég býð fólki inn, það má sjá heimili mitt, taka þátt í samræðum á heimili mínu og svo framvegis.
Það er hins vegar lykilatriði að fólkið sem ég kemur inn á heimili mitt sjái sóma sinn í því að vera ekki að flandera, öskra og afskræma allt sem fram fer á heimili mínu út á internetið með vafasömum formerkjum illvildarinnar. "Sko sjáiði hvað hann xxx var að segja, því hann er svo mikill hommi og ógeð!!!" Þarna gefur viðkomandi formerki fyrir lestur textans og sá sem les, les textann vitaskuld með gleraugum fordómanna.

Ég er ósammála Má með það að með því að maður sé þekktur sé maður á einhvern hátt að bjóða heiminum sig til fordæmingar. Ég býð engum neitt, menn taka. Það er einfaldlega auðveldara að hitta stórt skotmark. Maður stækkar sjálfan sig ekki, maður verður bara stór.

Fólk verður að gæta einhvers konar lágmarks háttvísi. Það sem ég skrifa á heimasíðu mína er ætlað þeim sem lesa hana og hafa gaman að eða þola mig ekki, hins vegar frábið ég mér það að fólk afbaki það sem ég skrifa hér á barnalegan og andlega grunnan hátt til að bæta eigin vanlíðan með því að reyna að gera lítið úr þeim sem reit.

Það er einfaldlega lélegur pappír.

Með kærri kveðju,
góðar stundir,
Herra Múzak


...Og vitaskuld má enginn taka neinu sem ég skrifa persónulega, þó mér finnist vissir aðilar mættu vanda sig betur við að vera manneskjur.


[ 0 ]
 
Dæmalaus vitleysa!!!


Á frelsi.is, (þeim annars stöku sinnum ágæta vef) má lesa frekar lélega tilraun ungs sjálfstæðismanns til að gæða kapítalismann mannleika...
Björgvin Guðmundsson segir í þessum pistli meðal annars:

"Mestu hugsuðir mannsins settu einmitt sína eigin velferð ofar annarra og uppskáru ríkulega. Sókrates, Newton, Edison, Wright bræður og Bill Gates eru þar á meðal."

Ekki það að ég vilji taka mér ljót orð í munn, en mér finnst ótrúlegur hrossaskítur að líkja Bill Gates við Sókrates og að gefa í skyn að hann (Sókí pókí) hafi sett sína eigin velferð ofar annarra.

BULL!!!

Hvernig í Niflheimi setti Sókrates sína eigin velferð ofar annarra með því að svipta sig lífi til að viðhalda heilsteypu laganna? Hvernig uppskar Sókrates ríkulega fyrir slíka "eigingirni"?

Ég held að Björgvin þurfi að fara aftur í skóla og hlusta í þetta sinn betur (eða jafnvel lesa bækurnar sínar til tilbreytingar)

Ég held að ungir sjálfstæðismenn ættu bara að halda sig við hagfræðina og gleyma öllu um siðferðislega yfirburði frjálshyggjunnar. Það er óklífandi bjarg að reyna að sannfæra fólk um siðferðislegt ágæti frjálshyggjunnar án þess að ljúga upp í opið geðið á því.

Bestu Kveðjur,
Herra Muzak


[ 0 ]
þriðjudagur, desember 11, 2001
 
Æðislegur Konsert

Moonboots tók slaginn á þjóðleikhússkjallaranum á laugardagskveldið og moðerfokkaði húsinu.
Var það mál manna að sjaldan hefði rokkið tekið sér bólfestu í eins ólíklegum miðli og hommalegu eighties cover bandi... kné kné...

vondar fréttir


æ... ó... sökum gleymsku gleymdist að staðfesta gigg moonboots á vídalín 21. og 22.
góðar fréttir
ammælið hans snorra stendur samt fast á vídalín...
góðar fréttir

Síðan verður jóladjamm á annan í jólum YIIIHAAAA! Hó hó hó... Hið árlega jólaball Moonboots

Allir verða í góðum fílíng.

Sjáumst fljótlega,
Ykkar vinur,
herra muzak


[ 0 ]
 
DJÖ!!!

andsk maður, missti ég af "linkum á kpmg deginum.... sjitt...
Ég veit ekki hvað ég á að gera... ég var búinn að hlakka svo mikið til að linka á kpmg.
Jæja, maður verður bara að vera viss um að gleyma ekki kpmg deginum á næsta ári og linka þá eins og óður á kpmg...
Góðar stundir,
Herra Muzak


[ 0 ]
miðvikudagur, desember 05, 2001
 
Og Nú Mæta Allir Á Moonboots Ball

Nú er loksins komið að því beibí!!!
Ofur-80's-hljómsveitin Moonboots kveður sér hljóðs eftir þriggja mánaða þögn (æfingar).

Ég vil hvetja alla dygga aðdáendur hljómsveitarinnar til að mæta á Þjóðleikhússkjallarann næsta laugardagskveld 8. des, þá mun dansinn duna og vínandi guðs sveima yfir vötnum.
Hljómsveitin mun leika gömlu lögin sín í bland við "Ný" 80's lög (þ.e.a.s. nýæfð lög) af alkunnri snilld. 80's rúlar!!!

Moonboots mun einnig taka tvo "unplugged" tónleika á Vídalín helgina 21. og 22. desember og mun þá Snorri Hergill Bassaleikari halda upp á ammælið sitt í gleðistuði. Snorri Rúlar!!!

Síðan ljúkum við þessarri tónleikalotu með jóla-80´s-balli á 2. í jólum (26. des.) á Gauknum. Gaukurinn Rúlar!!!

Allir sem vilja sjá Moonboots spila eru hvattir til að kíkja. Við erum bestir. Moonboots Rúlar!!!

Bestu Kveðjur (sem rúla!!!)
Ykkar rúlandi vinur,
Herra Muzak

p.s. Kröfugangan rúlaði feitt!!!
Ég flutti eldheita ræðu um nauðsyn þess að búa í hurðalausu samfélagi...
ágrip: "Við, hinir heimsku, gerum kröfu til samfélagsins að það sýni umburðalyndi sitt í verki með því að gera allar hurðir mun einfaldari eða láta þær fara ella. Heimskan er okkar hjólastóll, hurðir eru okkar þröskuldar. Hver kannast ekki við að ganga að hurð, ætla inn, ýta og ýta, og ýta þar til menn eru að sturlast af reiði, og síðan kemur eitthvað gáfnaljósið og togar í hurðina. Niðurlægingin er alger og fjárhagslegt og andlegt tap gífurlegt. Einnig hafa hurðarhúnar oft reynst okkur öllum skeinuhættir. Þess vegna segjum við: Hurðalaust samfélag, Núna!!!"
Einfaldari hurðir! - Heimska er líka fötlun! Samtök fyrir bættu aðgengi heimskra.


[ 0 ]
mánudagur, desember 03, 2001
 
Músíkin mín er víst ekkert svo slæm

Kæru vinir (og líka hinir) :),
mig langar enn og aftur að benda ykkur á frumburð minn í útgáfubransanum.
Hann Jón ENGILL Ólafsson (góði) ákvað að leyfa mér að birta tónlist mína innan um allt hitt gæðaefnið sem hann hýsir.

Ef þið viljið (og ég drep ykkur öll ef þið viljið ekki...) megið þið hlaða laginu mínu niður.
Lagið fjallar um það hvernig hamingjan getur líka búið í melankólískri stemningu.

Einnig er mögulegt að ná í þrumusmellinn One Time Romeo með ofursíttaðaftanhljómsveitinni MoonBoots.
Lagið fjallar um misheppnaða 80's ást. Takið sérstaklega eftir innlifun söngvara og gítarleikara í sveimandi og æpandi laglínum og einleik.

Við Zato vinur minn erum búnir að vera að búa til megafína kassagítar folkmúsík. Við munum setja saman smá kombó og spila mjög fljótlega.
Við auglýsum því hér með eftir kontrabassaleikara með smá tíma og metnað og söngelskri stúlku sem getur spelað á gamla orgelið mitt.

Helgi: Þú ert maðurinn!!! Við djömmum á 8. des. MOONBOOTS IN DA HAUS!!!

Góðar stundir kæru vinir...
Ykkar gleðipinni,
Herra Muzak


[ 0 ]
Virka þessi Drösl???