![]() |
Þankatankurinn
|
![]() |
||||
|
Svavar Knútur Kristinsson, Félagsauðströll, heimspekingur, umhverfis-verndarsinni og tónlistarmaður. NÝTT!!!
|
Nýjustu Demó: Ástarsaga úr fjöllunum (Sumarið 2005) Goodbye my lovely (19. júní 2005) Your love was death to me (Janúar 2005) Call off your Cavalry (September 2004) You should call a doctor (Maí 2004) Kysstu tímaglasið (endurbætt útgáfa 2004) Mother's day Jólaplata Hrauns 2003: Þrautgóðir á Hraunarstund Jólaplata Hrauns 2005: Höldum jól Jólaplata Hrauns 2006: Jólamolar |
miðvikudagur, janúar 30, 2002
Glímt við harðan raunveruleika
Geir, maður sem ég er oftar ósammála en sammála, en hittir þó naglann merkilega oft rakleitt á höfuðið skrifaði í dag áhugaverðan pistil. Þar rabbaði hann um vonbrigði og erfiðleika sem hrjá hann í kennslu. Ég get ekki annað en dáðst að festu hans og áhuga á því að kenna ungu fólki stærðfræði, sem mér þykir, bæði rökstutt og af tilfinningu, einna göfugust námsgreina. Erfiðleikarnir sem Geir lendir í snúa að mismunandi áhugasviðum og persónuleikum þeirra sem nema. Geir hefur fyrir löngu uppgötvað það að hann er að kenna hópi einstaklinga en ekki "Bekk". Allir þessir einstaklingar hafa sín mismunandi áhugasvið og sýn á raunveruleikann, og því er það eðlilegt að Geir reyni að kenna eftir fastri aðferð til að gera kennsluna þeim kunnuglega og vonast til að sem flestir innan bekkjarheildarinnar geti tileinkað sér þessa göfugu þekkingu. Þarna rekst Geir, sem ungur kennari, á einn af þeim múrum sem allir ungir kennarar þurfa að komast yfir, í gegnum eða fram hjá, helst að brjóta niður, eða farast ella í "gamli-úldni-kennir-bara-út í-loftið" kennarastöðunni. Það eru fáar tilfinningar betri en sú að skýra einhver fræði fyrir hópi fólks og sjá brennandi áhugann skína úr augum þeirra, og um leið eru fáar tilfinningar ömurlegri en að reyna að koma til skila fróðleik til útíloftiðhorfandi hænsna sem virðast ekkert vilja, geta eða þorað að skilja. Áhugi er lykilatriði. Stærðfræðigeta og -kunnátta eru hluti af eðlilegri forvitni mannskepnunnar og eitt af því sem aðgreinir okkur frá sniglum, öpum, köttum, rottum og pottablómum. Ég trúi því staðfast að á meðal fyrstu cro-magnon mannanna hafi verið að finna jafnmarga einstaklinga sem höfðu hæfileika til stærðfræðináms og við finnum í mengi ungs fólks nútímans. Málið er bara að Cro-magnon mennirnir höfðu örugglega miklu meiri áhuga á stærðfræði heldur en bekkurinn hans Geirs... (Sorrí Geir, þetta á ekki bara um þig, þetta er almennt ástandið í dag). Ótrúlega margir krakkar eru aldir upp, hræddir við stærðfræði, hún er vond, ill, erfið og dularfull, aðeins á færi sérvitringa og snillinga og krakka með gleraugu, sem kennarinn elskar miklu meira en þau og veitir miklu meiri athygli. Krakkar fælast snemma frá stærðfræði vegna þess að foreldrar og skólakerfi leggja mikið á sig til að hræða þau bæði við stærðfræðina og afleiðingar þess að kunna hana ekki. Ég er tilbúinn að veðja ansi stórri summu að þeir eru teljandi á fingrum annarar handar, krakkarnir í bekknum hans Geirs, sem hafa ekki hæfileika til stærðfræði. Ég er einnig tilbúinn að veðja enn stærri summu að þau eru einfaldlega dauðskelkuð við hana, hrædd eins og ku klux klan maður er við svertingja. Ég er á því að leyndardómurinn við að láta krakkana læra stærðfræði er að vekja áhuga þeirra á henni, sýna þeim hvað hún er falleg, koma öllum þessum mismunandi einstaklingum í "Gírinn". En því miður held ég að það sé lítill séns héðan af, þetta verður að byrja fyrr. Þessir krakkar eru gjarnan brenndir fyrir lífstíð "ég bara skil þetta ekki, þetta er svo flókið." Þau verða mótfallin stærðfræði þangað til þau skyndilega uppgötva sér til skelfingar þá fegurð sem býr í flóknum einfaldleika stærðfræðinnar. Ég veit ekki hvað er til ráða Geir, ég skil stöðu þína afar vel og vona að þér gangi eitthvað að koma þeim í skilning um hvað stærfræðin getur verið skemmtilegt og áhugavert fag. Og Katrín. Ég held að þú dettir svolítið um sjálfa þig þarna, þó þú bendir í rauninni á sama punkt og ég er að reyna að koma á framfæri... no offense, og velkomin heim. :-) Máladeildarkrakkarnir eru ekkert verri eða lélegri en aðrir í stærðfræði, þau eru einfaldlega hrædd við það sem er framandi. Mig langar til að sjá það gerast að krakkar fái strax í grunnskóla þá hugmynd um stærðfræði að hún sé einföld, falleg og áhugaverð. Ekki að hún sé flókin, ljót og dularfull... Pælið í því hvað heimurinn væri flottur, ef allir væru opnir fyrir nýjum hugmyndum. Bestu Kveðjur, Herra Muzak [ 0 ] þriðjudagur, janúar 29, 2002
"Siðsemi ræður ríkjum í Bandaríkjastjórn"
í frétt á mbl.is í dag segir m.a. þetta: "Ekki verða framar teknar myndir af dómsmálaráðherra Bandaríkjanna framan við tvær hálfnaktar myndastyttur sem standa í samkomusal dómsmálaráðuneytisins." ... og ennfremur: "Að sögn sjónvarpsstöðvarinnar ABC skipaði John Ashcroft, dómsmálaráðherra, að stytturnar yrðu huldar því hann vildi ekki láta taka myndir af sér framan við þær." Frá því hryðjuverkaárásirnar voru gerðar 11. september hafa nokkrum sinnum verið teknar myndir af ráðherranum í salnum framan við styttuna sem táknar anda réttlætisins. Um er að ræða 3,5 metra háa konumynd sem lyftir höndum til himins og er að mestu hulin af skikkju en annað brjóstið er bert. Hin styttan, sem sýnir mann með lendaklæði, táknar lögin. Báðar stytturnar voru afhjúpaðar á fjórða áratug síðustu aldar þegar lokið var við byggingu hússins." Ég veit ekki hvort ég á að hlæja eða gráta... Hyljum réttlætið og lögin með bláum dúk þjóðernisrembunnar og siðapostulans. Pæliði í þessu... Svabbi [ 0 ] Dvergaklám eða menningarverðmæti?
Fyrst af öllu... Moonboots Rokkuðu á laugardaginn á Gauknum... Það var ótrúlega góð stemning og hreinlega hrúga af fallegum ljóshærðum konum sem vildu gefa okkur líkama sinn og gott betur... Kanína fjölskyldunnar, hann Felix, mé yfir dóttur mína í nótt og lýsti þannig frati á friðarferlið sem við höfum unnið svo dyggilega að með því meðal annars að gelda hann og slá í rassinn á honum með dagblaði... Þegar ég hugðist lesa yfir honum með eldhússpappírsrúllu í hönd gerði hann sér lítið fyrir og hvæsti og urraði á mig og hófst síðan handa við að tæta í sig eldhússpappírsrúlluna... Ég átti fótum mínum fjör að launa undan þessari vitstola og örvæntingarfullu kanínu... Síðan gerði ég loftárásir á börn hennar og keyrði búrið hennar niður með jarðýtu... Sag út um allt baðgólfið... Klukkan 8:40 í morgun vaknaði ég og leit yfir vígvöllinn og spurði sjálfan mig hálfleiður: "Hvað er nú til ráða?" Fór svo í vinnuna, hálfveikur og er búinn að dúsa þar síðan. Geri Jökli hönnuði lífið leitt með umræðum um drauma mína um að verða frægur handritshöfundur fyrir hommaklámmyndir. Dæmi um senu: Mischka: Segðu mér Helmut, þessi nýi strákur, hann er bara alls ekkert svo slæmur skógarhöggsmaður, en við þurfum nú samt að kenna honum hvernig menn hjuggu skóga í gamladaga! Helmut: Það er rétt Mitschka. - hnykklar olíuborna vöðvana, grípur þéttingsfast um öxi, leðurklæddum lófa á stærð við mannshöfuð. - Hann þarf að læra um ástina! Strákur, komdu hér! Strákur (Michael): Hvað liggur ykkur á hjarta lærimeistarar mínir og jöfurmenni? Er öxi mín ekki nógu beitt, eða eru högg mín ekki nógu þétt? Skortir mig kannski innsýn inn í hinn djúpa heim karlmannlegrar ástar? Mischka: Finndu hvernig þrútnir handleggsvöðvar mínir mynda fullkomið samræmi við mjóbak mitt. Strákur (Michael):- þreifar vöðvana - Jú það er rétt... En hvernig finn ég hinn algera sannleik? Mischka: Þú leitar ekki á réttum stað drengur minn... Hinn algeri sannleikur dvelur innra með hverri sál, en ekki hið ytra. mundaðu nú öxina og finndu straum einsemdarinnar verða að brýni sálarinnar. Finndu styrkinn í félagsskap sterkra manna. Finndu mjúka hlýja smurolíuna renna niður bakið... Helmut:Þú dvelur við fótskör meistaranna... Nú munt þú læra að glíma við tómið, tómið sem Dostoyevski og Níhílistarnir misskildu svo hrapalega. Strákur (Michael): Kennið mér, Kennið mér!!! Hlýr haustvindur þýtur um laufin, söngur skógarhöggsmannanna líður um skóginn eins og dans í slóvensku brúðkaupi. Kannski ekki, en ég leita að einhverju betra... Hey... Mig langar agalega til að halda nýja tónleika og leyfa ykkur aftur að heyra lögin okkar Sigga Palla... Nennið þið ekki örugglega að kíkja þegar það gerist? Ég skal láta ykkur vita. Bestu Kveðjur, Herra Muzak [ 0 ] föstudagur, janúar 25, 2002
Frjálst útvarp my ass!
Hafið þið velt því fyrir ykkur að í landi þar sem eru a.m.k. níu "frjálsar" útvarpsstöðvar eru aðeins tvær þar sem fólkið við míkrafóninn má segja það sem það vill og spila þá tónlist sem það hefur áhuga á að spila. Báðar eru ríkisreknar. Að vísu má segja að fólkið á FM-957 segi allt sem því dettur í hug og spili alla tónlistina sem því þykir góð, en það segir meira um takmarkanir fólksins sem vinnur á FM en frelsi stöðvarinnar sjálfrar. Í "frjálsum" útvarpsstöðvum í dag má ekki ræða viðkvæm málefni, það má ekki gagnrýna vandamál í samfélaginu, og allra síst koma fram með einhver neytendamál eins og að benda á óhollustu eða heilsuspillandi eiginleika einhverrar vöru eða þjónustu, slíkir aðilar veita stöðinni fjármagn og þola enga gagnrýni. Markaðsmettað samfélag er gagnrýnislaust samfélag. Gagnrýnislausu samfélagi er stjórnað af nokkrum útvöldum aðilum. Um leið og ég má ekki ræða galla einhverrar vöru, þjónustu, eða vankanta fyrirtækja, þá er lýðræðið horfið. Lýðræði felst í umræðu, upplýsingu og virkum skoðanaskiptum á öllum mögulegum miðlum. Ef fólk segir "Ég nenni ekki að pæla í þessu, þetta er bara röfl og leiðinlegt", þá þykir því lýðræðið ekki þess virði að lifa í því, lýðræðið er gengisfallið í augum þess. Þá getur það eins selt kosningarrétt sinn fyrir 20%afslátt af geisladiskum í skífunni eða ókeypis GSM-Frelsi í nokkra mánuði. Bestu Kveðjur, Herra Múzak p.s. mætið á gaukinn á morgun þar sem transgenreal hljómsveitin Moonboots spilar stílvillu og hommastuð. [ 0 ] miðvikudagur, janúar 23, 2002
Skyldulesning
Geir bendir á snilldarpistil Illuga Jökulssonar. Lesið! Það er gaman þegar menn sem maður er jafn oft ósammála og Geir segja loksins eitthvað sem maður getur samsinnast þeim í. Bestu kveðjur, Svavar p.s. Svo vill maður nú fara að skora á Má að halda áfram að Besserwisserast... Heimurinn er hálftómur þegar maður hefur ekki smellið besserwiss Mása... [ 0 ] þriðjudagur, janúar 22, 2002
Jus in Bellum - Jus ad Bellum
Réttlæti í stríði, réttlátur stríðsrekstur... Maður veltir fyrir sér gildi þessara fornu reglna þegar sífellt fleiri myndir berast af "Réttlátum" hernaði Bandaríkjamanna á hendur Al-Quada og Talebönum og í raun hverjum þeim sem *"Ertu kommúnisti???"* hefur sig í frammi gagnvart þeim. Tortryggni gagnvart Aröbum vex sífellt í heiminum, fóðruð af 250.000.000 gallona bensíndúnki bandarískrar þjóðernishyggju. Ísraelar komast upp með sífellt meiri níðingshátt, kúgun og ofríki gagnvart sínum "óæðri" nágrönnum. Við þurfum að muna að hné heimsins bregst hægt við. Hamarshöggið kallar á spark, en sparkið kemur hægt og rólega, næstum jarðsögulega. Hryðjuverkaárásirnar á Bandaríkin voru ekki viðbragð við einum atburði, þær voru uppsafnað taugaviðbragð kúgaðra þjóða heims. Reiði á milli fólks gerist á sekúndum, reiði milli þjóða, þjóðflokka, samfélaga, gerist á áratugum, jafnvel heilu öldunum. Síðan sýður upp úr. Bandaríkin eiga eftir að fá þetta á sig aftur og aftur og aftur á meðan þau halda áfram að taka þátt í hnattvæddri kúgun og eru í raun fánaberi vesturlanda í varnarstöðu þeirra gagnvart batnandi stöðu hinna "vanþróuðu" landa. Það er ekkert réttlæti í stríðsrekstri Bandaríkjanna í Afganistan. Það er ekkert réttlæti í meðferð þeirra á "úrhrökum jarðar" á Kúbu. Það er ekki snefill af virðingu fyrir mannskepnunni í hjörtum ráðamanna og fjölmiðla í Bandaríkjunum. Jay Leno hæðist dag eftir dag að Afgönum vegna þess að þeir lifa öðruvísi lífi en svínfeitir og veruleikafirrtir landar hans. "hahaha sjáið bara!!! þeir búa í hellum hahahahaha!!! HAHAHAHA, sjáiði bara!!! Þeir eiga asna!!! HAHAHAHAH!!! Hvernig leggja þeir asnanum sínum?!?!?!" Mig langar að kasta upp þegar ég horfi á aðfarir Bandaríkjastjórnar. Hundingjaleg meðferð á stríðsföngum, þverbrotinn genfarsáttmáli og vandarkossar. Og svo vil ég lýsa því yfir að Björn Bjarnason er ekki maður að mínu skapi. Hann er hrokafullur og yfirlætisfullur, lágkúrulegur og durgslegur, svo ekki sé minnst á sjúklegan ótta hans við allt sem tengist samfélagshyggju. Svo máttu slappa aðeins af á svekkelsinu og pirringnum Siggi Palli minn. Tónleikarnir gengu bara mjög vel og ekkert "lala" og svo er Baldur alls ekki slæmur strákur þó hann sé í "vondum félagsskap." Hann hefur bara verið fullur eða á einhverju spani. Bestu Kveðjur, Herra Muzak [ 0 ] mánudagur, janúar 21, 2002
KLUKKAN NÍU!!!!!
Búinn að fá mikið af röfli hjá fólki fyrir að hafa ekki verið á staðnum í mínu eigin afmæli þegar það mætti klukkan 00:55. Vil aðeins segja eitt... TAKIÐ MARK Á ÞVÍ SEM ÉG SKRIFA!!! Ég sagðist ætla að byrja uppúr 21:00 og þá meinti ég ekki 01:00, stór munur þar á, þannig að þið sem ætlið að röfla í mér út af þessu, sjúgið egg... NOTA BENE: Ég hafði tónleikana svona snemma, svo fólk væri ekki orðið fullt og hávaðasamt og þannig meðtækilegra fyrir tónlistinni og textunum, það gekk ekki alveg upp, en samt gekk þetta vel í fólk. Ég þakka kærlega þeim fjölmörgu, sem aktúallí komu á réttum tíma og hlýddu. Ég vona að hinir láti sjá sig þegar við höldum aukatónleika fyrir þá (af einskærri góðmennsku). nóg um það... Tónleikarnir heppnuðust hins vegar afar vel, smá stress í gangi, en ekki við öðru að búast þegar maður er að hella úr skálum hjartans yfir fólk í fyrsta skipti. Jibbí :) Ég er líka alltaf að verða ánægðari með lögin hans Sigga Palla. Þau eru falleg og oft ná þau hyldjúpum pælingum. Harmonikka, kassagítarar, nettar trommur og kontrabassi hljóma rosalega flott saman. Áfram það! en þið sem komuð á réttum tíma, ég vil þakka ykkur kærlega fyrir góðar undirtektir og eyru. Ég geri kröfur til fólks. Ég geri enn meiri kröfur til fólks sem á að hlusta á tónlistina mína, og þá skiptir ekki máli hvort um er að ræða föstudags, laugardags, sunnudags eða mánudagskvöld. Bestu Kveðjur herra Muzak [ 0 ] föstudagur, janúar 18, 2002
Nú fer þetta að skella á!!!
Hæ hönnís, Mig langaði bara að minna ykkur á tónleikana á morgun kl. 21:00. Ekki gleyma að taka vini ykkar með, það er ókeypis inn og afar takmarkaður trúarboðskapur í gangi... :-) Okkur Sigga langar bara að deila með heiminum okkar litlu og vesælu verkum. Æfingar eru búnar að ganga eins og í sögu... sögu eftir Salvador Dali eða Friedrich Nietszche, ekki sögu eftir Tove Jansson eða Astrid Lindgren. Afar furðulegt og skemmtilegt og fullt af vísunum í ofurmenni og hjarðhugsun, nokkur beygluð úr og svanir sem breytast í fíla... Hafið þið séð eitthvað sætara en fílsunga...? ég bara spyr...? Hafið þið séð eitthvað sorglegra en Björn Bjarnason að reyna að vera kúl, hipp og happening...? Nuj bara að spökulera... Bestu Kveðjur, Svabbi Múzak [ 0 ] miðvikudagur, janúar 16, 2002
Allur undirbúningur gengur vel!!!
Hey allir saman, Nú er þetta rétt að smella saman, Við Siggi Palli, Loftur kontrabassaleikari, Matti Nikka og Helgi Bam Bam lokuðum okkur inni í húsi eina kvöldstund og dúlluðum okkur með hljóðfærin. Þetta verður frábært. :) Mætið á Vídalín Laugardagskvöldið kl. 21:00. Ég verð þar að öllum líkindum með bjór í annarri og gítar í hinni...´ Þið verðið samt að mæta með svolítið opinn huga, tónlistin sem við ætlum að spila er ekki neitt vinsældapopp, heldur beint frá hjartanu. Í alvörunni, það er miklu erfiðara að flytja tónlist beint frá hjartanu en einhverja froðu. Sé ykkur fljótlega! Svabbi Muzak [ 0 ] sunnudagur, janúar 13, 2002
Ammælistónleikarnir verða á Vídalín!!!
Hey gang!!! Nú er það víst, ammælistónleikarnir verða á Vídalín á Laugardaginn 19. janúar klukkan 21:00 Á eftir afmælistónleikunum tekur hljómsveitin Miðnes við og leikur létta danstónlist fram eftir nóttu, dyggilega studdir af gleðipaunksveitinni Ceres 4 (stók er djók, stók er djók!!!). Ég hvet alla sem þetta lesa til þess að mæta, og ennfremur bið ég ykkur öll um að taka endilega með ykkur vini og gleðjast og hlýða á gleðisöng okkar allra sem flytjum múzak. Bestu Kveðjur í bili... Herra Múzak. Jú, AH!!! ég var næstum búinn að gleyma... Nú er hægt að nálgast textana mína á síðunni "textar" og einnig með því að klikka á músíker hlutann af egói mínu. Njótið... [ 0 ] föstudagur, janúar 11, 2002
Smá Hæ
Hey, nú ætla ég að byrja hæpið fyrir ammælið mitt... Eins og flestir sem þekkja mig vita, þá er nú aðeins vika í hið árlega "Svabbstokk" eða afmælistónleika Svavars. Ég á ammæli 21. jan, sem er mánudagur, og held því upp á það með tónleikum og general djammi annað hvort næsta föstudag eða laugardag. Við Zato ætlum að flytja nokkur frumsamin lög og gera það vel. Ég hvet ykkur öll til að koma með alla sem þið viljið, allir eru boðnir í ammælið mitt. Meiri upplýsingar koma hér á vefnum á næstu dögum... :) Bestu kveðjur, Svabbi Sæti [ 0 ] miðvikudagur, janúar 09, 2002
Glæsileg tilþrif hjá Magnúsi
Í nýlegum pistli Magnúsar Árna Magnússonar á kreml.is kom meðal annars eftirfarandi fram: "Ef strákarnir sem skrifa á Andríki og Frelsi hefðu eitthvað bloody bein í nefinu myndu þeir kljúfa sig út úr Sjálfstæðisflokknum og stofna alvöru frjálslyndan hægri flokk, með svona 7 ? 10% fylgi, sem gæti síðan unnið að því að toga ríkisstjórnir í átt til viðskiptafrelsis, einstaklingsfrelsis, lægri skatta og minni afskipta af einkalífi borgaranna. Þá þyrftum við ekki að búa við þá þversögn að frjálslyndasta aflið í íslensku samfélagi séu hér eftir sem hingað til sósíaldemókratar. En það munu þeir auðvitað ekki gera. Fyrir því geta verið tvær ástæður. Sú fyrsta er þessi: Ef þeir hafa sig hæga og láta sér nægja að gelta dálítið með lygaramerki fyrir aftan bak, þá bíða þeirra feitir bitar á ríkisjötunni, annað hvort sem ráðherra, ráðuneytisstjóra, eða forstjóra hálfeinkavæddra ríkisfyrirtækja. Gott fyrir þá, en slæmt fyrir Ísland. Seinni ástæðan er sú að þeir telji sig Í RAUN OG VERU geta breytt Sjálfstæðisflokknum. En það munu þeir ekki geta. Einstaklingar breyta ekki Sjálfstæðisflokknum. Sjálfstæðisflokkurinn breytir einstaklingum. Nærtækasta dæmið er auðvitað maðurinn sem lengst allra hefur samfleytt setið á forsætisráðherrastóli. Fyrstu mánuðina í embætti var hann frjálslyndur og ögrandi. Hann leyfði sér að stinga á kýlum og pota í heilagar kýr - t.d. "byggðastefnuna". Fyrir vikið var hann kallaður sjötti krataráðherrann. Því miður var þessi hegðun ekki til vinsælda fallin og ráðherrann söðlaði um, kastaði sinni ögrandi framkomu og gekk í íhaldsbjörgin. Hann uppskar vissulega meira starfsöryggi fyrir vikið. Feitu bitarnir á ríkisjötunni eru náttúrulega alltaf freistandi." Áfram Magnús, þetta kallar maður beitta gagnrýni. Það er alveg satt, ungir sjálfstæðismenn eru og hafa alltaf verið bara sprellandi kálfar við trogið, bíðandi eftir því að komast í feita stöðu á einhverjum ríkisbási. Forræðishyggju og einkahagsmunaflokkur Íslands stendur alls ekki fyrir frjálsa samkeppni, annars væri frjáls samkeppni, en ekki ríkisstýrð, um vinnuaflið á Austfjörðum. Meira fljótlega, Svabbi [ 0 ] fimmtudagur, janúar 03, 2002
Gleðilegt Ár
Ég biðst afsökunar á seinheitum mínum í skrifum... Gleðilegt ár kæru vinir, ég er bara búinn að vera að vinna eins og lúnatík og nenni ekki að hugsa þegar ég kem heim... Áramótapunktar: Skaupið var geðveikt, og batnaði bara og batnaði, fjölskyldan gapti og vældi af hlátri yfir asnaprikum Óskars, Hallgríms og Hjálmars... Sérstaklega fílaði ég Hannesar og Guðna Ágústssonar djókana... Árni Johnsen var líka smekklega tekinn... Fór einstaklega snemma að sofa á áramótunum... klukkan þrjú... fór ekki einu sinni í partí... Við hjónin sátum bara, drukkum sitt hvort rauðvínsglasið í sófanum heima og lögðumst í rúmið eins og þögult prump... ég veit, ég er alger hommi... B.T.W. Nýtt lag með okkur Zato alveg að koma út... Grúví fílíngs... Allir voru góðir á Áramótunum... Sá maður sem sagði við mig að vefstjóravinna væri lazy ass djobb á skilið harða líkamlega meðferð frá mér og mínu krúi... Kíkiði á Vídalín um helgina, við Moonbootsdrengir erum að spila og vantar móralskan stuðning... Bestu Kveðjur, Herra Muzak, sem er alveg að fara að eiga ammæli og langar að halda upp á það, en hvernig, hvernig??? Jú!!!! Með TÓNLEIKUM!!! [ 0 ] |
Eva
Örn "Mugison"
Elias Tónlistarmönnum sem gefa tónlist
sína á netinu er velkomið að hafa samband
við Hr. Muzak og þá bæti ég þeim
á listann.
Laukurinn rúlar
Dr. Gunni
| |||