Þankatankurinn



Svavar Knútur
Kristinsson,

Félagsauðströll, heimspekingur, umhverfis-verndarsinni og tónlistarmaður.

Ímeilaðu
mig...

NÝTT!!!
Viltu fá
(eða hætta að fá)
tilkynningar
um tónleika
HRAUNS!,
eða Svavars Sjálfs?
Sláðu inn
netfangið hér:



This page is powered by Blogger. Isn't yours?




Hljómsveitin Hraun! veitir mér listræna útrás.

Hraun á Myspace

Sjálfurinn á Mæspeis

Nýjustu Demó:

Ease your mind (01.07.2006)

Dansa... (28.09.2005.)

Ástarsaga úr fjöllunum (Sumarið 2005)

Goodbye my lovely (19. júní 2005)

Kisa litla (Maí 2005)

Your love was death to me (Janúar 2005)

Call off your Cavalry (September 2004)

You should call a doctor (Maí 2004)

Kysstu tímaglasið (endurbætt útgáfa 2004)

Mother's day
( 2004)

Jólaplata Hrauns 2003: Þrautgóðir á Hraunarstund

Jólaplata Hrauns 2004: Kátt er um jólin

Partýplatan Partý!

Jólaplata Hrauns 2005: Höldum jól

Jólaplata Hrauns 2006: Jólamolar



Latur myndasmiður, en engu að síður er hér að finna eitthvað efni...

Molar...


 
fimmtudagur, febrúar 28, 2002
 
KREEEEIIIISÍÍÍÍÍ!!!!

OFUR ! ! !
Dr. Gunni ætlar líklega að spila músíkina mína í Alætunni í kveld.
Gúdd sjitt ! ! !


En á öðrum nótum. Hrafnkell vildi fá betri hugmynd um hvað umhverfisfræðin er... Umhverfisfræðin er þverfaglegt nám sem snýr að umhverfinu, nýtingu þess, lagalegar hliðar umhverfisins, siðfræði- og mannfræðilegar hliðar. Einnig er farið í verk- og efnafræðilegar nálganir á umhverfisfræði. Lokaverkefnið er síðan persónuleg nálgun M.A. nemans á Umhverfisfræðina, hvort sem hún er siðfræðileg, verfkfræðileg, lögfræðileg, mannfræðileg eða hvað. Kjarni málsins er að viðkomandi fær breitt nám í umhverfisfræðum og vinnur síðan sértækt Mastersverkefni.

En ég var líka að fá þær frábæru fréttir að ég má stúdera undir Nigel Dower þó ég taki umhverfisfræði í stað heimspeki. Þá kíki ég til Aberdeen eftir eitt eða tvö ár... Gaman Gaman Saman!!!
Gúdd sjitt...

Bestu Kveðjur,
Herra Muzak


[ 0 ]
miðvikudagur, febrúar 27, 2002
 
Skotland eða rotland...

Spurning... á ég að fara í Mastersnám í umhverfisfræðum eða heimspeki? Hvort sem gerist, þá langar mig ógeðslega mikið að fara til Aberdeen og læra hjá hinum mikla meistara Nigel Dower, einum virtasta siðfræðingi nútímans.
Vinir: Hvort sjáið þið mig fyrir ykkur sem heimspeking eða umhverfisfræðing?

Herra Muzak


[ 0 ]
þriðjudagur, febrúar 26, 2002
 
Svona sér Hannes Hólmsteinn heiminn...?


þökk sé snillingnum Tom Tomorrow


[ 0 ]
 
Skyldulesning

Þessar teiknimyndir eru ótrúlega sannar , og í raun er þessi höfundur ótrúlega klár.


[ 0 ]
 
Innblástur

Þegar ég sat í því frábæra námskeiði Fagurfræði, við heimspekiskor Háskóla Íslands, varð hugtakið innblástur gjarnan að umræðuefni meðal þeirra sem námskeiðið sóttu. Í ljósi síðustu "galgopalegu" greinar minnar, langaði mig að velta örlítið fyrir mér hugtakinu innblástur.
Innblástur, eins og orðið kemur fyrir gefur það í skyn að hugmynd sé blásið inn í e-n. Einhver verður fyrir innblástri. Það virðist þýða að í hugum þeirra sem orðið smíðuðu er/var innblástur utanaðkomandi, ósjálfráður, án einbeittrar hugsunar. Ég hef sjálfur upplifað innblástur mjög svipað þessu, innblástur gerist bara, hann kemur þegar maður á síst von á því. Þó er ekki loku fyrir það skotið að maður geti framkallað innblástur með því að velta einhverju efni fyrir sér í lengri tíma. Ég sé þetta þó svoleiðis að innblástur sé afurð bakgrunnsvinnu í heilanum. Bakgrunnsvinna heilans held ég að sé mjög vanmetið fyrirbæri. Hver kannast ekki við það þegar maður hættir að hugsa um eitthvað vandamál og nokkrum mínútum síðar er vandamálið leyst. Þá er maður í raun að leyfa heilanum að sjá sjálfum um vandamálið í stað þess að ráðskast með hann með meðvitaðri hugsun. Svo virðist sem heilinn geti greint vandamál og leyst með lærðum og meðfæddum aðferðum, án þess að við skiptum okkur af honum. Þegar við stressumst og erum að reyna sem mest, þá virðist heilinn stundum fara í baklás.
Ég hef samið lög með því að setjast niður með gítar og strömma einbeitt í margar mínútur. Þau eru líka ágæt, en mér finnst innblástur á vissan hátt svo miklu fallegri aðferð við að skapa, óheft, sjálfvirk í huganum, síðan getur maður gagnrýnt innblásturinn eftir á og lagað verkið...
Kannski ég haldi áfram að velta þessu fyrir mér bráðlega, en núna verð ég að halda áfram að vinna...

Herra Muzak


[ 0 ]
mánudagur, febrúar 25, 2002
 
Helvítis ástkæra ilhýra


Betri lesendur síðunnar hafa vonandi rekið sig á textasíðuna mína. Þar hafa viðkomandi vonandi rekið sig á að sum af lögum mínum eru með enskum textum. Þetta hefur víst komið óþægilega við ófáa lesendur og áhlýðendur tónlistarinnar. Við þetta fólk segi ég: "farið barasta í rass og rófu með Fjölnismannamentalitetið ykkar" :-)
Ég hef aldrei getað skilið þá rassaþráhyggju manna að fordæma og væla yfir tónlistarmönnum sem semja lög með enskum textum.
Hver sá sem einhvern tíma hefur fengið innblástur getur vitnað um það að innblásturinn kemur sjálfur og ótilneyddur og hreinlega til dyranna eins og hann er klæddur. Meirihluti texta minna er á íslensku, en sum þeirra eru á ensku, einfaldlega vegna þess að innblásturinn kom á ensku. Maður er bara að rölta, og svo dettur einhver lína í hausinn á manni. Á maður að hundsa hana af því að hún er á ensku, eða á maður að vinna með hana og móta þangað til lag stendur eftir? Á listamaður að hundsa innblástur vegna þess að einhverjir sjálfskipaðir "Fjölnismenn" fá fyrir hjartað við að heyra Íslending syngja á útlensku...? Ættu Kent, Cardigans, Ray Wonder, Komeda, a-ha og fleiri ágætis hljómsveitir að fara að syngja á norsku, sænsku og dönsku bara til að "vernda tungumálið". Ef kveðskapur á útlensku brýtur niður tungumálið eða rýrir gildi þess, þá erum við illa stödd og tungumálið lélegt að standast ekki slík vindhögg.
Ég lít svo á að orðaforði minn í ensku sé prýðilegur bæði vegna þess að ég umgengst útlendinga mikið og vegna þess að ég hef lesið heil reiðinnar býsn af enskum texta, bæði í heimspekináminu og á minni stuttu ævi. Segja má að ég hugsi oft jafnhendis á ensku og íslensku, þó vitaskuld sé orðaforði minn ríkari í íslenskunni. Ég lít því oft á kveðskap á ensku sem ágætis æfingu með form og stíl í ensku máli. Ég hefi meira að segja samið texta á þýzku þó að hann hafi aldrei birst, og auðvitað er hann afkáralegri en ensku eða íslensku textarnir...
Í guðanna bænum, hlustið á tónlistina og takið textann á sínum eigin forsendum. Þessir textar segja sögu, sögu sem ég hef kosið að segja á ensku, rétt eins og Már og Bjarni skrifa stundum á ensku á vefinn sinn.
Ekki dæma hvaða tungumál skáldið notar til að koma boðskapnum til skila, hugsið um hvað skáldið er að segja...

Bestu Kveðjur,
Herra Muzak

p.s. af gefnu tilefni vil ég taka það fram að þetta er ekki árás á neina einstaklinga, heldur frekar gagnrýni á gallaða hugmyndafræði...


[ 0 ]
föstudagur, febrúar 22, 2002
 
Samúðarkveðjur og Skyldulesning

Um leið og ég votta Röskvu samúð mína vil ég undirstrika nauðsyn þess að skipta út valdaaðilum öðru hvoru. Nú er bara að sjá hvort þjóðin geti ekki gert það sama við Davíð Oddsson til að gefa honum meiri tíma við ritstörf...

Síðan er hér ein skyldulesning...
Bestu kveðjur,
Herra Muzak


[ 0 ]
fimmtudagur, febrúar 21, 2002
 
Geta líkamshlutar verið feministar???

Þessi pæling vaknaði þegar ég heyrði vinnufélaga minn freta kellingalegasta prumpi allra tíma...
Ég er á því að annað hvort er rassgatið á honum í Bríet, eða hringvöðvinn sjálfur náskyldur Valgerði Sverrisdóttur, til að geta gefið frá sér svona hrygluleg, þvinguð og pípandi óhljóð...


[ 0 ]
 
Í ljósi rollupælingarinnar


góðar stundir og áfram dr. Gunni


[ 0 ]
 
Enn einu sinni er tæknin eitthvað að stríða okkur...

Hef ég sagt ykkur að ég elska rautt hár og stórar konur...? og líka litlar konur... og brúnt hár... og allt...
Ég hef í raun ekki neina sérstaka dýrkun í gangi, heldur er ég haldinn losta gagnvart heiminum í heild sinni...


viðbót...
ah... til að útskýra þessa færslu tel ég réttast að segja frá því að bloggerinn birti óvart færsluna tvisvar og ég vildi ekki taka hana aftur, svo ég skrifaði bara eitthvað uppfyllingarefni... Þetta er samt alveg satt...


[ 0 ]
 
Herra Muzak 231 - Kaffivél 132

Deyðu kaffivélaraumingi!!! Mouhahahahaha....
Herra Muzak mun ríkja yfir heiminum með ægilegum her ódauðra...

... eh já...


[ 0 ]
 
Eru Íslendingar orðnir samdauna sauðkindinni???

Í ljósi umræðu undanfarinna daga um stjórnarmál Landsímans og fleiri drullubletti á íslenska lýðveldinu langaði mig að leggja mitt álit inn í vaxandi flóru skoðanaskipta...
Til að byrja með, ég er hvorki Sjalli né sérstaklega mikill vinstri maður, og þykir mér þau mörk í raun farin að óskýrast mjög.
Hins vegar þykir mér íslensk alþýða farin að vera andskoti andlaus og kraftlaus þegar sömu stjórnmálamennirnir úr sama stjórnmálaflokknum gerast trekk í trekk uppvísir að spillingu og valdníðslu og afglöpum ýmiss konar, fyrirgreiðslum og klíkuskap. Stór hluti íslenskra kjósenda virðist ekki fær um annað en að fylgja forystusauðnum í einu og öllu.
Það virðist alveg sama hvað menn gera af sér, ef þeir segja bara, "þetta er bull og vitleysa og vinstra samsæri og röfl!" þá þegja bara allir þunnu hljóði og í versta falli birtist léleg vísa um Halldór eða Sturlu eða einhvern, í sandkorni hjá DV og eitt eða tvö velvakandabréf í Mogganum. Þetta er skammarlegt.
Afsagnir stjórnmálamanna eru næstum daglegt brauð í öðrum ríkjum hins siðmenntaða heims. Það er ekki af því að þeir stjórnmálamenn séu sérstaklega spilltari en okkar, nei, kjósendur þeirra kunna á lýðræðið og kunna að gagnrýna sína menn, hvort sem þeir eru með þeim eða á móti. Helmut Kohl og Uffe Ellemann fengu gagnrýni sinna eigin manna líka. Þar er lýðræðið virt. Menn eru kosnir, ekki til að ráða, heldur til að þjóna og ef einhver þjónar illa á hann að hætta að þjóna... Svo einfalt er það...
Sturla Böðvars á svo sannarlega að segja á sér, ef ekki til annars en að gefa Íslendingum smá vísbendingu um að Íslenskir stjórnmálamenn taki ábyrgð. Come On... Guðmundur Árni réð vitlausan mann til starfa og sagði sjálfur af sér.
Hversu lengi ætla Íslendingar að éta skítinn út úr þessum eiginhagsmunapoturum.
Íhald er af hinu illa, í íhaldinu felst sú hugsjón að viðhalda völdum á höndum þeirra sem "réttilega" eiga að höndla þau, gömlu peninganna. Gömlu peningarnir eru ekkert betri en við. En helvítis lýðræðið er orðið að sauðkindaræði á Íslandi. lýðurinn jarmar meeee meeee meee....
Bestu Kveðjur,
Herra Muzak

p.s.
vera dugleg að hlaða niður lögunum mínum hjá jóni.is
Þegar ég verð frægur skal ég muna eftir ykkur öllum og skála í einrúmi ykkur til heiðurs...


[ 0 ]
þriðjudagur, febrúar 19, 2002
 
Herra Muzak 107 - Kaffivélin 64

Síðasti Dagur hefur verið gerður upp. Herra Muzak sigraði kaffivélina með 107 hittum á móti 64 hjá kaffivélinni (þrátt fyrir að Herra Muzak styddi kaffivélina sjálfur dyggilega...)

Annars eru Baggalútur með frétt dagsins...

Bestu Kveðjur,
Herra Muzak


[ 0 ]
mánudagur, febrúar 18, 2002
 
HÚRRA HÚRRA!!!

Gimmí fæv! Tyrkinn fallegi var að lesa textana mína... Júbbí!!!
Kæri Tyrki, þér til heiðurs ætla ég að fara að drífa mig í að endurupptaka lagið Ésú elskar ekki minnihlutahópa og skella því á vefinn minn svo þú getir heyrt það...

Annars er fleira í fréttum, ofur80'sbandið Moonboots er farið að sækja í sig veðrið og leikur á komandi vikum á tveimur stórum árshátíðum, Árshátíðum Samvinnuháskólans Við Bifröst og Háskólans í Reykjavík. Svo er bara stutt í almennilegt gigg á Gauknum eða eitthvað... Hlökkum til að sjá ykkur fljótlega...
Bestu kveðjur,
Með andsemitískri kveðju ,
Herra Múzak



[ 0 ]
 
Kapphlaup teljaranna

Þið vitið hvernig maður er alltaf að reyna að bæta sig... Nú er ég kominn með kapphlaup í gang sem mér líst ansi vel á...
Kaffivélin inni á kaffistofu er með teljara (hversu marga bolla hefur verið hellt upp á í dag...) og síðan mín er farin að fá fleiri heimsóknir á dag en kaffivélin... :)
Annað hvort er síðan mín að verða vinsæl, eða að kaffisvelgjum á hæðinni minni er að fækka...

Með kaffikveðju...
Herra Muzak


[ 0 ]
 
Auglýsi eftir samverkamönnum

Kæru lesendur,
Herra Muzak er bara með tvær hendur, og er því að leita sér að fólki til að vinna með á hinum fjölbreyttu sviðum tónlistar.
Ég er alltaf að leita að kláru og skemmtilegu tónlistarfólki til að spila og semja með, og einnig til að halda tónleika með. Það er alltaf betra að margir haldi tónleika saman. Þannig að ef þið vitið um einhvern sem kannski myndi fíla tónlistina mína og vilja vera með í Muzak ævintýrinu (eða viljið það bara sjálf), hvernig sem hægt er, endilega hafið samband við mig, eða látið viðkomandi hafa samband.
Ég er ósköp jákvæður gaur og hlakka til að fá eitthvað respons frá ykkur. Kommon! sendið mér póst beibí!

Sumsagt, ef einhver er til í að taka þátt í tónleikahaldi eða flutningi okkar Muzakmanna, endilega látið mig vita. Okkur vantar samverkafólk til að berja áfram þjóðlagatónlistina okkar... :)

Bestu Kveðjur,
Herra Muzak


[ 0 ]
laugardagur, febrúar 16, 2002
 
Kettir eru miklu skemmtilegri en kanínur...

Pálína kom heim með kettling fyrir nokkrum dögum síðan. Hún er núna orðin níu vikna gömul og heitir Emma. Þetta er stórkostlegt kvikindi... :)
Ég hef aldrei slegist eins mikið við nokkurn mann eða dýr en þennan kettling undanfarna viku... Dásamlegt, þetta er frísk og skemmtileg læða og hefur óendanlega gaman af því að glíma við hendina á mér og bíta á alla lund.
Svo nota ég hana líka sem varðkött gegn illu, vitstola og nötrandi kanínunni...
Ef hún væri handboltalið myndi ég öskra: "Áfram Emma!!!" hnuss hnuss hnuss hnuss hnuss!!!

Bestu Kveðjur,
Svabbi.

p.s. Svo vil ég bara minna á blessuð lögin mín, sem finna má hér á vefnum. Mér þykir ofboðslega vænt um það að svo margir hafa náð í þau... Því miður var útgáfan af Scratching the surface eitthva biluð hjá honum Jóni.is, svo við skiptum henni út fyrir betri útgáfu. Hún virkar betur. (hins vegar datt lagið alla leið niður vinsældalistann hjá honum Jóni, var næstum komin upp hálfa leið á toppinn...

Svo vil ég líka benda ykkur á ótrúlega flott band, Gímaldin og 5ta herdeildin, sem munu spila á Vídalín í Aðalstræti þ. 24. feb n.k. Þau eiga hálft lag á kistunni, hér er slóðin á kistunni... Loftur, bassaleikari Herra Muzak, er meðlimur í 5tu herdeildinni og semur lagið, sem er ótrúlega morbid og flott íslensk þjóðlagatónlist. Áfram Gímaldin!!!


[ 0 ]
föstudagur, febrúar 15, 2002
 
Henti inn einu lagi í viðbót...


Hulló...
ég setti inn eitt lag í viðbót...
Það heitir Englabörnin og þið getið nálgast það hér...

Lagið var tekið upp bara svona rétt til að prufa hvernig það hljómaði... endilega ekki halda að þetta sé einhver loka útgáfa, en þið megið samt hlusta...

Bestu kveðjur,
Herra Muzak


[ 0 ]
 
Að láta ríkið borga með sér

Ja hjerna, detta mjer nú allar dauðar lýs af höfði... Geir og fleir farnir að rífast um skólagjöld... Það gamla þrætuepli súrnar seint...
Einn punktur...
Ef einhverjum finnst ríkisrekinn skóli eða sjúkrahús ekki nógu gott fyrir sig, þá á hann að borga það með sínum eigin fokkíng peningum!
Ef mig langar í "betri" menntun en í opinberum háskóla, þá skal ég bara borga fyrir hana SJÁLFUR!!! Ef ég vil endilega komast í "betri "heilsuþjónustu en á landsspítalanum, af hverju get ég ekki bara borgað hana sjálfur. Til hvers að kalla einkaskóla "Einkaskóla" þegar ríkið borgar fyrir allan rekstur nema einhvern lúxusbónus sem menn vilja fá. Ef einkaskólar væru alvöru einkaskólar, þá myndu menn borga fyrir þá EINKA!!! Punktur... (Engin ríkisafskipti af einkageiranum)
Þetta er eitt af mínum hægrisinnuðu sjónarhorn, ef geir telur sig í alvörunni hægri mann, þá hlýtur hann að sjá einhverja skynsemi í því, eða hvað???
Bestu Kveðjur
Svabbi


[ 0 ]
 
Gamla góða forræðishyggjan sigrar að lokum

Jæja, þá er ríkisstjórnin búin að festa í sessi stalíníska forræðishyggjustefnu sína í efnahagsmálum. Þeir hafa endanlega lýst því yfir að Austfirðingum sé ekki treystandi til að halda uppi eigin atvinnulífi og ríkið verði að sjá um alla í þeim landshluta, ríkisrekni landshlutinn Austfirðir. Fjandinn hirði allar hugmyndir um sjálfstæða, jafna og örugga uppbyggingu atvinnulífs og þekkingar, reddum þessu með einu góðu álveri, og þá eigum við nokkur hlý ár í viðbót í ímignum skóm. Dásamlegt. Valgerður Sverrisdóttir er ógeðsleg kona... Mér býður við henni. Þegar ég horfi á hana í sjónvarpinu talandi eins og einhverja nöldrandi sveitastjórnarkellingu í Grenivík líður mér eins og ég sé að rífast við mömmu mína eða eitthvað enn verra. Þetta gerpi getur ekki annað en snúið út úr, varpað fram ómálefnalegu taði og nítt hvern þann sem er henni ósammála. Og svo er þessi múndering á henni alveg hræðileg, hún lítur út eins og eitt af vagnsbörnunum frá Bolungavík með þessi ógeðslegu gleraugu. Þetta eru svona gleraugu sem fimmtugar kellingar fara í af því að þær sáu Helgu Möller í þeim, og halda að hún sé ennþá tvítug syngjandi í þú og ég... Svona misskilnings Bylgjuhlustendagleraugu... AAAARRGHHHHH!!!!!
Ég meika ekki þessa hópheimsku sem umlykur fólk! "Álver er eina lausnin... hnmö hnmö hnmö... Hvað eigum við þá að gera, éta fjallagrös??? hnmö hnmö hnmö.... Eigum við þá ekki bara að hætta að lifa á þessu landi, hætta alveg að nota rafmagn??? hnmö hnmö hnmö???"
Þetta er eins og þegar maður var að rífast við jafnaldra sína í 5. bekk. "Á ég þá ekki bara að henda öllu dótinu út um gluggan, fyrst þú vilt ekki að ég leiki mér með þennan bíl af því að frændi þinn á hann??? Hnmö hnmö hnmö???"
Djöfuls rugl...


Það verður hreint dásamlegt að koma á Hérað eftir nokkur ár þegar meðalhitastigið hefur lækkað um svona eins og eina gráðu, sökum ískalds og hækkandi Lagarfljóts, nammi namm. Það verður líka dásamlegt að koma á Reyðarfjörð og heilsa upp á Álbæinn, þar sem allir eru klæddir í eins vinnugalla og vinna hjá sama fyrirtækinu og vinna á þremur vöktum og lalalalala. Það verður fjölbreytt og skemmtilegt samfélag...

Bestu Kveðjur,
Svavar Knútur


[ 0 ]
 
Kanínukrónika


Ólukkan ríður ekki við einteyming í samskiptum mínum við kanínuna.
Ég hef komið henni fyrir í stofufangelsi (herkví) í stóru búri í horni svefnherbergis dóttur minnar á austurbakkanum... Skriðdrekar og hríðskotarifflar mæta henni þegar hún lítur út um rimlana á þessu annars vistlega fangelsi...
Þó hefur Pálína það fyrir sið að hleypa henni út einu sinni á dag til að viðra sig (inni í íbúðinni) og finnst mér það hið mesta glapræði... Sérstaklega þar sem hún nýtir hvert tækifæri sem henni gefst til að stökkva upp á rúm dóttur minnar og skíta og míga eins og hún eigi lífið að leysa. Pálína skrapp út úr herberginu í u.þ.b. tíu sekúndur til að svara símanum og þegar hún kom til baka var kanínuhelvítið búið að skíta 38 kúkakögglum á rúmið, RATATATATATATATATATATATATATATATATATATA!!!! og míga í sængina... Þegar ég kom heim brást ég hinn versti við og öskraði, rauður eins og paprika í framan, á kanínuna að alþjóðasamfélagið hefði sko alls enga samúð með málstað hennar, búrið væri nógu góður staður til að skíta...
Endilega sendið mér póst til að lýsa yfir stuðningi við Ísra.... Málstað minn... Annars getið þið líka sent kanínunni póst og lýst yfir samúð ykkar...

Bestu Kveðjur,
Herra Muzak


[ 0 ]
fimmtudagur, febrúar 14, 2002
 
Ekki vera reiður Gummi... :)

Æ, ég vona að ég hafi ekki styggt Gumma Jóh... Ég vissi alveg að þú vissir að þetta væri meira í ætt við gömlu Arethu Franklin útgáfuna...
Áhersla mín var þó meir á að þetta eru bara krakkar að leika sér og við eigum að styðja þau. Þau eiga eftir að þroskast og verða flott eins og við hin... :-)
Þetta með að pússa poppfræðin var bara upp á djók, eins og þú sagðir: Mr. Myagi... hittir naglann á höfuðið sæti strákur.

Með auðmjúkri karate kid kveðju,
Herra Muzak
ekkert nema brosið eitt...


[ 0 ]
 
Hugmynd að þætti til að leysa af Maður er nefndur...

Eins og allir vita hefur verið mikil umræða í samfélaginu um hvaða gæðaefni skuli leysa af þann frábæra þátt Maður er nefndur.
Ég er með alveg frábæra hugmynd að slíkum þætti...

Endurskoðendasögur!!!
Þetta geta verið harmsögur, skaupsögur, sögur úr daglega lífinu, anektótur (sögur sem eru ekki beinlínis fyndnar en samt nokkuð skondnar.)
Í hverri viku væri þjóðþekktur endurskoðandi tekinn tali og beðinn um að deila sorgum sínum og gleði með landanum. Frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna.

Nú geta afi og amma og börnin setið saman og hlegið dátt og grátið með ævintýrum lifaðra, en lífsglaðra endurskoðenda.
Ekkert bugar endalausa lífsgleði endurskoðandans, lífsdansinn er stiginn af óforséðum þrótti...

Brot úr viðtali við Vigfús Breiðfjörð, endurskoðanda í Skipholtinu:

"Ég man, eitt sinn, fyrir átta árum..." - hnekkir höfði, hlær gáskafullt 2,3 sekúndna þögn og ræskingar - "þá kom til mín eigandi söluturns, 12. mars 1994 kl: 15:52, rétt fyrir skiladag... Sá var nú aldeilis óhress skal ég segja þér... Hann hafði bakfært kreditnótur á rekstrarreikninginn og var í algjörum bobba með lífeyrisskuldbindingar tveggja stúlkna sem hann vissi ekki hvort væru í VR eða Eflingu, því önnur þeirra vann lítið við afgreiðslu... Nú nema hvað, ég sagði bara 'nú ertu í bobba væni minn' og hófst handa við endurskoðunina. Þá kom í ljós að hann hafði gleymt að færa inn nótur frá nokkrum birgjum, svo nú byrjuðu lætin fyrir alvöru skal ég segja þér!!!" -hlær aftur, gáskafullt í 1,8 sekúndur

Já, húmorinn og galsinn er allsráðandi í þáttunum Endurskoðendasögur!!! Þar sem Hannes Hólmsteinn Gissurarson og bein Jóns Sigurðssonar taka menn tali.

Bestu Kveðjur,
Herra Muzak

p.s.
mér hefur borist skeyti frá félagi löggildra endurskoðenda þar sem ég er beðinn um að hætta þessum endurskoðendabröndurum. Þeim finnst þeir víst ekkert fyndnir, en sannleikurinn verður að segjast!!!


[ 0 ]
 
Slappaðu af Gummi Jóh! :)

Gumma Jóh blöskrar pínulítið verslóútgáfan af "slappaðu af".
Mér þótti þetta fara bara ansi nærri gömlu útgáfunni, þó að auðvitað vanti allt kannabis og kynlíf inn í spilamennskuna, og þrátt fyrir að vera krakki var ansi mikið fútt í stráknum (hann er auðvitað bara strákur, en hann stóð sig bara vel).
Ekki það að ég sé neitt sérstakur aðdáandi verslógjörninganna, en þau eru bara "lítil börn" að leika sér.

Punktur: Ef ég heyrði rétt utan af mér, þá hefur verið svolítil old-time - Blues Brothers - soul vakning hjá þessum krökkum í versló, og mér finnst það bara frábært (þó ég sé gamall MHingur og hafi náttúrulegar efasemdir um ágæti þess að búa til söngleiki úr hitturum fortíðarinnar án þess að gera nokkurn skapaðan hlut skapandi við þá...).

En strákurinn stóð sig vel miðað við aldur og fyrri störf, og þetta lag er bara svona upphaflega, þannig að Gummi Jóh verður bara að pússa upp á poppfræðin... :)

tíhíhí

Herra Muzak


[ 0 ]
 
Ég á einkaleyfi á prumpi

Í ljósi þess að brekst fyrirtæki er nú að reyna að sannfæra bandarískan dómara um að það eigi einkaleyfi á tenglum (hyperlinks), hef ég ákveðið að fara fyrir rétt með einkaleyfi sem ég hyggst hafa skráð fyrir tíu árum... Prumpi... Allir prumpa, og nú þurfa allir að borga mér fyrir það!!! MOUHAHAHAHAHA, HEIMURINN ER MINN!!!!

djöfulsins heimska maður :)

Herra Muzak


[ 0 ]
miðvikudagur, febrúar 13, 2002
 
Rétt skal vera rétt

Geir skrifar í enn einu múrhögginu:
"Í dag er enn og aftur skrifað um ókosti alþjóðavæðingar (þ.e. kosti einangrunarstefnu):
> Alþjóðavæðingin felur nefnilega ekki bara í sér lækkun tolla og afnám hvers kyns viðskiptahamlana, ...
Þetta er sagður ókostur í þessari grein."

Geir, nú talarðu út um afturendann á þér! Ég las þessa grein, og höfundur telur skýrlega að lækkanir tolla og afnám viðskiptahamlana séu af hinu góða. Hins vegar segir hann að Alþjóðavæðing eigi sér fleiri og óþægilegri fylgifiska. Trúverðugleiki þinn minnkar skjótt ef þú getur ekki fjallað málefnalega um andstæðinga þína.
Það er auðvelt að vera fyndinn hrokagikkur í skólasamfélaginu og vera svona prívathúmoristi sem er á móti öllu og öllum sem ekki fylgja sanntrúað manns eigin skoðunum, en smám saman verður sá hæfileiki mikilvægari að geta skilið hvað annað fólk er að segja. Þá renna hvers kyns spraðabassar og flautaþyrlar á bossann og standa ekki upp aftur. Háðtrúðar eiga sér ekki viðreisnar von og verða í besta falli á svipuðum stalli og Hannes Hólmsteinn, sem þó getur stundum sett sig í spor sessunautarins og fundið örfáa kosti á hans málstað.

Þetta er alls ekki skrifað sem nein árás á Geir, þann ágæta dreng, sem ég veit fyrir víst að er góður bæði við börn og lítil dýr (og nú meina ég þetta alls ekki sem hæðni eða illkvittni). Heldur til að undirstrika mikilvægi sanngirni í skrifum. Ekki snúa út úr því sem fólk skrifar.

Bestu Kveðjur og verið góð,
Herra Muzak


[ 0 ]
 
Djöfull er ég sexí í latexbrjóstahaldara og nælonsokkum...

Hér var tvítekin færsla, þannig að ég verð bara að segja túrílú...


[ 0 ]
 
Siggi Palli á góðan punkt...

Siggi Palli skrifaði í gær ansi skemmtilegt rant á www.zatoland.com, mæli með að hrokagikkir og siðgæðis/stafsetningarlöggur allra landa sameinist og lesi þennan texta hans. Þetta er sannkölluð málsvörn hins lífsglaða leikmanns. Maður þarf ekki háskólamenntun eða topp stafsetningu til að skilja um hvað lífið snýst. ÁFRAM SIGGI PALLI!

Með lífsglaðri kveðju,
Herra Muzak


[ 0 ]
 
Stúdentapólítík...

Þreyttur... Ekki blogga mikið, bara ponsu, svo sofa...

Undanfarna daga hafa fjölmargir aðilar kvatt sér hljóðs á netinu og velt vöngum yfir stúdentapólítíkinni og komið fram með sínar hugmyndir um fyrirbærið. Nægir þar að nefna fólk eins og Bjarna, Björgvin, Ágúst Flygering, Óla Njál, Gulla, Geir, Katrínu og fleiri mæta menn (og konur).
Bjarni og fleiri hafa spurt sig hver tilgangurinn er, hvaða máli skiptir hver situr hvar hvað og hvernig... Til hvers er stúdentapólítík.
Orðið Pólís er grískt og þýðir borg, pólítík var þannig stjórnsýsla borgríkjanna fornu. Pólítík snýst um það hvernig við hyggjumst veita sameiginlegum kröftum okkar sem samfélags. Námsmenn eru samfélag, og snýst stúdentapólítíkin um það hvernig veita skuli sameiginlegum kröftum og afli stúdenta í þeirra hag. Oft getur samfélagið áorkað einhverju sem einstakir einstaklingar gætu seint ef nokkurn tímann vegna ósamrýmingar.
Því miður / sem betur fer, hefur munurinn á fylkingunum minnkað stórlega og er nú einungis áherslumunur, spurning um fínstillingu á sjálfstýringu stúdentasamfélagsins. Hugmyndir um hægfara og sígandi breytingar eiga mikið brautargengi (og vissulega er það bara hluti af sögunni, tímabil, við þurfum vonandi ekki að bíða lengi eftir næstu kynslóð róttæklinga og "Vinstri vitleysingja/Hægri Heimskingja", þá verður allt svo gaman.)
Ég er sjálfur óskaplega rokkandi milli vinstri/hægri hugmynda, og get seint fest mig. Mér finnst bara ungir sjálfstæðismenn svo leiðinlegir, hrokafullir og hallærislegir *square* að það hálfa væri nóg... Þá fór ég yfir til ungu sósíalistanna og þeir voru svo miklir hrokagikkir og óánægjumenn að ég veit ekkert í minn haus.

ókei...
vandamálið er það að margir virðast hafa týnt tilgangnum í pólítíkinni sjálfri undir öllum umbúðunum og vitleysingjunum sem hana stunda. Pólítíkin er aldrei fallegri eða dygðugri en þeir sem hana stunda. Þessi týndi tilgangur er hið raunverulega áhyggjuefni. Allir eiga að velta fyrir sér pólítík, hvort sem það er sveitastjórnarpólítí, landsmálapólítík eða stúdentapólítík, því eins og pápi heitinn sagði, "Þeir sem er sama um stjórnmál eru í raun að segja að þeim sé alveg sama þó aðrir stýri þeim, stjórni þeim, eigi þá. Þeir geta eins afsalað sér kosningaréttinum fyrir 50.000 kall."

Vaka og Röskva eru náttúrulega bara vaka og röskva og fólk þyrpist í þessar fylkingar af sínum eigin ástæðum, einhverjar hljóta þær að vera, en ég held þó að þær séu ekki þær að Vökumenn eigi einkaleyfi á því að vera lýðræðissinnar og Röskvumenn eigi einkaleyfi á félagslegri hugsun. Þetta hlýtur að vera flóknara en svo...

Með pólítískri kveðju,
Herra Muzak


[ 0 ]
þriðjudagur, febrúar 12, 2002
 
Enn bætist í hópinn

Það er mér sönn ánægja að tilkynna að vinur minn hann Drengur hefur bæst í hóp íslenskra bloggara.
Drengur flogar á slóðinni drengur.simnet.is og er einn af klárustu mönnum sem ég þekki (auðvitað fyrir utan mig sjálfan).
þar að auki er Drengur hundtryggur aðdáandi Herra Muzaks og hluti af ósigrandi her mínum.
ÁFRAM DRENGUR!!!

Hlakka til að sjá hvað hann hefur til málanna að leggja.

Grúví fílíngs,
Herra Múzak


[ 0 ]
 
Knöh!!!

Glæsilegt, bara orðinn hælbítur... :(
Svo ég vitni í eigin texta úr ræflarokkskvæðinu, "Við erum svo fúlir af því við unnum ekki músíktilraunir", þá segi ég bara, "Dr. Gunni á ekki skilið að deyja!!! Hann er góður gæi!!!"
Mér finnst gaman að dissa Svölu B. og þetta jórturdýr sem hamaðist við að reyna að vera eitthvað annað en það er...
Mér finnst Skífan vera geldingarstál á Íslenskan poppkúltúr og tónlistarvitund, þar sem þeir nota markaðsráðandi stöðu sína til að halda metnaðarlausum afurðum að fjöldanum. Fjöldinn er heimskari fyrir vikið... (hrokafulli Svabbi talar). Ef það gerir mig að hælbít, þá er hællinn bara ágætis staður til að byrja að bíta... Einhvers staðar verður maður að ná taki, og helvítis Skífan er svo stór að ég næ henni ekki nema upp í hæl. :-)
<mikilvægt>Don't get me Wrong, mér fannst bæði sálin og xxx rottweilerhundar fullkomnlega eiga skilið verðlaunin og það fór ekkert í taugarnar á mér, það sem fór í taugarnar á mér er að þetta eru ekki lengur uppskeruhátíð tónlistarmanna, heldur bakklappshátíð Skífunnar.</mikilvægt>
Bestu Kærleikskveðjur,
Herr Muzak ist sehr Gemütlich...
Ich liebe ihn allesammen...

p.s. ég held að ég sé algerlega sammála Dr. Gunna með Radíó X. Linkin Park og Papa Roach eru boybandapopp pönkrokksins. Þetta er ofhlaðinn, ofunninn og ofsykraður mænuskaðabúðingur sem engin eftirsjá er af. Mér finnst bara synd að ekkert sé eftir nema Rás 2. Rás 2 rúlar samt!


[ 0 ]
mánudagur, febrúar 11, 2002
 
Lagi lagi lagi...

Tékk it át! búinn að laga vefinn svolítið til, gefa honum andlitslyftingu sem snöggvast... Þýddi líka smá yfir á ensku, þannig að nú getur fólk í útlöndum nálgast mússíkina... :)
Hlusta á músík, vera happí...

Gaman að fá góðar pælingar frá ... En ég held að Már hafi, með fullri virðingu, ekki alveg náð kjarnanum í ræpunni.
Ég er alls ekki ósáttur við mína eigin stöðu, því fer fjarri. Ég nýt virðingar og velvildar og það er ótrúlega fínt. Sárindapælingin var bara til að krydda textann. Mér þótti hins vegar mjálm/whiggerrapsena Svölu virkilega "nauseating".
Hins vegar er stór hluti fólks sem trúir því að það sé ekki til nein önnur tónlist en Svala og Palli Rós... Það er einhliða markaðsöflum ríkulega að þakka.
Meginpunkturinn er sá að fullt af krökkum sem eru að gera góða hluti og eiga skilið að njóta athygli fólks (ekki ég neitt spes) en klíkuskapurinn og meðalmennskumiðjumoðið halda þessu unga og klára fólki frá eyrum heimsins. Ég fagna því sem er að gerast núna, netútgáfunni og uppreisninni gegn bákninu. Ég er stoltur af því að vera hluti af því, og ég er þakklátur fyrir ÞÚSUNDASTA HITTIÐ!!! :-)

Bestu Kveðjur í bili,
Svabbi óbitri.


[ 0 ]
 
Vesen???

Fólk hefur skrifað mér og bent á það að það er gjarnan erfitt að hlaða lögunum niður af jóni.is... Þetta er eitthvað helvítis quicktime vesen... Ég er nú samt búinn að gera eitthvað til að laga það... Kíkið á textasíðuna mína og klikkið á það (af þessum þremur lögum sem eru komin) lag sem þið viljið hlaða niður. Þar er smá "troubleshooting guide." Gangi ykkur vel...
Með þreyttri og lasinni kveðju...
Svabbi Muzak


[ 0 ]
 
Nýtt Lag handa ykkur...

...og svona rétt til að gleðja ykkur ákvað ég að setja ófullkomið og óklárað demó af The Tiger and The Teddy Bear á síðuna mína... :) Lagið fjallar um hina sönnu vináttu.
Við Siggi Palli tókum þetta upp á Aðfangadag jóla s.l.
vinsamlegast nálgist hana með því að klikka hér, hér eða hér !
Hlakka til að heyra Komment
Ef þið eruð eitthvað að fíla þetta, endilega tékkið á að senda áfram hlekkinn á hana og styðja mig í átaki mínu fyrir óhefðbundinni heimsfrægð. :-)


[ 0 ]
 
Af gefnu tilefni

vil ég taka það fram að ég er ekki bitur maður (og nú klingja viðvörunarbjöllurnar sem segja, sá sem segist ekki vera bitur er yfirleitt bitur, sbr. "Ég er sko ekkert bitur!!!")
Ég er bara súr yfir því að skífan skuli breyta öllu sem hún snertir í skít og þessi fína partýsena skuli vera hafa orðið skítahönd Mídasar Skídasar hins seinni að bráð.
Einnig vil ég taka fram að ég þjáist síst af öllu af öfund eða vanlíðan í garð þeirra sem fá sína tónlist útgefna og públiseraða af markaðsmönnum og PR liði skífunnar.
Það fólk sem hlustar á, og fílar tónlistina mína, er akkurat fólkið sem ég vill ná til. Og sko til, ég fer bráðum að gefa út plötu, og þá mun kannski fólk kaupa hana á kostnaðarverði og gúdd sjitt. Ég stefni á heimsfrægð, en ekki á neinum markaðsforsendum, heldur mínum eigin, og ég þakka ykkur öllum fyrir að taka þátt í því með mér. :)

Ekki bitur,
Herra Muzak, brosandi og blíður



[ 0 ]
 
Sorgleg jarðarför góðrar hugmyndar...

Ég ákvað í gær, þrátt fyrir vissar efasemdir, að horfa á uppskeruhátíð stéttar minnar, íslensku tónlistarverðlaunin.
Þessi hátíð hefur lengi haft þann stimpil að vera prívat klúbbpartý tónlistarmanna, þar sem Helga Möller, Eva Ásrún og Gulli Briem rifja upp gömlu dagana á meðan Meðlimir Mezzoforte og Björk raka að sér verðlaununum og einhver smábarnahljómsveit eins og Botnleðja fá "bjartasta vonin" prísinn. Einhverjum þótti þetta miður, og ekki nógu mikil kynning fyrir íslenska tónlist. Og þá fæddist hugmynd...
"Látum Viðskiptaráðuneytið, menntamálaráðuneytið, Samtök Hins Íslenska Plötuútgefanda, og fleiri hagsmunaaðila kosta og sjá um hátíðina, og látum aðal- hóru og dólg Íslands í senn, Einar Bárðarson, stýra framkvæmdum. Það hlýtur að ganga flott upp..."
OJ!!!!
Þvílík drulla!!! Ég kunni miklu betur við þetta á meðan íslensku tónlistarverðlaunin voru bara léttúðugt fylleríspartý FÍH.
Fyrir utan mína augljósu fyrirlitningu á Einari F***ing Bárðarsyni, var þetta enn ein helvítis gerviglamúrsamkoman þar sem öllu er fórnað fyrir beinu útsendinguna í Sjómbinu.
Svala Björgvins kom þarna og mjálmaði lagið sitt í úmptánda skipti (eins og það selji plötuna hennar eitthvað frekar) með einhvern dídjeiræfil sem mæmaði eins og hann ætti lífið að leysa, og brosandi dansara sem hoppuðu afkáralega í bakgrunninum og létu Svölu líta út eins og Búlgarsk-pólska útgáfu af Jennifer Britney flagúlego Simpson Aguilera Spears vottever... Og til að Trompa Viðbjóðinn, kom einhver ræfill í derhúfu og of stórum I (hjarta) NY T-bol... Hann reyndi að vera svartur en var bara sorglegur. "Vossöpp vossöpp yoll yoll yeah yeah, lemme see you bánsjóll... bánsjóll, jú óver ðer... Hann var svona Politically Correct skífuútgáfa af gervihipphoppara... Tvöfalt lús... Kannski héldu þeir hjá skífunni að þeir gætu gert eitthvað kúl með því að setja tvö hallærismerki fyrir framan, en það gerði það ekki. Þetta var bara mínus kúl mínus kúl, sem gerir mínus tvö kúl...
Ég gef mig ekki út fyrir að vera neitt sérstakt yfirvald í kúlefnum, en þetta atriði var sorglegt og eini virkilega góði punkturinn var Hilmar Jensson Gítarleikari sem benti á augljósan sannleik. Hilmar sagði þessa hátíð (ekki í svo mörgum orðum) orðna að nokkurs konar hallelúja hátíð plötuútgefanda þar sem "Björtustu vonum" plötusölunnar er hampað í hvívetna.
Hilmar sagði það sem allir tónlistarmenn á staðnum voru að hugsa... Hann langaði aftur inn á súlnasal Hótel Sögu í gamla góða partýið, í friði fyrir öllu kjaftæðinu, þar sem Eyþór í Mezzoforte og Siggi Flosa komu hvor um sig tíu sinnum upp og sögðu bara "takk fyrir" í stað allra helvítis óskarræðanna. (ekki svo að ég myndi ekki óskarast myndi ég vinna eitthvað svona í beinni...)
En þetta var eins og að horfa á jarðarför gömlu góðu tónlistarverðlaunanna og skírn Skífu-kiss-ass-við-sponsum-bara-það-sem-við-gefum-sjálfir-út-narsissistaverðlaunanna.
Fokk it...
Ekki svo að ég sé bitur... Ekki fæ ég nein verðlaun... Dóh!!! :-)
Mig langar að sjá gömlu góðu tónlistarverðlaunin aftur, en það er líklega ekki hægt, því eina leiðin til að Valgerður Fokkin Sverris hlusti á okkur tónlistarmenn og geri eitthvað til að hjálpa okkur í útflutningi og markaðssetningu á tónlist er að leyfa peningamönnunum að smyrja hjólin... Það sem ég hef áhyggjur af er hins vegar það að einungis skífuartistar fái þann stuðning sem ríkið mun bjóða í framtíðinni og gersamlega talent-, sálar- og boðskapslaust pakk eins og Svala Björgvins fái stuðninginn. Alvöru listamenn halda hins vegar áfram að hírast í köldum bílskúrum eða geymslum og ströggla við að koma út þriggja laga demódiski til einhverra sem vilja hlusta án fordóma. Einhverja sem spyrja ekki fyrst, "Er hægt að selja þetta strax?" í stað þess að spyrja "Er þetta góð tónlist?"

Bestu Kveðjur,
Svavar Knútur - Herra Muzak
í fúlu skapi yfir brostnum vonum... :-)


[ 0 ]
föstudagur, febrúar 08, 2002
 
Ævintýri Veraldarvana Endurskoðandans


Hann greip þéttingsfast um mitti hennar, eins og um væri að ræða skattaframtalseyðublað 342-B-23 á vindasömum vordegi, rétt fyrir skilafrest. Hún brosti, en angist, ótti og sársauki skinu út með geislum brossins. Þvílíkt ársuppgjör... Það voru innsláttarvillur í andliti hennar, kommur, þar sem punktar áttu að vera. Eða kannski var þetta engin innsláttarvilla, kannski var hún að reyna að blekkja hann, með tvöföldum bókum... Hann læsti augunum í andlit hennar, rýndi í hvern baug, hverja húðflögu, fílapensil og bifhár sem bugðuðust upp innistæðulaust andlitið.
"Þú munt aldrei verða mín!" sagði hann hásum róm um leið og hann hristi hana af sér. "Í þér brennur ekki bál ástarinnar, heldur aðeins örvæntingarfull glóð miskunnar, vorkunnar. Þó ég noti axlabönd og hornspangargleraugu eins og Valgerður Sverrisdóttir, þýðir það ekki að ég sé mannleysa, tómur, fáfróður um heimsins gang. Hann gekk í burtu hröðum skrefum og stappaði við hverja prímtölu. STAPP, STAPP, STAPP, labb, STAPP, labb STAPP, labb, labb, labb, STAPP, labb, STAPP, labb, labb, labb, STAPP, labb STAPP.
Hún féll á hnén. "Komdu aftur Erlendur Brynjarsson, Komdu aftur!!! Ég þrái að komast aftur í vel snyrtar og nákvæmar hendur þínar, og umlykjast 50%bómullar/50%pólýester - klæddum örmum þínum, komdu aftur Erlendur Brynjarsson, Komdu aftur!!!!"
Hann hélt áfram sína leið, kannski hafði hann gert mistök, kannski hafði hann lesið rangt í tölur andlits hennar, en stolt endurskoðandans varð ekki bugað... labb, labb, labb, STAPP, labb, labb, labb, labb, labb, STAPP... (Honum létti alltaf þegar prímtölunum fór fækkandi... Honum leið ekki eins utangátta, öðruvísi, en hann bara varð að stappa á prímtölunum... aaahhh..þrjátíu og sjö STAPP...)


Bestu kveðjur frá Herra Muzak...
OG munið eftir lögunum mínum, Scratching the Surface og Happy Song


[ 0 ]
 
Ég er kynóð, rauðhærð 15 ára óreynd, en óþekk unglingsstelpa með æði fyrir latexundirfötum...

Ég biðst afsökunar á þessari fyrirsögn. Hún var sett þarna til að trekkja að perverta og graðnagla... (mig langar að skríða yfir þúsundið...)
Bestu Kveðjur,
Svabbi


[ 0 ]
fimmtudagur, febrúar 07, 2002
 
Nýja Lagið mitt Komið!!! Heimsyfirráð eða DAUÐI!!!

HEYHEYHEY
Hear Ye Hear Ye!!!
Nýja Lagið mitt er komið upp hjá Jóni Ólafssyni. Jón.is er búinn að láta lagið mitt inn svo nú getið þið náð í það Hér.
Nýja lagið heitir Scratching the Surface og er búið að vera í hausnum á mér í ár, poppaði síðan upp tilbúið á föstudaginn sl. Ég tók það upp, og það gekk bara ágætlega.
Það fjallar um hvernig mér liði ef líf mitt færi í kaldakol.
Svavar stefnir á heimsfrægð og ekkert styttra en það... Þá kemst ég kannski eitthvert...
Hjálpið mér nú!!! Segið öllum frá og miðlið tónlist minni til heimsins... :-)
Ykkar Vinur
Herra Muzak

p.s.
Hlakka til að heyra komment frá ykkur
Svo vil ég bara minna á Gamla lagið mitt Happy Song, sem er að bægslast rólega upp vinsældarlistann hans Jóns Ó. (komið í topp 40 ekki slæmt)
Og svo er auðvitað tónlistarsíðan mín, þar sem allir textar og ávísanir á lög eru, bara að minna á hana líka... Klikkið bara á "músíker..."


[ 0 ]
þriðjudagur, febrúar 05, 2002
 
Nýtt lag á leiðinni *lagfært*

Ég er búinn að ákveða að gefa út plötu...
ég er kominn með þrjú ákveðin lög á hana og er að velja restina...
Nýtt lag er á leiðinni á vefinn, fylgist með næstu daga... Samdi það á föstudaginn...


Platan á að heita: "Herra Muzak syngur fyrir börnin"
Á ensku: "Mister Muzak sings for the Children"
Á dönsku: "Fætter Muzak singer for börnen" (Takk Hrafnkell, en ég kann ekki að gera danskt ö...)
eða á þýsku: "Herr Muzak singt die schöneste Kinderlied" (Danke Unnur)
og svo á frönsku: "Monsieur Muzak chante pour les enfants" (Unnur, geturðu hjálpað mér) (Merci Unnur)

kann einhver að segja þetta á fleiri tungumálum? Ég skora á ykkur að bæta við þennan lista...

Í alvörunni... ég er búinn að ákveða að gefa út plötu... Þetta verða svona átta til tíu lög og Siggi Palli verður með tvö eða þrjú... (jafnvel fjögur)
ókei.. ég set lagið á vefinn á næstu dögum...
Bestu Kveðjur...
Svavar Muzak


[ 0 ]
Virka þessi Drösl???