Þankatankurinn



Svavar Knútur
Kristinsson,

Félagsauðströll, heimspekingur, umhverfis-verndarsinni og tónlistarmaður.

Ímeilaðu
mig...

NÝTT!!!
Viltu fá
(eða hætta að fá)
tilkynningar
um tónleika
HRAUNS!,
eða Svavars Sjálfs?
Sláðu inn
netfangið hér:



This page is powered by Blogger. Isn't yours?




Hljómsveitin Hraun! veitir mér listræna útrás.

Hraun á Myspace

Sjálfurinn á Mæspeis

Nýjustu Demó:

Ease your mind (01.07.2006)

Dansa... (28.09.2005.)

Ástarsaga úr fjöllunum (Sumarið 2005)

Goodbye my lovely (19. júní 2005)

Kisa litla (Maí 2005)

Your love was death to me (Janúar 2005)

Call off your Cavalry (September 2004)

You should call a doctor (Maí 2004)

Kysstu tímaglasið (endurbætt útgáfa 2004)

Mother's day
( 2004)

Jólaplata Hrauns 2003: Þrautgóðir á Hraunarstund

Jólaplata Hrauns 2004: Kátt er um jólin

Partýplatan Partý!

Jólaplata Hrauns 2005: Höldum jól

Jólaplata Hrauns 2006: Jólamolar



Latur myndasmiður, en engu að síður er hér að finna eitthvað efni...

Molar...


 
þriðjudagur, apríl 30, 2002
 
Kúl próf á KREML.IS

Maður tekur þetta próf og málið er staðfest, ég er andstæða Stalíns, Hitlers og Margrétar Thatcher... Minn er sumsagt
Economic Left/Right: -2.50 (plús þýðir hægrisinnaður í markaðskerfinu og mínus þýðir vinstrisinnaður)
Authoritarian/Libertarian: -7.90 (Plús þýðir forræðishyggja og mínus þýðir frjálslyndi)
hér er hnitakerfi stjórnmálanna...

ég er dulítið fyrir neðan og hægra megin við Gandhi... (skalinn er einn til tíu)
Hafðu þetta Geir, ég er enginn helvítis forræðishyggjumaður þó ég vilji hafa ponsu taumhald á stórfyrirtækjum og peningavaldinu...

HAHAHA :)

Svavar Muzak


[ 9 ]
mánudagur, apríl 29, 2002
 
Hvernig tilfinning ætli það sé...

... að deyða sitt eigið afkvæmi???

<Aðvörun: morbid rant>
Í gær tók ég harkalega í dóttur mína sem var býsna óþæg. Ég byrsti mig við hana og skammaðist í henni, síðan reif ég hana úr peysunni og skellti henni í rúmið sitt...
Eftir tíu mínútur var ég að deyja úr samviskubiti... Djöfull hafði ég verið vondur við hana, ég vonaði innilega að þetta yrði ekki eitt af þessum augnablikum sem brenndist í minni hennar til dauðadags og hún yrði bitur Bríettu-karlahatari fyrir lífstíð.
... Allt út af því að ég greip í höndina á henni og skammaði hana...

Ég hélt að mér hefði liðið illa...
Skoðum annað dæmi...

Geðsjúk kona deyðir barnið sitt, níu ára dóttur...
Ef að mál Árna Johnsen var mannlegur harmleikur, hvað var þá þetta?

Getið þið í örstutta stund reynt að setja ykkur í spor manneskju sem vaknar af stundarbrjálaði og áttar sig á að hún hefur myrt sitt eigið barn?
Nei, það er ekki hægt... Ég veit ekki hvernig tilfinningin er, en ég veit að hún er verri en nokkuð sem ég get ímyndað mér.
Ég vil biðja ykkur öll um að sýna þessari veiku konu samúð... Ég veit ekki hvernig, en hugsið til hennar... Biðjið fyrir henni... Henni líður hörmulega og er í stórkostlegri hættu á að fremja sjálfsmorð.
Ég veit hvernig mér leið þegar ég hafði valdið dóttur minni tímabundinni hræðslu og sársauka, en vá... Þetta hlýtur að vera milljón, grilljón, trilljón sinnum verri tilfinning. Sál þessarar konu er væntanlega í molum og sektarkenndin óbærileg.

Nú langar mig að skrifa meira, en ég veit ekki hvað skal segja. Ég er í rusli yfir þessu...

</Morbid ranti lýkur>

Þó ég sé ekki trúaður vona ég að þið biðjið fyrir þessari konu þó það sér erfitt. Hún upplifir nú sárustu tilfinningu sem mannleg orð geta eða geta ekki lýst.

Bestu Kveðjur,
Svavar Muzak


[ 3 ]
 
Ákkuru er fólk svona mikið fífl???

Í ungæðislegri gleði minni sat ég og glápti á Silfur Egils núna áðan. Menn voru með þetta hefðbundna röfl og blablabla. Inga Solla og Bjössi Bolla (flott rím :-) röfluðu sín á milli og beittu til skiptis hinni fullkomlega viðurkenndu aðferð í rökræðum að drekkja orðum andstæðingsins í hávaða, bendingum og látum til að draga sem mest úr þeim óþægilegu staðreyndum sem borist gætu í eyru áheyrenda... Dæmi: Björn: Og hvar eru allir þessir peningar núna??? Ingibjörg Sólrún: Nú, þeir eru auðvitað í mwowmwowmwowmwow(drukknar í orðaflaum og upphrópunum...) Björn: Þú svarar ekki!! Þú snýrð bara út úr!!! Inga Solla: Ég er að reyna að segja þér að þeir eru í mwowmwowmwowmwow(enn drukknar orðræða viðkomandi í orðaflaum og upphrópunum)
Ég veit ekki, en þetta er orðið býsna þreytandi.
Síðan komu Ögmundur Jónasson og einhver þingflokksformannskerling úr Sjálfstæðisflokknum og fóru að rífast um Decode málið...
Það kom mér svolítið á óvart að Ömmi var þarna talsmaður mun frjálslyndari viðhorfa en Sjálfstæðisflokkurinn, nefnilega að ríkið eigi ekki að vera að vasast í málum einstakra fyrirtækja og leyfa atvinnulífinu að sjá um sig sjálft.
Ennfremur þótti mér alveg guðdómlega leiðinlegt að sjá eftirfarandi:
Undir lokin á viðtalinu er Ögmundur að tala um einhverja annmarka á málinu og þá byrjar kerlingarbeyglan að tæta í hann eftir viðurkenndri leikaðferð sjálfstæðismanna, ein af mínum uppáhalds rökræðuaðferðum: "Þetta sýnir bara að þið vinstri-grænir eruð bara á móti öllum framförum, Það er augljóst að þið vinstri grænir eru á móti öllum framförum, ha!?! Ha!?! VINSTR GRÆNIR ERU Á MÓTI ÖLLUM FRAMFÖRUM!!!"


Vinstri Grænir eru á móti öllum framförum...

Einmitt...
Það hlaut að vera...
Ekki gátu þeir verið með framförum, verandi vinstri menn, þetta útskýrir allt!
Hvernig gat ég verið svona mikill vitleysingur?!? Að halda að Vinstri Grænir vilji gera eitthvað gott... OH! Af hverju ætli þessir menn vilji vera á þinginu??? Ætli þeir vilji vera á þingi til að geta "Skemmilagt" fyrir öllum góðu framfaramönnunum.
Það hlaut að vera að þeir væru að reyna að eyðileggja allar framfarir, varla geta þeir viljað framfarir, þeir eru alltaf á móti öllu!!!
Ég þoli ekki þessa rökræðuaðferð, hún er það bjánalegasta í heimi og þessi beygla þarna veit það vel! Ég kýs ekki Vinstri Græna, en mér dettur ekki í hug að halda því fram að þeir séu á móti framförum, hvað þá ÖLLUM framförum... Ég fyllist reiði og frústrasjón þegar ég heyri svona kraftídíóta tala, mig langar að berja einhvern, en í staðinn þá fæ ég útrás á þessari dásamlegu vefdagbók...

Annað, af svipuðum toga, sem þreytir mig í þessu dæmi öllu saman er eftirfarandi rökfærsla frambjóðenda: Listi - X er illur, hann er á móti borginni og vill henni allt illt. Frambjóðandi Y er holdgervingur hins Illa, hann er fulltrúi djöfulsins á jörðu!!! Minn flokkur er Jesú-Guð-bjargvættur-heimsins-krossfarar-gegn-óréttlæti! Ekki láta lista - X leiða okkur öll ofan í pytti helvítis...

Mig langar til að koma eftirfarandi skilaboðum til íslenskra stjórnmálamanna:

Prófið að leyfa andstæðingnum að tala, segja sín rök, segið síðan ykkar mótrök og treystið skynsemi almennings fyrir restinni. Ekki nota svona Himmler-Nasista rökræðutækni! Ekki móðga mig með svona lélegum rökræðum.

Bestu Kveðjur,
Svavar Muzak

Ps. til hamingju með ammælið í dag (sunnudag) Mamma Muzak og Bára Snæugla


[ 4 ]
föstudagur, apríl 26, 2002
 


Which "Natural Wonder" are you?



Þar hafiði það, ég er fokkin fjallalind...

Herra Muzak


[ 2 ]
 
Le Pen - Schme Pen

Le Pen er aumingi...
Hann fékk 20% atkvæða í kosningunum, svipað og fylgi samfylkingarinnar...
fuss...
Málið er að þegar stjórnmálin Ameríkaniserast (þ.e.a.s. verða að hárgreiðslu- og barnakyssingakeppni í stað rökræðna og umræðu um málefni) í landi þar sem hefð er fyrir umræðu, þá missir fólk áhugann og öfgavitleysingarnir verða sýnilegri.
R-listinn hrynur í fylgi... Af hverju ætli það sé??? Ég ætla ekki að veðja lífi mínu á það, en mig grunar sterklega að það hafi eitthvað að gera með þá staðreynd að D-listinn virðist nú þegar vera búinn að eyða 30 milljónum í auglýsingar á tveimur vikum... Ef þú endurtekur sömu lygina nógu oft, þá fer fólk að trúa henni.

"Við erum íhaldssamur frjálshyggjuflokkur allra stétta..." - BULLSHIT!!!
"Reykjavík hefur staðnað og ekkert gerist þar nokkurn tíma á meðan R-listinn er við stjórn!!!" - Meira bullshit!
"Skuldir Borgarinnar hafa aukist áttfalt" - Satt, en eignirnar hafa líka margfaldast og tekjumöguleikarnir þar ofan á.

Ég veit ekki... Ég kýs kannski eitthvað annað næst, en ég ætla að kjósa R-listann núna, þau eru búin að standa sig mjög vel.

Bestu Kveðjur,
Herra Muzak

p.s. Blogger er drasl núna


[ 0 ]
 
Frödlig sommer allihoppa!!!

Gleðilegt Sumar kæru vinir og lesendur Herra Muzak, og takk fyrir samfylgdina í vetur.
Ég er hrikalega hress yfir þessu brjálæðislega sumri sem nú gengur í garð og ég vil bara hvetja ykkur til að ferðast innanlands, helst í Skagafjörðinn, og koma þá við á Sölvabar í Lónkoti í Sléttuhlíð, drekkið mikið rauðvín þar og fíliði svo Málmeyna í ræmur.
Annars var ég í feitri umræðu um nektarstaði og dóp hér í morgun í vinnunni... Sumar konurnar fengu flog þegar ég sagðist hafa prófað kannabisefni á mínum villtu árum og aðrar horfðu á mig með svona "Ég trúi því ekki - þessi sakleysislegi og blíði drengur" augnaráði. Kommon, ég er 26 ára og hef lifað í gegnum eitt frjálsasta tímabil Íslandssögunnar... En ég sagði þeim eins og er, að ég hef allt of mikið að gera í mínu lífi til að eyða tíma í að dópa, þess vegna er ég ekki í neinu rugli. Auðvitað er fyndið og gaman að fara í vímu, býst einhver við öðru? En það er svo margt sem ég hef að gera að ég hef enga nennu til að stunda nokkurs konar neyslu, nema matar...
Það má segja að dópistar séu reglumenn, það er a.m.k. regla á þeirra neyslu ;)
Kannski þegar ég er áttræður, þá fer ég á algert binge...

Bestu Kveðjur,
Gæfumaðurinn herra Muzak


[ 0 ]
miðvikudagur, apríl 24, 2002
 
Þekkið óvininn

Skyldulesning til að skilja heimskuna á bak við kynþáttafordóma...

Kynnið ykkur þetta vel,
ef grannt er skoðað getið þið séð flest allar rökvillurnar í rasískri hugsun.

Svavar Knútur


[ 4 ]
 
Daft Git!

Það er greinilegt að Arnar, með stóra feita verkfræðiheilann sinn, er ekki búinn að fatta það að sami maður framleiðir Practice og Boston Public og því er eðlilegt að leikarar fái að cross-leika í þáttum. (þ.e.a.s. að koma fram í allt öðrum heimi í sama karakter... Þetta er mjög algengt minni í Bandarísku afþreyingarefni.
En jæja, það geta ekki allir verið með þetta margrómaða næmi fyrir hinu hárfína... Við heimspekielítan verðum líklega að sætta okkur við eigin yfirburði í ómerkilegum hlutum eins og mannlegu innsæi og þekkingu á skemmtanabransanum...

Nú hlæ ég að eigin húmor...

Bestu Kveðjur,
Herra Muzak


[ 12 ]
 
Ekki má gleyma Frey...


Ég held að ég neyðist til að minnast líka á hann Frey, sem er góður gaur með endemum og bloggar sjaldan en vel.

Bestu Kveðjur,
Svabbi


[ 2 ]
 
Í ljósi síðustu skrifa...

...um kapítalisma og heiminn sem versnandi fer, datt mér í hug eftirfarandi til að skýra mál mitt nánar.

Þegar Marteinn Lúther hengdi upp mótmælaplagg sitt á kirkjudyrnar forðum, var það ekki til að mótmæla kristni sem slíkri, heldur til þess að gagnrýna það sem honum sýndist vera gallar í kaþólskri trú. Lúther vildi með öðrum orðum gera siðbót á kristninni. Aflátsbréf, keyptar fyrirgefningar, spilling og fleira voru honum þyrnir í augum (auk þess sem hann vildi sofa hjá nunnu...), svo hann setti fram gagnrýni sem setti af stað atburðarás sem gat af sér það sem nú kallast mótmælendatrú, eða Lúthersk-Evangelistatrú, kalvínismi, hvítasunnusöfnuðir og fleira... Þessi trúarbylting í Evrópu má segja að hafi verið mjög holl fyrir kristnina, hún neyddi kaþólikka til sjálfsrýni og til þess að sjá að klerkastéttin gat haft rangt fyrir sér stöku sinnum.
Á sama hátt og Lúther var kristinn maður er ég kapítalisti. Ég trúi á viðskiptafrelsi, einstaklingsfrelsi, frumkvæði og einkaframtak, verðlaun fyrir gott framtak, ég er auðvitað ponsu sósíalískur líka, eins og hver annar góður hægrikrati. (ahem...)
Það má kannski kalla gagnrýni mína siðbótarkapítalisma, ég vil kapítalismanum allt gott, en ég lít líka svo á að hann hafi spillst og við verðum að hafa taumhald á honum og gagnrýna hann í sífellu, ellegar muni hann taka yfir líf okkar, við munum verða þrælar hans.
Kapítalisminn er nefnilega verkfæri, vinnudýr, rétt eins og asni, hestur eða fíll. Segja má að Kommúnisminn hafi reynst vera þrjóskur asni á meðan Kapítalisminn hafi reynst vera öflugur fíll til framfara... :) (fíll til framfara... hahaha....) En við verðum að gæta okkar á fílnum, því ekkert má út af bera svo að fíllinn verði ékki brjálaður og ryðjist yfir menn og mýs með þekktum afleiðingum. Kapítalisminn er eins og hver önnur jarðýta eða stórvirk vinnuvél, hann er frábær til síns brúks, en ef við gætum okkar ekki, þá keyrum við yfir börn, dýr og náttúru sem við áttum ekkert með að keyra yfir, af því að við pössuðum ekki upp á kraftinn í vélinni.
Pilsfaldakapítalismi, kúgunarkapítalismi, óheftur kapítalismi... Þetta er það sem við verðum að gæta okkar á... Þegar við vinnum með stórvirkar vinnuvélar er nauðsynlegt að gæta þess að þær eru miklu kröftugri en við trúum. Slysin geta gerst og við endað úti í móa...
Skiljiði hvað ég á við???

Bestu Kveðjur
Svavar Muzak

viðbót!!!
Auðvitað veit ég að Lúther sjálfur var algjör brjálæðingur og vondur maður, en það er ekki punkturinn...


[ 3 ]
 
Og veistu hvað???

ég væri bara alveg til í það að hætta að vinna sem vefstjóri til að verða bóndi eða sjómaður, mér finnst vefstjórastarfið sosum skemmtilegt, en ég er ekki minn eigin herra. Málið er bara að það er ekki séns fyrir unga menn eins og mig að komast inn í nokkurn skapaðan hlut nema að eiga 80 milljónir... (og hver á það nema hann eigi sér góða familíu eða dóppeninga... ... og kannski lottóvinning...) Ég er nú bara í þessu vefstjórastarfi á meðan ég er að koma undir mig fótunum eftir rándýr námsár... :-)

Ég myndi til dæmis alveg fíla ótrúlega vel að vera trillukall...
Trillur eyða margfalt minni olíu en togarar og eru mun hagkvæmara rekstrarform hvað varðar áhættudreifingu. Einnig er þar um að ræða fyrirtæki þar sem einstaklingurinn ber ábyrgð á framtíð sinni og fyrirtækisins og hefur því meiri hvata til að gera vel og hagræða. Hins vegar hafa peningamennirnir engan áhuga á því að fjárfesta í trillum, því það eru atvinnutæki einstaklinganna. Þess vegna létu þeir bara breyta lögunum til þess að einu skipin sem mega veiða séu stórir, óvistvænir og kostnaðarsamir togarahlunkar og stálskrýmsl sem skila arði beint í vasa peningamannsins. Þarna sjáum við að hagkvæma og góða rekstrarformið (trillan) má sín lítis gagnvart stærri rekstrarformum, því þau eru meira freistandi í augum peningamannanna, því þar er hægt að hafa menn í vinnu og græða meira. Fiskurinn kostar samt jafn mikið ef ekki minna til neytendanna frá trillunni... Pælið í því...

Svavar Muzak


[ 5 ]
þriðjudagur, apríl 23, 2002
 
Tyrkinn tekur Muzak í nefið

Jú... það er rétt, Tyrkinn margfrægi (heilaþveginn af heimsyfirvöldum illu kapítalistanna), hefur hreinlega mölvað smáfríðan og varfærnislega framsettan rökstuðning Herra Muzak...
Muzak gerðist svo djarfur að benda auðmjúklega á nokkra afarsmáa galla á hugmyndaheimi hins heittrúaða eyðimerkur-negra, og voru þau rök mölvuð með hörðum stálglófa kapítalistans.
Auðvitað er ekkert til í því sem Herra Muzak segir. Enginn maður hefur nokkru sinni orðið óhamingjusamari eða dáið vegna ofríkis þeirra valdameiri. Ég var flón að halda að ég gæti logið að almúganum þessum fáránlega skrípaleik mínum. Ég biðst því afsökunar á kommalyginni sem sjálfur myrkrahöfðinginn tróð í höfuð mitt þegar ég gekk einsamall um nótt á bak við hitaveitutankana í Öskjuhlíðinni.
Auðvitað er einungis ein hlið á þessu máli, og það er sú rétta, sanna og fallega, það er auðvitað hlið Tyrkjans.
Auðvitað er Herra Muzak afdalakommi og framsóknarmaður, því vissulega notar hann þeirra stíl við að koma hugsun sinni fram.
Auðvitað væri sniðugt ef Herra Muzak myndi svara Tyrkjanum með einhverjum smellnum hagfræðirökum, en rök Herra Muzak í þessu máli eru hjartans rök.
Því segir Herra Muzak:
Troddu því upp í trompetið á þér Tyrkjagrey!!!
Hafðu þínar hommalegu harðstjóra-smáborgaraskoðanir, þú dissaðir hvort eð er tónlistina mína... ;-)


Herra Muzak í góðu stuði :-)

p.s. Tyrki, ég virði þína skoðun og þetta er ekkert diss (bara Herra Muzak í góðu stuði... Ég veit vel að kapítalisminn er í góðu lagi, en pælingin hjá mér var sú að við yrðum að hafa taumhald á honum, gæta hans, því hann étur börnin sín. Kapítalisminn er kröftugt tæki, en öll kröftug tæki eru slysagildrur. Ég er enginn fýlukommi eða framsóknarafturhaldsseggur, mér finnst ég samt merkja vissa tilhneigingu til firringar og óhamingju í samfélaginu sem er á margan hátt sífellt meiri efnishyggju um að kenna. Þetta er það sem ég er að reyna að koma til skila. Ég nota hins vegar gjarnan jöfuryrði til að koma meiningunni til skila, það er hluti af þeirri æfingu í ritstíl sem þessi síða er. Í guðanna bænum ekki taka öllu sem ég segi sem heilögum sannleik og hjartans tali frá mínum bæjardyrum...

Viðbót kl: 21:53
Þar að auki: Máttu ekki taka öll orð mín svo bókstaflega. Ég er ekki hagfræðingur, ég er ekki viðskiptafræðingur eða stjórnmálafræðingur. Ég tala ekki út frá hagfræðikenningum eða vel völdum case studys. Ég segi það sem ég sé og skynja og hugsa, það sem ég les um þjáningu fólks annars staðar í heiminum í etnógrafíum mannfræðinnar. Ég tala út frá hinu mannlega, og það mannlega segir mér að ekki sé allt með felldu í kapítalisma Dagsins í dag.
Ég sé einnig að við leggjum mismunandi skilning í einyrkjahugtakið. Hjá mér er einyrki ekki bara einhver Bjartur í sumarhúsum, heldur stendur einyrkinn fyrir möguleika einstaklingsins á því að ná einhverjum frama eða lífsviðurværi upp á eigin spýtur í heiminum, að vera sinn eigin herra. Og það er ekki hægt án þess að vera annað hvort fátækur eða þræll kerfisins...
Ég hefi aukinheldur aldregi sagt að fjármagn eða frjálsræði væri af hinu Illa (þar lýgurðu hreint og beint blákalt upp í opið geðið á mér og heiminum :-)...) Þvert á móti trúi ég á frjálst framtak og verslun. Hins vegar eru stóru blokkirnar nú þegar orðnar hamlandi fyrir alla raunverulega frjálsa verslun.

Með bestu Kveðju,
Svavar Knútur


[ 2 ]
 
Gjörðist hér bloggerinn trítilóður og gerði oss mikinn grikk...
Því neyðumst vér til þess að dæma hann í tveggja mínútna leikbann...


[ 0 ]
 
ANDSKOTANS BLOGGERDRASL!!!

Dauði og þrumuveður, Toten und Donnerwetter!!!


[ 0 ]
 
Brilljant grein

Ég held að þetta sé ein besta greinin á The Onion, EVER!
Herra Muzak


[ 1 ]
 
KEEEEELLINGAR...

KEEELLLINGAR!!!

Herra Muzak


[ 6 ]
 
Ég held...

Þetta sé eitt af merkjunum um hrun vestrænnar siðmenningar.

Svabbi


[ 0 ]
 
Einhver var að spyrja...

...um banjólag dauðans...

Það er súra Djassbanjólagið Michelle (bítlalag) með Bela Fleck and the Flecktones...
Gazonga... (samt ekkert voðalega súrt...)
ég er nú enginn sérstakur Bela Fleck fan, þykir þetta ágætis tónlist, en þetta kom bara í svo skemmtilegu kontrasti við Brothers in arms...

Svavar Knútur


[ 2 ]
 
Smá atvinnuauglýsing handa ykkur

Jæja gott fólk,
Ég er með smá atvinnuauglýsingu handa ykkur sem hafið áhuga á því að vinna með einhverfum.
Margrét yfirmaður minn á lítinn strák sem greindist með einhverfu í fyrra. Hann er rétt að verða fimm ára í júlí. Hún er nýbúin að fá samþykkta atferlismeðferð fyrir hann, en það vantar einhvern til að vinna með honum.
Þetta er allt saman að gerast á leikskólanum Ásum í Garðabæ, um er að ræða atferlismeðferð skv. Lowas kerfinu. Ef þið þekkið einhvern sem hefur áhuga á því að vinna með einhverfum og hefur tvö ár sem hann/hún getur fjárfest í þessari vinnu, þá er þetta kjörið tækifæri fyrir viðkomandi. Greidd eru fjöldi námskeiða fyrir viðkomandi og fleira.

Endilega hafið samband ef þetta vekur áhuga ykkar eða vina ykkar,
Svavar Knútur


[ 0 ]
 
Smá hlekkur...

Ég held að maður sleppi ykkur ekki við smá lesningu frá Jóni Ólafssyni í dag...
Lesið og takið mark,
þetta er eitthvað sem ég hef sjálfur lent í, og ég mæli með að þið hlýðið á það sem Jón hefur að segja í dag...
Bestu kveðjur,
Svavar Knútur


[ 0 ]
 
Æðislegur Morgunn!!!

Þetta er búinn að vera súr morgunn...
Í fyrsta lagi vil ég bölva Íslandssíma fyrir að vera með ótrúlega gloppótta internetþjónustu við fyrirtækið... ekki illa meint Íslandssími, bara að fá smá útrás... fúh...

en síðan langar mig að segja ykkur skrýtið og skemmtilegt...
Klukkan sjö í morgun (óguðlegur tími) vaknaði ég við eitthvað skrýtið... (eftir að ég hafði lamið köttinn úr andlitinu á mér...)
Jú, það eru tveir dagar í sumardaginn fyrsta ekki satt? Jújú, en hvað heyri ég annað en einhvern af nágrönnum mínum spilandi Öxar við ána... Á TROMPET!!! DÍSUSS!!!
Þetta var ótrúlegt, mér leið eins og skáta á skátamóti og var næstum því staðinn upp að fara að hylla helvítis fánann...
En sem betur fer nægði mér að hlæja og vekja konuna og við sátum þarna með furðusvip og þjóðerniskennd í brjósti og hlustuðum á furðulega vel spilaða trompetútgáfu af Öxar við ána....

Svo kom ég of seint í vinnuna og fékk magasár á þremur mínútum...

Bestu Kveðjur,
Svavar Muzak


[ 0 ]
 
Smá viðbót fyrir háttinn...

Mér þótti alveg hræðilegt það sem gerðist á Vídalín hjá Jósa. Greyið strákurinn á ekki sjö árin sæl varðandi slysatíðni... Þetta var næstum því Móseískt andartak. (sjö mögur sjö feit...)
Æi, svo vissi maður ekkert hvað ætti að gera, það voru allir að stumra yfir honum og ég vissi ekkert hvort maður ætti að tala við hann eða bara láta strákinn vera til að vera ekki að kráda hann... En að það hafi eitthvað fífl verið að ráðast á hann þar sem hann lá, það er bara aðeins úr gír... Ef einhver veit hver þessi gaur er, endilega látið okkur strákana vita svo við getum leyft honum að heyra það. (Ég lofa að engu ofbeldi verður beitt...)

Bestu Kveðjur,
Svavar Knútur

p.s. Varðandi Fyrirvara?
Margir hafa verið að velta fyrir sér hvenær ég er að skrifa innan úr sjálfum mér og hverjar gráðurnar eru á því hversu mikið af öðrum karakterum er inni í textanum... Ef fólk vill vísindalega skilgreiningu mína þá geri ég þetta yfirleitt svona:
1: Skrifa texta um eitthvað sem ég er að hugsa
2: Met hversu mikið af sjálfum mér er þarna og hversu mikið af skáldskap og hversu mikið ég er bara að velta hlutnum fyrir mér, rökræða við sjálfan mig...
3: skrifa undir:
3a: Svavar Knútur, ef dæmið er algerlega persónulegt og beint úr mínu Hjarta
3b: Svavar Muzak, ef textinn hefur ponsu taint af rambli Muzaks...
3c: Herra Muzak, ef ég hreinlega get ekki ákveðið mig hversu mikið er innan úr innstu rugluiðrum mínum og hvað er að koma úr yfirsjálfinu. (Ég hreinlega veit ekki hversu mikið er það sem ég meina og hversu mikið er það sem ég er bara að velta upp í huganum...)

Einhvern veginn svona skilgreini ég þetta...
...Herra Muzak


[ 0 ]
mánudagur, apríl 22, 2002
 
Nýjar lesanlegar vefdagbækur


Mig langar til að plögga nokkra góða vini og félaga sem eru byrjaðir að tjá sig:

Hann Bragi Skaftason er ótrúlega flottur gaur, gagnrýninn og næmur á hið mannlega. Hann er að læra og vinna og vinna og læra og er ótrúlega góður í öllu sem hann gerir...

Andrés Kjánaprik er pervert af nýja skólanum, ótrúlega frjór og skemmtilegur drengur og er án efa ein áhugaverðasta manneskja sem ég hef á minni lífsfæddri ævi kynnst...

Bára Snæugla er ung móðir sem er í fallegu sambandi við Gústa vin minn. Bára er ótrúlega pólítísk og þó rugludallurinn ég sé ekki alltaf sammála henni, þá er hún afar rökföst og á oft brjálað góða punkta...

Ég ætla rétt að vona að helvítið hann Bjössi Hjalta fari að skrifa eitthvað af viti... ;-)

ókei, ég læt þetta duga í bili...
Ég á miklu fleiri vini og kunningja sem blogga, en ég vil ekki smyrja hrökkbrauðið of þunnt...

Bestu Kveðjur og góða nótt og góðan dag ef þið komið hér fyrir níu í fyrramálið... eða eitthvað...

Svavar Muzak


[ 0 ]
 
Ég hugsa að ég kjósi R-listann...


...En hafiði pælt í því hvað vefurinn þeirra er ógeðslega ljótur og lélegur...?

Dísuss!!!
Það er hreinlega eins og þau hafi vaknað í gær og hugsað: "úbs, við erum ekki með neinn vef!!!"
<rant>
Ég kýs líklega R-listann einungis til að D-listinn fái ekki völdin, vegna þess að ég veit hvaða mann BB hefur að geyma og hann er ekki fallegur. Einnig þoli ég ekki ógeðið hann Guðlaug Þór fokkin pabbastrák Þórðarson sem gerir ekkert annað en að nöldra og væla og þegar hann brosir þá vildi maður óska að hann væri aftur farinn að nöldra og væla, svo ljótt og væskilslega brosir hann... Ég veit ekki, einu sinni var sjálfstæðisflokkurinn fínn flokkur sem barðist fyrir alræði peningastéttana, það var sosum heilbrigt og gott útaf fyrir sig á meðan þeir gáfu það hreinlega bara út og sögðu: "ef þið kjósið okkur ekki núna, þá hefnum við okkur á ykkur þegar við náum völdum næst..." Núna eru þeir að þykjast vera eitthvað ekki sama um vinnandi fólk... Það er hreinlega glatað... Þessi flokkur er hagsmunagæslubandalag ríkustu ætta Íslands og það er hans eina hlutverk. Ungir sjálfstæðismenn eru ekkert annað en lífvarðasveit íslensku yfirstéttarinnar. Þeir draga gagnrýnisraddirnar í burtu frá flokknum með upphrópunum um lögleiðingu vændis og fíkniefna á meðan gömlu kallarnir í flokknum segja: "svona eru þeir þessir ungu menn..." Og svona eru þeir einmitt til þess að fólk fatti ekki hin raunverulegu markmið flokksins, sem eru að gera þeim ríku enn auðveldara að sölsa undir sig síðustu örður sjálfstæðis íslenskra einstaklinga...


</rant>

Blóm friður og kærleikur

Herra Muzak


[ 2 ]
 
Getur einhver reddað mér...

... Laginu Súpermann með Ladda á mp3?

Túri Múzak


[ 0 ]
 
Egill Strikes Again!!!

Egill Helgason á frábæran pistil um ástandið í Frakklandi...
Lítið á málið.
Bestu Kveðjur,
Herra Muzak


[ 3 ]
 
Hvað tekur forgang í lífinu???


Ég vil byrja á því að þakka Bjarna og Unni fyrir yndælis gleði á föstudagskveldið, þetta var mjög næs og líka gaman að hitta loks í kjötheimum Ágúst flygering og Siggubeib... Það er undarlegt að eiga sér presens á einhverjum óskilgreindum stað og þekkja ekki þá sem maður fylgist með þar, hafa í raun aldrei séð þá... en hvað um það, partýið var fínt, við Pálína fórum frekar snemma heim og röbbuðum endalaust saman um ég veit ekki hvað, mér finnst það alltaf góður endir á kvöldi.

Ef við setjum til hliðar í smá stund allar trúarkreddur og nálgumst lífið eins og einstaklingar, hvað skiptir meira máli, ódýrt vöruverð eða almenn hamingja einstaklinga? Með almennri hamingju á ég við það að menn vinni við það sem þá langar, fái verk sín metin að verðleikum, njóti lífsfyllingar og fleira.
Ég held, án þess að vilja hljóma eins og einhver sjálfsþurftarbúskapar afturhaldsframsóknarmaður, að verksmiðjusamfélag okkar tíma gefi okkur fjölda tækifæra, en svipti okkur um leið þeim möguleika að vera einstaklingar, að vera einyrkjar. Mér finnst eins og góður kapítalismi verði að taka meira tillit til einstaklingsins og einblína ekki á hagræðingu hagræðingu hagræðingu.
Það væri til dæmis svakalega fín hagræðing í því ef allt nautakjöt heims væri framleitt á risastóru sterabúi í Bandaríkjunum, þar sem kílóið af nautakjöti kostaði einungis 100 kall. (auðvitað kostar mun minna að ala nautgripi upp eins og kjúklinga) Þá fengjum við líka fúkkalyfin með nautakjötinu. Svo væri öll mjólk framleidd á öðru sterabúi í BNA þar sem beljurnar væru með stærri júgur en maga, ódýr mjólk eh? Svona væri hægt að halda áfram. Á Íslandi væru þrjár stéttir manna, Stóriðjustarfsfólk á suðvesturhorni, Risastórar fiskiverksmiðjur á norðurlandi og Vestfjörðum og síðan starfsfólk Smáralindar sem sæi um að útvega öllum föt á ódýru verði. Til hvers að láta fólk vinna við það sem það langar til að vinna ef hægt er að "Hagræða" meira með því að láta það vinna vinnu sem drepur það niður andlega og það hefur enga löngun til að vinna?
Einstaklingurinn skiptir nefnilega nýja kapítalismann engu máli, einstaklingsfrelsið er frelsi til neyslu og meiri neyslu, því neyslufrelsi þýðir aukin velta í samfélaginu, aukið rúll á peningum, aukin verksmiðjuframleiðsla og mannfirring. Skrýmslið heldur áfram að vaxa og dafna og blása brennisteini þangað til það er búið að eyðileggja allt sem grær, sjúga í sig síðasta kísilgúrinn, og stífla síðustu ána. Þá förum við að éta Soylent green eða eitthvað svoleiðis, lifa á mannakjöti, skrýmslið étur sjálft sig til að drepast ekki úr hungri...

Draumaheimur Kapítalisma dagsins í dag er ekki fallegur heimur. Ég tel að fjármagn hafi afar skekkt gildismat. Hvað er það sem ég geri sem vefstjóri eða einhver verkfræðingur stússar, sem er svona svakalega mikið meira virði en mamma mín sem er kennari, eða bændur sem framleiða mörg tonn af mat á mánuði? Gildismat kapítalismans er skakkt. Þeir sem eiga peningana geta kúgað þá sem eiga lítið af þeim, það er ekkert mál að fá bændur og kennara til að sætta sig við bág kjör, en það er erfiðara að fá forstjóra og verkfræðinga til að gera það? Af hverju? Af því að kapítalisminn eins og við þekkjum hann í dag fer í manngreinarálit. Ef hann gerði það ekki, er ég viss um að verkfræðingar, kennarar, nemendur og forstjórar væru með ósköp svipuð laun, vegna þess að þeir eru að skila mjög svipuðu verðmæti úr sinni vinnu, það eina sem knýr verðmæti bóndans niður eru tæki þeirra sem eiga peningana, massainnkaup og niðurþvinganir á verði, langt niður fyrir það sem er rétt og gott verð.

Ég tel að endurskoða þurfi forsendur kapítalismans til að þær geti betur tekið tillit til þarfa einstaklingsins og einstaklingsvilja.
Frelsi í viðskiptum er í góðu lagi, en við megum ekki gleyma manneskjunum í öllu óðagotinu.
Það hlýtur að mega vera mögulegt að geta unnið þá vinnu sem mann langar að vinna og lifa á landinu. Það hlýtur að vera eðlilegt að einstaklingar geti lifað sínu lífi án þess að vera barðir inn í fyrirfram ákveðin bestunarmót eins og kubbar, eða eins og Mandelbrot sagði: "keilur, hringir og kúlur lýsa ekki raunveruleikanum" (eða eitthvað)

Bestu Kveðjur,
Herra Muzak


[ 7 ]
föstudagur, apríl 19, 2002
 
Til Hamingju Með Ammælið Unnur!!!

Unnur, þú átt svo sannarlega skilið feitar hamingjuóskir með ammælið þitt frá sæta stráknum honum Svabba.

Ef þú sendir mér ekki bréf fljótlega, eða kommentar hér, þá færðu bara venjulega ósmekklega ammælisgjöf frá Svabba...

Bestu Kveðjur,
Herra Muzak og Svabbi, í góðu stuði...


[ 2 ]
 
Áfram Smárabíó...

Hann Freyr segir frá all undarlegri reynslu sem vinur hans Egill lenti í, í Smárabíó um daginn...
tékk itt...

Dásamlegt dæmi um metnaðarfulla þjónustu og lifandi starfsfólk...

Herr Muzak


[ 0 ]
 
Ekki er það gott...

Ég leit í spegil áðan...

GAVÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÐÐÐÐÐÐÐÐÐ!!!!

Þar sem ég klippi mig stundum sjálfur ponsu pínu til að ná mesta hárinu úr andlitinu á mér á daginn, þá er ég nú kominn með stuttan topp og hálfsítt að aftan...


Ég lít út eins og fokkíng HARRY KLEIN!!!

urg...

Herr Muzak


[ 1 ]
 
Bitur/öfundsjúkur

<rant>
Hvernig er það?
Þegar ég skammast út í einhvern söngvara eða hljómsveit sem mér finnst ekki vera að gera góða hluti, þá er ég öfundsjúkur af því að ég er ekki að ná þeirra árangri eða frama... Get - a - Life...
Þegar ég gagnrýni fegurðarsamkeppnir eða hræsni tískuheimsins, þá er ég Bitur af því mér á að líða illa yfir því að vera ekki gullfallegur og vinsæll.
Þegar ég skammast út í þá sem misnota völd sín til að kúga þá sem eru minnimáttar, þá er ég kommúnisti eða eitthvað þaðan af verra...

Hvað varð um það að mega gagnrýna fyrirbæri í samfélaginu sem manni finnst ekki góð eða hrein? Af hverju má ég ekki gagnrýna það sem mér þykir rangt og viðbjóðslegt?
Ég má ekki gagnrýna tónlistarmenn af því að ég er tónlistarmaður og er of involveraður í bransann... Ég má ekki gagnrýna fegurðarsamkeppnir af því að ég er... ... Ljótur? ekki "sportlegur töffari?" og því sjálfvirkt Bitur. Ég má ekki gagnrýna kolkrabba og klíkuskap af því að þá "get ég ekki sofið meðan aðrir græða"?
HVER Í ANDSKOTANUM MÁ GAGNRÝNA??? ER EINHVER HELVÍTIS GAGNRÝNENDASKÓLI???

Mér finnst píkupopp vera fyrirbæri sem misnotar áhrifagirni ungs fólks og innrætir þeim gildi sem eru vægast sagt óholl fyrir heilbrigða sjálfsmynd.
Mér þykir fegurðarsamkeppnir gefa okkur öllum viðbjóðslegar hugmyndir um lífið og tilveruna, þar er konum og körlum sagt að hægt sé að meta fegurð eins og hvern annan hæfileika eða mælanlegan eiginleika, að fegurð sé jafn tvívíð og lengd eða breidd. NEWS FLASH!!! FEGURÐ ER ÞRÍVÍÐ, FJÓRVÍÐ, JAFNVEL FIMMVÍÐ!!!
Mér þykir rangt þegar menn misnota völd sín til að kúga aðra og viðhalda stöðu sinni... Æ FOKKING Æ!!!

Ég má hafa skoðanir, og ég má skrifa um þær eins og mig langar... af því að ég er penni, ég er rödd, ég nota heilann minn til að búa til texta sem mér finnst fyndinn og beittur og vona að aðrir fíli hann, jafnvel hafi gaman að því hvað ég get stundum sett hluti í eitthvað samhengi. Ég nýt þess að sýna fólki mína sýn í gegnum penna eða tónlist...

Ég mun halda áfram að vera "bitur, öfundsjúkur og ofsóknarbrjálaður" annað hvort þar til ég dey eða heimurinn FOKKÍNG breytist!

Svo má fólk líka fatta það að mér er ekki illa við nokkurn mann, bara við vissar stofnanir samfélagsins...
Jú, mér er afar illa við Tóta vonda, gaurinn í þjóðleikhússkjallaranum og Tómas Ragnarsson... En þeir hafa líka allir riðið mér ósmurt í rassgatið...
Þegar ég öskra, þá er ég að öskra hugmyndir, rönt, pælingar, sem eru ekki einu sinni alltaf út úr heilanum á Svavari, heldur koma þær út úr IDi hans (undirmeðvitundinni Hr. Muzak, mér...)
Mér er ekki illa við fólk sem klæðir sig í skrítin föt, mér er illa við fólk sem fylgir hugsunarlaust einhverjum einkennisbúningahugmyndum samfélagsins, hnakkalúkkið, pönklúkkið, metallúkkið, lúkklúkklúkklúkkið lukkuláki og rassgatið á mér...
YYYYYAAAAAAAAAAARRRRRRRRGGGGGHHHHH!!!!!!
</rant>

blóm friður og kærleikur
vinátta blóm og ást

Bestu kveðjur
Herra Muzak


[ 10 ]
 
Góðan Dag Góðan Dag

Vitið þið, að Brothers in arms með Dire Straits er ógeðslega fallegt lag...
Það er eitthvað við ljúfsára og einlæga melódíuna og angurværan textann sem fyllir mann æðruleysi þegar maður horfir út í kaldhranalegan morguninn...
Og svo tekur við banjólag dauðans á mp3 listanum mínum... Er ekki tæknin ótrúleg...

En bara svona okkar á milli, þá er ég alveg heví ánægður með lífið í dag... mætti í vinnuna korter í níu (tuttugu mínútum á undan yfirmanni mínum) og er því búinn að ná ágætis morgunslugsi og kaffigleði.

Nú horfi ég bara á metersháan verkefnastaflann...

fleh...

bleh...

Herra Muzak


[ 4 ]
fimmtudagur, apríl 18, 2002
 
Dýralífsmyndir um plastfólkið

Rugl.is er yndislegur þáttur, þar fáum við að horfa á B-landslið plastfólks Íslands í sínu náttúrulega umhverfi, fullt af áfengi, fullt af greddu og fullt af yfirgengilegri heimsku...
Vei Vei, fullt plastfólk í rútu á leiðinni (í langferð) til Akureyrar...

Fullt af flottum hlutum sem maður lærir þarna:
m.a.
Lögmál 1: Því ljótari og bjánalegri sem maður er, því flottari bíl þarf maður að eiga til að eiga séns í plastkonur...
Lögmál 2: Því falskar sem maður getur sungið Can't get you out of my head með Kylie Minogue, því "flottari" er maður...
Lögmál 3: Myndavélar og plastfólk eru banvæn blanda. Allir öskra og segja hluti eins og "HVA' ERTA MEINA...?", "HEEEYY!! ER ÉG FULLUR EÐA HVAÐ HAAAA???", "PISSUSTOOOPP" og "VAAAAÁÁÁÁ!!! ROSALEGA ER LANGT TIL AKUREYRIS MAR!!!"

Áfram tilgerðarlegt og sorglegt sjónvarpsefni
Ég held að þetta kvöld geti ekki versnað...


Jú... ekkert kynlíf...

bleh...

Herra Muzak

p.s. Annars sá ég vibbalega sætan hlut í sundi í dag. Lítill strákur, svona á að giska 4ra ára var í sundi með P&M og var með æðislegt attítjúd... (Mamman var líka þokkalega hot með svona "Hérna-vúmp-koma-vúmp-börnin-vúmp-út-vúmp" Rass (ég elska stóra (ekkert rosalega stóra, bara svona bústna) rassa)) Strákurinn var með stóra ermakúta sem létu hann líta út eins og vasabrotsútgáfa af Ming the Merciless (Flash Gordon). Litli strákurinn labbaði hálfgerðan gæsagang á eftir Pabba sínum og horfði upp til hans. Sá gangur endaði á því að litli gæinn labbaði á hurð... Ég hló, en þetta var samt ógusslega sætt og dúllulegt :-)


[ 0 ]
 
Hvar værum við án fegurðarsamkeppna?


En hvað fegurðarsamkeppnir eru dásamlegar...
Þarna er saman kominn hópur fallegra kvenna, þ.e.a.s. alvöru fallegra, ekki svona b-klassa fallegra eða bara ljótra eins og restin, ALVÖRU fallegar konur! Afsakið mig... fallegar stelpur... Þessar fallegu konur leggja okkur hinum, bæði konum og körlum lífslínurnar. Þær sýna okkur karlmönnunum hvað við eigum að vilja, hver okkar markmið í lífinu eru, því hver vill ekki eiga fallega konu, og ef þarna eru ekki fallegar konur, hvar þá? Svo leggja þær stúlkunum okkar línurnar í því að hverju þær eiga að stefna.
Já, fegurðarsamkeppnir eru sannkallaður viti í lífsins ólgusjó, viti sem beinir okkur í örugga höfn samfélagslegs samþykkis. Ekki viljum við standa út úr hópnum, vera ljótar, eiga ljóta konu, vera hreinlega á rangri hillu.
Guði sé lof fyrir það að við höfum þessar dásamlegu stofnanir sem fegurðarsamkeppnir eru til að gefa okkur heilbrigð, hrein og gallalaus viðmið um hvernig við eigum að vera.
Ég veit ekki hvað ég myndi gera ef ég hefði ekki þennan markvissa og óbrigðula mælikvarða á fegurð sem fegurðarsamkeppnir eru. Ungfrú Reykjavík/Ísland/ísland.is/heimur/alheimur/skandínavía eru hreinlega á pari við metrastöngina í París, eimað vatn og pí með skrilljón aukastöfum. Og svo segja menn að Evrópusambandið sé hart á sínum gúrkustöðlum... Gúrkustaðlar Evrópusambandsins eru miklu opnari en fegurðarstaðlar fegurðarsamkeppna heimsins. Við erum að tala um alveg svakalegan ISO 9001 gæðastaðal, líka eins gott, hver vill lenda á ófallegri konu...
Já, okkur hinum, Homo Troglodytes (Tröllum/Neanderdalsmönnum) er hrein vorkunn, já greyið við, sem njótum ekki þessarar fullkomnunar sem þetta frábæra fólk nýtur. Æi, það er nú ekki okkur að kenna að vera ljót... Við verðum bara að bæta upp fyrir það með því að vera skemmtileg og jákvæð og fyndni gaurinn og besta vinkonan og meðhjálparinn, svo ekki sé minnst á hana Laufey blessaða... (úr krókódílamanni Megasar, sbr. Bjargvætturinn Laufey...)

Ég veit ekki hvar samfélagið stæði ef það hefði ekki þessa skýru línu sem fegurðarsamkeppnir draga, þessa frábæru, einsleitu og öruggu hugmynd um fegurð. Það þarf sko ekkert að velta svona fegurð fyrir sér, hún er svo augljós, svo einföld, brosa með hvítu tönnunum sínum, vera með fullkomnar (á mælikvarða fegurðarsamkeppna) línur, beint bak, slétt og glansandi sítt hár og hafa aldrei átt börn. Því miður verða allir sem ekki passa inn í þessa mynd að sætta sig við það að gerast annars klassa samfélagsþegnar, en svoleiðis er það nú bara. Við erum bara ekki falleg, af því að það sem er fallegt er algerlega á hreinu og við pössum einfaldlega ekki þar inn. Samt getum við alltaf látið vorkunarfullt augnaráð fallega fólksins hugga okkur þegar þau hugsa um okkur alveg eins og svöngu börnin í Afríku... Brauð handa ljótum heimi...
Snorri vinur minn setti þetta ágætlega fram: 90% karla eltist við 5% kvenna (samkvæmt fyrirfram gefinni hugmynd um hvað er fallegt) og 90% kvenna eltist við 5% karla (því allir hinir eru ekki með strípur, nógu sportlegir eða á nógu flottum bíl.) við hin (95%) erum annað hvort hommar, lesbíur eða bjánar.
þessi aktúal 5% sem hitta saman, þau eru fallega fólkið.

Ég elska fegurðarsamkeppnir...
Ég er ljótur strákur...

Herra Muzak,
Ánægður með lífið, tilveruna og dásamlegar fastmótaðar samfélagshugmyndir...


[ 6 ]
 
Ógeðið og ofsinn

Jæja félagar, nú horfði ég á æðislega mynd um Sex Pistols. Ótrúlega flottar pælingar í gangi þarna. Maður skilur miklu meira hvað var um að vera á þessum tíma.
Einnig fannst mér frábært að heyra það sem Syd sagði varðandi "pönkarana", öll fíflin sem tóku þennan stíl, sem gekk út á það að gera sitt stöff, vera einstakur, og nauðguðu honum, gerðu hann að einhverju mass-culture fyrirbæri, 15.000 króna leðurjakkar og kó.
Ég held að ég sé pönkari 21. aldarinnar... Ég á engin dýr föt, ekkert sem kostar meira en svona 4.000 kall flíkin...
Ég kaupi allar mínar buxur og boli í vinnufatabúðinni, af því að þar er hægt að fá hlý, góð og ódýr föt sem skera sig ekki úr neinu. Það er pönk, að láta ekki samfélagið troða gildunum ofan í kokið á sér, að þora að vera bara lúser eins og maður er...
Þeir sem fylgja tískunni og hanga í tíðarandaflottræfilshættinum eru rollur, rollur segi ég!!!
Hafiði það helvítis hnakkarnir ykkar!!!
Bestu Kveðjur,
Svabbi


[ 2 ]
miðvikudagur, apríl 17, 2002
 
Skondin skoðanaskipti

Það er svolítið meinfyndið að lesa skoðanaskipti frjálshyggjumanna varðandi fóstureyðingar þessa dagana. skondinheitin felast að mestu leyti í því að þeir nota nákvæmlega sömu ómálefnalegu aðferðir við að snúa út úr fyrir hvor öðrum eins og þegar þeir leggjast á eitt um að gera lítið úr "vondu vinstrimönnunum". Þarna er um að ræða nákvæmlega sömu rökvillurnar og nákvæmlega sömu hártoganirnar og venjulega, nema þetta er innbyrðis. Síðan rífast þeir um túlkanir á kenniritum og trúarsetningum. Ayn Rand og Milton Friedman quotes fljúga manna á milli eins og gamlatestamentisvers í rabbínapartíi.
Björgvin og kó eru eins og gömlu íhalds- pínu líbó- rabbínarnir og Sævar og Orri eru eins og ungu herskáu bókstafstrúarrabbínarnir.
Bestu Kveðjur,
Herra Muzak


[ 3 ]
 
Að koma sér í shape...

Ég er orðinn allt of búttaður þessa dagana...
Mig langar að koma mér í gott form.
Samt virðist sama hvað ég reyni, ég renn alltaf í mæjónesklessu sjálfsagaleysisins.
Klár, sterkur, með mikið þol, en ömurlegan sjálfsaga...

Ég er hin sígilda tannburstahetja...

Mér líður eins og aumingja þegar ég hugsa til þess að ég er alltaf að reyna að koma reglu á hreyfingu mína en ekkert gengur. Ég kenni öllu öðru um en sjálfum mér, tímaskorti, bílleysi (bílleysi veldur hreyfingarskorti... yeah right...), peningaleysi... Ég held að ég sé ömurlegasta afsökun fyrir líkamsræktargaur í heimi...

Mig vantar hjálp, einhvern með svipu og ákveðni sem vill taka lítinn feitan sætan strák eins og mig og hóta mér sódómiseringu ef ég stend mig ekki í stykkinu...
nei annars... enga helvítis sódómiseringu fyrir mig...
Ég skal standa mig!
Ég skal klífa hæstu tinda!!!
Ég Skal, Ég SKAAAALL!!!

...
á morgun...

Tannburstahetjan Svavar


[ 2 ]
þriðjudagur, apríl 16, 2002
 
hu-GAVÖÖÖÐ

Guðni minn, elsku ljúflingur,
Ég vissi nú alveg að þú vissir alveg að ég væri ekkert í FÍÞ, mér fannst bara fyndið að dissa þig pínu... :-)
Auðvitað er mér ekkert illa við alla sem eiga pening, þá hlyti ég að vera alger bjáni... Helmingurinn af því sem ég skrifa er bara í nefinu á mér á þeim tiltekna tíma og mér finnst stundum ponsu broddur í því og langar til að leyfa því að vera til. Auðvitað ertu í góðu lagi þó þú búir á Spáni... Ég hef ekkert sérstakt á móti Spánverjum heldur... Nema helvítis feita gaurnum þarna, Torrente, djöfull var það ógeðslegur gaur!!! :)
Blessaður vertu, ég þekki miklu fleiri en einn gaur sem eru silfurskeiðakeis og veit vel að margir eru bestu skinn, til dæmis þú sjálfur, en ég áskil mér fullan rétt að hafa fordóma gagnvart einhverjum. Og hvort er betra að hafa fordóma gagnvart útlendingum og fleirum sem geta vart borið hönd fyrir höfuð sér eða silfurskeiðingum sem hafa alveg fínar hendur og góða samfélagsstöðu til að takast á við fordómana mína.
Allir hafa fordóma, meira að segja fólk sem vinnur með fötluðum, svörtum, samkynhneigðum útlendingum.
Mínir fordómar beinast að fólki sem hefur efni á því... ;-)

Bestu Kveðjur,
Herra Muzak


[ 0 ]
 
Eitt er að vera frjálshyggjuflón...

...Og annað að vitna rangt í sjálfan John Locke!!!

"Náttúruréttur?
17. aldar heimspekingurinn John Locke talaði um náttúrurétt. Þar sem sá sterkasti lifir af baráttuna um lífið og gæði jarðar. Samkvæmt því deyja þeir sem eru líkamlega aumir. Þetta á vissulega ekki við nú á dögum þar sem við teljumst siðmenntað þjóðfélag. Það eina sem einstaklingurinn á og getur aldrei misst er líf sitt, nema hann kjósi að svipta sig þessu lífi og það er í hans valdi að gera svo. Ófæddur einstaklingur sem ekki getur talað getur ekki ákveðið hvort hann vill lifa eða deyja. Það getur enginn ákveðið fyrir aðra hvort hann skuli lifa eða deyja. Það eitt getur sá sem við á ákveðið, þ.e. hvernig lífi hans er ráðstafað. "
Svo talar Orri nokkur á frjálshyggja.is, sem virðist hafa tekið það upp á sína arma að endurskilgreina og hreinlega endurskrifa John heitinn Locke!
Þessi drengur skal nú fyrst byrja á því að drulla sér til að lesa John Locke (ég býst við að hann sé að reyna gera afar aumingjalega tilraun til þess að að vitna í Ritgerðina um ríkisvaldið, þar sem Locke styður hugmyndina um þrískiptingu ríkisvaldsins og rétt mannsins til frelsis.) Locke talaði aldrei um þann sterkasta eða baráttu, eða því að þeir teyji sem eru líkamlega aumir... Locke talaði mun fremur um mannlegt samkomulag og jákvæðan anarkisma. Það er því vel hægt að nota Locke til þess að réttlæta vissa takmarkaða frjálshyggju, en alls ekki einhvern samfélags-Darwinisma!!! Það er hreint bull!

Orri,
ef þú vilt ekki teljast vitleysingur hinn versti, þá skaltu endurskoða grein þína með tilliti til texta Locke, eða eyða henni ella.

Ég ætla ekki að röfla út í afstöðu þína til fóstureyðinga, hún er siðferðisleg og því þín eigin. En Locke á sig sjálfur, og það er hrein og bein synd að fara rangt með hans mál.
Og guð minn góður, ég ætla ekki að fara að tætast út í aðrar rökleysur á þessari guðsvoluðu síðu... Ég hef sjaldan ef aldrei lesið annað eins þrugl... En mér kemur víst einungis hann Locke við, svo mínar athugasemdir einskorðast við hann.

Og aftur, í guðanna bænum, ekki mistaka mig fyrir einhvern anti frjálshyggjugaur eða ungan brjálkomma, mér finnst margt ágætt í þessum kenningum en ég legg líka áherslu á það að þetta eru einungis kenningar... Kenningar endurspegla ekki raunveruleikann...

Bestu Kveðjur,
Herra Muzak



[ 2 ]
 
Moonboots fréttir

Jæja krakkar...
Nú er það bjart framundan.
Moonboots eru að fá sér nýjan gítarleikara, Snorra "Barón" Jónsson snilling, sem mun svo sannarlega rokka upp stemninguna á böllunum okkar...
Að auki er nú planið að setja á fót hliðarprójekt til að spila meiri almenna rokktónlist á böllum (til að fullnægja "spiliði eitthvað sem allir kunna" hálfvitunum sem plága okkur.)
Moonboots tekur sér því örlitla pásu sem slík, og fækkar böllum niður í þrjú til fjögur á ári, á meðan nýja prójektið (nafnlaust enn sem komið er...) tekur við taumunum í aksjón...
Þá ætlum við líka að hafa aðeins meira 80's páver þegar við spilum 80's prógrammið... Taka dæmið á fullu swingi, í meiköppi og búningum...

hliðarprójektið mun verða meira svona "contemporary hits" hljómsveit, eins og fm957 er "contemporary hits" tónlistarstöð....
....
....
...

oj...

...

...

... hnakkamúsík...
...
...
...
Nú liggja fyrir eftirfarandi tillögur að nafni á hliðarprójekt Moonboots.

Plan B
Þú og Mamma Þín
Hljómsveitin Amma

Endilega styðjið einhverja tillöguna eða bætið við tillögum að nafni á draumahljómsveitina.

Bestu Kveðjur,
Herra Muzak

SKYNDIÖPPDEIT VIÐ ÞESSA FRÉTT Þ. 17.04!!!
ÓTRÚLEGA KONSTRÚKTÍVUM FUNDI LOKIÐ HJÁ MOONBOOTS! -STOP-
VEL GETUR VERIÐ AÐ MIKLAR JÁKVÆÐAR BREYTINGAR SÉU VÆNTANLEGAR Á NÆSTU VIKUM!!! -STOP-
FYLGIST MEÐ FRÉTTUM!!! -STOP-


[ 0 ]
mánudagur, apríl 15, 2002
 
Mig sárvantar enn samverkamenn

Enn langar Herra muzak að kynnast sniðugum tónlistarmönnum.
Okkur Sigga Palla langar að kynnast trommara, harmónikkuleikara/orgelmeister og gítarleikara sem kunna að syngja og eru til í að búa til skrýtna og skemmtilega tónlist. Ekki endilega eins og þá sem hljómar hér... Við erum að gera fullt af stöffi sem er allt öðruvísi en þetta. Svo verða viðkomandi að vera svona týpur sem actually standa við og mæta á æfingar... (been there...)
Endilega hafið samband við okkur krakkar ef þið viljið verða hluti af Muzak draumnum... (ahem...)

Bestu Kveðjur,
Herra Muzak


[ 5 ]
 
Jæja...

Kíkti aftur á þetta typing próf...

Your accuracy was impressive.

Your speed was 73 WPM

Noh... bara dagamunur á mönnum...
Djöfull er ég stúrinn í dag... ekkert um að vera í hausnum á mér. Mig langar að fara í sund og fá vinnu sem þjóðlagasöngvari dauðans...
Lúrílúrílú....
óskaplega andlaus í vinnunni...

Þið eigið líka svona mánudaga stundum er það ekki?

Herra Muzak


[ 0 ]
 
Survivor alltaf jafn bjánalegur...

Maður horfir á Survivor af svipuðum ástæðum og maður les Geir... (yfirleitt)
Maður er að bíða eftir næsta "Gullmola".
Ég sá einn svona gullmola núna...
Blökkumaður kemur úr træb sem er búinn að tapa þremur keppnum í röð inn í sigurvegaratræbinn og það fyrsta sem hann segir eftir fyrsta daginn er að þetta sé eins og þrælahald, mauraþúfa eða eitthvað viðlíka, honum finnist eins og "eigandinn" sé alltaf að fylgjast með þeim. Það er ótrúlegt hvað þessi þrælapæling ætlar að vera þrautseig í kúltúrnum hjá sumum, 150 ár og þessi gaur er ekki ennþá búinn að komast yfir það að langafi hans var þræll... Hey, ef maður ætlar að vinna, þá þarf maður að vinna!!! Svo liggur gaurinn í leti og talar um hvað liðið séu miklir vinnufíklar... (gettu hver verður kosinn í burtu maður!!!) Þetta er súrt!!! Þessi gaur sér sjálfur um að koma upp neikvæðum staðalmyndum af svertingjum... "Ég vil ekki vinna eftir hádegi, ég vil bara chilla eftir hádegi!!!"
Ég veit ekki hvað maður á að halda þegar maður sér svona ótrúlega slappa gaura í Survivor... Til hvers var hann að skrá sig??? Ég vann með svona fíflum í vatnsveitu Reykjavíkur eitt sumar, maður notaði skófluna og þau kölluðu mann vinnufíkil... Næsta sumar voru þau ennþá að vinna í vatnsveitunni og ég farinn í fisk á Flateyri, ég nenni ekki að púkka upp á svona aumingja...
...
og svo töpuðu auðvitað gellurnar frá paradísarletihluta eyjunnar, sem kunnu ekki að púsla og stóðu eins og bjánar á meðan hinir voru á fullu að gera eitthvað... (hér er auðvitað um óritskoðaða karlrembu og hroka að ræða af minni hálfu, en stundum grunar mann einfaldlega að fólk sé fífl...) :-)
Allt styður þetta auðvitað kenningu mína um að mótlæti styrki einstaklinginn og geri hann hæfari...

Bestu Kveðjur,
Herra Muzak


[ 2 ]
sunnudagur, apríl 14, 2002
 
Hvað get ég annað sagt en...

Sammála síðasta ræðumanni...

Ég get engu við þetta bætt...
Takk Jói

Herra Muzak


[ 1 ]
 
Glaði og vinalegi heimspekingurinn segir...

Guðni Dagur...Þú vilt kannski fá einn á'ann?!? :-)
Að kenna góðvin konunnar þinnar við slíkan viðbjóð sem FÍÞ er... Þú ert kominn á hálan ís væni minn...
Jú, ég játa fúslega fordóma mína... Hef aldrei haldið öðru fram... Ég hef fordóma gagnvart silfurskeiðafólki þangað til það sýnir mér fram á að fordómar mínir eigi ekki við rök að styðjast. Ég á einn silfurskeiðarvin, og hann er eini svona einstaklingurinn sem ég hef kynnst hingað til, sem er í góðu lagi, enda lenti hann í bölvuðu mótlæti í æsku... Mótlæti býr til einstakling úr kjöti. Mótlætisleysi gerir menn að aumingjum eða heimskingjum. Afsakið spartneska harðneskju mína...
Annars var helgin ömurleg fyrir utan það að litli bróðir minn stóð sig ótrúlega vel á sundmótinu sem hann var að keppa á. Hann vann sosum engin verðlaun, en hann kláraði sitt og var efstur fyrir sitt félag, sem er bara mjög flott... (Svabbi er montinn)

Bestu Kveðjur,
Herra Muzak


[ 0 ]
laugardagur, apríl 13, 2002
 
Deyðu Grand Rokk!!!

Þetta var meira klúðrið...
Grand Rokk voru búnir að bóka efri hæðina fyrir tónleikana okkar kl. 22:00 í kvöld, en bókuðu síðan aðalfund stjórnmálafræðinema klukkan átta... Þetta þýddi að stjórmálafræðinemarnir sátu sem fastast og töldu atkvæðin sín á meðan tónleikagestir urðu reiðari og pirraðri á neðri hæðinni innan um hinar alræmdu Grand Rokk byttur sem sulluðu bjór yfir allt og alla... Ofan á allt saman mættu síðan vinir mínir á þeim tíma sem ég sagði þeim að mæta, þveröfugt við það sem ég bjóst við, og urðu því tvöfalt pirraðir út í allt... pirraðir út í mig fyrir að boða sig of snemma, og pirraðir út í Grand Rokk fyrir að vera fífl og pirraðir út í stjórnmálafræðinema fyrir að geta ekki drullað sér til að klára fundinn sinn. (ekki að ég hafi neitt á móti stjórnmálafræðingum... Ágætis fólk...) :-)
Klukkan 23:30 (einum og hálfum klukkutíma eftir að við ætluðum að byrja) fór að rofa til, og stjórnmálafræðingarnir fóru að hugsa sér til hreyfings. Þá datt mér skyndilega í hug..."Hey, þessir áhorfendur eru sko ekkert til í að hlusta á einhverja þjóðlagatónlist núna, nú dugar ekkert annað en gaddapönk og metall..." Herra Muzak og vinir í Felis Male hættu við að spila og kvöldið all ónýtt.. Síðan héldum við Helgi, Stebbi og Jósi niður á Vídalín, þar sem gæðarokkbandið Miðnes spilaði. Þar var glatt á hjalla og starfsmenn Decode og Rannsóknarstofnunar fiskiðnaðarins lögðu staðinn undir sig og voru hinir hressustu. Eins og Freyr söngvari sagði: "þetta er bíólógískt kvöld..."
Ég lagði samt af stað heim um að verða tvö, en hitti síðan Katrínu Mixa, vinkonu mína sem er yndisleg, og við spjölluðum saman til að verða fjögur... Hún gaf mér páskaegg nr. 1 þessi elska...

Sumsagt, í hnotskurn:
Grand Rokk Sökkaði...
Kvöldið Mökkaði...
Miðnes Rokkaði...
Katrín Lokkaði...
og Herra Múzak Skokkaði...
...heim klukkan að verða fjögur...

Bestu Kveðjur,
Herra Muzak


[ 7 ]
föstudagur, apríl 12, 2002
 
Afsakið mig...

...fyrir að vera ekki frekur, framagjarn og fyrirlitningarfullur hrokagikkur...
...fyrir að vera alinn upp af hógværum, lítillátum og ljúfum foreldrum...
...fyrir að vera ekki upptekinn af því að nota þumalskrúfur persónutöfra minna á yfirmann minn og stunda ekki fjárkúgun...
...fyrir að þykja peningar ekki algildasta og mikilvægasta viðmið heims
...fyrir að hafa nokkurn tíma látið mér detta í hug að ég geti einbeitt mér að vinnu minni og vænst sanngjarns mats varðandi umbun...
... æ æ æ æ

Góða helgi og sjáumst í kvöld,
Herra Muzak


[ 3 ]
 
Þið komið í kvöld...

Ég hlakka gríðarlega til að sjá ykkur í kveld gott fólk, inni á vondulyktarbjórþambavambavonduvíbrastaðnum Grand Rokk, þar sem pönkfýla, þjóðlagasöngur og önnur graðhestamúsík mun ráða ríkjum...
Bestu Kveðjur,
Herra Muzak


[ 0 ]
fimmtudagur, apríl 11, 2002
 
Tónleikar á morgun (föstudag)

Hey Þið Fólk, þið 160 hræður (mínus báðar tölvurnar mínar) sem kíkið hér daglega.
Tónleikar á Grand Rokk á morgun kl: 21:00 (ekki seinna en 21:45...) Herra Muzak og vinir opna sjóvið líklegast... (eða erum númer tvö...)
Við tökum svona eins og sex lög...
Uppröðun tónleikanna verður því nokkurn veginn á þessa leið:

Þjóðlagasveitin Felis Mala (vonda kisa)
Þjóðlagasveitin 5. herdeildin
Paunksveitin Dys
Þrusurokksveitin Andlát
Rokksveitin Ókind (er "Ókind" allt sem er ekki kind??? (ekki meint sem diss ókei?!? pís maður pís))
Rólegheitarokksveitin Kimono
Píkupoppsveitin Down to earth

Aðgangur er frír, enda er hér um að ræða indí hljómsveitir sem spila einvörðungu út á hugsjónir, í bili...

Mætið!
Herra Muzak

p.s. Kári, Drengur og Tóti, þið þurfið ekki að koma af því að það gengur enginn strætó niður í bæ frá Boston, Skövde eða Köben...


[ 1 ]
 
Er frjálshyggjuhugsjónin...

...appelsínugulur og eiturgrænn skíðagalli/samkvæmiskjóll í höndum góðviljaðrar en blindrar konu...
...eða fiðla í höndum svína?


[ 2 ]
 
Dæmdur til láglaunastarfa...

Ég mun líklega alltaf verða láglaunamaður... Ég hef engan áhuga á að starfa sem flugmaður, þótti leiðinlegt að fljúga flugvél. Ég ætlaði að verða verkfræðingur, en þótti það hálf þurrt og leiðinlegt fag, svo ég ákvað að fara í eitthvað skemmtilegra, meira lifandi. Ég nenni ekki að vera verðbréfagæji, það er allt of eitthvað þurrpumpulegt og yfirborðsmennskulegt djobb líka. Sjómennskan á ekki nógu vel við mig til að ég geri það að ævistarfi. Ég vil helst vinna við fræðslu eða rannsóknir, ferðamennsku eða eitthvað sem kemur við fólki eða þekkingu.
Svo kann ég heldur ekki að biðja um launahækkun... Hvernig gerir maður það??? Það er annað sem ég þoli ekki við hugmyndafræði frjálshyggjunnar, hún verðlaunar frekju og refsar fyrir hógværð. Ef gaur eins og ég er hógvær og hlédrægur gagnvart yfirmanni sínum og vinnur bara vinnuna sína, þá er hann dæmdur til að sitja fastur í launastiganum...

Jæja, getið þið gefið mér einhver tipp um hvernig maður biður um launahækkun? Stingið þeim í kommentakassann...

Bestu Kveðjur,
Herra Muzak


[ 6 ]
 
Hverjir berjast???

Ég hef verið að velta því fyrir mér hverjir berjast í rauninni fyrir hlutunum.
Til dæmis með lögleiðingu fíkniefna...
Er það ungi frjálshyggjumaðurinn sem berst fyrir lögleiðingunni??? Nei, það eina sem ungir frjálshyggjumenn gera er að röfla út í eitt um það hvað ríkið sé ósanngjarnt og oppressive og nota þetta í rauninni bara sem svona dæmi um hvað þeir eru flottir...
Hinir sönnu bardagamenn eru neytendurnir, neytendur kannabisefna til dæmis. Það eru þeir sem eru að valda ríkisvaldinu erfiðleikum. Í hvert skipti sem löggan og dómstólarnir eyða tíma og peningum skattborgaranna í fangelsun og rannsóknir á nokkrum molum af hassi, þá er það bara vesen fyrir ríkið. Hver einasti lítill unglingur sem er að fá sér í haus öðru hvoru er að berjast miklu árangursríkari baráttu og af mun meiri sannfæringu en ungu "lögleiðingarsinnarnir..." Ég er ekki einu sinni almennilegur baráttumaður sjálfur, hef bara prufað eitthvað smávegis eins og einhver kelling.
Ég er til dæmis viss um það að Björgvin G. og Sigurður Kári hafa aldrei (eða sjaldan) fengið sér í haus. :-) Þeir eru of smeykir við að fara á sakaskrá fyrir "Alvöru Glæp".
Ástæðan fyrir þessari virku "baráttu" ungu frjálshyggjumannanna er mun einfaldari, þeir vilja fá sem mesta umfjöllun og verða umdeildir, svo þeir hafi einu trompinu fleira í atvinnuviðtölum hjá flottu fyrirtækjunum, það er nebbnilega svo flott að hafa einu sinni verið rebell en vera núna í jakkafötunum og voða fínn og allt... (svo böstar Löggan aldrei Kókaín"greni" hvort eð er... Þá fyrst myndi fíknó fara í yfirvinnubann... (Hafiði annars pælt í því að nokkrir krakkar að fá sér í haus er "Fíkniefnagreni" en uppastóð að fá sér í nös er meira eins og "einkasamkvæmi"))
Hin sanna frjálshyggja býr s.s. í skítugum fíkniefnagrenum unglinganna...

Bestu Kveðjur,
Herra Muzak

p.s. frábær grein eftir Lýð. Bara að taka það fram, maður þarf ekki að fíla klám til að vilja leyfa það...


[ 7 ]
 
Blogger er leiðinlegur við mig...

Annars var þetta gabb æðislegt og ég mæli með að þið lesið...


[ 0 ]
 
Már er Vinur Minn!!!


Már er búinn að setja upp vefsvæði mér til heiðurs á muzak.anomy.net. Ég veit hreinlega ekki hvað ég á að segja. :-) Hann er góður við mig...

Nema hvað, ég er búinn að lagfæra bögginn í bloggkomm dæminu... Fyrsta skipti sem ég díbögga php búta sem ég er búinn að skemma sjálfur... (parse error in line 12 þýddi að ég setti óvart venjulegar gæsalappir í stað \" sem er auðvitað sjálfsögð og heilbrigð skynsemi...

Og svo hvet ég ykkur til að mæta á INDY tónleikana á morgun kl. eitthvað... það ku víst standa á plakötunum...

Nema hvað... Sökum nafnleysis hljómsveitarinnar gleymdist að setja okkur inn á plakatið...

Djöfulsins Nafnleysi...

Bestu Kveðjur,
Herra Muzak


[ 3 ]
miðvikudagur, apríl 10, 2002
 
Alltaf að vaxa...

Jæja, nú er maður orðinn maður með mönnum og kominn með bloggkomm...
tékk it!!!
Ég er orðinn réttlátur negri...

Leikið ykkur að þessu ef þið viljið, áfram lýðræðisleg umræða.
N.B. Ég gef skít í alla Dissara!!!

Bestu Kveðjur,
Herra Muzak


[ 2 ]
 
Greinilegt...

Geir getur ekki gagnrýnt neitt sem honum er rétt af sjálfstæðisflokknum... Það er gott að Geir hefur nógu öflugt meltingarkerfi til að geta gleypt hrátt slíkan striga sem álversmálið er án nokkurrar gagnrýni eða meltingar...
Svo nægir honum að kalla mig ljótum nöfnum.
Ég hlakka til lýðræðis 21. aldarinnar...

Bestu Kveðjur,
Herra Muzak

p.s. ég tek það fram, áður en Geir hakkar þetta í sig, að orðið "Gagnrýna" þýðir að taka viðkomandi fullyrðingu eða staðhæfingu ekki sem gefinni heldur rýna í gegnum hana og kanna forsendur hennar ítarlega, þá miðað við aðrar staðhæfingar og almenna skynsemi... Orðið Gagnrýna þýðir ekki að segja að eitthvað sé kjaftæði og rugl eða að sá sem setur fram fullyrðingu sé bara heimskur heimspekingur eða rugludallur og því óhæfur um að hafa nokkurn tíma nokkuð til síns máls...


[ 6 ]
 
Eitt af því versta...

...sem ég upplifi er þegar fólk beitir mig tilfinningalegri fjárkúgun. (emotional blackmail)
Fólk sem maður treystir og ber virðingu fyrir notar tilfinningalegt vægi sitt til að berja út úr manni samþykktir og ókei sem annars væru ómöguleg.

Svo vil ég bjóða ykkur öll velkomin á tónleika á föstudagskvöldið á Grand Rokk. Þar munu koma fram allmargar sjálfstæðar og skapandi hljómsveitir sem vinna utan íslenskrar síbilju, og erum við Zato þar engir aukvisar...
Við munum sumsagt flytja nokkur lög þarna með afar einföldu hljómsveitinni okkar...
Hlökkum til að sjá ykkur, mætið snemma...

...Sendið mér póst með hugmyndum að nafni á hljómsveit Herra Muzaks

Bestu Kveðjur,
Herra Muzak


[ 0 ]
 
Eins og GYLFI ÆGISSON?!??!??!?!?

Þú ert minn Bragi, þú ert minn!!!
Fyrir utan eftir tuttugu mínútur, ég buffa þig!!!

:-)


[ 0 ]
 
Fjandans tímaeyðandi Quiz... :)

ókei.... í boði www.thespark.com
MENTOR

(SubmissiveExtrovertAbstractThinker




Svavar

Like just 6% of the population
you are a MENTOR (SEAT). Some would call you the most powerful and influential of all people. Those people are wrong.


The reality is that you DON'T really WANT to impose personal views or beliefs on others. Yet you are extroverted and intelligent, and you like to get involved. So you help others with the pursuit of knowledge.


You're the reason that people say "teachers are also students." You are as much a learner as a master, and this satisfies you.


You won't die a lonely death, but towards the end you'll grow introspective, wondering if your life meant anything. This will last for decades, and you'll die after your spouse.




Þar höfum við það...
Herra Muzak



[ 0 ]
 
Gamlar konur rúla...

Gömul kona sat fyrir framan mig í jarðarförinni í gær... Hún var í risastórum loðpelsi og með loðhúfu...

Hún leit út eins og Bjarndýr með handtösku...

Ég barðist örvæntingarfullri baráttu við hláturinn sem er í rauninni fyrst að koma upp núna...

Bestu Kveðjur,
Herra Muzak


[ 0 ]
 
Hvað í helvíti?!?

Ég hef aldrei séð annað eins bullshit og þetta hér!!!

Djöfull halda þessir menn að fólk sé mikið fífl!
Ekki einu sinni ég hef svona litla trú á fólki...

Þjóðernishyggjan sem þessir menn boða er svipað jafn falleg og heilbrigð og rassgatið á Carl Lewis, langstökkvara og sandsmakkara...

Bestu Kveðjur,
Herra Muzak


[ 0 ]
þriðjudagur, apríl 09, 2002
 
Smá Kærleikskveðja

Mig langaði bara að láta ykkur fá smá gleðikveðju frá mér til ykkar...



[ 2 ]
 
Jarðarfarir

Ég hef farið á ótrúlega margar jarðarfarir á minni stuttu ævi.
Ég held að skriðan hafi farið svolítið af stað þegar snjóflóðin féllu á Flateyri í Október 1995 (No pun intended...)
Þá mætti maður á ansi margar jarðarfarir...
Eftir Flateyri hélt þetta áfram. Vinir, frændur, frænkur, ömmur og afar, börn... það er alltaf erfitt á jarðarförum þegar lítið barn er kvatt. Stundum eru Jarðarfarir bara kveðjustundir, kveðjustundir fyrir fólk sem er búið að eiga góða og langa ævidaga og gera fullt. Það er erfiðara að kveðja vini sína þegar þeir eru í blóma lífsins og börn vina sinna, ekki einu sinni komin í blóma lífsins.

Ég er búinn að kveðja aðeins of mikið af vinum... Ég var að taka saman lista yfir æskuvini og fattaði að ég á tvo menn eftir af u.þ.b. 8 manna æskuvina- og félaga hópnum. Einn af þeim fór í ruglið og við fjarlægðumst í tætlur og fimm eru nú dánir. Ég á sumsagt tvo félaga og vini eftir af æskuvinahópnum. Þetta gerir mig svolítið leiðan... Stundum verð ég pínulítið einmana þegar ég fer að hugsa um alla þessa stráka sem eru núna komnir ofan í mold.

Ég þarf samt á jarðarförum að halda, þær hreinsa sálina. Sá sem er verið að jarða tekur oft með sér fullt af sóti og "tannstein" sem hefur safnast á hjarta mitt og það flýgur með honum í burtu og ég geng út af jarðarförinni betri maður. Jarðarfarir eru líka svona stundir sem fá mann til að staldra við og spekúlera.

Í dag fór ég í eina af þessum góðu jarðarförum, jarðarförum sem endurnæra sálina. Af því að þarna var um að ræða yndislega gamla konu sem gerði svo margt gott og snerti svo marga. Í kirkjunni var ekkert nema hlýja og auðvitað smá sorg, en sú tilfinning sem reis hæst var bara einföld kveðjustund við yndislega konu, hana Gógó.
Athöfnin var í Fíladelfíukirkjunni, konan var gamall nágranni okkar fjölskyldu, og hafa fjölskyldur okkar gengið í gegnum margt bæði súrt og sætt saman í þau næstum fjörutíu ár sem þær voru nágrannar. Okkur þykir öllum ofboðslega vænt um fjölskylduna hennar og hana sjálfa.
Það er ánægjuleg tilbreyting að fara í jarðarför hjá Fíladelfíusöfnuðinum. Þar er ekkert af þessari helgislepju sem einkennir lúthersku þjóðkirkjuna. Þarna voru alvöru tónlistaratriði í stað steríls kóravæls, barnabörnin hennar spiluðu og sungu, og vinir hennar fóru með ritningarorð og minntust hennar. Það var ekki laust við að fólk hlægi dátt að sumum skemmtilegu hlutunum sem voru sagðir þarna uppi. Svo var sándið líka alveg prýðilegt. Ég vildi óska að allar jarðarfarir væru jafn vel útfærðar og hjá Hvítasunnusöfnuðinum, persónulegar, innilegar, einlægar. Ég fór að hugsa um hvernig ég vil hafa þetta þegar ég fer sjálfur. Mig langar ekki í íslenska vælujarðarför. Mig langar að vinir mínir komi upp og spjalli og jafnvel spili eitthvað fallegt lag sem á vel við. Ekki eitthvað "ésú bjargar mér á himnum því himnaríki er gott og ég syndga svo mikið og allt er blóm..."

Einn textinn sem var sunginn í þessari ágætu hvítasunnuathöfn vakti mig til umhugsunar...
Ég er ekki með hann við höndina en inntakið í honum var það að á himnum er aldrei grátur og aldrei erfiðleikar. Á himnum er allt gott og aldrei neitt óþægilegt.
Þá fór ég að pæla... Langar mig virkilega að vera á stað þar sem er ekkert mótlæti...? Langar mig til að fara til himna og upplifa ekkert annað en eilífa sælu?
Ég smakkaði einu sinni svona sætupillu, efni sem er 50 sinnum sætara en sykur... Bragðið var ekki sætt, heldur var eins og ég hefði stungið rauðum pipar upp í mig. Bragðlaukarnir skaðbrunnu og ég var margar vikur að ná mér... allt var með svona viðbjóðslegum dísætukeim.
Ég gæti ekki þrifist án mótlætis, án erfiðleika, án þess að fá stöku sinnum að gráta og verða reiður. Mig langar ekki að upplifa algera gleði, algera ánægju. Ég er í himnaríki nú þegar, vegna þess að sál mín þrífst á síbreytileika lífsins.

kannski ég pæli meira í jarðarförum og dauðanum seinna, en nú ætla ég að snúa mér aftur að lífinu.

Svabbi


[ 0 ]
mánudagur, apríl 08, 2002
 

Rétt í þessu var félag íslenskra einkahagsmunagæslumanna að samþykkja leyfi um virkjun á Kárahnjúkum. Það yndislegasta við þetta er að Samfylkingin virðist hafa kúvent í annað skiptið í málinu. Nú er Samfylkingin loksins orðin að málefnasvikara fyrir mér. Ókey að skipta einu sinni um skoðun, en tvisvar um sama mál á fimm árum??? Populistar!!!
Ég get ekki kosið vinstri græna þó mér líki vel við Steingrím J. Ástæðan er sú að ég er á móti þessari heimskulegu haftahugmyndafræði sem þeir boða. Allt á að banna sem er ekki samkvæmt ströngustu viðmiðum sannkristinna teprukerlinga.

Hefur meirihluti þjóðarinnar glatað vitinu? Eða eru einhverjir geimverugeislar að breyta okkur í rolluher? Hvers vegna styður fólk þetta fáránlega framtak, meira að segja klárir gaurar eins og Geir, sem maður myndi nú halda að gæti gagnrýnt svona heimsku út frá forsendum hreinnar verkfræði. Hvar er hin margfræga gagnrýni Geirs þessa dagana? Er hann kannski eins og allir hinir ungu sjallarnir, gagnrýnir allt sem vinstri menn setja fram, en fylgir í blindni frumkvæði meistarans???

Pælið í þessu, hefur íslenskt samfélag efni á því að fjárfesta 200 milljarða í eitt stórt verkefni sem mun lama íslenska fjárfesta í mörg ár, í þeirri von að álverð haldist og engar slæmar ákvarðanir verði nokkurn tíma teknar á næstu 50 árum. Auk þess verður virkjunin ónýt eftir 50 ár, þannig að barnabörnin mín geta farið í skemmtiferðir upp á hálendið og skoðað 140 milljarða brandarann sem Davíð Oddsson og Valgerður Sverrisdóttir sendu þeim í tímapósti. Hefur ekkert gildi nema hægt sé að borga beinharða monnípeninga fyrir???

Ég lýsi frati á meirihluta íslenskrar þjóðar eins og hann leggur sig, í ljósi þess að hann þekkir ekki það sem gott er, hann hefur ekkert gildismat og er tilbúinn að fórna gríðarlegum hagsmunum fyrir vægast sagt heimskulega og illa ígrundaða nauðgun á íslenskri náttúru og fórn á góðu íslensku vinnuafli...

Meira að segja ég, heimski litli heimspekingurinn með kerfisfræðimenntunina, get nefnt a.m.k. 20 hugmyndir að atvinnuleiðum og fjárfestingum sem myndu nýta betur orku og krefjast minni virkjunar og myndu skila jákvæðari samfélags- og efnahagslegum áhrifum en en þessi Jörmungandur sem hér er um að ræða. Ég skrifa hann ekki upp núna, enda í vinnunni, en ég get sosum sett hann upp seinna...

Ég nenni ekki að vera hluti af þróunarlandi, ég vil vera hluti af siðmenntaðri vestrænni þjóð, og siðmenntaðar vestrænar þjóðir eru í óða önn við að losa sig við álver og stóriðjuverksmiðjur.
Til hvers þurfa Austfirðingar ríkisskaffaðan vinnustað fyrir 2000 manns??? Geta þeir ekkert gert sjálfir? Væri ekki ráð að redda þeim einhverju sem gefur svona eins og 200 manns vinnu og síðan leyfa þeim að klára dæmið sjálfum...

Þetta er forræðishyggja Geir (og allir hinir ungu sjálfsblekkingarmennirnir sem halda að þeir séu að styðja við bakið á frjálslyndis- og frjálshyggjuflokki), Álverabyggingar og risavirkjanir fyrir 6000 manna byggðarlag eru forræðishyggja af besta klassa, fimm ára áætlanir á Stalínískum kvarða. Sættið ykkur við það og gangið í lið með þeim sem vilja alvöru atvinnuframtíð sem byggir á einstaklingsframtakinu og hugmyndaauðgi fólksins.

Bestu Kveðjur,
Herra Muzak


[ 0 ]
 
Ég held að þessi skemmtilega frétt toppi allt...

Baggalútur á orðið...
Mér þykir Enter (blaðamaður á Baggalúti) ná persónuleika Bush "forseta" og málfari einkar vel...

Virðingarfyllst
Herra Muzak


[ 0 ]
 
Vinir mínir eiga orðið...

Ég verð að óska Dreng til hamingju með leirkvæði sín hér um daginn... Ótrúlegt hvað fullkominn súrefnisskortur getur gert við skáldagáfuna...

Annars vil ég mæla með henni Báru "Snæuglu", sem hefur upp raust sína í vefleiðaraheiminum. Ég legg til að þið lesið það sem hún hefur að segja, því þó ég sé oft ósammála henni, þá færir hún mjög gjarnan góð og skemmtileg rök fyrir máli sínu... Og svo er hún líka mjög góð vinkona mín...

Annars er fátt annað á döfinni... Ég er alltaf að leita að tónlistarmönnum til að vinna með, ef þið þekkið einhverja tónlistarmenn með glöð hjörtu og tilbúna í slaginn, þá endilega látið þá kontakta mig...

Ég veit að allir eru búnir að vera að skrifa um dóminn sem ómennið fékk fyrir að nauðga litlu barni og gefa því kynsjúkdóm, en ég get ekki stillt mig. Mér blöskrar þetta meira en orð fá lýst.
Það mætti halda að dómararnir hefðu samúð með mannhelvítinu!!! Eru þeir eitthvað að vorkenna manni sem hreinlega myrðir barn?!?
Þó ég sé almennt á móti hugmyndinni um "refsingu", þá tel ég að mikilvægt sé að taka af svona mönnum þau forréttindi að umgangast börn. Frelsi fylgir ábyrgð, og ef menn þola ekki ábyrgðina, þá eiga þeir ekki frelsið skilið. Þessum manni var treyst fyrir demanti og hann skeit yfir það traust. Það á að setja svona menn úr umferð í allavegana fimm ár, og síðan banna þeim öll samskipti við börn þar á eftir. Þeim er einfaldlega ekki treystandi. Ég meina kommon... Kynfæravörtur og Klamedía!!! Talandi um rjúkandi byssu...
Ég er alveg ótrúlega reiður út í þennan glæp, en ég er ennþá reiðari út í dóminn...

Bestu kveðjur,
Herra Muzak


[ 0 ]
föstudagur, apríl 05, 2002
 
Ég verð að viðurkenna...

... að þó mér þyki oft lítið til andríkismanna koma, og þeir hafi gersamlega brugðist því loforði að verða ólíkir gamla þjóðviljanum, þá var þessi djókur (í boði Geirs) alveg fráááábær... :)

Takk Geir, góð ábending...

Bestu Kveðjur,
Herra Muzak


[ 0 ]
 
Nú er ég ekki alveg að fatta...

Hvurninn fær Bjarni það út að ég hundsi þau rök að lögleiðing fíkniefna stuðli að minnkun fíkniefnatengdra afbrota? Ég hef sjálfur haldið þessum rökum fram síðan ég man eftir mér (að vísu er það ekki að segja mikið, ég man ekki hvað ég borðaði í hádeginu... jú Lambagúllas!!! fjúkk...)
Ég er stuðningsmaður lögleiðingar fíkniefna. Ég er hins vegar ekki frjálshyggjumaður og er andsnúinn mörgum af þeirra grundvallarhugmyndum, s.s. að allt sé falt.
Ég held að Bjarni (með fullri virðingu) verði að fara að lesa mig betur... :-) N.B. :
Mín orð: "Annars var þetta ágætis grein hjá Sigga, fyrir utan það að hann lítur fram hjá eðli mannsins. Veruleikaflótti eða ekki, það að vilja komast í e.k. vímu með hjálp utanaðkomandi efna er sameiginlegt öllum dýrum sem á annað borð hafa einhverja skynjun. (þó auðvitað séu til örfáar hræður sem nota ekkert slíkt, dansa kannski jógadans eða öskra sig máttlausa uppi á sviði til að komast í annað ástand, breyta skynjun sinni, upplifa öðruvísi hugarástand, brjóta upp hversdaginn, hvað sem takmarkið er...)"

Þarna sagði ég ekki í svo mörgum orðum, að manninum væri eðlislægt að reyna að komast í einhvers konar annarlegt hugarástand, hvort sem um er að ræða dans, söng, öskur, bardaga eða lyfjaneyslu. Hver hefur sinn háttinn á. (sjálfur hef ég prófað sitt af hverju í þessum efnum og finnst tónlistin ennþá mun skemmtilegri en kannabisefnin sem ég prófaði hér forðum... (nudge nudge))

Ég var einfaldlega að snerta á þeim fleti að þó maður sé ósammála einum þarf maður ekki að vera sammála öðrum og öfugt, maður getur verið sammála báðum að vissu marki. Þannig andmæli ég hugmynd Sigga um eðli vímuleitar mannsins, en um leið andmæli ég strangkapítalískum trúardogmukenningum Geirs.

En nóg um það. Ég hafna algerlega þeirri fullyrðingu Bjarna að ég sé á móti lögleiðingu eiturlyfja. Ég hafna hins vegar þeirri grundvallar hugsjón að lífið snúist ekki um annað en efnisleg gæði og peninga og ekkert hafi gildi nema það sé mælanlegt í hagfræðilegum stærðum. Þetta er spurning um gildismat. Ég kýs að hafa fjölvíðara gildismat en línukvarða kapítalískrar meðalmennsku. (og mig grunar fastlega að það sé Bjarna valkostur líka...) ;-)

Bestu Kveðjur,
Herra Muzak


[ 0 ]
 
Spassafín grein hjá Sigurfrey

tékk itt át...

Þó ég sé enginn harðkjarna bonglover þá finnst mér þessi punktur góður og mikilvægt innlegg í umræðuna...

Herra Muzak


[ 0 ]
fimmtudagur, apríl 04, 2002
 
Anarkistinn og spraðabassinn


Geir er samur við sitt og eyðir ekki mikilli orku í að svara grein Sigga Punk í gær. Geir er sosum ekki frægur fyrir að svara af málefnaleik eða eftir djúpa hugsun, þó oft komi hann fram með góðar hugmyndir og skemmtilegar pælingar.

Annars var þetta ágætis grein hjá Sigga, fyrir utan það að hann lítur fram hjá eðli mannsins. Veruleikaflótti eða ekki, það að vilja komast í e.k. vímu með hjálp utanaðkomandi efna er sameiginlegt öllum dýrum sem á annað borð hafa einhverja skynjun. (þó auðvitað séu til örfáar hræður sem nota ekkert slíkt, dansa kannski jógadans eða öskra sig máttlausa uppi á sviði til að komast í annað ástand, breyta skynjun sinni, upplifa öðruvísi hugarástand, brjóta upp hversdaginn, hvað sem takmarkið er...)

En ég held að eitt sé alveg satt hjá honum Sigga. Frjálshyggjumenn virðast ekki eiga sér neinar háleitari hugsjónir en þær að allt eigi að vera falt. Þeir virðast nefnilega sjá heiminn sem eitt stórt markaðstorg. En markaðstorg er í rauninni bara hluti af heiminum, heimurinn er miklu flóknari en svo.
Milton Friedman, "faðir" frjálshyggjunnar, varaði einmitt við því að hugmyndir hans væru teknar og notaðar beint, hann hefur sagt að þetta séu einungis kenningar, og kenningar endurspegli aldrei raunveruleikann, rétt eins og homo economicus er ekki til í raunveruleikanum. (sem betur fer...)

Bestu Kveðjur,
Herra Muzak



[ 0 ]
 
Bloggers blogck...

Smá blokkaður núna, mikið að gera...
En ég fór á ansi skemmtilegan hádegisfund á Grand Hotel varðandi þekkingarþorp. Þar var rabbað um möguleika og eiginleika þekkingargarða/þorpa, þar sem fyrirtæki í þekkingariðnaði byggja upp öflugt samstarf jaríjaríjarí... Mjög áhugavert og margt sem kveikti á mér...

Annars fór ég þá að hugsa um helvítis náttúrufræðihúsið sem ætlar aldrei að klárast út af bruðli, vitleysu og þröngsýni íslenskra yfirvalda (sem síðan blaðra og jammra út í eitt um þekkingarsamfélagið um leið og þeir ætla að hneppa 2600 manns og 200 milljarða í gíslingu austur á fjörðum í stóriðjuáformum. Frábært, þær verða feitar fjárfestingarnar í þekkingarsamfélaginu á meðan íslenska hagkerfiskyrkislangan er að melta 200 milljarða álversfjárfestingu. Með slíkum fjárfestingum erum við að dæma landið aftur úr í rannsóknum og framþróun næstu 20 árin. Æði...) Þetta náttúrufræðihús er æðislegt dæmi um það hvernig skammsýnin lætur okkur tapa hundruðum milljóna á ári í lélegri aðstöðu fyrir raungreinanema og væntingum sem ekki rætast og sóun á húsplássi sem gæti verið í nýtingu. Þarna standa dauðir fermetrar mitt í allri þörfinni og við látum nokkra tugi milljóna til og frá stoppa okkur í að klára þetta. Draslfíflafólk!!! Niður með Dr. Magga Vonda, bruðlmeistara Háskóla Íslands. Hvursu margir fermetrar ætli fari í rugl í þessu blessuðu húsi???


Bestu kveðjur,
Herra Muzak


[ 0 ]
miðvikudagur, apríl 03, 2002
 
Fræg hryðjuverkasamtök

Hér er hlekkur á fræg hryðjuverkasamtök sem voru uppi á síðustu öld og eru þau enn í dag stór hluti af dægurmenningu vestrænnar siðmenningar...
Þessi hryðjuverkasamtök ollu stórkostlegu tjóni á mannvirkjum, óbreyttum borgurum og hermönnum og voru fordæmd af mörgum ráðandi aðilum innan Evrópu.
Fjöldi saklausra einstaklinga varð þeim að bráð og ollu þeir miklum ótta í heimalandi sínu og um alla Evrópu. Þó nutu þau einnig víðtæks stuðnings fólksins og nokkurra landa sem ekki voru vinveitt ráðandi ríkjum Evrópu á þessum tíma.

Það er soldið skondið að þú ert annað hvort hryðjuverkamaður eða frelsishetja eftir því hvoru megin sigurvegarans þú stendur.
Bestu kveðjur,
Herra Muzak


viðbót... kl. 11:45
Albert Camus, franskur heimspekingur og virkur andspyrnumaður (hryðjuverkamaður...) hafði þetta að segja árið 1942:
"To judge an event is impossible and immoral from the outside. It is in the midst of this absurd calamity that one retains the right to despise it."


[ 0 ]
 
Ef ég væri 160 cm á hæð...

... 60 kíló að þyngd, hvítur ræfill og með vöðvamassa á við hænu...
... og Mike Tyson væri að reyna að nauðga mér í rassgatið...
... Með gaddadildó í hendinni...
... svona rétt til vara...
... Og stóri vinur hans stæði yfir honum og hrópaði Áfram Tyson, Áfram Tyson...
... Af því að Tyson er svartur og forfeður hans áttu svo bágt...
... og ég myndi sparka í punginn á honum í ósjálfráðu varnarviðbragði...
... Væri ég þá orðinn hryðjuverkamaður...??? (jafnvel hreðjaverkamaður???)

Bara smá pæling í ljósi atburða liðinna daga...

Herra Muzak


[ 0 ]
 
Maður neyðist víst til þess að...

Óska Stebba til hamingju með ammælið í gær, nú er hann orðinn jafn stór og við hinir...

og svo neyðist maður víst til að kveðja hann Jón Múla okkar.
Kallinn dó núna 1. apríl, 81 árs að aldri, vel að því kominn líka.
Jón Múli var held ég einn flottasti tónlistarmaður síðust aldar og skildi eftir sig gommuna alla af flottri tónlist og vann auk þess þrekvirki í því að bæta tónlistarmenningu og -vitund íslendinga.
Maður segir nú bara: "Arí dúarí dúra dei..."
Þessi kall getur verið okkur öllum fyrirmynd í lífinu. Hann var fullur af sköpunarkrafti og orku sem knúði áfram heila kynslóð tónlistarmanna. Honum eiga íslenskir djassunnendur mikið að þakka.
Vertu blessaður Jón Múli og megi þeir spila góðan djass á himnum...
Þinn aðdáandi,
Herra Muzak


[ 0 ]
þriðjudagur, apríl 02, 2002
 
Vændur um Brögð í tafli!!!

Árni Þór fer hamförum í tapsárni sinni :-)
Sumir geta bara ekki sætt sig við að sumir okkar eru betra efni í einkaritara en þeir... ;-)
Ég fullvissa hinn ágæta Árna Þór um að engin brögð voru þarna í tafli, maðklaus mysa og mjölið í pokahorninu dauðhreinsað...

Annars hef ég alltaf verið bilað góður í vélritun, frá því ég var tólf eða eitthvað... Ég settist bara niður við ritvélina hans bróður míns einn daginn og "BOMS!!!" (ekki það að vélritunarhæfileikar geri neina sérstaka hljóðeffekta...) Einn af þessum súru hæfileikum sem enginn veit hvaðan koma en eru bara þarna.
(af hverju gat ég ekki verið með þennan talent í saxófónleik eða verðbréfamiðlun...? Ég væri næsti Charlie Parker, mínus heróínið... Pælið í því hvað guð er súr... "Ég ætla að gera þig góðan í.... VÉLRITUN!!! MOUHAHAHAHA!!!! )

Annars hvet ég fólk til að taka prófið án þess að svindla.

Bestu Kveðjur,
Herra Muzak


[ 0 ]
 
Take that arnithor.com


Your accuracy was impressive.
Your speed was 68 WPM
68 orð á mínútu, engin mistök... Taktu þetta Árni Þór!!! :-Þ hahahaaaaa

afsakið montið...

Herra Muzak


[ 0 ]
 
Morðvopn...

Byssur drepa ekki fólk... Fólk drepur fólk...
Bílar drepa ekki fólk... Fólk drepur fólk...

Bílar eru morðtæki, rétt eins og byssur, meira svona eins og fallbyssur.
Þegar menn í umferðinni fara með bíla eins og kolbrjálaður hillbilly fer með haglarann á að svipta þá ökuleyfi fyrir lífstíð.
Ökuleyfi á að vera háð sömu skilmálum og byssuleyfi. Maður fær tímabundin réttindi til þess að fara með tól sem getur valdið fjörtjóni sé óvarlega með það farið. Ég sé ekki hvernig þetta á að vera ólíkt með bíla frekar en byssur. A.m.k. veit ég að ógætilegur akstur óábyrgra einstaklinga sviptir fjölda manns lífinu á ári auk þess sem hann dæmir marga í ævilanga og óverðskuldaða vist í hjólastól eða verra.
Þegar menn gæta sín ekki í meðförum verkfæra sem geta krypplað fólk og drepið á umsvifalaust að svipta þá leyfi til að beita því.
Ég veit ekki hversu oft ég hef lent í því að einhver hálfviti keyrir framúr okkur fjölskyldunni og brýst á milli bíla eins og moldvarpa. Þá munar oft einungis hársbreidd að þessi hálfviti í star-wars leik breyti fjölskyldunni minni í mannamauk.
Ég vil ekki vera úti í umferðinni með fólki sem er óhæft um að taka ábyrgð á eigin lífi og annarra.

Bestu kveðjur,
Herra Muzak


[ 0 ]
 
Frábærir páskar...Síðbúin Kántrívakning

Jæja gott fólk,
nú er Svavar búinn að safna orku yfir páskana og líður eins og nýslegnum túskildingi. Ég fagnaði krossfestingu og dauða frelsarans með því að horfa á Moulin Rouge (frábær mynd) og borða góðan mat. Síðan létum við ljónin einn dag líða og lágum á meltunni, étandi afganga... Seinni svalldag páskafrísins tókum við með trompi, átum sveittan lambaframpart og drukkum jólaöl auk þess sem undirritaður fagnaði endurkomu frelsarans með því að drepa fólk í þykjustunni. Half Life og Counterstrike gerðu fínt kommbakk í húsi listamannsins og mannvinarins Muzak.

Einnig er maður alltaf að uppgötva gömlu góðu amerísku þjóðlagatónlistina, þökk sé Coen bræðrum. Ég er farinn að hlýða meir og meir á alls konar blúgrass og gamalt Cuntry sem kveikir í hjartarótunum mínum. Ég veit að það hljómar voða hallærislega, en þetta er ekkert Bóhal og sléttuhunda eða Snöru-kjaftæði. Þetta er good old fashion Oh glory glory kántrýmúsík.

Það er skondið hvernig gömul trúartónlist getur vakið hjá manni þægilegar tilfinningar. Ég tel mig ekkert sérstaklega kristinn mann, en þetta æðruleysi og einlægnin sem skín út úr þessum skosk-írsk-amerísku þjóðlagatextum lætur mér líða ótrúlega vel. (ekki hafa áhyggjur, ég er ekki að fara að breytast í neinn helvítis P*l R***nk***s, vælandi út og suður um Jesú og Gvöð.) Til dæmis "on heaven's bright shore" með Alison Krauss, Ralph Stanley & Judy Marshall, hreint ótrúlegur andskoti. "On heaven's bright shore, there'll be no dying over there, not one little grave, in all that fair land, that wonderful land. Not even a tear will dim the eye and noone up there will say goodbye, just singing his praise to endless days on heaven's bright shore."

Meira seinna, verð að vinna eins og strútur núna...

Bestu Kveðjur,
Herra Muzak


[ 0 ]
Virka þessi Drösl???