![]() |
Þankatankurinn
|
![]() |
||||
|
Svavar Knútur Kristinsson, Félagsauðströll, heimspekingur, umhverfis-verndarsinni og tónlistarmaður. NÝTT!!!
|
Nýjustu Demó: Ástarsaga úr fjöllunum (Sumarið 2005) Goodbye my lovely (19. júní 2005) Your love was death to me (Janúar 2005) Call off your Cavalry (September 2004) You should call a doctor (Maí 2004) Kysstu tímaglasið (endurbætt útgáfa 2004) Mother's day Jólaplata Hrauns 2003: Þrautgóðir á Hraunarstund Jólaplata Hrauns 2005: Höldum jól Jólaplata Hrauns 2006: Jólamolar |
fimmtudagur, maí 30, 2002
Af hverju er maður að klæða sig eins og snjókarl á svona degi???
Djöfull er heitt... Það tekur mig alltaf svona þrjá mánuði að átta mig á því að það er komið sumar og óhætt að klæða sig létt. Þá kvefast ég af haustkvefinu daginn sem ég fer út í gaddinn á vindjakka og stuttbuxum einum fata... Tilhugsunin er skelfileg... ég veit... Ég vildi óska að ég hefði meiri tíma og nennu til að gera tónlistina mína, en það fer nú að líða að því að maður fari að gera eitthvað sniðugt... Velkominn heim Drengur! Gaman að fá góða menn aftur til landsins. Bestu Kveðjur, Svavar Muzak p.s. Ég stefni að því að fara að laga síðuna pínupons... Ég stefni líka að heimsyfirráðum... en hver telur...? [ 3 ] URG! Brjálað að gera, hef engan tíma til að blogga!!! Ég heyri í ykkur öllum fljótlega... Herr Muzak [ 0 ] þriðjudagur, maí 28, 2002
Samsærið ógurlega sem aldrei var til...
Ekki það að maður vilji vera leiðinlegur við neinn, en það er ósköp algengt viðkvæði "hinna heilaþvegnu" að vinstri menn séu með "Samsæriskenningar" þegar þeir benda á vandamál í kapítalisma. Sem dæmi um það snerti ég í gær á þeirri pælingu að lyfjafyrirtæki eru hætt að leita að lækningum við sjúkdómum og einbeita sér að því að slá á einkennin. Þetta er vegna þess að þau græða ekki neitt ef þau geta ekki haldið áfram að selja lyfin. Orðið "Samsæriskenning" er markleysa í þessu sambandi, þar sem ekki er um neitt samsæri að ræða. Það þarf ekki samsæri til þess að gráðugir menn taki allir sömu ákvörðunina í svipuðum aðstæðum. Samsæri er þegar menn rotta sig saman. Passívt samþykki er þegar menn hreinlega gera sama hlutinn vegna þess að þeir hafa einfalda hvatningu til að gera hann. Það þarf ekkert samsæri til að taka ákvarðanir byggðar á græðgi. Það þarf heldur ekkert samsæri til að mengi þessara ákvarðana hafi afar slæm áhrif á lífskjör fólks, og þá sérstaklega fátækra í þróunarlöndum. Sem dæmi má nefna það þegar alþjóðlegt matvælafyrirtæki keypti landsvæði sem tilheyrði indíánum í Suður-Ameríku. Indíánarnir fengu, fyrir óendanlega náð og góðsemi fyrirtækisins, störf við það að rækta maískorn á landinu sem þeir höfðu áður lifað á. Mataræði þeirra breyttist úr fjölbreyttri og próteinríkri dagsneyslu yfir í einungis kornstöngla. Heildar hitaeininganeyslan hélst svipuð en nú deyja mun fleiri úr vannæringu á þessu svæði en áður. Indíánarnir fá rétt nóg laun til að geta keypt sér maís af fyrirtækinu á "vildarkjörum" en vinna þess í stað 14-16 tíma vinnudag á ökrunum. Áður höfðu þeir kannski eytt u.þ.b. 5-6 tímum á dag í að veiða og rækta í matinn og áttu þá 10 tíma afgangs til að gera annað. Þetta köllum við vestrænar framfarir, þetta þýðir að við getum öll keypt okkur maísinn okkar krónu ódýrara en ella. Þetta er ekkert samsæri, þetta er bara einföld ákvörðun tekin á forsendum græðgi. Það er heldur ekkert samsæri í gangi um það að stinga góðum hugmyndum undir stól til þess að græða betur á... Þeir gera það bara. Eina samsærið sem ég er að sjá, er samsæri frjálshyggjumanna um að gera málaflutning efasemdamanna um hinn heilaga sannleik tortryggilegan með orðum eins og "Samsæriskenningar", "Vinstri Villa" og "Sjálfskipaðir umhverfissinnar öhöhöhö". Bestu Kveðjur, Herra Muzak [ 10 ] mánudagur, maí 27, 2002
Frábær Helgi
Keyrði norður á föstudaginn eftir að hafa kosið utan kjörfundar og leyft þannig stórabróðurflokknum að kynnast mér betur... Þeir fá víst listann beint frá sýslumanni, lista sem ég hélt að væri lokaður... djö... en nóg um það, kosningarnar fóru á besta veg sem ég gat vonast eftir. F-listinn fékk sína viðurkenningu, mun betri en menn áttu von á. R listinn hélt sínu umboði og Bjössi Bjarnason fékk á'ann... Annars var kosningavaka sjónvarpsins hræðileg, ekkert nema tölur frá skítavík nyrðri í illa forrituðu dæmi sem klikkaði oft og mörgum sinnum. geta þeir í alvörunni ekki bara notað draslið síðan síðast? En nóg um það... ;) Fyrir norðan mokaði ég milljón tonnum af hrossa- og nautgripa"afurðum" ofan í skurð sem mun hýsa jarðveg fyrir skjólbeltið sem við erum að planta... Stuð Stuð Stuð! :) Alaskavíðir er fallegur... Svo safnaði maður svona 150 græðlingum og setti í vatn og mun láta þá bíða í tvær vikur eða þar til ég fer aftur norður til að gera jarðveginn reddí og planta þeim... Þetta er þolinmæðisstarf, stundum komast hestarnir frá helvítis hestabóndanum sem notar nærliggjandi tún undir límhráefnið sitt inn á okkar land og éta af því sem við erum að reyna að byggja upp... Æðislegir þessir hrossabændur sem eiga svona 300 hross sem eiga öll að verða hrossakjöt og lím... Þeir beita þessu eins og engisprettufaraldri yfir landið og aka svo um á flottu bílunum sínum voða ánægðir. Þeir eru holdgervingar alls þess sem ég berst á móti, skammlauss virðingarleysis fyrir landinu og öðrum manneskjum. Sörli 83 og Skjóni 12... nema hvað... Sem við bræðurnir vorum önnum kafnir við að moka upp hrossaskít og moði til að ferja yfir í skurðinn okkar heyrðum við í fjarska bjölluhljóm... "ding ding dong ding dong..." Við vissum ekki rassgat hvað var að gerast, fyrr en allt í einu kom ísbíll keyrandi... ÍSBÍLL norður í rassgati!!! Og ég veit ekki hvernig, en dóttir mín fylltist einhverri ísbílsgleði, og rauk út úr húsinu hrópandi "Ísbíll!! Ísbíll!!!" við höfum aldrei séð ísbíl áður, ekki einu sinni í bænum, og svo birtist einn norður í nyrstu rassgötum hins byggilega heims og dóttir mín þekkir hljóðið (What the fuck?!?) Nú, auðvitað keyptum við ís af þessum vinalega kapítalista kærleikans. (svona kapítalista fíla ég... menn sem fá góða hugmynd og vinna úr henni, ekki bara kaupa þá út sem eru með góðar hugmyndir til að rýma fyrir sinni vondu...) Hafið þið pælt í því að lyfjafyrirtæki í dag leita sjaldnast lækninga við sjúkdómum heldur einungis leiða til að lengja líf þeirra sem þjást af þeim og til þess að slá á einkennin? súrt... Bestu Kveðjur, Herra Muzak [ 4 ] föstudagur, maí 24, 2002
AHAHAHAHAHAHAHAHAHAHA
Ég held að það gerist ekki bjánalegra... æðislegt! :) Bestu Kveðjur, Herra Muzak [ 5 ] Helgarstuð!
Ég hætti snemma í vinnunni í dag og fer að hafa mig til ferðar. Kl. 17:00 legg ég af stað í Skagafjörðinn, lendi þar í nótt og gisti. Á morgun verða síðan unnin vorverk í Skálárkotinu. Lífið er yndislegt. :) Verst hvað við verðum stuttan tíma þarna fyrir Norðan... Moonboots æfing á sunnudag, stuð stuð stuð! Bestu Kveðjur, Svavar Muzak [ 1 ] Að kvarta við kúgarann...
Þessi frétt í fréttablaðinu þykir mér ansi mögnuð... Þeir eru öflugir þessir löggumenn. En ég strandaði sérstaklega á einu atriði. Geir Jón (ágætis gaur víst...) aðstoðaryfirlögregluþjónn (langt orð) segir að fólk eigi að beina kvörtunum sínum til lögregluyfirvalda ef þeim þyki framkoma lögreglu ekki í lagi. HALLÓ GEIR JÓN!!! Í HVAÐA SAMFÉLAGI BÝRÐ ÞÚ?!? úr hinum fullkomna heimi Geirs Jóns: Lögregluyfirvöld: "Lögregluyfirvöld góðan daginn..." Kona: "Já, sko sonur minn lenti í áreitni lögreglunnar og ég og maðurinn minn líka fyrir skömmu... *lýsir atburðum*" Lögregluyfirvöld: "Guð minn góður, hræðilegt! Við gerum eitthvað í málinu strax! Það getur ekki liðist í lýðræðisríki að lögreglan áreiti almenna borgara á einhverju valdatrippi!!!" Kona: "ó hversu yndislegt það er að geta borið fullt traust til lögreglunnar og lögregluyfirvalda." Tveimur dögum seinna, við gapastokkinn... Lögreglumaður 1: "Æ, ó mig auman! Við hefðum aldrei átt að áreita þessi börn og konu..." Lögreglumaður 2: "Niðurlæging mín er alger, ég fyllist eftirsjá eftir að hafa misbeitt valdi mínu sem lögreglumaður..." Lögreglumaður 1: "Látum okkur þetta að kenningu verða og gerumst heiðarlegir og góðir lögreglumenn eins og okkur dreymdi um hér áður..." Lögreglumaður 2: "Mæl þú manna heilastur..." Gleymdu því! Stofnunin verndar sjálfa sig og kvartanir sópast undir risastórt kvartanaætuteppi... Bestu Kveðjur, Herra Muzak [ 3 ] fimmtudagur, maí 23, 2002
NEI TAKK!!!
Nú er ég Skagfirðingur í eina tána og dvel þar oft á sumrin og skrifaði B.A. ritgerð mína undir Skálárhnjúk í Sléttuhlíðinni... og þó ég sé sammála Strumpinum að miklu leiti segi ég: NEI FOKKING NEI TAKK!!! EKKI FLEIRI FOKKING HESTAMENN Í SKAGAFJÖRÐINN!!! Skagafjörður er fallegur fjörður og á ekki skilið þetta helvíti! Sendum þá frekar á Reyðarfjörð. Austfirðingar virðast tilbúnir að taka við hvers konar drasli þessa dagana... Bestu Anti-hestamín Kveðjur, Herra Muzak og meðan ég man: ÁFRAM UNNUR!!! Æðisleg grein [ 4 ] Helvítis hestapakk...
Af vísi.is: "Beitti hestum gegn reiðhjólamanni "Hestunum var beitt gegn mér á ógnvekjandi hátt þannig að ég hrökklaðist frá," segir Tómas Jónsson, reiðhjólamaður, um óþægilega lífsreynslu sem hann lenti í síðastliðinn mánudag. Tómas hafði verið á hjóli sínu á Vatnsendaveginum þegar hann hjólar fram á hóp reiðmanna. Var Tómas stoppaður og bent á að ekki væri leyfilegt að vera á reiðhjóli á þessum kafla vegarins. Hann segist hafa maldað í móinn og hafi ætlað að halda áfram ferð sinni. "Mér var meinað að halda áfram ferð minni. Einn hestamannanna tók sig úr hópnum og atti hestum sínum að mér þannig að ég sá mér þann eina kost að hrökklast frá og við það missti ég hjólið. Síðan var ég umkringdur af fleiri hestamönnum og stóð þannig í þvögunni nokkra stund, þangað til mér var hleypt áfram." Tómas segist vilja segja frá þessu atviki fyrst og fremst til að skapa umræður og ekki síst til að benda hestamönnum á þeir geti með engu móti meinað öðrum umferð á þetta svæði, sérstaklega þegar ekki er um að ræða vélknúin tæki. Jón Albert Sigurbjörnsson, formaður Landssambands hestamanna, segir ítrekuð vandamál hafa komið upp á yfirborðið, sérstaklega í kringum þéttbýlið. "Hesturinn er flóttadýr og allt snöggt hefur slæm áhrif. Það verður að segjast eins og er að það er orðið stutt í slysin. Ég er í engu að afsaka umgengnismál manna á milli. Menn verður að umgangast annan eins og samborgurum sæmir. Þetta er erfið sambúð að verða." Jón Albert segist enga lausn sjá í sjónmáli nema að nauðsynlegt sé að halda þessu aðskildu eins og kostur er. Fjöldi hestafólks sé í kringum 2.500 manns á Reykjavíkursvæðinu. Hann segir viðræður milli hestamanna og borgaryfirvalda hafnar vegna skörunar á reið- og göngustígum. Segist hann vita til þess að þessi auknu vandmál séu rædd á skipulagsfundum. Þangað til verði að sýna tillitssemi á báða bóga." Ókei, ég er allur af vilja gerður til að taka tillit til hestamanna, en kommon, ef maður vill vera svona mikill hestamaður, af hverju í andskotanum flytur maður ekki út á land? Það er allt annað ástand þar og miklu betra fyrir grey dýrin! Þetta er bara eigingirni og fólk veit ekki rassgat hvað er dýrunum fyrir bestu. Herra Muzak [ 4 ] þriðjudagur, maí 21, 2002
Mein Gott in Himmel
Ég held að fólkið sem blaðrar á www.xxxd.is dvelji í nokkuð dimmum dal þessa dagana... Með fullri virðingu fyrir þessu fólki, margir þarna eru ágætis hyski sem virðast bara hafa dregið vonda miða upp úr slagorðahattinum... Elva Dögg Melsteð: (ágætis stelpa, þykir alls ekki lítið til hennar koma... en what the hell is this...?) "Það er nærtækast að tala um leikskólana, ég hef engan tíma til að bíða eftir leikskólaplássi þegar þar að kemur. Nú svo finnst mér miðbærinn vera á hraðri niðurleið og einkennast víða af subbuskap og niðurníðslu, sérstaklega í kringum Hverfisgötuna." HALLÓ ELVA?!? Hvað varstu gömul fyrir átta árum þegar bara námsmenn og einstæðir foreldrar áttu séns á leikskólaplássi? Varstu of ung til að fatta það eða ertu bara búin að gleyma um hvað borgarstjórn D-listans snerist um? jæja... skiptir ekki máli... Næsti vondi slagorðamiði: Róbert Gunnarsson Handboltamaður: (örugglega ágætis gæi...) "Já djöfull er pirrandi að leggja bílnum niðri í bæ og þurfa að spludra fimmara svo maður fá ekki sekt, ekkert eðlilega dýrt. Svo þegar maður fer að drita niður krílanum þá væri ekki verra að þau fengju leikskóla pláss." Hey Vá! Flottur! Spludra fimmara og allt mar! Á bíl og allt mar! Ekki er ég á bíl... Dettur þessu fólki ekki í hug að leggja á Grettisgötunni, Hverfisgötunni eða bara í bílastæðahúsum??? Eiga allir að leggja á Laugarvegi og í Austurstræti??? Djöfullinn... Við þyrftum að búa til einhvers konar víddahlið til að koma öllum einkabílum Reykjavíkur fyrir á þessum tveimur götum... Ásdís Rán, súpermódel, heldur áfram og skammast í borgaryfirvöldum fyrir það að leigan sé of há í leiguíbúðum... Já Inga Solla, kommon... Skikkaðu fólk til þess að lækka leiguna á íbúðunum sem það á sjálft... Lyktar þetta eins og frjálshyggja, eða hreinræktaður sósíalismi... Leiguverð ræðst af tveimur faktorum: Framboði og eftirspurn... Það er ekki hlutverk sveitarstjórnar að stýra því hvernig fólk nýtir sínar eigur... eða hvað? Svona heldur þetta áfram og áfram, villuráfandi sauðir heilaþvegnir af íslensku auðvaldsmafíunni reyna að búa til eitthvað kúl konsept utan um það að vera skver ass bids... Síðan klukkar þetta fólk út með yfirlýsingum um að það sé frábært að djamma til sex á morgnanna, og þess vegna vilji það kjósa D... Bíddu nú aðeins við?!? Hverjir voru það sem opnuðu fyrir þetta? Voru það D-listafólkið... Bíddu nú aðeins við... Mér er meinilla við það þegar menn koma með fullyrðingar eins og D-listamenn standa alltaf við allt og R-listamenn aldrei við neitt (og öfugt...) <Gáskafullt skaup...>Ég viðurkenni fyrstur manna að Sjálfstæðismenn eru ekki upp til hópa eld og eiturspúandi brennisteinsdrekar sem vilja éta allt og alla og hneppa okkur í nýtt vistaband... (og skipa mér þannig skör hærra en flestir ungir sjálfstæðismenn í málefnaleikanum... ) ;-)</Gáskafullt skaup...> Mér er illa við Björn Bjarnason og ég hef illan bifur á fólki sem hefur efnishyggju að leiðarljósi í öllum sínum lífsskoðunum. Það er ástæðan fyrir því að ég finn mig ekki í Sjálfstæðisflokki dagsins í dag. Ég er heldur ekki hrifinn af súlustaðaáróðrinum sem við þurfum að beygja okkur undir, hvorki frá teprunum í VG né hræsnurunum í Sjálfstæðisflokknum. BAH Iss piss og hí á ykkur www.xxxd.is ;-) Urrdan á ykkur fallega fallega fólk sem eruð svo sæt sæt sæt og alltaf hress á djamminu í góðum fílíng... Oh my god, hvað Chloe er spes og speisuð og allir verða að fíla hana af því að það eru fleiri myndir af henni á nulleinn.is heldur en Stefán frá fokking Möðrudal málaði af rollum á Skjald- og Herðubreið... X-R þetta skiptið... Herra Muzak p.s. Ef ég fæ eitt enn helvítis röflið um að ég sé bara bitur eða öfundsjúkur út í það að aðrir séu flottari en ég, þá kem ég heim til viðkomandi, tek fram pungsveittar nærbuxur eftir langan vinnudag og treð þeim upp í kjaftinn á viðkomandi, eða maka, eða mömmu, hver sem svarar dyrabjöllunni, og vona að viðkomandi kafni ekki úr ammóníakeitrun. Mér finnst ég einmitt prýðilega fallegur drengur og finnst augun mín sérstaklega ókei :) Ef þið farið að röfla um að ég sé bitur, tek ég því þannig að ykkur finnist ég ljótur og mamma mín feit og ógeðsleg og mér hafi verið nauðgað af Sjálfstæðismanni í æsku. Ekkert af þessu er satt, en ég get samt móðgast, jafnvel sturlast, sbr... [ 11 ] Meðmæli
Ég verð bara að henda ykkur yfir á síðuna hans Helga Hrafns góðvinar míns. Drengurinn er búinn að vera að taka upp lög (albeit cover...) og syngur hreint og beint eins og Engill... Mann langar bara að knúsa hann... :) Kíkið á málið... Svo var hann eitthvað að ræða um það að halda Jeff Buckley Tribute Kvöld... Ég bíð enn eftir því að hann viðri það við mig... ... ... ... og bíð enn... ... ... og bíð... Svabbi Muzak ... og bíð... P.s. Svo var Lora í rauða leginu með drullufínar pælingar bæði Hérog hér... Lora er sikk klár stelpa og ég fíla pælingarnar hennar í tætlur... [ 0 ] Það er annars með þungum hug...
...sem ég hefi ákveðið að setja X mitt við R í komandi kosningum... Mér finnst R-listinn alls ekki hafa staðið sig Illa, en þau hafa haldið rammskakkt á spilunum í mörgum málum... Málið er bara, að ég trúi einum hlut í þeirra málflutningi... Sem er: Ef D-Listinn stjórnar þessari borg einn, þá verður ekki líft, "borgin" verður aftur að þeirri klíkumiðstöð ríka fólksins sem hún var. Sorrí Björn Bjarnason, en ég veit að þú ert ekki að þessu fyrir mig og Pálínu og Dagbjörtu, ég veit að þú ert ekki að þessu fyrir Greyið gamla fólkið sem þú segir núna að ríkisstjórnin þín geti ekki gert neitt fyrir og hafi það ekki á prjónunum, hreinlega "vilji" það ekki. Ég veit að þú ert að þessu til að eiga auðveldara að ausa sjálfteknum peningum í réttar hendur, svo ríka pakkið fái peningana sína aftur. Það er nebbnilega engin haftastefna í gangi í Rvík núna, og hefur ekki verið undanfarin 8 ár, það er bara bull... Fyrirtækin eru ekki að Flýja úr bænum og fólk er ekki að flýja úr bænum, það er eðlilegt að byggðir séu að þéttast í kringum borgina. Það er eðlilegt að borgin sé dýr staður til að búa... Inga Solla og kó eru sosum búin að kúka nokkrum sinnum í brækurnar, en það eru engir huge ass kúkar... bara hálf máttlausir lortatittir, sem Sjálfstæðismenn veifa eins og tröllshægðir væru... Lesið 100 ára einsemd eftir Gabriel Garcia Marques til að skilja hvaðan hugmynd mín um sjálfstæðismenn kemur... X-R Bestu Kveðjur, Svavar Muzak Kjósandi [ 5 ] Er það bara ég...
Eða finnst einhverjum öðrum þetta fremur lysteyðandi og viðbjóðslegur gjörningur...? Svo klukkar hann út með því að segja að þetta sé í samræmi við hugsjónir sjálfbærrar þróunar!!! Djöfulsins nasistaviðbjóður og ógeð! Ég er ekki einusinni dýraverndunarsinni, en þetta er bara hræðilegur viðbjóður! Bestu Kveðjur, Svavar Knútur Kristinsson verðandi Umhverfissiðfræðingur [ 5 ] Helgarrapport
Ókei, nokkrir hlutir... Fyrst, þetta ríjúnjón var mjög skrautlegt... Maður hitti gömlu félagana, ennþá helvíti hressir og skemmtilegir strákar... Svo eru sumir þarna sem virðast ekki hafa elst (og þroskast) um dag... Ég endaði á því að labba frá Akranesi yfir að Hvalfjarðargöngunum (10 km) húkkandi far... Upplifði íslenskan vormorgun með rísandi sól undir Akrafjalli... ... Í miðju kríuvarpi... úff... Svo klukkan hálf átta á sunnudagsmorguninn var ég mættur til svæðis eins og aumingi... svaf út og var frekar lúinn á sunnudag... Á mánudaginn fór ég yfir ansi spennandi B.S. ritgerð í Viðskiptafræði fyrir félaga minn. Býsna góð lesning, vel útbíuð í innsláttarvillum sem ég leiðrétti, en annars mjög fín... örugglega efni upp á áttu eða níu... Á einhver tenór- eða baritónsaxófón eða dýpra hljóðfæri sem ég get fengið að kaupa eða fengið lánaðan??? Er einhver sem þekkir atvinnulausan orgel/hljómborðs/harmónikkuleikara með skemmtilegan tónlistarsmekk??? Hafiði samband... En mér er fúlasta alvara með tenór/baritónsaxófóninn... Bestu Kveðjur, Svabbi Muzak [ 0 ] föstudagur, maí 17, 2002
Jæja Félagar...
Þá er bara að koma helgi, löng helgi... Það er einhvers konar árgangareunion hjá gamla bekknum mínum á Akranesi annað kvöld... Ég ætla að kíkja... Ég kvíði því pínulítið að hitta allt þetta fólk... Mér leið svolítið illa félagslega á þessum árum og hef nokkur ógróin ör frá þessum tíma. Það versta er gjarnan að fólkið sem maður var fúlastur út í og var meinilla við er yfirleitt orðið bara ágætis fólk í dag og ekkert að því... vanvild mín er innistæðulaus og ég orðinn að brandara fyrir sjálfum mér... Ég hlakka samt líka til... Það eru tvö eða þrjú sem eru dáin... Við ætlum að kíkja í kirkjugarðinn og minnast þeirra... Djöfulsins vitleysa er þetta að fólk sé að deyja svona ungt! Ég er ekki sáttur! Svo verður víst bara tjúttað og voða voða gaman... Bestu Kveðjur og góða og langa helgi... Svabbi Sæti Muzak [ 0 ] Ein snilld í viðbót úr teiknimyndaheiminum...
Djöfull er þetta biturt og sætt... :) Don Herzfeld rúlar... Herra Muzak [ 6 ] miðvikudagur, maí 15, 2002
Af hverju...
...Stofnar Jóhannes í bónus ekki BónusBanka? Nógu helvíti mikið eru bankarnir að græða á alls konar vasaþjófnaði. ...fæ ég ekki svona hugmyndir. hahaha :-) [ 0 ] Sími dauðans...
Símtal þitt er okkur mikilvægt... Þú ert mikilvægur kúnni... 10 mín síðar... Þú ert mikilvægur kúnni...
Halló... Já góðan daginn... S***** já... Ég ætlaði að grennslast fyrir um xxxxxx Nei, þú verður að tala við þjónustudeildina... En ég var að tala við þjónustu... *klikk* Símtal þitt er okkur mikilvægt.... Þú ert mikilvægur kúnni..
Halló þjónustudeild T***** Já halló, mig vantaði að fá samband við einhvern vegna xxxxx bíddu aðeins... *duddurudduuduudu* símtal þitt er mikilvægt... *duddduururuuduuududuuuuu* Halló... Halló hvaða deild er þetta með leyfi...? /hnuss/ ****deild Er S**** við? Nei, hann er farinn í mat... En klukkan er 10:30! /þreytulegri vanþóknunarrödd/ Ég skal gefa þér samband við þjónustudeild... NEEEEEIIIII
YAAAAAARGGHHHHHHHHH!!!! Halló, þjónustudeild, S**** Mig... vantaði... að... fá... samband... við... einhvern... vegna.... *******... Bíddu aðeins... *duddurudduruduududuuruuduur* Símtal þitt er mjög mikilvæ... Halló... Halló... Halló... Rassadeild Rassmus? Prumpudeild, Prumpfús? /einhver/ Halló... Halló, já mig vantaði upplýsingar um **** Ég veit ekkert um það! En... /30 mínútum seinna.../ Símtal þitt er okkur mjög mikilvægt... YAAAAAAAAAARRRRRRRRGGGGHHHHH!!!!
Bestu Kveðjur... Herra Muzak [ 3 ] Stórt úps...
Gleymdi að ég á að fara í próf klukkan 18:00 í dag... Tók smá stærðfræði í öldungadeildinni í MH, svona til að brýna heilann... Jæja, þá verð ég bara að læra kl. 16:00 og vona að ég nái að krafla mig út úr þessu... :) tíhíhí Bestu Kveðjur, Svavar Muzak [ 0 ] þriðjudagur, maí 14, 2002
Ég held...
að ég sé hundfúll yfir því að vera fastur í vinnunni á meðan skoðanabræður mínir mótmæla NATO... helvítis kúkaástand... jæja... :( Annars held ég að Sjálfstæðismenn skilji loksins hvernig vinstri mönnum líður gagnvart Davíð. Eini munurinn er sá að vinstri menn eiga ekki milljónir á milljónir ofan til að standa í óhróðursherferðum gegn Davíð, né heldur her sannfærðra heilaþvegna ungra manna sem æla út úr sér dellugreinunum á færibandi. Ekki það að ég sé neinn sérstakur stuðningsmaður Ingu Sollu... Eða Bjössa Bollu... en ég held að ég kjósi flest annað en Björn Bjarnason, lýðskrumara og eilífðarstuttbuxnadreng. Ohoho, hvernig ætli honum líði núna, allir hinir byssó-vinir hans komnir í heimsókn til að skeggræða hvaða eyðimerkurnegrum þeir eigi að berja næst og ræna. vei vei, komum í bófaleik, með alvöru byssur, sprengjur, jarðsprengjur og kúgunartól og drepum 500.000 börn með því að svelta þau af því að Saddam Hussein vill ekki leika við okkur í byssó eins og við viljum leika í byssó. Vei vei! Hey, köllum Kúbu öxulveldi hins illa, þá getum við farið þangað og drepið vondu kommana og frelsað allt kúgaða fólkið og gefið því Britney Spears og MacDonalds, stoðsúlur frelsisins, og síðan endurheimtum við allt landið og fyrirtækin sem við rændum af þeim í gamla daga en þeir "þjóðnýttu" í "byltingunni" sinni gegn svokölluðum "kúgurum". Vondu vondu kommar... hey, þú, af hverju ert þú ekki að fagna okkur, ha? eigum við að sprengja þig??? eða kannski drepa börnin þín ha??? Nei? Ha? Fagnaðu þá, ha? Nato Nato Nato Áfram NATO... Bestu Kveðjur, Herra Muzak [ 2 ] Spurning...
Gæti verið að konan sem var í silfrinu á sunnudaginn hafi verið sjálf Mary Ellen Mark, einn frægasti heimildaljósmyndari heims? Við Pálína fórum á sýninguna hennar á Kjarvalsstöðum í gær, An American Odyssey. Geðveikt flott. Svo var líka alveg brilljant sýning á Kínverskri Nútímalist. grúví kúng fú sjitt! ah... Svo fórum við hjónin í gær á STAR WARS FOKKING ATTACK OF THE FOKKING KLÓNS!!! GÚDD SJITT!!!!!!! Fínasta ræma, geislasverð, geimverur, geimskip, gleði, glaumur, gellur, gímöld, genapot, Geimgengill Allt gott sjitt Ein kúkasena þar sem var eins og klippt hefði verið inn í playstation II tölvuleikinn... glatað... en Annars var myndin brilljant! Réttlætti alveg fyrstu myndina og setti hana ágætlega inn í samhengi. Palpatine fokkar... Obi Wan Skokkar... Amidala lokkar... Anakin kokkar... Yoda ROOOOOKKKKAAAAARRRR!!!! og Christopher Lee rokkar feitt!!! Mér leið eins og smástrák... í þremur orðum: GO SEE IT!!! Bestu Kveðjur, Svabbi Muzak [ 3 ] mánudagur, maí 13, 2002
Flott silfur í gær...
Ég horfði á Silfur Egils í gærkveldi. Fínasta show hjá kallinum, góðir gestir og fínarí. Gísli og Dagur voru að vísu eins og blóðhundar á hvor öðrum, báðir baulandi sömu þaulæfðu frasana úr flokksvélinni og tilgangur veru þeirra þarna var afar vafasamur. Ég myndir frekar láta framboðslistana standa á útitaflinu ljóta á Bernhorftstorfunni og búa til úr þeim eina allsherjar listagjörnings orgíu, gólandi og emjandi, togandi í hár og aðra enda. Annars fannst mér, að öðrum ólöstuðum, stjarna þáttarins vera Bandarísk kona sem kom til að mæla gegn NATO hugtakinu og gagnrýna hernaðarlega útþenslustefnu Bandaríkjanna. Hún kom með stórfína punkta sem mér finnst mjög þarfir. Til dæmis það að Bandarískt efnahagslíf þarfnast stríðs eins og krakkfíkill krakksins, í ljósi þess að fimm stærstu fyrirtæki Bandaríkjanna, sem eiga næstum því allar græjurnar eru hernaðarfyrirtæki. Þessi fyrirtæki eiga meðal annars flesta fjölmiðla. Þess vegna veit enginn hvaða land verður næsta "öxulveldi hins Illa". Það að nefna Kúbu sem eitthvað hryðjuverkastórveldi er hrein og klár vitleysa. Kúba sendir (eins og konan benti réttilega á) fleiri lækna um heiminn en World Health Organisation. Eiginlega náði þessi kona að kristalla það sem ég hef hingað til haft að athuga við Bandaríkin. Þau eru risastór engisprettufaraldur, þau eru háð stríði og búa sér til óvini til að geta knúið áfram efnahagskerfi sem þrífst á ófriði. Um leið er eina leiðin til þess að halda vélinni gangandi sú að viðhalda almennri fáfræði og siðferðislegri brenglun meðal þegnanna. Auðvitað er fjöldi Bandaríkjamanna í góðu lagi, en það eyðir ekki þeirri staðreynd að það er ótrúlega margt rotið í þessu gósenlandi og á eftir að rotna meira. Eins og hver annar fíkill eiga Bandaríkin eftir að eyða sjálfum sér innan frá, en ekki áður en þau hafa náð að eyðileggja líf allra í kringum sig. Bestu Kveðjur, Herra Muzak [ 7 ] föstudagur, maí 10, 2002
Benda ykkur á...
Viðskiptablað Morgunblaðsins í gær. Brilljant umfjöllun um námsstefnuna um útflutningsmöguleika íslenskrar dægurtónlistar. Þar kemur skýrt fram snobbið í yfirvöldum, þar sem t.d. Sigurrós var búin að sækja um styrki á fullu í þrjú ár, til að komast út að gera eitthvað, en það var ekki fyrr en þeir meikuðu það sem menntamálaráðuneytið vildi fara að styrkja þá. Er það bara ég, eða eru styrkir ekki ætlaðir til að hjálpa fólki af stað? Mjög merkileg grein, á síðu 12c í viðskiptablaðinu. Einnig var brilljant umfjöllun á forsíðu blaðsins, um verkefni sem þrír nemendur við rekstrardeild Tækniháskóla Íslands voru að gera. Stúlkurnar þrjár hlutu verðlaun fyrir rannsókn sína á nýtingarmöguleikjum Jökulsánna í Skagafirði. Eins og margir vita er búið að samþykkja að virkja í þessum Jökulsám, en þar er nú fyrir blómleg ferðamannaþjónusta í formi bátaferða niður árnar. Það mikla uppbyggingarstarf sem hefur verið unnið er til einskis ef árnar verða virkjaðar. En hvað gerist??? Stúlkurnar þrjár gera úttekt og komast að því að ferðaþjónustan vegna rafting ferðanna mun koma til með að hafa mun meiri margföldunar- og atvinnusköpunaráhrif í Skagafirði heldur en virkjun. Ferðaþjónustan er arðbærari og hagkvæmari, auk þess sem virkjunin (í jökulsánum) verður ónýt eftir 60-80 ár og ekki hægt að nýta árnar til neins. (Alltaf hugsum við jafn langt fram í tímann...) Ég spyr, er ekki miklu sniðugra að nýta árnar á sjálfbæran hátt til ferðamennsku heldur en að blóðmjólka úr þeim einhver megawött??? Er ekki miklu sniðugra að leggja áherslu á Ísland sem útivistarparadís og ferðamannaland, þar sem allir græða á velgengni einstakra aðila, heldur en að drulla upp einhverjum álverum og reyksmiðjum sem hafa afar takmörkuð vaxtar- og margföldunaráhrif á umhverfi sitt? Ég bara spyr (eins og Davíð í ESB könnuninni)??? Talandi um það... Er nú orðið í lagi að spyrja spurninga eins og: Segðu mér Geir, ef öll stórfyrirtæki væru eldspúandi drekar dauðans og vildu myrða þig, fjölskyldu þína og bestu vini, værirðu fylgjandi harðari lagaramma fyrir þau? Segðu mér Björgvin, Nú þykir ljóst að bandaríkin hyggjast sleppa eiturefnum út í andrúmsloftið úr herstöðinni sinni þegar vindátt blæs að Reykjavík auk þess sem áreiðanlegar heimildir herma að bandarísk hernaðaryfirvöld skipuleggi nauðgunarferðir til Egilsstaða og nágrannasveita... Ertu, eftir þessum forsendum, fylgjandi veru bandarísks herliðsins hér á landi? Frábært! Nú get ég farið að spyrja svona og sagt að 90% Íslendinga séu á móti stórfyrirtækjum og herliðinu "að gefnum vissum forsendum." Bestu kveðjur, Svavar Muzak [ 11 ] Brjálæðislega fínir tónleikar
Ég fór á Celtic Cross í gærkveldi og sá hljómsveitina 5ta herdeildin spila í annað sinn (sem ég sé þá...) Djöfulsins suddaband er þetta orðið. Bara þrjú á palli að gera ótrúlega góða hluti. Ég mæli eindregið með þessari hljómsveit, ekki einungis er Sonja söngkona lystilega skemmtileg, fyndin og með brjálaða söngrödd, heldur eru drengirnir Loftur og Gísli alveg drullugrúvandi í sínu samspili og röddum og söng. Ég hefði ekki trúað því að trommulaust tríó gæti náð upp þvílíkri suddastemningu með frumsaminni tónlist. Lýðurinn söng með, klappaði og stappaði og hrein hátt eftir hvert lag. Textar sveitarinnar eru einnig sér kapítuli. Skemmtilega ortir, hnyttnir og ekkert allt of mikið að reyna að vera eitthvað, heldur eru þeir bara skemmtilegir. Ég mæli eindregið með 5tu herdeildinni og legg til að þið leggið við hlustir næst þegar þið heyrið á þau minnst. Bestu Kveðjur, Svavar Muzak [ 0 ] miðvikudagur, maí 08, 2002
Sundferð dauðans
Ég fór í sund í fyrridag (og í gær), en sundferð fyrridagsins er mér minnisstæðari vegna þess að ég fór einn... Það er stundum æðislegt að fara einn í sund, maður er miklu meira að hugsa um hlutina... I THOUGHT YOU WERE ALL GIRLS, BUT THEN I SAW THAT SOME OF YOU WERE WEARING SHORTS!!! segir stóri sköllótti skeggjaði ameríski sundþjálfarans við sundkrakkana sína næstum því svona settlegri hommaröddu... Ég syndi svona kílómeter undir dynjandi gay kommentum sundþjálfarans, hann er svona eins og andadrottning á bakkanum gaggandi á litlu andarungana sína sem stinga sundhettuklæddum andahausum upp úr vatninu og kvaka til baka. ÚFF!!! Djöfull eru sundstelpur stundum butch! Þær eru með herðar á við Herra "I'll Be Back!" Ég skelkast og flýti mér úr lauginni (fullri af gömlu fólki og dauðu húðflögunum þeirra...) og hoppa ofan í stóra skrýtna heita pottinn með steinunum, fullum af dauðum húðflögum feita fólksins og hver veit hverju öðru. Þetta er eins og að fara í bað með heilu elliheimili og offituklíník, risastórt bað með svona gúmmídúk í botninum svo fólk renni ekki og brjóti á sér feitan og ljótan eða ellihruman og stökkan rassinn. Anyways... í pottinum sat ég og spökuleraði og horfði á hitt fólkið... Þarna var kona með litla stelpu, svona þriggja ára, Indverji með bollukinnar og bumbu og gaur sem var líklega svipaður perri og ég... (svo auðvitað fullt af öðru fólki) Enter the 15 year olds... úúúhúúhúúú... sakbitin ánægja er það að sitja svona gamall kall í sundi og horfa út undan sér á 15-17 ára stelpur hoppa um pottinn í bikiníum... Ég reyndi nú að fela dónann í mér, en hinn perrinn ætlaði bara úr hálslið þegar þær löbbuðu upp stigann. Gamla reglan rifjaðist upp fyrir mér... <ljótt að segja>Í hópi fallegra kvenna má alltaf finna eina ljóta og feita sem hinar hafa með sér til að líta betur út. </ljótt að segja> ...sorrí varð að segja... Á þessum tímapunkti stóð indverjinn með bumbuna upp í pottinum, í síðu stuttbuxunum sínum, sneri sér í 140 gráður og settist niður aftur... Þessi 140 gráðu snúningur sýndi helming pottverja hvað maðurinn borðaði í gær, því hann var með þann stærsta stöðumæli sem ég hef á ævi minni séð. Konur og börn litu undan, gamlar kerlingar féllu í ómegin og harðnaðir karlmenn grétu. Það hefði verið hægt að koma heilum stöðumæli í stöðumælinn hans... Og gaurinn var sosum ekkert stærri en ég, hann var bara með þann ógeðslegasta rass sem sögur fara af. Indverjinn settist... Potturinn varpaði öndinni léttar. djöfullinn... Litla stelpan snýr sér að barni á sama aldri með hálf sítt hár í sundskýlu og spyr: "ertu strákur eða stelpa???" Barnið horfir á hana skilningsríkum augum og segir hátt og snjallt :"Stelpa!" Þær fara að bera saman mömmur eins og FM hnakkar bera saman tillabílana sína (og meðfylgjandi bílagrúppíur) á bensínstöðinni undir Faxaskálanum. (það er gott íessu... Jámar... flottar túttur á þinni...) Nú kom Charles Atlas týpan inn, einn af þessum sundgaurum sem lifa fyrir laugina. Hann var eins og ein af þessum grísku styttum af tröllum (að vísu ekkert svakalega vaxinn niður...) og með brúsa með einhverjum hvítum vökva í... Svo settist hann í pottinn, fullkomlega meðvitaður um eigin líkama, skvetti vatni á andlitið á sér og hristi það eins og maður hefur aðeins séð í einhverjum súrum sjampóauglýsingum, ég vissi ekki að fólk aktúallí gerði svona hluti... Stelpurnar þögnuðu allar sem ein... svo byrjaði skvaldrið... Indverjinn stendur upp, 160° snúningur, potturinn þagnar, dauðaþögn, í fjarska datt saumnál, barn grét... Indverjinn stígur upp úr pottinum hægum skrefum... Stöðumælirinn eins og umferðarslys, maður getur ekki hætt að horfa, mengi fólks í pottinum í eins konar leiðslu... Indverjinn töltir eitthvert í burtu og skyndilega er eins og loftbóluhljóðið fasi út úr þögninni og við færumst aftur inn í okkar eigin vídd. Enginn segir orð um Indverjann, kannski þykir þeim dónalegt að Tala um útlendinga svoleiðis, kannski þykir þeim ljótt að tala um feitt fólk svoleiðis, en nú kemur lítill strákur með pabba sínum ofan í pottinn, hann segir: "Pabbi, sástu hvað maðurinn var ógeðslega feitur..." Nokkrir flissa í pottinum, halda að krakkinn sé að tala um Indverjann, en ég veit að þarna var um að ræða meiri hættu en lítinn feitan brúnan kall... ég sé yfirborð vatnsins titra... það fellur þögn á pottinn enn einu sinni... Út um dyrnar (guð veit hvernig) bröltir það feitasta flykki sem ég hefi séð hingað til. Ógeðslega feitur kall þrammar í átt að pottinum og ryður frá sér slíku magni af vatni að litla stúlkan strandar á steini. Yfirborð vatnsins rís, og mér hrýs hugur við því að sitja í pottinum með svona ógeðslega feitum gaur... "Hvernig fer hann að því að skeina sig?!?" Oj... Ég veit að það er ljótt að hugsa svona, en ég gerði það samt... Þessi gaur er allur svo þrútinn og feitur og rauður og ég veit ekki hvað og hvað... Ég fór í sturtu... öh... þvoði mér vel og lengi... Ég vona að þessi gaur missi eitthvað af sínum kílóum áður en hann hreinlega deyr, en ég veit enn ekki hvernig hann skeinir sig... Annars líður mér vel, bara svolítið illt í hálsinum... Bestu Kveðjur, Herra Muzak [ 8 ] þriðjudagur, maí 07, 2002
Mig langar að benda ykkur á:
valkost við hina hefðbundnu kjaftæðispólítík A-Listinn virðist mér koma sterkur inn málefnalega. Þeir eru að segja það sem við (hinir skynsömu) höfum alltaf sagt: Að Reykjavík sé ein stór sóun á landi, þ.e.a.s. að Yfirvöld Reykjavíkur hafi aldrei kunnað að meta virði lands. Þessi hópur fólks vill greinilega leiðrétta vitleysu sem hefur verið lengi í gangi. Kíkjum á hvað þeir hafa fram að færa. Mig langar persónulega til að við berjumst út úr vítahring skotgrafarhernaðar vinstri og hægri manna. Ég veit ekki hvort ég kýs hann, en ég ætla allavegana að íhuga það mjög alvarlega. Gerum nú rétt, könnum alla kosti í stöðunni og skipum okkur ekki alveg strax í skotgrafirnar... Svavar Knútur [ 6 ] Ætlar þessu rugli aldrei að linna?!?
Hvað ætlar heimsbyggðin að sætta sig lengi við þetta djöfulsins kjaftæði?!? Svavar Knútur [ 1 ] mánudagur, maí 06, 2002
Svo vil ég bara...
...Óska Dreng og Möddu til hamingju með trúlofunina! :):):):):):):):):):):):):):):):):) Ég hlakka til sumarsins! Þá koma Kári vinur, Tóti vinur og Drengur vinur allir heim frá Útlandinu og leika við Muzak sinn sumarlangt! Bestu Kveðjur, Herra Muzak [ 1 ] Gleði Gleði Gleði...
Búinn að vera að nördast og gleðjast og var í gær á geðveikri æfingu með Moonboots. Nýr æskueldur brennur nú í æðum okkar Moonbootsliða. ROWRR!!! Fór í Landsbankann í vinnuerindum í dag... Djöfull er aðalbygging Landsbankans flott að innan maður... Maður fattaði það aldrei þegar maður var í kringum tvítugt, því þá var maður upptekinn við að bíða eftir leiðinlega gjaldkeranum, nú var ég að koma þarna sem gestur og MAN! Djöfull er þetta hús flott! Annars skrifar Bára Snæugla geðveikt fínt blogg um nektarstaðina, góður punktur hjá minni heimastelpu. Hef ég sagt ykkur frá manninum sem ég sá í sundhöllinni... Hann var gamall, með pung á stærð við kílópoka af rauðum kartöflum. Mig hryllir við þeirri tilhugsun að fara í sund með þessum manni... Þrútinn og bólginn pungurinn eins og á Darra Gelti í húsdýragarðinum... Talandi um húsdýragarðinn... Hljómsveitin Kaffi (við Helgi og Snorri) spilaði í Húsdýragarðinum, fyrsta maí. Ég öskraði verkalýðsfrasa á röð af börnum sem beið eftir kandífloss í tvo klukkutíma í stað þess að leika sér úti í sólinni. Svo kom spastískur strákur í hjólastól og fílaði okkur í ræmur, og alltaf þegar við spiluðum lag sem hann kunni að meta, þá gaf hann frá sér gleðihljóð. Við vorum eins og epli í framan, við brostum svo breitt. Það er yndislegt að hafa svona jákvætt fólk sem fílar það sem maður er að gera. Þetta var einfaldlega ótrúlega jákvætt móment. Svo settist lítil þriggja ára stelpa ofan á hardware kistuna hans Helga og sat þar í svona eins og 40 mínútur... Svo þegar við hættum að spila, þá horfði hún bara á okkur, svona eins og skólastjóri sem er ekki allskostar hrifinn af einhverju... Þá ætluðum við að spyrja hana hvar mamma hennar væri, en þá boraði hún hausnum ofan í bringu og beið eftir bróður sínum sem var að kaupa kandífloss... Góður dagur allt í allt... Bestu kveðjur Svavar Muzak [ 2 ] laugardagur, maí 04, 2002
föstudagur, maí 03, 2002
Og nú er bara spurning...
<fyrirvari>Að gefnu tilefni vil ég nú gera fyrirvara á þessa stuttu pælingu... Það sem hér fylgir er innihaldslaust, ómálefnalegt diss, og einungis skrifað í góðu gríni... Hannes Hólmsteinn er örugglega ágætis gaur, ef hann skammaðist sín ekki svona svakalega fyrir að vera hommi... ...Og hægri menn eru líka fólk... ...Ágætis fólk... </fyrirvari> ...Hvort frjálshyggjumenn til hægri séu tilbúnir að brjóta odd af oflæti sínu og yfirstíga Hómsteinskan skotgrafarhernað sinn með því að viðurkenna að það að vera til vinstri í efnahagsmálum þýðir ekki að viðkomandi sé sjálfkrafa forræðishyggjumanneskja á mannlega hegðun. Þora frjálshyggjumenn til hægri að ræða málefnalega um efnahagsmál og stjórnmál, eða sannast loksins hinn fornkveðni sannleikur að það sé betra að ljúga og vinna en að segja satt og eiga séns á að tapa? Munu hægrisinnar tefla djarft og leggja út í þá erfiðu ferð sem það er að leita nýrra raka gegn vinstri hugmyndum, þar sem forræðishyggjurökin eru orðin ónýt og úrelt, eða munu þeir ríghalda í þetta síðasta haldreipi sannfæringar sinnar? Ég veit ekki, enda er ég hóflega vinstrisinnaður sjálfur... En ég hlakka til að fá eitthvað respons frá Mönnum eins og Björgvin, Geir, Arnari eða Frjálshyggjukrökkunum... Ég býst þó ekki við að þeir láti hið úldna tromp sér úr hendi falla svo fljótt... Bestu Kveðjur, Svavar Muzak [ 9 ] Karlmennska mín á sér engin takmörk!
Hér sit ég, drekk grænt te, hlusta á Divine Comedy og raða nafnspjöldum í plastumslög... Ég flissa að heimskulegum bröndurum vinnufélaganna og komplimentera einni konu hér í vinnunni með það hvað hún er í flottum skóm... eh... mig langar ógurlega til að höggva niður finnskan skóg til þess að bæta upp fyrir óguðlega niðurlægingu mína... I FEEL SOOOO GAAAYYY!!! Svavar Muzak [ 1 ] fimmtudagur, maí 02, 2002
Nei, nú er mér alveg nóg boðið Herra Flygering!
Ágúst Flygering skrifar á síðu sinni hér áður fyrr í óld deis: "Persónan Halldór Laxness var aftur á móti jafn viðkunnaleg og Nietzsche og svona álíka fullur kvenfyrirlitningar." Hvurn andskotann veist þú um Nietzsche, Herra Flygering?!? Fyrir utan það að hafa verið með ljótasta yfirvaraskegg sem sögur fara af, var Friedrich Nietzsche einn misskildasti og vinalegasti maður síðari tíma. Hann var sannur mannvinur og átti gott samband við konur. Ég ráðlegg mönnum (og sérstaklega herra Flygering, sem ég ber mikla virðingu fyrir) að kynna sér betur hugmyndir nútíma heimspekinga um Nietzsche (t.d. Róberts Níels Haraldssonar). Ekki láta einhverjar nasistasteríótýpur eyðileggja fyrir ykkur snillinga eins og Nietzsche gamla... Bestu Kveðjur, Svavar Muzak [ 2 ] Ímyndunaraflið...
Gleðilegan Fyrsta Maí í gær... Í gærkveldi var ég yfirbugaður af hreyfiþörf minni og tók mér kvöldgöngu í Öskjuhlíðinni. Öskjuhlíðin er ofboðslega fallegur staður, og gaman að tölta í gegnum þennan skóg í hjarta borgarinnar. Ég uppgötvaði hins vegar vissan sannleik hvað varðar ímyndunaraflið, jafnvel formúlu... Formúlan er: Ímyndunarafl vex í jöfnu hlutfalli við Einsemd + Myrkur. Það var dimmt í Öskjuhlíðinni, dimmt og ég var einn... svakalega einn... ég get svarið að ég heyrði í úlfum eða uglum... Það var allavegna nóg af fuglum... Ég óttaðist hóp af ræningjum með hnífa þunna... Jafnvel leðurhommum á bak við runna... Leðurhommum með kaskeiti með keðjum... Jafnvel veifandi sveðjum... Bíðandi eftir að grípa mig... Stökkva undan runna og klípa mig... í eistun... En að lokum kom ég niður í Nauthólsvík og hitti þar nokkrar kanínur. Þær horfðu á mig ásakandi augum, rétt eins og þær vissu eitthvað um hann Felix, hryðjukanínu sem dvelur enn í stofufangelsi á heimili mínu... Ég veit ekkert hvað ég á að gera við hann. Emma Sharon, Kötturinn frækni hefur margoft lýst yfir vilja sínum til voðaverks, en ætíð guggnað á ögurstundu við urr og hvæs kanínunnar og högg frá hörðum loppum hans. Talandi um kanínur... þegar ég var lítill áttum við fjölskyldan angórakanínur sem voru óskaplega mikil krútt... Svona eins og risastórar Fífur eða baðmullarhnoðrar... Stundum þurftum við að láta þær tímgast. Það var viðbjóðslega fyndið... Maður setti kallinn inn til kellingarinnar, og svo hömpaði annar hvíti hnoðrinn hinum hvíta hnoðranum í u.þ.b. 3 sek. og valt þá ofan af honum og niður á botn búrsins... Fátt er undarlegra en að sjá tvo loðna snjóbolta hömpa... Og talandi um Leðurhomma...
17. júní 2000 söng ég í brúðkaupi, klukkutíma eftir suðurlandsskjálftann. Fólkið var pínu sjúkk öpp, en það var bara kúl... Nema hvað, þegar við Pálína vorum að koma í Brúðkaupsveisluna mættum við þremur leðurklæddum mönnum á leiðinni inn í Hverfisgötu 105 (risið) þar sem brúðkaupsveislan var haldin... Einn þeirra heilsaði "Guten Tag..." og annar sagði "Hello". Þeir voru allir með kaskeiti eins og HLH flokkurinn á Ridddari götunnar plötunni... (Iceland's most gay album cover á eftir Dawn of the Human Revolution með Hebba...) Ég spyr einn þeirra hvað sé um að vera og hann segist vera á leiðinni á árshátíðarfagnað evrópskra leðurhomma... Andlitið ætlaði af mér, ég fylltist barnslegri gleði og hló kampakátur. Við fylgdum þessum prúðklæddu mönnum með fallegu yfirvaraskeggin sín a-la Village People upp stigann og viti menn, í veislusalnum á móti brúðkaupinu voru saman komnir tugir Leðurhomma með diskótónlistina á fullu. Faðir brúðarinnar hló hinn kátasti að þessum mannfögnuði hinum megin við ganginn og gantaðist með það að við ættum bara að smella veislunum saman, bjóða leðurhommunum í kaffi og meððí... Djöfull fílaði ég kallinn. Stór og sköllóttur skörungur með mikinn sjarma, klæddur í svona Daddy Warbucks kjólföt. Hann var einhvern veginn eins og Daddy Warbucks Íslands, risastór og hlýlegur maður. Mér þykir líka einkar vænt um dóttur hans og manninn hennar (enda hefði ég ekki sungið í brúðkaupinu annars...) En leðurhommarnir héldu sumsagt sitt partý og við þurftum að svara ótal skemmtilegra spurninga frá vörum barnanna, eins og "Af hverju er þjónninn bara í svuntu og engu öðru...?" og "Af hverju er enginn Rass á Buxunum hjá stóra sköllóta manninum með yfirvaraskeggið og lögguhúfuna???" Ég held að þetta hafi verið besta brúðkaup ever... (fyrir utan Má og Stínu... og Kristínu systur Helga... (og öll hin... (Öll brúðkaup eru bestu brúðkaup ever...))) Annars hefi ég ákveðið að taka betur stjórn á eigin lífi... ég veit ekki hvernig... en ég ætla að reyna... BTW, Til hamingju með ammælið Bjarni, sorrí að ég kom ekki... Mig langaði að kíkja en ég átti ekkert að gefa þér og nýbúinn að gefa konunni þinni diskinn minn... ;-) Bestu Kveðjur, Herra Muzak [ 1 ] |
Eva
Örn "Mugison"
Elias Tónlistarmönnum sem gefa tónlist
sína á netinu er velkomið að hafa samband
við Hr. Muzak og þá bæti ég þeim
á listann.
Laukurinn rúlar
Dr. Gunni
| |||