![]() |
Þankatankurinn
|
![]() |
||||
|
Svavar Knútur Kristinsson, Félagsauðströll, heimspekingur, umhverfis-verndarsinni og tónlistarmaður. NÝTT!!!
|
Nýjustu Demó: Ástarsaga úr fjöllunum (Sumarið 2005) Goodbye my lovely (19. júní 2005) Your love was death to me (Janúar 2005) Call off your Cavalry (September 2004) You should call a doctor (Maí 2004) Kysstu tímaglasið (endurbætt útgáfa 2004) Mother's day Jólaplata Hrauns 2003: Þrautgóðir á Hraunarstund Jólaplata Hrauns 2005: Höldum jól Jólaplata Hrauns 2006: Jólamolar |
föstudagur, júní 28, 2002
Dásamlegur Dagur...
Byrjaði á því að hjóla í vinnuna í yndislegu sumarregni, vakti mig vel... Fór svo að taka myndir af fólki, mjög gaman... Nú, svo eru MoonBoots að fara að spila á Vídalín annað kvöld, verður geðveikt stuð, allir mæta!!! Ég held að Moonboots sé ein graðasta hljómsveit Íslands ever... :-) Úff hvað það er samt stundum leiðinlegt að vinna... :| mig langar hrikalega mikið að fara til Danmerkur að stúdíera (og drekka bjór...) þar sem fólk má mótmæla því sem það sýnist án þess að vera sett á vandræðamannalista eða vera vísað úr landi eða kallað heilalausir hálfvitar og vitleysingar af ráðamönnum, þar sem tekið er fram í fréttum að mótmælin hafi farið friðsamlega fram fyrir utan einn EINSTAKLING sem gerir skandal... Bestu Kveðjur, Herra Muzak [ 4 ] fimmtudagur, júní 27, 2002
Heimski ég...
Fokking kommentakerfið datt út... urg... en nú er allt í lagi.. blaðrið af bestu lyst... :) Herra Muzak [ 2 ] Fyrir ykkur...
... sem eruð að velta fyrir ykkur hvað á að gera um helgina... Þá erum við Moonboots liðar að taka annað gigg á Vídalín á laugardagskveldið... Þó það verði ekki nema helmingurinn af stuðinu síðan síðast, þá verður þetta geeeeeðveikt djamm!!! :-) Látið sjá ykkur og höfum geðveikt partýstuð! MOONBOOTS IN DA HAUS!!! Bestu Kveðjur, Svabbi Hamingjubangsi [ 0 ] Velkominn Stefán!
Djöfull er ég frábær... var í kvöld að henda upp dagbókarsíðu fyrir Stebba á svona tveimur klukkutímum með öllu klabbinu... :-) I RULE!!! Kysstu mig kona... *smakk* Takk... Velkominn á vefforumið Stefán, gott að sjá þig og ég hlakka til að lesa þig... Ég er pínulítið stoltur af vefnum hans Stebba þó hann sé simpill... kné... kné... Bestu Kveðjur, Svabbi Muzak [ 0 ] Myndir komnar af blessuðum mótmælunum...
Je... nú er maður farinn að nýta þessa blessuðu myndavél eitthvað... Hér koma fyrstu myndirnar sem ég tók á Nýju Canon Powershot S40 myndavélina mína, sem einmitt fæst í Nýherja og Beco á sérstöku sumartilboði, aðeins 109.000 kall... (sjitt... djöfull plögga ég sjeimlesslí...) Voilá - Mótmælin okkar... Herra Muzak [ 2 ] miðvikudagur, júní 26, 2002
Var að leika mér andvaka...
...og samdi lítinn texta... kannski sem ég lag við hann á morgun... Þjóðhátíðarsöngur Kallaðu mig vitleysing, fávita og flón Sem fjandann sjálfan á vegginn vill mála. Vitstola og vonlausan og skertan líka á sjón Og skrikar oft fótur á rakanna ísnum hála En ég veit þó eitt sem enginn af mér tekur, ég veit að rökþak þitt lekur, þér trúir ei sála. Tækifærissinni sem ekkert anar um neitt Og ætti bara að þekkja takmörk mín og þegja. Því einir hafa þeir málfrelsið sem samsinnast um eitt Það eitt sem okkar ráðamenn nú keppast við að segja. En uss uss, þar keyrir hann, kappinn frái Kínverjinn knái, höfðinginn hái, allir sig hneigja. Þeir binda glaðir hnútinn á ritskoðunarklútinn... í Davíðshöll, Og beygja sig í grútinn til þess að taka inn einn þrútinn... Kínaböll. En þó þú keflir mig mannhelvíti og sópir mér bak við hurð Og lokir mig inni í löggubíl og hendir mér ofan í skurð Þá kem ég alltaf aftur til að bíta í rassinn þinn Og aldrei mun hún óhult verða sú fína og feita kinn. Ekkert má trufl?ann, enga helvítis hippa Hendum nú brott þessum óaldaskríl Sem er hérna kominn til þess að syngja og sippa Og skemmileggja okkar bísinessdíl. Nú röfla hér rotturnar námsmenn og netverjar En níðorð þeirra fá ei snert forsetans bíl!!! Þeir binda glaðir hnútinn á ritskoðunarklútinn... í Davíðshöll, Og beygja sig í grútinn til þess að taka inn einn þrútinn... Kínaböll. En þó þú keflir mig mannhelvíti og sópir mér bak við hurð Og lokir mig inni í löggubíl og hendir mér ofan í skurð Þá kem ég alltaf aftur til að bíta í rassinn þinn Og aldrei mun hún óhult verða sú fína og feita kinn. Þegið málið af ykkur og þófið undir teppi Og spyrjið hvort ekki sé loks komið nóg Og hótið bara að loka mig lengst inni á Kleppi Ef ég fer nú ekki að þegja með þennan bölvaða róg Þið felið kannski gögnin en á endanum er þögnin Bara gröftur sem mun springa og koma ykkur í lóg. Þeir binda glaðir hnútinn á ritskoðunarklútinn... í Davíðshöll, Og beygja sig í grútinn til þess að taka inn einn þrútinn... Kínaböll. En þó þú keflir mig mannhelvíti og sópir mér bak við hurð Og lokir mig inni í löggubíl og hendir mér ofan í skurð Þá kem ég alltaf aftur til að bíta í rassinn þinn Og aldrei mun hún óhult verða sú fína og feita kinn. Bara smá uppkast... Bestu Kveðjur, Herra Muzak [ 1 ] þriðjudagur, júní 25, 2002
Lesið ÞETTA
Góður Pistill um Allsherjarnefnd... Ekki vera Löt, lesið þetta, í alvörunni, það er mikilvægt að vera upplýstur þegar stjórnvöld keppast við að hafa ykkur sem heimskust!!! [ 0 ] Öllum spurningum svarað???
Davíð Oddsson "Forsætisráðherra" fer mikinn í viðtali í Mogganum á sunnudaginn, eins og venjulega... Hann sendir öllum sem eru ósammála sér tóninn og kallar þá óupplýst fífl (ekki í svo mörgum orðum en þó...) Það sem mér þykir þó viðbjóðslegast í þessu máli núna (það sem er að gerast akkúrat þessa dagana...) er að allsherjarnefnd Alþingis var höfð að fíflum og lítið gert úr löggjafarvaldi landsins okkar. Þorgerður Katrín, "sjálfstæðiskona", lætur hafa eftir sér (rétt eins og Bjelke forðum) að búið sé að ræða öll mál og svara öllum spurningum og málinu sé lokið... DJÖFULSINS BÚLLSJITT!!! ÞESSU ER EKKI LOKIÐ ÞORGERÐUR KATRÍN!!! Utanríkis- og dómsmálaráðherra hundsuðu fundinn og skipuðu lögregluyfirvöldum að gera slíkt hið sama, engin forföll voru boðuð, og þar sem enginn mætti var engan hægt að spyrja! einhverjir bjúrókratar með sumarbústaðarlykla vísuðu á þennan og hinn og vonast til að grafa allt málið í ávísanahrúgunni sinni. Það er ekkert komið á hreint um það hvernig stóð á því að mótmælendum var hreinlega bannað að koma skoðunum sínum á framfæri, hvernig saklaust fólk var tekið úr umferð "Pinochet style" og þegnréttindi og mannréttindi voru að engu höfð í heila viku hér á Íslandi fyrir sakir viðskiptasamninga við Kína. Eru mannréttindin föl? Ég skora á alla góða sjálfstæðismenn að hætta í flokknum, færa sig eitthvert annað, vegna þess að á meðan þessi viðbjóðslega síðkommúnistalega valdaklíka húkir inni, þá er ekki von á neinu réttlæti eða framförum í landinu okkar næstu árin. Ég neita að láta mála mig ofstækismann og tækifærissinna (í senn) vegna þess að ég trúi á málfrelsi og mannréttindi. Davíð Oddsson, Halldór Ásgrímsson og Sólveig Pétursdóttir mega skammast sín. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir er gersamlega búin að glata öllum trúverðugleika eftir að hún lék danska höfuðsmannninn og lokaði umræðunni á nefið á stjórnarandstöðunni. Dr. Gunni, Geir, Katrín, Gummijoh STRIK, Mikael Torfa, XXX-ROTTWEILER, Alþingismenn, embættismenn, bubbi, íslenskir popparar, listamenn, athafnamenn, frjálshyggjumenn, kommúnistar, bloggarar, fólk sem skrifar í moggann, hringir í DV... Ætlum við virkilega að láta lýðræðislega umræðu deyja enn einu sinni? Ætlum við virkilega að láta yfirvaldið rúlla yfir okkur einu sinni enn? Jón Sigurðsson hefði ekki látið það gerast... Mótmæli okkar snúast ekki um kínverska sértrúarbrjálæðinga/leikfimisiðkendur/hugleiðslufólk whatever! Þau snúast um það að valdhafar á Íslandi beittu lögreglu og flugfélögum og alls kyns bananalýðveldistólum til þess að hindra fundafrelsi, ferðafrelsi, málfrelsi og önnur mannréttindi bæði Íslendinga og útlendinga. Ég mótmæli því að lögreglunni sé beitt eins og doberman hundum á fólk með skoðanir. Ég mótmæli því að vera settur á lista vegna þess að ég hef skoðanir, lista sem án efa er nýttur í alls kyns ráðstafanir. Ég mótmæli því að Ísland leggist niður á lægra plan. Guðni Ágústsson Landbúnaðarráðherra sagði einu sinni að Íslendingar þyrftu vonandi aldrei að "leggjast niður á það plan að éta Hundaket eins og ósiðmenntaðar þjóðir." Nú ætti hann að hugsa sig aftur um og athuga hvort við séum í rauninni ekki komin skörinni lægra en það plan sem maður nær með hundaáti. Bestu kveðjur, Herra Muzak [ 5 ] Þeir segja...
...að peningar kaupi ekki hamingjuna...
Það er sosum rétt...
...en péningar geta keypt Shure 55SH-II míkrafón ástarinnar!!! JEEEEE!!!! Sem á eflaust eftir að lappa töluvert upp á hamingjustig mitt... Djöfulsins moðerfokker er þessi mæk maður :-) Nú erum við að tala saman eða: Jetzt sprachen wir zusammen. Ég veit, ég veit, hégómlegt ha? DAMN STRAIGHT!!! En þetta er bara kúlasti mæk heims og hefur alltaf verið! Með kærri ég-er-miklu-flottari-en-þið-öll-til-samans kveðju... Herra Muzak alveg hrikalega kátur!!! [ 5 ] mánudagur, júní 24, 2002
GOTT FOKKIN BALL!!!
Moonboots-liðar fokkíng rúluðu á Vídalín um helgina! Fullt út úr dyrum á staðnum og svitinn var í hámarki. Ég held að við höfum samtals svitnað sem nemur einum vel holdugum tólf ára strák... Eina vesenið var að í endann var ég alveg hættur að heyra í mér og öskraði bara einhvern andskotann í nokkrum lögum (eins og Living on a Prayer...) Eina sem ég heyrði var bara KKKKRRRRAAAAARRGGGGHHHGAAAAAAAAGGHGGHAHAAA GGGGRAAAAAAAAAAAAAAA... En rokk engu að síður... Sveittasta krád heims hoppaði eins og brjálæðingar og hetja kvöldsins var tvímælalaust Snorri Bassaleikari sem lék án lungna og nýrna og rokkaði feitast... Hann verður héðan af útefndur Suddinn... Hvítur Hlírabolur og flottasta bumba heims!!! Snorri Jóns tók líka áhorfendur í nefið með stórkostlegri spilamennsku og allsherjar Greddu. Ekki má gleyma Óla moðerfokk sem setti hárkolluna öfugt á sig og leit út eins og einn af prúðuleikurunum... :-) Helgi trommari var eitt stórt bros eftir þetta gigg, ég held að hann hafi fengið rafstuð í einhverja heilastöð vegna þess að hann er ennþá með svona sólheimaglott á andlitinu, enda grúvaði hann feitar en andskotinn... Grúví fílíngs ollaránd! Moonboots in Da Haus... Sjáumst Hress, Herra Muzak Sönghundur [ 5 ] föstudagur, júní 21, 2002
Moonboots úr Dvalanum!!!
Hin stórkostlega sveit Moonboots mun vakna úr vetrardvala á morgun laugardaginn 22. júní og berja sér á brjóst á sviði skemmtistaðarins Vídalín við Ingólfstorg. Munum við þar þrusa út nýæfðu og fersku prógrammi frá 9. áratugnum. Mun það vera staðreynd lífsins að tónlist 9. áratugarins er eins og íslensk ketsúpa þannig að hún er í rauninni betri daginn eftir heldur en þegar hún var ný. Áfram Moonbots og látið sjá ykkur á Vídalín! Bestu Kveðjur, Svavar Knútur Sönghundur Moonboots [ 4 ] Ósammála Dr. Gunna
Ég veit ekki, ég er pínu ósammála skoðun Dr. Gunna á þættinum hvernig sem viðrar á Rúv. Þó þetta sé ekkert groundbreaking sjónvarpsefni þykir mér ljóst að þessi tvö eru virkilega að gera þetta af alúð og áhuga, og láta sig hafa ýmislegt. Sérstaklega fannst mér skot Villa á Dr. Magga (sem er djöfullinn í mannsmynd) frábært. Mér þykir þetta bara hinn ágætasti þáttur og við skötuhjúin höfðum bara ágætlega gaman að honum. Annað mál... Við erum gleymin þjóð, Íslendingar. Til dæmis er ekkert í fréttunum núna um mannréttindabrot Ríkisstjórnarinnar. Það eru engir eldar í samfélaginu. Allt dottið aftur í Dúnalogn. Ég neita að sætta mig við svoleiðis málalok. Eiga Íslenskir stjórnmálamenn bara að fá að þegja svona hluti í hel og vera svo kosnir aftur að ári?!? Nú gæti einhver hnussað eða andvarpað og sagt: "ooohhh... þarf hann nú að vera að hanga í þessu máli endalaust???" JÁ!!! Ég mun hanga í þessu máli þangað til ég hrekk upp fyrir ef við gerum ekkert í því, ég mun hanga í því fram að næstu kosningum og þarnæstu kosningum ef við kjósum þessi svín yfir okkur aftur. Svínaveislan í Animal Farm kemur óneitanlega upp í hugann, þar sem dýrin kíktu inn um gluggann og sáu ekki muninn á mönnum og svínum. Virðingarleysi við mannréttindi og lýðræði verður ekki þolað! Ekki af mér, ekki af ykkur! Við erum kannski engir frakkar með hrossa- og svínaskít á þingtröppunum, en við erum Íslendingar og þó okkur sé ekkert kærara en að húka inni í hlýjum moldarkofanum, þá vitum við hvað er rétt og hvað er rangt, og ef þetta mannhelvíti á að fá að taka íslensku þjóðina ósmurt í sparigatið einu sinni enn, þá mun ég ekki lengur telja mig Íslending. Þá fyrst skammast ég mín fyrir það að vera Íslendingur. Ég skammaðist mín ekki fyrir að vera Íslendingur þegar þeir stoppuðu Falun Gong. Ég skammaðist mín ekki þegar fíflið henti spjaldinu á Austurvelli og kom þannig vondu orði á alla mótmælendur. Ég skammast mín fyrir að vera Íslendingur ef við pissum svo rækilega á rétt okkar sem kjósenda til að hafa áhrif á gang mála í lýðræðislegu þjóðfélagi að Davíð Oddsson og hans hyski haldi völdum á skerinu sem þeir hafa svo frækilega eignað sér. Niður með Davíð Oddsson! Niður með Sólveigu Pétursdóttur! Niður með Valgerði Sverrisdóttur! Niður með þetta djöfuls Drasl! Bestu Kveðjur, Svavar Knútur [ 2 ] fimmtudagur, júní 20, 2002
Ég var næstum búinn að segja það...
en svo fattaði ég að annað hvort yrði ég að flytja upp í óbyggðir eða fá framvegis næringu í æð ef ég segðist myndu æla næst þegar einhver glyðrumyndin birtist af Chloe... Ég meina, þetta er örugglega allt í lagi stelpa, en þessi tilbeiðsla er bara orðin hallærisleg. Í alvörunni, kannist þið við Zsa Zsa Gabor þversögnina? "Af hverju er Zsa Zsa Gabor Celebrity? Af því að hún er fræg... En af hverju er Zsa Zsa fræg? Af því að hún er Celebrity..." Bleh... Æi mér finnst bara nokkuð glatað að tilbiðja einhverja stelpu bara af því að hún er til í að kyssa aðrar stelpur og setja stút á munninn á einhverjum myndum af djamminu á netinu... Sem minnir mig á... FOKKING RUGL.IS DRASL!!! OJ BARA!!! Ég lá andvaka uppi í sófa í nótt og ældi úr mér lifrina yfir þessu ógeði... Ekki einungis var þáttar"stjórnandinn" heimskasta gerpi sem ég hef nokkurn tíma séð í sjónvarpi og fólkið í þættinum helmingi verra... Þetta var allt svona "sýndu mér geirur... íhíhíhí nauts..." "aaaaææm fromm skottland... jesss..." (glataðast í heimi eru einhver tröll sem halda að það sé fyndið að tala með skoskum hreim og þykjast vera útlendingur í sjónvarpi...) Og öll þessi grey sem hanga á Broadway með tómu augun sín og gersamlega búnir að týna síðustu örðunni af mannlegri skynsemi og hugsun, horfa bara tómlega út í loftið og veifa höndunum í örvæntingarfullum drukknandimanns-fálmum eftir flottheitum... Þetta fólk er gersamlega sjórekin lík á úthafsfjörum heimskunnar, drukknað í eigin heilaskít. Nema hvað... Það viðbjóðslegasta var að hljóð og mynd voru algerlega út úr "synci" og ég varð feitt sjóveikur af því að horfa á þetta... Nú spyr einhver "af hverju varstu þá að horfa...?" En þetta er eins og umferðarslys eða óóóóóógeeeeðslega feitur kall í sundi, mann langar ekki að horfa, en maður ræður ekki við sig... Góð Grein í Mogganum eftir Grím Atlason... Burt með helvítis Tröllið hann Davíð Oddsson. Bestu Kveðjur, Herra Muzak [ 6 ] miðvikudagur, júní 19, 2002
Synd og Skömm...
Hvernig ráðamenn og feitukettir eru farnir að misnota orð eins og Sjálfbær Þróun... Hugtakið "sjálfbær þróun" snýst um þá viðleitni okkar að reyna að ná fram hagvexti og áframhaldandi framþróun mannlegs samfélags án þess að valda skaða á náttúrunni. Þannig á, samkvæmt leiðarlínum sjálfbærrar þróunar, málið að snúast um það að virkja mannauð og reyna að raska landinu sem minnst. Dæmi um sjálfbærar atvinnugreinar eru ferðamennska, þjónusta, upplýsingatækni og smáiðnaður. Forstjóri Alcoa segir álverið þeirra og fyrirhugaða Kárahnjúkavirkjun samrýmast stefnu þeirra um "sjálfbæra þróun". Valgerður Sverris talar fjálglega um Sjálfbæru þróunina sem er að eiga sér stað, og hin forkunnarvitlausa Siv Friðleifs talar um Sjálfbæra RÖSKUN á Mývatni!?! Stjórnmálamenn og fjármagnseigendur eru búnir að taka fallega hugsjón og nauðga henni. Að heyra þetta fólk tala um sjálfbæra þróun í sínu samhengi er eins og að hlusta á Sendiherra Kína tala um mannréttindi... Auðvitað er þetta voða lítið mál í stóra samhenginu, en hérna á Íslandi, þar sem hver fermeter skiptir í raun máli, er þetta stórt mál. Við verðum á endanum að gæta að nýtingu hvers kílówatts svo við endum ekki sem stöðnuð lágiðnaðarþjóð með 15% atvinnuleysi. Álver hafa ekkert með sjálfbæra þróun að gera. Álver á Austfjörðum verður banabiti sjálfbærrar þróunar þar. Sjálfbær þróun er einstaklingsframtak og hugvit, ekki skyndilausnir frá 7. áratugnum. Bestu kveðjur og góða fjandans nótt... Herra Muzak [ 7 ] þriðjudagur, júní 18, 2002
Mæli með:
leiðbeiningum Más fyrir mótmælendur... og reynslu Más af mótmælunum... mjög góð lesning Ég held að hluti ástæðunnar fyrir því að Íslendingar bera eins litla virðingu fyrir lögreglunni og raun ber vitni, sé sú að Lögreglan hefur aldrei gert neitt til þess að öðlast þessa virðingu, hún er ekki málefnaleg eða virðuleg. Lögreglan er bara varðhundur peningamannanna, ekkert annað. Svo líta þeir út með þessar derhúfur eins og sænskir unglingspiltar sem eru að fara á deit... (Fucking Ämäl). Lögreglan hefur aldrei sýnt það að hún þjóni fólkinu, hún er einungis til staðar til að vernda hagsmuni valdhafanna. Þess vegna ber ég enga virðingu fyrir Lögreglunni og LÖGREGLAN BER ENGA VIRÐINGU FYRIR MÉR! Bottom Line: Lögreglan ber enga virðingu fyrir okkur, þess vegna berum við enga virðingu fyrir henni. Heyrirðu það Sólveig Pétursdóttir?!? Bestu Kveðjur, Herra Muzak [ 1 ] Gerist það vitlausara?
Búinn að gefa út "kontrakt" til höfuðs Saddam Hussein, sem hefur í raun ekkert sér til saka unnið nema að vera ósammála Bandaríkjunum í einu grundvallar máli, þ.e.a.s. því að þjóðir fyrir botni Miðjarðarhafs eigi að ráða sínum málum sjálfar. Var ekki einhver samþykkt í sáttmála SÞ að ekki mætti taka þjóðhöfðingja af lífi, ekki mætti skipta sér af innanríkismálum annarra þjóða. Djöfull eru BNA komin í góða aðstöðu, nú geta þau bara sagt: "Þessi þjóð er öxulveldi hins illa og styður hryðjuverkamenn" ef þá vantar að koma til valda einhvers konar leppstjórn sem er hagstæð þeim. Þeir eiga ekki eftir að hætta fyrr en öll ríki heims verða með kjölturakkaríkisstjórnir þeim til heiðurs. Ég veit hreinlega ekki hvað skal segja, mér finnst þetta bara viðbjóðslegt. Saddam Hussein er sosum enginn engill, en hann er þjóðhöfðingi fullvalda ríkis (rétt eins og Jiang Zhemin) og eins mikið og menn vildu að Kínverjar eða Írakar breyttu um stefnu í einstökum málum, þá er það bara ekki hægt með svona meðulum (eða hvað???) Er ekkert siðferði eftir í alþjóðasamfélaginu??? Bestu Kveðjur, Herra Muzak [ 2 ] Ef mér þykir eitthvað hallærislegra...
...en einhver kjáni sem í einfeldni sinni krotar eitthvað ljótt á blað og hendir afar "impotently" í fjallkonuna í beinni... ... þá er það þegar stjórnvöld nota það til að reyna að kasta einhvers konar tortryggingarblæ á mótmælendur almennt. "Sko... sjáiði... mótmælendur eru afsprengi djöfulsins, þeir réðust með OFBELDI á fjallkonuna..." HAHAHAHAHA Nei í alvörunni, þetta mál er allt hið bjánalegasta. Í fyrsta lagi að láta sér detta í hug að henda einhverju pappasnifsi á greyið leikkonuna, (sem er b.t.w. tákn lands og þjóðar, en ekki nautheimskra stjórnvalda okkar) og í öðru lagi að reyna að nota það sem vopn gegn öllum mótmælendum sem hafa meiningu. Hvenær er betra að koma skilaboðum til skila en á sautjánda júní? Nógu andskoti notaði Davíð Oddsson daginn til þess að skjóta á mótmælendur... Gerði í raun ekki annað í hátíðarræðunni en að skjóta á alla sem eru ósammála honum. Pæliði í því, í fjóra daga var mótmælt mjög friðsamlega án alls ofbeldis, og svo hendir einhver vitleysingur drasli í fjallkonuna og allir hlaupa upp til handa og fóta og segja mótmælendur vera villimenn og það eigi bara að handtaka þá alla... dísuss... FUSSUMSVEI!!! Og hvernig er það? Af hverju er það svona big deal ef fólk mótmælir án þess að fá góðfúslegt leyfi lögreglunnar? Af hverju er bannað að koma saman í stærri hópum en þremur á Íslandi án leyfis lögreglu? Af hverju er öllum leyfilegt að mótmæla en þeir verða að sækja um leyfi til þess??? Hvers vegna var það svona skelfilegt að 69 kynslóðar kallarnir tóku völdin í blessaðri mótmælagöngunni þegar ungliðaaumingjunum tókst fullkomnlega að klúðra henni (fyrir sína pólítísku framtíð auðvitað), og gerðu loksins mótmælin að alvöru gjörningi, alvöru mótmælum. Við tókum Müllerinn og allt! Hvað ef ég ætlaði að mótmæla lögreglunni, hjá hverjum fengi ég leyfi??? DRASL!!! Svo er þessi Björgvin Guðmundsson... Djöfull er sá gaur heilaþveginn og fastur á flokksspenanum... Þrammaði fremstur í flokki með sína version af ungliðaklisjunni, "communism kills"... Bíddu aðeins, hvað er langt síðan Kína hélt uppi alvöru kommúnisma? Ég held að það hagkerfi sem nú þrífst í blessuðu Kallist ríkisverndaður kapítalismi, bara aðeins ríkisverndaðri en í BNA, bara ponsu, ekki mikið. Ég er viss um að Bush vildi óska að hann hefði svona stjórn á sínu fólki... Bestu Kveðjur, Herra Muzak [ 0 ] þreyttur, en kominn heim...
Geðveik törn fyrir norðan... stóðum okkur eins og hetjur og myndavélin nýja var eins og hugur manns... Set myndir inn fljótlega... náði líka ágætis myndum í mótmælunum... Helvítis aumingjar eru þessir ráðamenn okkar (að vísu var hrikalega hallærislegt að sjá "Hryðjuverkið í kveldfréttunum..." (fólskuleg árás á fjallkonuna) hahahahaha Farinn að sofa... tók eitthvað próf... ![]() Find your emotion! Bestu Kveðjur, Herra Muzak [ 1 ] föstudagur, júní 14, 2002
Aumingjar!!! Bleyður!!!
Davíð Oddsson, ertu aumingi og bleyða? Þorirðu ekki að horfa í andlit þeirra sem eru ósammála þér? Nægir Davíð Oddssyni að alhæfa um tugþúsundir Íslendinga að þau séu vitlaus vegna þess að þau eru ósammála honum? Dugar það til þess að bægja frá réttmætum skoðanaskiptum rétt einu sinni. Sama gamla kunnuglega tuggan dugar: Allir sem eru ósammála mér eru galnir, hálfvitar, vitlausir, óupplýstir. Ég er nógu upplýstur til að vita það að hundruð, ef ekki þúsundir fólks eru myrt í Kína árlega af kolruglaðri "worst of both worlds" stjórn sem öll iðnríki heims keppast um að sleikja rassgatið á. Ég er líka nógu upplýstur til að vita það að Lýðræði og mannréttindi eru orð sem hafa enga skírskotun hjá forsætisráðherra sem kallar skoðun meirihluta þjóðarinnar heimsku. (Hitler hlaut líka þrjátíu og eitthvað prósent atkvæða...) Davíð þykist stór maður, felur sig fyrir fólki sem gæti látið hann líta út í sjónvarpinu, felur mótmælin fyrir þeim sem verið er að mótmæla. Sniðugur Davíð. Er þetta það frjálsa og opna vestræna lýðræði sem þú blaðrar svo fjálglega um? Frábært! Ef svo er er ég fluttur eitthvert annað! Hvert fer maður til að afsala sér íslenskum ríkisborgararétt? Ísland hefur lítið við mitt atkvæði að gera. Davíð mun alltaf ná að fá atkvæði nógu margra rollna til að stýra landinu. FUSS!!! Lélegt! Svo voru helvítis SUSararnir algjörir protest-killers. Stóðu bara þarna, SUS og VAKA og SUF og töluðu um mannréttindi í kína eins og þeim væri ekki sama. Þeir minntust ekki einu orði á kjaftæðið hérna heima, enda langar þá alla til að fá feit djobb á spenanum. (upplýsingafulltrúi landssímans eða eitthvað) Það var ekki fyrr en Guðmundur Jónsson og aðrir gamlir '68 snillingar tóku við taumunum sem mótmælin urðu skemmtileg og menn fóru að taka Mullersæfingarnar. Þá erum við að tala um góðan spirit í hópnum! :-) Héðan af vil ég ekki sjá þessa aumingja í ungliðahreyfingunum skipuleggja svona mótmæli. Bara gamla kalla úr hippakynslóðinni. þeir kunna þetta. Í alvörunni, skipulagið á þessu var meira eins og heimaverkefni ungliðahreyfinganna... FUSS!!! Ömó!!! Samt vibba mikið af flottu og skemmtilegu fólki þarna... Myndir fljótlega!!! Bestu Kveðjur, Herra Muzak P.S. Davíð Oddsson er officially orðinn að aumingja í mínum augum! [ 2 ] fimmtudagur, júní 13, 2002
Mæli með...
Steingrímur Sævarr Ólafsson, bróðir Jóns Góða Ólafssonar Þessi maður veit hvað hann syngur auk þess sem oft eru ótrúlega skemmtilegir fróðleiksmolar í blogginu hans... Hann er líka með orð dagsins, sem er mjög fróðlegt... Stefán Baldur Bókmenntafræðingur og snillingur er líka mjög klár og skemmtilegur penni. Go ahead... Bestu Kveðjur, Svabbi Muzak [ 0 ] Konungurinn Talar
Nokkur vel valin ummæli frá Davíð Oddssyni, einræðisherra Íslands: "Þessu fólki er sagt erlendis að það sé ekki óskað eftir nærveru þess. Því er afhent yfirlýsing frá ríkisstjórn Íslands um að það sé ekki velkomið til Íslands þessa daga en það lætur sér ekki segjast og kemur til landsins. Alls staðar annars staðar hefðu stjórnvöld sett það með valdi inn í flugvélarnar aftur. Það var hins vegar ekki gert, heldur farið mildilega með það, miklum mun mildilegar en gert hefði verið í nokkru öðru landi." "Þetta fólk var allt saman varað við en það gerði ekkert með yfirlýsingar íslenskra stjórnvalda og hafði einnig sagt að það myndi ekki fara að íslenskum lögum. Það ætlaði sem sagt að hafa rýmri rétt á Íslandi en íslenskir borgarar. Svo er bara talað um þetta sem leikfimifólk, sem sé verið að ofsækja hér." Það var einmitt með svona aðferðum sem Gandhi og Martin Luther King náðu fram sínum markmiðum. Lykilorðið er Civil Disobedience, sem er ekki í sjálfu sér lögbrot, heldur hundsun á fyrirmælum lögreglu, sem flokkast mun fremur undir andóf en lögbrot. En Davíð veit víst allt betur en allir... áfram með smjörið... ,,Það er eingöngu að koma hingað vegna þess að það er að elta kínverska forsetann og það gerir það ekki bara hér, heldur út um hin og þessi lönd og virðist hafa allan þann tíma og peninga sem það þarf til þess, hvaðan sem þeir peningar nú koma," segir Davíð. Bíðum nú aðeins við... Er Davíð að gera fólk sem á pening tortryggilegt??? Ha??? Er nú orðið grunsamlegt að eiga pening til að geta ferðast um og mótmælt mannréttindabrotum??? óóókeeeeii.... Menn tala um að þetta sé friðsamt fólk, og sjálfsagt er það það, en það er þó ekki friðsamara en svo, að það þvingaði sig inn í land, sem var búið að tilkynna því að það væri ekki velkomið. En af hverju var fólkið ekki velkomið Davíð??? Af því að það hafði skoðanir sem "henta" ekki stefnu íslenskra yfirvalda í dag??? Davíð og minnir til samanburðar á að í Bandaríkjunum hafi íslensk kona, sem sagði brandara við bandarískan landamæravörð, mátt dúsa handjárnuð í fangelsi. ,,Þannig er þetta yfirleitt vegna þess að ríki verja sín landamæri og það leikur enginn vafi á því að hvert ríki hefur einhliða ákvörðun um það hvort annað fólk fær að heimsækja það eða ekki Þetta er nú farið að minna ískyggilega á Svínin í Animal farm... "Viljið þið kannski fá Jón Bónda aftur, eða kannski Svikarann Trotsky...? Davíð sagði að annmarkar hefðu verið á þeirri fyrirætlan að senda fólkið samdægurs til baka vegna þess að sumar flugvélarnar voru fullbókaðar og ekki hefði verið vilji til að beita fólkið, sem neitaði að snúa til baka, handafli eins og gert hefði verið undir sömu kringumstæðum í öðrum löndum. Bíddu nú við... Önnur lönd hefðu nú bara hleypt fólkinu inn í landið og tekið á þeim þegar þau brytu lögin. Þetta eru engar fótboltabullur Davíð minn... ,,Þetta fólk kemur eingöngu til þess að trufla heimsókn þessa þjóðhöfðingja. Það á ekkert annað erindi. Það hefur sýnt að þótt það sé ekki með barefli á lofti, gengur það afar langt og er mjög ýtið í þeim efnum og fer eins langt og það kemst." EN EKKI HVAÐ??? Ef Gandhi hefði gefið eftir eina tommu héti Indland ennþá Stóra Bretland. Þessi "þjóðhöfðingi" þinn er ekki þjóðhöfðingi í skjóli lýðræðis heldur í skjóli harðstjórnar. Viltu ekki bara bjóða Idi Amin og Pinochet til landsins í heimsókn, jafnvel Mussolini??? Frétt morgundagsins: Davíð Oddsson, öðlingur, bauð í gær hópi ástralskra nauðgara til landsins. Var fórnarlömbum og fjölskyldum þeirra bannað að koma og mótmæla, þar sem þær voru of margar og óttaðist Davíð um öryggi hinna virðulegu gesta... "Þetta er alstaðar gert í heiminum. Forseti Kína er boðinn velkominn til allra lýðræðisríkja og menn hafa þegið boð til Kína. Honum var boðið hingað árið 1995 og það boð hefur síðan verið ítrekað og þá verðum við að sinna því en látum ekki erlent fólk koma hingað og taka stjórnina í landinu eins og sumir Íslendingar virðast mæla með." Nei, hann lét bara annað erlent fólk taka stjórnina... (þó virðast Falun Gong liðar hafa tekið stjórnina á vissan hátt með því að "Þvinga" íslensk yfirvöld, með skoðunum sínum, til ólýðræðislegustu vinnubragða í mörg ár.) Þessi finnst mér frábær: Davíð segist alls ekki hafa orðið var við mikla og útbreidda óánægju meðal fólks vegna þess hvernig staðið hefur verið að þessum málum. 20 krakkar hafi að vísu verið fyrir utan stjórnarráðshúsið í gærmorgun, en að verulegu leyti væri hér um að ræða fjölmiðlafólk, sem væri að hafa ofan af fyrir sér. Æðislegt... 20 krakkar... Það er greinilegt, "krakkar" mínir, hvaða álit Davíð Oddsson hefur á ungu fólki á Íslandi í dag... Þessi toppar þó allt: ?Það er ekki of langt seilst. Það eru yfirvöld sem taka þessar ákvarðanir. Þegar þeir eru komnir upp í íslenskar flugvélar eru þeir komnir á íslenskt yfirráðasvæði. Við heimilum ekki að Flugleiðir taki fólk hingað, sem er á þessum tiltekna tíma komið í ákveðnum tilgangi, sem er andstæður því sem hentar íslenskum stjórnvöldum um þessar mundir," sagði Davíð. Hvað hentar þér á morgun Davíð??? Hvað hentar þér á næsta ári??? ég er með fréttir handa ykkur: LÝÐRÆÐIÐ ER EKKI SKIPTIMYNT!!! LÝÐRÆÐIÐ ER EKKI EITTHVAÐ SEM MÁ NOTA ÞEGAR ÞAÐ HENTAR!!!! STUNDUM HENTAR LÝÐRÆÐIÐ ILLA, FACE IT!!! ÞAÐ ER GJALDIÐ SEM VIÐ ÞURFUM AÐ GREIÐA FYRIR ÞAÐ... Bestu Kveðjur, Herra Muzak [ 11 ] miðvikudagur, júní 12, 2002
kjosa.is
VAKNIÐ!!! Farið á kjosa.is!!! Farið á http://www.molar.is/listar/falungong/ VERIÐ VIRK!!! Takið þátt í því að vera lýðræðisþegnar! Ég skora á ykkur í nafni lýðræðisins, takið þátt! [ 0 ] Hið fullkomna lýðræðissamfélag
Allir eru frjálsir til að mótmæla hverju sem þeir vilja: ...í huganum... ...í fangelsi... ...uppi í sveit... ...þegar enginn sér til... ...svo fremi sem þeir sem verið er að mótmæla gegn heyri ekki rödd þeirra... Þetta er okkar óskalýðræði. Svona viljum við hafa þetta. Kínverjarnir kunna sko að taka á þessum óþjóðalýð. Það er ekki hipp eða flott eða flipp eða fönk eða kúl eða költ að vera sama. Að vera sama er að kjósa yfir sig harðstjórn. Harðstjórn er aldrei hipp, flipp, flott, fönk, kúl eða költ. Harðstjórn er óðgeðslegt og niðurlægjandi stjórnarfar sem fyrirlítur einstaklinga. Maður veit að Sólveig Pétursdóttir Dómsmálaráðherra lýgur þegar varir hennar hreyfast. Munið þið eftir fullkomnlega löglegu meðferðinni á manninum sem sótti um pólítískt hæli hér um árið, eða yfirvinnubanninu sem aldrei var. Sólveig kann sko að ljúga. "Neinei, Njarðvíkurskóli er ekki fangelsi, þau fá að borða og allt... við erum ekki að pína þá eða neitt..." Guð minn góður!!! Fá fangarnir á Litla Hrauni kannski ekki að borða??? Eru þeir kannski píndir daglega???" Þegar ríkið sviptir menn frelsi er það fangelsun. Þegar ríkið sviptir menn frelsi án réttarhalda eða ástæðu er það mannréttindabrot. Bíddu! Er heimsókn Jiang Zhemin ekki opinber??? Ef hún er opinber, af hverju er þá ekkert opið og bert við hana. Þetta er meira eins og mafíósafundur í Sopranos. Enginn má vita neitt, suss suss, og tökum vandræðagemlingana í Falun Gong úr umferð. Hið OPIN - BERA á að vera OPIÐ og BERT!!! Við eigum að fá að sjá Jiang Zhemin, en við fáum aldrei að sjá hann, því tilgangur ferðarinnar er að breyta streymi fjármagns milli þjóðanna, peningaheimsókn... Auðvitað eru svakalegir hagsmunir í húfi að við fáum ókeypis pening frá Kína, nógu miklir til að bregðast lýðræðinu einu sinni, til að skeina okkur á lýðræðislegri stjórnarskrá og lýðræðislegum gildum landsins. Við seljum lýðræðið fyrir meiri bisness, það er botnlínan. Við seldum hálendið fyrir álver, nú seljum við lýðræðið fyrir viðskiptasamninga við Kína. Við höfum betri hluti að gera við hálendið okkar og lýðræðið en að láta það grotna í rotþró skíta-íhalds-ríku-feitu-kalla-kapítalismans (öfugt við ágætis smákapítalisma sem snýst um einstaklinginn og frelsi hans til athafna). Ef ég væri meðlimur í D eða B væri ég búinn að segja mig úr þeim, en sem betur fer snerta hendur mínar ekki þann skít sem íslenskir stjórnmálaflokkar eru. Ég tek undir með Ágústi Flygering þar sem hann spyr hvað Hannes myndi segja ef vinstri menn væru í stjórn núna. Ég fagna öllum mótmælum og mun taka þátt í þeim eftir fremsta megni! Bestu Kveðjur, Herra Muzak [ 0 ] þriðjudagur, júní 11, 2002
Ég er gáttaður...
Á því að Íslensk yfirvöld skuli sýna svona fádæma rassasleikjuskap við Kínverska mannréttindabrjóta og Fasista. Á því að svona margt fólk sé samþykkt eða "Sama" um þessa ómerkilegu aðför að lýðræðinu okkar. Segir þetta kannski eitthvað um þá hópheimskun sem á sér stað í samfélaginu? ("mér er sama um allt á meðan ég get keypt mér bjór...") Á því að oft feitt beittir pennar eins og Geir og Andríki skuli þegja þunnu hljóði um sleikjuskap stjórnvalda við Kínversku fasistana og nauðguninni á gildum lýðræðisins... Undarlegt... Maður heyrir ekki neitt frá þessum gæjum... Þeim þykir greinilega feitari biti að væla út í einkadansamálið sem vinir þeirra í D-listanum ætluðu að leysa með því að banna alfarið nektardans í Reykjavík... Auðvitað er pirrandi að við skulum lifa í slíku forræðishyggjuþjóðfélagi, en það verður lítið vandamál þegar við höfum hleypt hnefa stjórnvalda svona langt upp í rassgatið á lýðræðinu. Bestu Kveðjur, Herra Muzak [ 4 ] Plötusamningur óskast...
úrdráttur úr bréfi mínu til plötuútgefenda... Jó mister rekord kompaní men... Mæ neim iss Svabbi end æma mjúsisjan inn Iceland... Æ isa ðe kreisíest mjúsissjan in Æsland... vúdd jú læk to teik mæ mjúsík and meik a rekord só æ ken bí völd feimös músissjan end fólk sínger??? Æ em tótallí fönkí gæ... End Æ vúdd læk tú síng mæ mjúsík for óll ðe píbúl inn ðe völd... óræt??? Is a kreisí gæ, issa mí!!! Lissen tú mæ mjúsík plís, jú vill lækit... Is kreisí mjúsík... :-) (hvernig geta þeir staðist þetta...) Bestu Kveðjur, Herra Muzak [ 2 ] Ég væri alveg til í að...
...borga 10 kr. meira í sund til að fá eitthvað annað en brund-sund-sápu... OJ! þessi sápa sem er notuð í sundi er versta sparnaðarleið ever... hún fer illa í hárið og lyktar eins og svona "einhvers-konar" sápa og svo lítur hún út eins og brundur... Þetta er bara ógeðslegt... ...komast á plötusamning... Djöfull væri fínt að fá að vinna við það sem maður elskar... SUK... Bestu Kveðjur, Herra Muzak [ 0 ] mánudagur, júní 10, 2002
Ritning dagsins (svo maður vitni í Fræga menn...)
Skyldulesning af Baggalúti... Ég ætla allavegana að mæta niður á austurvöll og púlla Spartakus á grjónapunginn a tarna... URG!!! Bestu Kveðjur, Herra Muzak [ 1 ] og textinn við lagið er hér...
Kíkið endilega við á textasíðunni... Þar má til dæmis finna textann við hið nýútgefna misery's son... YIHA :) Herra Muzak [ 0 ] Nýja Lagið Komið Inn!!!
Kæru vinir, Herra Muzak og Zato færa ykkur... ... Misery's Son lag: Zato og Herra Muzak Texti: Zato (Hr. Muzak á hálft orð í textanum...) Svo vil ég minna ykkur á muzak.anomy.net sem Mási vinur setti upp. Þar eru lögin bara hrein og bein og hægt að linka á þau og dót... :) Svo er hér revised-we-were-really-tired-and-high-on-carbon-dioxide útgáfa af laginu... YEAH!!! Njótið Vel, Herr. Muzak [ 0 ] Staðreynd Dagsins:
Þegar ríkið herðir tökin á fíkniefnaheiminum fer í gang nokkurs konar náttúruval sem tryggir það að einungis harðsvíruðustu og forhertustu morðhundarnir haldast í bransanum. Nú er minna mál að myrða mann en að vera burðardýr. Nauðgarar og Morðingjar njóta meiri samúðar en burðardýr eiturlyfjasmyglaranna. Með harðari viðurlögum og harðari löggæslu um eiturlyfjabransann herðist bransinn upp og verður forhertari og viðbjóðslegri. Þá hættir hann að vera hópur fólks sem er að anna eftirspurn og breytist í hryðjuverkasamtök, vel skipulögð og samviskulaus. Þeir menn sem veljast í þennan bransa í dag eru ekki þeir sömu og fyrir tíu árum. Þeir menn sem veljast til að gerast eiturlyfjasmyglarar og sölumenn í dag eru menn sem hika ekki við að limlesta, kúga og myrða til að ná sínu fram, vel vopnaðir og geðveikir. Stríðið gegn fíkniefnum býr til stríðsmenn þar sem áður voru kaupsýslumenn. [ 3 ] Falun Gong - Húðgöt - 5 morð á 5 mánuðum...
FOKKING SJITT!!! Síðasta vika er búin að vera eins og hlaðborð af heimsku til að velja af! Guð minn Góður! ÉG hef ekki skrifað um eitt né neitt sem skiptir máli síðustu viku af þeirri einstöku ástæðu að hlutirnir skrifa um sig sjálfir, þetta er svo heimskt!!! Pælið í því... af hverju eru þeir að banna Falun Gong að koma til Íslands til að mótmæla, sérstaklega þegar þeir gefa það upp sem ástæðu, að ekki sé nóg til af lögregluþjónum til að berja friðarsinnana... Hey, síðast þegar haldin voru kröftug fjöldamótmæli gegn stríðsrekstri og brotum á mannréttindum fengu heimdellingar einfaldlega kylfur og lögregluhúfur og fengu að gera það sem allir góðir Heimdellingar þrá, en fá alltof sjaldan að gera, að berja helvítis hippana, verkalýðinn og almúgann með kylfu. Þetta er ótrúlegt klúður og undarlegt að við skulum á annað borð vera að púkka upp á svona morðingja. Mér er skítsama þó við séum með slökunarstefnu gagnvart kína, við getum stundað slökunarstefnu með því að versla við landið, fólkið í kína græðir á því, en fólkið í kína græðir ekkert á því að við bjóðum einhverjum litlum, feitum og sköllótum fjöldamorðingja að éta við hliðina á löggjafarsamkundunni okkar... nema hvað, það er akkurat svoleiðis sem glæpamenn læra, þeir fara í fangelsi fyrir búðarhnupl og koma út hæfir til að smygla eiturlyfjum og drepa mann og annan... Kannski þetta sé liður í alræðisvæðingu íslensks alþingis? Loksins kominn maður sem kann að taka á leiðindapakkinu sem er með skoðanir og svoleiðis... Svo til að bæta gráu ofan á svart eru þeir farnir að halda lista yfir fólk með húðgöt. Hvað kemur næst, listi yfir fólk með hættulegar skoðanir? (æ, jú, hann er kominn, það er meðlimalisti vinstri grænna... alveg rétt...) kannske listi yfir fólk sem hefur komið á húð- og kyn??? (guð minn góður, hvað geri ég nú???) Listi yfir fólk sem hefur farið til sálfræðings með vandamál? Listi yfir fólk sem hefur skriftað hjá presti? Listi yfir fólk sem teiknaði andfélagslegar myndir í grunn- og framhaldsskóla??? Svo er gaur drepinn, fimmta morðið á árinu. Aldrei, síðan í Alsíringa-og-allra-þjóða-kvikinda-ráninu (takk tyrki...), hafa verið framin svo mörg morð á svo stuttum tíma. Þetta er ótrúlegt og ég veit ekki einu sinni hvað á að segja. Ókei, þessir gaurar eru eitthvað sikk í hausnum að hreinlega "Þú klárar þetta" drepa manninn... Úff... Ég meina, maðurinn vissi aldrei af hverju þeir börðu hann í hakk, hann fékk aldrei að verja sig, hann fékk bara rörbút í hausinn og síðan var sparkað í höfuð þar til ekkert var eftir. Hvar var lögreglan? Ég veit hvar lögreglan var... Hún var að passa að enginn pissi á Landsbankann eða stjórnarráðið, minna en 40 metra frá morðstaðnum. Lögreglan okkar er ekki niðri í bæ til að gæta okkar, gæta þess að við meiðum ekki hvort annað. Lögreglan er niðri í bæ til þess að gæta þess að við níðumst ekki á eignarrétti þeirra sem eiga landið. Hlutverk lögreglunnar er ekki að gæta lífs okkar og öryggis, heldur eigna þeirra sem ráða. Það er málið. Það er hin sorglega staðreynd. Alblóðugur maður getur komið að lögreglunni og beðið um hjálp, vernd eða að þeir hringi á sjúkrabíl, þeir aðhafast ekkert. En ef einhver mígur utan í Landsbankann er sá hinn sami tekinn og handjárnaður og fluttur á stöðina. Lögreglan fer í burtu ef þeir verða varir við slagsmál. Jú, þeir eru undirmannaðir, en við erum lýðræðissamfélag og eigum að geta ráðið við svona hluti! Við borgum okkar skatta svo að við getum farið niður í bæ og skemmt okkur með vinum okkar í þennan stutta tíma sem eftir er eftir að við erum búin að brjóta á okkur bakið fyrir launa/skattaseðilinn. Við borgum okkar skatta svo Maggi Hnefi og Jói Gangster "Rústi" okkur ekki í geðþóttafílíng. Við borgum okkar skatta svo að Maggi Hnefi og Jói Gangster þurfi aldrei að verða eins og þeir verða... Við eigum að njóta frelsis og verndar. Fjórir lögreglumenn í hvítum pulsuvagni eru grín, þeir eru aðhlátursefni ofbeldismanna. Bestu Kveðjur, Herra Muzak [ 4 ] Gúdd Sjitt!!!
Við Zato skutumst upp í húsnæði og tókum upp eitt af lögunum hans (sem ég á svona 25% í...) Það heitir Misery's son og ég skelli því inn í fyrramálið... góða nótt... Svabbi Sæti [ 0 ] föstudagur, júní 07, 2002
Righeous Sax Djöfull...
Tenórsaxafónninn illi er ógeðslega fyndið hljóðfæri... Ég lokaði mig inni í herbergi Dagbjartar í nokkrar mínútur í gærkvöldi og vann í að bæta blásturinn hjá mér, ahem... Það voru einhver skrýtin aukahljóð, og þegar ég loksins leit upp eftir fimm mínútur af surgi, blýstri og ýlfri (og bauli) sá ég að bæði kötturinn og kanínan voru lokuð inni í herbergi með mér... Kötturinn vældi eins og vitlaus væri og krafsaði í hurðina, kanínan horfði dauðskelfd á mig eins og ég væri holdgervingur hins illa og kominn til að fjarlægja úr henni miltað án svæfingar eða mænustungu... Ég færði mig inn á klósett og stóð þar fyrir framan stóra spegilinn og spilaði á saxófóninn... súr stemning, leið eins og ég væri í einhverju karaokemyndbandi eða eitthvað... Aukahljóðin hættu ekki... Ég leit niður, og gettu hvað, þarna sat kötturinn vælandi og krafsandi, hún hafði elt mig inn á klósett til að hlusta á ljótu hljóðin úr saxófóninum og röfla... Hún hóf krafs sitt á hurðina á nýjan leik, svo ég hleypti henni út, en hún hljóp inn strax aftur. Nú horfði málið þannig við mér að kötturinn minn hreinlega kunni að meta þetta ógeðslega arg, svo ég hóf leikinn að nýju, með fullri gleði... Kötturinn vældi og ýlfraði og fetti upp á sig, og stækkaði rófuna og allt, en svo þegar ég hætti, þá hélt hún áfram, og fór að þefa af saxófóninum og mjálma. Ég get svarið það... Emma er masó-kisa... Hún emjar og vælir ef maður spilar á saxófóninn og hoppar út um allt, en þegar maður hættir, þá verður hún helmingi verri... súrt... Bestu Kveðjur, Herra Muzak Saxófónhetja... p.s. Nú er ég þvílíkt ákveðinn í því að pikka upp Red Bats With Teeth eftir Angelo Badalamenti... [ 4 ] fimmtudagur, júní 06, 2002
hehe... Simbinn rokkar! :)
Eitt af þeim bloggum sem ég les reglulega er hann Árni Þór, sem ég held alveg örugglega að sé góðvinur Jonna fornvinar míns. (frá því í universität...) Hann er góður gæi... og skrifaði vel um mig... <Roðn...> Sjálfsánægja mín á sér engin takmörk núna... <Fuzzy Feeling :)> Simbinn rokkar... <Maaaaal> Herra Muzak p.s. Svo er simbinn ótrúlega klár og skrifar oft afar konstrúktívar pælingar um hluti sem vert er að veita athygli... Svo fílar hann líka hetjuna mína, Noam Chomsky!!! Lesið Simbann... [ 0 ] Hæka í tilefni dagsins
Tröllakúkur, oj lyktin fer ei af, ó nei súrt ilmar il mín Ég, Don Kíkóti Þeysti gegn vindmillunum Hí á mig, Svei mér :) Svabbi [ 0 ] Shallow, Shallow, Shallow...
Æi, mér finnst þessi allragagn eitthvað svo sjalló penni og vera að skrifa svo grunna hugsun að ég veit ekki hvar á að byrja. Þetta væri (í tröllakúkskeisinu) fyndið ef viðkomandi væri beittur penni eða fyndin, en þetta er bara svona: "af hverju eru þessir negrar að láta eins og þeir séu alvöru fólk...? Hvers vegna er þetta undirmáls fólk að láta sjá sig úti í samfélaginu? Veit það ekki að það á ekki heima í okkar heimi?" Hnuss... ég ætla ekki að eyða meiri tíma í þetta. Mér finnst þetta dæmi bara Grunnt, sjalló, þunnur búðingur... En hver er ég að skipta mér af því hvað einhverjir útlitshverfir FM-hnakkar eru að reyna að mygla út á internetið, enda er það opið öllum og sem betur fer enn frjáls miðill... Hér má líta regnboga mannlegrar flóru (fyrir utan fólkið sem býr í þróunarlöndunum og á ekki tölvu, enda fer það svörtu fólki illa að skrifa á tölvur og því ættu blökkumenn að sleppa því að skrifa á internetið)* Ég beini því að lokum lítilli spurningu til allragagnsins (og líkthugsandi)... Ég er með örlitla bumbu og skjannahvítur af því að ég er föli vefstjóri dauðans... Á ég að hætta að fara í sólbað á opinberum stöðum af því að sólböð eru einungis fyrir fallegt, mjótt og brúnt fólk? Á ég að hætta að syngja í hljómsveit af því að feitt og ljótt fólk á ekki að vera uppi á sviði (það á að vera meðvitað um eigin stöðu...)? En nóg um það... Tröllaskítur eður ei, ég ætla nú að koma mér að verki, mikið framundan í dag... Með bestu Kveðju, Herra Muzak *auðvitað gera menn sér grein fyrir því að hér er hárfín kaldhæðni á ferð, sem ekki þarf að útskýra... ... dóh!... [ 0 ] miðvikudagur, júní 05, 2002
Veit ekki alveg með svona pælingar...
Ég veit ekki hvort ég á að hlæja eða gráta þegar ég les svona vitleysu... :-/ Ókei, gefum okkur að þetta sé djókur, en þá er þetta bara óskaplega illa útfærður og lélegur djókur og skortir gersamlega það kjarnaelement sem einkennir góðan húmor, nefnilega fyndni... Ef þetta er ekki djókur, þá þarf þessi manneskja alvarlega á hjálp að halda með sinn "búðing", þ.e.a.s. hinn gráa fitu- og taugamassa sem safnast inn af höfuðkúpubeininu... Ég leyfi mér að vitna: "Á vegi mínum varð stúlka ein sem spígsporaði um og virtist mjög sátt við lífið og tilveruna. Stúlka þessi var í tiltölulega stuttri peysuflík og því sást á mallakút. Maginn stóð út í loftið, samt ekki um of, en samt þannig að það var ekki komist hjá því að taka eftir því." Yfir þessu hneykslast "allragagnið" og vælir og röflar eins og hommi í vorleysingum. Bíddu, ef fólk er sátt við lífið og tilveruna, hvaða máli skiptir þá ef "sést í mallakútinn"...? Segir það ekki sitt um viðkomandi manneskju ef hún er það ósátt við líf sitt og kringumstæður að lítill mallakútur sem gægist undan peysu verður henni að hugarangri? Er fólk með bumbu annars flokks samfélagsþegnar, eða á það að klæða sig eins og Talebanakonur af því að mallinn titrar pínu þegar það labbar? Ég fór sjálfur niður í Nauthólsvík í gær og naut Sólarinnar með bumbuna út í loftið og skjannahvíta vefstjórakroppinn minn. Enginn kom baðvörðurinn og bað mig um að klæðast aftur í bolinn af því að "búðingurinn" minn hefði blindað bílstjóra á Kringlumýrarbrautinni... Umburðarlyndi fólksins var algert og ég þakkaði mínum sæla fyrir að enginn fordómafull beygla var þarna til að eyðileggja fyrir mér daginn. Hnuss... mér finnst þetta lélegur brandari (og ekki út af því að ég sé sjálfur með bumbu... (ég klæði hana líka afar smekklega af mér...)) og ef þetta er ekki brandari, þá er þetta léleg hugsun, fádæma vond röksemdafærsla og slöpp lífssýn og á varla þessi stuttu skrif skilið... n.b. Katrín lýsir því yfir að hún ber enga ábyrgð á skrifum þessa vitleysings... (aha einmitt...) ;-) Mér finnst bara undarlegt allt þetta fólk sem er að gera lítið úr fólki sem hefur nóg af vandamálum fyrir og hefur jafnvel aldrei til þess unnið að fá á sig neikvæð orð. Í þessum skrifuðu orðum bið ég Freyju blessaða afsökunar á því ef orð mín snertu hana, auðvitað hefur hún ekki enn kynnst skrifastíl mínum og það var aðallega fréttin sem ég var að djóka með og sú staðreynd að margir "íþróttamenn" nota stera og lyf til að ná árangri, og hafa þannig misst sjónar af hinum rétta og upprunalega tilgangi íþróttanna. Bestu Kveðjur, Herra Muzak [ 13 ] aha... já... einmitt... aha...
Er einhver að kaupa þetta bullshit?!? "ó afsakið, ég hélt að SKJALDKYRTILSLYFIN sem ég var að taka til að ná betri árangri í HREYSTI væru LÖGLEG... eh öh..." Bíðið aðeins... síðast þegar ég vissi, þá snerist hreysti um það að vera hraustur og vel á sig kominn... AF EIGIN VERÐLEIKUM!!! Það ætti að halda sérstakar sterakeppnir fyrir aumingjana sem þora ekki að keppa á eigin forsendum og sérstakar alvörukeppnir fyrir fólk sem vill prófa þolmörk líkama síns eins og hann er frá náttúrunnar hendi. úff... Herra Muzak [ 5 ] Tenórsaxófónn Dauðans...
...Ég ákvað um daginn að fara að bæta við þá flóru hljóðfæra sem ég þekki... Tenórsaxófónn varð fyrir valinu... Palli félagi í Verði Ljós reddaði mér þessari græju og ég tek hana fram um tíu leytið í gærkvöldi, ólmur í að byrja að spila. ÚFF!!! TVÖFALT ÚFF!!! Ég verð að redda mér hljóðeinangruðu herbergi fyrir þetta helvíti! Ekki einungis er alveg brjálaður hávaði úr honum, heldur er ég enn mjög óvanur og það heyrist bara hátíðni píp þegar ég blæs... Konan stormaði inn í stofu með brjálæðisglampa í augunum og rófan á Emmu (rólyndisketti ástarinnar) óx um a.m.k. 400% í rúmmáli. Handan götunnar hófust hróp og köll og tregafull grátbeiðandi óp um miskunn og náð glumdu á stofuglugganum... Tenórsaxófónn verður skemmtilegur lærdómur, en ég ætla héðan í frá að fara upp í vinnu á kvöldin og æfa þar... Þvílíkur hávaði... Bestu Kveðjur, Svabbi [ 0 ] Nauthólsvík Rúlar! :)
Fór samt út í góða veðrið... gaf skít í Jökul Hönnuð... Tók Dreng kammerat og Villa litla bróður með, þetta varð algjör pikknikk... Dagbjört varð ofboðslega glöð, svamlaði og fór í sólbað og alles... Nauthólsvíkin er kúl, ef einhver ástæða var til að kjósa R-listann, þá er þessi fín... Baðstrandar búgí!!! Mig dauðlangar að halda partý í Nauthólsvíkinni einhvern tíma í sumar... sjitt hvað þessi staður er heví partýdjammgúddífílíng staður... Hey, kominn í vinnuna, ætla að reyna að gera smá gagn hérna... Moonbootsæfingin í gær var annars brilljant, við renndum yfir 20 lög eins og óðir værum... Bestu Kveðjur, Svabbi Muzak [ 2 ] þriðjudagur, júní 04, 2002
Talandi um grill...
Nú er ég á leiðinni út að borða grillmat í boði fyrirtækisins... Síðan ætla ég, ef guðirnir lofa, að fara snemma heim, ná í dóttur mína á leikskólann og eiga quality time með henni á ströndinni í Nauthólsvík... Biðjum til guðs að Jökull Hönnuður fari að drulla sér í vinnuna til að taka við af mér... Bestu Kveðjur, Svabbi Muzak viðbót kl. 13:05: Það er opinbert... Ég ætla að drepa Jökul hægt... með skeið... og fransbrauði... Hann svarar ekki í gemsann og er búinn að taka tólið af heimasímanum... Þetta þýðir að ég fer ekki út í góða veðrið með dóttur minni í dag... ég er urgandi reiður... sjóðbullandi hoppandi fokking reiður! :( ARGH!!! [ 2 ] mánudagur, júní 03, 2002
Var að fá símhringingu...
...vegna færslunnar hér að neðan... Nú verð ég grillaður á næstu ættarsamkomu fyrir að spæla frændfólk... :-) ullabara á ykkur öll! :-) Æi, ég er þreyttur og vil fara heim... nenni ekki þessu hangsi... horfi bara á óþyrmilega mikla sólina fyrir utan gluggann og fyllist þunglyndi... Svabbi [ 3 ] Ég á leiðinlegan mág/frænda...
...sem er alltaf að dissa mig. Hann er útlendingur, sem væri ókei, nema hvað hann er einn leiðinlegasti útlendingur sem ég hef nokkurn tíma kynnst. Íhaldssamur, hægrisinnaður fram í fingurgómana, útlendingahatari (nema hvað???), hommahatari, kvenfyrirlitningarfullur, kaþólskur á versta móð, lyginn, ómerkilegur og yfirgangssamur. Við höfum oft rifist um stjórnmál og hluti í mannlegu samfélagi (nota bene hann fyrirlítur mig fyrir það að hafa unnið með börnum og að hafa lært heimspeki, honum finnst heimspeki vera "kjaftafag" og "aumingja-studies" og svo framvegis) Um daginn mynntist ég á það hvað mér finnst bróðursonur minn æðislegur og mikil krúttíbolla. Kveður við í mannhelvítinu: "what did you say? ha? kruttibolle? are you gay?" (maðurinn búinn að búa á Íslandi í 20 ár og kann ekki málið, en vill reka allt gula fólkið burt sem er ekki búið að læra það á fimm árum...) Ég fékk tótallí nóg og sagði bara "hmö hmö hmö hmö hmö hmö böböböö hömö hömömömömö!" og geiflaði mig framan í hann, og viti menn! Hann steinþagði! í fyrsta skipti sem ég fæ hann til að þegja og láta mig vera, og þá dugðu sko engin rök, heldur bara afskræming á því sem hann sagði: "Sko, þetta ert þú! ha? hmö hmö hmö hmö höhöhö mömömömö..." Dísuss! Í heimi hrokafullu rugludallanna þá eru þetta greinilega pottþétt rök! hmm... hmmmmmmmmm... Hey Geir: "hmö hmö hmö hömmömömömö hmö hmö hmö!" ;-) (taktu eftir broskallinum Geir, ég nenni ekki að fá enn eitt flónskukomment frá þér hér fyrir neðan...:) ) Bestu Kveðjur, Herra Muzak [ 5 ] ALLT OF LATUR!!! :)
Nú er ég loksins búinn að smissa pínu lítið upp í línkunum... Hér eru komnir öðlingarnir Bragi Skaftason, Lora æði, Einar Wizkid, Siggi Pönk, og síðan pólítíkerarnir á Múrnum og Frelsinu (ég veit, en ég verð að hafa báðar hliðar málanna inni...) Bestu Kveðjur, Svabbi pönkari (inni í sér...) [ 3 ] Brúðkaupsgleði! :)
Takk Bjarni og Unnur fyrir æðislegt brúðkaup, obboslega gaman og sól og dans og gleði! Þarna sá ég fullt af skemmtilegu fólki, Loru, Sigga Pönk, Sigga Pönk tvö (sigga frænda), Berglindi skemmtilegu og fleira, fleira, fleira glæsilegu fólki. Við Kaffi-menn spiluðum fullt af tónlist sem okkur fannst ógeðslega skemmtileg... Fólkið var beisikallí sammála okkur... Síðan komst ég að því að Helgi trommari hefur einhverjar bældar illskutilfinningar gagnvart Jóhannesi í Kötlum og hatar Lamb í Grænu Túni og líka Syngjandi Hér... Greyið strákurinn. Svo dirfist hann að líkja þessu við óbilandi óþol mitt á barnalögum Ómars Ragnarssonar! DJÖFULLINN!!! Ég lem hann í kássu!!! :-) hehehe... Ég meina, hvaða barn talar eins og fimmtugur þroskaheftur maður með offituvandamál? ("kahdah geeeerraaaahhh????") Nema hvað, þegar því var lokið héldum við heim á leið og ég bauð Helga í kjúklingarétt (sem Pálína gull af konu eldaði án þess að vita að við ættum von á gesti...) En það var allt í lagi, ég gaf honum bara lítið og át megnið sjálfur mouhahahaha... Eftir matinn rukum við niður í bæ til Snorra Baróns sem vinnur í DBT og hjálpuðum honum að flytja úr íbúðinni sinni (sem er ekki lengur hans...) og hann var þvílíkt hress á'ðí. Vitiði hvað??? We built this city og Summer of ' 69 eru geðveik lög og ógeðslega gaman að spila þau. Bestu Kveðjur, Svavar Muzak [ 3 ] laugardagur, júní 01, 2002
Góð grein
Ég var að lesa ansi góða grein hér um daginn: Í henni segir m.a.:"Umræðan um framtíð hálendis Austurlands hefur vísvitandi verið einfölduð. Í stað þess að hin margvíslega og stórfellda röskun á landi og lífríki séu rædd tæknilega og á upplýstan hátt hefur allt verið gert til að hæða andstæðinga virkjunar og rök þeirra. Menn kallaðir "sjálfskipaðir umhverfissinnar" í hæðnistón, íhaldssamir afturhaldsseggir sem aðhyllist afturhvarf til torfkofa eða menningarvitar úr Reykjavík sem aldrei hafi svæðið augum litið. Á sama hátt er reynt að gera lítið úr málflutningi sama hóps og oft látið að því liggja að þeir viti ekki hvað þeir séu að tala um. T.d. virðist algild regla að hafi einhver ekki komið upp á virkjanasvæðið og virt það rækilega fyrir sér þá hafi hann engan rétt á að mótmæla eyðileggingu svæðisins en vilji sá hinn sami styðja umhverfisspjöllin skiptir engu hvað hann hefur eða hefur ekki séð." Höfundur heldur áfram: "Þrautarökin eru a.m.k. alltaf þau sömu: "hvað viltu þá gera?!" Með þessum orðum má í einni svipan varpa allri ábyrgð yfir á þann sem andmælir og gera hann aö svörnum óvini atvinnulífs og jafnvel alls mannlífs á Austurlandi." Þessi grein birtist sumsagt í blaði ungra vinstri grænna og var höfundurinn Kolbrún nokkur Rúnarsdóttir. Ástæðan fyrir því að ég set þetta fyrir neðan tilvitnunina er sú að ég tel að margir í hópi hinna þröngsýnni lesenda síðunnar hefðu sleppt því að lesa það um leið og þeir vissu hvaðan það kæmi. (No offense...) Mér þykir Kolbrún Rúnars ná nokkuð sterkum punkti þarna. Mig langar að spyrja valdamenn þjóðarinnar hvort þeim detti virkilega ekkert sniðugra í hug til að gera við 200.000.000.000 krónur en að hlaða virkjun sem pumpar út rafmagni í 50-80 ár og álver sem gefur 500 hræðum (og 2000 í allt) vinnu í þessi sömu 50-80 ár (svo framarlega sem álverðið vaxi stöðugt næstu 5-8 áratugi.) aha... Ég komst yfir mína lækjarstíflukomplexa í kring um 12 ára aldurinn. Við gætum gefið 2000 manns 2.000.000 króna á ári hverjum í 50 ár fyrir þennan pening... bara fyrir það eitt að búa á Austfjörðum... djöfulsins massa fjárfesting væri það, þá gæti þetta fólk notað þennan pening til að gera eitthvað sjálft... Við þyrftum ekki einu sinni að fá 1500 útlendinga til að koma og vinna á Austfjörðum, djöfulli flott redding... Ef ég ætti tvær milljónir, hvort myndi ég nota þær til að byggja upp möguleika mína á sem fjölbreyttastan hátt, eða henda þeim í að byggja bílskúr úr hveitipokum? Æ ég veit ekki, en greinin hennar Kolbrúnar var góð og varpaði fínu ljósi á vanmetinn punkt í þessari umræðu. Hinir "verkfræðiþenkjandi" tómhyggjumenn verða að vera tilbúin til að ganga til málefnalegrar rökræðu um þessi mál, ekki bara að kalla menn illum nöfnum og gera lítið úr þeim. Hugsið aðeins um þetta, Herra Muzak p.s. kannski væri sniðugt að búa til lista yfir 20 fjárfestingar sem væru skynsamlegri fyrir 200 milljarða heldur en álver og virkjun. Þá gætu VG og fleiri umhverfisverndarsinnar bara gripið listann upp úr brjóstvasanum þegar málefnaleysingjarnir spyrja falstrompspurningarinnar "hvað viltu þá gera?!" p.p.s. Ég auglýsi eftir 80's fötum af öllum stærðum og gerðum og þá sérstaklega ofurhallærislegum leðurjakka. Hafið samband! [ 5 ] Af gefnu tilefni...
...langar mig til að minna ykkur öll sem lesa þetta á að hér gilda kærleikslögmál. Eins og allir sem lesa þessa síðu vita, er það nokkuð ljóst að ég fel mig ekki bak við nafnleynd, (sjá <---- + myndir víða á síðunni...) enda lítil ástæða til, skoðanir mínar eru yfirleitt hvorki rasískar né andfélagslegar þó þær jaðri stundum við meiðyrði ;-). Mig langar til að fólk geti tjáð sig um það sem ég skrifa hérna, en við verðum að gæta vissrar lágmarks kurteisi og háttsemi. Ég þigg alla gagnrýni með þökkum og tek henni alls ekki illa, en um leið undirstrika ég það að ég krefst þess að menn komi fram undir nafni og ræði hlutina málefnalega (nema ég...) Héðan af mun ég, eftir fremsta megni, þurrka út öll leiðindi sem berast nafnlaus. Ég geri þær kröfur til fólks að það geti átt samskipti á jafningjagrundvelli eða þegi ella. Skot úr myrkrinu eru ekki velkomin hér, þrátt fyrir að ég sé fífl... Bestu Kveðjur, Herra Muzak p.s. Mér finnst Beta rokk ósköp gay... [ 4 ] Forræðishyggja "Frelsaranna"...
Smá þankafæða: Hefur einhver spurt indíánana í Amazon skóginum eða hirðingja/veiðimanna-safnara svertingjana í Afríku hvort þá langi til að búa í vestrænt módeluðu markaðssamfélagi? Er það þá ekki viss forræðishyggja að vilja þröngva þessum lífsháttum upp á þetta fólk? Er það í rauninni ekki versta forræðishyggja að þröngva gildum sínum upp á fólk í öðrum löndum, öðrum heimsálfum, í þeirri trú að manns eigin lífshættir og hugmyndafræði sé heilagri og æðri en þeirra "frumskógarlifnaður." Bestu Kveðjur, Herra Muzak [ 0 ] |
Eva
Örn "Mugison"
Elias Tónlistarmönnum sem gefa tónlist
sína á netinu er velkomið að hafa samband
við Hr. Muzak og þá bæti ég þeim
á listann.
Laukurinn rúlar
Dr. Gunni
| |||