Þankatankurinn



Svavar Knútur
Kristinsson,

Félagsauðströll, heimspekingur, umhverfis-verndarsinni og tónlistarmaður.

Ímeilaðu
mig...

NÝTT!!!
Viltu fá
(eða hætta að fá)
tilkynningar
um tónleika
HRAUNS!,
eða Svavars Sjálfs?
Sláðu inn
netfangið hér:



This page is powered by Blogger. Isn't yours?




Hljómsveitin Hraun! veitir mér listræna útrás.

Hraun á Myspace

Sjálfurinn á Mæspeis

Nýjustu Demó:

Ease your mind (01.07.2006)

Dansa... (28.09.2005.)

Ástarsaga úr fjöllunum (Sumarið 2005)

Goodbye my lovely (19. júní 2005)

Kisa litla (Maí 2005)

Your love was death to me (Janúar 2005)

Call off your Cavalry (September 2004)

You should call a doctor (Maí 2004)

Kysstu tímaglasið (endurbætt útgáfa 2004)

Mother's day
( 2004)

Jólaplata Hrauns 2003: Þrautgóðir á Hraunarstund

Jólaplata Hrauns 2004: Kátt er um jólin

Partýplatan Partý!

Jólaplata Hrauns 2005: Höldum jól

Jólaplata Hrauns 2006: Jólamolar



Latur myndasmiður, en engu að síður er hér að finna eitthvað efni...

Molar...


 
miðvikudagur, júlí 31, 2002
 
Ókei Gengi! :)

Höldum nú áfram að plögga Sportkaffi 2002, þetta verður geðveik innihátíð, og þið sem ætlið á innipúkann þurfið engar áhyggjur að hafa... Þið missið í mesta lagi af einu setti af þremur, jafnvel fjórum (ef það verður nóg stuð).
Laugardagskvöld og sunnudagskvöld verða undirlögð undir Moonbootsstemninguna, good old fashioned dansa uppi á fokkíng borðum helvítin ykkar!!! :-)

Moonboots.is fer að koma í loftið... En á meðan skulum við hugsa fallega um verslunarmannahelgina og kjósa Sportkaffi 2002 besta innihátíðarlag allra tíma!

YEAH!!!

Svabbi


[ 5 ]
þriðjudagur, júlí 30, 2002
 
Mig langar bara til að hvetja ykkur öll til þess að dreifa þessu eintaki af Sportkaffi 2002 eins víða og þið getið og vísa endilega á þetta. Okkur langar að prómótera þessa innihátíð okkar feitt :) Hlakka til að heyra frá ykkur...
Hr. Muzak


[ 0 ]
 


Þar sem ég, Herra Muzak er alger bókstafstrúarmaður í þeirri hugsjón að leyfa fólki að fylgjast með works in progress, þá vildi ég leyfa ykkur að heyra það sem ég var að dútla í nótt...
Ég settist niður kl. 01:00 með upptökutækið mitt og nú er tilbúið lítið demó af Sportkaffi 2002. Klukkan er sumsagt 03:11 og Alto MP3 maker er að malla laginu í gegn...
Ókei, það er pínu næturrödd í þessu og allt ósköp ódannað, en ég er samt furðu ánægður með þessa litlu og aulalegu útgáfu sem er gerð af mestu og sætustu vanefnum sem ég veit...
Það er náttúrulega alltaf erfiðast að henda upp Gítar og bassa svo það sé að sánda í lagi... Svo raular maður eitthvað yfir (má ekki syngja hátt af ótta við að vekja konu og dóttur... en það gerðist samt óvart þegar ég fór að berja taktinn...)og hugsar síðan: "Æi, þau eiga eftir að fíla þetta svona pínu hrátt... Fara að sofa... En fyrst að FTPa þetta upp á sörver og blogga lagið..." :-)

Ég held að mér hafi tekist að setja saman allar ljótustu klisjur útihátíðar/þjóðhátíðarslagaranna í eitt ljótt lag... :-)
Getið þið talið þær upp...? Hér að neðan...? Í kommentunum...? Það væri mér mikils virði...
Sá sem spottar flestar ljótar klisjur fær frímiða fyrir tvö á Sportkaffi 2002 í boði Moonboots

Hér er sumsagt Lagið til að dánlóda...
Og hér er textinn:

Sportkaffi 2002

Ef viltu vinna milljón, þú ert á röngum stað,
Við ætlum bara að tjútta hér, og gleðjast fyrir það,
að múnbúts eru að spila og gleðin tekur völd
Því Verslunarmannahelgin hún kemur í kvöld

Komdu með á Sportkaffi tvöþúsund og tvöööö
Við finnum gleði og hamingju, saman við tvööö
Það erfitt er að finna fleiri orð til að ríma við tvööö
En við skemmtum okkur engu að síður á Sportkaffi tvöþúsund og tvööö

Við sofum ekki í tjaldi, við drekkum ekki af stút
Við þurfum engar lopapeysur þegar við förum út
Vegna þess að Moonboots spila innanhúss
Á Sportkaffi þar verður taumlaust djamm og djús.

Komdu með á Sportkaffi tvöþúsund og tvöööö
Við finnum gleði og hamingju, saman við tvööö
Það erfitt er að finna fleiri orð til að ríma við tvööö
En við skemmtum okkur engu að síður á Sportkaffi tvöþúsund og tvööö

Engir fullir unglingar, til að pirra mig
Einbeiting mín algerlega fer í að reyna við þig.
Engar drukknar gelgjur til að æla á tjaldið þitt
Bara ég og þú, og Moonboots, uppáhaldsbandið mitt.

Komdu með á Sportkaffi tvöþúsund og tvöööö
Við finnum gleði og hamingju, saman við tvööö
Það erfitt er að finna fleiri orð til að ríma við tvööö
En við skemmtum okkur engu að síður á Sportkaffi tvöþúsund og tvööö

Við megum ekki kveikja varðeld
þó okkur langi til
Og eitt er víst að ekki verður
Leikið á langspil
Þó ágústnóttinn sé oft æði blaut og köld
Þá er Sportkaffi alltaf hlýtt og gleðin er við völd

Komdu með á Sportkaffi tvöþúsund og tvöööö
Við finnum gleði og hamingju, saman við tvööö
Það erfitt er að finna fleiri orð til að ríma við tvööö
En við skemmtum okkur engu að síður á Sportkaffi tvöþúsund og tvööö

Endurtekið út...


Bestu Kveðjur,
Herra Muzak


[ 10 ]
mánudagur, júlí 29, 2002
 
Hmmm...

var að lesa þetta á þessari slóð...

"Þá er það annar punktur sem er svo vanhugsaður að það hálfa væri miklu meir en nóg. Hann er að ef þetta væri bannað, þá myndi bara aukast "neðanjarðarstarfsemi vændisins". Einn punktur til ykkar. Nú eru nánast allar þessar gellur útlenskar og því háðar atvinnuleyfi til að geta starfað hérna (nema þá að þær giftist melludólgunum, en nú er fjölkvæni óleyfilegt svo hann verður seint ríkur af því). Ef strippbúllunum væri lokað (ekki geta dólgarnir haldið þessu uppi án vændis) þá fá þessar stelpur ekki atvinnuleyfi, ergo gaurarnir verða að redda sér íslenskum hórum. Ætli það yrði þeim ekki nokkuð erfiðara. Í fyrsta lagi er hér ekki það slæmt þjóðfélagsástand að stelpur hrekist eða séu lokkaðar útí vændi í stórum stíl (þó svo að einstaka dilli sér á þessum búllum, það er þeirra mál). Í öðru lagi eru þær ekki háðar melludólginum uppá atvinnuleyfið eins og þær útlensku. Íslenskar stelpur eru fullfærar um að redda sér kúnnum sjálfar og hirða þá peninginn sjálfar. Eru þá ekki allir sáttir!"

ókei... ég er sjálfur ekkert hrifinn af lögleiðingu vændis sem slíkri, en ég tel að það sé verra að banna það en ella...

Kæra Sigrún,
Þú gleymir einu...
Ef hlutirnir færast "neðanjarðar", þá þurfa stelpurnar ekkert atvinnuleyfi. Þá koma þær hingað sem námsmenn, eða ferðamenn eða þær bara koma hingað, af því að Schengen er opið... Og svo búa þær óskráðar inni í hulduíbúðum glæpabransans í stað þess að búa meðal fólks. Síðan veit enginn af þeim fyrr en þær dúkka upp á neðanjarðarbúllunum og hverfa svo aftur ofan í neðanjarðarheiminn sinn. Þær hverfa... Verða einungis sýnilegar glæpaheiminum, þar sem helmingi auðveldara er að fara illa með þær... Engin trygging, engin samfélagsþjónusta, ekkert nema melludólgurinn sem hefur líka í höndum sér heróín og kókaíndreifingu og er þess vegna nokkuð harður nagli... Hann á örugglega haglara og skammbyssu sem hann eignaðist með því að múta spilltum rannsóknarlögregluþjóni. Hann á örugglega ágætis mannskap og "network" af glæpastarfsemi, vegna þess að því meira sem er bannað, því stærri er markaðurinn fyrir svona gaura til að athafna sig á. Því meira sem er leyfilegt, því minna geta svona menn athafnað sig eins og skíthælar, því minni ástæða er fyrir glæpamenn að vera alvöru glæpamenn.
Glæpamenn hegða sér eins og þeir gera vegna þess að þeir vita af afleiðingum gjörða sinna. Það er betra að drepa vitnið en að láta dæma sig fyrir fíkniefnabrot...
Við skulum sjá hversu margar nektardansmeyjar tjá sig um ástandið þegar nektardansinn er gerður ólöglegur. Við skulum sjá hversu margar þeirra fá að tjá sig í blöðunum þegar þær búa í einhverju mafíukommúnukomplexi í Árbænum.
hmmm...

Sorglegur raunveruleiki, en þá vil ég frekar hafa stelpurnar hoppandi á pjöllunni fyrir framan alþjóð en að þær séu á pjöllunni í líkpoka hífðar upp úr höfninni af því að þær voru að fara að hitta blaðamann frá Mannlífi sem vantaði skúbb.

Bestu Kveðjur,
Hr. Muzak




[ 5 ]
 
MASSA MASSA MASSA!!!

Jæja Krakkar, nú er undirbúningur í fullum gangi fyrir Verslunarmannahelgardjamm ársins! :)
Sportkaffi 2002 verður að veruleika um helgina...
Rafræn fundahöld eru hafin og Moonboots eru að ræða hvað sniðugt er að gera fyrir fólkið.

Allar hugmyndir að rokkstöntum eru vel þegnar hér að neðan...
Bestu Kveðjur,
Herra Muzak

p.s. og ég vil aftur minna ykkur á að kíkja á miðopnugrein Laugardagsmoggans eftir Roni Horn, Eitt hundrað fossar, fimm hundruð störf, þar sem Roni Horn fer á kostum í því að ögra íslenskri þjóðernisvitund og sjálfsmynd þjóðarinnar.


[ 0 ]
sunnudagur, júlí 28, 2002
 
Gúdd Sjitt í gærkveldi...

Kæru vinir,
Gærkvöldið var algjört möðerfökk! :-)
Moonboots voru að sjálfsögðu í banastuði og ekkert nema gott um það að segja, að vísu spiluðum við 45 mínútum of lengi. Það var kominn pínulítill titringur í staðarhaldara, vegna þess að löggan var farin að sveima og breima fyrir utan.
Beta rokk var vægast sagt ótrúleg og söng eins og engill kvenpartinn í Paradise by the Dashboard light. VÁÁÁÁ! ég ætlaði ekki að trúa því!
Eftir giggið löbbuðum við Jonni félagi út á Ingólfstorg þar sem tvær kvensniftir voru að slást. Þær rifu í hárið hvor á annarri og lömdu og spörkuðu. Í kringum senuna voru kærastarnir þeirra að rífa sig hvor við annan og vini hvers annars... þetta var afar undarlegt... þetta var eins og risastór hanaslagur... Önnur stúlkukindin féll í götuna og hóf hin þá hið hefðbundna íslenska spörkum í liggjandi mann fíling. Þá gat Jonni ekki á sér setið og þreif ofbeldisdrósina í burtu og sagði að þetta væri ekki góð latína. Brjálaðist þá auminginn sem hún kallaði kærasta og hóf hanaslag við Jonna, sem tók þessu með stillingu mannsins sem hefur gersamlega stjórn á kringumstæðum og náði að beina reiði drengsins í aðrar og meira skapandi áttir.
Jonni kom aftur til mín og við horfðum á þennan undarlega sirkus aðeins lengur, mikið ofbeldi í gangi. Ég dáðist að honum Jonna fyrir riddaramennsku sína. í alvörunni. Þá sá ég lögguna í 100 metra fjarlægð og sá mér leik á borði og hrópaði ofan í jakkann: "Löggan, Löööggaaan, Löööggan eeer aaaað Kooomaaa!!!" Þá var eins og rynni af öllum viðstöddum og menn voru allt í einu komnir niður í rifrildisfasann... Ánægjulegt að Löggan skuli einu sinni koma á svæðið til að skakka svona leik. FUSS hvað þetta fólk eru miklir hálfvitar... Aldrei þarf ég að lemja neinn...

Nema Hvað... Kvöldið frábært... Við tók pöbbarölt og ég hitti Jónínu vinkonu og við chilluðum saman lengi vel. Ég hitti líka Ástu Olgu vinkonu sem er í pínu fríi frá Köben þar sem hún er drottning alheimsins.

Sumsagt, eftir 5 tíma mjög misjafnan svefn hringir síminn. Það er yfirmaður minn hún Margrét, sem biður mig um að koma upp í Hafnarfjörð að skreyta Golfskála fyrir stórt golfmót sem er á morgun. Ég sagði henni að ég væri þunnur og hún sagði töfraorðið: "YFIRVINNA"... Ég drattaðist framúr, fór í sturtu og eldaði mér tvo hamborgara með beikoni og eggjum...
Ég er nú þegar farinn að sjá eftir þeim morgunverði... úff...
Nú er ég kominn heim og ætla að taka upp lag...
Jibbí...

Að lokum vil ég benda fólki á að lesa miðopnugreinina Eitt hundrað fossar, fimm hundruð störf eftir Roni Horn í Morgunblaðinu. Góð grein, skrifuð af manneskju sem þekkir umhverfisslysin þegar hún sér þau.

Hugsið bara aðeins um þetta.

Bestu Kveðjur,
Herra Muzak


[ 2 ]
laugardagur, júlí 27, 2002
 
Í KVÖLD MOONBOOTS Á VÍDALÍN!

Jæja krakkar, nú er komið að upphitunaræfingu Moonboots fyrir verslunarmannaelginn...
Við mætum á Vídalín í kveld og málum bæinn rauðan! YIHA!!!
Bestu Kveðjur,
Svabbi


[ 1 ]
föstudagur, júlí 26, 2002
 
Hello World

I want to use this opportunity to greet all the people that have been visiting my page from around the world....


Hello .ch (switzerland)
Hello .au
Hello .no
Hello .fi
Hello .dk
Hello .cc (coconut Islands...) (ccp.cc hehehe)
Hello .fr
Hello .de
Hello .uk
Hello .es
Hello .li
Hello .se
Hello .jp
Hello .com
Hello .net
Hello .org
Hello .mil

Nice to see all those visitors from all those diverse countries... (and establishments)
Or maybe it's just one person travelling really fast...

Whatever :) Bye for now...

Listen to my music, distribute it, be part of my plans for world domination. Join my ever growing army of friends...

Herr Muzak


[ 2 ]
 
Helgin framundan

Ókei, nú vita allir hvert á að fara annað kvöld...
Moonboots byrjar að spila kl. 00:06:54.
Staðurinn: Vídalín
Gaman væri að sjá eitthvað af ykkur þar... Annars hef ég engar áhyggjur, við eigum eftir að stútfylla staðinn either way... :) hehehe

Bestu Kveðjur,
Hr. Muzak


[ 4 ]
 
Algerlega Sammála síðasta ræðumanni...


Heyr Heyr, Dr. Gunni, Heyr Heyr!


[ 0 ]
 

Gerist það heimskara?!?

Öhmöhmö.... mjég mer hmö fhmeeeiitur... mhömmhömhö... og hmað er allt hmkyndibitahtöðunum að hkenna.... öhöhöhöhö


DÍSUSS KRÆST!!! GET A LIFE YOU FAT FUCKS!!!

Hvenær læra þessir kanar að þeir bera sjálfir ábyrgð á eigin lífi og vali. Það er engum nema þeim að kenna að þeir éta hamborgara daginn út og inn... Helvítis fífl!!!
HAHAHAHAHA :D
Ég vona samt að þeir haldi áfram með kæruna og Bush finni nýjan óvin... War on Obesity! það gæti verið fínn málstaður...
Svo er Bush líka kominn með annan nýjan óvin... War on the evil terrorist Asteroid heading for earth in 17 years...

?Skyndibitakeðjurnar hafa eyðilagt líf mitt! Ég hélt alltaf að þetta væri hollt fyrir mann. Ég hélt aldrei að það væri eitthvað að þessu," sagði Ceasar Barbar, offitusjúklingur, við blaðamann New York Times.
BWAHAHAHAHA :)

Fífl

Hr. Muzak


[ 4 ]
 
Súra veður...

Ég beygði mig niður til að ná í penna og þegar ég stóð upp var komin sóóóól og heiðskýr himinn... WTF?!?


[ 1 ]
 
Ævintýri Sundkappans...

Fór í sund í gær... Voða flottur... (eins og venjulega...) Mér þykir gott að synda rúman kílómeter á dag. Það heldur manni í sæmilegu formi.

Ókei, get this...
Í Laugardalslauginni var haugur af gamalmennum (eins og venjulega...) og þau dreifðu sér mjög pent á allar fjórar afmörkuðu brautirnar, auk plássins sem er tekið frá fyrir gamalt fólk sem syndir svo hægt og ómarkvisst að það er ómögulegt að það klessi á hvert annað.
Ég fékk það meira að segja á tilfinninguna að einn gamli kallinn væri að fara fram úr annarri gamalli kellingu, því þau syntu hlið við hlið í sinni braut, sem þýddi að enginn komst á þá braut þó hann hefði umburðarlyndi gagnvart gömlu fólki. FUSS!!!
Þau syntu þarna hlið við hlið, einbeitt, eins og þau væru í endalausu kappi... sundtak fyrir sundtak.. mínútu eftir mínútu, þangað til þau komu loksins að bakkanum hinum megin... Þá snéru þau sér hægt og rólega við og hófu sundið til baka...
Ég urraði... Fann mér mátulega óupptekið svæði, þar sem ég gat stundað gamalmennastórsvig og stakk mér til sunds...
Eftir nokkrar ferðir hitti ég Blökkumann að nafni Cyrus. Hann er frá Kenýa og er í mastersnámi í Jarðefnafræði. Áhugi minn kviknaði undir eins, og komst ég brátt að því að hann er að læra að finna og beisla jarðhita til að auka möguleika Kenýabúa á sjálfbærri orkunýtingu. Þetta er auðvitað lykilatriði fyrir þróunarlönd eins og Kenýa. Ég var mjög imponeraður og við spjölluðum lengi saman.
Hlakka til að hitta Cyrus aftur, hann virtist vera mjög vel menntaður og klár gaur, auk þess sem hann hló gjarnan eins og Eddie Murphy í Coming to America... :D

Bestu kveðjur,
Hr. Muzak


[ 0 ]
fimmtudagur, júlí 25, 2002
 
Samræður við bláa manneskju...


Svið: Vinnustaður Hr. Muzak, Hr. Muzak er að útskýra mannréttindabrot íslenskra stjórnvalda á bæði erlendum sem íslenskum mótmælendum þegar Yiang Zhemin leit við á skerinu og Davíð klessti nefinu upp í rassgatið á honum.
HR. MUZAK: Og svo var lögreglan að taka menn höndum og svipta þá frelsi fyrir það eitt að vera með mótmælaspjöld á svæðinu og ganga í gulum fötum.
ÓNEFND SAMSTARFSMANNESKJA (Ó.S.): Þeir eiga bara ekkert að vera að tjá sig.
HR. MUZAK: Hvað meinarðu?
Ó.N.: Fólk á ekkert að vera að tjá sig um svona hluti. Sérstaklega þegar það veit ekkert um þá.
HR.MUZAK: Við vorum að mótmæla því að fólki væri bannað að mótmæla, ekki sjálfum mannréttindabrotunum.
Ó.N.: Þið áttuð bara ekkert að vera að flækjast þarna fyrir ykkur merkilegri mönnum.
HR. MUZAK: (FORVIÐA) Ertu að segja að fólk eigi bara ekki að mótmæla nema á 1. maí.
Ó.N.: Fólk á bara ekkert að vera að vera með svona leiðindi. Þetta eru bara atvinnumótmælendur. Ég treysti mínum Davíð. Og hvar fékk þetta fólk síðan peningana til að koma til Íslands?!? Ha? Svaraðu því!
HR. MUZAK: Kemur það okkur við hvar fólk fær peningana sína til að ferðast milli landa? Hvaðan færð þú peninga til að kaupa þér sumarbústað eða fara til Mæjorka á sumrin? Selurðu eiturlyf eða jafnvel vopn?
Ó.N.: Þú veist bara ekkert um svona hluti. Þetta fólk á ekkert að vera að koma hingað til landsins og tjá sig.
HR. MUZAK: DÍSUSS KRÆST! HEYRIRÐU Í SJÁLFU ÞÉR?!? ERTU AÐ SEGJA AÐ LÝÐRÆÐISREGLUR EIGI EKKI VIÐ ÚTLENDINGA? OG KANNSKI EKKI HELDUR VIÐ NEINN SEM ER ÓSAMMÁLA DAVÍÐ ODDSYNI?
Ó.N.: Ég skal bara segja þér að þú ert ungur og það er ekkert að marka þig því ungt fólk er svo vitlaust.
HR. MUZAK: Ég þakka málefnalega umræðu.
Ó.N.: Það þýðir ekki að tala við þig... Þú ert bara á móti Davíð Oddssyni... Svona eruð þið Kommúnistarnir...
HR. MUZAK: Ertu að kalla mig kommúnista? Ókei, ég skal vera kommúnisti! Bara fyrir þig! Ég skal stoltur vera kommúnisti ef það þýðir að ég megi hafa frjálsar skoðanir. Ó.N.: HNUSS!!! Ungt fólk í dag!

HR. MUZAK: GAAAAAAAAAAAAA


Bestu Kveðjur,
Hr. Muzak


[ 6 ]
 
Rock Star

Horfði á Rock Star í gærkveldi með Frú Muzak.
Bara Massamynd, ekkert að henni. Tók mjög vel fyrir bransafílið og heimsmynd þungarokksdýrkendanna á níunda áratugnum.
Að vísu fannst mér ponsu skrýtið að eftir eitt til tvö ár (árið 1988) var hann orðinn alger hálfsítt hár grungerokkari með eitthvað voða indí (flott samt) prógramm í gangi.
Ég hélt að árin 1988-1991 hefðu verið algjörlega tóm ár...

En hvað veit ég sosum...

Svo var ég að horfa á "shoot the dog" með honum George Michael. Það var í sjálfu sér voða húmorískt og allt það og vel unnið úr laginu Love Action með Human League.
Hins vegar skil ég ekki alveg "da contraversy" í öllu þessu máli. Mér þykir hálfsorglegt að menn skuli hneykslast á svona nettri rúmlegameðalmennsku frá ágætis gaur eins og George Michael. Þeir sem eru að væla yfir þessu hljóta að vera bjánar inn að beini. Ekkert sérstakt lag, heyrði engan texta, enda var hann allur muldraður einhvern veginn í hálfgerðum Tautfasa...
Ekki svo að segja að þetta sé neitt lélegt. Þetta er bara ekki næstum því nógu afgerandi til að meika neina kontróversíu... (afsakið slettuna...)

Bestu Kveðjur,
Hr. Muzak


[ 2 ]
 
BUSTA RHYMES RÚLAR!!!

Er að hlusta á gamla snilldarsmellinn Woo Hah! Got Ya all in check! með Busta Rhymes á Muzik.is.
Busta er definately einn af toppsnillingum nútímans.
Djöfulsins snilld! :)
Hr. Muzak
...
Viðbót... tveim mínútum seinna...

Strax eftir Busta tók við Lagið Roads með Portishead...
Djöfull blúsar það lag mig...
Minnir mig alltaf á síðustu jólin sem öll fjölskyldan átti saman. Ég gaf stóra bróður Dummy í jólagjöf og við hlustuðum á diskinn í stofunni í Ólafstúninu.
Sakna pabba eins og ígulker hafi sprungið í brjóstkassanum á mér.

Skrýtið hvernig tónlist getur hent manni í tilfinningalegan borðtennis.
Á þremur mínútum upplifði ég geðveikt stuð og síðan massívan söknuð.

úff...
Svabbi


[ 3 ]
 
Í formi dauðans...

Herra Muzak er nú ekki mikið fyrir það að tala um sitt persónulega líf *hóst*kjaftæði*hóst*, en nú verð ég bara að deila með ykkur montsögu.
Minn synti í kafi yfir heila Laugardagslaug um daginn, heila 50 metra í kafi. Ekkert smá Macho eftir það maður! :)
Svo er Hr. Muzak búinn að hrista duglega af sér spikið, en betur má ef duga skal, og hyggst Hr. Muzak halda því áfram þangað til hann nær menntaskólakroppinum sem ærði píurnar á sínum tíma... :-)

JEEE :)

Bestu Kveðjur,
Hr. Muzak


[ 2 ]
miðvikudagur, júlí 24, 2002
 
Allt stefnir í dúndur Verslóhelgi!!!

Af umræðunum hér að neðan bendir allt til þess að við eigum eftir að eiga svo feitt grúví djamm um verslunarmannahelgina að enginn kemst yfir nema fuglinn fljúgandi.
Ég hlakka til þess ef Doktorinn og Betarokk mæta og tjútta með okkur þegar innipúkanum lýkur. Þá geta allir haft skemmtilegt partý og algjöra gleði. Sjálfur er ég öfga mikið að hugsa um að kíkja á innipúkann. Ég fíla Hljómsveitina hans dr. Gunna í ræmur, enda þekki ég rúmlega helminginn af þeim persónulega og þeir eru góðir drengir... Einnig hefur mig lengi langað til að heyra í RUNK.
Ég hvet alla Muzaklesendur til að láta sjá sig í iðnó og hlýða á alíslenskt gleðirokk áður en það lætur gossa niður á sportkaffi þar sem annars konar gleðirokk mun svífa yfir vötnum...

Ennfremur tek ég fram að notkun mín á orðunum indí og artí er eingöngu í dúnmjúkum og hlýlegum kaldhæðnistón. Það er ekkert að því að vera indí og artí, og f´ólk á ekkert að skammast sín fyrir að vera góðir indíartífartar :) eins og ég er... nema ég á engin spúúútnikföt... ;)

ARH :) Djöfull hlakka ég til að skemmta fólki og gleðjast núna á Laugardagskveldið og um Verslunarmannahelgina. Þetta verður gaman og við verðum öll... á sama stað...

Hr. Muzak er að fá gleðiflog yfir því hvað allir eru í góðum fílíng...


[ 0 ]
 
Grúví tími framundan

Ókei krakkar, hér er skúbbið!
Brúðkaupsmálið leystist eins farsællega og hægt var, þó það hefði mátt fara betur...
Nóg um það... Setjum það í aftursætið og horfum fram á við!

(Hér tekur góða skapið eingöngu við, svo þeir sem þetta lesa skulu muna það að svavar var með stórt stórt bros á hausnum sínum þegar hann skrifaði það...)
Á laugardaginn verður sko partý á Vídalín! Moonboots munu taka fram gleðina og reygja hana og teygja.
Þið mætið og það verður gaman... Vídalín stuuuð :)

Um verslunarmannahelgina ætlum við að þjóna þeim snillingum sem kjósa að djamma í bænum án bólugrafinna unglinga og gelgna úti um allar tryssur.
Sport kaffi verður staðurinn á Laugardags- og Sunnudagskvöld.

Og til að gera þetta ennþá meira spennandi lýsi ég eftir söngkonum til að tjútta og syngja einhver lög með okkur um verslunarmannahelgina. Ef engin býður sig fram mun ég bara sjálfur ýlfra og veina Madonnu og Whitney Houston eins og snillingurinn sem ég er...
Ég veit að hin-hér-á-vefnum-ofdissaða Betarokk og Katrín mo fo bitch in da haus verða í bænum... Ég veit að "einhverjum" finnst 80's voða voða passé, en okkur finnst hún bara obboslega skemmtileg, enda fylgjum við ekki tískustraumum af neinni sérstakri ástríðu þó við séum ekkert að æla yfir tískuna... ;-)
Þá er það spurning hvort stúlkurnar brjóti odd af oflæti sínu, fyrirgefi Hr. Muzak drambsemi sína, hroka og brokkgengt skopskyn, og komi og syngi með okkur... Eruð þið til í það skvísur? Hvað með Helgubi eða Dagbjörtu vinkonu, jafnvel Guðlaugu sjúgarhönní? Svo ég tali nú ekki um rokkskrýmslið hana Heiðu Eiríks sem tók she shook me All night long svo eftirminnilega á hinu margfræga sniglakvöldi hér um daginn... Er einhver sweet soul sister í húsinu...?

Eru einhverjar aðrar skemmtilegar stúlkur (eða þess vegna strákar) þarna úti sem vilja taka lagið með okkur um verslunarmannahelgina? Það væri bara gott stuð. Ég get jafnvel boðið fólki heim í stofu til að æfa (ef fólk er eitthvað nervös vegna æfingaskorts...)
Þeim sem vilja "skrá sig til þátttöku" er bent á snilldarlegt kommentakerfi hér að neðan... (eða email ef þið eruð feimin...)

Don't get me wrong... Við erum ekki á leiðinni út í einhvern Buttercup pakka. Mér datt bara í hug að einhverjum gæti þótt gaman að taka í mæk á Verslunarmannahelginni á SPORT KAFFI!!!

Hafið endilega samband ef ykkur fýsir að taka lagið... Moonbootsliðar taka örugglega ekki illa í það... Og persónulega þætti mér sérstaklega vænt um ef Dr. Gunni vildi taka eitt lag með okkur, ja svona rétt til gamans... En við verðum bara að sjá til...

Sjáumst á Vídalín á Laugardagskveldið og á Sportkaffi um verslunarmannahelgina.

Með kærri Kveðju,
Svavar Knútur Kristinsson
-Söngvari 80's hljómsveitarinnar Moonboots


[ 12 ]
þriðjudagur, júlí 23, 2002
 
Í rusli...

Nú er ég alveg ónýtur... Hundónýtur...
Ég var búinn að lofa að spila í brúðkaupi hjá yndælli stúlku, og nú er ég búinn að koma öllu í klúður með misskilningi á misskilning ofan...
Dísuss...
Moonboots eru bókaðir sama kvöld á Vídalín klukkan eitt um nótt... og allt er í hönk...
Ég hélt alltaf að spilamennskan í brúðkaupinu ætti að vera til eitt, en svo var hún til þrjú... ARGH! Ég er vitlaus...
Hr. Muzak þykir ekki gaman að svekkja fólk... Það er leiðinlegt...
Svavari þykir það ennþá leiðinlegra...
En nú stendur valið milli þess að gera rétta hlutinn gagnvart brúðinni eða standa með hljómsveitinni í hennar baráttu fyrir lifibrauði...
Og þetta er í rauninni ekkert val...
Annað hvort sting ég brúðina í bakið eða hljómsveitina sem er í raun fjölskylda mín...

Ekki ljúfir kostir þar...

Bestu Kveðjur,
Hr. Muzak


[ 10 ]
mánudagur, júlí 22, 2002
 
Smá Pæling...

Búum við í kommúnísku samfélagi?
Sovétríkin gömlu Vestrænt markaðssamfélag
Einstaklingurinn skiptir öllu máli, hlúa verður að honum með uppbyggilegu og skynsömu kerfi Einstaklingurinn skiptir öllu máli og verður að fá að velja frjálst og óháð.
Einstaklingurinn er hluti af framleiðslukerfi sem vinnur fyrir hagsmuni heildarinnar. Hagsmunir heildarinnar eru æðri hagsmunum einstaklinga og einstaklingar eru settir í sífellt sérhæfðari og einhæfari störf. Einstaklingurinn er hluti af hjólum hagkerfisins. Hagsmunir hagkerfisins eru æðri hagsmunum einstaklinga og einstaklingar eru settir í sífellt sérhæfðari og einhæfari störf.

Sérstök ráð og nefndir, skipuð skynsömustu mönnum, gæta hagsmuna þegnanna og velja hvaða menningu og vöru þegnar samfélagsins megi nálgast til þess að samfélagið blómstri og falli ekki í "kapítalíska hnignun..." Hagstætt er að framleiða 5.000.000 pör af bláum gallabuxum í stærð 14 í stað þess að hafa fjölbreytt úrval fata.
Samfélagið verður einsleitt vegna einhæfis úrvalsins.

Sérstök ráð og nefndir innan fyrirtækja, skipuð sérfræðingum, velja hvaða vörur og menning skuli vera á boðstólum fyrir neytendur. Öll jaðarmenning er óæskileg vegna þess að erfitt er að fjöldaframleiða hluti sem eru háðir einstaklingssmekk. Hagstæðast er að hafa menninguna einhæfa til að selja sem stærstar einingar af lægsta samnefnara.
Samfélagið verður einsleitt í einhæfri "fjölbreytni" sinni.
Samfélagsþegnum er talin trú um að hið takmarkaða val sem þeir hafa sé það besta sem gerist, þetta sé samfélaginu fyrir bestu og ekkert annað sé á boðstólum. Raunveruleikinn er sá að auðveldlega væri hægt að hafa vöruúrval mun fjölbreyttara og einstaklingsvænna, það kostar bara aðeins meira fjármagn.
Ríkið stýrir í raun þegnunum, ekki þegnarnir ríkinu.

Neytendum er talin trú um að hið takmarkaða val sem þeir hafa sé það besta sem gerist, ekkert annað sé á boðstólum. Raunveruleikinn er sá að auðveldlega væri hægt að hafa úrval vöru og þjónustu mun fjölbreyttara og einstaklingsvænna, það þjónar hins vegar skammtímahagsmunum að gera neytendur einsleita í neyslu sinni. Taumlausu fjármagni er hins vegar veitt í það að sannfæra neytendur um gæði einnar gerðar afþreyingar, vöru eða þjónustu.
Markaðurinn stýrir í raun neytendum, ekki neytendur markaði.

Hægt er að nálgast bannvarning (öðruvísi menningu, vöru eða afþreyingu) með krókaleiðum og á svörtum markaði sem litinn er hornauga af stjórnvöldum. Þeir sem ganga þannig fram hjá samfélagsreglunni eru skilgreindir sem glæpamenn eða devíantar.

Hægt er að nálgast "bannvarning" (öðruvísi menningu, vöru eða afþreyingu) með krókaleiðum og á "svörtum markaði" sem er litinn hornauga af stjórnvöldum og stórfyrirtækjum. Þeir sem ganga þannig fram hjá hefðbundnum markaðsvenjum eru skilgreindir sem glæpamenn eða devíantar.

Þeir sem skrifa eða halda fram skoðunum sem ekki henta stjórnvöldum eru teknir úr umferð og/eða gerðir tortryggilegir af stjórnvöldum. Þeir sem vilja halda fram skoðunum sem ekki henta stjórnvöldum eru teknir úr umferð og/eða gerðir tortryggilegir af stjórnvöldum..
Einstaklingurinn er orðinn svo firrtur einstaklingseðli sínu að hann keppir ekki að neinu öðru en að halda áfram að lifa tilgangs- og meiningarlausri tilveru sinni. Þunglyndi er landlægt. Einstaklingurinn er orðinn svo firrtur einstaklingseðli sínu að hann keppir ekki að neinu öðru en að halda áfram að lifa tilgangs- og meiningarlausri tilveru sinni.
Þunglyndi er landlægt.
Virðing fyrir umhverfinu í lágmarki. Umhverfið er auðlind sem manninum ber að nýta. Virðing fyrir umhverfinu í lágmarki. Umhverfið er auðlind sem manninum ber að nýta.
Fámenn valdaklíka heldur utan um fjármagn, fjölmiðla og framleiðsluþætti hagkerfisins. Fámenn valdaklíka heldur utan um fjármagn, fjölmiðla og framleiðsluþætti hagkerfisins.
Endalaus þörf fyrir óvini og hernaðaruppbyggingu. Endalaus þörf fyrir óvini og hernaðaruppbyggingu.
Treystum leiðtoganum! Treystum leiðtoganum!


Niðurstaða? Dæmið fyrir ykkur sjálf. Mér finnst samfélagið orðið örlítið of miðstýrt af nákvæmlega sömu grámyglulegu jakkafatagæjunum og stýrðu Sóvíet á sínum tíma... Kallið mig bara sósíalanarkista ef þið viljið...


[ 9 ]
 
Er maður kóngurinn eða hvað?!?


tékk ðiss át!!! :)

Svabbi Muzak


[ 0 ]
 
Fullir af háði á viðkvæm málefni???

Þessi ágæti bloggari virðist hafa sitthvað að athuga við textagerð mína...
Falleg síða hjá þeim... Ég er obboslega svag fyrir japönskum kisumyndum... :)
Ég kannast nú ekki við að textarnir mínir séu ekkert nema háð á viðkvæm málefni, hvað þá síður að ég sé á einhvern hátt að gera lítið úr viðkomandi málefnum.
Ég sem textana mína um það sem vekur hjá mér einhvers konar tilfinningu...

Áhugasömum um dýpt eða tilfinningar í textum Hr. Muzaks er víst bent á efstu þrjú lögin á textasíðunni. Þau fjalla öll um mínar innstu og dýpstu tilfinningar, (Jújú, ég fleygi þeim á torg...) og ef ég er svo heftur að fólk geti ekki séð dýpt út úr textum mínum, þá verður það bara að hafa það... uhuhuhu... :)
Karfinn í tjörninni er afar sársaukafullt lag líka, ég á eftir að koma því niður á upptöku, hef aldrei verið ánægður með eigin flutning á því...
Svo er nú tonn af textum sem ég set ekki þarna inn af einskærri feimni...

Ég vona að Dagný og Eva Björk hafi ekki fengið einhvers konar japanskt kattaflog yfir meintri óeinlægni minni, grunnum hugsunarhætti og ljótleika textanna. Mér þykir fyrir því ef textarnir mínir fara fyrir brjóstið á einhverjum, en svona blasir þetta bara við mér.

Ég sem lög um umhverfi mitt, upplifanir, tilfinningar. Það sem mér blöskrar og það sem ég gleðst yfir. Happy song og the Tiger and the teddy bear eru til dæmis einn stór gleðisálmur um lífið á meðan Mengum Ísland og Ésú elskar ekki minnihlutahópa eru reiðióp mín til heimskra manna.

Ég vona að Dagný fyrirgefi mér ónærgætnina í framtíðinni og ég vona líka að hún sjái stærri myndina í textunum mínum einhvern daginn...
Það eru bara takmörk hvað menn geta samið mörg lög um blóm, hjörtu, kisur og ský...
Bestu Kveðjur,
Herra Muzak

Uppfært kl. 23:10
Nú var ég alls ekki að meina neitt diss til bloggstelpnanna á reykjalin.com. Þær eru flottar... Ég hafði bara áhyggjur af því að textarnir hefðu lent öfugt í þeim... Kannski verð ég bara að fara að hætta að hafa svona miklar áhyggjur af því hvað aðrir eru að hugsa og treysta þeim til að melta þetta sjálfum... Æi... ég er allt of eitthvað sjálfsmeðvitaður í dag... pínu tender... :)


[ 7 ]
 
Beyglaður...

Djöfull er ég beyglaður í dag...
Mættur í vinnuna eftir frekar röff helgi...
Gaman að heyra að tónlistin mín er spiluð pínu á Rás 2... Það vekur hjá mér vonir... (von er góð)
Úff... Andlaus...
Fékk mér beikonpulsu í morgunmat... Fólkið á Ne-STI eru bjargvættir mínir...
áfram nesti... áfram!
Muzak verður bara að fá að vera dysfunctional í dag...

Bæbæ...
Svabbi


[ 2 ]
laugardagur, júlí 20, 2002
 
Moonboots, morgunbösk

Gærkvöldið var mjög gott, Moonboots rokkuðu feitt og ég held að það hafi ekki verið þurr þráður á hljómsveitarmeðlimum eftir giggið... BARÓNINN ROKKAÐI FEITAST ÞETTA KVÖLD!!! Ennfremur tókst okkur fullkomnlega rokkstöntið að taka Amadeus með Falco algerlega óæft... :) Við rúlum!
Sport kaffi var nokkuð rokkaður og sándið var frábært. Ennfremur tókst mér að halda heyrninni í góðu lagi þökk sé eyrnatappa í vinstra eyra, sem kom að góðum notum. Í dag vaknaði ég hressari en nokkurn tíma áður eftir gigg...
Klukkan 12:00 reis ég úr rekkju, klæddi mig og eftir smá þynnkuafhristing brunuðum við Jonni, nýji bassaleikari hljómsveitarinnar okkar niður í bæ og tókum til við að koma okkur fyrir fyrir utan Bónusbúðina... Siggi Palli mætti okkur þar og við vorum komnir í geysilegt stuð... Eftir smá tæknilega örðugleika hófum við spilamennsku og lékum fyrir gesti og gangandi. Röddin var ótrúlega fín þrátt fyrir mikið rokk í gær. :) Þar hittum við tonn af fólki: Mása, Frey í Geirfuglunum og Miðnesi, Unni og Bjössa Thors og fleiri og fleiri... :) voða gaman...
Við spiluðum fyrir krakka og fólk sem labbaði fram hjá og alles... Mig langar að gera þetta aftur... Svo komu rónar og fannst við svo frábærir. Þeir voru að vísu pínu aggressívir á persónulega speisið manns og voru mikið að anda framan í mann og svoleiðis, og báðu um vegbúann aftur og aftur og ad infinitum. Endaði á að við spiluðum Gleði gleði gleði nokkrum sinnum, og svo smá megas og þeir urðu svo glaðir að þeir gáfu okkur tonn af pening... (allt að því 500 kr.) sem dugaði til að ég gat keypt mér súpu á Svarta Kaffi. (en Jonni stofnaði sameignarfélag um kaup á kókglasi með súpunni... þessi engill)
Samt leið mér einhvern veginn eins og ég væri að éta rónasúpu... Keypta fyrir rónapening... (þá upplifði ég þetta svoldið eins og súpueldhús hjálpræðishersins...) skrýtið...

Annars langar mig að gera þetta aftur, sérstaklega ef maður getur verið svona ferskur í röddinni þökk sé góðum eyrnatappa í vinstra eyrað sem hlífði mér við gítarhávaðanum... ótrúleg framför... :)

Þessir rónar voru samt óbboslega fínir og vildu manni bara vel... þeir hafa lítið sem þeir geta notið í lífinu... sorglegt... ég gaf þeim disk sem þeir geta vonandi selt fyrir kardimommudropa...

Bestu Kveðjur,
Herra Muzak


[ 0 ]
föstudagur, júlí 19, 2002
 
Syngur fyrir börnin - vinnueintak

Bráðlega geta vinir mínir og einlægir aðdáendur nálgast hinn glæsilega vinnsludisk Hr. Muzak syngur fyrir börnin... Ég hef í huga að koma nokkrum eintökum niður í Hljómalind (þar sem eflaust verður mikið spurt...) og Japis...
Þeir sem ekki geta beðið geta sent mér póst og ég skal brenna fyrir þá eintak... Verð disksins verður í kringum 800-1000 kr. (kostnaðarverð + pínu gróði fyrir mig...)

Bestu Kveðjur,
Hr. Muzak


[ 3 ]
 
MOONBOOTS Leikur Hr. Muzak

Nú ætla ég að nýta kommentakerfið til hins ýtrasta...
Þeir sem skilja eftir sig komment hér og merkja vel við, fá sig +1 á gestalistann í kvöld, eru allir sáttir við það?
Þetta gildir fyrir allt upp í 20 manns. (fyrstir koma fyrstir fá...)
Bara að láta ykkur vita að það að bjóða 20 manns með gestum þýðir 6000 kalli minni péning fyrir Muzakinn fyrir kvöldið, þannig að hey, látiði sjá ykkur... :)

Annað...
Silja hjá Miðborgarbætingadæminu uppi á DBT bað Hr. Muzak um að "Böska" á Laugaveginum á Laugardaginn, kl. 12:00... Hr. Muzak verður sumsagt að öllum líkindum skelþunnur á Laugaveginum flytjandi tónlist sína rámri röddu eftir villta nótt. Þetta verður nokkurs konar gjörningur og dæmisaga um hvernig á ekki að vinna sér inn frægð og frama á Íslandi... hehehe :)

Bestu Kveðjur og látið sjá ykkur í kveld,
Herra Muzak


[ 7 ]
fimmtudagur, júlí 18, 2002
 
FOKK ÐISS!!!

Ég er farinn í sund...

Hr. Muzak


[ 0 ]
 
Djöfull er ég samt feginn...

Að lesa um það í Mogganum í gær að Skagafjörður er búinn að neita landsvirkjun um virkjunarleyfi í jökulsánni sinni, vegna þess að þeir telja hagsmunum sínum betur borgið í ferðamennsku...
Vel skorað hjá skynsemismönnum í Skagafirði. :-) Í dag er ég stoltur Skagfirðingur...
Bestu Kveðjur,
Svavar Knútur


[ 0 ]
 
Og nú er bara spurning

Hvort Katrín beib láti ljá sig á Moonboots á Sport Kaffi á Föstudagskveldið?
Tékk itt Katrín, þú sleppur ekki svo auðveldlega...

En aö öllu gríni slepptu...

Þið mætið öll á Sport Kaffi á Föstudagskvöld, Það er öllum fyrir bestu...

Bestu Kveðjur,
Hr. Muzak


[ 4 ]
 
Pólítískt þenkjandi Muzak...

Maður er að pæla í ummælum Halldórs Ásgrímssonar hér fyrir nokkrum árum þegar hann fagnaði því að sósíalisminn hefði beðið ósigur í baráttunni gegn kapítalismanum. Nokkrum árum áður hafði hann sagt Framsóknarflokkinn vera kjölfestu félagshyggjuaflanna á Íslandi eða eitthvað svoleiðis... Það er alltaf gott þegar maður getur skipt um skoðun, "come to the light side" og það allt...
En mér finnst þó merkilegt að menn eins og HÁ kenni sig við kapítalisma þegar það er deginum ljósara að þeir eru pópúlistar andskotans. Framsókn hefur sýnt það margoft að þessi flokkur aðhyllist ríkisstýringu á bæði viðskiptalífi og siðferði. Sú haftastefna sem þessir gæjar eru að halda uppi er stórfurðuleg og varla vestrænu lýðræðisríki bjóðandi. Síðan tekur steininn úr þegar dómsmálaráðherra sjálfstæðisflokksins bannar einkadans með reglugerð. Þarna er sumsagt verið að taka hlut sem var einu sinni löglegur og gera hann ólöglegan með þeim útskýringum að hann leiði til iðju sem var einu sinni ólögleg en er nú lögleg... (eh?!?)
Eigum við ekki líka að banna fólki að keyra, vegna þess að stundum keyrir það ólöglega? Eigum við ekki líka að banna fólki að labba, vegna þess að stundum labbar það yfir á rauðu ljósi, og stundum labbar það alla leiðina á strípibúllu þar sem það lætur dansa fyrir sig viðbjóðslegan einkadans?
Ógeðslegt þetta fólk sem hefur öðruvísi kynlífsþarfir en gott sjálfstæðisfólk...
Og hreint óskiljanlegt þetta lögmál um framboð og eftirspurn sem fólk virðist lifa eftir þegar það kaupir sér kjúkling.
Þeir segja að fólk kjósi með fótunum... En hvernig á maður að geta kosið með fótunum þegar manni er ekki gefið tækifæri á að kjósa?

Þetta fólk er ruglað og þarf að losna úr embætti, Davíð og hans vinir þurfa frí. (Fjárans mannréttindabrjótandi fasistar!)
Og nú brosa þau eins og aldrei áður vegna þess að þau halda að við séum alveg búin að gleyma því að þau riðu okkur í rassgatið þegar kínverski fasistinn kom í heimsókn... En við erum ekki búin að gleyma því... Nema það kolruglaða pakk sem ætlar að kjósa þetta fólk aftur.
Kona í vinnunni spurði: Af hverju getur þetta fólk ekki mótmælt heima hjá sér?
og svo spurði hún (eins og Davíð Oddsson hefði sjálfur tekið sér búktalarastöðu fyrir aftan hana): OG hvaaar fékk það peeeningana til að koma aaallla leið til Íslands til að móóótmæla? Eru þetta kannski aaaatvinnumótmælendur???

Nei, ekki frekar en gyðingar væru atvinnumótmælendur ef Hitler væri enn lifandi og enn væri tekið á móti honum með viktum í vestrænum ríkjum.

Bestu Kveðjur,
Hr. Muzak


[ 3 ]
miðvikudagur, júlí 17, 2002
 
Allt að jafna sig...

mmm....
Hr. Muzak er ánægður í dag... Frú Muzak komin heim, Litla Muzak komin heim og farin að leika sér... Allt er gott...
Hr. Muzak er glaður. Ástand mála gleður Hr. Muzak.

Hmmm... góðhjörtuð kona hringdi í Hr. Muzak og bað hann um að böska á Laugaveginum á laugardaginn... spurning um möguleika... Hr. Muzak langar... Nennir Zato? Finnum við bassaleikara? Nennir JohnnyBrasco? Á JohnnyBrasco Kontrabassa? En Kontraskæruliða?

hmmm hugsar Muzak...





[ 0 ]
þriðjudagur, júlí 16, 2002
 
Moonboots taka sig enn einu sinni á loft...

...Og lenda á Sportkaffi á Föstudagskveldið...
Hey, allir sem lyklaborði geta valdið, hvetjið hver annan til að mæta... ;-)
Hlakka til að sjá allt partýfólkið í húsinu...
Ég er nokkurn veginn á því að það er bara brilljant að spila á Sportkaffi, ef maður er með gott krád þá er þetta bara frábært...
Æfing hjá Moonboots í kvöld...

...og Frú Muzak og Muzlínan mæta á svæðið klukkan sex í dag... Muna að sækja þær...

Eyddi morgninum í að skúra, ryksuga, þurrka og þrífa íbúðina...
Mætti í vinnu kl. 12:00...
Ágætt... :)

Hlakka til að sjá þær...

Tori Amos er Yndisleg... Frú Muzak er pínu lík Tori Amos stundum... (þegar hún gerir hrekkjasvipinn sinn, sem enginn fær að sjá nema Hr. Muzak... tíhíhí)

Bestu Kveðjur,
Muzak


[ 0 ]
 
Skemmtilegt grein...

af vef samtakanna 78. (auðvitað meinti ég það... ;)

Lesið

Hr. Muzak


[ 4 ]
mánudagur, júlí 15, 2002
 
FNÆÆÆSSS!!!!

Af gefnu tilefni vill ritstjórn Þankatanksins taka það fram að Herra Muzak er frumsjálf Svavars Kristinssonar og kann að segja hluti sem dvelja í dýpstu eistnaiðrum Svabbans. Þannig kann þetta að koma við kaunin á fólki, en frummaðurinn gerir það... Frummaðurinn snertir kaun... Frummaðurinn er svangur og graður núna og konan er ennþá vestur á fjörðum... Greddan ágerist og Frummaðurinn á eftir að verða verri áður en hann batnar...

SEXUAL FRUSTRATION RUUULEEESSS!!!!

Bestu Kveðjur,
f.h. Hr. Muzak
Svabbi

...
aukinheldur skal það tekið fram að skoðanir Svabbans eru einungis skoðanir háværs söngvara, en ekki annarra hljómsveitarmeðlima... Ætti að vera augljóst ekki satt?


[ 2 ]
 
Noh... bara dissaður af sjálfri beturokk???

<Herra Muzak, alterego Svavars tekur algera stjórn á blogginu í smá stund...>
Betarokk er með einhverjar efasemdir um það að 80's tónlist sé skemmtileg músík...
Hún um það... Mér finnst 80's tónlist æði og þetta er mitt uppáhald, þannig að hún verður bara að eiga það við sjálfa sig...
Ef henni finnst Moonboots vera einhver "Brandari", þá er hún algjör mysa... Moonboots hefur aldrei verið brandari. Moonboots eru fimm gaurar sem elska tónlist og fíla í ræmur að spila hana og skemmta fólki í tætlur. Hvort sem við erum að spila 80's, diskó eða vottever, þá lítum við á það sem sjálfsagðan hlut að komast í algeran fílíng þegar við erum að gera okkar stöff.
Greyið Beta að vera svo mikill "Trendsetter" að hún geti ekki haft gaman að hinum einföldu hlutum lífsins, hún um það.
Ég fílaði hana ekki þegar hún var í Á Túr, mér finnst hún sexí í hjúkkugalla, hún er örugglega ókei gella, en hún er alltof upptekin við að vera trendí, hipp, happeníng, flott, græja, gella, úje, bitsessniggaindahás...

Beta: Fólk myndi Dýrka Moonboots, þó við spiluðum ekkert nema Fráskilin að vestan og geirmundarsyrpuna... Af hverju? Af því að Moonboots eru besta fokkíng hljómsveit á Íslandi (Auðvitað á eftir Sálinni og Stuðmönnum respectively... ;-) ). Af hverju er Moonboots Besta fokkíng hljómsveit á Íslandi? AF ÞVÍ AÐ VIÐ ELSKUM ÞAÐ SEM VIÐ GERUM OG VIÐ ELSKUM AÐ SKEMMTA FÓLKI! Við erum ekki töffarar, við erum ekki hipp, happeníng, æði, grúví, fönkí, trendí hljómsveit með myndband og singúl upp á milljónir, við erum fokkíng hljómsveit! Alvöru BAND!

Take that you overinflated Sauerkraut.
</Herra Muzak, alterego Svavars tekur algera stjórn á blogginu í smá stund...>
Bestu Kveðjur,
Herra Muzak


[ 11 ]
 
Lesandi gallúbið...

Jæja... nú er ég aðeins búinn að vera að blaða í gegnum gallúbbið á geiri.nulleinn.is...
ókei... allt í lagi fólk þarna, sætar stelpur og allt það, svarandi standardiseruðum svörum við sömu spurningunum... Geiri er kúl :)
Samt greip mig eitt... Það er hvað margar af þessum ungu og fallegu stúlkum og nokkrir af ungu fallegu drengjunum virðast ennþá sjá vissa hluti í svart-hvítu og (afsakið framhleypnina) fáfróðu ljósi.
Verandi rokkari stansaði ég vitaskuld við spurninguna "Hvað finnst þér um áfengi, tóbak og eiturlyf?" Voru svörin við þeirri spurningu yfirleitt á þann veg að áfengi væri kúl, hipp, költ, flott, ýkt, æði, vinur minn, og það allt, á meðan þeir sem snerta eiturlyf eru "Heimskir, aumingjar, vitleysingjar, lýður, hyski, pakk, ekkert... onandonandononandon...."
Afsakið að ég skuli vera vókall, en mér finnst þetta vera afskaplega einföld mynd af hinum raunverulega heimi. Nú hef ég prófað kannabisefni... Gerir það mig strax að einhvers konar heimskum aumingja í vitleysingjalandi, hyski, pakki? Hvar heilaþvoðist þetta fólk til þess að trúa því að allir sem koma nálægt eiturlyfjum séu einhver sambýlismatur?
Kannski felst þetta í orðinu: EITURlyf, DÓP, FÍKNIEFNI, á meðan þeirra drug of choice heitir bús, alkóhól, djamm, vín, partý... whatever... Er áfengi ekki nákvæmlega sama eiturlyfið og hvað annað? eða tóbak? Er einhver glerveggur sem maður stígur í gegnum og verður átómatískt heimskur við að ganga einu skrefi lengra en þeir sem fylgja lögleiðinni?
Síðan hvenær er það einhvers konar ávísun á heimsku að hafa prófað eiturlyf? Það er ekki eins og hér sé skrifandi einhver reifandi e-haus með heróínsprautuna hangandi úr vinstri handlegg og blæðandi magasár af kókaínneyslu... Nei, hér skrifar gaur sem lifir sínu lífi rétt eins og aðrir, með greindarvísitölu upp á þre- til fjórfalt skónúmerið sitt (í evrópskum númerum) og hefur örsjaldan um ævina reykt sig skakkan...(og bara í góðum fílíng...)
Í minni reynslu, þá eru það yfirleitt þeir gagnrýnustu sem prófa eiturlyf. Af hverju? Af því að þeir þola ekki einhliða svart-hvítan, "þú-ert-svo-heimskur-að-ég-get-sagt-þér-hvað-sem-er-og-þú-trúir-því" áróður.
Nú er ég alls ekki hvetja fólk til þess að prófa eiturlyf... mér finnst persónulega flest eiturlyf vera viðbjóður og ekki henta mér. En fólk á að kalla hlutina sínum réttu nöfnum og forðast það að alhæfa um hluti sem það greinilega hefur ekki hugmynd um. Á meðan áróður yfirvalda gegn lyfjunum er á því formi sem hann er, hvetur hann ungt og uppreisnargjarnt fólk til þess að prófa þau. Og ef gagnrýnin hugsun og uppreisnargirni gegn yfirvaldi og heimskulegum áróðri eru merki um heimsku, ókei, gjöriði svo vel, þá er þetta fólk bara heimskt og ég líka...
Áfengi, sykur og tóbak eru fíkniefni, og ef þú ert svo heimskur að prófa áfengi, sykur og tóbak, þá ertu alveg jafn mikill hálfviti og við hin sem prófuðum eitt lyf til viðbótar.

En ég er enginn maður til að segja öðru fólki hvernig á að haga sínu lífi. Stelpur mínar endilega haldið áfram að kalla okkur sem höfum prófað eitthvað meira en hið alheilaga áfengi, sem á einhvern undraverðan hátt er skilveggurinn milli heimsku og gáfna (greinilega), hálfvita og aumingja og vitleysinga og hyski. Það fer fólki bara ágætlega að fordæma aðra og þeirra lífsstíl.
Ef þið bara vissuð hversu mikið af ofurnormal fólki hefur prófað ótrúlegustu hluti...
Þankafæða fyrir ykkur... Það eru ekki bara æðaberir dópistar eða brjálæðir ofurkrimmar sem hafa prófað eitthvað annað í lífinu en áfengi. Í sumum menningarheimum eru viss lyf eðlilegur hluti af skemmtanalífi fólks. Er þá allur sá menningarheimur fullur af viðbjóðslegum hálfvitum og heimskingjum. Til dæmis Indíánar í S-Ameríku... Eru þeir allir vitleysingar af því að þeir borða einhverja sveppi, éta meskalín, reykja kannabis og sleikja froska og svoleiðis stöff?
Bestu Kveðjur,
Hr. Muzak (Dópisti, aumingi, lúser, heimskingi, vitleysingur, fífl, hyski og bjáni) ;-)


[ 5 ]
 
Úff...

Það er ekki tekið út með sældinni að vera rokkhundur... sérstaklega þegar maður er búinn að taka þá ákvörðun að vera ábyrgur heimilisfaðir og all-round næs gæi...
Þegar konan og dóttirin hverfa vestur á firði situr maður eftir í góðu chilli á meðan greddan og partýljónið gerjast í maganum á manni... Svo endar þetta á því að maður tekur rokkið út í einhverju þriggja daga fylleríi... úff...
Djöfulsins rokk var þessi helgi... Á föstudagskvöldið vorum við gömlu vinirnir úr MH saman á ágætis fylleríi á 22 og dönsuðum eins og vitleysingar...
Svo kom laugardagskvöldið, Moonbootsliðar áttu afar frambærilegt ball, þrátt fyrir að rokkskemmdir á eyrum hljómborðsleikarans yllu næstum því yfirliði... (við verðum að gera eitthvað í þessu...)
Eftir það fékk ég minn hlut strax í hendur, og ég held að það hafi ekki verið hyggilegt... Vel rokkaður söngvari orðinn nokkuð drukkinn fær búnt af þúsundköllum í lófann.. GGNNAAAAA!!!
KREEGAH!!! BUNDOLO!!!
Svabbinn fór hamförum og vaknaði klukkan 17:00 daginn eftir, eldaði 5 egg, beikon, steikta skinku, ristað brauð, tómata og bakaðar baunir handa sér og Einari þunna...
Síðan eyddu menn deginum í rót og þynnku... úff... gúdd sjitt...

Svona er það... Þegar kötturinn er úti fara mýsnar á stjá... djöh... Nú ætla ég að taka til í íbúðinni og skúra og svona...

Fyndið þegar maður er einn í smá tíma, þá tekur alltaf nokkra daga að átta sig á þeim verkefnum sem maður þarf að gera sem venjulega eru hinum megin verkaskiptingarborðsins...
Nú er ég búinn að þvo fullt af þvotti og í kvöld ætla ég að skúra... Það er bara kúl... Maður er að ná takinu á þessu aftur eftir smá flipp, en pælið svo í því, konan kemur á morgun...
Það er til mikils að ná jafnvægi á rokklíferni sitt þegar konan kemur svo og eyðileggur allt fyrir manni...

kannski er ég bara svona skorpuvinnumaður... :) I like the occasional drink... -ing binge... hahaha

Hr. Muzak ROOKKKK!!!!


[ 0 ]
 
ÉG er að gráta úr hlátri!!! :)


Þetta eru ótrúlegar teiknimyndir!!! (klikkið á linkana fyrir neðan þegar þið eruð búin að skoða þessa...)

HAHAHAHAHAHA

Ég er alveg að deyja úr hlátri og vinnufélagarnir horfa á mig eins og hálfvita...

Þessi hér er fyrir Sigga Palla...

Takk tilvera :)

Hr. Muzak


[ 0 ]
laugardagur, júlí 13, 2002
 
TIL HAMINGJU MÁR OG STÍNA

Til hamingju elsku Már og Stína með nýfædda y-litningsgædda afkvæmið ykkar :) Og rauðhært í þokkabót... :-) Þið rúlið og ég er viss um að þessi gæi á eftir að verða geðveikur proffi og töffari... Ég býð strax fram þjónustu 12 ára gamallar dóttur minnar eftir 8 ár í pössun ;-)

Svabbi Muzak


[ 1 ]
 
Þrír tímar í flugtak...

Ókei, nú eru þrír tímar í það Moonboots telji í á Vídalín.
Látið sjá ykkur aumingjarnir ykkar, það verður stuð...
Bestu Kveðjur,
Herra Muzak


[ 4 ]
föstudagur, júlí 12, 2002
 
Mér fannst þessi mynd svoldið sæt...

Tók þessa mynd af Dagbjörtu um daginn... Krúttaraleg... ;-)

Þessi er heldur ekki slæm... :)


Bestu Kveðjur,
Hr. Muzak


[ 9 ]
 
Og auðvitað...

BRILLJANT grein frá Sigga Palla...

Svabbi


[ 1 ]
 
Fór á tónleika í gær...

Kíkti á Vídalín í gær til að sjá Örkuml spila í hléi hjá Daysleeper...
Örkuml voru mjög flottir og hugmyndaríkir og sánduðu eins og moðerfokkerar (að vísu svoldið mikið levelvandamál á söngvaranum...) Áfram Örkuml og til hamingju með mjög flotta uppstokkun í tónlistinni.
þegar ég leit í kringum mig tók ég eftir því hvað staðurinn var fullur af hnökkum og einhverjum vonnabígellum... (70% gellur á svæðinu, sosum ókei, allar í einhverjum "augljósum" fötum... Hæfir mér fínt þegar ég er graður...)
Daysleeper stigu á svið, Sverrir Bergmann var voða voða feimnislegur með lokk og voða voða eitthvað viðkvæmur í lúkkinu... (að mér virtist hreinlega þrautþjálfuð feimnisleg framkoma)
Hljómborðsleikarinn var með litla nikku (líklega sökum plássleysis) og mér fannst fyndið að sjá hnakka með nikku...
En nóg um það... hljómsveitin hóf leik sinn og jújú... var að sánda ókei, nikkan kannski full há... Sverrir voða feiminn ennþá með sleikta lokkinn sinn... Svo opnar hann munninn... og... CORNY CITY HERE I COME!!! Djöfull var hann VÆMINN!!! Lokaði augunum og strauk sér um andlitið í "feimni sinni" og vældi eins og aumingi. SORRÍ SVERRIR... en þetta köttar ekki hjá Muzaknum... Svona feik og tilgerðarleg sviðsframkoma og vælukjóasöngur virkar kannski ofan í fólk sem hefur akkúrat ekki neitt í kollinum og enga skynjun á einlægni, en þetta var ekki að gera djakk fyrir mig...
ÚFF ÚFF ÚFF!!! KÚMELA ALLAH MY ASS!!!
Don't get me wrong fólks... Ég tel Sverri Bergmann tvímælalaust hafa talentinn sem þarf, en hann þarf margt að læra um að syngja af einlægni. Þetta var soldið eins og uppæfð "killing me softly" senan úr about a boy...

"úúúú hann er svo sætur, eins og særður hvolpur... óóóóó hann meinar svo það sem hann er að segja af því hann lokar augunum og strýkur á sér andlitið og mækinn og vælir eitthvað..."
Ókei Sverrir, ef þú vilt falla í kramið hjá einhverju svona grunnu pakki og aldrei fara dýpra en það í lífinu, þá er það vel, gerðu það bara... En ekki ætlast til þess að nokkur tónlistarlega þenkjandi maður taki þig alvarlega. (kannski fyrir utan mennina frá plötufyrirtækjunum sem kunna sko að koma augum á lægstu samnefnara þegar þeir sjá þá...)

Sorrí að ég er svona leiðinlegur við hann Sverri, en mér þykir leiðinlegt að sjá menn sóa ágætis rödd í svona tilgerðarlegt þvaður.

Ef menn ætla að syngja um alvöru tilfinningar þýðir ekki að reyna að fara í einhverjar leikarastellingar og breyta röddinni og gretta sig og væla og loka augunum og strjúka á sér andlitið, ef menn ætla að syngja um alvöru tilfinningar verða þeir að syngja frá hjartanu, með hjartanu. Það er eina leiðin til að gera flutning sinn sannfærandi.

Bestu Kveðjur,
Herra Muzak


[ 3 ]
 
Læðurnar kynnast...

Emma og Loppa hafa tekið þá ákvörðun að búa saman í óstöðugu vopnahlé... nú borða þær úr sama diskinum og urra og hvæsa hvor á aðra á meðan, svona fyrir formsatriðin.
Það er kalt stríð í stofunni minni.
Ég get svarið að ég sá einhverjar vísbendingar um vígbúnaðarkapphlaup í gangi...
En allt er annars rólegt og báðar lágu kisurnar uppi í rúmi hjá mér í nótt í einhverjum twisted trekant og trufluðu mig bara nokkrum sinnum með reglubundunum hvæsum og urrum sem voru samt af einskærri skyldurækni...
Undarleg nótt...
Átti gott spjall við snæugluna um sækópata og traust.

ÉG er samt enginn sækópati ef þið haldið það... ónei, ekki þessi hér gaur...
Ég er fullkomnlega heilbrigður einstaklingur...
Sé ykkur á Vídalín á morgun vona ég...

Bestu Kærleikskveðjur þangað til mér dettur eitthvað meira í hug...

Svabbi Sæti Muzak


[ 0 ]
fimmtudagur, júlí 11, 2002
 
Þetta er ótrúlega nett...

Þetta er kúl kúl kúl... Ég þoli ekki dobúja...

Takk Unnur...

Svabbi


[ 5 ]
 
Kettir eru furðuskepnur...

Nágranni mömmu hringdi í mig og sagði fjölskylduna hafa verið andvaka í nótt vegna þess að það var einhver gítarlína að lúppa niðri í íbúðinni hennar. (Mamma og Villi bróðir eru í Skotlandi að skoða kastala, heiðar og stöðuvötn...)
Ég brást eldsnöggt við og náði í bílinn upp á Reykjavíkurflugvöll og keyrði heim til mömmu. Þar komst ég að því að gítarlúppan var byrjunin á laginu scratching the surface eftir undirritaðan... æ, æ... Hvernig ætli þetta hafi gerst? Á skjánum á geislaspilaranum hennar mömmu stóð: Random, One, intro, repeat... zúrt..
Þegar ég slökkti á geislaspilaranum heyrði ég mjóróma mjálm... Gvöööð... Þarna sat kötturinn hennar mömmu, glorsoltinn og þunglyndur... Ég tók greyið upp, enginn hafði sagt mér að gefa þessu kvikindi að éta, ég gleymi öllu svona... Þá fattaði ég að Emma er örugglega glorsoltin líka.
Ég tek því köttinn (Læðuna Loppu) og hendi henni inn í SAABinn sem fjölskyldurnar tvær nýta saman... Keyrði ég síðan sem leið lá þessa 400 metra heim til mín með mjálmandi og vælandi kisuna í aftursætinu með allar klær úti.
Eftir að ég róa kisu tek ég hana út úr bílnum og inn að húsinu okkar... Hún er farin að ókyrrast...
Upp stigann fer ég og heyri mjálmið í Emmu bak við dyrnar... hvessast þá klær kisulóru...
rrrrooooowwwwrrrr.... segir kisa...
Dyrnar opnast... Emma tekur á móti pabba sínum... Gleðimjálmið breytist á örskotsstundu í urr: "RROOWWRRR". Hún hættir að nudda sér upp við vegginn og skottið verður eins og 17. júní blaðra...
Klærnar á Loppu læsast í jakkann minn og hún hvæsir...
Ég labba inn og loka hurðinni...
læt Loppu á gólfið...
HVÆS URR HVÆS RROOOWWRRR HVÆÆÆÆSSS HVÆÆS HISS HISS HISS URRR WOROWWOIFPWOHIPOWHPOUIHWEPTYIOWETPO...
klær á parketi...

tvö loðin skott upp í loft...

Tvær læður í óðalsfætíng...

Ég gef þeim að éta og þær urra og hvæsa svo mikið að ég verð að gefa þeim í sitt hvoru lagi... Loppa leitar örvæntingarfullt að útgönguleið, en ég lokaði öllum gluggum...
Ofsahræðsla grípur Loppu og hún hleypur undir hjónarúmið...
Eftir fimm mínútur af "kis kis" og "komdu kisa..." dettur mér snjallræði í hug. Ég labba fram, gríp Emmu og hendi henni undir rúmið.
Eftir hálfa mínútu af ROWR HVÆS ROWR rrrwwwrwrwrrwrwr, koma báðir kettirnir undan rúminu í miklum flýti og hendast um alla íbúðina... Ég fjarlægi flesta glermuni af borðum og set þá í vaskinn. Ég set báðar kisur inn á bað og reyni að láta þær útkljá þetta, en þær líta út eins og konur sem vilja ekki talast við en hata hver aðra í tætlur út af einhverri súrri ástæðu sem enginn veit nema einhver barþjónn á Seyðisfirði... (og hann veit ekki einu sinni hvað þær heita, en þær voru assgoti fullar...)

Ég opna dyrnar að baðherberginu og kettirnir þjóta út... Emma og Loppa eru ekki vinkonur í fyrstu atlögu...

Ég ákveð að fara aftur í vinnuna, ég kvíði því að koma heim í kvöld...
Það mun brotna sem getur brotnað...

Kettir eru skrýtnir...
Konur eru eins og kettir, alltaf urrandi og hvæsandi og mjálmandi endalaust...
Karlar eru meira eins og hundar, þeim dugar að þefa af rassinum hver á öðrum og þá eru þeir svalir... Annars slást þeir bara...

Bestu Kveðjur,
Herra Muzak


[ 4 ]
 
ÚFF!!!

Eins og allir vita er Hr. Muzak annálaður reglumaður, ég nota vímuefni á borð við tóbak og áfengi u.þ.b. 4-5 sinnum á ári og þá undir virku eftirliti fullorðinna.
Í dag er ég skelþunnur... Úff...
Strákarnir komu í póker í gærkvöldi, færandi hendi, með bjór, gin og tónik. Ég átti rauðvínsflösku sem ég setti á borðið og drakk alla einn... Svo reyktum við vindla og spiluðum póker... og reyktum meiri vindla og spiluðum meiri póker og drukkum og drukkum og hlustuðum á polka, sándtrakkið úr underground, lounge music og Vampyros lesbos diskinn.
Þarna voru saman komnir Stefán, Tóti, Kári, Siggi Palli og Högni. Jósi og Helgi birtust svo eins og skrattinn úr sauðaleggnum og þá var kominn ansi go´ður hópur af gæjum inn í litlu fallegu íbúðina okkar Pálínu. Djöfull var ánægjulegt að hittast svona gæjarnir og eiga saman ljúfa kvöldstund... Svona stundir eru ómetanlegar og ég á þær á digitalkubbi...

Muzakinn sýndi síðan drengjunum hvernig á að spila póker og hirti krónu eftir krónu af þeirra harðunnu launum...
Ég er í rauninni of þunnur til að vera skrifa þetta, en ég held áfram fyrir skyldunnar sakir...

Þegar strákarnir loksins dröttuðust heim ætlaði ég í háttinn en fattaði að kisa var úti... Ákvað að sækja hana...
Kisa var voða hress og skemmtileg og vildi koma í eltingarleik. gekk sá eltingarleikur um stund í garði nágrannamíns.
Kl. 02:20 í morgun leit nágranni minn út um gluggann og sá næstum ofurölvi Múzakinn tafsast og ramba að einhverjum runna og segja "kisakisakisakis.... kisakis.... Mjaaaaáááá.... míííááááá... kisakisa...." Hann fór aftur að sofa með örlítið breyttar hugmyndir um þennan geðþekka og dagfarsprúða dreng sem býr í húsinu við hliðina... sérstaklega eftir að ég meig utan í gervibrunninn sem hann er með í garðinum...
Ég ákvað síðan að þykjast vera mús, og náði henni þegar hún ætlaði að slá til mín með loppunni...
Þá hætti kisu að lítast á blikuna... Alkóhól og tóbaksdaunn báru hana ofurliði og hún hóf burtfararaðgerðir sínar. Báru þær ekki árangur og fimm mínútum síðar var Muzak kominn upp í rúm og ætlaði að sofna...
Fattaði þá að ég var bæði sjóveikur og ofboðslega graður...
Við því var jú ekkert að gera nema að koma sér betur fyrir og reyna að liggja af sér bæði gredduna og sjóveikina... Engin var konan og ég er of mikill karmaður til að stíga í land strax og mig fer að svima...

Nú sit ég við tölvuna sárþjáður maðurinn og vonast eftir ást og faðmlögum sem engin koma... Þið megið hughreysta þunnan Svabba hér að neðan...

Bestu Kveðjur,
Herra Muzak


[ 4 ]
miðvikudagur, júlí 10, 2002
 
20.000 asti gesturinn fær gefins:

Áritað eintak af disknum Herra Muzak syngur fyrir börnin, þar sem finna má fullt af góðum lögum með Herra Muzak og Zato.
Sendiði mér sæt skrínsjott af ykkur með 20.000asta teljarann minn í bakgrunninum... (eða eitthvað...) hné hné hné... (ekkert fótósjoppkjaftæði takk fyrir...)

Hr. Muzak


[ 2 ]
 
The deed is done...

Jæja Krakkar, þá er maður búinn að því.
Ég fór áðan inn á skrifstofu til Hjalta starfsmannastjóra, sem er algjör öðlingsdrengur, og sagði starfi mínu lausu. Ég er búinn að vera lengi að velta þessu fyrir mér, fannst ég aldrei passa almennilega inn í þennan fyrirtækjageira. Mín framtíð liggur ekki í stórfyrirtækjageiranum, ég fann það nokkuð greinilega...
Þvílíkur léttir, ég anda miklu léttar núna. Frá og með 1. sept get ég einbeitt mér fyllilega að námi og akademísku starfi auk þess sem ég hyggst skrifa stöku lausagreinar í blöð.
Margrét markaðsstjóri og Hjalti Sölva tóku þessu bara mjög vel og skildu ákvörðun mína fullkomnlega. Enda er það augljóst að ég er stundum full rokkaður fyrir íhaldssamt umhverfi íslenska stórfyrirtækisins.
Fargi er af mér létt...
AAAAAaaahhh.....
fjúkk...

The deed is done...
Bestu Kveðjur,
Svabbi sæti


[ 6 ]
 
Stebbi alltaf jafn funny gæi :)

Tíkur og peningar eh...

Er annars að hlusta á eitthvað gamalt efni með Blonde Redhead... Mjög skemmtilegt, sérstaklega violent life...
Ógeðslega fín sól úti og hamingjan alveg að drepa mig... eh...

ÓLRÆT!!! Pókerkvöld í kvöld með strákunum!!! :) YEAH!!! Við munum setjast niður með poka fullan af klinki og pókerfés og ég mun rýja þá inn að skinni með nýju speglauppsetningunni minni...

Og á LAUGARDAGSKVÖLD mun síðan hljómsveitin MOONBOOTS leika 80's tónlist sína af alkunnri snilld á staðnum Vídalín við Ingólfstorg. Hefst leikurinn rétt upp úr tólf og stendur til hálffjögur.

Bestu Kveðjur í bili,
Svabbi Muzak


[ 0 ]
þriðjudagur, júlí 09, 2002
 
Getur einhver gefið mér...

...Skilgreiningu á orðasambandinu: Sveigjanlegur vinnutími?

URG!!!


[ 8 ]
mánudagur, júlí 08, 2002
 
Þetta er náttúrlega óborganlegur djókur... hahaha
:)


[ 1 ]
 
Aftur Til hins daglega...

Aaaahhh.... kominn aftur í dofinn heim skrifstofumannsins... get farið að vinna ötult starf mitt í þá átt að bráðna ofan í sætið og deyja drottni mínum...
kmöh...
Gefðu mér frekar rokkstjörnulifnaðinn frá því á föstudaginn... Söngspíruhlutverk hljómsveitarinnar Moonboots er mitt líf og yndi.
Urg!
Ég er ekki köttaður fyrir svona skrifstofuvinnu. Ég þarf að vinna með eitthvað lifandi, fólk, ungt fólk, útlendinga, eitthvað annað en þetta...
En ég hef fyrir fjölskyldu að sjá, ég er tryggur og "góður" gaur, þannig að ég kýs um stund að vinna vinnu sem fer mér ekki nógu vel í stað þess að vinna illa launað en gefandi djobb...
Ég er ekkert að brjálast neitt, en ég finn í hjartanu að þetta er ekki beinlínis fyrir mig... Ég þarf meira líf.
Nema hvað... Næsta Laugardag verðum við Moonboots aftur á Vídalín með stórkostlega skemmtidagskrá okkar. Ég veit að við eigum eftir að sjá nokkur kunnugleg andlit þar.
Það er skrýtið að vera að koma undir sig nafni upp á nýtt, en samt ótrúlega gaman. Gaman að finna hvað fólk skemmtir sér vel og allt er í góðum fílíng. Eykur mér hamingju.
Bestu Kveðjur,
Svabbi Muzak


[ 2 ]
sunnudagur, júlí 07, 2002
 
og ofan á það!!! HVER LES BLOGGIÐ MITT KLUKKAN 2 Á LAUGARDAGSNÓTTU OG 9 Á SUNNUDAGSMORGNI?!? HVERS KONAR RUGLUDALLAR???
GEFIÐ YKKUR FRAM! STRAX!!!


[ 5 ]
 
Sunnudagslánsjpælingar...

Í leti minni hef ég verið að lesa þetta og hitt í bloggheimum.
Rakst á ansi frjósama grein frá Beturokk á huga.is síðan ég veit ekki hvenær... Fjallaði um hözzl og eitthvað svoleiðis.

Inntak greinarinnar og umræðunnar sem á eftir kom er eftirfarandi:
Karlar skiptast nákvæmlega í tvo hópa: Töffara og "Góða stráka".

Einkenni Töffarans: "vondur", mikið sjálfstraust, tillitslaus, iðjuleysingi, alltaf fullur, Sexý from hell, ríðanlegur um helgar (glataður í langtímasamband, fínt að ríða honum)
Einkenni "Góða stráksins": "Góður", sjálfstraust við stofuhita, ber nær takmarkalausa virðingu fyrir konum, edrú, Algerlega kynlaus, möguleiki nr. 1 í framtíðarsamband

(Dásamlegt þegar heimurinn verður svona einfaldur.)
Næst kom eftirfarandi:
Flestar konur vilja "á sínum villtari árum" sækja í töffarana, vegna þess að það er svona "hözzl" og gott að ríða þeim. Síðan þegar þær eldast og þurfa öryggi, þá leita þær til "góðu strákanna" til að fá öryggið sitt og ala upp tvö til þrjú börnin sem þær eignuðust með töffaranum. (ahem, hljómar svolítið eins og gauksungi...) Best þætti þeim ef hægt væri að gelda síðan "góða strákinn" til að þurfa ekki að lifa með honum kynlífi, vegna þess að eins og allar stelpur vita, þá eru góðu strákarnir bara til þess að gera húsverk og veita öryggi. Þær geta leitað annað með kynlífsþarfir sínar.

"Góðir gæjar" voru þannig í augum kvenþjóðarinnar á Huga upp til hópa óspennandi, hræddir, auðmótanlegir aumingjar sem ekkert er varið í að ríða, en gott að húka með og horfa á vídeó og láta þjóna sér.
"Töffararnir" voru hins vegar draumar æskunnar, hið villta og spennandi, rótlausir gæjar. (Darwin heldur með þeim...)

Vöknuðu þannig nokkrar pælingar hjá mér... Erum við karlar virkilega það einfaldir að við skiptumst nákvæmlega í svona tvo flokka... (hvar myndi ég flokkast) Og er verið að gefa í skyn að allir karlmenn sem eru í góðu langtímasambandi séu glataðir í rúminu og konur þurfi ekki gott kynlíf í langtímasambandi, eða hvað? Hver er eiginlega meiningin?!?
Hvað er annars svona spennandi við það að vera lúser sem hefur enga leið til að kommúnikera við fólk aðra en þá að dópa?
Er ekki "Töffarinn" í þessari skilgreiningu óttalega huglaus týpa, óöruggur og vandræðalegur, en "Góði gæinn" í rauninni aðeins hlédrægur en öruggur með eigin lífsviðhorf og sjálfsmynd?
Hvað er ég? Er ég "Góður" eða "Töffari"? Tvímælalaust ber ég ekki meiri virðingu fyrir konum en öðru fólki yfirhöfuð, og ég hef engar sérstakar langanir til þess að vera þjónandi aumingi... Ég drekk ekki, en er samt með prýðilegt sjálfstraust og get verið alger drullusokkur ef ég vil...
Getur verið að karlmenn séu þrívíðari en þessar góðu konur ímynda sér? Getur verið að til séu karlmenn sem ekki passa inn í fyrirfram gefnar skilgreiningar Betu Rokk og hennar fylgiskvenda? ;)

Allavegana er það farið að renna upp fyrir mér að ef marka má hugakonurnar eru "villtu árin" bestu ár konunnar og síðan þarf hún einhvern aumingja til að sitja á eggjunum sínum á meðan hún blómstrar...

Langar mig til að vera einhver gæi sem er eitthvað lokastig frjóvgunar kvenna? Langar mig til að vera það sem tekur við af frjósömum hözlferli Betu Rokk og hennar fylgiskvenna, til æviloka verandi geldi fressinn sem hún fann til að verma hreiðrið og ná í orma? Langar mig virkilega til að vera seinastur í hópreiðinni? Að vera gaurinn sem setur litla, óspennandi lókinn sinn inn í útriðið gapið og veifar honum tilgangslaust til allra átta?

Súrt... ;-)
Svo er nú alveg frábært þegar stelpur glápa á gaura sem eru augljóslega með stórt slátur, og maður segir í stríðnistón eitthvað eins og: "þið konur eruð allar eins, hugsið bara um stórt slátur..." Þá bregðast þær skilyrðislaust við með eftirfarandi(í rosalegum afsökunartón): "Ahem.. sko, nei, sko... það er ekki stærðin sem skiptir máli, það er sko hvernig menn nota það ha? ha? sko ég hef verið með strák sem var með stórt undir sér en hann var ekkert góður í rúminu, en svo hef ég verið með gaur sem var bara með venjulegan og hann var miklu betri í rúminu. ha? ha?" Þá segi ég: "Nú en ef að hinn hefði verið betri í rúminu, hefði þá ekki verið miklu betra að ríða honum með stóra slátrið hans?" Þá spryngur yfirleitt höfuðið á viðkomandi vinkonu og hún gefst upp fyrir ofurkarlmannlegum kröftum mínum og segir: "ÓKEI ÓKEI, ÞAÐ ER MIKLU BETRA ÞEGAR MENN ERU MEÐ STÓR TYPPI!!! ERTU ÁNÆGÐUR?!? HA? HA?" Játningin liggur fyrir... :) hehehe

Æi ég veit ekki, ég er að hugsa margt fleira en ég ætla að láta þetta nægja í bili, mér fannst þetta bara ósköp fyndið hvað þessi umræða öll getur verið grunn... :)

Bestu Kveðjur,
Herra Muzak
(ekki bitur, bara hugsi...)


[ 4 ]
 
Að róti loknu...

Upprót er frústrerandi og stressandi verk... Maður er í kapphlaupi við tímann vegna þess að maður þarf að komast heim til að ná áttum áður en maður fer á svið, upprótið í gær var hreinasta helvíti, fullt af klikkum og veseni... "Af hverju stendur maður í þessu?" er síðasta spurningin áður en maður fer að chilla í svona klukkutíma...
Niðurrót, aftur á móti, er ótrúlega Zenísk iðja... Maður hefur nógan tíma, ekkert tækniröfl, bara taka allt í sundur og henda ofan í kistur og bera það upp brattar tröppur og inn í þartilgerðan bíl. Niðurrót er einhvern veginn anti-upprót, allt sem upprót er ekki. Þó maður sé dauðþreyttur og ónýtur, vaknandi eldsnemma til að henda niður dótinu, þá er þetta einhvers konar uppgjör gærkvöldsins. því fylgir æðruleysi og ánægja... Maður horfir yfir tómt dansgólf og finnur blautan ger-og-þvottaefna fnykinn í loftinu og þakkar guði fyrir að maður er á lífi... :-)
Ekki svo að segja að maður sé eitthvað fúll út í gærkvöldið, en sá orkulevell sem er á manni klukkan 12:00 daginn eftir gigg er eins og hjá stífum e-pillu neytanda... Alvöru skemmtikraftar (eins og Moonboots) láta alla sína orku vaða þegar verið er að performera... Orkan sést ekki endilega í fjölda hoppa á sviðinu, heldur meira í einbeitingunni og þeim fílíng sem menn láta/leyfa að geisla út frá sér.

Húmorinn er alltaf súr í niðurróti... Maður er sybbinn og tæmdur og segir eins lítið og mögulegt er, en svo kviknar smám saman á manni, en "skrýtnahúmorshamlararnir" eru það síðasta sem vaknar á morgnanna eins og allir vita... Þess vegna er ritúalið niðurrót alltaf svolítið súrt en líka afar hugarróandi... :)

Maður gerir upp gærkvöldið í rótinu... (eins og ég sagði...)
Og þó það hafi ekki verið húsfyllir, þá var húsið fullt af stuði og ekkert hægt að segja um það nema MOÐERFOKK!!! :-) Hljómsveitin Moonboots er greinilega komin aftur af fullum krafti eftir góða afslöppun. Shout out to all my homies... :-)

bæ í bili og skemmtið ykkur vel í nótt... Ég er nú official helgarpabbi... ;-)

Bestu Kveðjur,
Herra Muzak


[ 0 ]
laugardagur, júlí 06, 2002
 
vaknaður...

Djöfulsins suddagigg var þetta í gærkvöldi maður... Ótrúlega fínt stuð á fólkinu þó það hefðu mátt vera fleiri.
Hitti Geir í kjötheimum í fyrsta skipti, og Arnar líka. Þeir voru nett hressir og dönsuðu eins og kálfar í vorleysingum.
Svo kom tonn af fólki (þ.e.a.s. um það bil 14 manns í kjörþyngd...) sem ég var ekki búinn að sjá lengi, þ.á.m. Eyrún vinkona af Mogganum og fleiri.
Erfitt kvöld samt, bærinn dauður og allt það, en ég held að við höfum átt stuðið...
Meira á eftir... farinn að róta...

Bestu Kveðjur,
Herra Muzak


[ 2 ]
föstudagur, júlí 05, 2002
 

Koss frá Hr. Muzak... Mouhahahaha!!!
Hún á heldur ekki koss frá flottustu hljómsveit landsins, Moonboots... ónei... sökk it...

Bestu Kveðjur,
Herra Muzak


[ 0 ]
 
Ótrúlegt en satt...

En bara nokkuð frambærileg grein á Sellunni...

Bestu Kveðjur,
Svavar Muzak


[ 2 ]
fimmtudagur, júlí 04, 2002
 
Ég sendi þér engan djö... pakka tsjellling!!!

(ég á...)
Tuh...
Þetta kallar maður að einhver sé að villa á sér heimildir...

Katrín mín... ég skal senda þér 400000 kalla pakkann þinn ef þú mætir á Sport Kaffi og ég sé þig dansa og fíflast eins og tík í látum við hallærislegustu tónlist sem þú hefur nokkurn tíma heyrt... En ég held að þú og þitt possí þorið ekki að láta sjá ykkur af ótta við að allir sjái ykkur tjútta feitt við hallæristónlistina í STUÐLANDI!!! :-)

Bestu Kveðjur,
Herra Muzak


[ 4 ]
 
...oooooooooooooooooooooggg brosa :)


[ 0 ]
 
Eins og allir vita eru...

...Allir vítisenglar glæpamenn...
...Allir mótorhjólamenn glæpamenn...
...Allir umhverfisverndarsinnar á móti framförum...
...Allir kapítalistar á móti umhverfinu...
...Allir tónlistarmenn á eiturlyfjum...
...Allir sem nota eiturlyf dópistar...
...Allir dópistar glæpamenn...
...Allir glæpamenn skrýmsli...
...Öll skrýmsli vond...
...Allir sem eru ósammála manni vitlausir hálfvitar...
...Allir nema ég fífl...

Bestu Kveðjur,
Herra Muzak


[ 3 ]
 
Tónlistarmenn athugið...

Már vinur var að minnast á svona Músíkblogg, svo mér datt í hug að við músíkbloggarar gætum bundist lausum regnhlífarsamtökum um að búa til linkahluta sem vísar á hvern annan? Hvernig líst ykkur á það?
Helgi Hrafn og Beefolk eru með músík á sínum bloggum og fleiri sem ég veit ekki alveg um.
Málið er allavegana það að við getum farið að vísa fólki á síður þar sem fólk er að gefa sína eigin tónlist. How does it sound?

Ef þið viljið vera memm, þá megið þið senda mér slóðirnar ykkar og ég set þær inn í linkana mína...
Þannig myndum við net lagasmiða og einyrkja sem getur vaxið innan frá.
Ég hvet ykkur til að fara að gera slíkt hið sama...
Bestu Kveðjur,
Hr. Muzak


[ 1 ]
 
Sport Kaffi er stór staður

Ókei, Nú ætlum við að gera ðe gúdd sjitt! Sport Kaffi er stór staður, svo okkur vantar stórt fólk og mikið af því til að fylla hann... Við ætlum að moðerfokkerast og þið ætlið að hjálpa okkur... Við neglum upp stuðinu eins og hundaóðir brasilíumenn í fótbolta!!! Hvað segiði um það gott fólk? Allir Mæta á Sport Kaffi og eru bara í góðum fíling... Eh?!? Right?!? Kommon Krakkar, látum þetta vera gaman... Föstudagskvöldið á Sport Kaffi og gerum gaman gaman... ... ...Samleiðis... 80's tónlist rúlar!

Bestu Kveðjur,
Herra Muzak


[ 0 ]
 
Ætli Árni Johnsen fái að syngja brekkusönginn í gegnum síma frá Litla Hrauni?


[ 0 ]
 
Mér finnst þetta kúl... :)





Which flock do you follow?

this quiz was made by alanna



[ 0 ]
 
Ef ég ætlaði að drepa þjóðhöfðingja...

Myndi ég þá klæða mig í gul föt og labba meðfram vegarkanti?
Myndi ég ekki dulbúa mig og fara í felur eða gera eitthvað sem tryggði að ég kæmist nógu nálægt honum óáreittur?

Bara pæling í kjölfar þess að vinnufélagi minn var að segja mér frá því að hann var að hjóla meðfram veginum að hótel Loftleiðum þegar hann mætti tveimur Falun Gongurum. Íslenska lögreglan var fljót á staðinn, út úr stórum löggubíl stukku fjórir fílefldir karlmenn og skipuðu Gongurunum inn í bílinn.. Þeir neituðu og sögðust ekkert til saka hafa unnið. Þá upphófust mikil læti í lögreglumönnunum sem endaði á því að þeir slógu hring utan um Gongarana og heftu för þeirra. Í þá mund beygði bílalest kínaforseta inn í götuna og löggurnar skýldu honum fyrir gula litnum sem brennir augu hans. Vinnufélagi minn var hins vegar alveg óáreittur á hjólinu sínu og hefði vel getað stútað einum eða tveimur bílum með vel völdum handsprengjum... Skondið...

Litlu gulklæddu hipparnir voru sumsagt teknir úr umferð, en gaurinn með sólgleraugun og stóra bakpokann var látinn í friði...

súper skondið... Öryggi Mæ ES!
Bestu Kveðjur,
Svabbi


[ 0 ]
miðvikudagur, júlí 03, 2002
 
Nýja Lagið...

Mig langar bara að minna ykkur enn einu sinni á það að dánlóda nýja laginu okkar Sigga. Það heitir I lied og fæst hér... Einnig fæst það á anomy.net...

Kommon... Digg inn og látið í ykkur heyra... (Ekkert endilega á skilaboðum... þið megið alveg senda mér póst ef þið eruð feimin...)

;-)


Bestu Kveðjur...
Svabbi


[ 1 ]
 
Fyrsti Stef tékkinn...

Ég var að fá fyrsta Stef Tékkann minn... :) 491 kr. fyrir lagið Kampavín Kókaín og Kellingar með hljómsveitinni Fálkum frá Keflavík. :) JEEEEE!!! :)

Rock and roll and monní... :)

Ég skal koma laginu á vefinn fljótlega...

Bestu Kveðjur,
Svavar Muzak


[ 0 ]
 
Nýja lagið komið...

Auðvitað er þetta bara demo, í demógæðum og tekið upp á rúmum tveimur klukkutímum, en við Siggi Palli erum fínt stoltir af því samt...
Hr. Muzak beitti stórkostlegum hæfileikum sínum í útsetningum, söng og hljóðfæraleik og Zato Söng og lék á gítar.

Hér getið þið nálgast lagið, og textinn verður komin upp von bráðar undir tónlistinni okkar.

JEEEEE :)

Bestu kveðjur,
Herra Muzak í góðum fílíng í sólinni...


[ 5 ]
þriðjudagur, júlí 02, 2002
 
Saddur, engin sól, búinn í sundi... Ennþá sætur...

Stökk í mat og sund í hádeginu, synti 1,5 km. mjög gott... :-)
Nú langar mig að fara að gera meiri mússík... Við Siggi Palli skutumst í æfingarhúsnæðið og tókum upp lítið lag sem hann samdi. Það kemur væntanlega á mp3 hér á morgun. JEEE :-)
Það er gaman að prófa sig áfram með alls konar hljóðfæri og sánd og gera það bara svona meðalvel, ekkert súper, bara demógæði.
Mér leiðist þegar menn eru með einhverja fullkomnunarstæla á demóunum sínum...
Mann langar bara að heyra hvað menn eru að pæla...

Kanínan Felix er farin... :/ veit ekki hvað mér á að finnast... Við slepptum honum út í garð í einn dag og hann ákvað að lifa sínu eigin lífi. Dagbjört tekur þessu furðuvel og er í raun bara ánægð... Loksins getur hún sofið í sínu eigin herbergi, ekki þetta bévítans kanínukrafs endalaust...

En fyrir liggur sumsagt endalaust meiri tónlistarvinna, jejejeje :)

Bestu Kveðjur,
Herra Muzak


[ 0 ]
 
Sól, Sund, Sætur, Svangur...

Það er sól úti, mig langar í sund, ég er sætur og ég er svangur...
Er hægt að hafa það betra...?

Urg...

Moonboots eru annars greinilega komnir á fulla fart, því við verðum á Sport(hnakka)kaffi á föstudaginn.
Fyrst við réðum við flogaveika snigla, þá hljótum við að geta höndlað lókalinn á sport-kaffi. Damn straight!
Djöfull er gaman að finna gamla fiðringinn læsast í lappirnar og alla leið upp í topp, gamli góði 80's swingurinn mættur á svæðið og kominn til að trylla lýðinn... ;-)
Pétur Kristjánsson, gættu þín, ég er kominn með 23 grýlna jakka sem á eftir að pakka þínum saman... :-)
SMALI SMALI SMALI, þið mætið öll á svæðið!

Bestu Kveðjur,
Svabbi

P.s. Gefið mér bjór og sólarolíu eða gefið mér dauða...


[ 1 ]
mánudagur, júlí 01, 2002
 
Það sem hann meinar...


Maður veltir stundum fyrir sér svona siðapredikunar- vandlætarafólki, svona fólki sem segir: Mín trú, mitt siðferði og mín kynhegðun eru það eina rétta í heiminum, allir sem eru öðruvísi eru afbrigðilegir og viðbjóðslegir. Maður veltir fyrir sér af hverju þetta fólk hefur aldrei tekið það þroskaskref að læra að fólk er ólíkt og hefur ólíkar langanir, hvatir og þarfir, ólíka sýn á heiminn. Hvers vegna vill þetta fólk svona ástríðufullt ráða annara manna lífum. Síðan telur það hagsmunum sínum ógnað þegar annað fólk, annars staðar í heiminum vill fá að ráða sjálft yfir sínum eigin lífum og eignum og lifa eftir sínum eigin gildum og viðmiðum. súrt...

Bestu kveðjur,
Svabbi Muzak


[ 5 ]
 



you're american beauty. you're full of hope and appreciate the beautiful things in life.

take the which prettie movie are you? quiz, a product of the slinkstercool community.



[ 1 ]
 
Dásamlegur morgunn...

Svaf ekki dúr í nótt, erfið nótt... Dóttir mín sparkaði í bakið á mér allan tímann og ofan á allt saman fattaði ég ekki fyrr en í morgun að hún svaf með mína sæng og ég með hennar...
Mér var líka kalt í nótt...

Í morgun ætlaði ég að díla um að mæta seinna í vinnuna sökum bakmeiðsla og svefnleysis, en ekkert varð úr því, svo ég kom mér á fætur og hjólaði niður eftir... Á leiðinni hitti ég gamlan mann og trukkabílstjóra sem höfðu tekið smá rassakoss við gatnamótin Lönguhlíð/miklubraut Gamli kallinn skalf af geðshræringu, því trukkurinn sem smellti einum feitum á rassinn á bílnum hans var mjög mjööög stór...
Þetta færðu þegar þú bremsar skart á gulu ljósi segi ég...
Nú er ég kominn inn í BRAZIL-ið mitt með bláu skilrúmunum...
jiha...

Svona fæðast ljótar fantasíur...
...
...
...

bleh...

Nema hvað...

Moonboots rokkuðu feitast um helgina, erfitt krád svona til að byrja með (Sniglar sem fíluðu hvorki Whamm né Djúran Djúran og voru jafnvel ponsu arrig...) en við náðum að beygja þá með sannfæringarkrafti yfir á vegu hommapoppsins. Djöfullinn freistar...
Svo þegar fór að fækka í Sniglahópnum (sem eru BTW fínasta fólk) þá fór hinn almenni borgari að þora að borga sig inn... Brátt fylltist húsið af 80's þyrstum gleðiglaumsboltum og partíið tókst á flug...

Sem minnir mig á það...

Rétt eftir 17. júní las ég "lekna" frétt í Mogganum um að Lögregluyfirvöld hefðu heimildir um að nokkrir "Vítisenglar" væru á leiðinni til Ísland í einhverjum óþekktum tilgangi... (það hefur væntanlega ekkert að gera með landsmót snigla, þar sem mótorhjólafólk frá öllum norðurlöndunum mætir...) Æðislegt hvernig fjölmiðlar og yfirvöld geta notað visst orðalag til þess að gera fullkomnlega venjulega heimsókn tortryggilega... orðalag eins og "hvaðan sem þeir peningar nú koma", "í óþekktum tilgangi" og "hafa óhlýðnast lögreglu."

En "no matter"...
við verðum að halda áfram að lifa, þó yfir okkur ríki quasi-fasistastjórn með tilskipanir og "sterkan leiðtoga".

Móðir mín, sem ég elska í tætlur, segir oft að ég ætti nú ekki að vera að tala svona hátt, út af því að þá minnki möguleikar mínir á vinnu í samfélaginu okkar...
Ég svara henni með því að ég tala svona hátt þrátt fyrir og vegna þess að við búum í svoleiðis þjóðfélagi, þjóðfélagi þar sem skoðanir manns geta takmarkað atvinnumöguleika hans. Það að einhver ráði mann ekki vegna stjórnmálaskoðana hans, segir meira um fíflin sem það gera, heldur en um manninn sjálfan.

Bestu Kveðjur,
Herra Muzak


[ 0 ]
Virka þessi Drösl???