![]() |
Þankatankurinn
|
![]() |
||||
|
Svavar Knútur Kristinsson, Félagsauðströll, heimspekingur, umhverfis-verndarsinni og tónlistarmaður. NÝTT!!!
|
Nýjustu Demó: Ástarsaga úr fjöllunum (Sumarið 2005) Goodbye my lovely (19. júní 2005) Your love was death to me (Janúar 2005) Call off your Cavalry (September 2004) You should call a doctor (Maí 2004) Kysstu tímaglasið (endurbætt útgáfa 2004) Mother's day Jólaplata Hrauns 2003: Þrautgóðir á Hraunarstund Jólaplata Hrauns 2005: Höldum jól Jólaplata Hrauns 2006: Jólamolar |
mánudagur, september 30, 2002
Á leiðinni austur í Gnúpverjahrepp að taka viðtal...
Grúví fílíngs... Gaman að keyra út á land að hitta fólk og taka viðtöl... Það er ekkert nema stuð... Tek með mér kameruna... þriggja tíma akstur framundan... (fram og til baka...) Yiha... Bestu Kveðjur, Herra Muzak [ 2 ] sunnudagur, september 29, 2002
Vídalín - Adrenalín
Jæja, nú er lokið góðri helgi hljómsveitarinnar Moonboots á Vídalín... Við tókum alveg tussugóð gigg, ég held að röddin hafi sjaldan ef ekki bara aldrei verið betri... En engu að síður var laugardagskvöldið hreinasta helvíti... (einn hlutur sá til þess...) Það var nebbnilega maður sem var svona HRIIIKALEGA hress... Hann elskar víst KR og var obboslega fullur og glaður... ...Og hann vildi alltaf troða sér upp á hið þrönga svið Vídalíns til að syngja... falskt... og hátt... og þegar hann komst ekki upp á sviðið þreif hann í míkrafóninn og dró hann til sín til að syngja sjálfur... Þetta byrjaði svona hálf tvö... Ég reyndi að gera gæjanum skiljanlegt að þetta væri nú ekki góð latína í minni sveit, en hann hélt þessu bara áfram, en í stað þess að grípa í mækinn fór hann að grípa í stöngina sem heldur honum uppi, sem gerði mér mjög erfitt fyrir að halda einbeitingunni, stjórn á míkrafóninum og góða skapinu. Klukkan þrjú var hann búinn að grípa svona í mækinn á að giska 29 sinnum, og samblanda adrenalíns vegna láta og réttlátrar reiði kraumaði sem aldrei fyrr... Hann hélt þessu sumsagt áfram og áfram og áfram, sama hvað ég reyndi að ýta honum frá. Vitiði það, ég hef aldrei kýlt mann í reiði minni. Ég hef aldrei látið reiðina draga mig til ofbeldis. og það munaði svo obboslega litlu að ég hefði kýlt gæjann í spað í gærkvöldi... Ætli hann hafi nokkra hugmynd um það eða ætli hann sé bara enn eitt helvítis fíflið sem hugsar: "Djöfulsins stuð var í gær maður, ég ætla aftur næstu helgi, öhöhöhö...." Ég vona að hann verði barinn þá... Ég ætla ekki að gera honum þann greiða að berja hann. Ég hef hreinlega aldrei verið svona nálægt því að láta vaða í mann á ævinni, ég hef aldrei fundið reiðina krauma svona ómótstæðilega inni í mér... Það var eins og lítil rödd á vinstri öxlinni á mér hvíslaði: "Láttu bara gossa. Kýldu hann á smettið og þá muntu upplifa fróun sem þú hefur aldrei upplifað áður." og á hægri öxlinni sat líklega engillinn og sagði: "Ég segi það með honum maður... Láttu helvítið hafa það... Hann á það skilið..." Ég einfaldlega barði hann ekki af gömlum vana... viðbót: Það má auðvitað geta þess að ég hlaut ágætis gleðibúst þegar ég sá gaurinn sitja blindfullan og ónýtan í rigningunni kl. 4:00 þegar ég var á leiðinni heim... Gott á þig helvítið þitt!!! Gott á Þig!!! En Moonboots rokkuðu feitt... Bestu Kveðjur, Herra Svavar [ 4 ] laugardagur, september 28, 2002
Ég er hreint og beint hneykslaður!!!
Þvílíkar ásakanir!!! Allir vita að Hr. Muzak skrifar aldrei nafnlaus komment! Auk þess er ég ósköp hrifinn af mökkum... Kannski er Jósi með breiðari lesendahóp en hann veit... Bestu Kveðjur, Hr. Muzak [ 0 ] ...með tilheyrandi þreytu og þynnku...
Jæja, nú er komið að seinna kveldinu á Vídalín... Moonboots ætla svo sannarlega að rokka húsið feitara en allt sem feitt er! Ég er að leggja lokahönd á prógrammið... Það er hunderfitt að velja 40 lög úr 100 laga listanum okkar... Helvíti hart... Bestu Kveðjur, Svavar [ 0 ] föstudagur, september 27, 2002
Kominn úr gini Ljónsins
Jæja, þá er maður búinn að spila á FM fyrir litlu sætu hnakkana og sílíkongellurnar sem munu væntanlega flykkjast á Vídalín um helgina og samkvæmt vistfræðinni munu þau kæfa allt annað líf eins og lúpína yfir lyngmóa... Annars var þetta voða gaman... Svitalyktin inni í 10 fm herberginu var óbærileg og náði á köflum slíkri þjöppun og hreinum viðbjóði að við vorum nær dauða en lífi... Sjáumst í kvöld á Vídalín... Svavar Knútur - Forsöngvari [ 1 ] miðvikudagur, september 25, 2002
HELV!!! DJÖ!!! ANDSK!!!
Var búinn að skrifa geðveikt fína grein og hún eyðilagðist... Dauði yfir þig Blogger... [ 4 ] þriðjudagur, september 24, 2002
Kærleikur, Gleði, Hamingja...
Ég er svefnpurka... Lúllaði til ellefu í morgun eða þangað til löggan bankaði upp á hjá okkur með úldnar fréttir. Sko... Pálína rak sig utan í einhvern Volkswagen í kringlunni um daginn og hélt að hún hefði ekki valdið neinum skaða af því að hliðin á Saabinum rétt strauk stuðarann á fólksvagninum (samkvæmt öllum eðlilegum lögmálum alheimsins hefði þess vegna okkar bíll átt að rispast...) Pálína skoðaði Volkswageninn (nýjann...) og sá ekki nema millimetersrönd á neðanverðum stuðaranum (innan um fjölda annarra eðlilegra slitmerkja...) Hún leitaði að eigandanum en fann engann, þannig að í fávisku sinni ákvað hún að fara bara heim fyrst þetta var ekkert alvarlegt... Löggan hringdi síðan dyrabjöllunni í morgun og skammaði Pálínu eins og hún væri stórglæpamaður. Ég man nú þegar Stuðarar voru ætlaðir til að hindra skaða á bílum ef þær rækjust óvart á... Nú eru stuðarar orðnir hlutir sem kostar tugi ef ekki hundruð þúsunda að laga (skipta um)... (súrt...) Fokking druslunýjubílar sem eru ekki hannaðir til að endast heldur sem einhvers konar stofuskraut fyrir aumingja... Fokking lögguvitleysingar að geta ekki bara hringt... Pælið í því að hringja dyrabjöllunni hjá venjulegu fólki kl. 11:00 á morgnanna... (hvaða venjuleg manneskja væri heima á þessum tíma?) Bah... Bónusinn hækkar aðeins... No harm done... (nema að einhver aumingi á Volkswagen er hálfviti og móðursjúkur aumingi...) :-) Bestu Kveðjur, Hr. Muzak [ 7 ] mánudagur, september 23, 2002
Jömmí Jömmí Jömmí
Búinn að fara yfir ritgerðirnar í Inngangi að heimspeki. Búinn með rannsóknaráætlunina mína í Eigindlegum... Húrra - Jibbí Kóla!!! Bestu Kveðjur, Hr. Muzak [ 4 ] sunnudagur, september 22, 2002
Vandræðalegur misskilningur...
<Varúð!!! Karlrembulegir taktar...> Mér þykir oft erfitt að ræða tilfinningamál við "konur..." "Konur" halda því gjarnan fram að þær séu á einhvern hátt dýpri tilfinningalega og allir karlar séu gangandi pungar með gervigreind hvers eini tilgangur er að dæla lífsvökva sínum í sem flesta bensíntanka ástarinnar. Þær virðast sjá sig sem einhvers konar djúpsjá afkvæmi "gyðjunnar" og að þær séu gæddar tilfinningagreind frá náttúrunnar hendi. Bulls$#t!!! Samkvæmt hefðbundnum "kvennafræðum" á tilhneiging "kvenna" til að offlækja tilfinningar sínar og blaðra um þær sínkt og heilagt eins og þær séu veðrið, að vera nokkurs konar vísbending um hina tilfinningaþroskalegu yfirburði þeirra. aha... einmitt... hmö hmö hmö hmö hmö... Skoðum málið nánar... Tilfinningar mínar eru flóknar, djúpar og stundum erfiðar að skilja. Ég kafa gjarnan ofan í þær í löngum göngutúrum einsamall. Ég hugsa með eftirsjá og trega um þá vondu hluti sem ég hef gert og gleðst yfir þeim góðu. Ég velti fyrir mér siðferði mínu og tilfinningum og skoða ofan í kjölinn tengsl mín við alheiminn, við jörðina, moldina, trén, annað fólk, heiminn... Þegar ég skoða minn innri mann á þennan hátt geri ég hreint fyrir mínum dyrum innan í mér og kannski spjalla ég þetta í stuttu máli við vini mína í góðu tómi. Kannski velti ég upp einhverju máli sem ég er að skoða í nánum samræðum við vinina yfir kaffibolla heima. (Ekki inni á klósettinu á Gauknum/Astró/Vídalín/NASA/*insert name of random club*...) Ég veit ekki um aðra karlmenn... Kannski sitja þeir bara og klóra sér í pungnum og þefa og segja "KONA!!! BORÐA NÚNA!!! RÍÐA!!!" "Konur" sjá sig knúnar til að blaðra öllu í hver aðra og reyna að láta hver aðra sortera út flækjuna, en það verður eins og illa gert fuglafit á endanum og út úr því spretta sápuóperur og dramamyndir sem engin heilbrigður karlmaður lætur sjá sig án þess að vera með bjarnargildru um punginn... Svo er maður bara í góðum fílíng að hitta vinina og vinkonan (N.B. hún er alveg fín vinkona mín og mér þykir ekkert minna vænt um hana þó hún sé kona...) skellir manni niður og hefur beina árás á tilfinningaþroskann. Vinkona: "Þú ert eins og allir aðrir karlmenn, þér er sama um allt!!!" Hr. Muzak: "Nei, þú skilur ekki. Mér er alls ekki sama um þessa hluti. Ég vil bara ekki vera að velta mér upp úr þessu núna..." (Ég er bara ekki til í að tala um þetta á skemmtistað þar sem hljóðið er yfir hávaðamörkum...) Vinkona: "Nei, þú skilur ekki. Þú hefur engar tilfinningar, þú ert bara karlmaður..." Hr. Muzak: "Æi... Ekki ráðast svona á mig eins og ég sé einhver drumbur, ég hef nóg með mitt..." Vinkona: "Nóg með hvað, þú ert bara karlmaður..." Hr. Muzak: "Úff..." Bara þó ég blási ekki eins og búrhvalur öllum mínum tilfinningum út í loftið, (og það er nú hálf skrýtið að segja það, þar sem ég er nú býsna opinn nú þegar...) þá þýðir það ekki að ég sé ekki að díla við hlutina inni í mér. Bara þó ég láti ekki allt uppi um hvað ég er að hugsa, þá þýðir það ekki að ég sé ekki að hugsa... Bara þó ég hágráti ekki fyrir framan alla þýðir ekki að ég sé í þessu fína... Ég hef bara tileinkað mér þá hugsun að setja þetta til hliðar og velta þessu fyrir mér þegar það á betur við... </Varúð!!! Karlrembulegir taktar...> AAAHHH... :) I love you guys... Hr. Muzak Konungur munnlegs kynlífs, tónlistar og Umhverfisástar... [ 3 ] föstudagur, september 20, 2002
Tjúllírúllírú, naggurinn bara niðri svo maður les bara eitthvað...
Það er ekki furða að heimsóknunum á þankatankinn hafi minnkað undanfarna viku eða svo... Naggurinn er í lamasessi... Hnuss... Langar að segja ykkur frá tveimur sem ég les nokkuð reglulega (a.m.k. vikulega) Mér finnst gaman að lesa bloggið hans Jóns "bumbu"... Ofboðslega gaman að lesa þankana hans... Svo er ég líka orðinn ansi mikill aðdáandi hans Birgis Baldurssonar... Góður Trommari og afar skemmtilegur penni... Lenti í ágætis ritdeilu við Helga Sæmund félaga minn úr heimspekinni, en það var nú allt í góðu held ég... Ég ætti kannski að lesa þennan Ingersoll... Fyrst ætla ég samt að klára Lord of the Rings í 5. skiptið, þriðju Harry Potter bókina, vistfræði bókina, eigindlegar rannsóknaraðferðir og Umhverfisjarðfræði... Og glás af teiknimyndasögum... Bestu Kveðjur, Hr. Muzak [ 1 ] fimmtudagur, september 19, 2002
Ekki eitt einasta hitt á Kazaa...
Ég leitaði að Herra Muzak og mr. muzak á Kazaa... Ekki neitt... Eruð þið ekki örugglega með lögin okkar inni í Shared möppunni ykkar? :-) hehehe Bestu Kveðjur, Hr. Muzak [ 1 ] Ægileg tilvistarkreppa í gangi...
Sko... Ég er að pæla... Moonboots eiga sér mjög sterkan hljómgrunn hjá svona fólki sem eltir ekki tískubylgjur og hefur bara gaman að lífinu. Okkar krád er ekki þetta týpíska FM krád... Íslensk skemmtanamenning snýst engu að síður í kringum bévítans FM. Sem er með u.þ.b. 8% hlustun skv. könnunum... Merkilega lítið miðað við stöð sem virðist stjórna íslenskum skemmtanabransa, eða gerir hún það? Mér virðist FM einungis stýra neyslu mjög afmarkaðs hóps sem hefur nú þegar ansi fastmótaðar skoðanir, þ.e.a.s. að vera sammála öllu sem FM fólkið segir... Bara svona vangavelta... Nema hvað... Ég leyfði góðvini mínum að heyra demóupptökuna af nýjasta lagi Moonboots flokksins... Það er óskaplegt sumarlag og samið í miklu gamni og gríni... Nema hvað... Góðvinur minn, sem er sem betur fer heiðarlegur ad nauseum, sagði sumsagt: "Svabbi, ef ég væri ekki vinur þinn og vissi ekki að þið eruð að grínast, myndi ég líklega aldrei aftur koma á Moonboots ball ef ég myndi heyra þetta lag í útvarpinu..." Lagið er í sjálfu sér í góðu lagi, sem íslenskt sveitaballapopp, og paródía af því, s.s. það sem stefnt var að... En stóra spurningin er sú hvort það sé þess virði að elta FM-krádið. Byggjast ekki vinsældir hljómsveita á því að þær séu skemmtilegar og happí og spili reglulega og af gleði? Ég hef sjálfur gagnrýnt Buttercup/Ber/Skímó/L&S/VV&B/Sólþetta-sólhitt/blablabla-ad-nauseum kreðsuna ótæpilega og hyggst ekki hætta því. En er ekki trúverðugleika mínum sem tónlistarmanns stefnt í voða ef maður fer að prumpa út skímópoppsmellum eins og lambaspörðum? Ég hef sett þetta svona: Það að vera söngvari, frontmaður í hljómsveit, þýðir að maður er eins og ábyrgðarmaður útgáfustarfsemi, maður tekur alla ábyrgð á heimskupörum félaga sinna. Frontmaðurinn er brenndur fyrir lífstíð ef hann gerir einn heimskulegan hlut, að mati fólksins... Hvaða heilvita manni dettur til dæmis í hug að fara niður á Vídalín og hlusta af fullri alvöru á (án allra móðgana) Bó Hall, Einar Ágúst, Adda Fannar, Gunna Óla, Siggu Beinteins, Helgu Möller, Steina í VV&B, Val í Bötterköpp eða Írisi í Ber spila og syngja "einlæg og frumsamin lög á persónulegum nótum..." eftir að hafa orðið vitni að þeirra performans í gegnum tíðina??? Nú á ég alls ekki við að þetta fólk sé ekki góðir tónlistarmenn eða á einhvern hátt eigi þau skilið minni virðingu, en þau hafa öll eyðilagt fyrir sér möguleikann á að vera tekin alvarlega í tónlist af tónlistarlega þenkjandi fólki. Jújú, ég er viss um að fólk sem fílar jafnt Kenny G, Michael Bolton, Pan Pipe Dreams/wonders/hope/Titanic/meditations og Hooked on Classics og á gervallt pottþétt safnið myndi líklega koma á Vídalín ef Bylgjan eða FM segði þeim það. En það er ekki fólkið sem ég er að reyna að ná til með minni tónlist, með mínum textum... Fólkið sem ég vil nálgast er því miður eins og annað fólk í þessum heimi, fljótt að missa trú á manni ef maður kemur fram eins og api í jakkafötum og glatar reisninni með ódýru framlagi til íslenskrar tónlistar... Þess vegna vona ég að minn prófessjónal ferill haldist eins hreinn og mögulegt er. Hefðum við verið að meina lagið sem ég leyfði að heyra vini mínum sem einhvers konar vitrænt framlag, þá væri ég fokkt... :-) Sem betur fer er skopskyn Moonboots háþróaðra en svo, og greindarvísitala hljómsveitarmeðlima í efri lögunum. Engu að síður óttast ég að þorri íslenskra tónlistarhlustenda reynist ekki eins húmorískir til langs tíma litið og meðlimir hljómsveitarinnar. En ég mun héðan í frá neita að leggja sönglega blessun mína yfir lög sem samin verða sérstaklega í þeim tilgangi að þóknast fyrirfram ákveðinni formúlu markaðsaflanna. (ekki það að stöffið sem við vorum að gera sé ekki skemmtilegt, en það er óneitanlega eins kommersjal og nokkuð stöff getur orðið... ;-) En hvað um það, ég elska Moonboots út af lífinu, þessir gæjar eru mínir fóstbræður, mínir blóðbræður. Við höfum lifað ótrúlegustu hluti saman og ég vona að það haldi áfram eins lengi og okkur endist heilsa og ódrepandi ást á góðri tónlist. Þá er það bara að fara að semja lög á eigin forsendum... Því ekki vil ég glata öllu hugsandi fólkinu sem aktúallí pælir í tónlist og kemur á Moonboots tónleika af því að þeim finnst við æði og skemmtilegir og flippaðir og fjörugir og bestir, en ekki bara "flavor of the week" á FM... Ég vil að Moonboots haldi áfram að vera ein besta ballsveit landsins og ég tel að vinsældir okkar geti haldið áfram að dafna án þess að grípa til tónlistarlegrar pungsparkakeppni að hætti sveitaballabanda. Íslenski "sumarsmellurinn" er deyjandi listform, og sem betur fer... Því sumarsmellurinn er lægsta form tónlistar í heimi. Hann er feitikallinnkúkarásigumleiðoghanndetturárassinnbrandari kómedíunnar, kokkteilsósa veitingabransans, krabbameinstrixið í grátmyndunum og for i=1 to10; print"svabbi best"; next i; kerfisfræðinnar. Ódýr lausn sem er ekki virðulegum mönnum sæmandi. Ég vona að menn átti sig á því að ég fæ 90% skítsins ef við gerum eitthvað ömurlegt... Trommari getur alltaf farið að tromma með öðru bandi... Gítarleikari getur söðlað um eins og hestaþjófur og bassaleikarar geta strokið djúpgýgjuna af bestu lyst. En söngvarar sem einu sinni hafa gert eitthvað cheap eru brennimerktir af því alla ævi... Ég legg áherslu á að þetta eru einungis mínir þankar og nokkurs konar varnaðarorð til sjálfs mín... Nýja lagið er skemmtilegt og vel unnið hjá okkur... Þrátt fyrir að vera sumarsmellur... Það má segja að nýja lagið sé nokkurs konar Benny Hill sumarsmellanna... - Grátbroslegt :-) Enda er textinn nokkuð sadískur... Bestu Kveðjur, Hr. Muzak [ 7 ] þriðjudagur, september 17, 2002
Daglegt mál...
Steingrímur Sævarr hneykslaðist á eftirfarandi ummælum Sigurgeirs um daginn: "Ég var að passa í gær meðan Signý skellti sér í bíó. Ég verð að segja það að ég var ýkt duglegur. Salný svaf nánast ekki neitt og grenjaði og grenjaði meiri hlutan af tímanum. En ég sýndi það og sannaði að ég get passað dóttur mína einn og óstuddur ef svo ber undir. Takk fyrir takk takk þið megið hætta að klappa." Steingrímur brást hinn versti við og reit: "Alvarleg athugasemd: Faðir barns "passar" ekki barnið sitt þegar móðirin fer í bíó. Faðirinn er með barnið sitt þegar móðirin fer í bíó. Faðirinn er ekki barnapía, pössunarpía eða nokkuð slíkt. Faðirinn er foreldri barnsins og "passar" ekki. Þetta er grafalvarlegt mál í mínum augum og ég þvertek fyrir að mæður hafi eignarhald á börnum sínum og rétti feðrum þau til "pössunar" um stundarsakir. Sigurgeir; gættu þín hvað þetta orðaval varðar." Hér er öngull herra Muzak: Víst geta pabbar passað börnin sín, vegna þess að karlar og konur leggja algerlega ólíka merkingu í orðið "að passa". Konur hafa "passað" börn frá unga aldri fyrir aðra, en ekki karlar. Merking orðsins "að passa" hjá karldýrinu felst í því að ná í lurkinn og planta sér digurmannlega fyrir framan fleti barnsins og þannig "passa" að engin villidýr eða ómenni valdi því skaða. Að passa fyrir konum er því einhvers konar gelgju-smástelpufyrirbæri sem maður gerir af hálfum hug fyrir vini og vandamenn, en að "PASSA" fyrir körlum er að gæta öryggis barnsins síns á meðan hin nærandi móðir er fjarri. Að nota orðið Passa er því mjög heilbrigt og gefur í skyn að karlmaðurinn geri sér grein fyrir því að hann er ekki með brjóst, en þeim mun sterkari upphandleggsvöðva sem geta valdið stórfelldu tjóni á höfuðkúpum rándýra og villimanna. Þetta snýst allt um merkingarfræði en ekki einhvern eignarrétt eða karlrembu. Þannig að strákar: Næst þegar stelpur æsa sig yfir því að þið talið um að passa barnið ykkar, þá vitið þið að þær eru bara að pikka fætíng... Þær væla og væla um reynsluheim kvenna og svo þegar menn tala aðeins út frá reynsluheimi karla á bara að krossfesta þá... Helv... feminista Pjá$ur... með fýlusvip og táfýlu... Í öðrum fréttum... Moonboots eru sumsagt ekki lengur bókaðir til að spila á réttaballi á Ströndum... Helvítis hljómborðadúett frá Ísafirði stakk undan okkur giggið... Kannski bara eins gott... Þá get ég einbeitt mér að vettvangsferðinni í vistfræðinni á laugardaginn... Ég þoli samt ekki þegar maður er búinn að bóka sig einhvers staðar og slær af alla aðra kosti og svo er maður afbókaður og missir þannig 30.000 kall út um gluggann af því að einhver gæi skipti um skoðun... Þetta er hundfúlt út frá því að það er ómögulegt að redda sér giggi með minna en viku fyrirvara... URG... En við sjáumst engu að síður á Vídalín þ. 27 og 28 sept. Bestu Kveðjur, Hr. Muzak [ 6 ] mánudagur, september 16, 2002
Þankatankurinn rúmlega eins árs gamall og bú fokking hú...
Hey... pældíðí, Þankatankurinn varð akkúrat eins árs þ. 11. september síðastliðinn... Var ekkert að velta því fyrir mér fyrr en núna... Ég var að hugsa um að baka fyrir hann pínulitla köku með einu kerti en er að hugsa um að leggja mig í staðinn... :-) En allavegana... 11. september, bú fokkíng hú... þrjúþúsund og eitthvað manns drepast í New York... Voða voða tragedía, auðvitað, en það gerast alveg tragedíur annars staðar í heiminum líka... 3 - 500.000 manns dóu í flóðum í Bangladesh fyrir nokkrum árum... þrjú til fokkíng fimm HUNDRUÐ ÞÚSUND manns, og því hefði verið hægt að afstýra... Sameinuðu þjóðirnar höfðu lofað að byggja flóðahýsi fyrir fólkið á deltusvæðunum en fjárveitingin var klippt af einhverjum djöfuls skriffinnum... 5 - 800.000 manns dóu í einu flóði í Kína á 9. áratugnum... Tragedía líka... Margar milljónir fólks deyja á ári af hungri og í þjóðarmorðum. Allt þetta fólk er jafn saklaust og mikils virði og starfsfólk WTC og farþegar vélanna... Helvítis grenjuvæl og paranoja... Hryðjuverk eru jafngömul manninum, þau verða bara fréttaefni þegar þau gerast fyrir framan nebban á ríka fólkinu. Þá allt í einu verður mannslífið voða dýrt... Það er einskis virði í afríku og asíu... Vegna stríðsins við hryðjuverk náði Dubya, hinn nýji hugrakki leiðtogi hins frjálsa heims, að kría fram aukafjárveitingu til hermála sem ein og sér gæti leyst hungurvanda heimsins í eitt skipti fyrir öll... En í stað þess að ráðast að rót vandans eyðir Dubya langtum meiri pening í að kæfa einkennin... Dæmi um svipaða stöðu má nefna hér á Íslandi. Kvótakerfið er að drepa byggðirnar og þá á að reisa álver til að "kyssa á báttið..." Það er svona eins og að láta trillukall fá nýjan bát sem hriplekur og þegar hann svo fattar lekann úti á sjó og ætlar að fara að sigla í land segir maður: "hey, þetta er allt í lagi, ég er með fötu til að ausa..." aha... fötu með engum helvítis botni... En engu að síður... Hann átti afmæli í hittifyrradag hann átti afmæli í hittifyrradag Hann átti afmæli hann Þankatankur herra Muzaaaak Hann átti afmæli í hittifyrradaaaag... Bestu Kveðjur, Hr. Muzak [ 1 ] sunnudagur, september 15, 2002
Regnbogadögum lokið... Stúdíóupptökum Moonboots að ljúka...
Jæja krakkar... Við Moonboots liðar vorum að stíga út úr stúdíóinu með brilljant stöff undir höndunum... Nú á bara eftir að fínmixa þetta og fá smá lokadóp á harðdiskinn og þá fáið þið að heyra glænýtt stöff frá Ofursveitinni Moonboots... Bestu kveðjur, Herra Svavar [ 1 ] föstudagur, september 13, 2002
Regnbogadagur Hr. Muzak...
Mig langaði bara að hafa smá gay pride í dag... svona eins og sumir halda upp á jólin á skökkum tíma... Það er alltaf tími fyrir smá Gay Pride ekki satt? :-) Maaaahhh... Ég veit ekki hversu lengi ég þoli þessi gayheit... en kannski við höfum þetta bara svona ofur gay í einn eða tvo daga... :) Bestu Kveðjur, Hr. Muzak Mostly straight, and Mostly loving it :) [ 8 ] mánudagur, september 09, 2002
Ókei, kommentaskoðanakönnun...
Jæja, hverjum finnst kominn tími á að Hr. Muzak fari að setja ný lög í tónlistarmöppuna sína og gefa ykkur eitthvað meira en þetta sama sama? Maður ætti nú að fara að rífa sig upp af rassgatinu... Hvað segið þið? [ 9 ] Selfoss, bær óttans...
Selfossferðin rennur seint úr minni Hr. Muzak, eða samferðamanna hans... Þegar við vorum hálfnuð fór að heyrast skrýtið hljóð í eðalSAABinum mínum (sem er 17 ára gamall...) Við gátum ekki snúið við, þannig að við héldum bara ferðinni og spóluðum okkur til Selfoss... Þar féll bíllinn í kóma með ótrúlegum hávaða... Selfosshnakkar gerðu svo grín að okkur fyrir að vera á biluðum bíl... stungu hausunum út um gluggana og göluðu eitthvað selfysskt þvaður og heeeyy, biiilaaðurr bííííllll.... VRÚMM!!! Daginn eftir fórum við Nóni bróðir aftur yfir til Selfoss með læknadót og kaðal og hann sjúkdómsgreindi greyið... Vélarfesting hafði losnað og vélin dottið ofan á framöxulinn... Framöxullinn var vægast sagt í kássu... og í rauninni hin mesta mildi að ekki hafði farið verr... Nema hvað, við drógum SAABinn til kópavogs (taugaveiklaður Muzak stóð bremsuvaktina...) og Nóni Bróðir ætlar að kippa þessu í lag... Gó Nóni... Painting Daisies voru geðveikar... og spiluðu ótrúlega vel... Sviðsframkoman endurspeglaði auðvitað að vissu leyti mætinguna á INGHÓLI.... En Engu að síður var Sviðsframkoman geðveikt kúl. Þær hafa virkilega jákvæðan sviðspresens og svoleiðis. Áfram Daisies... Ég rabba meira um Daisies seinna, með myndum og öllu... :) Bestu Kveðjur, Hr. Muzak [ 1 ] laugardagur, september 07, 2002
Hr. Muzak leggur land undir fót!
Já, dömur mínar og herrar, nú ætla ég að leggja land undir fót. Klukkan Níu ætla ég að keyra til Selfoss til að taka viðtal við gellurnar í Kanadísku Kántrýrokksveitinni Painting Daisies. Síðan ætla ég að fara á ball með þeim og tékka á fílíngnum á Inghóli eða hvar sem þær verða að spila. Hvet ykkur til að nýta ykkur þetta síðasta tækifæri í bili til að sjá þessa margfrægu hljómsveit spila. Þær eru að margra mætra manna sögn, geeeeðveiiikkaaaar!!! Farinn að sjá þær, Hr. Muzak [ 0 ] föstudagur, september 06, 2002
Tvífarar eh???
Manni hefur sosum oft verið líkt við fræga menn... þó eru tveir sem standa upp úr í "Hey-þú-ert-alveg-eins-og-frægi-gaur-X" leiknum... Leikararnir Oliver Platt og Jack Black... Jújú, báðir chubby... ég veit... og með barta... ah... mér finnst gott að vera með barta, það er eins og að vera með lífræn eyrnaskjól... Nema hvað, ég bjó til svona tvífaratöflu fyrir mig...
Það er eins gott að ég fíla þessa tvo gæja alveg í tætlur... annars liði mér ekkert vel að vera spottaður úti á götu sem Oliver Platt eða Jack Black... Bestu Kveðjur, Hr. Muzak [ 6 ] Róleg róleg með samúðarkveðjurnar...
Róleg með samúðarkveðjurnar elskurnar mínar... :D Það er ekki eins og þessi gæi hafi eitthvað verið að dissa mig... :) Hann var bara að skrifa eitthvað í eitthvað skólaverkefni... chillaaaaa chiiilllaaaaa.... tíhíhí... Fólk má ekki taka lífinu svona alvarlega, þá fær það gyllinæð og jafnvel bandorm... það er vont... :) binðer... eða... öhmm.. nei annars... ég meina, vinur minn... eh... frænka hans var með bandorm... eh... :) göða nött Hr. Muzak [ 0 ] miðvikudagur, september 04, 2002
Ekki fyndinn...?
Einhver sjálfskipaður blogggagnrýnandi (öll ný tjáningarform laða að sér gagnrýnendur, þetta er eins og piknikk og skítaflugur) var að tala um að ég væri ekki nógu fyndinn... Fussumsvei! Og svo var þessi LÚÐI að segja að bloggið mitt væri "Skemmtana gildið er kanski ekki alveg það besta ef þú leitar af einhverju fyndnu.Þetta er meira svona ef Ríkið hefur farið illa með þig og atvinnuleisisbæturnar eru ekki alveg að detta inn svo að þú horfir framm á það að ADSL reikningurinn þinn borgist ekki næstu mánaðarmót." HVAÐ MEINARU?!?!?!? Ég er vinnandi maður og dettur ekki í hug að vera á bótum! og svo er ég ekki með ADSL!!! Ég er bara með gömlu druslu 56k línuna mína... uhuhuhuuuuu.... væluvæl... Farðu í rassgat Bloggcritic dauðans... Eiga bloggarar að vera einhverjir brandarakallar?!? Svo er ég líka plentí fyndinn, bara akkúrat núna þarf ég ekki að djóka, vegna þess að líf mitt er djók þessa dagana... Annars gerði ég pínu djók á moonboots.is... Hann er svona: Samkvæmt nýlegri könnun fyrirtækisins Búlag fyrir Aðdáendaklúbb Moonboots kom í ljós að hljómsveitin er elskaðasta hljómsveit Íslands. En þó kom í ljós að við myndum hafa 30% meira fylgi á landsvísu ef Ingibjörg Sólrún tæki Söngvarastöðuna... Hafa menn alls staðar út tónlistarflórunni tekið þessum fréttum á afar ólíkan hátt. "Þeir fóru með okkur eins og skepnur!!!" Sagði Ringo Starr, Trommuleikari Bítlanna heitinna... Viðbrögð Ozzy Osbourne, söngvara og rokkhetju voru eilítið ólík, en hann át, í tilefni fréttanna, drapplitt, útflúrað sófasett frá Viktoríutímabilinu, metið á 20.000 pund hjá Sotheby?s. Flestir liðsmenn Moonboots fögnuðu komu Ingibjargar Sólrúnar í stöðu aðalsöngvara, en ekki náðist í Svavar vegna málsins... ahem... Bestu Kveðjur, Svavar p.s. ókei ókei, ég óverríaktaði aðeins þarna... En ég er húmorískur gæi, ég er enginn öryrkjavæluspaði... (no offense) Pís "forseti..." [ 10 ] þriðjudagur, september 03, 2002
Lesandi forvitnilegan bleðil
Er nú að lesa skýrslu Umhverfisráðuneytisins um sjálfbæra þróun á íslandi (stefnurit...) Lítið sem kemur á óvart þar, en samt skemmtileg innsýn inn í Stóriðjupólítík íslendinga... Hlakka til að segja ykkur meira um þetta... Bestu Kveðjur, Svavar Umhverfisverndarofstækismaður og brjálæðishippi [ 1 ] |
Eva
Örn "Mugison"
Elias Tónlistarmönnum sem gefa tónlist
sína á netinu er velkomið að hafa samband
við Hr. Muzak og þá bæti ég þeim
á listann.
Laukurinn rúlar
Dr. Gunni
| |||