![]() |
Þankatankurinn
|
![]() |
||||
|
Svavar Knútur Kristinsson, Félagsauðströll, heimspekingur, umhverfis-verndarsinni og tónlistarmaður. NÝTT!!!
|
Nýjustu Demó: Ástarsaga úr fjöllunum (Sumarið 2005) Goodbye my lovely (19. júní 2005) Your love was death to me (Janúar 2005) Call off your Cavalry (September 2004) You should call a doctor (Maí 2004) Kysstu tímaglasið (endurbætt útgáfa 2004) Mother's day Jólaplata Hrauns 2003: Þrautgóðir á Hraunarstund Jólaplata Hrauns 2005: Höldum jól Jólaplata Hrauns 2006: Jólamolar |
fimmtudagur, október 31, 2002
Hahaha voða fyndið...
Var að horfa á myndina 40 days and 40 nights. Bjóst nú ekki við miklu, bjóst við að hlæja voða mikið að heimskulegri mynd... En ég bjóst ekki við að verða hálf sjokkeraður af því að horfa á hana. Sú heimsmynd sem blasir við manni þegar maður horfir á þetta myndskrípi er sorgleg og í raun hræðileg. Konur sem einhvers konar beiða tarantúlumannætur og karlar sem einhvers konar ríðivélar. Varúð, Spoiler! Síðan þegar gæjanum er fokkíng NAUÐGAÐ af fyrrverandi kærustu sinni (a-la Eldborg) er aðal svekkelsið hans að hún skyldi vera að eyðileggja fyrir honum eitthvað voða plan. Hann varð sumsagt ekki hið minnsta úrillur yfir þeirri staðreynd að hún misnotaði líkama hans og beitti hann kynferðislegu ofbeldi... Engin eftirmál urðu af nauðguninni og hún varð bara kómískt kirsuber á þessa yndælu gamanmynd... Maður spyr sig hvers konar skilaboð þessi mynd er að senda út í heiminn, rétt þegar fólk er að byrja að viðurkenna möguleikann á því að kona geti nauðgað karlmanni kemur eitthvað svona "Bókmenntaverk" og segir við ungar stúlkur og drengi úti um gervallan vídeóvæddan vestrænan heim: "Hey, stelpur, það er ókei að taka gaurinn þegar hann er sofandi svo lengi sem hann er graður. Hann verður bara þakklátur, nema hann sé að reyna að ganga í augun á annarri stelpu, en þá er þetta bara allt í lagi." Og það besta var að honum var gert að biðjast afsökunar á því að hafa verið nauðgað. Stúlkan kennir honum um og hann er eyðilagður yfir því að hafa klúðrað málunum. Klassísk nauðgunarsena, meira að segja er nauðgunin aðgerð sem á sér rætur í valdaþörf viðkomandi einstaklings, og það virðist ekki einu sinni sem framleiðendur myndarinnar hafi á nokkurn hátt gert sér grein fyrir því... Bara haha voða fyndið, hún að nota hann... hahaha... Ég veit ekki... Ég myndi vilja heyra hvað Stígamót hefðu að segja ef gerð væri mynd um gellu sem fastaði kynferðislega í 10 ár (u.þ.b. rétt hlutfallslega) og síðan á síðasta deginum kæmi einhver gæji og nauðgaði henni á meðan hún svæfi og væri voða "winner". Það er víst ekki sama jón eða píkujón þegar kemur að kynferðislegu ofbeldi... Og í guðanna bænum ef fólk ætlar að rökræða þetta, ekki koma með "En nauðganir kvenna á körlum eru einungis 2% tilkynntra nauðgana" rökin. Þau eru hallærislegustu mótrök heims. Það er eins og að segja að nauðgun sé ekki glæpur vegna þess að einungis 2% af tilkynntum glæpum séu nauðganir. Bestu Kveðjur, Hr. Muzak Viðbætur: Eftir að hafa lesið umsagnir um myndina á imdb.com er ég ánægður að sjá að nokkrir hafa lagt inn umsagnir um þessa senu sem mér þykir vægast sagt viðbjóðsleg. [ 2 ] miðvikudagur, október 30, 2002
YAAAAYYYYY YAYAYAYAYAYAYA
JIBBÍ KÓLAAAAA!!!! Svabbi er kominn með u.þ.b. 512Kb tengingu við internetið fyrir einungis 3900 kr. á mánuði!!! YIIIIHAAAA!!! Fekk jú síminn internet (256Kb tenging = > 6000 kall og tekur tíu daga að fá það) Fekk jú lína net (256Kb tenging = > 6000 kall og tekur tíu daga að fá það) Fekk jú orkuveita(256Kb tenging = > 6000 kall og tekur tíu daga að fá það) Fekk jú Íslandssími (256Kb tenging = > 5000 kall og tekur tíu daga að fá það) Húrra fyrir eMax!!! (og Hallgrímskirkjuturni) (>512 Kb tenging= <4000 kall!!!) Það besta er að gæjarnir komu í morgun, settu upp loftnet og nú er ég farinn að sörfa eins og mófó, einum og hálfum klukkutíma eftir að þeir hringdu bjöllunni!!! Töff! Húrra fyrir Örbylgjuloftnetinu á strompnum mínum!!! JIBBÍ!!! Loksins! Loksins! Loksins! Hr. Muzak er orðinn netverji 4real! Sítenging ástarinnar fyrir einungis 3900 kall á mánuði!!! aaaahhh.... Hr. Muzak [ 5 ] Það kvikna skrýtnar kenndir...
Þegar ég fatta þetta... WHAT THE FUCK!?!?!? :-) ... chubby gay??? Hr. Muzak [ 3 ] Getraun næturinnar...
Getraun næturinnar er tvíþætt... Úr hvaða 80's lagi er þessi texti: Telegram force and ready I knew this was a big mistake There's a fine line holding my senses together and I think it's about to break... ???? Og úr hvaða 80's teiknimyndasögu er þetta kvót... Kóngur: Enginn okkar manna má fara inn í þennan galdraskóg! Hinn gaurinn: Já, galdraskógur. En þetta er ekki mitt verk. Svo snjall hef ég þó aldrei verið! Ógnaróp: YIIII! AIEEE! ????? Bestu Kveðjur, Lati bloggarinn Svabbi [ 3 ] sunnudagur, október 27, 2002
Still Kreeiisí
Mikið að gera og samt svakaleg leti í manni. Búinn að vera kvefaður í þrjár vikur og lungun vinnandi á 40% afköstum. Ég varð alveg lafmóður af því að beygja mig eftir gítarnum í gær. Moonboots munu spila á Gauk á stöng þ. 02. Nóvember næstkomandi og við hlökkum gríðarlega til. Það verður hörku helgi... Úff... Hlakka til að láta mér batna og fara að taka virkari þátt í heimsins amstri. Bestu Kveðjur, Hr. Muzak [ 0 ] fimmtudagur, október 24, 2002
KREEIISÍÍÍ!!!
Ég er alveg kreisí þessa dagana... Allt á brjálaðri fart og ég vildi óska að sólarhringurinn væri svona 34 tímar... úff... hvað maður gæfi ekki fyrir svona tímastrekkjara... Svabbi [ 11 ] Orðræða...
Mér finnst alltaf svolítið bjánalegt þegar fólk talar um tilfinningar annars fólks og hluti sem skipta fólk máli af fullkomnu virðingarleysi. Falun Gong í hungurverkfalli í París, Davíð Oddsson segir: ÉG skil ekkert ákkuru þetta fólk er að sleppa því að borða, og það í landi góðrar matargerðarlystar. höhöhö... (kannski skiljanlegt, Davíð hefur aldrei haft hugsjón sem ekki hefur átt sér verð...) Mengi íslenskra umhverfisverndarsinna: "listamannapakk", "helvítis vitleysingar" , "vælukjóar", "heimskingjar", "umhverfishippar", "fámennur hópur af listafíflum og menningaróvitum", "Hryðjuverkamenn". Íslensk náttúra: "Drullusvað uppi á fjöllum", "Einskis Virði", " Hungurverkfall manneskju til að mótmæla því sem hún telur vera óréttmætar aðgerðir stjórnvalda: "Kerlingarbeygla að svelta sig", "Megrunarkúr" Mér sýnist skorta vissa virðingu fyrir tilfinningum fólks hér... Ef tilfinningar eru ekki mælikvarði á neitt og tilfinningarök eru einskis virði, er þá hægt að taka fjölskyldu mína af lífi, rétta mér fimmhundruðkall og segja að ég sé að fá óendanlega meiri verðmæti í staðinn? Skamma mig síðan fyrir að vera vælukjóa? Ég held að sumir ættu að velta því fyrir sér hvort það sem þeir skrifa sé einungis ætlað til að lúkka voða flottir og hipp og kúl... Mér finnst persónulega þetta mikaeltorfasonaríska tískutal eins og ekkert skipti máli og allt sé svo voða voða röff bara bera vott um óöryggi um eigin ágæti. N.B. mér finnst allt í lagi að tala svona um stjórnmálamenn, vegna þess að þeir eru hórur og ómenni upp til hópa... ;-) Ég fullvissa viðkomandi um að það er alveg prýðilegt fólk og þarf ekkert að bæta upp með því að gera lítið úr tilfinningum annarra og "akta kúl..." Hr. Búzak... p.s. svo vil ég bóka viðbjóð minn á því að vissir íslenskir fjölmiðlar skulu ekki hafa getað látið einstaklinginn sem var í yfirheyrslu ónafngreindan á meðan á rannsókninni stóð. Hórur og hælbítar. p.p.s. Hefur engum dottið í hug að íslensk stjórnvöld, og stjórnvöld yfirhöfuð, þola ekki sjálfsgagnrýni. Það er okkar hlutverk að gagnrýna þau. Íslenskir stjórnmálamenn myndu aldrei lýsa báðum hliðum nokkurs hlutar. Þau beita öllum sínum völdum (fjölmiðlum, fjármagni, styrkveitingum, uppákomum) til þess að sannfæra okkur um réttmæti aðgerða sinna og sjálf sig um leið. Ég spyr fólkið sem er ekki alveg sjúr ennþá: Hafið þið virkilega engar efasemdir um heilindi íslenskra stjórnvalda eftir 12 ára valdatíma? Hafa virkilega allar ákvarðanir íslenskra stjórnvalda (t.d. Falun Gong, reynum-að-troða-fljótsdalsvirkjun-í-gegn-áður-en-við-neyðumst-til-að-senda-hana-í-umhverfismat, flugslysaskýrslan, pappalöggurnar, ómannúðleg meðferð á flóttafólki, öryrkjadómurinn og eftirfylgni hans, launaóréttlæti, kvótakerfið, eyðilegging smábátaútgerðar, skipuleg eyðing lítilla byggða á landsbyggðinni) verið réttmætar og fullkomnlega réttlætanlegar eins og íslensk stjórnvöld vilja meina? Er það? Ef ekki, hvers vegna þá ekki að efast örlítið? Er fólk virkilega ekki farið að sjá í gegnum orðræðu sjálfstæðismanna? [ 3 ] miðvikudagur, október 23, 2002
helvítis flensa...
Nú er ég búinn að vera lasinn í tvær og hálfa viku... slím út um nef og munn og fast uppi í ennisholum. Þrek mitt er í sögulegu lágmarki og ég get ekki vaknað fyrr en á hádegi. Þessi flensa virkar eins og versta þunglyndi á mig. öööööhhh.... Svo er maður að reyna að vinna verkefni í skólanum og er eins og draugur... Djöbulsins... Bestu Kveðjur, Hr. Muzak Sjúklingur... Öryrki... Ónytjungur... [ 2 ] mánudagur, október 21, 2002
Sérfræðingurinn tjáir sig...
Sannleikurinn er lentur á Íslandi. Davíð Oddsson þarf ekki að hræðast neitt lengur. ESB er búið að náða aðgerðir hans gegn Falun Gong og íslenskum mótmælendum í sumar. Einhver lögfræðikelling kom til Íslands og sagði fjölmiðlum hreinan og beinan sannleikann. Það er ekki góð gestrisni að bjóða erlendum þjóðhöfðingja til landsins og bjóða um leið "óvininum." Óvinurinn í þessu tilfelli verandi hugleiðslusöfnuður í gulum peysum og í rauninni allir gulir og gulklæddir menn í 500 m. radíus frá greyið manninum. Nei, það er alveg á hreinu að Davíð var í fullum rétti að banna "óvininum" að koma til landsins til að halda sínu fram. Það er nú einu sinni í þágu lýðræðisins að kæfa skoðanaskipti og umræður. Þetta fólk getur bara komið á öðrum tíma. Einmitt... Ég verð svo reiður þegar ég heyri svona búllsjitt! Það er greinilegt að þessi kona er alin upp í vernduðu umhverfi og vinnur á vernduðum vinnustað. Hún hefur örugglega aldrei orðið vitni að óréttlæti á ævinni og aldrei langað til að tala um það... Belja... Og Davíð Oddsson getur farið og grillað á sér punginn fyrir mér... Bestu Kveðjur, Hr. Muzak [ 5 ] laugardagur, október 19, 2002
Það hlaut að koma að því...
Ég hafði nú aldrei talið hana neitt sérstaklega netvædda konu, en mamma mín leit við á þessari síðu núna nýlega... :) Hún hefur væntanlega lesið eitthvað af síðustu færslum og gapað ponsu. Ég hitti hana í kvöld og hún sagði... "Þú þarna blogg kóngur... Þú ert nú einu sinni sonur móður þinnar..." (Nú varð ég hræddur... hélt að hún ætlaði að hella sér yfir fullyrðingar mínar um laun hennar, sem eru ekki beinlínis forstjóralaun...) en... Mamma kemur alltaf á óvart: "Kennarabarn! Hvernig geturðu ætlast til þess að fólk taki þig trúverðugan með svona haug af stafsetningarvillum á síðunni þinni?!?!? Og svo áttu að heita heimspekingur!!!" Mér leið eins og sjöttabekkingi... :-) Svo hló hún, en minnti mig ennfremur stranglega á það að stafsetning mín á netinu væri alls ekki til fyrirmyndar. <Varúð, Kafteinn tilfinningasamur lætur móðan mása> Híhíhí Vitiði? Ég elska mömmu mína. Hún skammar mig svo sætt. Hún er einn besti kennari í heimi, þó víðar væri leitað. Og hún ætti fyrir löngu að vera orðinn skólastjóri... En hún er víst þjáð af sjúkdómi sem heitir Köllun... Hreinn hryllingur, þessi köllun... ;-) Mamma... ef þú einhvern tímann fyrir tilviljun hoppar aftur inn á netið, þá langar mig að setja hérna niður ástarkveðju... og svona rétt í tilefni árstímans... Þú veist hvað ég á við...
</Varúð, Kafteinn tilfinningasamur lætur móðan mása> Krakkar... Ég bið ykkur innilega og fallega um að leyfa þessari færslu að vera það sem hún er. Vefdagbókarfærsla um líf mitt og tilfinningar akkúrat núna... Ekki gera grín að þessu... Jósi, þetta gildir tvöfalt fyrir þig... Bestu Kveðjur, Svavar Knútur [ 4 ] föstudagur, október 18, 2002
Leiðréttum lítinn misskilning
Nú verð ég aðeins að leiðrétta tvo leiða misskilninga sem virðast hafa sprottið upp sökum nýlegrar færslu minnar um "Góðærisstéttirnar". Misskilningur 1: Ágætir menn vilja meina að ég hafi þarna verið að tortryggja eða láta í ljósi fordóma gagnvart stéttunum sem slíkum, að ég hafi viljað meina að forritarar og viðskiptafræðingar væru á einhvern hátt loddarar og ættu ekki skilið sín laun. Ekkert gæti verið fjarri sanni! Ég var ekki einu sinni nálægt því að tala um að laun tölvumanna væru of há eða neitt svoleiðis, það veit ég ekkert um. Vinnuveitendur verða að sjá hvað þeir treysta sér að borga mönnum til að vera öruggir um að græða sjálfir á öllu saman líka. Hins vegar var ég að gagnrýna innflæði fólks inn í stéttina sem hefur ekkert að gera þangað til að byrja með. Við skulum búa til litla líkingu. Svavar segir: Meðal íslenskra sauðkinda leiðast úlfar í sauðagæru, og úlfarnir eru orðnir þó nokkuð margir. Grandalaus gagnrýnandi svarar: Svavar, þú ert á móti sauðkindum og segir síðan sjálfur að fólk hafi fordóma gagnvart þinni stétt! Við þennan grandalausa gagnrýnanda segi ég: Ég er ekki að gagnrýna Sauðkindina, ég er að gagnrýna úlfana sem hoppa um borð í hópinn í von um æti og framleiða enga raunverulega ull heldur rýra tekjumöguleika sauðabóndans. Ég hef samúð með Sauðkindunum. Misskilningur 2: Maður sem hefur gert eitthvað rangt einhvern tímann getur ekki gagnrýnt neitt. Heimspekingurinn heldur að af því að hann sé heimspekingur viti hann allt. Hinn Grandalausi gagnrýnandi hefur mikla ánægju af því að reyna að sýna mér fram á villu míns vegar, að heimspekingurinn Svavar sé nú ekki fullkominn. Er það sosum ágætis málstaður fyrir hobbýkrítíkera sem hafa ekkert betra að gera. Það verður hins vegar ekki gert með því að svara meintum rökvillum mínum með öðrum rökvillum. Auk þess hefi ég aldrei haldið fram fullkomnleika mínum eða alvitru, síður en svo. Það að gera grín að andúð minni á neyslusamfélaginu með því að vísa til pítsukaupa minna á menntaskólaárunum í því skyni að gera mig tortryggilegan á því sviði er vægast sagt rauð síld. Maður sem hefur ekið hratt getur alveg gert sér grein fyrir hættum hraðaksturs. Maður sem hefur gert slæma hluti getur vel talað illa um vonda breytni. Breyskleiki mannsins er engin ástæða til að útmála hann sem lakari rökræðuaðila eða að rýra málstað hans. Þá væru allir menn ógildir talsmenn utan nokkurra brjálæðinga og ofsatrúarmanna. Persónulega þykir mér maður sem aldrei hefur komið nálægt vatni lélegur dómari um gæði þess eða eiginleika. Ég er ófullkominn maður, en ófullkomnir menn geta vel borið skynbragð á hluti sem þeim finnst fara miður. Innrás peningaeltingaleiksfólksins inn í þær stéttir sem hafa vaxið í góðærinu hefur komið verst niður á greinunum sjálfum. Tölvufyrirtæki fara á hausinn vegna launagjalda sem einungis 20% af fara í að borga fyrir raunverulega vinnu. Það er eins og að borga 100 krónur fyrir einingu hráefnis, 1000 kr. fyrir vinnslu einingarinnar og selja síðan vöruna á 350 kr./stk. Í blindri leit að rökvillum í máli mínu má ekki missa sjónar á hinu raunverulega efni, sem er: Þetta fólk er allt á röngum stað í lífinu. Það gæti verið að gera eitthvað allt annað, eitthvað sem hjarta þess og hugur stefna til, en þau blinduðust af voninni um öryggi í skjóli peninga. Allt sprettur þetta úr firringu nútímans og endalausri áherslu á innantóm og yfirborðskennd markmið. Fólk á ekki að vera feimið við að læra það sem það vill og elta draumana, en allt of margir eru að fara í eitthvað nám sem þeir halda að þeir muni græða á, en endar á því að fólk verða atvinnulaust (eða jafnvel verra, óhamingjusamt) af því að þetta á hreinlega ekki við það. Niðurstaða - Bottom Line: Fólk á að læra og stunda það sem hugur þeirra og hjarta stefnir til, en ekki eitthvað sem er í tísku og virðist gefa peninga. Peningar koma í hendurnar á þeim sem vinna sína vinnu af alúð og áhuga og hafa hæfileika til sinnar iðnar, hver sem hún kann að vera. Í guðanna bænum ekki hlaupa í vörn strax og einhver talar ekki um tölvumenn og viðskiptafræðinga eins og þeir væru hálfguðir. Svo var ég ekki einu sinni að tala um tölvumenn, ég var að tala um fólkið sem eltir peningaþefinn í stað þess að fylgja hjartanu. Bestu Kveðjur, Hr. Muzak [ 0 ] fimmtudagur, október 17, 2002
Aaaahhh.... :)
Var að klára að skrifa ágætis grein sem ég sendi í Morgunblaðið. Vona að þeir birti hana einhvern tíma fyrir jól... Annars er ég óttalega andlaus og kvíði því pínu að vakna eldsnemma í fyrramálið og mæta í skólann... Mér þykir of gott að sofa út... :-) Ef ég hefði ekki svona gaman að vistfræði væri ég örugglega á leiðinni að sofa út á morgun. (svo náttúrulega getur maður ekki látið dótturina sjá sig endalaust liggjandi í rúminu á meðan hún drattast í skólann á hverjum morgni...) :-) Vitið þið, ég hlakka geðveikt til að verða umhverfisfræðingur og fara að vinna í hlutum sem skipta heiminn máli, eins og að fræða ungt fólk um frelsi og ábyrgð og umhverfismál og vinna að eftirlits- og mótvægisaðgerðum gegn náttúruhamförum og öðrum umhverfishættum. :-) Ég hef nebbnilega orðið var við það að almenningur virðist ekki hafa hugmynd um hvað umhverfisfræðin snýst um. Fólk spyr mann gjarnan, "Svo, ertu að fara að bjarga Kárahnjúkum??? hnjö hnjö hnjö hnjö..." sem er kannski ekki svo fjarri lagi, en fræðin eru mun margslungnari og flóknari en það. Þegar maður lærir einhver fræði lærir maður að bera virðingu fyrir viðfanginu. Stærðfræðingurinn ber virðingu fyrir stærðfræðinni. Líffræðingurinn er heillaður af lífheiminum. Umhverfisfræðingurinn gerir sér grein fyrir mikilvægi heilbrigðra vistkerfa og heilnæms umhverfis manns og náttúru auk þess sem hann fyllist meðvitund um ýmsa þætti sem gjarnan gleymast. Fólk þarf að átta sig á að það eru ekki allir umhverfissinnar umhverfisfræðingar, en langflestir umhverfisfræðingar verða umhverfisverndarsinnar vegna virðingar fyrir viðfangsefni sínu og innsýnar inn í það. skiljiði? Bestu Kveðjur, Svavar [ 15 ] miðvikudagur, október 16, 2002
Af hverju eru "góðærisstéttirnar" með svona há laun?
Stundum þegar ég á í samræðum við vissa aðila slær það mig sem blaut tuska í andlitið að þessir aðilar trúa því virkilega að vegna þess að þeir völdu lögfræði/viðskiptafræði/tölvunarfræði/verkfræði/$insert name of góðærisfræði here$ eigi þeir sjálfkrafa skilið hærri laun en aðrir launþegar og þátttakendur í atvinnulífinu. Síðast þegar ég tékkaði áttu laun að endurspegla verðmæti framlags starfsmanns til síns vinnuveitanda. Ég sé ekki að þau verðmæti sem þorri íslenskra tölvunarfræðinga framkvæmir endurspegli eitt né neitt sem á nokkurn hátt réttlætir það að bólugrafinn rúmlega tvítugur vitleysingur sem er varla kominn úr mútum og hangir á netinu 75% hvers vinnudags og hakkar síðan eitthvað taðmoð sem hann kallar kóða á 15% tímans fái greidd laun sem eru þrefalt hærri en meðal Subway starfsmanns og tvöfalt hærri en kennara með 30 ára starfsreynslu. Laun þorra þessa fólks endurspegla ekki verðmæti vinnu þeirra. Síður en svo. Ég hef nokkra innsýn inn í þennan bransa, hafandi unnið innan tölvugeirans á "gullöldinni". Mér sýnist sem svo að launaskriðið sem varð hjá viðskiptafræðingum og tölvunördum hafi orðið til vegna offramboðs fjárfestafjármagns sem síðan olli því að fyrirtækin yfirbuðu hvert annað í gríð og erg til að ná í starfskrafta sem voru gersneyddir allri vinnuveitendatryggð og hentust milli staða á 3ja mánaða fresti. Allt til þess að reyna að búa til eitthvað pródúkt til að sýna fram á árangur gagnvart fjárfestum. Þessi öru skipti manna um vinnu ollu því síðan að ekkert nothæft kom út um fingur þeirra, tíminn sem þeir eyddu hjá fyrirtækjum var í mesta lagi aðlögunartími. Hefð grunnhyggins fólks er að meta eigið verðmæti út frá tölu á launatékka. Því virðist sá ávani ríkur meðal fólks í upplýsingatæknigeiranum að telja sjálfa sig þrisvar sinnum merkilegri einstaklinga og samfélagsþegna en t.d. kennara og ruslakalla. (Sem skila þó margfalt meiri verðmætum inn í samfélagið) Allt út af launaskriði sem orsakaðist af hópbrjálæði fjárfesta með gull í augunum. (internet gold fever...) Af því leiðir síðan að nú sitja á bótum hundruð vitleysinga sem fóru í góðærisgreinarnar með hugsuninni "Maður fær víst góð laun þar..." og vita í raun ekkert um þessa hluti, hafa enga hæfileika til starfans og liði örugglega mun betur í trésmíði, kokknum eða fatasaum (sem er síst ómerkilegri starfi, þar er þó allavegana verið að gera eitthvað af viti). Þessir einstaklingar fá ekki vinnu vegna þess að þeir sætta sig ekki við neitt undir 300.000 kalli á mánuði í byrjunarlaun og halda að þeir séu heitasti skíturinn í bænum. HAHAHAHAHA!!! Hvenær lærir fólk að hætta að hlusta á afa og ömmu og pabba og mömmu og fara bara að læra það sem hugur þess stefnir á, algerlega óháð tekjuvæntingum kaldastríðsþenkjandi fornaldarforeldra. Ef þú lærir eitthvað sem þú hefur brennandi áhuga á, þarftu aldrei að hafa áhyggjur af atvinnuleysi eða tekjuskorti. Önnur sjúkleg afsökun fyrir svona svimandi háum tekjum tölvu-viðskipta-lögfræðiblablabla útskrifaðra er sú að þetta sé svo leiðinleg vinna að það verði að borga þeim sem fást í það hærri laun. Minnir mig nú bara á svínin í Animal Farm sem átu öll eplin og drukku alla mjólkina af því að þeirra vinna væri svo voðalega erfið. EF ÞÉR FINNST VINNAN ÞÍN LEIÐINLEG, ÞÁ ÁTTU EKKI AÐ VINNA HANA. OG ÞÁ ÁTTU SKO SÍST AF ÖLLU AÐ BIÐJA HEIMINN UM AÐ VORKENNA ÞÉR SVO MIKIÐ AÐ ÞÚ EIGIR RÉTT Á EITTHVAÐ MEIRI LAUNUM. HÆTTU BARA!!! Það er nóg af fólki til sem hefur brennandi áhuga á viðskiptum, lögfræði og tölvunarfræði. Það er engin þörf á fólki sem er bara þarna til að láta sér leiðast og pikka upp launaseðilinn. Er fólk virkilega tilbúið til þess að eyða 8-16 tímum á dag í að láta sér leiðast bara til að geta átt flottari DVD spilara og aðeins meira bensínsvelgjandi jeppa en Jói við hliðina? Á þá kannski að refsa fólki sem hefur gaman að vinnu sinni með því að lækka launin þeirra? Þá myndu laun alvöru ástríðufullra hardcore forritara og góðra viðskiptafræðinga lækka. Og fólk sem ynni á leikskóla þvert á sína drauma gæti krafist hærri launa af því að því leiddist að vinna með börnum. Get a Life Hr. Muzak [ 16 ] þriðjudagur, október 15, 2002
Íslendingar og einfaldar lausnir
Rekum Atla! Lifum á Stóriðju! Bönnum allt klám! Grunnskólarnir eiga að ala börnin okkar upp! Alla í Viðskiptafræði - Lögfræði - Verkfræði - Tölvunarfræði! Aðrir eru aumingjar og listamenn í 101! Kjósum Sjálfstæðisflokkinn! Peningar eru mælikvarði alls! Bönnum fólki að hafa skoðanir sem gera Dabba og vini hans fúla! Látum ríkið og stórfyrirtækin um að hugsa fyrir okkur! Sleppum öllu einstaklingsframtaki! Til hvers háskóla? Einföldum! Bestu Kveðjur, Hr. Muzak [ 8 ] Djöfulsins drasltíví...
Hvað eru skjáreinn og popptíví að pæla? Það eru sömu myndböndin að rúlla báðum megin hjá þeim, alltaf sama R&B draslið. Það er eins og það sé enginn þarna í vinnu við það að viðhalda neinni gráðu af ferskleika. Ef maturinn sem ég neytti daglega væri jafn úldinn og myndböndin sem þetta drasl er að selja auglýsingar með þá væri ég löngu dauður úr Salmonellu. Fokkíng pé diddi og mörder ínk gelgjupoppdrasl sem enginn fílar nema unglingurinn sofandi... Kommon... Gefið mér eitthvað almennilegt að zona út á aumingjarnir ykkar. Er virkilega ekkert skemmtilegra að gerast í tónlist dagsins í dag en múlattar með minnimáttarkennd og reður/brjóstakomplexa eða backstreetboys paunksins, Papa Roach og þessa ógeðslegu Crazytown eða hina viðurstyggilega klisjukenndu og leiðinlegu Linkind park? GLAAATAAAAÐ!!! Gefið mér righteous niggaz eins og Isaac Hayes eða kántrýdólga eða eitthvað eitthvað annað en þessa barnarásarmússík sem dugar varla til að púlla inn pampersauglýsingar... Gefið mér eitthvað almennilegt. Það er nóg af flottu stöffi að gerast í tónlistarlífinu í dag. Þið eruð bara ekki að sýna það... Bestu Kveðjur, Hr. Muzak [ 0 ] mánudagur, október 14, 2002
að pakka saman eða ekki pakka saman...
Tómas Pottverji Vill meina að Eggert Skúlason hafi "pakkað Kolbrúnu Halldórs saman" í Silfri Egils í gær. Ég er nú enginn súperaðdáandi Kolbrúnar (sérstaklega ekki í klámmálum) en ég verð nú að segja að ef Tómas telur ómálefnaleg öskurapalæti og ósanngjarnar samlíkingar við ofbeldismenn og hryðjuverkamenn vera einhvers konar rökræðusigur, þá veit ég nú ekki alveg hvað mér á að finnast. Mér fannst Eggert allt í lagi þangað til hann fór að baula yfir umhverfisverndarsinna, sem hann setti alla undir einn hatt, eins og allir góðir efnishyggjumenn. Þetta baul var ómálefnalegt og innantómt og ekki til þess fallið að byggja upp málefnalega umræðu. Hann talaði um umhverfisverndarsinna eins og ofbeldisfólk. Mér sýnist nú ofbeldið aðallega koma frá ríkisvaldinu og auðvaldinu á þessum nótum. Mótmæli verða að fá að sjást í fjölmiðlunum. Þetta var bara sorgleg sjón að sjá Eggert gera sig að hálfgerðum trúði með svona lélegri retórík. BAH! Ég er nú samt viss um að Tómasi fannst hann bara pakka Kolbrúnu saman af því að honum er (eins og öðrum sönnum íslenskum karlmönnum...) meinilla við alla svona "sjálfskipaða" umhverfisverndarsinna. (Enda er ekkert varið í hluti sem maður getur ekki grætt pening á.) En að öllu gríni slepptu... Tómas er ágætur... :-) Bannað að dissa góða menn... Bestu kveðjur, Hr. Muzak [ 5 ] Rólegir nú kæru vitleysingar...
Ég vil beina eftirfarandi til fótboltabulla Íslands að beina þessari ófókuseruðu reiði sinni sem þeir treystu sér ekki til að skilja eftir annað hvort á vellinum eða á kommentakerfinu mínu sem er mjög einfalt í notkun: (þ.e.a.s. þessu fólki sem sagðist vilja misþyrma þessum og hinum líkamshlutum á mér fyrir það að hafa ekki áhuga á íþróttum en engu að síður að gagnrýna áhorfendurna...) Kæru fótboltavitleysingar, Notið þessa ótrúlegu orku ykkar til að búa til eitthvað team spirit fyrir næsta landsleik, lærið af Skotunum. Annars verðið þið alveg jafn miklir lúserar næst þegar einhverjir útlendingar koma hingað og rústa landsliðinu okkar hvaða þjálfari sem er að þjálfa það... Lærið þjóðlög eða annan þjóðrembuhvetjandi kveðskap til að syngja. Til dæmis væri geðveikt að heyra Ísland Farsælda Frón eða Hver á sér fegra föðurland ofan úr stúkunni sungið í brjálæðislegum rómi trylltra áhorfenda sem virkuðu sem einn risastór hnefi stuðnings. Hættið þessu bansetta "Ááááfram Ís-land huhuhuhuhu" og "Ís-land huhuhu". Það virkar ekki og það hljómar veiklulega þegar menn fara að deyja út í því. Lög og söngvar hafa upphaf og endi. Þá vantar bara forsöngvara... Skipuleggið fastan og þéttan stuðningsliðskjarna. Það er örugglega hægt að fá einhver djöfulsins fjárframlög frá einhverri bansettri klíkunefnd hjá ríkinu... Ekki líta á fótboltann sem skemmtun, lítið á hann sem bardaga og ykkur sem fólkið sem er að styðja annan bardagamanninn. Skemmtun er fyrir fólkið fyrir framan sjónvarpið... Ekki vera reið við mig, notið reiðina ykkar til að búa til almennilegt stuðningslið. Þá förum við kannski að sjá hvað býr í strákunum okkar. (sem eru by the way hópur af ofdekruðum og ofmetnum stuttbuxnastrákum.) Bestu Kveðjur, Hr. Muzak [ 6 ] laugardagur, október 12, 2002
Atli vanhæfur? Nei, Hr. Muzak á svarið...
Bloggheimur er yfirfullur af bulli um það að Atli Eðvarðs sé vanhæfur til þjálfunar fyrir íslenska landsliðið. Bullshit... Atli er örugglega fínn þjálfari, ekkert að honum. Menn eru aðallega fúlir af því að þessir gæjar gerðu jafntefli við Færeyinga og þess vegna lítum við illa út miðað við þá... Ég hef engan áhuga á fótbolta, en ég veit ýmislegt um hópefli og samkennd. Tvennt get ég sagt ykkur. 1. Skoska liðið var mjög sterkt og gott og þeir voru afar fljótir að "bánsa til baka" og virkuðu vel sem liðsheild. Íslenska liðið spilaði einnig ágætlega, en eitt var að... og hvað var það? svarið kemur í punkti númer 2. 2. Íslenskir áhorfendur voru 8000 og skoskir u.þ.b. 2000 (gróflega áætlað) en Skotarnir voru margfalt háværari og betri áhorfendur. akkuru? Íslensku áhorfendurnir sátu eins og lúðar í sínum sætum og hrópuðu stöku sinnum áfram Ísland búbú búbú bú og trommur og eitthvað eins og á handboltaleik. vúfokkínghú... Skotarnir voru algerir moðerfokkerar, sungu þjóðlög og baráttusöngva og létu öllum illum látum og yfirgnæfðu íslenska áhorfendur algerlega. ALGERLEGA! Og þegar loksins íslensku áhorfendurnir ætluðu að láta í sér heyra, þá sungu þeir "hey hey beibí. úh ah, ævonnanóóóó iffjúbímægörl..." Það náði að gera sorglega lélega frammistöðu rúmlega brjóstumkennanlega... Engin skírskotun í íslenska baráttu eða þrek eða þjóðernishyggju, engin skírskotun í fótbolta eða dug eða hetjuskap, bara djammsöngur frá Þýskalandi... Íslendingar þurfa alvarlega að læra að vera almennilegir áhorfendur. Mér leiðist íþróttir, ég mæti ekki á svona íþróttakjaftæði, en mér finnst að þeir sem á annað borð eru slíkir fanatíkerar að eyða mörgþúsundkrónum í að sjá ofvaxna krakka elta bolta ættu að sjá sinn sóma í því að drulla sér til þess að standa sig fyrir sitt lið, ekki sitja bara eins og hlussur og hrópa af hálfum hug, ísland huhuhu ísland huhuhu... Maður fann orkuna sem Skotarnir bjuggu til, í gegnum vírana í sjónvarpinu og rafeindirnar sem báru útsendinguna alla leið frá Laugardalnum upp í Efstaleyti og þaðan niður í Múlastöð og þaðan og upp í Drápuhlíð (löng og bjánaleg leið, en hún var farin nálægt ljóshraða þannig að það er kúl...) Þessi leikur var unninn af áhorfendunum, engum öðrum. Það var spirit í skotunum, en það var ekkert í gangi í Íslendingunum. Ég veit hvernig það er að spila fyrir slappt krád... Moonboots hafa alveg átt böll þar sem 17 ára stelpur koma upp að sviðinu og biðja mann um að spila eitthvað sem allir kunna, (þá spyr ég gjarnan hvort prógrammið úr Stundinni okkar sé ekki full barnalegt fyrir ball...) Ég þekki lélegt krád þegar ég sé það (og heyri). Hálfkæringslegt, ósannfærandi og slappt. Íslenskir áhorfendur eru einfaldlega lélegir áhorfendur, svo einfalt er það... Gangi ykkur betur að virkja landsliðið ykkar næst áhorfendur góðir, Ég ætla að halda áfram að vera laugardagssófakartafla... Hr. Muzak [ 10 ] föstudagur, október 11, 2002
YARGH!!!
Kláraði að rita niður viðtalið í nótt... var að vakna... Fékk lánaðan péning hjá bankanum og borgaði helstu reikninga síðasta mánaðar... Nú erum við hjúin akkúrat mánuð á eftir í öllum reikningum... Æði... :-/ Það er gaman blankur... Maður er þó allavegana ekkert að gera sér neinar grillur... Talandi um Grillur, endilega hafið samband ef þið vitið um góðan stað fyrir Moonboots að spila... Bestu Kveðjur, Muzak [ 4 ] fimmtudagur, október 10, 2002
Anakreon var það heillin...
Anakreon var það heillin og Sigurður Nordal þýddi þetta kvæði 17 ára í MR. Anakreon var grískt ljóðskáld sem lifði ca. 570- 485 fyrir kristsburð. Yrkisefni hans voru sígild, ástir og vín, og fann hann upp bragarhátt sem kenndur er við hann... Anakreonska. Anakreon dó sönnum hetjudauðdaga 85 ára að aldri, kafnaði á vínberjaklasa... :-) Hann var svokallaður hedónisti, þ.e.a.s. manneskja sem lifir fyrir þá gleði sem lífið getur veitt manni. Heiti kvæðisins myndi líklega útleggjast: Drykkjukvæði Drekkur grundin dökkva, drekkur grundu lundur, sjórinn svalann tæra, sunna kaldar unnir, máni sæla sólu. - Sveinar, hví þá meina mér að væta varir veigum fyrst mig þyrstir! Ensk þýðing, eftir Thomas Stanley (1651), á þessu ágæta kvæði: All things drink Fruitful earth drinks up the rain; Trees from earth drink that again; The sea drinks the air, the sun Drinks the sea, and him the moon. Is it reason then, d'ye think, I should thirst when all else drink? Annað kvæði eftir Anakreon, sem ég hef mjög gaman að, var einnig þýtt af Thomas Stanley Beauty HORNS to bulls wise Nature lends; Horses she with hoofs defends; Hares with nimble feet relieves; Dreadful teeth to lions gives; Fishes learn through streams to slide; Birds through yielding air to glide; Men to courage she supplies; But to women these denies. What then give she? Beauty, this Both their arms and armor is: She, that can this weapon use, Fire and sword with ease subdues. Innsæi Anakreons var stórkostlegt og hann var frábærlega hnyttið skáld. Þið afsakið að ég skuli ekki kunna grísku nógu vel til að þýða þetta af móðurmálinu. Þið afsakið vonandi líka að ég skuli ekki telja mig nógu mikinn hagyrðing til að snara þessu yfir á okkar ástkæra ylhýra. Ástin í kvæðinu er þarna engu að síður... Jæja... Farinn að glápa á vídeó... Hr. Muzak [ 2 ] Smá getraun...
Hver kannast við ljóðið: Drekkur grundin dökkva, drekkur grundu lundur, sjórinn svalann tæra, sunna kaldar unnir, máni sæla sólu. - Sveinar, hví þá meina mér að væta varir veigum fyrst mig þyrstir! Sýnið nú kunnáttuna... Bestu Kveðjur, Hr. Muzak [ 3 ] Verð að mæla með honum...
Sigurgeiri sem skrifar á kaffi.blogspot.com Mér þykir hann alveg glimrandi penni (þrátt fyrir að ég sé ósammála honum í virkjana og álverspælingum.) Ég tel mig þó geta sýnt honum "ljósið" ef við settumst einhvern tíma yfir kaffibolla. Ég tek stundum rassíur á að lesa þennan og hinn og mér þykir Sigurgeir mjög fínn penni, fyrir utan það að kalla okkur umhverfisverndarsinnana (sem vitanlega erum allir undir sama hatti og höfum allir sömu ástæður fyrir skoðunum okkar) fólk sem veit ekkert í sinn haus. Áfram Sigurgeir. Bestu Kveðjur, Hr. Muzak [ 1 ] miðvikudagur, október 09, 2002
Landsvirkjun tekur af sér grímu umhverfisvænleikans
Nú eru vitleysingarnir hjá Landsvirkjun alveg búnir að klúðra ímyndarmálunum sínum. Ef við ætlum að fara að reisa aðra 600MW virkjun til að selja til NOREGS í gegnum SÆSTRENG, þá fer nú lítið fyrir ástinni á náttúru landsins. Þessir menn skipta um andlit eins og nærbuxur. Kárahnjúkavirkjun er lífsnauðsynleg vegna þess að annars deyja allir Austfirðingar úr hungri... í alvörunni... Alveg satt... tíufingurupptilguðs... En hvað nú...? Ef við virkjum ekki á X þá svelta greyið Norðmennirnir af því að þeir fá ekki orku? Hvaða svakalegu þjóðarhagsmunir hvíla á því að fórna næstu vatnakerfum og vistkerfum undir uppistöðulón og milljón veituskurði? ERUÐ ÞIÐ FÁVITAR?!? Er erfitt að skilja eftirfarandi lögmál heilbrigðs hagkerfis: Mannafl og hráefni: Verðmætaskapandi byggingarefni og uppbygging atvinnulífs og hagvaxtar. Raforka/olía: Infrastrúktúrstyrkjandi (ekki verðmætaskapandi) Ætlað til að hafa heilbrigðan infrastrúktúr en ekki til að búa til pening, það er ekki cost/effective. Svo er Friðrik Sófusson nýbúinn að vera með einhver steitment um það hvað hann elski náttúru landsins en það verði að virkja til að bjarga greyið efnahagslífinu. Og nú mun hann elska voða voða mikið landið sitt, en samt verður að virkja til að... eee... baraaaa... bjarga Keikó! já, einmitt... Mig langar stundum til að taka góða lúkufylli af steinsteypu og stífla kjaftinn á Þorsteini Hilmarssyni, svo fáránlegir eru hlutirnir sem koma út úr honum. Hr. Muzak [ 9 ] Death to everyone...
Ah... Obboslega þreyttur og langar bara að vera tónlistarmaður og lifa á því... Fokk ðiss piss... bestu kveðjur, hr. Muzak [ 0 ] ÓGEÐSLEGA VEIKUR!!!
Hér sit ég og hósta og skyrpi og upplifi mig sem ógeðslegasta mann dagsins... :-( Veikur veikur veikur veikur... gat ekki mætt í tíma í morgun vegna hálsbólgu... Svo er maður að reyna að rífast við fólk út af álversmálum en það er ekki auðvelt að vera vera alltaf hinum megin við spurninguna: "Ertu á móti peningum?" Sko! þetta er ekki erfið hugsun að fást við: Þú þarft bara að spyrja þig einfaldrar spurningar: "Er til leið til að ná ásættanlegum hagvexti og efnahagsþróun á Íslandi sem ekki krefst 300 milljarða og 750 MW fjárfestingar og skerðingu stærstu ósnortnu víðerna Vestur Evrópu, plús það að lama alla aðra uppbyggingu í atvinnulífinu næstu 5-6 árin og jafnvel lengur? " Ef þú getur ekki hugsað þér slíka leið, þá skortir þig framsýni, ímyndunarafl og skynsemi. Ef þú getur hugsað þér slíka leið, þá hlýtur að vera æskilegt að fara hana, ekki satt? Eins gæti ég spurt þetta fólk hvort það sé KOMMÚNISTAR... Aðeins KOMMÚNISTAR eru reiðubúnir að "planta niður stóriðju í byggðaskyni án nokkurrar forsjár, sem leiðir til hruns staðbundins hagkerfis staðarins." Eða hvað? Er þetta kannski orðinn einhver nýr forræðishyggjukapítalismi sem ég hafði ekki heyrt um? Bestu Kveðjur, Hr. Muzak [ 0 ] þriðjudagur, október 08, 2002
Blind verndun?
Hann Sigurgeir hlekkjar yfir á mig með skemmtilega tvíbentum ummælum. Bæði að ég sé góður penni og að ég sé hreinlega viti mínu fjær... :-) Ég vil meina að ég sé ekki blindur verndunarsinni. T.d. þykir mér bergvatnsáavirkjanir Norðmanna prýðilegar og þær má vissulega flokka undir sjálfbærar virkjanir, þar sem framburður í þeim er nær enginn. En 200 milljarða fjárfesting í orkuveri sem er farið að missa alvarlega mikið afl eftir 70-80 ár er hreinlega fáránlegt. Auk þess er þar verið að henda burt öðrum tækifærum og verðmætum sem við einungis læra að meta af bitrum söknuði okkar. Ég er á móti stóriðju. Já. En ég tel það ekki vera vegna fáfræði minnar (Sigurgeir: "Mín tilfinning á umhverfisverndarsinnum er einföld, þeir hafa ekki hundsvit á því sem þeir eru að segja.") Ég tel að andstaða mín við Álver eigi við nokkuð sterk rök að styðjast. Ég tel að andstaða mín við öfgafulla virkjanastefnu eigi einnig við rök að styðjast. Rökin eru eftirfarandi. 1: Ísland hefur takmörkuð landgæði og afar takmarkaða möguleika á sjálfbærum vatnsaflsvirkjunum vegna magns jökulsáa, en gríðarlegar auðlindir sem tengjast hinum takmörkuðu landgæðum utan efnislegra tengsla (menningarlegar auðlindir - jarðfræðilegar og vistfræðilegar auðlindir). Það eru sumsagt til aðrar leiðir til að virkja jökulár en að stífla þær. Engu að síður veit ég að slíkt getur reynst nauðsynlegt. En það er ekki fyrr en við erum búin að virkja allan jarðhita sem til er. 2: Stóriðnaður er fallvölt iðja og hefur orðið milljónaborgum í Bretlandi að falli. Hvernig getum við verið viss um að það að leggja öll eggin í körfu sem stendur á þverhnýptri klettasillu sé skynsamleg ákvörðun. 3: Við erum þegar 6. ríkasta þjóð heims. Getum við ekki reynt að nýta okkur það forskot til að styðja við atvinnuvegi sem krefjast meiri menntunar og útsjónarsemi en risastórar kapítalfjárfestingar og orkugjafir til erlendra auðhringja. 4: Nú þegar eru rannsóknir á Kolefnistrefjum (carbon fiber) að ná ótrúlegum árangri og ekki langs að bíða þangað til bílar verða gerðir úr þessu afskaplega létta efni. Hvað verður þá um álverðið. 5: Gróðinn af álverinu verður án efa gríðarlegur, en Íslendingar munu einungis sjá örlitla prósentu af honum. ALCOA mun flytja stærstan hluta hans aftur heim, það er kallað "Return of investment". Þeir fjárfesta 100 milljarða, við 200. Þeirra fjárfesting borgar sig á 10 árum en okkar kannski á 70-80 ef hún borgar sig einhvern tíma... Er það skynsamlegt? Ekki myndi ég allavegana ótilneyddur fjárfesta 100.000 kalli í hlutabréfum sem borguðu sig upp á 80 árum... 6: Stóriðnaður hentar ekki litlum atvinnusvæðum. Spyrjið fólkið í litlu þorpunum í Noregi sem eru annað hvort orðin að einhæfustu atvinnusvæðum Evrópu eða hreinlega á hausnum. Lítil atvinnusvæði þurfa smáskala atvinnuvegi. Smáskalaatvinnuvegir geta verið allt frá ferðaþjónustu og sjávarútvegi upp í sérhæfðan framleiðsluiðnað og menningarsetur/menntastofnanir og fleira. 7: ÉG ER EKKI AÐ TALA UM AÐ ALLIR EIGI AÐ LIFA Á FJALLAGRASATÍNSLU OG HVALASKOÐUNARFERÐUM. ÞIÐ HLJÓTIÐ AÐ HAFA MEIRA ÍMYNDUNARAFL EN SVO!!! Endilega hafið samband og spjallið... Leggið inn góðar hugmyndir um hvernig Íslendingar geta náð árangri í orkusparandi iðnaði. Álverið er einfaldlega til komið af því að Íslensk stjórnvöld hafa málað sig út í horn og þora ekki að bakka út úr því. Bestu Kveðjur, Hr. Muzak [ 6 ] Af gefnu tilefni...
...skal það tekið fram að greinin hér fyrir neðan er á engan hátt árás á verkfræðinema eða verkfræðinga. Ég var einungis að vekja upp umræðu ellegar vangaveltur um ímynd verkfræðingsins og hugarfar. Í fyrsta lagi frábið ég mér því að fólk sendi mér dónalegan tölvupóst, kallandi mig vitleysing, skáld og hippa. Í öðru lagi legg ég áherslu á það að ég er að ræða hugmyndir en ekki mína sannfæringu. (Get real!) Í þriðja lagi hef ég ekkert á móti verkfræðingum, þetta eru yfirleitt bestu skinn (þó þau séu square). ;-) Hins vegar verður fólk að koma sér niður úr "Hvernig eigum við þá að fá rafmagn?" rökvillunni... 30% af íslenskri orkunotkun er í höndum allra fyrirtækja og einstaklinga utan stóriðjunnar. 70% af íslenskri orkunotkun fer til stóriðju. Eftir Kárahnjúkavirkjun og álverið fara 90% íslenskrar orku til stóriðju. Er það eðlileg orkudreifing? Ef við legðum af þessa hræðilegu ofuráherslu á úrelta stóriðjuhugsun, ættum við nægt rafmagn til að uppfylla fyrirsjáanlega orkuþörf landsins langt inn í 22. öldina. Hvar eigum við þá að fá orku? Með skynsamlegri orkunýtingu, dummy!!! Allar aðrar vestrænar þjóðir tala um energy conservation og orkusparandi iðnað. Á meðan erum við eins og tík á lóðaríi, breimandi læða í kringum bræðslupott 19. aldarinnar. Sorglegt... Bestu Kveðjur, Hr. Mússí mússí mússí múss... [ 0 ] Verkfræðingar - Gildismat
<RANT> Maður veltir því stundum fyrir sér hvort þorri verkfræðinga hafi leyft námi sínu að þurrka út hið mannlega og lífræna í sálu sinni. (ekki taka þessu illa, þetta eru bara vangaveltur...) Segjum svo að ég væri lærður skrumfræðingur og hefði þess vegna ekkert gildismat á listaverk. Skrumfræðin gerði mér kleyft að búa til alls konar dót, þar á meðal listaverkaeyðileggjara. Ætti ég hreinlega fullan rétt á því að búa til listaverkaeyðileggjarana mína og beita þeim á Mónu Lísu og Guernica án allrar gagnrýni frá sjálfum mér eða öðrum? Maður veltir því fyrir sér hvort margir verkfræðingar (útskrifaðir úr viðurkenndum háskólum) hafi kvatt allt gildismat og mannlegt fegurðarskyn fyrir yfirborðskennda og praktíska hugsun mælitækja, kvarða og formúla... (auðvitað ekki allir...) Þarna er sumsagt fólk að hanga með öðru fólki sem hefur hvert öðru náttúrufjandsamlegri skoðanir og einhvern veginn endar þetta eins og sella af maóistum árið 1972, með sprengingu... Menn verða hörðustu andstæðingar náttúrunnar, bara af því að helvítis hipparnir eru á móti framförum... Maður veltir því fyrir sér hvað varð af litlu hrokkinkollunum sem bjuggu til sandkassa í leikskóla og langaði til að verða geimfarar. Eru þeir virkilega allir orðnir að vírhugsandi verkfræðinördum sem sjá ekki fegurð í neinu nema vel hannaðri stíflu? Er sumsagt verkfræðinámi þannig háttað að menn eigi stórfenglega á hættu að missa fegurðarskyn sitt og gildismat? Það eru auðvitað aðilar sem kenna þarna sem halda því fram að allir sem ekki læri verkfræði séu aumingjar og atvinnuleysingjar og óæðri verur... En ég trúi því samt varla að ungt gagnrýnið fólk láti bara segja sér það og taki því sem gefnum hlut... Bara að pæla... Verkfræðingar - endilega leggið inn hugsun ykkar varðandi ykkar eigið gildismat... Þetta voru nú bara vangaveltur en ekki ætlað sem skot á ykkur. Er gildismat verkfræðingsins njörvað niður af kvörðum, praktík, formúlum og mælitækjum? </RANT> Ég er umhverfisverndarsinni af því að ég upplifi náttúruna og umhverfið sem mikilvægan og sérstakan hlut sem hefur gildi óháð okkur. Við verðum að hugsa: "er einhver leið til að við getum náð framförum í samfélagi mannanna án þess að skerða náttúruna umtalsvert?" og ef svo er, þá verðum við að taka þá leið, því spurningin er jafngild þessari "er einhver leið fyrir mig til að ná framförum í lífinu án þess að níðast á minni máttar?" Þetta er siðferðisleg spurning og henni er auðsvarað... Ég er líka umhverfisverndarsinni af því að ég sé að það hallar á málstað umhverfisins. Það er virkileg slagsíða í gangi í samfélaginu, fólk er yfirhöfuð að breytast í efnishyggju- yfirborðskennt auðsöfnunarpakk sem ber ekkert skynbragð á gildi eða fegurð. Það er þörf á fólki umhverfismegin. Hr. Muzak [ 11 ] Nú er allt í fokki...
Muniði viðtalið sem ég tók í Gnúpverjahreppnum og var svo frábært? Suð... Mikið suð... skruðningar og smá hmmmhmhmmhmhmmm hljóð sem ég reyni að þýða yfir á mannamál á hraðanum einn á móti sextíu... Það tekur sumsagt um það bil 50 klst. að yfirfæra þetta blessaða 50 mín. viðtal... hahahaha hahahahahahahahahahaha aaaaahahahahaha ... Og svo er ég fárveikur í þokkabót og finn ekki heyrnartólin að diktafóninum... En Grant Lee Buffalo gerir mig glaðan... :) Fössíííí ... Bestu Kveðjur, Og lesið Má! Hr. Muzak [ 0 ] mánudagur, október 07, 2002
Hefnd Bykkjunnar...
Helvítis hestaóféti... Trunta dauðans... Búinn að liggja í tvo daga emjandi af sársauka í bakinu hef ekkert getað lært... Og 1000 verkefni bíða eftir skilum... Ég veit ekkert hvernig ég á að fara að því að klára þau í tæka tíð. Svo er vinnan líka í rusli... Djö... En nóg um það. Eitthvað jákvætt... jákvætt... hmm... hmmmm... Ég veit! Indverska Prinsessan gleður mig alltaf þegar ég er súr... "Ástin, ég er ad goma heim ástin... Verdú dilbúinn úndir sænginni ástin... Ég lofa tér ad núdda tig og gefa tér fúllnægingu... Sætur, þú tryllir mig alla að innan. Ég verð rennblaut, þegar við dönsúm Á böllunúm og pöbbunúm og discotekúnum." Ég get svarið að þetta lag (Hi Ástin) hljómar eins og svona nintendo Super Mario Bros soundtrack með dirty talking undir... :-) Svona eins og þetta sé svona ótrúlega naív tölvuleikur þar sem maður er skoppandi skaufi í láfulandi og safnar stigum með því að hoppa á litlar pjásur. ahem... Bestu Kveðjur, Hr. Muzak [ 1 ] sunnudagur, október 06, 2002
Hestaferð dauðans...
Í gær fór ég í hestaferð með Umhverfisfræðinemum. Þetta er yndislegur félagsskapur og allir að mínu skapi. Ég vildi að það sama mætti segja um hesta... Við fórum sumsagt upp í hestaleigu í Mosfellsdalnum og það byrjaði allt voða vel... Við fengum regnstakka og gular gúmmíbuxur til að vernda fötin... Svo kom einhver karl og spurði mig hvort ég væri "vanur"... Ég hefði átt að segja honum að ég væri fokking Michael Schumacher hestabransans... En ég sagði bara... "Ég reið eitthvað svolítið út þegar ég var 12 ára..." (þetta er nebbnilega eins og að hjóla...) Hann sagði þá við mig... "Þú færð þá Bófa..." og leiddi fram hest... Ég veit ekkert hvort hann var fallegur eða ekki, en hann var með mest allan feldinn í gangi og fjórar lappir og hnusaði eitthvað af mér... Svo var sett á hestana og lagt af stað... Og ég komst að því hvað það er að vera ekki "Vanur". Þá láta þeir mann fá langverstu bykkjuna, einhvern Prózak hest sem getur ekki annað en fetað eða BROKKAÐ!!! HELVÍTIS BROKK!!! Það þýðir að hvert einasta skref sem hesturinn tekur mer og kremur á manni hryggjarsúluna... Ég er að deyja... Sama hvað helvítis hestskrýmslið dróst aftur úr, hann fór aldrei annað en brokk með mig... Ég sparkaði í hann og hvatti hann áfram en hann var eins og Gamall kall í umferðinni... Svo kom það æðislegasta... Þegar ég ætlaði að stoppa hann "Bófa" (sem ég kallaði eftir þetta "Hagladela") þá varð hann hundfúll og vildi ekki stoppa, heldur brokka á eftir hinum... Þetta var eins og að sitja í svona barnahringekju... Oj bara! Og það fyndnasta var að það var ekki hægt að fá hann til að fara af veginum eða snúa við eða neitt. Sama hvað ég reyndi að snúa hestinum við og fara aftur til Pálínu sem var á ennþá meiri prozakhesti en ég, þá vildi hann aldrei stíga eitt skref í aðra átt en á eftir hinum hestunum... Þetta var eins og að rökræða við Sjálfstæðismann... Sama hvað maður presenterar mörg ný rök og ný sjónarhorn fyrir honum, þá er eins og hann sé með svona spjöld fyrir augunum svo hann sjái nú örugglega ekki út fyrir ákveðinn sjálfstæðisveg. Og nú sit ég hér með svíðandi kvalir í bakinu eftir hestinn sem brokkaði með mig 50 kílómetra. Ég þekki hesta nógu vel til að vita að ef þessi aumingi hefði nennt að tölta eða stökkva, þá hefði ég ekki þurft að finna neitt fyrir blessuðum reiðtúrnum. Ég kann að sitja fokking hest... En ég fékk þarna dásamlega samlíkingu við þorra kjósenda sjálfstæðisflokksins... Þeir eru eins og útjálkaðir óviljugir leiguhestar, algerlega ósjálfstæðir og fylgja bara hópnum í öllum málum. Bestu Kveðjur, Hr. Muzak [ 1 ] laugardagur, október 05, 2002
The Verdict is in...
Ég ku vera Artí fartí...
I'm exceptionally artistic! Find your soul type at kelly.moranweb.com. [ 1 ] föstudagur, október 04, 2002
Fyndnasti brandari í heimi...
Fyndnasti brandari heims var nú bara hálf glataður... Mér hefur alltaf fundist þessi langtum betri: Zwei Peanuts vos walking down ze Strasse... Und vone vos assaulted (a salted)... ... ... Peanut... BWAHAHAHAHAHAHAHA BWAHAHAHAHAHA... Hr. Muzak [ 5 ] Látið ekki eins og kjánar
Voðalega eru allir bitnir eitthvað yfir Leoncie. Þetta meinleysisgrey á alls ekki skilið svona mikið kjaftæði frá Íslendingum. Hún er skrýtin og framandi manneskja, jújú, og mússíkin hennar er allt öðruvísi en við eigum að venjast, en mér finnst full mikið þegar fólk er farið að kalla hana ógeð og frík og tala illa um greyið manneskjuna í tíma og ótíma. Hún er ekki að níðast á mannréttindum neins eða eyðileggja framtíð neins... Hún er bara manneskja sem hefur gaman að lífinu og semur undarlega tónlist og texta. Í guðanna bænum látið Leoncie í friði. Hún á ekkert illt skilið. Bestu Kveðjur, Hr. Muzak [ 1 ] Mér finnst ég stundum ekki nógu jákvæður...
... í skrifum mínum hér... Kannski er ástæða fyrir því. Ég er nebbnilega últrajákvæður út á við, svona meðal fólks. (Fyrir utan ofstækiskennda óvild mína í garð fasista og umhverfisníðinga.) Kannski er Þankatankurinn einhvers konar Ventill fyrir það sem mig vantar að losa. Ég gæti kannski sett upp gleðiblogg við hliðina, þar sem ég blogga bara glaða hluti... Hluti eins og lyktina af asparsafanum, moldinni og rotnandi sinu að vori eða blóðbergi sem maður nuddar milli fingranna og myndar lykt sem dregur mann aftur í barnæsku. Hluti eins og litlu krakkana á leikskólanum sem hlaupa svo skoppandi að þau smella laust saman stóru hausunum sínum en er alveg sama af því að þau eru svo glöð að hlaupa eitthvað... Hluti eins og tilfinninguna sem maður fær þegar maður stendur aleinn úti í óbyggðum og hvergi sést í mannvirki eða fólk. Bara maður sjálfur og söngur náttúrunnar. Kannski maður ætti að skrifa um það þegar maður finnur nýjan hljóm eða finnur laglínu sem vekur eitthvað í hjartanu. Kannski ætti maður að skrifa um þá tilfinningu sem maður fær þegar maður faðmar birkitré, eða jafnvel hlyntré. Það er eitthvað sérstakt við birki og hlyn. Kannski maður ætti að skrifa um hvað manni þykir vænt um vini sína, fjölskyldu, heiminn allan. Eða maður gæti bara hæglega sleppt því... Mig langar samt að skrifa aðeins meira um þessa hluti, því ég vil ekki að allir haldi að ég sé fýlupoki... Ég er glaðbeittur náungi... Hef hreint ótrúlegan gleðiforða í blóðinu... Bestu Kveðjur, Hr. Muzak p.s. Ég er pínulítið upp með mér... :-) Birgir Baldurs kallar mig mann með substans... Það lyftist eitthvað í mallakútnum mínum þegar ég rakst á þessi frískandi orð á síðunni hans... [ 0 ] fimmtudagur, október 03, 2002
Glötuð stefnuræða, glataðar gagnrýnisræður...
Datt virkilega engum í hug að skjóta á Sjálfstæðisflokkinn fyrir Fasismann í sumar? Er það bara gleymt og grafið? Eru efnahagsmálin virkilega auðskildari en skerðing tjáningarfrelsis í lýðræðissamfélagi? Þá veit maður hvar hugsjónir þessa fólks liggja... Bestu Kveðjur, Svavar [ 8 ] miðvikudagur, október 02, 2002
Sérfræðingaveldi þegar hentar...
Ævinlega þegar maður kemur með einhverjar glósur í garð stóriðjustefnu ríkisstjórnarinnar, sem er b.t.w. vægast sagt fáránleg til langs tíma litið, þá skal alltaf einhver aðili koma upp og spyrja: "Ert þú hagfræðingur/viðskiptafræðingur/líffræðingur?" s.s. "Ert þú með diplóma upp á það að mega taka þátt í umræðunni á þessum grundvelli?" Þetta er augljóslega hið fullkomnasta rökvopn sem gerir mig að algerlega ómerkum rökræðuaðila... Nú má ekki misskilja mig sem svo að ég sé að dissa Magga rokk eða neinn, þetta bara minnti mig á þennan punkt sem ég ákvað að skrifa um núna... Ef ég fullyrði "Morð er rangt", dettur þá einhverjum í hug að spyrja mig hvort ég sé siðfræðingur eða lögfræðingur þegar ég bendi á þessa augljósu staðreynd lífsins? Ég held ekki... Þetta er staðreynd sem blasir við mér. Mér dettur ekki í hug að fara að ræða leikjafræði eins og ég væri hagfræðimeistari. Mér dettur heldur ekki í hug að fara að debatera lífeyrisskulbindingastýringu eins og ég væri brjálaður viðskiptafræðingur. Djúp umræða um skörun eignaréttar og vinnulöggjafar er líka ekki á mínu sérsviði. En ég þekki staðreyndir þegar ég sé þær. Staðreynd 1: Ég sé að 500 manna vinnustaður á 2500 manna atvinnusvæði er ekki skynsamleg þróun. Bæði verður allt líf á svæðinu gegnumsýrt af einum atvinnuveitanda og öll hugsun fólksins snýst um þennan eina vinnustað, auk þess sem áhættan er gríðarleg að ef vinnustaðurinn hörfar sjái sveitarfélagið fram á algert hrun, mun verra en ástandið er í dag. Ef vinnustaðurinn hörfar ekki er nokkuð öruggt að hann mun vinna ötullega að því að sleppa fram hjá öllum helstu umhverfisverndarkröfum og vinnulöggjöf sökum stærðar sinnar og einokunaraðstöðu á vinnumarkaði. Staðreyndin er sú að svona stórir vinnustaðir í svo litlu hagkerfi hegða sér eins og lúpína, þeir kæfa aðra framsækna atvinnustarfsemi og sprotafyrirtæki sem snúa að einhverju öðru en stuðningi við stóra staðinn. Ef umtalsverð lækkun yrði á álverði, t.d. sökum minnkandi eftirspurnar í kjölfar aukinnar notkun kolefnistrefja (carbon fiber) í bíla og önnur tæki, þá getum við verið viss um það að Alcoa segir upp í massavís í skiptum fyrir sjálfvirk "starfsmenni" eða lokar sjoppunni alfarið. Þá verða Austfirðingar hressir... Staðreynd 2: Útflutningstekjur Íslendinga stóraukast... Jújú, en Innflutningur eykst einnig til muna... Í raun munu tekjur íslands af málinu vera eftirfarandi: Orkusala á gjafverði: Allur gjaldeyrir fer í að Landsvirkjun komi út á sléttu vegna dýrustu virkjunarframkvæmda Íslandssögunnar. Við verðum jú að geta undirboðið kola- og olíuverin í Afríku og S-Ameríku sem við erum að keppa um hylli Alcoa við... Neytendur halda sem fyrr uppi hagnaðarrekstri Landsvirkjunar í formi "sparnaðarhvetjandi verðstýringar á orku til neytenda." (Velferð til framtíðar - skýrsla umhverfisráðuneytisins um sjálfbæra þróun.) Launagreiðslur til starfsmanna: peningur inn - peningur út... Engin frekari verðmætasköpun fyrir þjóðarbúið. Skattgreiðslur vegna arðs álversins: Peningur inn í ríkiskassann - allur annar gróði fer beint til Alcoa heim í útlandið. Virðisaukinn er fluttur beint út úr landinu. Gleymi ég einhverju? Jú... Fjárfesting Alcoa í Kárahnjúkavirkjun og Álversuppbyggingunni - 100 milljarðar inn. Vááá... En... Erlend verktakafyrirtæki sjá um risastóran hluta verkefnisins... þannig að... æ æ æ... Ég halla sosum til vinstri, vill ríkisrekið menntakerfi og öruggt heilbrigðiskerfi fyrir alla, en ég er ekki svo mikill vinstrimaður að ég vilji ekki að markaðurinn sjái um sína uppbyggingu sjálfur, en ekki ríkið. Bottom Line: Við verðum að treysta einstaklingum til að fá hugmyndir og koma þeim í framkvæmd og byggja upp heilbrigt hagkerfi. Ríkið á að styðja við bakið á hugmyndaríkum einstaklingum með fjárhagsaðstoð og annarri ráðgjöf og fyrirgreiðslu. Ríkið á ekki að handstýra uppbyggingu hagkerfisins eins og menn séu að spila einhvern herkænskuleik... Ríkið á að leiðbeina og rækta, ekki að neyða og þröngva. Eða hvað? Eruð þið kannski kommar? Það þarf enga hagfræðigráðu til að sjá að 750 megawött fyrir 500 störf er helvíti mikil orkusóun... (90.000 störf í dag nota 2000 MW.) Við eigum nefnilega ekki ótakmarkaða orku... Það þarf enga hagfræðigráðu til að koma auga á heimskuna í stóriðjustefnu í litlu hagkerfi. Það þarf bara gagnrýna hugsun. Bestu Kveðjur, Hr. Muzak [ 9 ] Gaman í dag...
Á mánudaginn fór ég austur yfir heiði og tók alveg mergjað fínt viðtal við mann í Gnúpverjahreppi. Falleg sveit með endemum. :-) Gaman að heyra að sumir hafa einhverja örðu af lýðræðislegri ábyrgðartilfinningu. En nóg um það... Skemmtilegur dagur í dag. Fór og hitti einn af leiðbeinendum mínum í Mastersverkefninu. Gaman að vera Mastersnemi. Fagnaði Mánaðarmótunum með Pálínu og við buðum hvort öðru og Braga Skaptasyni í alveg dýrindis hádegismat... Síðan hringdi síminn og ég mundi að það var verið að setja alþingi, þannig að Við Pálína og Bragi þustum niður í 10-11 og keyptum skyr fyrir tæpar 700 kr. (Það er heill hellingur...) Svo stóðum við í fremstu röð og sýndum löggunni fallegu skyrdollurnar okkar... Það myndaðist lítil fylking af derhúfuklæddum laganna (dyra)vörðum fyrir framan okkur og ég get svarið að einn þessara prýðismanna gnísti tönnum af löngun til að fá að berja mótmælalýð. Við stóðum hins vegar teinrétt og sýndum fallega skyrið okkar, sem vakti miður góðar minningar hjá öldnum prúðbúnum lögreglumanni á gangstéttinni, sem horfði áhyggju- og tregafullum augum á okkur. Sem betur fer gerðum við hins vegar engan skandal heldur sungum bara með fyrir þingheim. Helvítis pakk er þetta maður... Davíð Oddsson forðaðist að horfa í áttina til okkar eins og virtist álíka hress og Kínaforseti með gulstakkana sína... Hefðum við ekki verið íslenskir ríkisborgarar (bölvuð stjórnarskráin... fer ekki að koma tími til að breyta þessum tjáningarfrelsislögum) hefði hann fengið óeirðalögregluna sína til að berja okkur í kássu og færa okkur til Njarðvíkur... Og ég er viss um að óeirðalögreglumennirnir hefðu fílað það í tætlur, þessi grey... "Helvítis Hipparnir ykkar!!!" Davíð Oddsson er ekki svona maður sem hlustar á svona mótmælabull... Það er bara eitthvað óánægjupakk sem mótmælir. Það vinnur við að vera óánægt... Ég leit yfir á Pálínu og sá að djúpstætt hatur hennar á D.O. kraumaði og hendur hennar krepptust um skyrdolluna og skulfu... Við hlógum að taugaveikluðum lögreglumönnunum og trúðasjóvinu sem sett er upp fyrir skrúðgöngu "þjóna almennings" og prúðbúins fylgdarlið þeirra... Það er hrikalega fyndið að sjá þetta löggufólk í skátaskrúðgöngufílíng og segjandi "höbb tú höbb tú"... Björn Bjarnason fær örugglega feitan bóner þegar hann labbar framhjá heiðursverðinum... Svo keyptum við Pálína Leoncie diskinn og hlýddum á súrrealiska feministann kveða nútímarímur um vonir, þrár og vopn nútímakonunnar. Dásamlegt... Eitt í viðbót... Þegar borgarbúi segist vera á móti óþarfa virkjunum, þá er hann á móti landsbyggðinni og er illa við byggðir landsins og vill ekki framfarir og eitthvað... Síðan þegar sveitamaður segist vera á móti óþarfa virkjunum, þá er hann djöfulsins landsbyggðarafturhaldspakk sem vill engar framfarir og iðnað og blablabla viltu ekki bara ríða suður og mótmæla talsímanum helvítis bændadurgurinn þinn??? Hverjum ætli þessir virkjanasinnar haldi eiginlega með? Ætli þeir séu bara svona rosalega hrifnir af hrossakaupum, mútugreiðslum, fjárkúgun og óhreinum stjórnmálum? Ætli þeir viti nokkuð um hvað þeir eru að tala? Ef þið pælið í þessu : Ef Alcoa reisir álver hér á Íslandi, þá erum við að selja niðurgreidda orku til fyrirtækis hvers eina framlag til Íslensks efnahags er að borga 1000 manns laun. Útflutningstekjur aukast, jújú, en það gerir líka innflutningurinn, því við þurfum að kaupa báxítið og fjármagnið frá Alcoa... Eina sem bætist við er verðmæti orku og vinnu. Enginn raunverulegur virðisauki á sér stað. Þetta er svolítið eins og ef erlent flugfélag millilenti á Íslandi og réði 1000 flugfreyjur og krefðist 200 milljarða fjárfestingar frá hendi Íslendinga fyrir vikið. Engin raunveruleg innri verðmætasköpun í hagkerfinu ætti sér stað, bara laun komandi frá erlendu fyrirtæki... Bestu Kveðjur, Hr. Muzak [ 4 ] |
Eva
Örn "Mugison"
Elias Tónlistarmönnum sem gefa tónlist
sína á netinu er velkomið að hafa samband
við Hr. Muzak og þá bæti ég þeim
á listann.
Laukurinn rúlar
Dr. Gunni
| |||