![]() |
Þankatankurinn
|
![]() |
||||
|
Svavar Knútur Kristinsson, Félagsauðströll, heimspekingur, umhverfis-verndarsinni og tónlistarmaður. NÝTT!!!
|
Nýjustu Demó: Ástarsaga úr fjöllunum (Sumarið 2005) Goodbye my lovely (19. júní 2005) Your love was death to me (Janúar 2005) Call off your Cavalry (September 2004) You should call a doctor (Maí 2004) Kysstu tímaglasið (endurbætt útgáfa 2004) Mother's day Jólaplata Hrauns 2003: Þrautgóðir á Hraunarstund Jólaplata Hrauns 2005: Höldum jól Jólaplata Hrauns 2006: Jólamolar |
föstudagur, nóvember 29, 2002
Ég elska Tom Tomorrow...
Þessar tvær teiknimyndasögur eru æði! :) Bestu Kveðjur, Meester Muuuzak! [ 3 ] Gaman að vera ég í dag...
Nú byrjar verkefnatörnin fyrir alvöru... þrjú verkefni framundan í Umhverfisjarðfræði. fimm verkefni framundan í Eigindlegum Rannsóknaraðferðum... (sem taka drullulangan tíma, takk Svabbi fyrir að fresta þessu...) og Tvær skýrslur í Vistfræði... Júbbí skúbbí... :) Ef ég næ að klára þetta allt fyrir 16. des ætla ég að gefa sjálfum mér geðveika jólagjöf... Bestu Kveðjur, Hr. Muzak [ 0 ] fimmtudagur, nóvember 28, 2002
Ég er hrúðurkarl á búrhvali bloggsins...
Ég var að skoða teljara.is... Það er ótrúlegt hvað hliðarverkanir þess að stríða Katrínu geta verið geigvænlegar... ;) Ég get ímyndað mér dýralífsmyndina með David Attenborough sem þul. og... hér... sjáum við... hrúðurkarlinn festa sig á búrhvalinn... hann stingur búrhvalinn og búrhvalurinn syndir reiður í gegnum þangskóginn og rótar upp örverum sem kúra í þaranum... Hrúðurkarlinn lifir dásamlegu sníkjulífi á búrhvali bloggsins... Bestu Kveðjur, Herra Muzak [ 9 ] ANDSKOTANS!!! Partýi Frestað
HELVÍTIS! ég verð að fresta Kaffi live music Karaoke partýinu sem ég ætlaði að halda á laugardaginn... FUCK! Helvítis drasl... Jæja... það gengur bara betur næst... BELJA! Herra (tourette) Muzak [ 2 ] Ímyndaður Internet kisuslagur???
Skondið að ég vissi ekkert um einhvern ímyndaðan kisuslag á milli Katrínar og Betu, sem er b.t.w. langheimskulegasta hugmynd allra tíma... Yfir hverju eiga þær að slást? Hvor hafi meira reppresentíng þöggs? Eða hvor sé meira ýkt kúl bandíhopp ædónó? Og svo gerir maður sér svo lítið fyrir að gera grín að Katrínu og þá er maður bara orðinn þátttakandi í einhverju heljarstríði ímyndaðra netfylkinga... Bjarni hinn mikli hjálpi mér... Ég meina ókei, Katrín er um það bil jafn grunn og mývatn og Beta bloggar fyllerý og gróusögur. Ég meina, þetta er bara gaman og skemmtilegt. Ég fíla þær alveg ágætlega þó þær séu ekki eins og ég eða Nóni bróðir eða eitthvað. Kommon... Teik itt ísí bíats... Ég er annars bara hress... búinn að skipuleggja Desembermánuð í höngla og námshrenglur... hver einasti dagur fer í verkefnavinnu eða prófalestur... líka sunnudagar. úff. Jæja... Ég ætla að drífa mig að fara að læra... Ég vona að Katrín finni einhvern tíma eitthvað verðugra við tímann að gera en að hafa áhyggjur af hverjum einasta vitleysingi sem dissar hana (þó það sé í gríni...) Og Beta líka. Þessar stelpur eru fínar, en sem bloggdrottningar verða þær að fara að læra að hegða sér eins og alvöru kóngafólk... Ég skal samt segja ykkur hver er sönn bloggprinsessa :) það er hún Súsanna venkona mín... Hún er æði... (nú drepur hún mig... :) ) Hr. Muzak [ 3 ] Bara að minna á Nýja Lagið...
Nú er búið að blogga svo mikið hér að nýja lagið er dottið niður fyrir... Endilega hlaðið því niður... Bestu Kveðjur, Hr. Muzak [ 2 ] Ég er líka þigurvegari...
Það er mér mikill heiður að taka við þessum verðlaunum fyrir hönd símaskrárinnar... sem sá sér ekki fært að vera hér í kvöld...:-)
[ 2 ] Babba ba babba ba ya!
Allt stefnir í Live Music karaoke-partý á Ara í Ögri á Laugardagskveldið upp úr 11:00... Takið með ykkur 500 kall og gefið hljómsveitinni ef þið viljið vera decent human beings... ... Ég tala við eigandann á eftir og athuga hvort þetta sé ekki allt bara on... Hr. Muzak [ 0 ] Mér finnst...
Katrín.is líka alveg fín gella og ekkert að henni... (for the record...) Það er bara svo fyndið að henda fúleggi og sjá fólk hlaupa upp til handa og fóta... :-) Það er massa fyndið að fylgjast með "fólki" fara í algera panikk af því að einhver gæi segir að honum finnist tölvufræðimenntun ekkert merkileg og ver síðan lífsstíl sinn... úúú... Svo finnst mér það hrottalega fyndið þegar einhver segir eitthvað við "einhvern" og sá "einhver" tekur nákvæmlega eitt orð úr því sem hann sagði og röflar yfir því ad nauseum í stað þess að annað hvort rökræða af alvöru við kappann eða segja bara "þú ert vitleysingur og ég nenni ekki að rífast við þig"... Svona orðatog og "ég kann að reikna" er sprenghlægilegt. :-D Katrín: Ástæðan fyrir öllum BROSKÖLLUNUM (tm) er sú að ég er að GRÍNAST!!!(tm)
Þegar ég GRÍNAST(tm) þá er ég að dissa einhvern í GRÍNI en ekki í ALVÖRU... "tíhíhí" er alveg dead giveaway líka... :) Halló...? bleh... Mér er skítsama um hver rífst við hvern eða hver dissar hvern... Mér þykir bara gaman að stríða þér af því að þú bregst við því... Sko... svo þori ég ekki að stríða Bjarna neitt alvöru... hann kann Karate... :) En... Hlustiði bara á nýja lagið og verið glöð að lífið er yndislegt og allir eru bara nokkuð jafnljótir á þessum litla bláa hnetti... Verum vinir og verum gagnrýnin, það er ekki hægt að taka Cliff Notes á raunveruleikann. Allir eru fífl nema ég og mínir heimadrengir... (og ég er nú farinn að efast um þá líka...) Bestu Kveðjur, Herra Muzak [ 0 ] Mér finnst...
Óli Gneisti ágætur og les hann sæmilega oft...:) úúúúú hann er ekki með stúdentspróf... úúúúúú.... (enginn getur verið góður maður án stúdentsprófs...) Auðvitað vita allir að bloggpóserinn og vonnabírappbiddsið Fröken K. er bara eins og hún er, og hún hefur sína Zsa Zsa Gabor frægð sem er ágæt út af fyrir sig... (ætli hún drepi mig fyrir að linka ekki á sig í þessum töluðu orðum...? Eða ætli hún verði brjáluð fyrir að ég kalli sig fröken K? Eða ætli einhver komi henni til bjargar og sendi mér dónalegan tölvupóst í riddaramennsku sinni...? :-) ) tíhíhí Kannski sendir hún þöggs á mig... Kannski finnst henni einhver sönnun felast í gráðu í einhverju sem hún þarf ekki að verja fyrir fjölskyldu sinni. (og hvað gerir þú svo???) Kannski langaði hana alltaf að verða hugvísindamanneskja en lenti bara í vondum félagsskap... ;-) Ég verð nú bara að segja að það sem ég hef kynnst af bæði raun-, félags-, og hugvísindum bendir til þess að námsálagið sé bara mjög svipað, svona allt í allt, þ.e.a.s. ef maður ætlar að koma út úr náminu með eitthvað annað en fimmur og sexur og páfagaukalærdóm... Samt tel ég að hugvísindamaður sem veit ekki hvað er að tegra, (sem ég b.t.w. sem betur fer veit, en man ekki lengur hvernig er gert) sé meira eins og raunvísindamaður sem getur ekki skýrt inntak hugmyndar Páls Skúlasonar um fjórar leiðir til skoðanamyndunar (kennivaldsleið, fordómaleið, þrjóskuleið og gagnrýna hugsun...) (Svona grundvallarkenningar innan fræða...) Tjah... :) Allir eru heimskir nema ég og mitt heimafólk... Bestu Kveðjur, og verum vinir krakkar... Hr. Muzak [ 1 ] Fróðleiksmoli um nýja lagið...
Þess má geta að allt lagið, utan ein röddun var tekið "one take", þ.e.a.s. gítar, bassi, orgel, rhodes, aukagítar, söngur og raddanir aðeins ein taka hvert... :-) Þess vegna er ég tvöfalt stoltur... :) ... Það heyrist samt alveg ef hlustað er... Bestu Kveðjur, Montinn Muzak [ 0 ] miðvikudagur, nóvember 27, 2002
Nýja Lagið tilbúið! :) Vinnuútgáfa niðurhlaðanleg...
Jæja, nú getið þið hlaðið niður nýja laginu krakkar... það heitir sumsagt A beautiful way to die og er enn á tilraunastigi... Bestu Kveðjur, Hr. Muzak [ 1 ] Nýtt lag á leiðinni...
Hæ krakkar mínir... Hér er nýr texti við nýtt lag sem ég er að fara að setja á vefinn... Ég hef pínulitlar áhyggjur af því að fólk misskilji þetta. Ljóðið kom til mín þegar ég rifjaði upp sælustund sem ég átti á árbakkanum heima í sveitinni... A beautiful way to die Lag og texti: Hr. Muzak The song of the raven Gives word of a haven Beyond all that meets the eye Destiny?s kisses Are misery?s misses My life like the water floats by And it?s ritual And it?s lovely It?s a musical way to die And it?s touching And it?s soothing It?s a beautiful way to die The sound of the river Brings upon me a shiver As I gaze to the open sky A moment of clarity A whisper of sanity A soul that is learning to fly And it?s careless And it?s quiet It?s a stoical way to die And it?s restful And it?s tranquil It?s a beautiful way to die Lie by the stream As my life becomes dream And the birds come to bid me good bye The wings of a dove Beating softly above It?s a beautiful way to die And it?s curious And it?s a lovely It?s a wonderful way do die And it?s comely And it?s holy It?s a beautiful way to die Bestu Kveðjur, Hr. Muzak [ 0 ] þriðjudagur, nóvember 26, 2002
Snorri Hergill lætur til skarar skríða...
Gott fólk, ég hreinlega verð að láta ykkur vita af byltingarsinnuðum róttæklingi sem ætlar að verða með standupp á ópen mæk næt á sportkaffi á morgun. Hann Snorri Hergill Kristjánsson, fyndnasti bassaleikari Íslands er sumsagt með uppistand annað kvöld kl. 22:00. Hann fyndinn!!! Þið mæta!!! Svo ætlar hann Snorri að spila á bassa í partýinu á laugardaginn. Hvernig hljómar að fólk borgi svona 500 kall inn í partýið til að standa undir kostnaði? Bestu Kveðjur, Hr. Muzak [ 0 ] mánudagur, nóvember 25, 2002
Hvernig er fólk stemmt í gott partý n.k. Laugardagskveld?
Ég var að hugsa um að finna einhvern fínan stað í miðbænum, t.d. Tapasbarinn eða eitthvað og halda partý þar sem hljómsveitin Kaffi spilaði af fingrum fram og allir væru bara í góðum fílíng... Fólk myndi getað sungið karaoke með okkur og við tekið óskalög og sjitt... Hvernig er stemmningin hjá fólki fyrir eitthvað svoleiðis Happening? Maður myndi kannski rukka svona 500 kall inn... Bestu Kveðjur, Hr. Muzak [ 8 ] Kettlingamyndir...
Jæja... Kettlingarnir allir orðnir voða miklir karakterar og gaman hjá fjölskyldunum tveimur í Drápuhlíðinni. Hér er Loki, hann er svartur með gleraugu í kringum augun... Og hér er mynd af kettlingunum með nöfnunum merktum við... Ég er að springa úr monti, og kisa líka... :) Bestu Kveðjur, Hr. Muzak [ 1 ] laugardagur, nóvember 23, 2002
Emma verpir í beinni framhald... Gotið yfirstaðið?
Klukkan er núna 05:28, u.þ.b. þrír tímar síðan hríðir hófust og mér sýnist þetta vera búið... Samt... Bara fjórir kettlingar... Er það eðlilegt? Mér finnst einhvern veginn eins og það sé meira eftir... En Emma er orðin ótrúlega mömmuleg, malar og kurrar og sleikir og er ótrúlega ánægð með lífið... :) Litlu krílin eru held ég sætustu kettlingar sem nokkur Muzak hefur fengið að fóstra... Ég er víst titlaður stjúppabbi þessara greyja, þar sem fressinn er nokkuð íslenskur á því og stakk af með einhverri ljósku úr vinnunni... Synd fyrir hann... Ég er á toppnum... :) Bestu Kveðjur, Stoltur stjúppabbi fjögurra dásamlegra kettlinga, Hr. Muzak [ 8 ] Emma er að verpa... as we speak...
Jæja krakkar, nú hefst bein útbloggun frá goti heimilislæðunnar, Emmu. Hr. Múzak, Frú Múzak, Villi litli bróðir og Drengur voru öll inni í stofu að horfa á LOTR FOTR SE DVD jejeje, þegar Emma kom og hlammaði sér upp í sófann. Kl. 02:28 hófust hríðir hjá litla greyinu... Hún byrjaði að mjálma ámátlega og við horfðum á hana herpast saman... Ólíkt hefðarkattahefðinni ákvað Emma samt að fara ekki afsíðis og gera þetta í prívat heldur byrjaði bara að veina og anda hratt á sófanum. Hr. Muzak hafði þá hröð handtök, náði í lítið teppi og setti undir greyið. 25 mínútum seinna, kl. 02:53 fór síðan að glitta í lítinn kattarkoll... Fyrsti kettlingurinn var blakkur... kom út kl. 03:00. Við ætluðum ekki að trúa okkar eigin augum... Köttur að fæða innan um fjórar mannverur... Ég hljóp inn til litlu Múzkunnar og vakti hana til að leyfa henni að vera vitni að þessu litla sæta kraftaverki, það er nú ekki á hverjum degi sem læður eru svona voðalega opinskáar og líbó... Kl. 03:15 - Gulbröndótt grey skríður út úr mömmu sinni og hún étur fylgju... Kl. 03:34 - Veimiltítulegt mjálmtríó er farið að hljóma úr sófanum og fjölskyldan horfir dolfallin á litlu greyin... Kl. 03:47 - Þriðji kettlingurinn kominn út... svartur, með hvítan háls... Kl. 04:38 - Fjórði Kettlingurinn kominn... lítill kvartett farinn að emja... Þessi er ótrúlega sætur, hvítur með svartan haus og svarta rófu... abúbúbúbú... :) meira eftir smá stund... Hr. Muzak p.s. Nokkrar myndir til þess að ylja ykkur... [ 0 ] föstudagur, nóvember 22, 2002
Jibbí kóla er orð dagsins...
Fallegur dagur! :) Góður Dagur! Sól og gott veður og Emma, litla kettlingafulla kisan mín, var að feisa niður stóran norskan skógarkött. (að vísu með dyggri hjálp frá okkur...) Þetta var þannig að þegar við Pálína fórum út áðan kom Emma hlaupandi og vildi komast inn... Við höfðum ekki tíma til að hleypa henni inn svo við keyrðum bara til að gera það sem gera þurfti. Síðan þegar við komum heim, 90 mín. seinna, kom hún hlaupandi til okkar, voða lítil... Í innkeyrslunni stóð hinn vígalegasti Norski Skógarköttur með gígantískt attítjúd... En undir eins og við stigum út úr bílnum óx Emmu kisu ásmegin og snerist til varnar. Það var eins og hún segði við skógarköttinn "nú eru mínir heimadrengir komnir, mitt possí... Gerðu eins og Houdini og láttu þig hverfa!!!" Og viti menn, Norski skógarkötturinn leit á okkur, leit á kisu, leit á okkur, leit aftur á kisu og síðan sáum við bara í skottið á honum... HAHAHAHAHAHA! :) Góð Kisa, Felis bona Bestu Kveðjur, Hr. Muzak Hamingjusamur kattareigandi.... [ 3 ] fimmtudagur, nóvember 21, 2002
DAMN YOU VÍDALÍN!!!
Jæja, ekkert Kaffi á Vídalín á laugardaginn... Helvítis bjánaskapur er þetta að vera að bóka einhvern dídjei í einhverju fýlukasti... jæja... Einhver með hugmyndir um hvar Ég, Helgi og Snorri getum holað okkur niður og spilað fyrir glöðu partýi? Auðvitað má vera Karaoke fílingur... Bestu kveðjur, Hr. Muzak [ 5 ] miðvikudagur, nóvember 20, 2002
Jibbígaman næstkomandi Laugardagskveld...
Jæja krakkar, Nú er von á góðu... Vídalín hringdu áðan og báðu Gleðitríóið Kaffi um að spila á laugardagskvöldið. Kaffi eru betur þekktir fyrir þétta kaffihúsaspilamennsku og ljúfa tóna, en þetta verður tilbreyting. Við fórnum samt ekki kassagítarsándinu, þannig að ef einhver er í stuði fyrir akústískt gleðikvöld á Laugardagskvöldið skal sá hinn sami kíkja á Vídalín... Vídalín... Vídalín... Kaffi... Kaaffii gooottt.... N.B. Kaffi er ekkert eins og Moonboots. Við erum bara í peysunum og góða fílíngnum og spilum og syngjum slagara sem okkur þykja skemmtilegir... Skemmtileg óskalög eru afar vel þegin. Hlakka til að sjá ykkur á laugardagskvöldið. Svabbi [ 2 ] One down - six to go...
Jæja, þá er námsvélin Svabbi komin af stað. Loksins náði ég að klára vistfræðiverkefnið, þremur vikum of seint, og núna ætla ég að tæta í mig restina af verkefnastaflanum, YIHAAA!!! Þunglyndið á bak og burt og herra sólarhringssnúningur mættur á svæðið... Ég meina það, ég tvista sólarhringnum eins og hann væri svona löng blaðra sem maður gerir gíraffa úr... :) Bestu Kveðjur, Hr. Muzak [ 0 ] And the oscar for best wardrobe goes to...
Moonboots, fyrir glæsilegt '85 balla kostúm... :) eða þannig... Takið eftir einbeitingarsvipnum á baróninum á þessari! :) boy did we ever feel silly... :) Bestu Kveðjur, Hr. Muzak [ 0 ] þriðjudagur, nóvember 19, 2002
...og í öðrum fréttum...
Olíuskip með 70.000 tonn af olíu var að brotna í tvennt undan norðvesturströnd Spánar. Til hamingju Vesturlönd... Ég veit ekki einu sinni hvað á að segja... menn læra aldrei, aldrei... Hr. Muzak [ 4 ] Gleði Gleði Gleði!!!
JIBBÍÍÍÍÍÍÍ HÚRRRAAAA!!!! LOTR FOTR SE DVD KOMIN ÚÚÚÚÚÚÚÚTTTT!!!! :) YIHAAA!!! út... í... búð... ég... kaupa... já... Peter... Jackson... ... Guð... Bestu Kveðjur, Hr. Muzak [ 0 ] laugardagur, nóvember 16, 2002
Næturþankar hins djammfría Muzaks...
Snorri Barón Jónsson - Hinn geðþekki gítarleikari moonboots er einn af stofnendum og eigendum hinnar íslensku auglýsingastofu DBT sem þekktir eru fyrir skemmtilegar, frumlegar og oftar en ekki ansvíti smekklausar (*hóst*rautt*hóst*;-) ) auglýsingar. Þeir eru að mínu mati alveg í toppdeild íslenska auglýsingabransans... Nóg um það, ekki hef ég vit á þessu... Mér fannst litli strákurinn með heinz baunadósirnar alveg mergjaður, og Íshopp auglýsingarnar rúluðu að mínu mati... DBT átti þriggja ára afmæli í gærkveld, og þess vegna bauð Snorri okkur strákunum upp eftir, þar sem var opið hús og allt flotta fólkið lét sjá sig... Þarna var sumsagt frír bjór og kók og Toppur eins og fólk gat í sig látið (og ofan í töskur)... Allir skemmtu sér vel og léku DBT menn á alls oddi. Mér fannst geðveikt fyndið að sjá prúðbúnar Hverfisbarsregúlaragellur í fínu göllunum sínum á háu hælunum með allar voða flassí fínu merkjavörurnar sínar troða 6-8 flöskum af Coronabjór ofan í fínu merkjatöskurnar sínar. Ég sá meira að segja eina draga fram svona plastpoka eins og maður fær utan um sokka í tískubúðum og troða fjórum bjórum í viðbót ofan í hann. Turns out að þetta tízkupakk er víst alveg eins og við hin... hamstrar bjór og lætur eins og miðaldra húsmæður í Bónus... nóg um það... ég ætla að leika mér aðeins meira í tölvunni svo að ég verði nú örugglega skemmdur í fyrramálið... :) Bestu Kveðjur, Hr. Muzak [ 0 ] föstudagur, nóvember 15, 2002
MEIN GOTT IN HIMMEL!!!
ÉG EEELLSKAAA MS!!! '85 ballið var æðislegt. Moonboots rokkuðu feitt, en það besta var hinir dásamlegu búningar fólksins. á '85 ballinu líður okkur eins og heima hjá okkur. JE!!! Svo mætti Betarokk með sína fallinsenglarödd ;) og tjúttaði grimmt og söng með okkur. Beta, þú ert rokkmamma númer 1! MS-ingar tóku þetta af alefli og ég var gersamlega sleginn af kraftinum í þeim. Þar fyrir utan voru þarna svo yfirnáttúrulega sexý ungar stúlkur (og yfirnáttúrulega heppnir ungir strákar). Önnur hver hugsun sem ég hugsaði í kvöld var ávísun á brot á 209. grein almennra hegningarlaga og jafnvel fleirum... Úff hvað stelpurnar voru æðislegar... Og svo fóru þær allar heim með ungum sætum strákum, sem bæta reynsluleysi sitt upp með hraða... ;-) ÉG ELSKA YKKUR ÖLL!!! Djöfull líður mér vel núna... Tók góðan labbitúr með 20 kíló af fötum og drasli neðan af Broadway og heim í Drápuhlíðina Svona líður þá 120 kg manninum... úff... :) Góða nótt sjúgars... Hr. Muzak [ 6 ] fimmtudagur, nóvember 14, 2002
Hljómsveitarbúningar...
Moonboots lenti í pínu búningakreppu nýlega... Við keyptum þess vegna tonn af málningargöllum og spreybrúsa með fönkí litum... Svo spreyjuðum við málningargallana í gærkvöldi og komum heim frekar djúsaðir... Í dag fórum við og spiluðum í frímínútum fyrir MSinga til að undirbúa '85 ballið þeirra, sem ég hlakka feitt til að spila á. Ég svitnaði í "búningnum..." Spreymálningin fór að leysast upp, og í þriðja lagi var ég farinn að sjá ofsjónir. ;-) bwow bwow bwowwww.... :) súúúra lífsreynsla... :D Annars líta búningarnir mjög kúl út... Yðar vímuklæddi graðnagli... Hr. Muzak [ 0 ] miðvikudagur, nóvember 13, 2002
Náttúruvernd í hagfræðigæru...
Guðmundur Svansson skrifar ágætar pælingar um stóriðju á síðu sinni. Hann setur fram ansi marga skemmtilega punkta og spyr síðan af hverju náttúruverndarsinnar fara allt í einu að tala um hagfræði. Ég get svarað því mjög einfaldlega hr. Svansson. Þegar við náttúruverndarsinnar, hvort sem við erum af hippa- eða nútímaskólanum tölum um hugsjónir okkar er rökum okkar kastað fyrir borð sem "Tilfinningarökum". Hugsjónir okkar eru einskis virði og stjórnmálamenn segja að það sé ekki hægt að taka mark á einhverjum tilfinningasjónarmiðum, það eina sem mark sé takandi á séu beinhörð rök peninganna. Þetta segja líka landsvirkjunarmenn og aðrir. Þá neyðumst við til að fara niður á vígvöll efnishyggjusinna og reyna að glíma við þá á þeirra velli, því þeir hafa stjórn á öllu. Hvernig haldið þið að það sé að reyna að glíma við jarðýtu með fallegar hugsjónir einar að vopni? Hvernig haldið þið að það sé að reyna að rökræða á móti mönnum sem hafa öll völdin í höndum sér og líta á okkur sem leiðinda flugur sem suða bara og suða. Einu rökin sem eru haldbær á móti Landsvirkjun og stóriðjusinnum eru hagrök. Því miður. Það hlustar enginn á orð eins og "ósnortin víðerni eru mikilvæg manninum." og "Náttúran hefur gildi óháð okkur." Það eina sem fólk hlustar á er: "Vextir munu hækka", "Ál hefur eins og allir vita, verðteygna eftirspurn" og "Þetta er fjárhagslegt glapræði." Svo blöskrar mér persónulega það að eyða 750 MW til að búa til vinnu fyrir 400 manns. Ef Íslenska hagkerfið hvíldi á slíkri orkusóun væri ekki nóg af nýtanlegum vatnsföllum og jarðhita á öllu íslandi til að halda uppi vinnu fyrir 40.000 manns, hvað þá meira. Þetta er bruðl! Mín önnur rök eru þau að Ál er ekki örugg fjárfesting, stutt er í að bílar verði allir meira og minna úr polymerplasti (carbon fiber). Guðmundur: Þú gleymdir því líka að meðal umhverfisverndarsinna finnast einnig fjölfróðir menn og menn úr öllum stéttum, því er mjög lífleg umræða innan hópsins þar sem menn eru að leita leiða til að vernda hið ómetanlega. Meðal umhverfisverndarsinna finnast líffræðingar, jarðfræðingar, umhverfisfræðingar, lögfræðingar, landfræðingar, verkfræðingar, hagfræðingar, tölvunarfræðingar og fleira og fleira. Við erum að reyna að bjarga verðmætum sem fáir virðast meta, vegna auðblindu. Við sjáum líka að Stóriðjustefnan er tálsýn. Þess vegna finnst okkur tvöfalt hræðilegt að verið sé að eyða landi fyrir tálsýn eina. Bestu Kveðjur, Hr. Muzak [ 7 ] Jú, Ágúst...
Mér þykir leiðinlegt að hryggja yður herra Flygenring, en Kant er fullkomnlega eins leiðinlegur og óaðgengilegur og yður sýndist við fyrstu sýn... :-) Bestu Kveðjur, Hr. Muzak [ 1 ] Gay...
Jamm... Gay er síðan... :) Ég lagði upp með ólslökkvandi ást á pastellitum og ömurlegum ljósbleikblágrænum... Það hefur greinilega gert sig ;-) Gay er málið! :) Ánægður! Hr. Muzak [ 2 ] þriðjudagur, nóvember 12, 2002
HVERNIG ER ÞAÐ?!?
Er nýja útlitið mitt það ljótt að enginn þorir að dissa það?!? Kommon, gefa komment, þó það sé ekki nema í tölvupósti!!! Afskiptur! Hr. Muzak [ 15 ] Ramble ramble ramble grumblmumblgrumbl...
Ætli einhverjum dottið í hug að kannski finnist stelpum skemmtilegra að læra hugvísindi, hjúkrun og mannfræði heldur en verkfræði? Til hvers að tæla, lokka og ýta fólk út í eitthvað nám, bara til þess að jafna kynjahlutföllin? Ákkuru eru þá karlar ekki lokkaðir, tældir og ýtt út í kennslu, hjúkrun og svoleiðis? Getur það verið að körlum finnist það ekki eins spennandi? Má ekki vera neitt fag sem körlum finnst meira spennandi? Verður hreinlega að troða konum inn í allar glufur? Hvað með bifvélavirkja og húsasmiði, af hverju er ekki reynt að auka hlutfall kvenna í bifvélavirkjun eða húsasmíði eða jafnvel í pípulögnum og járnsmíði? Af því að það eru ekki "fín störf"? Hvað eru "fín störf" og hvað eru "ekki fín störf"? Er heimspeki ekki fínt starf af því að fólk heldur að við græðum engan pening á því? Er Verkfræði fínt og gott og gilt starf af því að fólk eignast pening og á flott skírteini upp á vegg? Maður spyr sig... Af hverju er ekki verið að reyna að auka hlut kvenna í iðnnámi og verknámi. Það er greinilegt að þar eiga launin eftir að hækka, fyrst karlar eru að sækja í það... eða hvað? Þetta er allt á villigötum. Bestu Kveðjur, Hr. Muzak [ 1 ] Áhugavert
Alltaf gaman þegar glittir ponsu í hrokann hjá fólki... Var að lesa hana Sóllilju og umfjöllun hennar um fundinn með Jafnréttis-Rósu... Fyrst segir hún um einn mælenda: "Hún sagði Félags- og hugvísindi ekki vera neitt óæðri vísindi en raunvísindi. Það er rétt. " Og strax á eftir bætir hún við: "Hún sagði félags- og hugvísindi innihalda abstrakt hugsun eins og hörð raunvísindi. Það er alrangt og fékk fundarmenn til að hlægja." Já er það? Inniheldur Heimspekin enga abstrakt hugsun? Eða Sál eða mannfræði? Ég held að hinum hláturmildu fundargestum og Sólliljunni sjálfri væri hollt að kynna sér málin fordómalaust áður en það fullyrðir svona hluti. Eða kannski þeim finnist bara skemmtilegra að hlæja... Svona eins og litlum strákum finnst fyndið að segja typpi... Ég veit ekki af hverju stelpurnar í raunvísindadeildinni kusu að ráðast frekar á Rósu (sem mér þykir persónulega vera ansi kvenhverf jafnréttistýpa) heldur en að ráðast á gaurinn sem sagði að konur væru einfaldlega líffræðilegar lélegri í stærðfræði en karlar... (kannski þeim finnist bara gott að vera taldar fatlaðar af alvöru raunvísindamanni en að vera taldar félagsmótaðar af einhverri félagsvísindabelju...) Svo þegar Rósa er búin að útskýra að hún sé ekki að halda því fram að stelpur séu lélegri námsmenn, þá halda stelpurnar áfram að ráðast á hana.... Kannski er vandamálið einhvers staðar annars staðar en hjá misskildum jafnréttisfulltrúa... Allavegana man ég eftir eftirfarandi rökræðu við herra G og fröken K hér forðum daga... ;-) Orðafar og stíll ýkt auðvitað (til þess að krydda tilveruna) Villuráfandi sauðir: "Heimspeki er ekki fræðigrein, ég gæti bara lesið heimspekibækur heima og þá er ég orðin heimspekingur. Allir heimspekinemar eru bjánar og vita ekki neitt og ekkert mark á þeim takandi." Hr. Muzak: "Þetta hljómar svolítið asnalega, sérstaklega ef ég set orðin verkfræði eða tölvunarfræði í staðinn fyrir orðið heimspeki. s.s. Verkfræði/tölvunarfræði er ekki fræðigrein, ég gæti bara lesið verkfræði/tölvunarfræðibækur heima og þá er ég orðinn Verkfræðingur/Tölvunarfræðingur. Sjáið til, hvort sem maður er að stúdera heimspeki, verkfræði, tölvunarfræði, hjúkrun eða mannfræði, þá snýst það ekki bara um að lesa bækurnar, heldur að sökkva sér ofan í fræðin og hljóta leiðsögn sér vitrari manna." Eftir þetta fékk ég svörin: Ertu að segja að verkfræði og tölvunarfræði séu ekki fræðigreinar? Þú ert sko vitlaus, vegna þess að verkfræði og tölvunarfræði eru sko erfiðar. Viðkomandi gagnrýnendur kusu að leiða hjá sér meginhluta röksemdanna og kusu að heyra aðeins hið feitletraða í málsgreininni: "Þetta hljómar svolítið asnalega, sérstaklega ef ég set orðin verkfræði eða tölvunarfræði í staðinn fyrir orðið heimspeki. s.s. Verkfræði/tölvunarfræði er ekki fræðigrein, ég gæti bara lesið verkfræði/tölvunarfræðibækur heima og þá er ég orðinn Verkfræðingur/Tölvunarfræðingur. Sjáið til, hvort sem maður er að stúdera heimspeki, verkfræði, tölvunarfræði, hjúkrun eða mannfræði, þá snýst það ekki bara um að lesa bækurnar, heldur að sökkva sér ofan í fræðin og hljóta leiðsögn sér vitrari manna." Samkvæmt mínum grófu og óstærðfræðikenndu útreikningum virðast þau sumsagt hafa lesið einungis 150 stafi af 490 í sjálfri röksemdafærslunni. það er rétt rúm 30% lesning, sem gæti nú varla gefið háa einkunn í verkfræði eða tölvunarfræði. Jújú, við getum ekki öll verið góð í skynsamlegum samræðum. En þá skulum við heldur ekki kalla okkur skynsöm eða rökræn eða halda því fram að annarra manna fræðigreinar (sem við höfum ekki sjálf lært) innihaldi enga óhlutbundna (abstrakt) hugsun. Það er fáfræði, og ekki viljum við vera fáfróð... ;-) Þannig að við skulum taka því rólega á hrokanum gagnvart öðrum vísindagreinum. Vísindin eru heild og vinna saman. Vísindin hafa sameiginlegt markmið, og her sem ekki kemur prúðlega fram innbyrðis getur ekki búist við miklu á sjálfum vígvellinum. OOOOGGG!!! Nú tek ég það sérstaklega fram, til að koma í veg fyrir holskeflu misbeindrar ýgi, að ég er ekki með þessu að ráðast á raunvísindanám eða nemendur í raunvísindum. Ég hef miklar mætur á raunvísindum. Bestu Kveðjur, Hr. Muzak [ 12 ] mánudagur, nóvember 11, 2002
Hr. Muzak Version 2.0 beta
Ég ákvað að endurskoða útlitið aðeins. Er ekki 100% sáttur, en samt betra en ekkert. Comments anyone??? Bestu Kveðjur, Herra Muzak [ 3 ] Vinstri sundrun...
Frægasta slagorð ungra sjálfstæðismanna og um leið leiðinlegasta klisja pólítískrar orðræðu Íslendinga er án nokkurs efa: "Íslenskir vinstrimenn eru alltaf sundraðir hmö hmö hmö hmö..." Satt er það... Íslenskir vinstri menn eru sundraðir, og er það vel. Það segir mér það eitt að íslenskir vinstri menn hafa hugrekki til þess að standa við sannfæringu sína. Gallinn er bara sá að á meðan frjálshyggjumenn láta íhaldið taka sig í kakóið og segja bara "já og amen og Davíð er bestur" á meðan Davíð og vinir hans deila auðæfum landsins á milli sín, sjá kjósendur hægri arminn sem "Sameinaðan" og "samheldinn". Já, það er ekkert fallegra en samheldni stóra brútal íhaldslubbans og litla sæta frjálshyggjufangans ("úbbs missti ég sápuna?") með kinnroðann og góða skapið sem er "láfan" í fangelsi sjálfstæðisflokksins. Það er augljóst hver er aðalpimpinn þar... Einkavæðing í huga íhaldsins: Pöpulnum er ekki treystandi fyrir peningum, það er best að fólk sem kann að fara með peninga, og kýs sjálfstæðisflokkinn, eigi allt... Einkavæðing í huga frjálshyggjumanna: Þó þetta ferli sé í raun hlægilegt með tilliti til frjálshyggjunnar, lítum þó allavegana ekki út eins og aular í augum almennings... vonum við... (Svo er alltaf betra þegar Íhaldið notar sleipiefni...) Eining hægrimanna heldur þeim við völd... Eining hægrimanna þýðir líka að hagsmunir almennings, lands og framtíðar munu alltaf vera skrambi aftarlega á merinni. Eining vinstri manna myndi líklega leiða til voðalega svipaðs ástands í landsmálum, bara með öfugum formerkjum. Valdaklíkur myndu sanka að sér völdum og fjármagni. Sundrung fylkinga er mun líklegri til þess að leiða af sér lýðræðislega niðurstöðu í málum en sameining. Lýðræði snýst um að margir hagsmunir spili saman og fundin sé málamiðlun. Í dag eru það einungis einir hagsmunir sem ráða. Meiri sundrung Meiri óeiningu Kljúfum Sjálfstæðisflokkinn í þrennt og sjáum alvöru stjórnmál myndast á Íslandi. Bestu Kveðjur, Hr. Muzak [ 5 ] Til hamingju
Jón Ólafsson með verðskuldaðan sigur á Edduverðlaununum. Þetta var afar ánægjulegt móment. Af fingrum fram er held ég besti sjónvarpsþáttur sem ég hef séð lengi og er alveg kreisígóð heimild um íslenska tónlistarmenn. Einar Oddur Frændi minn Kristjánsson með að vera þriðji "gamli kallinn" af fimm gömlum köllum í fimm efstu sætum sjálfstæðisflokksins í NV kjördæmi... :) Mér fannst samt ómaklegt að Einar fékk birta grein í Mogganum daginn eftir að hann sendi hana inn (bara af því að hann er alþingismaður), grein sem var einungis til þess ætluð að fiska atkvæði frá stóriðjufólkinu í nágreni (nei ekki nágrenni, nágreni) Hvalfjarðar. Mér þykir nú samt soldið vænt um kallinn þó hann sé atvinnupólítíkus... Það er ekki honum að kenna að hann er peð í her Davíðs. Samfylkingin, með prófkjör sem staðfesti gamla drullupollinn sem ætlar að fara alveg óbreyttur inn á þing fyrir utan einn "ungan" gæja sem er alveg eins og þau, einhvern alþingiserfingja... Þetta er sumsagt sami hópurinn og var fyrir fokkíng 10 árum, allt eitthvað gamalt nöldurpakk sem næstum enginn hefur trú á... Enginn þarna inni með ferskar hugmyndir... neeeemaaa... Þórunn Sveinbjarnardóttir, sem er ógeðslega klár og náði þriðja sæti í SV kjördæmi... Við skulum bara vona að hún komist aftur inn á þing, því hún er langbesta þingkona (og þingmaður) Íslands, algerlega... Þórunn er svona gella sem hakkar í sig gömlu kreddukallana í Silfri Egils og mölvar öll rök gömlu kaldastríðssjallanna í rökræðum. Áfram Þórunn... Jakob Frímann Magnússon, með að sleppa við að hanga með Merði og kó inn á þingi... (Guðrún Ögmunds er samt kúl... Hún er töff kúkkí...) Nú getur hann farið að einbeita sér að því sem hann er góður í, lobbíisma og baktjaldamakki. (sem er bara kúl...) Sorrí Kobbi minn, þú verður bara aldrei samþykktur af sauðsvörtum almúganum... Þú munt alltaf verða slísí gæinn í "Með allt á hreinu"... :) Ætli maður endi samt ekki á að kjósa annað hvort Samf eða VG bara til þess að reyna að vinna á móti þessum helvítis fasistum sem handtaka fólk fyrir að vera í gulum peysum... Bara af því að það þjónar ekki hagsmunum Íslendinga á þessum tíma... Hey, það þjónar ekki hagsmunum Íslendinga að ég prumpi í Lobbíi Háskólabíós þegar mikilvægir tölvukallar eru þar að funda, en ég vona að ég verði ekki handtekinn fyrir það ef það einhvern tímann gerist... Ég er allskostar ánægður með helgina. Moonboots rokkuðu feitt á Örgiggi sem við tókum í þrítugsammæli vinar Snorra Gítarleikara... Svo var líka hellakúl að fara austur fyrir fjall og taka viðtöl. Rannsóknarvinna er stuð... Bestu Kveðjur, Hr. Muzak p.s. Ég er búinn að lesa nokkur blogg undanfarið sem eru eitthvað að rökstyðja andúð sína á JFM. Ég get ekki sagt að viðkomandi aðilar hafi náð að sannfæra mig með því t.d. að segja að það sé það sama að vinna fyrir ríkið sem menningarfulltrúi og að sjúga úr sjóðum. Ég get heldur ekki sagt að óstuddar fullyrðingar um þjófnað og gróusögur um fjárdrátt geri mikið fyrir mig. Ég vil almennileg rök, ekki bara gróusögur sem eru spunnar upp úr illkvittni... p.p.s. Ætlar virkilega enginn í vísindasamfélaginu að fetta fingur út í orð Valgerðar Sverrisdóttur að íslenskir vísindamenn láti niðurstöður sínar stjórnast af tilfinningum? Er ekki mun nærri lagi að Íslenskir stjórnmálamenn hundsi vísindaniðurstöður í þágu hagsmuna... (Það sýnir sagan okkur allavegana...) Íslenskir vísindamenn með DOKTORSPRÓF frá VIRTUM HÁSKÓLUM FALSA EKKI NIÐURSTÖÐUR SÍNAR. Kannski einn... En ekki tveir og þaðan af síður þrír, fjórir eða fimm í sömu helvítis rannsókninni... KOMMON!!! Viðbót, um miðja nótt... Margrét Frímanns segist hafa "teflt djarft" í prófkjörinu. Teflt djarft eh? Orðið Blackmail þýðist illa yfir á íslensku, en venjuleg þýðing er fjárkúgun. Blackmail þýðir í rauninni að menn séu neyddir til hluta sem þeir vilja ekki gera með hótunum eða ógnunum. Emotional blackmail þýðir sumsagt í beinni þýðingu tilfinningaleg fjárkúgun. (Jafnvel "samviskubitsmeðferð".) Í raun má segja að Margrét hafi beitt svokallaðri tilfinningalegri kjörkúgun með því að segja hinn klassíska leiðindafrasa (sem "konur" virðast eiga einkarétt á...) Nú ef ég fæ ekki að ráða og vera aðal, þá er ég bara farinn og vil ekkert leika. Hún sættir sig sumsagt ekki við að spila með liðinu, heldur vill bara vera fyrirliði. Svo skellir hún slíku vali á sína kjósendur að hún hætti bara ef hún fær annað sætið. Æðisleg leið til þess að tryggja góða samvinnu við aðra flokksmenn og gott samband innan flokksins, að kúga fólk til hlýðni með samviskubitsmeðferð. [ 2 ] laugardagur, nóvember 09, 2002
Vangaveltur um Jakob Frímann...
Á nokkrum bloggum íslenskum má finna nokkuð þétta og fókuseraða andúð á Jakobi Frímanni Magnússyni. Ég velti fyrir mér hvers vegna það sé... Sjálfur er ég fávís og þekki manninn lítið utan þess að mér finnst hann dulítið hallærislegur þegar hann talar eins og Jón Sigurðsson og mér finnst hann vera hreint ótrúlegur tónlistarmaður. Hvers vegna er sumum svona svakalega illa við Jakob Frímann, og hvers vegna er hann síðan tilbeðinn af öðrum? Ókei, gæinn er/var í stuðmönnum og þeir voru voða artí og flottir og fyndnir, en ég hreinlega þoli ekki þegar fólk er með einhverja með allt á hreinu nostalgíu og alltaf að sívitna í greyið filmuna. Leyfið tímanum að líða. Leyfið fortíðinni að vera fortíð... Sama má segja um þetta pakk sem er alltaf að dissa greyið kallinn. Það er alltaf einhvern veginn fixerað á fýlu sína út í Frímann Flygenring karakterinn í Með allt á hreinu (hann er náttúrulega soldið fastur í karakter...) og getur ekki fyrirgefið honum að vera svona hátíðlegur í tali. Svo er það þegar fólki er í nöp við hann af því að hann sé tækifærissinni... Ekki alveg að skilja það... Hefur hann skipt róttæklega um skoðun á einhverjum hlut algerlega órökstutt? Hefur hann framið einhver hræðileg svik sem ég hef misst af? Ég þekki gæjann ekki af öðru heldur en því að hann er litríkur viðskiptakall og brilljant músíker. Hann var menningarfulltrúi í London, jújú, en ég veit ekki betur en að hann hafi sent margar stoðsendingar að meiki og kynningu, þó menn hafi oftar en ekki brennt af. Æi... ég veit ekki... Ég ákvað bara að taka gæjann á Face Value. Jakob segist vera á móti stóriðju og virkjanabruðli vegna þess að hann vilji leita hugvitssamlegri lausna á vandanum. Ég er sammála því... Jakob segist vilja gera betur við tónlistarmenn og styðja við bakið á þeim. Af fortíð hans að dæma mælir hann heill. Þessu er ég líka sammála... Mér finnst hann tala asnalega... En, þegar ég veg og met allt, þá held ég að Jakob sé bara ókei gæi og hann fengi mitt atkvæði ef hann væri ekki umkringdur Bryndísi Hlöðvers, Jóhönnu Sigurðar, Margréti Frímanns, Ágústi Einarssyni og fleiri labbakútum... (sumsagt, ef fólkið í kringum hann hefði eitthvað vit í kollinum...) Sjálfstæðismenn eru jafnvel enn verri... Þeir eru ekki einu sinni að reyna að vera ókei, þeir höfða bara til skammtímahagsmunanna... BLEH! Veit ekkert hvað ég á að kjósa núna... Samfylkingin sveik hálendið af því að þeir nenntu ekki að koma með betri hugmynd en Álver til þess að bæta kjör landsmanna. Það er að mínu mati pólítísk leti og ber þess ekki vitni að menn séu graðir í að breyta hlutunum. Bestu Kveðjur, Hr. Muzak [ 5 ] föstudagur, nóvember 08, 2002
Úsvæfur - jejeje
Í kvöld ætla Moonboots að taka nýja æfingarhúsnæðið í gegn með kúbeini, sleggju og slípirokk! Það verður stuuuð! í öðrum fréttum má segja það að eina umfjöllun Morgunblaðsins um meint ósannindi og óheilindi Landsvirkjunar felst í birtingu yfirlýsingar VSÓ Verkfræðistofu um það að þeir hafi sko ekkert gert vitlaust og farið að öllum reglum. Ég var satt að segja hissa að sjá ekki fyrirsögnina "Óheiðarlegir og meinfúsir "Vísindamenn" ráðast með dylgjum að leiðtogum vorum." Mogginn er gott blað, en stundum reynist þeim erfitt að stinga sig frá hagsmunatengslunum og fjalla á óhlutdrægan hátt um hlutina. Bestu Kveðjur, Hr. Muzak [ 7 ] fimmtudagur, nóvember 07, 2002
Valgerður Sverrisdóttir slær í gegn...
Nú heldur Valgerður Sverrisdóttir (í mótsvari við ásakanir um pólítíska ritskoðun Landsvirkjunar) því fram að Vísindamenn láti pólítík skerða vísindalegar niðurstöður sínar. Hvað ætli íslenska vísindasamfélagið segi nú við þessu? Hvort ætli sé líklegra, að peningaelskandi stjórnmálabéus hundsi vísindaniðurstöður til að fá sinn pólítíska tilgang fram, eða að náttúruelskandi vísindamaður falsi niðurstöður til þess að ná fram "pólítískri stefnu" sinni? Jah... ég segi nú bara eins og í gamla daga: Margur heldur mig sig... Bestu Kveðjur, Hr. Muzak [ 1 ] Upp komast svik um síðir, og stundum um snemmir...
Jæja, nú er að koma í ljós að Landsvirkjun er að panta niðurstöður sem henta þeim og breyta vísindalegum niðurstöðum til að þær henti sér betur. Kannski ekki við öðru að búast þegar FRAMKVÆMDAAÐILI ER ÁBYRGUR FYRIR UMHVERFISMATINU!!! Kannski gefur þetta okkur vísbendingu um það að það er ekki allt í lagi hér á Íslandi varðandi vald ríkisstofnana. Persónulega hef ég heyrt frá nokkrum íslenskum vísindamönnum að þeim hafi verið hótað brottrekstri frá Háskólanum og öðrum stofnunum og því að slökkt verði á verkefnum þeirra ef þeir hafa hátt um Landsvirkjun eða ef þeir gagnrýna ríkisstjórnina á annan hátt... Teppið er stórt... Maður veltir því fyrir sér hvort Davíð sé með sérstök uppblásanleg teppi í skjalatösku sem hann getur lánað útsendurum sínum og bara sent þá þangað sem þeir þurfa að fara... Smá leikrit í tilefni dagsins... Staður: Hringborð á Hótel Holti. Ráðamenn og eigendur þjóðarauðsins ræða um nýjar og skemmtilegar leiðir til að halda almenningi undir járnhæl pilsfaldakapítalismans... Forsætisráðherra: ...og svo sagði ég við hann: "Ef þú fílar ekki að búa á Íslandi með mig sem forsætisráðherra, þá geturðu bara flutt til Noregs, því ég skal sjá til þess að hvorki þú né neinn úr þinni fjölskyldu fái nokkurn tíma starf eða styrk til eins né neins frá neinum... HAHAHAHA Allir...HAHAHAHAHAHA (Lýsi slettist af búsældarlegum undirhökum...) Landsvirkjunargæi: Hurðu minn kæri forsætisráðherra (sem er obboslega góður vinur minn)... Ég þarf að búa til virkjun til að kasta orku út um kýraugað á þjóðarskútunni... Hérna, þarf ég ekki að fá einhver leyfi til að vinstrimenn geti ekki röflað... Forsætisráðherra: Jújú, en það er ekkert mál, þú bara kannar málið sjálfur og sendir okkur skýrslu sem þú "lætur alvöru vísindamenn búa til fyrir þig" um afleiðingar virkjunarinnar... hahahaha Landsvirkjunargæi: hahahaha Báðir: HAHAHAHAHA Seinna Staður: Rannsóknarstofa Prófessors Palla Prófessor Palli: Heyrðu Landsvirkjunargaur Landsvirkjunargaur: (reykir stóran havanavindil, slekkur í honum í petriskál) Hvað? Prófessor Palli: Sko... Niðurstaða mín er eftirfarandi: Áhrif virkjunarinnar á lífríki og vatnasvið svæðisins eru óásættanleg og óafturkræf og mikil hætta er á stórfelldum neikvæðum áhrifum á vistkerfi á stóru svæði umhverfis lón og veituskurði. Auk þess er mjög vafasamt að hækka yfirborð fljóts sem liggur í gegnum byggð. Landsvirkjunargaur: Sko... Nú skal ég segja þér hvað við gerum. Þú steinþegir yfir þessu, ellegar vinnurðu aldrei aftur á þessu skeri. Ég fæ mútupeningana mína frá álfyrirtækinu og við breytum textanum svona: "Áhrif virkjunarinnar á lífríki og vatnasvið svæðisins eru frábær og upplífgandi og engin hætta er á neinum einustu neikvæðum áhrifum á vistkerfi á stóru svæði umhverfis lón og veituskurði... bara jákvæðum. Auk þess er hellakúl að hækka yfirborð fljóts sem liggur í gegnum byggð vegna þess að þá geta allir farið á vatnaskíði. Svo verða gæsirnar svo glaðar af því að það er komið vatn sem þær geta synt á... jibbí kóla... Prófessor Palli: eh... jibbí kóla? eh... þú ert að vega svolítið að mínum faglegu heilindum... Landsvirkjunargaur: Fagleg heilindi, smagleg smeilindi, þú ert bara hippi og aumingi og ef þú hlýðir ekki, þá fer fyrir þér eins og Helga Hóseasyni. Þú verður bara settur inn á klepp og þegiðu svo... Prófessor Palli: Svo þú heldur það... Ég fékk nú ekki doktorsgráðuna frá Yale fyrir ekki neitt... Helvítis bananalýðveldisfasistinn þinn... Ég er farinn í fjölmiðlana... Fjölmiðlar grípa málið, kjósendur verða forviða og reiðir og kjósa flokkinn vonda ekki aftur fyrr en vondukallarnir eru allir farnir og fjölskyldurnar 14 sem eiga landið skila einhverju af peningunum sem þær stálu í skjóli einokunar alla síðustu öld til fólksins... Dream on... Fólk mun segja hurmurrmurr... Davíð mun segja "Þetta er lýgi og aumingjaskapur, enginn sagði neitt svona!", Einhver mun semja ferskeytlu um þetta og hún mun ganga í rusltölvupósti milli manna og Sjálfstæðisflokkurinn mun fá 45% atkvæða í kosningunum... Akkuru? Af því að íslenskir kjósendur eru rollur og höfðingjasleikjur... :) Samt gaman að lesa svona skemmtilega hluti í fréttablaðinu... Bara skrýtið að hvorki Rúv né Mogginn hafa tekið á málinu... Bláa hön... (ú, síminn hringir... hver ætli það sé... Halló... úúú, herra Davíð Oddsson, vá, þvílíkur heiður... teppi? hætta að blogga svona ljótt um þig??? Annars fái ég aldrei starf? HAH! Þarna sneri ég á þig!!! Ég flyt til Danmerkur ef þú ætlar að vera með eitthvað moð við mig... Ég nenni ekki að hanga innan um svona aumingja og höfðingjasleikjur hvort eð er....) Bestu Kveðjur, Hr. Muzak [ 5 ] miðvikudagur, nóvember 06, 2002
Maður veltir stundum fyrir sér...
Maður veltir stundum fyrir sér hvort svona gæjar eins og Stefán Einar séu í alvörunni eins grunnhyggnir og þeir virðast eða hvort þeir séu að beita einhverjum hárfínum kaldhæðnisvíbrum til að koma sínum boðskap til skila... Annað hvort eru þeir sumsagt hreinir snillingar eða með áður óþekkt magn mykju í kollinum... :-) Ég hef, hvort sem það er, ofboðslega gaman að því að lesa svona gæja... Það styrkir mig í minni hugsjón gegn stríði, mannvonsku og óréttlæti í heiminum, hvorn veginn sem þeir sjálfir hallast. Þannig má segja að hver sem tilgangur þeirra er, er útkoman ein og hin sama. Bestu Kveðjur, Hr. Muzak p.s. Ahem... Nú má alls ekki álykta sem svo að Hr. Muzak sé illa við Stefán Einar eða telji hann á nokkurn hátt verri manneskju en okkur hin. Hr. Muzak þykir hins vegar efnistök téðs Stefáns á raunveruleikanum gjarnan bráðfyndin... Spurningin er aðallega hvort Stefáni finnist það líka... :-) [ 2 ] Svo bregðast ameríkanar sem aðrir kanar...
Blessaðir kanarnir eru búnir að kjósa yfir sig hrúgu af hægrimönnum sem munu nú nota jástimplana sína á allar tillögur kristilegra öfgamanna, ofurfrjálshyggjuíhaldsmanna og rasista. Dásamlegt... Nú er ekkert til fyrirstöðu að "gömlu góðu gildin" fái að ráða Bandaríkjunum, og sést það mætavel á nýjasta uppátæki þeirra, sem er að taka menn af lífi án dóms og laga í öðru landi... Maður er bara orðinn hálf smeykur við að segja skoðun sína, það gæti komið mannlaus þyrla og plaffað mig niður. Jibbí kóla... Til hamingju nasistar allra landa. Ekki það að Demókratarnir hafi haft nein eistu undanfarið árið... Hr. Muzak [ 2 ] þriðjudagur, nóvember 05, 2002
BLARGH!!!
Ég er ekki að höndla þessa daga. Ég er rétt að vona að ég komist aftur á fætur úr þessu þunglyndi sem er búið að lyggja yfir mér eins og súrt prump úr gömlum kalli síðustu vikur. Ég er búinn að vanrækja skólann alveg tótallí. Tónlistin er búin að fá þétt diss og líkaminn líka. Ég veit að ég ætti að fara að hreyfa mig meira núna (til þess að fríska upp heilann), en alltaf þegar ég geri það, þá versnar kvefið og hálsbólgan sem ég er búinn að vera með í fjórar vikur og mér slær niður. Hvað er til fokking ráða??? Bestu Kveðjur, Hr. Muzak [ 1 ] mánudagur, nóvember 04, 2002
Ákkuru getur fólk ekki bara sagt skemmtilega sögu...?
Mér finnst það alltaf vera einkenni rithöfunda í kreppu þegar þeir grípa til þess örþrifaráðs að láta eina söguhetju fá krabbamein eða heilaæxli eða jafnvel drepa þennan eða hinn. Ákkuru geta rithöfundar ekki bara leyft sér að hafa hlutina góða og skemmtilega? T.d. enginn spennu/drama/hálfgamanþáttur sem maður sér í sjónvarpinu endist tvö tímabil án þess að einhver fái krabbamein, sé skotinn til bana eða fái heilablóðfall. Sama er nú að gerast hjá greyið kellingunni sem er að skrifa Harry Potter, það þarf alltaf að drepa einhvern til að hafa söguna spennandi. (er það virkilega svoleiðis?) Er ekki hægt að hafa sögur spennandi án þess að kála söguhetjum? bara að pæla... Hr. Muzak [ 1 ] Til hamingju Emilíana
Maður verður nú bara að gefa Emilíönu Torrini elektróknús í tilefni af þessu frábæra breiki sem hún var að fá. Það er ekki hægt að segja annað en að Emilíana hafi svo sannarlega unnið fyrir þessu og hún á það algerlega skilið. :-) Maður fyllist miklum samfögnuði og hamingju fyrir hennar hönd og ég er bara stoltur af stelpunni... :) Bestu Kveðjur, Hr. Muzak [ 2 ] sunnudagur, nóvember 03, 2002
ÓÓGEEEÐSLEGA ÞREYTTUR!!!
Vá... erfið helgi... Moonboots byrjuðu á því að vakna kl. 10 á laugardagsmorgun og hífa sig niður í Heklu kl. 11:00 til að spila á 50 ára afmæli VolksWagen á Íslandi. Það var ógusslega gaman og við djömmuðum bara akústískt með kassagítar og kontrabassa og svoleiðis. Kl. 17:00 var það búið (6 tímar) og við drifum okkur heim að ná smá hvíld fyrir kvöldið... Ég horfði á Starship Troopers á DVD, helvíti gott... Svo var farið niður á Gauk og spilað frá 1 til 5. Ágætis stuð og allt það, hefðu mátt vera fleiri, en samt alveg í góðu lagi, rúmlega hálffullur kofi. Samt eitthvað slappur bær í gangi. Aðdáendur sveitarinnar voru hins vegar dásamlegir, utan tveggja vitleysinga sem öskruðu allan tímann (4 klst.) að spila Run to the hills. Það er mjög þreytandi og gerði okkur erfitt fyrir að flytja tónlistina okkar með tvo svona lúða bara böggandi okkur fyrir framan sviðið. Þooolinmæææðiiii... Komumst ágætlega frá gigginu þrátt fyrir þreytu og mikið kvef. Ég var eins og mæðuveikur hestur uppi á sviðinu, ég var svo móður og másandi af kvefi. Kom heim kl. rétt að verða sex og fór að sofa. Vaknaði kl. 10:45 og dreif mig niður í Heklu þar sem við héldum áfram að spila þar. Það var sumsagt togaravakt hjá hljómsveitinni Moonboots... Sunnudagsspilamennskan var engu að síður skemmtilegri en laugardagsgiggið í Heklu. Við gerðum fullt af flottum tilraunum með lög, t.d. moðerfokker Gómez útgáfu af Ghostbusters. Drullu þreyttur... hvíla mig núna... Sé ykkur fljótlega... Hr. Muzak p.s. Már var að svara einhverjum frjálshyggjubeturvita sem vildi meina að Hrói Höttur hefði verið kommúnisti og ræningi og alls kostar ógeðfelld týpa... :) Már sagði pass á siðferðislega réttstöðu Hróa Hattar. Ég vil ganga lengra... Hrói Höttur átti fullkominn rétt á því að ræna hina ríku og gefa þeim fátæku... Í raun má segja að Hrói hafi verið fyrsta hetja frjálshyggjunnar. Hann var nebbnilega í uppreisn gegn skattpíningu ríkisvaldsins og óréttmætri skerðingu eignarétts almennings... Sjáið til, eina ástæðan fyrir því að "þeir ríku" voru svona ríkir og "þeir fátæku" voru svona fátækir, var að þeir ríku skattpíndu þá fátæku og notuðu skattpeningana ekki einu sinni almenningi til góða, heldur einungis undir eigin rass... Þannig gerði Hrói Höttur uppreisn gegn skattpíningu ríkisins og barðist gegn óréttlátum skítakommúnisma með því að leiðrétta skattpíninguna þannig að fólk borgaði í raun réttlátan skatt... [ 4 ] laugardagur, nóvember 02, 2002
Moonboots spila á Gauknum í kvöld, laugardagskvöld
Moonboots Spila í Kvöld!!! Jæja gott fólk, Ég ætla rétt að vona að þið látið sjá ykkur á Gauknum í kveld. Þar mun ofurhljómsveitin Moonboots auðvitað láta sjá sig og elska ykkur upp úr skónum. 80's lifir!!! Síttaðaftan ríkir!!! MOONBOOTS Rúla!!! Bestu kveðjur, Hr. Muzak [ 1 ] |
Eva
Örn "Mugison"
Elias Tónlistarmönnum sem gefa tónlist
sína á netinu er velkomið að hafa samband
við Hr. Muzak og þá bæti ég þeim
á listann.
Laukurinn rúlar
Dr. Gunni
| |||