![]() |
Þankatankurinn
|
![]() |
||||
|
Svavar Knútur Kristinsson, Félagsauðströll, heimspekingur, umhverfis-verndarsinni og tónlistarmaður. NÝTT!!!
|
Nýjustu Demó: Ástarsaga úr fjöllunum (Sumarið 2005) Goodbye my lovely (19. júní 2005) Your love was death to me (Janúar 2005) Call off your Cavalry (September 2004) You should call a doctor (Maí 2004) Kysstu tímaglasið (endurbætt útgáfa 2004) Mother's day Jólaplata Hrauns 2003: Þrautgóðir á Hraunarstund Jólaplata Hrauns 2005: Höldum jól Jólaplata Hrauns 2006: Jólamolar |
laugardagur, desember 28, 2002
Kettlingafréttir...
Kettlingarnir eru orðnir gríðarlega hressir og slást við allt sem fyrir er, dúkkur, peysur, stólfætur, sokka, hvorn annan, fjölskyldumeðlimi. Ef ég væri með myndavélinamína *hóst*Vísbending...*hóst* þá myndi ég senda fullt af fínum myndum á netið núna... En ég er ekki með hana... *hóst*Vísbending...*hóst* Bestu Kveðjur, Svavar [ 4 ] föstudagur, desember 27, 2002
Gleðileg jól öll sömul!
Jæja, nú var internettengingin mín að komast í lag í fyrsta skipti síðan á þorláksmessu og ég krossa fingurna að hún hrynjji ekki á meðan ég skrifa þetta... Ég skar niður jólakortin í ár úr 80 í 40 og keyrði þau út. 24 jólakort voru í formi sérstakrar jólaútgáfu af disk Hr. Muzak. Ég bið alla sem ég skar niður innilega afsökunar, þið vitið að ég elska ykkur ógeðslega mikið þó ég hafi skorið niður jólakortin til ykkar... Ég var einfaldlega í rusli af álagi og hafði engan tíma eða orku til að gera þetta eins vel og ég hefði viljað. Ég vona að þið hafið öll haft það ofsalega gott á þessari vetrarsólhvarfahátíð alls heimsins. Ég heyrði einhverja konu segja í útvarpinu á aðfangadag að jólin væru kristin hátíð og þeir sem ekki eru í kristnum trúfélögum haldi ekki jól... Ég ætlaði að öskra! Þau eru ekkert kristnari hátíð heldur en töðugjöld eða jónsmessan! URG!!! En hvað með það, fáfróðar ruglukonur á RÚV fá ekki að rugla í mínu barni. Ég útskýrði vandlega fyrir Dagbjörtu að jólin væru líka haldin vegna þess að nú færi að birta og dagurinn að lengjast. Ég fer á morgun til Vestfjarða, til Suðureyrar nánar tiltekið... Það verður ógeðslega fínt... Áramótin fyrir vestan eru góð... þar er hver einasti flugeldur einstakur og hver einasti bjór drukkinn til heiðurs einhverjum ;) Bestu Kveðjur, Hr. Muzak [ 1 ] mánudagur, desember 23, 2002
Jólunum reddað...
Hej allihoppa, Leiðinlegt að vera svona blóðlítill í blogginu, en ég er búinn að vera ógeðslega bissí... Ég hljóp um víðan völl leitandi að jólagjöfinni sem ég var búinn að ákveða að gefa Pálínu... Vísbending: 24 ára gömul prentun af klassísku bókmenntaverki í þremur bindum, þjóðsögum frá framandi löndum... (Hún les aldrei síðuna mína, svo ég hef engar áhyggjur að hún fatti neitt...) Svo fundum við mamma bækurnar í kassa í dánarbúinu hans pabba og hún leyfði mér að eiga þær til að gefa Pálínu í Jólagjöf. Þetta á að vera svona rómantískur erfðagripur... Svo kannski gefur Dagbjört sínum sálufélaga bækurnar í fjarlægri framtíð... :) En, málin standa sumsagt þannig að ég er kominn í geðveikt jólastuð og er að skanna eftir nokkrum jólagjöfum í viðbót og svo fer maður að skrifa öll jólakortin... Jú einmitt, þið lásuð rétt, ég á eftir að skrifa jólakortin, en það er allt í lagi, því við Stebbi keyrum þau út á Þorláksmessunótt... Það er sex ára gömul hefð og er eiginlega búin að festast nokkuð vel í sessi... Mig dreymdi furðulegan draum í nótt... Mér leið svo vel á meðan... Mig dreymdi að ég næði skepnuskap Valgerðar Sverrisdóttur á vídeóteip og sýndi það í fjölmiðlum... Svona svolítið eins og í V þáttunum forðum daga... En svo vaknaði ég og Valgerður er enn iðnaðar og viðskiptaráðherra með grútarbræðslupólítíkina sína. Hún á svo skilið að stíga úr stólnum. Bestu Kveðjur, Hr. Svavar [ 3 ] laugardagur, desember 21, 2002
Spilerí í dag...
Íslenskir "Svokallaðir" umhverfissinnar halda sólstöðuhátíð í dag á Austurvelli. Tónleikar, upplestur og alls konar dót frá fjögur til tíu. Hr. Muzak lætur sjá sig um sexleytið. Við ákváðum að búa til svona tónleika þar sem allt snýst bara um að vera glaður og hress í skammdeginu og enginn að væla eða kvarta yfir neinu, heldur láta jákvæðnina stýra deginum... Látið sjá ykkur, Herr Muzak [ 1 ] föstudagur, desember 20, 2002
Prófin búin, kettlingar byrjaðir að hlaupa...
Jæja krakkar... nú er maður búinn í prófunum. Bara fimm smáverkefni eftir og þá er ég frjáls maður... Humm... Kettlingarnir eru farnir að dansa um gólfið hlaupandi, hnusandi af öllu og öllum... lemjandi hver annan í góðum fílíng... Þeir eru ógeðslega sætir, svona litlar fitubollur sem detta á hausinn í fjórða hverju skrefi... Bestu kveðjur, Hr. Muzak p.s. af hverju geta vinstri flokkarnir ekki drullað sér til að plotta almennilega saman? Af hverju þarf Steingrímur J. að stökkva svona átta mannhæðir í loft upp í æsingi og skemma þannig alla möguleika á að það myndist vinstri sveifla í íslenskum stjórnmálum. Eina leiðin til þess að ná völdunum af Ég-skal-passa-að-enginn-verði-ríkur-nema-þú-herra-Thors-Engeyjarættargæi-kemurðu-með-í-lax?-Flokknum er að snúa bökum saman og segja, "hey kúl, velkomin í slagin Ingibjörg Sólrún! Ekki veitir af þinni hjálp til að kveða niður þessa níðingastjórn." En nei... þeir verða bara að vera fúlir og nöldra og skammast og væla og valda því að kjósendur vinstri flokkana verða alltaf á endanum sömu gömlu 40 prósentin, fúlir öryrkjar og gamalmenni og einstæðar húsmæður og kveinandi vælukjóar og stöku menntaelítukratar og hippalistamenn... (eins og ég...) Djöfull gætu vinstri flokkarnir rúllað þessu upp ef þeir bara slepptu því að krafsa þessi örfáu atkvæði hver af öðrum og reyndu að ná atkvæðum af sjálfstæðisflokknum í staðinn... En nei... Þeir bara geta ekki hætt að slást eins og skítugir flórhundar á hlaði... Svo myndi nú ekki skemma fyrir ef Össur hætti að hrópa upp undir eins og einhver könnun sýnir eitthvað og segði kannski frekar: "jújú, kannanir segja þetta í dag og annað á morgun, sjáum bara hvernig fer..." En nei, hann stekkur alltaf upp og segir: "JÁ, ÞETTA ER ALLT MÉR AÐ ÞAKKA! ÞETTA SÝNIR ÖLLUM AÐ SAMFYLKINGIN RÚLAR MEST OG FEITAST OG ÉG ER BESTI FORMAÐUR Í HEIMI!!!" Vera svolítið dannaðir krakkar mínir... Bestu Kveðjur, Hr. Svavar [ 0 ] þriðjudagur, desember 17, 2002
Erfiðasta verkefnið búið... blóm og friður... líf og ást...
Var að klára ógeðslega erfitt verkefni í morgun... Rannsóknarskýrslan í eigindlegum rannsóknaraðferðum er búin, loksins... 21 síða af rannsóknarniðurstöðum og aðferðafræðipælingum á einungis sex og hálfum tíma... geri aðrir betur. Að vísu endurspeglar sá tími alls ekki vinnuna sem fór í þetta dæmi... Ætli ég hafi ekki eytt samtals tveimur heilum vikum í að svitna yfir þessu áður en ég skrifaði sjálfa skýrsluna. Skýrslan var bara afurð þessa svita. Svo brotnaði úr mér fylling um daginn, skemmd hafði fengið að grassera óáreitt undir fyllingunni í nokkur ár og svo splundraðist allt undir lakkrísreim... :) Ég ákvað að fara ekki til tannlæknisins míns sem minnir á fóstbræðrasketsinn með "Rússkí - Karamba!!!" pælingunni... Pálína hringdi í annan... Björn Þórólfsson eða eitthvað á Háteigsvegi, ég kem nafninu á hreint þegar hún kemur... Gæínn var brilljant, ekkert nema faglegheitin og ofboðslega pró. Maður lifandi, svo kostaði þetta miklu minna en ég bjóst við... (örugglega fyrsti skammturinn af novocaine ókeypis...) Ég meina, þetta var ekkert smá ginnungagap sem brotnaði frá gott fólk, hann þurfti fjóra skammta af fyllingarefni til að díla við þetta skrýmsl... En nú liggja bara fyrir fimm stuttar skýrslur og eitt vistfræðipróf, sem ég er því miður ekki vel undirbúinn fyrir, enda voru tímarnir alltaf klukkan átta á morgnanna... Súrt... Bestu Kveðjur, Hr. Muzak [ 2 ] mánudagur, desember 16, 2002
Ég ætla að leyfa mér að...
...linka á hann Mugison, tær snillingur sem var með mér í MH í gamla daga og ég hef alltaf borið mikla virðingu fyrir. Örn Elías heitir hann og er að gefa út alveg frábæra plötu. Hann gefur líka lögin á netinu, fyrir hraða jafnt sem hæga... Svona menn finnst mér frábærir og ég bið ykkur öll um að hlusta á lögin hans og kaupa plötuna hans. Bestu Kveðjur, Hr. Muzak [ 0 ] föstudagur, desember 13, 2002
Húrra! Ég bjó til slangurorð!
Ég fleygði hér nýlega fram í djóki orðinu "Deigluslavinn" um hann Pawel á Deiglunni... Þetta var, eins og reglulegir lesendur mínir skilja væntanlega, ekki skrifað í neinum rasískum skilningi, heldur meira vegna þess að hann er eini þekkti Slavinn á Deiglunni og mér þykir gaman að nefna fólk öðruvísi en venja þykir... :) Og nú er þetta skemmtilega orð "Deigluslavi" komið í almenna notkun og þykir mér það frábært. Ég vona að einhver eigi eftir að kalla mig Hægrigræna Keltann, eða eitthvað... :D Það er gott að menn hafa húmor fyrir svona hlutum, en það er leiðinlegt þegar fólk virðist taka þessu sem einhvers konar Rasisma, fólk er kannski full gratt í krossferðastartholunum og á það til að þjófstarta... :) Svo er Slavi líka svo flott orð, það kveikir strax upp í manni myndir af manni með svarthár og risastórt svart yfirvaraskegg reynandi að selja manni ferðageislaspilara í Prag... :) tíhíhí Bestu Kveðjur, Hr. Muzak [ 8 ] Var að lesa hana Salvöru...
Hún er nú einu sinni Da Blog Mama of Æsland :) Og ég er nokkuð sammála henni með þetta með vúlgaritetið og rætnina... Sjálfur er ég sekur um að veitast að fólki með hæðni og látum... Ég tel það að vísu mér til málsbóta að viðkomandi eru yfirleitt einhvers konar valdhafar og ég tel mig aldrei hafa dissað neinn sem ekki getur borið hönd fyrir höfuð sér. :) Ég blogga reiðilega þegar ég er reiður og ég blogga gleðilega þegar ég er glaður... En yfirleitt þegar ég er glaður er ég úti, hoppandi og hlæjandi. Þegar ég er reiður sest ég við tölvuna og urra það út úr mér... Kannski er það þess vegna sem svona mikil neikvæð orka kemur út á bloggunum... Fólk lætur vanlíðan sína inn í tölvuna og þannig út úr sér og út á netið, en gleðinni og hamingjunni vill fólk deila með vinum sínum og fjölskyldu... Ég held að það sé á vissan hátt eðlilegt að 80% bloggefnis sé eitthvað neikvætt... Það þýðir bara að fólk er að fá útrás án þess að brjóta hluti eða meiða fólk úti á götu... (vonandi) Er það ekki bara? Ég ætla allavegana ekki að hætta að dissa Davíð Oddsson og valdaklíku íslenskra eignafjölskyldna í bili... Ekki á meðan þeir kalla mann atvinnumótmælanda fyrir að mótmæla mannréttindabrotum á fólki. Ekki á meðan þeir kalla mann vitleysing og lygara þegar maður hefur aðrar hugmyndir um efnahagsþróun á Íslandi en þeir... Könnum þetta nánar seinna, ég er farinn í háttinn (þó fyrr hefði verið...) Bestu Kveðjur, Svavar [ 1 ] Klassísk retórík Landsvirkjunar...
Af vef landsvirkjunar: "Helgar tilgangurinn meðalið? Í ljósi umræðunnar og dýrrar auglýsingarherferðar hljóta að vakna nokkrar spurningar um stefnu Náttúruverndarsamtaka Íslands. Það má t.d. spyrja hvort samtökin hefðu lagt jafnmikla áherslu á að kynna umrædda arðsemisskýrslu ef niðurstaðan hefði verið jákvæð? Er hugsanlegt að samtökin hafi ákveðið niðurstöðuna fyrst og reiknað svo? Nú er það svo að allir eru sammála um augljósa arðsemi Norðlingaölduveitu. Ef arðsemin er samtökunum svo mikilvæg sjá þau sér fært að styðja þær framkvæmdir? Hvaða sjónarmið ráða ferðinni hjá Náttúruverndarsamtökum Íslands? Er það náttúruvernd eða arðsemi eða helgar tilgangurinn bara meðalið?" Málið er að Landsvirkjun hefur aldrei viljað hlusta á náttúruverndarsjónarmið eða rök sem falla að náttúruvernd. (tilfinningarök=engin rök í augum þeirra, þannig má segja að það að neita að drepa einhvern af því að maður elskar hann séu tilfinningarök og því ekki gild.) Landsvirkjun kallar alla sem koma með svoleiðis rök: muniði... einhver??? Listamannapakk úr 101 sem ekkert veit og hefur aldrei gert neitt, skapar engin verðmæti... EINMITT!!! :/ Getur ekki farið saman að vera bæði umhugað um arðsemi og náttúruvernd, eða verður maður að velja? Ég hélt að þetta væru rökhugsandi menn, AND og OR virka ágætlega í boolean kerfinu sem þeir hugsa út frá, ekki bara NOT. Getur verið að íslensk stjórnvöld hafi ákveðið niðurstöðuna fyrst og reiknað svo? Þessi texti er eins og hann hafi verið skrifaður af Draco Malfoy sjálfum, svona níðingslegur eineltistexti ofdekraðs bresks skólapilts sem maður elskar að hata af því að hann notar vald pabba síns og Ættarnafnið til þess að níðast á öllum. Bestu Kveðjur, Hr. Svavar [ 2 ] The White Shaft!
Who's the pale private dick that is surrounded by sexy chicks? SindriT a.k.a. EASY DICK! Flottur Sindri... :D Mér finnst Sindri æði, við vorum saman í frægri klíku hér forðum daga og áttum margar góðar stundir... Síðan man ég ekki alveg hvernig allt fór í fokk, en fólk fjarlægist, og stundum hittist það aftur og hlutirnir smella saman... Ég vona að ég eigi eftir að vinna með Sindra eða eitthvað í framtíðinni... Hann er svo sannarlega D.J. Easy Dick... Gangi þér vel í prófum "auðveldi tilli" Hr. Muzak [ 0 ] Bókmenntabloggari?
eh... upp hefur komið rödd um að ég bloggi eins og ég sé að reyna að skrifa bókmenntir... þ.e.a.s. að ég sé "...fólk sem er að reyna að skrifa bókmenntir þegar það bloggar, og notað flókin orð, erfiðar setningar og maður hættir mjög snemma að fylgja efninu og hættir að lesa." æi... ég vona að fólk upplifi texta minn ekki sem eitthvað moð og torf... Ég hélt að ég skrifaði bara yfirleitt á heilbrigðri sveitaíslensku. Maður hefur kannski of mikið að segja... Kannski er maður með of mikið af skoðunum... veit ekki... BarbieTec er ágæt, ég vona að hún hætti ekki að lesa þankatankinn vegna leiðindastuðuls... Gaman samt að henni finnst eitthvað skemmtilegt sem maður er að gera... Ég vona að hún hlusti kannski á lögin mín og sannfærist um réttmæti málstaðar míns... ;) Bestu Kveðjur, Hr. Svavar [ 1 ] fimmtudagur, desember 12, 2002
Moonbootsfundur eftir hálftíma...
Ég er á leiðinni á Moonbootsfund... Veit ekki hvort ég hlakka til eða kvíði fyrir... Allavegana veit ég að mig langar ekki til þess að taka sveitaballahljómsveitarkúrsinn og keppa á sama grundvelli og Buttercup, L&S og Írafár... Mig langar að vera í klúbbasveit sem spilar tónlist fyrir fólk sem veit hvað það vill... Há hugsjón? kannski... Bjánalegar kröfur til lífsins? vissulega... en það er nú bara það sem ég þarf ef ég vil vera í þessum bransa... Mig langar ekki að búa til innantóm sveitaballalög um allt og ekki neitt... Að vísu má taka það fram (til að gæta fullrar sanngirni) að Írafár eru farin að dæla út ágætis lögum... (Þó strengjapakkinn sé stundum pínulítið overdoing it...) Bestu Kveðjur, Hr. Svavar p.s. Svo var hann Sverrir með hreint ágætis svar við frekar óheiðarlegum málaflutningi Deigluslavans... Hefur annars engum nema mér fundist málaflutningur ríkisstjórnarinnar hljóma meira eins og þeir séu að reyna að sannfæra sjálfa sig um réttmæti aðgerða sinna frekar en að þeir séu að útskýra þær... (ég segi þeir, vegna þess að það eru engar konur í ríkisstjórn Íslands. Konurnar sem sitja ríkisstjórnarfundi eru í raun bara kaffidömur sem flissa og segja ókei...) [ 6 ] Moonbootsfundur eftir hálftíma...
Ég er á leiðinni á Moonbootsfund... Veit ekki hvort ég hlakka til eða kvíði fyrir... Allavegana veit ég að mig langar ekki til þess að taka sveitaballahljómsveitarkúrsinn og keppa á sama grundvelli og Buttercup, L&S og Írafár... Mig langar að vera í klúbbasveit sem spilar tónlist fyrir fólk sem veit hvað það vill... Há hugsjón? kannski... Bjánalegar kröfur til lífsins? vissulega... en það er nú bara það sem ég þarf ef ég vil vera í þessum bransa... Mig langar ekki að búa til innantóm sveitaballalög um allt og ekki neitt... Að vísu má taka það fram (til að gæta fullrar sanngirni) að Írafár eru farin að dæla út ágætis lögum... (Þó strengjapakkinn sé stundum pínulítið overdoing it...) Bestu Kveðjur, Hr. Svavar [ 0 ] Svo finnst mér fyndið...
Hvað Valdgerður og vinir hennar virðast sjúklega fljótir að missa alla trú á nýsköpun og þekkingariðnaði. Það má ekki koma eitt alþjóðlegt bakslag, þá er öll von úti með þennan "svokallaða þekkingariðnað og hugbúnaðarmegabæt..." Suddafokk, hvað svona fólk er grunnhyggið og óþolinmótt... Best að gefa þekkingariðnaðinum tvö ár til að borga sig, síðan dömpum við honum eins og deigkenndum hægðum... Bestu Kveðjur, Svabbi [ 5 ] miðvikudagur, desember 11, 2002
Fyndið þegar Valgerður Sverrisdóttir kemur í Sjónvarpið...
Valgerður Sverris og Steingrímur Joð voru að rífast í imbanum... Mér finnst Valgerður vera nokkrum tommum meiri vondikall, þannig að ég tók upp "Áfram Steingrímur" skiltið mitt, Vinstrigrænna barmmerkið og andaflautuna hans afa og hófst handa við að vera góður stuðningsmaður minna vonda stjórnmálamannsins... En svo fattaði ég að ég þurfti þess ekki... Valgerður varð svo fljótt rökþrota að eftir einungis sjö mínútur af rifrildi sagði hún hina ódauðlegu og sígildu setningu sem fífl segja þegar þeir komast í rökþrot gegn vinstri grænum: "Hann Steingrímur er nú einu sinni í flokknum sem er á móti öllum framförum á Íslandi..." Steingrímur afgreiddi þetta mjög vel, spurði hvort henni þætti þetta nú málefnalegt... Valgerður var eins og epli í framan og stamaði og hikstaði restina af kastljósinu... HAHAHAHAHA!!! Gott á framsóknarbeljuna... Jæja... En grínlaust, hún lítur út eins og Randver Þorláksson í drag... Ég hitti Valdgerði Sverrisdóttur einu sinni í Vesturbæjarlauginni klukkan fimm, hálf sex um dag. Maður var í heita pottinum að spjalla og þá kom hún, voða settleg, og settist á við hliðina á nudddraslinu. Einhver gamall kall sem þekkti hana fór eitthvað að ræða virkjanamál við hana, hann sagðist vera með Kárahnjúkadæminu en á móti Norðlingaölduveitu. Hún gaf í skyn að það væri ekki hægt að vera með einu en á móti öðru... Svo sagði hún að umhverfissinnar væru á móti framförum... og blablabla... Þá ákvað ég að rjúfa þögnina og það vera algengan misskilning að allir umhverfisverndarsinnar væru á móti öllum framkvæmdum og öllum virkjunum, og spurði hvort það væri ekki dálítið ósanngjarnt að setja alla undir sama hatt... Hún fnæsti eitthvað á mig og hélt áfram að tala við kallinn... Smá spjall fór þeirra á milli, en svo sagði hún að allir væru sammála um að Norðlingaölduveita væri besta virkjun í heimi og eitthvað... Ég spurði hana þá hvort það væri ekki einhver smá ágreiningur milli vísindamanna um það... Hún sagði að það væri ekkert að marka þessa vísindamenn, enda hefði einn vísindamaður verið ósammála þeim... Sko... Ég spurði hvort þá væri ekki almennt stefnan að leyfa náttúrunni að njóta vafans, eins og segir í Ríó yfirlýsingunni... (að mig minnir...) Þá kom helvítis álftin með snúð aldarinnar, sagði að hún væri búin í vinnunni og vildi ekkert tala um svona hluti núna. Hún kæmi í sund til að slappa af og sleppa frá öllu þessu. önnur kona sagði eitthvað eins og "já, þegiði bara..." eh... klukkan var hálf sex... Hún er alþingismaður... Hún var í heitapottinum... Halló?HALLÓÓÓ?!? Hún er þingmaður! Þingmenn eiga að fokkíng hlusta á fólk... Það er fokkíng starfið þeirra! eða er Iðnaðarráðherra undanþeginn þeirri skyldu þingmanna að hlusta á raddir fólksins? Mig langaði að spyrja hana hvenær ég mætti þá tala við hana, næst þegar fólk mótmælir og hún læðist út um bakdyrnar? Næst þegar hún ryðst út í bíl til að láta sig hverfa af vettvangi? Næst þegar ég fæ tíma hjá henni, vor 2009? Eða kannski aldrei af því að ég er bara venjulegur kjósandi og á engan pening? En ég þagði, af því að ég er aumingi sem getur ekki annað en skrifað reiðilestra á vefinn... Bestu Kveðjur, Hr. Muzak [ 3 ] þriðjudagur, desember 10, 2002
Þegar virkjanasinnar segja:
Hvað á þá að gera? Þið eruð ekki með neinar hugmyndir! Ætli þeir séu þá að meina það sem þeir eru að segja, eða ætli þeir séu hreinlega að apa eftir fyrirmyndum sínum og leiðtogum? Málið er að það hafa komið fram ótal margar hugmyndir í þessum málum, ríkisstjórnin hefur bara aldrei viljað ræða þær. Skrýtið... Og svo segir herra Halldór Ásgrímsson að menn verði bara að sætta sig við að vera minnihluta, ríkisstjórnin sé búin að ákveða að byggja virkjunina og álverið. Þar erum við bara hreinlega með vandamálið! Pælið í því hvað felst í þessum orðum... "Við erum búnir að ákveða þetta, við höfum aldrei viljað ræða neina aðra möguleika, við notum bara þennan frasa til að gera lítið úr ykkur..." Hnuss Bestu Kveðjur, Svavar [ 32 ] Hvenær mega vísindamenn tjá sig...?
Nú eru íslenskir fasistar voða heitir yfir því að íslenskir vísindamenn tjái sig um pólítísk mál... Þeir hafa ekkert á móti því þegar vísindamennirnir styðja þeirra eigin skoðanir, en ef þeir dirfast að vera á móti, þá eru þeir að misnota vísindalega stöðu sína... skrýtið... Þegar Hitler komst til valda í Þýskalandi voru fullt af vísindamönnum sem andæfðu stefnu hans... Kannski hefðu þeir bara átt að þegja? Fullt af vísindamönnum í bandaríkjunum mótmæltu og mótmæla enn uppbyggingu kjarnorkuvopna og berjast fyrir mannréttindum... Kannski ætti að banna þeim það? Ísland er fasistaland í jakkafötum... Bestu Kveðjur, Hr. Muzak [ 1 ] Djöfull hlakka ég til...
...Þegar allir ofurtöffararnir og allar sætu flottu hrokafullu skvísurnar verða fertugar... Yfirlýsingagleði dagsins í dag verður skopspegill morgundagsins... "Öhöhö hvað ég þoli ekki þetta glataða fertuga pakk sem er að reyna að vera voðalegir töffarar alltaf að djamma á einhverjum skítastað Nasa... hahaha..." Þetta gengi verður örugglega helmingi öflugara í gráa fiðringspakkanum en fertuga fólkið í dag, því æskudýrkun dagsins í dag er mörg þúsund sinnum meiri en hún var þegar þetta fólk var "ungt". Mér finnst það vera vísbending um firringu nútímans að ungt fólk skuli hafa svona rosalega fordóma gagnvart því að "Gamalt" fólk skuli skemmta sér yfir höfuð... Kannski má enginn skemmta sér nema hann sé: A) 30 ára eða yngri...? B) Ljósabrún/n og Stælt/ur? C) Klædd í feitasta átfittið? D) "Inni" á "Senunni..."? Þetta er bara eins og hver annar rasismi... Dæmigert fyrir firringuna sem ríkir hér í Reykjavík. Úti á landi er öllum sama hvort Benni og Gúnda eru úti að djamma með unga fólkinu, þau eru bara í stuði... Hér er komið fram við fertugt fólk eins og holdsveikissjúklinga. Þið þurfið hjálp... Bestu Kveðjur, Svavar [ 6 ] Fyrsta prófið búið...
Umhverfisjarðfræði búin... Nú þarf ég bara að skila verkefnunum og þá er ég kominn á græna grein... Framundan: Klára verkefnin í Eigindlegum Rannsóknaraðferðum og ljúka rannsóknarskýrslunni... (þetta verður törn...) Þarf að klárast fyrir 16. des. Næsta próf: Vistfræði, 20. des. Farinn að hlakka til jólanna... pínulítil ljósskíma í svartnætti verkefnaþungans... Bestu Kveðjur, Svabbi [ 0 ] Loksins! Nýjar kettlingamyndir...
ARGH!!! Búið að vera allt of mikið að gera... en hér koma nýjar kettlingamyndir...
Hér er sumsagt hún Branda að geispa...
Svo horfir hún á mann alveg subbulega sætt...
Athyglin berst að öðrum og mikilvægari hlutum...
Fjölskyldufundur...
Loki er svefnpurka og á það til að kúra lengur...
Síðan læðist stundum Lúsífer aftan að honum og vill kúra...
...Og narta aðeins í eyrað á honum...
Wrowr... Rarr...
Loki er ekki hrifinn af myndavélum...
Eymingja Loki... Bestu Kveðjur, Hr. Muzak [ 5 ] föstudagur, desember 06, 2002
Voddafokk og myndir af kettlingi...
Ókei... ég var að lesa þessa grein sem Gummi Jóh linkaði á... Höfundurinn, Svanborg Sigmarsdóttir, sem ég kann lítil deili á, fer víða. Hún fer stórum orðum um atburði undanfarinna vikna og er það sosum ekkert stórmál. En svo rekst hún á ókunnan hlut, "svonefnt blogg". Um blogg hefur hún þetta að segja: "Hverskonar ego-tripp er þetta eiginlega?!?!? Þetta er á sama stigi og ?raunveruleikasjónvarp? ? bara sorglegra. Amk, hefur reality TV einhvers konar ritstjórn sem hefur sans fyrir því hvað er áhugavert fyrir almenning og hvað ekki. Að horfa á raunveruleikasjónvarp á að lýsa einhvers konar ?gægjuhneigð?. En hvort ætli sé verra að láta undan gengdarlausum auglýsingum til að horfa á fólk gera sig að fífli ? eða vera haldin það mikilli sýnihneigð að maður bara verði að auglýsa öll sín helstu axarsköft á netinu? Að ég tali nú ekki um þá bloggara sem skrifa oft á dag. Eigið þið enga vini til að tala við? Ef ekki þá er rauði krossinn að auglýsa vinalínu ? notfærið ykkur það í neyð. Fáið ykkur vinnu, farið út á meðal fólks, gerið eitthvað! Þá munuð þið líklega komast að því að fólki er almennt alveg nákvæmlega sama hvaða fræga fólk þið hafið hitt, hvaða heimilistæki er bilað hjá ykkur eða hvaða teiknimyndasögur eru í uppáhaldi. Plís, get a læf!!!!" Venjulega þegar ég rekst á eitthvað sem ég er ókunnugur fyllist ég forvitni og langar að kanna málið betur, jafnvel skilja hvað liggur fyrirbærinu til grundvallar. Svanborg virðist greinilega ekki hafa þá forvitni eða þolinmæði til að bera sem þarf til þess að kanna hið ókunna, heldur eys hún yfir það skít og vanþóknun. Ánægjulegt að hið merkilega kvikindi hælbíturinn er ekki dauður úr öllum æðum... Af hverju bloggar fólk? Hvaða hvatir reka fólk til þess að dirfast að ganga svo langt að setja hugsanir sínar á netið... úúúúú... Guð forði okkur frá því að deila hugsunum okkar og pælingum og jafnvel frásögnum úr hversdag okkar með vinum okkar og kunningjum og jafnvel ættingjum erlendis. Ég veit ekki til þess að ég sé eitthvað vinalaus í kjötheimum... Ég veit ekki til þess að ég eigi neitt bágt þó ég skrifi pælingar mínar á netið... En fyrir Svanborgu er ég að setja upp lítinn lista... Þið megið bæta við hann eftir eigin hentisemi... Sumsagt: Að velta fram hugmyndum í von um að vekja umræðu og kafa dýpra ofan í málefni. Að deila þönkum, pælingum og tilfinningum með fólki í þeirri von að dýpka skilning eða að eitthvað gott komi út úr því. Að hugsa upphátt. Að taka þátt í opinberri umræðu, því ekki allir eiga þess kost að skrifa á vinsæla vefmiðla... Svo er takmark fyrir því hvað maður má skrifa oft í Moggann... Að gefa út tónlistina sína og leyfa fólki að fylgjast með listsköpun manns. Að mynda samfélag ólíks fólks sem tengist í gegnum þetta áhugamál og getur jafnvel myndað tengslanet sem nýtist vel þegar maður þarf t.d. að smala á ball eða bjóða fólki sem maður veit ekki númerið hjá í partý... ;) Að rífast um pólítík, menningu og fólk án þess að hringja í þjóðarsálina (tm) eða skrifa í Moggann... Að taka myndir af skemmtilegum hlutum og setja þær upp á síðuna til að skemmta fólki... til dæmis eins og þessar æðislegu myndir af henni Bröndu litlu... :-) Bætum við þennan lista ef við nennum krakkar mínir... Bestu Kveðjur, Hr. Muzak [ 14 ] miðvikudagur, desember 04, 2002
Nýja lagið komið upp aftur eftir smá lagfæringar...
Jæja krakkar mínir... Ég lagaði nýja lagið pínulítið. Það voru einhverjir skruðningar og læti... Ég vona að þetta sé betra núna. Bestu kveðjur, Herra Muzak [ 2 ] mánudagur, desember 02, 2002
Af hverju þurfa kettlingar að vera svona sætir og fössí...
Djö... get... ekki... einbeitt... mér... að... náminu... kettlingar... of... fössí... Verð... að... klappa... ARGH!!! Og nú eru þeir að fá sjónina og farnir að leika sér pínu... og svo vilja þeir að maður klóri sér á mallanum! HELVÍTIS ÓARGADÝR!!! TRUFLANDI VINNANDI MENN MEÐ ENDALAUSUM KELIKRÖFUM!!! :) awwww... svo sætir... Bestu Kveðjur, Hr. Muzak [ 2 ] Afkomuviðvörun...
Hr. Muzak mun ekki gefa frá sér mörg orð á komandi dögum... Hann er sokkinn í verkefnavinnu... Bestu Kveðjur, Hr. Muzak [ 0 ] |
Eva
Örn "Mugison"
Elias Tónlistarmönnum sem gefa tónlist
sína á netinu er velkomið að hafa samband
við Hr. Muzak og þá bæti ég þeim
á listann.
Laukurinn rúlar
Dr. Gunni
| |||