Þankatankurinn



Svavar Knútur
Kristinsson,

Félagsauðströll, heimspekingur, umhverfis-verndarsinni og tónlistarmaður.

Ímeilaðu
mig...

NÝTT!!!
Viltu fá
(eða hætta að fá)
tilkynningar
um tónleika
HRAUNS!,
eða Svavars Sjálfs?
Sláðu inn
netfangið hér:



This page is powered by Blogger. Isn't yours?




Hljómsveitin Hraun! veitir mér listræna útrás.

Hraun á Myspace

Sjálfurinn á Mæspeis

Nýjustu Demó:

Ease your mind (01.07.2006)

Dansa... (28.09.2005.)

Ástarsaga úr fjöllunum (Sumarið 2005)

Goodbye my lovely (19. júní 2005)

Kisa litla (Maí 2005)

Your love was death to me (Janúar 2005)

Call off your Cavalry (September 2004)

You should call a doctor (Maí 2004)

Kysstu tímaglasið (endurbætt útgáfa 2004)

Mother's day
( 2004)

Jólaplata Hrauns 2003: Þrautgóðir á Hraunarstund

Jólaplata Hrauns 2004: Kátt er um jólin

Partýplatan Partý!

Jólaplata Hrauns 2005: Höldum jól

Jólaplata Hrauns 2006: Jólamolar



Latur myndasmiður, en engu að síður er hér að finna eitthvað efni...

Molar...


 
föstudagur, febrúar 28, 2003
 
Þó verður að viðurkennast...

...Að Vaka er búin að standa sig drulluvel í Ár...
Enda nokkuð gröð að sanna sig eftir rúms áratugs útlegð úr fremstu röð. ;-)

Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 8 ]
 
Ágætis Árangur...

Jæja,
Kosningarnar búnar og þær fóru ágætlega.
Við náðum tveimur mönnum inn og pirruðum Röskvu víst alveg rosalega. Ég held að niðurlæging þeirrar fylkingar sé nú alger og akkúrat það sem þau þurfa til þess að rífa sig upp á rassgatinu á næsta ári.
Vökuliðum tókst að vísu ætlunarverk sitt, að láta okkur líta út eins og óánægðir röskvuliðar. Ungra VG pælingin þeirra hitti einhvern veginn í mark, þó svo að fleiri hægri menn hafi verið um borð í þessum bát.
Ég býst við að í einhverjum löndum sé það góð pólítík... ;-)
Auðvitað hefðum við viljað reyta fylgi frá Vöku líka, en það er náttúrulega erfiðara að fá kjósendur sjálfstæðisflokksins til að breyta atkvæði sínu en að troða úlfalda gegnum nálarauga...

Jæja, Húrra fyrir okkur og Húrra fyrir Landsvirkjun sem hefur lýst því yfir með aðgerðum sínum að þeir þurfi sko ekkert umhverfismat til að byggja Kárahnjúkavirkjun... Málið er enn á kærustigi og þeir komnir í blússandi framkvæmdir.
Ef ég væri að stofna skemmtistað og væri búinn að sækja um skemmtanaleyfi en það væri enn á kærustigi en ég ryddist áfram og opnaði bara staðinn án leyfis væri ekki langt þangað til derhúfuklæddir öryggisverðir laganna kæmu og stoppuðu mig af.
En af því að þeir eru jakkafataklæddir peningakallar, þá er allt í lagi að hefja rekstur án þess að málið sé komið í gegnum öll lýðræðisleg ferli.
Æi hvað það væri stundum gott að vera lögfræðimenntaður Jakkafatakall við pilsföld ríkisvaldsins...

Í öðrum fréttum,
Nú er búið að banna kennurum í Maine í BNA að tala við börnin um stríðið vegna þess að börnum hermanna gæti þótt "óþægilegt" að heyra rök gegn stríði.
Einmitt... "óþægilegt"...
Það gæti verið "óþægilegt" að ræða um það hvernig pabbi er að fara að ýta á takka í 200 km fjarlægð frá næstu hersveitum til þess að sprengja upp hermennina í hinu liðinu og konurnar og börnin þeirra líka...
Það gæti verið "óþægilegt" ef það kæmi upp í umræðunum að pabbi er að fara að drepa fullt af fólki til að allir geti haldið áfram að keyra á jeppunum sínum með 15 bigmac og 5 stórar kók án þess að þurfa að lækka í loftkælikerfinu.

Bestu Kveðjur,
Hr. Svavar


[ 3 ]
fimmtudagur, febrúar 27, 2003
 
MUNA AÐ KJÓSA Í DAG HÁSKÓLAFÓLK!!!

OG MUNA AÐ KJÓSA H-LISTANN EF ÞIÐ ERUÐ KOMIN MEÐ LEIÐ Á VERÐANDI ATVINNUSTJÓRNMÁLAPAKKI...


[ 6 ]
þriðjudagur, febrúar 25, 2003
 
Goðheimabækurnar...

Var að lesa Hamarsheimt á Dönsku...
Keypti hana í dag...
Djöfull fattaði ég ekki allan boðskapinn um jafnrétti kynjanna og feminískar pælingar í bókinni þegar ég var lítill...
Og ég fattaði ekki fingurinn sem Freyja sendir gaurunum...
Og síðast en ekki síst fattaði ég alls ekki í gamla daga alla geðveikt GAY taktana hjá Loka.
Það er þvílíkt verið að gefa í skyn að Loki sé argari en Freddy heitinn Mercury... :)

tíhíhí

Gaman að lesa teiknimyndasögur á dönsku...

Svabbi


[ 5 ]
 
Gaman að vera til...

Það er ágætt að vera til þessa dagana... Pínulítið fyndið...

Er að reyna að sinna formannsskyldum félags Umhverfisfræðinema... Redda vísindaferðum... Skipuleggja Árshátíð...
Ég er að hugsa um að draga pakkið á Snæfellsjökul og gista þar eina nótt...

Hvernig hljómar það?

Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 1 ]
mánudagur, febrúar 24, 2003
 
Valgerður Sverrisdóttir er Æðisleg...


Að heyra í þessu óféti!!!
Í fyrirspurnatíma Ráðherra á flokksþingi Framsóknarflokksins í dag var hún að tala um friðlýsingar og friðlýst svæði eftir að einhver frammari spurði hvort það væri réttlætanlegt að ríkið væri að friðlýsa svæði sem væri hægt að nýta, eins og t.d. svæðið í kringum landmannalaugar (sem er greinilega sóun á góðum jarðhita að láta einhverja ferðamenn dást að "náttúrufegurðinni"...) ... (sumsagt að ef á einhvern hátt væri hægt að sjúga lífið úr landinu, þá ætti maður að sleppa því að friðlýsa það...) Þá sagði hún eitthvað sem hljómaði eins og: "auðvitað eru friðlýsingar bara tímabundnar þangað til við breytum því og virkjum..."

Þetta fólk skilur ekki friðlýsingar, það skilur ekki hugmyndina með náttúruvernd.
Þetta fólk ræður...
Þessu fólki er um að kenna að barnabörnin mín eiga eftir að alast upp í iðnvæddri eyðimörk.
Jibbí kóla...

Bestu Kveðjur,
Hr. Muzak


[ 14 ]
 
Ísland farsælda frón
og hagsældar hrimhvíta móðir,
hvar er þín fornaldar frægð,
frelsið og manndáðin mest?

Landið er fagurt og frítt
og fannhvítir jöklanna tindar,
himininn heiður og blár,
hafið er skínandi bjart.


[ 0 ]
 
Úff... Þunni Muzak...


Muzak fór í afmælis/útskriftarveislu í gærkveldi, þar sem rauðvíni var veitt allgreitt...
Heimabrugguðu rauðvíni...
mörg mörg mörg glös fóru ofan í munninn hans Muzaks...

Og Múzak varð obboslega fullur...
rosalega, rosalega fullur...
Söng og spilaði á gítar með Jóni Geir og Nönnu og Tuma bróður Jóns Geirs, sem spiluðu á trommur...
Ógeðslega mikið stuð...
Gleði Gleði Gleði...
Kom heim kl. 04:30...
Sjóveikur...
Ákvað meðvitað að kasta upp ótæpilega og lagðist því yfir postulínshásætið...
labbaði um gólfin heima í tvo tíma...
Sofnaði kl. 08:00...
Rosalega þunnur...

Það er vontgott...
mjög vontgott...

:)

Kronk...

Hr. Muzak


[ 2 ]
laugardagur, febrúar 22, 2003
 
Survivor Schmurvivor...

Djöfull eru þessir gæjar þarna í Survivor mikil skömm fyrir karla um allan heim.
Mann langar til þess að slá þá utan undir...
Og konurnar líka...
Gæjarnir tala ekki um neitt nema hvað þeir vilja húkka sig upp með kellingunum og kellingarnar sitja bara skælandi.

Svo eru þessir gæjar bara dettandi um hvaðeina og 50% þeirra er vitlausari en Forrest Gump...

Er lífið svona?
Er fólk svona ömurlegt?

Úff...

Bestu Kveðjur,
Hr. Svavar


[ 2 ]
föstudagur, febrúar 21, 2003
 
Kíkið á Celtic Cross núna!!!

Sjitt maður!
Hr. Muzak er sumsagt að fara að spila eftir 1,5 klst. á Celtic Cross.
Uppákoman heitir H-Vaði og er í boði H-listans, sem er óháða framboðið í stúdentapólítíkinni. (ekki vinstri, ekki hægri, heldur þver-flokksfjar-pólítísk hagsmunasamtök stúdenta.)
Hr. Muzak er einmitt í 12. sæti á stúdentaráðslista H-listans.
Mætið á svæðið...

Bestu Kveðjur,
Hr. Muzak


[ 0 ]
fimmtudagur, febrúar 20, 2003
 
Linkur Mánaðarins...

Mig langar bara að benda ykkur á alveg frábæra síðu hjá henni Mæju Frænku minni sem býr í Danmörku.
Hún tekur flottar myndir og semur flott ljóð og svoleiðis.
Þetta er svona listaprójekt hjá henni á mjög einfaldan og stílhreinan hátt...

Bestu Kveðjur,
og knús til Mæju frænku í Danmörkinni.

Svabbi Frændi


[ 0 ]
miðvikudagur, febrúar 19, 2003
 
Var að hanna síðu fyrir vin minn hann Dreng...

Þessa síðu hannaði ég um daginn fyrir (og með) Dreng.
Hún er enn í vinnslu, en þetta er grunnútlitið...
Ég er í rauninni nokkuð stoltur af póstmódernísku og glaðlyndu útliti síðunnar og mér finnst hún tuttugu sinnum flottari en mín...
Enda er ég svo ljótur að ég myndi aldrei setja myndir af mér á forsíðuna mína... :)

Bestu Kveðjur,
Hr. Muzak


[ 5 ]
þriðjudagur, febrúar 18, 2003
 
Damn Right það hlakkar í mér!


Sjálfskipaði og svonefndi "Fjölnismaðurinn" Björn Bjarnason röflaði um Árna Johnsen og hvað hann vorkennir honum mikið um daginn...
Svo furðaði hann sig á því að það hlakkaði enn í sumum yfir þessu.

Já Björn! Damn right það hlakkar í mér!

Árni Johnsen er, og hefur alltaf verið, sjálfumglaður, yfirlætisfullur hrokagikkur og hræsnari sem mér er meinilla við.
Sama má í raun segja um Björn Bjarnason og hans hyski, sjálfskipaða yfirstétt Íslands.

Sorrí ef mér finnst fyndið og það hlakkar í mér þegar fordómafullir, ómúsíkalskir og durgslegir hálfnasistar eru gripnir glóðvolgir við þjófnað.
Árni, hinn alþýðlegi, Johnsen er bara almennur sauðaþjófur... Auðvitað finnst mér það gott. Þessi maður sem hefur barist gegn réttindum samkynhneigðra og nauðgað íslenska þjóðsöngnum og gert lítið úr fólki á drulluskilið að dúsa í fangelsi fyrir glæpi sem hann framdi. Hvað? Er einhver töfraþula sem ég gleymdi sem segir að góðir "sjálfstæðis"menn séu stikkfrí frá lögunum? Nei, ég hélt ekki...

Þegar svona pakk eins og Björn Bjarna fara að biðja fyrir honum eins og hann sé eitthvað heilagari en hinir glæpamennirnir á Hrauninu verður mér óglatt. Að láta eins og Árni sé eitthvað betri maður og eigi eitthvað betra skilið bara af því að hann er góður "sjálfstæðis"maður og í klíkunni er dæmigert fyrir þetta lið sem heldur að það eigi Ísland vegna einhvers erfðaréttar. Vonnabí kóngafólk.

Gott á Árna Johnsen og gott á þessa sjálfskipuðu elítu Íslands, menningarvitana og erfingja auðsins og valdanna.
Ég bið þess eins að Valgerður Sverris, Björn Bjarnason, Finnur Ingólfs og allt þetta pakk verði gripið glóðvolgt við eitthvað og íslenskur almenningur sjái loksins hvað þetta lið er allt saman ekkisens miklir hræsnarar.

Og ef það er eitthvað sem lætur mig gleðjast meira og meira yfir örlögum Árna Johnsen, þá er það þegar hann sjálfur barmar sér yfir þeim og harmkvælakórinn við grátmúr "Sjálfstæðis"flokksins syngur með í kveinóperunni "Æ, þurftu þeir að góma einn af oss?"
Þá hlær marbendill...

Haldið endilega áfram að tuða um það hvað þið vorkennið greyið fórnarlambinu honum Árna mikið, fórnarlambi réttlætisins. Ég hlakka til að sjá ykkur taka vel á móti honum þegar hann röltir út af Hrauninu alveg eins og Lalli Johns í myndinni.

Bestu Kveðjur,
Hr. Svavar


[ 2 ]
 
Erfitt að skilgreina...

Ég er búinn að reyna að koma tónlistinni minni fyrir á síðum eins og mp3.com og 1sound.com...
Eina skilgreiningin sem ég virðist ná á tónlist Hr. Muzak þessa dagana er folk music, eða þjóðlagatónlist.
Þannig að ég set hana í þann hóp...

Þar má aðallega finna lög eins og:
Back on the mountain
The pixies dance
the fairy song
The song of dragons
Real as a Dream
Savage Land
Beauty's colors
Black Raven River
Going Up On The Mountain

Og þessi lög hljóma eins og nöfnin hljóma... Horrible... Þetta er eitthvað svona rusl sem gæjarnir sem gera panpípuplöturnar myndu ekki einus inni kóvera...

Og lögin mín þar innan um...

Ég veit ekki... :-/

Fokkíng drasl...

Góða Nótt aumingjar...
Hr. Svavar


[ 3 ]
sunnudagur, febrúar 16, 2003
 
Árshátíð Mágusar...

Moonboots spiluðu á Árshátíð Mágusar í gærkveldi.
Djöfulsins stuð í Skíðaskálanum í Hveradölum.
Allir ógeðslega happí og hressir með dæmið og drullufínt partý!

Hitti sjálfan Lubba Tíkarson og hans fögru frú og við ræddum landsins gagn og nauðsynjar.
Helvíti er hann myndarlegur strákurinn...

Ég hélt að þetta væri einhver nörri, en svo er þetta bara alger hönk... :)

Bestu Kveðjur,
Svavar Knútur Kristinsson


[ 0 ]
föstudagur, febrúar 14, 2003
 
Gamlir MH-ingar, áhugafólk um leiklist og Terry Pratchett...


Bara að minna ykkur öll á það að LFMH er að setja upp Örlagasystur, byggt á Wyrd sisters eftir Terry Pratchett, í þýðingu Gunnars Freys Steinssonar, gamals vinar úr klíkunni okkar gömlu...

Leikritið er sýnt í Austurbæ, frumsýnt í kveld...
Látið sjá ykkur! :)

Fyrir MH, Fyrir Leiklistina, fyrir Terry Pratchett og fyrir Gunnar Frey :)

Hlakka til að sjá þetta sjálfur... :)

Svabbi


[ 2 ]
fimmtudagur, febrúar 13, 2003
 
Æ em a kreisí nigga jó...


Algerlega hlúnkaður í góðum fílíng hérna, Svalli túrbó í húsinu...

Joooo was ist los kinder, es ist die moonboots ind das haus! Wir geben Ein wunderbar "shout out" nach alle unsere "Crazy Fans!"
Hier sind der wunderbare Schwalli Turbo, und unsere "posse" Die weltsberumte, "party friendly", Zwei feistigen jungen, Stefan und RUUUUUDYYYYYY!!!


:)

Besten Wönschen,
Der Schwalli Turbo...


[ 1 ]
 
Sniðug ríkisstjórn...

Alltaf sniðug ríkisstjórnin okkar...
Þynnkan að koma í ljós eftir Smáralindarfylleríið og snögga ofþenslu og jafnsnögga aftöppun í einum geira og Dabbi lætur 6 milljarða í vegavinnu.
Húrra!
:)
Það væri nú æði ef þessir garpar nenntu síðan að meta rannsóknir og vísindi að verðleikum líka...

Samt væri æði ef allir Íslendingar gætu bara unnið í vegavinnu og stóriðju, þá hefðum við enga listamenn eða menntaelítu til að vera að kvarta. ;)

Ég myndi segja að dágóður hluti af þessum 6000 manns sem eru atvinnulausir eru atvinnulausir af því að þeir búast við því að komast aftur í 350.000 króna störf við að leika sér í quake og leita að klámi á milli þess sem þeir hakka lélegan kóða... Svo er örugglega fullt af þeim sem hoppuðu út úr skóla til að fara að vinna í ofþenslunni og komast ekki aftur inn í skólakerfið af því að LÍN vill ekki lána þeim krónu sem hafa vott af tekjum. Væri ekki ráð að auðvelda fólki að hoppa í nám í atvinnuleysinu sínu?

Bestu Kveðjur,
Hr. Svavar


[ 2 ]
 
Evróvísjón...

Ég hef ekki verið mikill áhugamaður um íslensku júróvísjónlögin til þessa, en ég verð að segja að það eru tvö lög sem standa upp úr að mínu mati í þetta skiptið...

Venjulega þegar ég horfi og hlusta á þessi íslensku undanúrslitalög og yfirleitt líka þau sem vinna, þá heyri ég ekki lagið af því að það er svo flatt og formúlerað og ómerkilegt...
Sú er sagan um a.m.k. 10 af lögunum í keppninni...

En lögin tvö sem grípa mig eru: Botnleðjulagið, Eurovísa, sem mér finnst drulluskemmtilegt, og síðan (kom mér geðveikt á óvart!) Rúnar Júl, syngjandi lag Karls Olgeirs Olgeirssonar, Ást á skítugum skóm.

Ég veit ekki hvort ég er að verða svona gamall eða Kalli Olgeirs hreinlega búinn að finna grúvið, en eitthvað grípur mig við lagið hans... Ég hefði ekki trúað þessu upp á Kalla, hann er brilljant tónlistarmaður, en ég hef bara aldrei heyrt neitt eftir hann sem grípur mig... En nú er það komið... Til hamingju Kalli, í alvörunni! Haltu áfram með svona hugmyndir, þetta er drulluflott grúv og lagið gengur vel upp.
Svo er Rúnni líka geðveikt töff! :) Hann er alveg að eiga flottasta kommbakk Íslandssögunnar þessa dagana! Góð lög á nýju plötunni og hljómsveitin sem hann er með eru algerir grúvhundar...

Sama má segja um Botnleðju, ég hef fílað tónlistina þeirra lengi, þó mér hafi alltaf fundist þeir vera óttalegir hrokagikkir... Kannski af því að við læðurnar töpuðum fyrir þeim á músíktilraunum 1994 eða '95... En þeir gætu verið akkúrat það sem Eurovision þarf, fyllt upp í hilluna sem Brainstorm tóku að sér um árið...

Áfram Rúnni, Áfram Kalli og Áfram Botnleðjustrákar.

Hlakka til að sjá hvað gerist...
Vona bara að eitthvað af þessum sálarlausu meðalmennskulögum taki ekki slaginn og fari og veki takmarkaða athygli og nái á endanum 16. sætinu fyrir Íslands hönd...

Bestu Kveðjur,
Hr. Svavar


[ 3 ]
miðvikudagur, febrúar 12, 2003
 
Er það bara ég...?

Eða hefur tízkan ekki breyst í 10 ár?

Brenndu menn sig svo rosalega á 9. áratugnum að enginn þorir að gera nokkurn skapaðan hlut nýjan?
Maður er að skoða tónlistarmyndbönd frá 1993 og þau eru eins og þau hafi verið gerð í gær...

Við lifum á tímum hugleysis og tómhyggju gott fólk...

Það er skömm að því.

Bestu kveðjur,
Hr. Muzak


[ 5 ]
 
Óveðrið færir mér gleði...

Að vísu á ég erfitt með svefn, en þetta óveður er alveg að meika fyrir mér andlega líðan... :)
Þetta blæs svo fönkí lofti á skerið...


[ 0 ]
mánudagur, febrúar 10, 2003
 
Sérstakt Fréttaöppdeit!

Vegna komments frá Fangor hér að neðan ákvað Hr. Muzak að hafa samband við sérlegan fréttaritara Þankatanksins á Ísafirði.
Fréttaritari sá er blaðamaður á Bæjarins Besta, sem er uppáhalds fréttamiðill Hr. Muzak.
Sérlegur Fréttaritari Þankatanksins sagði Hr. Muzak að Bæjarstjóra Ísafjarðar væri full alvara með hugmynd sinni og ennfremur að fjöldi fólks hefði haft samband við téðan Bæjarstjóra, þar á meðal frá Náttúruverndarsamtökum Íslands og Landvernd með margar pælingar og jákvæðni í garð hugmyndar hans.
Ennfremur hlakki nú í sjálfumglöðum iðnjöfrum sem hlakka til að sjá hippana klúðra öllu saman vegna þess að auðvitað getur enginn grætt á fallegu landslagi og hreinu lofti.
Ég segi því við Fangor: Það er fullt af fólki búið að taka í þessa hugmynd Bæjarstjóra Ísafjarðar, það er bara ekki búið að fjalla um það í neinum fjölmiðlum nema Þankatanki herra Muzak! :) Fyrstur með Fréttirnar!

Hr. Muzak

Viðbót:
Mig langar til þess að spyrja Frjálshyggjumennina okkar (Geir, Svansson og co) eftirfarandi spurningar:
Hvorri af eftirfarandi fullyrðingum eruð þið meira sammála, A eða B?:

A: Atvinnuuppbygging á að vera í höndum ríkisins. Því er best treystandi fyrir framtíð og hag fólksins. Einstaklingar eiga að treysta ríkinu fyrir framtíð sinni og vinna þar sem ríkið útvegar þeim vinnu.

B: Atvinnuuppbygging á að vera í höndum einstaklinga. Einstaklingum er best treystandi fyrir eigin framtíð og hag. Ríkið á að treysta einstaklingunum fyrir framtíðinni og hlúa vel að þeim og gera þeim kleyft að koma góðum hugmyndum af stað.

Og svarið nú án allra útúrsnúninga og réttlætinga.


[ 6 ]
 
Getur einhver svarað mér þessu:

Af hverju er svona mikil gríðaráhersla á orkufreka stóriðju í landi þar sem auðlindir eru af afar skornum skammti, og okkar sérhæfing og sérstaða vísar til allt annarra atvinnuvega?
Af hverju er ríkinu svona mikið í mun að selja alla orku okkar sem fyrst og sem ódýrast úr landi?

Frábært væri ef einhver gæti varpað ljósi á þetta fyrir mig, ég er ekki alveg að skilja þetta...

Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 9 ]
 
Stundum elska ég Tom Tomorrow meira en bláberjasultu!






Snilld!!!

Bestu Kveðjur,
Hr. Svavar


[ 1 ]
 
Of mikið að gera...

Jæja Krakkar mínir...
Hr. Svavar er í kreppu þessa dagana...
Verkefni hlaðast upp...
verkefnin krefjast þess að Svavar eigi lesefnið í viðkomandi kúrsum...
Lánasjóðurinn situr á sjóði sínum...
Svavar getur ekki keypt bækurnar...
Svavar getur trauðla klárað verkefnin...

YARGH!!!

Í öðrum fréttum eru Moonboots nú formlega orðnir húsnæðislausir... Ekki var Adam lengi í Paradís.
Góðmennið sem leigði okkur, SKE og Geirfuglunum sal 2 í gömlu bíóborginni sem æfingahúsnæði ákvað að hann græddi meira á einhverju öðru og gaf okkur viku til að rýma staðinn.
Við vorum meira að segja búnir að borga fokkíng Febrúarmánuð fyrir fram...

Ég hef ákveðið að vera ekki reiður út í Óttar Felix Hauksson, vegna þess að ég trúi því að hann sé góður maður og að honum hafi gengið gott eitt til með þessu...

En, sumsagt, Moonboots eru úti á götunni ásamt Geirfuglunum og SKE.
Svo ef einhver veit um eitthvað 40 fm. iðnaðarhúsnæði á leigu á ásættanlegum kjörum, þá endilega hafið samband...

Bestu Kærleikskveðjur,
Hr. Svavar


[ 3 ]
föstudagur, febrúar 07, 2003
 
Íslendingabók er tæki djöfulsins!!!


Samkvæmt Íslendingabók er ég barnabarnabarna......barnabarn allra landnámsmanna og íslendingasöguhetja sem á annað borð skildu eftir sig afkomendur... (skiljanlegt)

Hins vegar er ég ekki skyldur neinum sem ég fletti upp (u.þ.b. 30 manns) fyrr en í 7. - 9. ættlið. (Nema Jóni Geir og Þórhalli).
Mér finnst það sökka...

Hnuss...

Bestu Kveðjur,
Hr. Svavar


[ 11 ]
fimmtudagur, febrúar 06, 2003
 
long time no blog...

Æi... maður er eitthvað svo sjúskaður þessa dagana... Dagbjört nýbúin að eiga ammæli og svoleiðis...
í fréttum er m.a. það að eigendur æfingahúsnæðisins, sem Moonboots, Ske og Geirfuglarnir deila, hafa ákveðið að henda okkur út og taka upp öðruvísi rekstur á svæðinu... þeir gáfu okkur rúma viku til að ná í allt draslið... :(
súrt...
Í öðrum fréttum:
Nýtt lag komið... flutti það á afmælistónleikunum í mjög hrárri útgáfu.

Hér er textinn í fullri lengd:

It's your life

There?s no need for conversations,
There?s no need for anything at all
The time has passed for promises
The time has passed for rolling with the fall

A house of lies on grains of sand
Is all that holds the elements at bay
I?m not allowed to intrude upon you
I?ve no advice to give, nothing to say...

It?s your life
It?s your life
It?s your life

I really want to help you out
I really want to pull you out of there
Take you to a better place
A bullshit free and peaceful life somewhere

I won?t attempt to save you
I won?t attempt to drag you from your fate.
I only hope you call on me
Before you sink too deep and it?s too late.

Cause It?s your life
It?s your life
It?s your life


Bestu Kveðjur,
Hr. Svavar


[ 2 ]
mánudagur, febrúar 03, 2003
 
N.E.R.D. - Brilljant prójekt...


Mæli með hljómeykinu N.E.R.D.

Brilljant músík sem þeir eru að gera...
Provider er frábært lag...

(svabbi orðin R&B fíbbl...)

bestu kveðjur
Svabbi


[ 1 ]
laugardagur, febrúar 01, 2003
 
Kristbjörn mælir manna heilastur!


Ég verð að segja að hann Kristbjörn á snilldartakta í þessum pistli:

"Síðan vantar alveg umfjöllun um verkefnið Auð í krafti kvenna versus Álver. Þar voru sköpuð 170 ný störf með heildarkostnaði upp á 150 milljónir. Ég er ekki viss hvort það voru lán eða styrkir. Með sambærilegu verkefni á stærri skala færu menn létt með að skapa 500 ný störf á Austfjörðum, án þess að gera Lagarfljótið að drullupolli og drekkja Egilsstöðum. Ef flugvöllurinn fór næstum því í kaf núna í vetur, hvað gerist þá ef ein jökulá bætist við rennslið?"

Djöfull var þetta vel sagt minn kæri!

200.000.000.000 krónur til að mynda 900 störf...

150.000.000 krónur til að mynda 170 störf...

5 x 170 störf = 850 störf = 5 x kr. 150.000.000 = kr. 800.000.000

Hvort er ódýrara? að veita 800 milljón krónum í nýsköpun og einstaklingsframtak á Austfjörðum og hjálpa þannig 850 manns að koma sínum eigin hugmyndum á rekstrarhæft form eða 200.000 milljón krónum til að moka undir þetta fólk einhæfum störfum sem það hefur ekkert að segja um...? Spurning...

Er 800 milljónir ekki skítbilleg virkjun? og drulluhagkvæm?

Ég held að íslenskir ráðamenn séu alveg búnir að missa sjónar á möguleikunum og vinni bara eins og hestar (því þeir eru svo sannarlega að vinna af krafti!) með svona skýli fyrir augunum svo þeir sjái nú örugglega ekkert nema veginn sem þeir eru að hnoðast áfram.

Leggja rækt við fólkið sjálft, ekki bara skenkja einhverjum stórfyrirtækjum auðlindir landsins gratís þvers og kruss!

Bestu kveðjur,
Herra Svavar


[ 9 ]
Virka þessi Drösl???