![]() |
Þankatankurinn
|
![]() |
||||
|
Svavar Knútur Kristinsson, Félagsauðströll, heimspekingur, umhverfis-verndarsinni og tónlistarmaður. NÝTT!!!
|
Nýjustu Demó: Ástarsaga úr fjöllunum (Sumarið 2005) Goodbye my lovely (19. júní 2005) Your love was death to me (Janúar 2005) Call off your Cavalry (September 2004) You should call a doctor (Maí 2004) Kysstu tímaglasið (endurbætt útgáfa 2004) Mother's day Jólaplata Hrauns 2003: Þrautgóðir á Hraunarstund Jólaplata Hrauns 2005: Höldum jól Jólaplata Hrauns 2006: Jólamolar |
miðvikudagur, apríl 30, 2003
Eitthvað svo sætt við þetta lag...
Hlustið á þetta fallega litla lag eftir 60's bubble hljómsveitina Free design... Og segið svo að ég sé ekki jákvæður strákur sem elskar heiminn... :) Bestu Kveðjur, Múzzi [ 0 ] Og þessi er tileinkuð Pétri Blöndal...
Gussuvel elsku Pétur Blöndal... ég vissi ekki að þú ættir þér tvíburabróður í BNA...
Bestu Kveðjur, Svavar [ 1 ] þriðjudagur, apríl 29, 2003
Fyndið og sorglegt...
FoxNews greinir frá því að Bush ætlar að setja 15 billjón dollara í alnæmisvarnarprójekt... Svona rétt til að draga athygli heimsins frá misheppnaðri "frelsis"herferð í Írak og algerum skorti á efnavopnum í landinu... Aha... Bush, einmitt... gæinn hvers hugmynd um kynfræðslu er að segja unglingum að sofa ekki hjá... "Bush also wants "prevention education rooted in the proven abstinence-based approach," the White House said." Sem betur fer tók þingnefndin fyrir það og sá fyrir að ekki yrði alls staðar jafn auðvelt að berja fólk til hlýðni og í good ol' US of A... En Fox heldur áfram: "The White House strongly supports the "ABC" approach to halting the epidemic: "A" for abstinence, "B" for be faithful and "C" for using condoms when appropriate." Einmitt... Bush er afar hrifinn af ABC, því hann hefur væntanlega aldrei komist lengra... hmmm... Og nasistafréttastofan FOX er með könnun um téð alnæmisvarnarátak: How to Fight AIDS Should abstinence be the cornerstone of Bush's global AIDS initiative? a. Yes, it has proven successful in fighting the epidemic. (67%) b. No, the initiative shouldn't focus on any one strategy. (30%) c. Not sure Þá vitum við hverjir lesa Fox... :) Þvílíkir Bjánar! Bestu Kveðjur, Svavar [ 0 ] Einhvern pening eiga þeir...
"Hvar fengu þeir þennan pening?" hefði nú Davíð spurt ef einhver annar flokkur hefði verið að keyra allar þessar sjónvarpsauglýsingar vikum fyrir kosningar. Mér finnst persónulega alveg drepfyndnar þessar auglýsingar með indí fólkinu sem situr á tröppunum og talar um að treysta sér og eitthvað... Greinilega verið að reyna að höfða til "xfólksins sem veit ekkert hvað það á að kjósa af því að það er svo mikið 101... ha? Þetta x-fólk, það er svona alltaf svolítið "indí" er það ekki? ha?" Mér finnst þessar kosningar vera hálf ógeðfelldar, það er ógeðslega mikið af hræðsluáróðri í gangi og sjálft Morgunblaðið, uppáhaldsblaðið mitt, setur leiðara eftir leiðara í hræðsluáróður um hvað vinstrimenn séu hræðileg ómenni og svo framvegis... Við erum greinilega ekki komin svo langt frá kaldastríðsárunum... Bara fyrir tveimur árum sat ég fund með Styrmi ritstjóra Moggans og hann sagði mér að Mogginn væri alveg skilinn við Sjálfstæðisflokkinn og væri nú sjálfstætt dagblað, þó þeir ættu sameiginleg stefnumál. Og nú eru þeir eins og blóðhundar á vinstri kantinn... Skrýtið... Mogginn hefur aldrei verið hrifinn af kvótakerfinu, en þeir eru greinilega afar áfjáðir í að halda því núna, því ekki eru þeir að tala vel um flokkana sem vilja breyta því... Ég held að Hægrimenn séu ekki alveg búnir að fatta að Sovétríkin eru hrunin og vinstri menn eru ekki lengur Lenínistar, Marxistar, Maóistar, Stalínistar eða Trotskíistar. Þeir eru upp til hópa frekar frjálslynt en velferðarsinnað fólk... Hins vegar hef ég nokkrar áhyggjur af hægri mönnum nútímans, því þeir eru orðnir helvíti hressir með sinn nýfengna sigur og vilja nú sífellt lengra til hægri út í Hobbsískt "allir á móti öllum" sting-þig-í-bakið samfélag, bæði meðal manna og þjóða. Tilbeiðsla á Bush feðgum, Cheney og Rumsfeld er orðin landlæg meðal þeirra og tóm efnishyggja komin á fullt... Indí auglýsingar hjá Sjálfstæðisflokknum eru eitthvað svo mikið sökk... :D hahahaha Bestu Kveðjur, Svavar Knútur [ 1 ] laugardagur, apríl 26, 2003
Bonnie Prince Billy er bomban!
Er búinn að vera að hlusta á "Master and everyone" með Will Oldham. Djöfulsins snillingur er maðurinn! Joy, Joy Jubilee - Ain't you wealthy, aint you wise - The Way og Wolf among wolves eru Súrt góð lög. Restin er líka dásamleg. Ég varð hálfmeyr þegar ég hlustaði á þetta... Kaupið kauða... Mig langar ótrúlega mikið til að semja bara eins og eitt lag sem er eins gott og það sem hann er að gera... :) Sjitt hvað þetta er falleg tónlist. Bestu Kveðjur, Svavar [ 2 ] Grundvallarmisskilningur...
Sumir virðast haldnir þeim leiðinda misskilningi að mér sé illa við ríkt fólk og efnað. Það er fjarri lagi, því rétt eins og með homma og blökkumenn á ég ágætis félaga og vini innan þess hóps... ;-) Hitt er annað mál, að mér er meinilla við fólk sem tilbiður peninga og þjónar hinum ríku eins og þeir séu einhvers konar prestar ellegar klerkaveldi Mammons. Sjálfstæðisflokkurinn er svona efnishyggjutilbeiðsluflokkur... Menn eru ekki neitt ef þeir eru ekki að meika bökk... Og því ríkari sem menn eru, því fleiri réttindi eiga þeir að hafa í samfélaginu og því meira eiga þeir skilið. Og það finnst mér viðbjóðslegt. Ekki peningarnir sjálfir, heldur tilbeiðsla þeirra sem hins eina gildis heimsins. (og svo þetta self righteous trúarkjaftæði sem á ekki að koma stjórnmálum eitt né neitt við) Samfélag okkar byggist á gildum sem við eigum sameiginleg og hafa ekkert að gera við kristni. Þau hafa eitthvað að gera við siðmenningu og heilbrigt samfélag manna. Trúin á ekki að ráða hvernig mennirnir setja sér reglur og lög. Trúin á sitt erindi í okkar persónulega lífi ef við viljum hafa hana þar. Það veit ekki á neitt nema slæmt þegar samfélag lætur trúarbrögð hafa áhrif á rekstur ríkisins. Bestu Kveðjur, Svavar [ 0 ] Skrýtin pæling...
Var að lesa greinina hennar Katrínar Jakobsdóttur í Mogganum í dag... Og mér varð hugsað: Ef vinstri flokkarnir vilja fella ríkisstjórnina og koma á velferðarstjórn... Af hverju í andskotanum eyða þeir svona mikilli orku í að rakka hvern annan niður? Geta vinstri menn ekki látið hvor annan í friði, allavegana svona rétt í kringum kosningar? Grafið stríðsöxina í grunnu beði og eytt púðrinu í óvinina sem skipta máli, Sjálfstæðisflokk og Framsóknarflokk? En hvað veit ég? ég er bara saklaus sveitastrákur að norðan... Bestu Kveðjur, Svabbi [ 3 ] Í öðrum fréttum...
Er alveg frábært veður úti núna og ég að skrifa ritgerð... :) hahahahahaha Frábært! Grein eftir mig í U-beygjunni hjá ungum Vinstri Grænum... Lukkaðist ágætlega miðað við tímann sem ég eyddi í hana ;) N.B. þetta þýðir ekki að ég sé ógurlegur VinstriGrænn Ég er ósammála þeim í mörgum atriðum, en ég er meira Grænn en ég er nokkuð annað og enginn annar flokkur heitir neitt Grænt eða hefur lagt sig eftir því að vernda náttúruna, því miður... Ef sjálfstæðisflokkurinn væri ábyrgur í umhverfismálum, þá gæti ég jafnvel hugsað mér að kjósa þá, en þeir eru drullusokkar þegar kemur að þeim málaflokki, þannig að sorrí stína, þið misstuð mitt atkvæði... Bestu Kveðjur, Svavar [ 1 ] Og hvað með það?
...Þó mér finnist þorri ungra sjálfstæðismanna selja sál sína ódýrt og hafa siðferðislega tómhyggju að leiðarljósi? Sorrí Guðni Dagur, þú ert kannski undantekning, og örfáir vitleysingar mega kannski finnast í þessum hópi sem trúa heitt á frelsi einstaklinga og markaðar og halda sál sinni óskertri, en líttu í kring um þig. Það væri skondið að tengja skoðanakannanir lífsstíl... Þeir sem glepjast af tískustraumum og hugmyndafræðilegu vakúmi efnishyggjunnar flykkjast iðulega yfir á hægri kantinn, því það er peningakanturinn. Svo eru bara notaðar innantómar uppúrtyggjuréttlætingar á hinum ýmsu málum og talað í menntaskólalegum hæðnistón um alla vitleysingana með sannfæringuna sem vilja vernda heiminn og svoleiðis búllsjitt. Öll gagnrýni á leiðtogana er látin lönd og leið. Ég er alls ekki að segja að gagnrýnislaus menntaskólamentalitet finnist ekki meðal annarra stjórnmálahreyfinga. Kannski er það þess vegna sem ég er gersamlega utan stjórnmálaflokka (þó einhver hálfviti hafi skráð mig í eitthvað sem síðan breyttist í samfylkinguna fyrir úmtán árum, örugglega stuðningsyfirlýsing við kvennalistann 1995...) Mér þykir bara viðbjóður að horfa upp á samfélag okkar, allt sem við höfum barist fyrir undanfarin 10.000 ár, leysast upp í tómhyggju, eigingirni og aumingjaskap. Við höfum allt sem þarf, en enginn vill gera neitt fyrir neinn nema neinn geri neitt fyrir neinn fyrst skiluru??? Bara frústrerandi... Og svo eru svona übersnyrtilegir smjörkúkar eins og Sigurður Kári og Björgvin Guðmundsson alveg að klepera á því að réttlæta það að jú, ef þeir ríku fá að verða endalaust ríkari, þá kannski falli brauðmylsnan af sjöundu undirhökunni á þeim niður á gólf og geri hina fátæku endalaust hamingjusamari. Þetta er bara BULLSHIT! En hvað veit ég? Ég er bara vitlaus hugsjónamaður sem er sko ekkert á leiðinni að brenna upp! Ég hef nóga orku til að brenna bjart þangað til ég dey í hárri elli! Ég er ekki þreyttur, ég er ekki vonlaus. Ég er reiður út í ranglæti hinna ranglátu. Ég er reiður út í það þegar ungir smjörkúkar selja sál sína í von um að fá að sitja við borðið með stóru smjörhökunum. Frekar vil ég lifa í fátækt en að starfa við að réttlæta ranglæti og dusilmennsku feitra jakkafatakalla. Bestu Kveðjur, Hr. Svavar [ 3 ] föstudagur, apríl 25, 2003
Hvers vegna er herstöðvarandstæðingur ljótt orð?
Hvers vegna virðast allir svonefndir "sjálfstæðismenn" líta á hugtakið "herstöðvarandstæðingur" sem blótsyrði? Hvað er að því að vera á móti herjum og herstöðvum? Er rangt að vera á móti stríðum og átökum og vopnum og morðum? Er rangt að vilja að landið sé hlutlaust? Hvað er svona hrikalega ljótt við það að vera á móti erlendri herstöð á Íslandi? Hvað er svona frábært við að elska viðveru erlends herafla á okkar fósturjörð? Og annað... hefur einhver tekið eftir því að stjórnarmenn Heimdallar eru ALLIR úr eftirtöldum greinum: Tölvunarfræði Viðskipta og hagfræði Verkfræði Lögfræði eða í námi í Verzló... og jú, einn búinn með sálfræðina svona út á lúkkið... Getur einhver stafað siðferðisleg tómhyggja? Getur einhver stafað efnishyggjupakk? Æi, þið vitið... Mér er ekkert illa við sjálfstæðisflokkin per se... En þetta lið í Heimdalli er ótrúlega hómógenískt... þetta er allt eins, eitthvað ferskt, brosandi, heilbrigt, og gersamlega gerilsneytt... sálarlaust... Sálarlaust er orðið sem ég er að leita að... Sjálfstæðisflokkurinn er sálarlaus flokkur, ungir sjálfstæðismenn virðast einhvern veginn allflestir vera búnir að losa sig við þá byrði sem sálin er... Kannski er það nútíminn sem er svona mikil trunta, neysluhyggja og efnishyggja tröllríða öllu... Kannski er það bara áróðursmaskína D-Vélarinnar sem er svona effektíf... En mér hrýs hugur við því hvað þetta lið er tómt til augnanna og sálarinnar... Og ég tek það skýrt og greinilega fram að ég er einstaklingsfrjálshyggjumaður eins og sést hér að neðan... Ég er ekki afturhaldssamur stalínisti eins og margir Heimdellingar vilja útmála okkur ungu frjálshugana... Bestu Kveðjur, Hr. Muzak [ 0 ] Fyrirgefðu Óli... :)
Ég bið Óla Gneista (og alla Vopnfirðinga) hér með afsökunar fyrir að hafa notað kjaftakerlingar á Vopnafirði í sömu hugmyndatengslum og sjálfstæðismenn... Auðvitað átti ég við kjaftakerlingar í Bolungarvík og leiðréttist það hér með... :-) Bestu Kveðjur, Herra Muzak [ 1 ] Duglegur í dag!
Nú ríður á að menn taki sig á og klári að sem þarf að klára hérna! Kommon Svabbi! Gera þetta! Kasmæeriiinnn!!! Þú getur Þetta!!! Drenguriiiinnn!!! Helvítis harka er þetta!!! Koma svo!!! Svabbi [ 2 ] Skrýtin staða...
Það er undarlegt með hægrimenn á Íslandi. Hvar sem þeir drepa niður fæti, þá láta þeir eins og þeir séu einu kyndilberar einstaklingsfrelsisins. Alltaf er einstaklingsfrelsinu básúnað eins og það sé hreinlega ekki stjórnarskrárbundið hér á landi... Vaka er félag lýðræðissinaðra stúdenta... Eins og Röskva og hver önnur stúdentahreyfing sé sumsagt andlýðræðislega sinnuð. Tíkin er vefrit hægri kerlinga um einstaklingsfrelsi. Frelsi Frelsi Frelsi... Engin ábyrgð? Vefþjóðviljinn... snýst í raun ekki um neitt annað en að vera blind áróðursmaskína gegn öllu sem er ekki sjálfstæðisflokkurinn og snýr blinda auganu sínu að öllu sósíalíska draslinu sem sjallarnir eru að gera... Það örlar sjaldnast á nokkurri málefnalegri umræðu um nokkurn skapaðan hlut, og hvað þá öllu þessu blessaða frelsi þeirra. Þetta fólk er allt svo voða upptekið í að tala illa um vinstrimenn eins og einhverf kjaftakerling á Bolungarvík. Því eins og allir vita, þá eru allir vinstrimenn alltaf á móti öllu frelsi og vilja bara að allir lifi í keðjum og höftum og hati allt og alla ekki satt? Af hverju í andskotanum er þetta fólk alltaf að tönnslast á blessuðu frelsinu? Það tyggur og japlar og maular á frelsishugtakinu þangað til það hljómar í munni þeirra eins og "Sjálfbær þróun" hljómar út úr trantinum á Valgerði Sverrisdóttur og "ég er umhverfisverndarsinni" út úr gapinu á Smára Geirssyni. Eins og brandari. Jibbí húrra fyrir öllu frelsinu. Förum nú að taka ábyrgð. Af hverju talar enginn um Ábyrgð? Af því að það er svo leiðinlegt orð? Það er líka gaman að borða og drekka bjór. Er leiðinlegt að vinna fyrir matnum sínum? Þá ertu í vitlausri vinnu. Það á að vera gaman að vinna. Rétt eins og það á að vera gott að taka ábyrgð. Bestu Kveðjur, Hr. Muzak [ 0 ] fimmtudagur, apríl 24, 2003
Húrra fyrir Deigluslavanum! :)
Sérdeilis skemmtileg og vel skrifuð grein hjá Deigluslavanum Pawel:) Fox er viðbjóðslegur fjölmiðill, svo mikið er víst... Hr. Muzak [ 0 ] Aðeins of satt...
Ég held að the onion hafi náð einhverjum kosmískum sannleika með þessari grein... Þessi er líka sikk góð og helvíti sönn :) Tékk it... Svabbi [ 0 ] Pólítíski kompassinn endurkalíbreraður...
Maður er alltaf sami frjálshyggjumaðurinn... Your political compass Economic Left/Right: -2.62 Authoritarian/Libertarian: -7.74 Faktískt séð er ég miklu frjálslyndari en sjálfur Milton Friedman samkvæmt prófinu. Hann er bara hægrisinnaðri... sem hefur í raun ekkert að gera með raunverulegt frelsi, heldur með hversu frjálsar hendur fyrirtæki hafa til að fokka í saklausum borgurum og síðan hversu frjálsar hendur ríkið hefur til að fokka í þeim. Að mínu mati er miðjan heppilegasti staðurinn til að vera á hægri-vinstri kvarðanum, þar sem báðar öfgar eru tempraðar... Því frjálsar hendur fyrirtækja enda á því að gera heimin að alveg jafn miklu sósíalistaríki og ríkisforsjáin. Sjáum bara Britney Spears væðingu heimsins. Það er svona angi af fyrirtækjaforsjánni. Það er langódýrast fyrir plötufyrirtækin ef þau þurfa bara að framleiða eina tegund tónlistar og massaselja hana. Svo þurfa þetta ekki einu sinni að vera listamenn með mannlegar þarfir, þetta er bara ein dekurdrós sem hægt er að nudda til með ódýrum gjöfum. Bestu Kveðjur, Svavar Knútur [ 2 ] miðvikudagur, apríl 23, 2003
Björn Bjarnason er kolklikkaður!
Út úr samhengi hljómar þessi setning eins og gagnrýni á Bandaríkin: "Hrundið hefur verið í framkvæmd hernaðarstefnu Bandaríkjanna, sem byggist á hernaðarlegri íhlutun til að tryggja öryggishagsmuni, án þess að þeim hafi verið ógnað með árás eða hótun um hana." En hjá Birni Bjarnasyni er þetta fögnuður og gleði yfir því að loksins megi Bandaríkin fara fram með hernaði að eigin geðþótta... Ég hélt að Björn væri ruglaður, en nú veit ég að hann er kolklikkaður... Hann einfaldlega tilbiður ofbeldi og stríð, sérstaklega þegar um er að ræða sterkan aðila sem níðist á sér minni máttar. Ég held að Björn hafi verið ótrúlega mikill eineltiskóari í gamla daga... Svona litli gæinn sem stóð á hliðarlínunni á stuttbuxunum og hrópaði mjóróma: "Já Böddi!!! Kíldann!!! Lemdu aumingjann!!! Pabbi hans er kommúnisti og herstöðvaranstæðingur!!!" Ekki kjósa þennan mann. Takið eftir því, það er ekki það sama að segja og gera, og Sjálfstæðisflokkurinn segist vera frelsisflokkur, en gjörðir hans opinbera hann sem hagsmunabandalag jakkafatafeitukattanna, sem eiga hóp lítilla en kjaftstórra og beturvitandi smjörkúkaþræla, um að viðhalda völdum hjá þeim sem "réttilega eiga tilkall til þeirra." Bestu Kveðjur, Hr. Muzak [ 1 ] Fór norður annan í Páskum...
Það var rosalegt veður fyrir norðan... í Skagafirðinum... 18 stiga hiti, logn og heiðskírt. Öll trén voru farin að laufgast og runnarnir líka... Ótrúlegt ástand! Ég eyddi rúmum klukkutíma í að klippa tré og taka græðlinga. Hreinsandi iðja... Mér finnst gott að vinna með höndunum, það er eitthvað svo ærlegt... Bestu Kveðjur, Svavar Knútur [ 0 ] þriðjudagur, apríl 22, 2003
JARGH!!!
Nú er kominn tími til að láta hendur standa fram úr ermum! Nú verð ég að koma mér að verki! Annars skítfell ég og það er bara mér einum að kenna... YARGH!!! URG!!! urg!!! urr... rr... hrorrrr... zzzzz... ZZZZZ..... HRORRRR.... ZZZZZZ... uh? verð... að... halda... einbeiti... ú, fiskur! Bestu Kveðjur, Svabbi [ 0 ] sunnudagur, apríl 20, 2003
Ef þetta er ekki ástæða til að elska landsbyggðina :)
Tékkið á þessari frétt á uppáhaldsfréttamiðlinum mínum www.bb.is Þær gerast einfaldlega ekki flottari :) Svabbi [ 3 ] Urg... Sköpunarleysi...
Mér leiðist að vera ekki að vinna með öðru tónlistarfólki í skapandi dæmi... Sköpunin er eins og vöðvi og maður verður að þjálfa hana upp. Og mér gengur best að þjálfa með öðrum... Urg... Leiðist að vera ekki í neinu bílskúrsbandi... Moonboots eru að flytja inn í húsnæði bráðum þar sem allt kerfið okkar verður geymt, en það var víst hart tekið fyrir það að við myndum draga einhver aukaprójekt þar inn... Ég býst við að það skjóti lokum fyrir það að ég geti kíkt í djammsessjón... Svo virðast mál yfirleitt æxlast þannig að Helgi Trommari fær alltaf lyklana að öllum æfingarhúsnæðum sem maður lendir í... Sem þýðir að ég verð alltaf að betla hann um lyklana (eða fara í einhvern bölvaðan leiðangur) ef ég ætla að gera eitthvað sjálfur... (Ég er alls ekki að meina að mér sé neitt illa við Helga... Það er bara ömurlegt að hafa ekki möguleika á sjálfstæði...) Af hverju þarf þetta að vera svona helv. flókið! :( Af hverju gengur mér svona illa að setja saman hljómsveitir og halda mönnum við efnið? (þ.e.a.s. að fólk nenni að leggja eitthvað á sig og gefa sér tíma...) Urg!!! Hvað er í gangi?!? Bara einu sinni langar mig að stofna hljómsveit þar sem menn hittast og æfa sig og hafa ógeðslega gaman að því og búa til skemmtilega tónlist saman og halda því áfram og nenna að halda því við... Ég þoli ekki þetta úthalds- og nennuleysi í öllum (og þar með töldum mér...) Hr. Muzak [ 0 ] laugardagur, apríl 19, 2003
Hin hlutlausu vísindi...
Fyrir nokkrum vikum var ég að vinna verkefni með hagfræðinemum í skilyrtu verðmætamati á umhverfi. Hagfræðinemarnir (sem mér líkar ágætlega við) voru, eins og steríótýpan gefur til kynna, nokkuð kokkí og létu í skína að þeirra vísindi væru æðri öllum félagsvísindum, að hlutleysi hagfræðinnar væri slíkt að hún væri hinn fullkomni mælikvarði á mannlegar þarfir og langanir og allt... Svo kom að matinu. hver okkar gerði sína könnunina og við skiluðum þeim inn. Auðvitað voru þær allar eins og eini munurinn var úrtakið hjá hverjum og einum. Verið var að meta hvers virði tiltekið útivistarsvæði væri hjá fólki á mismunandi svæðum. Hjá mér voru tvö frekar há svör, þó þau væru alveg innan rammans, og drengirnir ráku augun umsvifalaust í þau og voru afar fljótir að fara að tala um að þau hlytu að vera ógild, því þetta væru jaðartölur og blablabla... Eru þetta hlutlaus vísindi? Getur ekki verið að ég hafi hitt á tvær manneskjur sem meta þetta svæði mikils og þær séu hluti af þýðinu? Ég held að hagfræðinni veitti ekki af smá sjálfsgagnrýni. Eða er maðurinn bara atóm í hagvélinni? Er maðurinn bara tannhjól? Er maðurinn ekkert meira? Bestu Kveðjur, Svavar [ 0 ] Gleðilega páska...
Döööö hvað ég er eitthvað lúinn og orkulaus... Josie and the pussycats var samt æði... var að horfa á hana í einhverju bríeríi... nennti ekki einu sinni út í góða veðrið... urg... Ætla að fara á þrjár systur í kvöld og sjá Dísellu mína Syngja... Hvern langar að stofna elektró/akústíska danshljómsveit með mér? Bestu Kveðjur, Svavar [ 2 ] fimmtudagur, apríl 17, 2003
Dauður...
Í dag er ég dauður... Ég get ekki drukkið eða borðað, ég er svo búinn á því... Ég gaf allt sem ég átti í gær... Moonboots Þrumuðu rosalega í 80's partýinu á Astró í Gær, við spiluðum frá 00:30 til 05:00 og tókum eina litla pásu... Jón Geir, Gummi og Ingó voru gríðarlega skemmtilegir aukamenn og stóðu sig með prýði í bakröddum og slagverki og öllu... Fólkið sem kom var að ég tel 180% happí, og það er það sem skiptir máli... En... Ég var ægilega leiður yfir miðasölunni... Ef við hefðum fengið borgað fyrir stuð, þá væri ég milli... En það seldist ekki alveg nógu mikið af miðum. (kannski var það af því að enginn fór út til að hleypa nýju fólki inn...) hehehe... never mind... En þetta borgaði sig ekki alveg eftir allt saman... Þó kvöldið hafi verið ógeðslega skemmtilegt þá er ekki hressandi að horfa til þess að maður þurfi að borga með fjögurra tíma spilamennsku, sérstaklega eftir alla vinnuna sem var lögð í að gera þetta kvöld að veruleika... Maður hefði viljað koma út á sléttu... well... you can't win'em all... :) Hr. Muzak Þreyttur, nokkrum krónum blankari og úldinn, en glaður eftir gott partý yfir og út... [ 2 ] mánudagur, apríl 14, 2003
Auglýsing sem ég bjó til...
Hellismaðurinn Kunngjörir: Brjálað 80's Partý Bestu Kveðjur, Svalli Cave Man [ 3 ] sunnudagur, apríl 13, 2003
Svalli Túrbó Kunngjörir!!!
Næsta Miðvikudag, 16. apríl, heldur hljómsveitin Moonboots upp á 6 ára afmæli sitt. Gleðin verður á Astró og verður sérstakt V.I.P. partý fyrir vini og velunnara hljómsveitarinnar frá kl. 10:30 til 00:30 með bollu og tilheyrandi. Gripið verður til ýmissra hátíðarbrygða og sprellirís auk þess sem sérleg tilboð verða á nafngreindum bjór. Húsið opnar síðan fyrir 80's þyrsta brjálæðinga í kringum kl. 00:30 og þá hefst tjúttið fyrir alvöru. Hljómsveitin stígur á stokk kl. 01:00 og spilar til gróflega 05:00! Við leitum nú að nokkrum glöðum og gírugum glyðrum til þess að gaula með grúví gæjum í nokkrum geðveikum gógólögum. Einnig lýsir hljómsveitin eftir djörfum dönsurum til að drýgja dýnósíusardans og dilla dundum. Stelpur, hafa samband ef þið viljið syngja með. Bæbæ hönnís! Svalli Túrbó Söngspíra [ 5 ] föstudagur, apríl 11, 2003
Brilljant grein
Þessi grein fjallar um hvað Fox sjónvarpsstöðin, og í rauninni vestrænir fjölmiðlar eru búnir að vera svakalega hlutlausir í blessuðu stríðinu. Góð grein Svavar [ 2 ] Er fólk Dofið, latt eða bara siðbrenglað?
Í gær var síðasti tíminn hjá Nigel Dower í umhverfissiðfræði. Hann velti fram gríðarlega merkilegri spurningu (að mínu mati). Spurningin var einfaldlega: Ef fólk hefur áhyggjur af umhverfinu og ástandinu í heiminum, af hverju er það ekki að reyna að breyta hlutunum til hins betra. Margar vangaveltur komu fram. Er fólk latt? Dofið? Heimskt? Eða hreinlega: Er fólki kannski bara sama? Sem þýðir að þetta fólk er siðferðislega brenglað, þar sem því er skítsama um þjáningu annarra í heiminum og eymd afkomenda sinna. Ég hef tekið ákvörðun um að reyna að hegða mínum innkaupum þannig að ég kaupi sem umhverfisvænastar vörur og legg líka áherslu á að versla "fair trade" vörur, þ.e.a.s. vörur sem ekki eru framleiddar í skjóli kúgunar stórfyrirtækja. Nú á ég félaga og vini sem kalla mig hálfvita og hippaling fyrir að hugsa svona, og vinkona mín sagði að þetta væri "svo seventís eitthvað"... Þá spyr ég: Hvað er þá dagskipan dagsins í dag? Að koðna niður fyrir framan sjónvarpið og playstation 2 tölvuna og vera sama þangað til heimurinn flýgur á átópælot alla leiðina til helvítis? Það er auðveld leið, og svakalega hipp og kúl, að vera latur og dofinn og sama. Til hamingju! Til hamingju með að vera aumingjar með hor og slef og hápunktur mannlegrar þróunar! Svona endar þetta þá... Allar framfarir mannkyns í tækni, vísindum og heimspeki toppa í samfélagi þar sem doði og sinnuleysi og græðgi drekkja manninum í eigin saur. Frábært! Húrra fyrir okkur! Ég ætla ekki að taka þátt í þessu. Þó ég keyri bíl og drekki gos og lifi góðu lífi, ætla ég hér með að hegða mínum innkaupum og minni neyslu á sem meðvitaðastan hátt og reyna eftir fremsta megni að gera heiminn að betri stað. Ég neita að taka þátt í tilgangsleysisdansinum. Ég ætla aldrei aftur að taka ótilneyddur vinnu sem hefur engan tilgang til bætts heims eða betra lífs. Ég er frjálslyndur maður, og ég trúi því að allir eigi rétt á því að leita hamingjunnar svo fremi sem það valdi ekki öðrum skaða... Í því felst að þeir sem leita "hamingjunnar" með því að kaupa vörur sem framleiddar eru með kúgun eða eyað umhverfinu eru ekki að breyta rétt. Með frelsinu fylgir ábyrgð, ábyrgð gagnvart heiminum og ábyrgð gagnvart samborgurum okkar í samfélagi jarðarinnar. Mér býður við því þegar fólk lætur eins og það að vera ekki sama um heiminn sé einhver hugsjónavitleysa og hippaskapur! Mér býður við því þegar fólk lætur eins og pólítísk sannfæring og andstaða við stríð sé einhver tilfinningasemi og allt of hallærislegt! Ef fólk kemur í mitt hús og lýsir því yfir að lífssýn mín sé bjánaleg, þá þarf það ekki að hafa fyrir því að koma aftur, þá veit ég hvar það stendur og mun ekki eyða tíma mínum í að umgangast það, því slíkt fólk er ekkert nema afætur og sníkjudýr á heiminum. Niður með Fálætið! Niður með aumingjaskapinn! Skerum upp herör gegn vonleysi og sinnuleysi og lifum meðvitað og reið út í ranglætið! Svavar Knútur Kristinsson Sannfærður og reiður ungur maður. p.s. þeir sem lesa þessa grein, flissa og grínast með það að ég sé einhver hippabjáni eru hálfvitar og eyða verðmætu súrefni á þessari jörð með tilvist sinni. [ 7 ] fimmtudagur, apríl 10, 2003
Zombie í Zombie...
Í gærkveldi hafði Dr. Gunni samband við mig og bauð okkur Moonboots að kíkja í Zombie til sín. Hann er frábær kall... Og semur flott lög... Ég "vaknaði" kl. 07:30 og hundskaðist út í bíl til Steina Rót sem rótaði okkur Snorra Hergli upp í Stúdíó Xins í Norðurljósahöllinni. Ég var Uppvakningur... Svo hittum við Dr. Gunna og hann var hinn hressasti, bauð okkur að fara og fá okkur kaffi. Við þáðum það og lögðum af stað í ævintýraferð að finna kaffivélina... Á leiðinni fundum við borðtennisborð og spiluðum í smá stund, það var gaman... Svo fórum við í viðtal til Dr. Gunna og hann var hinn blíðasti. Hann er að spila á Grand Rokk í kvöld kl. 23:00! 500 kall inn! En ég fór allt í einu að pæla... Er sama regla með útvarpsmenn sem ílengjast í bransanum og grænmeti í grænmetisborðinu í verslunum Baugs? Færast menn af Xinu niður á FM 957 og síðan af FM 957 yfir á Bylgjuna? Alveg eins og grænmetið fer frá Nýkaupum til hagkaupa til 10-11 til Bónuss? Einhvern veginn finnst mér einmitt eins og útvarpsfólkið á Bylgjunni séu svona FM lið sem er orðið gamalt og komið yfir síðasta söludag... og FM liðið er svona lið sem er svo fullt af rotvarnarefnum að það skiptir ekki máli hvort það fer yfir söludaginn eða ekki, það er bara keyrt niður á bylgju og látið sitja þar með sólbrúnkuna sína og "lúkkið..." Urg... Zombie þreyttur... Bestu Kveðjur, Svalli Túrbó... [ 3 ] Zúrasta miðvikudagsgigg allra tíma...
Ég var að koma af Vídalín... Þreyttur... Ég hélt að þetta yrði svona chill kvöld... Við ætluðum bara að fókusa á róleg og góð lög... Byrjuðum þannig... Fljótlega fór að bera á fólki sem vildi dansa... Við spiluðum pínu dansvænni tónlist... Kaffi er afar dýnamísk hljómsveit... Við spilum bara eitthvað sem okkur langar til... Svoldið eins og Miðnes gerði einu sinni... Allt í einu komu fimm sænskar stelpur sem vildu bara dansa dansa dansa, og helst við sem mest rokk og kántrý... fljótlega bættust við nokkrir íslenskir strákar sem voru graðir og rokkaðir... Allt í einu vorum við farnir að spila Run to the hills á kassagítar, bassa og trommur... Allt í einu vorum við farnir að rokka til dauðans fyrir glaða rokkaða graða fólkið á dansgólfinu... Allt í einu var klukkan orðin eitt og við áttum að hætta að spila... Sveittur... þreyttur... dauður... Fór niður af sviðinu, heilsaði upp á fólkið... brosti til graðrar sænskrar stelpu... Allt í einu (eins og þruma úr heiðskýru lofti) brutust út þvílík slagsmál... sjitt... Heimildum mínum ber saman um að sænsku greddudrottningarnar hafi verið á vissan hátt rót þeirra... Enda dilluðu þær sér afar eggjandi og juku testesterónmagn mengis karlmanna í húsinu á lógarytmískum skala... Þetta var skrýtnasta miðvikudagskvöld allra tíma... Við ætluðum bara að chilla... Úff... Samt gaman... Þarf að vakna snemma... úldinn... Bless bless, góða nótt... Svabbi [ 3 ] miðvikudagur, apríl 09, 2003
Nigel Dower í Lögbergi, stofu 102, kl. 17:15
Nigel mun fjalla um öryggismál heimsbyggðarinnar og alþjóðasiðfræði. Látið sjá ykkur þar. Bestu Kveðjur, Svavar [ 0 ] Síðasta færsla...
Ég kenni almennri syfju um efnistök síðustu færslu... Hún er ekki dæmi um mína daglegu hugsun, nema að litlu leyti... eh... [ 1 ] Hvaða vitleysa er þetta...
Rökkvi lágmenningarsnobbari og jenny80 eru eitthvað að karpa um galla feitra kvenna... Ég efast persónulega um að annað hvort þeirra sé feit kona, en ég verð nú bara að segja að mér finnst nú oft bara flott að hafa smá kjöt á beinunum... ;-) Ekki það að ég sé eitthvað hott fyrir fólki með skjaldkirtilsvandamál, en hófleg bumba og flott breiðar mjaðmir gefa mér bara einhverja víbra um að þarna sé kona sem getur hossað... ;) En auðvitað er það ekki það sem kveikir í mér... heldur einhver útgeislun eða stemning sem ríkir yfir manneskjunni, hvort sem hún er tsjöbbí, mjó, rauðhærð eða ljóshærð, nærsýn eða fjarsýn, vinstri kona eða efnishyggjudrusla. (stundum kveikja efnishyggjudruslur í mér... en það er afar sjaldgæft... þær hafa bara ekki þetta WHAM BAM quality...) En hver er ég sosum til að vera að röfla eitthvað... Ég er bara gamall graðnagli með króníska tilvistarkreppu. dúbbí dúbbí dú... ;-) Hr. Muzak p.s. og þegar ég fer að hugsa um það, þá hefur Jenný rétt fyrir sér í einu... ég held að ég myndi aldrei sofa hjá Rökkva... Þó hann sé ágætis strákur... Ég fæ bara svona pínu neftóbakskallavíbra af honum... og það laðar fram óþægilegar minningar úr æsku :) ... oj ... oj... nú fór ég allt í einu að hugsa um Rökkva öskrandi: "JÁ! Pumpaðu mig stóri strákur! Pumpaðu mig tarfurinn þinn! Ekki hætta!" OJOJOJOJOJOJOJOJOJOJOJOJOJOJOJOJOJOJ!!!!!!!! Bjakk! Skyrp! Sturtu! Vírbusta! Spritt! Vígt Vatn! Eld! ööööööhhhh.... :-) [ 0 ] Annar dagur í vakni snemmi...
Jæja... vaknaði aftur snemma í dag... Djö... Þetta er allt að koma, en ég er virkilega ekki byggður fyrir svona reglusemi... Ég finn það alltaf betur og betur hvað vinna við tónlist á miklu betur við mig en fræðistörf... Ég nýt mín í stúdíói... Fokk, ég er bældur! Ég þori ekki að vaða bara út í tónlistina og vinna innan þess geira á fullu, þó ég viti að ég hafi sosum allt sem til þarf... Djöfull er ég glataður... En jæja... Þið mætið kannski á Vídalín í kvöld og fylgist með hljómsveitinni Kaffi spila glöð lög... Og svo er náttúrulega sex ára afmælisgleði og uppskeruhátíð Moonboots á Astró miðvikudaginn 16. apríl. Síðast þegar slík uppskeruhátíð var haldin blakkaði ég út í fyrsta og eina skiptið á ævinni... :D Það var árið 1999 (eða var það 2000?) man ekki... Bestu Kveðjur, Svabbi [ 0 ] Moonboots á Afmæli...
Jæja gott fólk... Á miðvikudaginn eftir viku, 16. apríl ætla Moonbootsmenn að halda upp á 6 ára afmæli sitt með geigvænlegu 80's festi á Astró... Ég veit... Astró... En við ætlum sko að gera þetta grúví! :D 6 ára afmæli Moonboots verður sko viðburður ársins í íslensku partýlífi. Velunnarar hljómsveitarinnar og vinir eru sumsagt boðnir í sérstakt V.I.P. partý fyrr um kvöldið og mun verða margt um glaðninginn. Síðan á miðnætti munum við hleypa restinni af plebbunum inn í húsið... hehehe :) Svo verður bara tjúttað feitt til þrjú! Bestu Kveðjur, Svalli Túrbó [ 1 ] þriðjudagur, apríl 08, 2003
Prýðileg grein eftir Hilmar Sigurðsson
Sæl og blessuð, Brilljant grein eftir Hilmar Sigurðsson í Mogganum í dag... Hann skýtur ansi beittu skoti að stefnu íslenskra yfirvalda í fjárfestingum og fjárhagsstjórnun. Bestu finnst mér frasinn sem hann segir um að íslenskir bankar séu með ofurháa vexti þrátt fyrir að um buxur þeirra séu bæði belti og axlabönd í formi verðtrygginga og veðbanda. :) Hilmar í Caoz er snillingur Bestu Kveðjur, Svavar [ 1 ] Enn vakandi...
Þvílíkt þrekvirki... sit hér í VRII og blogga til að halda mér vakandi... Þetta er eins og með allt annað... það tekur bara smá aga að koma sér aftur í gírinn. En nóg um það! Á miðvikudagskvöldið verður stuðtríóið Kaffi á Vídalín! Við spilum frá svona 10-12 og lengur ef fílíngur er fyrir hendi... Endilega lítið við... Kaffi spilar nákvæmlega það sem okkur langar að spila, og það er bara trukk og stuð... Síðan, miðvikudagskvöldið 16. apríl verða Moonboots á Astró á sérlegu 80's kvöldi sem við erum að standa fyrir með Astró strákunum, sem eru bara góðir gæjar, þrátt fyrir orðstír staðarins. Ef allir mæta, þá gæti þetta gert sig... Bestu Kveðjur, Svalli Túrbó A.K.A. Herra Muzak A.K.A. Svavar Knútur [ 1 ] Heiðarleg Tilraun til Árrisu...
Oh... ég er ekki morgunmaður... Mér líður eins og Víkartindur hafi strandað á mér... En, ég ætla að koma mér að verki... byrja daginn með trukki! jejeje! en fyrst... smá lúr... NEI!!! Vík burt, fúli fjandi! Svefndjöflar farið frá mér! Vaka, vinna, vorverk bíða! Bestu Kveðjur, Hr. Svavar [ 0 ] mánudagur, apríl 07, 2003
Sörvævorblogg...
Stalst til að glápa á Sörvævor... Ég held að Rob sé mesta slísbökket allra tíma! Djísus kræst! Það er ótrúlegt að horfa á þennan gersamlega óeinlæga drullusokk smjaðra fyrir öllum... Sjitt! Og svo er auðvitað klárasti og hressasti gæinn rekinn burt af því hann er mesta ógnunin... Er þetta ekki týpískt fyrir mannlegt samfélag? Að litla untermenschið stingi stórmennið í bakið, eða eitri einfaldlega fyrir honum... Úff... ég verð þunglyndur þegar mannlegt eðli er opinberað svona... Bestu Kveðjur, Svabbi [ 4 ] Ég er að verða leiður á...
...Því að sumir í kringum mann virðast ekki getað átt sér helgi án þess að drekka þannig að þeir eru óstarfhæfir í fimm daga á eftir vegna þynnku... Þá er lítill séns að gera nokkurn skapaðan skapandi hlut með vinum sínum á laugardags- og sunnudagseftirmiðdögum, sem er nú eini tíminn sem menn eiga yfirleitt sameiginlegan... Æi fokkitt... :-/ Hvað er það við alkóhól sem er svona svakalega skemmtilegt? Jújú, ég meina, ég drekk svona einu sinni í mánuði eða eitthvað, og þá kannski þrjá-fjóra bjóra. Svo einu sinni til tvisvar á ári drekk ég þannig að ég sé þunnur. En einhvern veginn virðast sumir líta á það sem heilaga skyldu að demba ofan í sig áfengi hvern einasta dag sem ekki þarf að vinna daginn eftir... Ég er listamaður! Ég þarf ekki að vinna við svona skilyrði! Á alls óskyldum nótum, þá fór ég í afmælispartý á föstudagskvöldið. Samnemandi minn í Umhverfisfræðinni var þrítugur. Þar var ostur og kex og vínber og ávextir og pínulítið af áfengi, en það voru allir alveg rosalega nettir á því... Þetta var allt mjög næs og mikið spjallað og rabbað... Síðan mætti fólk í hæk daginn eftir í góðum fílíng. Þannig á þetta að vera! Krumpaður, Hr. Muzak [ 2 ] Nú ríður á!
...að allir velunnarar moonboots láti í sér heyra og hringi í Rás 2 og FM og fleiri stöðvar og biðji um Amadeus með okkur... :) Þetta er lykilatriði í því að verða almennt viðurkenndir sem alvöru hljómsveit á Íslandi... að eiga pirrandi fan base sem gerir útvarpsmönnum lífið leitt... Svo megið þið líka vera dugleg að láta vini ykkar vita af laginu og dreifa því eins og þið getið... Dánlódið því endilega hér: Hafið hátt, elskið okkur!!! Moonboots Rúla! Enda erum við eina danshljómsveit Íslands með hreðjarokk í æðum! :-) Work with us people! Bestu Kveðjur, Svalli Túrbó [ 0 ] Svo brún að ég fæ í augun...
Hann Gulli kr. verður að gera eitthvað við litina á síðunni sinni... Ég fæ gersamlega í augun af þessu móbrúna lúkki... Sjitt maður... Svalli [ 3 ] Vonbrigði gærdagsins...
Leigði once upon a time in the midlands í gærkveldi... hefði eins getað heitið: Bad Movie. Hefði stytt okkur mikið vesen... Djöfull var þessi mynd mér mikil vonbrigði. Rhys Ifans í kraftminnstu rullu allra tíma og Robert Carlyle eins og dauð ýsa á skjánum... Jeminn eini... Ekki einu sinni skemmtilegir sérvitringar eða furðulegar gamlar kerlingar til að lýsa upp myndina á stöku stað... Jökk! Ekki taka þessa hræðilegu mynd! En endilega hringið í Rás 2 og biðjið um Amadeus með Moonboots. Bestu Kveðjur, Hr. Svavar [ 0 ] sunnudagur, apríl 06, 2003
Ef ég væri Saddam Hussein...
Þá væri ég löngu búinn að nota efnavopn á óvini mína, ef ég ætti þau. hmmm... Bestu kveðjur, Hr. Svavar [ 2 ] föstudagur, apríl 04, 2003
Allir sem þykir vænt um mig eða moonboots...
Mega hringja á Rás 2 um og eftir helgi og biðja um lagið Amadeus með moonboots... Þá verð ég glaður, því þá fáum við fleiri og betur borgandi gigg... :) Bestu kveðjur, Svavar [ 0 ] fimmtudagur, apríl 03, 2003
Viðtal við Nigel
Ég er að fara að reyna að taka viðtal við Nigel Dower... Ég er ótrúlega illa settur græjulega séð og vona að þetta drasl sem ég setti upp dugi... hurm... Bestu Kveðjur, Svavar p.s. Mér finnst eitthvað ofboðslega notalegt við það að klippa mig sjálfur... Það er rosalega losandi að þurfa ekki að velta fyrir sér hvort hliðar séu jafnar eða hárið sé ekki í lagi... það er það einfaldlega ekki og það er bara fínt... [ 0 ] Búáúúúúú.... vúúáááúúáááúá... BÚÚÁÁÁÁ!!!!
Emma er breima... Þvílík umbreyting maður... þessi fallega læða, sem venjulega er fyllri af snobbi og yfirlæti en Englandsdrottning hefur tekið algerum stakkaskiptum... Nú nuddar hún sér við mann eins og litháensk háskólastúdína við öndvegissúlurnar á Óðali... og hún rekur rassgatið framan í mann eins og hún ætlist til þess að ég fari að sæða hana... OJ! ég klóra henni samt aðeins á rófunni, rétt til að stríða henni... Þá sturlast hún af greddu og leggst í gólfið grátandi af hormónaflæði... Talandi um öndvegissúlur... Ég var að pæla... Þessar stelpur eru alltaf að tjútta eitthvað í kringum eitthvað reðurtákn sem súlan er og nudda sér upp við hana... Ættu karlstripparar ekki samkvæmt því að dansa innan í einhvers konar vagínutákni? Gætu jafnvel hoppað um sviðið klæddir í tvo samrennda Ajungilak svefnpoka... Ég sé jafnvel fyrir mér svona eldhring, og stæltan gæja olíuborinn hoppandi í gegnum hann á getnaðarlegan máta... hmmm Efn nú steasgndur kötturinn hju á lyklaborðinupðö og gefur n,m frá sér frtfygðarstunur... Burt með þig köttur... Hún er sest á gamla orgelið mitt og er byrjuð að fróa sér á svörtu nótunum... Þetta er alveg æðislegt... Og núna hafa þrír fressir hangið fyrir utan heimili mitt, gefandi frá sér svipað dimm og drungaleg mjálm, sem hljóma þó meira eins og Geir Ólafsson á Meskalíni... Ég get svarið það... ef ég héldi á Emmu þarna fyrir utan og allir færu að væla, þá myndi þetta hljóma eins og rakarastofukvartett á Meskalíni... og allir væru Geir Ólafsson... Góða nótt... Herra Muzak [ 5 ] þriðjudagur, apríl 01, 2003
JURGH!!!
Var að klára fyrirlestur um ritgerðarefni mitt í stjórnun og nýtingu náttúruauðlinda. Ritgerðarefnið er nýting jökulánna eystri og vestri í Skagafirði. Stuð! Ég fíla það sem skagfirðingar eru að gera þessa dagana... Einn framsóknarmaðurinn í Skagafirði argaðist út í það að Sjálfstæðismenn dirfðust að skipta um skoðun í Villinganessvirkjunarmálinu... Gæti það verið út af því að ferðamannastraumurinn í Rafting hefur jókst úr 200 árið 1994 í yfir 5500 árið 2001... Getur verið að sumir Sjálfstæðismenn skipti um skoðun eftir því sem tímarnir breytast og hlutir þróast? Getur verið að þeir hangi ekki í 30 ára gömlum virkjunaráformum sem eru löngu orðin úrelt vegna nýrra, arðbærari og samfélagslega æskilegri atvinnuvega? Getur verið að maður geti grætt á einhverju öðru en að bræða málma og hreinsa olíu? onei... Bestu Kveðjur, Hr. Svavar [ 2 ] |
Eva
Örn "Mugison"
Elias Tónlistarmönnum sem gefa tónlist
sína á netinu er velkomið að hafa samband
við Hr. Muzak og þá bæti ég þeim
á listann.
Laukurinn rúlar
Dr. Gunni
| |||