![]() |
Þankatankurinn
|
![]() |
||||
|
Svavar Knútur Kristinsson, Félagsauðströll, heimspekingur, umhverfis-verndarsinni og tónlistarmaður. NÝTT!!!
|
Nýjustu Demó: Ástarsaga úr fjöllunum (Sumarið 2005) Goodbye my lovely (19. júní 2005) Your love was death to me (Janúar 2005) Call off your Cavalry (September 2004) You should call a doctor (Maí 2004) Kysstu tímaglasið (endurbætt útgáfa 2004) Mother's day Jólaplata Hrauns 2003: Þrautgóðir á Hraunarstund Jólaplata Hrauns 2005: Höldum jól Jólaplata Hrauns 2006: Jólamolar |
föstudagur, maí 30, 2003
Enn og aftur um tónleikana á Sunnudagskvöldið
Ég vil bara ítra við ykkur þá boðið á ókeypis tónleikana á Sólon á Sunnudagskvöldið. Héðan í frá heitir hljómsveit Hr. Muzak HRAUN! sbr. þessa flottu auglýsingu...
Endilega takið þessa auglýsingu og dreifið henni um blogheima... Áfram Alþýðutónlist!!! Bestu kveðjur, Svavar [ 3 ] fimmtudagur, maí 29, 2003
Búskmaðurinn heimsækir Pólland
Nú ætlar Bush í heimsókn til Póllands og hefur bannað það að borgarstjóri Krakow komi nálægt sendinefnd sinni eða móttöku forsetans til borgarinnar. Ástæðan er sú að Borgarstjóri Krakow hafði talað um að hann væri á móti innrásinni í Írak. Frábært! Húrra fyrir lýðræðisdrekanum Bush! Þetta kallar maður hreint og klárt skoðanafrelsi! Og mér finnst líka æðislegt að Pólverjar skuli virkilega bara lúffa fyrir þessu og setja borgarstjóra Krakow til hliðar... Niðurlægjandi. Sama er að gerast í Þýskalandi. Bush neitar að tala við Fischer eða Schröder, því þeir séu svo vondir. Neró labbar um heiminn og spókar sig og allir beygja sig í Duftið. Bestu Kveðjur, Svavar [ 3 ] Ný rannsókn: Kannabis inniheldur C-vítamín...
Kæru vinir, ég viðurkenni að ég hef blekkt ykkur með þessari fyrirsögn... ég vildi bara biðja ykkur um að hengja upp plakatið mitt á síðurnar ykkar ef þið getið... sjá hér fyrir neðan... Tónleikar á Sólon á Sunnudagskveldið með Steina Gítarleikara, 5tu herdeildinni og Hljómsveitinni Hraun! sem er við strákarnir sætu að gera góða hluti. Bestu Kveðjur, Svavar [ 1 ] Gríðarlega mikilvæg Tilkynning
Hjer kemur gríðarlega mikilvæg tilkynning frá Hr. Svavari. Héðan í frá heitir hljómsveit Hr. Muzak HRAUN! Og nú eru tónleikar á sunnudaginn 01.06.2003 og þið eigið að mæta, Eitt enn... Endilega takið þessa auglýsingu og dreifið henni um blogheima til að sem flestir fái að vita... Það eru svo fáir sem lesa mig... Mig langar að fleiri fái að sjá okkur... Bestu kveðjur, Svavar [ 2 ] þriðjudagur, maí 27, 2003
Regluleg fyrirbrigði í heiminum...
Sólmyrkvar... Tunglmyrkvar... Flóð og fjara... Dagur og nótt... ...og reglulegar tilraunir ungra sjálfstæðismanna til að klína nasismanum yfir á "Vondu vinstri kommúnistanna" vegna þess að Sósíalismi er í báðum orðunum... úúúú... Ef ég vissi ekki að frelsismenn ganga um með rökeyðingarbanana í eyrunum myndi ég reyna að debatera þetta við þá, en fyrir ykkur venjulega fólkið má ég kannski færa smá hugarpælingu... Sósíalismi er í orðinu National Socialism viðskeyti, rétt eins og intelligence er við Military intelligence... Engum lifandi manni myndi detta í hug að greind hefði eitthvað að gera við hernað er það? Það sem ungir hægri menn gleyma oft að leyfa að mjakast um mjúkan efrihluta höfuðsins er að Kapítalismi er í rauninni stytting á Capital Socialism. Socialism þýðir bara samfélagshyggja, eða hvernig samfélagið á að vera. Kommúnismi er Communal Socialism og Nasismi er National Socialism sem þýðir að samfélagið eigi að samanstanda af fólki af sama uppruna. Það er þannig andstætt t.d. Civil Socialism sem viðgengst í flestum vestrænum ríkjum, þ.e.a.s. að þeir eigi réttindi í landinu sem fylgi lögum þess og vilji búa í friði og spekt innan þess og vera góðir borgarar. Viðskeytið -Socialism þýðir þannig bara "Samfélagsskipan", eða "Samfélagshyggja", eða jafnvel "Hugmyndafræði um samfélag". Er þetta svo erfitt að skilja? Þannig geta allir, já allir, jafnvel hörðustu frjálshyggjumenn, kallast "eitthvað" - sósíalistar... T.d. Libertarian Socialism (skemmtileg pæling ekki satt?) Og reynið svo að hætta þessari síbylju skítaáróðurs elsku Frelsismenn... Bestu Kveðjur, Svavar Knútur Kristinsson [ 13 ] mánudagur, maí 26, 2003
Varnarher Hannesar H. Gissurarsonar
Ýmsir skipa sér nú í varnarher HHG og þykir hann vera hið mesta ljúfmenni sem ekkert aumt megi sjá og allir sem honum hallmæla hljóti að vera kommasamsærisillmenni... Sumir segja að Stefán "Naðra" Ólafsson hafi gerst sekur um alvarleg "prótókólbrot" og öskurapahátt með því að kjafta frá eineltinu. Kannski við ættum að vísa þessu fólki á Regnbogabörn... Það að segja að einhver óskrifuð regla ríki um að þegja yfir ofbeldi í fræðimannasamfélagi er nákvæmlega eins og að segja að það eigi að þegja yfir heimilisofbeldi. Ofbeldi og einelti eru alltaf röng, og það á aldrei að kóa um það. Menn eiga að láta strax vita af hótunum, ofbeldi og einelti, hvar sem það er, á heimili eða á vinnustað. Eða finnst mönnum bara ókei að einn starfsmaður fyrirtækis megi vaða um allt og hóta mönnum pólítískum afleiðingum ef þeir tjá sig um hlutina? Finnst mönnum ókei að einn starfsmaður fyrirtækis noti aðstöðu sína innan fyrirtækis til að rægja aðra starfsmenn fyrir kúnnum fyrirtækis? Jafnvel starfsmenn sem eiga að eiga í sambandi við kúnnann? Það er ekki góður kapítalismi, og það er ekki góð siðfræði. Bestu Kveðjur, Hr. Svavar [ 6 ] Að lokinni Helgi
Þetta var helgi hinna mörgu útskrifta og afmæla... Svaka stuð. Það var Grillað og makaðir smáréttir og það voru kökur og læti... Svo var horft á Júgravísjón hjá Nóna Bró og bara heví stuð og læti þar... Hann á góða vini hann Nóni Bróðir. Ása, Óla, Gunna og co, Allir topp menn... Júróvísjón var hálf sorgleg... Íslenska lagið sökkaði náttúrulega eins og venjulega, tilgerðin og meðalmennskan ætlaði allt að drepa... Þetta var svona verkfræðileg bestun á tónlist, eins og makkdónaldshamborgarinn er bestun á mat... Bestaður þannig að eiginlega enginn getur fílað hann nema bestað fólk... Og það er næsta prójekt ráðandi afla, að besta heiminn... Austurríki bjargaði svo kvöldinu með gríðarflottum flutningi Alf Poier á söng dýranna í Týrol... Það sló mig alveg rosalega hvað næstum allir keppendur nema sá Norski og einhverjar súrar undantekningar voru að reyna að búa til svona Britney Spears, Holly Valance dæmi... Öll austantjaldslöndin með sína frábæru tónlistarhefð höfðu ekkert merkilegra fram að færa en sæta stelpu sem söng án innlifunar og með hinn hefðbundna mannlega pýramída af fimm klónuðum eintökum af Magnúsi Scheving á krakki fyrir aftan sig, allir smælandi sólheimaglottunum um leið og þeir gera múvin sín æfð og tilgangslaus fyrir tónlistina. Tatu Sló allt út í hallærisleika, enda lagið algert drullutölvudrasl og nákvæmlega eins og allt annað sem þær gera, en þær voru með þrjá gaura á sviðinu "bara út á lúkkið." Einn "Trommara", einn "Gítarleikara" og einn "Hljómborðsleikara", svo kepptust þeir við eins og í nýju fötunum keisarans að vera í fílíng á hljóðfærin sín í lagi þar sem aldrei hafði verið snert á raunverulegu hljóðfæri... Slappt... Og MEIN GOTT IN HIMMEL!!! hvað breska parið var sorglegast af öllu... Það var ekki sjáanlegt hvort þeirra var karl og hvort kona!!! Þetta var eins og útþynnt útgáfa af Einari Ágústi og Thelmu hér um árið!?!?! Fokk! Þetta var eins passe og hægt var að gera! Norski nördinn var (þrátt fyrir að hann liti út eins og Mark Hamill á svefnlyfjum) einlægur í sínum flutningi og söng og fékk heví mörg stig hjá mér fyrir það. En það var sláandi að sjá allar þessar þjóðir með fallegu tónlistarhefðina sína kasta öllu á glæ fyrir einhverja bestaða hugmynd um hvað "er flott í dag og hipp og kúl og unga fólkið fílar." Best að láta fólk ekki sjá neitt einlægt, því þá gæti það hlegið eða mislíkað... Af hverju ekki að láta einhverja súra trompetahljómsveit frá Rúmeníu senda lag inn? Af hverju ekki að láta slóvenskan stúlknakvartett syngja harmljóð um stríðið? Af hverju ekki að láta alvöru ÍSLENSKA tónlist í keppnina? Af hverju alltaf að rembast við að herma eftir útþveginni markaðshugmynd um lægsta samnefnarann sem er alltaf jafn bragðvondur? Hnuss... En Grísku stelpunni fyrirgaf ég, þar sem hún lét eignir sínar svo berlega í ljós í leðurkjólnum sínum... Getur maður annað... Þegar kona sýnir svona mikla skoru breytist ég í ljúft lamb og allt sem hún gerir er rúbínn... hehehe... Bestu kveðjur, Hr. Svavar p.s. annað í fréttum... Kona stingur sig á nál í löppina og heimtar 150 milljónir í skaðabætur... Dýr væri fóturinn allur... [ 0 ] föstudagur, maí 23, 2003
Hr. Muzak segir...
Treystu mér Hr. Svansson. Þegar vinstri flokkarnir komast í ríkisstjórn, þá mun ég hamast á þeim og stuðningsmönnum þeirra af jafn mikilli hörku og frjálshyggjufasismaöflunum í dag. Ég ræðst á þá sem eru meiri máttar þegar þeir beita ljótum og ómálefnalegum aðferðum. Ef Ármann myndi halda áfram að skrifa svona eftir að vinstri stjórn næði völdum myndi ég hakka hann í mig eins og aðra... ;-) Það er nebbnilega þannig með mig að ég er óflokksbundinn þó ég styðji vinstri græna í dag. Ég er hins vegar sérstaklega andsnúinn því þegar menn sem nú þegar eru í ráðandi aðstöðu beita skítugum rökum og níðingsskap. Þess vegna blogga ég gegn Dabba, Valgerði, Vefþjóðviljanum og Sigga Kára. Geir H. Haarde hefur t.d. aldrei fengið snúð frá mér, vegna þess að ég hef aldrei orðið vitni að neitt sérstaklega skítugum málaflutningi frá honum. Bestu Kveðjur, Hr. Muzak [ 0 ] Bróðir minn stóri er að útskrifast...
Bróðir minn stóri, hann Nóni æðislegi, er að útskrifast sem vélfræðingur. Hann er svona stór, sterk, snör og siðferðislega sterkari útgáfa af mér... Ég er litli feiti grimmi bróðirinn sem er svona alltaf að plotta eitthvað ljótt... :) En nema hvað... Við Pálína spurðum konuna hans hverjar hans óskir væru varðandi útskriftargjöf... Hún svaraði: "Verkfæri... Helst Loftpressu... Ég ætla að gefa honum loftpressu, svo þið megið gefa honum eitthvað annað..." :) HAHAHAHAHAHA!!! :) Ég elska bróður minn svo mikið... Hann er algjör rokkari. Engin helvítis blóm eða bækur eða skrautmuni eða glös eða neitt... Bara topplyklasett og logsuðutæki, loftpressu og góða sleggju... ;) I Love you Big Bro! Til hamingju með útskriftina... Nú er kominn tími til að ég fari út og finni falleg glös eða eitthvað handa stóra bróður... Bestu Kveðjur, Svalli TÚRBÓ!!! [ 0 ] Fúl, Fúl, Fúl Kisa og sæt dóttir... :)
Ég er ekki vanur að smella myndum beint inn á síðuna, en hérna fáið þið nokkrar sem ég varð að setja... Mysa litla kúkaði á sig um daginn og ég þurfti að baða hana vegna þess að hún var með drullu upp á bak... Hún var ekki ánægð...
reið...
REIÐARI...
REIÐUST!!! Litla Muzkan mín var í kór í vetur og fékk voða fínt viðurkenningarspjald...
Og svo síðast smá mynd frá upptöku sem ég gerði í kvöld... Takið sérstaklega eftir lurkinum og hristunni...
Bestu Kveðjur, Hr. Muzak [ 3 ] fimmtudagur, maí 22, 2003
Helv!!! Djö!!!
Enn og aftur sefur maður yfir sig... Helvítis frílansvinna... Urg!!! Verð að taka á svefnvenjum mínum... Svabbi [ 4 ] miðvikudagur, maí 21, 2003
Kærleik og kokteilsósu?
Æi... svefnvenjur mínar verða að komast í lag... þær eru út úr kortinu... URG!!! en ég er þó farinn að stunda dulitla líkamsrækt aftur... Bestu Kveðjur, Svavar [ 0 ] Af MBL.is
"Fulltrúar Reykjavíkurlistans í borgaráði létu á fundi í dag bóka, að ítrekað hafi verið fjallað um menningarleg gildi fornminja í Austurstræti og lýstu enn þeirri skoðun að vel fari saman að byggja upp í miðbænum ásamt því að sýna fornminjum sóma. Sjálfstæðismenn í borgaráði lýstu andstöðu við áform um að byggja hótel á landnámsskálanum og sögðu nær að byggja þar upp fornminjagarð. Í bókun Reykjavíkurlistans segir að ljóst sé að Reykjavíkurborg hyggist leggja í mikinn kostnað svo fornminjar verði verndaðar og verði til sýnis með umgjörð við hæfi í hjarta borgarinnar. Upplýsingar um að fræðimenn séu mjög sáttir við fyrirhuguð áform hafi komið fram áður í borgarráði og sé fagnaðarefni að nú megi sjá fram á uppbyggingu á umræddri lóð." Þetta er sama fólkið og finnst ekkert að því að sökkva náttúrunni að eilífu fyrir rafmagn til álframleiðslu... Og það er alveg brjálað yfir því að byggt sé yfir fornminjar, en þó þannig að fornminjarnar skaðist ekki... Skrýtið gildismat þar... Þau vilja ekki þjóðgarð uppi í hálendi, en þau vilja fornminjagarð í miðri borginni... Jæja, svoleiðis er það nú... Bestu Kveðjur, Svavar [ 7 ] Hr. Muzak lýsir eftir
Manneskju sem treystir sér til þess að teikna fallegar, skemmtilegar og gamaldags myndir í barnabók. Er einhver þarna úti?!? Bestu Kveðjur, Hr. Muzak [ 3 ] þriðjudagur, maí 20, 2003
Rosalega væri ég til í...
...að eiga 300.000 kall sem ég vissi ekki af einhvers staðar inni á gleymdri bankabók frá 1976... ...að eiga ríkan ættingja sem allt í einu tæki mig í fóstur af eintómum kærleik... ...að eiga velgjörðamann sem styrkti mig í listsköpun minni... ...að eiga þokkalegt æfingahúsnæði fyrir mig og mína... ...að konan mín væri af ríkum evrópskum aðalsmannaættum... ...að konan mín væri jafnvel læknir eða lögfræðingur... Bestu Kveðjur, Svavar Viðbót: Nú má alls ekki skilja það sem svo að konan sé eitthvað vandamál. Frú Muzak er Dásamlegur kvenkostur og á alla ást mína skilið. (Hún mætti bara vera efnuð...) ;) [ 1 ] Einbeitingarskortur og almenn vanlíðan...
Ég er ekki að ná nógu góðum tökum á einbeitingu minni... Þetta er meira ástandið... Svona! Drífa sig! Koma sér að verki maður!!! Muzak [ 0 ] Níðingsháttur og Strákarlarök
Mér finnst að níðingarnir á vefþjóðviljanum ættu að skammast til að skrifa undir greinar sínar, svo maður viti hvaða níðingur er hver og hvort eitthvert þeirra eigi kannski ekki skilið viðurnefnin níðingur og rökdrusla. Ómálefnaleikinn og flokkshollustuheimskan er slík á þessum blessaða vefmiðli að trúverðugleiki þeirra er enginn og enginn tekur mark á þeim nema hörðnuðustu hægri-svíðingar. Stundum er rógburður og svíðingsháttur þessa ömurlega fólks á andriki.is slíkur, að jafnvel frjálslyndustu mönnum (eins og mér) hreinlega verður óglatt! Sem örstutt dæmi má nefna orðafar þeirra um forsetann, sem mér er þó ekkert sérstaklega vel við, en það má spara svínalíkingarnar, þær eru orðnar býsna þreyttar. Feministar, konur, umhverfisverndarsinnar og í raun allir sem vilja eitthvað annað en alræði hinna ríku eru skotspónn háðs þeirra og níðs. Málfar þeirra minnir á orðræðu eineltis og fáfræðilegra ofsókna þeirra sem þjást af fordómum og ráðast alltaf á sömu þjóðfélagshópana... Ég þekkti svona fólk í grunnskóla, og þegar ég hitti það aftur um daginn, var það ennþá með sömu brandarana og sömu leiðindin út í sama fólkið. Það hafði ekki þroskast í heilan áratug. Einum fannst ennþá geðveikt fyndið að bögga sömu stelpuna sem hann hafði ekki hitt í 8 ár með sömu meiningunum um líkama hennar og háralit. Sorglegt. Annar benti mér á að ég væri "feitur, ha, feitur! Þú, þarna! Feiti! Hahahaha!" (og hann horfði hreykinn í kringum sig, bíðandi eftir hlátri og viðurkenningu jafningja sinna... En jafningjarnir voru allir staddir fyrir 10 árum síðan... Nú sat þarna fólk sem hafði skilið hálfvitana sem það var eftir í grunnskóla...) Og til þess að undirstrika hvað hann væri fyndinn kýldi hann mig í öxlina og ýtti svo í mig, til að undirstrika að hann væri Maðurinn. Kannski átti hann eitthvað ósagt við mig, þó ég þekkti hann ekki sjálfur... En níðingar eru af öllum stærðum og gerðum, og sumir þeirra ná jafnvel háskólaprófum. Það þarf hvorki siðferðisvitund, skopskyn, umburðarlyndi, virðingu fyrir samborgurum né mannlega reisn til þess að stunda "æðri" menntun. Þó örsjaldan ratist andríkismönnum satt orð á munn, eru það undantekningarnar sem staðfesta regluna, eins og slögin sem afmarka sekúnduþagnir á gömlu úri. Mér finnst orðið leiðinlegt að lesa þá, því þar er varla að finna málefnalegan staf, hvað þá áhugaverðar pælingar, því þetta er bara jarmkór sannfærðra farisea. Ég skammast mín fyrir það að a.m.k. tveir pennar á þessum vef skuli titlaðir heimspekingar. Að útskrifaðir heimspekingar (þ.e.a.s. ef þeir skrifa þessar greinar, þar sem maður veit aldrei hver á þær) dirfist að nota Strámannsrök, (Sú athöfn að afskræma skoðanir andstæðinga sinna, t.d. umhverfisverndarsinna, til að gera þær afkáralegar og auðhrekjanlegar) er ófyrirgefanlegt. Ég vildi að ég hefði nennu og orku til að skrifa frekar um rökvillur og níðingsskap fólanna á vefþjóðviljanum, en mig langar í háttinn og ég nenni ekki að eyða meiri orðum í þessa vitleysinga. Sjáið kæru andfátæklingar! Það er ekkert mál að skrifa undir greinarnar sínar svo fólk viti hvaða svíðingur og dóni á hvaða rógburð og rökleysu: Bestu Kveðjur, Svavar Knútur Kristinsson Frjálslyndur Græningi með miðjuleitandi efnahagshugsjón [ 3 ] mánudagur, maí 19, 2003
Frábært sjónarhorn...
Eðal grein hjá BBC... Og svo er Ari Fleischer að hætta sem blaðafulltrúi Hvít(þvegn)a Hússins. Ætli hann sé búinn að fá nóg af lygum og spinni? Áfram BaNanA... Bestu Kveðjur, Hr. Svavar [ 0 ] Því má bæta við...
...varðandi tónleikana í gær... að Vídalín gerðu ekkert til þess að auglýsa þá. Settu ekki einu sinni tilkynningu í fréttablaðið... Það er eins og þeim sé bara alveg skítsama hvort það kemur einhver eða ekki... (Samt kom alveg nóg af fólki... ekki að það hafi verið vandamál, en það var allt fólk sem við buðum, eiginlega enginn sem labbaði inn af götunni...) Það er nú bara svoleiðis, að ef menn ætla sér að skapa almennilegan stað en ekki bjórsjoppu, þá verður að vera pínulítil vinna í gangi... og ekki tveir vita áhugalausir barþjónar sem setja ekki einu sinni út skilti eða kerti eða neitt til að draga að fólk... (Hr. Muzak þurfti að gera það allt...) Bestu Kveðjur, Hr. Muzak [ 0 ] Tónleikarnir gengu afar vel...
Kominn heim eftir afar vel heppnaða tónleika. Steini var í essinu sínu, Loftur og vinir hans í 5tu herdeildinni voru frábærir, og Hr. Muzak hafði farið mikið fram í söng og flutningi... :) Um leið og ég þakka þeim sem komu og sýndu vandaðri lifandi tónlist á Íslandi stuðning með því að mæta á ókeypis tónleika og horfa á ókeypis tónlistina, vil ég lýsa eftir fagmennsku barþjónanna á Vídalín... Stúlkan var sök sér, bara stelpa á barnum, gerði voða lítið til að selja fólki bjór annað en að bíða eftir að það kæmi, gerði ekkert til að auðvelda fólki tónleikasetuna. Hún var því bara passívt óprófessjónal... Venjulega er maður vanur því að starfsfólk á stöðum fari út á meðal fólks og bjóði því að færa því bjór, en hegði sér ekki eins og prímadonnur bak við barinn... (annars var hún ósköp ljúf og góð, bara mjög feimin og slök í því að þjónusta gesti staðarins...) Karl"barþjónninn" var hins vegar ótrúlega próaktívur í því að vera ófaglegur og dónalegur. Hann var durtslegur við kúnna þegar hann safnaði glösum og gjammaði í farsímann sinn þegar viðkvæm tónlist var leikin á gítar og sungin. Sérstaklega eyðilagði hann tónlistarflutninginn fyrir Steina og Hr. Muzak með háværum samræðum í gemsann. Frábær frammistaða... Allt í allt virkaði þessi "barþjónn" eins og naut í flagi eða meðalspastískur górilluapi. (Hann var líka enn lélegri í þjónustunni en stúlkan. Það var engu líkara en að hann vildi ekkert með gesti staðarins hafa og hefði helst viljað rólegt kvöld með þrjá kúnna sem sætu þegjandi við borð...) Það er greinilegt að ennþá hefur rekstraraðilum Vídalíns ekki tekist að mynda stemningu á staðnum sem felst í því að starfsfólkið sé virkt í því að halda við eða auka á góða skapið á svæðinu. Það lætur meira eins og það sé að afgreiða í söluturni. Stendur bak við barinn með tómlegan svip og hangandi hendur. Það er engin leið til þess að skapa góðan fílíng á staðnum og er alls ekki góð leið til að auka bisnessinn... Það er skömm að því hvað menn leyfa sér að reka staði með miklum semingi. Þessi staður virðist ekki rekinn sem skemmtistaður eða góður tónleikastaður, hann virðist vera rekinn sem bjórsjoppa, slík er stemningin. Ef ég væri að reka Vídalín myndi ég skapa hvata fyrir fólkið til að standa sig vel með því að setja eitthvað markmið á bjórsölu og lofa þeim verðlaunum náist það... Einnig myndi ég reyna að setja einhverjar vinnureglur um það hvernig starfsfólk kemur fram við kúnna og flytjendur tónlistar. Það á til dæmis ekki að gjamma hástöfum í gemsann á meðan fólk er að reyna að syngja lögin sín... Bestu Kveðjur, Hr. Muzak [ 2 ] sunnudagur, maí 18, 2003
Bara að minna á...
Tónleika í Kvöld á Vídalín. Ókeypis inn Fram koma: Steini trúbador 5ta herdeildin Herra Muzak og vinir Bestu Kveðjur, Svavar Knútur [ 0 ] This disc will self-destruct in 48 hours.
"That is the warning Walt Disney will issue this August when it begins to "rent" DVDs that are set to become unplayable after two days and that therefore do not have to be returned. Disney home video unit Buena Vista Home Entertainment will launch a pilot movie "rental" program in August that uses self-destruction technology, the company said Friday. The discs stop working when a process similar to rusting makes them unreadable. The discs start off red, but when they are taken out of the package, exposure to oxygen eventually turns the coating black and makes it impenetrable by a DVD laser. " Finnst engum þetta vera pínulítið óumhverfisvænt á öld þegar við þurfum að passa upp á allar resources? Humm hummm... hr. muzak [ 2 ] föstudagur, maí 16, 2003
Frábær pistill hjá Dagnýju
Mæli með frábærum pistli Dagnýjar Kristjánsdóttur um klám á Kistunni. Bestu Kveðjur, Hr. Muzak [ 0 ] Sjálfstæðismenn alls staðar...
Nú eru sjálfstæðismenn báðum megin borðsins í stjórn LÍN. Og lítið virðist þó ganga að bæta kjör okkar... smá ábending... VIÐ LÚSERARNIR SEM EIGUM EKKI MOLDRÍKA FORELDRA OG BÚUM EKKI HEIMA HJÁ ÞEIM HÖFUM EKKI TÍMA TIL AÐ BÍÐA Í 20 ÁR EFTIR AÐ TEKJUTENGING NÁMSLÁNA VERÐI AFNUMIN!!! takk fyrir... Hr. Muzak [ 0 ] Tónleikar á Sunnudagskvöldið
Kæru vinir, Á Sunnudagskvöldið verða haldnir tónleikar á Vídalín. Fram munu koma: Steini söng- og gítarhetja... 5ta herdeildin og Hr. Muzak (í fylgd leiguþýs vegna fjarveru vissra og innvensla annarra hljómsveitarmeðlima...) Tónleikarnir hefjast kl. 20:30 og verður fríkeypis inn... Bestu Kveðjur, Hr. Svavar [ 0 ] Danmörk eða Sverige?
Hvort á maður að búa og vinna í Danmörku og læra í Lundi eða búa og læra í lundi og vinna í Danmörku? Erfitt val... :-) En nóg um það... Svabbi [ 2 ] fimmtudagur, maí 15, 2003
Austurríska Júróvísjónlagið rúlar!!!
Frábært að hafa Austurríska Júróvisjónlagið á milli íslenska og írska lagsins. Þá getur það gert grín að þeim báðum. Maður sér fyrst hvað þessi júróvísjónlög geta verið ömurleg þegar þau eru sett við hliðinu á Austurríska laginu... :-) Áfram Austurríki! Lagið þeirra rúlar, og bara fríkí paunkfílíngur í gangi... Bestu Kveðjur, Svabbi uppfærsla... Það er líka ekkert smá fyndið að bera lögin saman (íslenska og austurríska) Íslenska lagið er gerilsneytt og tómt og engin meining í gangi Austurríska lagið er sneysafullt af siðferðislegum boðskap og hugmyndafræði, þó það sé sillí... [ 8 ] Vaknaði kl. 06:30
og sagði: Gleymdu því... Svo svaf ég til átta... Ég sofnaði nebbnilega um níuleytið í gærkveldi... það var goooooott... Bestu Kveðjur, Svabbi [ 0 ] miðvikudagur, maí 14, 2003
Þetta er ógeðslega fyndið...
Mér líður eins og ég sé loksins kominn í mútur... (ég fór aldrei í mútur þegar ég var únglingur...) Bestu Kveðjur, Svabbi [ 0 ] Söngskóli lífsins...
Jæja... Nú er Hr. Muzak kominn í söngskóla lífsins... Fyrir nokkrum árum sá ég myndbandsupptöku af sjálfum mér og sá að líkamsstaða mín var afleit. Ég leitaði ráða hjá danskennara hvað skyldi gera og hef verið að vinna í því síðan. Nú þykir líkamsstaða mín til fyrirmyndar og bak mitt S-laga sem aldrei fyrr. Það sama hyggst ég nú gera við söngrödd mína. Ég hef lagst í þunga þanka, spekúlasjónir og líkamsæfingar til þess að bæta "líkamsstöðu" söngvöðva minna (já, það eru a.m.k. 20 mismunandi vöðvar sem maður notar við að syngja.) Það er ekkert smá mál að kanna víddir söngraddarinnar og sjá hvar akústíkin má bæta sig. Ég prófaði í gær að anda ofar í höfuðið með söngnum og fannst það frábært. Röddin virðist nokkuð skarpari, "flatari" og skemmtilegri á að hlýða, jafnvel svolítið gamaldags... (ekki það að ég sé með eitthvað mont, þetta er bara svona upplifun mín af breytingunum...) Upptökutækið mitt er gull... :-) Samt er heví fyndið að ég er vanur einni hreyfingu og beitingu vöðvanna, þannig að nýja sönghreyfingin er allt í einu miklu óstabílli og ég held mun verr lagi með henni... Því er ég ekki vanur, svo þetta er mjög skemmtilegt. En þetta er afar áhugaverð líkamsrækt. Og öll í anda hreinræktaðrar sjálfsbetrun... Bestu Kveðjur, Svavar Knútur [ 0 ] mánudagur, maí 12, 2003
...og enn vil ég minna á
póstlista Hr. Muzak hér vinstra megin... Þar getið þið sett netföngin ykkar ef þið viljið fá tilkynningar um tónleika og aðrar uppákomur... Bestu Kveðjur, Svabbi [ 0 ] Ekki misskilja mig...
Þegar ég segist ætla að flytja út í einhver ár, þá er ég ekki að segjast ætla að flýja land... Ég er bara orðinn svo þreyttur á Íslandi... Þreyttur á íhaldssömu liðinu sem getur aldrei hugsað sér að prófa eitthvað nýtt, heldur hýrist á Hverfisbarnum og Nasa helgi eftir helgi í öruggu skjóli laptopDJsins og þeirrar vitneskju að platan spilar lagið aldrei örlítið öðruvísi... Ég er orðinn þreyttur á því að berjast fyrir þeirri hugsjón að náttúran eigi rétt á tilvist og fá bara svörin: Þú ert bara vitlaus hippi! Á hverju ætlum við að lifa? Fjallagrösum?!? Ég er orðinn ofboðslega þreyttur á veðurfarinu... Mig langar í alvöru vetur með snjó og snjóköllum og skíðaferðum.. Ég er orðinn þreyttur á því að berjast í bökkum með engin námslán af því að ég dirfðist að vinna í eitt ár til að saxa niður skuldir... Þess vegna langar mig í frí frá Íslandi... Að vinna 7-8 tíma á dag fyrir mannsæmandi laun og geta eytt eftirmiðdögum með fjölskyldunni, borðað góðan mat og drukkið rauðvín á verði sem mönnum er bjóðandi... Auðvitað kemur maður aftur... og vonandi endurnærður og tilbúinn í slaginn... Bestu Kveðjur, Hr. Muzak [ 8 ] Krían í fullum undirbúningi
Jæja gott fólk, nú er komið að því að fara að klára Kríuna fyrir Landvernd. Ég er búinn að trassa það of lengi... úff... Best að koma sér að verki... Bestu kveðjur, Svabbi [ 0 ] Óskalög óskast
Jæja gott fólk, nú vil ég fá uppástungur að góðum óskalögum fyrir Kaffihúsahljómsveitina Kaffi. Skilyrði: Lögin verða að vera chilluð og nokkuð einföld og falleg... Ekkert Bohemian Rhapsody dæmi... Skiljið eftir óskalögin ykkar í kommentum, ókei? Bestu Kveðjur, Svabbi [ 5 ] sunnudagur, maí 11, 2003
VAR BÚINN AÐ STEINGLEYMA!!!
Kaffi spilar á vídalín í kvöld! :S Súra stemning... Var búinn að steingleyma þessu giggi... Bestu Kveðjur, Svabbi [ 0 ] laugardagur, maí 10, 2003
Kosningaloforð Hr. Muzak
Herra Muzak lofar að ef fasistastjórnin verður við völd eitt kjörtímabil í viðbót, flytur hann úr landi í Janúar og stofnar kommúnu í Svíþjóð eða eitthvað þaðan af verra... Bestu kveðjur, Hr. Muzak [ 15 ] föstudagur, maí 09, 2003
Mig langar bara til að hvetja ykkur...
Til að kjósa á Morgun... Þó ykkur finnist þetta vera óttalegt prump, þá er þetta ein af fáum lýðræðislegum skyldum okkar, og ef okkur er sama um hana gætum við eins búið í Bandaríkjunum, þar sem fámenn valdaklíka ræður öllu... ;) Þegar þið gangið inn í kjörklefann, munið bara eftir nokkrum hlutum... Sumir hafa haft 12 ár til að gera skurk í Háskóla Íslands. Sumir hafa haft 12 ár til þess að byggja upp sjálfbæra þróun á Íslandi. Kárahnjúkavirkjun og álver er þeirra svar við kalli heimsins eftir sjálfbærari þróun. Sumir halda að sjálfbær þróun feli í sér endalausan 5% hagvöxt. Það er hálfvitaskapur. Sjálfbær þróun gerir kröfur um að samfélög rækti sig innbyrðis. Sumir vilja lækka skatta til að verka sem "vinnuhvetjandi" á Íslendinga, sem nú þegar vinna 60 tíma vinnuvikur... Sumir sumir furða sig síðan á því að sálarheill unga fólksins sé ekki í lagi. Sumir er skítsama um náttúruna og hugsa ekki um annað en hrávinnslu málma. Sumir vilja banna fólki að tjá skoðanir sínar... Sumir viðurkenna ekki tjáningar- og ferðafrelsi... Sumir gera allt sem þeir geta til að fela mótmælendur og koma þeim í burtu með valdi. Sumir kalla fólk með samvisku hálfvita og atvinnumótmælendur. Sumir taka ekkert mark á skoðunum annarra á málefnum, enda virkar lýðræði þannig að MEIRIHLUTINN RÆÐUR ekki satt? Segðu 6.000.000 gyðingum það... Í skilningi sumra virðist sem sagt helförin bara hafa verið lýðræðisleg ákvörðun... Sumir finnst skilyrðislaus stuðningur við einhliða árásarstríð ekki vera meiriháttar breyting á utanríkisstefnu þjóðarinnar... ...og afsaka það síðan með því að segja að þeir sem séu á móti stríðinu séu líka á móti uppbyggingunni... Ég ætla ekki að segja ykkur hvað á að kjósa... En ég skal svo sannarlega benda ykkur hvað á ekki að kjósa...
Ekki kjósa efnishyggjuvitleysingana og hræðsluáróðurinn yfir okkur 4 ár í viðbót. Þetta er fólkið sem vill reisa olíuhreinsunarstöð í innanverðum Skagafirði... Kjósið á morgun. Þó það þýði að fólkið við stjórnvölinn verði ekki alveg eins peningasmart. Það verður þó allavegna gott fólk með hreina samvisku. Bestu Kveðjur, Svabbi [ 2 ] Rúsínurassgat og Rassgatarófa...
Við Pálína lágum uppi í rúmi áðan og vorum að gæla við Emmu og Mysu, sem eru væntanlega tvær krúttíbollulegustu kisur jarðar... ;-) Og við fórum að segja fáránlega brandara... Eins og að þýða kjúkling: Chicken... Þýddu kjúklinginn... ókei, The Chicken! Og svo fórum við að tala við Emmu og Mysu á Ensku... Yeeesss you Raisin... you Asshole - RaisinAssholepussycat... mumumumumumu Raisin Asshole oh you little asshole... RaisinAssholePussycat... Í öðrum fréttum held ég að Emma sé aftur orðin kettlingafull... Andskotinn... Við ætluðum að bíða með að setja hana á pilluna eða taka hana úr sambandi, en hún sló okkur við og laumaðist út til að fá sér í lufsuna... Djö... [ 0 ] miðvikudagur, maí 07, 2003
Héðinsfjarðargöng
Akkúrat núna gefst ríkisstjórninni okkar frábært tækifæri til þess að sýna hvað hún er klár... Héðinsfjarðargöng ganga nú inn í og í gegnum óspilltan eyðifjörð með lagningu vegar í gegnum hann og inn í næsta fjall... Og áður en menn fara að tala um eyðifjörðinn sem enginn fer nokkru sinni í og öllum er sama um, vil ég benda á að Héðinsfjörður er staður þar sem ung rómantísk pör fara á báti eða með bakpoka og eyða helgi. Þessi staður er ótrúlega fallegur og sérstakur og myndi algerlega rústast ef vegur kæmi í gegnum hann miðjan. Þetta er vin. Annar möguleiki er kominn í stöðunni. Göng inn í Fljót (Skagafjörð), sem tryggja Skagfirðingum betri aðgang að Siglufirði, og Göng úr fljótum inn í Ólafsfjörð, sem tryggja öllum betri aðgang að Siglufirði og Ólafsfirði og skapa þannig þrefalda tengingu milli þriggja kjarna. Fljótagöngin sem verið er að stinga upp á eru margfalt sniðugri hugmynd (og umhverfisvænni) en hugmyndin um Héðinsfjarðargöngin. Þrátt fyrir að vegalengdin lengist um einhverja kílómetra yfir á Ólafsfjörð, þá styttir þetta vegalengdina fyrir aðra mun meira og gerir allt svæðið mun þægilegra fyrir ferðamenn og almenna flutninga. Það verður líka að hugsa um það... Vel á minnst... Ég var að klára 38 bls. skýrslu í Stjórnun Náttúruauðlinda um Jökulsárnar í Skagafirðinum og Villinganesvirkjun... Húrra Fyrir Mér... :) Bestu Kveðjur, Svavar [ 9 ] Haukur er góður drengur...
Hann Haukur félagi minn er góður drengur og kann svo sannarlega að setja hlutina í samhengi: "Kæri lesandi. Kína er rúmlega níu og hálf milljón ferkílómetrar að flatarmáli. Þar búa um eitt þúsund og tvöhundruð milljónir manns. Hong Kong nær yfir u.þ.b. þúsund ferkílómetra og þar búa rúmlega sjö milljónir manna. Talið er að í kína hafa nú um 148 látist af völdum sjúkdómsins HABL og 3303 tilfelli hafa verið skráð. Í Hong Kong eru þessar tölur 1572 smit og 150 látnir. Þetta þýðir að hlutfallið í Kína af látnum miðað við fólksfjölda er 0,00027% sem þýðir, að ef við heimfærum það yfir á ísland, að 0,7 einstaklingur hafi smitast og að það séu 4,4% líkur á að þessi 0,7 einstaklingur látist af völdum sjúkdómsins. Ef horft er til Hong Kong eru þessar tölur þannig að 0,02% hafa smitast og 9,54% líkur á dauðsfalli. Heimfært á Ísland eru þetta 60 manns smitaðir og 6 látnir. Samkvæmt nýjustu tölum látast um þrjúþúsund afrísk börn daglega, úr malaríu. með bestu kveðju. Haukur Halldórsson" (leturbreyting mín) Akkúrat það sem ég hef verið að pæla... Bestu Kveðjur, Svabbi [ 7 ] þriðjudagur, maí 06, 2003
Svansson gerist sekur um útúrsnúninga...
"Að taka aðföng frá þeim, sem kunna að skapa verðmæti úr þeim, og flytja í hendur "nýliða" sem skapa einungis 1/5 verðmætanna sem fyrri eigandi skapaði - það er etv gott réttlæti, en það er ekki og mun vonandi aldrei þykja góð hagfræði." Segir Svansson Hver segir að nýliðar skapi einungis 1/5 verðmætanna sem fyrri eigandi skapaði? Hvar kom það fram? Kílóið af þorskkvóta kostar rúmar 1000 krónur en kílóið af þorski selst á í kringum 200 krónur. Það er það sem ég var að segja. Kílóið af þorskkvóta er síðan leigt á 150 krónur, sem gera 50 krónur eftir af hverju kílói til að borga fyrir ALLAN kostnað við veiðarnar. Ef mig langar til að vinna við að vera trillukarl er það gersamlega ómögulegt nema ég geti reddað mér 30 milljónum. Og þá má ég mæta á sjóinn 21 dag á ári eða eiga 200 tonna kvóta. Húrra fyrir því... HVER ER AÐ TALA UM GULLGRÖFT!?! Ég er bara að tala um atvinnufrelsi og aðgengi að atvinnugrein. Það er nú sýnt mál að trilluveiðar eru mun vistvænni og nokkurn veginn jafn arðbærar og stórtogaraveiðar, þar sem áhættan er mun minni og rekstrarkostnaður trillunnar og launakostnaður per veitt tonn í raun minni. Niðurstöðum rannsóknar sem sýndi fram á þetta var að vísu stungið ofan í skúffu í ráðuneyti fyrir nokkrum mánuðum, svo þetta er víst ekki almenn vitneskja. Enda er "hálfvitaskapur" að styðja við einyrkja þegar það er miklu sniðugra að þjappa öllu saman í hendurnar á nokkrum útvöldum og góðum vinum ríkisstjórnarflokkanna... Því eins og Davíð segir, þá eru Sjálfstæðismenn þeir einu sem kunna að fara með peninga, allir aðrir eru hálfvitar. (er ekki svo?) Ofan á allt saman þá gengur það bara ágætlega eins og á Suðureyri, þegar trillukarlar koma með fiskinn að landi og vinnslustöðin kaupir fiskinn og skapar úr honum verðmæti. Það er ágætt að hafa útgerð og vinnslu aðskilin. Þá veiðir fólk þar sem það vill veiða og skilar inn fiskinum á þægilegustu staði. Eða viljum við frekar þjóna öðrum hagsmunum en hamingju og velferð fólks? Bestu Kveðjur, Svavar [ 5 ] mánudagur, maí 05, 2003
Kvótakerfisvesen...
Svansson hefur meiningar um kvótakerfisdeiluna sem mér þykja nokkuð mikil einföldun... Þó drengurinn sé gríðarlega klár, þá langar mig að setja fram punkt sem kannski gleymist í allri umræðunni... Lykilvandræðin við kvótakerfið eru ekki kerfið sjálft og þess annmarkar. Vandræðin felast ekki framsalinu eða brottkastinu... Það er allt hægt að laga og fixa... Þau felast í grundvallaratriðum í tvennu: 1: Það er næsta ómögulegt fyrir nýliða og einyrkja að komast inn í greinina nema á lúsarsultarpælingu lengur. Til að kaupa kvóta þarftu að borga 5 sinnum meira fyrir hann en verðmæti aflans getur orðið. Þá tekur þig a.m.k. 15 ár að borga bara upp fjárfestinguna í kvótanum, hvað þá annað... Það á að vera hægt að sækja um kvóta og fá hann frá ríkinu... Bara 1% fyrning gæti gert þetta mögulegt. Þá gætu menn framselt sinn úthlutaða kvóta líka... 2: Þegar þessum verðmætum var ráðstafað til að byrja með voru ekki allir jafnir. Ekki allir voru jafn vel undirbúnir eða skildu kerfið. Einnig var talað um að þetta væri tilraun og prufukeyrsla á kerfinu. Þannig föttuðu sumir strax hvernig átti að nýta sér kerfið en aðrir sátu eftir með sárt ennið. Þetta veldur samfélagslegu óréttlæti sem auðvelt er að laga með endurráðstöfun og litlum lagfæringum á kerfinu. Sumsagt, það var ekki gefinn neinn séns eftir að menn klúðruðu í fyrsta skipti. Sumir höfðu þekkinguna aðrir ekki og það bitnaði á þeim sem síst skyldi. Einnig var opið fyrir það að eigendur skipa og útgerða gætu einfaldlega sett byggðarlögin sín í gríðarlegan vanda með eigingjörnum ákvörðunum. Þetta er allt hægt að lagfæra án þess að rústa framseljanlega kvótanum, sem er eftir allt saman ekkert sérstaklega heimskuleg hugmynd, þar sem um er að ræða ágætis auðlindastjórnunaraðferð (skv. kenningunum a.m.k.). Bestu Kveðjur, Hr. Muzak [ 0 ] Vinsamleg beiðni...
Við moonboots liðar viljum biðja innilega aðdáendur okkar og vini um að gera okkur greiða... Að vera dugleg að senda póst á 123@ruv.is og 1045@radioreykjavik.is og biðja um lagið Amadeus með Bestu hljómsveit Íslands - Moonboots! Endilega gerið þetta nú fyrir okkur... Það væri bara dásamlegt... Það er synd og skömm að hljómsveitir eins og Ber og Á móti Sól einoki íslenskan spilunartíma útvarpsstöðva, en svoleiðis er það nú... En þið getið lagt ykkar að mörkum til að fá moonboots spilaða... Enda eru moonboots sönn hljómsveit með sönn eistu og sannar tilfinningar... Og ekkert sveitaballakrapp! Bestu Kveðjur, Svalli Túrbó p.s. ég legg enn áherslu á frábæra nýjung hér á vinstri kantinum... Þið getið skráð póstfangið ykkar í textaboxið, þrýst á hnappinn og fengið tilkynningu í tölvupósti alltaf þegar Kafteinninn tekur í mæk eða kassagítar eða vottever... [ 2 ] Nýjung á Muzak vefnum...
Kæru lesendur athugið! Á vinstri kantinum er nú komið textabox sem þið getið slegið ímeilið ykkar í... Ég hakkaði smá php kóða sem smellir ímeilinu inn í póstlista sem ég get síðan notað til að tilkynna um tónleika Herra Muzak, hljómsveitarinnar Kaffi eða Moonboots með einhverjum fyrirvara. Kóðinn er ekki fullkominn en virkar ef fólk er þægt og gott... Endilega nýtið ykkur þetta. Bestu Kveðjur, Svabbi p.s. Auðvitað lofa ég að láta aldrei neinn, ever fá netföngin ykkar... Það er stuðningur við SPAM og dauðasynd í minni bók... [ 0 ] Að refsa fólki fyrir að vinna...
Ég átti stuttar en snarpar samræður við góðan félaga minn um daginn um kosningarnar. Ég sagði honum að ég hygðist ekki lýsa yfir stuðningi við ríkisstjórnina, heldur greiða atkvæði gegn henni. Hann brást nokkuð reiður við og sagði mig styðja við glundroða og óstjórn í fjármálum ríkisins. Auk þess væri það hreinasta vitleysa að kjósa ekki Sjálfstæðisflokkinn, vegna þess að þar væru einu mennirnir sem vit er í... Hann sagði að allir vinstrimenn vildu refsa manni fyrir að vinna... Davíð Oddsson varði í nýlegu viðtali prósentulækkunartillögur flokksins á sköttum með þeim orðum að þær væru vinnuhvetjandi o.s.frv. Sjálfstæðisflokkurinn er búinn að vera í stjórn í 12 ár... Sjálfstæðisflokkurinn er búinn að hafa 12 ár til þess að afnema einn hlut sem virðist algerlega í mótsögn við þeirra stefnumál. Sem námsmanni er mér enn grimmilega refsað fyrir að vinna. Ef maður ákveður að fara í nám úr vinnu er það nokkuð öruggt að framfærslulán LÍN eru u.þ.b. 10-20.000 krónur á mánuði. Gangi manni vel að framfleyta sér og fjölskyldunni með slíkum lánum. Ef maður ákveður að vinna með skólanum lækka námslánin í réttu hlutfalli við auknar tekjur manns. Húrra fyrir slíku réttlæti og vinnuhvetjandi kerfi. Sjálfstæðisflokkurinn er búinn að hafa 12 ár til þess að afnema þennan vinnuletjandi hluta lánakerfisins (N.B. ekki styrkjakerfis, lánakerfis). Hann er ekki búinn að gera neitt í því... Ég trúi þeim svo vel núna... Af hverju ekki að afnema tekjutengingu námslána algerlega og hætta að refsa fólki fyrir að reyna að hafa almennileg lífskjör en ekki "Námsmannalífskjör" sem leiða til næringarfræðilegra stórslysa hjá börnum... Grjónagrautur og spaghetti með tómatsósu er ekki heilbrigt mataræði fyrir börn til langs tíma. Og annað... Af hverju að setja vinnuhvetjandi skattreglur þegar stærsta samfélagsvandamál Íslendinga er það að þeir vinna fæstir minna en 10 tíma á dag? Börnin okkar hitta foreldrana kannski 4-5 tíma á dag. 1 klukkutími af þessum tíma er alvöru samvera. Síðan er það spurning um tómstundir... Á fólk ekki að hafa tíma til að lifa, eða eru allir fullkomnlega sáttir við 60-80 tíma vinnuviku a-la USA? Allavegana er framleiðni á Íslandi með því lægsta sem gerist í heiminum, þökk sé yfirvinnutilbeiðslu landsmanna. Rannsóknir hafa sýnt að afköst á vinnudegi fara eftir parabólu-kúrvu. Eftir 7 tíma fara þau lækkandi og marginal gróði fyrirtækisins minnkar til muna. Það er fyrirtækjum því til mun meiri hagnaðar að takmarka yfirvinnu, stytta vinnudaginn niður í 7,5 tíma, hafa launin sanngjörn og ráða frekar auka starfsfólk. En hver tekur sosum mark á slíku bulli? Miklu sniðugra að láta alla vinna 12 tíma á dag og missa af þeim forréttindum sem felast í því að vera manneskjur. Svo tekur fólk sér úttaugaðar 6 vikur í sumarfrí á ári og kemur til baka í bakaraofninn, tilbúið til að láta slátra sálu sinni upp á nýtt... Það hlýtur að vera hægt að lifa í mannvænna samfélagi... Vinnuhvetjandi mæ es... Bestu Kveðjur, Svavar Knútur [ 4 ] laugardagur, maí 03, 2003
Um Mannorðsmorð...
Ég var að lesa pælingu Unnar um draum Gyðu. Í því skyni langaði mig að segja ykkur litla sanna sögu, sem ég fékk góðfúslegt leyfi viðkomandi til að deila með ykkur... Þau sem þekkja til viðkomandi bið ég um að halda því fyrir sig... Einu sinni var drengur sem átti pínulítið erfitt félagslega vegna nördaskapar... Hann gekk í skátana til að liðka þær stöðvar heilans og hafði voða gaman að því. Hann fór í útilegur og lærði ýmislegt nýtt... Til dæmis lærði hann ýmislegt skemmtilegt á gítar. Einu sinni sem oftar fór hann í útilegu með skátahópi úr öðru sveitarfélagi og þá var sko gaman, þá fékk maður að hitta annað fólk og daðra við það... Hann var fjórtán ára... Drengurinn var svakalega hress þegar farið var upp í dal nokkurn á suðvesturhorninu og gist í skemmtilegum og draugalegum skála. Í ferðinni voru u.þ.b. 24 skátar, 15 stelpur og 9 strákar. Eins og oft áður í svona ferðum húkkaðist fólk saman og kelaði ponsu... Drengurinn hitti stelpu sem bað hann um að nudda á sér bakið... Hún var tveimur árum eldri en drengurinn... Hún sagði að hann væri sætur og bað hann um að nudda sig neðar á bakinu og líka á hliðunum... Drengurinn var ekki alveg úr steini svo hann fattaði hvert hún var að fara og hóf að gerast blíðari í nuddinu. Stúlkan stundi af ánægju og sagði drengnum að hann væri náttúrulegur nuddari. Oh! hvað þetta væri gott... Þau kysstust... Hann hafði aldrei kysst stelpu af slíkri ástríðu og fundið slíkar tilfinningar. Hann ólgaði allur af "greddu". Brjóstholið á honum var eins og brjálæðislegur eldhnöttur. Um allan líkamann flæddu hormónin áf áður óþekktri ákefð. Á meðan þetta var allt að gerast voru sumir farnir að sofa og aðrir að spjalla í horni, u.þ.b. 10 metra frá parinu. Þau kysstust lengi vel og létu vel hvort að öðru. Hún kyssti hann á bringunni og maganum og hálsinum og eyrunum... Honum leið ofboðslega vel. Stúlka var að veita honum jákvæða athygli en ekki að flissa að því hvað hann væri mikill nörd. Eftir nokkrar kelur sagði Stúlkan i honum að hún vildi fá hann inn í sig. Drengurinn Hikaði... Það var mikið af fólki þarna og hann vildi ekki vekja neinn... Svo var hann líka á þeirri hugmynd að hann langaði að kynnast stúlkunni betur áður en hann færi að eiga holdlegt samræði við hana í útilegu. Hann sagði að hann væri ekki tilbúinn fyrir slíkt... enda hefði hann lesið í kvennafræðaranum að kynmök án smokks gætu leitt til óléttu og kynsjúkdóma. Stúlkan sagði mjúklega: "Þú ert rosalega sætur, en ef þú þegir ekki og leyfir mér að ríða þér, þá segi ég öllum að þú hafir reynt að nauðga mér..." Drengurinn sagði: "Róleg! Ég vil bara bíða aðeins..." Stúlkan svaraði: "Það skiptir ekki máli hvort það er satt eða ekki... þú veist það alveg..." Drengurinn varð ofboðslega hræddur og óöruggur... Hann sagði ekki orð... Stúlkan settist klofvega á hann og hóf þær aðfarir sem náttúran hefur kennt dýrunum í hundruð milljóna ára. Drengurinn spilaði með, af ótta við afleiðingarnar og endaði, eftir drykklanga stund, á að sprauta inn í hana sæði sínu í kjölfar hreyfinganna... Stúlkan fór niður af drengnum og þakkaði fyrir sig. Hún sagði: "Sko, var þetta nokkuð svo vont?" Drengurinn sagði brosandi taugaveiklunarlega: "Nei, þetta var gott..." Stúlkan fór í burtu og leyfði drengnum að ganga til náða... Næsta dag pískruðu vinkonurnar saman og horfðu á drenginn... Háls hans var þakinn sogblettum... Sál hans var þakin sogblettum... Hann var fullur af skömm og viðbjóði og ótal tilfinningum sem hann skildi ekki og vildi ekki skilja... Mánudaginn eftir ferðina bað drengurinn foreldra sína að fá að vera veikur í skólann... Þau sögðu honum að það væri ekki hægt... Því fór hann með trefil í skólann og sagðist vera með hálsbólgu... Vinir hans vissu þó að eitthvað væri í gangi og hrifsuðu trefilinn af honum... Sogblettirnir blöstu við og allir voru voða hressir með að drengurinn hefði nú fengið smá aksjón... Vinirnir hlógu og klöppuðu honum á öxlina... "Tarfur", "Rokkari", "Flottur". voru orð dagsins... Drengurinn vissi ekkert hvað hann átti að halda... hann var greinilega voða matsjó... hann hafði fengið það með stelpu... ókunnugri... sem hótaði honum að segja öllum að hann væri nauðgari ef hann hlýddi henni ekki... Hann varð einrænn og lokaður og grét oft í einrúmi án þess að skilja... Hann hataði stelpurnar í bekknum, var hræddur við þær, skildi þær ekki, vildi drepa þær... Nokkrum vikum seinna sagði hann félaga sínum söguna... Sá félagi sagði: "En þú fékkst það, var það ekki? Þá var það ekki nauðgun..." Í marga mánuði burðaðist hann með þessa reynslu innan með sér, vitandi að skilningurinn væri takmarkaður meðal félaganna... Svo hitti hann náinn vin sinn, sem hafði örlítið skýrari skilning á þessum málum eftir ríkulegan lestur Bleiks og Blás í gegnum tíðina... Vinurinn sagði drengnum að honum hefði hreinlega verið nauðgað með hótun um ofbeldi. þetta væri sálrænt/andlegt ofbeldi sem væri alveg jafn alvarlegt og barsmíðar og líkamshótanir. Drengurinn brast í grát, hann grét lengi við öxl vinar síns. Honum fannst hann vera aumingi, lúser, niðurbarinn bjáni... En vinur hans hughreysti hann og sagði að hann hefði væntanlega gert hið sama í hans sporum, enda væri lítið til ráða þegar maður ætti á hættu að vera sakaður um slíkan verknað. Það þyrfti ekki að dæma, það þyrfti ekki einu sinni að lögsækja... Allir myndu "vita" hvað maður hefði gert. Það er engin leið að afsanna að maður hafi gert tilraun til nauðgunar... Límmiðar á bílinn... Svartklæddar konur fyrir utan vinnustaðinn... Hringingar í yfirmanninn, samstarfsmenn, fjölskyldu... Umtal... hvískur... slúður... "Hann nauðgaði stelpu...", "Hann er nauðgari..." Eftir mörg ár af meðferð með sjálfum sér, því hann gat ekki talað um þetta við sálfræðing, hefur hann nú náð sér nokkurn veginn að fullu... Hann treystir konum aftur, eftir mörg ár af vantrausti... Hann hefur endurheimt sjálfstraustið og er orðinn nokkuð vel settur ungur maður... En í hvert skipti sem hann hittir stúlkuna eða sér hana úti á lífinu fær hann standpínu og kvíðakast... Hann hatar hana, en hann kemst ekki yfir það að hún var sú sem svipti hann "sveindómnum"... Falleg saga ekki satt? Ég styð feministafélagið fullum hálsi... Ég mun koma fram fyrir þess hönd til að tryggja framgang baráttumála þess... En að stuðla að mannorðsmorðum er ekki að mínu skapi. Ég þekki hina hliðina á þeim teningi... Lögin verða að höndla þá sem brjóta þau... Og konur geta líka nauðgað körlum... Ef þær skortir líkamlega yfirburði nota þær bara sálfræðina... Bestu Kveðjur, Svavar Knútur p.s. í alls óskyldum fréttum er ofurpartýhljómsveitin Kaffi að spila á Vídalín í kvöld, laugardagskvöldið 3. maí... :) [ 6 ] föstudagur, maí 02, 2003
Feministarnir voru Skemmtilegir...
Það var stuð að spila fyrir feministana... Þær fíluðu alla brandarana okkar og líka þegar við töluðum vel um mömmur... :) Og svo fengum við svona líka fína bleika boli í kaupbæti... En nú tekur alvaran við og á morgun og hinn verða Kaffiliðar á Vídalín og HRIKALEGT stuð í gangi... :) Svona á að gera þetta! Bara hamast og hafa gaman að lífinu og reyna að hundskast til að vinna í tónlistinni... Það kostar aðeins 500 kall inn og við tökum alla miðasöluna, þannig að: verið góð og borgið sætu stelpunni í miðasölunni það sem upp er sett, því annars verðum við bara blankari fyrir vikið... Bestu Kveðjur, Svabbi p.s. Veit einhver hvort eitthvað er hægt að gera þegar nokia sími er farinn að drepa krónískt á sér? Þetta er obboslega pirrandi... [ 3 ] fimmtudagur, maí 01, 2003
1. maí veit á gott...
Múzak er í svaka sköpunarstuði, eins og alltaf þegar ég á að vera að gera eitthvað annað... eins og skrifa ritgerðir... Ég er búinn að semja eitt stykki barnabók og handritið er tilbúið á borðinu mínu... Dóttir mín fílaði söguna ágætlega og litli bróðir líka... :) Þið hin verðið bara að bíða... Svo er ég búinn að semja nýtt lag og eitt hljóðljóð... Tók allt upp... alltaf eitthvað einnar töku dæmi... Ég hef sikk gaman að einnar töku stöntum... Úffa! :) Svo erum við Kaffi menn orðnir helvíti Bissí... Við erum að spila á feministabaráttufundinum í þjóðleikhúskjallaranum kl. 15:00 á morgun... Og svo er Kaffi á Vídalín yfir helgina. Stuðtríóið og kaffihúsahljómsveitin Kaffi spilar sumsagt fyrir dansi á Vídalín á Föstudag og laugardag og kostar einungis 500 kall inn... Stuð! Stuð! Þrumustuð!!! Allir mæta á Kaffiball á Vídalín á föstudag og laugardag! Jeeee!!! Nú verður sko ekkert chillað, heldur bara stuð!!! Bestu Kveðjur, Muzak [ 0 ] |
Eva
Örn "Mugison"
Elias Tónlistarmönnum sem gefa tónlist
sína á netinu er velkomið að hafa samband
við Hr. Muzak og þá bæti ég þeim
á listann.
Laukurinn rúlar
Dr. Gunni
| |||