Þankatankurinn



Svavar Knútur
Kristinsson,

Félagsauðströll, heimspekingur, umhverfis-verndarsinni og tónlistarmaður.

Ímeilaðu
mig...

NÝTT!!!
Viltu fá
(eða hætta að fá)
tilkynningar
um tónleika
HRAUNS!,
eða Svavars Sjálfs?
Sláðu inn
netfangið hér:



This page is powered by Blogger. Isn't yours?




Hljómsveitin Hraun! veitir mér listræna útrás.

Hraun á Myspace

Sjálfurinn á Mæspeis

Nýjustu Demó:

Ease your mind (01.07.2006)

Dansa... (28.09.2005.)

Ástarsaga úr fjöllunum (Sumarið 2005)

Goodbye my lovely (19. júní 2005)

Kisa litla (Maí 2005)

Your love was death to me (Janúar 2005)

Call off your Cavalry (September 2004)

You should call a doctor (Maí 2004)

Kysstu tímaglasið (endurbætt útgáfa 2004)

Mother's day
( 2004)

Jólaplata Hrauns 2003: Þrautgóðir á Hraunarstund

Jólaplata Hrauns 2004: Kátt er um jólin

Partýplatan Partý!

Jólaplata Hrauns 2005: Höldum jól

Jólaplata Hrauns 2006: Jólamolar



Latur myndasmiður, en engu að síður er hér að finna eitthvað efni...

Molar...


 
mánudagur, júní 30, 2003
  Quote Helgarinnar
Ég held að það gerist ekki betra en þetta:

Fulli kall með leiðindi: HEY!!! ÞÚ!!! Spilaðu Traustur Vinur!!!
Hljómsveitin Moonboots: Ókei, það er fyndið... tökum það...
Fulli kall með leiðindi: HEY!!! Þið eruð Ömurlegir! Spiliði Creep með Radiohead!
Hljómsveitin Moonboots: Ertu hálfviti? Heldur þú að við spilum Creep með Radiohead fyrir gaur sem er með eintóm leiðindi...? Lítum við út fyrir að vera hljómsveit sem spilar Creep með Radiohead? (Benda á ljóta útspreyjaða málningargalla)
Fulli Kall með Leiðindi: HEY!!! Þið spilið Creep með Radiohead, annars er mér að mæta! Krádið fylgir mér!!! (gerir dónalegar hreyfingar með höndunum...)
Hljómsveitin Moonboots: (muldrar) Hálfviti...

40 mínútum seinna... fullikall með leiðindi situr á bassaboxi fyrir framan sviðið og gerir ljótar hreyfingar með höndum og lætur ófriðlega... Gefur hljómsveitarmeðlimum illt auga og breiðir út vondaskapið sitt... öskrar: KRÁDIÐ FYLGIR MÉR!!!

Hljómsveitin Moonboots: Sjáum hvort krádið fylgir þér út af staðnum! DYRAVÖRÐUR!!! VILTU HENDA ÞESSUM MANNI ÚT!?!
Fullikall með Leiðindi: (Fát kemur á hann, hann hleypur út í sal og er gripinn af dyravörðum... öskrar eitthvað um leið og dyraverðir taka hann glaðbeittir í átt að dyrunum...)
Kærasta Fullakalls: (eltir fulla kall hrópandi, nær honum við barinn og tekur af honum bjórinn og vinkar bless um leið og dyraverðir henda honum út...)
Fullikall með Leiðindi: Ég mun snúa aftuuuurrr....
Hljómsveitin Moonboots: HAHAHAHAHAHAHA

Quote Helgarinnar: Krádið fylgir mér...

Bestu Kveðjur,
Svabbi


[ 2 ]
  Gott gigg með Moonboots!
Yiha, hvað Moonbootsliðar gerðu það gott á laugardraslskvöldið.
Mikið stuð, mikið gaman!
Eitt helvítis fífl á öllum tónleikunum og ég lét bara henda honum út, sem var rokk... :)
Það er gott að vera í þeirri stöðu að geta bara öskrað "Dyravörður" og þá kemur stór svartklæddur maður og hendir þeim sem er að bögga mann út...
Svo var einhver bleikklædd stelpa sem strunsaði upp að sviðinu og horfði á mig með eitthvað svona breima lúkk í augunum. Svo var hún eitthvað að strjúka sig og dilla sér í áttina að mér, það var heví fyndið og ég brosti mínu blíðasta til hennar. Næsta sem ég sá var hún kominn í hálfgerðan þrísomm með einhverju pari og það var fínt...
Nú sit ég hér á Mogganum, og bara nokkuð ánægður með lífið.
Það er alltaf gott að hafa breima stelpur fyrir framan sviðið :)
Það var líka nokkuð fyndið að rífa sig úr málningargallanum og standa á narjunum fyrir framan krádið...
Að vísu heví flottum narjum...
(þetta gerðist svo hratt...) ;)

Gersamlega búinn að vera út úr heiminum undanfarna daga...
Vona að mér verði fyrirgefið.
Bestu Kveðjur,
Hr. Svavar


[ 0 ]
þriðjudagur, júní 24, 2003
 
Hin árlega implodering Moonboots...

Jæja krakkar, það er komið að því.
Moonboots er að falla saman enn einu sinni og leggjast í dvala...
En ekki fyrr en við spilum eitt gott ball á Gauknum á Laugardagskvöldið.

Um leið lýsi ég eftir skemmtilegri stuðhljómsveit sem tekur sig ekki of alvarlega til að hanga með og syngja og tralla...

Bestu Kveðjur,
Svavar Knútur


[ 4 ]
 
Og í öðrum fréttum...

Helgi Guðbjartsson, stórvinur minn, stúdent, bifvélavirki og trommaradjöfull, á afmæli í dag.
Hann er sumsagt kominn á fimmtugsaldurinn og mun héðan í frá láta titla sig Helga "Þrumara" Jörgensen.

Gleðilegan afmælisdag Helgi ljúfurinn minn...

Bestu Kveðjur,
Þinn vinur,
Svabbi


[ 0 ]
 
Kjarnorkuógnin...

Ég horfði á endann á mynd í gær, þar sem heimurinn hafði loksins sprengt bomburnar og hægt og sígandi var geislavirknin að leggjast yfir jörðina...
Myndin fjallaði m.a. um hvernig Ástralir fengu smám saman að kenna á síðkomnum áhrifum bombunnar.
Svo enduðu þessi ósköp á að maður og kona og litla dóttirin þeirra tóku blásýru eða eitthvað viðlíka til að þurfa ekki að deyja úr krabbameini á einhverjum vikum...

Ég veit ekki...
Ég er ægilega meyr þegar kemur að veikum börnum og deyjandi börnum...
Ég fór beint inn til Dagbjartar og lagðist hjá henni í smá stund... þefaði af hárinu hennar og hélt henni að mér.
Hún umlaði bara og tók um hönd mína.

Svona myndir, sama hvort þær eru góðar eða slæmar, minna mann endalaust mikið á það hvað maður þarf að gæta fjölskyldu sinnar...
Þetta var viðbjóðsleg pæling og ég á enn eftir að finna orð sem lýsa þeirri fyrirlitningu sem ég ber til þeirra manna sem létu sér detta í hug að beita slíkum vopnum í stríði, og jafnvel að fyrra bragði.

Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 0 ]
mánudagur, júní 23, 2003
 
Harry Potter æðið...

Fór í Kringluna og leitaði mér að Harry Potter bók, sem ku kosta rúmar 3300 kr. í smásölu...
Svörin voru eftirfarandi:
"*Fliss!* Harry potter seldist upp á 10 mínútum. Næsta sending kemur VONANDI á morgun!"
Dittó
Dittó
Dittó

/muzak hringir í Fangor vin sinn...

Fangor: Halló...
Muzak: Halló Fangor...
Fangor: MUZAAAAK!!!
Muzak: Hæ, gaman að heyra í þér... Eigið þið nokkuð Harry Potter eftir?
Fangur: Alveg nóg af því... hahahaha
Muzak: Frábært...

/Muzak brunar niður í Sokkasölu Búkenta... (Kóksölu Brúkenda eða Brókarsölu Stútunga) þar sem Fangor vinnur...

Fangor: Þetta verða 2400 kr.
Muzak: Ha? Ekki nóg með að þið eigið nóg eftir af bókinni, heldur eruð þið ódýrust í bænum?
Fangur: Rétt er það, mouhahahahaha!
Muzak: Allt er nú til...

Nú á Múzak fína bók sem hann ætlar að lesa...

Bestu Kveðjur,
Múzki




[ 1 ]
föstudagur, júní 20, 2003
 
Kaffitónleikar á Vídalín í kvöld!

Hey allir saman!
Það er ball með hljómsveitinni Kaffi á Vídalín í kvöld kl 0:00...
Öll uppáhalds lögin ykkar verða ekki spiluð þar...
En samt ógeðslega gaman og við tökum óskalög, ef þau eru nógu heimsk eða skemmtileg...

Bestu Kveðjur,
Herra Svavar


[ 5 ]
fimmtudagur, júní 19, 2003
 
Six degrees of intertran seperation...

Ég gerði áhugaverða tilraun...
Setti orðin: "I want to make love to you baby" inn í intertran og lét hann þýða setninguna úr ensku yfir í ensku...
Síðan kóperaði ég setninguna sem kom út inn í input gluggann og gerði aftur... fimm sinnum...

Tékk it...
Upphafleg setning - Skref 0: I want to make love to you baby.
Skref 1: IMMATERIALITY come short of you be the cause of you caress be the cause of you infant.
Skref 2: INTELLECT be inferior you originate you expression of affection originate you weakness.
Skref 3: INTELLIGENCE autumn short of you begin you caress begin you irresolution.
Skref 4: INTELLECT be inferior you pursue you expression of affection pursue you physical inertness.
Skref 5: INTELLIGENCE autumn short of you continue you caress continue you dullness.

Og þar höfum við það...

Hr. Muzak


[ 0 ]
miðvikudagur, júní 18, 2003
 
Eve-Online

Er að rannsaka samfélögin í Eve-Online fyrir grein.
Helvíti magnað samfélag.
Til hamingju CCP með magnaðan leik og enn flottara samfélag sem er að myndast þarna inni.

Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 9 ]
þriðjudagur, júní 17, 2003
 
Stuð á Austurvelli...

Í morgun mátti sjá þetta tvennt markvert gerast á Austurvelli...

Helgi Guðbjartsson, nýútskrifaður iðnnemi og ráðsettur lýðveldissinni mætti á svæðið með blómsveig og hyllti ráðstjórnina...

Og nokkrir mótmælendur voru "fjarlægðir" af "skipulögðu hátíðarsvæði" á Austurvelli...

Af því að það er alltaf bannað að mótmæla á Íslandi nema maður fái sérstök leyfi til þess.
Alveg eins og í Sovíet í gamla daga...
Auðvitað má íslenska þjóðin ekki við því að fólk hafi skoðanir á afmæli lýðveldisins...

LÖGGIMANN: Afsakaðu mig herra minn, en hefur þú skoðanaleyfi?
MAÐUR MEÐ SKOÐUN: Nei, þarf maður það?
LÖGGIMANN: Já, svo sannarlega... Þér eruð sekir um að brjóta rétthugsunarlöggjöfina. Það má nebbnilega ekki hafa skoðun á 17. júní.
MAÐUR MEÐ SKOÐUN: Ó... Sorrí maður... Gleymdi því... Hvar sækir maður um leyfi?
LÖGGIMANN: Það er ekki hægt að fá leyfi fyrir skoðunum á 17. júní, öðrum en þeim að Ísland sé best í heimi og ekkert megi gagnrýna í fari þjóðar eða ríkis.
MAÐUR MEÐ SKOÐUN: Ó... fyrirgefðu... ég skal þá bara fara...

Undarlegt nokk, þá gildir þetta sama um að skemmta sér... t.d. að spila á gítar nálægt fólki...
Einu sinni var ég niðri í bæ með kassagítar á leiðinni til vinar míns og hitti annan gæja sem var með bongótrommur. Við tókum smá djamm af því að við vorum hressir, klukkan var eitt um nótt á föstudagskveldi... (sönn saga)
Að kom löggumann:

SVAVAR: Jejeje, krassinonðekreisílööööv jebeibí...
LÖGGUMANN: Hurðu! Ertu með skemmtanaleyfi!
SVAVAR: Ha? Skemmtanaleyfi? Þarf maður leyfi til að skemmta sér?
LÖGGUMANN (Mundar kylfuna valdmannslega): Ertu með derring?
SVAVAR: Ha? Nei... ég var bara forvitinn... ég vissi ekki að maður þyrfti leyfi til að djamma saman á hljóðfæri...
LÖGGUMANN: Þú þarft leyfi ef það er annað fólk á staðnum!
SVAVAR: Ha? Ertu að segja mér að það sé bannað að koma saman utan "löglegra skemmtistaða" og hafa gaman að lífinu? Ætlarðu kannski næst að segja mér að það sé bannað að safnast saman í stærri en þriggja manna hópum á almannafæri?
LÖGGUMANN: Þú ert með derring! (tekur upp kylfuna) Viltu að ég taki af þér hljóðfærið?
SVAVAR: Nei. Ég skal fara, en mér finnst þú ekki skemmtilegur maður
LÖGGUMANN: Hypjaðu þig!

Bestu Kveðjur,
Svabbi...

p.s. Takk allir sem komu í Gær!
GEÐVEIKT STUÐ!!!
Hljómsveitin HRAUN! er greinilega rokkhljómsveit gleðinnar og Loftur og Jón Geir rúla¨í stuðinu!
Þið sem misstuð af þessu... Ykkar tap!
Þetta var suddagrúv og bjórinn kostaði 400 kr.
JEJEJE!!!

p.p.s.
Af hverju ekki?
Mér finnst þetta helvíti sniðugt...


[ 3 ]
mánudagur, júní 16, 2003
 
Spontant partý í kvöld!

Hey allir!
Við strákarnir ætlum að hittast á Kaffi Vín í kvöld með græjurnar og halda spontant partý frá hálf tíu til tvö í nótt...
Sextánda júní ball...
Allir mæta sem vettlingi geta valdið!!!

Bestu Kveðjur,
Svabbi


[ 0 ]
sunnudagur, júní 15, 2003
 
Smá vangaveltur um hreinlæti

Mér virðist sem þorri fólks líti svo á að ef maður fer ekki í sturtu á hverjum degi sé maður óhreinn. Þetta finnst mér vera glóandi dæmi um hreinlætisdýrkun nútímans sem farin er út fyrir öll velsæmismörk. Hugsiði bara hvað maður er að gera líkamanum með því að rústa ytra ónæmiskerfinu daglega með sápu og alls kyns efnum sem við vitum í raun ekkert um hvað gera við líkamann...
Ég lít svo á að langbest sé að baða sig svona tvisvar í viku max, nema maður svitni gríðarlega... Þá á maður helst ekki að nota sápu nema á skítugustu blettina og bara skola af sér svitann. Þannig gætir maður þess að drepa ekki niður viðkvæma flóru húðarinnar sem sér um að halda sýklum í burtu.

Ennfremur finnst mér skrýtið að það virðist vera skylda á hverjum einasta matreiðslustað og hverju einasta bakaríi að starfsfólk megi ekki meðhöndla matvælin með berum höndum. Ástæðan er sú að það sé svo ógeðslegt að annað fólk höndli matinn manns... Sama sentiment virðist liggja að baki því að fólk sættir sig ekki við að annað fólk gangi í skóm á sundlaugarbakkanum nema það fari í hallærislega bláa poka. N.B. þessir pokar rifna undir sólunum á skónum, þannig að það eina sem gerist er að maður er með ógeðslega afkáralegar bláar totur á löppunum sem vernda ekki eitt né neitt... Þar að auki berast 99,9% af sýklum þeim sem snerta sundlaugarbakkann með lofti, en ekki með skósólum.
HVAÐ ER AÐ?!?
Hvenær gerðist fólk svo miklar teprur að það getur ekki sætt sig við að annað fólk komi við matinn þess á meðan það er að búa hann til?!?
Er fólk hrætt við að fá svartadauða???
Ég vil að fólk snerti matinn minn þegar það býr hann til. Það er spurning um traust! Það er spurning um mannleika matarins.
ÉG vil ekki eitthvað dauðhreinsað drasl! Sérstaklega ekki þegar það eru hundrað sinnum meiri líkur á því að ég smitist af einhverju af dóttur minni þegar hún kemur af leikskólanum.
Hvað kemur næst?!?
Á dóttir mín að vera með SARS grímuna á leikskólanum í gúmmísamfesting og hettu yfir hausnum? Alveg eins og leikskólakennararnir og hinir krakkarnir?
Á ég að setja á mig gúmmíhanska og grímu þegar ég heilsa fólki?

Hvar stoppum við?

Þessi paranója okkar um að enginn megi snerta matinn okkar og allt verði helst að vera vaskað upp úr klór áður en við snertum það er lykillinn að glötun okkar. Við erum skipulega að drepa ónæmiskerfin okkar.

HNUSS!!!

ÉG ætti að skrifa í Morgunblaðið eða eitthvað...

;)

Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 8 ]
 
Kvöldvakt á Morgunblaðinu...

Það er eitthvað svo kammó við að vinna frá eitt til miðnættis á sunnudegi. :-)
Ég fíla þennan vinnustað og ég fíla samstarfsfólkið.
Þannig að þetta er nú bara ágætt.

En mikið rosalega er mig farið að langa heim í hlýjan faðm konunnar...

Bestu Kveðjur,
Svabbi


[ 0 ]
 
DAUÐI OG DJÖFULL!!!

Lasinn...
varð allt í einu veikur í gær...
drullaðist heim úr vinnunni upp úr fjögur...
Ömurleg hálsbólga, kaldur sviti og aumingjaskapur...

Reyna að láta sér batna yfir helgina...
Vinna á morgun...


Urg!!!

Svabbi


[ 0 ]
miðvikudagur, júní 11, 2003
 
...og þetta kallar sig vini manns...

Hún Þóra Marteins er ekki enn farin að linka á mig...

Hnuss fuss...

Maður gæti haldið að henni þætti bara ekkert vænt um mann...

Hnuss Fuss...

Bestu Kveðjur,
Hr. Svavar


[ 2 ]
 
Búðir Here I come!

Á morgun fer ég á Búðir á Snæfellsnesi... Yiha!
Það er gaman að vera til...
Kaffi... gooottt...

En nóg um það...

Mig langar til að prófa kenningu, sem er í eðli sínu óprófanleg...
Hún er svona:
Rót allra vandamála mannkyns er sú að fólk breytir gegn betri vitund. Það velur sér lífsleið og starfsframa vegna vona um fjárhagslegan styrk. Fólk kýs yfir sig stöðugleika í stað óöryggis og breytinga. Fólk gerist verðbréfasalar þegar það langar að gerast skógarhöggsmenn eða fisksalar...

Ef allir gerðu það sem hjarta og hugur stefna til, væri heimurinn betri staður?

Spurning...

Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 6 ]
þriðjudagur, júní 10, 2003
 
Æðisleg Helgi

Þetta var hin prýðilegasta helgi...

Á föstudaginn vann ég til að verða Níu um kvöldið, glápti á imbann og fór svo í háttinn...
Vaknaði á Laugardagsmorgun og lagði af stað í gönguferð með Umhverfisfræðinemum, síldarmannaleið, úr Skorradal yfir í Hvalfjörð. Svo var farið í sund og grillað og gleði...
Mamma kom upp úr Níu um kvöldið og sótti mig í Hvalfjörðinn og við keyrðum Norður með litlu Múzkuna mína og Villa litla bróður.
Lent í Skagafirðinum kl. 03:00 og farið að sofa...

Sunnudagurinn var geðveikt vinnufest og ég var heví ánægður með árangurinn. Við umplöntuðum heilum helling af trjám og mokuðum skít í æðislegri sól og ég lít út eins og Mexíkani...
Um kvöldið rann dalalæðan fram allan Skagafjörðinn og ég kleif hátt upp í Skálárhnjúkinn og horfði yfir dalalæðuna. Það var heiðskýrt og blóðrautt sólarlag... Þetta var mergjuð reynsla. Hvítur mökkurinn barst út dalinn og hörfaði svo inn aftur til skiptis...
Ég dýrka svona dalalæðuþoku... Hún var alveg 250 metrar á þykkt.
mmm...
Svo kom maður bara heim í gær til ástríkrar konu sinnar og fékk blíðar móttökur.
Kári kom líka í heimsókn og við borðuðum pasta og diskúteruðum.
Mér þykir vænt um Kára.
Hann er góður drengur...

Talandi um drengi...
Hvar er Drengur?
Er hann ekki á leið til landsins?

Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 0 ]
föstudagur, júní 06, 2003
 
Að vera með eða á móti

Þeim okkar, sem eru hvað kappsamastir í hugsjónum sínum, reynist gjarnan erfitt að skilja þá hugmynd að menn geti gagnrýnt hugmynd án þess endilega að vera á móti henni.
Mönnum er nefnilega það tamt að skipa fólki í hópa, annað hvort með eða á móti, og þeir sem ekki standa heilshuga á bak við hugmyndafræði eru væntanlega á móti henni, ekki satt?

Ég verð að vera ósammála þeirri afstöðu.
Sá sem gagnrýnir hugmyndafræði eða pælingar þarf ekki endilega að vera á móti þeim, hann getur hins vegar verið með efasemdir um gildi þeirra sem allsherjarlausna. Tökum sem dæmi: Svavar gagnrýnir hægristefnuna út frá því að menn kjósi oft áþreifanlega peninga fram yfir óáþreifanlega, að mælikvarðar hennar séu ófullkomnir og fleira. Svavar setur fram þá hugmynd að kannski þurfi flóknari hugmyndafræði og að taka þurfi tillit til fleiri þátta þegar hugtakið lífsgæði er skoðað.
Er Svavar þá á móti frjálslyndi/frjálshyggju? Er hann kommúnisti? Ekki endilega, en hann vill leggja hugmyndinni lið með því að gagnrýna hana og reyna að finna lausnir á þeim vanda sem honum sýnist hún eiga við að etja.

Það að gagnrýna er ekki að vera á móti. Þannig voru Frakkar í raun ekki á móti Bandaríkjunum fyrr en allir talandi menn í Bandaríkjunum fóru að hæðast að þeim og kalla þá bleyður fyrir að gagnrýna stríðsrekstur í Írak. Frakkar voru hins vegar gagnrýnir á stríðshugmyndina og vildu bíða.
Þeir sem gagnrýna vini sína elska þá. Þeir sem þegja yfir öllu sem þeim finnst miður í fari vina sinna eða kinka kolli við öllu sem þeir segja bera í raun minni virðingu fyrir þeim.

Bestu Kveðjur,
Hr. Svavar


[ 0 ]
miðvikudagur, júní 04, 2003
 
Steinsteypudagur...

Fyrir framan mig, í næsta mannhólfi er mappa eða skýrsla í hillunni sem stendur á Steinsteypudagur.
Steinsteypudagur...
hmmm...
svo er ártalið 1999.
Hvað gerðist á steinsteypudaginn, 1999???
Hvað gerðist þá, sem var svo merkilegt að fimm sentimetra breið mappa situr enn uppi á hillu á vinnustöð í Morgunblaðinu? :D

Spúkí sjitt...
Ég ætla að laumast í þessa skýrslu eftir vinnu einhvern tímann og skrifa feitt expósé.
úúúú...

Bestu Kveðjur,
Svabbi fréttasnápur


[ 5 ]
þriðjudagur, júní 03, 2003
 
Enn í vinnunni...

Djö!!!
Ég var búinn að gleyma því hvað það er ógeðslega gaman að vera blaðamaður...
Er að skrifa grein um unga lækna og hvíldartíma þeirra...
Það er frábært.
Morgunblaðið er yndislegur vinnustaður...

Erfitt en gaman...

Bestu Kveðjur,
Hr. Svavar


[ 0 ]
 
Rallí rallí rí...

Það er gaman að vinna Mogganum ... í...

Jújú, mar veðrur að vera með góa safseningu til að vina á moganum.
anars er maðr eki góður blaðamaur.

Það veðrur líjka að gæda að inslátarvillunuum.

Þær eru lúnskar...


Beztu kveðjru
Hr. Mzuak


[ 0 ]
 
Góð tónlist...

Góð tónlist þarf ekki alltaf að vera leikin af færustu spilurunum eða tæknilegustu undrunum.
Þetta upplifði ég mjög sterklega þegar ég hlustaði á upptöku með nokkrum strákum, þ.á.m. Benna, bróður Sigga Palla og stórmerkilegum gítarleikaravini hans í fyrrinótt.
Þrátt fyrir ungan aldur, þá höfðu þeir einhvern tónþroska sem má í raun líkja við Stranglers eða Doors í melódíum.
Bróðir Sigga, Benni syngur heví flott og sjarmerandi. Og þessi gítarleikari hefur ótrúlega stemningu yfir því sem hann er að gera.
Ég veit ekki hvort ég má leyfa ykkur að heyra þetta, þannig að ég þegi eins og er, en mig langar að draga þessa drengi fram í sviðsljósið fljótlega og fá þá til að spila á tónleikum.

Fyrir þau ykkar sem þekkja mig ekki eins vel og innsti hringurinn, þá hef ég köllun um það að reyna að lífga upp á tónlistarlífið í Reykjavík og á Íslandi í rauninni. Það er allt annað hvort brjálað rokk eða eitthvað snobbað überfínt drasl eða elektró. Það er í raun engin melódísk hljómamúsík í gangi sem ég verð var við. Þess vegna langar mig að halda uppi tónleikahaldi.
Mig langar að draga Benelux og Berndsen, eins og þeir kalla sig, fram í dagsljósið og leyfa almenningi að heyra þessa fallegu og melódísku tónlist.
Það er eitthvað í einfaldri fegurð tónlistar sem gersamlega heillar mig.
Satt að segja fæ ég alltaf snert af minnimáttarkennd þegar ég heyri svona fallega tónlist spilaða á svona einfaldan, hráan en aðgengilegan hátt. En það er góð minnimáttarkennd.
Bestu Kveðjur,
Hr. Muzak


[ 2 ]
mánudagur, júní 02, 2003
 
Jæja... kominn í vinnuna...

Gott fólk,
Svavar er mættur í vinnuna...
Ég er fréttagrunt hjá Mogganum, blaðamaður á innlendum fréttum, sem er ágætt, betra en erlendar fréttir, þar sem maður er aðallega í því að þýða... :)
Ég hefði viljað komast aftur á Sunnudagsblaðið, enda dýrka ég fólkið þar, en þetta er skemmtilegt tækifæri til að kynnast nýju liði og nýjum aðferðum.
Stuð Stuð Stuð!

:)
Ég fíla Moggann... :) Þrátt fyrir að þetta sé Sjallablað.

Þetta eru þó allavegana vel upplýstir sjallar ;)

Bestu Kveðjur,
Hr. Svavar


[ 7 ]
 
ahem...

Ég er nú ekki vanur þessu... en:

The Dante's Inferno Test has banished you to the Second Level of Hell!
Here is how you matched up against all the levels:
LevelScore
Purgatory (Repenting Believers)Moderate
Level 1 - Limbo (Virtuous Non-Believers)High
Level 2 (Lustful)Very High
Level 3 (Gluttonous)Low
Level 4 (Prodigal and Avaricious)Very Low
Level 5 (Wrathful and Gloomy)Low
Level 6 - The City of Dis (Heretics)Very Low
Level 7 (Violent)Moderate
Level 8- the Malebolge (Fraudulent, Malicious, Panderers)Moderate
Level 9 - Cocytus (Treacherous)Low

Take the Dante's Inferno Hell Test

Ég er bara gamall graðnagli...

Hr. Muzak


[ 4 ]
 
Frábær helgi!

Klúðraður sólmyrkvi
Við hundklúðruðum Sólmyrkvanum, keyrðum alveg brjálaðir norður yfir holtavörðuheiði og fokkuðum royally upp öllum líkum á að fá að sjá sólmyrkvann.
Djö...
Enduðum nokkru sunnan Hólmavíkur á því að snúa til baka og hundskast aftur yfir þokufyllta heiðina þar sem við hlógum að okkar eigin vitleysu...
Svo ákváðu menn að skjótast inn í Húsafell í sumarbústað fjölskyldu Jósa, þar sem átta edrú og þreyttir gæjar grilluðu, borðuðu, sumir fóru í pottinn og aðrir lögðu sig í fjóra tíma áður en haldið var heim...
Drulluþreyttur og uppgefinn og kvefið versnaði upp úr öllu valdi...

Geðveikt partý á Vatnsleysuströnd...
Moonboots voru beðnir um að spila í þrítugsafmæli brjálaðs aðdáanda okkar.
Fengum fínan monnípening og spiluðum á bílpalli fyrir brjálaða Suðurnesjamenn. Það var svaðalega gaman!
Svo henti Julio Iglesias nokkur hvítvínsflösku í afturrúðuna hjá Steina Rótara (alveg óvart), en allir voru samt vinir... :)
GLEÐI GLEÐI GLEÐI!!!
Gunni, ef þú ert að lesa þetta, þá ert þú maðurinn!

Það var geðveikt gaman að spila fyrir brjálaða sveitalubba og kríur og mér leið eins og heima hjá mér...

Tónleikarnir á Sólon
Steini, 5ta herdeildin og HRAUN! spiluðu á Sólon í kvöld.
Geðveikt góður fílíngur og sándið á Sólon var mergjað!
Mætingin var líka fín og góð stemning í salnum, mikið hlegið og gaman, gaman!
Ég var að vísu alveg geeeeðveikt kvefaður og þreyttur eftir erfiða helgi... Þannig að það reyndi á skilning og umburðarlyndi gesta...
Ég saknaði nokkurra vitleysinga sem virðast aldrei getað séð sér fært að mæta, en Kári, Bjarni, Már og Logi voru hrókar alls fagnaðar! :) Ég saknaði þeirra sko ekki neitt! :)
Djöfull þykir mér gaman að spila fyrir fólk...

Hljómsveitin HRAUN! er góð!
Steini og 5ta herdeildin eru sko ekkert slor heldur...

Áfram Við!!!

Og Sólon er líka stuð...

Bestu Kveðjur,
Hr. Svavar

p.s. finnst engum pínulítið fokkt öpp að menn séu "í náðinni" hjá Bush og ekki "í náðinni" hjá Bush?
Þetta er farið að minna pínulítið á Amon Göth í lista Schindlers.

Þessi og hinn eru í náðinni og ekki í náðinni hjá "keisara alheimsins"...
Sorglegt...
Þetta land er orðið allt sem það sór að verða ekki... allt sem það hataði...


[ 0 ]
Virka þessi Drösl???