Þankatankurinn



Svavar Knútur
Kristinsson,

Félagsauðströll, heimspekingur, umhverfis-verndarsinni og tónlistarmaður.

Ímeilaðu
mig...

NÝTT!!!
Viltu fá
(eða hætta að fá)
tilkynningar
um tónleika
HRAUNS!,
eða Svavars Sjálfs?
Sláðu inn
netfangið hér:



This page is powered by Blogger. Isn't yours?




Hljómsveitin Hraun! veitir mér listræna útrás.

Hraun á Myspace

Sjálfurinn á Mæspeis

Nýjustu Demó:

Ease your mind (01.07.2006)

Dansa... (28.09.2005.)

Ástarsaga úr fjöllunum (Sumarið 2005)

Goodbye my lovely (19. júní 2005)

Kisa litla (Maí 2005)

Your love was death to me (Janúar 2005)

Call off your Cavalry (September 2004)

You should call a doctor (Maí 2004)

Kysstu tímaglasið (endurbætt útgáfa 2004)

Mother's day
( 2004)

Jólaplata Hrauns 2003: Þrautgóðir á Hraunarstund

Jólaplata Hrauns 2004: Kátt er um jólin

Partýplatan Partý!

Jólaplata Hrauns 2005: Höldum jól

Jólaplata Hrauns 2006: Jólamolar



Latur myndasmiður, en engu að síður er hér að finna eitthvað efni...

Molar...


 
fimmtudagur, júlí 31, 2003
  Umhugsunarefni fyrir helgina...
Strákar: Fylgist vel með vinum ykkar og látið þá ekki gera neitt sem þeir sjá eftir. Fylgist vel með vinkonum ykkar og jafnvel stelpum sem þið þekkið ekki og strákum sem þið þekkið ekki. Ekki taka þátt í því að þegja af ykkur ábyrgðina. Drekkið hóflega og skemmtið ykkur vel.

Stelpur: Treystið þeim sem þið treystið og drekkið eins og manneskjur! Það er engin siðferðispredikun að segja ykkur að drekka ykkur ekki dauðar! Það er fátt ógeðslegra heldur en dautt fólk, hvort sem um er að ræða stelpur eða stráka. Lærið að halda vökvanum.

Ekki láta neinn komast upp með nauðgun.

Bestu Kveðjur,
Svabbi


[ 1 ]
  Djöfull var gaman í gærkvöldi
YARGH!!! Það var sjúklega gaman í gærkvöldi!
Hljómsveitin Hraun byrjaði svolítið skrykkjótt, en svo kom þetta allt saman með kalda vatninu, og áður en spileríinu lauk voru fimm svissneskir hommar búnir að lofa okkur "öllu fögru" ef við héldum áfram að spila.
Ég elska að spila á Nelly's
Það er tómt stuð!

Djöh...

Nema hvað, ég fékk útborgað í dag...
og ég átti inni ofboðslega mikinn skattafslátt...
Og ég fékk svakalega háa útborgun...
Og í fyrsta skipti ever, átti ég afgangs pening eftir að ég borgaði helstu skuldir...

YES!!!

Bestu Kveðjur,
Svavar Knútur


[ 0 ]
miðvikudagur, júlí 30, 2003
  SNILLLLLDDD!!!
Doktor Gunni hittir svo sannarlega naglann á höfuðið hér...

"Ef mannakjötslæri með tannaförum Sturlu Böðvarssonar fyndist í frystinum heima hjá honum myndi "íslenska umræðan" fara í gang: Illugi og leigubílstjórarnir alveg brjálaðir --> "fólkið í landinu" voða reitt í smá tíma --> Pétur Blöndal kemur í Ísland í dag en segðist ekki vilja "ræða eintök efnisatriði" --> Gunnar Smári og Hannes Hólmsteinn munnhöggvast í Kastljósi --> fólk byrjar að vorkenna Sturlu og segir hann "aðeins mannlegan" --> Sturla kemur framan á DV og segir að hann sé sár yfir þessum "atgangi fjölmiðla" en ætlar að taka "pusið í hnakkann" --> einhver leikari er Sturla í Skaupinu veifandi kjötlæri og rífandi það í sig --> Sturla fær sendiherrastöðu í Albaníu."

Ég beygi mig í duftið fyrir Dr. Gunna um leið og ég lýsi yfir sorg minni yfir því að vera aldrei boðið að spila með þeim á innipúkanum... bara af því að ég er ekki frægur indí öndergránd hipster sem hangir á sirkus öll kvöld... hnuss... ;-)

Annars vísa ég bara í færsluna hér fyrir neðan til að skýra mínar ferðir...

Bestu Kveðjur,
Svavar Knútur


[ 0 ]
  Framundan og planið fyrir verslunarmannahelgi...
Í kvöld, miðvikudagskvöld kl. 22:00, mun hljómsveitin Hraun leika á Nelly's.

Braga Skafta hefur tekist að hreinsa staðinn út, svo nú er þetta allt hið huggulegasta og engir djö... rónar úti um allt.
Bjórinn er enn ódýr, en bara ekki eins ódýr og hann var...
Hann er samt góður...

En hljómsveitin Hraun mun sumsagt leika gleðilög sín á Nelly's í kvöld og munum við vonandi verða hinir gleðilegustu...

Nema hvað?

En um Verslunarmannahelgina ætla ég að fara norður í Skagafjörð, nánar tiltekið á Skálá í Skagafirði og slaka á og skemmta mér með góðum vinum.
Allir eru velkomnir að tjalda í túninu (samt ekki brjálaðir unglingar með ofbeldiskomplexa...), nóg pláss og heví flottur pöbb með gistiaðstöðu einungis tvo kílómetra í burtu... (Sölvabar...)
Útihátíðin Svabbstokk verður sumsagt fámennasta útihátíð landsins og verður boðið upp á fjallgöngu og berjamó auk garðstarfa og mykjumoksturs Svabbans...
Svo væri gaman að kíkja örstutt á Sigló og jafnvel að fara á ball með Hljómum...
Ég ætla loksins að muna að taka með bjór...

En nóg um það... Ég hlakka til að sjá sem flesta í kvöld. YIIHAAAA!!!

Bestu Kveðjur,
Svavar Knútur


[ 0 ]
þriðjudagur, júlí 29, 2003
  Fokkt öpp
Mér finnst fólk vera fokkt öpp!
Að hneykslast á spenamyndinni í Mogganum á föstudaginn finnst mér bera vitni um svo mikla forheimskun að það hálfa væri nóg.
Ef fólk er það fokkt öpp í hausnum að það sjái klám út úr saklausri sveitamynd þarf það nauðsynlega að endurskoða höfuðið á sér og athuga hversu mettað það er af klámi.
Komm On!!!
Ef ég myndi setja hér á vefinn mynd af litlu stelpunni minni, henni Dagbjörtu, á nærbuxunum eða á sundbol, myndi sama fólk væntanlega hlaupa upp til handa og fóta og kalla mig barnaníðing eða barnaklámhund.

Svona til að gefa viðkomandi fólki smá vísbendingu:
Ef þið sjáið samhengið, þá er það allt í lagi, það þýðir bara að heilinn er að tengja á milli hluta. Auðvitað er þetta hvítur vökvi að sprautast upp í andlit. En það er eins langt og það nær! Þeir sem taka þetta lengra eru orðnir of klámvæddir í hugsun og þurfa að taka sér tak. Minnir mig á svona gamla dónakalla sem spila vasabilljard á einhverjum garðbekk yfir því hvað allir eru "saurugir, saurugir segi ég!!! Dónastelpa!!! Dó-Hó-nastelpa!!!"

Þessi mynd var birt í Mogganum án þess að nokkrum manni þar dytti í hug barnaklám.
Það ber vott um heilbrigt siðferði.
Fólk sem sér klám út úr þessu og hneykslast á því er ekki heilbrigt.

Bestu Kveðjur,
Svavar Knútur Kristinsson
Heimspekingur


[ 4 ]
  Stofnanavæðing...
Fólk talar gjarnan um stofnanavæðingu þegar starfsfólk fyrirtækja og stofnana fara að líta svo á að það sé ekki að veita þjónustu heldur að gera fólki greiða með því að taka sér tíma til að horfa í áttina að því. Meginmarkmið fólks er að vernda stofnunina sem það vinnur fyrir og beygir allan sannleik að því markmiði.
Það er líka talað um stofnanavæðingu þegar allt verður hægara og sírópskenndara og öll ákvarðanataka og framkvæmdir verða skriffinskuvæddar og á endanum geðþóttaákvarðanir æðstu yfirmanna og hluti af innanhússpólítík fyrirtækja og stofnana.

Mér sýnist það sama eiga við um Ríkisstjórn Íslands. Auðvitað er seinni punkturinn augljós, en sá fyrri finnst mér mun alvarlegri. Björn Bjarnason, sem gagnrýndi ríkisstjórnina harðlega þegar Falun Gong liðar mótmæltu og voru hnepptir í varðhald og vísað frá landinu, er allt í einu orðinn einn helsti varðhundur þeirrar ákvörðunar.
Engin ákvörðun sem ríkisstjórnin tekur er umdeilanleg, eins og í klerkaveldi (Vatíkaninu/Teheran/Norður-Kóreu) eru allar aðgerðir ríkisstjórnarinnar hafnar yfir gagnrýni og allir sem gagnrýna þær eru vanvitar ellegar vinna af óheilindum og af illum ásetningi.

Það er alvarlegt mál þegar markmið ríkisstjórnar snúast í raun um þann tilgang einan að réttlæta eigin tilveru og festa hana í sessi

Bestu Kveðjur,
Svavar Knútur


[ 0 ]
mánudagur, júlí 28, 2003
  Heimskuleg Rök
Að halda því fram að her sé nauðsynlegur til að berjast gegn hryðjuverkum er eins og að halda því fram að byssur séu nauðsynlegar til að hindra einelti.
Herir eru í eðli sínu "confrontational" fyrirbæri. Þeir snúast um það að mæta óvini á vígvelli og yfirbuga hann í orrustu.
Ofbeldið sem felst í hryðjuverkum er ekki "confrontational". Hryðjuverkamaðurinn forðast átök eins og heitan eldinn, þangað til hann kemst að marki sínu. Karíus og Baktus réðust ekki á Jens í gegnum húðina eða hársvörðinn. Nei, þeir komu inn þar sem ónæmiskerfið er veikast, þar sem enginn her þrífst, í munninum. Hryðjuverk eru afurð hernaðarstefnu og kúgunar. Hervæðing er olía á eld hryðjuverka. Ákveðni íslenskra yfirvalda í því að hafa hér her er kannski vísbending um slæma samvisku þeirra gagnvart fórnarlömbum heimsins. Kannski sjá þeir ógnina í hverju horni vegna þess að þeir vita upp á sig sökina.
Ofsóknarkennd þess sem fremur, eða aðstoðar við grimmdarverk er áunnin og verðskulduð.
Herlaust land með öruggan varnarsáttmála við grannríki sín er vel sett, og enginn ribbaldahópur gæti tekið Ísland og haldið því svo lengi að nokkur skaði gæti skeð áður en varnarlið væri komið frá nágrönnum okkar.

Af hverju ræktum við ekki hinn raunverulega "her" Íslands, Björgunarsveitirnar.
Íslendingar búa yfir einum bestu björgunarsveitum heims. Okkar framlag til varnarsamstarfs Nató gæti falist í þjálfun björgunarsveita og aðstoð við rústabjörgun og fleira. Þekking Íslendinga á björgunarstarfi er gríðarleg og hana má ekki vanmeta. Af hverju kíkja menn ekki á það þegar leitað er að varnarsveitum Íslands?

Látum Ísland vera í fararbroddi í björgun mannslífa, ekki eyðingu þeirra.

Svavar Knútur


[ 12 ]
sunnudagur, júlí 27, 2003
  Her??? Íslenskan her?!?!?!?
Ég held að Björn Bjarnason og vinir hans búi ekki alveg í sama veruleika og við ef þeir halda að Al Quaeda ætli að fljúga farþegaflugvél á Hús Verslunarinnar...
Bjössi og kó eru enn á fullu að sjá gulu og rauðu hættuna í öllum hornum. Hingað gætu komið brjálaðir bandítar og málaliðar sem sæju sér skjótfenginn gróða í fiskinum, ferðaþjónustunni og nýtingu jarðvarma. Hey! Jú! auðvitað! Álverið!!! Þá gæti langað til þess að stela álinu okkar... auðvitað!!!

Þessir menn eru gersamlega ósamkvæmir sjálfum sér. Björn treystir gamla góða BNA á allan hátt betur en Evrópu, en hvað gerist þegar hernaðarsérfræðingar BNA segjast treysta sér til að verja landið án þess að hafa standpínustöð hér, sérstaklega þar sem við erum vernduð af sáttmála Nató? Nei, þá eru Bandaríkjamenn allt í einu orðnir vitlausir. Því þeir hafa ekki séð eins margar hermyndir og BB. Þeir kunna ekki að meta þá gríðarlegu hættu sem að okkar moldríka og valdamikla landi steðjar. "sko, ég er búinn að sjá Die another day, og það eru sko demantanámur á Vatnajökli!!! Haldiði að terroristarnir vilji ekki taka þær? ha?"

Hálfvitar!

Eina ógnin sem ég sé er ógnin sem steðjar að okkur þegar Bandaríkin loksins falla saman eins og illa bökuð ostakaka og öll önnur heimsveldi í sögunni. Þá gerist hið óhjákvæmilega, eins og í hverju öðru fangelsi verður litli jábróðirinn tekinn í rassgatið. Það verða örlög Íslendinga. Fyrir að vera skilyrðislausir jábræður BNA og kinka kolli við öllum þeirra stríðsglæpum og viðurstyggilegri hegðun, verðum við teknir í rassgatið af reiðum barbörum þegar þau falla, en ekki fyrr. Litli jábróðirinn er alltaf fyrstur til að fá í bossann í fangelsinu þegar stóri bróðir hans fellur.

Í landi þar sem ekki eru til peningar til að halda uppi mannsæmandi menntakerfi og félagslegum stuðningi poppa allt í einu upp 24 milljarðar á ári til að henda í skrúðsýningar og byssó fyrir ofvaxna stuttbuxnadrengi... Furðulegt!

Orðusjúkir smáborgarar!

Bestu Kveðjur,
Svavar Knútur Kristinsson


[ 5 ]
  Aðeins of afslöppuð helgi...
Ég er búinn að vera aðeins of afslappaður þessa helgi... búinn að liggja í rúminu og gera algerlega ekki neitt...

Urg!

Vantar smá stefnu!!!

Koma svo! Koma Svo!!!

Never mind... :)
Ég þurfti á þessari hvíld að halda...
Nú er ég farinn upp á Mogga að gera mitt sjitt...
Jeeee!!!

Drulla...

Bestu Kveðjur,
Svabbi sæti


[ 0 ]
föstudagur, júlí 25, 2003
  Tom Tomorrow segir tíðindi
Er þetta fokkt öpp eða hvað?
dísuss kræst!

Er ekki allt í lagi hjá þessu fólki?!?!?

Hey, stofnum her maður! Fáum alla geldu gæslutöffarana og misheppnuðu björgunarsveitalúðana og gerum þá að offisérum, sargjentum, lautinöntum og majórum. Gefum Birni Bjarna Korða og flottar orður í brjóstvasann, svo hann geti barist betur gegn heimssamsæri kommúnismans...

Þetta fólk er klikk! Það er ekki að berjast fyrir neinu frelsi, það lifir bara í einhverjum brjáluðum ofsóknarbrjálæðisheimi!

Sikk fokks!

Svabbi


[ 1 ]
fimmtudagur, júlí 24, 2003
  Fyndnasti weebl and bob þáttur hingað til
ROFL... Ég er búinn að horfa á þennan þátt hundrað sinnum og ég hlæ ennþá jafn mikið!!!
HAHAHAHAHA!

Ég elska þessa gæja sem eru að gera þessa þætti...

Svabbi


[ 2 ]
þriðjudagur, júlí 22, 2003
  Ekkert sumarfrí, enn einu sinni...
Ég hef aldrei fengið sumarfrí... ekki síðan ég var 12 ára...
það væri fínt að fá nokkra daga til að slaka á í sólinni... eða rigningunni... eða bara að vita að ég þyrfti ekki neitt að drífa mig aftur í vinnuna einu sinni...

Akkúrat núna eru áhyggjur mínar samt aðrar...
Ég er ekki kominn með vinnu fyrir veturinn, sé fram á enn einn harkveturinn með stöku frílansi og fylgjandi óreglu, yfirdrætti og hreyfingarskorti...

Einhverjar tillögur?
...

Ég er svolítið dán núna, niðurdreginn, peningalaus og líður eins og ég sé ekki að ná neinum árangri í lífinu.

Svo bætir ekki úr skák að ég er svangur...

Þetta lúkkar ekki eins og byrjun á góðum degi...

Bestu Kveðjur,
Svabbi


[ 6 ]
mánudagur, júlí 21, 2003
  Frábær helgi!!!
Drullubrilljant helgi maður!!! :)
Vann ógeðslega mikið, fór á kostum ásamt Moonboots á Gauknum og vann svo aftur ógeðslega mikið eftir fimm tíma svefn... Þar af svaf ég klukkutíma úti í garði í góða veðrinu á sunnudagsmorgun...
úúúgggghhh....
Djöfull var það gott!!!
Það var líka suddagrúv að hafa Óla á Bassa, enda er hann bassahundur dauðans!
Gítarhljómborðsgleði mín skemmdi heldur ekki fyrir... :-) Þó illa hefði verið spilað var spilað af ánægju og hamingju...

Svo hitti ég einhverja leiðinlega stelpu fyrir utan Gaukinn í pásu og hún sagði eitthvað ljótt við mig um að ég væri ljótur og feitur, og þá sagði ég henni að troða kúrbít upp í píkuna á sér, því það væri það stærsta sem hún fengi í nótt "og skíttu í píkuna á þér krakkhóran þín!!!" sagði ég með bros á vör... :-) Tíhíhíhí...

Bestu kveðjur,
Svabbi sæti


[ 2 ]
laugardagur, júlí 19, 2003
  Stuð! Stuð! Stuuuð!!!
Þú! Koma! Í Kvöld!!!
Gaukurinn! Moonboots!
Spila Gaman 80's tónlist!!!

Mikið gaman!!!
Allir koma!!!

Bestu Kveðjur,
Svalli Túrbó

...


!!!!!!!!


[ 0 ]
föstudagur, júlí 18, 2003
  Skrýtinn Draumur...
Mig dreymdi furðulegan draum í nótt...
Hljómsveitarmeðlimir Moonboots stóðu á strönd um sumarkvöld og spjölluðu saman.
Þá kom aðvífandi grænn Volkswagen Rúgbrauð, og ég sneri mér við og sá að þetta voru Harry Klein og Stefan Derrick holdi klæddir.
Ég hnippti í strákana og Helgi trommari fékk flog af gleði við að sjá átrúnaðargoð sitt Horst Tappert, mættan á svæðið.
Nema hvað, þeir buðu okkur í partý í einhverju félagsheimili þar sem við spiluðum fyrir dansi.
Í partýinu hittum við konu Horst Tappert, tæplega fimmtuga þokkagyðju sem lét okkur alla standa gapandi með kynorku sinni.
Við vorum ekkert nema sólheimaglottin...

Tappert fór eitthvert fullur og Helgi í humátt á eftir, spyrjandi hann alls kyns spurninga um menn og málefni og efnisatriði í Derrick þáttum.

Þá fór frú Tappert að gerast nokkuð grínaktug og fjölþreifin og daðraði við hljómsveitarmeðlimi. (en þó mest við mig...)
Það var frábært, því hún var á toppi kynorkunnar og kyngikrafturinn var allur til staðar.
Hitna fór í kolunum og bráðlega einangraði frú Tappert daður sitt algerlega við mig, sem fór mjög mjög mjög í taugarnar á ónefndum Bassaleikara sem fylltist afbrýði og lét öllum illum látum. Frú Tappert dró mig þá með sér á "afviknari stað" þar sem bassaleikarar sjá ekki til...

Allan tímann endurtók ég í sífellu "Wie ein Traum... Wie ein Traum..."

Þetta var súr draumur og virkilega fyndinn... :)

Í öðrum og alls óskyldum fréttum... Hljómsveitin Hraun brilleraði á Nelly's í gærkvöldi og vakti mikinn fögnuð gesta, þrátt fyrir mikla þreytu aðalsöngvarans, sem sór að gera svona aldrei aftur... :)
Bestu Kveðjur,
Svabbi sæti


[ 4 ]
miðvikudagur, júlí 16, 2003
  Framundan...
Nú ætla ég að vera geðveikt duglegur og púlla tvöfaldar vaktir á Mogganum næstu tvo daga, en um leið ætla ég að halda tónleika á fimmtudagskvöldið... Húrra fyrir mér! :)

Allir sem nenna mega mæta á Nelly's á fimmtudagskvöldið, þar sem hljómsveitin Hraun leikur frumsamið efni í bland við djamm...

Svo er einnig framundan Gaukur á Laugardagskvöldið! :) ALLIR AÐ MÆTA ÞANGAÐ!
Það verður enginn Helv. Gestalisti!
Fólk verður bara að gjöra svo vel að vera gott við okkur og borga sig inn svo við komum ekki út í mínus... :-/

Nema hvað! Ég verð á hljómborð á Laugardagskvöldið, nánar tiltekið Keytar, vegna þess að Snorri er úti í Útlöndum að vera fyndinn og Óli tekur bassann...

Súrt, en skemmtilegt :)

Bestu Kveðjur,
Svabbi


[ 3 ]
þriðjudagur, júlí 15, 2003
  Einn af mínum uppáhalds textum í lífinu
Let's Save Tony Orlando's House

We proudly welcome Tony Orlando
The state fair marquee reads
Inside a thousand people with yellow ribbons sing
and clap on one and three

Watch him burn
He's dropping to his knees
Watch him burn
A medley: hits from Grease
Watch him burn
He never fails to please

Meanwhile in Taho outside Casa Tony
Wetting rags in gasoline
A jealous Frankie Valli says
"Dawn, I want you back"
Lights a match and counts to 3

Watch it burn
Reluctantly he leaves
Watch it burn
Acrid smoke making him wheeze
Watch it burn
Humming "Sherry" splits the scene

Watch it burn
reluctantly he leaves
Watch it burn
Acrid smoke making him wheeze
Watch it burn
Humming "Sherry" splits the scene

We're sorry to inform you
Tony Orlando has been postponed

mmmmmm :)
Þetta er yndislegur texti við yndislegt lag.
Ég dýrka Yo La Tengo.

sérstaklega frasinn um þúsund manns með gula borða sem klappa á einum og þremur...

Bara satt, bara Best! :)

Bestu Kveðjur,
Svabbi


[ 0 ]
  Í dag mælir Herra Svavar með...
... Neðri leiðara Morgunblaðsins: Þar tekur Morgunblaðið undir almannaróm á óvæntan og ánægjulegan hátt.
... Bakþönkum fréttablaðsins: Vel fjallað um "veisluna" á Miðnesheiði.

... Því að vera þakklátur og glaður og nálgast hvern dag af æðruleysi og skynsemi.
... Því að einfalda líf sitt, minnka óþarfann og leita að leiðum til að fækka áreitum hversdagsins til að gera manni auðveldara fyrir að takast á við raunverulegar áskoranir lífsins.


Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 0 ]
mánudagur, júlí 14, 2003
  Helgi Ástarinnar...
Þetta var rosaleg helgi...
Fyrst var farið í Sandgerði í Partý sem endaði í Keflavík á einhverjum þeim þrumaðasta suddablús sem ég hef nokkurn tíma tekið þátt í...
Svo daginn eftir var brunað norður í Arnarstapa, þar sem hljómsveitin Hraun skemmti starfsmönnum ÍTR fram eftir nóttu og gerði virkilega góða hluti... Djöfull er gaman að syngja og spila! ... Nema þegar eitthvað fullt fólk er að detta á mann og á míkrófóninn og á hátalarana og velta öllu um koll og fikta í mixernum... Þá er ekki eins gaman... En samt :-) Stuð engu að síður!

Sunnudagur... þreyttur, keyra til baka... vinna aðeins á Mogganum...
Í dag má sjá myndir sem ég tók fyrir fólk í fréttum á síðu 28.

Þreyttur núna...

Bestu Kveðjur,
Svalli sæti


[ 1 ]
föstudagur, júlí 11, 2003
  Diksón Mófó
Óje, ég er diksón í dag...
Algjör Diksón...

Gaman að sjá myndina mína komna á vefinn hjá honum Hauki....

Nema hvað... ég er farinn að hlakka feitt til þess að spila á Arnarstapa annað kvöld! :) YIHA!!!
Ég elska að spila í partýum til að gleðja fólk...
Júbbí Skúbbí...

Aaaahhh...
Svo er búið að biðja Hraun um að spila næsta fimmtudagskvöld á Nelly's, því Nelly's er að taka sér breytingar og breyta stemningunni á virkum dögum. Bragi Skafta er búinn að taka við ýmsum reipum þar og er að vinna í því að breyta Nelly's úr subbustað yfir í menningarflórudæmið sem hann átti alltaf að vera.
Maður ætti kannski að rabba við Hraunmenn og spyrja hvort þeir hafi tíma... ;)

Svabbi

Húrra fyrir því...


[ 0 ]
miðvikudagur, júlí 09, 2003
  Dedsón sökkit!!!
Fokk!!! hvað ég er dauður í hausnum núna...

NEMA HVAÐ!?!?!?
Über partý hljómsveitin Hraun er að fara að spila á Arnarstapa fyrir Partý hjá ÍTR!!!

STUUUUÐÐÐÐ!!!
Gaman að spila í partýi.

Svabbi ánægður!

En nú langar mig að fara heim að knúsa konuna mína...

Bestu Kveðjur,
Svavar Knútur


[ 0 ]
þriðjudagur, júlí 08, 2003
  Í framhaldi af síðasta bloggi
Kannski viðkomandi svari trauðla póstinum mínum af því að ég set alltaf eftirfarandi setningar í subject línuna:

Been wanting to meet you:
Only for you!
Greetings from DR. OLIJUBA KWONONGA - confidential business proposition!
AT LAST! Enlarge your penis without surgery!
Hot asian beauty waiting for you to visit.

og síðast en ekki síst:
FW: FW: FW: FW: FW: FW: FW: Þú trúir þessu ekki! Microsoft eru að borga manni fyrir að áframsenda tölvupóst!!!

;)

Svabbi


[ 2 ]
  Sumir svara ekki póstinum sínum...
Sumir... ég nefni engin nöfn... eru greinilega eitthvað smeykir við að svara póstinum sem maður sendir þeim.
Aldeilis að maður á gott frændfólk...
Hnuss...
Maður er að reyna að teygja sig út til fólks og vera góður og vinalegur og hvað fær maður... kalda öxl og silent treatment...

Ennþá leiðinlegra fyrir þá staðreynd að manni þykir nokkuð vænt um viðkomandi og langar bara að heyra í þeim...

En jæja...
Ég get ekki neytt suma til að svara póstinum sínum og vera í bandi...

Svo ég vitni í Andrés Önd:
Suk...
Dyyyyybeste Suk...

:)

Svabbi sæti en leiði... (samt ekkert voðalega leiði af því að lífið er svo gott við hann yfirleitt... til dæmis þegar hann fær góðan mexíkóskan mat... mmmmmm... mexíkóskur matur... og kjúklingarétturinn hennar Pálínu... mmmmm kjúklingarétturinn.... mmmmmmm...)
*RYMJ!*


[ 3 ]
  Hryggbrotinn félagi
Jói Rækja, velunnari hljómsveitanna Moonboots og Kaffis hryggbraut sig við áhættuatriði á dansgólfinu í Njálsbúð um Helgina.
Hann féll aftur fyrir sig þrjá metra niður og skall á bakinu og gat sig síðan hvergi hreyft.
Sem betur fer fór mænan ekki í sundur á stráknum og hann mun væntanlega ná 99% bata á næstu mánuðum með aðstoð verkjalyfja og spelka.
Í gær fórum við Helgi í heimsókn til hans með innrammaða mynd sem ég tók af honum í Njálsbúð.
við komum líka með svona Get Well kort sem við skrifuðum inn í:

Hann er hryggbrotinn í dag...
Hann er hryggbrotinn í dag...
Hann er hryggbrotinn í dag hann Jóiiiii...
Hann er hryggbrotinn í dag...


Hann tók því furðu vel :) Kallaði okkur hálfvita, en í mjög jákvæðum tóni...
Svo komu fullt af vinum hans og ættingjum og við Helgi kvöddum strákinn.

Mér þykir vænt um Jóa Rækju.

Bestu Kveðjur,
Svabbi


[ 0 ]
mánudagur, júlí 07, 2003
  Lélegasta Bond Myndin
Die another day er tvímælalaust lélegasta Bond mynd sem ég hef nokkurn tíma leyft augum mínum að bera vitni.
ÚFF!!!
Ég held að ömurlegri ræma þekkist ekki (miðað við væntingar sem maður gerir til Bondmynda...)
Sökk!!! Sökk!!! Sökk!!!
Þessi mynd átti sér enga réttlætandi hlið.
Halle Berry sökkaði meira að segja biggtæm...
Bestu Kveðjur,
Svabbi sæti
...vonsvikinn með ömurlega bíómynd.


[ 5 ]
sunnudagur, júlí 06, 2003
  Að lokinni helgi...
Sit á Mogganum og skrifa fréttir helgarinnar...
Helvítis Aksjón maður!
Spiluðum tvö gríðarleg rokkgigg fyrir Sniglana um helgina. Það var mega!
Fullt af gleði og hamingju, ógeðslega þreyttur...
Jói "rækja" hryggbrotnaði í djörfum dansi og var ferjaður á spítala...
Greyið kallinn...
En það er allt í lagi, mænan er ósködduð og hann verður kominn aftur á ról með spelkur um hrygginn bráðlega...

Úff!

Bestu Kveðjur,
Svabbi


[ 0 ]
fimmtudagur, júlí 03, 2003
  Vondu, veiku, viðbjóðslegu súlustaðakallarnir
Það eru allir að koxa á því hvað allir eigi bágt!
Greyið súlukonurnar eiga bágt að greyið vondu veiku súlustaðapervertarnir eiga svo bágt að vilja sjá þær. Greyið allir að eiga svona mikið bágt.

Katrín Anna skrifar á Feministapóstlistann: "Ástæðurnar á bak við sókn í svona staði geta verið margvíslegar. Að hluta til tel ég ástæðuna vera þennan endalausa þrýsting á karlmenn að þeir séu ekki menn með mönnum nema þeir séu "sjúkir" í klám, myndir af berum stelpum og súludans. Markviss markaðssetning á því viðhorfi að karlmenn séu ekki kynverur ef þeir eru á móti klámi, á móti súlustöðum og á móti vændi held ég að útskýri að hluta til sókn í þessa staði. Ég treysti því samt að margir af karlmönnunum sem láta undan þeim þrýstingi upplifi samt niðurlæginguna sem fylgir þessu. Ég trúi því að þeir finni það innst inn hjá sér að það sem þeir eru að gera er ekki rétt, hvorki sjálfrar þeirra vegna né annarra (hvort sem það er maki, systir, móðir eða kona sem vinnur á svona stað)."

Hmm... Af hverju er sjálfkrafa ályktað að þeir sem finnst gaman að því að horfa á naktar konur dilla sér séu veikir eða brjóstumkennanlegir eða "sjúkir" eða á einhvern hátt til þess neyddir af samfélaginu? Persónulega finnst mér fátt skemmtilegra en að sjá sætar stelpur dilla sér, hvort sem þær eru í fötum eða ekki... Mér finnst gaman að finna kynhormónana flengjast um allan kroppinn og fá andlega og líkamlega standpínu og uppveðrast allur af greddu og gleði. (Samt leita ég ekki sjálfur á svona staði, læt mér nægja stelpurnar sem tjútta fyrir mig þegar ég spila eða þegar ég er heima... ;)
Fyrir sumum er það að horfa á naktar stelpur dilla sér engin meðvituð kúgun eða sjúkleiki eða "þrýstingur samfélagsins." Þá langar bara til að sjá naktar stelpur dilla sér. voða einfalt. Sumar stelpur eru meira að segja svo "klikkaðar" að þeim þykir bara ekkert að því að dilla sér fyrir framan karla, konur og pör fyrir pening. (Sjálfur er ég alltaf að dilla mér fyrir framan fólk með hljómsveitinni og stundum grípa stelpur í kynfærin á mér, mér finnst það leiðinlegt, en ég er ekki að álykta það að allar stelpur séu eins og þær.)
Sumir eru bara ekkert að velta sér upp úr kúgun. Eins og börn gera ekki greinarmun á svörtum og hvítum af því þau eru enn saklaus er það furðuleg hugmynd, en kannski nokkuð til í henni, að sumir einstaklingar eru svo saklausir að þeim finnst bara engin kúgun eða sýki í því falin að vilja horfa á fólk dilla sér, eða dilla sér fyrir framan það. Ég þekki til dæmis nokkur pör sem fara saman á svona staði til að breyta til í kynlífinu og hita sig upp fyrir kvöldið. Þau líta á stripparana sem skemmtilega viðbót við skynræna örvun sína.

Ætli það hafi einhvern tíma flogið í huga reiða fólksins?

Sjálfur styð ég feminista heilshugar í baráttunni fyrir jafnrétti og er sjálfur óttalegur femmi inni við beinið, en ég held að við getum ekki alhæft um hvorki strippara né "strippneytendur." Auðvitað eiga sumir stripparar og strippneytendur við vandamál að stríða, en við megum ekki fordæma allt liðið vegna þess.

Og svona rétt til að loka...
Hvað finnst feministum um karlmenn sem strippa og konurnar sem öskra á þá og elska og dýrka og breima og verða alveg brjálaðar á einhverjum konukvöldum úti í bæ? Er það í lagi? Er karlmaðurinn seldur man(n)sali og líkami hans verslunarvara?

Er líkaminn verslunarvara í eggjandi dansi eða er líkaminn einungis tæki sem notað er til að búa til verslunarvöru (eggjandi dansinn) eins og líkami minn er ekki verslunarvara þegar ég syng, heldur verkfæri til að framleiða söng og tónlist?
Þó einhverjar stelpuskjátur séu að klípa í mig öðru hvoru, þá lít ég ekki svo á að ég sé að selja líkama minn á sviðinu. Ég er að selja hæfileika mína.
Það tekur mig enginn nema ég vilji það. Fólk má dást að mér, hata mig, benda á mig og fordæma mig, en ég á enn líkama minn svo lengi sem ég leyfi engum að pota í mig eða nota mig kynferðislega. (ekki satt?)

Af hverju er verið að reyna að tala niður til fólks með því að vorkenna því og reyna að gera það að einhverjum aumingjum og greyjum?
Af hverju er sífellt reynt að gera bæði gesti og skemmtikrafta staðanna að minna fólki?

Bestu Kveðjur,
Svavar Knútur


[ 8 ]
  Snuð og annar óþarfi
Snuð hafa löngum talist til þarfaþinga til þess að róa lítil börn, en þau hafa einnig ókosti sem verða skýrari og skýrari eftir því sem tíminn líður.
Því er reynt að venja börn af notkun þessara óþörfu gúmmítútta sem fyrst og er það oftast háð þroska barnsins.
Nú reyna Bandaríkjamenn af sinni alkunnu fyrirhyggjusemi og góðu foreldraeðli að taka snuðið af Íslendingum. Og Íslendingar bregðast við eins og harmi slegið ofdekrað barn sem missir allt sitt á einni svipstundu. Davíð og Halldór Orga og grenja og leggjast í gólfið og berja höndunum við það öskrandi, svo konurnar í kjörbúðinni sem labba fram hjá segja: "Ósköp er þetta illa upp alið barn..."
Íslendingar eru athlægi heimsbyggðarinnar þegar þeir láta svona eins og smábörn og taka þessu eins og mannsmorði að þurfa ekki lengur að vera vitorðsmenn BNA í fjöldamorðum og valdamangi heimsins. Æi Æi Æi, nú erum við ekki eins merkilegir og við vorum með þoturnar okkar fjórar...

Það er sorglegt að horfa á menn á hnjánum eða liggjandi grenjandi í gólfinu af því að það er verið að taka af þeim snuðið...

Og síðan afsakar Forsætisráðherra hegðun sína með eftirfarandi pælingu: "En öll hin börnin á leikskólanum eru með snuð!!! Þess vegna getur enginn verið án Snuðs!!!" Þessari afsökun tek ég hjá dóttur minni, vegna þess að hún er smábarn... En hjá Davíð Oddssyni?
Já Davíð, fyrst allir aðrir eru að gera það, þá verðum við að gera það, því annars koma ze Germanz eða De rössjans og ráðast á okkur... stóri rauði björninn er enn að reiða sig til höggs, eða voru það eiturlyfjabarónar, eða voru það terroristar?

Terroristar ráðast bara á skotmörk þar sem þeir komast í fréttirnar á alþjóðavettvangi fyrir að ráðast á, og þau þurfa helst að vera tákn einhvers sem þeir hata...
Ættu þeir að ráðast á íslenska stjórnarráðið, Gamalt fangelsi, tákn aldalangrar kúgunar? Myndu þeir kannski ráðast á Hallgrímskirkju, stærstu kirkju á Íslandi en ekkert svo voðalega stóra miðað við allt annað? Kárahnjúkavirkjun?
Hvern andskotann ættu hryðjuverkamennirnir að vilja brjóta hér til að komast í heimsfréttirnar af einhverju viti? Og hvað hér, eftir að herinn færi, hefði nokkuð aðdráttarafl fyrir þá?

Eru það kannski geimverur sem Davíð er ekki að segja okkur frá, og hryðjuverkaógnin er bara rauð síld?

Æi Dabbi, hættu bara á snuðinu og reyndu að hegða þér eins og maður...

Bestu Kveðjur,
Svabbi


[ 4 ]
miðvikudagur, júlí 02, 2003
  Heimspeki Dagsins
Efnisleg gæði eru eins og skór.
Þú klæðir þig í eitt par og getur gengið og hlaupið hvert sem þú vilt.
Þú klæðir þig í tvö pör og þau eru strax farin að flækjast fyrir löppunum á þér.
...Sama hvað þetta eru flottir eða góðir skór...

Eins er það með auðæfi. Ef maður er fjárhagslega sjálfstæður og líður vel, þá hefur maður góð skilyrði fyrir persónulegum þroska, en undir eins og maður fer að keppast að því sem takmarki í sjálfu sér að ná efnislegum árangri, þá flækjast efnislegu gæðin fyrir raunverulegum þroska og hamingjuleit.

Hr. Svavar hefur talað...


[ 0 ]
þriðjudagur, júlí 01, 2003
  Búnað laga kommentakerfið
Húrra fyrir mér! Húrra fyrir Blogkomm!

Nú getið þið aftur kommentað, því ég lagaði kommentakerfið...
Heimsku Blogger að fara að nota 18 stafa tölur...
urg...

Bestu Kveðjur,
Svabbi sæti


[ 0 ]
  Lovestar
Hef ég sagt ykkur frá því hvað mér finnst Lovestar eftir Andra Snæ Magnason góð bók?
Ég las hana í síðasta Jólafríi, ásamt Greifanum af Monte Crisco og Harry Potter bókunum...
Brilljant saga!
Ég grét og hló til skiptis og hann Andri Snær náði gersamlega að leika sér með mig, hann dró mig með sér í dásamlega, blíða brjálsemi sína og sýndi mér pælingar sem voru gersamlega út úr kortinu en samt eitthvað svo æðislegar.

Mæli með Lovestar fyrir alla sem fíla skrýtnar vísindaskáldsögur.

Það er búið að færa mig um borð á Mogganum...
Ég sit nú við hliðina á Íþróttadeildinni...
Skjárinn í básnum við hliðina á mér er með svona þrívíddarbomsandi stöfum... Áfram HK...
Ég heyri menn tala um meiðsl... aðgerðir... fótbolta, leiki vikunnar...
Ég skil ekki...
fótbolti???
Meiðsl???
Íþróttir???

Ótrúlegt... Ég er kominn í einhverja fimmtu vídd freakologíunnar...

Bizarro city!

Bestu Kveðjur,
Svabbli


[ 4 ]
Virka þessi Drösl???