Þankatankurinn



Svavar Knútur
Kristinsson,

Félagsauðströll, heimspekingur, umhverfis-verndarsinni og tónlistarmaður.

Ímeilaðu
mig...

NÝTT!!!
Viltu fá
(eða hætta að fá)
tilkynningar
um tónleika
HRAUNS!,
eða Svavars Sjálfs?
Sláðu inn
netfangið hér:



This page is powered by Blogger. Isn't yours?




Hljómsveitin Hraun! veitir mér listræna útrás.

Hraun á Myspace

Sjálfurinn á Mæspeis

Nýjustu Demó:

Ease your mind (01.07.2006)

Dansa... (28.09.2005.)

Ástarsaga úr fjöllunum (Sumarið 2005)

Goodbye my lovely (19. júní 2005)

Kisa litla (Maí 2005)

Your love was death to me (Janúar 2005)

Call off your Cavalry (September 2004)

You should call a doctor (Maí 2004)

Kysstu tímaglasið (endurbætt útgáfa 2004)

Mother's day
( 2004)

Jólaplata Hrauns 2003: Þrautgóðir á Hraunarstund

Jólaplata Hrauns 2004: Kátt er um jólin

Partýplatan Partý!

Jólaplata Hrauns 2005: Höldum jól

Jólaplata Hrauns 2006: Jólamolar



Latur myndasmiður, en engu að síður er hér að finna eitthvað efni...

Molar...


 
föstudagur, ágúst 29, 2003
  Það dugar ekki að gráta í Góðærinu
:)
Ég er bara nokkuð hress krakkar mínir...
"Af hverju?" gætuð þið spurt...

Og ég gæti svarað, ég er kominn með þessa fínu aukavinnu í vetur og ef ég næ að nörla inn smá peningum í viðbót er vetrinum reddað! Jibbí Kóla!!! :)

www.frettir.com er orðinn uppáhaldsfréttamiðillinn minn...

Bestu Kveðjur,
Svabbi


[ 2 ]
fimmtudagur, ágúst 28, 2003
  Latur Eymingi...
Ég svo latur... ég vinna mikið, en samt svolítið latur.

Það var virkilega gaman að spila í Gærkvöldi, þó gítarinn hafi verið suddalega falskur og alltaf dettandi úr tjúni...

Djö...

Nema hvað, leikskólatrúbadoraprójektið virðist ætla að virka! Frábært!!!
Fullt af leikskólastjórum búnir að hringja og sýna þessu áhuga! :)
Svabbi verður á grænni grein í sumar... Jibbí Kóla!!!
Og sem fyrr kann ég ekki að semja um kaup og kjör...

En þar að auki verð ég á sunnudögum á Mogganum í vetur, fjórði maður á sunnudagsvaktinni og svoleiðis...
Ég kvíði engu...

Bestu Kveðjur,
Svavar Knútur


[ 0 ]
þriðjudagur, ágúst 26, 2003
  Miði á foo fighters...
Jæja gott fólk...

Ég ætlaði að kaupa tvo miða á foo fighters, en fékk bara einn...
Ég vil ekki skilja frúna eftir heima, hún fílar foo...
Nú neyðist ég til þess að selja þennan eina...
The bidding starts now...

Bestu kveðjur,
Svavar


[ 3 ]
mánudagur, ágúst 25, 2003
  Íslenskir ráðamenn hálfvitar að vanda...
Djísuss...
Einar K. Guðfinnsson skilur bara ekkert í því að breskur ráðherra sé ekki hoppandi af kæti yfir hvalveiðunum...
Íslensk stjórnvöld botna bara ekkert í þeim barnaskap að sumir séu á móti hvalveiðum... þetta er með ólíkindum ha?

RÁÐHERRA A: Hey, hefjum hvalveiðar í vísindaskyni að nýju! Það mun falla í kramið hjá öllum og við verjum þær með því að segja í erlendum fjölmiðlum að andstæðingar hvalveiða séu bara hálfvitar sem ekkert viti...

RÁÐHERRA B: Einmitt! Nákvæmlega! Þau munu öll elska okkur og virða!

Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 9 ]
  Prumpað á mann bara...
Sædólgur er fínt orð!!!
Sæfari mæ es...

Flugdólgur er nógu gott fyrir þetta lið...
Af hverju ekki sædólgur...
Oh! :(

...;)

Bestu kveðjur,
Svabbi


[ 0 ]
fimmtudagur, ágúst 21, 2003
  Lag Dagsins...
Wolf among wolves
Will Oldham

She loves a soul
that I've never been
A dog among dogs,
a man among men.
And every day,
when I come home to her...

She holds a phantom,
she kisses and she hugs him.
And I am not
averse to how she loves him.
Why must I live and walk
unloved as what I am...

Why can't I be
loved as what I am
A wolf among wolves
but not as a man
among men

She craves a home
that she can go in
A sheltered cave
that I have never seen
Not in my life
and not even in my dreams.

Why can't I be
loved as what I am
A wolf among wolves
but not as a man
among men

...

Ég klökkna stundum þegar ég hlusta á þetta lag...

Svabbi


[ 4 ]
  Finnst einhverjum Sigmund fara yfir strikið í dag?
Ég var að lesa bls. 8 í mogganum í dag, og ég er vægast sagt undrandi á honum Sigmund okkar...
Sjitt...

Gæinn er að gefa öðrum gæja Anal Probe! Mein gott!!!

Ekkert smá grín ha?

Svo fylgir í dag morgunblaðinu skemmtilegt auglýsingablað sem ég veit ekki alveg hvaðan er að koma...
Skoðið síðuna með bílavörunum.
Sérstaklega langar mig í "Þjóvavörn með 5000 krónur afsslætti..."

og líka tútturnar á konunni...

Furðulegt...

Bestu kveðjur,
Svavar


[ 2 ]
  Sól, Sól skín á mig...
Jömmí...
Gott að sitja við opinn gluggann...
Spilaði með hljómsveitinni seven fucks í gær, var svona support gaur, spilaði á hljómborð og söng með... hálfgerður músíkpabbi...

...
ekki mikið æft... ekki mikil reynsla í gangi hjá sumum meðlimum...
...
Mjög ólík reynsla því sem ég á að venjast...

eh...

samt ágætt...

Heh, það minnir mig á helvíti flotta hugmynd sem Bragi var að fá, að ég verði músíkpabbi og hjálpi bílskúrsböndum að koma sér í spilafært form og koma fram...
...Fyrir pening? það væri gaman...

Bragi er klár...

Bestu Kveðjur,
Svavar Knútur


[ 1 ]
miðvikudagur, ágúst 20, 2003
  Gluggasæti ástarinnar
Ég elska að sitja við glugga á svona dögum...
Bjútífúl!
Hrein og klár dýrð!
Gott að sjá að það er að lifna yfir umræðunum á kommentakerfinu.

Það er hrikalega fyndið að sitja og horfa á fólkið hrúgast út úr Kópavogsstrætónum og rúlla niður grænu brekkuna hjá Moggahúsinu... Ferstk neytendakjöt í Kringluna.

Það er líka sérstaklega fyndið af því að það eru tröppur upp brekkuna, en ekki alla leið, þannig að það er að myndast svona kindastígur efst í brekkunni, þar sem neytendahjörðin fer yfir... Ég skal taka af þessu mynd...

Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 0 ]
þriðjudagur, ágúst 19, 2003
  Góður Dagur Hefst
Ég hef á tilfinningunni að þetta verði góður dagur.
Í gær rændi ég mér nýjum bás í Mogganum, í þetta skipti við glugga, með fullt af grasi við hliðina á mér.
mmmm...
Skemmtilegt fréttaefni í gangi og nóg af verkefnum framundan til að tækla.
Mér þykir óskaplega gaman að vera Blaðamaður.
Vildi að ég gæti gert það svolítið lengur en til enda sumars.
Svo er mér að batna í fætinum mínum.

Mál málanna eru hvalveiðarnar.
Af hverju gátu Íslendingar ekki drullað sér til að gera þetta aðeins meira ló prófæl. Ég er sjálfur ekkert sérstaklega andsnúinn því að drepa stöku hval, enda gerum við mennirnir verri hluti við heiminn á hverjum degi. En það ber að taka tillit til tilfinninga dýraverndunarsinna þó menn séu ekki sammála þeim. Þá er þetta spurning um að finna sársaukaminni leið til þess að koma þessu í framkvæmd.
Til dæmis má nefna að virkja smábátasjómenn með góða veiðiriffla og láta þá draga dýrin í land og selja Hafró fyrir einhverjar sporslur. (svona óopinbert samþykki, nokkurs konar "privateering"...)
Annars er maður bara nokkuð hress og er að hugsa um að finna mér einhverja sænskukennslu í vetur...

Endilega látiðmig vita ef þið fréttið af vinnu handa mér beibís.
Bestu Kveðjur,
Svavar Knútur


[ 14 ]
mánudagur, ágúst 18, 2003
  Atvinnuleysi menntafólks og ofdýrkun steinsteypunnar
Íslenskt menntafólk glímir nú við mikið atvinnuleysi og algengt er að rekast á fólk með B.A. eða masterspróf vinnandi við verslunarstörf eða á veitingastöðum og jafnvel í byggingavinnu.
Atvinnuleysi menntafólks mælist ekki í prósentum, þar sem það kýs að vinna vinnu sem það er "overqualified" fyrir, í stað þess að fara á atvinnuleysisbætur.
Ríkisstjórnin bregst við þessu með því að dæla meiri peningum í ál, malbik og steinsteypu. Húrra fyrir því!
Drögum fleira fólk út úr menntakerfinu og minnkum enn frekar áherslu okkar á atvinnusköpun fyrir hámenntað fólk. Trallalalala...
Ál og steinsteypa eru framfarir, skóli er bara fyrir aumingja...

Fyrr á öldum fjallaði ég lauslega um möguleika kolefnistrefja í smíði á bílum. Vissulega hafði ég þar líka í huga flugvélar, en nú hefur spádómur minn ræst.
Hvað ætli gerist með álverð þegar kemur í ljós að kolefnistrefjar eru mun ódýrara og hagkvæmara byggingarefni?
hmmm...
Spádómur minn var því miður ekki lengi að rætast...
Nú er bara að bíða eftir því að Kínverjar klári sína stíflu og byggi álverin sín... Kannski þeir verði skynsamari en við og noti orkuna til að búa til vetni? Kannski Kínverjar hafi skynsamlegri framtíðarsýn en við...
Gaman að þessu...
...I hate to say I told you so...
Bestu Kveðjur,
Herra Svavar


[ 0 ]
  Erfið en skemmtileg helgi...
Kæru lesendur,
það er orðið nokkuð langt síðan ég skrifaði síðast.
Ég vona að ykkur farnist vel og sérstaklega óska ég þeim Johnny og Nönnu til hamingju með hjónabandið og þakka fyrir góða veislu á laugardagskvöldið...

En ég ætla stuttlega að annála helgina fyrir ykkur...
föstudagur: Fór í bjórdrykkju með samblaðamönnum og nokkrum umbrotsmönnum á Kringlukrána. Fín stemning, en ég vara fólk við því að hjóla undir áhrifum, því slíkt kann ekki góðri lukku að stýra...

Laugardagur: Fór í alls konar maus, en aðallega í að mæta í brúðkaupsveislu Jóns Geirs og Nönnu. Heppnaðist hún gríðarlega vel, og sérstaklega langar mig til að þakka villisvepparisottoinu og humarspjótunum fyrir góðar samvistir.
...
...Drakk ótæpilega... en hélt þó höfði nokkuð vel...
...

Hljómsveitin Boðsmiði lék fyrir dansi en var Bassaleikaralaus, þannig að Hr. Svavar og Steini buðu sig fram í leikinn.
Fyrir hlé lék ég eins og brjálaður hreysiköttur á bassann og fékk feitustu blöðrur ævi minnar á puttana... Þá tók Steini bassi við og ég færði mig yfir á orgelið og átti feita Gospelorgel-jassmófóstund... Áfram ég!
Djöfull er gaman að vera hljómborðsleikari...
Svo spiluðum við eitthvað áfram á kassagítar og djamm og skröltum svo heim upp úr tvö... lélegur menningarnæturrúntur hjá mér, enda nennti ég ekki niður í bæ, konu minni til mikilla vonbrigða... (djöfull er ég boring...)

Sunnudagur:
Fór í smá rót og vesen, en ekki fyrr en ég var búinn að berja felgulykli í ökklakúluna á mér með tilheyrandi sársauka og kerlingarlegum veinum og kveinki.
Ennþá mjög bólginn og sár með blöðrur á puttunum og huge ass ökklakúlu.

urg...

Og nú hamra ég lyklaborðssambað einu sinni enn og hlusta á granddaddy og russendisko.

Heyri í ykkur fljótlega...
Svavar Knútur

p.s. Djöfulsins suddatilvistarkreppa!!! Ég er að upplifa stemningu klippta út úr einhverri fáránlegri finnsk-sænsk-þýsk-tyrkneskri þunglyndismynd.


[ 0 ]
fimmtudagur, ágúst 14, 2003
  Brönugrös færð... heimska???
Þessi frétt á mbl.is kveikir á einhverjum súrum heilastöðvum hjá mér...
minnir mig á það þegar sumt fólk af vissu kyni er með einhver plön og eitthvað gerist sem þýðir að aðeins þarf að breyta plönunum og fólkið af þessu kyni segir eitthvað eins og "Nei! Þú skilur ekki, við hendum bara burt öllu hinu, svo plönin okkar gangi eftir og ekkert annað skiptir máli..."

Væri ekki sniðugra að leita að betri lóð fyrir fangelsið og búa til fallegt og vel skipulagt útivistarsvæði í kringum brönugrösin? Eða er bara sniðugast að grafa upp 14 hektara af landi og færa á annan stað og hætta á að öll brönugrösin deyi þegar þau koma í aðstæður sem ekki það sem þau hafa aðlagast á hundruðum, jafnvel þúsundum ára?

Skrýtið fólk...

Svabbi


[ 0 ]
miðvikudagur, ágúst 13, 2003
  Í fyllstu auðmýkt tilkynnist...
Að hljómsveitin Hraun ætlar að spila á Nelly's í kvöld... Þið eruð öll boðin en enginn þarf að koma, enda vil ég síst af öllu vera uppáþrengjandi plöggari sem gerir ekkert annað en að röfla yfir því hvað hann er að spila mikið. :D
Verið Velkomin...
Við hefjum spilamennsku kl. 22:00 stundvíslega og það verður gaman...

Bestu kveðjur,
Svavar Knútur


[ 1 ]
þriðjudagur, ágúst 12, 2003
  Djö!!!
Ég reyni alltaf að vinna upp lager af fréttum fyrir daga sem ég vil komast snemma heim...
En nú er lítið um að vera, svo fréttastjórarnir eiga það til að fá lánaðar hjá mér fréttir...
Það er sosum allt í góðu, en pínu pirrandi þegar ég stend frammi fyrir heilsíðu til að fylla...
urg...

Ég elska samt starfið mitt og ber 180% virðingu fyrir fréttastjórunum, enda eru þeir (og þær) geðveikt fínir (og fínar...)

En það er samt hundpirrandi þegar maður er búinn að skrifa 70 lína frétt og hugsar sér gott til glóðarinnar með að sleppa einu sinni snemma... og svo kemur maður í vinnuna daginn eftir og les hana á síðu átta...
Þetta væri fínt ef þeir myndu bara láta mann vita, þá myndi ég vakna fyrr og fara í fréttaleit...

Bestu Kveðjur,
Svabbi

p.s. í öðrum málum... Astrud Gilberto er æðisleg...


[ 0 ]
mánudagur, ágúst 11, 2003
  Enn linkað á Muzakinn... :)
Þó Svansson hafi tekið mig út af linkunum sínum, er hann ekki hættur að hlekkja á skrif mín, eins og hér sést...

ahem...

Bestu Kveðjur,
Svavar Knútur


[ 0 ]
  Af hverju ættu DJarnir að eiga einkarétt á Danstónlist
Svabbi er með nýja hljómsveit í Bígerð.
Planið er að athuga óplægðan akur í tónlistarflutningi live tónlistarmanna á Íslandi.
Ég er kominn með trommara og bassaleikara og Gítarleikarinn er á leiðinni...

Hins vegar vantar mig núna snjallan hljómborðsleikara sem býr yfir blöndu af prófessjónalisma og skapandi listamanni í sér. Sumsagt, hljómborðsleikara sem getur pikkað upp lög virkilega hratt og er samt mjög skapandi hvað varðar sánd og sömpl og að taka þátt í að semja nýja tónlist.

Algjört skilyrði er að viðkomandi fíli Basement Jaxx, Daft Punk, Modjo, Supermen Lovers, Moloko, Faithless og þess háttar mússík...

Hey, og jú, old school Rapp væri líka vel þegið inni í tónlistarsmekk hljómbans...

Svavar er á tilraunaskeiði núna...
Langar að sjá hvað við getum gert...

Látið heyra í ykkur...

Bestu Kveðjur,
Svavar Knútur


[ 0 ]
sunnudagur, ágúst 10, 2003
  Glósur um bloggið
Ég fékk nýlega sendar þær glósur um bloggið mitt að það væri lítið annað en plögg fyrir hljómsveitarhappenings.
Ég fór því að lesa mitt eigið blogg og gerði litla talningu á tíðni mismunandi bloggtýpa síðustu vikuna eða svo...

Fréttir úr persónulegu lífi Svavars/Áform: 3
Frásagnir frá gærkvöldinu-blogg: 4
Tónleikaauglýsingablogg: 2
Skoðanir á málum/undirtektir á skoðunum: 5

Nokkuð dreift bara...

Auðvitað er bloggið mitt frekar jöfn blanda af því sem er að gerast í lífi mínu, fyrir utan það að ég fæ þessa dagana rosalega útrás fyrir að tækla málefni dagsins með því að skrifa um þau í Mogganum og diskútera þau við vinnufélaga.

Ég get ekki betur séð en að undanfarna viku hafi bloggið mitt ekki verið betra eða verra en annarra nafntogaðra bloggara, en sitt sýnist hverjum...

Bloggið endurspeglar í raun það sem er að gerast í mínu lífi þessa dagana og ég verð nú bara að segja að ég er gríðarlega ánægður með þá miklu tónlist sem er að gerast í lífi mínu og vildi bara óska að fleiri tækju mark á tónlistarplögginu og mættu á tónleika :o)
Það er nú einu sinni takmark tónlistarmannsins að reyna að koma tónlist sinni til fólks og ég tel bloggið vera einn af þeim punktum sem ég nota í téðum tilgangi.

Bestu Kveðjur,
Svavar


p.s. Ég upplifði mína fyrstu alvarlegu þynnku í gær... Takk samt fyrir kvöldið...
úff...


[ 1 ]
fimmtudagur, ágúst 07, 2003
  Að afliðnum Hrauntónleikum
Gærkvöldið var skemmtilegt.
Við spiluðum fyrir skemmtilegt fólk, túrista í góðum fílíng og lékum róleg og falleg lög.
Allar uppástungur að fallegum einföldum lögum eru vel þegnar, þið vitið það...
Frumfluttum Nothing Compares 2 U (sem við höfum aldrei æft...) hehehe... gaman að því...

Nema hvað, nú er ég bara uppi á Mogga í góðum fílíng og tromma lyklaborðssamba...
tsjibb tsjagga tsjagga tsjagga tsjibb...

:)

Bestu Kveðjur,
Svavar Knútur


[ 2 ]
miðvikudagur, ágúst 06, 2003
  Kvöldið í kvöld
Mmmm...
Gleymdi að láta vita af einu...
Í kvöld kl. 22:00 verður hljómsveitin Hraun á Nelly's.
Ég hvet fólk engu að síður til að vera við kertafleytingu við tjörnina kl. 22:30 og koma svo bara eftir á og hlýða á ljúfa tóna...
Við stefnum á að spila mestmegnis rólega tónlist í kvöld og sleppa allri vitleysu...

En af hverju í andskotanum er Svabbi að spila svona mikið á Nelly's gæti einhver spurt.
Svarið er einfalt. (í raun tvöfalt)
1: Svabbi þarf á æfingunni að halda og líður vel með gítar í hönd og í félagsskap góðra manna. Þess vegna þykir honum gaman að djamma á miðvikudagskvöldi, drekka bjór og spjalla og spila.
2: Bragi Skafta er í óða önn gera Nelly's að betri stað og stöðugt framboð lifandi tónlistar og einhvers skemmtilegs er hluti af þeirri áætlun. Svavar, Loftur og Helgi eru vinir Braga og vilja allt fyrir hann gera. Þess vegna býður Hljómsveitin Hraun fram starfskrafta sína til að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að hjálpa honum.

aukaástæða:
3: ódýr bjór fyrir tónlistarmanninn og smá peningur í vasann...

:)

Þannig að: Látið sjá ykkur á kertafleytingu við tjörnina 22:30 og kíkið svo upp á Nelly's og hlýðið á angurværa músík...

Húrra fyrir okkur öllum!
Hr. Knútur


[ 0 ]
  Framhald síðustu færslu
Þegar síðustu færslu sleppti hófst herra Svavar handa við að gera við tölvuna sína... ölóður...
Skipt var um harðdisk og minni og fleira dútlað...
Munduð var batterísdrifin borvél og gaffall og fleira...

Það er mikil áskorun að laga og uppfæra tölvu ölvaður, en mér tókst það og nú malar hún eins og kettlingur...

Bestu Kveðjur,
Svavar Knútur


[ 0 ]
  Draugfullur bloggari á þriðjudagskvöldi
Sjitt...
Ferðin norður var mikil útivist og gleði og mun minni drykkja en gert var ráð fyrir...
Svabbinn Drakk einungis þrjá bjóra, og spúsan hið sama...
Eftir urðu kippa af bjór og tvær rauðvínsflöskur sem voru teknar í sárabótaþriðjudagsdrykkju med det samme...
Ég er hænuhaus... þess vegna er ég fullur...

Capito Pollo habis... ergo intoxicatis... eða eitthvaðis...

Gaman að klifra upp Skálárdalinn og margt þar fallegt að sjá, með endemum...
Húrra fyrir Skálá og skagfirsku veðurfari!

Niður með Björn Bjarnason og hans viðbjóðslegu kaldastríðstaktík.
Ég heimta að fá að vera frjáls óháður maður, óháður Bandaríkjadýrkun, Sovíetdýrkun, Evrópudýrkun, Íslendingadýrkun, kommúnistaparanóju, hernaðarbraski og rugli!
Ég vil bara fá að vera manneskja sem býr í herlausu, sjálfstæðu landi sem gerir sitt besta til að breyta rétt.

Fokk it...
Ég er haug-draug-sudda-fullur...
eftir hálfa rauðvínsflösku og tvo bjóra...

Ég er hænuhaus...

bestu kveðjur,
fulli Svabbi...

p.s.
ég drep ykkur ef þið segið frá þessu...


[ 0 ]
Virka þessi Drösl???