![]() |
Þankatankurinn
|
![]() |
||||
|
Svavar Knútur Kristinsson, Félagsauðströll, heimspekingur, umhverfis-verndarsinni og tónlistarmaður. NÝTT!!!
|
Nýjustu Demó: Ástarsaga úr fjöllunum (Sumarið 2005) Goodbye my lovely (19. júní 2005) Your love was death to me (Janúar 2005) Call off your Cavalry (September 2004) You should call a doctor (Maí 2004) Kysstu tímaglasið (endurbætt útgáfa 2004) Mother's day Jólaplata Hrauns 2003: Þrautgóðir á Hraunarstund Jólaplata Hrauns 2005: Höldum jól Jólaplata Hrauns 2006: Jólamolar |
fimmtudagur, október 30, 2003
Hraun í kveld og Afgönsk Fegurðardrottning...
First Things First! Hraun! leikur á Nelly's í kvöld. Þið ykkar sem ekki hafið séð þetta undraband leika enn, eruð boðin sérstaklega velkomin, enda er ókeypis inn og Hraunarar taka ykkur opnum örmum... :) Eins og tíðir gestir vita fara æfingar Hrauns! fram á giggum og við erum að verða helvíti góðir... Þetta virkar í raun þannig að þegar ég sem eitthvað lag, þá kenni ég strákunum það á æfingu og svo æfum við það pínu. Eftir það leyfum við laginu bara að þróast með áhorfendunum. Ég tek alla tónleika upp og svo hlustum við á það sem er að virka og það sem er ekki að virka... Þetta er skemmtileg vinnuaðferð og gaman að vinna svona... En nóg um það... Hvern hefði grunað að þyrnirinn í augum íslenskra jafnréttissinna, fegurðarsamkeppnirnar, gætu verið vopn númer eitt í kvenréttindabaráttu í Afganistan? [ 6 ] þriðjudagur, október 28, 2003
Yarr... Wicked Day Star!!!
Sólin skín svolítið fast í augun á mér þessa dagana og ég fæ höfuðverk... Ég er alveg að verða búinn með blessaða Kríuna fyrir Landvernd... þetta er alveg að koma... Duglegur Svabbi... Keep the faith! Jæja... best að koma sér að verki... Bestu kveðjur, Svabbi sæti [ 1 ] föstudagur, október 24, 2003
Tiltektardagur á Mogganum... (Kæra Dómnefnd)
Undanfarnir tveir dagar hafa verið tiltektardagar á Morgunblaðinu. Ég tók til hjá mér og strauk af græjunum, gekk ágætlega. Enginn sérstakur metnaður í því samt, enda er ég metnaðarlaust kvikindi. Metnaður er fyrir unga sjálfstæðismenn... Tekannan mín er það eina persónulega á básnum mínum... Hún er líka fín... Ég er tilfinningadofið skrýmsli... Hafið það sem allra best :D Bestu Kveðjur, Svavar [ 1 ]
Furðulegt...
Á morgun eru átta ár síðan pápi dó. Maður er alltaf pínu dapur á þessum tíma árs. Tilviljanir eiga það samt til að vekja mann til umhugsunar. Í morgun var ég að fara að taka viðtal í steinsmiðju sem sérhæfir sig í legsteinum. Leigubílstjórinn sagðist ekki fíla tónlistina á Skonrokk og ég var alveg sammála, svo hann skipti yfir á Rás 2, sagði þrjár útvarpsstöðvar á Íslandi ekki spila bara pleilista. Á Rás 2 var lagið Your Song, sem var leikið í jarðarförinni hans pabba. Þetta hitti akkúrat þannig á að við sáum steinsmiðjuna þegar hann kveikti á Rás 2. Furðulegt... jamm... Bestu Kveðjur, Svavar Knútur [ 7 ] fimmtudagur, október 23, 2003
Sólin Skín...
Ladída... Það er ágætt að vera til þegar sólin skín svona fínt... Það átti að færa mig í stærri bás í endurskipulagningunni, af því að litli básinn minn þykir ekki nógu flottur og rúmgóður, en ég baðst undan því, vegna þess að mér liði svo vel við gluggann... :D Og gettu hvað? Góða fólkið á Mogganum sagði bara: "Hei vá, ókei! við héldum að þér liði ekki vel þarna... En ef þér líður vel þarna, þá er það bara frábært!" og brosti... JEI!!! :D Gaman að fá að eiga litla aulalega básinn sinn... Bestu kveðjur, Svavar [ 0 ] miðvikudagur, október 22, 2003
Helvítis Heimska Dópistafífl!!!
Elliot Smith var að drepa sig... Helvítis fíflið! Maðurinn samdi mörg af mínum uppáhaldslögum og fer svo að drepa sig af því hann dópaði og drakk og var þunglyndur... Andskotans Kjaftæði! Ég myndi berjann ef hann værekki dauður... Það versta við fólk sem fremur sjálfsmorð er að maður getur ekki öskrað á það og skammað það og lamið það fyrir hvað það er heimskt og eigingjarnt og mikil fífl! (Ég vona að þið fattið hvað ég á við...) :( Æi... ég fékk sting í hjartað þegar ég frétti þetta... Hann var allt of góður til að fara svona... Helvítis ungralistamannasyndróm... Ég vona að honum líði vel ef það er líf eftir þetta... Annars vona ég líka að fjölskyldu hans og vinum líði vel, en hvurn andskotann kemur það mér sosum við? Bestu kveðjur, Svavar [ 1 ]
Morgunfólkið
Var að horfa á Judging Amy í gærkveldi... Sjitt!!! Þetta fólk stendur upprétt um klukkan sjö á morgnanna og drekkur kaffi og borðar seríós, eins og ekkert sé sjálfsagðara!!! Ég þakka guði fyrir ef ég get vaknað korter í níu og drattast í vinnuna óétinn... Ég er snoozari dauðans, hef aldrei náð valdi á þessu spretta á fætur dúhikkí sem allir eru svo hrifnir af... Kannski ég þurfi að temja mér meiri reglusemi í svefni... En þá hætti ég að semja lög... Af því að ég sem yfirleitt seint á kvöldin, þá er svona "Witching Hour"... Djö...!!! Helvítis morgungleði. Bestu kveðjur, Svabbi p.s. Er að hlusta á öðlinginn Damien Rice... Hljómar bara déskoti vel... Svolítið eins og hann hafi stolið sumum lögunum mínum helvítið af honum... :-) [ 6 ] mánudagur, október 20, 2003
Yfirvinnublaðið
Var að skoða yfirvinnuseðilinn minn. Fallegt... Jæja, við hjónin þurfum þó allavega ekki að kvíða fjárnámi næsta mánuðinn. Ég er viss um að ég hef nú rekist upp í eitthvað þak... :-) En svona er það þegar maður tekur endalausar vaktir. Að öðrum málum, mig langar til að óska Stebba kærlega til hamingju með ákvörðunina. Ég er stoltur af honum og hef alltaf haft trú á því að hann læti verða af þessu kallinn. :) Áfram Stebbi!!! Af Hraun! er það að frétta að við erum aðeins að setjast yfir demóupptökur af nokkrum lögum. Það er alltaf gaman. :) Húrra Húrra Húrra, Anna Frænka, ef þú ert að lesa þetta, þá þykir mér voða vænt um þig... Og þig líka Mæja Frænka... Annars er bara stuð að vera ég... :) Bestu kveðjur, Svavar [ 4 ] sunnudagur, október 19, 2003
Bah!
Var alveg að klára á Morgunblaðinu... En þá þurftu fimm bílar endilega að klessa saman... Argh... Vinna langt frameftir... Bestu kveðjur, Svabbi [ 2 ] föstudagur, október 17, 2003
jamm og jæja...
Vá, hvað þetta er stresssuð útgáfa af laginu... :) æi... skiptir ekki svo miklu máli... Þetta er bara gróf tónleikaútgáfa... Það sem ég er stoltastur af er að aðrir hljómsveitarmeðlimir HRAUNS! náðU að pikka þetta lag upp á hálfri æfingu, tveim tímum fyrir tónleika, og gera þetta drulluvel. Ah... fyrsta fríið mitt í tvær vikur... og síðasta fríið mitt í tvær vikur... Föstudagur, fagri föstudagur... [ 0 ]
Rosalega öflugt Hraun!Gigg í kvöld
Sjitt hvað það var gaman... Frumfluttum So it has come to this, dulítið stressað... :) Ég var alveg á taugum... en ég held að þið getið heyrt u.þ.b. hvernig lagið hljómar hér... farinn að sofa... góða nótt vinir mínir, Svabbi [ 0 ] fimmtudagur, október 16, 2003
HRAUN! Off Airwaves í kvöld...
Hljómsveitin Hraun! mun leika frumsamda tónlist í bland við gamlar lummur á Nelly's í kveld klukkan tíu. Við nýtum okkur nú þann meðbyr sem tónlistarhátíðin Airwaves gefur okkur með því að draga fólk niður í bæ og vonum að einhverjir kjósi að kíkja á okkur í staðinn, þar sem það kostar inn á alla staðina... Hljómsveitin Hraun! er rembingslaus og tilgerðarlaus sveit sem leikur þau lög sem hendi eru næst. Ef við erum ekki í stuði til að taka frumsamið tökum við bara eitthvað annað. Endilega kíkið, fáið ykkur sopa af bjór eða kaffi og látið fara vel um ykkur, enda er ókeypis inn... Bestu Kveðjur, Svavar [ 4 ] miðvikudagur, október 15, 2003
Birgir og ég... :)
Ég var að lesa 101 listann hans Birgis... Ég held að ég gæti hreinlega copypeistað hann inn á þessa síðu og skipt út nokkrum persónueinkennandi númerum og lífsreynslubútum... ætli 84% hans myndu ekki standa eftir... :) Sjitt hvað við erum líkir... suddalegt... Birgir er líka einn af þessum mönnum sem ég myndi pottþétt vilja vinna með ef ég væri að gera eitthvað worth shit... :-/ ... :-D Bestu Kveðjur, Svabbi [ 2 ]
Halla lagskona
Halla samstarfskona mín og ágætis lagskona er klár... Við eigum oft ágætis spjall um hitt og þetta og þó við séum gjarnan ósammála höfum við svona fúndamentallí sömu hugmyndafræðina að leiðarljósi... Við erum Pönkarar, a-la Skilgreining Sigga Pönk um daginn... Ég hef aldrei fittað almennilega inn í hópamentalítetið... Alltaf verið of leitandi... Mig langar að spila blak, kannski það bæti eitthvað :) En við komumst að þeirri niðurstöðu í gær að allt of mikið af fólki sér heiminn sem svart hvítan, þar sem menn eru annað hvort englar eða illmenni. Ég er sko enginn engill, en ég er heldur ekkert illmenni. Ég er manneskja með styrkleika og veikleika, sem ég þekki og reyni að lifa með. Ég reyni að bæta mig þar sem ég er sterkur og ég reyni að skilja og glíma við veikleikana, en ég ætla svo sannarlega ekki að fara að væla yfir því og hata sjálfan mig fyrir að ég hef gert mistök í lífinu. Fjandakornið nei! Það er ekkert "Happily ever after", það er bara lífið og menn reyna að lifa því eins og manneskjur og það er allt sem við getum! Ég hef alltaf verið óttalegt misfit... Ég held að einn misskildasti undirkúltúr pönksins sé menn (og konur) eins og ég, sem klæðast normal fötum, eru ekki með neitt í hárinu eða neina pinna eða neitt, gera ekkert til að skera sig úr útlitslega séð, bera allt pönkið innra með sér... Lifa með pönkið í hjartanu og sálinni... Reiðir, útundan, skrýtnir, en alltaf gera þeir sig sem ómerkilegasta í útliti, klæða sig eins og lúða, til að samsamast ekki einu sinni bræðrum sínum og systrum í pönkinu... ;-) Bestu Kveðjur, Svavar [ 1 ] þriðjudagur, október 14, 2003
Nýtt lag fæðist...
Nýtt lag er fætt... Það verður frumflutt á Nelly's á fimmtudagskveldið 16... Það er voða stúpid og heitir So it has come to this... Hér er textinn svo þið getið undirbúið ykkur... So it has come to this... Your eyes have cornered me A glimpse of your face set me free And so it has come to this... So it has come to this... your arms have surrounded me Your Gaze is all I see And so it has come to this... So it has come to this... My savior betrayed with a kiss A moment of short lived bliss So it has come to this... So we have come to this... The moment of truth is now My life lies in shambles and how And so we have come to this... Jæja... þið leggið ykkar dóm á þetta á fimmtudaginn... Bestu Kveðjur, Svavar Uppfært kl. 20:35 Haha úps.. gerði smá fokköpp, en lagaði það... [ 0 ]
Áframhaldandi vináttuspekulasjon...
Í framhaldi af síðustu pælingum um vináttu... Einhvers staðar segir: Vinur er sá er til vamms segir. Ég er alveg sammála þessu spakmæli, en sumir vilja túlka það sem: Vinur er sá sem kvartar yfir og talar um hvern einasta galla sem maður býr yfir þangað til maður trúir því sjálfur að maður samanstandi af engu nema göllum og hann sé alveg frábær vinur að þykja vænt um mann þrátt fyrir að maður sé um það bil jafn heilsteyptur og gömul og úldin dragnót... Sem er ekki heilbrigt... Góðir vinir gagnrýna uppbyggilega og benda á virkilega mikilvæg vandamál eða lesti. Til dæmis siðferðisbresti eða fordóma. Ekki á það hvernig maður tyggur matinn eða hvort maður gefur of seint stefnuljós eða krítíserar húmorinn manns... Ég held að sum "vinasambönd" geti verið næstum því eins og "wifebeater" sambönd... Sambandið helst saman af uppsöfnuðu óöryggi hins "gagnrýnda" vinar, því hann telur sig heppinn að eiga svo tryggan vin þrátt fyrir alla sína galla... Jæja, bara að ranta... Bestu Kveðjur og on to the kvöldvakt... Svabbi [ 0 ] mánudagur, október 13, 2003
spekulasjon...
hmmm... Nú vil ég ekki að neinn fari að taka þetta til sín... Ég er bara að spekúlera í þessu öllu saman... Hvað eru vinir? Á maður að telja mann til vina sinna sem setur lang flesta aðra langt fyrir framan mann í forgangsröðina? Á maður að halda áfram vináttu við fólk sem reynir ekki á neinn hátt að halda sambandi við mann, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir manns sjálfs til þess? Ég hef átt vini sem ég hitti örsjaldan og hafði sjaldan samband við, og ég tel þá sem vini mína, jafnvel eftir að sumir þeirra eru farnir yfir móðuna miklu. En það er öðruvísi. Sum vinasambönd þurfa einfaldlega að vera í sífelldri ræktun, krefjast meiri samskipta en önnur. Hvað þýðir það þegar einhver sem maður hefur haft inni í sínum vinahring hættir að vilja eiga samskipti við mann og kýs frekar samskipti við aðra og ratíóið á milli samskipta er 1 á móti 40? Hvað þýðir það þegar einhver sem maður lítur á sem góðan vin lítur ekki á mann sem góðan vin til baka? Er hann þá góður vinur eða er hann ekki góður vinur? Hvað þýðir það ef maður treystir einhverjum fyrir öllu en viðkomandi treystir manni ekki fyrir neinu? Er hægt að kalla það vináttu, eða er það bara misskilningur? Enn og aftur, ég er bara að spökulera... Hvað er svo hlutverk vinarins? Hvað þýðir vináttan milli tveggja einstaklinga? Hvar liggja mörg kunningsskapar og félagsskapar, félagsskapar og vináttu? hmmm... Ég á nokkra mjög góða vini, nokkra ágæta félaga og enn fleiri fína kunningja "á vinsamlegum nótum"... :D Hringur traustsins færist út... Bestu Kveðjur, Svavar [ 6 ] sunnudagur, október 12, 2003
YARGH!!! Ég er ekki einhverfur...
Tók einhverfuprófið... Fékk fimm stig, meðalmaður fær 17, meðal kona fær 15... Einhvern veginn hefði ég haldið að konur væru einhverfari en menn... En það eru víst bara vinkonur mínar... ;) Bestu Kveðjur, Svabbi [ 7 ]
Áhugavert Reikningsdæmi...
Hmm... Framkvæmdastjóri Íslenskrar Nýorku, Jón Björn Skúlason, segir í Fréttablaðinu í dag að Kárahnjúkavirkjun ætti að fara langt með að knýja allan bíla- og skipaflota landsins. Þetta vekur spurningar... Ókei, ef við minnkum innflutning á Íslandi, er það í raun ekki það sama og að auka útflutning? Vöruskiptajöfnuðurinn breytist á sama hátt. Svo, hvert er útflutningsverðmæti áls frá 480.000 tonna álveri og hvert er innflutningsverðmæti alls bensíns og olíu fyrir bíla- og skipaflota landsmanna. Hversu stórar eru þessar tölur? Þær eru allavegana mjög stórar... Bestu kveðjur, Svavar Uppfært 19:22 Skoðaði hagtölur, samkvæmt þeim flytjum við inn olíu fyrir um 15-16 milljarða á ári. Ef við losuðum okkur við allt þetta væri ansi góður baggi farinn af innflutningnum, um 10-15%, en hvað um álið? Hvert er útflutningsverðmæti álsins frá Reyðaráli og hversu stór hluti þess verðmætis verður eftir hér á landi? 3-4 milljarðar á ári fara til Landsvirkjunar fyrir orku. 500 manns í vinnu, að meðaltali þrjár milljónir á ári á mann, 1,5 milljarðar? Einhverjar skatttekjur, Alcoa hirðir afganginn af gróða álversins heim til USA. Eigum við að skjóta á átta milljarða sem verða eftir? Hefur einhver nánari tölur um vergt útflutningsverðmæti álsins? [ 0 ]
Sunnudagur...
Þessa dagana er ég að vinna 6,5 daga í viku... það er þreytandi... :) En allt hluti af því að verða fullorðinn og losa sig við skuldir... Skemmir ekki fyrir að starfið er skemmtilegt... Bestu Kveðjur, Svabbi [ 0 ]
Eyddi út Færslu...
Í gær lét ég orð falla í syfju minni um Sigurð Kára... Þó mér sé illa við hann af prinsipástæðum, get ég ekki leyft mér að búa til forúm fyrir aðra til að dissa hann... :) Svo, bara sorrí með það og höldum áfram með sprokið... [ 0 ] laugardagur, október 11, 2003
Trallararararei...
Mætti í vinnuna klukkan 20:00... Úldinn sem aldrei fyrr... Deiglumenn og -konur eru góðir drengir, hófsamt og frjálslynt fólk með ágætis hugmyndir. Afar ólíkt sumum... ;) Mér finnst alveg furðulegt að einn stjórnmálaflokkur rúmi svo ólíka lífssýn. Þetta er næstum því eins og Hóflegi Nasistaflokkurinn og Hóflegi Frjálslyndi Kapítalhippaflokkurinn... Afsakið samlíkinguna... Ég fíla allavegana Þórlind ("hjá deiglan-punktur-com") ofboðslega mikið, finnst hann brilljant gaur, skynsamur og málefnalegur með endemum. Sakna hans í raun mjög hér á Mogganum. Hann var alltaf rót mikillar skemmtunar. En hann fékk vinnu á fréttablaðinu og ekki ég og svo var ég allt í einu kominn hingað... Furðulegt hvernig hlutirnir æxlast... Og hann er auðvitað miklu betri blaðamaður en ég þegar öllu er á botninn hvolft... Gaman væri samt að heyra frá stráknum... Kannski ég sendi honum emil og krefjist þess að hitt'ann á kaffihúsi eða eitthvað... hmmm... Bestu Kveðjur, Svabbi [ 1 ] fimmtudagur, október 09, 2003
Nelly's Café í kvöd....
Það verður Níhíl ljóðakvöld á Nelly's í kvöld og eftir það mun hinn gleðiríki skemmtikraftur Svavar Kristinsson troða upp með gítarinn og færa gesti staðarins inn í nóttina með alræmdri hamingjuáru sinni... eða svoleiðis... Ég verð allavegana á Nelly's í kvöld ef einhver vill hittast og drekka smá bjór... Bestu Kveðjur, Svavar [ 0 ]
Skattaröfl...
Eitt sem ég er ekki alveg að fatta... Af hverju eru þeir sem röfla hæst út af skattpíningu ríkisvaldsins og óréttlæti skattanna svona oft einhverjir gæjar og gellur á fjögurra milljón króna jeppum eða þriggja milljón króna flottbílum? Fokk, ég er bara millistéttarjón dauðans og ég skulda heví mikinn pening, á ekki bíl (lengur) og ef ég ætti bíl, þá væri hann 20.000 króna skrjóður... OG ÉG BORGA MÍNA SKATTA FEGINS HENDI!!! Vegna þess að ég veit að þeir eru að borga fyrir alls konar stöff sem skiptir máli! (Að vísu fer helvíti góð summa í hluti sem skipta engu máli, því það eru gæluverkefni ráðamanna og eitthvað íhaldskjaftæði, en það er líka síðasti peningurinn til að skerast niður. Menn skera alltaf fyrst niður þar sem skóinn kreppir mest að...) Ríka fólkið hefur það drullugott! Af hverju í andskotanum að lækka skattana fyrir það? Af því að það er svo góðir vinir þeirra sem ráða akkúrat núna? Ég sé enga betri ástæðu... Og um leið þá lækka þeir vaxtabæturnar, sem bitnar mest á venjulegu fjölskyldufólki með lágar tekjur, eins og okkur... Ég hef ekkert á móti því að borga hærri skatta (sem er bein afleiðing skertra vaxtabóta), en ekki um leið og þeir lækka skattana á fólkið sem virkilega hefur efni á að borga þá... Ég hef spurt það áður og ég spyr enn: Af hverju í andskotanum keyra þeir sem gala hæst um skattpíningu á svona dýrum bílum? Ef þeir eru svona píndir, ákkuru eru þeir ekki á hjólum eða á Skóda? Helvítis flottræflar og spraðabassar... Jæja... nóg um það... Nú fer ég að sofa... Góða nótt Rvík, Ísafjörður, Flateyri og Kópavogur... Góða nótt Köbenhavn, Odense, Árósar og Skövde... Góða nótt Rúmenía, Austurríki og Frakkland... Góða nótt Boston og Manitoba... Góða nótt New York... Góðan dag Bombay... :) Hr. Svavar [ 12 ] þriðjudagur, október 07, 2003
Fé fyrir auglýsingunni
Jæja... Ég ætla að fara Alla leið og fá mér Atlas plús kort... Ég er kominn með ógeð á því að geta ekki keypt nokkurn skapaðan hlut á netinu, þar sem ég á ekki "kreeeditkort..." Helvítis fasistar! En, ég sný á þá! Þetta er nebbnilega fyrirframgreitt kreditkort! HAHAHAHAHA!!! :) I am the winner!!! eh... Bestu Kveðjur, Svabbi [ 5 ] mánudagur, október 06, 2003
Ný vika hefst...
Jæja... kominn aftur á höfuðborgarsíðuna... Það er nú bara gaman... Ég hef dulítið gaman að því að kóvera örbaninn... :) Sniglagiggið gekk bara þrusuvel... Sniglar voru hinir skemmtilegustu og þakklátir fyrir gott gigg með endemum. Tambúrínubjörninn Gunni Bremsa mætti líka á svæðið og fékk tambúrínu frá hljómsveitinni til að leika sér með. Djöfull er hann góður gæi... Bestu Kveðjur, Svavar [ 0 ] föstudagur, október 03, 2003
Oj...
Nú líður mér ekki vel... Ég er að vinna að frétt um eitt það ógeðfelldasta sem ég hef heyrt lengi... Mér er óglatt af því að hugsa um viðfangsefnið og mér verður ennþá meira óglatt að geta ekki haft eftir fólki það sem það segir um viðfangsefnið vegna þess hvað það er viðkvæmt... Arg... Jæja, þetta kemur. Bestu Kveðjur, Svavar [ 5 ]
Nýja Outkast platan...
Nýja tvöfalda platan með Outkast er meistaraverk!!! Djöfulsins snillingur er André "3000" Benjamin maður!!! ALGJÖR SMOOVE B!!! Hann er gersamlega með grúv/fönk/Rhythm and blues/Soul feelinginn í botni og húmorinn úti um allt! Diskurinn The Love Below er fullur af hans efni á meðan Speakerboxxx diskurinn er á kafi í Antwan Patton og hans brjáluðu bíttrökkum... Happy Valentines Day: When Arrows don't penetrate, Cupid grabs the pistol He shoots straight for your heart and he won't miss you but that's all right, you won't be leaving me anyway... so... ... There's so much fuss about Santa Claus, but see, Cupid will not be defeated. ... So keep on running playa... Cos' I got my good shoes on... And I got'em tied on tight... Svo eru náttúrulega snilldartrökk eins og Hey ya! og Roses. Ég verð bara að kyssa þá! Bestu Kveðjur, Svabbi Outkast freak... [ 1 ] fimmtudagur, október 02, 2003
Hefndin er Mín...
Ég hef nú skrifað "Angry letter to the editor..." vegna leiðinlegu símasölukonunnar. Hefndin er mín! YARGH!!! Nú líður mér eins og sjóræningjablaðamanni... "YARR! Shiver me timbers! 'Tis Svabbi, The Journalist Pirate!!!" Bestu Kveðjur, Svavarr Knúturr Kristinssonn (til heiðurs fréttumm.comm) [ 2 ]
Tekið á því...
Nú er maður sko að taka á því maður! Búinn að vera á fullu gasi að taka viðtöl og spjalla við fólk! Yeah! Duglegur Svabbi!!! Steeerkuuurrr!!! Á tuttugu mínútna fresti ráfar Kópavogs/Hafnarfjarðar/Garðabæjar framhjá glugganum mínum, niður grasbalann í áttina að Kringlunni, sláturhúsi Mammons... fallegt... Nú eru fimm litlir fuglar að borða draslið sem þetta skilur eftir sig á grasinu... Fuglar - hreinsunarlið náttúrunnar... Bestu Kveðjur, Svavar p.s. Það er ekki atvinnuskapandi að henda rusli, það er mannauðsbruðl. Það þýðir að við erum að auka útgjöld hins opinbera og auka skattana á okkur sjálf og sóa almannafé í að díla við okkar eigin skít... [ 1 ]
Enn Reiður út í Símasölukonuna...
ARGH!!!! Það kraumar enn í mér... En í gær áttum við helvíti flott kveld á Nelly's, þ.e.a.s. það voru tveir strákar að spila sem ég var bara að hjálpa með kerfi og mix og svona... og svo tók ég bara í bassann og tambúrínuna og annar gæi tók stóra skógartrommu og úr varð helvíti fínt djamm bara... :) Allir mjög glaðir og Bragi Skafta fór hamförum á hristunum... Gaman að tjútta saman á virku kvöldi á Nelly's... Talandi um það... Það getur verið að ég verði einn í kvöld á Nelly's til að fylla upp í eitthvað Norðlenskt skáldakvöld. Það getur líka verið að ég reyni að hóa Hrauni saman... Allt í óvissu... Ég verð allavegana á Nelly's í kvöld ef einhver vill koma og taka því rólega með mér... :) Bestu Kveðjur, Svavar [ 1 ] miðvikudagur, október 01, 2003
Símasölufólk Dauðans!!!
Djísuss!!! Það var kona að hringja áðan, á meðan Pálína var úti og hún spurði eftir henni ótrúlega símasölulega. Samtal 1: KONA: "Góða kvöldið, er Pálína heima?" SVAVAR: "Nei, hún er úti. Er þetta eitthvað svona trygginga/bóka/lífeyris- sölumannadæmi?" KONA: "Nei, ég sendi henni bréf um daginn og ætlaði að hringja til að tala við hana." SVAVAR: "Hún kemur eftir Klukkutíma... viltu ekki hringja bara þá?" KONA: "Allt í lagi." SVAVAR: "En bara svo þú vitir það, þá hefur þetta heimili ekkert efni á að kaupa neitt, sérstaklega ekki í gegnum síma..." KONA: "Sko, ég er ekki í símasölu..." Einum og hálfum klukkutíma seinna. Pálína er að lesa fyrir Dagbjörtu... SVAVAR: "Halló..." KONA: "Já, halló, er Pálína þarna?" SVAVAR: "Já, en hún kemst bara í símann ef þetta er mjög mikilvægt. Ertu að reyna að selja okkur eitthvað?" KONA: (óþolinmæðislega) "Ég var búin að útskýra fyrir þér að ég er ekki að selja neitt." SVAVAR: "Þú hljómar bara eitthvað svo símasölulega og mér finnst ég kannast eitthvað svo við þessa nálgun í síma. Við höfum mjög skýra stefnu á þessu heimili að kaupa ekki neitt af símasölufólki, þannig að ef þú ert að reyna að selja okkur tryggingar, lífeyrissparnað eða eitthvað bókakyns, þá höfum við ekki tíma né peninga til að tala við þig. Pálína kannaðist heldur ekki við neitt bréf frá neinum." KONA: (Reiðilega!) "Heyrðu! Ætlarðu að leyfa mér að tala við konuna þína eða ertu að reyna að halda henni frá símanum eða eitthvað?" SVAVAR: (kraumandi af reiði en þó kurteisislega...) "Sko, nú ertu orðin afar ókurteis og leiðinleg og ég ætla að leyfa þér að tala við Pálínu, en hún var að lesa fyrir dóttur okkar, þannig að nú ertu búin að skemma það." KONA: "Hnuss!" Ég læt PÁLÍNA fá tólið... PÁLÍNA: "Halló?" SÍMTÓL: "böböbööböbööböböböbö vövöövövövövövö..." PÁLÍNA: "Já... aha... já.... aha... aha... já..." 8 mínútum seinna: PÁLÍNA: "Já... já.... aha... já... aha... nei... við eigum bara engan pening núna..." skell... SVAVAR: "Hvaða dæmi var þetta?" PÁLÍNA: "Hún var að reyna að selja okkur tímaritaáskrift..." PÁLÍNA sýnir MÉR "bréfið"... (pínulítið litprentað snifsi sem var troðið með vísareikningnum...) SVAVAR: "Þvílíkt bréf..." Er einhver að átta sig á dónaskapnum?!? DJÍSUSS!!! Þetta var sú ósvífnasta og dónalegasta símasölumanneskja sem ég hef nokkurn tíma notið þeirrar ógæfu talað við... Bestu Kveðjur, Svavar [ 4 ]
Innlenda Fréttadeildin... Þar sem hetjur fæðast...
Jæja... byrjaður aftur á Innlendu fréttadeildinni með pompi og pragt. Þrjú verkefni liggja fyrir, eitt stórt og tvö minni. Svo bætist á þegar líður á daginn. Ég elska að skrifa fréttir, mér finnst það gaman, gaman. Var á fótum til þrjú eða fjögur í nótt við að taka upp og mixa auglýsingastef fyrir ávaxtasafa... Við skreyttum stefið með taugaveiklunarhlátri, gleðiveinum og öskurhryglum sem lafir rétt undir laginu. :-) Sjáum til hvernig það leggst í kaupendur þjónustunnar... Ég finn rassinn minn þrýstast ofan í stólinn mjúka... Goooott... Nú Gak skrifstofumaður... Gak hamingjusamur... Gak vinna hylli kvenna með hnyttnum fréttastíl og gáfulegum tilsvörum... Gak tígur í frumskógi ástarinnar... Bestu Kveðjur, Svavar "Gak" Kristinsson [ 2 ] |
Eva
Örn "Mugison"
Elias Tónlistarmönnum sem gefa tónlist
sína á netinu er velkomið að hafa samband
við Hr. Muzak og þá bæti ég þeim
á listann.
Laukurinn rúlar
Dr. Gunni
| |||