Þankatankurinn



Svavar Knútur
Kristinsson,

Félagsauðströll, heimspekingur, umhverfis-verndarsinni og tónlistarmaður.

Ímeilaðu
mig...

NÝTT!!!
Viltu fá
(eða hætta að fá)
tilkynningar
um tónleika
HRAUNS!,
eða Svavars Sjálfs?
Sláðu inn
netfangið hér:



This page is powered by Blogger. Isn't yours?




Hljómsveitin Hraun! veitir mér listræna útrás.

Hraun á Myspace

Sjálfurinn á Mæspeis

Nýjustu Demó:

Ease your mind (01.07.2006)

Dansa... (28.09.2005.)

Ástarsaga úr fjöllunum (Sumarið 2005)

Goodbye my lovely (19. júní 2005)

Kisa litla (Maí 2005)

Your love was death to me (Janúar 2005)

Call off your Cavalry (September 2004)

You should call a doctor (Maí 2004)

Kysstu tímaglasið (endurbætt útgáfa 2004)

Mother's day
( 2004)

Jólaplata Hrauns 2003: Þrautgóðir á Hraunarstund

Jólaplata Hrauns 2004: Kátt er um jólin

Partýplatan Partý!

Jólaplata Hrauns 2005: Höldum jól

Jólaplata Hrauns 2006: Jólamolar



Latur myndasmiður, en engu að síður er hér að finna eitthvað efni...

Molar...


 
sunnudagur, nóvember 30, 2003
  Áhugaverð grein í The Guardian...
Lesið þetta kæru vinir...

Sérstaklega fannst mér þessi kafli áhugaverður aflestrar, komandi frá glöggu auga gestsins...

While much of the developed world is busy dismantling dams, transplanting its heavy industry base to the developing world, the people who govern Iceland hold fast to their dreams of an industrialised nation. David Oddsson, the prime minister and leader of the Independence party, has been in power for 12 years and is revered, feared and hated in equal measure. With Halldor Asgrimsson, leader of the Progressive party, he heads the ruling rightwing coalition. The opposition comprises a centre-left coalition with 20 seats, five Left-Greens and four Liberals.

Hydropower is officially the responsibility of the ministers for industry and environment, appointed in 1999, but many Icelanders doubt their ability to participate in informed debate on the relevant issues. Certainly their CVs are not reassuring: in charge at the ministry of industry and commerce is Valgerdur Sverrisdottir, whose only paper qualification seems to be an English as a foreign language certificate awarded in 1972. Siv Fridleifsdottir, minister for the environment, is a qualified physiotherapist. Neither minister cites any parliamentary or other experience relating to their portfolios. When I requested an interview with Fridleifsdottir, I was redirected to Sigurdur Arnalds, described as "the government's finest expert on the Karahnjukar project". Arnalds is Landsvirkjun's head of PR. (This is like being redirected to Alastair Campbell as the British government's expert on the war with Iraq.)


Susan De Muth á ansi marga góða punkta...

Bestu Kveðjur,
Svavar Knútur


[ 8 ]
miðvikudagur, nóvember 26, 2003
  Nelly's á morgun...
Grrrm... :)
Það er ágætt að vera til þessa dagana, maður vinnur mikið og puðar mikið og tíminn líður hratt...
Mér líður líka mjög vel að bera doldið mikla ábyrgð. Það er stuð.
Skilningur minn á líðan atvinnulausra er hins vegar að verða skýrari eftir öll samtölin sem ég hef átt við fólk í ráðningarþjónustugeiranum. Hmm... Þið getið væntanlega lesið eitthvað um það í blaðinu á Sunnudaginn...

En annað kvöld, fimmtudagskvöld verða Hraun! á Nelly's, ekki gleyma því, þið sem hyggið á útstáelsi...
Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 0 ]
mánudagur, nóvember 24, 2003
  Fimmtudagur á Nelly's
Hljómsveitin Hraun! mun leika á Nelly's næsta fimmtudagskveld!
Eins og endranær verður gleðin í fyrirrúmi hjá Hraun!urum og við munum jafnvel gera heiðarlega tilraun til að flytja eitt eða tvö ný lög.

Ókeypis inn

Dæmið hefst klukkan tíu og ég skal reyna að hafa ekkert voðalega hátt fyrir bókmenntafræðingana... Þið vitið að það má ekki hafa hátt á bókmenntafræðasafninu... ;-)

Frygðin er að kála mér... fjandakornið!

Bestu Kveðjur,
Svabbi


[ 2 ]
sunnudagur, nóvember 23, 2003
  Hot incest lesbian pussy action...
Emma er ekki kettlingafull... það hefur verið nokkuð greinilegt undanfarna viku eða svo...

BRJÁÁÁÁ... vrávááááá...
KURRMMMjAAAAÁÁÁÁÁ!!!

Jú, þið getið rétt, helvítis læðan er breima... og dóttir hennar líka...

Og rétt eins og maður hefði getað giskað, þá er hafið lesbískt ástar-haturs-blóðskammar samband í Drápuhlíð 21.

Veinandi og vælandi læður sleikjandi hvor aðra og hömpandi...
Mein gott! Við hleypum ekki lengur börnum inn í íbúðina, enda nudda þær rassgötunum utan í allar lifandi verur sem þær sjá, sérstaklega karlmenn...

Sérstaklega er Emma orðin Masó-kisa eins og henni einni er lagið... lætur mann klóra sér næstum til blóðs, malandi eins og sláttuvél...
Mysa breimar miklu vægar, það er meira eins og nýburi kjökri inni í íbúðinni...

Please god, make it stop!
Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 6 ]
föstudagur, nóvember 21, 2003
  Morgunblogg...
Morgunrökkrið gerir það alltaf að verkum að ég sef lengur...
Ég á rosalega erfitt með að vakna í nóvember, enda finnst mér nóttin vara til tíu á morgnanna.
Píndi mig samt á fætur alveg klukkan hálftíu í morgun og drattaðist í vinnuna...
(I need to get a grip)
Sjálfsdáleiðsludiskurinn virðist vera að virka, ég er ekki orðin sjálfstæð og sterk kona, en ég sef eins og brasilískt letidýr.

Það er verst hvað við erum léleg skötuhjúin að halda dóttur okkar úr rúminu. Hún er hin versta plága, sérstaklega af því að það er svo rosalega kósý að hafa hana uppí hjá sér...
En hún rústar nætursvefninum með sparki og þegar hún lætur hendina á sér snerta mann óhugnanlega laust, svo laust að það er næstum ekki snerting, en það er miklu meira truflandi en nokkur snerting!

ARGH!

Þá rym ég og ýti henni í áttina að mömmu sinni, enda þyrfti öskrandi hjörð af rostungum til að raska ró hennar undir eins og augnlokin hylja sjáöldrin.

Ungawa! Bundolo!

Úga Búga!

Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 3 ]
fimmtudagur, nóvember 20, 2003
  Jubbi skubbi...
Djöfull...
Maður veit að maður er að vinna of mikið þegar maður ætlar að blogga og eina sem manni dettur í hug er: "Djöfull er ég að vinna mikið..."


Nema hvað...
Ég sprellaði í dag fyrir leikskólann Foldakot, sem ég vinn á einu sinni í viku og syng og spila með börnunum...
Fór upp í Salaskóla og söng fyrir einn af kennurunum á Foldakoti... (oooo... ég er svo flippaður... ííííhíhíhíhíhí...)
Söng fyrir hana "nýstárlegan og flippaðan" texta við "Oh Carol" sem samstarfskonur hennar höfðu samið til að hrekkja hana fyrir framan samstarfsfólkið...
Og það versta er... Mér fannst það bara gaman... :D
hahahaha...
Þetta er bara gaman og skemmtilegt að leika sér svona í einhverjum hversdagslegum grínatriðum...

ííííhíhíhíhíhíhtíhítíhítíhí...

Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 0 ]
miðvikudagur, nóvember 19, 2003
  Skrýtin röksemdafærsla...
Einhver skrýtinn frjálshyggjumaður hélt því fram á síðu Sigurðar Hólm að menntun og hHeilbrigðisþjónusta væru óarðbærar og því ætti ríkið ekki að standa í þeim.
Ég hélt einmitt að ríkið ætti að standa í þeim hliðum atvinnulífsins sem ekki væru líklegar til arðbærni á fyrsta stigi, heldur skiluðu gróðanum út í samfélagið í formi betri almennrar menntunar og betri heilsu almennings. Skrýtið.
Að vísu finnst mér að það væri mun líklegra til "arðbærari" heilbrigðisþjónustu að eyða meiri útgjöldum til forvarna og íþróttakennslu og heilbrigðs mataræðis í skólum í stað þess að glíma við afleiðingarnar 20-30 árum seinna.
Ímyndið ykkur t.d. hversu margar Skurðaðgerðir væri hægt að sleppa við að framkvæma með því að ala upp heilbrigð börn sem neyta holls matar og hreyfa sig reglulega.
Hversu mikið af heilbrigðiskostnaði samfélagsins má rekja til lélegs lífsstíls okkar og hversu miklu af þessum kostnaði væri hægt að afstýra með góðu forvarnastarfi og lífsstílsmótun.
Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 4 ]
  Birta eða ekki birta?
Nú er það samviskuspurning dagsins...
Minn vantar pening fyrir jólagjöfum og svoleiðis...
Ætti ég að hleypa eins og einni auglýsingu inn á síðuna til að drýgja tekjur mínar?
Hvað finnst ykkur?
N.B. ég mun ekki fara að halda aftur af mér til að vernda "auglýsingahagsmuni".
Bestu Kveðjur,
Svabbi

p.s. í öðrum fréttum,
ég fór á Elf í gær og hún er sjúklega fyndin og súr!
Bestu kveðjur,
Svavar


[ 4 ]
mánudagur, nóvember 17, 2003
  Trallalalala
Ég held að MSingar hafi haft alveg rosalega gaman að þessu balli ef marka má þau blogg sem ég skannaði lauslega í gær... Hégómlegur, ég veit... en ég varð bara að tékka hvernig þau fíluðu þetta.

Ég held að Hraun sé bókað næsta fimmtudag á Nelly's, annars er ég ekki sjúr.
Þeir sem vilja fá Hraun til að spila eru velkomnir að hringja... hehehe :-)
Annars er nú í undirbúningi lítil jólaplata sem koma mun út í mjög takmörkuðu upplagi.
Bestu kveðjur,
Svavar Knútur


[ 5 ]
föstudagur, nóvember 14, 2003
  Um Tónlist...
Ég hef gaman að tónlist og ég hef rosalega gaman að því að dansa og syngja...
Ég hitti konu í dag í sambandi við vinnuna sem ég ræddi við um tónlistaruppeldi og þýðingu þess að fá tilfinningu fyrir tónlist.
Og ég fór að pæla...
Sem tónlistarmaður horfi ég á fólk á gólfinu og ég fylgist með því og reyni að skilja það.
Mér sýnist á öllu að um 80% fólks hafi mjög litla tilfinningu fyrir tónlist.

Nokkrar manneskjur sem koma á dansgólfið hafa verið aldar upp með alvöru tónlistaruppeldi, þ.e.a.s. að tónlist hafi verið spiluð almennt á þeirra heimili og sungið og haft gaman að.
Flestir aðrir geta ekki dansað nema þeir kunni lagið eða hafi séð myndbandið og geti hermt eftir stælunum sem það sá.
Risastór hluti stelpna getur til dæmis ekki haldið áfram að dansa ef það er ekki lag sem þær hafa heyrt áður eða skilja.
Þá ryðjast þær upp að sviðinu og fara að rífa sig og heimta að fá "eitthvað sem allir kunna!" Ég svara þá yfirleitt til baka að Gamli nói sé ekki á prógramminu...

Myndu þær gera þetta í Afríku eða í Pakistan? Myndu þær fara upp að trommurunum og söngvurunum við varðeldinn og segja "hau! kanntu ekki eitthvað R&B, eitthvað með Djöstin Timberleik?"
Í þessu felst kjarni málsins!
Tónlist snýst ekki um kunnugleika, heldur um fallegar melódíur og bít sem fólk hreyfir líkama sinn við af því það hefur tilfinningu fyrir því.
Fólk sem hefur tilfinningu fyrir tónlist (t.d. eins og ég :) ) dansar af því það finnur eitthvað gott í bítinu og melódíunni og hreyfir líkamann með.
Fólk sem hefur ekki tilfinningu fyrir tónlist dansar í raun ekki, heldur stundar eróbik og hermikrákudjassballett eftir einhverju sem það er þaulkunnugt.

Ég vil fleira fólk með tilfinningu fyrir tónlist. Það er gaman að sjá svoleiðis fólk á dansgólfinu. Það dansar ekki samkvæmt einhverri fyrirfram ákveðinni uppskrift úr tónlistarmyndbandi, heldur eftir sinni eigin tilfinningu, eftir taktinum, eftir fílinu...

Ég fæ það á tilfinninguna stundum þegar Hraun! spilar, að vinir okkar og áhorfendur hafi mörg hver góða tilfinningu fyrir músík og geti hreyft sig án þess að við séum nákvæmlega að spila það sem er kunnuglegt.
Það þýðir að tónlistin sem Hraun! er að flytja hefur gott bít og gott fíl. Sem ég er ánægður með.

P.S.
MS-INGAR RÚLA!!!
Ég elska '85 ballið hjá MS.
Moonboots rúlluðu þessu upp og þetta var officially auðveldasta gigg allra tíma!


[ 3 ]
miðvikudagur, nóvember 12, 2003
  War of the Worlds rúlar feitast!
Sjitt hvað mér finnst Richard Burton með megasexý rödd í War of the Worlds.
Ég vildi að ég væri með svona rödd...
Að vísu hef ég 34 ár til að ná þessu...

En djöfulsins Stemningsstykki er War of the worlds! Maður lifandi! Horsell Common and the Heat ray er bara flottasta popp-rokk stykki allra tíma!

Yfirlýst stefna mín er að verða jafn sexý og Richard Burton og jafn töff og Jeff Wayne (fyrir utan hvað hann er gay...) var á þessari plötu...

Nákvæmlega!

mmmm...
Túnfiskpasta er gott... með steiktu grænmeti... mmmm...

Hraun rúlar líka...

Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 11 ]
mánudagur, nóvember 10, 2003
  Vinnuást...
Ég elska að vinna...
Mér þykir ógeðslega gaman að þrauka og vinna með skemmtilegu fólki...
Ætli ég sé vinnualki?

Skiptir sosum ekki máli...
Ég pantaði fullt af bókadrasli á Amazon á dögunum... Nú er bara að sjá hvernig gengur að fá þær...
Yiha!
Robert Crumb er hetjan mín.
B.T.W. Hver er með R. Crumb bókina mína, coffe table art book?

Endilega verið í Sambandi með það...
Bestu kveðjur,
Svavar Knútur


[ 4 ]
föstudagur, nóvember 07, 2003
  Fannst Engum...
...forsíðumynd Morgunblaðsins í gær undarleg?
Þar var George Bush að undirrita lög gegn fóstureyðingum á 5. og 6. mánuði meðgöngu, sem er sosum skiljanlegt, enda frekar fríkí að eyða fóstrum á þeim tíma nema eitthvað alvarlegt heilsumál ógni...

En hvern vantar á myndina?

Bestu kveðjur,
Svavar Knútur


[ 6 ]
  Andra Snæ rata sönn orð á munn...
...eins og venjulega :)

Lesið þetta og sannfærist...
Star.is
Þvílíkur vettvangur sannleikans


[ 1 ]
miðvikudagur, nóvember 05, 2003
  Urgandi Gleði...
Júbbí...
Ég hélt að ég væri að drukkna í verkefnum... Og loksins þegar ég sá ljósglætuna var hlaðið á mig fleiri verkefnum...
:D

Það er totally verið að reyna að finna breaking punktinn minn... :D

Sjitt...

En ég fíla það dálítið...
Sjá hvað ég get staðist...
60-80 tíma vinnuvika... vottever!
I CAN TAKE IT!!! Give it your best shot!
Bestu Kveðjur,
Svabbi


[ 3 ]
þriðjudagur, nóvember 04, 2003
  Víííí
Snjór... vííííí :)
jibbííííí! :)

Ógusslega fallegur dagur...
Og svo fer ég á kvöldvaktir á fimmtudaginn...
urg...
jæja... það er nú bara svoleiðis... Enda er ágætt að vera á kvöldvöktum...
Bestu kveðjur,
Svavar


[ 2 ]
  Envy me!!! :)
Það hafa ekki allir tekið þessa mynd! :)
Oneeeeiii :)


[ 2 ]
mánudagur, nóvember 03, 2003
  ...Metrosexual... eh...
ókei...
David Beckham
Þórhallur í Ísland í Dag
Jónsi í Svörtum
Friðrik tískulögga og vitleysingur Weishappel
Arnar og Bjarki
og síðast en ekki síst...
Arnar Gauti!!!

Er enginn að sjá pattern hérna nema ég?

ahem...
svo ég noti nú orðin sem Íslensk tunga hefur gefið mér...

Flautaþyrlar...
Spraðabassar...
Flottræflar...
Loddarar...
Yfirborðskenndir Mörhausar...

ahem...

Takk Þórarinn (badabing.is) fyrir ægilega skilgreiningu á ógeðslegum týpum af mönnum.
Ég meina RAKAKREM?!?!? For Crying out loud!
annt um líkama sinn... flottustu líkamsræktarstöðvarnar og klúbbarnir og hárgreiðslustöðvarnar...

Við erum karlmenn, ekki fokkíng Metró Barbí!

ÉG fíla svona týpur af körlum um það bil jafn mikið og ég fíla dauðadrukknar Hverfisbarsglyðrur sem kunna ekki að dansa nema þær hafi séð hvernig bikinígellurnar á popptíví dönsuðu við lagið í myndbandinu...

KOMMON!!! Hvað varð um það að vera bara manneskja?

ÉG lít ekki á mig sem tilfinningaheftan karlmann.
Ég er ekki heldur mjúkur maður...
Ég er bara maður, bara manneskja...
Ég læt ekki bósa og simba snyrta á mér hárið og skafa undan nöglunum á mér.
Ég nota ekki rakakrem eða hugsa voða voða mikið um útlitið og innbúið í íbúðinni...
Ég er bara manneskja og það er það sem skiptir máli!

Fokk jú helvítis metrósexúal tízkufyrirbrigði.

URG!

Pirraður út í flottræfisháttinn...
Helvítis snyrtivörufyrirtækjahálfvitarnir eru búnir að metta kvenmarkaðinn og þurfa því að sannfæra karlmenn um að þeir þurfi sama helvítis óþarfann og konur eru búnar að láta heilaþvo sig til að kaupa...

Góða nótt...
Helvítis Svavar


[ 12 ]
sunnudagur, nóvember 02, 2003
  Í landi sem ég þekki...
Í landi sem ég þekki þykir flott að nauðga...
Ekki bara flott, heldur hreinlega lífsnauðsynlegt.

Sérstaklega þykir flott að nauðga mállausum, því Þá heyrist ekki neitt kjaftæði, "þögn er sama og samþykki ekki satt?"

Birtar eru myndir í blöðunum af fórnarlömbum nauðgana með fyrirsögnum: "Sko hvað við eigum duglega nauðgara!"
Birtar eru myndir af nauðgurunum við iðju sína skælbrosandi.

Nauðgararnir klæðast flottum fötum og aka dýrum bílum og eru virtir í samfélaginu, þeim er borgað fyrir að nauðga.
Þegar fámennur réttindahópur reynir að benda á siðferðislega galla þessarar hugmyndafræði er einfaldlega blásið á þá og sagt: "Þið eruð bara tilfinningaverur og skiljið ekki nauðsyn þess að nauðga. Ykkar rök eru líka bara tilfinningarök og ekki marktæk sem slík. Ljótt að nauðga... HAH! Þvílíkt bull! Við verðum að lifa í þessu landi hér á norðurhjaranum lengst úti á hafi og þess vegna verðum við að nauðga ef við viljum komast af. Á fólk kannski að hætta að sofa hjá hvert öðru?"

Og þegar vitleysingarnir benda á að það sé munur á kynlífi og nauðgun er slökkt á þeim, ráðamenn gera svona hreyfingar með höndunum eins og "blaaaablaaablaaablaaa", rúlla aftur augunum og segja brosandi framan í myndavélina: "Hvernig eigum við að fjölga okkur, með því að fróa okkur? HAHAHAHA"

Og þjóðin hlær með... Það er dæmalaust hvað nauðgarar geta alltaf verið fyndnir! hahaha! Um hvað voru þeir aftur að tala? Æi skiptir ekki máli, áfram nauðgun!

Og svo segja nauðgararnir hressir og kátir, "Sjáið hvað við skárum flott í hana með verkfærum okkar? Sjáið hvað við erum færir nauðgarar? Sjáiði bara, sjáiði!" Og flennistórar myndir koma í blaðinu af sundurskornum fórnarlömbum, húrra húrra!
Og þeir eru ekki búnir, þeir halda áfram að skera og nauðga og brjóta það sem brotnað getur, bora og kremja. Húrra Húrra!

"En nú er búið að taka ákvörðun um að nauðga, svo allir verða að standa saman! Þjóðin verður að standa saman um þetta! Og þessi svokölluðu "stígamót" og "and-nauðgunarsamtök" og "mannverndarsamtök" eru bara einfaldlega hryðjuverkamenn sem reyna að eyðileggja fallega góða landið okkar og skemma fyrir framförum, því nauðganir eru nauðsynlegar fyrir framfarir!"

Í þessu landi skilja menn ekki muninn á því að elskast og nauðga. Það er það sama. Að kyssa og bíta er það sama, að strjúka og berja er það sama, að faðmast og kremja, að gæla og stinga.

Og við erum bara vitlaus, óþroskuð, tilfinningaheimsk og afturhaldssöm.

Bestu Kveðjur,
Svabbi


[ 2 ]
Virka þessi Drösl???