Þankatankurinn



Svavar Knútur
Kristinsson,

Félagsauðströll, heimspekingur, umhverfis-verndarsinni og tónlistarmaður.

Ímeilaðu
mig...

NÝTT!!!
Viltu fá
(eða hætta að fá)
tilkynningar
um tónleika
HRAUNS!,
eða Svavars Sjálfs?
Sláðu inn
netfangið hér:



This page is powered by Blogger. Isn't yours?




Hljómsveitin Hraun! veitir mér listræna útrás.

Hraun á Myspace

Sjálfurinn á Mæspeis

Nýjustu Demó:

Ease your mind (01.07.2006)

Dansa... (28.09.2005.)

Ástarsaga úr fjöllunum (Sumarið 2005)

Goodbye my lovely (19. júní 2005)

Kisa litla (Maí 2005)

Your love was death to me (Janúar 2005)

Call off your Cavalry (September 2004)

You should call a doctor (Maí 2004)

Kysstu tímaglasið (endurbætt útgáfa 2004)

Mother's day
( 2004)

Jólaplata Hrauns 2003: Þrautgóðir á Hraunarstund

Jólaplata Hrauns 2004: Kátt er um jólin

Partýplatan Partý!

Jólaplata Hrauns 2005: Höldum jól

Jólaplata Hrauns 2006: Jólamolar



Latur myndasmiður, en engu að síður er hér að finna eitthvað efni...

Molar...


 
þriðjudagur, desember 30, 2003
  Áramótaball með HRAUN! á GRAND ROKK!!!
Hljómsveitin Hraun! verður með Áramótapartý á 2. hæð Grand Rokk á Gamlárskvöld!
Tónleikarnir byrja upp úr Eitt um nóttina og leikið til morguns!!!
Þið mæta!!!
Tónleikarnir verða svona:
1. Dys: 10 mínútna spilerí
2. Heiðingjarnir eða 5. herdeildin: 30 mínútna spilerí
3. Heiðingjarnir eða 5. herdeildin: 30 mínútna spilerí
4: Hraun! Spilar smá tónleikaprógramm og síðan verður bara Ball fram á Nótt!!!

JEEEEEI!!!

Ég er rétt að vona að Stebbi komi með Partýið sitt niður á Grand Rokk um þrjúleytið...
Annars drep ég hann með skeið...

Bestu kveðjur,
Svavar


[ 4 ]
  Deyfingin Dvín...
GAAAAA!!!!
vont í andlitinu mínu!!!
Ég var búinn að gleyma hvað það er vont þegar deyfing fer úr!!!
Ég sit fyrir framan tölvuna og öskra með puttunum inn í Lyklaborðið með svona stóískan svip á andlitinu!!!

GAAAAAA!!!

HELVÍTIS GIMPABELJA!!!!

AAAAA!!!

Engu að síður er Björn Þórhallsson hinn ljúfasti læknir...


[ 0 ]
  Dentistry...
Éh vah hjam tahmlakknii áuaannn...
ekhi fihna fyhnin vinhti hemmignum a anlihhinu...

But seriously.
Björn Þórhallsson Rúlar!
Hann er góður og ljúfur tannlæknir sem stendur sig með prýði!

Bestu Kveðjur,
Svavar

p.s. ég er samt dofinn í vinstri hluta andlitsins...


[ 0 ]
mánudagur, desember 29, 2003
  Hressilegur göngutúr í vinnuna í morgun...
hehehe...
40 mínútur neðan úr Drápuhlíð upp á Mogga...
Stoppaði þrisvar til að hjálpa bjargarlausum bílum í sköflum...
eh...

Svona leit ég út þegar ég kom í vinnuna...

og svona:
...

...

Hreeesss... :)


[ 4 ]
  Gleymdi einu... :)
Alveg rétt! í gær hitti ég líka Örvitann hann Matta Á. Hann er helvíti fínn. (hélt að vísu ekki þræði sökum ölvunar... ;)
Það er alltaf gaman að hitta skemmtilegt fólk í kjötheimum...
Bestu Kveðjur,
Svavar

Og hér fyrir Bridget, kærustuna hans Kára vinar...
Meiri snjó (featuring The Breiðholt Men's Choir)


[ 1 ]
sunnudagur, desember 28, 2003
  Gærkveldið
Hraun! lék fyrir vin okkar og "fósturpabba" minn, hann Alfreð í gær, því hann var fimmtugur...
Sjæse!!! Ég trúi því ekki að ég hafi þekkt hann síðan áður en hann varð fertugur og hann hefur ekkert breyst, alltaf jafn myndarlegur...

Nema hvað, eftir það enduðum við strákarnir á Grand Rokk á haugafylleríi... (eða allavegana var ég haugafullur...)
Þar hitti ég einhvern tvítugan frjálshyggjumann úr Versló, sem staðfesti verstu fordóma mína um þetta fólk... (ég nefni engin nöfn til að vernda manninn fyrir aðkasti, en hann kom vondu orði á nafn annars vinar míns sem deilir með honum nafni.) :D
Ég reyndi að rökræða við manninn á rólegu nótunum og halda öllu vinalegu, en guð minn góður hvað það var erfitt! Svona fólk er hreinlega eins og Gunnar í Krossinum. Það hefur höndlað algildan sannleik sem það mun aldrei sleppa.
Útgangspunktur minn var eftirfarandi: Kommúnismi og frjálshyggja eru gallaðar hugmyndir, það er ekki til neitt algilt kerfi til að díla við alla hluti, maðurinn er vera sem aðlagast og þess vegna verður hann að aðlagast breyttum raunveruleika og díla við lífið eins og það gerist. Sama gildir um samfélag manna.

Brot úr samræðum um dauða- og meiðingaíþróttir:
Gaur: Sko, ég má gera hvað sem ég vil ef ég skaða ekki aðra.
Ég: En máttu skjóta þig í hausinn og valda þannig fjölskyldu þinni og vinum ómældu andlegu tjóni?
Gaur: Já, því það er einfaldlega þeirra mál ef það er að taka það eitthvað nærri sér ef ég drep mig.
Ég: Ertu að segja mér að eini skaði sem þú getur gert fólki sé líkamlegur, tilfinningalegt tjón sé gersamlega einskis virði?
Gaur: Það er bara súbjektívt. Tilfinningar eru ekki neitt, einskis virði!
Ég: Ertu að segja mér að ef þú dræpir konuna mína og dóttur mína að þú hefðir ekki gert mér neinn skaða persónulega?
Gaur: Ég væri auðvitað búinn að fremja glæp með því að drepa þær og ég væri búinn að valda þeim skaða...
Ég: Skítt með þær, þann glæp, þær eru dauðar, ég lifi eftir (svavar var fullur... granted...)! Ertu að segja mér að þú hafir ekki valdið mér neinum skaða ef þú myrðir fjölskyldu mína?!?!?!?
Gaur: Já. Því tilfinningalegur skaði er algerlega þitt mál.
Ég: Úff...

Við lok erfiðra samræðna:
Ég: Ég vona bara að þú munir melta þessar samræður okkar og...
Gaur: Nei, það geri ég ekki...
Ég: Ha? Hvað meinarðu?
Gaur: Ég tek ekkert mark á svona geðsjúklingum.
Ég: Bíddu, ertu að segja mér að skoðun þín sé svo fullmótuð og fullkomin að það sé ekki hægt að debatera hana? Hún sé einfaldlega fullkomin og ekkert geti haggað henni eða mótað á neinn nýjan hátt? Ertu að segja að engin ný upplifun eða reynsla geti haggað hugmyndafræði þinni eða valdið þróun á henni?
Gaur: Já, ég hef mína sterku lífsskoðun og ég lifi eftir henni og ekkert sem þú segir mun hafa áhrif á hana.
Ég: Þá er þetta ekki pólítík eða hugmyndafræði, heldur trúarbrögð og það fanatísk ofsatrú, því hugmyndafræði og jafnvel trúarbrögð er hægt að ræða og þróa og taka mið af veruleikanum. GAAAA...
Gaur: Þú bara skilur ekkert og það er ekkert að marka þig.
Ég: Ég vona bara að eitthvað af því sem við höfum verið að ræða muni sitja eftir einhvers staðar í kvörnunum á þér, því annars ertu illa staddur vinur...
Gaur: Það er þitt mál...
Ég: Úff... (Hugsa:Helvíti er þetta allt einfalt fyrir honum... Ég vildi að ég hefði svona einfalda heimssýn... Þá gæti ég eytt ótrúlega mikilli orku í eitthvað annað... Ég trúi því bara ekki að það sé til svona einfalt fólk með svona brenglaðan hugsanagang.)

Þessar samræður minntu mig endalaust mikið á samræður sem ég átti við manneskju í kristnum söfnuði sem sagði að fólk í Afríku fyrir daga trúboðanna færi allt til helvítis sama hversu gott það var af því að það hefði ekki tekið við Ésúm Kristi sem frelsara sínum. Sama manneskja sagði að ekkert siðferði væri til án Kristinnar trúar, allt vestrænt siðferði byggði á kristinni trú og guð elskaði engan nema þá sem játuðust honum og þekktu hann. Þess vegna væru trúboðar úti um allt, því annars myndu allir fara beinustu leið til helvítis, sama hversu góðir þeir væru, því enginn getur verið góður án þess að þekkja guð...



[ 6 ]
föstudagur, desember 26, 2003
  Party party party!!!
Muna, Partý eftir klukkutíma!!! :)
Koma Svo!!!
Dánlóda þessu líka!!! Jólin Allsstaðar...
Nema hvað, þessi útgáfa af Jólin Allsstaðar er ekki beinlínis neitt djók, þetta er meira svona tribjút til Konráðs Bé og kó hér forðum daga...
Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 1 ]
  PAAARTYYYYY!!!
HÚRRAAAA!!!
Það er Partý í Kvöld.
Hljómsveitin Kaffi kemur saman eftir langan tíma öllum til mikillar gleði og syngur og trallar! (þar sem Helgi er á skerinu.)
Látið boð út ganga!
Allir eru velkomnir á Kaffi Vín í kvöld, annan í jólum, klukkan tíu-ellefu, en það verður opið til þrjú með tilheyrandi Tralli og Skralli!!! :)
Hún Kristín Elskan ætlaði að hafa lokað en hætti við vegna þess að hún elskar mig svo mikið og ákvað að hafa opið í staðinn! :)
JÚBBÍÍÍ!!!
Allir að mæta!!!

Svabbi


[ 0 ]
fimmtudagur, desember 25, 2003
  Gleðileg Jól
Gleðileg jól kæru vinir og ættingjar.
Ég smelli nú inn þremur jólalögum til viðbótar

Er líða fer að jólum

Christmas time is here (eftir Vince Guaraldi)

Heim um jólin (Nebraska eftir Bruce Springsteen)

Bestu Jólakveðjur,
ykkar vinur,
Svavar


[ 0 ]
miðvikudagur, desember 24, 2003
  Jólaplatan loksins tilbúin!!!
Húrra húrra húrra!
Hraunmenn tóku sig saman í andlitinu á sunnudagskvöldið og komu sér niður í húsnæði þar sem notast var við gríðarsniðuga græju og allt klabbið tekið upp á tölvuna mína. Það var reffilegt þriggja tíma sessjón þar sem um átta lög voru spiluð inn. Við ákváðum að taka allt upp í samspili en ekki sinn í hvoru lagi eins og oft tíðkast.
Klukkan tvö var ég kominn heim með græjurnar og hófst handa við að henda orgelum og píanótrökkum yfir lögin. Lauk því um sexleytið á mánudagsmorgun og fór að sofa.
Klukkan átta á mánudagskvöldið var ég kominn úr vinnunni, fór að pæla í lögunum og bæta inn röddum og fleiru. Skömmu seinna komu Jósi, Stebbi og Dagbjört Dís vinkona í heimsókn og vinnan hófst fyrir alvöru. Við Dagbjört tókum upp einfaldan og djassaðan jóladjammara og Jósi og Stebbi hömuðust í bakröddum og pródúksjónráðgjöf auk þess sem Stebbi tók upp gestgjafahlutverk sitt af mikilli snilld með fordæmalausu undirspili undirritaðs.
Klukkan átta að morgni Þorláksmessu fór Jósi heim og Stebbi í vinnuna og ég lagði mig í þrjá tíma. Rétt eftir að ég var búinn að drattast á fætur um hádegisbilið kom Nanna til að syngja lagið um flóðhestinn. Það kom henni nokkuð á óvart að við höfðum spilað lagið um þríund fyrir neðan hennar register... úbs... :-/ En Nanna er algjör trúpper og hún þraukaði gegnum lagið af mikilli hetjulund. Nokkrum mínútum síðar kom Loftur og við lögðum lokahönd á verkið... Húrra!!!

Tók þá við Brennsluprósess og prentun á kóverum og voru um 35 eintök af plötunni tilbúin um klukkan níu í kvöld. Við Stebbi fórum þá örþreyttir á Þorláksmessurúntinn þar sem við dreifðum eintökum af plötunni og jólakortum. Ég ákvað að láta plötuna vera jólakort frá mér... (þið sem fenguð ekki plötu, þið vitið að það er bara vegna takmarkaðs upplags... :) Ég skulda ykkur öllum plötu, en sem sárabót megið þið fá mp3 af jólaplötunni sem koma hér upp á vefinn fljótlega. En við skulum byrja á fyrsta lagi Jólaplötunnar, Jólin Allsstaðar, sem tekið er til heiðurs ógleymanlegrar útgáfu smekkleysugengisins af því lagi hér forðum daga.
...Takið sérstaklega eftir dimmum "aaaaaa" bakröddum í síðara versinu. :-)

Sumsagt, Jólaplatan er komin út og hægt að nálgast hana hjá mér. Ýmis vöruskipti er hægt að ræða... :)

Þið sem ég var búinn að lofa að fá að vera með í jólaplötunni eigið inni hjá mér stóra afsökunarbeiðni, en tímaskorturinn olli þessu veseni... Þið eruð velkomin á næstu jóla- eða páskaplötu Hrauns!
Bestu Kveðjur og Gleðileg Jól vinir mínir,
Herra Svavar


[ 5 ]
sunnudagur, desember 21, 2003
  Jólin, Jólin...
Jólalagasamkeppninni á rás 2 lokið á mjög svo fyrirsjáanlegan hátt...
Fussumsvei...
:)
Ég verð nú að segja að það stóðst fullkomnlega sem Helgi Hrafn sagði mér með jólalagið sitt. Það venst ótrúlega vel og hljómar betur við hverja hlustun. :)

Mér hefur alltaf þótt mjög vænt um Helga Hrafn. Hann er alveg frábær strákur, svo ekki sé minnst á ofboðslega klár tónlistarmaður, umkringdur ótrúlegu hæfileikafólki... (Og hér sit ég, frjór, en glataður tónlistarmaður umkringdur vitleysingum... :)

Það er samt alltaf jafn fyndið þegar hann er að skrifa í dagbókina sína að nú ætli hann að fara að skrifa fyrir alvöru og svo líða margir mánuðir að næstu færslu... :)

Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 1 ]
föstudagur, desember 19, 2003
  Gleðitíðindi...
Toggi og Rökkvi eru sáttir, sem er gott...
Þó Rökkvi og Toggi eigi næstum ekkert sameiginlegt held ég að menn eigi alveg að geta verið til hlið við hlið í þessari blessuðu veröld.
Ég hef að vísu aldrei fattað þennan ríg milli fólks sitt hvoru megin Suðurgötunnar. Mér finnst alltaf jafn undarlegt þegar fólk er dæmt út frá yfirborðslegum hlutum eins og útliti eða fötunum sem það klæðist. (fyrir utan FM-hnakka, því allir FM-hnakkar eru hálfvitar eins og allir vita...)

Ég las færsluna hans Togga um að 80's dæmið væri búið og húmorinn löngu úti. (og consequentially að tölvunördar væru gimp... ;) hehehe...
Ég veit ekki... Ég hef aldrei orðið neitt sérstaklega var við neina sérstaka 80's bylgju eða sprengingu. 80's er bara tímabil sem er gaman að minnast öðru hvoru, rétt eins og hippatíminn, gruggtónlistin og the swingin' sixties... Þetta er beisikallí skemmtileg tónlist og flippuð föt, eitthvað sem fólk getur glatt sig með. Mér finnst til dæmis ofsalega gaman að dansa við 80's tónlist, diskó, fönk og swinging easy listening músík, ég þarf engar "bylgjur" til.
Fólk sem ferðast á tískubylgjum verður aldrei hamingjusamt. Það lifir ekki á eigin forsendum. Ég þarf enga útvarpsmenn eða tískufrömuði til að segja mér hvaða tónlist eða fatastíl mér þykir gaman að.


GÓÐAR FRÉTTIR!!!
Ég er kominn með vinnu á Mogganum fram á Haust!
Au Revoire Skuldasúpa!
Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 1 ]
miðvikudagur, desember 17, 2003
  If it ain't broke...
...why fix it...
Ég er mikill áhugamaður um tölvuleiki, sérstaklega hlutverka- og strategíuleiki.
Sérstaklega dýrkaði ég Fallout seríuna, sem mér fannst vera toppurinn á báðum geirum.
Svo heyrir maður að þeir ætli að gera Fallout 3 og ég er alveg YIIIHAAAA.
En fyrst gera þeir leikinn Lionheart, sem "byggir á Fallout kerfinu" og endaði á því að vera fullkomnlega glataður og lélegur leikur, ódýrt klón af Diablo.
Og svo tilkynntu þeir að þeir hyggðust færa stóran hluta af "öllu því sem var svo flott við Lionheart" á nýja Fallout leikinn, svona rétt til að gera hann betri en hina.
...
IF IT AINT BROKE, WHY FIX IT?!?!?!?
...
Þessir gæjar eyddu mörgum mannárum í að "bæta" Fallout 3 hugmyndina, sem engu var við að bæta, fólk langaði bara í fleiri sögur upp úr þessum heimi og flottari karaktera og vopn, það þurfti ekki að endurhanna heilt hugbúnaðar- og leikkerfi, þetta var frábært eins og þetta var!
En neeeei... menn verða að búa til eitthvað nýtt, jafnvel þó það verði verra og leiðinlegra, það verður að "fullnýta nýjustu tækni og allt!" Helsti kostur Fallout var sá að lausnirnar voru einfaldar og leikirnir gátu fúnkerað á einföldum kortum.
Fíbl...
Nema hvað...

Nú er búið að loka á allt klabbið, nokkur skrínsjott sem komu voru mikil vonbrigði og Falloutserían virðist vera búin, ónýt.
Æðislegt...
Aðdáendur Fallout áttu það sameiginlegt að vera hrifnir af stemningunni í leiknum, pælingunni, sögunni, ekki tækninni.
Af hverju gátu menn ekki bara notað sömu vélina og haldið áfram að búa til flottar sögur?

Urg!
Svabbi, sem hefur ekki fundið góðan RPG eða Strategy leik í þrjú ár!


[ 2 ]
þriðjudagur, desember 16, 2003
  Börn...
Ég var núna rétt áðan að spila með leikskólakrökkunum mínum á smá samverustund áður en jólaballið þeirra byrjar.
Það var æðislega gaman, allir sungu með og ég sá mömmu kyssa jólasvein og allt... :)
Síðan þegar það var búið var ég að labba út og mæti Hrönn, sem vinnur á leikskólanum í afleysingum (Ofboðslega sæt stelpa sem á alveg jafn sæta systur... ;), með lítinn kút sem ég kannast dálítið við í fanginu. Hann hélt sér í hana og horfði á mig og ég spurði hvort ég mætti halda á honum. Þá kinkaði hann kolli og hallaði sér á mig og ég greip hann og hélt á honum í smá stund...
ÞVÍLÍKUR KNÚSIBANGSI!!!
Litla skinnið greip um hálsinn á mér og hjúfraði sig upp að mér (hann getur verið í þessum stellingum klukkutímum saman án þess að hreyfa sig) og var þvílíkt öruggur hjá mér. Ofboðslega leið mér vel að vera með svona lítinn kút í fanginu sem gersamlega vill bara vera vinur manns alveg alla leið. Þetta er svona líka með Kristinn litla frænda minn (þó hann sé ívið fljótari að finna sér eitthvað annað að gera).
ÞVÍLÍK KELIRÓFA!!!
Vá! Ég elska börn. Mér þykir ofsalega gaman að vinna með þeim og svona knúsmóment eru ótrúlega verðmæt...

(Minn er ekkert annað en risastórt bros í dag...)
Bestu Kveðjur,
Hr. Svavar


[ 0 ]
mánudagur, desember 15, 2003
  Eitt sem ég hef tekið eftir...
Það er eitt sem ég hef tekið eftir við fólk...
Þegar maður segist vilja fá borgað fyrir að spila, þá fattar það hreinlega ekki af hverju? Sérstaklega sumir forkólfar nemendafélaga...
"Hva...? finnst þér þetta ekki gaman? Er ekki nóg að vera bara í partíinu? Hey, þú færð bjór í boði hússins!?!"
Sumir átta sig vissulega á því að maður er að vinna gríðarlega krefjandi vinnu og þó maður brosi breitt býr mikil vinna undir góða skapinu. Þess vegna eru þeir oft reiðubúnir að leggja fram einhverja summu.
En aðrir hreinlega fatta ekki að tónlistarmenn séu aktúallí að vinna eitthvað starf þegar þeir spila, rétt eins og leikskólakennarar (sem eru bara að leika sér með börnunum), leigubílstjórar (sem eru bara að rúnta eitthvað um) og aðrir listamenn (sem eru bara eitthvað að föndra...)
Fólk heldur að tónlistarmaðurinn sé bara obboslega glaður að vera hrókur alls fagnaðar, svona drekkandi plötuspilari í góðum fílíng, örlítið óstabílli en DJ og á það til að gera mistök, sem er algjör skandall, en sem betur fer þarf ekki að borga honum af því að hann er bara með í partíinu.
...

Nákvæmlega...

...

Mér finnst gaman að spila í partýum, sérstaklega þegar fílingurinn er góður.
Mér finnst líka mjög gaman að spila á tónleikum þegar fólk er að fíla það sem ég er að gera.
Mér finnst líka mjög gaman að starfa sem blaðamaður og við kennslu og skógrækt og fleiri störf.
Þetta er allt mjög skemmtilegt. Í raun vorkenni ég fólki sem eru slíkir hálfvitar að ganga í gegnum þriggja til sjö ára háskólamenntun til að mennta sig upp í starf sem því finnst leiðinlegt, bara til að vera með 50.000 krónum hærri tekjur eftir skatta en næsti maður.
Á að refsa manni fyrir að hafa gaman að vinnunni sinni?

Mér finnst gaman að spila fyrir fólk, þó það sé stundum fífl og biðji mann um að "spila nú eitthvað sem allir kuuuunnnaaaaa!!! Eitthvað með Reeeiiidííííóóóóheeeeed eða Jöööstiiin Tiiimmbbeeerrllaaaakeee!!! Eitthvað AAARRENNNBBBÍÍÍÍÍÍ!!!"

Það er hluti af því að spila að spila ekki fullkomnlega, því það gerir tónlistina skemmtilega. Mistökin og það óvænta og tilbreytingin sem felst í því að geta með lítilli augnhreyfingu breytt dýnamík lagsins í allt aðra átt eru það sem gerir tónlist lifandi. LIFANDI TÓNLIST ER SPILUÐ AF LIFANDI FÓLKI. TÓNLIST Á PLÖTU ER BARA Á PLÖTUNNI.

Djö...
ég er búinn að blogga allt of mikið í dag...
Það mætti halda að ég hafi þjáðst af Bloggharðlífi undanfarið og eitthvað hafi verið að sleppa út...

Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 2 ]
  WTF???
Ekki að fatta hvað þetta kemur deiglunni við...
Vissi ekki að sumir væru svona svakalega Ésú eitthvað... ;)

Bestu Kveðjur,
Svalli Túrbó


[ 0 ]
  Hussein aftur...
Einhverjir hafa sett spurningamerki við umfjöllun mína um það hvernig Hússein var náð...
Ég skal fús skýra hugsunina sem þar lá að baki:
Saddam lét ná sér lifandi án þess að berjast og dó ekki píslarvættisdauðdaga.
Þannig gerði hann Bandaríkjamönnum kleyft að draga sig í fjölmiðlana á niðurlægjandi hátt.
Það sem ég meina er að mér finnst auðvitað umfjöllunin um mál hans viðbjóðsleg og þessar myndbirtingar nákvæmlega það sem Bandaríkin voru að gagnrýna Íraka fyrir í byrjun stríðsins. Þetta er hluti af niðurlægingarprósess Bush á andstæðingi sínum til að brjóta niður baráttuþrek Íraka.
En þarna feila menn á einu.
Margir hafa verið smeykir við að berjast gegn BNA af því þeir héldu að Hussein kæmist þá aftur til valda. En hvað hugsa þeir núna?
Nú er bara einn andstæðingur í Írak: Innrásaraðilinn.

Greyið Greyið Hússein að vera lasinn, lúinn og barinn og fúinn. Auðvitað vorkennir maður honum þó hann hafi verið morðingi og harðstjóri. Það er líka skondið að hugsa um hvað 750.000 dalir koma manni stutt þegar maður húkir í holu.
En það breytir því ekki að Hussein brást sínum eigin mönnum fullkomnlega og sveik sínar eigin fullyrðingar.
Ég má segja þetta, því ég er bara venjulegur maður.
Hins vegar á Davíð Oddsson að steinhalda kjafti um þetta og vera dipló, enda er hann þjóðarleiðtogi.

Og hananú!

:)
Bestu Kveðjur,
Svabbi


[ 2 ]
  Af hverju BB mun verða næ formaður Sjálfstæðisflokksins
Ég fíla Deigluna.com. Þetta eru málefnalegir og frjálslyndir sjálfstæðismenn og konur sem virðast hafa afar jákvæða og heilbrigða lífssýn í flestum málum. (Þrátt fyrir að þau séu í þessum guðsvolaða flokki...)
Deiglan er að mínu mati margfalt málefnalegri en nokkurn tíman frelsi.is til dæmis.

En engu að síður er ég sannfærður um eitt:
Björn Bjarnason mun líklega verða næsti formaður Sjálfstæðisflokksins.

"Af hverju?" Spyrjið þið... og jafnvel líka: "og hver eru tengslin milli Deiglunnar og Björns Bjarnasonar?"
Og skiljanlega...

Það má segja að tengslin milli Deiglunnar og BB séu í raun NOR tengsl. Fæstir Deiglumenn kunna að meta ofsóknaróða og illkvittna orðræðu Björns og yfirlæti hans. Slík retórík á sér mun meiri hljómgrunn meðal þeirra sem nú stýra Heimdalli. Mér hefur alltaf sýnst Deiglan eiga sér meiri hljómgrunn í frjálslyndum en hógværum viðhorfum Geirs H. Haarde, sem er ágætis kall þrátt fyrir að vera Sjálfstæðismaður.

Við sjáum orsökina fyrir skoðun minni í persónuleikamun Björns og Geirs H. Haarde, sem er hans helsti keppinautur og yfirleitt betur liðinn meðal íslensku þjóðarinnar.

Björn virðist mér láta í léttu rúmi liggja að beita bolabrögðum og misheiðarlegum vinnubrögðum til að koma sínum málum í gegn. Hann er auk þess nokkuð ofstopafullur og fanatískur maður, tilbúinn að grípa til ótrúlegustu leiða að markmiðum sínum. Þetta má einnig segja um herinn sem honum fylgir. Þetta kristallaðist í Heimdallarkosningunum nýlega.

Björn lifir enn á fornri frægð föður síns, Bjarna Ben, sem var hófsamur hægrimaður og nokkur sátt ríkti um hann meðal landsmanna (þrátt fyrir allt...) Hann er einnig duglegur við að hræða menn til hlýðni, sjáum bara borgarstjórnarkosningarnar. Geir er meira einfaldur stjórnmálamaður sem leitast við að vinna sína vinnu vel (eða svo virðist það allavegana vera frá leikmannsins sjónarhorni.)

Það er einfaldlega karma Björns að svífast einskis til að ná sínum markmiðum. Hann er holdgervingur þess sem ég hef aldrei þolað við Sjálfstæðisflokkinn; mannfyrirlitning, stéttahugsun, hroki og hræsni.

Þess vegna mun Björn verða næsti formaður Sjallanna og þess vegna mun flokkurinn hrapa niður í 25-30% eins og hann á að vera. Hins vegar mun Framsókn þá hækka upp í 25% þegar allir hófsömu sjallarnir, sem geta ekki hugsað sér að kjósa vinstriflokk fara inn á það sem þeir halda að sé miðjan, en er í raun forarpyttur hræsni og fyrirlitningar á náttúru og fólki.

Bestu Kveðjur,
Svavar reiði ungi maður
sem b.t.w. er ekki í neinum flokki.


[ 2 ]
  Deigluslavinn fjallar um jólin
Hann Pawel Bartoszek á Deiglunni var að skrifa um Jólin.
Um margt góð grein og þörf áminning um ýmsa hluti.
Í framhaldi af því langar mig að minna á eftirfarandi:
JÓLIN ERU EKKI FÆÐINGARHÁTÍÐ KRISTS!!!

Jólin eru forn og heiðin hátíð hverrar tilefni er að fagna vetrarsólstöðum og því að daginn fer að lengja á ný.
Ég þoli ekki þennan kristna "einkarétt"´á jólunum.
Já, ég held upp á jólin!
En ekki af því að ég sé kristinn, heldur af því að ég er að fagna því að nú fer að síga á seinni helminginn á vetrinum og styttir í sumarið!
YAAARGGHHH! :D
Áfram trúleysingjar, höldum okkar jól með gleði og hamingju!!!

Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 3 ]
  Svekk!
Jólaplatan komin í uppnám...
Við vorum að taka upp í gær og eftir að hafa tekið upp um hálftíma af efni kom í ljós að upptökutækið mitt skippar... þ.e.a.s. það hoppar í upptökunni og næstum allt efnið er ónýtt...
djö...

ÉG er rosalega svekktur.
Þetta voru mjög flott jólalög sem við vorum að taka og allt leit mjög vel út.

:-(
Við gerum samt eitthvað...

Bestu Kveðjur,
Svabbi


[ 0 ]
sunnudagur, desember 14, 2003
  Hvað Næst???
Keikó dauður úr bráðalungnabólgu, ekki ólíkt Rock Hudson og öðrum samkynhneigðum kvikmyndastjörnum... spookeeeyyy...
Saddam Hussein á valdi BNA... Sitjandi á botni þriggja metra djúprar holu, skítugur og skeggjaður, auðmjúkur og aumingjalegur með 750.000 dollara í ferðatösku... Hversu lágt leggjast menn? Hversu aumingjalega er hægt að enda feril sinn sem harðstjóri? Hann gat ekki einu sinni sýnt þann dug að skjóta sig í hausinn...

Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 3 ]
föstudagur, desember 12, 2003
  No Hraun! Today
Andskotans...
Hraun eru ekki, ég endurtek EKKI að spila í kvöld eins og við ætluðum.
Þökk sé nísku konunni sem vildi ekki borga okkur lágmarkslaun fyrir spilamennsku...
En hvað um það, þess í stað munum við æfa eða taka upp jólalögin...
Húrra, júbbí!

Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 1 ]
fimmtudagur, desember 11, 2003
  Verðug áminning
ÉG vil bara benda ykkur á að kíkja á söguna hans Togga, sem sýnir okkur hina hliðina á svona málum, hliðina sem fjölmiðlar sýna sjaldnast, geta sjaldnast sýnt.

Toggi er hugrakkur drengur og gott hjá honum að vera svona opinn. Sjaldgæf sjón á þessum síðustu og verstu...

Svo vil ég líka senda íslenskum fjölmiðlum fingurinn fyrir lélega umfjöllun um mál Norðmannanna. (Nema minn miðill, sem setti viðtalið mitt við þá á síðu 10 í gær.) :)

Það er ekki hægt að dæma menn svona án dóms og laga án þess að ræða við þá eitt aukatekið orð.

Bestu Kveðjur,
SVavar


[ 1 ]
  Gaman í dag...
Skemmtilegur dagur...
fór snemma að sofa í gærkvöldi og vaknaði átta í morgun...
fór með dóttur mína í leikskólann og labbaði aftur heim, en þegar ég var kominn þangað hugsaði ég: "Hvað er hér? Enginn heima... allt galtómt... Best að fara bara í vinnuna..."
Og ég fór upp í vinnu klukkan níu um morguninn og er búinn að vera hér þangað til núna... vinnandi á fullu...
Það er eitthvað að...

Samt er ekki eins og það sé ekki nóg að gera hjá mér, þetta atvinnublað á sunnudögum krefst alls þess tíma sem ég hef aukalega...

Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 0 ]
þriðjudagur, desember 09, 2003
  Eftir Rush...
Úffa... Blessað Skúbb-rushið að renna af manni...
sofnaði um fimmleytið í nótt...

Djöfull er flott að sitja einir að svona frétt! :D

úff... það setur samt að manni óhug...

Jæja... Bestu Kveðjur,
Svabbi


[ 1 ]
mánudagur, desember 08, 2003
  Scoop Junkie
Nú er skúbbdjönkíið Svabbi í feeeeiiitu Rössi!!!
Kíkið á forsíðu Morgunblaðsins á morgun og sjáið hvað ég á við...
Djöfull líður mér vel þegar ég er búinn með svona frétt... Adrenalínið pumpar þvílíkt!

Gangi mér vel að sofna í nótt...

Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 2 ]
sunnudagur, desember 07, 2003
  Virðulegur Landbúnaðarráðherra
úff...
Guðni Ágústsson er ótrúlegur.
"Fyrirgefið þeim því þeir vita ekki hvað þeir gjöra... dööööööh..."
Mann langar að kjökra þegar menn segja svona vitlausa hluti!
Hver sagði þetta? Jesú.
Hvenær sagði hann þetta? Á Fokkíng krossinum!
Hvern er verið að krossfesta núna? Guðna Ágústsson? Jón Kristjánsson? Neeeei, það er verið að krossfesta öryrkjana!

Ótrúlegt, hreint ótrúlegt...

Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 11 ]
föstudagur, desember 05, 2003
  Ussussuss ekki segja neinum!
Algjör (LEYNI) almenn-kröfuganga á laugardag klukkan 15:00!
Við hittumst í góðum fílíng (uss ekki segja neinum) hjá Leifi heppna kl. 15:00 og röltum saman niður á Austurvöll þar sem við munum (leynilega)gera kröfur okkar berar!

Búið til stór spjöld með ykkar kröfum og laumumst með þær niður Skólavörðustíginn á Laugardaginn!

Bestu kveðjur,
Svavar


[ 1 ]
fimmtudagur, desember 04, 2003
  Nelly's núna!
Ég hreinlega held að ég sé að fara að spila einn á Nelly's núna...
Kíkið á mig ef þið nennið, annars er það engin skylda...

Bestu Kveðjur,
Svabbi


[ 0 ]
  Lítill fugl hvíslaði því að mér...
...Að sjálft átrúnaðargoð mitt, Fúlhildur, vilji taka þátt í gjörð Jóladisksins!
Einu sinni mér áður brá!

ahem...

Fúlhildur má endilega koma og hjálpa við gerð jóladisksins, en mig grunar að eins og þetta gengur allt saman með veikindi og þess háttar stúss, þá verði þetta páskadiskur... sem er sosum kúl...

Bestu Kveðjur,
Svabbi



[ 1 ]
miðvikudagur, desember 03, 2003
  Best að taka það fram...
... að kisurnar eru ekki kettlingafullar eins og ég hélt að þær væru...
Þær eru druslur og urðu báðar breima um daginn með tilheyrandi væli og lesbíustandi...
Engir sætir skógarkettir á leiðinni í Drápuhlíðina...
Við bindum samt vissar vonir við að Mysa geti af sér fyndin afkvæmi þegar fram líða stundir...

Bestu Kveðjur,
Svabbi


[ 1 ]
  Er einhver til í að...
...lána mér sextán rása mixer og nokkra míkrófóna í eins og eina viku?

HVEER VILL VEEERAAA VIIINUUURRR MIIINNNN???

Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 2 ]
  Síðasta Hraun!gigg...
Síðasta Hraun!gigg fór ekki alveg eins og við ætluðum...
Tveir meðlimir voru fárveikir (Við Loftur) og við einhvern veginn hlömmuðumst í gegnum þetta...
Loftur stóð sig að vísu eins og hetja... Hann er ótrúlegur gæi... En þegar ég verð lasinn þá verður það aðeins of áberandi á röddinni...
Hundfúlt að missa valdið á röddinni...
Mig langar einu sinni að eiga brilljant tónleika með fullt af fólki og allir fatta hvað við erum góð hljómsveit...
En við tókum helvíti flotta útgáfu af Eve of the War... :)

Næst munum við bæta við dæmið...
Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 0 ]
  Ég elska þennan vinnustað!!! :-D
AAAHHH....
Það er alltaf gaman að fá hrós...
Hlý og góð tilfinning hríslast um líkamann... (I did gooood...)

Svabbi séní spottaði fréttapunkt í gær og Mogginn skúbbaði honum í dag... :)

Húrra! :)

Svona hrós virkar ógeðslega hvetjandi...

Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 2 ]
þriðjudagur, desember 02, 2003
  Hin árlega galopna kröfuganga!
Kæru félagar og vinir,
ég vil minna á hina Galopnu Kröfugöngu sem verður núna á Laugardaginn.
Takið frá eftirmiðdaginn á Laugardaginn til að mótmæla/krefjast/hrópa út í vindinn!
Nánari tímasetning verður sett á komandi dögum.
Farið að búa til skilti og semja slagorð, jafnvel baráttusöngva...

Komm on!
Þið vitið að þið viljið taka þátt í almennu kröfugöngunni...
Slóðin er www.this.is/gangan (en vefurinn er ekki kominn upp...)
Margir muna eftir afgöngunni... þar sem undirritaður fór á kostum og krafðist hurðalauss heims fyrir hönd tregra. "Því hurðir eru þröskuldar hinna vitsmunaheftu!!!"

Í ár munum við finna ný og endurbætt baráttumál og sameinast um að berjast fyrir málefni hvers annars! Húrra! Húrra! Húrra! Lifi hróðuga byltingin!

Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 0 ]
  Svooooo laaaasiiinnnn...
Búinn að vera obboðslega lasinn alla helgina...
Er enn lasinn, en mætti samt í vinnuna, enda bjánalegt að vera veikur þrjá daga í röð...
:-S

Fór í Suðurver og fékk mér það venjulega, eina grófa bollu með osti, tvær kókómjólk og einn Trópí.
kostaði kr 355 í þetta skiptið.
Ég held að ég hafi aldrei borgað sama verðið fyrir þessa fjóra hluti í þessu bakaríi, það gersamlega skiptir öllu máli hvenær ég segi "og moggaafslátt..."

:D
skiptir sosum engu máli. Þetta eru góðar bollur og kókómjólk svíkur engan...
Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 1 ]
Virka þessi Drösl???