Þankatankurinn



Svavar Knútur
Kristinsson,

Félagsauðströll, heimspekingur, umhverfis-verndarsinni og tónlistarmaður.

Ímeilaðu
mig...

NÝTT!!!
Viltu fá
(eða hætta að fá)
tilkynningar
um tónleika
HRAUNS!,
eða Svavars Sjálfs?
Sláðu inn
netfangið hér:



This page is powered by Blogger. Isn't yours?




Hljómsveitin Hraun! veitir mér listræna útrás.

Hraun á Myspace

Sjálfurinn á Mæspeis

Nýjustu Demó:

Ease your mind (01.07.2006)

Dansa... (28.09.2005.)

Ástarsaga úr fjöllunum (Sumarið 2005)

Goodbye my lovely (19. júní 2005)

Kisa litla (Maí 2005)

Your love was death to me (Janúar 2005)

Call off your Cavalry (September 2004)

You should call a doctor (Maí 2004)

Kysstu tímaglasið (endurbætt útgáfa 2004)

Mother's day
( 2004)

Jólaplata Hrauns 2003: Þrautgóðir á Hraunarstund

Jólaplata Hrauns 2004: Kátt er um jólin

Partýplatan Partý!

Jólaplata Hrauns 2005: Höldum jól

Jólaplata Hrauns 2006: Jólamolar



Latur myndasmiður, en engu að síður er hér að finna eitthvað efni...

Molar...


 
fimmtudagur, janúar 29, 2004
  Ísafjörður, Here We Come...
Nú eru 22 tímar þar til flogið verður til Ísafjarðar og allt í brjál... :)
Ég hlakka til að fara vestur að reyna að ná til fólks og gleðja það með mússík.
Húrra...
Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 2 ]
miðvikudagur, janúar 28, 2004
  Flott teiknimyndasaga...
Þessi er helvíti sæt...

Takk Neil Gaiman...

:)


[ 1 ]
þriðjudagur, janúar 27, 2004
  The first day of the rest of my life...
102,5

Allt mun batna héðan í frá...
Tónlistin
Vinnubrögðin
Svefnvenjur
Fjölskyldulífið

Allt...


[ 5 ]
  Rebellinn!!!
Ég er Rebell bolurinn víðfrægi sést hér að neðan.

Hönnuður er sjálfur Einar - Slimjim... rugludallur með meiru...
Þeir sem langar í svona bol geta haft samband við Einar eða mig og greitt litlar 1500 krónur fyrir hann, en af þeim fer um fjórðungur til ferðasjóðs hljómsveitarinnar Hrauns!

Beztu Kveðjur,
Svavar


[ 1 ]
  Langar einhvern Með Vestur?
Hann Steini Rót, sem okkur þykir öllum gvkt vænt um, er lasinn í bakinu og óvíst hvort hann komist með Vestur.
Nú er það spurning hvort einhvern langar að koma í hans stað, þar sem búið er að panta miða fyrir drenginn.

Hvað segiði? Langar einhvern til að fljúga vestur með okkur fyrir 10.000 kall?

Bestu kveðjur,
Svabbi


[ 0 ]
  HRAUN KUNNGJÖRIR!!!


[ 0 ]
mánudagur, janúar 26, 2004
  GRAAARGHHH!!!
Svangur...

Pirraður...

Einmana...

Þreyttur...

GAAAAA!!!

HALT!
Hungry - Angry - Lonely - Tired... Þetta var uppskrift Sheldon Mopes (Smoochy) að vondri framkomu og pirringi...

Growl...


[ 2 ]
sunnudagur, janúar 25, 2004
  Takk fyrir mig...
Hey, mig langar bara að þakka öllum kærlega fyrir skemmtunina á föstudagskvöldið.
Það var ánægjulegt að sjá svona mikið af vinum saman komna til að drekka bjór og hafa það gott...
Leiðinlegt að fólk skyldi hrökklast út vegna sætaskorts, en það er nú bara svoleiðis stundum.

Mig langar samt að berja helvítis steratröllið með pílurnar í kássu...
En það er rangt... ég veit það...

Bestu Kveðjur,
Svabbi


[ 1 ]
föstudagur, janúar 23, 2004
  PAAARRTYYYY Í KVEEEEEEELLLLDD!!!
ÚJE...
Nú ætlar Svabbi að halda upp á ammlið sitt í kvöld og allir boðnir á pínulitla kaffihúsið Kaffi Vín, þar sem Hraun munu tjútta og gleðjast. Kætist og fagnið!!! Hipp Hipp Húrra!

Bestu Kveðjur,
Ykkar vinur,
Svabbi


[ 1 ]
fimmtudagur, janúar 22, 2004
  Humm Humm Humm...
Vinstri... Hægri... Hægri... Vinstri...
Hægrimenn eru margir hverjir stoltir af því að hafa ríghaldið í sömu hugmyndafræði í þrjúhundruð ár án þess að aðlaga hana breyttum tímum.
Þeir liggja gjarnan á vinstrimönnum fyrir það að vera alltaf að endurskilgreina sig og vera með vettlingatök á pólítík sinni. Þannig finnst þeim voða fyndið að vinstrimenn gömlu daganna séu orðnir kratar í dag og gömlu kommarnir hafi færst aðeins til hægri.

Segja þeir þá gjarnan: "Sósíalisminn tapaði, kapítalisminn vann..."
En hugsum aðeins um þetta.

Vinstrimenn byrja sem kommúnistar sem andsvar við pípuhattakapítalismanum sem var allsráðandi. Ógnin af uppreisn verkamanna og um leið þrýstingur frá vinstri kemur til leiðar velferðarkerfi og hærri launum fyrir verkamenn, vinnuaflið fer að fá réttlátari skerf. - Þörfin fyrir kommúnisma minnkar.
Samfélagið tekur vinstri sveiflur og vinstri míkróbeygjur og hagur verkalýðs batnar. - Vinstrimenn aðlaga skoðanir sínar breyttri samfélagsmynd. Hægrimenn hanga enn í sömu hugmyndafræðinni.

Vinstrimenn virðast þannig í gegnum tíðina hafa aðlagað hugmyndafræðina að þeim breytingum sem verða þegar tesa og antitesa koma saman og mynda syntesu.

Má þá ekki segja að vinstrimenn hafi unnið fast að því að gera vinstristefnuna óþarfa?

Hefði óheftur kapítalismi virkað eins fyrir 200 árum eins og hann virkar núna?
Í hagfræðinni er oft gengið út frá því að einhverjar lausnir myndu virka vel, ef startpunkturinn væri fullkominn. En startpunkturinn er aldrei fullkominn. Vinstrimenn eru að reyna að leiðrétta startpunktinn en hægrimenn virðast bara vilja henda reisinu af stað sama hvort fólk er yfirleitt mætt á völlinn eða í sprettskónum.

Nú er ég hvorugt... Mér leiðist bara þetta eilífa heimskuþvarg um að þessi hugmyndafræði hafi UNNIÐ og hin TAPAÐ. Mér finnst það lýsa svo mikilli fáfræði og heimsku (í elstu merkingu orðsins).

Bestu kveðjur,
Svavar


[ 0 ]
miðvikudagur, janúar 21, 2004
  Flott Forsíða hjá DV...
Forsíðufrétt DV í dag er góð.
Kominn tími til að menn segi lyfjaheildsölunum til syndanna.
Ég var með vissar efasemdir, en DV er að vinna sig upp í áliti hjá mér, held ég.

Ólíkt því sem margir trúa er ekki mikill rígur milli blaðamanna á blöðunum, heldur meira svona heilbrigður samkeppnisandi. Ég gleðst yfir góðum fréttum hjá Fréttablaðinu og DV um leið og ég vildi óska að við hefðum skrifað þær. Á sama hátt hlakka ég yfir "Skúbbunum" okkar þegar þau koma. :D Þar má nefna Bónusránið og kisuna sem var bjargað úr ræsinu.
Þetta er skemmtileg vinna og skemmtilegt fólk í henni.
Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 0 ]
  AMMÆLISPARTY!!!
HERRA SVAVAR KUNNGJÖRIR!!!
Hvað? Afmælispartý
Hvar? Kaffi Vín
Hvenær? Föstudagskvöldið kl. 22:00
Hverjir? Allir og amma þeirra!!!

Kaffi Vín verður öllum opinn, enda fer ég ekki í manngreinarálit með hverjum er boðið í Partý...
Afmælisgjafir eru kurteislega afþakkaðar, en fimmhundraðkall í gítartöskuna sem renna beint í ferðasjóð hljómsveitarinnar Hrauns! væru gríðarvel þegnar... :D

Bestu Kveðjur,
Svavar Knútur

p.s. Um leið vil ég ítreka það að allar ómþýðar og glaðlyndar hljómsveitir eru velkomnar að taka þátt og grípa í hljóðfærin...


[ 4 ]
  Ég mæti dauðanum með bros á vör... :)
Einu árinu nær blessaðri gröfinni. Húrra fyrir því! Og mér gengur bara vel að gera eitthvað úr sjálfum mér...
Helvítis aumingjar sem alltaf eru að væla yfir því hvað þeir séu gamlir og hvað ellin sé að buga þá, nýorðnir tvítugir.
Ég er bara helvíti hress með mig og mitt og á dásamlega fjölskyldu og heila sem virkar enn vel (7-9-13) :).
Til hamingju með afmælið ég!
Gleði Gleði Gleði...

Fögnum lífinu, ekki væla yfir hverri hrukku. Hrukkur eru stríðsör hinnar hversdagslegu lífsbaráttu!

Bestu Kveðjur,
Svavar Knútur


[ 9 ]
þriðjudagur, janúar 20, 2004
  Lúinn...
Búinn að vera pínu niðurdrabbaður undanfarið, en það stendur allt til bóta...
Ég á afmæli á morgun... Býð Hraunmönnum (og mökum) í kaffi, vona að allir komi... :-)

Svo er afmælispartý á föstudaginn, veit ekki hvar, en ég hvet hljómsveitir til að hafa samband við mig og búa til úr þessu góðan indí konsert! :-)

Er bara að vinna á fullu núna, voða hress... :)
Vaktaplanið komið fyrir vorið... ég sé fjóra sunnudaga fram í júní sem ég er ekki að vinna...
(og ég er strax búinn að ráðstafa þeim í vinnu...)
hahaha :D

Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 2 ]
fimmtudagur, janúar 15, 2004
  Nelly's was a gas!!!
Djöfull var gaman að spila í gær!
Nelly's var vel þéttur, það var dágóður slatti af fólki og allir hressir. Kári og Bridget kvöddu glöð og hamingjusöm og einhverjir finnskir leðurhommar vildu fá númerið mitt...

...

...og ég gaf þeim það...

ahem...

Nema hvað! Plön um ferð Hrauns! og Heiðingjanna vestur á firði 30. og 31. jan eru komin á fullt, ég er að redda flugmiðum og allt á fljúgandi fart.

Afmælið mitt er í næstu viku og ekki seinna vænna að fara að skapa músík fyrir það...
Er að hugsa um að halda það í Stúdentakjallaranum, föstudagskvöldið 23. eða laugardaginn 24... Hvernig hljómar það? Er það of dramatískt?
Hér með auglýsi ég eftir hljómsveitum til að spila með Hraun! á afmælistónleikunum... Allt er opið!

Gleðst ég nú mjög...

Bestu Kveðjur,
Svavar

p.s.
Jú, gleymdi alveg... :) Pálína er komin með lítið blogg...
www.blamla.blogspot.com


[ 3 ]
miðvikudagur, janúar 14, 2004
  Hraun! á Nelly's í kvöld...
Hljómsveitin Hraun! ætlar að spila á Nelly's í kvöld, miðvikudagskvöld klukkan 22:00.
Ókeypis verður inn, en við sláum hendi ekki mót frjálsum framlögum...
Gleðjist með okkur og mætið á svæðið til að hlíða á fallegan hljóðfæraleik og söng...

Jeeei :)
Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 0 ]
þriðjudagur, janúar 13, 2004
  Spilerí framundan - Nelly's, Ísafjörður og Flateyri
Hraun! ætla að halda tónleika annað kvöld, vonandi á Nelly's, meira um það á eftir...

Ennfremur stefna Heiða og Heiðingjarnir og Hraun! á það fullum fetum að fara í stutta tónleikaferð um Vestfirði síðustu helgina í janúar, þ.e.a.s. föstudaginn 30. janúar og laugardaginn 31. janúar.

Ég hef heyrt að unga kynslóðin fyrir vestan nenni sjaldnast að mæta á tónleika og happenings... Ég trúi því varla, enda þykir mér gríðarvænt um Vestfirðinga og þeirra framtak.
Ég veit að ættingjar mínir og vinir á Flateyri svíkja okkur seint og ég ætla rétt að vona að töffararnir fyrir vestan verði okkur innan handar og mæti og skemmti sér með okkur.
Ég vil þess vegna biðja alla Vestfirðinga sem ég þekki og búa enn fyrir vestan, að gjöra svo vel að byrja að plögga þetta gigg og berjast fyrir því að fólk mæti, enda er um að ræða bæði skemmtilega og fallega tónlsit sem gaman er að hlíða á og dansa við.

Kommon krakkar í Menntaskólanum á Ísafirði, afsannið þjóðsögurnar sem ég hef verið að heyra að þið séuð bara spennt fyrir einhverjum hnakkasveitum að sunnan sem spila hnakkapopp og eru á samning hjá skífunni.

Koma SVOOOO!!!

Annars, væntanlega hraungigg annað kvöld, væntanlega á Nelly's... Ef ekki, þá einhvers staðar annars staðar, t.d. á Kaffi Vín.

Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 1 ]
mánudagur, janúar 12, 2004
  Long Time No Blog...
Jamm... búinn að vera í gríðarlegum tölvuvandræðum...
Er enn í gríðarlegum tölvuvandræðum...
Keypti mér nýtt móðurborð og örgjörva og nú get ég ekki einu sinni installað því á nýstraujaða tölvuna mína...

YARGH!!!

Kobbi Tæknimaður á Mogganum er að líta á hana fyrir mig (utan vinnutíma auðvitað), enda er hann engill... Gull af manni...
En nóg um það... Pálína og Dagbjört komnar heim, Mysa ennþá breima og gleði gleði gleði.
Ég hitti Bridget, kærustuna hans Kára í gær og í hittifyrradag. Þau eru æðisleg saman og hún er algjör skonsa.
Ég vona að þau haldi áfram saman, enda eru þau bæði eitthvað svo mikið sætustu nördar í heimi...

Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 0 ]
miðvikudagur, janúar 07, 2004
  Ég snerti Kisuna!!!
Tveir kettir komu inn í landið í Leyfisleysi þegar flugvél United Airlines var lent á einum hreyfli vegna vélarbilunar.
Ég fékk að fara sem blaðamaður Morgunblaðsins á svæðið, þvílíkur viðbúnaður og læti...
Og ég KLAPPAÐI öðrum kettinum, þeim sem er á forsíðu blaðsins í dag. Hann heitir Mel og var hinn skapstyggasti...

...Hann hvæsti á mig og allt...

Á ekki að sótthreinsa mig líka?

:)


Bestu Kveðjur,
Svabbi


[ 8 ]
  Frelsi og mannúð...
Már bendir á andskoti skemmtilega grein sem gagnrýnir Bush frá hægri...

Áfram "free-speech Zones" jee...
minnir óneitanlega á designeruð mótmælasvæði hér um árið...

ANDSKOTINN! BÚUM VIÐ EKKI Í FRJÁLSU LÝÐRÆÐISRÍKI?!?!?!?

Helvítis Fasistar!

Guð hjálpi mér, ég ætla rétt að vona að það verði búið að aðskilja ríki og kirkju áður en hræsnisfull jésúfrík með fasíska tendensa fara að taka dóttur mína í mandatory fermingarfræðslu...



[ 1 ]
mánudagur, janúar 05, 2004
  Teen Angst...
Hvað er í gangi með allar þessar Teen Angst hljómsveitir...?
(Linkin Park, Evanescence, Papa Roach o.s.frv.)
Hvaða dramadrottningar eru unglingar allt í einu orðnir?
Missti ég af einhverju sem unglingur, ég sat bara og prumpaði og rúnkaði mér rosalega mikið og leið skringilega... Það var nú bara öll "teen angstin" mín... Ég man að flestir vinir mínir og jafnaldrar voru bara skríkjandi og rúntandi og rúnkandi og prumpandi líka... Vodda fokk?
Whoa!
Ég meina, upp úr hvaða pytti eru allir þessir píndu og ofurdramatísku unglingar dregnir?

Sjitt...
Svabbi


[ 3 ]
  Gaman að vinna...
Ég hef ógeðslega gaman að því að vinna...
Ég hreinlega Tralla í vinnunni minni þessa dagana, þrátt fyrir þreytu...

Við Hraunarar spiluðum í þrítugsafmælinu hans Nóna bró, það var geðveikt gaman, sérstaklega að spila undir sjálfstæðisfálkanum... :-)

Svo erum við að fara að spila fyrir vestan, síðustu helgina í Janúar, bæði í Menntaskólanum og hinum landsfræga Vagni á Flateyri.

Júbbí!

Þreyttur... vinna... sofa... borða...
gööö...
Einmana... Engin dóttir, engin kona í íbúðinni... bara tvær graðar kisur...

YARGH!!!
Bestu Kveðjur,
Svabbi


[ 0 ]
laugardagur, janúar 03, 2004
  Skyggn?
Skrýtið gerðist í nótt...
Í gærkvöldi kláraði ég að vinna um tólfleytið, fór og hjálpaði mömmu og Nóna bró við undirbúning afmælisins hans Nóna. Svo fór ég að sækja gítarinn minn og draslið niður á Grand Rokk til að það myndi nú ekki glatast... ;)
Þá fékk ég skyndilega hugboð... mig langar að kíkja í búð og kaupa eitthvað í matinn... Það gæti einhver komið í mat...
Klukkan þrjú um nótt var ég kominn í tíu ellefu og keypti inn mat og lagði af stað heim.
Þegar heim var komið, 03:30 fór ég að laga til aðeins í íbúðinni og tékkaði aðeins póstinn...
Fékk ég ekki skilaboð frá Hauki MH-ingi um að hann væri svangur og vinir hans líka... Hugboð mitt hafði gersamlega komið á besta tíma...
Þannig að klukkutíma síðar sátu Þrjú svöng MH-börn og ein stúlka úr Borgarholtsskóla í stofunni hjá mér og átu Pastarétt sem ég kokkaði upp í tilefni næturinnar...
Við sátum og spjölluðum um lífið og tilveruna til sex í morgun þegar ég henti þeim út... Allt voða edrú og fínt og minnti mig á það hver ég var og hver ég er í dag og hvað hefur liðið síðan...

:D
Takk fyrir heimsóknina Haukur minn...
Bestu Kveðjur,
Svavar

p.s. Verst að ég sá SMSið hans Kára of seint... annars hefði ég boðið honum líka...


[ 1 ]
fimmtudagur, janúar 01, 2004
  Skaupið var powerfully lélegt!!!
Ég hef sjaldan eða aldrei séð lélegra skaup!
Allavegana samanborið við skaupin síðustu tvö ár...
Djöfull var þetta powerfully lélegt áramótaskaup!

Fokk!

Bestu Kveðjur,
Svavar Þunni


[ 4 ]
  Merry New Year...
svoooooo þunnuuuur....
Guð!
þarf að gubba og þarf að leggja mig, en ég er í vinnunni...
argh...

Gærkvöldið var prýðilegt, Hraun!menn rúluðu eins og aldrei fyrr.
Stemningin var gríðargóð og fullt af skemmtilegu fólki.

En djöfull er ég þunnuuuuuur...

Hitti líka fullt af skemmtilegu fólki...
jeeeiii...

böööhhh...


Gleðilegt ár vinir mínir,
bestu kveðjur,
Svabbi


[ 2 ]
Virka þessi Drösl???