![]() |
Þankatankurinn
|
![]() |
||||
|
Svavar Knútur Kristinsson, Félagsauðströll, heimspekingur, umhverfis-verndarsinni og tónlistarmaður. NÝTT!!!
|
Nýjustu Demó: Ástarsaga úr fjöllunum (Sumarið 2005) Goodbye my lovely (19. júní 2005) Your love was death to me (Janúar 2005) Call off your Cavalry (September 2004) You should call a doctor (Maí 2004) Kysstu tímaglasið (endurbætt útgáfa 2004) Mother's day Jólaplata Hrauns 2003: Þrautgóðir á Hraunarstund Jólaplata Hrauns 2005: Höldum jól Jólaplata Hrauns 2006: Jólamolar |
laugardagur, febrúar 28, 2004
SNÚLLABAAAR!!!
Hraun eru að fara að spila á Snúllabar í kvöld! Snúllabar Rúlar! Verð bara að segja það. Allir sem eru í fílíng geta komið til Hveragerðis með okkur og skemmt sér, jeeei :) Alvöru Tónleika-partý-ball! :) Eða eins og Villi Vill sagði eitt sinn: S.O.S. Ást í neyð! Ein þú getur bjargað mér! S.O.S. Aðra leið, aldrei hjarta mitt að landi ber! Fæstir vita hvað það er gott að vakna snemma á laugardagsmorgnum og fara að vinna... Bestu Kveðjur, Svabbi [ 1 ] föstudagur, febrúar 27, 2004
Takk fyrir okkur!
Heey hey :) Takk fyrir okkur í Gær! Ellefu sándar vel! :) Góður fílíngur þarna inni, en stelpugerpið sem bað um Doors á skilið spark í rassinn fyrir svikið loforð. Tveir Hraun!-bolir seldust, húrra fyrir því! Yiha! :) En nóg um það... Vinna í dag frá 11:00 til 01:00 og svo mæta í fyrramálið klukkan átta... Og svo spila á Snúllabar annað kvöld! Jeeeei, Jibbí jei! Snúllabar í Hveragerði rúlar! Bestu Kveðjur, Svavar [ 0 ] fimmtudagur, febrúar 26, 2004
Hraun! á ellefu í kvöld!
Hraun! munu halda tónleika-partý á Ellefunni í kvöld! Nýtt lag verður frumflutt, auk þess sem lagið sem var frumflutt fyrir vestan fyrir nokkru verður flutt í fyrsta sinn fyrir sunnan... :D Heeyy :) Látið sjá ykkur á Ellefunni... Bestu Kveðjur, Svabbi [ 1 ] miðvikudagur, febrúar 25, 2004
Eru menn loksins gengnir af göflunum???
Verslunarmiðstöð í miðbæinn?!?!? Eru menn hálfvitar? Bara að velta þessu fyrir sér finnst mér vera undarlegt... Er ekki nóg að hafa tvö menningarsvarthol á höfuðborgarsvæðinu sem draga að sér plebba og spýta út úr sér heilum kynslóðum ofurplebba? Mein Gott in himmel! Það er löngu búið að sýna sig að svona kringlur eru algjör morðtól andans. Leyfum miðbænum að vera miðbær í friði... Ekki breyta honum í enn einn úthverfadrullupyttinn... Plís! Svabbi [ 14 ]
Því ekki að taka lífið létt...?
Oh, ég er í geðveikt retró fílíng þessa dagana... Algjör Retró Bob... Nostalgían hellist yfir mig þegar ég hlusta á lög eins og, því ekki að taka lífið létt, S.O.S. ást í neyð og Gvendur á Eyrinni. Mér létti mjög eftir að hafa skrifað söknuðarpistilinn hér að neðan, held að ég hafi þurft að koma þessu á blað... Og þess vegna tók ég létta danssession fyrir Pálínu í gærkvöldi. Ég dansaði eins og vindurinn, tvistaði og hoppaði... :) Tíhíhí... hún brosti mjög að þessu uppátæki og hló... Mér finnst gaman að dansa... Sérstaklega eftir að Pálína tók burt stóra húsbóndastólinn af stofugólfinu, því nú er þar ponsu dansgólf... Húrra! :) Léttur í lundu, ég lagð'af staaaað... Bestu Kveðjur, Svabbi [ 1 ]
Einar örn með góðan pistil...
Einar Örn spjallar um hjónabönd samkynhneigðra.Ég held að ég hafi engu við þetta að bæta, nema að það er akkúrat þessi hugsun sem hindrar mig í því að styðja við hægri flokka. Þessir lurtar virðast hanga í þessum flokkum eins og hrúðukarlar. Bestu Kveðjur, Svabbi [ 2 ] þriðjudagur, febrúar 24, 2004
Söknuður...
Ég sakna pabba... Nú má ekki skilja það svo sem ég sé í sjálfsvorkunnarkasti, alls ekki. Og ég er ekki í neinni þörf fyrir svona "kommenta-klapp-á-bakið". Ég er bara að pæla í þessu... Ég sakna hans rosalega mikið. Pabbi minn, Kristinn Jónsson, fórst í snjóflóðinu á Flateyri í október 1995 og ég held ég hafi aldrei haft almennilegan tíma til að syrgja hann þangað til þessa dagana. Ég vissi ekki hvernig ætti að taka þessu, það voru margir aðrir sem þurfti að syrgja líka og ég held að það sé auðveldara að byrja á þeim, að byrja að gráta þá sem eru fjær manni. Ég veit það allavegana, að þegar presturinn sagði mér að hann væri dáinn, þá brotnaði allt. Allt sem á annað borð var ekki naglfest á sálinni, hrundi. Ég varð kolruglaður og hélt rétt svo meðvitund. Þetta var svona í nokkra daga, allt var í móðu og ég reyndi bara að vera jákvæður, brosa, reyna að þrauka. Þessi aðgerð mín lokaði kannski á sorgina í nokkur ár. Hún gaf mér líka séns á að bæta samband mitt við fullt af fólki sem mér hafði einhvern veginn mistekist að mynda góð tengsl við. Fyrir nokkrum mánuðum fór ég svo að finna raunverulegan sársauka missisins, þegar ég fór að finna fyrir því að hann var ekki lengur til staðar til að styðja við mig. Hann var ALVEG farinn úr þessum heimi. Ein hliðarverkun áfallsins var massíft minnisleysi sem veldur því að ég man rosalega lítið frá árunum 1994-1998. Ég skil það ekki, en það er alveg heví stórt blakkát á því svæði. Ég man líka að ég var bálreiður yfir því að vegna hættuástandsins var hann færður úr okkar húsi yfir í annað hús, sem hann hafði sjálfur varað við að skilgreina sem öruggt svæði, þar sem snjóflóð stoppaði ekki bara af því að það væri græn eða gul lína á korti. N.B. jafnvel þótt snjóflóð hefði fallið á húsið okkar, þá hefðu allar líkur verið á að hann hefði lifað það af, því svefnherbergin voru á neðri hæð hússins okkar, undir jarðlínunni í brekkunni. Ég býst við að ég sé enn bálreiður út í þessa staðreynd. Þetta var gölluð skilgreining á hættusvæði og pabbi var skammaður fyrir að hræða fólk með einhverri vitleysu, fyrir það eitt að benda á þennan galla, sem síðan endaði á að verða honum og mörgum öðrum að aldurstila. Samt er víst ekkert hægt að röfla yfir þessu núna, en frekar að reyna að hvetja fólk til að skoða svona hættumat betur næst. Pabbi hafði ofboðslega jákvæða návist. Hann var bjartsýnasti maður sem ég þekki og líka sá fórnfúsasti. Honum var skítsama um fjárhagslegar horfur verkefna. Ef hann trúði á þau, þá stoppaði hann ekkert. Pabbi var líka ótrúlega jákvæður við mig, hvatti mig áfram, hvatti mig til að taka sénsa, fylgja hjartanu. Hann vildi að ég reyndi fyrir mér í tónlistinni, ef hjarta mitt stefndi í þá átt. Hann var draumóramaður og endalaus frjálshugi. (Samt held ég að hann hafi, a.m.k. í æsku, verið pínulítið hómófóbískur... en er það ekki bara normalt fyrir mann fæddan 1953? :) Hann var nú einu sinni af gömlu kynslóðinni... ) Hann var heldur ekkert ábyrgasti fjölskyldufaðirinn á svæðinu, hann vann geðveikt mikið og oft fyrir ekki neitt, bara út af hugsjónum, og hann safnaði ekki beinlínis eigum í eltingarleik sínum við draumana, en það skipti engu máli, hann var brilljant gaur og góð fyrirmynd, drakk ekki nema örsjaldan (en þá varð hann líka ógeðslega fyndið fullur... Svona "Þú ert beschti vinur minn, hikk, Schvabbi ég er svo schtoltur af þér schtrákur!"-knús-kreyst-snöggur-snúningur, út-á-dansgólfið- fullur:-D) og reykti Fauna vindla og London Docks. Æi hann var bara rosalegur sérvitringur og skemmtilegur kall. Hann var í rauninni af bestu gerð sjálfstæðismanns í öllum heiminum. Hann var svona frjálslyndur og líbó gaur sem trúði á framtak einstaklinga og litla manninn, svona trillukalla kapítalisti. :) Pabbi var fjörutíu og tveggja ára þegar hann dó, hann átti sama afmælisdag og ég, og við áttum sama afmælisdag og mamma hans. (þrír ættliðir af 21. janúar) Hann átti hálft lífið eftir, hálf fullorðinsárin, betri helminginn, hefði ég trúað... Hann var nefnilega orðinn glettilega góður í vefsmíði, langt á undan sínum samtíðarmönnum og var meira að segja farinn að dútla við smá vefforritun. Mér þótti mjög vænt um jákvæðnina og bjartsýnina hans pabba... Hann peppaði mann alltaf upp og var gríðarlega mikil stoð og stytta. Svo var hann líka hrekkjóttur, var alltaf að stríða manni og hrekkja alla í kringum sig með svona léttu ho ho ho gríni... (sem b.t.w. var alltaf jafn fyndið...) Ég man einmitt að síðustu samræður mínar við pabba enduðu á honum og Eiríki Hesti, vini hans, hlæjandi að mér í gegnum símann, hlæjandi að því að ég skyldi trúa því að mamma væri farin frá honum í einhverju reiðikasti. (hahaha, þú ert svo vitlaus Svabbi, hahahaha. "Ég elska þig Pabbi," sagði ég, "bless bless". "Ég elska þig líka kallinn minn," sagði hann hlæjandi...) Pabbi var svona gæi sem var geðveikt gott að hanga með, þegar hann settist niður á annað borð. Mig dreymir stundum að við liggjum saman í sitt hvorum sófanum, horfum á sjónvarpið, drekkum bjór og spjöllum saman um allt mögulegt. Ég hef samið til hans mörg lög og hent þeim öllum, mér finnst ekkert verk geta gert andlegri fegurð hans skil. Enginn söngur getur tjáð botnlausa ást mína til hans, svo ég hætti alltaf við. Ekkert að því sosum, svoleiðis er þetta bara. En ef ég ætla að heiðra minningu hans á einhvern hátt, þá geri ég það ekki með því að vera sorgmæddur. Ég læt sorgina virkja mig til jákvæðni, ég vil vera eins og hann; frjáls, bjartur, jákvæður, skemmtilegur, góður, sýna kraft, láta vaða! Já, ég ætla ekki að minnast pabba með grát og gnístran tanna! Ég ætla að minnast hann með því að gera allt sem ég get til að verða betri maður og gera þennan heim að betri stað! En þetta er samt drulluvont. Bestu Kveðjur, Svavar [ 4 ]
Færeyjar...
Mig langar að spila í Færeyjum... Hver getur bent mér á manninn til að tala við? Svabbi [ 2 ] mánudagur, febrúar 23, 2004
Bassaleikarinn Braggast...
Loftur er allur að braggast, hann er samt mjög hristur, marinn og blár og haltrar eins og hann veit ekki hvað. Hann er með brákuð rifbein og eitthvað, en annars býst hann við fullum bata frekar fljótlega. fjúkk... Ég vona að hann hafi ekki orðið fyrir neinum varanlegum skaða, elsku kallinn minn... En nóg um það... Nú er maður bara hress, kominn í vinnuna aftur, eftir langa frí... who am I kidding, ég er búinn að sitja hér samfleytt núna í þrjár vikur. Ekki einn frídagur... :-) Súrt... En ég fíla það ágætlega, ég er hálfgerður vinnualki, ég vissi það samt ekki fyrr en núna, kannski af því að þetta er svo skemmtileg vinna En mig langar virkilega til að fara að geta skapað tónlist og flutt hana mér til lífsviðurværis, það er takmarkið. S.O.S. ást í neyð, ein þú getur bjargað mér. S.O.S. aðra leið, aldrei hjarta mitt að landi beeeer. dudd duruddu duddu duddu... Ég lýsi eftir skemmtilegum orgel/harmóníku/hljómborðsleikara til að gera tilraunir til að víkka tónsvið Hrauns stöku sinnum á tónleikum, full þátttaka er ekki skylda enn sem komið er, nema í æfingum og stöku tónleikum, en viðkomandi getur búist við að vera kippt inn í sveitina full time ef lifnar yfir... Best væri ef viðkomandi væri hæfur á eins og eitt blásturshljóðfæri eða fiðlu eða eitthvað annað líka... :D Bestu Kveðjur, Svavar [ 5 ] laugardagur, febrúar 21, 2004
Krambuleraður Bassaleikari
Einhver Hálfviti ók á Loft þar sem hann var á gangi ásamt mági sínum í nótt... Keyrði fram úr í Pósthússtrætinu og *Splat* beint á þá báða. Eitthvað blóð og krambúleringar, Loftur á spítala og Pétur mágur líka, en ekkert brotinn... Loftur er samt í sjokki og lítið til viðræðu... Helvítis ökuníðingar! Hálfviti er þetta að keyra svona á bassaleikarann minn! Bestu Kveðjur, Svavar [ 5 ] föstudagur, febrúar 20, 2004
Farinn að ná í bolina....
Jæja... ég er á leiðinni niður í Brosboli að ná í 50 Hraun! boli. Ég þakka þeim fjölmörgu sem hafa sýnt bolunum áhuga og hvet ykkur hin til þess að styðja við bakið á okkur Hraunurum með því að fjárfesta í svona glæsilegum fatnaði sem hefur bæði fagurfræðilegt gildi og notagildi í senn. Bestu Kveðjur, Svavar [ 0 ] fimmtudagur, febrúar 19, 2004
Bolurinn Kominn!!!
Hraun! bolurinn er tilbúinn til fjárfestinga. Hann er til í mörgum stærðum, yiha!
Þvílík herlegheit!!! Bolurinn kostar einungis litlar 1.500 krónur og nú er það bara fyrstir koma fyrstir fá: sendið email á muzak@simnet.is Bestu kveðjur, Svavar [ 3 ]
Passívir lesendur...
Ég hef orðið var við það að u.þ.b. 6-8 manns svara að jafnaði einhverju sem ég skrifa... Hinir 150 sem lesa þessa síðu nokkuð reglulega kjósa að láta ekkert í sér heyra... :) Kæru passívu lesendur, ég vildi bara láta ykkur vita að mér þykir samt voða vænt um ykkur :) *knúúúús* :D veeeiii... Nema hvað... Engin spilamennska á Ellefunni í kvöld, en á laugardagskvöldið verða Hraun á Listahátíð í Stúdentakjallaranum. jeeeiii... Bestu Kveðjur, Svavar [ 7 ] miðvikudagur, febrúar 18, 2004
Leiðari Moggans í dag...
Segið síðan að Mogginn sé slappur! :D Djöfull er ég ánægður með mína menn í dag :) Góður leiðari um þjóðkirkjuna og samkynhneigða. Gúdd sjitt... Bestu Kveðjur, Svavar [ 0 ]
Krían komin á fullt...
Jæja... Nú er ég að reyna að koma mér að verki með Kríuna, rits um náttúru og Umhverfi og fréttabréf Landverndar. Mikið að gera, mikið framundan. Úff... :) Ég elska að vinna. Ég hreinlega dýrka að puða svona í skrifum daginn út og inn... :) Ef það er eitthvað sem ég elska meira en að skrifa, þá er það að semja, taka upp og skrifa tónlist. Vildi óska að ég gæti starfað við það og fengið svipuð laun... Bestu Kveðjur, Svavar Knútur [ 0 ] þriðjudagur, febrúar 17, 2004
Röskva og Eplin hans Peabodys
Ég heyrði á dögunum að fyrir stúdentaráðskosningar hefðu Röskvuraddir hvíslað í hvers eyru sem vildi, að fulltrúar Háskólalistans væru vægast sagt óliðtækir í nefndastarfi og "nefndu þó engin nöfn, en sumir væru nú blablabla." Ég hugsaði ekki mikið um þetta, fyrr en ég fór að heyra að ég hefði sjálfur verið nefndur í þessu sambandi, en ég sat sem áheyrnarfulltrúi í Atvinnulífsnefnd Stúdenta. Jújú, sekur er ég, ég mætti á kannski eins og 60% funda, enda var ég að vinna á Morgunblaðinu á fullu gasi og hafði sjaldan tíma, ég lét vita af þeirri staðreynd undir eins og ég byrjaði, en þótti ekki ástæða til að kalla til varamann, þar sem ég hafði ekki einu sinni atkvæðarétt. Þá fundi sem ég sat var ég hins vegar virkur og tók virkan þátt í umræðum um mál og spurði margs í forvitni minni um þau. Þetta getur Teitur frændi minn væntanlega staðfest. Þar að auki kom ég snemma með tillögu, sem var samþykkt og fór fljótt inn í stúdentaráð, þar sem hún var samþykkt. (Auðvitað var ég "atkvæðalítill" í því ferli öllu saman, þar sem ég hef að sjálfsögðu ekki atkvæðarétt.) Mér þykir vænt um hvað Röskvufólkið var duglegt og atorkusamt í sinni kosningabaráttu og hvað þau hugsuðu hlýlega til okkar og voru málefnaleg í alla staði. Sérstaklega fannst mér sniðugt hvað þau beindu spjótum sínum að H-listanum í stað þess að ráðast á aðalandstæðinginn, Vöku, því þar var jú meirihluta atkvæða að taka. En það sem mér þykir allra vænst um var að mínu nafni skyldi hvíslað fram og til baka og minni frammistöðu "hampað". Þetta minnir mig á barnabókina epli Peabodys eftir Madonnu, en boðskapur hennar er eitthvað á þá leið að það er mun erfiðara að taka aftur gróusögu en að koma henni af stað. Nú eru væntanlega ófáir háskólanemar með þá hugmynd um mig að ég sé lélegur nefndarmaður og latur. Það er þá eins gott að ég sé ekki á leið í pólítík með svona sögur á bakinu... :-/ Ég verð nú bara að segja að mér finnst þetta alveg glatað... Auðvitað geri ég mér grein fyrir að fullt af fólki innan Röskvu tók ekki þátt í þessari vitleysu, til dæmis vinkona mín Anna Pála, sem er ekkert nema frábær og ég fíla hana í tætlur. En svona hlutir grafa líka undan trausti mínu á fólkinu sem stendur í kringum rógberana. Bestu Kveðjur, Svavar Knútur Viðbót: Svansson benti á hér í kommenti að ég hefði jú líka skrifað grein í stúdentablaðið til að kynna atvinnulífsdagana. Jújú, það var mér ljúft og ánægjulegt að hjálpa til á þann hátt... Svo reddaði ég líka tveimur fyrirlesurum á atvinnulífsdagana. Mér fannst ég bara standa mig ágætlega í að vinna að því að gera þessa daga vel úr garði, svona miðað við áheyrnarfulltrúa í 150% vinnu annars staðar, en það er greinilegt að einhverjum (ætti maður að segja hælbítum?) fannst það. Mér þykir leitt að hafa ekki getað náð þeirra standard um lágmarksframmistöðu áheyrnarfulltrúa, en ég verð víst bara að lifa með þessum fallegu sögum héðan í frá, rétt eins og Peabody, sem "stal öllum eplunum." [ 2 ]
Barist við sjálfsagaleysið...
Göh! Ég er ekki nógu duglegur að vakna á morgnanna... Hundskast stundum á fætur upp úr níu og stundum upp úr tíu... Andskotans! Svona! Nú er það bara að duga eða drepast... Ég er ekki unglingur lengur, sem getur farið að sofa fjögur og vaknað stálhress kl. 07:45... Það er bara ekki svoleiðis... Svabbi [ 1 ] mánudagur, febrúar 16, 2004
Glugginn minn...
Er að horfa út um gluggann í vinnunni... Nú langar mig sko að fara að gera eitthvað skemmtilegt... Eins og að halda tónleika eða skemmta fólk einhvern veginn... :) En samt er ég ekkert að klepra hér. Ég er að vísu svínslega graður, en það kemur fyrir besta fólk. :) Bestu Kveðjur, Svavar [ 2 ] sunnudagur, febrúar 15, 2004
Fajid! Metalbob...
Í nótt vaknaði ég klukkan þrjú tuttugu og fjögur við það að síminn hringdi... Svavar (rámri röddu): Ha... halló? Karlmaður (fólkshljóð á bakvið - rödd ógreinileg): Fajid! Metalbob!?! Svavar (rámur...): Ha??? Karmaður: Mobolabajid higola! Nigama? Fajid! Metalbob!?! Svavar (alveg úti á þekju): Ha? Halló, hver er þetta? Karlmaður (virðist skyndilega átta sig - með þykkum hreim): Sorry - wrong number! Du du du du Svavar: Vaaaááá... (fer aftur að sofa) Ég er rétt að vona að ég sé ekki á leiðinni til Guantanamo fyrir þessa undarlegu símhringingu... Svabbi [ 2 ]
Mikil Törn...
Fimmtudagur: vinna, söngkeppnisdómari, partý, koma heim seint seint, sofa þrjá tíma... Föstudagur: Vinna snemma, róta, spila í Hveragerði, róta niður, heim, sofa klukkan hálf sex... Laugardagur: Vakna snemma, vinna, ráðstefna, fundur út af árshátíð, koma heim klukkan tíu, sofna... Sunnudagur: Vakna á hádegi og skrönglast í vinnuna... AAHHH.... Svo kemur bara venjuleg vinnuvika í næstu viku... Húrra!!! :) [ 4 ] föstudagur, febrúar 13, 2004
Snúllabar, hér komum við!!!
Hljómsveitin Hraun er að fara að leika á Snúllabar á eftir... Snúllabar í Hveragerði! Þar er hraun... SNÚLLAbar... snúlla BAR SNÚLLABAR!!! YEEAAH!!! Djöfull hlakka ég til að sjá þennan stað, þó hann sé bara ósköp venjulegur... Jeeee!!! Bestu Kveðjur, Svabbi [ 1 ] miðvikudagur, febrúar 11, 2004
Mugison...
Ég er ekki frá því að uppáhalds lagið mitt með Mugison vini mínum sé The night is limping. (hér er myndbandið) Örn og Rúna, kærastan hans, eru svo gersamlega sæt og frábær og í hvert skipti sem ég hitti þau langar mig að knúsa þau til Mars! Þau eru svo skapandi og fersk og ástfangin að það er bara engu líkt! Rúna gerði til dæmis myndbandið við The night is limping, sem er náttúrulega bara tóm snilld, enda ekkert nema einlægnin... Greyið Mugi var veikur og Rúna dró hann út í fjöru og lét hann leika sér í nokkrar mínútur... :) Svo er náttúrulega hið frábæra Two birds, sem þau gerðu saman og myndbandið er ekkert nema brilljans! Mugi, ég vona að ég geti einhvern tíma orðið eins frábær og þú... Ég hef bara alltaf verið svo mikill lúði... :/ Never mind! Áfram Múgí og mundu eftir mér þegar þú ert orðinn frægur, taktu Hraun! með þér á túr eða eitthvað... :) Bestu Kveðjur, Svabbi sæti [ 1 ]
Forvitnilegt Mál...
Þessi frétt vekur forvitni mína... Vel á minnst, það var búin að vera helvíti löng þögn uppi við Kárahnjúka undanfarið... Ætli menn hafi gert hausatalningu þar nýlega? Ætli Impregilo sé farið að grípa til drastískra aðgerða til að taka á vandræðaseggjum í verkalýðnum? Bestu Kveðjur, Svavar [ 0 ]
Obbosí...
Hraun eru ekki að spila á Ellefunni annað kvöld, heldur fimmtudaginn eftir viku... Eins gott að ég var ekki byrjaður að róta... :D En viti menn, á föstudagskvöldið munu Hraunmenn halda Tónleika-partý-ball í Hveragerði, nánar tiltekið á SNÚLLABAR!!! Mér finnst þetta mest töff pöbbanafn sem ég hef nokkurn tíma heyrt! En s.s. þar verðum við, hressir og kátir og góðir á svellinu! Ég hlakka til að sjá hvort einhverjir Sunnlendingar verða á svæðinu. Og ég vona að einhverjir vinir okkar sjái sér fært að verða með í för. Bestu Kveðjur, Svabbi [ 0 ] þriðjudagur, febrúar 10, 2004
Rebellinn...
Ég er Rebell!!! Ég er Rebell!!! Sjáðu mig dansa! Sjáðu mig dansa! Hönní sjúgar lemon pæ (x4) Þetta syngur hljómsveitin Hraun á góðum degi... Í dag fór ég á leikskólann minn og söng fyrir börnin: Ég er Kremkex, ég er Kremkex! Sjáðu mig Dansa! Sjáðu mig Dansa! og þau elskuðu það í ræmur... Annað vers var síðan: Ég er Tekex, ég er tekex! :D jejejeeee börnin elska Svabba Paunk! [ 4 ]
Verkfræðinemi skrifaði...
Jæja... Það var einhver verkfræðinemi að kommentera einhvers staðar á forneskju síðunnar og skildi ekki eftir sig email eða neitt til að ég gæti átt í raunverulegri diskúsjón við manninn, en hann vakti aftur máls á hinni blessuðu súru umræðu um verkfræði og listir og notaði orðið "pff..." hmm... Persónulega er ég kominn með hundleið á þeirri diskúsjón, enda finnst mér hún eins heimskuleg og atómbomban... Verkfræðineminn, sem fyrir einhverjar sakir vill ekki láta nafns síns getið (???), vill meina að mér sé illa við verkfræðinema. Ég veit ekki hvernig hann hefur fengið þá hugmynd í kollinn. Ég hef hins vegar mikið gagnrýnt einmitt það attítjúd MARGRA verkfræðinema að þeir séu eitthvað heilagir og allar aðrar fræðigreinar séu eitthvað drasl og óþarfar. Það er nú einu sinni svoleiðis að fræðigreinar hafa ólíkt gildi fyrir ólíkt fólk. Svar nafnlausa verkfræðinemans var einmitt hálfgerð staðfesting á nauðsyn þess að halda áfram að berja á því sem virðist áöldum hroka þessarar blessuðu fræðigreinar. Þó það hafi væntanlega verið vel meint lak hrokinn í gegn eins og staðið smjör... Bottom line: ÉG SAGÐI ALDREI AÐ VERKFRÆÐINGAR VÆRU ILLIR EÐA ÓÞARFIR! Ég velti hins vegar fyrir mér hvort í verkfræðináminu fælist einhver afmennskun. Ég er á þeirri skoðun að verkfræðingar gegna jafn mikilvægu hlutverki og hver önnur starfsstétt og fræðistétt í samfélaginu, þeirra hlutverk er bara mjög augljóst. Verkfræðingurinn sagði m.a. : "Til dæmis með listamenn (arkitekta nánara tiltekið) þeir gætu jú hannað rosalega flott hús en það myndi hrynja um leið og það yrði byggt, verkfræðingar eru nauðsynlegir....ég meina GET REAL..... þessi málverk pff.....okey ég nýt lista mjög mikið og mikið af mínum vinum eru í einhverskonar listanámi, en listin deyr aldrei, hún býr inní fólkinu og það sama gildir um fegurðina.....verkfræðikunnáttan gæti hins vegar dáið ef enginn fer og lærir verkfræði.... hugsaðu áður en þú skrifar á þennan vef" oseisei... Listin deyr aldrei? Ef enginn lærði tónlistarfræði eða á hljóðfæri væri listin stödd á nákvæmlega sama stað og verkfræðin ef enginn lærði verkfræði. Það væru rosalega margar flottar byggingar og enginn vissi hvernig ætti að koma þeim saman. Hey, bara þó þú hannir virkjanir, raflínur og hús og sért nógu klár í stærðfræði til að leysa fjórða stigs jöfnur þá gerir það þig ekki að neinni hetju, það gerði mig ekki að hetju, það gerir þig ekki að hetju! Síst af öllu gerir það fólk ómissandi fyrir heiminn eða æðri á nokkurn hátt, svo GET REAL already! Ef ég hef skrifað af pirringi út í verkfræðinga, þá er það væntanlega vegna aðgerða ríkisvaldsins undanfarin ár sem virðast felast í fókuseraðri atvinnusköpun fyrir ofmettaðan verkfræðingamarkað landsins. Það virðist hreinlega vera svo að þrátt fyrir allar gáfur sínar geti verkfræðingar landsins ekki skapað sér næga vinnu sjálfir og reiða sig á ölmusur landsvirkjunar, þ.e.a.s. stórvirkjun á fimm ára fresti. En á móti blessuðum verkfræðingunum hef ég ekkert, nema þá ef vera skyldi því þegar SUMIR ÞEIRRA fara í vörn og byrja strax á því að sparka í listirnar (af einhverjum annarlegum hvötum, verð ég að álykta...) Bestu Kveðjur, Svavar Viðbót kl. 17:12 Við þetta má síðan bæta að tónlistarsköpun og verkfræði virkja margar af sömu heilastöðvunum, stærðfræði, strúktúr og visst innsæi. Ég held að viðkomandi maður sé að gera nokkuð lítið úr þeirri menntun sem liggur að baki t.d. tónskáldagráðu eða námi í hljómfræðum eða hljóðfærasmíði og slíku. Ef slík þekking er eins sjálfsögð og lítils gild og hann vill vera láta hlýtur verkfræðin að lúta svipuðum lögmálum, ekki satt? Einfaldlega með því að horfa á flott mannvirki hlýtur maður að geta orðið góður byggingaverkfræðingur, því verkfræðin býr í okkur öllum, ekki satt? ;) [ 4 ]
Lonely Mountain með Mugison Rúlaaar!!!
Hann Mugison er æðislegur! Ég er búinn að vera að hlusta á músíkina hans í allan gærdag og allan fyrradag... Það má segja að ég hafi enduruppgötvað hana núna á dögunum... Drengurinn er ótrúlegur! Mann langar bara að knúsa hann fyrir að vera svona mikill snillingur. Hann er með alveg dásamlega fallega rödd og ótrúlega bít-melódíu-samhengis hæfileika... Kaupiði Plötuna hans! Bestu Kveðjur, Svavar [ 0 ] mánudagur, febrúar 09, 2004
Langar að spila meira...
Ekki nóg spilamennska í gangi, mig langar að spila meira, koma tónlistinni út, taka hana upp, spila fyrir fólk... urgh... Þarf að fara að rífa mig upp á rassgatinu og koma þessu drasli á framfæri... Bestu kveðjur, Svavar [ 1 ]
Aftur snemma á fætur...
Gaaa! Þetta er sko ekki að virka að vakna svona snemma! :-) Ég sé heiminn í nýju ljósi, ljósi framkvæmda og gleði... Deyðu! Deyðu vonda sól!!! En nóg um það... Mig langar að fara með Hraun! og túra Evrópu... :-) Spila í einhverjum suddabúllum og leigja rútu... :) Það væri suddagaman! Svabbi [ 3 ] föstudagur, febrúar 06, 2004
Morgunógleði...
Ég er ekki vanur að vakna svona snemma á morgnanna... Hundfúlt... En ég held að ég verði að fara að gera það ef ég ætla að ná einhverjum árangri persónulega... Gaah... Helvítis... Það er algjört rugl að vakna svona snemma... guh... Bestu Kveðjur, Svavar [ 0 ] fimmtudagur, febrúar 05, 2004
Meiri fréttir...
Fór og fékk lánaða Mobile pre græju hjá Óla, ætla að prófa hana... Urg... Sé hvernig fer í kveld... Annars gengur vel, síðan í góðu geimi... Bestu Kveðjur, Svavar [ 1 ]
GAAAAAAAA!!!!
Nú drep ég einhvern!!! GAAA!!! Þessi græja er að gera mig gráhærðan! Klikk klikk klikk klikk skruðn klikk klikk klikk klikk skruðððn...!!!! GAAAAAAAA!!! [ 1 ] miðvikudagur, febrúar 04, 2004
Til hamingju Már!
Flott lúkk komið hjá Má, loksins. það er allt annað að sjá þetta hjá stráknum. Mann langar hreinlega að bjóð'onum í mat... :) Bestu Kveðjur, Svabbi [ 0 ]
Enn Stríðir Græjan mér...
YARGH!!! Er enn að reyna að koma þessari græju í gagnið... En hún frystir allt og veldur skruðningum og tikki... Hrafnkell, (hvaða Hrafnkell var þetta annars?), geturðu haft samband við mig og leitt mig í gegnum þetta? Bestu Kveðjur, Svavar [ 0 ] þriðjudagur, febrúar 03, 2004
Skoðanakönnun...
Ókei... Smá skoðanakönnun... Kommentið bara um þetta... Hverjir myndu kaupa bol með myndinni af Hraun gaurunum í ætt við það sem er hér fyrir neðan? (blogg 27. janúar) (bara með gaurunum, til dæmis ef það stæði L A V A á þeim...) Og hvern myndi langa til að kaupa bol með Ég er Rebell! Sjáðu mig dansa! lúkkinu? Endilega látið vita, ég er að hugsa um að láta búa þá til fyrir bandið. (Ágóðinn rennur vitaskuld í ferðasjóð sveitarinnar.) Bestu Kveðjur, Svabbi [ 10 ]
Slitnar Skóreimar...
Gaaaa... Erfiður dagur... Slitnar skóreimar... Varaþurrkur... GAAAA!!! Tortíma öllum!!! Nýja M-Audio græjan sem ég var að kaupa er með tóma stæla við mig. ÉG mun tortíma henni líka!!! [ 1 ]
Myndir frá Ísó og Flateyri...
Birgir Þór Halldórsson nokkur, betur þekktur sem www.bloggari.is, tók myndir fyrir vestan og setti á síðuna sína... Helvíti hress gæi. Fíl'ann... En neðarlega á þessari síðu og svo á þessari síðu má sjá myndir frá báðum kvöldunum... Helvítis stuð maður! :) Sérstaklega fannst mér Þessi mynd skemmtileg... :) Bestu Kveðjur, Svavar [ 0 ] mánudagur, febrúar 02, 2004
Vestfjarðavíkingurinn...
Djöfull var gaman á Vestfjörðum... Það var stuð á Ísafirði og það var þrumustuð á Flateyri. Tónleika-Partý-Ballið heppnaðist eins og í sögu og allt fór á besta veg (fyrir utan fjármálin, en þau fóru samt mjög ásættanlega... :) Júbbííííí!!! Nú tekur bara við brjáluð törn í vinnu... Bestu Kveðjur, Svabbi [ 0 ] |
Eva
Örn "Mugison"
Elias Tónlistarmönnum sem gefa tónlist
sína á netinu er velkomið að hafa samband
við Hr. Muzak og þá bæti ég þeim
á listann.
Laukurinn rúlar
Dr. Gunni
| |||