Þankatankurinn



Svavar Knútur
Kristinsson,

Félagsauðströll, heimspekingur, umhverfis-verndarsinni og tónlistarmaður.

Ímeilaðu
mig...

NÝTT!!!
Viltu fá
(eða hætta að fá)
tilkynningar
um tónleika
HRAUNS!,
eða Svavars Sjálfs?
Sláðu inn
netfangið hér:



This page is powered by Blogger. Isn't yours?




Hljómsveitin Hraun! veitir mér listræna útrás.

Hraun á Myspace

Sjálfurinn á Mæspeis

Nýjustu Demó:

Ease your mind (01.07.2006)

Dansa... (28.09.2005.)

Ástarsaga úr fjöllunum (Sumarið 2005)

Goodbye my lovely (19. júní 2005)

Kisa litla (Maí 2005)

Your love was death to me (Janúar 2005)

Call off your Cavalry (September 2004)

You should call a doctor (Maí 2004)

Kysstu tímaglasið (endurbætt útgáfa 2004)

Mother's day
( 2004)

Jólaplata Hrauns 2003: Þrautgóðir á Hraunarstund

Jólaplata Hrauns 2004: Kátt er um jólin

Partýplatan Partý!

Jólaplata Hrauns 2005: Höldum jól

Jólaplata Hrauns 2006: Jólamolar



Latur myndasmiður, en engu að síður er hér að finna eitthvað efni...

Molar...


 
þriðjudagur, mars 30, 2004
  Mysa lasin...
Mysa er mjög veikburða... Hún notaði síðustu krafta sína til að komast inn um glugga í Garðabænum... (god knows hvernig hún komst þangað)
Hún gubbar öllu sem hún étur, en ég fann leið til að láta hana halda niðri mat... Við mötum hana á einum munnbita á klukkutíma plús einni teskeið af vatni. Það virðist haldast niðri...
Nú vonum við bara að greyið nái að melta þetta, en hún er horaðri en ég hef nokkurn tíma séð dýr.
Hún liggur núna bara og emjar eitthvað og umlar og malar þegar maður klappar henni.
Við settum undir hana lopapeysu og erum voða góð við hana, en Emma er ekki par hrifin af þessum "ókunna" ketti sem allt í einu er kominn inn á heimilið...
Vá hvað hún er lítil...

Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 1 ]
mánudagur, mars 29, 2004
  MYSA FUNDIN!!!
Mysa er líklega fundin, hún er víst uppi í GARÐABÆ!!!
Við Pálína erum á leiðinni að ná í hana...
Æi Greyið, búin að vera týnd í fjórar vikur, svöng og lúin...

Oh... ég hlakka til að sjá greyið...

Bestu Kveðjur,
Svabbi


[ 5 ]
  Tvö ljóð
Hér hafið þið tvö ljóð sem urðu til á Gamla Apótekinu á Ísafirði.
Varúð: Þetta er strong stöff... Ljóðskáldið Svavar lætur nú til sín taka!

Billjardborð Belzíels

Loftur og Gummi leika ballskák,
á fallegu billjardborði, grunlausir um þá illsku sem í því býr...
Í billjardborðinu dvelur andi Belzíels,
óvættar frá því fjórtánhundruð árum fyrir Krists burð.
Belzíel er reiður! Og öllum mun hefnast.
Blóðug er reiði Belzíels í billjardborðinu,
illa mun ganga að hitta kúlum í rétt göt, slík er reiði Belzíels.
Hann mun leiða hvítu kúluna í glötun, jafnvel út fyrir endimörk borðsins flýgur hún! ÆJÆJÆJ!
Hann mun valda hugarangri og armæðu og stöku uppstökkum orðum.
Hann mun hefna sín á hinum lifandi, hinum lifandi sem bundu hann í þetta billjardborð!
Belzíel dvelur í blóðugum hefndarhug... Í billjardborðinu brennur hatur...
Og Loftur og Gummi leika grunlausir ballskák.


Einmana Kind

Ég sá hann
labba eftir ströndinni,
leiðandi aðra kind, golsótta kind,
klauf í klauf...
Nú ráfa ég um heiðina,
einmana rolla, tveggja barna móðir.
Stari á rofabarð, hugsa um hrútinn sem hvarf, svikuli hrútur!!!
SVIKULI HRÚTUR!!!
Ég jarma í vindinn! Ég jarma og harma ást okkar, sem jöpluðum saman á birkihríslum á vordögum.
Mikill er harmur minn... einmana rolla, tveggja barna móðir...


[ 3 ]
sunnudagur, mars 28, 2004
  Lýst eftir umba...
Ókey...
Rosalega mikið af fólki er að misskilja meiningu Hrauns á þann hátt að við viljum verða einhver ballhljómsveit...
GARR!!!
Mig langar að koma tónlistinni minni á framfæri, og ég tek lög sem mér þykja skemmtileg í bland við frumsamið stöff til að leika mér...

En...
Ég er að komast að því að ég er ömurlegur í að koma mér á framfæri og skipuleggja svona hljómsveitastúss...
Ég er miklu betri í að brosa og vera jákvæður og segja "þetta reddast maður!" (sem að vísu virkar rosalega oft...)

En mig vantar einhverja týpu sem getur hjálpað Hraun! að skipuleggja heimsyfirráð með frumsamda sjittinu, ekki einhvern sveitaballarúnt...

Hmmm...
Hvert getur maður leitað?

Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 3 ]
  Ísó was a GAS!
Djöfull var gaman á Ísó!
Fólkið var stuð!
Allir fíluðu Rebellinn og dönsuðu eins og vindurinn!
Ég fíla að vera í Hraun!

Þetta var mega stuð! Um 200 manns í suddafílíng í partýi með Hraun!

Jeee...
úúíííúúúúú...

Og svo var chillað og drukkinn bjór og borðaðir hamborgarar... jeee...
Bestu Kveðjur,
Svabbi


[ 0 ]
  Skólagjaldaumræða á villigötum...
Mér finnst skólagjaldaumræðan vera á pínulitlum villigötum...
Sérstaklega finnst mér rökstuðningur skólagjaldasinna oft vera út úr kortinu.
Mér finnst hann hljóma svona:
1: Hey, í ljósi þess hvað Háskóli Íslands stendur illa eftir fjársvelti undanfarinna ára til að hygla einkareknum háskólum, þá er augljóst að eina leiðin til að bæta hann er að láta þá nemendur sem sækja hann borga fyrir námið þar.
Ah...
Einmitt...
Svo er hann stundum svona:
2: Það er eðlilegt að fólk borgi skólagjöld í háskólum, því það er undantekningarlaust að sækja sér þekkingu sem á eftir að færa þeim hærri tekjur í lífinu.

Er það öruggt?
Fullyrðing 1: Það að berja konuna sína í plokkfisk um leið og farið er út úr húsi á deit með einhverjum gellum út í bæ og segja henni svo að kaupa sér meik til að líta ekki út eins og útspýtt hundstík er ekki mjög falleg athöfn. Sama á við um háskólann.
Fullyrðing 2: Nú vil ég meina að sumir fari í háskólann til þess að auðga huga sinn og bæta sig sem manneskjur, til dæmis tónlistarfólk og leikarar, heimspekingar, bókmenntafræðingar, þjóðfræðingar, mannfræðingar, eðlisfræðingar, stærðfræðingar og fleiri. Ber mér skylda til að fá mér vinnu sem passar við námið eftir námið? Nei! Ég fer í háskóla til að bæta mig sem einstakling, til að rækta huga minn. Það er eitthvað sem við höfum komist að því að er gott í samfélaginu. Á að gera þetta að lúxus þeirra sem hyggjast fá sér feitar übervinnur eða eiga feita überríka foreldra?

Ég vil trauðla trúa því að á Íslandi þrífist slík yfirstéttadýrkun sem þetta ber vitni.

ÞAÐ ERU EKKI ALLIR HÁSKÓLANEMAR AÐ LÆRA EINHVER FARTÖLVUFRÆÐI!
(Fartölvufræði: Fansí smansí flottheitafög sem fólk lærir að búa til flottar powerpoint kynningar í.../Tískufög)

Viljum við kannski ekki að allir í samfélaginu hafi sömu möguleika á að öðlast menntun, óháð fjárhagsstöðu?
Hver veit, kannski missum við einhverja mögulega Einsteina og Bohra í gegnum rimlana vegna þess að við gáfum þeim ekki séns.

Hmmm...
Við verðum að spyrna við þessari öfgafrjálshyggju sem þrífst í fartölvumenningunni...
Róleg á öfgafrjálshyggjunni!

Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 2 ]
föstudagur, mars 26, 2004
  Ellefu var fínt...
Það var gaman á Ellefunni, þó það hefði mátt vera meira fólk...
En Kórdrengirnir úr MH (hljómsveit) voru alveg að rokka... Ég sá mig tilneyddann til að gefa þeim öllum Hraun-boli, enda voru þær æðislegar! :)
En nú er stefnan tekin á Ísafjörð, þar sem við ætlum að gera skemmtilega hluti og gleðja valinkunnan skrílinn...
Bestu Kveðjur,
Svabbi


[ 6 ]
fimmtudagur, mars 25, 2004
  Ahem...



[ 5 ]
miðvikudagur, mars 24, 2004
  Farfisa... Dásamlega Farfisa...
Farfisa... Pianorgan IV...
Þvílíkt hljóðfæri...
bara yea big... svona 100cmx30cmx50cm (150.000 kúbíksentimetrar...)
kveikti á henni... loftpumpan byrjar að mala...
Spila smá...
Hljómar eins og að spila á rafknúna harmóníku, nema ítalskara...
Snilld!

Hlakka til að nota þetta hljóðfæri Læv...
Maður fer ósjálfrátt að spila Innocent when you dream með Tom Waits...

Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 1 ]
  Krían að klárast... :)
Jæja... Nú er Krían, rit um náttúru og umhverfi rétt að skríða inn í prentvélarnar.
Húrra fyrir því.
Annars er ég í góðu tjútti bara.
Alltaf í gúddí fílíng þegar Ísraelar bomba menn í hjólastólum, ha, er það ekki bara?
Áhugaverð pólítík í gangi þar...

Nema hvað...
Eitt sem böstar kúlurnar mínar...

Ætti maður að taka því sem hinti um að maður sé að gera hundlélega hluti þegar það er aldrei hringt í mann og maður beðinn um að spila á einhverjum góðgerðakonsertum og tribjútgiggum? Eða á maður bara að halda áfram að berjast og láta vita að mann langar til að taka þátt?
Ég held að ég geri það síðarnefnda... Haldi bara áfram að berjast, þó ég verði gamall og úldinn...

Bestu Kveðjur,
Svabbi


[ 4 ]
þriðjudagur, mars 23, 2004
  Björn Nýbúi...
Björn Bjarnason skrifaði þetta á heimasíðu sína á dögunum...
"Mér er í raun óskiljanlegt, hvaða kröfur gerðar eru til frétta á DV, ef svona heimasoðin uppspuni skrif stenst þær."
Svona heimasoðin uppspuni skrif stenst þær?
Rólegur á Víetnömsku málfræðinni gæi... :)

Að vísu fóru önnur ummæli meira í taugarnar á mér, eins og Björn gerir að vísu alltaf... Honum virðist fyrirmunað að skrifa án hroka og fyrirlitningar um nokkurn hlut.
"Um leið og ég bendi Eddu vinsamlega á að slökkva á viðtækinu eða fara á aðra rás, þegar ég birtist á öldum ljósvakans - ekki vil ég bera ábyrgð á, að hún kafni - vek ég sérstaka athygli á þeim einkunnarorðum hennar, að sannleikurinn sé afstæður. Blaðamenn, sem telja ekki til neinn sannleika, eru ekki vel til þess fallnir að skrifa fréttir. Spyrja má, hvort þetta með afstæða sannleikann sé ný rétthugsun í blaðamennsku, á grunni póstmódernisma, þar sem allt er lagt að jöfnu og eitt er satt í dag og annað í sama máli á morgun."

Umrædd Edda var að vísa til sannleika eins og þess að algjörlega nauðsynlegt sé að bæta milljónum við sérsveitina og að Bara sé einn guð sem allir eiga að trúa á, því annars fari þeir til helvítis.
Þarna gerist Björn sekur um þá rökvillu að taka mál viðmælandans og skipta gersamlega um meiningu þess orðs sem myndar kjarna málsins: Sannleikur. Því eitt er hlutlægur sannleikur og annað huglægur. Það sem Edda var þarna að tala um er huglægur sannleikur, subjective, gildishlaðinn. En það sem Björn fer allt í einu að blaðra um er hlutlægur sannleikur og fer eitthvað að vitna í blaðamennsku og svoleiðis.
Þetta er dæmigert fyrir hroka og ómálefnaleik Björns Bjarnasonar. Ég held að ég, sem blaðamaður, myndi nú fá orð í eyra ef ég færi að skrifa það sem staðreyndir að allir færu til helvítis ef þeir tryðu ekki á Jehóva, sem er þá sannleikur Gunnars í Krossinum, eða að fara að staðhæfa að íslandi stæði gríðarleg ógn af hryðjuverkamönnum og því sé empírísk nauðsyn að efla sérsveitirnar. Ég hefði búist við því að Björn vissi það að grundvallarreglan er sú að ef það er ekki skólabókar augljós staðreynd, þá lætur maður viðmælanda segja hlutinn. Ég get til dæmis ekki sagt að Kárahnjúkavirkjun sé umhverfisslys, jafnvel þótt það blasi við hverjum náttúruelskandi manni, vegna þess að einhverjir eru ósammála um það, og þess vegna er það orðinn umdeildur "sannleikur", huglægur.

Björn virðist mér ansi ómálefnalegur þessa dagana.
Húrra fyrir því,
bestu kveðjur,
Svavar Knútur

p.s. skelfilega væri það nú síðan týpískt ef maður fengi hringingu og skammir eftir þetta blogg :)


[ 2 ]
  Farfisan komin! VEEEIII!
Húrra!!!
Farfisan (ekki fallbyssan) sem ég var að panta er komin heim!
Eldgömul og ógeðslega krúttaraleg!
Ekkert Jack tengi á henni, því miður, en hún á eftir að verða þvílík prýði!!!
En ímyndið ykkur skipbrot mitt þegar ég sá að hún var með breskri kló!!! Hahahaha...
Ef vel fer, þá getum við mögulega nýtt hana á fimmtudaginn þegar Hraun spila á Ellefunni...
Bestu kveðjur,
Svavar


[ 0 ]
  Ellefan á fimmtudagskvöld...
Heyyaaa!
Hraun! munu leika á Ellefunni á fimmtudagskvöldið...
Við hlökkum feitt til, og það sem meira er, það getur verið að við höfum upphitunarhljómsveit...
Það kemur allt í ljós á fimmtudagskvöldið kl. 21:30... :)

Bestu Kveðjur,
Svabbi


[ 0 ]
föstudagur, mars 19, 2004
  Langar svo á Pixies...
GAAAA!!! Mig langar svo á Pixies!!!

What's that floating in the water
Oh Neptune's only daughter!
I believe, in mister Grieves
Do you have another opinion?
Do you have another opinion?

Lalalala lalalala lalalala lalalala

ÁFRAM BORGARHOLTSSKÓLI!!!

Húrra fyrir strákunum í Borgó! Þeir tóku þetta eins og karlmenn!
Loksins Loksins Loksins Loksins!!!

Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 4 ]
  GEEEÐVEIKT PERFORMANS!!!
Það var gaman að spila á Nelly's í kvöld...
Þó ég efist um að þolinmæði okkar reglulegu vina-áhorfenda muni endast mikið lengur ;)

En hlutir héldu áfram að hrynja... Í þetta skiptið hrundi stóri feiti full-range speakerinn ofan á mixerinn með miklum látum og braut inputið á rás nr. 1.

Hvern langar að hjálpa mér að gera við mixer?

Þakka ykkur sem komu, það var stuð að sjá ykkur...
Bestu Kveðjur,
Svabbi


[ 1 ]
fimmtudagur, mars 18, 2004
  Flott hjá Gneistanum!
Kíkið á þessa grein, nákvæmlega það sem ég sagði í kaffitímanum uppi í mogga í gær við mjög skemmtilegar undirtektir... :)
Gneistinn er góður... :)
Svabbi


[ 6 ]
  Sofi sof...
Urg... Ég sef of mikið...
Nú er ég á leiðinni í vinnuna...
Arg...

Hundfúlt að sofa svona mikið...

En! HRAUN! Spila í kvöld á Nelly's, sem er skemmtilegt! :)
Húrra fyrir því!

Það er gaman að vera til.
Svo er ég með helvíti skemmtilegt efni í bígerð uppi á Mogga núna...
:)

Bestu Kveðjur,
Svabbi


[ 0 ]
miðvikudagur, mars 17, 2004
  HRAUN! Á morgun, á Nelly's!
Hey Hey Hey,
Hraun! leika á Nelly's á morgun, fimmtudagskvöld.
Látið sjá ykkur snemma, svona um tíuleytið, því við ætlum að leika frumsamda tónlist fyrri partinn og svo feida út í kunnuglegri tökutóna seinni partinn.
Talandi um Hraun...
Bolir verða á staðnum og nú fer hver að verða síðastur að fjárfesta í fyrstu bolunum, því þeir eru að verða uppseldir (nema í medium...) :D
Í apríl verður keppni um flottasta Hraun-bolinn, sem verður unninn upp úr Hraun-Lógóinu.
Ég hlakka til að sjá hvað verður úr því :-)
Bestu Kveðjur,
Svavar Knútur


[ 0 ]
þriðjudagur, mars 16, 2004
  Hvað er Hraun!?
Nú hafa margir spurt mig hvað sé í raun hið rétta eðli Hrauns?
Hvort við séum ball/partý/kóverhljómsveit eða indí/orginal/pælingahljómsveit?

Ég svara: Nú hefurðu orðið tvíhyggjunni að bráð...

Það er ekkert annað hvort eða í þessu máli.
Hraun! er hljómsveit sem getur spilað hvort sem er, og jafnvel bæði til skiptis.
Stundum er tími til að gleðjast og partýast, þá minnkar maður hlutfall þyngri laga og eykur hlutfall gleðimúsíkur og tökulaga, og stundum er tími til að hugsa og pæla og íhuga tónlist, og þá færum við okkur yfir í frumsamdari gír...
Mér finnst þessi sveigjanleiki frábær hluti af Hrauni! og í raun ómissandi.
Stundum fær maður borgandi gigg og þau gera manni auðveldara að halda áfram að spila hina tónlistina t.d. á virkum dögum, með sömu gaurunum, gerandi mismunandi hluti. Þessi dýnamík er alveg að gera sig fyrir mig. Svo býður þetta upp á vissan óvissukvalitet, þar sem hér eru bæði færir spilarar og skapandi listamenn á ferð...

Hvað er Hraun?
Seigfljótandi kvika sem lagar sig að breytilegum aðstæðum en flæðir alltaf áfram... :D
Það er gaman að geta brugðið sér í ýmis líki, tekið sig alvarlega stundum og tekið sig mátulega alvarlega öðrum stundum. Að vera í Hraun er eins og að vera til.

Bestu Kveðjur,
Svavar Knútur


[ 0 ]
  Nick Drake og Ég...
Ég held að þeir sem þekkja mig lauslega hafi kynnst gleðibankanum, færandi heiminum meiri gleði og sífellt að berjast fyrir meiri hamingju samborgara sinna, sem er ég... :D
Ég held líka að þeir sem þekkja mig betur hafi kynnst litlu svörtu blettunum á stóra hvíta lakinu sem er ég... :-)
Og þeir sem þekkja mig virkilega vel hafa kannski á stundum tekið eftir litla hvíta lakinu sem blaktir og flögrar á rönd svartholsins sem er ég. :-/

Pínulítið melódramatískt... :) Neinei, ég er bara það sem ég er, en sum söngvaskáld geta virkilega náð að virkja svartholið mitt, þó það sé ekki beinlínis risastórt og gapandi... meira svona eins og blettur á hvítu laki...
...Ég held að Nick Drake sé sá maður sem getur gert mig hvað mest niðurdreginn í öllum heiminum...

Þvílíkur geisli, þvílík rödd, þvílíkur gítarleikari...
Þvílíkur standard sem hann setur manni... :-/

...og maður fyllist hugsuninni: Til hvers í andskotanum er ég að þessu??? Ég mun aldrei ná með fingurgómana þar sem Drake skildi eftir fótspor sín fyrir rúmum þrjátíu árum...

Mér líður svo vel þegar ég hlusta á Nick... Hann virkilega talar/syngur til mín...

...sóandi lífi... ...sóandi tíma... ...sóandi tíma annarra... ...sóandi, sóandi sóandi... ...Ætti ég að fara á róandi?...

En nei, það er ekki satt... Ég trúi á sjálfan mig, þó ég sé William Hung söngvaskáldanna... Ég hætti ekki, þó ég sé með egó á stærð við meðalstórt hænuegg og u.þ.b. jafn brothætt...

Ég ætla þá bara að sigla móti straumnum og sökkva með skipi eigin takmarkana ef svo fer... það verður bara að hafa það... Það er þó betra en að fljóta að feigðarósi á þriðja farrými ms. Lúsers...

URG!!!
Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 7 ]
sunnudagur, mars 14, 2004
  Gott gigg...
Árshátíð Pennans var skemmtileg, mikið stuð og gleði.
Við tókum tvö lög sem við höfum aldrei spilað saman áður og Pennabandið, sem var skipað helvíti góðum gæjum, tók nokkur stuðlög við góðar undirtektir viðstaddra...
Eins og með allar góðar árshátíðir, þá fór að fjara undan hópnum svona um tvöleytið, fólk að fara heim og í bæinn og svona...
Þá voru eftir nokkrir góðir einstaklingar sem dönsuðu eins og vindurinn og svo ein stúlka sem vildi ólm syngja með hljómsveitinni og ákvað því að planta sér á sviðið og róta í möppunni minni...
Það er furðulegt hvað ein smágerð stúlka getur tekið mikið pláss...

Svo fór hún að syngja, eða raula, eða humma eitthvað og við reyndum bara að gera gott úr þessu... Þetta var samt alveg heví bjánalegt. :D hehehe...
En auðvitað fyrirgefur maður svona fullum litlum stelpum, þær þurfa svo lítið af alkóhóli og virðast samt aldrei læra sín takmörk...

Þetta var aðallega svolítið neyðarlegt...

Bestu kveðjur,
Svabbi


[ 1 ]
föstudagur, mars 12, 2004
  Framundan hjá Hraun!
Mikið að gera framundan hjá Hraun! :)
Á morgun verðum við að spila á Árshátíð. Svo á fimmtudaginn verðum við á Nelly's, loksins komum við aftur þangað.
Síðan tekur við mikið af mismunandi spilamennsku, meðal annars á Ísafirði, en Sjallinn hringdi í okkur af fyrra bragði... :)
Húrra! :D
Síðan er eitthvað partý hjá Bókmenntafræðinemum og árshátíð einhvers skóla... Þetta er bara allt að gerast! :)

Svo þarf maður bara að fara að taka upp eitthvað af lögunum og koma því í útvarp...
Bestu Kveðjur,
Svavar Knútur


[ 2 ]
fimmtudagur, mars 11, 2004
  Eðal Gaur... :)
Þessi hér gaur er eeeeðal Gaur! :)
Það þarf ekki mikið til að gera mann glaðan, en Þessi gaur er sko til í að gleðja mann... :)

Props til Gumma Jóh fyrir eðal kontakt í dag.

Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 1 ]
þriðjudagur, mars 09, 2004
  Krúnk, Krúnk...
Ég hef alltaf haldið upp á hrafna...
Mér finnst þeir flottustu dýr heims. Hrafnar, refir og úlfar...
Eitthvað svo íbyggin og falleg dýr...
En nú bíð ég bara eftir síðunni minni hér uppi á Mogga, svo ég geti farið heim að leika mér...

Veeei...
Mig langar að spila á fimmtudagskvöldið...
Any Ideas?
Bestu Kveðjur,
Svavar

p.s. "jólagjöfin" mín er ekki enn komin í búðina sem ég fékk inneignarnótu í...
Ég er að verða kreisí...
Mobile Pre græjan sem ég þrái er bara ekkert á leiðinni og þess vegna dragast allar Demótökur sem ég ætlaði að fara í með Hraun! mönnum...


[ 2 ]
mánudagur, mars 08, 2004
  Siv og Ég...
Við Siv Friðleifsdóttir áttum ágætis spjall í dag...
Hún er ágætis týpa, auðvitað Framsóknarkona, en maður verður að fyrirgefa fólki ýmislegt í þessu lífi... :-)
Spjölluðum um heima og geima og svo heyrðist klikk í diktafóninum...
Hún tók af mér mynd... :)

Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 1 ]
  Humm Humm... Boromm boromm...
Árshátíð Moggans í gær...
Allir góðir, enginn skandall...
Saga Class lék fyrir dansi...
Ekki alveg flutningur að mínu skapi, svona happy camp done it a million times fílíngur... Pínu sjúskað... Ekki rokkpönkgleðiófullkomnleikinn sem ég fíla að dansa við...

Var svolítið úldinn í vinnunni í dag... Ekki beint þunnur... bara þungur...
Ég er búinn að vera pínu brúnaþungur undanfarið...
Veit ekki alveg hvenær það endar... Það er ýmislegt sem er að bögga mig þessa dagana... Meðal annars það að ég er ekki ennþá búinn að fá jólagjöfina mína sem ég fékk gjafabréf upp á um jólin...


Ég á einn mjög fyndinn vin... Ég fer alltaf með jólagjafir til hans, bara svona litlar og bjánalegar, eitthvað eins og jóladiskinn eða litla sæta bók eða eitthvað. Og í þau þrjú skipti sem við höfum hizt þegar ég keyri út minn árlega jólagjafarúnt hefur hann undantekningarlaust sagt við mig eitthvað eins og: "Sko... ég er að pakka þinni inn núna!" eða "Þúhúhú færð jólagjöf frá mér kallinn minn!" í svona hughreystandi tón... Svo líður að jólum og svo líður að afmæli og svo líður að næstu jólum... Ég held að þessi jólagjöf sem ég fæ frá honum á endanum verði alveg HUGE!

Ég nefni engin nöfn... En þú veist að þú skuldar mér jólagjafir Kauði! :-)

Það er samt ekkert ástæðan fyrir pirringnum... Ég held að það sé meira bara almennt álag...
Ég vona að aðstæður hér fari að breytast til batnaðar svo ég geti farið að vera meira heima...

Bestu Kveðjur,
Svabbi


[ 2 ]
laugardagur, mars 06, 2004
  Úff... Eitt af þessum giggum...
Æi...
Þetta var eitt af þessum giggum... :(

Matti var góður og gaman að spila með stráknum...
En þetta var pitifully lélega ömurlegt gigg...
Það er fátt erfiðara en að spila fyrir fjóra trygga vini í húsi sem tekur a.m.k. yfir 100 manns.
Það var að vísu eitthvað lið þarna, en það var ekkert að gera sig...
Maður verður að halda góða skapinu þegar maður spilar og meina það, og það var virkilega erfitt... Ég þurfti að kafa djúpt til að næla mér í happy thoughts... Það er bara svo rosalega erfitt að spila fyrir hálftómum sal...

En...
Horfum á björtu hliðarnar:
1: Maður getur alltaf litið til baka næst þegar maður á lélegan dag og sagt: Þetta var þó ekki eins slæmt og...
2: Maður lærir að meta góðu giggin...
3: Hatur mitt á íslenskri djammmenningu endurnýjaðist... Getur fólk ekki drullað sér til að prófa eitthvað annað en helvítis sama kjaftæðið aftur og aftur, helvítis fm-hnakka-hverfisbars-nellys-astró-pravda-sólon-vegamót-ölstofu kjaftæði! Þetta er allt sama helvítis tóbakið og sama helvítis staðnaða kjaftæðið... STAÐNAÐA PAKK!!! ÞIÐ SÓIÐ VERÐMÆTU PLÁSSI Á JÖRÐINNI!!

aahhh... :)
Gott að venta pínu... :D

Takk, þeir sem komu. Það var rosa gott að hafa ykkur þó til stuðnings...
Það munaði minnstu að ég bæði Matta um að setjast hjá ykkur til að áhorfendur væru þó fleiri en hljómsveitin :)

Bestu Kveðjur,
Svabbi sæti og skemmtilegi


[ 4 ]
föstudagur, mars 05, 2004
  Litla Hraun í Kvóld!
Hey öll sömul,
í kvöld mun hin stórkostlega hljómsveit Litla-Hraun leika á Jóni Forseta - Áður Vídalín - Áður Fógetanum!
Litla-Hraun samanstendur af Hraun! mínus Gumma gítarfrænda plús Matta sax/nikku.

Við munum bregða á leik strax á miðnætti og gera okkur glaðan dag í tali og tónum!
Mætið á svæðið, takið með ykkur monnípening og skemmtið ykkur vel með okkur.
Bara fimmhundruðkall inn!
Látið sjá ykkur beibís.
(Hraun! Bolir verða til sölu)

Bestu Kveðjur,
Svabbi sæti


[ 3 ]
fimmtudagur, mars 04, 2004
  Mysa er týnd...
Mysa mín er týnd...
Ég hleypti henni út um daginn í fylgd móður sinnar og þær léku sér eitthvað saman og svo kom Emma heim og engin Mysa. Síðan eru liðnir fimm dagar... Ég er í algjörum mínus...
:(
Ég vona að einhver góð manneskja finni Mysu og komi henni aftur heim.
Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 1 ]
miðvikudagur, mars 03, 2004
  Föstudagskvöld...
Hæ allir saman!
Hljómsveitin Hraun! mun leika bæði frumsamið efni og partýmúsík á Jóni Forseta (Áður Hús Silla og Valda, áður Vídalín, áður Fógetinn) á föstudagskvöldið.
Því miður verður Gummi Gítar vant við látinn, en Matti Nikkuleikari mun taka hans stað í fjörinu og bæta upp gleðina með gríðargóðu fjöri.

Við hefjum leik rétt í kringum miðnætti (jafnvel eitthvað aðeins fyrir) og spörum ekki gleðina!
Endilega mætið og skemmtið ykkur með okkur, þó það kosti eitthvað smávegis inn... :) Styðjið sveltandi tónlistarmenn...

Bestu Kveðjur,
Svabbi


[ 0 ]
þriðjudagur, mars 02, 2004
  Hvers vegna ekki að flóðlýsa Gullfoss...?
Hmmm... ákkuru ekki?
Ókei, kannski svona fyrst:
Er ekki nógu andskoti mikið af flóðlýsingum fyrir? Þarf að flóðlýsa allan andskotann? Getur fólk ekki drullað sér til að skoða hlutina á daginn? Þarf að vera að búa til eitthvað helvítis diskó úr hverri einustu náttúruperlu landsins?
Og svo:
Mörgum, þ.á.m. mér finnst gildi náttúrunnar að miklu leyti felast í því að við takmörkum þau mannlegu inngrip sem við höfum í hana, því undir eins og við erum farin að steypa hér og flóðlýsa þar, þá er náttúran orðin að mannvirki. Þá gæti ég eins farið að dást að Smáralindinni sem náttúruperlu.
Þannig: Þegar náttúrufyrirbæri eru svipt þeim einstaka eiginleika að vera þau sjálf meira og minna og eru gerð að einhverju tourist attraction og diskóteki, þá er búið að eyðileggja þau fyrir stórum hópi fólks á meðan svipað stór hópur fólks getur nú hrópa húrra því hann getur rúntað þarna uppettir á jeppanum á nóttunni líka og dáðst að því hvað Landsvirkjun gerir flottar flóðlýsingar.
Lærum af reynslu annarra þjóða.
Leyfum náttúrunni stundum bara að vera í friði og fá að vera hún sjálf, ókei?

Bestu Kveðjur,
Svabbi


[ 11 ]
  "Mín" saga vann verðlaun... :)
Á síðasta ári skrifaði ég "skúbb" á baksíðuna um kött sem var bjargað úr vatnsröri. Árni Sæberg tók myndirnar, sem voru geeðveikt flottar! :)
Ég sofnaði ekki fyrr en sex þá nótt... ég var svo glaður...
Nú kemur á daginn að myndaröð Árna vann verðlaun fyrir bestu Myndröðina hjá Blaðaljósmyndurum...
Umsögnin sem ég las um myndirnar og fréttina í DV í dag var eftirfarandi: "Skemmtileg og lýsandi myndröð sem snertir við fólki. Góð og hnitmiðuð frásögn af björgun kattar úr sjálfheldu..."
Ég er rosalega glaður yfir þessu, tíhíhí... :)

Nema hvað...
Ástin og lífið, gleðin og hamingjan...
Allt að gerast hjá Hraun! þessa dagana, pínulítil persónuleg skakkaföll líka... Ég vona að það lagist með tíð og tíma.

Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 3 ]
mánudagur, mars 01, 2004
  Bolurinn gerir lukku í MH!
Húrra!
Við Hraunarar spiluðum, eins og vitað er, á Snúllabar á Laugardagskvöldið, en þar voru nokkrir MHingar í góðu stuði.
Einn þeirra, ónafngreindur haukur, keypti bol og nú herma sögur að téður bolur sé að gera góða hluti í MH! :)

JEEEIII :)

Bestu Kveðjur,
Svabbi


[ 0 ]
  Payday...
Ég vinn of mikið...
Bloggið mitt sýnir það...
Draumfarir mínar bera vott um það...
og nú síðast, launaseðillinn minn...
Þó þessi andskoti fari allur í að borga fyrir rekstur fjölskyldunnar, þá er ég ekki alveg að meika þetta átta-daga-á-viku-skipulag... Þarf að fá mér líf...
Ég get örugglega köttað á einhver kostnað... Það er tiltölulega sniðugra en að brenna inni...
Sem betur fer hef ég Hraun! sem heldur mér tiltölulega sane...
...og gamlar lummur...
Ég elska gamlar lummur :)

Ég ætla að fara að minnka aðeins við mig vinnuna... Þetta er ekki hægt...
I need a life...
Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 2 ]
Virka þessi Drösl???