Þankatankurinn



Svavar Knútur
Kristinsson,

Félagsauðströll, heimspekingur, umhverfis-verndarsinni og tónlistarmaður.

Ímeilaðu
mig...

NÝTT!!!
Viltu fá
(eða hætta að fá)
tilkynningar
um tónleika
HRAUNS!,
eða Svavars Sjálfs?
Sláðu inn
netfangið hér:



This page is powered by Blogger. Isn't yours?




Hljómsveitin Hraun! veitir mér listræna útrás.

Hraun á Myspace

Sjálfurinn á Mæspeis

Nýjustu Demó:

Ease your mind (01.07.2006)

Dansa... (28.09.2005.)

Ástarsaga úr fjöllunum (Sumarið 2005)

Goodbye my lovely (19. júní 2005)

Kisa litla (Maí 2005)

Your love was death to me (Janúar 2005)

Call off your Cavalry (September 2004)

You should call a doctor (Maí 2004)

Kysstu tímaglasið (endurbætt útgáfa 2004)

Mother's day
( 2004)

Jólaplata Hrauns 2003: Þrautgóðir á Hraunarstund

Jólaplata Hrauns 2004: Kátt er um jólin

Partýplatan Partý!

Jólaplata Hrauns 2005: Höldum jól

Jólaplata Hrauns 2006: Jólamolar



Latur myndasmiður, en engu að síður er hér að finna eitthvað efni...

Molar...


 
fimmtudagur, apríl 29, 2004
  Gættað hvað þú segir maður!
Ég er ekki maður vinstri-hægri hugsunar, ég er stundum sammála Davíð Oddssyni og stundum ósammála... Ég held ég sé aðallega bara gagnrýnn, bæði á sjónarmið vinstri og hægri og jú, einnig á sjónarmið umhverfisverndarsinna, þegar mér finnst þau fara út í hött. Ég tel mig gjarnan hafa nokkuð raunsæja sýn á hlutina, þótt ég sé haldinn því brjálæði að bera virðingu fyrir vistkerfum og einnig vissa virðingu fyrir dýrum. (Þar með er ekki sagt að ég sé ekki til í að borða þau, það á bara að umgangast þau af vissri virðingu, rétt eins og landið og heiminn sem við búum í.)

En þegar Davíð Oddsson segir svona um fólk: (tekið upp úr Morgunblaðinu)

Spurning: Þessu frumvarpi er ekki beint sérstaklega gegn Norðurljósum að þínu viti?

Davíð: Nei, þessu frumvarpi er beint gegn samþjöppun í fjölmiðlum. Hins vegar myndi maður ætla þegar maður horfir á öll þessi fyrirtæki Norðurljósa og hvernig þau haga sér núna.

Spurning: Hvernig haga þau sér?

Davíð: Eins og þau haga sér núna í fréttaflutningi.

Spurning: Hvernig?

Davíð: Hefurðu ekki séð stríðsfyrirsagnirnar, hefurðu ekki séð árásirnar, hefurðu ekki séð gauraganginn? ... Ég tel að þetta sýni hins vegar mjög vel að það er ekkert frelsi blaðamanna á þessum fjölmiðlum. Það er algjörlega og eingöngu gengið erinda eigendanna.

Spurning: Geturðu nefnt okkur dæmi?

Davíð: Öll blöðin í dag. Öll.

Spurning: Ertu að segja að blaðamenn sem starfa fyrir Norðurljós séu ekki að fara eftir eigin siðferðisreglum?

Davíð: Það má vel vera að þeir geri það, þá virðist það vera þannig að það séu nákvæmlega sömu reglurnar og eigendanna.

Þá er mér ekki alveg sama!
Gerir maðurinn sér grein fyrir hvað hann er að segja?!?!?
ER EKKI ALLT Í LAGI HEIMA HJÁ ÞÉR DAVÍÐ ODDSSON?!?!?
Hefurðu enga sómatilfinningu?

Bara af því að blað leyfir sér að skjóta upp öðrum fréttum en hinum hógværu rólegheitum sem þú ert vanur, þá eru allir blaðamennirnir þar siðlausir?!?

Andskotann ertu að segja maður?!?

Sem blaðamanni þykir mér þetta fáránlegur málaflutningur hjá manninum og ekki sæmandi virðulegum æðsta embættismanni þjóðarinnar!

Djöfulsins vitleysa!
Það er margt gott fólk að vinna á Fréttablaðinu og DV og þó það sé ekki til í að kóa með Dabba alla leið eða taka á hlutunum nákvæmlega eins og við gerum á Mogganum, þá er það bara allt í lagi! Það er meir en allt í lagi, það er nauðsynlegt! Það er fjölbreytnin!

Það mætti halda að þessir vitleysingar væru aðallega að lýsa yfir vantrausti á íslenskan almenning, að þeir séu að segja að við séum vanfær um að móta okkur skoðanir og sigta út vitleysuna.

Svona lagað fyllir mig bræði...

Bestu Kveðjur,
Svavar Knútur


[ 3 ]
miðvikudagur, apríl 28, 2004
  Er maður að gleyma venjúum?
Hey, eins og allir vita kann ég ekkert að plögga dót...
Þannig að ef ég er að gleyma einhverjum flottum stað til að plögga Rebellinn, þá endilega látið mig vita í pósti...
Ekki má maður gleyma góðu plöggi...
tíhíhí...
Bestu kveðjur,
Svabbi


[ 4 ]
  Dr. Kári!
Mig langar að óska Doktor Kára Ragnarssyni vini okkar til hamingju með áfangann! :D
Nú geturðu loksins farið að kalla þig Doktor Káfa eins og þig hefur alltaf langað Kári minn! :)
MASSA RÍSPEKT Drengur! :)

Þinn vinur,
Svabbi


[ 0 ]
þriðjudagur, apríl 27, 2004
  Britney Spears = Big Mac?
Í umræðu undanfarinna vikna um skyndibitamenningu og fitnun vesturlandabúa er allfreistandi að spekulera í því hvort vissrar hliðstæðu gæti í tónlistarheiminum.
MacDonalds hafa löngum sagst "einungis vera að uppfylla kröfur markaðarins" um fljótafgreiddan og "hollan" mat.
Og maður veltir því fyrir sér hvort tónlistin sem okkur berst til eyrna frá tónlistarrisunum (Skífan verandi svona mini útibú MD á Íslandi) sé svona "Fast music", fljótleg, aðgengileg og óstuðandi en um leið gersamlega næringarsnauð og fitandi. Veldur sífelld áhlustun á skítapopp ekki í raun því að við verðum andlegir offitusjúklingar?
Firring nútímans er að gera okkur öll feitari, jafnt að innan sem utan.

Er þá Britney Spears BigMac tónlistarinnar?

Ég held að eins og fólk er að gera uppreisn gegn óhollu skyndifæði, muni fólk gera uppreisn gegn óhollri tónlist. Því ég get lofað ykkur því, tónlist getur verið óholl, hún getur verið svo óholl að hún hreinlega veldur heimsku, og þá sér í lagi tónlistarmyndböndin...

Uppreisnin verður blóðug og Rebellinn ríður á vaðið! :-)


[ 0 ]
  REEEBEEELLLL!!!
Um leið og ég þakka þeim sem hafa lýst yfir ást sinni á Rebelnum hingað til vil ég biðja alla um að hafa eitt í huga:
Það að hlusta á lag og fíla það er passívt!
Það að kunngjöra heiminum um það og vinna að velgengni sveitarinnar sem allir elska er aktívt!
DO IT!!!
FLY! MY EVIL FLYING MONKEYS!!!
SPREAD THE WORD OF THE REBEL! THROUGHOUT THE CORNERS OF THE UNIVERSE!!!

ókei :)
Bara láta fólk vita, endilega láta fólk vita... Því ekki fáum við útvarps eða plötuspilun... :)
Bestu Kveðjur,
Svavar

p.s. lagið er líka inni á rokk.is :)


[ 2 ]
  Slimjimy með áríðandi tilkynningu...
Dúettinn Coburn mun halda tónleika í anda snillingsins James Coburn á Kaffi Vín fyrsta maí næstkomandi milli 18:00 og 19:00 og munu þeir standa eitthvað fram á kvöld. Mælt er með meðtekningu sixpernsara og penings fyrir brennivíni, til heiðurs Coburn heitnum, sem var hetja hvers vinnandi manns.

Bestu Kveðjur,
Svabbi


[ 1 ]
mánudagur, apríl 26, 2004
  Heimsyfirráð HRAUNS!
Eins og ég áður sagði, þá ríður Hraun! nú á vað heimsyfirráða með nýjum síngúl!
Lagið Rebellinn er komið á síðu sveitarinnar...
Bestu Kveðjur,
Svabbi


[ 1 ]
  Látnir Öðlingar...
Már Haraldsson, bóndi og sveitastjóri í Gnúpverja- og Skeiðahreppi dó fyrir nokkru, en banamein hans var hinn bévítans heilakrabbi.
Ég varð þess heiðurs aðnjótandi að hitta hann einu sinni og taka við hann viðtal þegar ég var að vinna eigindlega rannsókn á viðhorfum til virkjana í Þjórsárverum. Hann var skynsemisrödd og laus við allar öfgar, þó hann tæki sér stöðu í hópi verndarsinna sökum ástar sinnar á svæðinu, en hann hafði verið fjallkóngur í göngum á svæðinu auk þess sem hann var mikill fjallamaður.
En fyrst og fremst hitti ég þarna mann sem var þolinmóður, jákvæður og reiðubúinn að aðstoða ungan nemanda í Háskólanum við rannsóknina sína.
Ég hef heyrt á fjölda fólks sem ég hef talað við í sveitinni síðan þá (sem hluta af rannsókninni) að flestir höfðu mestu mætur á Má, enda var hann vinsæll, ekki fyrir þær sakir að hann væri flottur eða töff, heldur að hann var sanngjarn og ljúfmenni hið mesta.
Það er mér tregaefni að geta ekki kynnst honum frekar, þessum jákvæða og uppbyggilega manni sem hefði örugglega getað kennt mér heilmargt um góð viðhorf til lífsins. Hann var stétt sinni til sóma og frábær viðmælandi.
Það er merkilegt hvað sumt fólk getur gefið manni sterka hugmynd um sig bara á einum fundi...

Annar merkismaður sem er dáinn er Haraldur Blöndal, lögfræðingur.
Hann var mjög klár og skemmtilegur penni auk þess sem hann litaði íslenskt samfélag með ferskum og skemmtilegum umræðupunktum. Það er líka sorglegt að sjá gáfaða menn eins og hann fölna undir alkóhólisma. Upprunalega var ég ekki allt of hrifinn af kallinum, en smám saman áttaði ég mig á því að hann var einlægur í ýmsum skoðunum sínum og laus við öfgar og rugl.

Báðir dóu þessir menn úr krabbameini og ömurlegt til að hugsa, en fólk verður sosum að deyja einhvern tíma, einhvern veginn... Þetta er bara súrt...

Maður getur bara hugsað hlýlega til aðstandenda þeirra.
Bestu kveðjur,
Svabbi


[ 0 ]
sunnudagur, apríl 25, 2004
  MJÖG MIKILVÆG TILKYNNING!!!
Á www.hraun.tk! má nú finna mjög mikilvæga tilkynningu!!!
Allir sem einhvern áhuga hafa á hljómsveitinni HRAUN! eru beðnir AFAR FALLEGA um að fara á www.hraun.tk og tékka á sjittinu...

Bestu Kveðjur,
Svabbi


[ 0 ]
  Fékk útrás...
Ég drullaði yfir eiganda Jóns Forseta í gær...
Hann átti það skilið, mér finnst hann vera óþokki...
Ég er Rebell!!!
YEAH!

Einhverjir voru á því að viðbrögð mín og læti hefðu verið all ófagmannleg, en ég svara því með einfaldri röksemd: Ég hef lent í nokkrum svona mönnum um ævina og þeir skilja ekki fagmannleika og eiga hann ekki skilinn. Það eina sem þeir skilja er Haltu kjafti og éttu skít. Ég spara fagmannleikann fyrir þá sem eiga hann skilið, t.d. fagmenn og saklaust fólk sem þarf á góðri þjónustu að halda og vill kaupa mína vinnu. Ekki fyrir óþokka sem svíkja og ljúga og leggja á mig hendur. Þeir hafa fyrir löngu fyrirgert rétti sínum til fagmennsku eða kurteisi af minni hálfu. Sorrí Stína...

Ég virði þó skoðanir hófsamari vina minna og vona að þeim finnist ekki minna til mín koma þótt réttlætiskenndin hlaupi með mig í gönur með svona óyndislega siðleysingja og óþokka eins og Ragnar Halldórsson "kvikmyndagerðarmaður" er að mínu mati.
Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 2 ]
laugardagur, apríl 24, 2004
  Símanum stolið í þokkabót...
Já, ég get seint þakkað MHingum nóg fyrir frábæran dans og almenna gleði.
Og svo vil ég biðja MH-inginn/Heimspekideildarnemann sem stal símanum mínum, endilega um að skila græjunni, því ég er, eins og flestir vita, frekar fátækur gaur en nægjusamur og vil helst ekki missa hluti eins og símann minn, því í honum er svo andskoti mikið af verðmætum upplýsingum sem skipta mig máli.

Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 0 ]
  Partý búið... jeee...
Aaaah... hvað það var gaman að spila í partýi Heimspekideildar og dimmisjónballi MH.
Fyrir utan slæma mætingu heimspekideildar á svæðið...
Frekar slappt...

Hey, minnið mig á einhvern tíma að lýsa yfir hvað ég hef lágt álit á Ragnari Halldórssyni, sem sér um Jón Forseta.
Sá maður fór ekkert smá í mínar fínustu í nótt...
Ég er þess fullviss að hann hefur verið á örvandi lyfjum, sem bæta ekki úr því sem mér virðist vera ofstækisfullt og sósjópatískt fas hans.
Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 2 ]
föstudagur, apríl 23, 2004
  ALLIR HEIMSPEKITÖFFARAR ATHUGIÐ!!!
HRAUN!-PARTÝ í kvöld! :-)
NB. Partý í tilefni af próflokum heimspekideildar!
JEJEJEJE! :)
Allir mæta á svæðið (sem er einhver salur á vegum Jóns Forseta...)

Bestu kveðjur,
Svabbi sæti! :)


[ 0 ]
fimmtudagur, apríl 22, 2004
  Frjálshyggjublesa Garg!!!
Hvað mér er meinilla við það þegar ég er að reyna að skemmta mér og einhverjir fanatískir frjálshyggjumenn spotta mig og reyna að "snúa mér".
Snúa mér hvert?!?
Svei mér þá, þetta er verra en vottar Éhófa...

Ókei! Bara einu sinni enn fyrir ódýru sætin! Hlustið nú vel frjálshyggjublesar:
Til þess að geta rökrætt skoðun ykkar við mig þurfum við fyrst að sættast á vissa grundvallarforsendu áður en ég samþykki nokkuð annað. Sú forsenda er að Efnahagsleg afkoma sé algildur mælikvarði á ánægju og velsæld mannkyns. Einnig þarf ég að samþykkja að einu verurnar sem eiga réttindi eða skipta máli séu mannverur og allt miðist við þær.
ÉG ER EKKI TILBÚINN TIL AÐ SAMÞYKKJA ÞESSAR FORSENDUR, SO GIVE IT UP!!!


Þess vegna þýðir ekki að rökræða heilagleika og dásamleika frjálshyggjunar við mig frekar en þá hugmynd sumra að aðeins kristnir menn geti haft heilbrigða siðferðisvitund.

Komm on!

Um leið og ég frábið mér annarar svona uppákomu vil ég þakka Arnari fyrir að kúpla sig út úr þessu og fara að hösla. :-)

Bestu Kveðjur,
Hr. Svavar


[ 0 ]
miðvikudagur, apríl 21, 2004
  Greddan yfirtekur mig...
The Dante's Inferno Test has banished you to the Second Level of Hell!
Here is how you matched up against all the levels:
LevelScore
Purgatory (Repenting Believers)Low
Level 1 - Limbo (Virtuous Non-Believers)High
Level 2 (Lustful)Very High
Level 3 (Gluttonous)High
Level 4 (Prodigal and Avaricious)Very Low
Level 5 (Wrathful and Gloomy)Low
Level 6 - The City of Dis (Heretics)Very Low
Level 7 (Violent)Low
Level 8- the Malebolge (Fraudulent, Malicious, Panderers)Moderate
Level 9 - Cocytus (Treacherous)Low

Take the Dante's Inferno Hell Test


[ 3 ]
  Jarðarför og Pressuball...
Jæja... mætti í sparifötum í vinnuna í dag og fer ekki úr þeim fyrr en í nótt...
Fussumsvei...
Jarðarförin hans afa gamla klukkan þrjú og svo pressuball klukkan sex...
Best að klára síðuna sem fyrst...

Bestu kveðjur,
Svavar


[ 0 ]
mánudagur, apríl 19, 2004
  Gæti ég gerst hallærislegri...
My Inner Hero - Paladin!



I'm a Paladin!


I strive to help others, and to bring truth and harmony to the world however I can. Whether times are good or bad, you can always count on me. I'm a shoulder to cry on, a champion for the helpless, and an all around nice person.



How about you? Click here to find your own inner hero.


www.too-lame.com :-Þ


[ 5 ]
  Uppfærsla á Hraunsíðunni...
Nú er hljómsveitin Hraun bæði komin með www.hraun.tk (Íslenska síðan) og www.lava.tk (enska síðan)

Jeeeiii :)
Áfram Hraun!

Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 0 ]
  Rebellinn kominn á teip...
Fórum í stúdíó á föstudag, Hraun! menn, og tókum upp Rebellinn...
Tók sjö tíma að taka upp og fullvinna lagið, sem er ekki neitt...
Djöfull hlakka ég til að leyfa fólki að heyra þetta brilljant lag :-D hehehe :)
Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 1 ]
fimmtudagur, apríl 15, 2004
  Gat það ekki verið... :)
Grammar God!
You are a GRAMMAR GOD!


If your mission in life is not already to
preserve the English tongue, it should be.
Congratulations and thank you!


How grammatically sound are you?
brought to you by Quizilla


[ 3 ]
  Öndergránd öndergrándsins...
<Ruglubullspjall>Stundum líður mér eins og Hraun! sé svo svakalega öndergránd að jafnvel öndergrándið vilji ekki kannast við hana :-D...
En það getur varla verið, þar sem við erum ekki að spila neina avant-garde músík, heldur bara falleg (að mínu mati), straight-forward lög um fyrirgefningu, vini, sorgir og ástir og stöff...
Kannski er maður bara aðeins of plain and simple... Maður ætti kannski að bæta smá ælu og drullu í textana og einni eða tveimur fimm- eða þrítalningum inn í lag sem annars er að mestu leyti í fjórum, jafnvel setja ómstríða hljóma sitt á hvað og urra yfir þá eitthvað í gegnum pikköppinn á rafmagnsgítarnum... :) hehehe...
Neinei, ég er nú bara að grínast... Mér leiðist bara þessi músíkalski einmanaleiki Hrauns... Líður dáldið eins og feita gaurnum í fótboltanum sem var alltaf valinn síðast...

Hvað ef þroskaheft fólk væri gersamlega meðvitað um að það sé þroskaheft og fatti alveg niðurskölunina þegar "heilbrigða fólkið" segir því að það sé svo "klárt" og "duglegt". Hvað ef ég væri í alvörunni þroskaheftur og upplifði lífið þannig að allir væru ógeðslega miklir vinir mínir og allt væri svo fínt og gott, en þegar öllu væri á botninn hvolft væru lögin mín ómöguleg og bara hreint út sagt bjánaleg? Og ég bara með sólheimaglottið á vör, "semjandi lög" og verandi voða ánægður...
Ætli það sé svoleiðis, ég meina bara tónlistarlega? Ætli músíkin mín sé bara svo hrikalega léleg að fólki detti ekki í hug að hafa samband eða hafa hana með, segði bara: "Voðalega er þetta fallegt hjá þér Svabbi minn..." og ég bara eitthvað: "Hmjáá! Hmö Hmö Hmö hmoða hmfallegt hmlag! :)"
Váá... there's food for thought :-D

Það er speisað að vera misfit en það þýðir ekki að mann langi ekki til að vera með :-/...
</Ruglubullspjall>
Ranti og röfli lokið... :)
Jæja, það er sosum ekki við neinn að sakast nema aðgerðaleysi manns sjálfs og of mikið vinnuálag til að maður geti plöggað sér endalaust og rottað saman við aðra um að gigga...
Andskotinn hafi það...
Svo mega auðvitað hinir meðlimir Hrauns líka vera duglegir að redda giggum, þetta er þeirra hljómsveit líka! :-)
BTW! Kudos til Gumma frænda fyrir Hólabrekkuskólagiggið, bara tóm snilld!


Bestu Kveðjur,
Svabbi sæti...
Og í öðrum fréttum, Hraun! eru að fara í stúdíó á morgun að taka upp Rebelinn...
Myndband verður unnið í samstarfi við helstu Rebela bæjarins. :-)
Þeir sem vilja vera í myndbandinu mega endilega hafa samband við muzak@simnet.is og taka eftirfarandi fram:
Nafn:
Tegund Rebels (Hippa-fífl/Pönkara-grey/Hnakka-hálfviti/Indí-hommi/rokkara-bjáni/manson-aumingi/o.s.frv.):
Hvernig dansarðu:
Símanúmer:
Email:


[ 3 ]
  Gróf þennan gamla upp... :)

Finnst hann alltaf jafn fyndinn :)
Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 1 ]
  Afi gamli dáinn...
Jæja... Hann Ásbjörn gamli Afi er dáinn, dó á Páskadag...
Hann var orðinn voðalega daufur í dálkinn elsku kallinn og vissi varla í þennan heim né annan, þar sem hann var með einhverja hæga en stöðuga hrörnun í heilanum.
Svo varð hann bara veikur frekar hratt og dó á nokkrum dögum.
Mér finnst gott að hann þjáðist ekki meira. Það hlýtur að vera alveg hræðilegt að upplifa svona heilabilun smám saman, að finna minningar og meðvitund fjara út, maður sem einu sinni var einn af virtari húsasmíðameisturunum í Reykjavík, byggði sitt eigið hús sem enn stendur stöðugt og fallegt. Var pólítíkus og klár kall á alla lund. Hann bar erfiðleika sína þegjandi hann Ásbjörn afi. Sagði aldrei neitt um sína líðan, varð bara þögulli og þögulli.
Ég held að það sem maður upplifi þegar svona gamalt og lasið fólk deyr sé aðallega léttir fyrir þeirra hönd og ástvinanna sem eru búin að vera að hafa miklar áhyggjur af þeim.

Ég vona að þegar ég fer, þá hljóti ég greiða för í sátt við guð og menn.
Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 4 ]
  Yngsti aðdáandi Hrauns! :)
BÚAAAH :-D
Ég var loksins að ná þessari mynd úr vélinni... :-)

Bestu Kveðjur,
Svabbi


[ 1 ]
miðvikudagur, apríl 14, 2004
  Herra Svavar gefur Neytenda- og umhverfisverndartipp...
Kæru vinir,
langar ykkur til að taka einföld og auðveld skref í að vera umhverfisvæn?
Hér er eitt:
Þegar þið farið út í búð, reynið þá að kaupa íslenskt. Og ef engin íslensk vara er til, reynið þá að kaupa sem næst íslandi, t.d. frá Norðurlöndunum eða Evrópu.
Dæmi: Hægt er að fá Epli frá Svíþjóð, Englandi, Hollandi eða Kína.
Ókei, fyrir hvert epli sem þið kaupið frá Svíþjóð, Englandi eða Hollandi hafa farið x margir olíulítrar í flutninga. En fyrir Hvert epli sem þið kaupið frá Kína hafa farið 6x margir olíulítrar í flutninga. Þótt eplin kosti það sama eruð þið að eyða verðmætu eldsneyti og auðlindum jarðar í hégóma og vitleysu. Kaupið varning sem næst heimahögum.
Þið þurfið ekki að spyrja hver sé munurinn á tómötum úr Hveragerði og frá Hollandi, bara út frá eldsneytiskostnaði við flutninga.

Einfalt tipp ekki satt?

Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 3 ]
  Herra Svavar á kvöldvöktum...
Getur einhver bent mér á leibela sem sniðugt væri að senda demó á?
Leibela sem eru að gefa út eitthvað sem gæti verið í takt við það sem við í Hraun! erum að gera?

Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 2 ]
þriðjudagur, apríl 13, 2004
  Er ég að færast nær Mogganum...
...eða er Mogginn að færast nær mér?
Leiðari Morgunblaðsins, þriðjudaginn 6. apríl 2004, var eins og talaður út úr mínu hjarta.
Aldrei hefði ég trúað því... ;-)

Þar gerir Leiðarahöfundur alvarlegar athugasemdir við lagningu Norðurleiðar, yfir hálendið, frá Reykjavík til Akureyrar.
Bæði út frá röskun á óbyggðunum og einnig út frá röskun á byggðum á Norðvesturlandi, en það er ljóst að minnkuð umferð myndi lama þær.
Rosalega var ég sammála þessum leiðara!
Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 4 ]
  Zúra Zúra ábending...
Þessi síða vísar á mig í dag... Ég hef ekki hugmynd um hvað viðkomandi er að segja! :) HAHAHA :)
Æðislegt!

En... Ef einhver veit hvað stendur um Húrra fyrir Mér! þarna, þá má viðkomandi alveg hjálpa mér...


Bestu kveðjur,
Svavar


[ 4 ]
  Gomez ROKKA!!!
Nýju smáskífulögin frá Gomez eru æðisleg!
Catch me up og Silence eru gersamlega að gera sig!

Og svo spillir ekki fyrir að hægt er að heyra þau beint bara með því að slá inn www.gomez.co.uk
Ef þið klikkið á catch me up, þá getið þið horft á allt myndbandið með því að velja video clip... þetta rokkar svo feitast! :)


[ 0 ]
mánudagur, apríl 12, 2004
  Klikkið á þetta :)
.

Og takið þátt hér!


[ 0 ]
  AAAHHH!!!
Páskarnir búnir...
Vann svolítið um páskana og skrapp í bústað hjá Jósa... Það var mjög gaman...
Fór með Stebba og Gústa og hitti þar fyrir Jósa og Geira 3D sem ég hef aldrei hitt áður, merkilegt nokk...
Hef lítið skrifað vegna almenns aumingjaskapar, leti og ómennsku...
Er að vinna smá demóvinnu á fullu...
Hurr hurr...
Upptökurnar um daginn voru hálfglataðar... Verðum að gera þetta aftur...
Urg...

Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 0 ]
miðvikudagur, apríl 07, 2004
  Er'ekk'allir kátir?
Jæja... Síðasti dagurinn fyrir tveggja daga páskafrí... AH! Nú tek ég sko morgundaginn og hinn til að chilla duglega og vinna í músíkinni, húrra! :)
HRAUN! eiga að spila í partýi fyrir heimspekideildarnema eða eitthvað svoleiðis föstudaginn 23. apríl. Ég held að það gæti orðið svakalega gaman. Ég vona að það verði í Stúdentakjallaranum.
En hvað segið þið, eru allir fýraðir í gírinn fyrir páskana?
Jejejeje :)
Og enn þúsund miðar eftir á Sugababes...
Maður gæti mætt og menn yrðu bara þakklátir...
Bestu Kveðjur,
Svabbi


[ 1 ]
þriðjudagur, apríl 06, 2004
  Smá upptökusessjón að baki...
Jæja... kominn úr húsnæðinu... Hraunarar tóku upp þrjá grunna að demóum...
Húrra fyrir því...
Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 1 ]
mánudagur, apríl 05, 2004
  Búinn... Helvíti flott! :)
JEI! Ég mætti snemma í vinnuna og kláraði snemma!!! :) Nú er ég farinn í líkamsrækt?

Bestu kveðjur,
Svavar


[ 0 ]
  Vakna snemma dagur...
Jæja... Mig langar að taka það upp hjá mér að vakna fyrr á morgnanna... Svona allavegana hálf átta...
URG!!!
ÉG SKAL!!!

nema hvað, jólaplatan er nú orðin aðgengileg á muzak.anomy.net fyrir ykkur sem eruð enn í jólaskapi... :)


[ 0 ]
sunnudagur, apríl 04, 2004
  Græjan komin!
Jæja... MobilePre græjan er komin! :) Loksins get ég farið að taka upp fyrir alvöru! :)
Húrra! Húrraaaa!!!
Eitt demó komið... ég ætla að brjóta hefðina og ekki setja það á netið, heldur bíða eftir því að heyra hvernig Hraunurum líst á málið...
Úff hvað ég er búinn að vera lasinn, úldinn og bissí...
En árshátíð Hólabrekkuskóla var dásamleg!!! :)
Og svo var heldur ekki slor að gaurinn frá Ísafirði, sem var í þriðja sæti í söngkeppni framhaldsskólanna var í Rebel bol!
Ekki slakt prómó það! :)
Til hamingju Stebbi (hirðljósmyndari Hrauns!) og Einar (bolahönnuður dauðans) ! :-)
Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 2 ]
fimmtudagur, apríl 01, 2004
  Koma svo!!!
Hey! Á ekki að skrifa í gestabók Hrauns!?!?
OfurHraun! SúkkulaðiHraun! ÓdáðaHraun!

:)

Bestu Kveðjur,
Svabbi


[ 2 ]
  HRAUN Síða komin upp...
Jæja kæru vinir... ég er búinn að smíða smá síðu fyrir Hraun!
Hún er vissulega gerð af vanefnum, en betra en ekkert...
slóðin er: www.hraun.tk
Endilega kíkið á hana og skrifið í gestabókina og svoleiðis...
:)
Fylgist svo með, því það mun bætast inn á síðuna fullt af drasli... Hún er enn í smíðum...

Bestu Kveðjur,
Svabbi


[ 0 ]
  HRAUN Síða komin upp...
Jæja kæru vinir... ég er búinn að smíða smá síðu fyrir Hraun!
Hún er vissulega gerð af vanefnum, en betra en ekkert...
slóðin er: www.hraun.tk
Endilega kíkið á hana og skrifið í gestabókina og svoleiðis...
:)
Fylgist svo með, því það mun bætast inn á síðuna fullt af drasli... Hún er enn í smíðum...


[ 0 ]
Virka þessi Drösl???