![]() |
Þankatankurinn
|
![]() |
||||
|
Svavar Knútur Kristinsson, Félagsauðströll, heimspekingur, umhverfis-verndarsinni og tónlistarmaður. NÝTT!!!
|
Nýjustu Demó: Ástarsaga úr fjöllunum (Sumarið 2005) Goodbye my lovely (19. júní 2005) Your love was death to me (Janúar 2005) Call off your Cavalry (September 2004) You should call a doctor (Maí 2004) Kysstu tímaglasið (endurbætt útgáfa 2004) Mother's day Jólaplata Hrauns 2003: Þrautgóðir á Hraunarstund Jólaplata Hrauns 2005: Höldum jól Jólaplata Hrauns 2006: Jólamolar |
mánudagur, maí 31, 2004
Fréttir af andláti mínu...
...eru að vanda stórlega ýktar... Ég fór norður með familíuna yfir helgina, fór og plantaði trjám á Skálá. Ég er með geeeðveika strengi í fótunum eftir vatnsburð á þyrstar trjáplöntur. Skil nú enn betur mikilvægi rennandi vatns í þróunarlöndum. Merkileg upplifun samt í upphafi ferðar: Við stoppuðum í Nesti í Ártúnsbrekkunni á leiðinni út úr bænum og fylltum á trukkinn áður en halda skyldi í ferðina. Það þurfti líka að skipta um peru í vinstra framljósi og fengum við gamlan starfsmann bensínstöðvarinnar til að hjálpa okkur. Eitthvað var nú spennan sem hélt ljósinu að flækjast fyrir okkur og gamli maðurinn baksaði við þetta drykklanga stund, kannski hálftíma, þangað til ég sagði við hann að þetta væri bara allt í lagi, þetta væri gamall bíll og við létum bara laga ljósið þegar við kæmum til baka í bæinn. (ég var sjálfur búinn að reyna mjög án árangurs. En það sem mér þótti merkilegt var öll sú gríðarlega ókurteisi sem við urðum vör við þegar við stóðum þarna fyrir utan í hálftíma. Mein Gott! hvað starfsfólk bensínstöðva þarf að þola mikinn yfirgang, óþolinmæði, skít og leiðindi frá fólki á einkabílunum sínum. Á meðan maðurinn var augljóslega að baksa ofan í húddinu á bílnum mínum var eitthvað fólk að pikka í hann og flauta og gera bendingar og hrópa á hann og vesen. Ég varð meðal annars vitni að því þegar þjóðþekkt manneskja, sem er í forsvari fyrir mjög gott málefni var að flauta og gera bendingar út úr bílnum sínum, af því hún vildi láta dæla á bílinn sinn, en datt ekki í hug að færa sig um einn meter og dæla sjálf. Helvítis snobbpakk. Auðvitað endaði það á að viðkomandi setti upp fýlusvip og keyrði í burt með einhver orð á munni. Ég spurði manninn gamla hvort þetta væri daglegt brauð. Hann sagði mér að ég myndi ekki trúa því hversu mikið af niðurbrjótandi röfli hann fengi yfir daginn. Úff... Bestu Kveðjur, Svavar [ 3 ] fimmtudagur, maí 27, 2004
Skyndiákvörðun...
Við Loftur ætlum að rífa í kassagítar og kontrabassa á Kaffi Vín eftir tvo klukkutíma... Hlökkum til að sjá ykkur... :D Bestu Kveðjur, Svavar [ 0 ]
Inn jor feis! Forsíðan bara!
Heví flott maður, nú er jors trúlí bara orðinn forsíðumatur hjá Mogganum! Hehehe... Ekkert smá saltbrunninn í dag... þrem sekúndum eftir að þessi mynd var tekinn kom svona tveggja metra há brimalda og heilsaði allhressilega upp á blaðamann og ljósmyndara Morgunblaðsins. Bestu kveðjur, Svavar [ 0 ]
Heví flottur blaðamaður... maður...
:) Var rétt í þessu að koma af strandstað skipsins Hernes í Þorlákshöfn. Lesið um afdrif þess í Morgunblaðinu í dag. Svolítið saltur í framan og hundblautur eftir að hafa staðið á steinum, 8 metra frá skipinu og kallast á við erlenda áhöfn... aaah... djöfull getur blaðamennskan verið skemmtileg þegar maður er sendur eitthvert. Bestu Kveðjur, Svavar [ 0 ] þriðjudagur, maí 25, 2004
Sólardagur liðinn...
Vaknaði snemma í dag og fékk mér góðan göngutúr um miðbæinn eftir að ég kom Dagbjörtu á leikskólann. Sólin var heví glöð að sjá mig og hundelti mig hvert sem ég fór, en á endanum náði ég að hrista hana af mér þegar ég skaust inn á Hótel Sögu klukkan fjögur til að kóvera ráðstefnu um stór-höfuðborgarsvæðið... (Metropolitan area of Reykjavík) Annars var helvíti hressandi þegar mál sem ég er búinn að þegja yfir í sex mánuði kom loksins út í loftið þegar Ögmundur Jónasson tjáði sig um landverðina sem var neitað um að koma aftur til starfa eftir að hafa lýst yfir sínum skoðunum... Að vísu er málið örlítið flóknara, en það verður mjög gaman að fara í saumana á því, enda um afar mikilvægt mál að ræða þegar kemur að því hverjir halda utan um hlutina uppi á hálendinu... Skemmtileg pæling hjá Kristjáni vini mínum Jónssyni í dag, en hann er blaðamaður á Erlendu uppi á Mogga. Hann kom fram með kenningu sem ég er hrifinn af, að það sé búið að barnvæða samfélagið, þ.e.a.s. infantilesation. Allt er matreitt þannig að það henti fimm ára börnum, fréttir, kvikmyndir, tónlist. Allt er einfaldað og auðveldað þangað til fólk er orðið forheimskt af öllum einfaldleikanum. Börnun samfélagsins... Allt miðað við lægsta samnefnara. Þessi pæling kom upp úr honum þegar við vorum að horfa á Bush tala og svona enn eitt átta atkvæða slóganið kom upp á CNN skjáinn. Það þarf nefnilega að einfalda allar flóknar pælingar niður í átta atkvæða slógan til að fólk geti skilið þær þessa dagana... Bestu Kveðjur, Svavar [ 5 ] mánudagur, maí 24, 2004
Feitustu vonbrigðin?
Argh... Ég fæ ekki að tala við viðkomandi vegna einhvers asna úti í löndum, sem bannaði mér að tala við hann... Draumar mínir í rúst... Nema hvað, júbbí, nú er bara að snúa sér að einhverju skemmtilegra. Bestu kveðjur, Svavar [ 2 ] sunnudagur, maí 23, 2004
Til hamingju með dæinn Bræi!
JEEEIII! Bragi Skaftason, umboðsmaður Hrauns! á ammli í dag... Hann er 26 ára, voða stór orðinn... Og hann er að fá bumbu... Mjög flott!!! :) Ég elska Braga, þrátt fyrir alla hans galla. Alla hans mörgu galla... ótal galla... Knús og allt Bragi minn á afmælisdaginn... Þinn vinur, Svabbi [ 1 ] föstudagur, maí 21, 2004
FOKK SJITT SJITT FOKK SJITT!!!
Á morgun er ég að fara að gera mögulega stærsta hlut sem ég hef nokkurn tíma gert... Á morgun fæ ég tækifæri til að hitta stórkostlegar manneskjur, sem ég ber endalausa virðingu fyrir! Á mooorguuun... á moooorguuuun.... aaaaaaaa.... Mér líður eins og lítilli skólastelpu og mér finnst ég vera á barmi þess að pissa í mig... Fokk sjitt sjittí fokk sjitt!!! Svabbi [ 5 ] fimmtudagur, maí 20, 2004
Tilgangur lífsins...
Hmmm... Ég hef oft velt fyrir mér hver meiningin er með þessu öllu saman og allar niðurstöður, utan ein, hafa komist að sama niðurdrepandi endinum. Skoðum þetta nánar. Ég sé svona u.þ.b. fjórar leiðir sem hægt er að fara, svona eins og hafa verið settar fram af fjölda snillinga í gegnum tíðina. Leið A: Tilgangsleysið Lífið er tilgangslaust, engin gildi, ekki neitt. Maður gæti eins drepið alla eða riðið kindum. Það er ekkert point, bölvun okkar er sú að við erum þenkjandi apar. Niðurstaða: Sorrí, allt of niðurdregið fyrir mig og gersamlega sneytt allri frjórri hugsun. Leið B: Hinn æðri tilgangur, náanlegur, skiljanlegur. Æðra takmark, einhvers konar Guð, almætti, Nirvana. Að þóknast guði, að ná árangri og vinna í sínu lífi að markmiði sem tengist honum og komast til himna. Niðurstaða: Og hvað svo? Hanga, spilandi á hörpu? Endurtaka leikinn? Fara aftur niður, koma aftur upp, eins og jójó, alltaf með geðveikt fyrirframskilgreindan tilgang. Ef ekki, er þá takmarkið að ná einhverju endalausu Nirvana? Ekki fyrir mig! Ég myndi aldrei þola það að hætta bara hér. Leið C: Æðri tilgangur, óskiljanlegur, endalaus leit að honum. Tilgangurinn er þarna, við þurfum bara að leita, hann er endanlegur, en við þurfum að finna hann og deyja sátt við hann... Niðurstaða: Hljómar vel, en á endanum sama búllsjittið... hvað er tilgangurinn? Er hann einn? Ég meina, hvað er hann? Að safna 5000 brúnum M&M's? Rugl! Tilgangurinn getur ekki verið endanlegur, því sama hvað hann er, þá er hann eitthvað eitt og eitthvað eitt er í eðli sínu eitthvað svo sillí tilgangur, heilagur grall... Leið D: Tilgangurinn er sjálfskilgreindur, síbreytilegur. Lífið er fullt af tilgöngum, tilvist þín skilgreinir allt saman. Alltaf finnum við nýjar og nýjar áskoranir og nýjar leiðir til að fara. Tilgangurinn felst í könnuninni, felst í því að skoða lífið og upplifa og njóta þess, deyja svo í góðum fílíng. Niðurstaða: Gúdd Sjitt! Endurnýjun, síbreytileiki, áskoranir, engin kyrrstaða! Tilgangurinn er skýr, en um leið gersamlega óskilgreinanlegur! Jei! Svabbi [ 6 ] miðvikudagur, maí 19, 2004
Æi obbosí...
Víkverji Morgunblaðsins í gær var nokkuð kjörið umræðuefni fyrir síðu 2 í DV í dag... Víkverji fékk nokkra útrás fyrir skoðun sína á Bullum ("Bullys") og notaði samlíkingu úr Survivor þáttunum. Vissulega er hægt að túlka orð Víkverja sem svo að hann hafi verið að tala um Davíð og Dóra... En ég held að Víkverji hafi líka verið að meina Bush, Bin Laden, Pol Pot og Saddam Hussein, fótboltabullur, Barnaníðinginn á Patreksfirði og fleira bara svona almennt. Víkverji var (að mínu mati) ekki beinlínis að skjóta beint á D&D, sem vissulega hafa hegðað sér eins og bullur á ýmsan hátt, t.d. í umhverfismálum og skipun hæstaréttardómara... En auðvitað hentaði þessi túlkun DV og það er skiljanlegt... Ég er samt (fyrir hönd Víkverja) nokkuð impóneraður að það skuli hafa verið vitnað beint í meir en hálfan pistilinn minn... ahem, ég meina Víkverja... :) Bestu Kveðjur, Svavar [ 0 ]
Gobbedí gobb...
Ég gobbedígobbaði eftir einum "kúbíkla-ganginum" hér á mogganum áðan... Mætti manni og þóttist taka ofan kúrekahatt... ah... það er gott að brjóta upp daginn með smá gobbedígobbi... HAHAHAHAHAHA í þessum töluðu orðum fattaði ég hvað setningin hér að ofan er fjandi tvíræð! BWAHAHAHAHAHA!!! :D Bestu Kveðjur, Svavar [ 1 ] þriðjudagur, maí 18, 2004
Með andlausara móti...
Hef verið með andlausara móti í dag... Gengur illa að vinna... Er engu að síður að reyna að halda sönsum... Trallalaaaa... rassinn á mér er ormagöng, ormagöng inn í aðra vídd, vídd þar sem allir eru kátir og hressir, hressir í ævintýralaaaandi... Trallalallalaaaa... En hvað um það, nú liggur fyrir heví flott Proje... Að anda rólega og kyssa himininn... Mig langar norður á Skálá þarnæstu helgi... Oh! Hvað mig langar norður! Bestu kveðjur, Svabbi [ 1 ] mánudagur, maí 17, 2004
Og við þetta er að bæta...
Að Emma er kettlingafull... Já, það er opinbert! JEEEIII! :) Tveir kettlingar eru nú þegar pantaðir. Nú fer hver að verða síðastur... Bestu Kveðjur, Svavar [ 1 ]
Síminn fundinn...
YEAH! Skítt með rakninguna og það sjitt... Með nettri rannsóknarblaðamennsku og GeStaPó yfirheyrslutækni náði ég að hafa upp á þjófnum litla... Notaðist við sundurliðunarblað símreikningsins míns, enda gerði þjófurinn þau leiðu mistök að hringja eitt stutt símtal úr stolnum síma... Og með nettum samanburði við símaskrá MH, en MHingar voru ríkjandi í partýinu, fannst sú íhringda. Eins og ég segi, ég er ekkert reiður fyrst viðkomandi skilaði mér símanum í póstkassann :) En það var geeeðveikt ánægjulegt að hringja símtalið og beita sálfræðinni og svoleiðis. Ég vil bara þakka viðkomandi fyrir að gera eina rétta hlutinn og vona að hann/hún kjósi ekki að fremja svona verknað aftur... Bestu Kveðjur, Svabbi súperspæjari. [ 1 ]
Úgga Búgga! Sumarið er komið!
Úff! Nú þarf ég að halda í mér rokkinu til að hlaupa ekki út á nærjunum öskrandi Úgga Búgga!!! Því það er grænt gras, sól og hlýtt úti! En menn þurfa að gæta að virðuleikanum... ... ... ÚGGA BÚGGA!!! (Hleypur nakinn um ganga Morgunblaðsins) ... eða ekki... Ég er að reyna að halda í mér gleðinni þangað til ég losna úr vinnunni. jeei, en ég er ennþá lasinn. Jæja... Jón Geir farinn til útlanda að sleikja sólina og Hraun! í lamasessi á meðan... Dem ég vildi að ég væri í einhverjum fleiri hljómsveitum til að drepa tímann... (as if...) Argh... En viti menn! Kári vinur er á landinu og nú er einmitt tíminn til að knúsa hann og Bridget og gleðjast í sólinni! Ég ætla að klára snemma hér og stinga af! Bestu Kveðjur, Svavar [ 0 ] sunnudagur, maí 16, 2004
Ágætis gigg...
Það var gaman að spila á Stúdentakjallaranum, þetta er góður staður til að spila á! Ég var að vísu með 39,5 stiga hita... og drakk þofan í batch af magnýl og Panódil hot (dópistinn ég)... Hraun! liðar tóku giggið með trompi og ég held að mig rámi (í óminni lasleika, drykkju og almennrar dópneyslu) að við höfum tekið u.þ.b. 4-5 lög sem við höfum aldrei tekið áður saman, þar á meðal þrjú sem enginn okkar hefur nokkurn tíma tekið! Þannig að þetta var ekki sem verst... En ég prumpa á afsökunina: "Hey, sorrí að ég kom ekki maður... ég var í partýi... öööö..." Þá spyr ég: "Já, það var nú gaman, en hvað gerðirðu svo SEINNI PARTINN AF KVÖLDINU?" En málið er bara þetta: Það er engum skylt að koma í partý með Hraun!, alls ekki... Og það er ekkert samviskubit í gangi ef fólk kemur ekki. Það þarf engar afsakanir, ekki neitt. Þetta er engin kvöð eða neitt. Staðreyndin er bara sú að þið finnið hvergi betra partý beibís! :D Því Hraun! Rúla og það er málið! Bestu kveðjur, Svabbi [ 2 ]
Húrra fyrir Rúslönu!
Rúslana Rokkaði á Júróvisjón og vann öllum að óvörum! Að vísu sagði ég undir eins og ég sá atriðið að hún væri ótvíræður sigurvegari, enda þvílíkt rokk atriði að það var í raun takmarkalaust! Mér fannst leiðinlegt að heyra Gísla Martein alltaf tala um hana sem Ruslönu með áherslu á U-ið. Full nastí og ljótt að tala svona niður til fólks. Og Jónsi greyið langt fyrir neðan Bosníubössann sem hann gerði grín að. Ég berst við að halda aftur af kaldhæðninni. ahem... Ánægður með úrslitin, hundóánægður með lélega keppendur og drulluslappt lagaúrval, þetta var ómelódískt krapp mest allt! Undankeppni næst á Íslandi! Helvítis forræðishyggja að loka á undankeppnina! (bara svo hægt sé að kaupa einhverja helv. fótboltabulluafþreyingu!) Mér fannst tyrkneska lagið líka flott, enda lenti það ofarlega :) Svo fannst mér geeeðveikt sniðugt að allar þjóðir Evrópu fengu að kjósa. Það var heví flott... Bestu Kveðjur, Svavar [ 0 ] fimmtudagur, maí 13, 2004
Rebellinn í sjötta sæti á Rokk.is! JEI!!!
JEEEIII :) Rebellinn er í sjötta sæti á Rokk.is! Það er hellakúl! Hljómsveitin Hraun bara að massa! Vona samt að fólk missi ekki trú á okkur þegar það fattar að við erum líka hugljúfir og lágstemmdir alt-popparar... :) Mér er meinilla við þá ímynd sveitarinnar að við séum bara eitthvað dansiband! Mér finnst Hraun! vera miklu meira en eitthvað dansiballaband! Mér finnst við líka eiga erindi til hjartans... Þó við veljum að vera hressir þegar við erum búnir að spila lögin okkar. Það er bara svo fólk þurfi ekki að fara og geti skemmt sér vel þó "tónleikarnir" séu "búnir". Af því að við getum það... En, á morgun verður stuð á Stúdentakjallaranum! :) HEYHEY! :) Svabbi [ 0 ] miðvikudagur, maí 12, 2004
Próflokapartý á Stúdentakjallaranum á föstudag!
HEEEY! Hraun! verða að spila á föstudagskvöldið á Stúdentakjallaranum á próflokadjammi! Þið megið öll mæta! Kostar bara 500 kall inn! JEJEJEJE!!! Það verður Þrumustuð! Bestu kveðjur, Svabbi [ 2 ] þriðjudagur, maí 11, 2004
Fjölmiðlafrumvarpið...
Það er máske að bera í bakkafullan lækinn að fara að fjölyrða hér um fjölmiðlafrumvarpið, sem er sett fram af sama manni og hrósar Silvio Berlusconi í hástert fyrir lýðræðislega tilburði sína... En ég stenst ekki mátið, verandi kveinandi kverúlantinn sem ég er... Það er sosum ekki vitlaus hugmynd að setja viss lög um starfsemi fjölmiðla, s.s. sjálfstæði blaðamanna frá eigendum, samþjöppunarklausur og þetta og hitt. En það er mikilvægt að skerða hvergi málfrelsisákvæði stjórnarskrárinnar, sem tryggja fólki réttinn til lélegrar og smekklausrar blaðamennsku, svo framarlega sem ekki sé farið rangt með mál. Það á að vera hægt að treysta stjórnarskránni og þeim lögum sem gilda um málfrelsi, held ég. Það var samt heví fyndið að sjá norðurljósafólkið, þetta fjölmiðlabatterí, plögga og plögga sínum mótmælum í öllu útvarpi og blöðum og svo mæta 400 manns og "sýna samstöðu". Þetta sama fjölmiðlafólk er einmitt sama fjölmiðlafólkið og spyr spurningarinnar: "Finnst ykkur ekki hálfslappt að það mættu bara 1000 manns á þennan friðarfund ykkar? Finnst ykkur það ekki gefa í skyn að þjóðin sé ósammála ykkur?" þegar friðarsinnar og náttúruverndarsinnar mótmæla... Viss írónía þarna í gangi... Mér finnst allt í lagi hugmynd að setja lög um fjölmiðla. Eina sem mér finnst í rauninni er að Davíð og hans vinir eru ekki hæfir um að setja þau eftir öll sín ummæli og hegðan. Svo finnst mér tíu dagar ekki beinlínis góður þroskatími fyrir samfélagslega umræðu og breytingar á frumvarpi. Þetta er allt óttalega mikið frumhlaup eitthvað... Aftur á móti velti ég fyrir mér hvaða þýðingu þetta frumvarp hefur fyrir Norðurljósa batteríið eins og það virkaði án Fréttablaðsins og DV... Útvarpsstöðvar sem hafa það eitt að markmiði að plögga músíkina sem er seld í plötubúðunum sem eru með einokunarstöðu á íslenskum markaði. Hvernig taka nýju lögin til þess? Það er ekki eins og Skífan sé eigandi að Norðurljósum? Stoppar frumvarpið það að fjölmiðlakóngur kaupi sér fyrirtæki sem hafa annað að markmiði og geri þau markaðsráðandi með hjálp fjölmiðla sinna, eins og bylgjan, FM, Xið og co hafa gert við Skífuna? Bestu Kveðjur, Frá manninum sem ekki er hægt að staðsetja í flokk, Svabba [ 4 ] sunnudagur, maí 09, 2004
Í ellefta sæti af tíu...
Þeð er heví fyndið að kíkja á rokk.is þessa dagana, en þar trónir Rebellinn í ellefta sæti yfir heitustu lögin, sem væri bara ekkert spes, nema fyrir það að þetta er topp tíu listi... Skrýtið... En skemmtilegt... :-D Bestu kveðjur, Svabbi Viðbót kl. 17:26 Jæja... sá draumur úti... :-) En það er samt gaman að sjá að við séum næstir inn... :) Óþekktir bullararnir... Bestu Kveðjur, Svavar [ 1 ] miðvikudagur, maí 05, 2004
Brúðarbandið...
Ég er alveg að fíla Brúðarbandið. Þær eru skemmtilegar, eru að syngja um skemmtilega hluti og það sem mestu máli skiptir, þær eru að drulla sér út og gera hlutina, þrátt fyrir að vera ekki með einhverjar FÍH gráður! Það er Rokk og það er pönk! Það er þetta sem músíkin snýst um! Og einhverjir hálfvitar og njólahöfuð sem halda að þeir séu svo sniðugir með því að vera að drulla yfir það að gellurnar séu ekki með háskólapróf í hljóðfæraslætti ættu bara að kíkja í ævintýraferð ofan í undraland skólpkerfisins, svo málefnaleg eru þeirra innlegg inn í annars frábæra og skapandi veröld stúlknanna. Hraun! eru að vinna á nákvæmlega sama prinsippi, að vera ekki að húka endalaust í æfingarhúsnæði að fullkomna hlutina, heldur að spila og prófa sig áfram og leika sér. Ókei, við höfum svona eins og tíu ár á þær, en þær ná okkur fljótt, slíkar eru framfarirnar... Bestu kveðjur, Svavar [ 3 ]
Aðdáendur Hrauns! Athugið...
Kíkið yfir á www.hraun.tk. Þar er nú í gangi gagnvirk og stórkostleg danskennsla í boði Hr. Muzak... Bestu Kveðjur, Svavar [ 0 ] sunnudagur, maí 02, 2004
Ef ég væri kaldhæðinn og leiðinlegur...
Þá myndi ég örugglega fara að skrifa eitthvað eins og þetta: hmm... Eitthvað rámar mig í að íslenskir ráðamenn hafi verið rosalega mikið að tala um hvað þrátt fyrir að engin efnavopn hefðu fundist í Írak hefði aðalréttlætingin verið hvað hann var rosalega vondur við fólk, til dæmis alltaf að pynta fanga... Já... Það er kosturinn við svona einstaklingshyggjuríki. Það er hægt að kenna einstaklingum um pyntingar á hermönnum, því ríkisstjórnin stendur svo sannarlega ekki fyrir þeim. En um ógnarstjórnir eins og stjórn Saddams Hússein gilda önnur lögmál. Þar eru engir einstaklingar, bara óvinurinn sem er svo vondur... Úff... En mér dettur ekki í hug að skrifa svoleiðis... það eina sem ég er að hugsa núna er hvað það er ömurlegt að horfa á þessar myndir af fólki að niðurlægja annað fólk og brosandi framan í digitalkameruna alveg heví hresst á því... Þvílík firring, þvílík niðurlæging... Ekki falleg sjón... [ 1 ] |
Eva
Örn "Mugison"
Elias Tónlistarmönnum sem gefa tónlist
sína á netinu er velkomið að hafa samband
við Hr. Muzak og þá bæti ég þeim
á listann.
Laukurinn rúlar
Dr. Gunni
| |||