![]() |
Þankatankurinn
|
![]() |
||||
|
Svavar Knútur Kristinsson, Félagsauðströll, heimspekingur, umhverfis-verndarsinni og tónlistarmaður. NÝTT!!!
|
Nýjustu Demó: Ástarsaga úr fjöllunum (Sumarið 2005) Goodbye my lovely (19. júní 2005) Your love was death to me (Janúar 2005) Call off your Cavalry (September 2004) You should call a doctor (Maí 2004) Kysstu tímaglasið (endurbætt útgáfa 2004) Mother's day Jólaplata Hrauns 2003: Þrautgóðir á Hraunarstund Jólaplata Hrauns 2005: Höldum jól Jólaplata Hrauns 2006: Jólamolar |
miðvikudagur, júní 30, 2004
Hraun fer á Trékyllisvík!!!
JEEEI! Við erum að fara að spila á flottasta sveitaballi Íslands á laugardaginn! Sveitaball! Það jafnast ekkert á við SVEITABALL! Núna á Laugardagskvöld verðum við nefnilega á Trékyllisvík á Ströndum að spila í félagsheimilinu Árnesi á hinum árlega dansleik ungmennafélagsins Árvíkur! YES!!! Ég veit að þetta gæti litið út eins og kaldhæðni, en þetta er eiginlega bara alveg toppurinn! Flottasta og mest töff ball sumarsins og það datt í lófana á okkur! Ég mæli með að þeir sem geti fari í útilegugírinn og reddi sér bíl sem hægt er að keyra utan vega og fokkíng skelli sér norður í Trékyllisvík og taki þátt í stuðinu! Bestu kveðjur, Svavar [ 2 ]
Lag fyrir Hraun!
Hæ, sum ykkar hafa kannski heyrt þetta lag þegar ég er að gauka hlutum að ykkur, en þetta er s.s. demó af lagi sem ég samdi fyrir nokkrum mánuðum og tók upp. Það heitir Mothers day og er ætlað fyrir Hraun! Við höfum æft það pínu og það hljómar vel... Bestu kveðjur, Svabbi [ 1 ] þriðjudagur, júní 29, 2004
Gunnar Jökull Revisited...
Hæ, Ég tók mig til í Morgunhæsinni og framkvæmdi smá hugmynd sem ég fékk... Að taka lag af Hamförum með Gunnari Jökli í smekklegri útsetningu. Kallinn var nefnilega að segja helvíti merkilega hluti ef maður hlustar. Þessi plata tjáir vanlíðan, einmanaleika og þjáningu hins geðklofa og þunglynda manns alveg ótrúlega vel... Má segja að hún sé nokkurs konar Englar alheimsins tónlistarinnar... Tók upp lagið "Ég elska þig" í hásri morgunstemmningunni... Endilega pælið í textanum... (b.t.w. Hér er upprunalega útgáfan... sorrí Höfundarréttarhafar...) Í dag þá verð ég sár Því senn er liðið ár Síðan að þú fórst frá mér, þá streyma niður tár Ég get ei gert að því að ást vaknar á ný Því ég elska þig Svo sterk sú ástin var Sem ég til þín bar Ég vil fá þig aftur og ég grátbið þig um svar Fyrirfer ég mér, ef fæ ei svar frá þér Því ég elska þig Allt sem að við áttum tvö, ég mun aldrei gleyma því Ég get bara beðið þig um tækifæri á ný Viltu ekki taka upp þráðinn aftur Því allur er mér þorrinn lífsins kraftur Ég elska þig enn Ég bið þig elskan mín að fá að njóta þín Ég trúi að við getum byggt upp ást sem aldrei dvín Ég gjarnan gekk of langt og gerði mikið rangt En ég elska þig Allt sem að við áttum tvö, ég mun aldrei gleyma því Ég get bara beðið þig um tækifæri á ný Viltu ekki taka upp þráðinn aftur Því allur er mér þorrinn lífsins kraftur Ég elska þig enn Þú veist að ég gef allt sem að ég hef ÉG bið þig elsku vina mín að virða þetta bréf ÉG lifi í þeirri trú að elskumst ég og þú Því ég elska þig Bestu Kveðjur, Svabbi [ 8 ] föstudagur, júní 25, 2004
Á leið á Flaaateyyyriiii...
Flateyri, hér kem ég! Á morgun förum við Hraun!arar vestur á firði og gleðjumst á Flateyri. Ég veit það hljómar skringilega, en Flateyri Rúlar! Enginn staður rokkar flottar en Vagninn á Flateyri! Bara að segja ykkur það! Bestu kveðjur, Svavar [ 2 ] miðvikudagur, júní 23, 2004
Er ég nokkuð sá eini...
...sem langar til að FOKKÍNG MYYRRRÐÐAAA FOKKÍNG MACDONALDS!!!! FYRIR ÞESSAR HELVÍTIS BARABABBBABABA ÆM LÖÖVINITTT! AUGLÝSINGAR!!! YAAAARRFGGHHH!!! EYÐILEGGJA! DEYJA! DEYJA!!! ahem... bestu kveðjur, Svabbi [ 8 ]
vinna...
Jæja... Kominn tími til að hugsa sér til hreyfings kannski? Hvað á maður að taka sér fyrir hendur í haust? Mig langaði að kenna tónmenntir í 66% starfi og taka að mér eitthvað smá í viðbót svo ég gæti einbeitt mér að tónlistinni, kannski að vinna í félagsmiðstöð eða eitthvað. En svo virðist sem slíkir draumar verði torsóttir... Sérstaklega þar sem Óljóst er með vinnu hjá Pálínu í vetur og einhvern veginn þurfum við að borga lánin og svoleiðis... Langar samt til að kenna... Bestu Kveðjur, Svabbi [ 0 ] þriðjudagur, júní 22, 2004
Nú væri ég til að vera í fríi...
Mér finnst að fólk ætti ekki að gera eins miklar kröfur til lífsgæða á sumrin. Þjónusta ætti að minnka og blöðin að koma út af handahófi, svona í takt við veðrið. Í kjölfar rigningardaga eða kaldra daga kæmu fleiri fréttir, frá þeim sem nenntu að vinna þá og þá. :) Annars er maður bara í góðum fílíng. Hlakka til að komast aðeins í sumarfrí, þó það verði ekki á mínum uppáhalds stað. Langar líka til að fara að spila meira. Jæja... Bestu Kveðjur Krakkar, ykkar vinur, Svabbi [ 0 ] mánudagur, júní 21, 2004
Grand rokk... Grand flopp?
Jæja... Maður er svona rétt að ná sér eftir að fá það ósmurt í rassgatið frá Sigga Fálka á föstudagskvöldið. Hann var nokkuð líberal á mixerborðinu og slökkti svo bara á okkur klukkan þrjú, rétt þegar fólk var að koma að sjá okkur... (ekki það að það hefði breytt neinu...) Æi, þetta var erfitt kvöld og erfið helgi í það heila, ég var fokkíng niðurdreginn í gær og fyrradag... ómögulegur... Takk þið sem mættuð... Það var ómetanlegt að hafa þó ykkur á svæðinu í góðum fílíng og sorrí að ég stríddi ykkur, þið voruð bara þau einu sem voruð á svæðinu til að stríða... Úff... En, nú er bara að horfa björtum augum til framtíðar og halda áfram, því ég hef óbilandi trú á boðskap og tónlist hljómsveitarinnar Hrauns! Ég er orðinn SVOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOONA pirraður á skemmtanamenningu Reykvíkinga. Fólk hittist klukkan tíu og er að væflast í partýi til tvö þrjú á nóttunni og svo drullast það niður í bæ klukkan fjögur... Hvernig á heilbrigt fólk að geta skemmt sér á þennan máta? Þegar maður spilar fyrir fólkið úti á landi, þá er það mætt í kringum miðnætti og það fokkíng dansar og skemmtir sér til þrjú að verða fjögur! Og svo er fólk að kalla þetta sveitalubba! Ég kalla þetta fólk sanna Íslendinga í góðum fílíng! Ég vorkenni reykvískum vinnuveitendum... Að hafa svona slappt starfsfólk hálfa vikuna eftir djammið... Bestu Kveðjur, Svavar [ 2 ] föstudagur, júní 18, 2004
Við þetta má vissulega bæta...
Að Rebellinn er kominn á flestar "betri" útvarpsstöðvar... Og hægt er að hringja og biðja um spilun á þessu blessaða lagi :) Útsendingarsími Rásar 2 er 568-7123 og 123@ruv.is eða poppland@ruv.is Útsendingarsími Radíó Reykjavíkur: 588-1045 eða: 1045@radioreykjavik.is Útsendingasími Xins: 515-6060 eða xid977@xid977.is Útsendingarsími Skonrokks: 515-6909 eða: skonrokk@skonrokk.is Bestu Kveðjur, Svavar [ 0 ]
Grand Rokk í kvöld...
Hey allir saman! Drullið ykkur á Grand Rokk í kvöld, því þar verður Hraun! (og stuð og gleði og hamingja) Það var druuuullu gaman í eins árs afmæli sveitarinnar (fyrir utan að það voru engar afmælisblöðrur...) og það var bara rétt svona æfing og upphitun fyrir kvöldið í kvöld. Bestu Kveðjur, Svabbi sæti og skemmtilegi [ 1 ] miðvikudagur, júní 16, 2004
Hlakka til að sjá ykkur í kvöld á Kaffi Vín...
Hey, fyrir ykkur sem vita ekki hvar Kaffi Vín er, þá er það í kjallara hússins við hliðina á stóra Landsbankahúsinu á Laugavegi sjötíu og eitthvað. Hlakka til að sjá ykkur hress... Er farinn að prómóa föstudagskvöldið... Ég skal lofa ykkur að kvöldin verða ekki eins... hehehe :) [ 2 ] þriðjudagur, júní 15, 2004
Afmælispartý Hrauns!
Hæ... Ég veit að það er stutt síðan Hraun! spiluðu síðast á Kaffi Vín, en nú eigum við árs afmæli og okkur þykir við hæfi að halda upp á afmælið á Kaffi Vín á morgun, miðvikudag. Það verður kósý stemmning og góður fílíngur. Allir mega koma en samt er þetta svona fyrir vini og velunnara (þannig að ef þið komið, komið þá í góðu skapi og með hlýjan hug.) Svo verðum við á Grand-rokk á föstudagskvöld með Tónleika-partý-ball! :) (þannig að ef þið missið af okkur á miðvikudagskvöldið hafið þið enga afsökun til að kíkja ekki á föstudagskvöld!) Bestu Kveðjur, ykkar vinur, Svavar Knútur [ 2 ]
Rebellar sameinist - Myndbandstökur!!!
Á föstudaginn, fyrir tónleikapartýballið á Grand Rokk ætlum við að hittast klukkan 17:00 niðri hjá klukkunni á Lækjartorgi og taka upp myndband! Hringið í mig í síma 864-2276 til að tékka á málum. Þið vitið hvað þið þurfið að gera!!! Svabbi [ 4 ]
Hraun(!) á Grandrokk á Föstudagskvöld!
Hey allir saman! Tónleika-partý-ball á Grandrokk á föstudagskvöld! Allir að mæta hressir! :) Mikið stuð - mikið gaman! (nema ef enginn mætir... þá verður leiðinlegt... nema fyrir okkur, því við erum alltaf hressir...) ;-) Ókei! það verður mæting 22:30 á Grandrokk, þar sem um verður að ræða Tónleika-partý-ball... Jei! :) Koma Svo! Koma Svo!!! :) humm... Svo er leynilegt partý í bígerð fyrir morgundaginn, til að fagna árs afmæli sveitarinnar... Sjáum til hvernig það gengur... Við látum ykkur vita með "The patented P.A.N.I.C system..." Bestu Kveðjur, Svabbi [ 1 ] mánudagur, júní 14, 2004
Dregur til tíðinda...
Jæja krakkar... Ég fór í heimsókn í stúdíó ásamt Jóni Geir trommara og við tókum upp trommugrunna saman fyrir Hraun!. Nú er stutt í að við tökum upp alla restina. Húrra! Á einhver condenser mic að lána mér? Svo er það Kris Kristofferson í kvöld! :) YIIIHAAA I don't care who's right or wrong And I won't try to understand Let the devil take tomorrow 'cause tonight I need a friend. Yesterday is dead and gone And tomorrow's out of sight I cant stand to be alone Help me make it through the night... DAMN! Þessi gæi rúlar ekkert smá! Bestu Kveðjur, Svabbi [ 1 ] laugardagur, júní 12, 2004
föstudagur, júní 11, 2004
Emma gýtur...
JÚHÚ!!! :) Emma litla varð léttari núna síðdegis. Hún vakti mig rétt fyrir hádegi með því að skríða upp í rúm og byrja að hvæsa og mjálma. og ég horfði á hana og sá að hún var komin með hríðir, þannig að ég fór fram í stofu og hún elti mig þangað. Ég setti hana upp í sófa ofan á handklæði og ætlaði að fara að ná mér í buxur, en þá varð hún alveg brjáluð og mjálmaði eins og hún ætti lífið að leysa. Ég get svarið að ég heyrði hana segja: "Þú ferð ekki neitt!!!" Ég fór nú samt og klæddi mig og Emma elti mig. Svo fórum við aftur saman inn í stofu og ég sat yfir henni og klappaði henni á meðan hríðirnar komu og fóru. Eftir þrjá tíma lá stolt mamma í sófanum með fjóra kettlinga. Ein er bara SUPER sæt, hún er loðin eins og mysa með rauðan topp... (að mér sýnist) Mig langaði ekkert að fara í vinnuna... En svoleiðis er það nú... Bestu kveðjur, Svabbi [ 1 ] þriðjudagur, júní 08, 2004
Hvað er þingræði?
Hmmm... Ég hef verið að velta fyrir mér þessari þrískiptingu ríkisvalds, sem er lýðræðinu til grundvallar hér á landi, sem og í öðrum lýðræðisríkjum. Hvert hinna þriggja valda, löggjafar-, framkvæmda-, og dómsvald, hafa eftirlits- og aðhaldsskyldur gagnvart hinum, svo hlutirnir fari ekki úr böndunum. En svona hefur þetta ekki verið hér á landi lengi. Menn tala mikið og hátt um að Forsetinn sé að eyðileggja þingræðið. Hvaða þingræði? Meina menn þingræðið sem felst í skilyrðislausri afgreiðslu stjórnarfrumvarpa og algerri svínbeygingu stjórnarþingmanna undir ráðherrana, sem einnig sitja á þingi. Hvar er aðskilnaður framkvæmda- og löggjafarvalds þar? Eigum við ekki bara líka að skipa hæstaréttardómara til fjögurra ára í senn úr hópi þingmanna? Hver maður hlýtur að sjá fáránleikann í þessu kerfi. Stjórnarþingmönnum er í raun haldið í gíslingu með þeirri hótun að ef stjórnarfrumvarp fer ekki í gegn, þá falli ríkisstjórnin. Þannig nær ríkisstjórnin að setja hver ósanngjörn og óréttlát lögin á fætur öðrum án nokkurra teljandi afskipta þingsins nema smá röfls hjá máttvana stjórnarandstöðu, sem eðlinu samkvæmt getur ekki verið annað en máttvana, enda getur hún ekki fellt neitt, þar sem stjórnarþingmenn eru svínbeygðir. Þetta "þingræði" sem menn eru að væla yfir að hafi verið farið illa með, hefur ekki verið til staðar hér á landi síðan á Sturlungaöld. Landinu er stjórnað af embættismönnum og engu öðru. Þingið er bara staðfesting á valdi framkvæmdavaldsins, marglitur hanski bláu handarinnar. Þannig má segja að Davíð Oddsson hafi hingað til notað þingmennina sem fingrabrúður og troðið puttunum langt upp í götin. Forsetinn er ekki að gera neitt annað en að bregðast við því sem er augljós reiði og pirringur þjóðarinnar yfir framkomu ríkisstjórnarinnar, en þessi reiði sjatnar ávallt rétt fyrir kosningar, þar sem þjóðin er með gullfiskaminni. Þess vegna er um að gera að nýta reiðina á meðan hún varir, því hún er réttlát. Bestu Kveðjur, Svavar [ 5 ]
75% reglan...
<kaldhæðni> Ég er ekki ósammála Birni Bjarnasyni og Guðna Ágústssyni um 75% þátttöku í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Ég er alveg fullkomnlega sammála um að 75% þjóðarinnar þarf að vera sammála um lög svo þau taki gildi. En þeir eru eitthvað skakkir með þetta, og vilja meina að aðeins 25% þjóðarinnar þurfi til að samþykkja lögin. (þ.e.a.s. þau 25% sem þeir geta fengið til að sleppa því að mæta á kjörstað.) </kaldhæðni> En varðandi þessi blessuðu lög. Ég er ekki ósammála því að það þurfi að setja lög um eignarhald fjölmiðla, enda er ég víst "vinstri-hálfviti" (eða það segja allavegana drukknir Frjálshyggjumenn mér...) En til að lög öðlist skýra stöðu og séu tekin alvarlega þurfa þau að hafa verið sett fram á trúverðugan hátt. Enginn tekur mark á lögum sem hafa ekki trúverðugan bakgrunn. Sjálfstæðisflokkurinn er ekki trúverðugur aðili til að setja fram þessi lög, og sérstaklega ekki Davíð Oddsson, sem myndi örugglega teljast óhæfur, ef hann væri blaðamaður að skrifa um Baug, eða bara fjölmiðla almennt. Sjálfstæðisflokkurinn er líka ósannfærandi lagasmiður fjölmiðlalaganna í ljósi þess offors sem þau voru sett fram í og án alls samráðs við samfélagið, allrar samræðu. Þess vegna þarf að hafna þessum lögum og setjast svo aftur við hringborð, ásamt fulltrúum hagsmunahópa, blaðamanna, fjölmiðla og almennings og skrifa nýtt frumvarp, annars eru þessi lög einskis virði, ef ekki er almenn sátt um framsetningu þeirra. Enginn virðir ótrúverðug lög. Bestu kveðjur, Svavar Knútur [ 3 ]
Austurland 2004...
Er að lesa bæklinginn Austurland 2004 sem fylgir með blessuðum Mogganum í dag. Og ekki geta skrifendur þess mæta blaðs látið hjá líða að skjóta á ljótu vondu umhverfisverndarana, sem reyndu að halda aftur af framförum í vanþróaða fjórðungnum þeirra... En verst þykir mér þó að lesa fyrirsögnina Nei þýðir nei við Kárahnjúka. Vissi ekki hvort ég ætti að hlæja eða gráta. Þeir sömu og nauðga landinu nota slagorð gegn nauðgun til að halda áhorfendunum "í réttu sjónarhorni..." Fönkí... Bestu Kveðjur, Svavar [ 0 ] mánudagur, júní 07, 2004
Takk fyrir gott kvöld!
Hey, þið sem mættuð á Kaffi vín á Laugardagskvöldið, takk æðislega fyrir góða skemmtun! :) Gott Partý! Þið hin, sem voruð glötuð og með skítamóral í gangi, þið misstuð bara af góðu partýi og við sjáum ykkur næst :D Frumfluttum eitt nýtt frumsamið lag, og fimm eða sex "tökulög" sem við höfðum eiginlega aldrei æft. Þar á meðal ógurlega rokkútgáfu af toxic. Bestu Kveðjur, Svabbi [ 1 ] föstudagur, júní 04, 2004
Andvaka... Varð að klára smá...
Var að hugsa um hann pápa heitinn... Svo fór ég að glamra og ég held að þetta verði bara að standa. Langt síðan ég henti inn á bloggið einhverju svona demó pródúkti, en verði ykkur að góðu bara... Ókei, ég veit að þetta er allt frekar undarlega flutt, einnar töku mórallinn og allt það, en ég meina kommon, klukkan var þrjú um nótt... :) Og það er hugurinn sem skiptir máli... er það ekki? Munið bara að þetta er svona 70% tilbúið lag... Kysstu tímaglasið Gjörið svo vel... Bestu Kveðjur, Svavar [ 6 ] fimmtudagur, júní 03, 2004
Nýjasta platans hans Jóns Ólafssonar góða...
Er að hlusta á nýju plötuna hans Jóns Ólafssonar... Góða... Fallegt, einfalt, heiðarlegt, ómþýtt og einlægt. Bara prýðileg fyrsta plata! :D Hann Jón hefur alltaf verið í uppáhaldi hjá mér, bæði sem tónlistarmaður og performer. Áfram Jón... Sérstaklega fannst mér sjarmerandi á fjórðu mínútu og nítjándu sekúndu í fjórða laginu á disknum þegar brakar í stólnum sem Jón situr á. Afar ljúfur diskur. Bestu Kveðjur, Svavar [ 2 ] miðvikudagur, júní 02, 2004
YEAH! Hraun að rúla núna!!!
Hey allir! Hljómsveitin Hraun! var í fyrsta sæti í niðurhölum á Rokk.is í maí! YEAH! Takk fyrir það kæru vinir og tilveran og Batman :) Hlakka til að sjá ykkur á laugardagskvöldið á Kaffi Vín! :) Rebellar mæti sérstaklega þá, því þá munum við verða við myndbandstökur. Bestu Kveðjur, Svavar [ 0 ]
Hinar lýðræðislegu Müllersæfingar...
Hvort sem menn eru með eða á móti fjölmiðlafrumvarpinu verða menn að viðurkenna að hér er um að ræða gríðarlegar Müllersæfingar fyrir íslenskt lýðræði, enda hefur þjóðaratkvæðagreiðslu ekki verið beitt síðan 1944. Ég fagna þessu, hver sem mín afstaða til laganna eða Ólafs er, því nú fáum við að sjá hvernig svona hlutir virka. Helvíti fínt bara! Bestu Kveðjur, Svavar [ 2 ]
Ógn og Skelfing!
Ég á mér nokkrar fóbíur og þó nokkrar taugaveiklanir. Fyrstar, og svæsnastar, má telja lofthræðslu og gríðarlega klaustursfælni (innilokunarkennd). Þá er ég einnig myrkfælinn. En svo eru það þessar smærri hræðslur, hálfgerðar taugaveiklanir... Ég get til dæmis ekki almennilega andað að mér þegar ég labba fram hjá fólki sem mér finnst ofboðslega fráhrindandi. Mér finnst eins og ég muni anda að mér einhverjum ógeðsgerlum sem geri mig jafn ógeðslegan. Þá hef ég illan bifur á metrósexúölum. Þegar ég hitti metrósexúal karlmann, fyrir utan Jón Geir vin minn, þá langar mig mest að gubba framan í hann af viðbjóði... Mér finnst metrósexúalar einhvern veginn vekja í mér allt það vonda. Svona karlmenn með designer gleraugu og vandlega samsettan fataskáp, auk heillar dobíu af snyrtivörum og hæfileika til að lýsa draumaíbúðinni þar til flökrar. Kartöflumjöl er einnig eitt af því sem gefur mér algjöra kríp... Kartöflumjöl og gúmmíteygjur. Fólk að fikta með gúmmíteygjur og eldspýtur fer alveg grííííðarlega í taugarnar á mér. Ég heyri svona ískrandi hljóð í fólki þegar það er að leika sér með gúmmíteygjurnar sínar, svoldið eins og ískrið í kartöflumjölinu þegar maður kreystir pokann.... úúúíííúú....oooohh..... En sú stærsta af mínum taugaveiklunum er atvinnutengd... Hún felst í því að ég óttast það sjúklega að fara á klósettið og gera númer tvö og gleyma að læsa að mér. Og einhver opni hurðina og ég einhvern veginn blasi við í varnarleysi mínu. Þessi tilhugsun veldur mér miklu hugarangri. Varnarleysi mannsins sem er í hægðum sínum í þessari heilögustu athöfn er algert og ófáir hafa látið lífið vegna þessa varnarleysis. Ég ætla að biðja ykkur um að vera s.s. ekki að stríða mér á ofangreindum hlutum. ;) Til dæmis væri það held ég versta hugmynd að einhvers konar óvissuferð, afmælisfögnuði eða steggjapartýi að brjóta upp hurðina á klósettinu þegar ég er að gleðjast yfir lífinu, grípa mig, binda og kefla og loka mig inni líkkistu fullri af kartöflumjöli og gúmmíteygjum, í félagsskap metrósexúal róna uppi á hengibrú. Bestu Kveðjur, Svavar [ 7 ]
Skrýtin tilfinning...
...þegar popplög geta gert svona hluti við mann. Island in the sun með Weezer lét mig klökkna áðan... Stundum myndast einhver svona furðuleg stemmning hjá manni og maður verður bara eitthvað meyr þegar sungið er hugljúfri röddu: "We'll never feel bad anymore..." Ég elska þegar einhver setur mannlega ástandið fram á svona einfaldan hátt... Bestu Kveðjur, Svavar [ 0 ] |
Eva
Örn "Mugison"
Elias Tónlistarmönnum sem gefa tónlist
sína á netinu er velkomið að hafa samband
við Hr. Muzak og þá bæti ég þeim
á listann.
Laukurinn rúlar
Dr. Gunni
| |||