Þankatankurinn



Svavar Knútur
Kristinsson,

Félagsauðströll, heimspekingur, umhverfis-verndarsinni og tónlistarmaður.

Ímeilaðu
mig...

NÝTT!!!
Viltu fá
(eða hætta að fá)
tilkynningar
um tónleika
HRAUNS!,
eða Svavars Sjálfs?
Sláðu inn
netfangið hér:



This page is powered by Blogger. Isn't yours?




Hljómsveitin Hraun! veitir mér listræna útrás.

Hraun á Myspace

Sjálfurinn á Mæspeis

Nýjustu Demó:

Ease your mind (01.07.2006)

Dansa... (28.09.2005.)

Ástarsaga úr fjöllunum (Sumarið 2005)

Goodbye my lovely (19. júní 2005)

Kisa litla (Maí 2005)

Your love was death to me (Janúar 2005)

Call off your Cavalry (September 2004)

You should call a doctor (Maí 2004)

Kysstu tímaglasið (endurbætt útgáfa 2004)

Mother's day
( 2004)

Jólaplata Hrauns 2003: Þrautgóðir á Hraunarstund

Jólaplata Hrauns 2004: Kátt er um jólin

Partýplatan Partý!

Jólaplata Hrauns 2005: Höldum jól

Jólaplata Hrauns 2006: Jólamolar



Latur myndasmiður, en engu að síður er hér að finna eitthvað efni...

Molar...


 
föstudagur, júlí 30, 2004
  Loksins búnað laga lagið...
Hæ,
áður en ég fer norður á Skálá um Verslunarmannahelgina, langaði mig bara að benda ykkur á að ég kláraði loksins að syngja rétta textann við Kysstu Tímaglasið og lagaði þetta aðeins.
kíkið endilega á það: Kysstu Tímaglasið.

Bæbæ elskurnar,
Svabbi sæti


[ 5 ]
þriðjudagur, júlí 27, 2004
  Urgh...
...er að reyna að berja sjálfan mig inn í blogg-gírinn...
...Ugh...
...Sætir kettlingar... Ógeðslega kelnir og krúttaralegir...
...búnað skrifa smásögu...
...nýtt lag í bígerð...
...Ógeðslega gaman á Ísafirði...
...lasinn...
...Skemmtilegt að vera til...
...Langar í Bíó...
...Fer norður á Skálá um Verzlunarmannahelgina og síðan til Danmerkur-Svíþjóðar-þýskalands-Hollands-Belgíu...
...Ugh...
...Erfitt...

Bestu Kveðjur,
Svabbi


[ 2 ]
mánudagur, júlí 19, 2004
  Skemmtilegt á Ísafirði
Það var gaman á Ísafirði, en nú er ég kominn heim...
Helvíti er ég stoltur af þessu unga fólki sem var að standa fyrir ráðstefnunni um framtíð Vestfjarða, alveg allt annar tónn en í Fréttablaðinu, þar sem er bara verið að tala um eymd landsbyggðarinnar og hvað Áliðnaðurinn eigi eftir að bjarga henni...
Þessi fáfræði og þröngsýni ráðamanna er merkileg...
Mæli með að þeir lesi síðu 10 í mogganum í dag.
Húrraaa! :)
Kettlingarnir eru ógeeeðslega fyndnir, alltaf að hoppa og leika sér og Mysa er hætt að vera hrædd, hún er meira orðin svona Mamma/stóra systir/leikfélagi. Svo leyfir hún þeim að sjúga sig... sem er pínu creepy...
 
Annars er nóg að gera,
bestu kveðjur,
Svabbi


[ 0 ]
fimmtudagur, júlí 15, 2004
  Blendnar tilfinningar...
Jæja elskurnar... Ég er hér á Ísafirði að skrifa fyrir Moggann um þessa líka prýðilegu ráðstefnu sem ungt fólk hér fyrir vestan blés til, til þess að ræða framtíð Ísafjarðar á jákvæðu nótunum.
Ég verð bara að segja að þetta er bara æði!
 
En nóg um jákvæðnina...
Ég fór á jarðarför í dag.
Jarðarfarir eru misjafnar. Stundum eru þær ágætis kveðjustund, þar sem góður maður hefur lokið erfiðri en uppbyggilegri lífsgöngu. Dæmi: Rabbi og Ásbjörn afi.
Stundum eru þær hrikalega tragískar og taka ótrúlega á sálina. T.d. Pabbi og Hrafnkell heitinn vinur minn sem dó úr heilahimnubólgu fyrir þremur árum. Þegar menn deyja fyrir aldur fram er það alveg hreint ömurlegt.
 
Svoleiðis jarðarför var ég á í dag.
Lítil stúlka, Sunneva Hafberg, var lögð til jarðar. Dásamleg, fjölhæf, jákvæð og björt og ótrúlega skemmtilegt barn. Níu ára.
Það var svo sannarlega erfitt að vera þarna í kirkjunni í dag og ég get ekki byrjað að ímynda mér hvernig þeim Kristjönu Nönnu og Einari líður. Þetta er einfaldlega það versta sem getur gerst. Nú reynir á styrkinn og samheldnina.
Níu ára barn...
úff...
En, við sem eftir stöndum verðum bara að sjúga inn magann og vera sterk. Svo einfalt er það.
 
Jæja... hundskast út á kaffihúsið Langamanga að blanda geði við innfædda, sem mér líkar einstaklega vel við.
Bestu Kveðjur,
Svavar Knútur.


[ 0 ]
þriðjudagur, júlí 13, 2004
  Sweet Sweet holiday...
Búnað vera í fríi...
Að vísu dálítið erfiðu fríi, en ég vann minn fyrsta bikar, í söngkeppni... :D
Helvítis stuð bara á mínum...

Eftir 3000 kílómetra keyrslu, þá gaf eitthvað pínulítið sig í pústkerfinu á Flycku og hún rymur eins og kappakstursbíll... Sem er rokk...

Bestu Kveðjur,
Svabbi

p.s. Kettlingarnir eru gersamlega dásamlegir núna...


[ 3 ]
mánudagur, júlí 05, 2004
  Að lokinni Trékyllisvíkurferð...
Djöfull var suddagaman í Trékyllisvík.
Svo prófuðum við að syngja inni í tönkunum í Djúpuvík.
Þar söng ég meðal annars Kysstu tímaglasið, sem hljómaði skemmtilega.

Ég kláraði textann við það á dögunum.
Lagið er s.s. um hann Pápa heitinn og ég set inn nýja útgáfu af því bráðlega.
En hér er s.s. textinn.
Kysstu tímaglasið

Á dögum eins og þessum
Breytist ég, breytist ég
Í risastóran saltstólpa
Af eftirsjá, eftir þér

Ég hefði ekki átt að fljúga
Svona fljótt, í burt frá þér.
Svo margt ógert, svo margt ósnert
Svo margt sem aldrei verður sagt

Ég kyssi tímaglasið
Horfi á sandinn flæða burt
Saltur koss

Kyssi tímaglasið
Vertu sæll
Kyssi sandinn bless

Ég hélt við hefðum tíma
Til að tala um svo margt
En stundum bresta vonir
Stundum brotna tímaglös

Þú kvaddir mig með hlátri
Sem hljómar ennþá inni í mér
Þú sagðist sjá mig aftur
Bráðar von, en fer sem fer

chorus

Ég veit að það er borin von
Að líma saman brotin, sundurtætt
Það sem Guð hefur sundrað,
Getur enginn maður bætt

chorus

Kysstu tímaglasið
Söltum kossi
ég sakna þín
ég sakna þín
Kysstu tímaglasið
Vertu sæll, vertu sæll
Úúúú (út?)





[ 5 ]
Virka þessi Drösl???