![]() |
Þankatankurinn
|
![]() |
||||
|
Svavar Knútur Kristinsson, Félagsauðströll, heimspekingur, umhverfis-verndarsinni og tónlistarmaður. NÝTT!!!
|
Nýjustu Demó: Ástarsaga úr fjöllunum (Sumarið 2005) Goodbye my lovely (19. júní 2005) Your love was death to me (Janúar 2005) Call off your Cavalry (September 2004) You should call a doctor (Maí 2004) Kysstu tímaglasið (endurbætt útgáfa 2004) Mother's day Jólaplata Hrauns 2003: Þrautgóðir á Hraunarstund Jólaplata Hrauns 2005: Höldum jól Jólaplata Hrauns 2006: Jólamolar |
sunnudagur, ágúst 29, 2004
Sunnudagsmorguuuunn...
...og Svabbi hann situr við borðið... og skrifar fréttir... af fólki... lalllalalalaaa... (flaut, flaut, flaut) Rabbaði við mann í vinnunni um umhverfismál... "Og hvað ætlið þið umhverfissinnarnir þá að gera? Prjóna Lopapeysur?" Málefnaleiki umræðnanna hvarf við þetta... Svavar kallaði gaurinn Stalínista og hélt sína leið, enda lítið annað að segja... :) Djók... Auðvitað reifst ég við gaurinn eins og hundur... (En Stalínisti kom vissulega upp, nema hvað hann þakkaði fyrir sig, enda þykir honum Stalínisti hreint ekki slæm nafnbót, gamla kommanum...) Pálína ((Ung)frú Svavar) segir ógeðslega furðulega en skemmtilega sögu á blogginu sínu fyrir nokkrum dögum... (Nei ég linka ekki á þetta svona seint, vegna þess að ég lesi ekki bloggið hennar oftar... Ég les það á hverjum degi...) Annars líður manni ágætlega. Stefnan tekin á Ísafjörð næstu helgi til að spila... Vona að fólk mæti. Hugsa að ég reyni að halda tónleika í Gamla Apótekinu líka, því þar er alltaf gaman að koma. Ó já! Þið takið kannski eftir nýja fítusnum hérna vinstra megin. Þar er hægt að nálgast nýjustu demó og Jólaplötuna síðan í fyrra. Sjáum svo til hvernig fer... Bestu Kveðjur, Svavar [ 1 ] föstudagur, ágúst 27, 2004
Frjálshyggju-"villur"
Málefnalegasta orð í heimi er orðið "Vinstri-villa". Þó ég sé sjálfur enginn sérstakur vinstri maður, þá finnst mér það alltaf lýsa vissri manngerð, vissri afstöðu til heimsins, lífsins og annars fólks. Það getur ekki verið að neinn annar en hægri maðurinn eigi neitt til síns máls. Þess vegna eru allir aðrir heimskir og þjást af vinstri-villu. Friðbjörn Orri Ketilsson, sá annars mæti og ágæti drengur, þjáist af tvennu: Annars vegar duglegum skammti af hroka, sem er ekki óeðlilegt fyrir ungan mann og maður vonast að það vaskist af honum fyrir þrítugt, eða a.m.k. fyrir fimmtugt. Hins vegar þjáist Friðbjörn (eins og kannski flestir aðrir ungir hugsjónamenn) af trúarlegri sannfæringu um að engin önnur skoðun en hans geti átt sér neina kosti. Þannig kallar hann annarra manna hugmyndir villur og hæðist að því að nokkrum manni geti dottið í hug að ríkið færi til námskostnað fólks yfir á tímabil ævinnar þegar auðveldara er að greiða hann. Það að Ríkið hjálpi fólki í gegnum nám er ekki skattlagning á þá sem ekki fara í nám. Það er einfaldlega tilfærsla á kostnaði við námið. Þegar fólk er komið úr námi borgar það skatta, og oftar en ekki nokkuð hærri skatta en aðrir, auk þess sem það borgar til baka námslánin sín. Þannig í rauninni borgar sumt fólk tvisvar fyrir námið sitt. Aðrir, sem fá sér kannski hugsjónastörf með lægri tekjum, t.d. grunnskólakennslu og félagsráðgjöf, borga samfélaginu til baka á annann hátt. Allt kemur þetta til baka. Bara svona að útskýra punkt... Bestu Kveðjur, Svavar [ 4 ] miðvikudagur, ágúst 25, 2004
Andri Snær Magnason með frábært innlegg
Komið sæl. Mig langar að brjóta upp formið hér á blogginu og birta í heild sinni pistil sem Andri Snær Magnason, félagi minn í baráttunni, hefur skrifað. Andri hefur ferðast upp á landið sem fer í kaf og hefur ýmislegt að segja um PR-rugl Landsvirkjunar og þær lygar sem hefur verið moðað í íslensku þjóðina. "Maður er aldrei alveg viss"
Ég hélt kannski að ég hefði kannski ánetjast einhverjum sértrúarsöfnuði, eins og amerískur hvalavinur hafi ég heillast um of af myndefninu þeirra Raxa, Guðmundar Páls og Ísbergs. Maður hélt að Ómar hefði ruglað mann í ríminu. Maður gat aldrei verið alveg viss. Ég bjóst við að sjá einhvern gróður en að sjá að svæðið sem skal fórna er nánast algróið var eignlega áfall. Að þar skuli jarðvegurinn vera margir metrar að þykkt og lyng alveg upp að Töfrafossi bjóst ég ekki við. Ég hélt að myndirnar hans Raxa hafi verið ,,of flottar", að þær sýndu ekki raunveruleikann. Því miður fyrir Raxa, svæðið er flottara, margfalt flottara og stærra. Ef þú hefur horft yfir svæðið af sandfelli sem á að verða eyja í lóninu hefurðu ekki séð svæðið sem skal fórna. Það er ótrúlegt að tína bláber á gullfallegum stað, Kárahnjúkur lengra frá en Bláfjöll séð frá Reykjavík og vita að þessi staður verði ýmist á 60 metra dýpi eða dauður leir. Ég hélt að þetta væri erfið ferð, fyrir fáa útvalda, ómögulegt að komast að helstu perlunum og bara fyrir eitthvað fjallafólk. Það var ekki rétt. Þetta var auðveld ferð, upp eftir Jöklu og Kringilsá, engar skriður eða klettar, gengið í gróðri nánast alla leiðina. Í ferðinni var tveggja ára barn, sjö ára stelpur og sjötugur læknir. Allir bláir af berjaáti. Þarna vaxa krækiber og bláber upp í rúmlega 600 metra hæð. Þjóð með einhvern snefil af sjálfsvirðingu hefði gert þetta að þjóðgarði. Snæfell, Kverkfjöll, Trölladyngja, Askja og Herðubreið, allt innan seilingar. Ég vissi að það væri hætta á uppblæstri en skildi ekki hugtakið Vesturöræfi vegna þess að þau eru engin öræfi heldur þykk gróðurþekja. Gróðurinn frá Jöklu upp að Snæfelli er í stórhættu. Það á að skera á gróður þekjuna 20 kílómetra langt rofabarð. Fyrir framan það verður sandur og aur sem enginn mannlegur máttur mun ráða við. Erfitt að skilja ef maður hefur ekki séð það. Ég skildi það ekki. Menn verða að sjá þetta fyrir sér. Menn verða að ímynda sér hvernig lónið myndi fara í hæstu stöðu og drekkja þessum dal dýra og gróðurs til þess eins að lækka aftur til að öllum ömurleikinn ljós. Þetta verður ekki fallegt heiðarvatn. Drulla mun þekja alla bakka. Gróðurbrekkur munu verða hættulegar drullubrekkur, hætta á að menn renni ofan í lónið. Tveggja daga vatnsstaða í flóðunum um daginn skildi eftir sig 40 cm lag af drullu ofan á gróðrinum við Sauðá. Framreiknið þetta um tvö ár, 10 ár, 40 ár. Ég vissi að þetta væri glæpur en að hann skuli vera á svona ofboðslegum skala gat ég ekki gert mér grein fyrir. Sif sagði að dýrin gætu farið annað. Horft yfir öræfin ofan af Fagradalsfjalli yfir Snæfell, Herðubreið, Trölladyngja, Kverkfjöll, allt á örlitlum reit, þá sér maður hvílík fórnin er. Það á að fórna einni af fáum gróðurvinjum á hálendi Íslands. Þetta er ekki rýr gróður í melum heldur þykkur þéttur eldgamall massi. Ég hef séð himinninn myrkvast af foki frá svæði á stærð við fótboltavöll. Guð hjálpi okkur þegar svæði á stærð við Reykjavík kemur úr kafi að vori, þakið aur og sandi, fullt af dauðum gróðri og undir honum: 6 metrar af mold sem bíða þess eins að fjúka yfir landið. Það er ótrúlegt að Austfirðingar hafi ekki gert uppreisn gegn þessum skemmdum. Gróðurmassinn gerir það að verkum að virkjunin mun menga meira en kolaorkuver. Það er hreint ótrúlegt að vísindamenn landsins skyldu láta áróður um hreina orku yfir sig ganga. Eftir að hafa séð töfrafoss og flúðirnar þar fyrir neðan, Hörpuhlið (stuðlabergsgangur með gati), rauðuflúð þar sem Jökla ,,gýs" og spýr eins og steypireyður sér maður betur hvílíkum blekkingum þjóðin hefur verið beitt. Ég gat ekki sagt með fullri sannfæringu að það yrði að hætta við þessa virkjun án þess að hafa gengið upp með jöklu. Hélt að þetta væri komið of langt, búið að skemma of mikið. Eftir að hafa gengið upp með jöklu og farið niður að Lindum er algerlega augljóst að þetta lón má aldrei fyllast. ALDREI NOKKRU SINNI. Þú skilur mig ekki kæri lesandi. Framkvæmdasvæðið virðist stórt, það er örlítið miðað við eyðinguna sem er yfirvofandi. Lónið má aldrei fyllast. Þetta er á allt öðrum skala en nokkuð annað verk Landsvirkjunar. Að þetta fyrirtæki okkar Íslendingjar skuli standa fyrir svona illvirkjun er óhugnanlegt. Að þjóðinni hafi verið talin trú um svæðið væri gróðurlaust." [ 1 ] þriðjudagur, ágúst 24, 2004
Mogginn í dag...
Viðhorf eftir undirritaðan í Mogganum í dag. Fyrir þá sem vilja lesa meira eftir Svabbann, skal bent á að ég skrifa viðhorf á hverjum þriðjudegi og hef gert nú í rúman mánuð. (Sumarafleysingaviðhorfsgaur...) Endilega kíkið á, ef þið finnið gamla þriðjudagsmogga... Mæli sérstaklega með Niður með LADAbæ og viðhorfinu um stóriðju og velferðarkerfi... :) Bestu Kveðjur, Svabbi Sæti [ 0 ] sunnudagur, ágúst 22, 2004
Úff...
Menningarnótt gerir mig þunglyndan. Ég meikaði ekki niður eftir. Hundrað þúsund manns í bænum, ég hefði drukknað og dáið í mannasúpu. Menningarnótt gerir mig líka þunglyndan af því að hún virðist alltaf styrkja þá trú mína að ég sé misheppnaður listamaður. Allir aðrir listamenn bæjarins voru þarna niður frá, en ég virðist ekki geta komið mér inn á neitt svona. Þá upplifi ég mig ótrúlega feitt sem "Failure". Sem betur fer á ég góða konu sem leigði "School of Rock" fyrir mig og keypti appelsín. Smá tröstespísi og duglegum Jack Black seinna var ég næstum kominn aftur upp úr þessu tímabundna þunglyndi og er nú óðum að klifra upp úr pittinum. Jújú, ég á líka ágætlega dökka daga... Það eina sem mig virkilega langar til að starfa við er tónlist. Og versta tilfinning í heimi er þegar ég upplifi það að ég sé glataður tónlistarmaður. Ég veit sosum að það er ekki satt, en tilfinningin kemur samt. Það er týpískt fyrir það hvernig þunglyndið reynir að blekkja mann... Ég vildi bara óska að ég hefði drævið til að koma mér á framfæri, þorið til að stíga skrefið til fulls og viljann til að gera það sem þarf. Urg... Jæja... Á morgun kemur nýr dagur og ég mun stíga nýtt skref til að bæta líf mitt og reyna að gera góða hluti. Jepp. Svabbi er bara ágætur núna, þrátt fyrir misheppnaðar tilraunir til að komast inn í tónlistarlíf Reykjavíkur. Ég ætla að halda ótrauður áfram og í versta falli enda ég eins og Ed Wood. :) Bestu Kveðjur, Svabbi [ 9 ] þriðjudagur, ágúst 17, 2004
Endurminningarnar sækja á mig...
Þetta lag hefur alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá mér... :þ Veit ekki hvað það er sem heillar, en það er einhver súr innihátíðarsjarmi við það. Að venju var hvert trakk tekið í einni töku eða svo til, til að tryggja einlægan og viðvaningslegan sjarmann. Sportkaffi-2002 Bestu Kveðjur, Svabbi [ 2 ] föstudagur, ágúst 06, 2004
Tom gledi og hamingja
ah... er uti i Danmørku nuna og hef tad alveg glæsilegt! :) Chilla med Tuborg og 28 stiga hiti. A morgun leigi eg mer bil og keyri ut um allt i godum filing. tar a medal til Lundar til ad skoda haskolann... Bestu Kvedjur, ykkar vinur, Svabbi [ 4 ] miðvikudagur, ágúst 04, 2004
Björn húmoristi...
Ólíkt því sem margir gætu haldið, þá er það mér ekkert fagnaðarerindi að Davíð Oddsson skuli vera lasinn. Það er mjög sorglegt þegar svona skörungar verða veikir og orka þeirra skerðist. Það er líka bara almennt mjög sorglegt þegar fólk verður lasið. Svo hefði ég líka viljað að Davíð hefði fallið almennilega og verið tekinn í bakaríið í pólítíkinni. Það er eitthvað svo mikið antíklímax að hann hætti í pólítík vegna veikinda. En að meginefni pistilsins. Björn Bjarnason er alltaf jafn dásamlega fyndinn. Maðurinn sem kallar Fréttablaðið Baugstíðindi. Mogginn er kallaður Björnstíðindi, þökk sé Birni og hans uppfindingasemi og eignatengsla. Hahaha... Ég ætla að taka þetta upp líka. Nú er ég orðinn starfsmaður Björnstíðinda. Í nýlegum pistli vælir Björn yfir því að sagan sé ekki skoðuð nógu langt frá hægri. Varpa verði ljósi á öll samsæri og lygar Vinstri manna á Íslandi í gegnum söguna og öllu því vonda sem þeir hafa gert. ... Ókei Björn... HVERN ANDSKOTANN GERÐU VINSTRI MENN NÁKVÆMLEGA? Voru þeir einhvern tíma í stjórn án Sjallalalla eða framsóknar? Hvenær höfðu þeir tíma til að gera allan þennan óskunda? Ætti kannski ekki bara að grafa almennilega ofan í söguna og skoða hvernig ríka fólkið á Íslandi náði öllum þessum auðæfum? Skoða hvernig hvaða fjölskylda fékk hvaða heildsöluumboð fyrir hvaða Bandarísku lúxusvöru? Skoða aðeins hvernig sjálfstæði Íslands var í rauninni bara skipting um embættismenn og formleg tilfærsla auðvalds frá elítunni í Danmörku yfir á elítuna á Íslandi? Skoða hvernig einn íslenskur stjórnmálaflokkur hélt hlífiskildi yfir þekktum nasistum og dæmdum nasistasamvinnumönnum eftir stríð? Mönnum sem báru persónulega ábyrgð á fjölda mannslífa. Ég nenni því ekki, enda lifi ég í núinu, ekki í kalda stríðinu eins og BB. Einu stóru samsærin sem Vinstri menn höfðu á Íslandi var öflug útgáfa róttæks og oftast leiðinlegs dagblaðs og svo einhver fjárstuðningur inn í Mál og menningu, sem eins og allir vita er nú alveg rosalega mikið kommasamsærisfyrirtæki með undirróðursstarfsemi dauðans. Ég held að það sé nú ekkert að því að fólk skiptist á skoðunum. Nógu andskoti fengu menn mikinn stuðning frá BNA á sínum tíma. Nógu andskoti græddu skransalarnir á hernum. Það er bara eins og BB geti ekki lifað við að aðrir geti grætt, bara af því að þeir eru í vitlausum flokki. A.m.k. virðist manni það af umræðu liðinna daga. Guði sé lof að þessir gömlu vitleysingar, HHG, BB og KG, eru að verða gamlir og úldnir og fara bráðum að týna tölunni sökum elli. Ég vona að þeir hangi eins lengi og mögulegt er á toppnum í flokknum, svo hann hrynji nú almennilega saman eins og frauðostakaka og verði loksins samkvæmur sínum upprunalegu hugsjónum. Hnuss! Bestu Kveðjur, Svavar [ 3 ] |
Eva
Örn "Mugison"
Elias Tónlistarmönnum sem gefa tónlist
sína á netinu er velkomið að hafa samband
við Hr. Muzak og þá bæti ég þeim
á listann.
Laukurinn rúlar
Dr. Gunni
| |||