Þankatankurinn



Svavar Knútur
Kristinsson,

Félagsauðströll, heimspekingur, umhverfis-verndarsinni og tónlistarmaður.

Ímeilaðu
mig...

NÝTT!!!
Viltu fá
(eða hætta að fá)
tilkynningar
um tónleika
HRAUNS!,
eða Svavars Sjálfs?
Sláðu inn
netfangið hér:



This page is powered by Blogger. Isn't yours?




Hljómsveitin Hraun! veitir mér listræna útrás.

Hraun á Myspace

Sjálfurinn á Mæspeis

Nýjustu Demó:

Ease your mind (01.07.2006)

Dansa... (28.09.2005.)

Ástarsaga úr fjöllunum (Sumarið 2005)

Goodbye my lovely (19. júní 2005)

Kisa litla (Maí 2005)

Your love was death to me (Janúar 2005)

Call off your Cavalry (September 2004)

You should call a doctor (Maí 2004)

Kysstu tímaglasið (endurbætt útgáfa 2004)

Mother's day
( 2004)

Jólaplata Hrauns 2003: Þrautgóðir á Hraunarstund

Jólaplata Hrauns 2004: Kátt er um jólin

Partýplatan Partý!

Jólaplata Hrauns 2005: Höldum jól

Jólaplata Hrauns 2006: Jólamolar



Latur myndasmiður, en engu að síður er hér að finna eitthvað efni...

Molar...


 
miðvikudagur, september 29, 2004
  Tilfærslur og aflýsingar...
Argh!
Tónleikarnir sem áttu að vera á Rósenberg 22. okt færast til 29. og 30. okt.
Andskotans...
Nú höfum við ekkert venjú (tónleikastað) á Iceland Airwaves hátíðinni...

Helvítis Rúnk!

Fer í taugarnar á mér...

En nóg um það, ég get a.m.k. huggað mig við... ... þennan bolla hérna... mmm... góður bolli...
Fallegur bolli...
Knúsa fallega bollann...
Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 3 ]
þriðjudagur, september 28, 2004
  Orkusjúgandi ferli...
Það er ekkert smá orkusjúgandi að missa æfingarhúsnæðið fyrirvaralaust.
Nú er maður að leita ljósum logum að æfingahúsnæði og hefur engan tíma eða getu til æfinga.
En sem betur fer eru til góðir menn sem bjarga manni aðeins fyrir horn.
Guði sé lof fyrir góða vinnufélaga.

Annars er það á seyði að Hraun! leikur ásamt Glymskröttunum á kaffihúsakvöldi Amnesty í MH annað kvöld kl. 20.00. Kaffi og kökur til styrktar Amnesty.


[ 0 ]
föstudagur, september 24, 2004
  Airwaves og Hraun!
Eins og allir vita, þá er Hraun! hallærisleg hljómsveit og á ekkert upp á pallborðið hjá svona kúl hátíðum eins og Airwaves...

Þess vegna höldum við eins og venjulega okkar eigin loftbylgjuhátíð á Café Rósenberg 22. okt. (Sorrí þeir sem ég var búinn að hálflofa að spila í afmælinu hjá þennan dag...)

Þetta þýðir að Hraun leikur ekki á Rósenberg 1. okt, eins og ráðgert var, heldur verður þar djasshátíð.
Þá erum við að leita ljósum logum að venue fyrir næstu helgi, einhverjar uppástungur.
Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 2 ]
miðvikudagur, september 22, 2004
  Úrræði kennara...
Fólk er fífl, þannig er það bara.
Undir eins og kennarar fara í verkfall byrjar kórinn að kyrja: "Hvað er að kennurum, þeir hafa það svo gott! Þetta er svo vel launað og þeir eru alltaf í fríi og vinna bara 28 klukkutíma á viku! Og svo er þeim sama um börnin okkar, fara bara í verkfall og chilla á meðan börnin okkar þjást!"
Maður gæti haldið að sumt af þessu fólki hafi alið stóran hluta ævi sinnar í krónísku kennara-, foreldra-, og almennu gáfnaverkfalli.
Verkfallsvopnið er greinilega tvíeggjað sverð í höndum kennara og önnur brúnin er mun beittari en hin. Því miður virðist sú brún nú snúa að fótum kennara, enda er fólk alltaf tilbúið til að ráðast á umönnunarstéttir þegar þær gera kröfur vegna þess að það finnur fyrir gildi þeirra, en það er aldrei tilbúið að bæta kjör þeirra.

Þá spyr maður sig, á að senda þetta í kjaradóm, sem mun taka tillit til allra þátta og vissulega líka fjármála sveitarfélaganna? Karlar, lögfræðingar, jakkaföt, metandi vinnu kennara?
Getur einhver metið þetta starf réttilega? Já, það kostar að hafa góðan kennara í vinnu, en hvað kostar að missa hæfileikaríkt fólk út úr stéttinni og út frá skólastofum barnanna okkar?

Í Kanada er kennsla metin að verðleikum, byrjunarlaun kennara í kringum 60.000 dollara á ári og hækkar um 2000 dollara á hverju ári eftir fyrsta ár. Þar eru mörg hundruð umsækjendur um hvert kennslustarf og kennarastéttin er talin til efri miðstétta, en ekki pseudo-lágstétta eins og hér á landi.

Hafandi borið starfi móður minnar vitni langar mig að hrækja á hvern þann sem dirfist að segja að kennarar eigi ekki mannsæmandi laun skilið! Vissulega geri ég það ekki, en mig langar. Að kennari sé með lægri laun en kassastelpa í 10-11 finnst mér fáránlegt. Kassastelpan tekur svo sannarlega ekki kvittanirnar með heim til sín, svo ég fái lánað af öðru bloggi...

Mæli með Helgu og Sigurrós þessa dagana. Svo á Erlingur ágætis innlegg líka :)

Það er skömm að því hvað þessum ráðamönnum er algerlega sama um kjör þeirra sem sjá um að mennta og fræða þjóðfélagsþegna framtíðarinnar. Þá sem eiga að sjá um að skapa og vinna og knýja áfram samfélag.
Eða vita ráðamenn kannski eitthvað sem við vitum ekki? Er það kannski ekki fólk sem knýr áfram samfélög, heldur Stóriðjufyrirtæki og jarðýtur? Það væri þó aldrei?


[ 14 ]
þriðjudagur, september 21, 2004
  Blonde Redhead og annað...
Jæja gott fólk, fór á Blonde Redhead í gærkvöldi. Vægast sagt brilljant konsert! :)
Helvítis suddagrúv og melódíur hjá þessu bandi, og sviðsframkoman mögnuð! :)

Hef verið í nokkurri lægð undanfarna mánuði og dansað á barmi þunglyndisgjár. Andskotans, ég læt ekki einhver svona heilatrix ná mér!
Ég leyfi mér ekki að leka niður í vanlíðan!
En djöfull er það auðvelt...

Jæja, nýtt líf að hefjast í dag og nýr dagur boðar nýjar vonir.
Ætla að reyna að gefa út plötu fljótlega.
Bestu Kveðjur,
Svabbi


[ 1 ]
fimmtudagur, september 16, 2004
  Illska mín er veikindi...
Þessi hugleiðing átti að verða Viðhorf í Mogganum næsta þriðjudag, en ég hætti við og ákvað að halda mig við efnið sem ég var búinn að setja upp...

Ég er vondur maður, eða allavega fárveikur, ef ekki bara heimskur og lífssýn mín er fáránleg. Þetta er skoðun Valgerðar Sverrisdóttur iðnaðarráðherra eins og hún birtist mér á síðum sameiginlegrar afurðar minnar og kollega minna á laugardaginn fyrir rúmri viku. Undir fyrirsögninni "Batnandi mönnum er best að lifa," lýsir Valgerður því hvernig Skagfirðingar hafa loksins frelsast frá trúvillu þeirri sem kennd er við nýsköpun, hugmyndaflug og náttúruvernd. Skagfirðingar hafa loksins frelsast til virkjanahyggju og látið drauma um sjálfbæra uppbyggingu samfélags í Skagafirði lönd og leið. "Húrra!" hrópa nú álfyrirtækin og iðnaðarráðherrann í kór. "Loksins sjá þeir ljós sannleikans." Nú má kyssa blíðlega bless hugmyndir um náttúruvænan Skagafjörð sem byggir afkomu sína á skapandi starfi og hægum en öruggum vexti sem leiðir af frumkvæði fólksins sjálfs, enda er slík hugsun áldrottnunum viðurstyggð. Það er langtum betra að láta ríkið sjá um sig og gefa stórfyrirtækjum náttúruna til afnota. Fagna nú frómir framsóknarmenn, enda ekkert betra en góð forræðishyggja og guðdómlegar fimm ára áætlanir.
Ráðvilltur og ráfandi sauður
Ég geng enn í myrkrinu, hef ekki séð ljósið. Ég veð um í villu og svíma þess hugsjónavillta vitleysings sem sér fyrir sér land þar sem hugmyndaflug og frumkvæði einstaklinga fær að njóta sín en er ekki heft af ríkisafskiptum og þröngsýni stjórnvalda. Land, þar sem hagkerfinu er ekki handstýrt af ríkinu, heldur vex það af sköpunarkrafti og vinnu frjálsra manna. Ég er vondur maður, eða allavegana veikur. Já, ég er ekki frá því að ég sé eitthvað sloj, þetta er einhver pest sem hrjáir mig, *hóst*, *hóst*, þrálát pest sem er búin að hanga inni í mér síðan ég var fjórtán ára, kannski ekki óáþekk Malaríu eða Herpes. Og mér er ekki að batna, því ég sé ekki glampandi ljós rafstöðvarhúsanna, glitrandi turna raflínanna eða glóandi reyk álveranna. Ég sé bara dimmu og drunga hugarflugs mannsins, ég sé aðeins sjúka og saggafulla nýsköpun, aðeins daunillt drullusvað frumkvæðisins.
Ég held að það séu engin takmörk fyrir heimsku minni. Ég hreinlega er ekki að fatta þann einfalda sannleik að það að færa öll eggin úr einni körfu í aðra sé að auka fjölbreytni atvinnulífs og tryggja stoðir samfélagsins. Ég er heldur ekki að fatta hvað drullupyttir hálendisins geta verið fallegir útivistarstaðir, sérstaklega á vorin og snemmsumars, þegar leirstrandirnar teygja sig hundruð metra inn í dásamlega fúl lónin. Ég sé t.d. ekki möguleikann á heimsmeistaramóti í mýrarfótbolta í jaðri Hálslóns.
Illskan nær út fyrir landsteinana
Ég er meira að segja svo vondur að ég deili ljótum og ógeðslegum hugmyndum mínum með öðru fólki. Mér er svo illa við landsbyggðina, sjálft brjóstið sem ég saug sem barn, að ég eitra fyrir henni með lygum sem ég ber í útlendinga, lygum um að stjórnvöld á Íslandi séu að fórna hálendinu okkar fyrir slikk, fyrir skyndigróðaommilettu í körfu.
Að sjálfsögðu eru Vinstri Grænir líka illgjarn og heimskur hópur fáráðlinga, sem vill ekkert meir en að hamla og tefja hamingju og gleði og aukinn gróða landsmanna með einhverju tuði um náttúru. Fáfróðu tröll!
Heimska mín og illgirni á sér engin takmörk. Nú er ég meira að segja svo meinfýsinn að ég get ekki einu sinni verið ánægður með stækkun Skaftafellsþjóðgarðs. ?Vá,? ætti ég frekar að hugsa. "Vá hvað þeir eru góðir, þeir alveg stækka þjóðgarðinn alveg svakalega mikið, alveg alla leið upp á íshelluna. Þjóðgarðurinn er nú alveg risa risa stór klumpur af ís og þeir alveg pössuðu sig að vera nú ekki að skerða nýtingarmöguleika eins einasta ferkílómetra af landi utan jökuls. Vá hvað þeir eru klárir, æðislegir góðir og duglegir."
Nei, ég er svo vondur að mér hreinlega býður við þessum blekkingum, lygum og kjaftæði sem mér er boðið upp á. "Stærsti þjóðgarður Evrópu" er ekkert nema íshellan ein, engin raunveruleg viðbót. Þeir hentu bara inn á skilgreininguna svæðum sem ekki er hægt að nýta í augnablikinu. Eða eins og vonarstjarnan Valgerður sagði einhvern tímann: "Friðlýsing er nú bara lög og lögum er hægt að breyta." Ég er ekki að fatta hvað það er dásamlegt að nýi þjóðgarðurinn mun ekki taka til neinna af náttúruperlunum í kringum Vatnajökul, því hann mun í raun standa að eilífu sem bautasteinn vondrar samvisku óinnblásinna stjórnmálamanna, sem eyddu allri sinni orku og heilmiklum peningum skattgreiðenda í að sannfæra þjóðina um að allt væri í handaskolum, en samt væri allt í góðum málum.
Hjálpi mér allir heilagir!
Og ég er svo vondur að ég fatta ekki að á einhverju verðum við að lifa í þessu landi, alla leið Norður í hafi, því okkur er svo mikil vorkunn að þurfa að nota hugvitið til að lifa af. Ég fatta ekki hvað var svona slæmt við lífið á þessu landi að það þyrfti að fórna næstum öllum stórum ám landsins til að bæta það. Ég fatta ekki að Össur, Marel, Bakkavör, Samherji og KB-Banki hefðu aldrei getað náð sínum árangri hefðu þau ekki vitað að Kárahnjúkavirkjun væri á leiðinni. Ég sem hélt að þessi fyrirtæki byggðu á hugviti og dirfsku kraftmikilla viðskiptamanna. Bjáninn ég! Þá er ég ekkert að fatta það að frumkvæði Ísfirðinga og ríkt menningarstarf hefði aldrei orðið að veruleika ef ekki hefði komið til Blönduvirkjunar, hvað þá Vesturfarasetrið á Hofsósi.
Ég hlýt að vera fárveikur, hrasandi til glötunar á hálum fótum heimskunnar! Valgerður, geturðu hjálpað mér, hjálpað mér að sjá ljós stóriðjunnar, ljós iðnvæðingarinnar, áður en sál mín glatast í náttúruást, fjallagrasatínslu, lopapeysuhippalifnaði og öðrum ólifnaði illra og heimskra manna?


[ 7 ]
mánudagur, september 13, 2004
  Gullbrá og birnirnir þrír...
Hraun! léku á Café Rósenberg um helgina. Brilljant gigg!
Allt var mjög lágstemmt og við notuðum píanó og kontrabassa og gerðum fullt af stöffi sem við höfðum aldrei gert áður.

Þetta var mjög skapandi og skemmtileg helgi og gaman að dúlla sér.
Nema hvað...
Á laugardagskvöldið, eftir gigg, fórum við Loftur, Kristrún og Stebbi saman og fengum okkur pítsubita. Síðan hugðist ég skutla Lofti og Kristrúnu heim.
Og þegar við komum að Saabinum mínum (9000i) varð okkur ljóst að ekki var allt með felldu... Og við fengum engan smá "Gullbrá og birnirnir þrír" fílíng þegar við sáum litla, þybbna og ljóshærða gelgju sofandi í bílstjórasætinu á Saabinum (9000i).
Úff...
Þetta var dálítið óhugnanlegt, enda var stúlkan ekki neitt smávegis búin á því. Ég bauð henni að koma sér út úr bílnum og hún skjögraðist hálfskelkuð í átt að næsta bíl og byrjaði að athuga hvort hann væri opinn...

Úff...
Við vissum varla hvort við ættum að hlæja eða gráta, en við hlógum engu að síður, enda var þetta eiginlega bara fyndið.
Kristrún náði líka dásamlegri mynd af greyinu.
Veit ekki hvort rétt er að birta hana, held að ég sleppi því bara.

Sjáumst á næsta Hraun! giggi, sem verður örugglega von bráðar.
Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 6 ]
miðvikudagur, september 08, 2004
  Erfitt en áhugavert nýtt starf... :)
Kominn í umsjón með dagbókarsíðunum og tengiliðshlutverk menningardeildar, innskrift í Lesbók, öll dagbókarviðtöl Morgunblaðsins og önnur menningarskrif... Helvítis púl, en allt í lagi skemmtilegt, enda brilljant fólk sem maður er að vinna með. :)
Þetta er að sjálfsögðu viss ögrun, því ég er akkúrat veikastur á nákvæmlega því sviði þar sem mestar kröfur eru gerðar til mín, nefnilega skipulags.
Þetta mun væntanlega veita mér gríðarleg tækifæri til persónulegs vaxtar og ég hlakka til að takast á við þetta verkefni.

Annars er fleira á seyði.
Hljómsveitin Hraun! verður á Café Rósenberg á föstudags- og laugardagskvöld með tónleika, þ.e.a.s. alvöru tónleikaprógramm.
Þið mætið og verðið hress og fílið tónleikaprógrammið... Húrra fyrir því :)

Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 2 ]
fimmtudagur, september 02, 2004
  Kaffi List í Kvöld
Hau Hau! Hljómsveitin Hraun! verður á Kaffi List í kvöld klukkan 22:00.
Þið mæta?
Auðviðtað!!!

Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 1 ]
  Pétur Kristjáns...
Mig langaði bara að biðja ykkur öll um að hugsa fallega til hans Péturs Kristjánssonar, sem síðast þegar ég frétti lá milli heims og helju og barðist fyrir lífi sínu eftir hjartaáfall.
Pétur er hvers manns hugljúfi og dásamlegur drengur og þó hann hafi stundum verið svolítið skrýtinn er það aðallega vegna þess að það eru ekki allir til í að gúddera gaur sem virðist alltaf geta verið í stuði.
Ég á eintómar góðar minningar um Pétur. Hann er alíslenskur strögglari sem aldrei gefst upp þegar á móti blæs.

Bestu Kveðjur,
Svabbi


[ 0 ]
miðvikudagur, september 01, 2004
  Ég hef alltaf verið rosalega stoltur af þessu...
Þessi útgáfa af Nebraska er bara dásamleg.
Sérstaklega er ég hrifinn af röddunum og jólabjöllunum...
Bestu Kveðjur,
Svavar



[ 0 ]
  Menningarviti...
Jæja...
Svavar Knútur bara orðinn blaðamaður á menningardeild Morgunblaðsins.
Framtíðin bara björt og brosandi.
Skrifa undir feita líftryggingu bráðlega sem tryggir að fjölskyldan verði í lagi þó ég drepist úr leiðindum á einhverju leikriti eða sinfóníutónleikum eða verði undir einhverri járnabraksútstillingu á sýningu úti í bæ...

Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 2 ]
Virka þessi Drösl???