![]() |
Þankatankurinn
|
![]() |
||||
|
Svavar Knútur Kristinsson, Félagsauðströll, heimspekingur, umhverfis-verndarsinni og tónlistarmaður. NÝTT!!!
|
Nýjustu Demó: Ástarsaga úr fjöllunum (Sumarið 2005) Goodbye my lovely (19. júní 2005) Your love was death to me (Janúar 2005) Call off your Cavalry (September 2004) You should call a doctor (Maí 2004) Kysstu tímaglasið (endurbætt útgáfa 2004) Mother's day Jólaplata Hrauns 2003: Þrautgóðir á Hraunarstund Jólaplata Hrauns 2005: Höldum jól Jólaplata Hrauns 2006: Jólamolar |
fimmtudagur, október 28, 2004
HRAUN á Café Rósenberg á morgun og hinn!
Damn Straight! Við Hraunarar ætlum svo sannarlega að láta til okkar taka á Café Rósenberg um helgina. Frá 23 til 03 munum við leika við hljóðfærin okkar og gefa gestum kátínu, sorg, gleði, reiði, kátínu, skrýtileika, sprell, alvarleika, trega og kátínu beint í æð... Ég minni fólk á að mæta snemma ef það vill heyra frumsamið efni, því við klárum það oft fyrir eitt. Gerð verður heiðarleg tilraun til að taka tónleikana upp, svo takið með ykkur góða skapið :) Bestu Kveðjur, Svavar Knútur [ 0 ] þriðjudagur, október 26, 2004
Inspiron 8600 er mín...
YARGH!!! Nú er ég kátur. Það tókst að bjarga myndunum af Dagbjörtu af ónýta harða diskinum. OOOOG ég er orðinn eigandi bráðfallegrar Inspiron 8600 fartölvu frá Dell... :D Jei... Samt... mig svíður pínu í samviskuna að vera að kaupa svona dýra græju, en ég geri netið í íbúðinni þráðlaust um leið, svo Pálína verður svaka kát þegar snúrufarganið hverfur eins og dögg fyrir sólu... Og nú get ég loksins farið að nota tölvuna sem stúdíó fyrir alvöru... Bestu Kveðjur, Svavar [ 4 ]
Hvað er að gerast?!?!
Öðruvísi mér áður brá... Demóútgáfan af Kysstu tímaglasið komin á toppinn hjá Jóni... Aftur!!! Hún var dottin út og allt! Hvað er að gerast? Tek það strax fram að ekki er um neitt svindl að ræða af minni hálfu... Bestu Kveðjur, Svavar [ 3 ] sunnudagur, október 24, 2004
Suddagóðir tónleikar á Nelly's
Jæja... djöfull var gaman að spila á Nelly's í gærkvöldi... Þessi staður sándar alltaf jafn drulluvel og fólkið var merkilega dannað og í góðum fílíng! Viggó og Eddi eru nýir vinir Hrauns! og eiga skilið tóman kærleik fyrir jákvæðni sína í gærkvöldi. Að lokum langar mig að deila með ykkur nýjasta draumi mínum: jamm... Mig langar í svona... Bestu Kveðjur, SVavar [ 2 ] fimmtudagur, október 21, 2004
Ömurlegt...
Æi... Nú er ég ekki kátur... Legurnar í harða disknum í tölvunni gáfu sig og nú er ég stoltur eigandi rjúkandi braks. 1,5 ár af ritstörfum (bakkupp var til af drasli fyrir þann tíma) 1,5 ár af tónlistarsköpun, textum og upptökum 3 ár af ljósmyndum af fjölskyldu og vinum 4 ár af vefvinnu fyrir sjálfan mig, bróður minn og Hraun! allt farið... Og áður en þið segið: Hey, þú áttir að bakka þetta upp... Þá vil ég bara segja: DEYIÐ!!! ÞAÐ GETA EKKI ALLIR ÁTT TAPE STÖÐ!!! Auk þess var ég búinn að partisjóna diskinn þannig að ef stýrikerfið krassaði þyrfti ekki að eyða öllu í formattinu. En það var ekki nóg... Og nú á ég nákvæmlega ekki neitt. (Nema kannski nokkra thundercats þætti og mp3 sem ég geymdi á hinum harðdisknum.) Jæja... þetta er a.m.k. frábær leið til að byrja upp á nýtt. Bestu Kveðjur, Svavar p.s. AAAAARRRRRRRGGGGGGHHHHHHH!!!!!!! [ 8 ] laugardagur, október 16, 2004
Dimmir dagar að baki...
Hmmm... Jæja... nú ætla ég að reyna að tækla hlutina á jákvæðu nótunum og taka aðeins til í mínum garði... Ég er búinn að vera alltof dán... Hvort það er of mikið vinnuálag eða bara almenn þreyta, þá þarf ég eitthvað aðeins að fara að líta í eigin barm... Mig langar að fara að hundskast til að búa til plötu. Það er kominn tími til. Sjitt já. Mig langar helst að hætta bara að vinna og fara á fullu í upptökur og plötusmíði, en ég er ekki alveg nógu brjálaður. Kannski ég ætti bara að leyfa mér að vera brjáluðum? Let the madness loose! Jæja, ég heyri í ykkur. Meira bloggað fljótlega. Þetta er allt of mikið bil. Bestu Kveðjur, Svavar [ 7 ] þriðjudagur, október 12, 2004
Strjálbloggað...
Ég biðst afsökunar á strjálum færslum þessa dagana. Hugarorka mín fer að mestu í áhyggjur og ströggl. Engu að síður verður maður að leyfa sér að hugsa aðeins og spekúlera, þó það fari að mestu í Viðhorf og Víkverja þessa dagana... Fólk hefur nöldrað yfir því að bloggið manns nýtist aðallega undir hljómsveitarplögg. Við þessu á ég eina og einungis eina skýringu. TÓNLISTIN ER ÞAÐ SEM LÍF MITT SNÝST UM! Ég elska að búa til og flytja tónlist og skemmta fólki og vekja eitthvað inni í því. Þess vegna snýst bloggið mitt um tónlistina mína, rétt eins og blogg þeirra sem hafa ekkert að gera í sínu lífi snýst um ekki neitt eða blogg fræðimanna snýr oft að fræðum. Þetta er einfaldlega það sem ég elska að gera og þess vegna langar mig að deila því með ykkur. En að léttara hjali. Dagbjört Snillingur er að fikta við lag sem ég samdi við Álfareiðina (Stóð ég úti í tunglsljósi) og við vorum eitthvað að skondrast í því áðan, settum smá Rhodes undir orgel og önnur sánd og þetta hljómar bara kúl. (drungaleg útgáfa af þessu fallega ljóði) Nú vantar eiginlega bara flottan perk undir og þá er þetta orðið bara fínasta lag. Lofar góðu og ef allt gengur upp verður þetta fyrsti "síngúllinn" af jólaplötu Hrauns! og Stefáns Halldórssonar, sem við ætlum að þessu sinni að taka upp örlítið fyrr en venjulega. GAAA verð að fara að drífa mig að klára Kríuna! Bestu Kveðjur, Svavar [ 5 ] þriðjudagur, október 05, 2004
Hressi gaurinn fer niður stigann...
Ég elska svona skilti. Svíar eru eitthvað svo Hressir á því...
Takk Stebbi... [ 6 ] sunnudagur, október 03, 2004
Spýta í lófana gussuvel...
Jæja krakkar, nú þarf minn aðeins að spýta í lófana til að koma út næstu Kríu... Fór á stofnfund Náttúruvaktarinnar og lenti í ansi skringilegri upplifun sem skýrði í raun fyrir mér af hverju vinstri menn hafa aldrei getað náð nokkrum árangri í stjórnmálum hér á landi. Annars var það alveg frábært að hún skyldi verða stofnuð sem félag (Ó, afsakið, samtök, það er mjög mikilvægt að hér sé rætt um samtök, en ekki félag.) Ég hlakka allavega til að fara norður í land og reyna að sparka aftur vitinu í hausinn á sveitungum mínum áður en ég verð líka "persona non grata" í Skagafirði. [ 0 ]
Hvað er þetta með sjálfstæðismenn og Hannes Hafstein?
Maður hlýtur að spyrja sig hvort það sé eitthvað gay í gangi með Sjálfstæðismenn og Hannes gamla Hafstein. Ég meina, þessir gaurar eru ekkert lítið að sperma yfir gaurnum... [ 0 ] |
Eva
Örn "Mugison"
Elias Tónlistarmönnum sem gefa tónlist
sína á netinu er velkomið að hafa samband
við Hr. Muzak og þá bæti ég þeim
á listann.
Laukurinn rúlar
Dr. Gunni
| |||