![]() |
Þankatankurinn
|
![]() |
||||
|
Svavar Knútur Kristinsson, Félagsauðströll, heimspekingur, umhverfis-verndarsinni og tónlistarmaður. NÝTT!!!
|
Nýjustu Demó: Ástarsaga úr fjöllunum (Sumarið 2005) Goodbye my lovely (19. júní 2005) Your love was death to me (Janúar 2005) Call off your Cavalry (September 2004) You should call a doctor (Maí 2004) Kysstu tímaglasið (endurbætt útgáfa 2004) Mother's day Jólaplata Hrauns 2003: Þrautgóðir á Hraunarstund Jólaplata Hrauns 2005: Höldum jól Jólaplata Hrauns 2006: Jólamolar |
þriðjudagur, nóvember 30, 2004
Búinn að Venta
Jæja... búinn að venta og kominn tími til að berjast á fætur aftur. Hmmm... Sótti um æfingarhúsnæði í Tónlistarþróunarmiðstöðinni, sjáum til hvort eitthvað kemur þar upp. Jólaplötufundur í kvöld. Vonandi verður það góður fundur. Kæti mín yfir ýmsum hlutum mun fara vaxandi nú þegar ég hef röflað pínu. Ég er hóstandi eins og aumingi og mér líður mjög illa, en ég veit að þetta verður allt í góðu lagi. Bestu Kveðjur, Svavar [ 0 ]
Urg...
Ath. Þeir sem ekki kunna að meta heiðarleg blogg um líðan einstaklingsins mega helst sleppa því að lesa þetta. Öll klöpp á bakið eru vinsamlegast afþökkuð... Ég þarf bara að venta pínu... Blast! Mér hefur sjaldan liðið eins mikið eins og drullu eins og þessa dagana í vinnunni... (Hér hefur verið eytt...)*Frúst Frúst Frúst Frúst Frúst* Sjálfsálit og sjálfstraust eru í sögulegri lægð og mér hefur aldrei liðið eins utangarðs... (Hér hefur einnig verið eytt...)*Frúst Frúst Frúst Frúst Frúst* Mér líður dálítið eins og ég sé í vitlausum fötum. Of stórum eða í skrýtnum litum... (Hér hefur aftur verið eytt...)*Frúst Frúst Frúst Frúst Frúst* Í guðanna bænum, ef einhver vinnufélagi minn les þetta, ekki fara að ræða þetta við mig. Kannski er þetta bara ég... Einhverjar skammdegisgeðsveiflur blandaðar við vonbrigði yfir dead end ástandi hljómsveitarmála þessa dagana... En hvað sem það er, þá hefur mér liðið eins og rjúkandi haug af kúadellu undanfarið... Fjandans ástand! MIG VANTAR ÆFINGARHÚSNÆÐI!!! Bestu Kveðjur, Svavar [ 0 ] föstudagur, nóvember 26, 2004
Batni batni...
Er að batna, en samt ekkert voðalega... Kominn í vinnuna og svitna köldum svita... En það er betra en að liggja í óráði með manninn hinum megin við vegginn leikandi sér með höggborinn... Ég er farinn að bera nett hatur í brjósti til fólksins sem flytur bráðum inn á aðra hæðina í Drápuhlíð 19... BRRRRRRRRRRRRRRRR... BRRRRRRRRRRRRRRRRRRR.... ... ....BRRRRRRRRRRRRRR... ... ... ... BRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRR... ... BRRR... BRRR... BRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRR... Þetta er óska bakgrunnsmúsíkin þegar maður er með 40 stiga hita... En nóg um það... á www.hraun.tk má nú finna skemmtilegan glaðning síðan síðasta laugardag. [ 0 ] miðvikudagur, nóvember 24, 2004
Rosalega lasinn
Argh... 40 stiga hiti og ógeðslega lasinn lasinn... Þarf batn... Vantar batn! :( [ 0 ] sunnudagur, nóvember 21, 2004
Ágætis fílíngur
Jæja... Sunnudagsvaktin á Mogganum alltaf hress... Gærkvöldið var gott. Frumsömdu lögin heppnuðust afar vel og ég held að flestir hafi verið nokkuð ánægðir með þau. Góðir gestir komu og fylgdust með, þar á meðal hún mamma, sem ég hef ekki séð á tónleikum lengi. Það var voða gaman að sjá hana. Ég vil þakka þeim sem komu og hlustuðu og bara segja að ég fíla ykkur í tætlur. Óli börnaði á Fender Rhodesinn og var æðislegur gestaleikari Hrauns! Welcome back any time. Bestu Kveðjur, Svabbi [ 0 ] laugardagur, nóvember 20, 2004
Hraun! á Rósenberg í kvöld...
Hraun er að fara að spila í kvöld á Café Rósenberg... kl. 23 hefjum við leikinn og gerum okkar besta til að færa þeim sem koma birtu og yl... Nokkur lög voru leikin í fyrsta skipti í gær og verða þau vonandi tekin aftur og nú jafnvel betur en í gær, ef það er mögulegt :D Sérstaklega var ég ánægður með útgáfu okkar af Álfareiðinni... Café Rósenberg er æðislegur staður til að spila á, þrátt fyrir stöku fullorðið fólk sem er of fullt-orðið og dansar á söngvarann og nótnastatívið hans og mækinn og gítarinn og veltir borðum og stólum um koll... Doddi, eigandi Café Rósenberg er líka öðlingur og á allt gott skilið... Sjáumst vonandi í kvöld. Þakka ykkur sem umbáruð þreytu mína og slappleika í gær. Bestu kveðjur, Svavar [ 0 ]
Nánar um 85 ballið...
Ahhh... Ég lenti í mómenti sem ég hef ekki lent í síðan 1997 á MS ballinu... Ég datt á rassinn á sviði... Fyrir framan 1200 manns... Það var eiginlega bara æðislegt! ég lá á sviðinu á Broadway og horfði upp... Allt í einu lenti ég í svona tímabólu þar sem ég heyrði bara öskrin í fólkinu og blastið í hljómsveitinni... þrumandi... Og ég horfði upp í ljósin og mér leið svo vel að mig langaði ekki til að standa upp aftur, svo ég fór bara að syngja liggjandi... og öskraði úr mér lungun um ást mína á þessari tónlist og þessu fólki, þessu æðislega fólki sem var þarna og var alveg sammála þó ég hefði misst reisn mína eins og sápu í sturtuklefanum á Litla-Hrauni... Þetta voru yndislegar tíu sekúndur, hljómsveitin hlæjandi eins og bavíanar en samt trukkandi rokkinu áfram. Ég sjálfur líka í bavíanagírnum hlæjandi að eigin bjánaskap... Ég elska þetta djobb! Ég elska þetta fólk! MS-ingar eru hetjurnar mínar fyrir að fagna þessu dásamlega tímabili í tónlistar- og menningarsögu mannkyns! ÁFRAM MS! Svabbi [ 0 ] föstudagur, nóvember 19, 2004
Surprise GIG!!!
Kæru vinir! Allt í einu vorum við Hraunarar beðnir um að spila á Café Rósenberg vegna forfalla annarrar hljómsveitar. Eins og við erum svo miklir öðlingar sögðum við bara jújú og því erum við að fara að spila um helgina á blessuðum Rósenberg... Fínt stöff, það verður gaman að prófa nýja kerfið... Hlakka til að sjá þá sem nenna að mæta. Bestu Kveðjur, Svavar p.s. Moonboots stálust til að koma saman og leika á '85 ballinu hjá MS... ÞAÐ VAR ÆÐISLEEEGGTT!!! [ 0 ] mánudagur, nóvember 15, 2004
Áhugavert spjall...
Kommúnistarnir á fréttastofu sjónvarpsins voru enn og aftur með undirróðursstarfsemi þar sem þeir deildu á rættmætt Íraksstríð með ótrúlega svívirðilegri og siðlausri fréttamennsku! Þeir létu manneskju sem hefur aktúal reynslu af ástandinu þarna í Írak tjá sig um það sem hún hafði séð! Þvílík svívirða! Og hvað hafði fólkið sem hún hitti sagt við hana? Þó Saddam hafi verið harðstjóri, hélt hann allavegana uppi lögum og reglu. Bandaríkjamenn slepptu öllum föngum út á götur af því að sumir þeirra voru pólítískir fangar. Nú ráfa brjálaðir glæpamenn um göturnar. Þegar Saddam var við völd höfðum við það ágætt, skólarnir voru opnir og göturnar hreinar og samfélagið gekk almennt upp. Þegar Saddam var við völd var illa séð að tala um pólítík, en nú megum við tala eins og við viljum en enginn hlustar. Það hefur engin uppbygging átt sér stað, aðeins niðurrif. Ég ætla ekki að segja að Saddam hafi verið betri kostur, en þegar menn "frelsa" land í nafni lýðræðis og réttlætis, er þá ekki svolítið smart að reyna að bjóða fólki upp á betri valkost en "ógeðslegasta harðstjóra heims?" Ef menn ætla að "frelsa" land, þá þurfa þeir að hafa almennilegt plan og vera tilbúnir að fara alla leið og klára málið! Ekki að gera það með einhverju hálfkáki. Svo eru Íslendingar að verða heimskari og heimskari... Útlendingaóþol færist í aukana. [ 0 ] laugardagur, nóvember 13, 2004
How delightfully fitting...
"Jæja..." hugsaði Svabbi... "Best að dusta rykið af íþróttatöskunni og skjótast í líkamsrækt..." Svabbi tekur töskuna upp og stórt ský af ryki þyrlast af henni... "Alveg er þetta sjúklega dæmigert... Hvern er ég að plata... mmm, súkkulaðirúsínur..." Bansettans... [ 0 ] fimmtudagur, nóvember 11, 2004
Hjálpi mér nú allir heilagir!
Ég hélt ég myndi aldrei segja það, en ég er búinn að finna íslenska hljómsveit sem ég gæti orðið nokkuð hrifinn af og jafnvel orðið svonefndur "FAN"... Hljómsveitin Byltan hefur undanfarna daga gutlað í hausnum á mér og ég verð að að segja að ég dáist að lagasmíðum Birgis Ísleifs Gunnarssonar, sem er að mínu mati hinn ágætasti snillingur. Ég fékk því hinn prýðilegasta síngúl að láni hjá drengnum og sit nú og hlusta á þessa góðu tónlist. Bestu Kveðjur, Svavar [ 0 ] miðvikudagur, nóvember 10, 2004
Nýr borgarstjóri Reykjavíkur...
Úr þessum breyska en frábæra náunga:
... yfir í þetta:
Fæst orð bera minnsta ábyrgð (*hóst* Aska -> Eldur *hóst*) en verði ykkur að góðu Reykvíkingar... Skyndilega virðast yfirsjónir Þórólfs ekki svo hræðilegar... [ 0 ] mánudagur, nóvember 08, 2004
sunnudagur, nóvember 07, 2004
Að ráðast gegn frelsi og lýðræði...
Ég hef einmitt verið að velta því fyrir mér... Margir af þessum snjöllu hægri körlum hér á Mogganum hafa verið að reyna að skýra fyrir mér hvernig Osama og hans kumpánar eru bara að ráðast á bandaríkin af því þeir þola ekki frelsi og lýðræði. Ef það er rétt finnst mér geðveikt fyndið að ráðast þá á Bandaríkin... Af hverju ekki Holland eða Kanada, þar sem hommar mega nú giftast. Ha? Af hverju réðust Al Quaeda ekki á eitthvað hús í Montreal eða Amsterdam, þar sem villutrúin veður uppi? Never mind... Annars er ég hress... Skaust aðeins í vinnuna að klára smá sjitt... Góður bara... Bestu Kveðjur, Svavar [ 0 ] föstudagur, nóvember 05, 2004
Þórólfur, Þórólfur, blablabla!
Vitiði, ég er búinn að fá yfir mig á þessu hámáttuga sjálfumglaða pakki sem þykist vera svo helvíti skúffað út í Þórólf Árnason. Nú gætu sumir hugsað: "AAAAH... Svabbi að fara að verja R-listann" En svo er ekki. Mér finnst R-listinn ekki lengur þess virði að kjósa og mun ég örugglega kjósa F-listann í næstu kosningum. Mér finnst Þórólfur hins vegar ágætis borgarstjóri, þó ég sé ekki alltaf sammála honum. Hann stendur sig vel og hefur mikinn og góðan þokka og er góður stjórnandi, hef ég heyrt. Nöldur og væl VG (Sem ég þó á það til að fylgja oft að máli) og fleiri kverúlanta yfir Þórólfi má í raun rekja til eins: Þetta lið hefur aldrei unnið úti á vinnumarkaðnum þar sem raunverulegar trúnaðar og tryggðarkröfur eru gerðar til þeirra. Þetta lið er háskólafólk sem húkir undir verndarvæng akademíu og opinberrar stjórnsýslu. ÉG hef unnið hjá nokkrum einkafyrirtækjum og alls staðar hef ég orðið vitni að því að menn þurfa að kyngja vissum hlutum vilji þeir halda starfi sínu. Millistjórnendur eru undir gríðarlegri pressu frá forstjórum og stjórnum fyrirtækja, en það eru einmitt forstjórar og Stjórnarformenn sem eru á endanum ábyrgir fyrir slæmri stefnu fyrirtækja. Að vera reiður út í Þórólf Árnason er bara kjánalegur holier than thou vinstrimannalúxus. Þetta er löngu liðið. Maðurinn var einfaldlega bara tannhjól í vél kapítalismans og þetta ætti í rauninni að gera okkur reið út í félögin sjálf, því þau eru síkópatarnir! Kíkiði á Corporation. Sú mynd mun skýra fyrir ykkur hlýðniaspekt stórfyrirtækjanna. Svo getið þið líka kíkt á rannsóknir Milgrams á Hlýðni, en engum dettur í hug að fordæma manninn sem gaf hinum manninum straum af því að einkennisklæddur maður sagði honum að gera það. ÉG segi bara, áfram Þórólfur! Þetta holier than thou krapp er alveg fáránlegt! Og hugsiði bara um þetta: Ef Björn Bjarnason segist vera sjokkeraður, þá hlýtur eitthvað að vera skringilegt. Þessi maður hefur ekkert á móti jarðsprengjum, teppasprengingum á afgönsk þorp eða kynþáttaprófílum, en ef borgarstjórinn hefur í sínu fyrra starfi þurft að kyngja siðferðiskennd sinni vegna skipana, þá fer allt í háaloft. Björn Bjarnason... fuss... Bestu Kveðjur, Svavar [ 0 ]
MEIN GOTT IN HIMMEL!!!
Við Stebbi vorum að leita að skemmtilegum jólalögum og fundum þetta... Charlie the Hamster Everyone... Og hér er smá tóndæmi... [ 0 ] miðvikudagur, nóvember 03, 2004
Ný hugmynd...
Kanarnir búnir að kjósa yfir sig fjögur ár í viðbót af hryðjuverkum. Íbúar 11 fylkja búnir að staðfesta eigin fordóma og skort á umburðarlyndi. Fallegt... Þess vegna hef ég nýja hugmynd... Hommar og Lesbíur ættu að stofna "kristilegan" trúarsöfnuð þar sem hjónaband væri skilgreint sem samband fólks af sama kyni, nema það héti ekki "Marriage" heldur "Garriage" (borið fram Garage...) Síðan skyldu þeir krefjast þess að Garriage yrði skilgreint í lögum sem algjörlega jafnhliða Marriage og banna streit fólki að vera með í Grjónabandi. Þetta er svo hálfvitalegt að mig langar til að kýla einhvern... Svo segja þeir, "Af hverju eruð þið að skipta ykkur af þessu? Hvað kemur þetta ykkur við?" Þetta kæmi okkur sosum ekkert við ef Ameríka væri ekki "leiðtogi hins frjálsa heims", en þegar leiðtogi er kosinn, þá velta auðvitað allir sem "njóta leiðtogahæfileika hans" fyrir sér kostum hans og göllum og hafa skoðanir. Maðurinn sem nú leiðir vestrænar þjóðir er hommahatari. Hann er fordómafullur og hann er hræsnari. Maðurinn sem leiðir Vestrænar þjóðir hefur fordóma gegn öðrum trúarbrögðum og vildi helst banna önnur trúarbrögð en kristni ef hann fengi að ráða. Og hann vinnur ötullega að því með lagasetningum, valdboðum og stríði. Þetta er ekki leiðtogi að mínu skapi... Bestu Kveðjur, Svavar [ 0 ] mánudagur, nóvember 01, 2004
Snilldar plata!
Nýja platan hans Mugison - Mugimama is this Monkeymusic? er ekkert nema snilld. Ég hlusta og hlusta og hlusta og grenja svo bara af minnimáttarkennd... Þú ert asni Mugi... að gera svona góða plötu... :) Þið skulið fara að kaupa þessa fokkíng plötu í 12 tónum. Hún bara rokkar! I wish... I wish... But that's all I can do... Bestu Kveðjur, Svavar [ 0 ]
Mein gott in himmel
AAAHHHH hvað þetta var æðisleg helgi... Hraun! hafa sjaldan verið betri, allt heppnaðist nokkuð vel og mikið mikið mikið stuð! :) Bæði melankólían og dansifíflagangurinn gekk eins og í sögu. AH... Svabbi er kátur... Nú þarf bara að koma blessaðri sveitinni almennilega fyrir í húsnæði og taka upp og svona. Bestu Kveðjur, Svavar [ 0 ] |
Eva
Örn "Mugison"
Elias Tónlistarmönnum sem gefa tónlist
sína á netinu er velkomið að hafa samband
við Hr. Muzak og þá bæti ég þeim
á listann.
Laukurinn rúlar
Dr. Gunni
| |||