![]() |
Þankatankurinn
|
![]() |
||||
|
Svavar Knútur Kristinsson, Félagsauðströll, heimspekingur, umhverfis-verndarsinni og tónlistarmaður. NÝTT!!!
|
Nýjustu Demó: Ástarsaga úr fjöllunum (Sumarið 2005) Goodbye my lovely (19. júní 2005) Your love was death to me (Janúar 2005) Call off your Cavalry (September 2004) You should call a doctor (Maí 2004) Kysstu tímaglasið (endurbætt útgáfa 2004) Mother's day Jólaplata Hrauns 2003: Þrautgóðir á Hraunarstund Jólaplata Hrauns 2005: Höldum jól Jólaplata Hrauns 2006: Jólamolar |
föstudagur, desember 31, 2004
Scrubs...
Er búinn að vera að horfa á fullt af Scrubs þáttum... Djöfull eru þetta góðir þættir... Maður lifandi!!! Þeir ná að vera sjúklega fyndnir en með suddagóðum pælingum inn á milli. "It's funny, but it makes you think..." ;D Bestu Kveðjur, Svabbi andvaka... [ 0 ] fimmtudagur, desember 30, 2004
Atvinnuauglýsingar:
Hey allir þið Íslendingar sem hafið ekkert að gera þessa dagana og hafið ekkert á móti því að gerast þrælar. Við auglýsum eftir 150 auðmjúkum og þrælslunduðum Íslendingum til eftirfarandi verka: Tækja- og byggingavinnu, Rafvirkjunar og ýmissra þjónustustarfa. Í boði eru lágmarkslaun og óstöðugt vinnuumhverfi þar sem öll loforð eru svikin upp í topp. Viðkomandi þurfa að vera tilbúnir til að vinna 18 tíma á dag, en fá borgað fyrir átta til tíu tíma. Þá þurfa þeir að vera tilbúnir að vinna í hvers kyns veðrum og brunagaddi uppi á heiði. Komdu og vertu hluti af dásamlegri svikamyllu Landsvirkjunar og Impregilo. Hjálpaðu okkur að byggja nýja framtíð á Íslandi byggða á stóriðju frekar en heilbrigðu hugmyndaflugi og atorku vel upplýstra og menntaðra einstaklinga. Jei! Impregilo Það er ekkert atvinnuleysi til að tala um á Íslandi og ekkert heldur á Austfjörðum. Þeir sem vilja vinna fá vinnu. Það sem dregur fólk í burtu frá Austfjörðum er ekki skortur á atvinnu, heldur skortur á tækifærum til menntunar og persónulegs vaxtar. Helvítis handstýringarsinnar... Auðvitað mun Impregilo ekki fá neinar umsóknir frá Íslendingum og þá fá þeir auðvitað að ráða 150 Kínverja til að starfa hér á forsendum kínverskrar vinnulöggjafar ("Þú skalt vinna fyrir góða vestræna fyrirtækið, því annars ferðu í fangelsi eða verður jafnvel bara drepin beint út fyrir ósvífni þína í garð flokksins.") Þá gengur sko verkið eins og smurt, ekki með einhverja ruddalega Portúgali sem eru að gera einhverjar fjandans kröfur um að frjósa ekki í hel og fá borgað fyrir vinnuna sína. Auðmjúkt vinnuafl takk fyrir. Þessi undanlátssemi Íslenskra stjórnvalda við Þrælahald Impregilo og co er af nákvæmlega sama meiði og virðingarleysi þeirra fyrir náttúrunni. Þetta virðingarleysi er s.s. hin hobbesíska "Ef þú getur ekki varið þig áttu ekki skilið virðingu mína eða tillitssemi," pæling. Þetta er lægsta stig siðferðisþroskans. Bestu Kveðjur, Svabbinn [ 0 ] miðvikudagur, desember 29, 2004
Viðbótarmyndir :)
Myndavél Helga var góð, en sími Stebba virkar líka vel... ![]() ![]() ![]() :D Bestu Kveðjur, Svavar [ 0 ]
Írónía...
Hér koma nokkrar myndir sem teknar voru á vettvangi glæpsins. Svona "for the record", þá er ég ekki í neinni angist yfir þessu... Ég er feginn að enginn slasaðist eða dó. Svona atburðir eru svo gersamlega hlægilegir þegar maður horfir hinum megin á hnöttinn og spekúlerar aðeins í samhengi hlutanna... Maður verður að sjá hlutina í perspektív... :) ![]() :D Hmmmm... ![]() NOOOOOOOOOOOOOO!!! ![]() Uhuhuhuuu... Bestu kveðjur, Svabbi vinur [ 0 ]
Áfall!!! Flycka er látin!!!
Var að koma úr dásamlegri kaffihúsaferð með gömlum vinum, sem endaði á því að þegar ég labbaði út sá ég bílinn minn, hana Flycku, 10 metra frá þeim stað sem ég lagði honum, við nánari athugun gjörsamlega í rúst. Ungt fólk á þriðjudagsfylleríi og dópgleði hafði víst keyrt á hann á ofsahraða og smallað gersamlega. Svo reyndi það að keyra í burtu og löggan náði þeim. Sem betur fer meiddi enginn sig, en það hefði getað farið verr. Bíllinn þeirra var mjög, mjög ljótur eftir atvikið. Lögreglumennirnir voru líka mjög faglegir og góðir. :) Ég held þeim hafi líka létt við það að ég var ekkert reiður, bara hissa... Ég veit ekki hvort ég er reiður, sjokkeraður eða bara feginn? En aðallega sé ég eftir þessum fína og gamla Saab 9000? Myndir koma fljótlega... Rest in Pieces Flycka mín... :( Besti Rótbíll ever... Bestu Kveðjur, Svavar [ 0 ] þriðjudagur, desember 28, 2004
Viðhorfspistlar...
Hæ Ég hef undanfarið skrifað dálítið af Viðhorfspistlum hér á Mogganum og fékk góðfúslegt leyfi yfirmanna minna til að birta þá hér á vefnum líka... :) Síðasti Pistill nefndist Framfarir og fjallaði um þrælahald Vesturlandabúa. Nú hefur nýjasta viðbótin verið staðfest. 54 Kínverjar koma hingað til lands til að vinna við Kárahnjúkavirkjun. Af hverju? Af því að það var ekki hægt að neyða Portúgalana til að vinna í 18 tíma á dag í kuldanum þarna upp frá... Snilld... En hér hafið þið pistilinn minn... Framfarir Ég held að ég muni seint kallast kommúnisti þótt ég skrifi vissulega undir sumar vinstri skoðanir. Ein af ástæðunum fyrir því að ég hef aldrei átt samleið með annars ágætu fólki eins og sjálfstæðismönnum er sú að sumir þeirra gerast svo málefnalegir að tala í sífellu um "vinstri-villu" í stað þess að rökræða hugmyndir á málefnalegum grundvelli. Þetta gefur mér það á tilfinninguna að viðkomandi menn beri enga virðingu fyrir viðmælanda sínum. Ég get því miður ekki spilað með slíku fólki í liði. Annað einkenni þessa annars ágæta hóps, sem ég hef aldrei getað skrifað undir, er hinn svokallaði "sigur kapítalismans á tuttugustu öldinni", sem þykir á einhvern hátt afsanna gildi allra vinstri skoðana allra tíma. Þegar málið er skoðað ofan í kjölinn kemur þó annað í ljós. Harðkjarnaskoðanir hægri manna hafa þurft að taka inn ansi mikið af vinstri gildum. Það er til dæmis almenn skoðun í flestum siðmenntuðum vestrænum samfélögum að ókeypis skólar og heilbrigðisþjónusta séu réttindi, nokkurs konar samfélagssáttmáli, miklu frekar en einhvers konar ölmusa til fátækra og aumra af því þeir eiga svo bágt. Segja má að í ljósi yfirvofandi heimsbyltingar kommúnismans hafi harðkjarnamennirnir þurft að brjóta odd af oflæti sínu og samþykkja hugmyndir eins og réttindi verkafólks og velferðarkerfi. Ef það er ekki á vissan hátt sigur félagshyggjunnar, þá veit ég ekki hvernig hægt er að túlka það. Ég myndi frekar kalla þetta sáttagjörð en hreinan og beinan sigur. Fyrir jólin heyrði ég fréttir af því að jólagjafirnar okkar, litríkar dúkkur og leikföng, væru að stórum hluta framleiddar af starfsfólki í þrælabúðum í Kína. Maður vissi þetta sosum, en hafði kannski í vissri neytendasamfélagsslepju lokað það úti til að virka betur. "Stundum ekur maður betur með smá móðu á hliðargluggunum," gæti maður hugsað. Þá sér maður engar truflanir sem gætu hægt á manni. Við Vesturlandabúar erum þrælahaldarar. Okkar háu lífsgæði byggjast á því að við látum fólk þræla fyrir okkur. Við gefum því rétt nóg fyrir sína vinnu svo það geti borðað og jafnvel ef það er heppið eignast örfáa larfa. Við borgum síður en svo sanngjarnt verð fyrir það sem við fáum. Eða kannski er þetta sanngjarnt verð, vandamálið er bara að skipting andvirðisins fyrir vöruna er afar ójöfn. Fyrirtækin græða á tá og fingri, en þrælarnir sem vinna innan þeirra fá síður en svo réttmæt laun fyrir sína vinnu. Og yfir þetta leggjum við blessun okkar þegar við kaupum Disney, Bratz og Barbie. Við erum þrælahaldarar, um það verður ekki efast. Við erum bara ekki með neina svipu. Aðrir menn sjá um það, og við borgum þeim rausnarlega fyrir að ganga svo frá að við sjáum sem minnst af þeirra verkum. Nú kynnu einhverjir sjálfumglaðir og drambsamir frjálshyggjumenn að rísa upp á afturklaufirnar og segja sem svo: "En án okkar hefði þetta fólk enga vinnu og lifði í sárri fátækt." Þetta sögðu menn líka um þrælana frá Afríku á sínum tíma. "Ef við værum ekki að gæta þeirra væru þeir bara uppi í trjám í Afríku að hoppa um naktir og óguðlegir, ómenntaðir og menningarsnauðir. Nú ganga þeir allavega um í fötum." Fjölmörg dæmi eru um það að fólk hefur verið mun betur statt áður en "iðnvæðingin" reið í hlað. Nærtækt er dæmi af ættbálki frumbyggja sem bjuggu í Amazonskóginum og höfðu það nokkuð gott. Þeir störfuðu um fjóra tíma á dag við að klæða sig og fæða og eyddu afgangi dagsins í rólegheitum, syngjandi, smíðandi handverksmuni og almennt lifandi lífinu. Einn daginn kom erlent matvælafyrirtæki með kvittun frá ríkisstjórninni þar sem stóð að matvælafyrirtækið væri nú eigendur landsins. Fyrir mikla góðmennsku hafði fyrirtækið þó samþykkt að taka alla meðlimi ættbálksins í vinnu á kornökrunum. Þeir fá nú lágmarkslaun fyrir 12-16 tíma vinnu á dag og eignast rétt nógan pening til að kaupa maískorn úr verksmiðjubúðinni ofan í fjölskylduna. Fólkið er í vistarbandi og nú þjáist mjög stór hluti þess af næringarskorti og hörgulsjúkdómum vegna fábreytts mataræðis, eitthvað sem var óþekkt fyrir tilkomu "framfaranna". Engu að síður er nú hægt að mæla velsæld þessa fólks, því nú fær það peninga að launum og samkvæmt stöðlum vestrænna hagfræðinga hefur ættbálkurinn það óendanlega mikið betur í dag en áður. Frá fjórum tímum á dag í ljúfu og gefandi lífi upp í 12-16 tíma á dag í þrælabúðum og næringarskort. Þetta eru framfarir. "Sovétríkin liðuðust sundur vegna þess að fólkið sá að vestan múranna hafði almenningur það betra," segja frjálshyggjumenn og ég er alveg sammála. Sovétríkin liðuðust sundur vegna þess að fólkið varð vitni að háum lífsgæðum. Fólk sem var vant að borga réttlátt verð fyrir sínar vörur sá vestan múranna samfélag þar sem allir höfðu það betra, allir voru kátir og áttu bíl og lúxus. Hvers vegna? Af því að á Vesturlöndum á hver maður þrjá þræla sem hann þarf aldrei að horfast í augu við. Á Vesturlöndum lifir fólk því kóngalífi sem fylgir því að vísitölufjölskyldan á tólf auðmjúka þræla sem hafa það endalaust betur nú þegar þeir geta þrælað 14 tíma á dag fyrir sultarlaun. Ég er ekki kommúnisti, en ég held að það sé kominn tími til að við horfumst í augu við nokkur ljót sannleikskorn sem stinga augu okkar og gerumst upplýstir neytendur, þó það kosti meira. Eftir Svavar Knút Kristinsson svavar@mbl.is [ 0 ]
Nýtt lag að koma...
Hæ allir... Það er alveg að koma nýtt lag hér á siðuna. Það heitir Call off your cavalry. ú-ú... þið sem þekkið síðuna vel, vitið kannski hvar það er. Það er nefnilega komið upp, bara ekki orðið officialt... Framundan eru áramót (planið er að slappa af). Síðan er framundan Hraun! gigg 14. og 15. janúar á Rósenberg. Og svo auðvitað AFMÆLISTÓNLEIKAR Svabbans :) sem verða í þetta sinn haldnir 21. janúar, föstudagskvöld. Vonandi á Rósenberg. Þar koma fram ólíkar sveitir með ólíkt efni, ekki bara Hraun. Ég er að vona að Ampop láti sjá sig og einnig einhverjar fleiri, kannski Tony Blair og eitthvað. (Hafið samband ef ykkur langar að spila) Bestu kveðjur, Svabbi [ 0 ] mánudagur, desember 27, 2004
Call off your cavalry
All of my waking dreams They fall to your clever schemes Your lips took me by surprise My city is burned to the ground My voice will not make a sound You've torn me to pieces So call off your cavalry Your arrows have bled me dry My white flag is raised up high you've taken my castle The pain in my heart so sweet My mean side on swift retreat Nothing is left but love So call off your cavalry Fyrstu drög... Bestu Kveðjur, Svavar [ 0 ] sunnudagur, desember 26, 2004
Gleðileg Jól elskurnar mínar
![]() Gleðileg jól kæru vinir... Jólaplatan kom út á Þorláksmessu og var dreift í um 50 eintökum + u.þ.b. 20 sem voru sótt heim. Enn eru fimm eintök hér heima sem bíða eftir að verða send eða sótt... Eitthvað var samt brennslan á plötunni að grínast í okkur svo lag númer sex, Álfareiðin, á það til að vera pínu skrýtin en hún virkar á öllum tölvum og helstu geislaspilurum... :) Æi, hafiði ekki áhyggjur af því... Hér höfum við Álfareiðina til vonar og vara. Gjöriði svo vel... Veriði svo í bandi elskurnar... Bestu kveðjur, Svabbi [ 0 ] þriðjudagur, desember 21, 2004
Jólaglaðningur frá Hraun! :)
Smá jólaglaðningur af jólaplötunni 2004 sem er að fara að koma út... :D Hraun: Adam átti syni sjö... Bestu kveðjur, Svabbi [ 0 ] föstudagur, desember 17, 2004
Jólaplötufréttir
Komið sæl vinir. Jólaplötuupptökur ganga vel, nú erum við búnir að taka upp um 9 grunna og eftir er að setja tvö eða þrjú lög niður. Þessi jólaplata verður ekki alveg eins og hin, svo mikið er víst. Ég vona að hún muni sánda betur og verða almennt vandaðri. Á plötunni verður eitt frumsamið lag og ein ný útgáfa af þekktu íslensku kvæði. Upptökur munu væntanlega klárast fyrir mánudagskvöld. Allir vinir sem ætla að vera með í plötunni (t.d. að syngja í kórnum eða e-ð) eru velkomnir á mánudaginn til að þjösnast. Hringiði bara á undan ykkur. Þeir sem eru ekki í Hraunhernum eða á Jólakortalistanum geta vonandi nálgast Plötuna hjá okkur eptir jól fyrir takmarkaðan aur eða jafnvel á netinu... :D Bestu Kveðjur, Svabbi [ 0 ] fimmtudagur, desember 16, 2004
Mig langar að kynna ykkur fyrir...
Uppáhalds teiknimyndunum mínum... Making Fiends Christmas Bonus :D Horfið fyrst á Nice og síðan á Naughty. Bestu Kveðjur, Svabbi [ 0 ]
Fischer... og útlendingamál...
Maður veit ekki alveg hvað maður á að halda... Íslensk stjórnvöld að gera eitthvað sem virðist vera óeigingjarnt og jákvætt? Fyrir utan Feðraorlofið, þá veit ég svo sannarlega ekki hvenær ég sá síðast eitthvað svoleiðis á ferðinni... En svo fer maður að pæla... Íslendingar eru með framsalssamning við BNA, svo Bush þarf bara að smella fingri og þá húrrum við gæjanum með næstu Flugleiðavél vestur. En að öðru máli... og skemmtilegra... Saltpéturssýra. Ég hélt alltaf þegar ég var lítill að Saltpéturssýra væri nefnd eftir uppfinningamanninum Salt-Pétri, sem hefði verið nefndur Salt-Pétur eins og Skalla-Grímur eða Svarti-Pétur. Ímyndið ykkur furðu mína þegar ég komst að hinu sanna í málinu... Svona svolítið eins og þegar Phoebe sagði í Friends (og n.b. ég horfi á 13. hvern friends þátt) "Central Perk... I GET IT!!!" Hafið þið lent í svona pælingum á fullorðinsárum? Bestu Kveðjur, Svavar Update kl. 13.24 Sverrir bendir á þessa frétt hér... Guði sé lof... ég þarf ekki að hafa áhyggjur af því að stjórnvöld séu að mennskast upp. "Þetta er bara varnagli sem verður notaður í undantekningartilfellum," sagði Björn Bjarnason þegar þessi umdeildu útlendingalög voru samþykkt. Já, svona terroristar sem eru í námi og kynnast íslenskum stelpum og langar að vera með þeim eru hræðilegir og vissulega þarf að reka þá úr landi. [ 0 ] miðvikudagur, desember 15, 2004
Jólaplötuupptökur hafnar...
Húrra! Hljómsveitin Hraun hefur hafið upptökur á Jólaplötunni 2004. Þetta verður hektískt, en ég vona að það gangi upp... Hittumst í gær og tókum upp 3,5 grunna, svo þarf ég að taka þetta með heim og setja ofan á dótið raddir og aukahljóðfæri. Við spilum í Þrítugsafmæli Hergilsins á Þjóðleikhússkjallaranum þ. 18. des. og ég býst við að flestum sem vettlingi geta valdið sé boðið þangað upp úr miðnætti. Trallalallallæ... ræræræræ... Annars er ég bara kátur... ætla að reyna að klára snemma í dag og komast í ræktina... Bestu Kveðjur, Svavar [ 0 ] sunnudagur, desember 12, 2004
Hvet ykkur til að mæta á Grandrokk í kvöld
Ég vil bara hvetja ykkur til að mæta á grandrokk í kvöld til að hjálpa til við að kveðja sinnuleysið. Þar verða Súkkat og Þórir og góður fílíngur Bara 500 kall inn og menn styrkja náttúruvaktina. Bestu Kveðjur, Svavar [ 0 ]
Kveðjum sinnuleysið á Grandrokk í kvöld kl 21.
Illvirkjun blæs til tónleika á Grandrokk á sunnudagskvöldið 12. desember klukkan. 21. Hér er um að ræða fyrstu tónleikana í tónleikaröð Náttúruvaktarinnar " Kveðjum Sinnuleysið". Fram koma Trúbadorinn Þórir og Súkkat. Þórir hefur getið sér gott orð fyrir frábæra plötu sína "I believe in this" og Súkkat eru löngu orðnir landsþekktir fyrir skemmtilegar lagasmíðar og texta. Aðgangseyrir er einungis 500 krónur. Liðsmenn Náttúruvaktarinnar segja kominn tíma til að vakna af dvala sinnuleysis og fara að hugsa meðvitað og gagnrýnið um þá leið sem Ísland stefnir í umhverfis- og efnahagsmálum. Kominn sé tími til að átta sig á þeim takmörkuðu auðlindum sem verið er að henda út í hafsauga. [ 0 ] föstudagur, desember 10, 2004
Jólagleði Hrauns í kvöld
Hraun mun halda jólagleði á Café Rósenberg í kvöld kl. 22.30. Ég veit að það stóð að tónleikarnir hæfust 23.00 einhvers staðar, en piparkökurnar og glöggin hefjast fyrr. S.s.: Leikin verða jólalögin af síðustu jólaplötu Hrauns! auk nokkurra vel valinna af nýju plötunni. Allir í jólaskapi veeeei! o<:{> weee... Svo verður að vanda dottið ofan í einhverja sveiflu. Bestu Kveðjur, Svabbi [ 0 ] þriðjudagur, desember 07, 2004
Fyrirbyggjanlegir glæpir og dauðsföll
Ég átti í ágætis samræðum við mann frænku minnar, sem er lögreglumaður. Hann var að deila með mér reynslu sinni af umferðarlöggæslu og sagði að menn yrðu oft alveg bálreiðir út í hann fyrir að stoppa sig fyrir hraðakstur, að fara yfir á rauðu eða önnur öryggisatriði í umferðinni. Sagði hann þessa menn gjarnan hreyta í hann ókvæðisorðum og segja að hann ætti frekar að vera að reyna að stoppa handrukkara og ofbeldismenn. Mér varð að spurn: Eru það eiturlyfjasalar, handrukkarar og aðrir ofbeldismenn sem drepa 25-30 manns á ári hér á landi? Nei. Það eru ökumenn bifreiða sem fara ekki nógu varlega. Þegar fíkill óverdósar eða er laminn í mauk yfir dópskuldum þá er einhver smáhluti ábyrgðarinnar sem skrifast á hann sjálfan. Fólk hlýtur að bera einhverja ábyrgð á eigin lífi og limum. Fórnarlömb hraðakstursmanna og yfir á rauðu dólga bera litla ábyrgð á eigin áverkum eða dauða. Ofan á allt saman má bæta að handrukkarar og eiturlyfjasalar fremja sjaldnast glæpi sína inni á gatnakerfinu þar sem auðvelt er að fylgjast með þeim og stöðva þá. Vettvangur slysa, óvarkárni og hraðaksturs er fyrirfram gefinn. Hann er gatnakerfið. Því er mun minna mál að koma í veg fyrir óþarfa meiðsl og örkuml þar en í nokkrum öðrum geira. Mér finnst að fara ætti með bíla eins og byssur og taka ökuleyfi af fólki, fyrir lífstíð, sem gerir sig sekt um óvarkárni með þessi hættulegu vopn. Bestu Kveðjur, Svavar [ 0 ] miðvikudagur, desember 01, 2004
Hraun! á Hressó!
Hæ allir saman. Næsta Laugardag verða Hraun! á Hressó. Húrra fyrir því. Við ætlum að hefja leikinn kl. 22 með frumsamda sjittinu og svo færa okkur út í rugl. Bestu kveðjur, Svavar [ 0 ] |
Eva
Örn "Mugison"
Elias Tónlistarmönnum sem gefa tónlist
sína á netinu er velkomið að hafa samband
við Hr. Muzak og þá bæti ég þeim
á listann.
Laukurinn rúlar
Dr. Gunni
| |||