![]() |
Þankatankurinn
|
![]() |
||||
|
Svavar Knútur Kristinsson, Félagsauðströll, heimspekingur, umhverfis-verndarsinni og tónlistarmaður. NÝTT!!!
|
Nýjustu Demó: Ástarsaga úr fjöllunum (Sumarið 2005) Goodbye my lovely (19. júní 2005) Your love was death to me (Janúar 2005) Call off your Cavalry (September 2004) You should call a doctor (Maí 2004) Kysstu tímaglasið (endurbætt útgáfa 2004) Mother's day Jólaplata Hrauns 2003: Þrautgóðir á Hraunarstund Jólaplata Hrauns 2005: Höldum jól Jólaplata Hrauns 2006: Jólamolar |
mánudagur, janúar 31, 2005
Að halda sínu striki...
Ég held, að ef maður er listamaður og hefur einhverja hugsjón, þá verði maður einfaldlega að fylgja henni í gegnum þykkt og þunnt. Í mínu tilfelli hefur viðskiptavinurinn ekki alltaf rétt fyrir sér, heldur listamaðurinn. Það verður þá bara að fara svo að maður verður misskilinn listamaður, en þannig hafa nú ófáir farið. Ég held að plötuútgáfa og stöðug fjölgun heimasmíðaðra laga eigi eftir að breyta þessari leiðindaímynd að við séum aðallega einhver skemmtihljómsveit. Ekki það að það sé eitthvað leiðinlegt að skemmta fólki... Það er aktúallí skemmtilegt, sérstaklega ef maður er sjálfur að skemmta sér vel við það. Þannig að við höldum bara okkar striki og berjumst í gegnum fordómana :D Í öðrum fréttum: Hraun! léku á algerlega óauglýstum tónleikum (og óviðbúnum) á Rósenberg á föstudagskvöldið. Þar voru kontrabassinn, tveir kassagítarar, snerill og hi-hat í aðalhlutverkum og þetta var mögnuð stemning. Frumsamda efnið gekk upp sem aldrei fyrr og djammið líka. Jæja... Best að koma sér að verki. Bestu Kveðjur, Svabbi [ 0 ] fimmtudagur, janúar 27, 2005
Eins og þið kannski sjáið...
...á síðustu færslu, þá er ég ansi pirraður í dag. Margt kemur þar saman og mér líður vonandi betur á morgun. En stundum langar mig bara til að kýla einhvern þegar fólk einblínir svona á partý elementið hjá Hraun! Auðvitað erum við partýhljómsveit líka, og bara helvíti góðir sem slíkir. En partý-dæmið á að vera eins og ís á eftir góðri máltíð. Ég veit að það að vera brosmildur og hress gaur minnkar Indí-kredið mitt þokkalega. Það geta ekki allir glápt krúttaralega ofan í strigaskóna sína og snökt eins og múmínálfar og það geta ekki allir verið í lakkrísbindum og voðalega mjóir og töff. Sumir verða bara að fá að vera ljúfir og jákvæðir ástarbirnir sem vilja bara gefa heiminum fallega tónlist. Og þegar ljúfir og jákvæðir ástarbirnir fá það sífellt í hausinn að þeir ættu nú að spila oftar á "böllum" og "böllin" þeirra séu svo góð og þeir séu "Svo mikil gleðisveit", þá breytast þeir í reiða skógarbirni. Auðvitað þykir mér gaman að spila gleðimúsík og ég veit að við gerum það vel, það þarf ekki einu sinni að segja okkur það. En það er bara bónus, eftirréttur á eftir tónleikum. Mig langar ekki að vera einhver gleðipoppari. Það er ekki mitt hlutskipti í lífinu. Jæja... loksins búinn að venta á mannamáli. Mig langar að skora gigg þar sem við getum gefið fólki eitthvað, ekki einhver endalaus hressileikagigg. Við eigum fokkíng rúman klukkutíma af góðu efni sem við síðan fylgjum eftir með gleði ef við höfum tíma, ekki öfugt. [ 0 ]
YARGH!
Pirraður og frústreraður... Margt margt að... En fyrst og fremst eftirfarandi: Fólk virðist ekki enn átta sig á því að Hraun! er hljómsveit sem hefur listrænan metnað en er ekki bara eitthvað djók- og gleðiband. Bara þó við getum skemmt fólki eftir að okkar eigin prógrammi er lokið þýðir ekki að við séum eitthvað "Buff" band, "voða, voða ha-ha". No offense Buff... Það á bara að vera hægt að koma því inn í kvarnirnar á fólki að hljómsveit getur spilað listræna músík fyrir hlé og brugðið sér síðan í partýbuxurnar og partýað. Ég er kominn með svo mikið ógeð á því að eiga bara að vera einhver trúður að mig langar til að æla. Bestu Kveðjur, Svabbi [ 0 ] þriðjudagur, janúar 25, 2005
Viðhorfið í dag...
Hér kemur viðhorfið mitt sem birtist í Mogganum í dag. Nýtt Ísland Nýlega fagnaði ég tuttugasta og níunda afmælisdeginum og gantaðist með það við vini mína að nú væri ég kominn á "útsölualdur". Því fylgdi sú hnyttna skýring (að mínu mati) að þetta væri í síðasta skipti sem fólk heyrði hvað ég væri gamall og segði: "Hva - bara næstum tvítugur?" rétt eins og þegar kaupmaðurinn lætur vöruna kosta 29.900 og einhvers staðar í undirmeðvitundinni halda kúnnarnir að hún kosti nálægt 20.000 kr. Á þessum tímamótum rifjast oft upp skemmtilegar minningar og þar með einn af mínum uppáhaldsköflum úr íslenskri bók, þegar prakkararnir Jón Oddur og Jón Bjarni gæddu sér á jarðarberjatertunni sem móðir þeirra hafði bakað. Þeim fannst berin svo góð að þeir átu bara eitt í einu, til þess að mamma myndi nú ekki taka eftir því. Þeir hugsuðu sem svo að það væri allt í lagi að taka eitt ber, og síðan annað. Ekki þarf að fjölyrða um það að kakan var orðin býsna berangursleg þegar þeir bræður höfðu satt hungur sitt og jarðarberin fínu voru öll komin góða leið niður meltingarveginn. Þetta er einmitt ein af þeim leiðum sem hvað tíðast eru farnar af þeim sem þurfa að valda skaða á umhverfinu. Þeir valda skaða á einum stað í einu, aftur og aftur, þangað til ekkert er eftir. Þetta sést fullvel á nýútkomnu korti sem tíu íslensk náttúruverndarsamtök hafa gefið út undir nafninu "Ísland örum skorið". Þrátt fyrir að vera umhverfisverndarsinni (og nokkuð alræmdur sem slíkur) hafði mig aldrei grunað að málið liti svona út. Það verður ósköp lítið eftir af fallega hálendinu okkar þegar hinir framkvæmdaglöðu hafa náð, með því að narta í eina á í einu, markmiði sínu um uppbyggingu stóriðjunnar hér á landi. Stóriðju, sem í besta falli er umdeilanlegt hvort veldur samfélagi okkar meiri hag eða skaða. Ásgeir Jónsson, lektor í hagfræði við HÍ, sagði í viðtali við Morgunblaðið nú á sunnudaginn, 23. janúar, að þjóðhagsleg áhrif stóriðju væru stórlega ofmetin. Engin nauðsyn væri á uppbyggingu hennar, þar sem hagvöxtur hér á landi væri í raun óháður henni. Ísland væri ekki í sömu stöðu og þróunarlönd, sem þyrftu að reiða sig á eina eða tvær framleiðslugreinar til að leiða hagkerfið áfram. Ekki þyrfti að byggja álver til að tryggja hagvöxtinn eða standa straum af velferðarkerfinu eins og svo oft væri viðhaft. Það væru íslenskir atvinnurekendur fullfærir um, en hæfni þeirra til þess hefði berlega komið í ljós á undanförnum árum. Ég fagna því að nú er Landsvirkjun ekki lengur í einokunarstöðu til að gefa út litprentaða bæklinga um málstað sinn. Hingað til hefur þetta annars ágæta fyrirtæki nefnilega unnið nokkuð hörðum höndum að því fegra eyðileggingu hálendisins fyrir almenningi og réttlæta það sem mér þykir vægast sagt kæruleysisleg nýting á viðkvæmri auðlind. Það hefur líka loðað við undanfarið að nokkuð langt sé gengið í að ófrægja þá fræðimenn sem hafa talað gegn stóriðjunni. Það er vonandi að hinum ágæta lektor í hagfræði verði leyft að njóta sannmælis. Eins og ég hef áður sagt er besta leiðin til að byggja upp þetta land að hafa vel og fjölbreytilega menntað vinnuafl með góðan aðgang að stuðningi og fjármagni til að koma hugmyndum sínum í verk. Samfélagið þrífst nefnilega best þegar fólk fær að prófa sig áfram og leita hamingjunnar á eigin forsendum. Í því ljósi finnst mér t.d. furðulegt að framsóknarmenn í Skagafirði skuli vilja virkja jökulárnar þegar þeir hafa í héraðinu mikinn fjölda af kláru og vel menntuðu fólki sem er að vinna við uppbyggingu fjölbreytts atvinnulífs þar og atvinnuleysi er í raun í lágmarki. Fólksflóttinn frá landsbyggðinni er tímabundinn og óhjákvæmilegur fylgifiskur borgarvæðingar Íslands og þróunin mun væntanlega snúast við þegar menn átta sig á því að það er betra að búa vel að einstaklingum og styðja þá í þeirra verkefnum en að reyna að troða þeim ofan í fyrirfram ákveðna kassa með X mörgum störfum. Stjórnmálamennirnir okkar tala oft hátíðlega um það að við verðum að "nýta þær auðlindir sem við höfum á þessu litla landi úti í miðju Atlantshafi". Þessu er ég sammála, en það er munur á því að "nýta" og "nota". Nýtinn maður myndi leita leiða til að fá sem mest út úr hverri orkueiningu og gæta þess að fara í hófi með þennan takmarkaða forða, til að sóa honum ekki til langframa, en sá sem ekki nýtur þessarar guðsgjafar myndi leita að skjótfengnasta gróðanum til skamms tíma. Hann "notar" svo sannarlega auðlindirnar, en hann nýtir þær ekki vel. Sá maður bruðlar og sukkar, sem er einmitt það sem einkennir stóriðjustefnuna og það er kominn tími til að fólk átti sig á því. Raforka er best nýtt sem stoðafl fyrir háþróað hagkerfi en ekki sem hráefni fyrir framleiðsluhagkerfi. Mér finnst ég sjá einhvern lax- og minkaeldisglampi í augum manna, einhverja von um skjótfenginn gróða, dálítið eins og glampann sem var í augunum á mönnum þegar verðbréfa- og upplýsingatæknibólan var í þann mund að springa framan í þá hér um árið. Þekkingariðnaður og hátækni eru ekki eins og eitthvert fljót sem maður getur stíflað og horft á "gróðann sprautast út". Þekkingariðnaður og verðbréfamarkaður, rétt eins og raforkan, eru best nýtt þegar þau eru stoðeiningar í flóknu hagkerfi, en ekki sem hráefni í framleiðsluhagkerfi. Þekkingariðnaður þrífst í frelsi, rétt eins og hagvöxturinn. Þess vegna ættu menn að sjá hag sinn í því að stíga á bremsuna, slaka á stóriðjustefnunni og sjá hvernig þjóðinni reiðir af ef þeir einbeita sér að því að byggja vel undir innviði atvinnulífsins í stað þess að handstýra því. Þá gætum við, börnin okkar og börnin þeirra lifað í landi velmegunar og heilbrigðrar náttúru. Eftir Svavar Knút Kristinsson svavar@mbl.is [ 0 ] föstudagur, janúar 21, 2005
Ég er 29 ára í daaaag...
Jei! Pálína og Dagbjört Lilja gáfu mér æðislegar gammósíur til að mér yrði ekki kalt á leiðinni í vinnuna. Ég á bestu konu í heeimiii! :D (Svo fékk ég líka hlýja húfu, Glám og Skrám, tribute disk til Jacques Brel og Miða í bláa lónið .... AAAAHHHH.... :D) En hey! Afmælistónleikapartý í kvöld á Rósenberg, allir velkomnir! Gjafir óþarfar. Miklu betra að gefa einhverjum sem þarf eitthvað. Ég hef núna allt sem ég þarf. Þökk sé nýfundnu föðurlandi og húfu. Nýtt lag verður flutt, sem ég frumflutti í gær á Rósenberg á óvæntu tónleikunum... Nokkurs konar endurgerð okkar í Hraun! á Oh my darling Clementine. ("I was so gaay, and I couldn't tell aaaanyone..." Tee-hee...) Þetta lag kemur kannski á demólistann fljótlega (en fyrst fer það á "Leyyyniiistaaaaðinnn!!!") Bestu Kveðjur, Svabbi [ 0 ] fimmtudagur, janúar 20, 2005
Surprise tónleikar...
Hæhæ, heyriði, það var að koma svolítið upp á... Ampop forfallast á Café Rósenberg í kvöld og Svabbinn var beðinn um að spila einn í kvöld. Ég byrja s.s. að spila í kvöld kl. 22 með Kassagítarinn einn að vopni og svo aftur á morgun með Hraun og öllum og aftur á hinn... :D Bestu Kveðjur, Svabbi [ 0 ]
Tíundu afmælistónleikarnir á morgun...
Hæ hó! Nú er ég að verða 29 ára á morgun og samkvæmt hefðinni, sem hefur staðið síðan ég varð tvítugur held ég tónleika á afmælinu. Margt hefur gerst síðan... maður lifandi... En hugsum um núið, annars dey ég fljótar en ella. Anyhoo... Tónleikapartýið verður haldið á Café Rósenberg annað kvöld og allir (ALLIR) eru velkomnir. Við hefjum gleðina svona um níu leytið og hún stendur fram eftir nóttu. Húrra! Allir eru velkomnir að taka í hljóðfæri, en einhverju magni af þeim verður rúllað inn á Rósenberg fólki til ánægju og kæti. Hlakka til að sjá ykkur þar, fallega fólk. Bestu Kveðjur, Svabbinn p.s. Mig langar líka að þakka íslenskum Feministum fyrir að stuðla að fyrstu bókabrennunni á Íslandi í ég veit ekki hvað langan tíma. Afneitun og förgun menningararfs er stórt skref í átt að jafnréttinu. [ 0 ] fimmtudagur, janúar 13, 2005
Heimsku bjánar beggja stjórnmálaskoðana
Mér finnst fátt betra merki um bjánaskap en svona Che- plaköt, Che- bolir og Che dýrkun hvers konar. Yfirleitt er fólk sem gengst upp í þessari gömlu tísku einhvern veginn svo miklir gervihippar og sófakommar... Svo koma Ungir frjálshyggjumenn, (les. Pabbastrákar (og stöku stelpublöðrur) sem skilja ekki að fólk í samfélagi hafi ólíkar skoðanir eða að það hafi komið sér saman um grundvallarvelferðarkerfi sem samtryggingu, ríkið sé þannig ekki neinn árásaraðili, heldur besti fáanlegi samnefnari fólksins) og búa til vefinn með sannleikanum um Che, þar sem þeir "expósa" goðsögnina sem "hinn sanna morðinga og illmenni" sem hann er. Guði sé lof að ég hef ekki greiðan aðgang að skotvopnum ellegar eiturefnum og þess háttar græjum þegar mig grípur sú tilfinning. Ellegar myndi fækka dramatískt í báðum hópum veruleikafirrtra vitleysinga. Ó? Var Che morðingi? Drap hann fólk? Nú segirðu mér fréttir lagsmaður! Ég hélt að bylting þýddi að kóka kóla trukkurinn keyrði um sveitir landsins og fallegar stelpur í kanínubúningum útbýttu sleikjó! Ætla menn ekki að fatta þann tíma og veruleika sem þessir menn voru að berjast innan? Raunveruleikann sem þeir þurftu að horfast í augu við? Halda kannski ungir frjálshyggjumenn að kommúnistar og aðrar andspyrnuhreyfingar hafi sprottið upp í öllum þessum S-Ameríkulöndum vegna þess að þeir voru ekki alveg sáttir við hlaupkallana og rjómaterturnar sem ríkisstjórnin gaf þeim og söng þá í svefn á kvöldin með "Best of Astrud Gilberto"? Halda UF að Che og vinir hans hafi verið að berjast við kærleiksbirnina með einhvers konar tilfinningageislum? Eða kannski að borgarastríðin í S-Ameríku hafi verið keppnir í Super Mario 3? Er það þess vegna sem Che er allt í einu orðinn svona svakalegur morðingi og ómenni? Af því að á meðan allir hinir góðu hægri mennirnir voru bara að reyna að vera vinir og vildu bara að allir héldust í hendur og horfðu á Teletubbies saman uppi í mjúku hjartalaga rúmi, hljóp hann um með vélbyssur og Bowie-hnífa og drap mann og annan, jafnvel stundum ÁN RÉTTARHALDA. "Vá Yogi, þetta er alveg svakalegt! Þessi Che er svo sannarlega alveg bandbrjálaður!" "Já Búbú, við skulum ekki leyfa honum að koma að ræna með okkur lautarferðartöskum!" Þegar Che Guevara og vinir hans rúntuðu um frumskóga og torfærur Rómönsku Ameríku áttu þeir í hatrömmu stríði við menn sem svifust einskis, menn sem höfðu pynt og myrt þúsundir manna, látið nauðga þúsundum kvenna og látið fólk hverfa sem dögg fyrir sólu. Menn fara ekki í byltingu vegna þess að einhver svindlaði í krikkett! Helvítis ofverndaða neysluþjóðfélagspakk... Bæði vinstri og hægrimenn! Og já... ég er morgunfúll... So there! Bestu Kveðjur, Svabbi [ 0 ] laugardagur, janúar 08, 2005
Lille Gubbe...
Nóni bróðir var eldsnöggur að redda okkur nýjum Saab í stað Flycku sálugu... SAAB 9000i 1988 árgerð :) Við köllum hann Lille Gubbe því hann er blár. Gubbe er víst borið fram einhvern veginn svona Gu'bbe :) Lille Gubbe þýðir Litli kall (strákur) á sænsku :) Yihaaa! Lille Gubbe rúlar :) Myndir koma fljótlega. Bestu Kveðjur, Svabbi [ 0 ] föstudagur, janúar 07, 2005
Nýja lagið...
Call off your Cavalry Þetta er Demó af lagi sem fjallar um 18 hjóla trukk ástarinnar og tilvistina í hjólförum hans. :D Ég leyfði helstu mistökum í hljóðfæraleik og söng að hanga inni, enda nennti ég ekki að fara út í einhverjar feitar endurtekningar og leiðindi. Ég vona að þið fílið þetta :) Allavegana er ég mjög ánægður með þetta lag og þori loksins að leyfa ykkur að heyra það... Maður er alltaf dálítið feiminn með þessa músík sína. *Allt birt með fyrirvara um framtíðarbreytingar... eða ekki...* Bestu Kveðjur, Svavar Æ já, textinn... Call off your cavalry All of my waking dreams They fall to your clever schemes Your lips took me by surprise My city is burned to the ground My voice will not make a sound You've torn me to pieces So call off your cavalry Your arrows have bled me dry My white flag is raised up high you've taken my castle The pain in my heart so sweet My mean side on swift retreat Nothing is left but love So call off your cavalry [ 0 ] þriðjudagur, janúar 04, 2005
Fyrir ykkur sem eru ekki enn búin að fatta:
907 2020 - fyrir aðstoð Rauða Krossins í SA-Asíu. Merkilegt að Síminn er með betri aðgang að þessu númeri en RKÍ. [ 0 ]
Nónibró 31s árs og 1 dags gamall...
Hæ, ég gleymdi að blogga Nóna bróður til hamingju með afmælið í gær. En ég hringdi í hann með "lotsaluv", sem er það næstbesta ;) Nóni bróðir, dásamlegasti stóribróðir sem hægt er að eiga, (og líka alveg fantastískur líkamsræktarfélagi) er s.s. orðinn 31s árs og 1s dags gamall frá og með deginum í dag. Hann er líka miklu betri en ég í að standa fyrir sínu máli og láta menn ekki komast upp með neitt guff... Núna er verið að bjóða mér afar skammarlega upphæð fyrir Flycku, upphæð sem gerir okkur fjölskyldunni ókleyft að kaupa nýjan fararskrjóð með skoðun. Mér finnst það fyndið. Fullur gaur keyrir á bílinn minn kyrrstæðan og ég fæ einhverja hlægilega upphæð fyrir. Langar til að slá einhvern utan undir. En... Til hamingju Nónibró með afmælið, sjáumst á eftir þegar við förum saman að rífast við tryggingafélagið. Þinn bróðir og vinur, Svabbi [ 0 ] sunnudagur, janúar 02, 2005
Gleðilegt ár elskurnar mínar! :D
Alveg rétt! Gleðilegt ár og hlakka til að sjá ykkur á nýju ári. Við færumst nær dauða og mold, guggnari og ljótari með hverju árinu sem líður... Og mér líður bara vel með slíka þróun... Ég hlakka til að verða gamall með öllu þessu ágæta fólki... Bestu Kveðjur, Svabbi [ 0 ]
Mega Nostalgía...
Sit í vinnunni og hlusta á Superunknown og Down on the upside með Soundgarden... Þvílíkar rífandi snilldir eru þessar plötur... :-) Nostalgía fyllir huga minn... En ekki svona glöð og happí nostalgía heldur þunga táninganostalgían... Táfýla... Svitafýla... Typpafýla... Fýlan af ostapoppi og kók... Pítsukassafýla... Þunglyndi... þunglyndi... eymd... herbergi á 5. hæðinni í Lönguhlíð 19... Geðsjúklingurinn sem bjó í herberginu (geymslunni) við hliðina með harmónikkuna og vinur hans með kassagítarinn, öskrandi, öskrandi, öskrandi... GAAAAA GAAAAAAA GAAA ekki svona fast! Þú kannt þetta ekki AAAAAAAHAHAAAAAA GUÐ ER MIÐJAN! ALHEIMURINN! HRRRUUUUUUUUUGUUUUUU HRUUUGUUUGUUUU (Harmónikka) KLONG KLANG BONG BRANG SPRAAANNG...(Gítar) Minnimáttarkennd mín og feimni í áður óþekktum hæðum... :) Samt... þetta er dásamleg nostalgía... 'Cause I saw it in the wind, And I saw it in the sky. I thought is was the end, I thought it was the fourth of July. Bestu Kveðjur, Svabbi [ 0 ] |
Eva
Örn "Mugison"
Elias Tónlistarmönnum sem gefa tónlist
sína á netinu er velkomið að hafa samband
við Hr. Muzak og þá bæti ég þeim
á listann.
Laukurinn rúlar
Dr. Gunni
| |||