Þankatankurinn



Svavar Knútur
Kristinsson,

Félagsauðströll, heimspekingur, umhverfis-verndarsinni og tónlistarmaður.

Ímeilaðu
mig...

NÝTT!!!
Viltu fá
(eða hætta að fá)
tilkynningar
um tónleika
HRAUNS!,
eða Svavars Sjálfs?
Sláðu inn
netfangið hér:



This page is powered by Blogger. Isn't yours?




Hljómsveitin Hraun! veitir mér listræna útrás.

Hraun á Myspace

Sjálfurinn á Mæspeis

Nýjustu Demó:

Ease your mind (01.07.2006)

Dansa... (28.09.2005.)

Ástarsaga úr fjöllunum (Sumarið 2005)

Goodbye my lovely (19. júní 2005)

Kisa litla (Maí 2005)

Your love was death to me (Janúar 2005)

Call off your Cavalry (September 2004)

You should call a doctor (Maí 2004)

Kysstu tímaglasið (endurbætt útgáfa 2004)

Mother's day
( 2004)

Jólaplata Hrauns 2003: Þrautgóðir á Hraunarstund

Jólaplata Hrauns 2004: Kátt er um jólin

Partýplatan Partý!

Jólaplata Hrauns 2005: Höldum jól

Jólaplata Hrauns 2006: Jólamolar



Latur myndasmiður, en engu að síður er hér að finna eitthvað efni...

Molar...


 
laugardagur, apríl 30, 2005
  Gamanmál á Laugardagsmorgni
Þá er komið að því að ég fari með eldhress gamanmál hér á öldum ljósleiðarans.
Þannig vill nefnilega til að ég er mjög hrifinn af Celestial seasoning tei og þar er hægt að finna sítrónuteið Lemon Zinger, ávaxtateið Red Zinger og appelsínuteið Orange Zinger. En nú heyri ég að komið sé Rottute. Ég veit ekki hvernig þetta RatZinger bragðast, en ég hlakka ekki til að smakka á því.
HAHAHAHAHAHA

En að alvarlegri málum.
Lagið Ésú elskar ekki minnihlutahópa hefur löngum verið eftirsótt óskalag á tónleikum og mér þykir alltaf ágætt að taka það og fylgjast með nokkrum réttsýnum einstaklingum hlaupa á dyr. En nú er augljóst að það hefur náð ótrúlegum vinsældum, enda fór Páfinn með gervallan textann í stólræðu sinni og ég er að hugsa um að kæra hann fyrir ritstuld. Hann stal bókstaflega heilu köflunum úr ljóði mínu.

Úr Ésú elskar ekki minnihlutahópa:

"Ésú elskar ekki minnihlutahópa
eins og homma, lesbíur og svarta menn...
Ésú elskar ekki heldur Indverja,
eða kínverja, eða fólk með gleraugu...
og sérstaklega elskar hann ekki eðlisfræðinga,
sem segja að hann sé bara ekki til...

Því að Ésú elskar bara,
Hávaxna, ljóshærða, bláeyga, fallega,
aríaríarí, því að Ésú elskar bara
hávaxna, ljóshærða aría eins og mig...

Ésú elskar menn í hermannaklossum,
Í hlírabol og rauðum axlaböndum,
sem labba um og lemja ljóta Tyrki,
með blýstöngum og þungum hjólakeðjum.
Og sérstaklega elskar hann
þegar litlu sætu hvítu börnin
lemja ljótu svörtu börnin í sandkassanum.

Því að Ésú elskar bara,
Hávaxna, ljóshærða, bláeyga, fallega,
aríaríarí, því að Ésú elskar bara
hávaxna, ljóshærða aría eins og mig...

Förum nú í krossferð vinir mínir,
til að eyða því sem guði þóknast ei.
Já förum nú í krossferð vinir mínir,
Til að deyða þessi úrkynjuðu grey...

Því að Ésú elskar bara,
Hávaxna, ljóshærða, bláeyga, fallega,
aríaríarí, því að Ésú elskar bara
hávaxna, ljóshærða aría eins og mig..."

Úr stólræðu Páfa (gripið á lofti á latínu):

"Christus amiet ne minoritum
et catamites, lesbos et homo negrus...
Christus habium nihil amiet Indium
oder Sinaeum, et spectaclem homos.
et precipue amiet Iaesus no Homo Scientius
assero Christo non existum!"

Og svo framvegis...
Ég spyr: Er þetta verjandi?!?!?


[ 0 ]
föstudagur, apríl 29, 2005
  Verður maður ekki? Hversu vel þekkið þið Svabba...
Ég gerði fyrir ykkur Quiz... Klisjulegt Quiz...Takið Quizið! og kíkið svoá stigatöfluna!


weeee


[ 0 ]
  Platan í vinnslu og forsala
Við Jón góði erum búnir að finna ágætis tímaprógramm til að vinna plötuna og ætlum að láta slag standa nú í maí. Þetta verður vonandi bara mjög gaman og mikið stuð.
Hlakka til að fást við þetta og hlakka enn meira til að reyna síðan að koma plötunni út til fólks.
ATH!
Ég hef ákveðið að efna til forsölu á plötunni á vefnum hér.
Sko... þetta verður haft þannig... að þeir sem hafa áhuga á að styrkja okkur Hraunara í að búa til plötuna geta lagt 2000 krónur inn á reikning 1128-05-1438 (kt. 2101765789) (biðjið um að kvittun verði send á mig) og sent mér síðan tölvupóst á muzak(hjá)simnet(punktur)is þessu öllu til staðfestingar. Ég mun halda utan um þetta og allur peningurinn fer í að borga fyrir gerð plötunnar. Þeir sem borga svona fá frímiða á útgáfutónleikana þegar þeir verða, áritað eintak af plötunni (none the less) og Hraun/Rebel bol í sinni stærð í kaupbæti. (gefið upp bolastærð.)
Og Þóra: Það verður hægt að fá pæjulega Hraunboli og í mun betra efni.
Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 0 ]
  Drengur hringir ekki...
Drengur vinur minn lætur ekkert í sér heyra þessa dagana... Er staddur á Íslandi og lætur mann bara ekki ná í sig.
Hnuss...
Bestu kveðjur,
Svavar


[ 0 ]
þriðjudagur, apríl 26, 2005
  Bananahýði...
Hafið þið einhvern tíma séð einhvern renna á bananahýði?
Hefur þetta einhvern tíma gerst að ykkar viti?
ég er að hugsa um að skilja eftir bananahýði á víð og dreif um ganga Mbl. og sjá hvað gerist.
Þetta er eitthvað sem maður hefur bara séð í gömlum og/eða lélegum bíómyndum...

Bestu kveðjur,
Svavar


[ 0 ]
mánudagur, apríl 25, 2005
  Sjálfseyðingarhvöt
Sjálfseyðingarhvöt er furðulegt fyrirbæri.
Hún lætur menn gera ótrúlegustu hluti gagnvart sínu eigin lífi.
Einföldustu birtingarmyndir sjálfseyðingarhvatarinnar eru dópneysla, sukk og svínarí, hraður akstur og óábyrgt kynlíf.
Svo er til svona sjálfseyðingarhvöt sem beinist inn á við, einhvern veginn gagnvart kjarna sálarinnar, markmiðum lífsins. Maður brýtur sig niður andlega en ekki líkamlega. Maður eyðileggur möguleika sína og veldur sjálfum sér vonbrigðum trekk í trekk. Þetta er skelfileg sjálfseyðingarhvöt og hægdrepandi.
Hún er allt lífið að drepa mann og gerir það á versta mögulega hátt. A.m.k. ef maður dópar eða drekkur sig í hel, þá er viðkomandi bara búinn að klára málið.
Efasemdir og skemmdarverk á sínu eigin lífi eru furðuleg tilhneiging sem ég veit ekki hvernig virka, en það er ótrúlegt að fylgjast með þessu gerast.

Annars er ég að reyna að vera sjálfseyðingarfíkill í afturbata.
Fussumsvei, ég ætla ekki að láta neitt stoppa mig lengur, hvorki ótta né sjálfsfyrirlitningu.
Platan er á leiðinni og lag á leiðinni á Rás 2.
Bestu kveðjur,
Svavar Knútur Kristinsson


[ 0 ]
  YES!!! YESS!!! YESSSS!!!
Frábærar fréttir takk fyrir, fyrir okkur þrekna fólkið.


[ 0 ]
sunnudagur, apríl 24, 2005
  Björn hinn málefnalegi
Af mbl.
"Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, segir í pistli á heimasíðu sinni, að honum sé óskiljanlegt að Háskólinn í Reykjavík telji sér til framdráttar að dragast inn í þær deilur, sem eru óhjákvæmilegar vegna allra framkvæmda í og við Nauthólsvíkina.

Björn segir, að hann hafi staðið að því frá fyrsta degi, að Háskólinn í Reykjavík styrktist og efldist og lagt mitt af mörkum í því skyni á margvíslegan hátt. En ef umhverfissinnar, sem berjist gegn framkvæmdum við Kárahnjúka eða lagningu vegar yfir Stórasand, samþykki að þetta friðland Reykvíkinga í Vatnsmýrinni, milli Nauthólsvíkur og Öskjuhlíðar, sé eyðilagt á þennan hátt, gefi ég minna en áður fyrir umhyggju þeirra fyrir náttúrunni. Mörg þúsund manna skóli á þessum stað kalli ekki aðeins á hús og bílastæði heldur einnig á veg yfir Öskjuhlíðina og um Fossvoginn fyrir neðan kirkjugarðinn."

HVAÐ Í ANDSKOTANUM ER BJÖRN BJARNASON AÐ BLANDA VERNDUN HÁLENDISINS INN Í ÞETTA MÁL???

Ég hef nú heyrt margt bjánalegt en þetta slær öllu út. Er hann með þessu að segja að hann sé sjálfur á móti Kárahnjúkavirkjun og veginum yfir Stórasand? Eða er hann bara að gera öllum náttúruverndarsinnum upp skoðanir og hugmyndafræði? Gengur þetta ekki öfugt? Ef náttúruverndarsinnar eiga allt í einu að hlaupa upp til handa og fóta út af skipulagsklúðri í borginni. Ætti þá ekki Björn með réttu að hlaupa upp til handa og fóta til að vernda hálendið, fyrst hann er allt í einu svona mikill náttúruverndarsinni?

HALLÓ!
Björn. Ef þú heyrir í mér. Ekki reyna að drulla út náttúruverndarsinna með svona kjaftæði. Sýndu það hugrekki að berjast sjálfur í þínum eigin orrustum og byrja ekki með því að reyna að troða náttúruverndarsinnum í eitthvað svað. Ef þú setur samasemmerki á milli þess að vilja vernda ósnortna og viðkvæma náttúru á hálendinu og að passa eitthvað svæði sem hingað til hefur farið undir eiturlyfjaviðskipti, eftirdjammsríðingar og hundaskít, þá ertu vitlausari en mig hefur nokkurn tíma grunað.
Að öllu óskyldu er ég ekki hrifinn af því að setja HR þarna, Nota Bene. Þá kemst fólk ekki á baðströndina án þess að rúnta í gegnum campusinn og ég veit að umferðarþunginn í kringum Hlíðarnar verður óbærilegur. Þetta þýðir líka aukið álag á umferðaræðar niður í bæ og hefði betur verið farið í byggingu háskólans á meiri jaðarsvæði, þar sem umferðin gæti jafnvel streymt í öfuga átt á morgnanna og kvöldin og létt þannig á gatnakerfinu. Mér finnst líka mikilvægt að halda úti vel skipulögðum útivistarsvæðum í borginni og vildi sjálfur sjá þetta svæði vel skipulagt og flott útivistarsvæði.
EN ÞETTA MÁL Á ENGAN SKYLDLEIKA MEÐ KÁRAHNJÚKUM OG HÁLENDISHRAÐBRAUTUM!
Og að reyna að gera einhverja ómerkilega tilraun til að sverta ímynd náttúruverndarsinna með svona kjaftæði er það lágkúrulegasta sem ég hef séð frá þér til þessa Björn.

Berstu eins og maður Björn. Það er ekki karlmanni sæmandi að skjóta svona eiturpillum. Þessu ætti ég frekar von á frá svona pillum frá einhverjum eins og Valgerði Sverrisdóttur sem notar hvert tækifæri til að skjóta setningum eins og "þið nasistarnir og afturhaldsseggirnir í Vinstri-grænum sem eruð á móti öllu og borðið börn" inn á milli annarar hverrar málsgreinar.

Bestu kveðjur,
með von um afturbata.
Svavar Knútur Kristinsson


[ 0 ]
  Grindavík er skemmtileg :D
Það er gaman að spila á Lukku-láka í Grindavík.
Vertinn Láki tók vel á móti okkur og var hinn prýðilegasti náungi og ég mæli með þessum stað ef þið eigið leið um staðinn. Helvíti fínn stemmari bara :-D
Takk Dassi fyrir að fleygja okkur þangað, þetta verður eitt af okkar reglulegu Hauntum...

Café Rósenberg...
Ísafjörður...
Snúllabar...
Og nú: Lukku-láki í Grindavík :D

Fínt sánd þarna og góður bjór og kaffi... mmmmmm.... :D

Bestu Kveðjur,
Svabbi


[ 0 ]
föstudagur, apríl 22, 2005
  Gaman í dag...
Gleðilegt sumar gott fólk :D
Mig langar að spyrja ykkur...
Hversu margir notuðu síðasta vetrardag til fyllerís og svalls niðri í bæ vegna pjúra skorts á hugmyndaflugi?
Hversu margir fóru í reglubundna vímu í stað þess að keyra eitthvert út í buskann, klifra upp á fjall eða bara vera heima með fjölskyldunni og spjalla?

Ég er forvitinn.
Dettur fólki almennt eitthvað annað í hug að gera við frítímann sinn en að drekka frá sér allt vit?

Djöfull er það takmörkuð jarðvist.

Bestu kveðjur,
Svavar


[ 0 ]
fimmtudagur, apríl 21, 2005
  Hvað er í gangi?
Hvað er eiginlega í gangi með þessa Fazmo gaura, sem blogga um hvað það er gaman að berja fólk?
Maður er að lesa þetta blogg þeirra og þetta er eins og að skyggnast inn í menningarheim einhvers konar framandi ættbálks þar sem allt snýst um bekkpressu, slagsmál og að berja saklaust fólk í tætlur á djamminu. Helst þá á Hverfiz'.

Þetta vekur furðu mína...

Mágur minn var laminn í spað á Akureyri síðustu helgi. Honum var í öllum grundvallaratriðum slátrað af einhverjum Garðbæingum og vinum þeirra frá Akureyri. Hann sat og horfði á Djúpu laugina með vinum sínum inni á gistiheimili þegar inn þusti þessi mannsöfnuður og hóf barsmíðarnar algerlega óumbeðinn...

Eftir þennan einhliða slag, sem fólst nokkurn veginn aðallega í því að hrinda stráknum í jörðina og sparka í hausinn á honum, hlupu drengirnir á brott þegar stelpa í nágrenninu gerði vart við sig og sagðist kalla á lögguna. Þegar vinirnir álumbruðu komu til baka af sjúkrahúsinu þar sem gert var af sárum þeirra beið eftir þeim sendiboði frá hópnum. Sendiboðinn var ekki kominn til að biðjast afsökunar, heldur til að bæta um betur og hóta þeim og fjölskyldum þeirra dauða ef kæra bærist til lögreglu.

Þetta dugði.
Drengirnir ætla ekki að kæra málið, enda er ógn ofbeldisins mikil.
Nú sitja einhverjir Garðbæingar heima hjá sér bara helvíti hressir eftir skemmtilega helgi af því að berja saklaust fólk. Foreldrar þeirra bara góðir á því.
Þetta er rosalega fallegt allt saman.

Mig langar að hitta þennan gaur og spjalla við hann... Bara reyna að fatta út á hvað lífið gengur hjá svona manneskju. Mér finnst þetta svo firrt og fáránlegt að ég hreinlega verð að skilja þetta betur...

Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 0 ]
þriðjudagur, apríl 19, 2005
  Ánægður/Óánægður
Djöfull líst mér vel á þessa grein á tíkinni.
Ánægður með stelpurnar. :)

Og djöfull er ég óánægður með að fá HR ofan í tröppurnar hjá mér... Bílaumferðin í kringum Hlíðarnar á eftir að aukast um allan helming.
URG...
Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 0 ]
  Nóg að gerast!!!
Alveg hreint frábærir dagar að líða núna...
Hraun! héldu ágætlega sótta æfingu, 3/4 sveitarinnar mættu og sömdu þetta líka prýðilega lag sem verður frumflutt í fullbúinni mynd á tónleikum á Café Rósenberg þann 19. maí nk. (eftir sléttan mánuð) Vonandi verða fleiri lög frumflutt.
Takið þetta kvöld frá, því við ætlum að vera grand á því og spila bara okkar eigin lög og hafa sándið eins vandað og mögulegt er. Í því skyni munum við fá til liðs við okkur atvinnumenn úr ýmsum áttum sem munu gjörnýta hljóðræna möguleika hins 50 fermetra rýmis sem er Café Rósenberg. :D

Er að bæta á mig dobíu af verkefnum líka... Argh... Ég er vinnualki...

Svo erum við líka að spila á Rósenberg, hefðbundnara tónleika-partý format, þ. 6. og 7. maí nk.

En aftur að persónulegu lífi Svabbans. Það er alveg frábært að komast aftur í æfingar. Ég verð miklu frjórri þegar við æfum. Ég sem aldrei fleiri lög og flottari að mínu mati... Það er eitthvað við stemmninguna á æfingum sem kveikir á sköpunarþörfinni hjá mér.

Humm gumm... Lífið á innlendu er yndislegt... :-D

Fyndið að hlusta á skratsupptökurnar úr Geimsteini... Djöfull hljómar maður döll og leiðinlegur á þessu... :) Ég ætla rétt að vona að þessar upptökur gefi ekki rétta mynd af manni sem söngvara... Ég held að ein áræðanlegasta og um súrasta mótsögn hversdagslífsins felist í því hvað söngvarar stóla á egóið sitt, sem síðan er svo brothætt að það þarf ekki nema hálft prump í vindi til að rústa því.

Bestu kveðjur,
Svavar


[ 0 ]
föstudagur, apríl 15, 2005
  Trallalííí
Jæja... ég er með eyrnabólgu, en gaman...
Ég fæ hana alltaf þegar veðrið sveiflast svona rosalega.
Ég veit þá allavegana hvernig krökkunum líður og skil af hverju þau grenja svona rosalega...

En að máli gærdagsins.
Einhverjir gætu furðað sig á því að maður sé að blása svona hátt og með látum og upphrópunum. En ef maður ætlar að vera heiðarlegur, þá verður maður að segja hvernig manni líður og leyfa fólki bara hreinlega að vita það að manni þykir ekkert gaman að vera kallaður "pöbba-kóverband". Með því er í raun verið að gefa í skyn að maður sé einhvers konar asnalegur plebbi. Og það er særandi.
En bíddu nú við, eru ekki allar íslenskar hljómsveitir á indí senunni pöbbabönd? Þær spila á Ellefunni, Dillon og Grand Rokk og hvað eru þeir staðir annað en pöbbar? Þetta eru bara pöbbabönd sem spila á hinum ýmsu pöbbum Reykjavíkur. Fyndið...

Anyways.
Ég rabbaði við Loft bassaleikara í gær og úr okkar samræðum varð það eitt að við verðum að halda áfram með þessa tilraun okkar til að gefa fólki bæði tónleika og skemmtun þrátt fyrir mótvinda og tilraunir fólks til að steríótýpa okkur í eitthvað eitt mót.
Það er leiðinlegt að vera steríótýpaður.
Það er líka leiðinlegt að vita að næst þegar við auglýsum gigg, þá segi fólk: "Hraun? Eru þeir ekki eitthvað kóverband sem spilar Simon og Garfunkel og Travis?" eða eitthvað þaðan af verra.

En að hressari málum.
Litla-Hraun kíkir austur yfir heiði og heldur tónleika-partý á nýopnuðum Snúllabar, svo er margt skemmtilegt framundan á næstu mánuðum og sérstaklega í Ágúst þegar Hraun mun fara í sitt lengsta ferðalag til þessa.
Ég vona að Nönnu líði betur. Hún var eitthvað lasin í gær.

Veðrið er fallegt...

Bestu Kveðjur,
Svavar Knútur


[ 0 ]
fimmtudagur, apríl 14, 2005
  Benedikt "Karate" Reynisson...
...skrifar gagnrýni um Aldrei fór ég suður á Grapevine...

Sosum ekki við öðru að búast en að hann fílaði okkur lítið. Ég kann alveg að meta það að við séum ekki kaffibollinn hans, enda geta ekki allir fílað sömu tónlistina.

En mér hefði þótt betra ef hann hefði haft staðreyndirnar á hreinu um hljómsveitina:
"Hraun is a band from Reykjavík (Þrír okkar eru utan af landi) who normally play cover songs Við höldum venjulega tónleika og fylgjum þeim eftir með einhverju sprelli til að gefa fólki bæði tónleika og gleði.) at various bars and pubs in the capital. (Við spilum aðallega á Café Rósenberg, sem er tónleikastaður og komum þar fram bæði með tónleika og partý undantekningarlaust.)"

Varðandi það hvort þessi hljómsveit sæki áhrif sín til Simon og Garfunkel og Travis veit ég ekki, en persónulega hlusta ég mun meira á Gomez, Chavez, Will Oldham, Low og fleiri ljúflinga...

Ég vildi bara óska að menn sem eiga að heita savvy um tónlistarlífið gætu haft staðreyndirnar á hreinu. Við erum ekki kóverband, við erum tónleikaband sem skiptir uppákomum sínum oft skýrt í tvennt.

Ég býst samt við því að það verði seint hægt að þóknast blessuðum Sirkusartíförtunum ef maður er ekki einn úr þeirra hópi. Þeir munu bara sjá og heyra það sem þeir vilja sjá og heyra, mæta löngu eftir að tónleikarnir eru búnir og segja svo að maður sé kóverband.

Bah...
Auðvitað pirrar þetta mig og ég er ekkert feiminn við það að segja það.
En guði sé lof fyrir það að það er góður slatti af fólki sem mætir fyrir 23 og hlustar á það sem við höfum fram að færa á meðan artfartarnir bíða eftir að klukkan slái 2 svo þeir geti komið og dæmt hlutina á réttum forsendum.

Og ég vildi óska að fólk drullaðist til að vita hvað það er að tala um þegar það fjallar um hljómsveitina manns. VIÐ ERUM EKKI PÖBBAKÓVERBAND HELVÍTIS ARTÍ FARTÍ HÁLVITARNIR YKKAR!!!

Jæja... búinn að venta.
Þetta er bara eitthvað svo auðveld afgreiðsla á flóknum hlut og það særir mig. Í alvörunni... Það særir mig að vera stimplaður svona.

Og mér sem fannst Skátar svo skemmtileg hljómsveit.
Allavegana... ég er sár og vonsvikinn og verð það líklega í svona 20 mínútur í viðbót, en þá fer ég að einbeita mér að mikilvægari hlutum en rispuðu egói mínu... :)
Það er ponsu leiðinlegt að vera eina sveitin sem fær svona nett diss í annars voða voða hressri umfjöllun.

Ég veit að það er ekki kosher að röfla yfir gagnrýni, en ég er ekki kosher maður. Ég er raunverulegur maður með raunverulegar tilfinningar. Ég helli hjarta mínu og sál í það sem ég geri og Hraun! er alvarlegt projekt þar sem allt kemur frá hjartanu, meira að segja partýhlutinn af prógramminu.

Ég veit það ekki... Ég hef alveg verið í bandi og sköpun þar sem dæmið snerist um að búa til flókna og skrýtna tónlist, leika sér í takt- og tóntegundaskiptum og læti, allt voða gaman... Mesta áskorun sem ég hef upplifað er hins vegar að semja einföld lög og falleg og reyna að gera það vel og frá hjartanu. Það er lítið mál að vera írónískur og fyndinn. Það er miklu erfiðara að vera alvarlegur og frá hjartanu. Þess vegna kannski sárnar mér þeim mun meira þegar það er talað niður til þess sem ég er að gera.

Bestu Kveðjur,
Svavar

<mumbling and grumbling>hnuss fuss... bara þó maður sé ekki að húka í einhverjum gimmikkum eins og málningargöllum eða übertrendí átfittum og einbeiti sér að því að skapa einfalda og fallega tónlist... mumble grumble... Hvað veit hann sosum... hnuss fuss... Ég skal sýna honum pöbbahljómsveit...</mumbling and grumbling>


[ 0 ]
miðvikudagur, apríl 13, 2005
  Djammerí á Snúllabar
Jæja... það verður eitthvað grúví fílíngs á föstudaginn þegar Litla Hraun kíkir austur fyrir fjall og leikur á hinum margrómaða Snúllabar, sem er nýopnaður aftur eftir pásu.
Gummi gítar forfallast því miður og getur ekki verið með okkur, en við snúum þessu bara upp í "Three piece jam" og það gæti alveg verið gaman.

Annars er það að frétta að það er búið að vera nóg að gera á Mogganum og æðislegt að vera kominn aftur á Innlendar.

Bestu Kveðjur,
Svavar Knútur


[ 0 ]
fimmtudagur, apríl 07, 2005
  Annað skemmtilegt...
Democratic Senators stall confirmation of new EPA head

When President Bush chose 24-year U.S. EPA veteran, scientist, and all-around mild-mannered dude Stephen Johnson to head the agency, observers expected no controversy. But Johnson's ongoing confirmation hearings are proving them wrong. It seems those pesky Democrats can always find something to complain about -- like, um, poisoning children. Sens. Barbara Boxer (D-Calif.) and Bill Nelson (D-Fla.) pledged to put a parliamentary hold on Johnson's confirmation until he unequivocally promised to halt the Children's Environmental Exposure Research Study (or -- macabre irony alert -- CHEERS). The research program, sponsored by the EPA and the American Chemistry Council, offered families $970 (and a camcorder!) if they agreed to expose their children to pesticides and allow researchers to study the effects. The program was suspended last year, and Johnson said its future hinged on the outcome of ongoing ethical and scientific reviews. But that did not satisfy Boxer, who said the hold would stay put "until this program is canceled -- no ifs, ands, or buts."

Tilvitnun endar...
Heimild www.grist.org (Græn síða fyrir no bullshit, rainbows, flowers and happiness, bara straight fucking facts fólk)

HAAAAAA????
Er fólk ekki að djóka?
970 dollara og myndavél fyrir að troða meindýraeyði í barnið mitt?


[ 0 ]
  Ótrúlegt en satt... :)
The military frequently conducted witch hunts in search of queers. Queers in the military who were caught in sexually compromising situations were outed in the course of courts martial; others whose sexual orientation was deduced on the basis of letters or possession of periodicals or association with known homosexuals were discharged administratively.

With dishonorable discharges, these victims of outing could not return to their hometowns or easily find employment. With few options, many remained in their place of discharge. San Francisco, a large naval base, became the unofficial headquarters of the American gay community at least in part because outing victims of the U. S. Navy had few other places to go.

Heimild: http://www.glbtq.com/social-sciences/outing.html

Ég þekkti ekki þennan hluta sögu San Fransisco og af hverju hún varð sú Hommaparadís sem hún er í dag... :D


[ 0 ]
laugardagur, apríl 02, 2005
  Til hamingju með afmælið Stefán!
Stefán Halldórsson góðvinur okkar allra á afmæli í dag... Á nú eitt í þrítugt.
Duglegur Stebbi. Þetta getur hann.


Ég hefi samið ljóð til heiðurs afmælisbarninu.

Sælt er að vingast við Stebba
Sætan ég kalla hans nebba
Þó hann lúri og lúri
eins og búri í búri
Seint mun ég kalla hann plebba

Bestu kærleikskveðjur á afmælinu Stebbi minn,
þinn vinur,
Svabbi


[ 0 ]
  Aprílgabbið...
Ég trúi því ekki að einhver hafi virkilega hlaupið apríl á þessu hrikalega aprílgabbi mínu!
Andskotans vitleysingar eruð þið :D
Knús öllsömul...
En góðar fréttir, ég er kominn aftur á Innlendar fréttir, svo nú hættir vanlíðan mín snarlega.
Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 0 ]
föstudagur, apríl 01, 2005
  APRÍLGABB!!! - Innflutningspartý!!!
Hæ öll sömul!
Við Pálína settum íbúðina í verðmat fyrir nokkru og náunginn sem fór yfir þetta sagðist strax hafa feitan kaupanda handa okkur!

Íbúðin fór á 16,5 spírur! :D YEAH! Græddum all sæmilega þar á milli upphaflega kaupverðsins.

Gallinn var að við þurftum að flytja út frekar fljótt og höfum við verið í dálitlum hestaleik að bera húsgögn á milli með góðra vina hjálp.
Okkur langar því að bjóða ykkur í Innflutningspartý í nýju íbúðina okkar í RITSKOÐAÐ. Það stendur RITSKOÐAÐ á bjöllunni. Mæting kl. 22.
Ég veit ég veit... ég sagðist aldrei ætla að flytja upp í Grafarvog en ég meina fokkitt... Við erum á bíl...
Hlakka til að sjá ykkur á eftir, sorrí hvað ég læt seint vita af þessu.
Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 0 ]
Virka þessi Drösl???