Þankatankurinn



Svavar Knútur
Kristinsson,

Félagsauðströll, heimspekingur, umhverfis-verndarsinni og tónlistarmaður.

Ímeilaðu
mig...

NÝTT!!!
Viltu fá
(eða hætta að fá)
tilkynningar
um tónleika
HRAUNS!,
eða Svavars Sjálfs?
Sláðu inn
netfangið hér:



This page is powered by Blogger. Isn't yours?




Hljómsveitin Hraun! veitir mér listræna útrás.

Hraun á Myspace

Sjálfurinn á Mæspeis

Nýjustu Demó:

Ease your mind (01.07.2006)

Dansa... (28.09.2005.)

Ástarsaga úr fjöllunum (Sumarið 2005)

Goodbye my lovely (19. júní 2005)

Kisa litla (Maí 2005)

Your love was death to me (Janúar 2005)

Call off your Cavalry (September 2004)

You should call a doctor (Maí 2004)

Kysstu tímaglasið (endurbætt útgáfa 2004)

Mother's day
( 2004)

Jólaplata Hrauns 2003: Þrautgóðir á Hraunarstund

Jólaplata Hrauns 2004: Kátt er um jólin

Partýplatan Partý!

Jólaplata Hrauns 2005: Höldum jól

Jólaplata Hrauns 2006: Jólamolar



Latur myndasmiður, en engu að síður er hér að finna eitthvað efni...

Molar...


 
mánudagur, maí 30, 2005
  Hin líðanin...
Ég er eyðilagður yfir því hvernig ég hef reynst Jóni Geir vini mínum undanfarna daga... Allavegana fæ ég það á tilfinninguna að hann sé ekki beinlínis hress með mig og samskipti okkar...
...sem er súrt, því ég held að fáa ef nokkra menn myndi ég frekar vilja hafa með mér í langskipi lífsins en hann Jón Geir vin minn...

...æi...

Ég virðist bara vera að klúðra hlutum hægri vinstri þessa dagana... kannski er þetta bara eitthvað tímabundið ástand sem vonandi lagast...
Ég vona allavegana að Jón fyrirgefi mér... Kannski ég heimsæki hann með sáttagjöf svo hann taki gleði sína á ný...

Annars upplifi ég mig voðalega eitthvað banal þessa dagana... Loftur og Jón Geir bara á leið í sitthvora heimsálfuna að meika það... :)
Jæja... ég á þó allavegana gítarinn minn og frábæra (og skilningsríka) fjölskyldu...
... og Gumma frænda, sem er alltaf dásamlegur, þó hann sé vissulega bissíasti maður heims og lítill félagsskapur í honum... (verkefnum hlaðinn)

Þessa dagana skiptast á skin og skúrir hjá manni... Eina stundina langar mig til að hlæja og faðma heiminn og aðra liggur mér við gráti yfir eigin vitleysu og eymd... Vonandi gengur þetta fljótlega yfir þegar ég sætti mig við takmarkanir mínar og held áfram að stefna að því að vera bara góður náungi sem fólki almennt líkar vel við.

Jæja... reyna að sofna...
Góða nótt...


[ 0 ]
  Styrktartónleikarnir...
Hæ...
Jæja... undanfarnar tvær vikur hef ég staðið í ströngu við undirbúning og skipulagningu og plögg vegna styrktartónleikanna "Blankir krakkar eru líka krakkar" að ég gleymdi að láta vini mína vita af þeim.
Mig langaði alls ekki til að ég yrði eitthvað sérstaklega tengdur við þetta, en DV gerðu mér þann bjarnargreiða að taka við mig "viðtal" sem var lauslega samansett og spunnið utan um hluti sem ég sagði á milli þess sem ég sagði að ég vildi ekki að neitt yrði haft eftir mér um tónleikana en þeim mun frekar vildi ég að talað yrði við eina af ungu og skemmtilegu hljómsveitunum á þeim.
DV bættu svo gráu ofan á svart með því að skálda rækilega inn í gæsalappirnar óumbeðnu, hlutum sem ég myndi aldrei segja. Frábært... Nú lít ég út eins og einhver skítaslúbbert sem hefur áhuga á fátækum börnum...

En needless to say, þá heppnuðust tónleikarnir frábærlega og ég er helv. hress með þá. Mikið svakalega komu sveitirnar mér á óvart. Var búinn að heyra eitthvað á Rokk.is, en live frammistaða sveitanna var ótrúleg!!!
Benny Crespo's, Pan, Hello Norbert, Big Kahuna, Who Knew, Ókind, Sweet sins, Gay Parad, Djósúa og allir þessir snillingar, svo ekki sé ónefndur hinn mikli og ótrúlega ungi snillingur Johnny Poo sem söng um ástarsorgina sem tók hann úr axlarlið...

Ég er í sæluvímu og get ekki sofnað af ánægju.

Ég hef líka lært hundmikið af upptökuveseni undanfarið... Vildi bara óska að ég væri núna 19 ára og væri að byrja... Það væri voða gaman :D

Og! Við getum allavegana sent einn eða tvo krakka í sumarbúðir í sumar... Það er frábært. Áfram blönku krakkar!
Hlakka til að fara aftur í þetta að ári.

Bestu Kveðjur,
Svabbi


[ 0 ]
þriðjudagur, maí 24, 2005
  Dáist...
... að lærdómshæfileikum næsta borgarstjóraefnis Sjálfstæðismanna.
Hann er búinn að hafa heilt ár til að læra að bera orðið Ruslana rétt fram, en hann notar enn framburðinn Ruslana frekar en Rúslana, réttan framburð.
Ég er viss um að þetta hefur ekkert að gera með þörf hans til að kæta örsmáa demógrafíu fæðingarhálfvita sem finnst ennþá geðveikt fyndið að Kofi Annan heitir Kofi og tékkneski fótboltamaðurinn Pavel Kuka heitir Kuka, en það er líka borið fram Kúka... (Að vísu er það bara sjúklega fyndið að Gro Harlem Brundland heitir Brundland... Ég meina kommon... Það er bara æðislegt!)

Jæja... nóg um það...

Hann er allavegana svona helvíti dipló gaur og á örugglega eftir að heilsa erlendum þjóðarleiðtogum og þingmönnum með viktum. "Hello mister Runk Hek Bok from Taiwan. Hey, you know your name is really funny! It means masturbation in Icelandic! HAHAHAHAHA"

Jæja... Best að húka aðeins í tilvistarkreppu og rugli...

Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 0 ]
sunnudagur, maí 22, 2005
  Blaðamaðurinn og "Íslenska sveitin..."
Ég hef eftir nánari íhugun ákveðið að birta ekki frekari nótur blaðabjálfans frá Orðlaust, svo maður sé ekki að leggjast í lágkúru...
Ég mun láta mér nægja að rabba aðeins um þetta...

Mér finnst fyndið hvernig þessi ungi blaðamaður ætlaði sér að "gagnrýna" tónleika þar sem hann þekkir ekkert til sveitarinnar og mætir auk þess aðeins á seinni helminginn, sem eins og allir sem hafa á annað borð setið tónleika með Hraun! er lausari og léttari helmingur tónleikanna...

Svipaða gagnrýni gæti hann þá skrifað um Föruneyti hringsins ef hann mætir eftir hlé. "Ég bara hreinlega skil ekki hvað þessir gæjar eru allir að gera í einhverjum dal með síðhærða liðinu. Hvað eru þeir að fara? Þetta er ótrúlega bjánalegt!"


Kannski er það ekki við drenginn að sakast að hafa ekki hugmynd um það manífestó Hrauns að mynda brú milli listar og skemmtunar, að vera skemmtilegir listamenn eða listrænir skemmtikraftar. Hann ætti samt að kynna sér þetta áður en hann kemur næst og mæta svo með opinn hug...

Ég er alls ekki fúll út í strákinn, mér er eiginlega miklu meira skemmt og ég fæ svona blaðamannslega föðurtilfinningu og langar til að kenna honum ýmislegt í sambandi við vinnubrögð blaðamanna hér í bæ... :D
Auðvitað er það rapport á milli blaðamanna og tónlistarmanna að blaðamenn fái ókeypis inn á tónleika ef þeir óska þess, en þá þurfa þeir líka að mæta tímanlega og sýna fyllstu kurteisi.

Anyways, þá fannst blaðasnápnum sjálfskipaða við spila mikið af kóverlögum (sem mér fannst furðulegt í ljósi þess að allir tónleikarnir voru frumsamdir). Honum fannst líka hræðilegt að við skildum tala við áhorfendur og tala milli laga. (afsakið það)
Honum fannst tónlistin "Alltof íslenskt til að meika það!!!" (eh... hver er að reyna að meika það? og hvað er íslenskt?"
Þá spurði hann hvort sveitin væru "Fucking Papar?" sem ég skil ekki alveg...
Hann velti því líka fyrir sér hvort þetta væru allt vinir okkar á staðnum... Auðvitað, allir aðdáendur Hrauns! eru vinir sveitarinnar...

Æi fokk ðiss. Maðurinn verður að temja sér smá prófessjónalisma og mér fannst bara æðislegt að fá þessar glósur hans til að sjá hvernig sveitin lítur út í augum manneskju sem veit ekkert um hana og kemur inn í miðju dæmi í vondu skapi.
Ég ætla allavegana að bjalla í Orðlaust og biðja ritstjórann um að vinsamlegast birta enga gagnrýni um sveitina nema blaðamaður hafi mætt á tónleikana og kynnt sér sveitina örlítið áður.

Bestu Kveðjur,
Svavar


[ 0 ]
  Hraun! og blaðamaður Orðlaus...
Það var rosalega gaman á tónleikunum á fimmtudaginn.
Við Hraun!menn tókum tveggja og hálfs tíma tónleika þar sem öll lög utan tveggja síðustu laga voru frumsamin. Þetta var æðislega gaman, fullt af nýjum andlitum og líka gömlum. Svo var alveg tonn af fólki sem er búið að kynnast okkur aðeins og er orðið eins og fjölskyldumeðlimir.
I love it.

Það var líka helvíti fyndið þegar ungur spjátrungur ætlaði að arka inn í hléinu með sex manna possíið sitt og vaða fram hjá miðasölunni (500 kr.). Ég stoppaði manninn og spurði hvert hann ætlaði og hann sagði tónleikana búna. Ég sagði að ég áliti ekki svo vera. Þá sagði hann: "Jú víst, ég er búinn að hanga hér fyrir utan og bíða eftir að þeim ljúki til að þurfa ekki að borga mig inn á staðinn..." Og ég sagði: "Það er nú leiðinlegt, því ég er söngvari hljómsveitarinnar og veit fyrir víst að það er nú bara pása."
Gaurinn brást við þessu með því að tilkynna mér að hann væri blaðamaður kvenkynstímaritsins Orðlaust og ætlaði jafnvel bara að skrifa um tónleikana ef ég hleypti honum inn. Ég sagði á móti að mér þætti þetta (sem kollegi hans í blaðamannastétt) í hæsta máta óvenjuleg hegðun, því venjulega tilkynntu menn þetta strax og mættu jafnvel tímanlega á tónleika. Jafnvel kynntu þeir sér hljómsveitina fyrst. Hann röflaði eitthvað og ég nennti ekki að hlusta á þetta og hleypti honum bara inn, enda var til lítils að nota stuttan pásutíma til að standa og röfla við einhvern náunga með possíið á bak við sig, bíðandi eftir að komast inn úr kuldanum.
Gaurinn settist niður aftast í salnum og byrjaði að skrifa í offorsi.
Tónleikarnir byrjuðu, og flestir vinir hans yfirgáfu staðinn, en hann sat (virðingarvert) áfram og hripaði niður athugasemdir sínar.
Eftir tónleikana sá ég að hann var farinn, en fyrir utan fundu Ásta og vinkonurnar nóturnar hans ásamt brotnu eintaki af Partýplötunni Partý. Og í þessum nótum var að finna vægast sagt þungan dóm yfir "Gleðisveitinni Hraun!"
Ég fékk s.s. glósurnar í hendurnar áðan og við höfum skemmt okkur vel yfir þessu.
Ég er að hugsa um að birta þær smám saman hér á morgun, lesendum til gleði og yndisauka, enda eru þær gullnáma fyrir alla aðdáendur og vini sveitarinnar. Sérstaklega er yndislegt að lesa umkvartanir drengsins um umtalsvert kóverlagaprógramm sveitarinnar (á tónleikum þar sem engin koverlög voru leikin utan síðustu tveggja laga), íslenskan hreim söngvarans, æfða brandararútínu sveitarinnar (þar sem allt sem sagt var þetta kvöld var bara hreint bull) og "Engin fríðindi, eins og ég fæ vanalega..." (sem ég hef ekki hugmynd um hvað þýðir... Er það blowjob eða bjór eða eitthvað meira?)

Meira á morgun,
Bestu Kveðjur,
Svavar Knútur Kristinsson
aðdáandi blaðamanns Orðlaus númer eitt...
Bestu Kveðjur,
Svavar Kristinsson


[ 0 ]
miðvikudagur, maí 18, 2005
  Partýplatan Partý er tilbúin!
Jæja...
Partýplatan Partý er tilbúin til útgáfu og fer í dreifingu á tónleikum Hrauns á Café Rósenberg kl. 22 á morgun.

Þetta er svokölluð "concept" plata þar sem ungum manni er fylgt gegnum partýið, frá því hannn yfirgefur foreldrahús, fer til vinanna, tékkar á næturlífinu, hittir indí stelpu, þau eiga saman ljúfa nótt og hann vaknar daginn eftir þunnur á bömmer og ákveður að taka á sínu lífi.

Hlakka til að sjá ykkur á Café Rósenberg annað kvöld. (Fimmtudagskvöld)
Þetta verða bara tónleikar og Partýplatan kostar 1.000 kall. Að mestu tekin upp heima í stofu og síðan restin í æfingarhúsnæðinu.

Bestu kveðjur,
Svabbi


[ 0 ]
laugardagur, maí 14, 2005
  Kisa litla...
Mig langar að deila með ykkur smá artífartí músík sem ég gerði með hjálp Mysu, fiðlunnar minnar og nýju Consertinunnar minnar (Pínulítil Austur-þýsk harmónika...)

Stundum verður maður bara að klóra litlum kisum á mallanum með míkrafón :D

Bestu Kveðjur,
Svabbi


[ 0 ]
þriðjudagur, maí 10, 2005
  Muzak tilkynning...
Næstu vikur fer ég í gríðarlega vinnutörn.
Ég þarf að undirbúa þrenna frekar erfiða tónleika og taka upp tvær plötur í einu, aðra þeirra á einni viku. :)
Svo tekur líka við smá vinna við Kríuna.
Þannig að það er viðbúið að bloggum muni fækka.
Ég hef líka tekið þá ákvörðun að "opna vinnustofan" sem ég hef starfrækt hér á síðunni muni ekki taka til plata sem eru í vinnslu núna. Opna vinnustofan á við um alveg ný lög, sem mig langar að kynna fyrir fólki áður en þau fara í vinnslu.

En anyways...
Jólaplatan 2005 hefur ekki verið aðgengileg á netinu, en nú stendur það til bóta.
Ég er búinn að stækka heimasvæðið mitt hjá Símanum og þegar ég kem heim, þá rubba ég henni þar inn. Þið getið skoðað kóverið og lagalistann á www.hraun.tk (undir útgáfa).

Bestu kveðjur,
Svabbi


[ 0 ]
mánudagur, maí 09, 2005
  Upptaka frá Aldrei fór ég suður... :D
Hæ öll saman.
Hér má sjá upptöku frá Rokkhátíð Alþýðunnar, í boði Tónlist.is og Símans.
Hraun fer á svið á klst. 1, mín. 2, sek, 40 (1:02:40)

Eru ekki annars allir hressir?

Bestu Kveðjur,
Svabbi


[ 0 ]
  Æðislegir dagar...
Jæja krakkar mínir...
Hreint út sagt ótrúleg helgi að baki.
Spiluðum á fimmtudaginn í afmæli Péturs, prests Óháða Safnaðarins... Mjöööög furðulegt gigg, sérstaklega þar sem helmingurinn af því var undir 50 db... En samt alveg geðveikt gaman, enda er Pétur alveg frábær náungi.

Svo kom helgin, föstudagur og laugardagur á Café Rósenberg með tilheyrandi skemmtilegheitum. Kynntist fullt af nýju fólki sem er alltaf gaman. Kvöldin fóru bæði á topp 10 listann yfir gigg Hrauns... :D (fyrir utan eitt feilspor á laugardagskvöldið, sem ég býst við að verði fljótt fyrirgefið...)

Æfðum opinberlega tvö ný lög, sem verða frumflutt af fullum krafti 19. maí n.k. Þau bera nöfnin: Ástarsaga úr fjöllunum og Þótt þú sért indí máttu dansa...

Næstu tvær-þrjár vikur verð ég við upptökur á plötu Hrauns... Meðfram henni ætla ég að gera tilraun til að vinna að annarri plötu og tónleikum, sjá hvað maður getur...

Bestu Kveðjur,
Svabbi

p.s. Það er gott að sjá að Már er kominn aftur í hóp hinna lifandi eftir langvinna bloggtregðu... :D


[ 0 ]
fimmtudagur, maí 05, 2005
  Kröfuganga Kannabisneytenda...
Ég get nú ekki annað en brosað þegar ég les svona frétt...

Sjáið þið þetta ekki fyrir ykkur?
Gangan byrjar með alveg góða 8000 káta kannabisneytendur við hlið Kristjaníu og svo heldur lýðurinn áfram... fram hjá nokkrum 7-11 búðum og kioskum, gómsætum ávaxtamarkaði, súkkulaðibúð, ísbúð, nyhavn... "nei, en hvað þetta er fallegur bátur maður..."

Og þegar loksins gangan er komin að þinghúsinu samanstendur hún af svona tíu gaurum með kröfuspjöld, nokkrum hundum, þremur rónum á hjólum og gaur á færanlegum pulsuvagni/ísbúð sem hugsar sér gott til glóðarinnar...

Bestu kveðjur,
Svavar


[ 0 ]
þriðjudagur, maí 03, 2005
  Óvænt "lífrænt" gigg...
Ég átti að vera að spila einn með Kassagítar á Café Rósenberg annað kvöld (miðvikudagskvöld) en svo var allt í einu einhver Uppstigningardagur á eftir.
Þess vegna bað ég drengina í Hraun um að koma saman með mér og spila lífrænt (acoustic).
Litla Hraun! stígur því á svið kl. 23 á morgun miðvikudag og spilar chill útgáfur af öllum andskotanum. Fyrst verða hefðbundnir tónleikar með óhefðbundnu sniði og svo förum við út í eitthvað rólegheitadjamm bara...
Svo erum við að spila rafmagnað um helgina. Hlakka til þess líka.
Bestu Kveðjur,
Svavar Knútur sæti kútur...

p.s. fór í stúdíó til Jóns Góða í dag og kláraði 90% fyrsta lagið sem við tökum upp fyrir nýju plötuna sem er væntanleg í byrjun júní.
Jei.
Clementine heppnaðist vel og þið fáið vonandi að heyra það bráðum...
Bestu kveðjur,
Svabbi


[ 0 ]
Virka þessi Drösl???