![]() |
Þankatankurinn
|
![]() |
||||
|
Svavar Knútur Kristinsson, Félagsauðströll, heimspekingur, umhverfis-verndarsinni og tónlistarmaður. NÝTT!!!
|
Nýjustu Demó: Ástarsaga úr fjöllunum (Sumarið 2005) Goodbye my lovely (19. júní 2005) Your love was death to me (Janúar 2005) Call off your Cavalry (September 2004) You should call a doctor (Maí 2004) Kysstu tímaglasið (endurbætt útgáfa 2004) Mother's day Jólaplata Hrauns 2003: Þrautgóðir á Hraunarstund Jólaplata Hrauns 2005: Höldum jól Jólaplata Hrauns 2006: Jólamolar |
föstudagur, júní 24, 2005
Breytingar framundan...
Hæ gengi, afsakið hvað ég er búinn að vera latur að skrifa... Mikið erfitt búið að vera að gerast og skrifgleði mín búin að vera í sögulegu lágmarki. Ég er í rauninni að pína mig til að skrifa núna. Framtíðin verður greinilega mikið mikið öðruvísi en mig hafði langað eða grunað. En ég ætla að taka henni opnum örmum og vona að hún beri í skauti sér hamingju, góða vini og góðar stundir. Smá lag handa ykkur sem við Pálína sömdum eiginlega saman á laugardaginn. It's time for me now, to gather my possessions. I'll leave you my love and ride to the north. once more... No more will I keep an easy tomorrow. My betrayal was deep and deep is my sorrow. once more... So goodbye my lovely, it's time we part... So goodbye my lovely, it's time we part... Once more... We tried and we tried, to cover our pain. But grace was denied and only my worthless heart remains. So goodbye my lovely, it's time we part... So goodbye my lovely, it's time we part... once more... So I ride in the north, in my saddle of shame. I hide in the mist, cause I am the one to blame... So goodbye my lovely, it's time we part... once more... So goodbye my lovely, it's time we part... Bestu Kveðjur, Svabbi [ 0 ] þriðjudagur, júní 21, 2005
Bænir...
Mér hefur aldrei farist vel að biðja til guðs þegar mér líður illa... En þeim mun betur líður mér þegar ég bið til hans pabba heitins... Merkilegt... Bænir til pápa virðast alltaf getað látið mér líða betur. Bestu Kveðjur, Svabbi [ 0 ] miðvikudagur, júní 15, 2005
Skyrdónar og slordónar...
Jæja... Kom að því að einhver tæki aftur upp skyrslettur á Íslandi... Ég segi nú bara, ef þeir taka ekki mark á rökum, þá er bara allt í lagi að henda í þessi ómenni smá skyri. Þeir hafa efni á nýjum jakkafötum þessi mörsvín. En nóg um það... Áhugavert að ef maður safnar barnaklámi eða lemur mann í kássu niðri í miðbæ er manni sleppt eftir yfirheyrslur. En ef fólk mótmælir eyðileggingu náttúru landsins með skyrkasti, þá sitja menn fulla 24 tíma án ákæru... Og jafnvel lengur... Áhugavert gildismat... Bestu Kveðjur, Svavar [ 0 ]
Eric Zero og Svabbi á Kaffi vín...
Hæ... Bara að láta vita að við Eric Zero munum spila saman eitt stykki "einmana-gaurinn-með-kassagítarinn" tónleika á Kaffi Vín á Laugardagskvöldið 18. júní kl. 22 stundvíslega. Til að bæta gráu ofan á svart mun ég gera heiðarlega tilraun til að kóvera eitt af lögunum hans og hann mun kóvera eitt af mínum. Þetta verður vonandi skemmtilegt og allir í góðum fílíng. Bestu Kveðjur, Svavar [ 0 ] þriðjudagur, júní 14, 2005
Kominn heim úr frábærri ferð... :D
Var í stórskemmtilegu ferðalagi með fjölskyldunni um helgina. Meðal annars heimsóttum við Galdrasýninguna á Ströndum og Sauðfjársetrið. Við eyddum þar þó nokkrum peningum, sem mér finnst nauðsynlegt þegar maður ferðast, því annars er maður asni og leiðinlegur við fólkið á svæðinu. Svo borðuðum við í Lónkoti á Sölvabar. Það var æðislegt. Áfram það! :D Ennfremur, og nú komum við að kjarna málsins, var staldrað við í Skeiðfossvirkjun, einni af helstu virkjunum Skagafjarðar. Skeiðfossvirkjun er virkjun í Fljótaá, sem er dragá, svo það er svolítið misjafnt í henni rennslið eftir veðri. Undanfarið hefur verið nokkur þurrkur, svo það vantaði svona tíu metra upp á yfirborð lónsins. Þetta þýddi að við okkur blasti 20-30 metra breitt drullusvað, þar sem venjulega er bakki. Ókei... Ímyndum okkur þessar aðstæður, sem eru ekki algengar í Skagafirðinum, á hverju vori, nema hvað að yfirborðssveiflan er 75 metrar og nær hámarki í maí, júní og júlí, halli lónsins er meira aflíðandi og í stað þess að vera bergvatnsvirkjun er hér um að ræða jökulframburð. Ú, Ú, gleymdi ég að minnast á að lónið er u.þ.b. 50 sinnum stærra? Við erum að tala um svona 200 metra breiða og 40-50 km. langa rönd af aurströnd, sitt hvoru megin í meira en þrjá mánuði á ári. Getur einhver stafað K-Á-R-A-H-N-(J)-Ú-K-A-R? Þetta var augnaopnandi reynsla. Bestu Kveðjur, Svavar Knútur [ 0 ] mánudagur, júní 06, 2005
Gósentíð Kárahnjúkavirkjunar
Frétt af Rúv: "Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins fullyrðir að ný verksmiðja Marels í Slóvakíu hefði verið reist hér á landi ef gengi krónunnar væri lægra. Vaxtahækkanir Seðlabankans og sú hágengisstefna sem af þeim hlýst leiðir til þess að vel launuð störf í útflutnings og hátæknigreinum flytjast úr landi, segir Sveinn Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Þegar hafi Mörg hundruð störf í tapast. Fyrirtæki í þessum greinum verði einfaldlega undir samkeppni vegna efnahagsstjórnar íslenskra stjórnvalda." Hversu mörg störf áttu aftur að vera í þessu álveri fyrir austan? 450? Já, alveg rétt. Hversu mörg störf ætli við séum nú þegar búin að flæma úr landi og jafnvel störf með mun meiri framleiðni, störf sem hefðu verið sköpuð af frumkvæði vel menntaðra og skapandi Íslendinga? Maður spyr sig... [ 0 ] sunnudagur, júní 05, 2005
Áhugavert teik á sjávarútveginn...
Fyrir ykkur sem eru eitthvað að pæla í umhverfismálum og auðlindastjórnun... (ég veit...) þá er hér ansi skemmtilegt viðtal við Niaz Dorry á Grist.org, sem er besta umhverfisblaðamannasíða sem ég hef séð lengi, málefnaleg og virkilega vönduð umfjöllun alltaf hjá þeim. Hún Niaz Dorry er mikill snillingur og vill meina að kvótakerfi og verksmiðjufiskerí sé versta hugmynd ever í fiskveiðistjórnun og auðlindanýtingu. Hún hvetur til þess að smærri samfélög veiði á meira lókal miðum, sem hvetji menn til að gæta betur að sínum eigin auðlindum. Hún segir Verksmiðjuskip og skuttogara vera mestu skaðvalda á botninum og fiskistofnunum sem hugsast geta. Þá skal áhersla leggjast á það að Niaz Dorry er ekki fanatískur "umhverfisbrjálæðingur" sem er á móti öllu. Hún elskar fisk og borðar mikið af honum, en hún vill beita vistkerfastjórnun til að lágmarka þann skaða sem veiðarnar valda, sjálfbær auðlindanýting. Þetta er orð sem íslensk stjórnvöld nota í hégóma. Íslensk stjórnvöld hafa ekki hugmynd um sjálfbæra auðlindanýtingu, ekki grænustu glóru! Pæliði aðeins í þessu... Bestu Kveðjur, Svavar Knútur [ 0 ] laugardagur, júní 04, 2005
Kreisí fílíngs...
Jess... búinn að vera í vinnunni síðan kl. 8 í morgun... Svaka stuð á Mogganum... Nú fer ég í sund með Kára vin og kannski Stebba. Jamm og jæja... :) Svo langaði mig bara að biðja ykkur... Ef þið á annað borð fílið Hraun! að vera dugleg að "boða fagnaðarerindið", því okkur langar að geta gert góða hluti með fullt af skemmtilegu fólki á tónleikum. Það er rosa gaman. Það er líka æðislegt að spila á tónleikum þar sem fólk er að hlusta og spekúlera í því sem maður er að gera. Ég hef prófað það nokkrum sinnum og það er óviðjafnanlegt :D Í öðrum fréttum... Ég er að þreifa fyrir mér með að leita að giggum og jafnvel ferðum um Evrópu og Skandinavíu fyrir hraun í haust eða næsta vor. Gæti verið gaman... Svo verður náttúrulega stuð í júlí þegar sveitin fer að kynna plötuna og spila úti um allt land og svona... :) Bestu kveðjur, Svavar [ 0 ] föstudagur, júní 03, 2005
Plötufregnir...
Jæja... Platan svona 85% tilbúin... Mikil vinna búin að eiga sér stað síðustu vikur. Jón Góði hefur reynst gríðarlega góður í samvinnunni og ég held að við höfum náð mjög vel saman. Nú þarf bara að taka upp smá píanó og raddir og laga einhvern kassagítar. Ég ætla líka að taka eitt lag upp upp á nýtt, en það var of hratt. Það tekur vonandi bara tvo tíma, því það er bara kassi og söngur. Þá er það bara spurning um að finna góðan og duglegan útgefanda... Veit einhver um útgefanda sem væri til í að blæða í svona 1000 eintök og hjálpa okkur að selja þau? Látið okkur bara vita :D Svo hlakka ég bara til að selja ykkur eintök á skid og ingenting krúttin mín... Bestu Kveðjur, Svavar [ 0 ] miðvikudagur, júní 01, 2005
Blaðamaðurinn dularfulli...
Mér sýnist ljóst að "blaðamaðurinn" dularfulli var ekki frá Orðlaust. Ég hef fyrir því nokkuð örugga heimild að þessi gaur tengdist víst ekki þeim ágæta kvenkyns menningarmiðli. Greyið virðist bara hafa verið einhver vitleysingur sem ætlaði að smygla sér inn með leiðindum og þykjast vera stór. Ég vona að Orðlaust sjái í gegnum fingur með það að ég bendlaði þau við einhvern svona vitleysing og allir séu enn vinir. :D Bestu Kveðjur, Svavar [ 0 ] |
Eva
Örn "Mugison"
Elias Tónlistarmönnum sem gefa tónlist
sína á netinu er velkomið að hafa samband
við Hr. Muzak og þá bæti ég þeim
á listann.
Laukurinn rúlar
Dr. Gunni
| |||