![]() |
Þankatankurinn
|
![]() |
||||
|
Svavar Knútur Kristinsson, Félagsauðströll, heimspekingur, umhverfis-verndarsinni og tónlistarmaður. NÝTT!!!
|
Nýjustu Demó: Ástarsaga úr fjöllunum (Sumarið 2005) Goodbye my lovely (19. júní 2005) Your love was death to me (Janúar 2005) Call off your Cavalry (September 2004) You should call a doctor (Maí 2004) Kysstu tímaglasið (endurbætt útgáfa 2004) Mother's day Jólaplata Hrauns 2003: Þrautgóðir á Hraunarstund Jólaplata Hrauns 2005: Höldum jól Jólaplata Hrauns 2006: Jólamolar |
miðvikudagur, ágúst 31, 2005
Ég elska það þegar...
...maður lendir í slíkum tilvistarkreppum að maður veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta... Þegar lífsins óvissa og ótal möguleikar hellast yfir mann og maður næstum brotnar undan þunganum... Ég fékk kvíðakast í fyrradag... Var að keyra "heim" úr vinnunni... hafði komið við á einum stað áður, fengið nett súra og skrýtna tilfinningu þar, og á leiðinni "heim" fór mér að sortna fyrir augum, mig svimaði og ég gat varla andað... ...Ég hélt í smá stund að ég yrði aldrei hamingjusamur, myndi aldrei finna hamingju... Sem betur fer á ég góða vini, yndislega vini og kvöldið reddaðist... Af mér er það annars að segja að Birna, sem var barþjónka á Rósenberg, bjargaði lífi mínu ásamt vinkonu sinni Lailu. Þær skutu yfir mig skjólshúsi næstu tvær vikur, en ég fæ íbúðina mína afhenta undir lok september. Þær eru báðar alveg frábærar... Gaman að tala við þær og hanga með þeim og mann langar helst ekkert að flytja í sína eigin íbúð lengur ;) Þetta er bara brilljant... En, ég er bara gestur og hef gaman að samverunni við þær... læri ýmislegt af þeim líka. Forvitnilegt kommúnulíf sem er í gangi þarna... Kannski var það líka þegar ég áttaði mig á því að ég er almennt mjög hamingjusamur náungi og tilvistarkreppur eru pínulítil göt í tíma og rúmi hamingjunnar að þetta bjargaðist. Bestu Kveðjur, Svavar [ 0 ] fimmtudagur, ágúst 25, 2005
Starfsþjálfun...
Fyrir alla sem einhvern tíma hafa notið afgreiðslu starfsfólks í "starfsþjálfun" á skyndibitastað hlýtur það að vera dálítið sjokk að sjá aftan á samfestingi sjúkrabílastarfsmanns: "Starfsþjálfun"... "Svo ýtirðu hér, á 400 Volt... Já... Já... nei, allt í lagi, við reynum aftur..." "Svo tekurðu bara þessa ampúlu af adrenalíni hér og sprautar í hjartað á honum, já, einmitt, nei, nei, hjartað!" úff... Heimsókn mín í bakaríið í morgun var óttablandin... Bestu Kveðjur, Svavar [ 0 ] miðvikudagur, ágúst 24, 2005
Enn af Clementine :D
Þetta skotgengur bara :D ![]() Allir svona helv. hressir með hana Klementínu. Gaman að þessu. Bestu Kveðjur, Svavar [ 0 ] mánudagur, ágúst 22, 2005
Þið umhverfisverndarsinnar vitið ekkert um hagfræði...
Jamm... Við umhverfisverndarsinnar vitum ekkert um hagfræði, alveg rétt... Okkar andstaða við ríkisvædda stóriðjustefnu og slikksölu íslenskra auðlinda er bara byggð á heimsku og engu öðru... Sú skoðun mín að verðleggja beri náttúru Íslands hátt til að meira fáist fyrir minna af náttúru og minni náttúra sé þannig eyðilögð er dæmigerð umhverfisheimska... Sú skoðun mín að fólkið sjálft sé mun færara um að byggja upp hagkerfið en ríkisstjórnin er byggð á einhverjum moldarkofahugsunarhætti. Og hugmynd mín um að fyrirtækin í landinu geti sjálf haldið uppi hagvextinum án sérstakra afskipta ríkisins er vinstrivilla... Lesið bara þessa úttekt hagfræðinga greiningardeildar KB-banka. Ekki er hægt að saka þá um sérstaka ást á umhverfinu er það nokkuð? Eða eru þeir kannski þátttakendur í einhvers konar risasamsæri gegn ríkinu og stóriðjustefnunni. Helvítis kommar! [ 0 ] miðvikudagur, ágúst 17, 2005
Djúpavíkurævintýri
Ofboðslega var gaman á Egilsstöðum og Ströndum. Við áttum yndislega gimp-stund íklæddir gúmmígrímum, öskrandi eins og brjálæðingar um morguninn á Egilsstöðum og svo þetta líka stórskemmtilega fjölskylduskrall í tjaldinu um kvöldið. Eftir fjölskylduskrallið var lúllað í tvo tíma og svo keyrt til Akureyrar til að ná flugi til Rvk (vegna smá vitleysu í bókun). Lent í Rvk kl. 10, rótað, borðað og síðan þust til Djúpavíkur á Ströndum þar sem við þurftum að vera mættir kl. 18. Við Gummi mættum rétt á eftir Lofti og Kristrúnu og tókum netta dinnermúsíkurpakkann með blöndu af völdum þungarokkslögum í latin-útsteningum og fleiru. Þá tókum við nokkur frumsamin í einfölduðum útgáfum. Það fór ekki mikið fyrir röddinni minni, enda hafði ég ekki getað sofið af mér hæsina um nóttina. Þegar Jón Geir og Nanna komu loksins eftir miklar hrakningar ásamt Jósa og Stebba, var okkur ekki lengur til setunnar boðið. Hófst þá hin skemmtilegasta kvöldvaka sem fylgt var eftir með brennuspili og partýi... (U.þ.b. 48 tímar án svefns...) Um morguninn vöknuðum við svona líka hress, fengum okkur kaffi og spjölluðum við heimafólkið á Hótelinu (yndislegt hótel, ótrúlega góður fjölskyldustemmari). Svo fór ég einn í Krossnesslaug og naut lífsins. Um kvöldið fórum við Jón Geir og Nanna inn í einn olíutankinn ásamt fleirum og fórum að leika okkur við upptökur. Þar tókum við m.a. upp harmonikkufantasíu, jólalög og nýja lagið, sem heitir Ástarsaga úr fjöllunum. Ástarsaga úr fjöllunum er unnið upp úr gamalli barnabók, sem fjallar um tröllkonu og tröllkarl sem elskast en geta bara hittst einu sinni á ári. Tröllkonan eignast s.s. alltaf stærri og stærri barnaskara sem hægir á ferð hennar til að hitta elskhuga sinn. Á endanum tefst hún svo mikið að hún kemst ekki til fundar við manninn sinn í tæka tíð og verður að steini ásamt börnunum sínum og hann líka, þar sem hann bíður eftir henni... Þessi saga gerir mig alltaf ógeðslega sorgmæddan. Kannski hún hafi persónulega skírskotun. veit ekki... Anyways... Hér er lagið og textinn er svona: Ég beið eftir þér Ég beið langa stund eftir þér Og sól kom upp yfir Snjóinn Og nú er ég hraun Ég er mosavaxið hraun En djúpt inni í bergi slær hjarta slær tröllshjartað enn. [ 0 ] mánudagur, ágúst 15, 2005
föstudagur, ágúst 12, 2005
Skelfing...
Ferlegt að vera svona vandræðalegur og kunna ekki ýmsa hluti í mannlegum samskiptum... Ég hef nú nýlokið við að klúðra royally öllum möguleikum sem ég hafði á að kynnast betur (og nú segi ég kynnast betur, ekki reyna við...) æðislega manneskju sem ég hef lengi haft nettan áhuga á sem manneskju. Húrra fyrir mér! Jæja... Best að halda haus og reyna að vera hress... Sendi ykkur brjálaðar stuðkveðjur frá Egilsstöðum, þar sem við erum að spila í kvöld, en síðan keyri ég til Akureyrar í nótt, flýg til Reykjavíkur í fyrramálið, sæki bílinn og keyri norður í Djúpavík á Strönudm þar sem Hraun mun gleðja gesti Djúpavíkurdaga. Mikil keyrsla, enginn svefn og Svabbinn gersamlega laus við öll eiturlyf. Ekkert spítt fyrir mig, bara kaffi og góða skapið. Ég vona samt að T. haldi ekki að ég sé algjör hálfviti... Mig langaði bara svo að kynnast henni betur, en ég er klaufi... T. ef þú lest þetta... ég er algjör klaufi! Ég er bara vandræðalegur og skrýtinn náungi. Fyrirgefðu mér klaufaskapinn... Bestu Kveðjur, Svavar [ 0 ] miðvikudagur, ágúst 10, 2005
Argyle fist
Langar bara að benda ykkur á brilljant band sem ég var að rekast á á "internetinu". Bandið heitir Argyle fist og er svona þriggja manna furðuband frá Kentucky. Ég er hrikalega ánægður með það sem ég er búinn að heyra með þeim... Sérstaklega lagið Lay down... :) Bestu Kveðjur, Svabbi [ 0 ] föstudagur, ágúst 05, 2005
Bara benda ykkur hljómtækjanördunum á...
Nýja búðin hans Drengs vinar míns... www.portus.is Tékkið á þessu, strákurinn er snillingur og mikilvægt að styrkja gott frumkvæði... :D Bestu Kveðjur, og endilega látið vini ykkar vita af bestu hljómsveit í heimi í leiðinni ;) ... ... Hraun... já... Ókei, kannski ekki besta hljómsveit í heimi, en við erum skrambi góðir... :D Svabbi [ 0 ] fimmtudagur, ágúst 04, 2005
Virkjana- og stóriðjumóðursýki - Hryðjuverk...
Þegar ég hugsa um orðið Hryðjuverk detta mér í hug sundurtættir líkamar ísraelskra barna í sprungnum strætisvagni, saklausir íraskir borgarar örendir á rjúkandi leifum markaðstorgs, flugvél fljúgandi inn í WTC og örvæntingarfullir bretar hlaupandi gegnum reykmökkinn upp úr neðanjarðarlestinni. Jafnvel sökkt hvalveiðiskip í lægstu mynd hryðjuverka. Nú hafa stóriðjuhysteríumenn komið nýrri skilgreiningu á hryðjuverki inn í heimsmynd mína. Anórakkaklæddir aktívistar hengjandi fána og hlekkjandi sig við vinnuvélar... Hryðjuverkamenn. Hryðjuverk. Terroristar sem hengja sig upp í krana! Reyðfirðingar geta aldrei aftur gengið um göturnar án ótta við að aktívisti hlaupi hjá og hengi jafnvel borða á vegg!!! Ímyndið ykkur skelfinguna sem þetta fólk þarf að búa við. "Þetta kemur þér ekki við! Þú ert ekki Austfirðingur, þú býrð ekki hérna! Þú ert bara á móti Austfirðingum!" sögðu hysterískir virkjanasinnar við mig þegar ég reyndi að rífast við þá um stóriðjustefnuna og afleiðingar hennar fyrir íslenska náttúru. Vissulega var ég á móti Kárahnjúkavirkjun og stórvirkjunum til stóriðju almennt. Það er rétt... ég bjó ekki á Austfjörðum þó ég væri ættaður þaðan. Hafði ekkert um málið að segja, nema það að mér sárnaði framkoman og tillitsleysið gagnvart landinu. En ég vissi að þessi móðursýki myndi breiða úr sér eins og stökkbreytt fuglaflensa. Ég vissi að hún myndi ekki stoppa á Austfjörðum, heldur taka næstu byggðir, Húsavík, Akureyri, Skagafjörð, Blönduós. Allir fá sömu loforðin um gull og græna skóga ef þeir bara sóa náttúruauðlindunum sínum. Kárahnjúkavirkjun var stóri þröskuldurinn sem hysterían þurfti að fara yfir og nú er hún orðin landlæg. Jökulárnar sem fæða Héraðsvötnin mín eru næstar. Retóríkin minnir á Bush og félaga. "Ef þú ert ekki með virkjun og álveri ertu á móti framförum!" Hvar hef ég heyrt þetta áður? Ég var á móti KV af því að ég vissi að Skagafjörðurinn myndi falla ef Austfirðir féllu. Það er ekkert heilagt lengur og allir eru sýktir af Stóriðjumóðursýkinni. Ísland er fallið í álflúensuna... Bestu Kveðjur, Svabbi [ 0 ]
Einkaþjálfarinn góði
Varúð... Montblogg a-la týpískt karlmannablogg að mati Möggubest. ;) Í gær kom ég heim, hálfúldinn eftir illa heppnaðan og þunglyndan vinnudag. Stundum er þetta bara svona... Dóttir mín spurði mig hvort ég vildi koma í hjólatúr og ég játaði með hálfgerðum semingi. Svo komst ég að því að dekkið á hjólinu var algerlega flatt og ömurlegt. Ég vildi samt ekki svíkja hana, þannig að ég stökk upp, klæddi mig í jogginggallann og sagði: "Heyrðu Dagbjört, ég skokka og þú hjólar, hvernig líst þér á það?" Og hún var þvílíkt hrifin. Svo var hlaupið af stað. Stelpan þrumar á hjólinu og ég spretti á eftir, svaka gaman. Hlaupið niður drápuhlíðina, út að miklubraut, upp Miklubrautina og yfir gatnamótin, niður Miklatúnið og upp Flókagötuna, að Háteigskirkju og síðan niður að (og niður) Skaftahlíð að Lönguhlíð. Geeeðveikt gaman!!! Ég hljóp viðstöðulaust 15 mínútur, besti árangur minn til þessa og dóttirin þvílíkt ánægð! :D OH! Mér líður geðveikt vel núna! (smá harðsperrur...) Ég spurði Dagbjörtu hvort hún vildi ekki bara vera einkaþjálfarinn minn, fyrst henni tækist að láta mig hlaupa stanslaust í korter. Hún hélt það nú, svo nú erum við komin með þennan líka fína díl. Gott veður = Skokk- hjólatúr. :D Einhverjir viðmælendur okkar Pálínu hafa fett fingur út í það samkomulag okkar að Dagbjört búi hjá okkur báðum jafnt til skiptis. Segja helgarpabbafyrirkomulagið betra, enda slíti svona fyrirkomulag börnunum. Ég veit ekki hvað skal segja. Við Pálína erum samhent, góðir vinir og ofboðslega sammála um allar helstu áherslur og reglur í uppeldi Dagbjartar. Við munum búa nálægt hvort öðru og erum bæði afar sveigjanleg í að hjálpa hvoru öðru. Ég held að Dagbjört verði ekkert "skilnaðaráfalls- og togstreitu" barn. Og varðandi Helgarpabbapakkann, þá finnst mér hann ómögulegur. Ég ætla ekki að vera einhver sparipabbi sem er alltaf geðveikt skemmtilegur og það er svona hálfgert frí að heimsækja hann. Gera eitthvað skemmtilegt um helgar, fara í húsdýragarðinn og bíó og svoleiðis sjitt. Ég vil vera eðlilegur og venjulegur pabbi sem urrar á morgnanna, ráfar hálfsofandi fram í eldhús og smyr nesti allt of seinn á fætur, drekkandi kaffi á boxerunum á meðan Dagbjört staulast ennþá syfjaðri fram og maular á hrökkbrauði með osti. Ég vil ekki vera glansmynd eða blekking, heldur raunverulegur pabbi. Það er munurinn. Dagbjört verður að upplifa pabba sinn sem eðlilega manneskju, en ekki sem "weekend retreat." Lífið er ekki þannig. Bestu Kveðjur, Svabbinn [ 0 ] miðvikudagur, ágúst 03, 2005
Americana...
Tónlistin sem ég hef verið að semja undanfarin tvö ár er afar ólík því sem áður hefur komið upp úr mér... Held ég allavegana... Ég er búinn að vera mjög undir áhrifum frá tónlist sem heyrist í kvikmyndum eins og O' brother, where art thou, Cold mountain og fleiri gömludagamyndum. Það er eitthvað við angurværa og tregafulla tónlist sem vísar til einfalds mannlegs ástands... Ég finn nýja breytingu vera að koma yfir mig og innblásturinn að koma úr aðeins öðrum áttum... sjáum til hvert það fer... Gamla Ameríka, americana pælingin, er rosalega flott og gaman að velta henni fyrir sér. Svona Ameríka fyrir daga McDonalds, Disney og Heimsvaldastefnu. Ameríka drauma vona, vonbrigða og væntinga venjulegs fólks. Æðruleysi, framsækni og hæfileg sletta af trú á eitthvað gott. Svo kallið plötuna okkar Hraundranganna ameríska þegar þið heyrið hana og það er alveg rétt. Ég er að fíla þessa pælingu akkúrat núna og vonandi veldur það ekki vonbrigðum hjá fólki. Annars er ég svona þessa dagana að komast að því að ég hef verið leiðinlegur síðan ég var fjögurra ára... Ég var þunglynt barn og ég var þunglyndur unglingur og ég er þunglyndur gaur. Frábært... :| Best að athuga hvað hægt er að gera í þessu... Í guðanna bænum ekki fara að skrifa núna komment um hvað þetta verði allt í lagi, ég sé frábær náungi... Ég veit allt um það. Ég er þunglyndur, ekki heimskur. ;) Bestu Kveðjur, Svavar Knútur [ 0 ] þriðjudagur, ágúst 02, 2005
Lurkurinn?
Maður er ekki harður eins og steinaldarmaður... Ekki übermjúkur eins og "nútímamaður"... Maður er ekki suave eins og metrómaður.. Maður er stinnur en sveigjanlegur... svolítið eins og grein, eða lurkur... Lurkmaður... Það er ég... Ég minni ykkur á Clementine hér að neðan. Endilega látið vita af laginu og dreifið því um netið okkar... :D Bestu kveðjur, Svavar [ 0 ] |
Eva
Örn "Mugison"
Elias Tónlistarmönnum sem gefa tónlist
sína á netinu er velkomið að hafa samband
við Hr. Muzak og þá bæti ég þeim
á listann.
Laukurinn rúlar
Dr. Gunni
| |||