![]() |
Þankatankurinn
|
![]() |
||||
|
Svavar Knútur Kristinsson, Félagsauðströll, heimspekingur, umhverfis-verndarsinni og tónlistarmaður. NÝTT!!!
|
Nýjustu Demó: Ástarsaga úr fjöllunum (Sumarið 2005) Goodbye my lovely (19. júní 2005) Your love was death to me (Janúar 2005) Call off your Cavalry (September 2004) You should call a doctor (Maí 2004) Kysstu tímaglasið (endurbætt útgáfa 2004) Mother's day Jólaplata Hrauns 2003: Þrautgóðir á Hraunarstund Jólaplata Hrauns 2005: Höldum jól Jólaplata Hrauns 2006: Jólamolar |
þriðjudagur, september 27, 2005
Trúbadorinn ógurlegi risinn úr rekkju...
Spólaði mig út um helgina, eftir mikið álag síðustu vikur... Varð bara veikur og lagðist í rúmið... (sófann) fæ íbúðina mína afhenta í kvöld... Jei! Fyrsta nóttin, aðfaranótt miðvikudags... Hlakka til... Svo getur verið að það verði svona pínu get-together í Barmahlíðinni fljótlega, þegar ég er búinn að mála og sparsla og koma mér vel fyrir... :D Hvað varðar innflutningsgjafir eru blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð, einnig myndir, kertastjakar, öskubakkar, styttur, blómavasar, servíettuhaldarar og fleira óþarfa dót. Ég myndi hins vegar ekki fúlsa við nýjum kodda úr rúmfatalagernum. Pullum í stofuna og eins og einni kommóðu úr Góða hirðinum. (sláið bara saman) Bækur og geisladiskar eru líka alltaf skemmtilegar innflutningsgjafir, þar sem ég á eiginlega enga geisladiska og finnst bækur alltaf æðislegar. :D Bara svona að benda á hið augljósa :D Mér líður svo vel í hjartanu núna. Ég er búinn að vera að hreinsa til þar og breyta og bæta. Það er allt annað að díla við mannleg samskipti núna og ég hlakka bara til komandi tíma. Æi já, alveg rétt! Þunglynt þriðjudagskvöld á Café Rósenberg kl. 22 í kvöld... Frumsamið efni í bland við þunglynd tökulög... :D Bestu kveðjur, Svabbi [ 0 ] föstudagur, september 23, 2005
Haldiði að maður hafi ekki bara unnið?
Helvíti fínt! :) nú verður hrúgast niður á Rósenberg og drukkinn bjór og spilað! Sjáumst þar upp úr 22 :D bæ bæ :D [ 0 ] fimmtudagur, september 22, 2005
Bara að benda ykkur á...
Ég skráði mig í Trúbadorakeppnina á Rás 2 elskurnar mínar. Þætti vænt um að þið hlustuðuð á þessi fjögur lög og greidduð síðan atkvæði með því sem ykkur þykir best. Bestu Kveðjur, Svabbi ljúfmenni [ 0 ]
Fyndið...
...hvernig sumt fólk getur náð til manns miklu fastar en annað... Sumir geta sagt eitthvað ósköp lítið við mann og maður fer í kerfi... Sem betur fer segja sumir það við mann bara svona í prívat, en aðrir gefa í skyn undir rós hvað maður sé ömurlegur fyrir framan þriðja aðila, svona rétt til að segja manni "Ég veit að ég get eyðilagt samband þitt við þessa manneskju ef ég vil, ha? Viltu það ha?" Svoleiðis þoli ég ekki... Svo eru aðrir, sem með því einu að benda á ótrúlega augljósan hlut setja mann í margra klukkutíma vangaveltur um manns eigin issjús... Ég veit ég veit... ég er óttaleg áhyggjuvarta og issjúblesi... Æi... þó maður sé að taka einhverjum prógress, þá er maður viðkvæmur... Þó maður viti að maður sé enn að læra á lífið upp á nýtt... Er að ná áttum, en er samt pínu viðkvæmur... tjah blablabla... Hvað er ég að gera á fótum núna...? Jah... ég er væntanlega að hugsa allt of mikið, eins og venjulega ;)... Ég upplifi heiminn voðalega stóran þessa dagana, er að uppgötva allt og ekkert... Eins og ég sé það, til þess að geta hegðað sér náttúrulega "eins og ekkert sé", þarf maður að vera kunnugur aðstæðum, lífinu, hvernig hlutirnir virka... Ég er enn að læra að synda í ansi slungnum hyl og auðvitað langar mig að geta farið óttalega frjálslega og húllumhæ í allt, en ég er bara ennþá að læra að synda, svo ég verð bara að leyfa mér að uppgötva þetta allt saman á mínum hraða. Fólk sem er búið að vera inni og úti úr lauginni meir og minna allt sitt líf getur væntanlega trútt um talað þegar það flissar að spéhæðni manns, en bah... maður verður bara að taka sinn tíma og ef fólk þolir það ekki, þá missir það líka bara af þeim ágætis sundfélaga sem maður getur orðið ;). Annars er ég fínn, nokkuð sáttur bara og er svona að læra alls konar nýjar og æðislegar hliðar á lífinu... Vona að einhver sé til í að taka þátt í því með mér að hrífast af þeim... Ég er búinn að henda innri djöflunum á ágætis stað og þarf núna bara að læra að hnussa á ytri djöflana. Það er þó auðveldara að loka einhvern úti sem er ekki inni... Úff... hlakka ekki til að mæta í vinnuna eftir tvo tíma... þrjá tíma væri ókei, en þetta er full lítið... Mig langar að fara að flytja inn í íbúðina mína... Bestu Kveðjur, Svavar [ 0 ] miðvikudagur, september 21, 2005
Alveg Klukkaður náungi...
Klukk? Hvað er í gangi hérna?!? Hvað á það að þýða að vekja mann kl. 09.30 að morgni með einhverjum barnalegum leikjum!?!?!?!? Á kannski næst að brjóta rúðuna hjá manni??? En gott og vel... Hér koma fimm atriði um Svabba í dag...
Veit ekki... ég trúi ekki á svona klukkdæmi... En ég klukka Pálínu samt, því mér finnst hún mætti blogga meira. [ 0 ] þriðjudagur, september 20, 2005
Bara eitt enn...
Hraun frumfluttu á dögunum lagið Dansa. Bæði lag og texti urðu til á einu mesta þunglyndistímabili sem ég hef nokkurn tíma upplifað... Þetta er tribjút til Hemma Gunn og fjallar í raun um það hvernig hlutirnir geta bara batnað... (sem þeir hafa gert) Ég set það bráðum inn sem demó handa ykkur sem komist ekki á tónleika... Dansa Bráðum kemur betri tíð með blóm í haga og bleikar kýr sem dansa fram á nótt... Við skulum vera góð og blíð, því senn líður að sláturtíð og dansað, það verður dansað. Dansa, hvað er betra en að dansa? Dansa, hvað er betra en að dansa? í nótt Vetrarnóttin köld og dimm en bráðum læðist sólin inn og dansar fram á nótt... Þá hverfa ljótar hugsanir og hörfa allir skuggarnir og dansa, þeir munu dansa. Dansa, hvað er betra en að dansa? Dansa, hvað er betra en að dansa? í nótt Allt sem hvarf og allt sem dó mun bráðum hulið undir snjó sem dansar fram á nótt. Allar sorgir öll mín eymd mun bráðum verða grafin gleymd og dansa, við munum dansa. Dansa, hvað er betra en að dansa? Dansa, hvað er betra en að dansa? í nótt [ 0 ]
Leið þroska...
Leið sársauka? Af hverju þurfa andlegar framfarir að innihalda svona mikið streð, puð og sársauka? Ég fór á jarðarför Ólafs Guðmundssonar kennara og stórkostlegs lífskúnstners í dag... Athöfnin, sem fór fram í dómkirkjunni, var mjög falleg og maður klökknaði nokkuð oft í minningunni um þennan frábæra mann sem Óli var. Ég vildi óska að ég hefði kynnst honum meir og betur, en þau nokkru skipti sem við hittumst voru nóg. Hann snerti mig meir en margir sem ég hef þekkt lengur. Og í hvert skipti sem við hittumst var það innileikinn og ótrúleg gestrisnin sem stóðu upp úr, ástríðan fyrir verkefnunum og ævintýraheiminum sem hann var að skapa. Ég sakna Ólafs og ég vona að konu hans og börnum reynist sorgin ekki of erfið, því þarna fer maður sem hefði alveg mátt dvelja hér lengur með okkur... En... Ég ætla að láta minningarorðin sem presturinn fór með og minningu mína um Óla vera mér lærdóm fyrir lífið. Láta slag standa og lifa lífinu af ástríðu! og hananú! Jæja... Nú fær minn bráðum íbúðina sína og getur farið að lifa eins og munkur á sínum eigin tíma... :D Bestu Kveðjur, Svabbi [ 0 ]
Framfarir ástarinnar í gangi...
Ég er á algerum bömmer núna... En hann hefur voða lítið við sjálfan mig að gera, til tilbreytingar. Núna er ég bara með svona einhverja exo-existensial kreppu í gangi eða hvað sem það heitir... Hef verið að stíga nokkur mikilvæg þroskaskref þessa dagana... Setja mér mörk og öðrum mörk gagnvart mér og fatta að ég á ekki alltaf að vera í svona miklu mínus yfir sjálfum mér, ég er frábær... ;) Úff... annars líður mér ekkert sérstaklega vel yfir sumu sem ég hef verið að gera, en ég veit að það er nauðsynlegt... Guð hvað mig langar að hlutirnir séu öðruvísi, en ákkurat núna verð ég bara að setja sjálfan mig í forgang og læra að lifa samkvæmt eigin forsendum... Trallallaaaaa Annars verða Hraun! menn á Rósenberg um næstu helgi og á þriðjudaginn kemur verður þunglyndur Þriðjudagur á Rósenberg í boði Svabba... Ég er í algjörum mínus yfir þessum nýlegu ákvörðunum, en ég held að þær muni gefa mér eitthvað gott þegar til lengri tíma er litið... :D Jeeei... Bestu Kveðjur, Svabbi [ 0 ] föstudagur, september 16, 2005
Fólk er misjafnt...
Manneskja sagði svolítið við mig í gær sem sló mig... Án þess að fara nánar út í það, þá varð ég býsna sorgmæddur og fann ofboðslega mikið til með henni... Ég gat ekki gert að því og ég biðst afsökunar ef það hljómar illa... Mig langaði bara að halda utan um viðkomandi næstu dagana og reyna að veita einhverju af jákvæðu orkunni sem ég á inn í hana... Hugsa sér hvernig ólíkir atburðir geta skilað sér á ólíkan hátt í ólíkum persónum með ólíkan bakgrunn... Urg! Ég vona bara að þessi manneskja leyfi mér að vera þarna fyrir sig og veita sér hlýju, því það er víst það eina sem ég kann að gera... Og í öðrum fréttum... Í annað skiptið á tíu árum fór ég til spákonu... (ég veit... hlæiði bara...) Ég fór til að athuga hvort tíu ára óförum mínum (sem hin spákonan spáði fyrir tæpum tíu árum) væri lokið... Í stuttu máli: Nei... Það er nóg eftir af óhamingju fyrir Svavar sagði spákonan blákalt... "Þú hefur svo mikið lag á því að geta ekki tekið góðum hlutum og henda frá þér því besta sem hefur komið fyrir þig..." sagði hún... "Það er eins og þú sért áskrifandi að óhamingju og erfiðleikum og rétt þegar það virðist ætla að verða betra, þá finnurðu leið til að eyðileggja það. Það virðist þó glitta í eitthvað jafnvægi næsta haust... Kannski þú verðir tilbúinn til að lifa þá..." Sem betur fer gilti þessi spádómur aðeins út næsta árið... Og sem betur fer lít ég svo á að ég geti breytt því hvernig ég horfi á lífið og ég geti breytt áherslum mínum. Þessi spádómur er bara andleg viðvörun um að ég eigi að lifa lífinu lifandi og ekki efast um hamingjuna. Það er enginn efi í mínu brjósti núna að ég smíða mér mína eigin hamingju og ég ætla að berja þennan spádóm (fyrirgefðu Friðrika) í svaðið með því að breyta mér í bjartsýnan og lifandi karakter... Bestu Kveðjur, Ekki meiri óhamingju, Svavar [ 0 ] þriðjudagur, september 13, 2005
Lögin fæðast...
Undanfarið hefur mikið verið að fæðast hjá Hraun, og við vonumst til að geta flutt a.m.k. þrjú ný lög á Rósenberg næst þegar við spilum, 23. og 24. sept... Kannski væri það frekar spurning um að bíða með að flytja þau og flytja miklu fleiri saman þarnæst? Veit ekki... Anyhoo... Íbúðin afhent a.m.k. viku fyrr... þ.e.a.s. í næstu viku... Allir sem nenna mega koma og hjálpa við að bera kassa þessa 200 metra frá Drápuhlíðinni í Barmahlíðinni, þegar að því kemur... Rosalega væri fínt að geta flutt fyrir 22. sept. Össs... Annars er tilfinningalegi þeytingurinn á sínum stað, ég elska það... Ég vil aldrei hætta að upplifa þetta. Annars er maður nú búinn að taka hlutunum merkilega rólega í sumar... Engin partý, engin drykkja, ekkert sukk... Ég ákvað snemma að taka áfallinu án nokkurra vímugjafa... Það var eftir á að hyggja mjög skynsamleg og leiðinleg ákvörðun, en hefur valdið því að samband mitt við dótturina hefur þroskast á jákvæðan hátt og ég held ég sé að ná ansi góðum framförum tilfinningalega. Lúrílú... Þota... Strætó... Grænt gras... Haustið er yndislegt. Sé ykkur fljótlega fallega fólk, Svavar Knútur [ 0 ] sunnudagur, september 11, 2005
Svona helv. hress...
Brúðkaup í gær... Mikil gleði :) Bíó í kvöld... það verður gaman :D Hraunplatan komin í mix... Stutt í að hún verði tilbúin... Húrra!!! Úff... Það er líka kominn tími á það eftir allt þetta vesen... Ég vil allavegana að hún komi út áður en tilfinningarnar sem undir henni liggja kólna og verða óviðeigandi... Bestu Kveðjur, Svavar Knútur [ 0 ] miðvikudagur, september 07, 2005
Ég hef ákveðið...
...að feta leið meinlæta næstu mánuði... Ég hef afneitað sjálfum mér því besta sem hefur komið fyrir mig lengi... Andskotans! Ég hef ákveðið að klára glímuna við djöflana áður en ég dansa við Engla... Ég kýs leið algerrar eymdar fram yfir notkun verkjalyfja eða að draga aðra með mér niður í svaðið... Ég hlakka til og ég held að þetta geti skilað nýjum og betri Svavari út úr ferlinu... :) En Ái hvað þetta er vont... En ég veit um leið að þetta verður allt í lagi... Ég er góður strákur og klár og mun komast í gegnum þetta með allar tær og alla putta á sínum stað og vonandi hreinna hjarta líka. Nú ætla ég að vaða eldinn og sjá hvað gerist. Bestu kveðjur, Svavar Knútur [ 0 ]
Í dag...
...Stóð ég úti á götu og öskraði og sparkaði í dekkið á bílnum mínum... ...Hló ég og hoppaði og tók dóttur mína á hestbak... ...Emjaði af einsemd... ...Urraði af reiði... ...Murraði af ánægju vegna tilhugsunarinnar um ákveðinn hlut... ...Horfði stoltur á dóttur mína í fiðlutíma... ...Keypti ég mér uppskriftabók sem ég ætla að nýta mér til fullnustu... Er betra að vera algerlega miserable heldur en að vera bara dálítið hamingjusamur? Velti þessu fyrir mér... Kominn að niðurstöðu... Ég hef ákveðið að vera algjörlega miserable... Þangað til ég er búinn að komast aftur á réttan kjöl... Ég get ekki leyft mér að draga aðra með mér niður í svaðið, svo ég ætla frekar að vera einn á meðan ég næ mér á strik... Djöfull er þetta úldið... [ 0 ] mánudagur, september 05, 2005
Maður þarf að fara að taka myndir...
Ég þarf að fara að koma fleiri myndum á þetta blogg... Ég lofa því að það kemur þegar ég flyt inn í íbúðina mína þar sem ég verð með stabíla internettengingu á tölvunni minni... Ó, já, og T: Hér er uppáhalds lagið mitt þessa dagana. :D [ 0 ] sunnudagur, september 04, 2005
Átök...
Jæja... síðustu mánuðir búnir að vera áhugaverðir... Geðveiflur andskotans, upp niður út og suður... tilvistarkreppur, kvíðaköst dauðans... Mamma mía... En nú finnst mér eins og það sé aðeins að sjatna í þessu... sveiflurnar að jafnast út og hausinn á mér að verða hreinni... Það er gott... Ég er dauðþreyttur... Fór í vinnuna kl. 8 í gærmorgun... Búinn kl. 13.30. Fór að róta kl. 14.20, kominn í brúðkaupið og rótaði þar upp um kl. 17. Kl. 20 byrjuðum við að spila og spiluðum til 23. Þá rótuðum við eldsnöggt niður og brunuðum til Hveragerðis þar sem við spiluðum á Snúllabar frá 24 til 03.20. Rótað niður, búið kl. 04.30 og keyrt í bæinn... Kominn heim rúmlega fimm... Vaknaði 12.20 og fór í vinnuna... mætti kl. 13 Verð búinn á miðnætti... Reikniði þetta út... Persónulega sýnist mér ég hafa lagt að baki lágmark 30.5 vinnustundir á laugardegi og sunnudegi... lágmark... Sjitt... Þetta hlýtur að vera persónulegt met... [ 0 ] föstudagur, september 02, 2005
Kröfuharði örlagaeinsemdarmaðurinn...
Hæfileikarík, gáfuð, tilfinningarík, gefandi, þyggjandi, hæfilega brjáluð, aðlaðandi, með heilbrigða kynhvöt, með góða nærveru, metnaðarfull, með útgeislun, brosmild, hreinskilin, heiðarleg, opin, hörð af sér, viðkvæm og brothætt, veraldarvön, opin fyrir nýjum möguleikum, pen, brussa, ferðaflón, innipúki, útivistartýpa, sjálfstæð en þarfnast mín samt, blíð, bjartsýn, drífandi, innileg... Og þetta er bara byrjunin... Mun Svavar hinn kröfuharði einhvern tíma finna sína draumadrottningu? Hmmm... :D Einhvern veginn efast ég um að ég muni fá svona stúlku... Ég held að ég verði á endanum að láta mér nægja það að eiga yndislega dóttur og frábæra vini og fjölskyldu. Svo er tónlistargyðjan ágætis meðreiðarfrú í lífinu. Eða þá er hún kannski þegar komin inn í líf mitt og ég bara hreinlega á eftir að fatta það... Æi ég veit ekki... Ég er bara byrjaður að velta því fyrir mér hvernig manneskju ég vil ganga við hliðina á... En það sem er mikilvægara... Ég er líka farinn að velta því fyrir mér hvers konar manneskja ég vil vera sjálfur... [ 0 ] |
Eva
Örn "Mugison"
Elias Tónlistarmönnum sem gefa tónlist
sína á netinu er velkomið að hafa samband
við Hr. Muzak og þá bæti ég þeim
á listann.
Laukurinn rúlar
Dr. Gunni
| |||