![]() |
Þankatankurinn
|
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
Svavar Knútur Kristinsson, Félagsauðströll, heimspekingur, umhverfis-verndarsinni og tónlistarmaður. NÝTT!!!
|
Nýjustu Demó: Ástarsaga úr fjöllunum (Sumarið 2005) Goodbye my lovely (19. júní 2005) Your love was death to me (Janúar 2005) Call off your Cavalry (September 2004) You should call a doctor (Maí 2004) Kysstu tímaglasið (endurbætt útgáfa 2004) Mother's day Jólaplata Hrauns 2003: Þrautgóðir á Hraunarstund Jólaplata Hrauns 2005: Höldum jól Jólaplata Hrauns 2006: Jólamolar |
miðvikudagur, nóvember 30, 2005
Í tilefni af fjórtánhundruðustu og fyrstu færslunni
Þá langaði mig að leyfa ykkur að heyra gamlan gleðisöng sem ég samdi þegar ég var í Hljómsveitinni Læðunum forðum daga. Gunnar Freyr er snillingur að taka þetta saman allt saman :D Heimurinn er á nöfinni - Fyrsti hluti Fleiri lög hjá Gunna... Bestu kærleikskveðjur, Svabbi [ 0 ] mánudagur, nóvember 28, 2005
aaahhh...
Líður betur... gott að venta svona eins og í síðustu færslum. Ég er enginn klúðrari. Ég er fínn. Dúbb dúbí dúbí... Ég er bara loksins að taka svolítið stór þroskaskref og svona, sem ég hef ekki hingað til fengið að upplifa. Frábært bara. Sjáumst hress á galeyðunni. Svabbinn... [ 0 ]
Dauði og djöfull...
Hér var ventað af offorsi um daginn... Ég nenni ekki svona neikvæðni... Það veldur bara misskilningum... :) Bestu Kveðjur, Svavar... [ 0 ] sunnudagur, nóvember 27, 2005
Orð dagsins...
...er kúkafokk... Líf mitt er kúkafokk akkúrat núna og ef einhver spyrði mig: "Jæja Svavar minn, hvernig líður þér?" myndi ég svara: Kúkafokk... Kúkafokk er það sem ég er í dag og kúkafokk er orð dagsins... og líklega morgundagsins og jafnvel næstu vikna og mánaða... Kúúú-Kaaa-Fooookk! Ahh... þá er það frá... Mér líður samt ekkert betur... Kúkafokk. [ 0 ]
Argans jólaköttur...
Ég er að passa kött fyrir vinkonu mína... Fallegur köttur, ég veit ekki hversu lengi hann verður á heimili mínu, en hann hefur verið asskoti duglegur við að koma hlutunum í óreiðu hér í Barmahlíðinni. Í morgun þegar ég kom út í stofu rak ég tærnar í eitthvað lítið og smátt. Við nánari athugun reyndist þetta vera lítið plastdót með stafinum B. C lá við hliðina og líka tölustafurinn fjórir og E. Mér varð litið á fartölvuna mína og sá að það var svona líka mikil vöntun á lyklaborði á hana. Argasta! Eyddi næsta klukkutímanum eða svo við að raða aftur upp lyklaborðinu og festa lyklana aftur á. Með mína stóru klunnafingur tekur það drjúgan tíma. URG... Annars er allt gott af mér að frétta. Loksins er þetta ljósrauða ský ánægju og gleði farið að víkja fyrir kaldri sól þunglyndisins. Mmmm... skín á mig þunglynda sól... Ég vissi að þú biðir þarna bak við skýin eftir að baða mig í geislum þínum. (... já, alveg rétt... Gleymdi ég kannski að segja ykkur það? Ég er búinn að vera glaður undanfarnar vikur. Ótrúlega glaður og kátur yfir lífinu. En eins og hljóðfrá þota flaug það yfir áður en þið urðuð þess vör :D) Ég verð bara að sætta mig við að ég get ekki allt og ég get ekki alltaf verið nákvæmlega það sem þarf. Asnalegt samt... Tekur við eymdin enn á ný... Trallalalla... Bah... Ekkert sem maður er óvanur sosum. Fyndið hvað maður heldur að maður ráði við allan andskotann. Svo er maður bara atvinnuklúðrari. Ég verð að fara að hugsa minn gang mjög alvarlega. Ég held að ég sé mesti ógæfumaður sem ég þekki sem ekki reykir, drekkur að ráði, dópar eða fremur aðra stórglæpi... Ógæfa mín er gervöll afleiðing hreinnar heimsku minnar og vankunnáttu í að tækla lífið. Fyndið. Á legsteininn minn skal ritað: Hann Svavar þurfti ekki hjálp neinnar óreglu til að klúðra sínu lífi. :) Ekki það að þið þurfið að hafa neinar áhyggjur, mig langar að lifa a.m.k. 20 ár til viðbótar. Kannski ég noti þennan tíma til að laga til í íbúðinni. Neinei, ég er ekkert aö sökkva í þunglyndi... Bara svona netta melankólíu og trega. Ég get þó huggað mig við það að hún þjónar góðum tilgangi. Bestu Kveðjur, Svabbi [ 0 ] fimmtudagur, nóvember 24, 2005
Surprise Gigg í kvöld... :D
Hey allir saman. Svabbi mætir hress í kveld og spilar á Rósenberg. Tek svona einhverja blandaða dagskrá fyrir lýðinn. Það getur verið að ég nái að hóa Hraun Saman með engum fyrirvara... :D Sjáum hvernig þetta fer... í það minnsta Litla Hraun... Sjáumst við ekki bara hress? Hellakúl :D Bestu Kveðjur, Svavar Knútur [ 0 ]
Hreyfingar framundan...
Dúbb dúbb dúbí... Ég er rosalega lélegur í að selja sjálfan mig... Kann ekkert að notfæra mér þessa nýfengnu "frægð" út af trúbadorakeppninni, svo ég bara svona spila öðru hvoru þegar mér býðst það. Væri alveg til í að spila oftar, þó það væri ekki fyrir neinn svaka pening, bara svona til að vera hress. Bullumsull og sullumdrull... Er að hlusta á Ampop læf í RÚV. Hljómar helvíti vel :D Mæli með því á www.ruv.is/poppland. Hlakka líka til að fara á tónleika með Helga Hrafni góðum dreng. Tillögur um tónleikastaði og mögulega áheyrendur eru alltaf vel þegnar... ég er svo óttalegur lúði hér á ferð... :) Lúbbílúú... Millivaktir eru æðislegar þegar mann langar að sofa pínu út og fara svo á kaffihús og svo mæta í vinnuna og síðan gera eitthvað skemmtilegt já... :D Lífsgleðin hreinlega lekur af mér í dag. Wooohooo! Bestu kveðjur, Svabbi ljúflingur, sem er samt óttalega týndur uppi í skýjunum þessa dagana... [ 0 ] þriðjudagur, nóvember 22, 2005
Hvar væri ég...
...ef ég ætti ekki vini og dygga aðdáendur eins og phentermine, remeron, flomax, zovirax, paroxetine, keflex, vaniqa, fluconazole, cardizem, vicoprofen, flovent, lescol, vardenafil, esomeprazole, online-poker-area, zanaflex, zolpidem, nolvadex og complaints2? Svo ekki sé talað um penis enlargement og cheap mortgages... Guð hvað ég vildi óska að við gætum öll hittst á kaffihúsi... læstu kaffihúsi... og ég með vélsög... ohhh... oh hvað það væri gaman... Mig langar svo að hitta allt þetta góða fólk sem sendir mér allar þessar skemmtilegu orðsendingar í gestabókina, bloggkommentin og tölvupóstinn minn og segja því hvað vinátta þess er mér mikils virði. [ 0 ] mánudagur, nóvember 21, 2005
Þarna var ég...
...í hrókasamræðum við stofnfrumuna mína maður, heyrðu, hver heldurðu að hringi í mig annar en heilafruman mín... Bara heilög þrenning í gangi bara í gemsanum maður lifandi ha! [ 0 ] sunnudagur, nóvember 20, 2005
Trallallallalæ
Jæja krakkar, svona helvíti hressir? Vaknaði kl. 10 í morgun og fór og söbbaði í sunnudagaskólanum í Háteigskirkju. Spilaði undir hjá kórnum og fyrir söng hjá Sunnudagaskólakrökkunum, svaka gaman :D Nú sit ég og skrifa hressar fréttir af hressum stelpum í Nælon sem voru að fagna útgáfu enn eins listaverksins sem þær hafa unnið baki brotnu við að skapa. Það er hressandi að sjá svona skapandi listamenn njóta ávaxta erfiðis síns. Og það úr Garðabænum og allt. Trallallallalæ... Við dóttirin fórum í sund í gær. Ótrúlega myndarleg... Hitti Úlf vin minn áður en við fórum ofan í barnalaugina þar sem ég lék krókódíl fyrir vinkonurnar tvær. En ég þreyttist fljótt og settist í pottinn. Þar virtust vera komnar saman Sameinuðu þjóðirnar á neyðarfundi, því ég heyrði ekki íslensku talaða í 20 mínútur en ég held að ég hafi a.m.k. heyrt spænsku, rússnesku, sænsku, víetnömsku, frönsku og þýsku þangað till ég heyrði kunnuglegan karlahlátur nokkurra gaura í góðu flippi steggjandi vin sinn. Vinurinn klæddur sundbol... Brennivínsstybban úti um allt. Ég dró stelpurnar upp úr til að forða þeim þessari ófrýnilegu sjón. Fyndið samt hvað niðurlægingarritúöl karlmanna virðast oft snúast um það að kvengera þann sem skal niðurlægja. Setja hann í kjól, sundbol, pils, gera hann hommalegan. Meika hann. Drag er einhvers konar gleðiniðurlæging hins gagnkynhneigða karlmanns. Hönnuð til að bæta upp fyrir aldalangt ofbeldi gegn konum. Rosalega algengt að yfirmenn hjá stórum fyrirtækjum taki nett dragsjó á árshátíðinni, svona rétt í staðinn fyrir að rétta hlut kvenna í launum. Ætli konur eigi einhvers konar svipaða niðurlægingarathöfn? Ég hef oft séð "gæsir" annað hvort ofurölvi eða klæddar í einhvers konar dýrabúninga. Er það kannski næsta skref fyrir neðan þá niðurlægingu að vera kona? Guð-Maður-kona-dýr-plöntur-einfrumungar-jarðvegur. Ég velti þessu bara fyrir mér. Anyways, on wit-da show. Ég hlakka svo til í kvöld þegar ég kem heim og fæ að njóta þess besta sem lífið hefur upp á að bjóða... :D mmm... Bestu Kveðjur, Svavar [ 0 ] miðvikudagur, nóvember 16, 2005
Sudoku meistarinn...
Maður er farinn að geta tekið þessar súdókú-gátur með morgunkaffinu... Helvíti fínt... Jafnvel þessar erfiðu á Ferdinandsíðu Moggans. MEÐ PENNA!!! :D Meistarinn!!! YEAH! :D Nú fer ég bara að þróa hæfileika mína á öðrum sviðum, verð brátt meistari í því að kasta boltum milli handanna og geifla mig. Jafnvel að lyfta sitt hvorri augnbrúninni. Ég þoli ekki að geta ekki gert það... Ég mun ná því! Við erum að taka upp júróvisjónlagið smám saman, helvíti gaman... Skemmtilegt lag líka, vekur mikla lukku og gleði. :D Þó það sé dálítið einfalt... Ahh... Djöfull var gaman í gær... Sjáið það vonandi í blaðinu á morgun... Hrikalegur hlemmur sem ég skrifaði... Svo þarf ég aldeilis að rífa mig upp á rassgatinu núna, á eftir að skrifa gestapistil í virt vefrit hér í bæ, setja lista á veggina í íbúðinni, setja upp eldhúsborð og taka svolítið til í íbúðinni. Svo þarf ég að gera herbergið hennar Dagbjartar visthæft... Þetta kemur allt saman... Þið vitið... Gleðileg jól og allt það... Ætli maður verði ekki að fresta Afríkuferðinni í bili... Desember verður nógu erfiður þó ég sé ekki að flýja land... Tékka á því í Febrúar... Ég er að upplifa dálítið sem ég hef aldrei upplifað áður... Og vitiði hvað... ég ætla ekki einu sinni að blogga um það því það er of persónulegt :D Hahahaha!!! Þar hittum við nú á ótrúlegan hlut! Ég er allavegana rosalega ánægður með lífið akkúrat núna þó ég sé blankasti maður sem ég þekki og í tómu rugli fjárhagslega. Mig vantar góðlátan sykurfrænda sem vill gefa mér nokkrar milljónir svo ég geti borgað verstu skuldirnar og öðlast fjárhagslegt frelsi... Eða almennilega launaða vinnu sem ég get stimplað mig út úr kl. 17 með góðri samvisku. Any takers? Bestu Kveðjur, Svavar Knútur hinn ljúfi og ástkæri... [ 0 ] þriðjudagur, nóvember 15, 2005
Of...
Æðisleg helgi að baki gott fólk! En ég hef komist að nokkrum hlutum um sjálfan mig... Og hér kemur sjálfs-klukk Svavars fyrir þessa helgi, þá fyrstu áhyggjulausu í langan tíma... 1: Fólk sem syngur "Skál við syngja Skagfirðingar" á fylleríum vekur hjá mér löngun til að brjóta stóran þungan hlut á hausnum á því. Ég vil sprengja það í loft upp. 2: Geirmundur Valtýsson er and-kristur. 3: Fimm bjórar, heil flaska af Stolla-vodka og ótal sjússar frá ókunnugu fólki, allt á tveimur og hálfum klukkutíma, koma mér á vondan stað, á barmi áfengisdauða með tilheyrandi gubbupest. 4: Sex tímum eftir að ég sofna eftir slíkt fyllerí vakna ég bara helvíti hress og gersamlega laus við þynnku, utan örlítilla ónota í maganum, sem lagast með neyslu hamborgara og franskra kartaflna. Þetta er ánægjuleg staðreynd. 5: Siglufjörður er æðislegur um vetrartímann. Veit ekki um Blönduós... Atkvæðin eru ekki komin inn... ;) Meira seinna... :D [ 0 ] þriðjudagur, nóvember 08, 2005
Kate Moss og ég...
Er ég alveg glataður... Ég hef örugglega séð milljón myndir af Kate Moss í gegnum tíðina... En ég held að ég myndi ekki þekkja hana úti á götu... Er það ekki alveg síðasta sort? [ 0 ]
Urg!
...ranti eytt... nenni ekki að vera með pirring... Best að tala um hvað ég hlakka til að spila á Kaffi Krók á föstudaginn :D Ég var spurður af hverju ég byrjaði svona snemma og hætti svona snemma. Ég benti viðkomandi á orðið "tónleikar" í auglýsingunni. Ég nenni ekki að sitja einn með kassagítar og spila annarra manna lög fyrir blindfullt lið. Það er allt í lagi ef maður er með bandinu sem skemmtir sér bara við það og allir eru kátir, en þegar maður er bara einn með gítarinn, þá er það verra. Nenni því ekki. Vil bara spila mína músík og klára snemma, fara í einn bjór og chilla svo bara. Bestu Kveðjur, Svavar [ 0 ] mánudagur, nóvember 07, 2005
Kunngjörningur...
![]() Ég er að fara norður !!! TRALLALALLALALAAA:D Nú er minn kátur... Ég fer norður næstu helgi og spila á Kaffi Krók á föstudagskvöldið. Svo verður vonandi gist á Skálá og síðan tjúttað á laugardagskvöldið. Humm humm... Hlakka til, en samt pínu blendnar tilfinningar... :) Túrílú öll sömul... Bestu kveðjur, Hr. Svavar [ 0 ]
Annars elska ég...
...þessa litlu poka af tíma sem myndast þegar ég geng í vinnuna á morgnanna. Við Dagbjört röltum saman í skólann hennar kl. 8 og svo tölti ég Harmahlíðina upp í Mogga. Það eru yndislegar morgunstundir. Allir aðrir eitthvað læstir inni í bílunum sínum í stressköstunum og ég bara syngjandi glaður að raula eitthvað með sjálfum mér, alveg út úr heiminum í morgunmyrkrinu. Þá fer hausinn á manni af stað og maður fer að hugsa um hvað maður er heppinn og æðislegur að fá þann lúxus að lifa lífi þar sem mann skortir í grundvallaratriðum ekki neitt. Ég fór líka að pæla í einu, spurning hvort þið kannist við það: Maður á það til að vera mjög viðkvæmur fyrir því í öðru fólki sem maður ætlast hvað mest til að aðrir umberi í manni sjálfum. Ég á mér fullt af "vandamálum", sem ég vona að fólk umberi, en svo á ég í mestu vandræðum við að þola þessa sömu hluti í öðru fólki. Oh! Ég vona bara að mér beri gæfa til þess að þroskast upp úr þessu áður en ég eyðilegg eitthvað gott. En nóg um það. Ferska loftið sem blæs inn um gluggann minn gefur til kynna að auglýsingadeildin sé ekki enn farin út í skyldubundna reykpásu sína. Þetta lítur út fyrir að ætla að verða góður dagur og mig langar í stuttan en góðan göngutúr með spjalli í hádeginu... Any takers? Mmmm... Ég ætla norður næstu helgi. Norður í Skagafjörð og jafnvel á Siglufjörð. Gista jafnvel á Skálá eina nótt. Mig langar að spila einhvers staðar fyrir norðan einn með kassagítarinn á föstudagskvöldið. Maður þarf að skoða það... p.s. Hef ég sagt ykkur hvað ég er geðveikt stoltur af henni Pálínu? Hún er stórkostleg stúlka og mér finnst hún bara með því frábærara sem ég hef kynnst. Og hún er líka ótrúlega sterk og sjálfstæð og góð vinkona. Áfram Pálína! [ 0 ]
Ofur-ég...
Það er í tísku að segja að það sé ekkert merkilegt við það að karlar vinni heimilisstörf og annist börnin sín, það sé bara eðlileg krafa á þá og konur geri þetta og blablabla. Ég segi nú bara Áfram ég! Og en hvað ég er ánægður með sjálfan mig að geta þetta :D Það er bara meira en að segja það fyrir karlmann sem hefur aldrei alist upp með dúkkur eða barnapössunarfasann þegar hann var 12 ára að halda utan um svona hluti. Ég er bara stoltur og ánægður með það hvað mér gengur þó vel að þvo þvott, vaska upp, þrífa íbúðina, taka til, gæta þess að Dagbjört sé hrein, vel nærð og lærð fyrir skólann, vakni snemma, borði morgunmat og fari í skólann með vel burstaðar tennur. Sorrí femínistar. Ég veit þið vilduð óska að þetta væri öðruvísi en það er bara helvítis trukk fyrir karlmann, alinn upp sem slíkan að gera þetta og það er meira en að segja það og fyrir það er ég bara stoltur :D Það má bara alveg vera ánægður með þetta. Ég veit að konur geta þetta allt saman með 150% vinnu og þurfa líka að vakna klukkutíma fyrr til að setja á sig andlitið, en það kemur mér ekki við. Ég get pissað standandi og fagna hverri konu sem nær þeim árangri í lífinu. Ég segi ekki: "Puh, þetta hef ég nú gert í mörg ár!" Eina sem ég gæti hugsað mér öðruvísi væri að Dagbjört væri sonur, svo hann gæti séð að þetta sé eitthvað sem karlmenn geta og eiga að geta, fyrir sína framtíð. En það er þó bót í máli að Dagbjört, sem stúlka, fær að sjá það að karlmenn þurfa ekki að liggja í leti og eru ekki vanhæfir um barnauppeldi og ég vona að hún geri þá kröfu til síns framtíðarmanns. Nú gæti ég bara óskað mér örlítið meiri tíma fyrir sjálfan mig, en það er nú bara lúxus og eigingirni, svo ég ætla að halda áfram að berja fréttir inn í kerfið og drulla mér heim þegar klukkan slær 16.30. OG HANANÚ! Bestu Kveðjur, Svavar Knútur [ 0 ] laugardagur, nóvember 05, 2005
Miðnæturmelankólía...
![]() Hr. Svavar er eitthvað melankólískur núna... Það er nú ekki annað en daglegt brauð... Það var samt gaman að spila áðan með Hraun fyrir Viðskiptafræðingana... En það var líka fyndið að horfa á hnakkaliðið streyma inn á Hverfisbarinn þegar við vorum nýbúnir að spila, einkennisklætt í alíslenska djammgallann. Sorrí, þetta lið er allt eins, og ég þekki ekki stelpurnar í sundur í þessum göllum og með þetta lúkk í gangi og hvað þá með strákana, þetta lið er allt eins! :D Allir klæddir eins og þeir séu á leið í fermingarveislu. Og strákarnir labba eins og górillur og segja aktúallí Dzeng! Ég get svarið það... En viðskiptafræðingarnir voru samt fínir :D dönsuðu og voru kátir og sungu með. Annars er maður bara svona líka þunglyndur og fínn. Ég held að fólk verði að gera greinarmun á þunglyndi og þunglyndi. Þ.e.a.s. depression og melancholy. Sjálfsvorkunn og almennri depurð. Ég er bara dapur. Ég er ekkert að vorkenna sjálfum mér, það er bara einhver svona notaleg sorg og depurð sem gagntekur mig öðru hvoru, svona heimsangist. Svo pirrar það mig auðvitað hvað ég get verið leiðinleg týpa. Ég dansa ekkert að ráði, drekk lítið, reyki ekki og hef mest gaman að því að lesa bækur og spila á kassagítar og jafnvel sitja með góðum vinum og spjalla yfir kaffisopa... Guð minn góður hvað ég er leiðinlegur maður! Sjitt! Kannski er ég svona rólegur í tíðinni alltaf af því ég fæ útrás fyrir tilfinninga- og djammþörf mína á sviði með kassagítar í höndunum. Það er samt pínu þroskaheft eitthvað að geta ekki djammað með vinum sínum, þið vitið, bara að drekka sig fullan og hafa engar áhyggjur. Bara sleppa sér. Ég er alltaf að hugsa um morgundaginn og þá ábyrgð sem tekur við þá. Ég get t.d. ekki hugsað mér að mæta dóttur minni þunnur eða illa fyrir kallaður. Og talandi um það, best að fara að sofa, svo maður sé nú ferskur þegar mín ljúfa skylda kallar í fyrramálið :D Trallalalalala :) Góða nótt elskurnar mínar, ykkar sorgmæddi og angurværi, Svavar Knútur p.s. Fyrir ykkur sem þekkið mig bara í bloggheimum. Ég kalla mig ekki Muzak. Það var bara vinnuheitið á þessu bloggi af því email addressan mín var og er muzak@simnet.is Jú, ég notaði stundum "dulnefnið" hr. Muzak, en hef alveg fyrir þremur árum skipt því út fyrir Hr. Svavar, sem mér finnst miklu fínna :D Svo ef þið heilsið mér einhvers staðar, sem mér finnst sko alltaf gaman, þá endilega heilsiði mér bara "Sæll Svavar" en ekki "Sæll Muzak." Annars ætlaði ég ekkert að röfla, bara svona hressileg ábending til ykkar. :) Helvítis Kaffi og sígarettureykur... Mér líður eins og reyktri Cappucino skinku. [ 0 ] fimmtudagur, nóvember 03, 2005
Allt að koma í Barmahlíðinni.
Jæja... :D Það er að komast regla á hlutina. Íbúðin öll að verða fínni, fyrir utan lista og smá loftljósapælingar sem þarf að laga. Ég keypti þröskuld í ljótt gat sem var milli holsins og eldhússins í Húsasmiðjunni og eftir miklar göngur milli Pílatusar og Heródesar fékk ég hann loksins sagaðan. Mig minnti að gatið væri 84 sm, en ég bað gaurinn um að saga í 84,5 til öryggis, svo ég myndi bara stytta ef þetta væri of breitt. Bad Idea... Þegar ég kom heim kom í ljós að þröskuldurinn var akkúrat 5 mm of breiður... Svo minn sagaði... Og reyndi aftur... Enn vantaði 1 mm... Svo ég nennti ekki að saga meira og greip hamar... Og ég barði og barði og hlunkaðist á þröskuldinum... Steypubrotin fljúgandi út um allt hávaði og læti og ég öskrandi: "HAFÐU ÞETTA HELVÍTIÐ ÞITT! GAAA!" Það flísaðist dálítið upp úr þröskuldinum nýja (3.000 kr. stykki) og hann beyglaðist allur og brotnaði, en hann passar svona líka vel í falsið núna... Og svo stingur hann ekkert í stúf við restina af íbúðinni, sem lítur út fyrir að vera 40 ára gömul... Ég er skítblankur... skulda mörg hundruð þúsund og er bara í tómu rugli... En það er ágætt... Mig langar að vera svona, mér finnst það gott. Hlakka bara til að fá einhvern í heimsókn og bjóða í te. Ef einhver á hraðsuðuketil yrði ég rosa kátur... :D Og nú er Pabbavika númer þrjú byrjuð, við feðginin komin í býsna góða rútínu og stöndum okkur vel. Hún liggur hér við fætur mér í vinnunni og leysir súdókúgátur eins og brjálæðingur! :D Ég á svo klára dóttur. Ég er ofsalega stoltur Pabbi. :D Og svo teiknar hún geðveikt fyndnar myndir af klósettkallinum og fleiri stórkostlegum karakterum. Bestu kveðjur, Svavar Viðbót: Ú! Ú! ég er líka geðveikt ánægður með nýju mottuna mína sem ég keypti á 995 kr. í Rúmfatalagernum. It really ties the room together... Nú vona ég bara að það komi engir níhílistar í heimsókn og mígi á hana... [ 0 ] þriðjudagur, nóvember 01, 2005
Ég mun hverfa...
[ 0 ] |
Eva
Örn "Mugison"
Elias Tónlistarmönnum sem gefa tónlist
sína á netinu er velkomið að hafa samband
við Hr. Muzak og þá bæti ég þeim
á listann.
Laukurinn rúlar
Dr. Gunni
| ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||